Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.akureyri.is/is/frettir/ur-fjorunni-til-fjarlaegra-landa
Úr Fjörunni til fjarlægra landa Síðastliðinn laugardag opnaði forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sýninguna "Úr Fjörunni til fjarlægra landa" í Amtsbókasafninu á Akureyri. Sýningin fjallar um einn merkasta rithöfund Íslendinga og einn frægasta Akureyring fyrr og síðar, Jón Sveinsson, Nonna. Æskuminningar Nonna úr ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/enn-fjolgar-akureyringum
Enn fjölgar Akureyringum Á fyrstu þremur fjórðungum ársins 2004 hafa 49 fleiri flutt til Akureyrar en frá bænum samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands. Fólkið sem hingað flytur kemur flest frá nágrannasveitarfélögunum en einnig frá útlöndum. Þeir sem flytjast á brott fara til annarra landssvæða, líklega höfuðborgarsvæðisi...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nytt-nafn-a-oldrunarstofnanir-baejarins
Nýtt nafn á öldrunarstofnanir bæjarins Niðurstaða í samkeppni um nýtt yfirheiti á öldrunarstofnanir Akureyrarbæjar liggur nú fyrir. Þegar hugmyndirnar sem fram komu í samkeppninni voru skoðaðar, reyndist erfitt að tengja tillögurnar þeim nöfnum sem fyrir voru, þ.e.a.s. Bakkahlíð, Hlíð, Kjarnalundur og Skjaldarvík. Að v...
https://www.akureyri.is/is/frettir/rannsoknarhusid-ollum-opid-fra-kl-16-18
Rannsóknarhúsið öllum opið frá kl. 16-18 Nýbyggt Rannsóknar- og nýsköpunarhús á Sólborg var formlega tekið í notkun í dag og er gestum og gangandi boðið að skoða húsakynnin og þiggja kaffiveitingar frá kl. 16-18. Bæjarbúar eru sérstaklega boðnir velkomnir og hvattir til að nota tækifærið og skoða þetta glæsilega hús. E...
https://www.akureyri.is/is/frettir/meirihluti-akureyringa-hlynntur-storidju
Meirihluti Akureyringa hlynntur stóriðju Í könnun sem Gallup gerði nýlega fyrir Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar kemur fram að 62,6% íbúa á Akureyri og nágrenni (póstnúmer 600, 601 og 603) eru hlynnt uppbyggingu stóriðju í Eyjafirði, 26,3% eru andvíg en 11,1% taka ekki beina afstöðu. Ef niðurstöðurnar eru skoðaðar eingö...
https://www.akureyri.is/is/frettir/boyle-fjolskyldan-syningarlok
Boyle-fjölskyldan - sýningarlok! Sunnudaginn 24. október lýkur sýningu á verkum Boyle-fjölskyldunnar í Listasafninu á Akureyri. Sýningin var opnuð á Akureyrarvöku af forsætisráðherrafrú Bretlands Cherie Blair og sendiherra Bretlands á Íslandi Alp Mehmet. Boyle-fjölskyldan samanstendur af þeim Mark Boyle (f. 1934 í Glas...
https://www.akureyri.is/is/frettir/foreldrar-bestir-i-forvornum
Foreldrar bestir í forvörnum Nýir auglýsingaborðar eru komnir á strætisvagna Akureyrar með áletrunum "Mamma er mín fyrirmynd - foreldrar eru bestir í forvörnum" og "Pabbi er mín fyrirmynd - foreldrar eru bestir í forvörnum". Áfengis- og vímuvarnanefnd Akureyrarbæjar vill með þessum skilaboðum vekja foreldra til umhugsu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kunnur-stridsfrettaritari-a-akureyri
Kunnur stríðsfréttaritari á Akureyri Hinn heimskunni breski blaðamaður og stríðsfréttaritari Tim Judah er nú staddur á Akureyri og heldur opinberan fyrirlestur á Félagsvísindatorgi á vegum Félagsvísinda- og lagadeildar Háskólans í hádeginu á morgun, miðvikudag. Fyrirlesturinn verður haldinn í Salnum, í húsakynnum Háskó...
https://www.akureyri.is/is/frettir/patrick-huse-i-listasafninu
Patrick Huse í Listasafninu ?Inúítinn á selveiðum er betri fyrirmynd en stórborgarbúinn sem ver drjúgum hluta hvers dags við að hlaupa milli neðanjarðarlestanna.? - Patrick Huse Á morgun verður opnuð í Listasafninu á Akureyri sýningin "Encounter" sem samanstendur af málverkum, ljósmyndum, hreyfimyndum og textum og fjal...
https://www.akureyri.is/is/frettir/jakvaedur-andi-eflir-nyskopun
Jákvæður andi eflir nýsköpun Ný rannsókn á vegum Byggðarannsóknastofnunar leiðir í ljós að þau viðhorf og sá almenni samfélagsandi sem ríkjandi er í nánasta umhverfi fyrirtækja á landsbyggðinni skiptir verulegu máli fyrir það hversu virk þau eru í nýsköpunarstarfi. Höfundar skýrslunnar munu kynna hana á Félagsvísindato...
https://www.akureyri.is/is/frettir/360-manna-kor-a-heklumoti
360 manna kór á Heklumóti Næsta laugardag verða haldnir stórtónleikar íslenskra karlakóra í KA-húsinu á Akureyri undir yfirskriftinni Heklumótið. Hekla er samband norðlenskra karlakóra og er þetta í sextánda sinn sem mótið er haldið. Á tónleikunum koma fram níu karlakórar sem syngja hver fyrir sig og loks hefja um 360 ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/shirin-ebadi-gerd-ad-heidursdoktor
Shirin Ebadi gerð að heiðursdoktor Íranski mannréttindafrömuðurinn dr. Shirin Ebadi tekur við heiðursdoktorsnafnbót félagsvísinda- og lagadeildar Háskólans á Akureyri laugardaginn 6. nóvember. Af því tilefni verður athöfn og ráðstefna í Ketilhúsinu við Kaupvangsstræti á Akureyri kl. 10-16.30. Mannréttindalögfræðingurin...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vidtalstimar-baejarfulltrua-hafnir
Viðtalstímar bæjarfulltrúa hafnir Viðtalstímar bæjarfulltrúa Akureyrarbæjar eru hafnir og eru þeir haldnir að jafnaði hálfsmánaðarlega milli kl. 17 og 19 í Ráðhúsinu, Geislagötu 9, á fyrstu hæð. Í viðtalstímunum gefst bæjarbúum kostur á að ræða augliti til auglitis við bæjarfulltrúa og koma sjónarmiðum sínum á framfæri...
