text
stringlengths
1
19.2M
Sýni í grennd við skólpdælustöðina í Faxaskjóli mælast nú alls staðar undir viðmiðunarmörkum. Ekki hefur verið ákveðið hvenær opna þarf aftur fyrir flæði úr stöðinni. Fæstir kannast við að henda rusli eins og eyrnapinnum, dömubindum og blautþurrkum í klósettið. Starfsmenn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur fara nú á hver...
Samkvæmt baðvigt á Flúðum var nýliðið ár magurt hjá 8 körlum á staðnum sem koma alltaf saman á nýársdag til að vigta sig. Ástæðan er sú að þeir léttust allir á árinu, margir um nokkur kíló. Karlarnir hafa hist í 40 ár og vigta sig saman. Magnús Hlynur Hreiðarsson var á Flúðum. Í húsinu við Högnastíg 12 á Flúðum búa hjó...
Egypskum lögum um ríkisborgararétt hefur nú verið breytt. Börn sem eiga foreldra af ólíku þjóðerni er nú veittur ríkisborgararéttur sama hvort faðirinn er egypskur eður ei, en fyrir tilkomu hinna nýju laga fékk barnið aðeins ríkisborgararétt ef faðirinn var egypskur. Þrýstihópar, sem berjast fyrir réttindum kvenna í la...
Lögreglan á Suðurlandi haldlagði fyrir skömmu um að bil 2 grömm af kannabisefnum hjá manni búsettum á Suðurlandi. Í kjölfarið var ákveðið var að rannsaka málið frekar þar sem vísbendingar voru um að maðurinn væri í dreifingu efna. Í því sambandi var farið í fjármálagreiningu hjá viðkomandi og nú liggur fyrir að á um þa...
Ríkissjónvarpið er hætt að sýna beint frá landsleikjum Íslands í fótbolta hér á landi en þetta kom fram í fréttum RÚV nú rétt í þessu. RÚV hefur haft sýningarrétt á leikjum íslenska karlalandsliðsins sem fara fram hér heima sem og leikjum kvennalandsliðsins. Nú er ljóst að ekki verður hægt að sjá þá leiki í beinni útse...
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 70 milljörðum króna á fyrstu ellefu mánuðum síðasta árs samanborið við rúma 63 milljarða á sama tímabili í hittifyrra. Aflaverðmæti hefur því aukist um röska 7 milljarða eða 11,6%. Verðmæti botnfiskafurða jókst enn meira eða um hátt í 22%. Rækjuveiðar og vinnsla eru hins vegar enn...
" Mér fannst ég finna mikinn byr í þessu flokksvali og ég er óskaplega þakklát þeim sem studdu mig, " segir Erna Indriðadóttir sem náði 2. sæti í flokksvali Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi. Hún segir komandi kosningabaráttu leggjast vel í sig. Erna segir það góða tilfinningu að hafa náð sætinu sem hún ætlaði sér...
Enska dagblaðið Daily Mail heldur því fram í dag að sumir stjórnarmanna Swansea City vilji losna við knattspyrnustjórannMichael Laudrup. Enn fremur er fullyrt að það hafi verið talið að Laudrup myndi hætta störfum hjá félaginu í lok tímabilsins. Swansea tapaði fyrir West Ham um helgina, 2 - 0, og er nú aðeins tveimur s...
Hálfsystir hryðjuverkamannsins Anders Behring Breivik hefur verið yfirheyrð af norsku lögreglunni. Snúast yfirheyrslurnar um æsku og uppvöxt bróður hennar. Verjandi Breiviks segir upplýsingarnar skipta miklu máli í ljós þess að Breivik hafi verið úrskurðaður ósakhæfur. Nánar verður greint frá yfirheyrslunum yfir systur...
Stórhertogi Lúxemborgar er þjóðhöfðingi Lúxemborgar.
Hertogadæmið Lúxemborg var gert að stórhertogadæmi á Vínarþinginu árið 1815.
Þá var það í sambandi við Sameinað konungdæmi Niðurlanda og Óraníuættina.
Þegar Vilhjálmur 3.
Hollandskonungur lést og Vilhelmína Hollandsdrottning tók við völdum í Hollandi 1890 gekk Lúxemborg til næsta karlkyns erfingja af Nassáættinni, Adolfs.
Síðan þá hafa afkomendur hans ríkt sem stórhertogar, þar af tvær ríkjandi stórhertogaynjur, María Aðalheiður ( 1912 - 1919 ) og systir hennar, Karlotta ( 1919 - 1964 ).
Núverandi stórhertogi er Hinrik af Lúxemborg.
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, heldur því fram að starf hans sé það erfiðasta í meistaradeildinni. Ástæðan, að því er virðist, er ótakmarkað fjármagn til leikmannakaupa, er fram kemur á heimasíðu BBC. " Að kaupa leikmenn fyrir Chelsea er erfiðasta starfið í meistaradeildinni ", segir hann þrátt fyrir að hafa...
