Title
stringlengths
15
17
Keywords
stringlengths
3
238
Summary
stringlengths
73
7.23k
Text
stringlengths
125
444k
Mál nr. 386/2005
Vinnuslys Líkamstjón Gjafsókn
J byggði kröfu sína á því að hún hafi orðið fyrir slysi við störf sín hjá S í janúar árið 2000. Taldi hún S bera skaðabótaábyrgð á slysinu sem vinnuveitandi hennar vegna ófullnægjandi aðstæðna á vinnustað og annmarka á verkstjórn við þau störf sem J vann er hún slasaðist. J var ekki talin hafa sannað að hún hafi orðið ...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingibjörg Benediktsdóttir, Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 29. ágúst 2005. Hann krefst sýknu af kröfu stefndu auk málskostnaðar í héraði og fyrir Hæstarétti. Stefnda krefst staðfestingar héraðsdóms og m...
Mál nr. 324/2000
Kærumál Innsetningargerð Eignarnám Stjórnvaldsákvörðun
Sveitarfélagið H krafðist þess að fá með aðför umráð yfir 30.000 m³ af grjóti úr námu Ó. Byggðst krafan á að matsnefnd eignarnámsbóta hefði heimilað umráðin í maí 2000, þrátt fyrir að kröfu H um eignarnám á grjótinu væri ekki lokið. Ó og R, sem hafði fengið leigðan af Ó allan rétt til töku grjóts úr umræddri námu, höfn...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Garðar Gíslason, Gunnlaugur Claessen og Markús Sigurbjörnsson. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 17. ágúst 2000, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 23. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Austurlands 11. ágúst 2000, þar sem hafnað var...
Mál nr. 785/2016
Kærumál Hæfi dómara
H kærði úrskurð héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu hennar um að héraðsdómari viki sæti í ágreiningsmáli um að bú H yrði tekið til gjaldþrotaskipta að kröfu Í. Ekki var fallist á með H að í tölvubréfi sem héraðsdómari hafði sent á málsaðila hefði falist ólögskyldar leiðbeiningar til lögmanns Í í skilningi b. liðar 5. g...
Dómur Hæstaréttar.Mál þetta dæma hæstaréttardómararnirÞorgeir Örlygsson, Greta Baldursdóttir og Helgi I. Jónsson.Sóknaraðili skaut málinu tilHæstaréttar með kæru 23. nóvember 2016 en kærumálsgögn bárust réttinum samadag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 9. nóvember 2016 þar sem hafnaðvar kröfu sóknaraðila um a...
Mál nr. 53/2009
Ráðningarsamningur Starfslok Kröfugerð Aðfinnslur Sératkvæði
H krafðist þess að viðurkennt yrði að henni hefði með ólögmætum hætti verið skipað í veikindafjarvistir frá starfi sínu sem tónlistarkennari hjá F og að F yrði dæmt til að greiða henni skaða- og miskabætur vegna þessa. Í málinu hélt F því fram að veikindi H hefðu orðið þess valdandi að hún gæti ekki sinnt starfi sínu. ...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Jón Steinar Gunnlaugsson og Hjördís Hákonardóttir og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 3. febrúar 2009. Hún krefst þess að viðurkennt verði að henni hafi með ólögmætum hætti verið skipað í veikindafjarvistir frá...
Mál nr. 626/2013
Vinnuslys Líkamstjón Skaðabætur Sakaskipting Gáleysi Gjafsókn
A höfðaði mál gegn B hf. og V hf. og krafðist greiðslu skaðabóta vegna tjóns sem hann varð fyrir í starfi hjá B hf. er stigi sem hann stóð í féll niður. Fyrir Hæstarétti var aðeins deilt um hvort A skyldi bera hluta tjóns síns sjálfur vegna eigin sakar. Að því virtu hve mikil sök B hf. var í samanburði við gáleysi sem ...
Dómur Hæstaréttar Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Þorgeir Örlygsson og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 23. september 2013. Hann krefst þess að stefndu greiði sér óskipt 22.270.085 krónur með 4,5% ársvöxtum af 3.393.465 krónum frá ...
Mál nr. 379/1999
Félagsdómur Frávísunarkröfu hafnað
Launanefnd sveitarfélaga höfðaði mál fyrir Félagsdómi gegn FL og krafðist þess að viðurkennt yrði með dómi að uppsagnir tólf leikskólakennara, félagsmanna í FL, úr störfum hjá sveitarfélaginu Á yrðu dæmdar brot á friðarskyldu á gildistíma kjarasamnings og því ólögmæt vinnustöðvun. Krafðist FL frávísunar málsins. Talið ...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Garðar Gíslason, Guðrún Erlendsdóttir, Haraldur Henrysson, Hjörtur Torfason og Hrafn Bragason. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 20. september 1999 samkvæmt heimild í 67. gr. laga nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur. Krefst hann þess að máli...
Mál nr. 17/2011
Kærumál Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Páll Hreinsson og Viðar Már Matthíasson. Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 7. janúar 2011 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 10. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 7. janúar 2011, þar sem varnar...