https://www.akureyri.is/is/frettir/menntasmidja-kvenna-10-ara
Menntasmiðja kvenna 10 ára Menntasmiðja kvenna á 10 ára afmæli um þessar mundir og af því tilefni er öllum sem vilja fagna tímamótunum boðið í afmæliskaffi í húsakynni Menntasmiðjunnar á Akureyri að Glerárgötu 28, 3. hæð, millli kl. 14 og 17 á morgun, laugardag. Af sama tilefni er konum boðið að stíga á stokk og tjá si...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nidurstodur-ibuathingsins-a-vefnum
Niðurstöður íbúaþingsins á vefnum Fjölmennt íbúaþing var sem kunnugt er haldið í september á Akureyri sem hluti af átakinu "Akureyri í öndvegi". Nú hafa niðurstöður þingsins verið birtar í ítarlegri greinargerð. Margt athyglisvert má lesa þar, meðal annars þetta í ágripi helstu niðurstaðna: "Á þinginu kom glöggt fram a...
https://www.akureyri.is/is/frettir/la-frumsynir-ausu-stolana
LA frumsýnir Ausu & Stólana Leikfélag Akureyrar frumsýnir leikritin "Ausu" og "Stólana" næsta fimmtudagskvöld í samvinnu við Leikfélag Reykjavíkur. Ilmur Kristjánsdóttir, sem fer með hlutverk Ausu, er tilnefnd til Edduverðlaunanna fyrir leik sinn í kvikmyndinni Dís. Ausa er engin venjuleg manneskja. Hún er níu ára einl...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nytt-gonguleidakort-gefid-ut
Nýtt gönguleiðakort gefið út Út er komið kort sem sýnir nokkrar sérvaldar gönguleiðir á Akureyri. Á kortinu eru sýndar sex fallegar og fjölbreytilegar leiðir um bæinn. Lengd þeirra er mjög mismunandi, allt frá 15,8 km sem nær frá Kjarnaskógi í suðri og norður að Hengingarklauf við Sandgerðisbót og niður í 1,4 km um syð...
https://www.akureyri.is/is/frettir/brahms-og-schumann-a-tonleikum
Brahms og Schumann á tónleikum Næsta sunnudag heldur Sinfóníuhljómsveit Norðurlands tónleika í Glerárkirkju kl 16. Á efnisskrá eru tvö verk; sellókonsert eftir Robert Schumann og sinfónía nr. 4 í e-moll op. 98 eftir Johannes Brahms. Einleikari á tónleikunum er sellóleikarinn Nicole Vala Cariglia. Nicole Vala hóf nám í ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/jonas-vidar-i-deiglunni
Jónas Viðar í Deiglunni Nú stendur yfir í Deiglunni sýning myndlistarmannsins Jónasar Viðars þar sem hann sýnir ný málverk úr myndröðinni "Portrait of Iceland". Sýningin stendur fram á sunnudag og er opin daglega frá kl. 14-18. Jónas Viðar (f. 1962) stundaði nám við Myndlistaskólann á Akureyri 1983-1987 og framhaldsnám...
https://www.akureyri.is/is/frettir/baer-i-barnsaugum-2
Bær í barnsaugum Komin er út skýrsla um verkefnið "Bær í barnsaugum" sem unnið var hér á Akureyri í vor. Tíu leikskólar ásamt skóladeild Akureyrar og skólaþróunarsviði Háskólans, tóku höndum saman um þetta skemmtilega verkefni sem lauk með sameiginlegri listsýningu föstudaginn 28. maí 2004 í miðbæ Akureyrar. Markmið ve...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ar-i-skjolum-1974
Ár í skjölum - 1974 Á laugardag verður opnuð í Héraðsskjalasafninu á Akureyri sýningin "Ár í skjölum - 1974" en hún er haldin í tilefni Norræna skjaladagsins 13. nóvember. Sýningin stendur í viku og verður opin frá kl. 12-17 á laugardag og 10-19 mánudag til föstudags. Frá því árið 2001 hafa opinber skjalasöfn á Norðurl...
https://www.akureyri.is/is/frettir/oliver-twist-utgafuhatid
Oliver Twist útgáfuhátíð Bókval mun í samstarfi við Leikfélag Akureyrar og JPV útgáfu standa fyrir veglegri útgáfuhátíð vegna bókarinnar um Oliver Twist kl. 16 í dag. Boðið verður upp á súpu að hætti Fagins þar sem nóg verður í boði fyrir alla gesti og hver veit nema gestir "megi fá meira!". Hátíðin verður haldin í Bók...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hugarafl-malthing-a-laugardag
Hugarafl - málþing á laugardag Nýtt afl leysist úr læðingi þegar fagmenn og notendur geðheilbrigðisþjónustu vinna saman á jafningjagrunni. Þetta er efni málþings sem haldið verður í Ketilhúsinu (ekki Deiglunni eins og áður hefur verið auglýst) laugardaginn 13. nóvember kl. 14-17. Fyrirlesarar verða: Elín Ebba Ásmundsdó...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samfelagsthroun-jafnretti-og-umhverfismal
Samfélagsþróun, jafnrétti og umhverfismál Jafnréttisstofa gengst fyrir ráðstefnu um samfélagsþróun, jafnrétti og umhverfismál nú um helgina. Ráðstefnan fer fram í nýja rannsóknarhúsinu að Borgum við Norðurslóð. Spurt er hver sé framtíð kvenna og karla í jaðarbyggðum Norðurskautssvæðisins. Sjónum er beint að mögulegum s...