Tvítugur Bandaríkjamaður, sem tók 400 þúsund tölvur í gíslingu og notaði til að dreifa ruslpósti í miklum mæli, gæti hlotið allt að 50 ára fangelsisdóm. Maðurinn, Jeanson James Ancheta, var handtekinn i Los Angeles. Hann bjó til forrit að því er lögregluyfirvöld segja sem hann sýkti tölvurnar með og fjarstýrði þeim síð...
Hún er ferðafræðingur að mennt og hafði starfað í ferðamannageiranum í áratugi þegar hún hóf að hanna og láta framleiða fallega óróa um hin ýmsu svæði og byggðir Íslands. Unnur H. Jóhannsdóttir spurði Valdísi Jóhannsdóttur hvort þetta væri hennar andsvar við jólaóróum hins danska Georg Jensen. Þeir eru nú ekki framleid...
Inter Milan 1 - 2 Juventuse 0 - 1 Zlatan Ibrahimovic ( 63 ) 1 - 1 Walter Samuel ( 74 ) 1 - 2 Alessandro Del Piero ( 85 ) Smellið hér til að skoða stöðuna í deildinni Inter og Juventus mættust í kvöld í Serie A en fyrir þessa umferð voru liðin í tveimur efstu sætunum í deildinni. Obafemi Martins kom aftur inn í lið Inte...
Borist hefur svohljóðandi bréf, dags. 12. mars 1992 : ,, Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur, leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska eftir því að 1. varamaður Alþb. í Reykjavíkurkjördæmi, Auður Sveinsdóttir landslags...
HULDA Gunnlaugsdóttir, forstjóri Landspítala ( LSH ), hefur ráðið Björn Zoëga til áframhaldandi starfa sem lækningaforstjóra. Þyngst vó í ráðningu Björns reynsla hans í ákvarðanatöku á efsta stigi stjórnunar á LSH á umbreytingartímum. Ráðið var til starfsins á grundvelli auglýsingar, viðtals og niðurstöðu nefndar landl...
Hlutabréf í Heimavöllum, einu umdeildasta félag landsins, voru tekin til viðskipta í Kauphöll Íslands í gær. Ástæða þess að Heimavellir er umdeilt félag er eðli þeirrar starfsemi sem félagið stundar. Á örfáum árum hefur það eignast um tvö þúsund íbúðir, leigt þær út og haft af því mikinn hagnað. Á sama tíma hefur ríkt ...
Lara Stevensdóttir ... Lara Stevensdóttir Hatari.
Næstmest kom á land í Vestmannaeyjum á síðasta ári. Fiskistofa hefur tekið saman upplýsingar um landað magn af uppsjávarfiski eftir höfnum og landsvæðum frá 2007 til 2011. Á síðasta ári var mestum uppsjávarafla landað í Neskaupsstað eða 171.507 tonnum. Næstmestum afla var landað í Vestmannaeyjum eða 153.049 tonnum og þ...
Fjölmiðlanefndinni í Noregi hafa borist yfir tuttugu kvartanir vegna fjölmiðlaumfjöllunar um voðaverkin í Útey og Ósló 22. júlí síðastliðinn. Flestar kvartanirnar eru vegna umfjöllunar lausasölublaðanna Dagbladet og VG. Frá þessu segir á vefsíðu norska blaðamannafélagsins, journalisten.no. Þar segir að aðeins ein kvört...
Íslandsmeistarar Vals munu mæta Hvít-rússneska liðinu Bate Borisov í fyrstu umferð Meistaradeildarinnar en dregið var í morgun. Sigurvegarinn úr þessari viðureign mun síðan mæta belgíska liðinu Anderlecht í annarri umferð. Fyrri viðureignin verður í Hvíta-Rússlandi þann 16. júlí næstkomandi en síðari leikurinn verður h...
Tíðni öndunarfærasýkinga meðal barna sem eru fjögurra ára eða yngri var undir lok desember síðastliðins aðeins 35% af meðaltíðni slíkra sýkinga á árunum 2015 - 2019. Tíðni öndunarfærasýkinga landsmanna í öllum aldurshópum fór niður í 36% í desember. Á tímum kórónuveirufaraldursins fækkaði öðrum smitsjúkdómum mikið hér ...
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir að allir sínir leikmenn þurfi að spila sinn besta leik ætli Arsenal að slá Barcelona út úr Meistaradeildinni. Liðin mætast í fyrri leiknum í sextán liða úrslitunum á heimavelli Arsenal í kvöld. „ Þegar þú mætir liði eins og Barcelona þá þurfa allir ellefu leikmenn þínir að eiga góða...
