text
stringlengths
0
17.6M
Öllum nautgripum á bænum Ármótum í Rangárvallahreppi, 104 talsins, hefur verið fargað. Þetta kom fram í samtali Morgunblaðsins við Katrínu Andrésdóttur, héraðsdýralækni í Suðurlandsumdæmi. " Þetta voru gripir sem voru smitaðir af salmonellu og mjög ólíklegt að þeir hefðu nokkurn tímann orðið til einhvers nýtir, " sagði...
Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra, segir að synjun sænskra stjórnvalda á því að ríkislögreglustjóra sé heimilt að kyrrsetja innistæður á reikningum þar í landi geti haft áhrif í öðrum sambærilegum málum sem nú eru til rannsóknar. Hæstiréttur hefur vísað frá kröfu ríkislögreglu...
Kynferðisofbeldi friðargæsluliða er ólíðandi Í liðinni viku bárust fregnir af nýrri skýrslu, þar sem kom fram að ásakanir um kynferðisbrot á hendur friðargæsluliðum Sameinuðu þjóðanna hefðu aukist um þriðjung í fyrra. Þá var tilkynnt um 69 tilfelli en hætt er við að raunveruleg tala sé jafnvel hærri. Skýrslan hefur orð...
Bayern München vann Hansa Rostock með sjálfsmarki en fengu þrjú stig og eru búnir að koma sér þægilega fyrir, fyrir ofan Dortmund sem gerðu markalaust jafntefli við Arminiu Bielefeld. Þórður Guðjónsson og félagar í Bochum töpuðu enn einu sinni í dag og var það fyrir Wolfsborgurum. Kaiserslautern heldur sinni siglingu á...
Eftir Andrés Skúlason Djúpivogur | Nýr vegur um Öxi er nú í hönnunar - og matsferli. Mikil ánægja er með þetta verkefni og stuðning samgönguráðherra við það, á opnum fundi sem Kristján Möller efndi til á Djúpavogi. Ráðherra fór yfir stöðu vegamála á svæðinu og framkvæmdir næstu árin, ásamt Guðmundi Heiðrekssyni frá Veg...
Ólíklegt er að þingkosningar verði haldnar í Írak í janúar eins og stefnt hefur verið að. Þetta sagði Faraj Haidari, formaður yfirkjörstjórnar í Írak, í morgun.
Valtýr Sigurðsson, ríkissaksóknari, hefur ákveðið að láta af störfum 1. apríl nk. Embætti ríkissaksóknara verður auglýst á næstu dögum. Valtýr sagði í samtali við Morgunblaðið að hann hefði fyrir alllöngu átt rétt á að hætta störfum og hann hefði nú ákveðið að óska eftir að hætta. Það gerir hann með vísun til ákvæða la...
Tvær konur og einn karl voru handtekin í gærkvöldi í Mölndal í Svíþjóð. Þau eru grunuð um að hafa reynt að myrða karlmann. Hann fannst með áverka sem benda til að hann hafi verið stunginn. Fórnarlambið var flutt á sjúkrahús en er ekki talið í lífshættu. Tilkynnt var um slagsmál við hús í Mölndal um klukkan 22 í gærkvöl...
„ Ég kann vart önnur dæmi um svo mikil áhrif eins viðburðar í íslenskum stjórnmálum, “ segir Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði, um Icesavedóminn í janúar, sem hann telur að hafi haft úrslitaáhrif á kosningabaráttuna sem lýkur formlega í dag með alþingiskosningum. Fyrstu kjörstaðir opna nú kl 9 og ve...
Á hverjum mánudegi eru kynntir til sögunnar Tvífarar vikunnar hér á fótbolti.net. Þá finnum við tvífara einhvers sem tengist fótboltanum og birtum myndir af þeim hlið við hlið. Þessi liður er mjög vinsæll hér á síðunni en tillögur að tvíförunum koma frá lesendum. Að þessu sinni höfum við fundið tvífara Steve McManaman ...
Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Vísindin eru í forgrunni í loðnuleiðangri Kap VE 4, skips Vinnslustöðvarinnar, sem hófst á miðvikudagskvöld. Fylgst verður með hrygningu loðnunnar auk þess sem sýni verða tekin fyrir sunnan, vestan og norðan land, sem nýtast við líffræðilegar rannsóknir. Ekki eru væntingar um að leiðanguri...
Benedict Andrews leikstýrði uppfærslu á Cat on a Hot Tin Roof eftir Tennessee Williams í Young Vic leikhúsinu í London. Sýningin verður í beinni útsendingu í Bíói Paradís á laugardags - og sunnudagskvöld. Benedict Andrews er ástralskur leikstjóri, búsettur í Reykjavík en starfar í London og víðar um veröldina. Aðspurðu...
Kamilla er íslenskt kvenmannsnafn.
Dreifing á Íslandi.
