text stringlengths 0 5.29M |
|---|
Einangrun sem hælisleitendur í Ástralíu eru látnir sæta á afskekktri eyju í Kyrrahafi jafnast á við pyntingar samkvæmt alþjóðlegum lögum. Þetta er niðurstaða skýrslu Amnesty International um búðirnar. Mannréttindasamtökin segja að í búðunum séu misþyrmingar algengar og það þar geisi faraldur sjálfskaða. Yfirvöld í Ástr... |
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, ætlar að leggja til við þingið að fram fari ný rannsókn á einkavæðingu bankanna og á einkavæðingu hinni síðari. Hann segir ríkisstjórnina nota umræðu um rannsókn á einkavæðingunni til að dreifa athyglinni frá vandræðagangi hennar við landsstjórnina. Í ræðu sin... |
Leikmaður í Alsír lést eftir að hafa fengið stein í höfuðið frá áhorfanda. Albert Ebosse fékk steininn undir lok leiks JS Kabylie og USM Alger. Kamerúninn skoraði mark síns liðs í leiknum en hann fékk steininn í höfuðið á leið sinni af vellinum. Hann fór rakleiðist á spítala en lést af sárum sínum. Fyrirliði liðsins se... |
Ef marka má skráningu Læknafélagsins virðast íslenskir læknar vera að flytja frá útlöndum aftur heim til Íslands. " Heimfluttir læknar frá mars til júní á þessu ári voru 24 en brottfluttir tíu, " segir Þorbjörn Jónsson, formaður Læknafélags Íslands. Hann setur þó fyrirvara við tölurnar þar sem um er að ræða hausatalnin... |
Nýtt gistiskýli fyrir heimilislausa karlmenn var opnað í gær, mánudag, við Lindargötu 48. Skýlið var kynnt fyrir fjölmiðlafólki á föstudag. Gestir skýlisins gistu aðfaranótt sunnudags í farsóttarhúsinu við Þingholtstræti en fluttu sig um set á Lindargötu á mánudagskvöld. Starfsemi gistiskýlisins verður óbreytt frá Þing... |
Varnarmaðurinn Andy Pew er genginn í raðir Þróttar Vogum. Pew er 37 ára og kemur frá Vestra en hann var valinn í lið ársins í 2. deild í sumar. „ Fyrir tíma sinn hjá Vestra spilaði Andrew á Selfossi þar sem hann hefur spilað síðastliðin ár við góðan orðstír í Inkasso deildinni. Andrew kom fyrst til landsins árið 2006 o... |
Breski grínistinn Jimmy Carr verður ekki með uppistand á Íslandi 2. og 3. september eins og upprunalega stóð til vegna áframhaldandi samkomutakmarkanna, segir í tilkynningu frá Senu. Sýningarnar hans frestast til 9. og 10. mars á næsta ári en það fólk sem var búið að kaupa miða á viðburðinn þurfa ekki að aðhafast því m... |
Að minnsta kosti tveir létust í sprengingu sem varð í fimm hæða byggingu í austurhluta Harlem í New York í dag með þeim afleiðingum að byggingin hrundi. CNN greinir frá. Að minnsta kosti sextán slösuðust þar af fjórir alvarlega. Ungt barn er í lífshættu. Mikill reykur umlykur nálæg hús og er allt tiltækt lið á svæðinu.... |
Heimilismenn á Sólheimum voru mjög lukkulegir þegar Postularnir sem eru hluti af Bifhjólasamtökum Suðurlands sóttu þá heim fyrir skemmstu. Heimamenn fengu að setjast aftan á hjólin hjá Postulunum og rúnta um staðinn. Talað við Baldur Róbertsson, formann Postulanna og íbúana á Sólheimum Hauk Þorsteinsson, Ármann Eggerts... |
" Ég er búinn að hafna þessu tilboði frá Rússlandi en það eru fleiri áhugaverð lið komin inn í myndina, " sagði Matthías Vilhjálmsson, leikmaður norska úrvalsdeildarliðsins Start, í samtali við Morgunblaðið. Start hafði tekið tilboði frá rússneska liðinu Ufa í Matthías og gáfu Rússarnir honum frest til dagsins í gær ti... |
Hljómsveitin Retro Stefson heldur afmælistónleika á Kex hosteli í kvöld kl. 21. Hljómsveitin fagnar tíu ára afmæli sínu á árinu. Lítið hefur farið fyrir sveitinni síðustu mánuði, hún aðeins haldið örfáa tónleika, og er ástæðan sú að hún vinnur nú að fjórðu breiðskífu sinni, Scandinavian Pain. Eitt laga plötunnar hefur ... |
Stundum koma upp mál sem eru svo skrítin og skemmtileg að maður skilur ekki hvernig hlutaðeigandi hafa getað anað út í þau. Þannig er til dæmis með listamanninn Ásmund Ásmundsson sem hefur stefnt listamanninum Kristin E. Hrafnsson fyrir meiðyrði. Kristinn skrifaði um Ásmund í blaðagrein : „ Ofan á þetta er hann kunnast... |