https://www.akureyri.is/is/frettir/matvaelarannsoknir-allar-i-eina-stofnun
Matvælarannsóknir allar í eina stofnun Stefnt er að sameiningu allra opinberra matvælarannsókna í eina stofnun sem heyra mun undir sjávarútvegsráðuneytið. Þetta kom fram í ræðu Árna M. Mathiesen, sjávarútvegsráðherra, á haustfundi Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins á föstudag. Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar fagnar fram...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sjalfstjorn-frumbyggja-i-kanada
Sjálfstjórn frumbyggja í Kanada Í erindi sínu á Lögfræðitorgi á morgun fjallar Jane George um reynsluna af sjálfstjórn frumbyggja í Nunavut og landakröfur þeirra á svæðinu. Hún spáir einnig í framtíðarmöguleika Nunavut og ræðir þau verkefni sem bíða íbúanna á komandi árum. 1. apríl árið 1999 gengu í gildi lög um sjálfs...
https://www.akureyri.is/is/frettir/allir-grunnskolanemar-i-leikhus
Allir grunnskólanemar í leikhús! Núna í vikunni munu allir nemendur í 8. 9. og 10. bekkjum í grunnskólum á Eyjafjarðarsvæðinu koma í leikhús og sjá leiksýninguna Ausu Steinberg sem sýnd er hjá Leikfélagi Akureyrar. Nemendurnir koma á sýningu með kennurum sínum. Margir kennaranna ætla að nota sýninguna í framhaldinu við...
https://www.akureyri.is/is/frettir/olympiuleikar-ungra-frumkvodla
Ólympíuleikar ungra frumkvöðla Impra nýsköpunarmiðstöð stendur fyrir þátttöku Íslands í Ólympíuleikum ungra frumkvöðla (Global Enterprise Challenge) 17.-18. nóvember með stuðningi Akureyrarbæjar. Keppnin er nú haldin í þriðja skipti og er hún skipulögð af Careers Scotland en auk Íslands keppa Skotland, Nýja Sjáland, Ba...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kaupstadarferd-i-hlid
Kaupstaðarferð í Hlíð Mikil og góð stemmning var í Hlíð síðasta laugardag þegar á fjórða hundrað manns komu á markaðstorg þar. Nokkur fyrirtæki úr bænum og handverksfólk voru með vörur til sölu. Hægt var að fata sig upp eða kaupa gjafavöru. Pálmi í Tónabúðinni kynnti nýútkominn geisladisk sem hefur að geyma harmónikkut...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vetrarsport-2005-i-hollinni
Vetrarsport 2005 í Höllinni Um helgina verður útilífssýningin Vetrarsport 2005 haldin í Íþróttahöllinni á Akureyri. Sýningin hefur skapað sér fastan sess meðal útivistarfólks, enda er þar til sýnis mikið úrval alls kyns búnaðar, tækja og varnings sem viðkemur vetrarsporti. Þetta er í átjánda sinn sem sýningin er haldin...
https://www.akureyri.is/is/frettir/aukadagur-i-hundahreinsun
Aukadagur í hundahreinsun Aukadagur verður í hundahreinsun á Akureyri föstudaginn 19. nóvember frá kl. 16–19 í lagerhúsi Framkvæmdamiðstöðvar að Rangárvöllum. Við hreinsun skal framvísa greiðslukvittun vegna ábyrgðartryggingar hundsins. Greiðslukvittun vegna hundaleyfis er óþörf að þessu sinni. Hafi hundurinn verið hre...
https://www.akureyri.is/is/frettir/forsala-a-oliver-bok-i-kaupbaeti
Forsala á Óliver - bók í kaupbæti Á morgun, fimmtudaginn 17. nóvember, hefst forsala á jólasýningu Leikfélags Akureyrar, Óliver. Fyrstu 150 sem kaupa miða á sýninguna fá bókina um Óliver Twist í kaupbæti en hún var endurútgefin af JPV útgáfu nú fyrir helgi. Söngleikurinn Óliver er löngu orðinn sígildur og með vinsælust...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samar-allra-landa-sameinist
Samar allra landa sameinist Föstudaginn 19. nóvember heldur Stefan Mikaelsson, varaforseti Samaráðsins, fyrirlestur við Háskólann á Akureyri þar sem hann fjallar um réttindabaráttu Sama og stöðu frumbyggja á norðurslóðum. Samar, líkt og aðrir frumbyggjar víða um heim, eiga undir högg að sækja í baráttunni við óblíða ná...
https://www.akureyri.is/is/frettir/einn-tveir-og-nu-6
Einn, tveir og nú! Í gær voru afhent í annað skipti verðlaun fyrir þátttöku í heilsueflingarátaki Heilsueflingarráðs Akureyrar “Einn, tveir og nú!” sem hefur að markmiði að hvetja bæjarbúa til aukinnar hreyfingar og samveru. Einkum er átakinu ætlað að virkja börn á grunnskólaaldri og foreldra þeirra til reglulegrar hre...
https://www.akureyri.is/is/frettir/baroninn-og-barn-ad-eilifu
Baróninn og Barn að eilífu Á þriðjudag koma tveir góðir gestir í Amtsbókasafnið á Akureyri og lesa úr nýútkomnum bókum sínum. Það eru þeir Sigmundur Ernir Rúnarsson sem les úr bókinni "Barn að eilífu" og Þórarinn Eldjárn les úr bók sinni "Baróninn". Í "Barn að eilífu" rekur höfundur sögu fjölskyldu sinnar með fatlað ba...
https://www.akureyri.is/is/frettir/matvaelarannsoknir-a-nordurlandi
Matvælarannsóknir á Norðurlandi Háskólinn á Akureyri og Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins boða til fundar og pallborðsumræðna um matvælarannsóknir á þriðjudag. Fundurinn verður haldinn í stofu 316 í Borgum, hinu nýja rannsókna- og nýsköpunarhúsi HA á Sólborg, Akureyri og er áformað að hann standi frá kl. 13 -17. Sjávarút...
https://www.akureyri.is/is/frettir/baejarstjori-alasunds-i-heimsokn
Bæjarstjóri Álasunds í heimsókn Bæjarstjóri og forseti bæjarstjórnar í Álasundi, Arve Tönning, var í heimsókn á Akureyri síðasta föstudag, en Álasund er sem kunnugt er vinabær Akureyrar í Noregi. Tönning kom á fund í Ketilhúsinu með bæjarfulltrúum og embættismönnum bæjarins og kynnti þær breytingar sem gerðar voru nýle...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sungid-fyrir-mommu
Sungið fyrir mömmu Stórsöngvarar með Kristján Jóhannsson í broddi fylkingar sungu fyrir fullum sal í Hlíð á mánudagskvöld. Þar voru á ferðinni, auk Kristjáns, bróðir hans Jóhann Már Jóhannsson og stórfrændi þeirra bræðra, Örn Viðar Birgisson. Þeir voru þangað komnir til að syngja fyrir móður bræðranna, Fanneyju Odddgei...
