text
stringlengths
1
19.2M
Verið er að telja atkvæði í þing - og forsætisráðherrakosningunum í Ísrael. Þegar 12% atkvæða höfðu verið talin kl. 22 hafði Ehud Barak fengið 60,3% atkvæða en Benjamin Netanyahu 39,5%. Bill Clinton Bandaríkjaforseti óskaði Barak til hamingju með sigurinn í kvöld. Clinton sagðist í yfirlýsingu hafa hringt bæði í Barak ...
Verslunarmiðstöð í norðurhluta Kína hefur komið upp risavaxinni styttu af hundi í líki Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna. Er þetta gert í tilefni af ári hundsins, sem hefst 16. febrúar. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem verslunarmiðstöðin lætur reisa styttu af forsetanum bandaríska því í fyrra fagnaði verslunarmiðstöð...
Theo Walcott, leikmaður Arsenal, fór úr axlarlið á æfingu enska landsliðsins í kvöld. Hann getur því ekki leikið með í vináttulandsleiknum gegn Þýskalandi í Berlín á miðvikudagskvöld. Í fyrramálið verður tekin ákvörðun um hvenær þessi 19 ára leikmaður fer aftur til Englands. Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englands, s...
Það er kannski ekki mjög lekkert að tala um hægðir en þær eru engu að síður ákaflega mikilvægur þáttur í lífi hvers manns. Ef hægðirnar eru ekki góðar - þá er voðinn vís. Það hefur þó ekki verið hefð fyrir því að gera hægðirnar meira aðlaðandi en þær eru en það gæti þó verið að breytast. Á vefsíðunni inquisitr.com eru ...
Það ganga pestirnar í efnahagslífi Vesturlanda. Veiran virðist við fyrstu sýn önnur austan Atlantshafs en sú sem sló sér niður fyrir vestan, en báðar koma þó úr sama jarðvegi. Þeim jarðvegi sem bólan mikla, sem sprakk haustið 2008, var einnig sprottin úr. Svo illviðráðanleg er efnahagspestin þó beggja vegna úthafsins a...
GRINDAVÍKURDEILD Rauða kross Íslands hefur gefið nemendum 1. bekkjar Grunnskólans í Grindavík reiðhjólahjálma, eins og orðið er að hefð hjá félaginu. Með hjálmunum fylgdu leiðbeiningar um notkun þeirra og ekki skemmdi fyrir að lögreglan fór yfir helstu öryggisatriði í umferðinni fyrr um morguninn. Guðfinna Bogadóttir e...
PÍANÓTRÍÓIÐ FLÍS leikur á Múlanum í Betri stofunni á Kaffi Reykjavík á sunnudaginn kemur kl. 21. FLÍS var stofnað haustið 1998. Meðlimir þess eru Davíð Þór Jónsson píanó, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson kontrabassa og Helgi Svavar Helgason trommur. Allir stunda nám við FÍH-skólann og eru virkir tónlistarmenn innan hans ...
Rekstrarniðurstaða Íbúðarlánasjóðs var jákvæð sem nemur 4.257 milljónum króna samanborið við 1.827 milljóna króna rekstrarafgang árið 2015. Rekstrarniðurstaða Íbúðarlánasjóðs var jákvæð sem nemur 4.257 milljónum króna samanborið við 1.827 milljóna króna rekstrarafgang árið 2015. Viðsnúningurinn nemur rúmlega tveimur mi...
NORRÆNU úrvalsvísitölurnar hækkuðu allar í liðinni viku, að þeirri íslensku undanskilinni. Norska OSEAX vísitalan hækkaði um tæp 4,5% á einni viku, en í norskum fjölmiðlum mátti lesa í gær að í maímánuði fluttu Norðmenn út vörur fyrir 52 milljarða norskra króna ( 525 milljarða íslenskra króna ), en inn fyrir 29 milljar...
Reynir Arngrímsson, formaður Læknafélags Íslands, segir að ekki sé hægt að veita þá þjónustu á Landspítala sem sé í boði á einkareknum stofum utan sjúkrahúsa. Til þess sé ekki aðstaða. Lokun rammasamnings sé því ákvörðun um að ríkið greiði ekki fyrir þjónustu sem þörf sé fyrir. Reynir sagðist á Morgunvaktinni á Rás 2, ...