Þriðjungshlutur í Arion banka, sem Miðflokkur Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar lofar að afhenda öllum Íslendingum til jafns, gæti verið 60 - 70 milljarða króna virði. Það þýðir að hlutur hvers mannsbarns á Íslandi í dag gæti verið metinn á bilinu 174 til 212 þúsund krónur. Sigmundur Davíð segir að það sé nokkuð nærri la... |
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hlakkar til að heimsækja Claudio Ranieri á King Power leikvanginn í dag. Leicester hefur byrjað tímabilið frábærlega og er eina taplausa lið deildarinnar. Wenger talar vel um Ranieri en þeir þekkjast frá þeim tíma þegar Ranieri stýrði Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í byrjun þessarar alda... |
Tuttugasta þing kommúnistaflokks Ráðstjórnarríkjanna var sett í Moskvu 14. febrúar 1956. Kristinn E. Andrésson, framkvæmdastjóri Máls og menningar, var annar fulltrúi Sósíalistaflokksins á þinginu. Fyrstu dagana fluttu nokkrir foringjar kommúnista ræður, sem skilja mátti sem ádeilur á Stalín, hinn gamla einræðisherra, ... |
Í fyrsta þætti fimmtu þáttaraðar kemur það í ljós að Ivy hefur flutt til Los Angeles með kærasta sínum, Max. |
Chelsea hefur gert búningasamning að verðmæti 60 milljóna Bandaríkjadala á ári við bandaríska íþróttavörurisann Nike. Chelsea hefur leikið í búningum frá Adidas undanfarin 10 ár en félagið tilkynnti fyrr í þessum mánuði að leiðir þess og Adidas myndu skilja sex árum fyrr en áætlað var. Næsta tímabil verður það síðasta ... |
Norwich og Derby vilja fá Aron Einar Gunnarsson, miðjumann Cardiff, í sínar raðir samkvæmt frétt The Sun í dag. The Sun segir að bæði félög séu tilbúin að kaupa Aron á tvær milljónir punda. Aron átti ekki alltaf fast sæti í liði Cardiff á síðasta tímabili og hann var á bekknum í markalausu jafntefli liðsins gegn Birmin... |
Flutningaiðnaðurinn er afskaplega mikilvægur hluti af markaðshagkerfi nútímans og veltir gríðarlegum upphæðum. Það er því til margs að vinna í framtíðarþróun, ekki síst í breyttu landslagi tækni og tækifæra. Þar ber helst að nefna möguleikann á sjálfkeyrandi flutningabílum sem færist æ nær raunveruleikanum eftir því se... |
Blý og aðrir þungmálmar hafa verið tengdir við raskanir í taugakerfinu. |
Guðfríður Guðjónsdóttir ( Dæda ) fæddist í Miðdalsgröf í Strandasýslu 31. maí 1935. Hún lést á Sjúkrahúsinu á Akranesi 1. febrúar 2021. Hún er dóttir hjónanna Jónnýjar Guðbjargar Guðmundsdóttur, f. 7. október 1916, d. 7. mars 1989, og Guðjóns Gríms Grímssonar, f. 26. mars 1903, d. 30. mars 1995. Systir hennar er Sigríð... |
Bassasöngvarinn Bjarni Thor Kristinsson syngur á hádegistónleikum í Hannesarholti á sunnudaginn, 21. október, klukkan 12.15. Tónleikarnir eru liður í dagskrá Óperudaga og bera titilinn Litið um öxl. Bjarni og Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari ætla þar að kíkja í gamlar tónleikaskrár og setja saman dagskrá úr ve... |
Efsti maður heimslistans í snóker, John Higgins var í gær settur í keppnisbann af Alþjóða snókersambandinu á meðan ásakanir um að hann hafi þegið mútur eru rannsakaðar. Higgins er þrefaldur heimsmeistari en hann féll óvænt úr leik fyrir Steve Davies í annarri umferð á HM sem nú stendur yfir í Sheffield. Higgins er saka... |
Marfríður Sigurðardóttir eða Mara, eins og hún var kölluð, lést á Landspítalanum við Hringbraut 29. júní, eftir stutta legu þessa björtustu og fegurstu daga sumarsins. Það er gott til þess að vita að sumarið var komið þegar hún kvaddi og allt var svo bjart og hlýtt og fallegt. Mara hafði nefnilega beðið eftir sumrinu –... |
STJÓRNARFLOKKARNIR þrír í Færeyjum - Þjóðarflokkurinn, Þjóðveldisflokkurinn og Sjálfstýrisflokkurinn - hafa endurheimt stuðning meirihluta færeyskra kjósenda, ef marka má nýja skoðanakönnun sem birt var í Dimmalætting í gær. Könnunin bendir til þess að flokkarnir hafi endurheimt að mestu það fylgi sem þeir töpuðu í kön... |