https://www.akureyri.is/is/frettir/baerinn-i-jolabuning
Bærinn í jólabúning Starfsmenn Akureyrarbæjar eru nú í óða önn að koma bænum í jólabúninginn og á laugardag verður kveikt á jólatrénu á Ráðhústorgi sem er gjöf frá vinabænum Randers í Danmörku. Athöfnin hefst kl. 16 og er dagskráin þessi: Kl. 15.55 Lúðrasveit Akureyrar leikur létt lög. Kl. 16.10 Kór eldri borgara ásamt...
https://www.akureyri.is/is/frettir/adsoknarmet-hja-la
Aðsóknarmet hjá LA Í síðustu viku var slegið aðsóknarmet hjá Leikfélagi Akureyrar en aldrei hafa fleiri sótt sýningar í samkomuhúsinu en þessa viku. Á níu dögum voru þrettán sýningar í húsinu og samtals voru gestir 2.540 en uppselt var á nær allar sýningarnar. Flestir gestanna komu í leikhúsið til að sjá Ausu og Stólan...
https://www.akureyri.is/is/frettir/althjodaleikar-ungra-frumkvodla
Alþjóðaleikar ungra frumkvöðla Alþjóðaleikum ungra frumkvöðla (áður Ólympíuleikar ungra frumkvöðla) lauk formlega fimmtudaginn 18. nóvember kl. 16.00. Verkefnið sem keppnisliðin þurftu að leysa þetta árið var að hanna og búa til frumgerð af gagnvirkum sýningargrip eða tæki sem ætlunin var stilla upp í tæknideild safns ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/tillaga-ad-breytingum-a-deiliskipulagi-naustahverfi-husge
Tillaga að breytingum á deiliskipulagi: Naustahverfi - húsgerð við Skálatún o.fl. Með vísan til 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga auglýsir Akureyrarbær hér með tillögu að breytingum á deiliskipulagi 1. áfanga Naustahverfis, upphaflega samþykktu í bæjarstjórn 23. apríl 2002, síðast breyttu með samþykkt bæjarst...
https://www.akureyri.is/is/frettir/tjaningarfrelsid-og-fridhelgi-einkalifsins
Tjáningarfrelsið og friðhelgi einkalífsins Á lögfræðitorgi næsta þriðjudag flytur Sigríður Rut Júlíusdóttir, lögmaður, fyrirlestur um mörk tjáningarfrelsis og friðhelgi einkalífs með áherslu á umfjöllun um opinberar persónur. Skoðaðir eru dómar Mannréttindadómstóls Evrópu og fjallað um áhrif þeirra á íslenskan rétt. Ei...
https://www.akureyri.is/is/frettir/jolatred-a-radhustorgi-2
Jólatréð á Ráðhústorgi Í dag voru ljósin á jólatrénu á Ráðhústorgi tendruð en tréð er gjöf frá vinabæ Akureyrar í Danmörku, Randers. Fjölmenni var á torginu við athöfnina. Lúðrasveit Akureyrar lék nokkur lög, Helgi Jóhannesson, konsúll Dana á Akureyri sagði nokkur orð, Kór eldri borgara söng og bæjarstjórinn, Kristján ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fundur-med-vidskiptafulltrua-i-paris
Fundur með viðskiptafulltrúa í París Mánudaginn 13. desember býðst fulltrúum norðlenskra fyrirækja að hitta viðskiptafulltrúa Íslands í París, Unni Orradóttur Ramette, og kynna sér möguleika á viðskiptum í sunnanverðri Evrópu, en umdæmislönd viðskiptafulltrúans eru Frakkland, Ítalía, Spánn, Portúgal, Andorra og San Mar...
https://www.akureyri.is/is/frettir/meiri-sol-i-hol
Meiri sól í hól Sýningin "Sól í hól" sem opnuð var í gömlu kartöflugeymslunni um seinustu helgi verður framlengd vegna fjölda áskoranna. Listamennirnir Ólöf Sigríður Davíðsdóttir og Jóhann Ingimarsson, Nói, eru með listmuni til sýnis í gömlu kartöflugeymslunni í Gilinu sem til stóð til að rífa en á nú að endurbyggja og...
https://www.akureyri.is/is/frettir/tonleikar-til-styrktar-maedrastyrksnefnd
Tónleikar til styrktar Mæðrastyrksnefnd Á fimmtudagskvöld verða verða haldnir tónleikar í Akureyrarkirkju til styrktar Mæðrarstyrksnefnd Akureyrar. Kvennakór Akureyrar heldur tónleikana ásamt Stúlknakór Akureyrarkirkju og Kór Glerárkirkju. Á efnisskrá kóranna verða jólalög og önnur þekkt lög sem eiga vel við á þessum á...
https://www.akureyri.is/is/frettir/formleg-vinna-vid-vaxtarsamning-eyjafjardar-hafin
Formleg vinna við Vaxtarsamning Eyjafjarðar hafin Með undirritun Vaxtarsamnings Eyjafjarðar í júní síðastliðnum var stigið skref til markvissrar atvinnuuppbyggingar og nýsköpunar á Eyjafjarðarsvæðinu á komandi árum. Síðan þá hefur tíminn verið nýttur til undirbúnings og skipulags verkefnisins en sem kunnugt er mun verk...
https://www.akureyri.is/is/frettir/leikskolar-fa-1000000-i-styrk
Leikskólar fá 1.000.000 í styrk Kristnihátíðarsjóður hefur veitt verkefninu "Lífsleikni í skóla - kennsluleiðbeiningar" sem unnið hefur verið að á leikskólunum Krógabóli, Síðuseli og Sunnubóli styrk að upphæð 1.000.000 kr. Leikskólarnir þrír hafa undanfarin þrjú ár unnið að þróunarverkefninu og er hafin vinna við kenns...