Rappstjarnan The Game gæti átt yfir höfði sér kæru eftir að hann birti símanúmer lögreglustöðvar í Compton í Los Angeles á Twitter-síðu sinni. Rapparinn sem heitir réttu nafni Jayceon Terrell Taylor lét þau skilaboð fylgja Twitter-færslunni til rúmlega 580 þúsund fylgismanna sinna á samskiptasíðunni að ef þeir vildu ge...
Sjö leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt en þar bar helst að Utah mátti þola 45 stiga tap fyrir Houston á heimavelli. Þetta er mesta tap Utah á heimavelli í sögu félagsins en liðið hafði unnið síðustu sex leiki sína á undan í Salt Lake City. Gamla metið var 33 stiga tap fyrir Milwaukee árið 1980. Það ge...
Ali Abdullah Saleh, forseti Jemens, hefur samþykkt að láta af embætti eftir 32 ár við völd. Samkvæmt sáttatillögum verða honum og fjölskyldu hans gefnar upp sakir og þeim veitt friðhelgi ævilangt.
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra flaug út til Svíþjóðar í morgun ásamt Svein Harald Øygard seðlabankastjóra til þess að ræða lánasamninga sem Norðurlöndin hafa heitið okkur. Jón Sigurðsson, formaður viðræðunefndar íslenska ríkisins um gjaldeyrislánasamninga, er einnig með í för en í þessari lotu er rætt við hó...
Tólf ára drengur lést í Greenwich í New York í dag en hann var að byggja snjóvirki þegar hann varð undir snjóbakka. Yfirvöld segja mögulegt að snjóruðningsmenn hafi óafvitandi losað hundruð kílóa af snjó á hann. Annar drengur var grafinn lifandi úr snjónum. Strákarnir voru að leika sér á lóð þar sem snjó er vanalega sk...
Japönsk hlutabréf lækkuðu um 0,47% í dag, Nikkei-vísitalan lækkaði um 53,17 stig og er því 11.217,45 stig.
„ Það er vandasamt að ræða og fjalla um erfið og viðkvæm mál, ekki síst kynferðisbrot. Kirkjan getur ekki, frekar en nokkur annar, leyft sér að stinga höfðinu í sandinn og það er afar mikilvægt að hún reyni stöðugt að bæta viðbrögð sín og spyrji sjálfa sig áleitinna spurninga, “ skrifar Agnes M. Sigurðardóttir biskup Í...
Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs, er væntanlegur í heimsókn til Íslands á fimmtudag til viðræðna við íslensk stjórnvöld um ýmis mál, þar á meðal um Evrópumál. Í tilkynningu frá norska utanríkisráðuneytinu segir, að það séu einkum málefni tengd heimskautinu, sem verði á dagskrá funda Gahr Støres á Íslandi. Ein...
Bikarkeppni karla í knattspyrnu lýkur í dag með viðureign Þórs og KR á Laugardalsvellinum. Þór á nú í fyrsta sinn möguleika á að hampa bikarmeistaratitli og dómari flautaði til leiks núna fyrir fáeinum sekúndum klukkan fjögur. Haukur Harðarson er á staðnum. Haukur, í blíðu veðri, hvernig er stemmingin? Haukur Harðarson...
Einn maður gisti fangageymslur lögreglunnar á Akranesi um helgina sökum ölvunar. Lögregla var kölluð til að skemmtistað þar sem maður var sagður æstur og ógnandi í hegðun. Þegar lögreglu bar að garði réðist maðurinn að lögreglubifreiðinni og lamdi hana utan og ógnaði svo lögreglumönnunum sem höfðu komið á vettvang. Var...
Yfirtraka íslenska ríkisins á lífeyrisskuldbindingum starfsmanna Sementsverksmiðjunnar, frá því hún var í ríkiseigu, braut ekki í bága við EES-samninginn, að mati Eftirlitsstofnunar EFTA ( ESA ). Stofnunin telur að um hafi verið að ræða ríkisstyrk sem veittur var vegna endurskipulagningar fyrirtækisins. Þessi aðgerð ha...
Loðnuvertíð eftir áramót er í óvissu. Talið er að loðnustofninn sé í lægð og hefur Hafrannsóknastofnun ekki fundið nægilegt magn af loðnu til þess að mæla með upphafsaflaheimildum á vertíðinni í vetur en henni lýkur venjulega á útmánuðum. Þá fannst ekkert af loðnu sem ætti að bera uppi veiðina haustið og veturinn 2009 ...
Einn þekktasti skíðamaður heims um þessar mundir, Ivica Kostelic frá Króatíu, er á leið hingað til lands og tekur þátt í fismótaröð í Bláfjöllum sem haldið verðu á vegum Skíðaráðs Reykjavíkur ( SKRR ) og hefst á morgun. Kostelic hafnaði í 4. sæti í heimsbikarkeppninni á skíðum sem er nýlokið. Systir hans, Janica, verðu...
645 féllu fyrir hendi brasilískra lögreglumanna í fyrra. Mannréttindasamtökin Amnesty International vara við vaxandi ofbeldi af hálfu lögreglunnar í aðdraganda sumarólympíuleikanna sem hefjast í Ríó de Janeiro 5. ágúst. Í frétt á vef Amnesty Internationalkemur fram að í fátækrahverfum borgarinnar hafi að minnsta kosti ...