Avram Grant, knattspyrnustjóri Portsmouth, segir að sínir menn muni ekki láta það hafa nein áhrif á leik sinn við Burnley á morgun að þeir hafi ekki fengið greidd launin sín um þessi mánaðamót. Hann staðfesti að þeir hefðu fengið 25 prósent launanna í dag og afgangurinn yrði greiddur út næsta föstudag. Þetta er í annað... |
Sjö svartar köngulær með rauðum blettum hafa borist Náttúrufræðistofnun til skoðunar á síðustu vikum. Allar bárust þær til landsins í vínberjaklösum. Skordýrafræðingur ráðleggur fólki að ergja þær ekki ef þær birtast á heimili þeirra. Náttúrufræðistofnun gerir þessum svörtum köngulóm skil í grein á vef sínum í dag. Þar... |
Þá að laxveiðum, sem er í flestum laxveiðiám mun minni en á sama tíma í fyrra. Þess ber þó að geta að þá voru slegin veiðimet í velflestum straumvötnum landsins. Samkvæmt veiðitölum frá því fyrir helgi hefur Norðurá í Borgarfirði, líkt og oft áður, skilað flestum löxum eða samtals 1045 stykkjum. Á sama tíma í fyrra höf... |
stutt Leiðrétt Í frétt á forsíðu 24 stunda í gær voru nafngreindir þrír menn sem sagðir voru grunaðir um líkamsárás á Litla-Hrauni síðastliðinn fimmtudagsmorgun. Sú upptalning er að hluta til ekki rétt. Einhverjir þeirra sem þar voru nefndir eru ekki grunaðir um þátttöku í árásinni. Í frétt um sama mál á síðu fjögur í ... |
Leikjafyrirtækið Eidos hefur gefið út nýjan herkænskuleik sem ber nafnið " Three Kingdoms : Fate of the Dragon " og fjallar um glundroðatíma í Kína eftir að Han-keisaraveldið féll. 8 |
Hatem Ben Arfa verður seint talinn mikill vinur eða aðdáandi Unai Emery en lið þeirra mættust í Evrópudeildinni í knattspyrnu í gærkvöld. Ben Arfa og félagar í Rennes unnu 3 : 1 - sigur á Arsenal, sem Emery stýrir, eftir að Sokratis Papastathopoulos var rekinn af velli í fyrri hálfleik. Liðin mætast að nýju í London í ... |
Mainz 0 - 1 Borussia M. 0 - 1 Nico Elvedi ( ' 63 ) Mainz og Borussia Mönchengladbach mættust í síðdegisleik þýsku úrvalsdeildarinnar. Aðeins eitt mark var skorað í leiknum og það gerði Nico Elvedi í seinni hálfleik fyrir Mönchengladbach. Mönchengladbach er með 46 stig í 4. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar, Mainz er ekki í... |
Anthony Davis og Russell Westbrook áttu sannkallaðan stórleik fyrir Los Angeles Lakers þegar liðið vann sinn annan sigur í NBA-deildinni í körfuknattleik gegn San Antonio Spurs á útivelli í nótt. Leiknum lauk með 125 : 121 - sigri Lakers eftir framlengdan leik en Davis var stigahæstur í liði Lakers með 35 stig og sautj... |
Everton ætlar sér að byggja nýjan heimavöll og vonast til þess að hefja framkvæmdir á næsta ári. Everton vill byggja 52 þúsund manna heimavöll, völlurinn á að vera staðsettur við Bramley-Moore Doc. Everton hefur lengi viljað byggja nýjan heimavöll en þessi er ansi glæsilegur. Gylfi Þór Sigurðsson leikur með Everton en ... |
Hafnarfjarðarliðin unnu bæði sína leiki á fyrsta kvöldi UMSK-móts kvenna í handbolta sem fer fram í Digranesi um helgina. Konurnar byrjuðu í kvöld en karlarnir hefja síðan leik á morgun. Handboltinn er að byrja aftur eftir sumarfrí og er þetta eitt af undirbúningsmótunum. FH vann sextán marka sigur á Aftureldingu, 32 -... |
Þá er Iceland Airwaves-tónlistarhátíðin brostin á. Tónlistarspekúlantar, tónlistarmenn og aðrir áhugamenn um tónlist fagna og flykkjast í miðbæ Reykjavíkur til að sækja einhverja af þeim viðburðum sem í boði eru. Af nógu er að taka. Gamalkunnur valkvíði gerir vart við sig og sígilda svekkelsið yfir að geta ekki verið á... |
Leiðtogar Evrópusambandsins segja fjárlög sambandsins og risa björgunarpakka vegna kórónuveirufaraldursins marka tímamót í sögu Evrópu. 800 milljarða evra björgunaraðgerðir tryggi vonandi enduruppbyggingu álfunnar. Viðræðunum lauk í nótt og samþykkti leiðtogaráðið tæplega tveggja billjóna evra fjárlög sem fela meðal an... |
VERÐ á áfengi hækkar í dag, 1. september. Bjór hækkar um 1,93% og annað áfengi að meðaltali um 2,4%. Í tilkynningu frá ÁTVR segir að hækkanirnar stafi af nýrri verðskrá hjá birgjum. Verðskrá áfengis er að finna á vef ÁTVR, www.atvr.is. |