Eftir Halldóru Þórsdóttur halldorath@mbl.is MARKAÐURINN með sumarhús hefur ekki verið að gera sig, þar er engin hreyfing, " segir Sveinn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Landssambands sumarhúsaeigenda. Undanfarna mánuði hafi um 800 sumarhús verið til sölu á vefnum og sú tala hafi lítið breyst. Fleira en núverandi markaðsa...
Lögregla í Kaliforníu fann konulík í frystikistu á hótelherbergi á Newport Beach þegar þar var gerð húsleit vegna rannsóknar á kókaínmáli, að því er yfirvöld greindu frá í dag. Líkið var fullklætt og " vel varðveitt, " í plastkistu sem var full af þurrís. Íbúinn á hótelherberginu var handtekinn fyrir meinta sölu á kóka...
Byrjað var í morgun að flytja særða og sjúka frá austurhluta Aleppo. Nýtt samkomulag hefur verið gert um brottflutning uppreisnarmanna og fjölskyldna þeirra frá borginni. Utanríkisráðherra gagnrýnir störf Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna harðlega fyrir að bregðast ekki við ástandinu í Sýrlandi. Fjögur þúsund uppreisnarme...
Á laugardaginn mun Þórey Eyþórsdóttir opna sýningu í Boxinu sal Myndlistarfélagsins sem staðsett er í Listagilinu á Akureyri. Sýnd verða verk sem hafa verið unnin síðastliðið ár. Þórey bjó lengi á Akureyri og stofnaði þar félagið Nytjalist. Hún rak Gallerí AllraHanda um tíu ára skeið og Heklusalinn á Gleráreyrum. Þórey...
Sá virðulegi fjölmiðill, Morgunblaðið, á undir högg að sækja vegna þess hve auðtrúa hann er. Í dag göbbuðu gárungar blaðið með því að senda ritstjórninni mynd af nýfundnum ísbirni, skammt norðan við Hofsós. Fréttin var með enn meiri ólíkindum vegna þess að einhver Sigurður sagði að ferðafólk hefði látið vel að Bjössa. ...
Þær erlendu vísitölur sem greiningardeild Kaupþings banka ber saman við íslenska markaðinn hafa allar hækkað það sem af er fjórðungs. Íslenska Úrvalsvísitalan hefur hækkað minnst. ? Norska OBX vísitalan hefur hækkað mest eða um 16,2%. Rússneska Otob vísitalan hefur hækkað um 15,4% og hefur því hækkað næst mest allra ví...
Litlu mátti muna að illa færi að mati Davíðs Rúnars Gunnarssonar, slökkviliðsstjóra á Patreksfirði, þegar eldur kviknaði í sólpalli fyrir utan íbúðarhús í bænum og eldtungur teygðu sig upp eftir húsveggnum þannig að tvær rúður sprungu vegna hita. Þetta gerðist um eittleytið í nótt og urðu nágrannar þessa varir og köllu...
Undanúrslit á skákþingi Íslands héldu áfram í gærkvöldi þegar seinni skákir voru tefldar. Þröstur Þórhallsson er kominn í úrslit en hann sigraði Jón Garðar Viðarsson og hlaut því samanlagt 1½ vinning á móti ½. Stefán Kristjánsson og Jón Viktor Gunnarsson gerðu aftur jafntefli og munu því tefla bráðabana.
Laun stjórnenda hafa hækkað um 13 prósent milli ára, og laun millistjórnenda um allt að 40 prósent. Björgólfur Jóhannsson, formaður Samtaka atvinnulífsins og forstjóri Icelandair Group, segir launaskrið forstjóra og næstráðenda í fyrirtækjum landsins mikil vonbrigði ef sönn reynast. En samkvæmt Tekjublaði Frjálsrar ver...
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir mögulegt að hún hætti í stjórnmálum bíði hún ósigur fyrir Össuri Skarphéðinssyni í formannskosningu í Samfylkingunni. Hún segir að komið sé að hugmyndafræðilegri endurnýjun í flokknum. Kosning milli Ingibjargar og Össurar hefst eftir þrjá mánuði en niðurstöðurnar verða tilkynntar á la...
Helgi Bjarnason helgi @mbl. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Fulltrúar opinberra stofnana sem veita leyfi til fiskeldis funduðu í gær um stöðuna í sjókvíaeldi í Patreksfirði og Tálknafirði í kjölfar þess að úrskurðarnefnd umhverfis - og auðlindamála felldi úr gildi ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfis til han...
