text
stringlengths
0
17.6M
LANDSVIRKJUN hefur fest kaup á litlum rafmagnsbíl til notkunar í innanbæjarakstri og íhugar jafnframt kaup á tveimur litlum rafmagnsjeppum til staðbundinnar notkunar í grennd við virkjanir. Smábíllinn er af gerðinni Peugeot 106 og er sá fjórði sem keyptur er hingað til lands. Hinir þrír eru í eigu Rafmagnsveitu Reykjav...
Nýlega héldu íslenskir býflugnabændur uppskeruhátíð í Húsdýragarðinum. Þar var ferlið kynnt frá því að býfluga leitar uppi safarík blóm og þar til hunangið er komið í krukku. Gestir garðsins fengu auk fræðslunnar að smakka á alíslensku gæðahunangi sem Egill R. Sigurgeirsson og fleiri íslenskir býflugnabændur rækta. Af ...
Lánadrottnar Landsbankans munu fá lítið sem ekkert upp í körfur sínar eftir að búið er að selja eignir þrotabúsins. Andvirðið rennur nánast allt upp í forgangskröfur, segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra í viðtali við Bloomberg fréttastofuna. Með þessum ummælum verða vonir kröfuhafa eins og franska bankans ...
Ungstirnið Kasper Dolberg vill vera áfram í herbúðum Ajax. Þessi 19 ára gamli leikmaður hefur vakið áhuga hjá mörgum stórliðum eftir flotta frammistöðu í hollensku úrvalsdeildinni. Manchester United og Everton hafa bæði verið orðuð við hann. Umboðsmaður hans, Jens Steffensen, staðfestir að áhugi hafi verið á Dolberg, e...
Flest vonumst við til að fá að eldast, halda heilsu og geta búið áfram á eigin heimili. Tölfræðin sýnir okkur að lífaldur Íslendinga er að hækka og heilsa eldra fólks að batna. Hugtakið velferðartækni er tiltölulega nýtt á Íslandi en það nær yfir fjölmargar tæknitengdar lausnir í þágu notenda sem eru til þess fallnar a...
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, undirritaði í kvöld reglugerð til þess að lina aðgangshörku gagnvart þeim sem skulda vegna greiðslukortanotkunar. " Það er auðvelt að komast inn [ fá kort innsk. blm. ] en það er nánast ómögulegt að komast út, " sagði Obama við undirritun reglugerðarinnar. Reglugerðinni er ætlað að ...
SÉRFRÆÐINGAR á fjármálamarkaði telja ólíklegt að yfirtökutilboð frá námafyrirtækjunum BHP Billiton og Rio Tinto í bandaríska álfyrirtækið Alcoa muni koma fram. Þetta segir AP -fréttastofan. Er nefnt að stóraukin samkeppni frá Kína sé ein af ástæðunum. Breska blaðið Times greindi frá væntanlegum yfirtökutilboðum í fyrra...
Við rekum súkkulaðihús hér í miðbæ Óðinsvéa. Framleiðum eingöngu úr súkkulaði, deserta og litlar deserttertur. Erum ekkert í neinu brauðmeti eins og var á Íslandi, " segir Þormar Þorbergsson veitingamaður í Danmörku. Þormar býr með fjölskyldu sinni ytra og hefur gert undanfarin ár. Hér heima starfrækti hann Café Condid...
Fimmtán þingmenn Samfylkingar og Vinstri grænna lögðu í dag fram þingsályktunartillögu um að gerð verði sjálfstæð og óháð rannsókn á einkavæðingu og sölu hlutabréfa í Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands og tengdum málefnum árið 2002. Þórunn Sveinbjarnardóttur er fyrsti flutningsmaður tillögurnar, ásamt þeim Jóní...
Seðlabanki í Evrópu fær auknar valdheimildir með einskonar yfirþjóðlegu fjármálaeftirliti yfir bönkum í ríkjunum 17 á evrusvæðinu.