Ef allt gengur eftir tekur Ísland sæti í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í dag í stað Bandaríkjanna sem sögðu sig úr ráðinu í síðasta mánuði. Ísland er eitt í kjöri eftir að Vesturlönd komu sér saman um að Ísland skyldi fylla skarðið til loka næsta árs. Bandaríkin gáfu þá skýringu við útgönguna að rótgrónir fordóma...
Ferli sem talið var taka öld eða meir tekur aðeins eitt ár. Tilraunir sem gerðar hafa verið á Hellisheiði sýna meiri árangur af niðurdælingu koltvíoxíðs í berg en nokkrir þorðu að vona. Koltvíoxíð er sú gróðurhúsalofttegund sem mestu veldur um hlýnun andrúmsloftið og það hefur mikið alþjóðlegt að nú er sýnt að þessi að...
Margrét Friðriksdóttir gefur kost á sér í 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi 8. febrúar n.k. Margrét er skólameistari Menntaskólans í Kópavogi og hefur gengt því starfi um 20 ára skeið, samkvæmt tilkynningu. " Kópavogur hefur allt til að bera til að vera fyrirmynd annarra sveitafélaga ef rétt er staðið...
Harry Bretaprins heimsótti í dag borgina Salford í norðurhluta Englands en þar hafa verið miklar óeirðir að undanförnu eins og víðar um Bretland. Ræddi hann þar meðal annars við almenna borgara og lögreglumenn. Sagði hann meðal annars af því tilefni að hann væri sleginn yfir því ofbeldi sem lögreglan á staðnum hefði or...
Sex skjálftar snarpari en 2 á Richter mældust í Mýrdalsjökli í grennd við Kötlu í gær og einn upp á 2,2 í nótt. Snarpasti skjálftinn í gær var tæpir 3. Þó nokkrir vægari skjálftar hafa orðið á svæðinu frá því í gær. Jarðvísindamenn vakta svæðið sérstaklega enda hefur virkni verið mikil þar um skeið.
Guðrún Aðalheiður Aðalsteinsdóttir fæddist í Reykjavík 13. júní 1940. Hún lést á líknardeild Landspítalans 28. október 2011. Foreldrar hennar voru Aðalsteinn Eiríksson, f. 13. september 1909, d. 17. ágúst 1950, og Dagmar Þorbjörg Jóna Siggeirsdóttir, f. 22. apríl 1913, d. 30. október 1959. Systkini hennar voru Vignir A...
Hátt í tvö hundruð eru látnir og fjölmargra er saknað eftir ferjuslys utan við strendur tansanísku eyjunnar Zanzibar í gærkvöldi. Ferðalangarnir voru á leið heim eftir að hafa fagnað lokum ramadan þegar að ferjan sökk. Talið er að yfir 500 manns hafi verið um borð í ferjunni en að minnsta kosti 163 eru taldir af. enn e...
Selfoss, EHF bikar karla, fyrri leikur, laugardaginn 1. september 2018. Gangur leiksins : 4 : 2, 7 : 4, 10 : 8, 12 : 8, 15:10, 17:13, 20:15, 24 : 17, 26 : 19, 30 : 22, 30 : 26, 34 : 28. Mörk Selfoss : Einar Sverrisson 8, Árni Steinn Steinþórsson 7, Hergeir Grímsson 6, Haukur Þrastarson 5, Atli Ævar Ingólfsson 5, Guðni ...
Pamela Anderson segist ekki hafa tíma fyrir ást um þessar mundir. Hún þurfi nefnilega á öllu sínu að halda í dans-raunveruleikaþættinum Dancing With The Stars. „ Ég er eiginlega á lausu. Ég hef allavega ekki tíma fyrir kærasta, ég þarf á öllum mínum sjarma að halda fyrir mig og dansfélaga minn, “ sagði Pamela í samtali...
M agnús Ingi Helgason og Helgi Jóhannesson eru á meðal keppenda á alþjóðlegu badmintonmóti sem hefst í Tallinn í Eistlandi í dag. Helgi fer í undankeppni og mætir Jani Häkkinen frá Finnlandi til að byrja með og þarf að vinna þrjá mótherja til að komast í fyrstu umferðina. Magnús Ingi fer hins vegar beint þangað og mæti...
Fjórir leikir fara fram í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Nýliðar Burnley fara á Craven Cottage og mæta þar heimamönnum í Fulham. Manchester City sem tapaði um helgina fyrir Burnley tekur á móti Owen Coyle og lærisveinum hans í Bolton. Portsmouth tek á móti Sunderland og Wigan fær Stoke í heimsókn. Leikir dagsins : 19:4...
LeikkonanCameron Diazsegir velgengni hennar í Hollywood byggjast á því að hún er jarðtengd og leggur sig fram við að lifa eðlilegu lífi. Cameron er meðvituð um að það er erfitt að ná árangri í Hollywood. „ Að mæta í flottu veislurnar og vinna langa vinnudaga tekur á og í flestum tilfellum gefast ungar leikkonur upp á l...