Stúlkan sem lýst var eftir á Facebook í gær er fundin. Hún skilaði sér heim til sín í gærkvöldi samkvæmt upplýsingum DV. Ekkert hafði spurst til stúlkunnar frá því á sunnudag en samkvæmt upplýsingum DV skilaði stúlkan sér heim til sín í gærkvöldi.
„ Eigum við þá að leyfa síbrotamönnum að halda áfram í glæpum og gera ekki neitt? “ spyr Akeem Cujo, framkvæmdastjóri fjölmenningarsetursins Ísland Panorama Center, Helga Hrafn Gunnarsson alþingismann Pírata. Helgi sagði í samtali við Fréttablaðið í vikunni að óskynsamlegt væri að loka fyrir hatursáróðursspjallborð sem...
Bandarískur leikstjóri, Philip Haas, vinnur nú að gerð myndar um uppreisnina í Írak. Davíð Logi Sigurðsson kynntist handritshöfundinum Wendell Steavenson í Bagdad í fyrra. Hann tók sig til og hringdi í hana til að spyrjast fyrir um verkefnið, ástandið í Írak og um ástir og örlög fólks á vígvellinum. Þetta gerðist mjög ...
Úr Elliðaánum voru í hádeginu komnir 1009 laxar. Sogið er í góðu formi á meðan að Laxá í Dölum veldur veiðimönnum verulegum áhyggjum. Veiði íElliðaánumhefur gengið vel. Nú er fjögurra stanga tímabil hafið sem nær til lokunar ánna næstkomandi mánaðarmót. Í morgun veiddust átta laxar á stangirnar fjórar, og enn eru stöku...
Fjölskylduhátíðin " Ein með öllu " var sett á Akureyri í gærkvöld. Hátíðin hófst með trúbadorakeppni sem fjölmargir áhorfendur fylgdust með úr brekkunnni í Skátagili. Júlí Heiðar bókstaflega tryllti áhorfendur en hann tók lagið ásamt félögum sínum Kristmundi Axel og Bjarti Elí. Aðstandendur hátíðarinnar búast við fjöld...
Fylgi Vinstri grænna minnkar um nær 3 prósentustig og fylgi Viðreisnar eykst um nær 2 prósentustig samkvæmt þjóðarpúlsi Gallups. Ekki er mikil breyting á fylgi flokka. Sjálfstæðisflokkurinn er stærstur með rösklega 24%. Næst kemur Samfylkingin með rúmlega 16% fylgi. Vinstri græn eru með nær 14% og rösklega 8% myndu kjó...
Hinar konunglegu Ascot-veðreiðar, sem haldnar eru ár hvert í Berkshire í Suður-Englandi, vekja jafnan mikla athygli enda margt fyrirmenna sem mætir þar til að sýna sig og sjá aðra. Ekki eru það eingöngu fagrir fákar og knáir knapar sem vekja eftirtekt heldur ekki síður gestirnir sjálfir sem flestir eru úr efri stéttum ...
Heit eplabaka með Toblerone 1 - 2 epli Toblerone, eftir smekk 200 gr. smjör 200 gr. fínt spelt 200 gr. fínn hrásykur kókosmjöl [ Mynd 1 ] Eplin skorin niður í sneiðar og sett í eldfast mót. [ Mynd 2 ] Toblerone brytjað niður og sett yfir eplin. Smjörið síðan brætt og hrært saman við speltið og hrásykurinn. [ Mynd 3 ] B...
Danny Pollock, fyrrum gítarleikari Utangarðsmanna, segist ekkert slæmt hafa að segja um samskipti sín við fyrrum útgefanda hljómsveitarinnar, Steinar Berg. Segir hann Steinar hafa hjálpað þeim með ýmislegt, þar með talið hafi hann lagt til fé til útgáfu hljómplatna sveitarinnar. Steinar Berg, útgefandi og fyrrum eigand...
Stjórnvöld í Bandaríkjunum rannsaka hvort hugsanlegt sé að ofneysla á orkudrykk hafi dregið fimm manns til dauða undanfarin misseri. Íslenskur næringarfræðingur telur að bregðast eigi við sölu á slíkum drykkjum í grennd við skóla. Í orkudrykkjum er koffín og ýmis önnur virk efni, auk sykurs. Hvorki bandarísk né íslensk...