Ef David Moyes hefði haldist í starfi hjá Manchester United, hefði samningur hans runnið út eftir sex daga. Það var sumarið 2013 sem Moyes tók til starfa hjá Manchester United. Sir Alex Ferguson, lét þá af störfum. Ferugson valdi Moyes sem eftirmann sinn, hann fékk sex ára samning. Upphafið af slæmum tíma félagsins. Un...
Skallagrímur vann Keflavík, 84 : 80, í oddaleik liðanna í undanúrslitum Íslandsmótsins í körfuknattleik karla en leikið var í Keflavík og var viðureigninni að ljúka. Íslandsmeistarar Keflavíkur eru þar með úr leik og verja ekki Íslandsmeistaratitilinn sem þeir hafa unnið þrjú síðustu ár. Skallagrímur mætir Njarðvík í ú...
Tæplega 1,5% lækkun varð á gengi hlutabréfa á fjármálamörkuðum í Pakistan í morgun vegna ótta manna við yfirvofandi stríð við Indverja. Gengið hefur lækkað um ríflega 9% síðastliðna þrjá daga. Spennan magnaðist eftir að Indverjar sökuðu samtök herskárra múslima í Pakistan og leyniþjónustu Pakistans um að standa að sjál...
LÖGREGLAN í Reykjavík rannsakar nú kæru um tilraun til nauðgunar sem kona á áttræðisaldri lagði fram gegn karlmanni á sjötugsaldri. Karlmaðurinn starfar sem n.k. húsvörður í fjölbýlishúsinu þar sem konan er búsett. Hörður Jóhannesson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík, segir að kæran hafi verið lögð fram um síðustu mánaðam...
Kanadískur tannlæknir keypti tönn úr John Lennon heitnum fyrir 19,500 pund, jafnvirði þriggja og hálfri milljón króna, á uppboði í Stockport í Bretlandi. Michael Zuk, frá Alberta, tók þátt í uppboðinu símleiðis til að tryggja tönnina sem Lennon gaf húshjálp sinni, Dot Jarlett, á sjöunda áratug síðustu aldar. Tönnin var...
TERRA Nova kynnti nýlega nýtt vefsetur á slóðinni www.terranova.is en þar er hægt að nálgast upplýsingar um flug á vegum ferðaskrifstofunnar, verð og brottfarartíma. Á vefnum verða reglulega ferðatilboð og að sögn Guðbjörns Guðbjörnssonar, markaðsstjóra Terra Nova, munu þeir sem aðstöðu hafa til að skella sér til útlan...
Tveir gistu í fangaklefa á Akureyri í nótt en að sögn varðstjóra voru þeir handteknir vegna ölvunar og almennra leiðinda, eins og hann orðar það sjálfur. Einn var tekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna fyrir norðan í nótt en nokkuð mikill erill var hjá lögreglunni. Þá var einn tekinn grunaður um ölvunarakstu...
Það fer fram hörkuleikur í ensku úrvalsdeildinni í dag þegar að Manchester United heimsækir Aston Villa á Villa Park. Radamel Falcao er í byrjunarliði United sem er á góðu róli þessa stundina og getur minnkað forskot Chelsea á topnnum. Hér fyrir neðan má sjá byrjunarliðin. Aston Villa : Guzan, Lowton, Vlaar ( c ), Okor...
Slökkviliðsstjóri í Austur-Húnavatnssýslu segir slökkviliðið ekki hafa búnað til að bregðast við miklum gróðureldum. Hann segir sinuna á svæðinu vera eins og hálfgerða púðurtunnu og hefur áhyggjur af því að erlendir ferðamenn séu ekki meðvitaðir um hættuna. Hættustig vegna mögulegra gróðurelda er nú í gildi á nær öllu ...
Það hefur eflaust ekki farið framhjá neinum að einn stærsti Game of Thrones þátturinn í sögu seríunnar var sýndur síðastliðinn sunnudag og það er óhætt að segja að það séu alir að tala um nýjasta þáttinn. Það eru hins vegar ekki allir sem átta sig að öllu leyti á því hvað er að gerast enda var skjár margra ansi myrkur....