Mikill titringur er innan Vinstri grænna eftir að Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, lýsti yfir að hann vilji fella niður ákæruna gegn Geir Haarde. Samflokksmenn ráðherrans segja hann á hálum ís og einn þeirra kallar eftir afsögn. Ögmundur lýsti því í blaðagrein í gær að hann styðji tillögu þess efnis að málið gegn...
Stjórn VALITOR hefur gengið frá ráðningu Viðars Þorkelssonar í stöðu forstjóra félagsins. Í tilkynningu segir að Viðar Þorkelsson hafi að undanförnu gegnt stöðu forstjóra Reita fasteignafélags. Hann hefur víðtæka stjórnunarreynslu úr atvinnulífinu jafnt úr fjármálageiranum sem og rekstrarfélögum. Hann var um árabil svæ...
CELTIC lagði Glasgow Rangers í grannaslagnum í Skotlandi á laugardag með tveimur mörkum gegn engu á Celtic Park. Thomas Gravesen skoraði fyrra mark Celtic á 35. mínútu og Kenny Miller bætti við öðru markinu stundarfjórðungi fyrir leikslok. Celtic er sem fyrr í efsta sæti deildarinnar með 19 stig en Rangers situr í því ...
Roberto Mancini, knattspyrnustjóri Manchester City, á von á geysilega erfiðum leik gegn Liverpool í kvöld en liðin mætast í ensku úrvalsdeildinni á Etihad-leikvanginum í Manchester klukkan 20.00. Hann sagðist hiklaust gera nokkrar breytingar á liðinu eftir tapið gegn Sunderland á nýársdag, 1 : 0. " Ég geri nokkrar brey...
SÉRA Lára G. Oddsdóttir, sóknarprestur á Valþjófsstað, messaði við Snæfell síðasta sunnudag. Messan var haldin í Snæfellsnesi skammt innan við Hafursárufs. Séra Lára segir að sig hafi langað til að hafa eina guðsþjónustu úti og lá beint við að hafa hana í Valþjófsstaðarprestakalli enda land Valþjófsstaðar víðfeðmt og n...
Kjartan Henry Finnbogason og félagar í Horsens eru væntanlega grautfúlir þessa stundina. LIðið spilaði við Bröndby í dönsku úrvaldeildinni í dag og fékk skell! Finninn Teemu Pukki var búinn að skora þrennu eftir 55 mínútur en þá var staðan orðin 4 - 0 fyrir Bröndby. Kjartan Henry byrjaði fyrir Horsens en sýndi lítið se...
Fyrirtækið IVF Iceland sem rak Art Medica, einu stöðina sem sinnti tæknifrjóvgunum hér á landi, hagnaðist um 51,9 milljónir króna á síðasta ári. Hagnaðurinn dróst saman um rúmlega fjórar milljónir milli ára. Eigendur Art Medica tóku út 56 milljónir króna í arð vegna ársins 2015. Þetta er mun minna en árið áður þegar gr...
Engin kórónuveirusmit greindust innanlands í gær samkvæmt upplýsingum frá almannavörnum. Síðustu tvo daga hafa 120 af 170 manns lokið sóttkví. Nýgengi innanlandssmita það er af fjöldi smitaðra á hverja 100.000 íbúa undanfarnar tvær vikur er nú 1,9 sami fjöldi og í gær.
Eftir Jón Gunnar Ólafsson jongunnar@mbl.is Við vorum byrjuð að vinna að þessu verkefni áður en Vesturporti var boðið að fara til London að sýna Rómeó og Júlíu. Ég ákvað að fara með þeim og búa til heimildamynd um ferðina svo að við gætum haldið áfram að vinna með persónurnar í myndunum. Ég hef unnið með flestum af þess...
Russell Westbrook, leikmaður Washington Wizards, var allt annað en sáttur með stuðningsmann Philadelphia 76 ers í öðrum leik liðanna í átta liða úrslitum NBA-deildarinnar í körfuknattleik í Philadelphia í nótt. Westbrook fór meiddur af velli í leiknum en á leið sinni inn í leikmannagöngin tók einn stuðningsmaður Philad...
' Ragnheiður Ríkharðsdóttir segir að það ríki ekki traust milli þjóðar, þings og Seðlabanka. Því verði að breyta : " Nú ríkir hvorki traust né trúnaður gagnvart seðlabankastjórum né bankaráði Seðlabankans og þess vegna ættu allir er þar sitja að víkja. " ' EFNAHAGSVANDINN er gífurlegur og vindur hratt upp á sig. Ástæðu...
Cristiano Ronaldo verður fjarri góðu gamni með Real Madrid á morgun þegar liðið sækir Real Sociedad heim í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu. Portúgalinn frábæri gengur ekki heill til skógar en meiðsli í hné hafa verið að angra Ronaldo um nokkurt skeið. Hann verður ekki í leikmannahópi Real Madrid og spilar ekki með P...