https://www.akureyri.is/is/frettir/dagur-tonlistarmenningar
Dagur tónlistarmenningar „Hvar ertu tónlist" er yfirskrift dags tónlistarmenningar sem haldinn verður á Akureyri á laugardag. Tónlistarfélag Akureyrar og Gilfélagið leiða saman hesta sína og bjóða upp á tónlistarflutning í Ketilhúsinu frá klukkan eitt til sex. Fram koma flestir ef ekki allir kórar sem starfandi eru á A...
https://www.akureyri.is/is/frettir/afmaelissyning-iba
Afmælissýning ÍBA Á morgun, laugardaginn 4. desember, býður Íþróttabandalag Akureyrar til veglegar afmælissýningar í íþróttahúsi Síðuskóla í tilefni af 60 ára afmæli bandalagsins nú í desember. Sýningin stendur allan daginn, frá kl. 10 til 17. Til hliðar við kynningarbása verða margháttaðar uppákomur. Kristján Þór Júlí...
https://www.akureyri.is/is/frettir/maedrastyrksnefnd-hlytur-vidurkenningu
Mæðrastyrksnefnd hlýtur viðurkenningu Í dag veitti jafnréttis- og fjölskyldunefnd Mæðrastyrksnefnd Akureyrar viðurkenningu fyrir gott starf að málefnum fjölskyldna. Stjórn Mæðrastyrksnefndar Akureyrar ásamt Gerði Jónsdóttur og Tryggva Þór Gunnarssyni úr jafnréttis- og fjölskyldunefnd Akureyrarbæjar. Jafnréttis- og fjöl...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyrarbaer-og-eyjafjardarsveit-deiliskipulag-osholma-eyja
Akureyrarbær og Eyjafjarðarsveit: Deiliskipulag óshólma Eyjafjarðarár Með vísan til 25. greinar skipulags- og byggingarlaga auglýsa Akureyrarbær og Eyjafjarðarsveit í sameiningu tillögu að deiliskipulagi óshólmasvæðis Eyjafjarðarár. Skipulagssvæðið sem er um 9 km2 að stærð afmarkast að norðan af Leiruvegi, að austan af...
https://www.akureyri.is/is/frettir/tillogur-ad-deiliskipulagi-og-breytingu-a-adalskipulagi-aku
Tillögur að deiliskipulagi og breytingu á aðalskipulagi: Akureyrarflugvöllur Akureyrarbær auglýsir hér með tillögu að breytingu á aðalskipulagi skv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga, og tillögu að deiliskipulagi skv. 25. gr. sömu laga. Tillögurnar fjalla báðar um Akureyrarflugvöll og næsta nágrenni hans. Tillaga að ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/adventutonleikar-sinfoniunnar
Aðventutónleikar Sinfóníunnar Aðventutónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands verða í Akureyrarkirkju sunnudaginn 12. desember kl. 16. Efnissvalið er tengt jólunum og ætti að höfða vel til barna. Það er því tilvalið fyrir fjölskylduna að eiga góða stund saman á aðventunni með því að fara á tónleika. Tónleikarnir hefj...
https://www.akureyri.is/is/frettir/amtsbokasafnid-hlaut-vidurkenningu
Amtsbókasafnið hlaut viðurkenningu Amtsbókasafnið á Akureyri hlaut viðurkenninguna "Lofsvert lagnaverk 2003" og afhenti Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, viðurkenningar til þeirra sem unnu að lagnaverki í safninu afhentar við hátíðlega athöfn í gær. Viðurkenningar fyrir lofsvert hei...
https://www.akureyri.is/is/frettir/utifundur-a-radhustorgi-i-dag
Útifundur á Ráðhústorgi í dag Útifundur verður haldinn á Ráðhústorgi kl. 17 í dag í tilefni alþjóða mannréttindadagsins en einnig til að marka lok 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi sem UNIFEM á Íslandi hefur staðið fyrir. Samkvæmt upplýsingum frá UNIFEM verður þriðja hver kona í heiminum fyrir kynbundnu ofbeldi einh...
https://www.akureyri.is/is/frettir/laxness-og-eftirmal
Laxness og Eftirmál Halldór Guðmundsson og Njörður P. Njarðvík lesa úr nýútkomnum bókum sínum í Amtsbókasafninu fimmtudaginn 16. desember kl. 17.15. Halldór Laxness: ævisaga eftir Halldór Guðmundsson hefur fengið frábæra dóma og verið tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Halldór hefur talað við fjölda manns, le...
https://www.akureyri.is/is/frettir/jolatre-bernsku-minnar
Jólatré bernsku minnar Hin árlega sýning "Jólatré bernsku minnar" stendur nú yfir í Punktinm en þar eru til sýnis jólatré af öllum stærðum og gerðum frá liðinni tíð. Ennþá eru að bætast við tré á sýninguna og óska forsvarsmenn Punktsins eftir að fá til sín gömul jólatré sem fólk kann að eiga í fórum sínum. Þau þurfa ek...
https://www.akureyri.is/is/frettir/laufabraudsutskurdur-i-hlid
Laufabrauðsútskurður í Hlíð Mikið annríki hefur verið á Öldrunarheimilum Akureyrar það sem af er desember. Í heimsókn hafa komið leikskólabörn, karlakórar og fleiri. Staðið hefur verið fyrir ýmsum uppákomum og enn er von á fleiri góðum gestum. Áætlað er að á þriðja hundrað gestir komi í jólamánuðinum einum til að gleðj...
https://www.akureyri.is/is/frettir/jolasongvar-kors-akureyrarkirkju
Jólasöngvar Kórs Akureyrarkirkju Jólasöngvar Kórs Akureyrarkirkju verða sunnudaginn 19. desember kl. 17. og 20. Fyrir síðustu jól var ákveðið að bjóða upp á tvenna tónleika vegna frábærrar aðsóknar á undanförnum árum og gaf það mjög góða raun. Á efnisskránni er aðventu og jólatónlist eftir Jórunni Viðar, Róbert A. Ottó...