Mál nr. 24/2016
Kærumál Einkarefsimál Vanreifun Frávísunarúrskurður staðfestur
Kærumál. Einkarefsimál. Vanreifun. Frávísunarúrskurður staðfestur.K kærði úrskurð héraðsdóms þar sem máli hennar á hendur M var vísað frá dómi. Fyrir Hæstarétti krafðist K þess að einkarefsikröfur hennar á hendur M yrðu teknar til efnismeðferðar en þær voru hafðar uppi á þeim grunni að M hefði án vitundar og í óleyfi h...
Dómur Hæstaréttar.Mál þetta dæmahæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson og Viðar Már Matthíasson og GuðrúnErlendsdóttir settur hæstaréttardómari. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttarmeð kæru 4. janúar 2016, en kærumálsgögn bárustréttinum 18. sama mánaðar. Kærður er úrskurður HéraðsdómsReykjavíkur 21. desember 2...
Mál nr. 136/2006
Kærumál Gæsluvarðhaldsúrskurður felldur úr gildi
Ekki voru talin skilyrði til að X sætti áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingibjörg Benediktsdóttir, Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson. Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 10. mars 2006, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 13. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 10. mars 2006, þ...
Mál nr. 180/2005
Líkamsárás Sönnun Ákæra
M og S voru ákærðir fyrir líkamsárásir. Þrátt fyrir nokkra ónákvæmni í ákæru þótti mega leggja dóm á málið með þeirri greiningu á sakarefninu, sem fólst í hinum áfrýjaða dómi. Í héraði voru báðir sýknaðir af sakargiftum um líkamsárás á A, en hvor um sig hins vegar sakfelldur fyrir líkamsárás á B. Fyrir Hæstarétti gerði...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Árni Kolbeinsson og Jón Steinar Gunnlaugsson. Ríkissaksóknari skaut máli þessu til Hæstaréttar 29. mars 2005 í samræmi við yfirlýsingar ákærðu um áfrýjun, en jafnframt af hálfu ákæruvalds, sem krefst staðfestingar héraðsdóms um sakfellingu o...
Mál nr. 851/2017
Líkamstjón Orsakatengsl Lögregla Handtaka Ómerking héraðsdóms
Í málinu krafðist A þess að viðurkennd yrði skaðabótaskylda Í á því líkamstjóni sem hann kvaðst hafa orðið fyrir af völdum lögreglu við handtöku árið 2010. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að A hefði verið í geðrofsástandi umrætt sinn og gæti ekki byggt bótakröfu á 3. mgr. 246. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sak...
Dómur Hæstaréttar.Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Greta Baldursdóttir ogKarl Axelsson og Kristbjörg Stephensen landsréttardómari. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 29. desember 2017.Hann krefst þess að viðurkennd verði skaðabótaskylda stefnda á því varanlegalíkamstjóni sem hann kveðst hafa orðið fyrir 11. maí...
Mál nr. 260/1999
Verksamningur
S var félagi í vörubílstjórafélaginu M. Venja var að M tæki að sér verk og skipti hagnaði af þeim á milli félagsmanna sinna í hlutfalli við þá vinnu sem þeir lögðu í þau. M tók að sér verk við vegagerð og samdi síðar auk þess um að taka að sér viðbótarverk við ræsagerð á nálægum slóðum. S vann að ræsagerðinni og varð n...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Garðar Gíslason, Gunnlaugur Claessen og Markús Sigurbjörnsson. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 28. júní 1999 og krefst sýknu af kröfum stefnda og málskostnaðar í héraði og fyrir Hæstarétti. Stefndi krefst staðfestingar héraðsdóms og málskostnaðar fyrir Hæst...
Mál nr. 741/2014
Kærumál Aðfarargerð
Þ krafðist þess að ógilt yrði aðfarargerð sem gerð var í eign hans að beiðni Í hf. Með hliðsjón af gögnum málsins þótti ósönnuð sú fullyrðing Þ að krafa Í hf. á hendur honum væri að fullu greidd. Var aðfarargerð sýslumannsins í Reykjavík því staðfest.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma Þorgeir Örlygsson hæstaréttardómari og Ingveldur Einarsdóttir og Karl Axelsson settir hæstaréttardómarar. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 12. nóvember 2014, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 19. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 29. októbe...
Mál nr. 218/2009
Fjársvik
K var ákærður fyrir fjársvik með því að hafa í tengslum við milligöngu sína sem lögmaður um sölu á tíu stofnfjárbréfum í Sparisjóði Hafnarfjarðar styrkt og hagnýtt sér ranga hugmynd S, sem annaðist samskipti við K fyrir sína hönd og fjögurra annarra eigenda bréfanna, um að það hámarksverð sem kaupendur bréfanna væru ti...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingibjörg Benediktsdóttir, Hjördís Hákonardóttir og Markús Sigurbjörnsson. Ríkissaksóknari skaut málinu til Hæstaréttar 8. apríl 2009 af hálfu ákæruvaldsins, sem krefst þess nú að ákærði verði sakfelldur samkvæmt ákæru og honum gerð refsing, auk þess sem hann verð...
Mál nr. 329/2012
Skipulag Eignarnám Stjórnsýsla Sveitarfélög Andmælaréttur
Að fenginni umsögn Skipulagsstofnunar tók sveitarfélagið H ákvörðun 5. nóvember 2008 um að taka tiltekið land Á eignarnámi. Var sú ákvörðun tilkynnt Á með bréfi næsta dag. Í kjölfar ábendinga til Skipulagsstofnunar um að umsögn hennar hefði verið byggð á ófullkomnum gögnum dró hún umsögn sína til baka og veitti nýja, þ...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson og Árni Kolbeinsson og Eggert Óskarsson héraðsdómari. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 14. maí 2012. Hann krefst sýknu af kröfu stefnda og málskostnaðar í héraði og fyrir Hæstarétti. Stefndi krefst staðfestingar héraðsdóms og málskostna...