11. júlí 2014 Áfram stuðst við gildandi merki um vistvæna framleiðslu Sjávarútvegs - og landbúnaðarráðherra hefur skipað starfshóp til að endurskoða reglugerð númer 504 / 1998 um vistvæna landbúnaðarframleiðslu. Hópinn skipa fulltrúar atvinnuvega - og nýsköpunarráðuneytisins, Bændasamtaka Íslands og Sölufélags garðyrkj...
Hey, þú! Þú sem lest þessi orð núna. Ég veit fátt um lífið þitt. Þótt þú segðir mér allt um þig myndi ég lítið skilja. Maður skilur ekki sjálfan sig. Hvað þá aðra. Eitt veit ég þó : Við erum að anda að okkur sama súrefni og þurfum ca. 13 kíló af því á sólarhring. Annað veit ég líka : Þú þráir öryggi og heilsu fyrir þig...
GESTUR á vörusýningu, sem haldin var á vegum stjórnar fjárfestingamála í Bangkok í Taílandi, tyllir sér hér áhugasamur við hlið skúlptúrs af tölvunotanda sem unnin hefur verið í fullri stærð. Um 800 fyrirtæki víðsvegar að úr heiminum kynntu tækninýjungar sínar á sýningunni, sem er liður í tilraun Taílands til að koma f...
Það er bersýnilegt að dómstólar telja umfang Baugsrannsóknarinnar og þær ákærur sem gefnar voru út alls ekki í samræmi við tilefnið. Íslensk stjórnvöld hljóti að draga lærdóm af þessari útkomu. Þetta segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra. Ingibjörg Sólrún sendi í dag frá sér yfirlýsingu um Baugsdóminn. ...
Á miðvikudagskvöldið gerði norska lögreglan húsleit á heimili í Notodden. Þar fannst mikið magn vopna, skotfæra og sprengiefnis. Bæði frá hernum og einkaaðilum. En það sem gerði lögreglumennina orðlausa var að í húsinu var rússneskt flugskeyti, ætlað til að skjóta niður þyrlur. Magnið var þvílíkt að það tók lögregluna ...
Spánn Benidorm – Barcelona 25 : 28 • Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 3 mörk fyrir Barcelona. Danmörk KIF Kolding – GOG 34 : 28 • Aron Kristjánsson þjálfar KIF Kolding. Aalborg – Lemvig 30 : 20 • Ólafur Gústafsson var ekki með Aalborg. Mors-Thy – Skanderborg 33 : 25 • Guðmundur Árni Ólafsson skoraði 4 mörk fyrir Mors-Th...
Þingmenn Hreyfingarinnar vilja að Alþingi aflétti með öllu trúnaði af gögnum þingmannanefndar Alþingis um bankahrunið og birti þau á netinu. Upphaflega voru gögnin hulin almennum þingmönnum, en á föstudag var ákveðið að gefa þingmönnum kost á því skoða gögnin án þess að birta þau opinberlega. Þingmenn Hreyfingarinnar v...
Víða erlendis eru starfræktir sérstakir naflastrengsblóðbankar, ef börn veikjast af alvarlegum sjúkdómum er hægt að sækja stofnfrumur úr frystu naflastrengsblóði og nota í ígræðslur. Til greina kemur að opna slíkan banka hérlendis í náinni framtíð. Rúmlega 60 manns hér á landi hafa farið í stofnfrumuígræðslu á síðastli...
Samhliða úrhellisrigningu og hláku á þriðjudagskvöld og í gær um vestanvert landið ruddu árnar í landshlutanum sig. Klakastíflur hlóðust í ár og læki og vatn flæddi yfir bakka sína. Ekki er vitað til að vegir hafi skemmst svo neinu nemur af þeim sökum. En eitthvað var þó um stífluð vegræsi og að grafist hafi úr vegkönt...
Lögreglan í Reykjavík er með mikinn viðbúnað á Menningarnótt og að sögn Geirs Jóns Þórissonar, yfirlögregluþjóns, eru á milli 70 og 80 lögregluþjónar á vakt. Segir Geir Jón að vel verði fylgst með unglingadrykkju. Mikill mannfjöldi er í miðborginni og er áætlað að á milli 50 - 60 þúsund manns séu á miðborgarsvæðinu en ...
Fjármálaöngþveitið veldur mörgum áhyggjum, kvíða og vanlíðan. Heilbrigðisþjónusta, sveitarfélög og fleiri undirbúa nú aukinn stuðning og fjölgun úrræða fyrir almenning í vanda. Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is Fagfólk á vegum Landspítalans mun opna nýja þjónustu við fólk sem líður illa vegna fjármálaöngþveitisins. Mó...
Ráðherrar og alþingismenn fá skerðingu eftirlauna bætta með launahækkun frá kjararáði. Þetta er mat þingmanna að muni gerast. Með breytingum á hinum umdeildu eftirlaunalögum, sem líklegt er að Alþingi samþykki á morgun, skerðast lífeyrisréttindi ráðherra um sextíu prósent og alþingismanna um tuttugu prósent. Í umræðum ...