https://www.akureyri.is/is/frettir/askur-thvara-og-stafur-jola-hvad
Askur, þvara og stafur... jóla hvað? Þau hafa streymt í Minjasafnskirkjuna börnin í Eyjafirði undanfarnar vikur. Við ljóstýruna frá kertunum sitja þau þétt saman í nepjunni í kirkjunni. Tilefni heimsóknanna er að kynnast betur kunnuglegum náungum sem fara á stjá í desember. Flestir vita að jólasveinarnir hafa breytt bæ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/okeypis-i-bilastaedin-til-jola
Ókeypis í bílastæðin til jóla Ókeypis verður í öll gjaldskyld bílastæði á Akureyri frá og með deginum í dag og fram að jólum. Er þetta gert til hægðarauka fyrir fólk í jólainnkaupum og sér í lagi til að liðka fyrir umferð um miðbæinn. Um leið eru atvinnurekendur og verslunareigendur hvattir til að brýna fyrir starfsfól...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hetjurnar-og-aflid-hljota-styrk
Hetjurnar og Aflið hljóta styrk Ákveðið hefur verið að Akureyrarbær sendi engin jólakort til starfsmanna sinna en styrki þess í stað gott málefni líkt og gert var í fyrra. Að þessu sinni er styrknum deilt niður í tvo staði og hann hljóta Hetjurnar, félag aðstandenda langveikra barna á Norðurlandi, og Aflið, systursamtö...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fridarganga-a-thorlaksmessu
Friðarganga á Þorláksmessu Friðarganga verður farin á Þorláksmessukvöld kl. 20 frá Menntaskólanum á Akureyri að Ráðhústorgi. Embla Eir Oddsdóttir flytur ávarp og Kór Akureyrarkirkju syngur. Í tilkynningu frá þeim sem fyrir göngunni standa segir meðal annars: "Slagorð og bænir gegn stríði eru góð hefð á Þorláksmessu. Þa...
https://www.akureyri.is/is/frettir/songleikurinn-oliver-frumsyndur-um-jolin
Söngleikurinn Óliver! frumsýndur um jólin Um jólin, þann 28. desember, frumsýnir Leikfélag Akureyrar söngleikinn Óliver eftir Lionel Bart. Söngleikurinn hefur verið með vinsælustu söngleikjum heims frá því um 1960 þegar hann var frumsýndur og kvikmyndaútgáfan er löngu orðin sígild. Uppsetningin nú er með stærstu uppset...
https://www.akureyri.is/is/frettir/verdlaun-fyrir-einn-tveir-nu
Verðlaun fyrir Einn, tveir & nú! Á þriðjudag voru afhent verðlaun fyrir þátttöku í nóvember í heilsueflingarátaki Heilsueflingarráðs Akureyrar – “Einn, tveir og nú!”, sem stendur í allan vetur. Í hverjum mánuði eru dregin út nokkur innsend fjölskyldukort og hljóta eigendur þeirra viðurkenningu fyrir þátttökuna. Frá því...
https://www.akureyri.is/is/frettir/opid-i-hlidarfjalli
Opið í Hlíðarfjalli Lyfturnar í Hlíðarfjalli voru ræstar kl. 11 í morgun, þriðjudaginn 28. desember, og verður opið til kl. 16. Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður í Hlíðarfjalli, er nokkuð sáttur við stöðu mála þar efra en hefði gjarnan viljað sjá meiri snjó. Hann segir að snjórinn sé í raun meiri á Akureyri en uppi...
https://www.akureyri.is/is/frettir/barokkbaerinn-akureyri
Barokkbærinn Akureyri Í kvöld kl. 20.30 heldur Eyþór Ingi Jónsson, organisti og kórstjóri í Akureyrarkirkju, fyrirlestur í Ketilhúsinu á vegum Tónlistarfélags Akureyrar þar sem hann fjallar um tónlist barokktímans. Fyrirlesturinn er í tengslum við barokktónleika í Akureyrarkirkju á miðvikudagskvöldið þar sem Hymnodia, ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nyarsdansleikur-i-ketilhusinu
Nýársdansleikur í Ketilhúsinu Þau tíðindi verða á fyrsta degi komandi árs að haldinn verður nýársdansleikur á Akureyri þar sem nýstofnuð Kammersveit Tónlistarfélags Akureyrar leikur Vínarvalsa og aðra sígilda danstónlist fyrir dansi í Ketilhúsinu. Í boði verður glæsilegt smáréttahlaðborð frá Einari Geirssyni, landsliðs...
https://www.akureyri.is/is/frettir/blustonleikar-a-fimmtudagskvold
Blústónleikar á fimmtudagskvöld Fimmtudagskvöldið 30. desember verður blús- og jasskvöld á Græna Hattinum. Þar koma fram Blúskompaní Magnúsar Eiríkssonar og Park Projekt Pálma Gunnarssonar og Kristjáns Edelstein. Blúskompaníið var stofnað af Magnúsi Eiríkssyni einum fremsta blúsmanni landsins fyrir rúmum þremur áratugu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/influensan-komin
Inflúensan komin Nú hefur ný inflúensa stungið sér niður á Akureyri og má búast við að einhverjir muni fá hana á næstu vikum. Helstu einkenni eru: hár hiti sem byrjar skyndilega höfuðverkur og beinverkir hósti, hæsi, sviði í augum, nefrennsli og hálssærindi kviðverkir og uppköst sem geta komið fyrir hjá börnum. Venjule...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samningur-um-sorplosun
Samningur um sorplosun Frá og með næstu áramótum mun Framkvæmdamiðstöð Akureyrarbæjar hætta að taka sorp frá stofnunum, deildum og fyrirtækjum Akureyrarbæjar. Af þessu tilefni hefur Akureyrarbær, fyrir hönd þessara aðila samið við Gámaþjónustu Norðurlands ehf, um að taka að sér þessa þjónustu. Samningurinn byggist á út...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyrarbaer-setur-milljon-i-neydarhjalp
Akureyrarbær setur milljón í neyðarhjálp Fimmtudaginn 30. desember samþykkti bæjarráði Akureyrar að leggja fram eina milljón króna til fjársöfnunar Rauða kross Íslands vegna neyðarhjálpar til handa íbúum þeirra landa í Suður-Asíu sem nú þjást vegna afleiðinga þeirra miklu náttúruhamfara sem urðu þann 26. desember sl. S...
https://www.akureyri.is/is/frettir/trjam-safnad-og-thau-endurunnin
Trjám safnað og þau endurunnin Að loknum jólum gengst framkvæmdamiðstöð Akureyrarbæjar fyrir söfnun jólatrjáa til endurvinnslu. Markmiðið er að minnka magn sorps sem fer til urðunar og endurnýta jólatrén, um leið og bæjarbúum er gert hægara um vik að losa sig við trén. Jólatré sem lokið hafa hlutverki sínu verða kurluð...