Mál nr. 638/2017
Gjaldeyrismál Stjórnsýsla Stjórnvaldssekt
Í málinu deildu aðilar um gildi og efni ákvörðunar S um að leggja á R ehf. stjórnvaldssekt að tiltekinni fjárhæð vegna nánar tilgreindra brota á lögum nr. 87/1992 um gjaldeyrismál. Þá var deilt um skyldu Í til að endurgreiða sektarfjárhæðina með dráttarvöxtum ef fallist yrði á aðalkröfu R ehf. um ógildingu ákvörðunarin...
Dómur Hæstaréttar.Mál þetta dæmahæstaréttardómararnir Þorgeir Örlygsson, Helgi I. Jónsson, MarkúsSigurbjörnsson, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Viðar Már Matthíasson.ÁfrýjandinnSeðlabanki Íslands skaut málinu til Hæstaréttar 6. október 2017. Hann krefstsýknu af kröfu stefnda og málskostnaðar í héraði og fyrir Hæstarétti....
Mál nr. 711/2016
Kærumál Vitni Skýrslugjöf
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem A var gert að koma fyrir dóm við aðalmeðferð máls Á gegn X og gefa skýrslu.
DómurHæstaréttar.Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir HelgiI. Jónsson, Benedikt Bogason og Karl Axelsson. Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar meðkæru 14. október 2016, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 17. samamánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 13. október 2016, þar semtekin var til greina kr...
Mál nr. 669/2017
Kærumál Fjármálafyrirtæki Slit Kröfulýsing Skipting sakarefnis Kærumálsgögn
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfum F sem hann hafði lýst við slit L ehf. þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að þær væru fallnar niður fyrir vanlýsingu samkvæmt 118. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. F krafðist þess að kröfur sínar yrðu teknar til efnismeðferðar við slitin. Ágrei...
DómurHæstaréttar.Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir ÓlafurBörkur Þorvaldsson, Greta Baldursdóttir og Karl Axelsson.Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttarmeð kæru 23. október 2017 en kærumálsgögn bárust réttinum 6. nóvember sama ár. Kærðurer úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 9. október 2017 þar sem hafnað var kröfums...
Mál nr. 592/2006
Kærumál Innsetningargerð Börn
K, sem var búsett í Svíþjóð, krafðist þess að henni yrði heimilað að fá barn hennar og M tekið úr umráðum hans með beinni aðfarargerð þar sem því væri haldið hér á landi með ólögmætum hætti, sbr. 11. gr. laga nr. 160/1995 um viðurkenningu og fullnustu erlendra ákvarðana um forsjá barna, afhendingu brottnuminna barna o....
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Hrafn Bragason, Hjördís Hákonardóttir og Ólafur Börkur Þorvaldsson. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 6. nóvember 2006, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 16. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 31. október 2006, þar sem v...
Mál nr. 113/2003
Kærumál Vitni
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu P um að ákæruvaldinu yrði bannað að leiða átján nafngreind vitni við aðalmeðferð máls ákæruvaldsins gegn P. Í dómi Hæstaréttar segir að ráðið verði af gögnum málsins að tíu af þeim átján einstaklingum, sem P hafi krafist að ákæruvaldinu væri meinað að kveðja fyri...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Guðrún Erlendsdóttir, Haraldur Henrysson og Hrafn Bragason. Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 28. mars 2003, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 31. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 28. mars 2003, þar sem hafnað var kröf...
Mál nr. 700/2017
Kærumál Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Dómur Hæstaréttar.Mál þetta dæmahæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Greta Baldursdóttir og KarlAxelsson.Varnaraðili skaut málinu tilHæstaréttar með kæru 3. nóvember 2017, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 7.sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Suðurlands 2. nóvember 2017, þarsem varnaraðila var g...
Mál nr. 301/2016
Líkamsárás Einkaréttarkrafa Skilorð
X var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því hafa á nánar tilgreindan hátt ráðist á fyrrum sambýliskonu sína og veitt henni tilgreinda áverka. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að árás X hefði verið fólskuleg og beinst að sambúðarkonu hans. Var refsing X ákveðin f...
Dómur Hæstaréttar.Mál þetta dæma hæstaréttardómararnirHelgi I. Jónsson og Karl Axelsson og Davíð Þór Björgvinsson setturhæstaréttardómari. Ríkissaksóknariskaut málinu til Hæstaréttar 21. mars 2016 í samræmi við yfirlýsingu ákærða umáfrýjun. Ákæruvaldið krefst þess að refsing ákærða verði þyngd.Ákærði krefstþess aðalleg...
Mál nr. 484/2004
Sératkvæði Þjófnaður Skilorð Skilorðsrof Sakarkostnaður
Ó var sakfelldur fyrir tvö þjófnaðarbrot.Með vísan til sakaferils Ó, þeirra brota sem hann var sakfelldur fyrir og þessað hann var að rjúfa skilorð í þriðja sinn var honum gert að sæta fangelsi í 22mánuði. Í ljósi þess að Ó sýndist nú vera að takast á við áfengis- ogvímuefnavandamál sín af fullri festu þótti rétt að fr...