Hugrún Dögg Árnadóttir er smekkvís kona og rekur skóbúðina Kron. Hún er líka fatahönnuður og er með merkið Scandinavian tourist ásamt Þuríði Rós Sigurþórsdóttur. Leikkonan Cate Blanchett er meðal aðdáenda hönnunar þeirra. Stutt pils, síð pils eða buxur? Er sjálf mest fyrir pils og kjóla. Hælar eða lágbotna skór? Hvort ...
Bandaríkjamaðurinn Jordan Spieth náði að sýna sitt rétta andlit á öðrum hring Sentry Tournament of Champions mótsins sem fór fram í nótt í Hawaii. Spieth lék á 66 höggum eftir að hafa leikið þann fyrsta á 75 höggum. Eftir hringina tvo er Spieth jafn í 13. sæti á 5 höggum undir pari en Marc Leishman og Brian Harman deil...
Ólafur Haukur Símonarson og Guðlaug María Bjarnadóttir hafa sett miðbæjarslot sitt við Spítalastíg 8 á sölu. Ásett verð er 89.900.000 kr. Húsið er 312 fm að stærð og stendur á eignalóð. Hjónin festu kaup á húsinu 1992 og er það eins og ævintýrahús og býður upp á allskonar möguleika. Framkvæmdaglaðir gætu útbúið tvær au...
Vitnaleiðslum fyrir landsdómi, í máli Geirs Haarde, lauk í dag. Fjörutíu vitni komu fyrir dóminn en síðasta vitnið var Steingrímur J Sigfússon sem sagðist hafa varað við yfirvofandi hættu í nokkur ár fyrir hrun en talað fyrir daufum eyrum. Árni M Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra, og Steingrímur J Sigfússon, sem ...
Söluferli á Samskiptum ehf. er hafið og verður Deloitte ehf. ráðgjafi Íslandspósts í sölunni. Söluferli á Samskiptum ehf. er hafið en Íslandspóstur auglýsti allt hlutafé í dótturfélagi sínu til sölu í dag. Samskipti er öflugt þjónustufyrirtæki á prentmarkaði sem leggur áherslu á faglega og persónulega þjónustu en það h...
Í Sviss hefur hluthafi hafið baráttu gegn því, sem hann telur vera óhófleg launakjör stjórnenda almenningshlutafélaga. Í nýjasta heftir brezka vikuritsins Economist er sagt frá tveimur ársfundum bandarísks fyrirtækis, sem heitir Home Depot. Á síðasta ári mætti aðalforstjóri fyrirtækisins einn stjórnenda. Forstjórinn sv...
Í kvöld varð ljóst í hvaða röð lögin sem keppa til úrslita í Eurovision verða flutt á laugardagskvöld. Daði Freyr og Gagnamagnið eru tólfta atriðið í röðinni, á eftir Sviss og á undan Spáni. Kýpverjar verða fyrstir á svið og síðustu tónarnir verða í flutningi San Marinó. Keppnin á laugardagskvöld stendur á milli 26 lag...
Ljúfur dagur í dag þar sem Eiki Einars tekur lagið, Hugrún les draugasögu í beinni, Röggu Gísla lag dagsins er á sínum stað og Svavar Knútur mætir í þekjuna. Við ætlum líka að gleðja hlustendur með blómum frá íslenskum blómabændum.
Ungverska knattspyrnusambandið hefur greint frá því að ekkert smit hafi greinst í leikmannahópi ungverska karla landsliðsins í knattspyrnu en liðið mætir Íslandi í úrslitaleik um laust sæti á EM 2022 í Búdapest annað kvöld. Fyrr í dag tilkynnti sambandið að Marco Rossi, þjálfari Ungverja, hafi greinst með kórónuveiruna...
Tæknifyrirtækið Google segir starfsmenn fyrirtækisins hafi náð miklum áfanga í þróun skammtatölva. Í grein sem birtist í Nature í dag segir að Google hafi þróað örgjörva sem hafi á 200 sekúndum unnið útreikninga sem hefðbundin ofurtölva þyrfti tíu þúsund ár til að reikna. Örgjörvinn sem um ræðir ber nafnið Sycamore. St...
Erfiðara verður fyrir lækna að ávísa sterkum verkjalyfjum og amfetamíni með nýrri reglugerð um lyfseðla sem tekur gildi í apríl. Verkefnastjóri lyfjamála hjá Landlækni vonast til að hún gagnist í baráttunni við ofneyslu lyfja. Fimm hafa látið lífið vegna þessa í janúar. Talið er að fimm hafi látist í janúar vegna ofney...
,, Góður leikur í dag, enn einn baráttuleikurinn, ' sagði Auðun Helgason, leikmaður Fram við Fótbolta.net eftir 2 - 0 sigur þeirra á ÍA í kvöld. Hann segir að Skagamennirnir hafi verið sterkir, en er ánægður með að ná að halda þeim niðri á jörðunni. ,, Skagamenn voru sterkir og þeir eru feykilega góðir fótboltamenn inn...