Spænski drykkjarvöruframleiðandinn Cobega hefur ekki greitt fyrir Vífilfell. Enn er unnið að kaupunum. Spænski drykkjarvöruframleiðandinn Cobega hefur ekki enn greitt fyrir Vífilfell. Tilkynnt var um kaup spænska félagsins þegar Arion banki greindi frá skuldauppgjöri við Þorstein M. Jónsson 20. janúar síðastliðinn. Tvö...
Búast má við að fjöldi útskrifaðra sveina í matreiðslu hér á landi muni tvöfaldast á næstu árum og verða um sjötíu talsins. Á síðasta ári luku 34 sveinsprófi en frá árinu 2012 hafa yfir 30 manns lokið prófinu á ári hverju. Að sögn Ólafs Jónssonar, sviðsstjóra hjá matvæla - og veitingasviði Iðunnar fræðsluseturs hefur n...
Jordan Spieth fær regluleg að kynnast frægðinni með ýmsum hætti. Hann var í Arlington á þriðjudagskvöldið til að taka fyrsta kast í hafnaboltaleik milli Rangers og Mariners. Þar var einnig stödd Shannon Sanderford betur þekkt þar á bæ sem ungfrú Texas. Stúlkan var í sjónvarpsviðtali og var beðin um að taka lagið. Hún g...
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hélt opinn hátíðarfund í dag í tilefni af 20 ára afmæli bæjarins Á fundinum var ákveðið að gera Salome Þorkelsdóttur, fyrrverandi alþingismann, að heiðursborgara. Þá var ákveðið að reisa útivistar - og ævintýragarð ði Mosfellsbæ. Fréttatilkynning frá Mosfellsbæ " Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hélt...
Umboðsmaður skuldara ætlar að óska eftir afstöðu fjármálafyrirtækjanna til dóms hæstaréttar um vexti á gengistryggðum lánum hvernig þau hyggjast bregðast við honum. Umboðsmaður telur miklu skipta að allri óvissu varðandi túlkun á dómnum og áhrif hans á endurútreikning lána sem höfðu ólögmæta gengistryggingu, verði eytt...
Skömmtun RARIK á rafmagni á stöðum á Norðausturhorni landsins er lokið. Þá eru allir viðskiptavinir Landsnets komnir með rafmagn. Viðgerð á byggðalínunni er lokið. Samkvæmt upplýsingum frá RARIK gekk brösulega að koma á stöðugu rafmagi á Raufarhöfn. Þar er nú búið að tengja aðra varavél og er skömmtun þar lokið. Þá er ...
Mánuður er liðinn frá hvarfi Jóns Þrastar Jónssonar. Fjölskylda, sjálfboðaliðar og björgunarsveitir hafa leitað af sér allan grun á svæðinu þar sem hann sást síðast. Bróðir Jóns segir það velta á vísbendingum lögreglu hvenær leitin heldur áfram. Heill mánuður er liðinn frá því Jón Þröstur Jónsson gekk út af hótelherber...
HJÁ ÓB-stöðinni í Bæjarlind, sem er í eigu Olís, er um þessar mundir verið að bjóða fólki ókeypis kennslu á eldsneytissjálfsala stöðvarinnar og frían þvott á bílinn með hverri áfyllingu af bensíni. Þessi þjónusta stendur viðskiptamönnum til boða út nóvember. " Eldsneytisverð er hátt um þessar mundir en fólk getur náð a...
Atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús er í öðru sæti á Opna Bråviken-mótinu í Noregi að tveimur hringjum loknum. Mótið er hluti af Norðurlandamótaröðinni. Haraldur var á sjö höggum undir pari eftir fyrsta hringinn og byrjaði gríðarvel á hring dagsins. Hann fékk örn og fugl á fyrstu tveimur holum vallarins. Að en...
Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester City er nú nýjasta félagið á Englandi til að vera orðað við yfirtöku, en forráðamenn félagsins hafa staðfest að þeir séu í viðræðum við fjárfesta sem hafi í huga að kaupa félagið. Breska sjónvarpið segir að hér sé um fjársterkan einstakling að ræða og því hefur verið slegið fram að...
Lára Fríða Ágústdóttir, fæddist 9. júlí 1912 í Reykjavík. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 25. júní síðastliðinn. Móðir hennar var Ágústa Magnúsdóttir Sigurðssonar pósts og Guðbjargar Jónsdóttur. Faðir hennar var Ágúst Lárusson Lúðvíkssonar skókaupmanns og Málfríðar Jónsdóttur. Þau voru átta börnin, Lára elst, ...