https://www.akureyri.is/is/frettir/menntasmidja-unga-folksins-ad-hefjast
Menntasmiðja unga fólksins að hefjast Vorönnin í Menntasmiðju unga fólksins hefst miðvikudaginn 19. janúar nk. en námið er sérstaklega ætlað fólki á aldrinum 17-26 ára og miðar að því að auka lífshæfni þeirra er það sækja. Námið nýtist vel þeim sem standa á tímamótum og eru að takast á við breytingar í lífinu. Menntasm...
https://www.akureyri.is/is/frettir/jord-skelfur-vid-grimsey
Jörð skelfur við Grímsey Tveir skjálftar 3,9 og yfir 5 á Richter urðu nú um klukkan 4 við Grímsey. Skjálftarnir fundust allvíða á Norðurlandi, m.a. Grímsey, Húsavík og Akureyri. Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur sagði að upptök skjálftanna hefðu verið um 20 km ASA af Grímsey. Fyrri skjálftinn klukkan 3.55 var 3,9...
https://www.akureyri.is/is/frettir/eyjafjordur-eitt-sveitarfelag
Eyjafjörður eitt sveitarfélag? Bæjarráð Akureyrar lagði til á síðasta fundi sínum árið 2004 að í kosningum um sameiningu sveitarfélaga 23. apríl nk. verði kosið um sameiningu allra sveitarfélaga í Eyjafirði. Ekki eru allir á einu máli og í gær tilkynnti sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar að svo stór sameining væri ekki t...
https://www.akureyri.is/is/frettir/bikarmeistarar-ganga-aftur
Bikarmeistarar ganga aftur Sannkallaður stórleikur verður í KA-heimilinu á Akureyri nk. laugardag, 8. janúar kl. 15, en þá mætast bikarmeistarar KA í meistaraflokki karla í handknattleik frá árinu 1995 og núverandi bikarmeistarar félagsins, sem hömpuðu sama bikar sl. vetur. Svo skemmtilega vill til að leikurinn fer fra...
https://www.akureyri.is/is/frettir/brautargengi-fyrir-konur
Brautargengi fyrir konur Brautargengi nefnist námskeið fyrir konur um gerð viðskiptaáætlana og stofnun og rekstur fyrirtækja. Námskeiðin eru haldin á vegum IMPRU, nýsköpunarmiðstöðvar, og hefst það næsta 16. febrúar. Hér er um að ræða sérsniðið námskeið fyrir athafnakonur sem hafa viðskiptahugmynd sem þær vilja hrinda ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sandur-af-sedlum-og-vima
Sandur af seðlum og víma Á sýningunni "Stríðsmenn hjartans", sem verður opnuð í Listasafninu á Akureyri laugardaginn 15. janúar, verða annars vegar til sýnis skúlptúrar úr 100 milljónum króna í reiðufé og hins vegar ljósmyndir af fólki undir áhrifum alls kyns vímuefna. Yfir öllu svífur tíbeskur munkasöngur. Þetta er sý...
https://www.akureyri.is/is/frettir/um-48-milljonir-i-snjomokstur
Um 48 milljónir í snjómokstur Talsvert fannfergi er nú á Akureyri og er kostnaður bæjarfélagsins við snjómokstur ærinn. Má segja að hann kosti bæjarbúa árlega um 40 milljónir króna en árið 2004 nam kostnaðurinn um eða yfir 48 milljónum. Mikið er lagt upp úr því að ryðja sem fyrst snjó af götum bæjarins, og þá ekki hvað...
https://www.akureyri.is/is/frettir/gagnsaerri-og-rettlatari-yfirvinnureglur
Gagnsærri og réttlátari yfirvinnureglur Í dag, fimmtudaginn 13. janúar, var samþykkt í bæjarráði Akureyrar að leggja til að nýjar tillögur vinnuhóps um yfirvinnu starfsmanna bæjarins verði samþykktar á næsta fundi bæjarstjórnar 18. janúar nk. Tillögurnar miða einkum að því að gera kjaramál starfsmanna gagnsærri og rétt...
https://www.akureyri.is/is/frettir/stridsmenn-hjartans
Stríðsmenn hjartans Laugardaginn 15. janúar var opnuð á Listasafninu á Akureyri sýningin "Stríðsmenn hjartans" þar sem eru annars vegar sýndir skúlptúrar úr 100 milljónum króna í reiðu fé og hins vegar myndir af fólki undir áhrifum alls kyns vímuefna. Í sýningaskrá segir Hannes Sigurðsson, forstöðumaður Listasafnsins, ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/allir-a-skauta
Allir á skauta Í tilefni heilsuátaksins “Einn, tveir og nú!” standa Heilsueflingarráð Akureyrar og Skautahöllin fyrir Skautadegi laugardaginn 22. janúar frá kl. 13 til 15. Bæjarbúar og gestir bæjarins eru hvattir til að mæta allir sem einn í Skautahöllina og kynna sér þessa skemmtilegu íþrótt. Dagskráin er svohljóðandi...
https://www.akureyri.is/is/frettir/a-ljodsins-vaengjum
Á ljóðsins vængjum Í ár eru 110 ár liðin frá fæðingu Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi. Honum til heiðurs verður haldin afmælisveisla á afmælisdaginn 21. janúar á vegum menningarmálanefndar Akureyrarbæjar, Héraðsskjalasafnsins og Karlakórs Akureyrar-Geysis. Margt verður gert til hátíðarbrigða og öllum er boðið til vei...
https://www.akureyri.is/is/frettir/laekkun-gjalda-hja-akureyrarbae
Lækkun gjalda hjá Akureyrarbæ Samþykkt var á fundi bæjarstjórnar Akureyrar í gær að lækka vatnsgjald á fasteignir um tæp 6% og holræsagjald um tæp 5%. Einnig var samþykkt að hámarksafsláttur af fasteignaskatti til efnalítilla elli- og örokulífeyrisþega hækki í 40.000 kr.árið 2005 en afslátturinn var að hámarki 30.000 k...