TIL greina kemur að Plácido Domingo, tenórinn frægi, taki við sem stjórnandi Metropolitan-óperuhússins í New York. Um er að ræða eitt valdamesta stjórnunarstarf í bandarískum listheimi. Domingo stjórnar um þessar mundir bæði Los Angeles-óperunni og í Þjóðaróperunni í Washington. Núverandi stjórnandi Metropolitan er Jos... |
Mitchell van der Gaag, þjálfari portúgalska liðsins Belenenses, fagnar komu Eskfirðingsins Eggerts Gunnþórs Jónssonar. Hann sé fjölhæfur leikmaður sem sé staðráðinn í að koma ferlinum af stað aftur eftir að hafa lítið spilað með Wolves á Englandi. " Eggert er fjölhæfur leikmaður og getur leikið sem bakvörður, miðvörður... |
Vaclav Havel, fyrrverandi forseti Tékklands, hefur sent frá sér nýtt leikrit, hið fyrsta í tuttugu ár, og hefur það hlotið lof í fjölmiðlum. Leikritið kom í búðir nú í vikunni, en er væntanlegt á fjalirnar á næsta ári. Það fjallar um kanslara sem á erfitt með að láta af embætti eftir langa setu. Verkið heitir " Vistask... |
Sigurganga Þróttara heldur áfram í 4. deildinni en liðið verður í eldlínunni í kvöld þegar taplausir heimamenn fá lið Skínanda í heimsókn á Vogabæjarvöll. Þróttarar eru öruggir í umspil um laust sæti í 3. deildinni og æta sér eflaust ekki að slaka á klónni gegn botnliðinu. Markatala Þróttarar er vægast sagt glæsileg, 4... |
Fundað var um mögulegt ríkisstjórnarsamstarf Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í sumarhúsi í Biskupstungum í gær. Þeir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, og Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, héldu áfram að finna sameiginlegan flöt á stefnumálum sínum. Aðstoðarmenn þeirra, ... |
Til hinstu stundar heitir nýútkomin bók sem hefur að geyma frásögn konu sem var einkaritari Hitlers frá 1942 allt til endalokanna í neðanjarðarbyrginu í Berlín í maí 1945. Þessi kona, Traudl Junge, skráði minningar sínar skömmu eftir stríðslok en það var ekki fyrr en skömmu fyrir andlát sitt, 2002, að hún féllst á að þ... |
S'more er amerískur eftirréttur sem vinsælt er að útbúa við varðeld í útilegum ytra. Samanstendur þetta ljúfmeti af grilluðum sykurpúðum og þykku lagi af súkkulaði sem klemmt er á milli tveggja graham kexkaka og borðað eins og samloka. S'more er stytting á „ some more “ og er hægt að rekja þennan ameríska eftirrétt all... |
Ólöf Skaftadóttir hefur verið ráðin aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins, við hlið Andra Ólafssonar, og munu þau deila með sér fréttastjórn á blaðinu. Ólöf hefur starfað um nokkura ára skeið hjá 365 miðlum, meðal annars sem blaðamaður, umsjónarmaður helgarblaðs Fréttablaðsins og við ritstjórn á 19:10, opna glugganum á Stöð... |
Nýtt skólaár er hafið hjá Símenntunarmiðstöð Vesturlands. Þar er boðið upp á fjölbreytt nám fyrir fullorðna og samstarfsverkefnin eru af ýmsum toga. Að sögn Ingu Dóru Halldórsdóttur framkvæmdastjóra Símenntunarmiðstöðvarinnar verður að vanda fjölbreytt námsframboð á þessu skólaár. „ Verkefnin hjá okkur eru mörg og ólík... |
Hæstiréttur hefur staðfest tveggja ára fangelsisdóm yfir Baldri Guðlaugssyni, fyrrverandi ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu, vegna innherjasvika og brota í opinberu starfi. Einn hæstaréttardómari, Ólafur Börkur Þorvaldsson, skilaði séráliti og vildi láta vísa málinu frá. Baldur var ákærður fyrir innherjasvik og br... |
MYNDLISTARKONAN Laura Valentino opnaði sýningu á grafíkverkum í gær í sal Íslenskrar grafíkur, Tryggvagötu 17, hafnarmegin. Hún sýnir grafíkverk unnin með ljósmyndaaðferð sem kallast " gum bichromate " en það er aðferð sem var vinsæl um hríð seint á 19. öld, einkum í meðförum ljósmyndara sem vildu ná fram tjáningarríkr... |
PÓST - og fjarskiptastofnun er með til umfjöllunar erindi Tals hf. frá því í febrúar sl. þar sem farið var fram á sérstaka athugun á meintum eignatengslum Landssímans og Íslandssíma í gegnum ríkissjóð. Ríkið á um 95% hlutafjár í Símanum og er eigandi um 68% hlutafjár í Landsbankanum, sem er stærsti einstaki hluthafinn ... |