Dómur Hæstaréttar. Mál þettadæma hæstaréttardómararnir Hrafn Bragason, Árni Kolbeinsson og IngibjörgBenediktsdóttir. Ríkissaksóknari skaut málinutil Hæstaréttar 30. nóvember 2004 í samræmi við yfirlýsingu ákærða um áfrýjun,en jafnframt af hálfu ákæruvalds, sem krefst þess nú að héraðsdómur verðistaðfestur. Ákærði krefs...
Mál nr. 12/2007
Landamerki Áfrýjunarheimild Frávísun frá Hæstarétti að hluta
Í málinu deildu aðilar um landamerki landspildna sem skipt var út úr jörðinni Miðdal II. Í málinu greindi aðila meðal annars á um hvort miða ætti við orðalag í afsali fyrir eign áfrýjenda eða við uppdrátt af eigninni er fylgdi afsalinu, en uppdrátturinn bar ekki með sér að hafa verið þinglýstur. Þegar litið var til þes...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Gunnlaugur Claessen, Árni Kolbeinsson, Garðar Gíslason, Ingibjörg Benediktsdóttir og Markús Sigurbjörnsson. Áfrýjendur skutu málinu til Hæstaréttar 5. janúar 2007 og krefjast þess aðallega að málinu verði vísað frá héraðsdómi, en til vara að þau verði sýknuð af kr...
Mál nr. 825/2014
Kærumál Vitni
X krafðist þess að tiltekið vitni, Y, yrði leitt fyrir héraðsdóm í tengslum við rekstur máls fyrir Hæstarétti, þar sem að í ljós hefði komið eftir dómsuppsögu í héraði að Y væri grunaður um refsiverð brot í öðrum málum sem til rannsóknar væru. Taldi X að mikilvægar upplýsingar hefðu ekki legið fyrir þegar héraðsdómur l...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Eiríkur Tómasson og Helgi I. Jónsson og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari. Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 12. desember 2014 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 15. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 10. de...
Mál nr. 99/2005
Ráðningarsamningur Uppsögn Vinnulaun Orlof Útivist Skriflegur málflutningur
F, sem hafði starfað fyrir M ehf., stefndi félaginu til greiðslu vangreiddra launa í þrjá mánuði, frá desember 2003 til febrúar 2004, auk orlofs fyrir tímabilið frá júní 2003 til febrúar 2004. Í málinu var ágreiningslaust að uppsagnarfrestur F var einn mánuður. M ehf. hélt því fram að F hafi verið sagt upp störfum í ok...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Garðar Gíslason og Gunnlaugur Claessen. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 8. mars 2005. Hann krefst þess að stefndi verði dæmdur til að greiða sér 824.812 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og ver...
Mál nr. 416/2012
Skattur Virðisaukaskattur Stjórnarskrá Jafnræðisregla Meðalhóf Málsástæða Stjórnvaldsfyrirmæli
LB ehf. starfaði á sviði mannvirkjagerðar og sérhæfði sig í framleiðslu forsteyptra eininga úr steinsteypu. Í málinu var deilt um rétt félagsins til endurgreiðslu virðisaukaskatts á verksmiðjuframleiddum húseiningum á grundvelli þágildandi 2. mgr. 42. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt sem og reglugerðar nr. 449/1...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Eiríkur Tómasson og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 15. júní 2012. Hann krefst þess aðallega að stefndi greiði sér 38.928.856 krónur, en til vara 31.140.465 krónur, í báðum tilvik...
Mál nr. 50/2014
Kaupsamningur Verðbréfaviðskipti Ógilding Galli Riftun Skaðabætur
M höfðaði mál gegn H og krafðist aðallega riftunar á kaupum hans á stofnfjárbréfum í tilteknum sparisjóði af H, sem var formaður stjórnar sparisjóðsins þegar viðskiptin fóru fram. Til vara krafðist M greiðslu fjárhæðar sem nam kaupverðinu en að því frágengnu viðurkenningar á skaðabótaskyldu H. Í dómi Hæstaréttar kom fr...
Dómur Hæstaréttar Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Helgi I. Jónsson og Benedikt Bogason og Árni Kolbeinsson fyrrverandi hæstaréttardómari. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 22. janúar 2014. Hann krefst þess aðallega að viðurkennd verði riftun 15. september 2009 á kaupum áfrýjanda 26. júlí 2007 á stofnfjárbréfu...
Mál nr. 568/2010
Kærumál Innsetningargerð
Þ, eigandi skipsins F, krafðist þess að fá skipið afhent með beinni aðfarargerð úr umráðum ÞE, sem hafði tekið að sér með verksamningi að gera á því breytingar. Með aðilum var ágreiningur um efndir samningsins á báða bóga. ÞE hafði hafnað kröfu Þ um að fá skipið afhent á þeim grundvelli að félagið ætti haldsrétt í skip...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Gunnlaugur Claessen, Árni Kolbeinsson og Viðar Már Matthíasson. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 29. september 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 1. október sama ár. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Vesturlands 27. september 2010, þar sem...