Fyllsti trúnað ríkir um allt sem fram fer á heimsþingi samtakanna Amnesty International í Dyflinni á Írlandi sem hófst á föstudaginn. Fulltrúar á þinginu hafa ekki heimild til að veita upplýsingar um framvindu þingsins fyrr en því lýkur klukkan fjögur í dag að íslenskum tíma. Hörður Helgi Helgason, formaður Íslandsdeil...
Mikill hvellur varð þegar skotið var á bílsprengju á Keflavíkurflugvelli í dag. Engin hætta var þó á ferðum enda þar saman komnar margar frægustu sprengjueyðingarsveitir í Evrópu. Íslenska Landhelgisgæslan stýrir fjölþjóðlegri æfingu sprengjueyðingarsveita sem fram fer hér á landi þessa dagana. Erlendu sveitirnar koma ...
" Það var löngu kominn tími á að ég skoraði og það var ansi sætt að gera það í þessum leik, " sagði Jóhann Berg Guðmundsson eftir sigurinn magnaða gegn Tyrkjum í gærkvöld en Jóhann skoraði fyrsta mark leiksins. " Þetta var frábær leikur af okkar hálfu. Það gekk allt upp sem við lögðum upp með. Við vissum nákvæmlega hva...
Sex íslensk kolmunnaskip eru nú á veiðum suður af Færeyjum og eru einhver þeirra í sinni síðustu veiðiferð þar sem þau eru að klára kvóta sína. Sjómenn segjast hafa þurft að hafa mikið fyrir aflanum því þrálátar brælur hafa geisað á miðunum og hafi skipin hvað eftir annað þurft að leita vars við Færeyjar. Um leið og sk...
Í KOSOVO-héraði og á öðrum svæðum Balkanskaga starfa um þessar mundir tíu Íslendingar að friðargæzlu - og uppbyggingarstarfi samkvæmt launasamningum sem utanríkisráðuneytið hefur gert við þá, auk annarra sem eru að svipuðum störfum á svæðinu á vegum frjálsra félagasamtaka, svo sem Rauða krossins. Þær Kristín Ástgeirsdó...
' Intolerance eftir D. W. Griffith ( 1916 ). Tónlist : Carl Davis ( 1989 ). Sinfóníuhljómsveit Íslands. Stjórnandi : Frank Strobel. Fimmtudaginn 3. nóvember kl. 19:30. ' LENGSTA þögla kvikmyndin sem hér hefur verið sýnd við lifandi hljómsveitarleik ( 178 mínútur, takk fyrir! ) hitti líklega tjald Háskólabíós á fimmtuda...
Mannbjörg varð upp úr hádegi þegar eldur kom upp í átta metra löngum fiskibát um fjórar sjómílur SA af Arnarstapa. Einn skipverji var um borð í bátnum og var honum bjargað um borð í nærliggjandi fiskibát. Björg, björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Rifi var einnig kallað út og er það á leið á staðinn og að...
Ólafur Ragnar og Davíð telja að íslenska þjóðin muni ekki spjara sig án þeirra. Nærtækara væri að segja að íslenska þjóðin muni ekki spjara sig nema án þeirra. Það er ekki vegna þess að þeir séu gamlir skröggar. Gamlir skröggar eru oft ágætir og sjálfur hef ég verið einn slíkur frá að minnsta kosti sjö ára aldri. Og þa...
Sérstakar innstæðutryggingar á Íslandi byggjast á loforðum ríkisstjórnarinnar, ekki neyðarlögunum, að mati Sigurðar Tómasar Magnússonar, sérfræðings við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Í umræðu um það hvort neyðarlögin svokölluðu frá í október í fyrra gætu verið felld úr gildi af einhverjum ástæðum hafa sérstakar inns...
Bæjarráð Fjallabyggðar lýsir yfir áhyggjum sínum vegna uppsagna 6,4 stöðugilda í útibúum Arion banka í Fjallabyggð og hefur skorað á fulltrúa bankans að mæta á næsta fund bæjarráðs til að fara yfir stöðuna. Alvarleg staða Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri Fjallabyggðar, hefur miklar áhyggjur af stöðunni og segir að blóð...
Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi segir að mjög óheppilegt sé að bakka með stór verkefni á sviði þróunaraðstoðar. Slík verkefni séu styrkt með myndarlegu mótframlagi frá stofnunum eins og Evrópusambandinu og Alþjóðabankanum. Fyrirhugaður niðurskurður í þróunaraðstoð um 400 milljónir króna mun að...
Ísland er nú leik í undankeppni EM 2015 skipað leikmönnum sautján ára og yngri. Liðið tapaði fyrir Tékkum í lokaleik riðilsins í dag, 30 - 29. ÍSland byrjaði vel og leiddi meðal annars í hálfleik 15 - 13. Í síðari hálfleik reyndust Tékkarnir örlítið sterkari og unnu með minnsta mun, 30 - 29. Eyrún Ósk Hjartardóttir var...