" Samtök iðnaðarins deila ekki þeirri skoðun, sem fram kemur í frumvarpinu, að skattlagning sykurs sé vænleg leið til að breyta neysluvenjum þjóðarinnar. Ákveði ríkisvaldið hins vegar að afla tekna með sérstakri skattlagningu matvæla geta SI tekið undir það sjónarmið að skattlagning alls sykurs sé sanngjarnari leið en ...
Mikil reiði er meðal félaga í starfsmannafélagi gamla Glitnis vegna neitunar Fjármálaeftirlit ríkisins á að taka ábyrgð á eftirlaunasjóði starfsmannanna. Anna Karen Hauksdóttir, formaður starfsmannafélagsins, segir í samtali við fréttastofu RÚV að eftirlaun um 600 félagsmanna séu í húfi. Félagsmenn eftirlaunasjóðsins e...
Hérðassaksóknari hefur boðað starfsmenn RÚV, Stundarinnar og 365 til skýrslutöku vegna gagnaleka úr Glitni. Tólf starfsmenn RÚV, Stundarinnar og 365 miðla hafa verið boðaðir til skýrslutöku hjá Héraðssaksóknara vegna rannsóknar á gagnaleka úr Glitni. RÚV greinir frá. Rannsókn Héraðssaksóknara byggir á tveimur kærum sem...
Liverpool er yfir í hálfleik, 1 : 0, gegn Bolton í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Það var Robbie Fowler sem skoraði markið eftir sendingu frá Peter Crouch á síðustu mínútu hálfleiksins. Fram að því var leikurinn heldur tilþrifalítill. Stelios Giannakopoulos, leikmaður Bolton, fékk dauðafæri strax á 8. mínútu en J...
Ekstra Bladet segir að lögreglan í Kaupmannahöfn hafi staðfest að einn sé látinn eftir skotárásina við Krudttønden í Fælledparken fyrr í dag. Ekki hefur verið upplýst hvort það sé lögreglumaður eða óbreyttur borgari sem er látinn. Uppfært 17:10 : Sá látni er almennur borgari á fertugsaldri. Þrír eru særðir og eru þeir ...
Forstjóri Vegagerðarinnar segir starfsmenn vera harmi slegna yfir banaslysi og endurskoði alla ferla við yfirlagnir. Vegna umræðu um öryggi á vegum að undanförnu vill Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar koma því á framfæri að starfsmenn eru harmi slegnir yfir banaslysi á Kjalarnesi í júnílok og því að slík...
Jónsmessugleði Grósku, félags myndlistarmanna í Garðabæ, verður haldin kl. 19.30 til 22 í kvöld við Strandstíginn í Sjálandshverfi Garðabæjar. Listaverk verða til sýnis milli staura meðfram stígnum og geta gestir því notið sumarsólstaða til jafns við fjölbreytta list. Fjöldi listamanna tekur þátt í gleðinni með ýmis ko...
Alfreð Gíslason, þjálfari þýska karlalandsliðsins í handbolta, er afar hrifinn af Jürgen Klopp, knattspyrnustjóra Liverpool, og segir að hann hafi haft mikil áhrif á sig. Þrátt fyrir að Alfreð hafi þjálfað í þrjá áratugi og samfellt í Þýskalandi síðan 1997 er hann enn tilbúinn að læra og hrífast af öðrum þjálfurum. „ É...
Mörg hundruð manns hafa lagt leið sína í Herkastalann, hús Hjálpræðishersins við Kirkjustræti í Reykjavík, í morgun. Þar var blásið til sölu á margs konar gersemum úr húsinu. „ Við erum að selja lausamunina í húsinu okkar, þar sem við erum að flytja úr húsinu eftir 10 daga. Við erum að selja sem sagt það sem við ætlum ...
ALFREÐ Þorsteinsson, fyrrverandi stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, segir algjörlega fráleitt að gefa það í skyn að kostnaður við byggingu nýrra höfuðstöðva OR hafi farið 4.000 milljónum fram úr áætlun. Það hafi heldur aldrei verið gert ráð fyrir að söluverð eldri eigna myndi duga fyrir byggingu nýrra höfuðstöðva....
Anatolín Alcaraz, varnarmaður enska knattspyrnuliðsins Wigan, hefur verið úrskurðaður í þriggja leikja bann fyrir að hrækja á mótherja í leik liðsins við Wolves í úrvalsdeildinni. Alcaraz viðurkenndi sekt sína en tiltækið fór framhjá dómurum leiksins. Það náðist hinsvegar á myndband. Alcaraz, sem er landsliðsmaður frá ...
Maðurinn sem leitað var að eftir að hann féll í Jökulsá í Lóni á mánudagskvöld fannst látinn nokkrum klukkutímum síðar. Maðurinn var á hestaferðalagi ásamt átta ferðafélögum þegar hann féll af baki í ánni. Fimm félagar hans biðu á eyri í miðri á og hringdu eftir hjálp. Á fjórða tug björgunarsveitarmanna frá Höfn, Djúpa...