Írösk stjórnvöld hafa lokað landamærunum að Sýrlandi og Íran til að stöðva vopnaflutning og ferðir vígamanna til landsins.
Ríkisstjórnin ætlar að kynna næsta aðgerðapakka vegna kórónuveirunnar á morgun. Ferðamálaráðherra ætlar að styrkja 15 ferðamannastaði um 200 milljónir króna í ár. Eftirlitsstofnun EFTA hefur fallist á lán handa fyrirtækjum í vanda. Þingfundur verður á Alþingi klukkan þrjú með óundirbúnum fyrirspurnum. Þá fer fram umræð...
Leiknir 0 - 0 FH Ekkert mark var skorað þegar Leiknir og FH mættust í æfingaleik á gervigrasinu við Leiknisvöll í gærkvöldi. Leikurinn var afar daufur á að horfa og lítið um færi. FH mætir KR í leik meistara meistaranna á sunnudagskvöldið svo Heimir Guðjónsson þjálfari liðsins tefldi fram leikmönnum sem hafa spilað min...
Landbúnaðarháskóli Ísland ætlar að bjóða til sín öllum þeim sem hafa hugmyndir að nýsköpun í landbúnaði, umhverfismálum og landnýtingu. Þeim stendur til boða aðgangur að þeirri aðstöðu og þekkingu sem skólinn hefur yfir að ráða og viðbrögðin láta ekki á sér standa. Sprotinn er heiti á verkefni á vegum Landbúnaðarháskól...
Lögreglan á Austurlandi hefur flett ofan af smyglleið fyrir hass í gegnum Ísland með ferjunni Norrænu. Lagt hefur verið hald á vel yfir 20 kíló af hassi og tveir erlendir menn hafa verið í gæsluvarðhaldi. Rannsókn málsins hófst í nóvember þegar lögreglan á Suðurlandi stöðvaði íslenskan mann með tæp sex kíló af hassi í ...
" Ég lá yfir þessu vali síðustu daga ásamt mínum samstarfsmönnum. Það er alltaf erfitt að skera niður leikmannahóp fyrir mót eins og þetta, en við teljum okkur vera með í höndunum þann besta hóp leikmanna sem völ er á, " sagði Ágúst Þór Jóhannsson, landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik, eftir að hann tilkynnti í gær...
Nýlokið er gerð Dýrafjarðarganga, sem allir geta verið sammála um að eru mikil samgöngubót fyrir Vestfirðinga. Göngin stytta Vestfjarðaveg um rúma 27 km, auk þess að snjóþungur vegur um Hrafnseyrarheiði, sem var lokaður fjóra til sex mánuði á hverju ári, leggst af. Gerð Dýrafjarðarganga gekk mjög vel og varð heildarkos...
Neysluvarningur sem Íslendingar kaupa erlendis og hyggjast flytja inn án þess að greiða lögboðin gjöld af fer ekki framhjá tollvörðum í Leifsstöð vegna náinna samskipta við erlend tollayfirvöld, þegar ferðamenn fá endurgreiddan virðisaukaskatt erlendis. Í blaðinu á miðvikudag var sagt frá því að brögð séu að því að fer...
„ Niðursveiflan virðist koma flokksmönnum í jafn opna skjöldu og fylgisaukningin rétt fyrir kosningar. “ Nýleg könnun MMR á fylgi íslenskra stjórnmálaflokka verður að teljast til tíðinda fyrir þónokkrar sakir en þó einna helst að Flokkur fólksins, undir stjórn Ingu Sæland, mælist nú með meira fylgi heldur en tveir af þ...
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og þingmaður Norðausturkjördæmis, fagnar kaupum Samherja á Brimi. Hann segir að kaupin afsanni hrakspár um að einhver óvissa geri það að verkum að enginn þori að gera neitt í sjávarútvegi. Í gær var tilkynnt um kaup Samherja á eignum Brims á Akureyri fyrir 14,5 milljarð króna....
Bertha María Ársælsdóttir fæddist í Vestmannaeyjum 3.6. 1964, ólst þar upp og gekk í Barnaskóla Vestmannaeyja þar til 23. janúar 1973 er eldgosið hófst. Fluttist fjölskylda hennar þá til Reykjavíkur og bjó þar upp frá því. Sterkar rætur í Eyjum " Húsið okkar og allt umhverfi þar sem ég ólst upp og æskustöðvar móðurfjöl...