Íslenska landsliðið í handknattleik fékk skell í leik sínum við Dani í Jyske Bank Boxen í Herning í kvöld, 32 : 23, í lokaleik milliriðlakeppni Evrópumeistaramótsins í handknattleik karla. Síðasti leikur íslenska landsliðsins í keppninni er að leika um fimmta sætið á föstudag við Pólverja. Eva Björk Ægisdóttir ljósmynd...
BBC tekur saman daglega það helsta úr ensku miðlunum og birtir saman í einum pakka á vef sínum. Jólapakkinn í gær var ansi myndarlegur sem bauð upp á margt og mikið slúður en stærstu lið Englands komu þar flest við sögu. Chelsea er ekki lengur í félagaskiptabanni og segir Express frá því á vef sínum að þeir horfi til f...
Ajax Amsterdam sigraði RKC Waalwijk 2 - 1 í hollensku 1. deildinni í knattspyrnu í gærkvöldi. Knattspyrnustjóri Ajax er Ronald Koeman en bróðir hans, Erwin Koeman, stýrir liði Waalwijk. Ajax er í 3. sæti deildarinnar, sjö stigum á eftir PSV Eindhoven sem hefur forystu.
Um það bil 27% þeirra sem kusu Sjáfstæðisflokkinn í Reykjavíkurkjördæmi suður breyttu listanum og flestir þeirra strikuðu út nafn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar. Miklar líkur eru því á að hann færist niður um eitt sæti. Endanleg niðurstaða um fjölda og afleiðingar útstrikana liggur ekki fyrir fyrr en seinna í kvöld eða á mo...
„ Ég fékk hugmynd að sögu, öðruvísi sögu og ævintýralegri en ég hef áður skrifað, og stóðst ekki freistinguna og hjólaði í verkið, “ segir Stefán Máni rithöfundur. Í næstu viku kemur út hjá Forlaginu bókin Úlfshjarta eftir hann en í henni segir frá þeim Alexander og Védísi sem eru 19 og 17 ára. „ Söguhetjurnar eiga það...
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að yfirvöld þar í landi séu „ algjörlega, fullkomnlega “ undirbúin undir fellibylinn Flórens sem búist er við að skelli á austurströnd Bandaríkjanna. Ríkisstjóri Norður-Karólína segir fellibylinn vera „ skrímsli “. Fastlega er gert ráð fyrir því að Flórens gangi á land seint á...
Sveitarstjórn Tálknafjarðar hefur samþykkt að auglýsa aðalskipulagsbreytingar við Norður Botn í Tálknafirði og einnig samþykkt kynningu á deiliskipulagsbreytingu í Norður Botni vegna nýrrar seiðaeldisstöðvar. Byggingarmagn á byggingarreit I, Norður-Botn fer úr 8.000 m² í 40.000 m² og hámarks ársframleiðsla fer úr 200 t...
BÖRKUR Sigþórsson kvikmyndagerðarmaður vinnur nú að gerð stuttmyndarinnar Come to Harm, með Birni Thors og Þrúði Vilhjálmsdóttur í aðalhlutverkum. Handrit að myndinni skrifaði Stuart Beattie en hann á að baki handrit að þekktum Hollywood-myndum á borð við Pirates of the Caribbean og Collateral. | 40
Einar K. Guðfinsson, forseti Alþingis, sagði það koma til greina að horfa til danska þingsins hvað varðar meðferð mála á Alþingi. Tiltekin dagafjöldi þyrfti að líða frá því að mál væru lögð fram og þar til þau hlytu afgreiðslu. Einar K. sagði jafnframt að skýr vilji væri til þess hjá fulltrúum allra flokka að endurskoð...
John Barnes, fyrrum leikmaður Liverpool - og enska landsliðsins, segist eiga í erfiðleikum með að komast aftur í þjálfun í fótboltanum en ástæðan ku vera húðlitur hans. Barnes hefur þjálfað þrjú lið á ferli sínum en hann hefur þjálfað Glasgow Celtic og Tranmere Rovers auk þess sem hann þjálfaði Jamaíka. Hann hefur ekki...
Kínverjar, sú gamla og mikla menningarþjóð, hafa sín eigin stjörnumerki sem eru aldeilis ólík þeim stjörnumerkjum sem " stjórna " lífi okkar Vesturlandabúa. Hér eru kínversku stjörnumerkin sýnd bróderuð í röð.
Manchester United hefur hafið samningsviðræður við markvörðinn David De Gea samkvæmt heimildum Dailystar. Þessi 23 ára gamli Spánverji kom til United frá Atletico Madrid fyrir þremur árum. Eftir að hafa legið undir mikilli gagnrýni fyrstu misseri sín hjá félaginu hefur hann fest sig í sessi sem lykilleikmann. Var hann ...