Fjölbrautaskóli Suðurnesja hélt ráðstefnuna Dyslexía – nám og kennsla í framhaldsskólum dagana 5. og 6. október. Var hún hugsuð fyrir framhaldsskólakennara, kennara í efri bekkjum grunnskóla, námsráðgjafa, starfsfólk símenntunarmiðstöðva og aðra sem áhuga hafa á málefninu. Markmiðið með ráðstefnunni var að auka skilnin...
Í fréttum Stöðvar 2 í kvöld kom fram að Norðurljós hf. hefðu tilkynnt starfsmönnum útvarpsstöðvarinnar Útvarps Sögu í gær að ekki væri lengur rekstrargrundvöllur fyrir stöðinni og yrði henni lokað í dag. Samkvæmt fréttinni undirbúa starfsmenn Útvarps Sögu nú að taka rekstur stöðvarinnar yfir og voru útsendingar enn í g...
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, ávarpaði félaga sína í Íhaldsflokknum á ársfundi flokksins í dag og blés þeim von í brjósti með fögrum fyrirheitum um hvernig venja ætti breskt efnahagslíf af því að nýta sér ódýrt erlent vinnuafl, eftir Brexit, og stýra því til betri vegar. AFP-fréttastofan greinir frá. Hann ...
Íslandsmót kaffibarþjóna og Íslandsmót í kaffigerð falla niður í ár vegna ónógrar þátttöku. Aðeins þrír skráðu sig á Íslandsmót kaffibarþjóna og einn í kaffigerð en reglur Kaffibarþjónafélags Íslands kveða á um að lágmarksfjöldi sé átta keppendur. Ísland sendir því ekki keppanda á heimsmeistaramót kaffibarþjóna. Frá þe...
Dönsk stjórnvöld telja að landið sé nú komið í hóp helstu skotmarka al-Qaeda samtakanna. Sé landið þar ásamt Ísrael, Bandaríkjunum og Englandi.
Er ekki allt í lagi í þessum stofnunum? - Júxml : namespace prefix = o ns = " urn : schemas-microsoft-com : office : office " / Hafa menn nokkuð orðið varir við að allt sé í hers höndum í Vegagerðinni? Eða að Flugmálastjórn sé hvorki fugl né fiskur? Finnst mönnum kannski slakur gangur í ferðamálunum í landinu? Hafa más...
Akureyrarstofa auglýsir Sigurhæðir til leigu, húsið sem þjóðskáldið séra Matthías Jochumsson lét reisa árið 1903. Húsið verður leigt til 4 ára með möguleika á framlengingu í önnur 4 ár. Húsið er friðað í B-flokki og verður starfsemi í húsinu að samræmast þeim kvöðum sem því fylgja og vera þess eðlis að ekki mæði of mik...
Garðar Thór Cortes tenór og Tinna Lind Gunnarsdóttir eru skilin. Þetta kom fram í nýjasta tölublaði Séð og heyrt. Þau höfðu verið saman síðan árið 2000 en þau giftu sig árið 2007 og eiga einn son saman. Garðar Thór er einn fremsti söngvari landsins og sló ungur í gegn í þáttunum um Nonna og Manna. Tinna Lind er leikkon...
Margir áhugaverðir leikir eru á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag og á morgun en Íslendingar mætast til að mynda í Burnley. Í fyrsta leik helgarinnar klukkan 12:30 mætast Burnley og Everton, lið þeirra Jóhanns Bergs Guðmundssonar og Gylfa Þórs Sigurðssonar. Burnley þarf að taka við sér á næstunni ef e...
Grunnskóla Fjallabyggðar verður slitið á föstudaginn kemur, 2. júní, nánar tiltekið sem hér segir : Kl. 10.00 í íþróttahúsinu í Ólafsfirði ( 1. - 4. bekkur og 5. - 7. bekkur ). Kl. 13.00 í íþróttasalnum við Norðurgötu á Siglufirði ( 1. - 4. bekkur ). Kl. 17.00 í Siglufjarðarkirkju ( 8. - 10. bekkur ).
Serbinn í liði Manchester United, Nemanja Vidic, mun ferðast með liðinu í æfingaferðalag til Skandinavíu um helgina. United mætir Valeranga á sunnudaginn í Noregi áður en liðið fer til Gautaborgar á miðvikudag og mætir stórliði Barcelona. Endurkoma fyrirliðans eftir krossbandaslit er á frábærum tíma fyrir United þar se...
FISKMARKAÐUR AUSTURLANDS Gullkarfi 74 59 61 213 12,972 Hlýri 95 95 95 651 61,845 Náskata 40 40 40 236 9,440 Skarkoli 153 146 153 822 125,430 Skrápflúra 28 28 28 179 5,012 Steinbítur 86 86 86 62 5,332 Und. Ýsa 17 17 17 108 1,836 Ýsa 77 30 60 675 40,773 Þorskur 146 127 131 1,528 199,422 Samtals 103 4,474 462,062 FISKMARK...