Sögurnar um Hungurleikana voru vinsælustu kiljur í sumar, samkvæmt lista Rannsóknarseturs verslunarinnar. Þannig voru bækurnar Hungurleikarnir og framhald þeirrar bókar Eldar kvikna þær bækur sem seldust mest frá 3. júní til 11. ágúst. Í þriðja sæti kiljulistans var spennusagan Dauðadjúp eftir sænska höfundinn Åsa Lars...
Ný rannsókn í Frakklandi leiðir í ljós að áhrif islamskra stofnana hafa vaxið mjög á undanförnum árum. Þær hafi víða tekið við hlutverki stofnana sveitarfélaga og ríkisins, sem eru veraldlegar. Aðskilnaður ríkis og trúarfélaga hefur einkennt franskar stofnanir. Rannsóknin beindist einkum að tveimur útborgum Parísar þar...
Hilmar Þór Björnsson fæddist á Ísafirði 1. apríl 1929. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi laugardaginn 28. júní síðastliðinn. Foreldrar hans voru Björn Eyjólfsson, f. 3. nóvember 1888, d. 31. maí 1951, og Ingibjörg Guðmundsdóttir, f. 3. apríl 1895, d. 14. mars 1979. Hálfsystkini Hilmars samfeðra eru : Els...
Þegar Sovétríkin voru og hétu varð til hópur andófsmanna, sem börðust með sínum hætti gegn Kommúnistaflokknum og stjórnvöldum. Sumir þeirra voru flæmdir úr landi, aðrir lokaðir inni á geðveikrahæli og enn aðrir sendir til Síberíu. Sumt af þessu fólki er enn virkt í andstöðu við núverandi stjórnvöld í Rússlandi. Þannig ...
Tískukeðjurisinn NTC, sem er í eigu Svövu Johansen, sem kennd er við Sautján, birti ásreikning sinn á dögunum og kemur í ljós að afkoman var rétt í plús. Mikill hagnaður hafði verið árið áður, en dregist saman um nærri 90 prósent milli ára. Sagt er að þarna komi tvennt til. Annars vegar aukin netverslun Íslendinga á tí...
ÞÝSKA lögreglan handtók í gær mann, sem gerði tilraun til þess að ræna farþegaflugvél í eigu Lufthansa er hún var á leið frá Prag í Tékklandi til Düsseldorf í Þýskalandi. Um borð í vélinni voru 19 farþegar og fjögurra manna áhöfn en maðurinn, rúmlega fertugur Líbani, kvaðst vera með sprengju í fórum sínum. Vélinni var ...
Íbúar húsnæðissamvinnufélagsins Búmanna krefjast þess að stjórn félagsins segi af sér. Þeir vilja einnig rannsókn á fjárreiðum félagsins. Vinnuhópur íbúa Búmanna efndu til fundar síðdegis, vegna slæmrar stöðu félagsins. Vinnuhópurinn var stofnaður eftir að fregnir bárust af fjárhagsstöðu Búmanna í fréttum RÚV í janúar....
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna varar við því að ástandið í Austur-Úkraínu fari hríðversnandi og hvatti stríðandi fylkingar til að láta af ofbeldisverkum og virða vopnahlé. Þúsundir íbúa í landamærabænum Avdiivka eru án vatns og rafmagns - þar er fimbulkalt en þar hefur komið til átaka síðustu daga, sjö úkraínskir stjórn...
Enska knattspyrnufélagið Arsenal staðfesti fyrir stundu að það hefði fest kaup á japanska framherjanum Takuma Asano sem kemur til félagsins frá Sanfrecce Hiroshima í heimalandi sínu. Asano er 21 árs gamall og var besti ungi leikmaðurinn í japönsku úrvalsdeildinni á síðasta ári. Þá var hann ennfremur valinn í japanska l...
Vigfús Björnsson bókbandsmeistari og rithöfundur fæddist á Ásum í Skaftártungu 20. janúar 1927. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 6. janúar síðastliðinn. Foreldrar Vigfúsar voru séra Björn O. Björnsson og kona hans Guðríður Vigfúsdóttir. Foreldrar séra Björns voru Oddur Björnsson prentmeistari á Akureyri og kona hans...
Yasser Arafat, leiðtogi Palestínumanna er allur, 75 ára að aldri. Hann lést á sjúkrahúsi í París skömmu eftir miðnætti að íslenskum tíma en frá þessu var greint snemma í morgun.