Höskuldur Hilmarsson rjúpnaskytta, sem leitað var að á Víðidalsfjalli á milli Vatnsdals og Víðidals á mótum Vestur - og Austur-Húnavatnssýslu frá föstudagskvöldi til laugardagsmorguns, bjargaði sér af eigin rammleik til byggða eftir að hafa gengið slasaður um langan veg aðfaranótt laugardags uns hann kom niður að bænum...
Jón Rafn Guðmundsson fæddist í Reykjavík 19. apríl 1928. Hann andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði 7. apríl 2013. Útför Jóns Rafns fór fram frá Hafnarfjarðarkirkju 16. apríl 2013. Elsku afi Jón. Þú hefur kvatt þennan heim og skilur eftir þig góðar minningar. Ég mun sakna þín og er mjög þakklátur og glaður að hafa átt þig...
Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals, segir nauðsynlegt að lengja tímabilið á Íslandi og fjölga leikjum. Heimir hefur undanfarin tvö ár þjálfað HB í Færeyjum en þar hefst mótið í mars og lýkur í lok október. Í Færeyjum eru 27 leikir í efstu deild en tíu lið eru í deildini og spiluð er þreföld umferð. Umræðan um lengingu Ís...
FH-ingar urðu í dag Íslandsmeistarar karla í knattspyrnu 2008 eftir 2 : 0 sigur á Fylki í Árbænum. Matthías Vilhjálmsson og Guðmundur Sævarsson skoruðu mörkin, sem bæði komu í síðari hálfleik. FH endaði mótið í efsta sæti með 47 stig. Næstir komu Keflvíkingar með 46 stig en þeir töpuðu 1 : 2 fyrir Fram. Þetta er fjórði...
Kjósendur voru margir hverjir snemma á ferðinni á kjörstað í morgun líkt og formenn flokkanna. Flestum þeirra fannst kosningabaráttan leiðinleg og eru fengir að henni sé nú lokið en rætt var við nokkra þeirra kjósendur í hádegisfréttatíma Stöðvar 2 í dag. „ Ég ætlaði að nota daginn og skreppa austur fyrir fjall og kíkj...
' ' Íslenska landsliðið í handknattleik fær ekki keppnisrétt á heimsmeistaramótinu í greininni og gildir einu hvernig fer á Ólympíuleikunum. Hefur borið á því að margir telji svo vera en það er ekki rétt. Ekkert sæti á ÓL gefur sæti á HM sem fram fer í Króatíu í byrjun næsta árs. Voru umspilsleikir Íslands gegn Makedón...
" Fólk þráir tilbreytingu og vill komast í nýtt umhverfi, " segir Ingibjörg Hjartardóttir, hótelstjóri á Hótel Húsafelli í Borgarfirði. Þar var opnað aftur um helgina eftir hlé frá áramótum og hvert rúm var skipað. Raunar er þétt bókað á herbergin langt fram í maí og því er nú verið að setja í sölu hagstæð tveggja nátt...
Fram til þessa hefur það almennt verið talið ráðlegt þegar fólk meiðist að setja kalt á meiðslin til að draga úr bólgum. Nú benda rannsóknir aftur á móti til þess að kæling komi í veg fyrir bata. Með því að snöggkæla teygðan eða marðan vöðva er komið í veg fyrir að líkaminn framleiði ákveðið hormón sem gegnir lykilhlut...
Þekkt tónskáld og prófessor í Bretlandi, Jonathan Harvey, hvetur nú til þess að yfirbragði klassískra tónleika verði umbylt, beitt hátölurum og gestum leyft að tala saman og jafnvel yfirgefa salinn í miðjum flutningi verks, að sögn vefsíðu Guardian. " Ekki ætti að hindra nokkurn mann í að njóta sígildrar tónlistar, all...
„ Það þarf alltaf að hafa fyrir hlutunum á móti Keflavík, eins og á móti öllum liðum auðvitað. Keflavík er með hörkulið, þær eru sterkar í föstum leikatriðum og það er erfitt við þær að eiga, “ sagði Halldór Jón Sigurðsson, eða Donni eins og hann er betur þekktur eftir 3 : 1 sigur Þór / KA á Keflavík í 14. umferð Pepsi...
Stefán Árnason, þjálfari Selfoss, var ánægður með sína menn eftir sannfærandi sigur á toppliði Aftureldingar í Olís-deild karla í handbolta í kvöld. Lokatölur á Selfossi urðu 32 : 25. „ Við vorum bara ansi góðir í kvöld. Það sem var jákvæðast var að við bættum leik okkar þegar leið á leikinn eftir að við vorum seinir í...