https://www.akureyri.is/is/frettir/staekkun-ibudarsvaedis-vid-myrarveg
Stækkun íbúðarsvæðis við Mýrarveg (Ath: vegna misritunar dagsetningar í fyrri auglýsingu tillagnanna eru þær hér með auglýstar að nýju með breyttum dagsetningum.) Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.b. tillögu að breytingu á aðalskipulagi. Breytingin f...
https://www.akureyri.is/is/frettir/haestarettardomur-i-jafnrettismali
Hæstaréttardómur í jafnréttismáli Hæstiréttur staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Norðurlands eystra frá maí 2004 um að Akureyrarbær hafi mismunað deildarstjóra fjölskyldudeildar (áður ráðgjafadeildar) í launum á árunum 1992-2000 vegna kynferðis. Þrír dómarar Hæstaréttar felldu þennan dóm, tveir voru honum mótfallnir. Niður...
https://www.akureyri.is/is/frettir/taeknithrounarsjodur
Tækniþróunarsjóður Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar, Háskólinn á Akureyri og Rannís boða til opins kynningarfundar um Tækniþróunarsjóð mánudaginn 24. janúar en umsóknarfrestur um styrki úr sjóðnum rennur út 15. febrúar nk. Kynningarfundurinn er einkanlega ætlaður væntanlegum umsækjendum og hefst hann kl. 8.30 í stofu 26...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vel-sott-afmaelisveisla
Vel sótt afmælisveisla Haldið var upp á 110 ára afmæli skáldsins frá Fagraskógi, Davíðs Stefánssonar, á föstudag og laugardag. Góð aðsókn var að þeim viðburðum sem voru á dagskrá afmælisveislunnar. Á föstudag var opnuð skjalasýning í Amtsbókasafninu þar sem kennir ýmissa forvitnilegra grasa og verður hún opin til 21. f...
https://www.akureyri.is/is/frettir/loftgaedamaelingar-a-akureyri
Loftgæðamælingar á Akureyri Í fyrsta sinn standa nú yfir mælingar á loftmengun á Akureyri. Þær fara fram í mælistöð sem er á horni Glerárgötu og Tryggvabrautar. Hún er fengin að láni hjá Reykjavíkurborg. Mældir eru tveir þættir, svifryk og köfnunarefnisoxíð. Hægt er að fylgjast með mælingunum á vefnum www.loft.rvk.is s...
https://www.akureyri.is/is/frettir/mannmargt-i-skautahollinni
Mannmargt í Skautahöllinni Mikill fjöldi fólks lagði leið sína í Skautahöllina á Akureyri á laugardag en þá var fólki boðið að renna sér frítt á skautum og þiggja veitingar í tilefni af heilsuátakinu "Einn, tveir og nú!". Umferðin við Skautahöllina var mikil, ungir sem aldnir fengu léða skauta án endurgjalds og renndu ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/verdlaun-fyrir-desember
Verðlaun fyrir desember Í tengslum við Skautadag sl. laugardag í Skautahöllinni á Akureyri voru afhent verðlaun fyrir þátttöku í desember í heilsueflingarátaki Heilsueflingarráðs Akureyrar, “Einn, tveir og nú!”, sem stendur til vors. Í hverjum mánuði eru dregin út nokkur innsend fjölskyldukort og hljóta eigendur þeirra...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hvad-geta-norraenu-throunarsjodirnir-gert-fyrir-thig
Hvað geta norrænu þróunarsjóðirnir gert fyrir þig? Á morgun, miðvikudaginn 26. janúar, verður haldin á Hótel KEA kynning norrænu þróunarsjóðanna á möguleikum íslenskra fyrirtækja í þátttöku alþjóðlegra verkefna og eigin útflutningi á ört vaxandi heimsmarkaði. Norrænu þróunarsjóðirnir starfa á alþjóðavettvangi og veita ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/opinn-fundur-um-menningu
Opinn fundur um menningu Menningarmálanefnd Akureyrarbæjar boðar til opins fundar í Ketilhúsinu fimmtudagskvöldið 27. janúar kl. 20.30 þar sem fjallað verður um endurskoðun menningarstefnu bæjarins og fyrirhugaða byggingu menningarhús. Að sögn Þórgnýs Dýrfjörð, menningarfulltrúa Akureyrarbæjar, hefur um nokkra hríð ver...
https://www.akureyri.is/is/frettir/byggdakvoti-hrisey-ndash-uthlutun
Byggðakvóti Hrísey – úthlutun Á grundvelli reglugerðar frá sjávarútvegsráðuneytinu hefur nú verið úthlutað 3.200 þorskígildislestum til stuðnings byggðarlögum í landinu. Ákveðið var að 115 þorskígildislestum skyldi úthlutað til Hríseyjar fyrir fiskveiðiárið 2004-2005. Bæjarráð Akureyrar samþykkti reglur um úthlutun byg...
https://www.akureyri.is/is/frettir/krossanesborgir-fridlystar
Krossanesborgir friðlýstar Í dag undirritaði umhverfisráðherra, Sigríður Anna Þórðardóttir, auglýsingu um friðlýsingu Krossanesborga sem fólkvangs. Undirritunin fór fram á staðnum og fluttu þar stutt ávörp m.a. ráðherrann, bæjarstjórinn á Akureyri og forstöðumaður náttúruverndarsviðs Umhverfisstofnunar. Markmiðið með f...
https://www.akureyri.is/is/frettir/robin-nolan-i-sjallanum
Robin Nolan í Sjallanum Robin Nolan Trio frá Hollandi og Daniel Lapp, fiðlu- trompetleikari og söngvari, frá Kanada verða á tónleikaferð um landið í lok mánaðarins, og halda tónleika í Sjallanum á Akureyri 28. janúar kl. 21. Robin Nolan Trio hefur frá upphafi verið kjölfesta DjangoJazz Festival Akureyri og með þeirri a...
https://www.akureyri.is/is/frettir/flestir-vilja-flytja-til-akureyrar
Flestir vilja flytja til Akureyrar Í nýrri skýrslu sem IMG Gallup hefur unnið kemur fram að fólk í atvinnuleit á höfuðborgarsvæðinu gæti helst hugsað sér að flytja til Akureyrar byðist því þar starf við hæfi. Þátttakendur voru um 1000 og í skýrslunni eru niðurstöður greindar eftir ýmsum bakgrunnsbreytum s.s. kyni, aldr...