Þrír drengir, níu til tólf ára, unnu talsvert tjón á verkstæði smíðaverktakans Smíðanda á Selfossi í fyrrakvöld þegar þeir brutu sér leið inn á verkstæðið og skemmdu verkfæri, efni og fleira. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi settu drengirnir í gang lyftara og óku honum í gegnum hurð og á bifreið sem va...
Æfingar standa yfir fyrir lögin sex sem keppa í fyrri undankeppni Söngvakeppninnar í Háskólabíói í kvöld. Keppnin verður sýnd í beinni útsendingu klukkan 19:45 á RÚV. Þetta er fyrri undankeppnin og verður sú síðari næstkomandi laugardag. Hér má sjá röðina á lögunum og símanúmerin til að kjósa sitt lag áfram. 1 ) Myrkri...
Akranes Arney Kúld fæddist á Akranesi 12. maí 2015 kl. 16:14. Hún vó 4.450 g og var 52 cm að lengd. Foreldrar hennar eru Arnór Yngvi Hermundarson og María Kúld Heimisdóttir.
Tveir sakborninga sem voru dæmdir fyrir stórfellt fíkniefnasmygl í svokölluðu Papeyjarsmyglmáli, hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald en þegar hafa þeir verið dæmdir í annarsvegar fimm og níu ára fangelsi. Um var að ræða stórfellt smygl á annað hundrað kíló af fíkniefnum með skútu sem sigldi frá Holland...
Vísitala byggingarkostnaðar, reiknuð eftir verðlagi um miðjan maí, er 299,8 stig og hækkar um 2,22% frá fyrra mánuði. Hagstofan segir að meginhluti hækkunarinnar sé vegna nýlegra samninga Samiðnar og Samtaka atvinnulífsins. Þar gæti áhrifa þess að taxtar séu færðir nær greiddum launum. Þetta endurspegli launaskrið og y...
Ein verðmætasta auðlind Íslands er orkan en hún verður ekki beisluð án fórna í íslenskri náttúru. Flestir sætta sig við þá fórn innan hóflegra marka, þótt þau mörk séu bæði afar umdeild og taki sífelldum breytingum með tíðaranda. Því ætti landsmönnum ekki að standa á sama í hvað sú orka fer sem framleidd er á kostnað n...
Karitas Hallbera Halldórsdóttir frá Vörum í Garði er áttræð í dag, 12. september. Hún tekur á móti gestum í samkomuhúsinu í Garði á morgun, laugardaginn 13. september. milli kl. 15 og 18.
Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt 28 ára gamlan karlmann í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás á Reyðarfirði. Maðurinn neitaði að hafa í febrúar síðastliðnum slegið annan mann hnefahöggi. Hann segir sjálfur að sá sem varð fyrir högginu hafi átt upptök að árásinni með því að reyna að kyssa unnustu h...
Frönsk kona fór í 18 tíma langt ferðalag með flugvél frá Pakistan til Parísar ... og svo aftur til Pakistans. Hún var sofandi er flugvélin lenti á áfangastaðnum, í París, og vaknaði ekki fyrr en vélin var löngu komin í loftið aftur. Konan fór um borð í vélina í pakistönsku borginni Lahore. Flugmálayfirvöld þar í landi ...
Stuðningsmönnum þess að Katalónía verði skilin frá Spáni og verði sjálfstætt ríki hefur vaxið fiskur um hrygg, en þingkosningar fóru fram í héraðinu í dag. Rætt við Xavier Rodríguez, formann Katalónska félagsins á Íslandi.
Eldur kviknaði í húsi í Vestmannaeyjum í nótt. Fjölskylda sem býr í húsinu var í fastasvefni er eldurinn kom upp. Að sögn lögreglunnar í Vestmannaeyjum vaknaði faðirinn við eldinn og kom fjölskyldunni út. Tilkynnt var um eldinn um fjögurleytið í nótt og var fjölskyldan öll komin út þegar slökkvilið og lögregla komu á s...