Því miður fellur endursýning á Silfri Egils niður í kvöld – vegna Vetrarólympíuleikanna. Þeir sem vilja sjá þáttinn geta horft á netinu. Ég vek sérstaka athygli á viðtölum við John Christensen, baráttumann gegn skattaskjólum, Diana Wallis, varaforseta Evrópuþingsins, og Finnboga Vikar sem situr í nefnd um endurskoðun k...
Morten Olsen, landsliðsþjálfari Dana, sagði á blaðamannafundi í gær að hann væri rólegur fyrir leikinn gegn Ítalíu í dag þótt hann gerði sér grein fyrir því að ítalska liðið væri mjög sterkt. „ Úrslit þessa leiks koma til með að ráðast á forminu. Dagsformið skiptir öllu því ég hef ekki trú á því að liðin geti komið hvo...
Aðdáendur Bítilsins George Harrisons, sem féll frá í liðinni viku, eru sagðir hafa flykkst á spjallrásir og lýst yfir sorg sinni. Talið er að um þrjú þúsund aðdáendur hans hafi skrifað skilaboð á vefsvæði America Online ( AOL ) og tvö þúsund skilaboð voru send á yahoo.com, sólarhring frá láti Harrisons, sem féll frá ef...
Skæruliðasamtökin FARC í Kólumbíu hafa sent frá sér tónlistarmyndband til að fagna væntanlegum friðarviðræðum við stjórnvöld. Viðræðurnar munu fara fram í Noregi og á Kúbu og vonast er til að þær bindi enda á fimm áratuga borgarastríð. Juan Manuel Santos, forseti Kólumbíu, hefur lofað að gera sem í sínu valdi stendur t...
Ekki verður farið að tilmælum Hafrannsóknastofnunar um lækkun veiðihlutfalls að sögn sjávarútvegsráðherra. Hann segir fjárhagslegt tap á því á þjóðarbúið of mikið. Fram kom í máli vísindamanna Hafrannsóknastofnunnar þegar þeir birtu veiðiráðgjöf stofnunarinnar í gær að ein ástæða lélegs ástands þorskstofnsins sé að stj...
„ Þetta var skýrt loforð hjá Bjarna Benediktssyni fyrir kosningar að kosið yrði um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Ég hef aldrei reynt Bjarna að því að svíkja loforð, enda væri ekki gott að byggja upp ríkisstjórn á sviknum loforðum “ segir Benedikt Jóhannesson, formaður Sjálfstæðra Evrópusinna í samtali ...
Er eitthvert vit í að flytja inn poppara sem voru vinsælir einu sinni – mega sjálfsagt sjá fífil sinn fegurri – og gera varla annað en að spila gömlu lögin sín? Það er ekkert afdráttarlaust svar við þessu, en ef marka má tónleika 10 CC í gærkvöldi er óhætt að segja já. 10 CC var einstök hljómsveit á sínum tíma. Hún spi...
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur - og Suðausturlandi. Það eru þó ekki aðeins hreindýr sem ökumenn ættu að varast í dag því að víða á landinu er hálka og hálkublettir sem ferðalangar ættu að hafa í huga. Þannig er hálka á flestum vegum á Vesturlandi og Vestfjörðum. Fl...
BREYTT skattaumhverfi í Danmörku getur haft þau áhrif að áhugi FL Group á fjárfestingum þar í landi minnki. Þetta segir Hannes Smárason, forstjóri FL Group, í viðtali við danska viðskiptablaðið Børsen. Hannes tekur þó fram í viðtalinu að ótímabært sé að úttala sig um þessi mál fyrr en heildarmyndin liggur fyrir. Þá ráð...
Argentínska dagblaðið Clarin hefur greint frá því að yfirmenn hersins í Perú hafi haft áform um að ráða Albeto Fujimori, forseta landsins, af dögum fyrir einum mánuði. Skrifstofa forsetans hefur neitað að tjá sig um frétt blaðsins. Angel Paez, blaðamaður frá Perú, skrifaði fréttina, en þar kom fram að herinn hafi ætlað...
Liverpool er komið með sex stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á nýjan leik eftir 2 : 1 - sigur á Tottenham á Anfield í dag. Harry Kane kom Tottenham yfir eftir 47 sekúndur, en eftir það var Liverpool sterkari aðilinn og var sigurinn heilt yfir sanngjarn. Jordan Henderson jafnaði metin á 52. mínút...
Fulltrúi Íslands hjá p Aðgerðir lögreglu voru marga mánuði í undirbúningi. Þær gengu undir nafninu Pólstjarnan. Að málinu komu alþjóðadeild ríkislögreglustjóra, fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, sem leiddi rannsóknina og Landhelgisgæslan auk lögreglunnar á Eskifirði. Evrópulögreglan, Europol í Hollandi ...