Mál nr. 244/2006
Ölvunarakstur Akstur sviptur ökurétti Sönnun
K var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis. Með vísan til sakaferils K var honum gert að sæta fangelsi í 60 daga og sviptur ökurétti ævilangt.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Hrafn Bragason, Árni Kolbeinson og Garðar Gíslason. Ríkissaksóknari skaut málinu til Hæstaréttar 12. apríl 2006 í samræmi við yfirlýsingu ákærða um áfrýjun, en jafnframt af hálfu ákæruvalds, sem krefst þyngingar á refsingu ákærða. Ákærði krefst aðallega sýknu af k...
Mál nr. 692/2014
Kærumál Vistun barns Gjafsókn
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þarsem fallist var á kröfuFjölskyldu- ogvelferðarnefndar Bum að sonur A yrði vistaður utanheimilis hennar í 12 mánuði.
Dómur Hæstaréttar Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir ÞorgeirÖrlygsson og Benedikt Bogason og Karl Axelsson settur hæstaréttardómari. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttarmeð kæru sem móttekin var í héraðsdómi 20. október 2014, en barst Hæstarétti ásamtkærumálsgögnum 23. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms...
Mál nr. 158/1999
Líkamsárás
B var ákærður fyrir líkamsárás með því að hafa ráðist að A og veitt honum hnefahögg á hnakka og í andlit með þeim afleiðingum að hann féll í götuna og hlaut skurði í andlit. Talið var sannað að B hefði brotið gegn 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Var niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu og refsingu ...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Garðar Gíslason, Gunnlaugur Claessen og Markús Sigurbjörnsson. Ríkissaksóknari skaut málinu til Hæstaréttar 7. apríl 1999 í samræmi við yfirlýsingu ákærða um áfrýjun og jafnframt af hálfu ákæruvalds, sem krefst þess að refsing ákærða verði þyngd. Ákærði krefst aða...
Mál nr. 417/2016
Skaðabætur Vinnuslys Gjafsókn Líkamstjón Orsakatengsl Óhappatilvik
A krafðist skaðabóta úr ábyrgðartryggingu vegna tjóns sem hann varð fyrir í vinnu sinni þegar hann var að slá gras umhverfis glompu á golfvelli og rann til með þeim afleiðingum að hann og sláttuvélin fór ofan í glompuna og hlaut hann varanlega áverka á fingrum hægri handar er þeir lentu í ljá vélarinnar. Í dómi Hæstaré...
DómurHæstaréttar.Mál þetta dæmahæstaréttardómararnir Eiríkur Tómasson og Karl Axelsson og IngveldurEinarsdóttir settur hæstaréttardómari.Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 1. júní 2016. Hann krefst aðallegasýknu af kröfu stefnda en til vara að hún verði lækkuð. Þá krefst hann aðallegamálskostnaðar í héraði og fyrir...
Mál nr. 508/1997
Bifreið Skaðabætur Örorka Matsmenn Læknaráð
Á slasaðist í bifreiðaárekstri. Vátryggingarfélagið V viðurkenndi bótaskyldu sína, en ágreiningur var um hver varanleg örorka Á væri vegna slyssins. Samkvæmt ákvörðun Hæstaréttar var málið sent til læknaráðs til umsagnar. Þótt talið væri að læknaráði hefði verið rétt að leita umsagnar sérfræðinga í ljósi þess hversu um...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Pétur Kr. Hafstein, Garðar Gíslason, Guðrún Erlendsdóttir, Haraldur Henrysson og Hjörtur Torfason. Áfrýjandi skaut máli þessu til Hæstaréttar með stefnu 17. desember 1997. Hann krefst þess aðallega, að stefndi verði dæmdur til þess að greiða sér 6.288.166 krónur m...
Mál nr. 497/2010
Bifreið Manndráp af gáleysi Ölvunarakstur Akstur sviptur ökurétti Svipting ökuréttar
S var gefið að sök manndráp af gáleysi og umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið, sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis og án aðgæslu, yfir á rangan vegarhelming miðað við akstursstefnu með þeim afleiðingum að bifreiðin lenti þar í árekstri við aðra bifreið, sem kom úr gagnstæðri átt, og ökumaður þeirrar bif...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Garðar Gíslason, Gunnlaugur Claessen og Ólafur Börkur Þorvaldsson. Ríkissaksóknari skaut málinu til Hæstaréttar 3. ágúst 2010. Af hálfu ákæruvaldsins er þess krafist að hinn áfrýjaði dómur verði staðfestur um sakfellingu og sviptingu ökuréttar ákærða en að refsing...
Mál nr. 363/2009
Kærumál Hald Kröfugerð
R framkvæmdi húsleit 3. júní 2009 á grundvelli úrskurðar Héraðsdóms Reykjavíkur 2. júní 2009 í húsnæði lögmannsstofunnar L og í tveimur fasteignum, annarrar í eigu H en hinnar í eigu sambýliskonu hans. Krafðist H viðurkenningar á því að húsleitirnar hefðu verið ólögmætar. Þá krafðist hann þess að R yrði gert að skila t...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson, Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson. Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 25. júní 2009, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 23. júní 2009, þar sem hafnað v...
Mál nr. 308/2009
Kærumál Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Hjördís Hákonardóttir og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari. Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 6. júní 2009, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 8. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíku...