Fyrsta útsending Sýnar frá Formúlu 1 verður á mánudagskvöld. Þá verður sýnt frá frumsýningum Formúlu 1 keppnisliða og rætt við toppökumenn liðanna og tæknistjóra. Síðan verða átta útsendingar í viðbót í vikunni frá Formúlu 1 á Sýn. Sýn hefur samið við fjóra kostendur um samvinnu vegna útsendinganna, en það eru fyrirtæk... |
Breskur njósnari að nafni James Bond var sendur til starfa austan járntjaldsins í Póllandi tveimur árum eftir að fyrsta Bond-myndin, Dr. No, var frumsýnd. Þetta kemur fram í nýbirtum gögnum frá pólsku gagnnjósnaþjónustunni. Bond kom til Varsjár 18. febrúar 1964 og opinber staða hans í breska sendiráðinu var skjalavörðu... |
Í LOK menningarárs er Guðný Magnúsdóttir listamaður mánaðarins í Linsunni. Í verslunum Linsunnar í Aðalstræti og við Laugaveg eru til sýnis leirskúlptúrar eftir Guðnýju Magnúsdóttur. Verkin eru unnin í steinleir veturinn 1990 / 2000. Útstillingarhönnuður er Brigitte Lútersson. Sýningin stendur til jóla. |
Sjötíu og þriggja ára gamall maður, sem tengist Ku Klux Klan samtökunum er í haldi lögreglu í Kansas í Bandaríkjunum, grunaður um að hafa orðið þremur að bana í borginni í gær. Feðgar, læknir og fjórtán ára gamall sonur hans voru skotnir í félagsheimili gyðinga í borginni og eldri kona var skotin á elliheimili í grennd... |
Handboltamaðurinn Árni Bragi Eyjólfsson er genginn í raðir KA og hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið. Þetta kemur fram á heimasíðu KA. Á síðasta tímabili lék Árni Bragi, sem er 25 ára hægri hornamaður eða skytta, með KIF Kolding í dönsku úrvalsdeildinni. Árni Bragi er uppalinn hjá Aftureldingu og lék me... |
Gianluigi Donnarumma hefur skrifað undir fimm ára samning við Paris Saint-Germain. The Guardian greinir frá þessu. Þessi 22 ára gamli markvörður kemur á frjálsri sölu frá AC Milan, þar sem hann lék fyrst 16 ára gamall. Hann hefur verið stór partur af liðinu í um fimm ár, þrátt fyrir ungan aldur. Fyrir hjá PSG er markvö... |
Nýr Dominos veitingastaður opnar á Selfossi í dag og í tilefni þess mun Patrick Doyle, forstjóri Dominos í heiminum, mæta á staðinn og baka eina flatböku. Doyle flýgur með einkaþotu til landsins til þess eins að vera viðstaddur opnunina. Doyle var í fyrra valinn Forstjóri ársins, eða CEO of The Year upp á enska vísu, a... |
MYNDLISTARVERÐLAUN Myndlistarakademíu Íslands, Ullarvettlingarnir, féllu að þessu sinni Pétri Magnússyni í skaut. Verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn á Næsta bar á dögunum. Í fréttatilkynningu frá Myndlistarakademíunni segir m.a. : " Pétur á að baki langan feril í myndlistinni bæði heima og erlendis, þó hann haf... |
Enn vantar 200 starfsmenn á frístundarheimili Reykjavíkurborgar sem taka til starfa í næstu viku þegar skólar hefjast. Þegar er búið að ráð 159 manns sem eru helmingi fleiri ráðningar en á sama tímabili og í fyrra. Gert er ráð fyrir að ráðningum fjölgi verulega á næstu dögum og vikum þegar framhalds - og háskólanemar h... |
„ Allt frá árinu 2010 höfum við ekki séð humar koma í veiðistofninn, “ sagði Jónas Páll Jónasson, fiskifræðingur á Hafrannsóknastofnun, á Morgunvaktinni á Rás 1. Humarstofninn við Íslandsstrendur er mjög bágborinn og útlit fyrir að hætta verði veiðum á næstu árum, ef ekki verða breytingar. „ Okkar nýjustu gögn benda ek... |
Afgreiðslustúlka í verslun 11 - 11 í Kópavogi var slegin í gólfið um hádegi í dag er hún reyndi að fá konu til að greiða fyrir sígarettupakka sem hún hafði beðið um. Konan hljóp út úr búðinni með sígaretturnar, eftir að hafa lamið afgreiðslustúlkuna, en var handtekin skömmu síðar og færð til yfirheyrslu. |
Eldur kom upp í potti í íbúðarhúsi á Akureyri í dag. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði Akureyrar var einn fluttur á sjúkrahús til skoðunar. Greiðlega gekk að ráða niðurlögum eldsins. Að sögn slökkviliðsins tók ekki langan tíma að slökkva eldinn, sem hafði læst sig í eldhúsinnréttingu hússins, þegar slökkvilið bar að... |