Lögreglunni á Vestfjörðum barst tilkynning í kvöld um að skip frá Patreksfirði hefði strandað rétt fyrir utan innsigluna í Patreksfjarðarhöfn. Í tilkynningu frá lögreglu segir að 14 manna áhöfn hafi verið á skipinu en engin slys urðu á fólki. Aðstæður til björgunar eru góðar en eftir því sem segir í stöðuuppfærslu lögr...
Allt að sextíu prósent hollenskra kjósenda ætla að hafna stjórnarskrá Evrópusambandsins í þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram fer í landinu á morgun, samkvæmt nýrri skoðanakönnun, og nefna margir svipaðar ástæður og franskir kjósendur gerðu : Andstöðu við stækkun sambandsins, ótta við að glata hollenskum þjóðareinkennum og ...
Annar í jólum 90 ára Óskar Guðjónsson 85 ára Unnur M. Guðmundsdóttir 75 ára Einar B. Gunnlaugsson Helga Guðmundsdóttir Jón Guðmundsson Margrét Hjartardóttir Þorgerður Guðmundsdóttir 70 ára Anna Björnsdóttir Gísli Wium Hjördís Baldursdóttir Jón Þór Ólafsson Valur Daníelsson 60 ára Berglind Eyjólfsdóttir Geir Eyjólfsson ...
Guðrún Einarsdóttir, Íris Elfa Friðriksdóttir, Jón Axel Björnsson, Kristín Arngrímsdóttir, Ragnhildur Stefánsdóttir, Vignir Jóhannsson og Þorvaldur Þorsteinsson. Til 28. september. Opið á verslunartíma. ÓFÖLSUÐ íslensk list er táknrænt heiti á samsýningu sem Gallerí Sævars Karls hefur efnt til á verkum nokkurra lifandi...
Stjórn Samtaka atvinnulífsins ( SA ) hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna ummæla Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands. Í henni segir að gagnrýni forseta Íslands á forsvarsmenn í íslensku atvinnulífi sé ómakleg. „ Samtök atvinnulífsins hafa undanfarin ár reynt að skapa trúverðugar væntingar svo fjárfestingar sem nú ...
Á síðasta laugardag fór ég á meiriháttar íbúaþing sem haldið var í Íþróttaakademíunni í Reykjanesbæ. Ég held að ég sé enn uppi í skýjunum yfir þessu framtaki, þessari nýjung og öllu því sem þar var á ferðinni. Þennan umrædda morgun hafði ég vaknað fyrir allar aldir og meira að segja hálftíma áður en vekjaraklukkan í fa...
Það er meira en C-vítamín sem gerir appelsínur hollar því andoxunarefni verja líkamann gegn efnum sem skaða. Ávextir sem innihalda mikið af C-vítamíni eru oft algjörar andoxunarbombur. Það er því betra að fá sér appelsínu en eina C-vítamíntöflu segir Serena Guarnieri og rannsóknarteymi hennar við háskólann í Mílanó. Þa...
Flutningur þjóðhátíðargesta með farþegaferjunni Herjólfi gekk afar vel fyrir sig í ár en fjöldi fólks sigldi með skipinu á milli lands og Eyja í þjóðhátíðarvikunni. " Það er bara bros og gleði í Herjólfi, " sagði Gunnlaugur Grettisson, rekstrarstjóri skipsins. " Þetta voru miklir flutningar en gengu gríðarvel fyrir sig...
Valur byrjaði leikinn í kvöld betur og komst snemma í fimm stiga forystu. Við það kveiknaði þó á heimamönnum sem skoruðu næstu 10 stig í röð með Maciek Baginski í fararbroddi en á þessum tímapunkti setti hann niður tvær mikilvægar þriggja stiga körfur. Staðan fór úr 2 - 7 í 12 - 7. Við það myndaðist mikil stemning í Lj...
" Aðeins 8% þjóðarinnar reykir. Það er lægsta hlutfallið af öllum þjóðum heimsins. Ég óska ykkur til hamingju með það, " sagði Margaret Chan framkvæmdastjóri alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar þegar hún hélt ræðu á fundi í Túrkmenistan í gær. Túrkmenistan er nefnilega það land í heiminum með lægsta hlutfall reykingamann...
Staðfest hefur verið að sjötta myndin um galdrastrákinn Harry Potter verði frumsýnd um þakkargjörðarhelgina í Bandaríkjunum árið 2008. Enn hefur enginn leikstjóri verið ráðinn til að leikstýra Harry Potter and the Half Blood Prince, en til þessa hefur framleiðandi myndanna, Warner Bros. , ráðið nýjan leikstjóra í hvert...
Hlutverk bæjarstjórnar Árborgar er að hlúa að velferð bæjarbúa og eitt þeirra atriða sem bæjarstjórn verður að tryggja er að nægilegur fjöldi íbúða standi íbúum sveitarfélagsins til boða og að búsetuform séu þannig að allir finni húsnæði við hæfi. Veruleg þörf er á að fjölga leiguhúsnæði í sveitarfélaginu og því er nau...