Mál nr. 812/2016
Kærumál Vanreifun Frávísunarúrskurður staðfestur
G krafðist þess að ógilt yrðu leyfi Í sf. og H til reksturs söfnunarkassa með peningavinningum og peningahappdrættis. Þá krafðist hann skaðabóta vegna þess tjóns sem hann taldi sig hafa orðið fyrir vegna slíks rekstrar. Í úrskurði héraðsdóms, sem staðfestur var í Hæstarétti, kom fram að G hefði hvorki gert viðhlítandi ...
Dómur Hæstaréttar.Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir MarkúsSigurbjörnsson, Benedikt Bogason og Viðar Már Matthíasson. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru5. desember 2016, en kærumálsgögn bárust réttinum 16. sama mánaðar. Kærður erúrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 22. nóvember 2016 þar sem máli sóknaraðil...
Mál nr. 197/2004
Kærumál Nauðungarvistun
Með beiðni dagsettri 5. maí sl. hefur X farið fram á að felld verði úr gildi ákvörðun Dóms- og kirkjumálaráðuneytisins frá 5. maí sl. um það að hún skuli vistast nauðug á sjúkrahúsi.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Gunnlaugur Claessen, Ingibjörg Benediktsdóttir og Ólafur Börkur Þorvaldsson. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 14. maí 2004, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 17. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 13. maí 2004, þar sem ...
Mál nr. 120/2016
Kærumál Vanreifun Frávísunarúrskurður staðfestur
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem máli iG ehf. á hendur IWH ehf. var vísað frá dómi. Í dómi Hæstaréttar kom fram að þótt málshöfðunarfrestur 2. mgr. 43. gr. laga nr. 31/1990 um kyrrsetningu, lögbann o.fl. væri skammur og að ekkert væri því til fyrirstöðu að iG ehf. aflaði frekari sönnunargagna undir rekstri m...
DómurHæstaréttar.Mál þettadæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Helgi I. Jónsson ogGuðrún Erlendsdóttir settur hæstaréttardómari. Sóknaraðiliskaut málinu til Hæstaréttar með kæru 12. febrúar 2016, en kærumálsgögn bárustréttinum 18. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Suðurlands 1. febrúar2016...
Mál nr. 102/2004
Kærumál Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
Telja verður að rökstuddur grunur sé fyrir því að kærði, X, hafi átt hlut að brotum gegn 124. gr., 173. gr. a, 211. gr. og eða 221. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, og að hætta geti verið á því að hann torveldi rannsókn málsins, sem enn er ólokið, svo sem með því að skjóta undan gögnum og hafa áhrif á vitni og e...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Gunnlaugur Claessen, Árni Kolbeinsson og Ingibjörg Benediktsdóttir. Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 3. mars 2004, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 5. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 3. mars 2004, þar sem varnaraðil...
Mál nr. 138/2000
Fasteignakaup Galli Afsláttur
K og S gerðu nokkrar breytingar á íbúð sem þau áttu. Við það myndaðist rauf í parket, sem var á gólfi íbúðarinnar, 1 m á lengd og 12,5 cm á breidd. Samskonar parket var sett í til þess að fylla raufina, en lagfæringin var sýnileg og áberandi. V og B keyptu íbúðina af K og S, eftir að hafa skoðað hana tvívegis. Eftir af...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Garðar Gíslason, Guðrún Erlendsdóttir og Gunnlaugur Claessen. Aðaláfrýjendur skutu málinu til Hæstaréttar 3. apríl 2000. Þau krefjast þess að gagnáfrýjendur greiði sér 500.000 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla vaxtalaga nr. 25/1987 frá 20. maí 1999 til ...
Mál nr. 84/2004
Kærumál Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
Ríkislögreglustjóri hefur krafist þess að X verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 3. mars 2004 klukkan 16:00.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson, Ingibjörg Benediktsdóttir og Ólafur Börkur Þorvaldsson. Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 21. febrúar 2004, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 24. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 21. febrúar 2004, þar...
Mál nr. 739/2016
Kærumál Nauðungarsala
A hf. kærði úrskurð héraðsdóms þar sem því var hafnað að fella úr gildi ákvörðun sýslumanns um að stöðva nauðungarsölu á jörð í eigu Þ og S. A hf. hafði krafist þess að fasteignin yrði seld nauðungarsölu með vísan til veðskuldabréfs útgefnu af Þ og S þar sem eignarhluti Þ hefði verið settur að veði. Þ mótmælti kröfunni...
DómurHæstaréttar.Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir GretaBaldursdóttir, Benedikt Bogason og Karl Axelsson.Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttarmeð kæru 27. október 2016, en kærumálsgögn bárust réttinum 10. nóvember samaár. Kærður erúrskurður Héraðsdóms Suðurlands 14. október 2016 þar sem hafnað var kröfusóknaraðil...
Mál nr. 491/2005
Ávana- og fíkniefni Skilorð
G var sakfelldur í héraði fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni með því að hafa haft fíkniefni í vörslum sínum og selt slík efni í ágóðaskyni. Hann var einnig sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti. Var refsing hans ákveðin fangelsi í fimm mánuði og þar af fjórir mánuðir ...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Gunnlaugur Claessen, Hrafn Bragason og Markús Sigurbjörnsson. Ríkissaksóknari skaut málinu til Hæstaréttar 7. nóvember 2005 af hálfu ákæruvaldsins, sem krefst þess að staðfest verði niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu ákærða fyrir sakargiftir, sem greinir í ákæru...