Jóhannes Harðarson, þjálfari ÍBV í Pepsi-deildinni, hlakkar til að mæta Keflavík á morgun en Eyjamenn mættu í land í dag. ,, Þetta er mjög spennandi verkefni á morgun gegn Keflavík og við vonandi höldum áfram á sömu braut, þetta verður spennandi, “ sagí Jóhannes. ,, Gengið hefur ekki verið eins gott og við vildum varða... |
Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is SKÝRSLA vísindanefndar um loftslagsbreytingar á Íslandi varpar ljósi á það að hlýnun loftslags er jafnmikil hér og meðaltalshlýnun jarðarinnar. Skýrslan var kynnt í fyrradag. Hvað þetta ber í skauti sér er háð mörgum atriðum en víst þykir að jöklarnir bráðni og hverfi að mestu,... |
" Ég hef bara ekkert heyrt í honum í nokkra daga, " segir Sonja Kristinsson sem býr á fimmtu hæð í fjölbýlishúsi við Drekagil. Fyrir nokkru gerði þrastapar sér hreiður í blómavasa, í öruggu skjóli við sýprusinn sem þar vex og dafnar. Nú hefur Sonja áhyggjur af karlfuglinum, hann virðist hafa gufað upp, en frúin má fyri... |
Fréttatilkynning frá hestamannafélaginu Sóta. „ Með samhentu átaki Sótafélaga, Björgunarsveitarinnar í Hafnarfirði, Slökkviliðsins og starfsmönnum Reykjavík Helicopters tókst að bjarga hræjum þeirra hrossa sem drukknuðu í Bessastaðastjörn. Þau voru sett á vörubíl og farið var með þau til urðunar í Álfsnesi. Fyrir hönd ... |
Verslun H & M verður opnuð í Smáralind í byrjun september á næsta ári, í Kringlunni fyrir áramótin 2017 / 2018 og á Hafnartorgi 2018. H & M mun taka yfir 4.000 fermetra rými í vesturenda Smáralindar sem hýsir nú Debenhams en ekki liggur fyrir hvar í Kringlunni verslunin verður. Þá mun verslun H & M taka upp þriðjung af... |
Bílvelta varð í Hveradölum í gærkvöldi en þar voru aðstæður slæmar vegna veðurs. Ökumaðurinn var einn í bílnum og slasaðist hann ekki en bíllinn mun vera nokkuð skemmdur. Að sögn lögreglu var Hellisheiðin að mestu ófær fyrir fólksbíla í nótt og í morgun en á svæðinu er éljagangur og mikil hálka. |
Píratar ætla að bjóða fram lista í minnst sex sveitarfélögum í sveitarstjórnarkosningunum næsta vor, munu þeir bjóða fram lista í Reykjavík, Akureyri, Hafnarfirði, Garðabæ, Reykjanesbæ og Kópavogi. Erla Hlynsdóttir framkvæmdastjóri Pírata segir í samtali við Morgunblaðið í dag að ekki sé útilokað að Píratar muni bjóða ... |
Vísitölur bandarískra hlutabréfamarkaða tóku stökk upp á við í dag í kjölfar fregna af fundi leiðtoga Evrópusambandsríkja um helgina. Greinendur segja að væntingar standi til að á fundinum fáist einhver svör um hvernig Evrópa hyggst taka á þeim skuldavanda sem hún berst nú við. Klukkan tvö hafði Dow Jones hækkað um 1,4... |
Árið 1864 var svartsvanur fluttur frá Ástralíu til Nýja-Sjálands sem skrautfugl á vötnum og hefur tegundin breiðst út og eru svartsvanur nú algengur fugl þar á stærri vötnum og strandsvæðum. |
Maður, sem stal nokkrum tugum þúsunda úr afgreiðslu hótels við Rauðarárstíg skömmu eftir miðnætti í gær, var í dag úrskurðaður í 10 daga gæsluvarðhald vegna þess og annarra eldri mála. Maðurinn, sem náðist rúmlega hálfri klukkustund eftir þjófnaðinn, er einn af svonefndum góðkunningjum lögreglunnar. Þá var annar maður,... |
Sakborningar í Löke málinu hafa ákveðið að höfða mál gegn ríkinu vegna tilefnislausrar handtöku og húsleitar. Mennirnir tveir, lögfræðingur og starfsmaður fjarskiptafyrirtækis, voru handteknir í tengslum við rannsókn lögreglu á broti lögreglumanns vegna uppflettingar og meðferðar á upplýsingum úr upplýsingakerfi lögreg... |
Gengi bréfa mótorhjólaframleiðandans heldur áfram að lækka vegna vonbrigða með afkomu fyrirtækisins. Gengi bréfa Harley Davidson mótorhjólaframleiðandans hefur lækkað um 1,3% það sem af er degi í kauphöllinni í New York og kemur það ofan á töluverða lækkun í gær. Ástæðan er sú að uppgjör fyrirtækisins fyrir annan ársfj... |