Franski sjóherinn hefur staðsett flugrita Air France farþegaþotunnar sem fórst í Atlantshafi í júní í fyrra með þeim afleiðingum að 228 létust. Að sögn franska varnarmálaráðuneytisins er óvíst hvort hægt sé að sækja þá á hafsbotni. Vinir og ættingjar hinna látnu hafa aldrei fengið útskýringu á því hvers vegna vélin hra...
Körfubolti Skúli B. Sigurðsson skulibsig@mbl.is Haukarnir tryggðu sér farseðilinn í undanúrslit Maltbikarsins í körfuknattleik í gær þegar þeir fóru suður með sjó og sigruðu lið Keflavíkur 83 : 74. Haukarnir voru lengst af nokkuð sprækari en heimamenn í Keflavík og sigurinn fyllilega verðskuldaður. " Það er langt síðan...
Jónas Sen, orgel - og hljómborðsleikari Bjarkar á tónleikaferðalagi hennar um Bandaríkin, fór út að borða í New York, ásamt nokkrum stúlkum úr lúðrasveitinni. " Það er í sjálfu sér ekki í frásögur færandi. Nema fyrir þær sakir að ég hef aldrei á ævi minni séð ferlegri matarskammta. Hvað pantaði ég mér aftur? Jú, kjúkli...
Meirihluti efnahags - og skattanefndar Alþingis leggur til að lífeyrissjóðir beri 40% og viðskiptabankarnir þá afganginn af tímabundnum skatti, sem á að leggja á til að fjármagna sérstaka vaxtaniðurgreiðslu á þessu og næsta ári. Í frumvarpi um ráðstafanir í ríkisfjármálum, sem Alþingi fjallar nú um, segir að lífeyrissj...
Tekist var á um frumvarp umhverfisráðherra um stofnun hálendisþjóðagarðar á Alþingi í gær á þingfundi sem stóð til miðnættis. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, lýsti áhyggjum af því viðhorfi sem hann sagði birtast í frumvarpinu. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins : Að náttúran sé á e...
Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, gagnrýndi nýbyggingar Ísraela á herteknu landi Palestínumanna. Hann líkti þeim við krabbamein sem breiddist stöðugt út og hótaði aðgerðum til að stemma stigu við þeim. Abbas sagði í ræðu sem hann hélt í tilefni 49 ára afmælis Fatah samtakanna að Palestínumenn myndu nýta sér áheyrn...
Evrópumálin verða líklega stærsta verkefni Tonys Blairs, forsætisráðherra Bretlands, á þriðja kjörtímabili hans. Takist honum ekki að fá bresku þjóðina til að samþykkja nýja stjórnarskrá Evrópusambandsins kann það að binda enda á pólitískan feril hans. Þótt Blair hafi sjálfur sagt að málefni Afríku og miðausturlanda sé...
Rússneski skákmaðurinn Garrí Kasparov vann landa sinn, Anatolí Karpov, í fyrstu einvígisskák þeirra í Valencia á Spáni í dag. Þeir Kasparov og Karpov tefla þar stutt einvígi í tilefni af því að aldarfjórðungur er liðinn frá því þeir tefldu fyrst einvígi um heimsmeistaratitilinn í skák. Því einvígi var slitið án þess að...
Í hverri viku í Bretlandi er valið Budweiser draumamarkið en að þessu sinni var það mark úr utandeildinni sem hlaut vinninginn. Sky Sports sérfræðingarnir Jamie Redknapp og Gary Neville voru fengnir til að leikgreina þetta magnaða mark. Myndband af þessu má sjá hér að neðan. Skemmtileg greining.
– Sjáið og heyrið lagið „ Ég ætla að gera það sem ég vil “ Júlíus Guðmundsson hélt tvenna tónleika sl. fimmtudagskvöldið á efri hæðinni á Skólavegi 12 undir yfirskriftinni „ Í stofunni hjá mömmu “. Þar lék hann lög frá ferli sínum sem listamaðurinn Gálan og einnig lög af hljómsveitarferlinum með Pandoru og Deep Jimi an...
Kjartan Guðbrandsson og Sigurlína Guðjónsdóttir fögnuðu sigri á Bikarmóti Galaxy Fitness sem fór fram í íþróttahúsinu Varmá í Mosfellsbæ um síðustu helgi. Kjartan hefur verið viðloðandi fitness á Íslandi frá upphafi og kom, sá og sigraði eftir gífurlega harða keppni. Útvarpsmaðurinn Ívar Guðmundsson kom einnig mjög vel...