Bústaðakirkja. Starf aldraðra kl. 13 - 16.30. Spilað, föndrað, helgistund og gáta. Gestur : Sr Jón Dalbú Hróbjartsson prófastur. Þeir sem óska eftir að láta sækja sig fyrir samverustundirnar láti kirkjuverði vita í síma 5538500. Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10. Léttur málsverður á eftir. Prestarnir taka við fyrirbæn...
1. Rf3 Rf6 2. c 4 e 6 3. g 3 b 6 4. Bg 2 Bb 7 5. O-O c 5 6. Rc 3 Be7 7. d 4 cxd 4 8. Dxd 4 O-O 9. Hd 1 a 6 10. Be3 Bc 5 11. Df 4 Bxe 3 12. Dxe 3 d 5 13. Re5 He8 14. Hac 1 Rc 6 15. Rxc 6 Bxc 6 16. Dd 4 b 5 17. cxd 5 Bxd 5 18. e 4 Bb 7 19. e 5 Bxg 2 20. Kxg 2 Rd 5 21. Rxd 5 exd 5 22. Hc 5 De 7 23. Hxd 5 h 6 24. Df 4 Ha 7...
Að minnsta kosti 20 fórust, flest börn á aldrinum 3 - 6 ára, þegar leikskóli hrundi saman í bænum San Giuliano di Puglia á Ítalíu í gær þegar jarðskjálfti sem mældist 5,9 stig reið yfir. Enn er sex barna saknað og er lítil von talin vera til þess að þau finnist á lífi en bjarga tókst sex börnum og kennara þeirra úr rús...
Að minnsta kosti 33 eru látnir og tugir liggja sárir eftir að öflug sprengja sprakk á markaði í borginni Peshawar í Pakistan í morgun.
Þremur unglingspiltum, frá afskekktu Kyrrahafseyjunni Tokelau, var í gær bjargað um borð í túnfiskveiðiskip nærri Fiji eyjum, eftir að hafa rekið stjórnlaust um Kyrrahafið í tæplega 50 daga. Piltanna, sem eru 14 og 15 ára gamlir, var saknað eftir að þeir fóru í siglingu á litlum bát í byrjun október og voru þeir taldir...
KVÓTI Grímseyinga hefur aukist um tæplega 400 tonn og gætir aukinnar bjartsýni eftir nokkra óvissu í haust þegar kvóti var á leið úr eynni og verslunarrekstur í uppnámi. Útgerðarfélagið Krækir hefur keypt 15 tonna bát, Olla SH, með um 200 tonna þorskígildiskvóta. Sigurbjörn fiskverkun hefur bætt við sig 230 þorskígildi...
Ari Eldjárn verður á meðal gesta í breska skemmtiþættinum Mock the Week á BBC Two í kvöld. Þátturinnnýtur mikilla vinsælda í Bretlandien hann hefur verið sýndur þar í landi fráárinu 2005. Þátturinn hefst klukkan 22:00 á breskum tíma. Í þættinum fara nokkrir þekktir grínistar yfir helstu fréttir vikunnar með skemmtilegu...
Alþingi hefur samþykkt ný lög, en markmið þeirra er að setja reglur um ábyrgðir einstaklinga, draga úr vægi ábyrgða og að stuðla að því að lánveitingar verði miðaðar við greiðslugetu lántaka og hans eigin tryggingar. Lögin byggjast öðrum þræði á sjónarmiðum um neytendavernd, auk kröfunnar um vönduð vinnubrögð fjármálaf...
Þriðja keppnisdegi af fjórum á Masters-mótinu er lokið. Englendingurinn Lee Westwood er efstur fyrir lokadaginn en Tiger Woods er í þriðja sæti og hefur ekki sagt sitt síðasta orð. Tiger átti frekar skrautlegan dag í dag. Hann náði 7 fuglum, 6 pörum en var með 5 skolla. Kom því í hús á 70 höggum annan daginn í röð eða ...