Guðbrandur Ingi Hermannsson fæddist á Saurum í Dalasýslu 12. júní 1947. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 11. apríl 2016. Foreldrar hans eru Hermann Jóhannesson, f. 19. júní 1912, d. 28. maí 1989, og Guðbjörg Sigríður Guðbrandsdóttir, f. 11. júlí 1920. Bróðir Guðbrands er Þorsteinn Hermannsson, f. 29. ja... |
Tískuverslunin ER, við hliðina á Mokka við Skólavörðustíg, er ein af litlum sérverslunum sem setja svip sinn á götuna. " Ég er nýkomin með vörur, jakka, buxur, blússur, skó og pils, frá þýska hönnuðinum Rund Holz, sem er afar sérstakur og margir kannast við en svo er ég með ítalskar peysur frá Luana og föt frá þýska fy... |
Hinrik fæddist í keisarahöllinni í Goslar árið 1050. |
Næsta föstudag, 13. des., ætla nemendur úr fyrsta bekk Stóru-Vogaskóla og börn af Staðarborg, elstu deild leikskólans Suðurvalla, að opna sýninguna Hafið bláa hafið kl. 10 í Hlöðunni við Egilsgötu 8 í Vogum við Vatnsleysuströnd. Í nóvember komu börnin saman í hópum og unnu hlið við hlið að bátasmíði. Rætt var við börni... |
Ævintýrið um stígvélaða köttinn var fyrst gefið út á íslensku af Kristjáni Ó. Þorgrímssyni árið 1880 í þýðingu Steingríms Thorsteinssonar. |
Formaður Verkalýðsfélags Akraness bindur vonir við að starfsfólk fiskiðjuvers HB Granda á Akranesi haldi fullum launum og bónusgreiðslum þrátt fyrir að engin vinnsla hafi verið þar í vikunni. Á bilinu 50 - 60 starfsmenn fiskvinnslu HB Granda á Akranesi hafa verið heima í tvo daga þar sem hráefni er ekki fyrir hendi. Vi... |
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði og lagði upp mark fyrir Everton þegar liðið tók á móti D-deildarliðinu Salford City í enska deildabikarnum í knattspyrnu á Goodison Park í Liverpool í kvöld. Leiknum lauk með 3 : 0 - sigri Everton en Gylfi, sem var fyrirliði Everton í leiknum, lék allan leikinn á miðsvæðinu og skoraði annað... |
Veðurstofan hefur gefið frá sér viðvörun þar sem búist er við stormi ( meira en 20 m / s ) víða um land í kvöld og nótt. Norðaustan og austan 5 - 13 m / s, hvassast norðvestanlands og él eða snjókoma norðan - og austantil, annars bjartviðri. Vaxandi norðaustlæg átt upp úr hádegi og þykknar upp, víða 18 - 23 m/s í kvöld... |
Karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald en honum er gefið að sök að hafa rænt mann í strætóskýli, grímuklæddur og vopnaður kúbeini. Þá mun hann einnig sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur. Er honum gefið að sök að hafa rænt mann sem sat í strætóskýli í Kópavogi. Kom hann aðvífandi og heimtaði af ... |
Paige VanZant skapaði sér nafn sem bardagakona í UFC en hefur síðan baðað sig í sviðsljósinu eins og á samfélagsmiðlum og í sjónvarpsþættinum Dancing with the Stars. VanZant er samt ekki tilbúin að hætta að berjast þrátt fyrir alla velgengni sína utan búrsins og vill nú berjast fyrir því að konurnar í UFC fái betur bor... |
Í báðum orrustum sigraði Rúdolf, en særðist þó í seinni orrustunni. |
Viðbúið er að verulegar breytingar á samkomutakmörkunum verði kynntar í dag að loknum ríkisstjórnarfundi nú fyrir hádegið. Sóttvarnalæknir hefur skilað heilbrigðisráðherra minnisblaði um aðgerðir innanlands og á landamærunum. Óhætt er að segja að staða kórónuveirufaraldursins hér á landi sé nokkuð góð en enginn hefur g... |
HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Olísdeildin : Vestmannaeyjar : ÍBV – Haukar 18.30 TM-höllin : Stjarnan – Selfoss 19.30 Kaplakriki : FH – Afturelding 19.30 KÖRFUKNATTLEIKUR Umspil, undanúrslit, fjórði leikur : Smárinn : Breiðablik – Valur ( 1 : 2 ) 19.15 Hveragerði : Hamar – Fjölnir ( 2 : 1 ) 19.30 ÍSHOKKÍ : Annar úr... |
Forseta þings Kýpur tókst ekki að fá þrjá bandaríska hermenn lausa í Júgóslavíu í dag en hann átti fund með Slobodan Milosevic Júgóslavíuforseta. " Eins og kringumstæðum er háttað nú, og vegna þeirra boða sem leiðtogar Júgóslavíu og þjóðin fá um að þessum linnulausu sprengjuárásum verði haldið áfram, þá geta þau ekki s... |