„ Við förum að lögum og reglum. Við höfum engan áhuga á öðru, " segir Páll Winkel fangelsismálastjóri spurður um gang máls Baldurs Guðlaugssonar, W ^ ^ ^ ^ ™ ^ H fyrrum ráðuneytisstjóra, hjá fangelsisyfirvöldum. „ Ég kæmist aldrei upp meö aö bjóöa upp á sérreglur. Hð ^ ^ H fyrir útvalda. " Baldur er við störf hjá lögfr...
Daði og Gagnamagnið komust rétt í þessu í lokakeppni Eurovision, en þau koma fram fyrir Íslands hönd í keppninni sem fram fer í Rotterdam. Líkt og flestir vita þá greindist kórónuveirusmit í herbúðum Íslands stuttu fyrir keppni. Þar af leiðandi þurfti liðið að fara í sóttkví, sem varð til þess að upptaka af atriðinu va...
1. Lögin eru liður í áætlun stjórnvalda um losun gjaldeyrishafta sem birt var í fyrrasumar. 2. Aflandskrónueignir eru eignir í eigu eða vörslu erlendra aðila, sem varðveittar eru hjá innlánsstofnunum og verðbréfafyrirtækjum hér á landi, sem eru líklegir til að leita útgöngu við losun fjármagnshafta með neikvæðum áhrifu...
Hæstiréttur Úkraínu staðfesti í nótt kjör Viktors Jusjenkos í embætti forseta landsins þann 26. fyrra mánaðar. Ekkert er lengur því til fyrirstöðu að hann sverji embættiseið og taki við völdum.
Nú undir kvöld fengust þær upplýsingar frá Umhverfisstofnun að búnaður og skytta frá dýragarðinum í Kaupmannahöfn komi til Keflavíkurflugvallar klukkan hálf þrjú á morgun. Þyrla Landhelgisgæslunnar á síðan að flytja búnaðinn ásamt búri fyrir bjarndýrið norður að Hrauni, þangað verður hann sennilega kominn um sex leytið...
Að mati margra er eftirsóknarvert að stjórna. Flestum finnst það krefjandi en umfram allt gefandi og stjórnendur eru alla ævi að móta sinn stjórnunarstíl. Í stjórnunarnámi mínu opnaðist mér fjársjóðskista full verkfæra til að nýta í stjórnunarstarfinu. Þegar síðan á hólminn var komið og stjórnunarstarfið tók við kom ma...
Enn get ég ekki annað en grátið þau mistök að ekki skyldi gert ráð fyrir því að Íslenska óperan hefði aðsetur í Tónlistarhúsinu sem nú rís við Höfnina. Langbestu rökin fyrir því að Óperan hefði átt að eiga þar heima, voru fram reidd í Gamla bíói á sunnudagskvöldið, þegar sem Óperustúdíó Íslensku óperunnar frumsýndi Cos...
Þrír særðust er skotárás var gerð á skrifstofur Sameinuðu þjóðanna í Mogadishu, höfuðborg Somalíu, í gærkvöldi. Mohamed Osman Dhagahtur, aðstoðarborgarstjóri Mogadishu, segir sjö menn, klædda einkennisbúningum sómalska stjórnarhersins, hafa ruðst inn á skrifstofur Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar ( WHO ) og Bandahjálpa...
Börnin í leikskólanum Steinahlíð skunduðu í heimsókn á hjúkrunarheimilið Mörk í skrautlegum búningum. Þar slógu þau köttinn úr tunnunni eins og alsiða er á öskudaginn og gæddu sér á pylsu eftir átökin. Ekki fylgdi sögunni hvernig heimilisfólki hafi litist á litlu kynjaverurnar sem gerðu sig heimakomnar í Mörk þennan da...
Hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu voru 955 í júní samkvæmt mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Það er fjölgun frá síðasta mánuði. Tilkynningum um innbrot og eignaspjöll hefur fjölgað mikið en ofbeldisbrotum hefur fækkað. Tilkynningum um innbrot fjölgaði á milli mánaða og fjölgaði innbrotum á heim...
Þrír piltar kepptu undir merkjum UMSB í fyrstu fjölþraut Breiðabliks sem fram fór á Kópavogsvelli 2. september í blíðskaparveðri. Eins og kom fram í síðasta blaði er keppni þessi framhald af fjölþrautamóti sem Frjálsíþróttadeild Skallagríms efndi til í fyrsta sinn í fyrra. Skráðir keppendur voru 52 frá tíu félögum. Í f...
Forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, skrifaði í dag undir ný lög um að hækka skuldaþak ríkissjóðs um 2,4 billjónir Bandaríkjadala á sama tíma og útgjöld ríkissjóðs verða lækkuð um 2,1 billjón dala á næstu tíu árum. Obama segir lögin einungis fyrsta skrefið á langri leið til þess að bæta efnahags landsins. Fagnar lagase...