Barcelona 1 - 2 Villarreal 0 - 1 M. Senna ( ' 31 ) 1 - 1 Xavi Hernandez ( ' 67 ) 1 - 2 J.D. Tomasson ( ' 81 ) Stórleikur helgarinnar í spænska boltanum var tvímælalaust viðureign Barcelona og Villarreal sem fram fór í kvöld og lauk með sigri gulu kafbátana. Það eru ekki mörg lið sem koma Nývang heimavöll Barcelona og t...
Brasiía og Úrúgvæ leika til úrslita um heimsmeistaratitilinn í strandarfótbolta en heimsmeistarmótið stendur yfir þessa dagana á Copacabana ströndinni í Brasilíu. Í undanúrslitunum í dag hafði Úrúgvæ betur gegn ríkjandi heimsmeisturum Frakka þar sem úrslitin réðust í vítakeppni en liði Frakka stýrir Eric Cantona, fyrru...
Chelsea hefur keypt tékkneska varnarmanninn Tomas Kalas frá Sigma Olomuc. Þessi 17 ára gamli leikmaður verður áfram hjá Sigma á láni á næsta tímabili áður en han gengur í raðir Chelsea. Kalas var á óskalista fleiri félaga í Evrópu eins og Arsenal, AC Milan og Bayer Leverkusen. Chelsea náði að krækja í hann að lokum en ...
Keflavík er ekki búið að gefast upp í baráttunni um sæti í Pepsi-deildinni að ári. Keflavík vann í kvöld á meðan Grindavík missti af stigum á Selfossi. Grindavík er þó með 38 stig á toppnum eftir 18 leiki en Keflavík er í þriðja sæti með 29. Það þarf því mikið að gerast svo Grindavík og KA fari ekki upp en KA er með 36...
Hornamaðurinn ungi Sigvaldi Björn Guðjónsson var í stóru hlutverki hjá Århus í kvöld þegar liðið lagði Mors-Thy að velli, 29 : 27, í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Sigvaldi var næstmarkahæstur hjá Árósaliðinu með 7 mörk og Íslendingarnir létu allir að sér kveða en Ómar Ingi Magnússon gerði 4 mörk fyrir Århus o...
Á þessu ári varð keppni sterkustu manna landsins, Vestfjarðarvíkingurinn, tuttugu ára. Dagana 4. - 7. júlí var því keppt víðsvegar um Vestfirði og nágrenni. Miðvikudaginn 4. júlí var keppt í bóndagöngu við Hótel Stykkishólm og í réttstöðulyftu um borð í Baldri á siglingu yfir Breiðafjörðinn. Á fimmtudeginum var keppt í...
Nóttin var mjög lögreglu að því er segir í fréttaskeyti. Laust fyrir klukkan 11 í gærkvöldi voru tveir handteknir í Garðabæ. Annar er grunaður um líkamsárás en hinn grunaður um að hindra störf lögreglu á vettvangi. Báðir gistu fangageymslur í nótt. Á svipuðum tíma var ökumaður handtekinn á Seltjarnarnesi. Hann var grun...
Bandaríkjamaðurinn Ariel Castro játaði í dag að hafa rænt þremur konum og haldið þeim nauðugum í tíu ár og mun hann sitja í fangelsi út ævina. Hann hafði áður neitað sök í nærri þúsund ákæruliðum en saksóknarar í Ohio buðu honum ævilangt fangelsi í stað dauðadóms. Hann hefur ekki möguleika á reynslulausn þar sem dómuri...
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins lagði það til í dag að neitunarvald einstakra ríkja sambandsins í skattamálum yrði afnumið. Það er að ekki yrði lengur krafist einróma samþykkis vegna ákvarðana um skattamál á vettvangi þess. Fram kemur í frétt AFP að Evrópusambandssinnar í Brussel hafi lengi stefnt að því að koma á s...
Grunnsýning Náttúruminjasafns Íslands verður opnuð í Perlunni haustið 2014. Það var staðfest með undirritun leigusamnings á aðstöðu í Perlunni í gær. Leigusamningurinn er til fimmtán ára og ársleigan er áttatíu milljónir króna. Efnt verður til samkeppni um hönnun grunnsýningarinnar í húsinu á næstunni. Eins er ráðning ...