Enska knattspyrnufélagið Arsenal staðfesti í dag að miðjumaðurinn Jack Wilshere hefði farið í uppskurð á ökkla og yrði frá keppni næstu þrjá mánuði. Wilshere meiddist í leik Arsenal gegn Manchester United síðasta laugardag en liðbönd í ökklanum slitnuðu. Það er því ólíklegt að hann verði tilbúinn í slaginn þegar Arsena... |
Lokað verður fyrir aðgengi almennings að gosstöðvunum klukkan níu í kvöld og búist við að rýmingu verði lokið um miðnætti. Opnað verður að nýju um hádegi á morgun. Í dag verða gosstöðvarnar í Geldingadölum vaktaðar af Lögreglu og björgunarsveitum til miðnættis. Lokað verður fyrir aðgengi að svæðinu klukkan níu í kvöld ... |
Allt að 83% verðmunur er á skólabókum sem framhaldsskólanemar þurfa að kaupa fyrir veturinn. Þetta kemur fram í nýrri verðkönnun ASÍ. Bækurnar eru oftast ódýrastar í A 4 - Office 1 en dýrastar í Eymundsson í Kringlunni. Verðlagseftirlit ASÍ kannaði í gær verð á nýjum og notuðum skólabókum. Farið var í átta verslanir á ... |
Í dag eru tvær vikur síðan Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands setti 147. löggjafarþingið og skoraði á þing og stjórnvöld að beita sér fyrir breytingum á stjórnarskrá varðandi völd forseta. Tilefnið var umræðan sem kom í kjölfar þess að forseti Íslands staðfesti uppreist æru manna sem hlotið höfðu dóma fyrir kynferði... |
Sam Allardyce mun halda áfram störfum sem knattspyrnustjóri West Bromwich Albion ef honum tekst hið ómögulega og bjargar liðinu frá falli úr ensku úrvalsdeildinni með ævintýralegum endaspretti. Allardyce staðfesti þetta við Sky Sports og sagði að samningurinn hljóðaði upp á það. Ef WBA fellur mun hann setjast niður með... |
Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, fór mikinn í ræðu sinni undir dagskrárliðnum Störf þingsins við upphaf þingfundar í dag. Helgi gerði störf mannanafnanefndar að umfjöllunarefni sínu og var það frétt Morgunblaðsins um unga stúlku sem fær ekki að heita Alex sem veitti honum innblástur. Alex Emma má ekki heita Al... |
Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði telur enga ástæðu til að óttast að niðurstöður íbúakosningar í Hafnarfirði fæli erlenda fjárfesta frá landinu og segir það víðs fjarri að leikreglum hafi verið breytt í miðju stækkunarferli álversins í Straumsvík. Samtök atvinnulífsins telja að Ísland verði ekki jafnvænlegur f... |
Halla Gunnarsdóttir, listakona varð hlutskörpust í samkeppni Reykjavíkurborgar um gerð myndastyttur af skáldinu Tómasi Guðmundssyni. Tilkynnt var um úrslitin í dag í fógetastofum við Aðalstræti en þar eru úrslitatillögurnar til sýnis. Halla stundaði myndlistanám á Ítalíu, í Bandaríkjunum, Moskvu og Mexíkó og lauk nú í ... |
McLaren-liðið staðfesti í dag að Pedro de la Rosa yrði keppnisþór þess við hlið Kimi Räikkönen í brasilíska kappakstrinum í Sao Paulo eftir viku. Með því er úr sögunni að ungi breski ökuþórinn Lewis Hamilton fái að spreyta sig með liðinu í ár. McLaren beið með ákvörðun um ökuþóraskipanina í Sao Paulo þar til að loknum ... |
AÐFARANÓTT sunnudags stóð Jafningjafræðslan fyrir göngu niður Laugaveginn. Markmiðið með göngunni var að fá sem flesta úr öllum þjóðfélagshópum til að taka höndum saman í baráttunni gegn nauðgunum og snúa við óheillaþróun í þeim efnum. Var gangan liður í átakinu Nóvember gegn nauðgunum. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík... |
Glerhaugurinn var árið 1965 fluttur frá verksmiðjunni og settur undir flugbraut í Fossvogi. |
Síðasti sólarhringur var annasamur hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Alls komu upp 104 verkefni fyrir sjúkrabíla, þar af 39 forgangsverkefni, sem er nokkuð hátt hlutfall. Þá voru dælubílar kallaðir út 5 sinnum vegna minniháttar verkefna. Slökkviliðið segist hafa það á tilfinningunni að fólk hafi gleymt sér aðeins... |
Subsets and Splits
No community queries yet
The top public SQL queries from the community will appear here once available.