Mál nr. 236/2006
Kærumál Málskostnaðartrygging
Mál þetta var tekið til úrskurðar 21. apríl sl. Upphaflega höfðaði stefnandi málsins, 101 Fasteignafélag ehf. mál á hendur Stafna á milli ehf., Frakkastíg ehf. og Hverfisgötu 59 ehf. með stefnu birtri 11. janúar 2006. Í málinu er gerð krafa um viðurkenningu Héraðsdóms Reykjavíkur á því að í gildi sé bindandi kaupsamnin...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Ingibjörg Benediktsdóttir og Hjördís Hákonardóttir. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 26. apríl 2006, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 3. maí sama ár. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 24. apríl 2006, þar sem ...
Mál nr. 481/2005
Kynferðisbrot
S var ákærður fyrir nauðgun með því að hafa þröngvað A með ofbeldi til samræðis eða annarra kynferðismaka á þann hátt sem nánar var lýst í ákæru. Fjölskipaður héraðsdómur mat framburð A af atvikinu trúverðugan en taldi framburð S haldinn ólíkindablæ og sakfelldi hann fyrir brot gegn 194. gr. almennra hegningarlaga með ...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Gunnlaugur Claessen, Árni Kolbeinsson, Garðar Gíslason, Hrafn Bragason og Markús Sigurbjörnsson. Ríkissaksóknari skaut máli þessu til Hæstaréttar 10. nóvember 2005 í samræmi við yfirlýsingu ákærða um áfrýjun, en jafnframt af hálfu ákæruvalds, sem krefst þess að re...
Mál nr. 717/2009
Þjófnaður Umferðarlagabrot Ölvunarakstur Akstur án ökuréttar Ökuréttarsvipting Ítrekun
F var sakfelldur fyrir þjófnað með því að hafa brotist inn á skemmtistað og stolið þaðan sjö flöskum af sterku áfengi og svartri leðurtösku með 120 geisladiskum. Þá var hann einnig sakfelldur fyrir nytjastuld og umferðarlagabrot með því að hafa í heimildarleysi tekið bifreið og ekið henni, undir áhrifum áfengis, sviptu...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingibjörg Benediktsdóttir, Garðar Gíslason og Gunnlaugur Claessen. Ríkissaksóknari skaut málinu til Hæstaréttar 17. nóvember 2009 og krefst þess að refsing ákærða verði þyngd og höfð óskilorðsbundin, svo og að staðfest verði ævilöng svipting ökuréttar ákærða. Ákæ...
Mál nr. 446/2008
Kærumál Málskostnaður Kæruheimild Frávísun frá Hæstarétti
Máli Á gegn G, S o.fl. var vísað frá héraðsdómi en málskostnaður felldur niður. G og S kærðu úrskurðinn og kröfðust þess að Á yrði gert að greiða þeim málskostnað í héraði og kærumálskostnað. Í lögum er ekki að finna sjálfstæða heimild til að kæra eingöngu ákvæði um málskostnað í úrskurði héraðsdómara nema svo standi á...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson, Gunnlaugur Claessen og Markús Sigurbjörnsson. Sóknaraðilar skutu málinu til Hæstaréttar með kæru 28. júlí 2008, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 12. ágúst sama ár. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Norðurlands eystra 15. júní 2008, þar sem má...
Mál nr. 126/2007
Kærumál Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingibjörg Benediktsdóttir, Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson. Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 2. mars 2007, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 5. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 2. mars 2007, þar ...
Mál nr. 802/2017
Lögmaður Skaðabætur Starfsábyrgðartrygging Sönnun
S fól lögmanni að annast um innheimtu bóta fyrir sína hönd vegna vinnuslyss sem hann lenti í á árinu 2005 og fór uppgjör bóta vegna slyssins fram á árinu 2009. S taldi að lögmaðurinn hefði sýnt af sér vanrækslu við gæslu hagsmuna sinna og krafðist bóta á grundvelli starfsábyrgðartryggingar lögmannsins hjá V hf. Byggði ...
Dómur Hæstaréttar.Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Þorgeir Örlygsson ogKarl Axelsson og Hildur Briem héraðsdómari. Áfrýjandi skaut málinu upphaflega til Hæstaréttar 10. október2017. Ekki varð af fyrirhugaðri þingfestingu þess 22. nóvember 2017 og áfrýjaðihann öðru sinni 19. desember það ár. Hann krefst þess að stef...
Mál nr. 308/1998
Þjófnaður Líkamsárás Hótanir Ávana- og fíkniefni Eignaspjöll Skaðabætur Skilorðsrof Eignaupptaka
K sætti fimm ákærum fyrir tvær meiriháttar líkamsárásir, hnífaburð og hótanir, eignaspjöll, vörslu fíkniefna ásamt fjölda innbrota. Talið var sannað, gegn andmælum K, að hann hefði gerst sekur um brot gegn 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga hvað varðaði aðra þá líkamsárás sem hann var ákærður fyrir. Þá var hann sa...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Garðar Gíslason, Gunnlaugur Claessen og Markús Sigurbjörnsson. Ríkissaksóknari skaut til Hæstaréttar dómum Héraðsdóms Reykjavíkur 26. júní og 21. júlí 1998 með stefnum 28. júlí sama árs í samræmi við yfirlýsingar ákærða um áfrýjun og einnig af hálfu ákæruvalds. Má...