Skráning keppenda í Idol-Stjörnuleit 3 er hafin á vefsíðunni www.idol.is Ný þáttaröð Stjörnuleitar hefst á Stöð 2 í september og verður þátturinn, sem fyrr, á dagskrá á föstudagskvöldum. Undirbúningsvinna er komin á fullt og að sögn skipuleggjenda bendir allt til þess að keppnin verði sú glæsilegasta hingað til. Sú bre...
Hjúkrunarfræðingar við neyðarlínuna í Uppsölum eiga í tilraunaskyni um tveggja ára skeið að styðjast við tölvuforrit þegar þeir meta ástand þess sem hringt er vegna og hvort þörf sé á að senda sjúkrabíl. Þegar hringt er í neyðarlínuna á hjúkrunarfræðingur við símann að færa inn í tölvuna upplýsingar um það sem gerðist ...
Fyrsta markið í lokaumferðinni í Landsbankadeildar karla í knattspyrnu hefur litið dagsins ljós. Víkingar eru komnir yfir gegn Grindvíkingum suður með sjó, 1 : 0. Grétar Guðfinnur Sigurðsson skoraði markið.
Sex íslamskir öfgamenn sem dæmdir voru fyrir að myrða tvo dómara í sprengjuherferð um Bangladess voru teknir af lífi með hengingu í nótt. Tveir þeirra voru æðstu menn í íslamska hryðjuverkahópnum Jamaatul Mujahideeen Bangladesh, þeir Abdur Rahman og aðstoðarmaður hans Siddiqul Islam þekktur sem Bangla Bhai. Fréttavefur...
Alex McLeish stjóri Birmingham var ekki nægilega sáttur með eitt stig gegn grönnum sínum í Aston Villa í dag. Liðin gerðu 1 - 1 jafntefli í slagnum um Birmingham. ,, Þetta var opinn leikur, það var frábær fótbolti á köflum, " sagði Mcleish. ,, Við byrjuðum ekki vel með nokkrar slæmar sendingar fyrstu 10 mínúturnar. " ,...
' Heimildarmynd eftir Jónas Jónasson. Framleiðendur : Björn Þór Vilhjálmsson og Jónas Jónasson. Kvikmyndataka, hljóð, klipping og grafík : Herbert Sveinbjörnsson. 50 mín. Erdison lifandi ljósmyndir. Sjónvarpið, janúar 2003. ' SPILAFÍKN hefur plagað landsmenn í gegnum tíðina. Lengst höfum við verið viðriðin ýmis peninga...
Njarðvík Karítas Helga Hafþórsdóttir fæddist 25. október 2020 í Keflavík. Hún vó 4.200 g og var 52 cm löng. Foreldrar hennar eru Hafþór Ægir Vilhjálmsson og Margrét Lára Harðardóttir.
Indverskar tvíburasystur sem eru þær yngstu til að fara á báða póla jarðar og topp allra tinda í heimsálfunum sjö, nýta afrek sín til að vekja athygli á og berjast gegn því að stúlkufóstrum sé eytt í heimalandi þeirra. Þær eru í heimsókn hér á landi um þessar mundir. Systurnar Tashi og Nungshi Malik, oftast þekktar sem...
Margrét Lára Viðarsdóttir segir í viðtali við Morgunblaðið í dag að kjör sitt sem íþróttamaður ársins 2007 hjá Samtökum íþróttafréttamanna sé mesta viðurkenning sem hún hefur hlotið. Margrét Lára segir m.a. í viðtalinu að hún líti á viðurkenninguna sem hvatningu til áframhaldandi dáða. " Um leið og hún segir mér að ég ...
Chili con carne er vinsæll réttur víða um heim. Í Ameríku eru til chili con carne aðdáendaklúbbar sem hafa það eitt að markmiði að safna uppskriftum að réttinum, elda hann, smakka og njóta. Til eru ýmsar útgáfur af honum, ýmist notað nautahakk, nautakjötsbitar eða jafnvel kjúklingur. Nánast alltaf er notuð reykt paprik...