Mál nr. 661/2012
Kærumál Fjármálafyrirtæki Slitameðferð Réttindaröð Lífeyrisskuldbinding
Lífeyrissjóðurinn L lýsti kröfu við slit fjármálafyrirtækisins S hf. vegna lífeyrisskuldbindinga sem hvíldu á S hf. en krafan var til komin vegna ógjaldfallinna lífeyrishækkana samkvæmt 1. mgr. 33. gr. laga nr. 1/1997 um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins. Krafa L var hvorki reist á vinnusamningi né fól hún í sér beint ...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingibjörg Benediktsdóttir, Eiríkur Tómasson og Þorgeir Örlygsson. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 16. október 2012 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 25. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 5. október 2012. Þar var hafna...
Mál nr. 410/2017
Kærumál Gæsluvarðhaldsúrskurður felldur úr gildi
Felldur var úr gildi úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Dómur Hæstaréttar.Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Helgi I. Jónsson, Benedikt Bogasonog Karl Axelsson. Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 23. júní 2017, sembarst réttinum ásamt kærumálsgögnum 26. sama mánaðar. Kærður er úrskurðurHéraðsdóms Reykjavíkur 23. júní 2017, þar sem varnaraðila var gert að sæ...
Mál nr. 179/2001
Kærumál Vanreifun Aðild Frávísunarúrskurður staðfestur
Ö ehf. krafðist þess að fá dóm á hendur E ehf. og S, óskráðu einkafirma. Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um frávísun málsins frá dómi sökum óljósrar dómkröfu Ö ehf., en henni virtist í raun vera beint að J og E, sem Ö ehf. taldi vera fyrirsvarsmenn S.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Gunnlaugur Claessen og Ingibjörg Benediktsdóttir. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 8. maí 2001, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 22. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 26. apríl 2001, þar sem vís...
Mál nr. 422/2016
Kærumál Vistun barns Lögvarðir hagsmunir Frávísun frá Hæstarétti að hluta Gjafsókn
A kærði úrskurð héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu hennar um að úrskurður B, þar sem ákveðið var að synir hennar yrðu vistaðir utan heimilis í allt að tvo mánuði, yrði felldur úr gildi og tekin til greina krafa um að þeir yrðu vistaðir utan heimilis í fjóra mánuði. Kröfu A sem laut að ákvörðun B var vísað frá héraðsdó...
DómurHæstaréttar.Mál þetta dæma hæstaréttardómararnirBenedikt Bogason, Greta Baldursdóttir og Karl Axelsson. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttarmeð kæru 1. júní 2016, en kærumálsgögn bárust réttinum 6. sama mánaðar. Kærðurer úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 20. maí 2016, þar sem hafnað var kröfusóknaraðila um að fe...
Mál nr. 530/2012
Kærumál Innsetningargerð Börn
Mál þetta, sem barst héraðsdómi 3. maí 2012, var tekið til úrskurðar 17. júlí 2012. Gerðarbeiðandi er M, kt. og heimilisfang [...]. Gerðarþoli er K, kt. og heimilisfang [...].
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson, Greta Baldursdóttir og Ingibjörg Benediktsdóttir. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 30. júlí 2012, sem barst héraðsdómi degi síðar og Hæstarétti ásamt kærumálsgögnum 2. ágúst sama ár. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 23. ...
Mál nr. 247/2014
Kærumál Hæfi dómara
Staðfestur varúrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu X o.fl. um að héraðsdómari vikisæti í máli sem borið var undir héraðsdóm í tilefni haldlagningar gagna í eiguX o.fl.
Dómur Hæstaréttar Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, EiríkurTómasson og Helgi I. Jónsson. Varnaraðilar skutu málinu til Hæstaréttar með kæru 7. apríl 2014, sembarst réttinum ásamt kærumálsgögnum 9. sama mánaðar. Kærðurer úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 4. apríl 2014, þar sem hafnað var kröfuva...
Mál nr. 116/2001
Akstur sviptur ökurétti
G var sakfelldur fyrir að hafa ekið án ökuréttar. Hafði G áður hlotið þrettán dóma og eitt skipti gengist undir lögreglustjórasátt fyrir akstur án ökuréttar. Með hliðsjón af sakarferli hans var honum gert að sæta fangelsi í þrjá mánuði.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Árni Kolbeinsson og Gunnlaugur Claessen. Ríkissaksóknari skaut málinu til Hæstaréttar 19. mars 2001 í samræmi við yfirlýsingu ákærða um áfrýjun en einnig af hálfu ákæruvalds, sem krefst nú staðfestingar héraðsdóms. Ákærði krefst þess að refs...
Mál nr. 100/2013
Kærumál Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, á grundvelli c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Þorgeir Örlygsson, Greta Baldursdóttir og Helgi I. Jónsson. Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 11. febrúar 2013 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 8. febrúar 2013, þar sem varnaraðila var g...
Mál nr. 224/2003
Kærumál Barnavernd Vistun barns Gjafsókn
Hæstiréttur staðfesti úrskurð héraðsdóms þar sem barnaverndarnefnd var heimilað að vista A, son M og K, á meðferðarheimili.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Gunnlaugur Claessen og Ingibjörg Benediktsdóttir. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 26. maí 2003, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 11. júní sl. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 20. maí 2003, þar sem sóknaraði...