Iceland Airwaves. Blaz Roca. Gaukur á Stöng. Blaz Roca mætti upp á svið grimmur á svip, til í slaginn, og byrjaði á Gaslaginu ásamt Bent og Lúlla úr XXX Rottweiler. Sviðið á Gauknum minnti á köflum á fjölfarna ferðamannamistöð þegar hver rapparinn á fætur öðrum hoppaði upp á svið og niður aftur, eða Friðrik Dór, Henrik...
Algengasta verð á bensínlítra hjá N1 er 236,90 krónur en lítrinn kostar 189,90 hjá Costco í Garðabæ. Verðmunurinn er því 47 krónur á hvern lítra. Innkoma Costco á markaðinn hefur haft mikil áhrif á verðmyndun og samkeppni á eldsneytismarkaðnum. Þetta kemur fram á vefsíðu Félags íslenskra bifreiðaeigenda ( FÍB ) en verð...
Eftir Hrund Þórsdóttur hrund@mbl.is JÓN Loftsson, skógræktarstjóri, segir að trjágróður hafi komið mjög vel út í sumar. " Það er gaman að vera skógræktarstjóri núna, " segir Jón og spurður um hvort sumarið sé betra en undanfarin ár segir hann svo vera. " Fyrir norðan og austan hafa síðustu fjögur ár verið mikil maðkaár...
DAGURINN í dag verður helgaður vatnslitamálun í Hafnarhúsinu þar sem listamenn og listfræðingar hafa boðað komu sína. Dagskráin hefst klukkan 14 með fyrirlestri Hrafnhildar Schram um frumherja í vatnslitun á Íslandi. Að því búnu tekur Aðalsteinn Ingólfson til máls og fjallar um vatnsliti í abstraktlistinni, þá fremur H...
Fimm leikir fóru fram í frönsku úrvalsdeildinni í gær. Stórlið PSG spilaði án þeirra Cavani, Mbappe og Neymar en vann þó 0 - 2 útisigur á Troyes með mörkum frá Angel Di Maria og Christopher Nkunku. PSG hefur 14 stiga forskot á toppi deildarinnar. Þá vann Rennes gegn Amiens á útivelli. Wahbi Khazri skoraði fyrra mark ge...
Framsóknarflokkurinn, Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn skera sig úr þegar tölur hafa verið birtar öðru sinni í Norðausturkjördæmi, klukkan 23. Var hlutur Framsóknar 29,6%, Samfylkingar 26,4% og Sjálfstæðisflokks 24,8%. Fylgi Vinstri grænna var 14,2% og er það hvergi hlutfallslega meira á landinu og eina kjördæmið ...
Starfsmenn Landsbankans sem fengu gefins hlutabréf í bankanum í fyrrasumar fá um 161 milljón króna í arð. Á aðalfundi Landsbankans, sem haldinn var í gær var tillaga bankaráðs samþykkt um að greiddur verði arður til hluthafa vegna síðasta árs sem nemur 0,84 krónum á hlut. Landsbankinn hagnaðist um tæpa 29 milljarða kró...
Timothy Weah lék sinn fyrsta leik fyrir Paris Saint-Germain í gær. Hann er sonur George Weah, forseta Líberíu og fyrrverandi leikmanns PSG. Timothy Weah lék sinn fyrsta leik fyrir Paris Saint-Germain þegar liðið vann 0 - 2 sigur á Troyes í frönsku úrvalsdeildinni í gær. Timothy þessi er sonur goðsagnarinnar George Weah...
Erlendar ríkisstjórnir og seðlabankar og fjölþjóðlegir sjóðir tregðast við að lána Íslandi. Þófið hefur staðið vikum saman og ekki sér fyrir enda þess. Því er komið að annarri leið úr hruninu. Leið Lilju Mósesdóttur hagfræðings er bezt. Hún vill sleppa lánapakka Alþjóða gjaldeyrissjóðsins og taka í staðinn upp 60% skat...
Hannes Hlífar Stefánsson varð um helgina Íslandsmeistari í hraðskák en Íslandsmótið, sem jafnframt var minningarmót um Guðmund Arnlaugsson, fór fram í dag í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Hannes og Björn Þorfinnsson fengu 13,5 vinninga og tefldu einvígi um titilinn sem Hannes vann 1,5 - 0,5. Sigurvegari mótsins var hins...
Real Madrid er komið yfir gegn Sevilla í leiknum um Ofurbikar Evrópu sem nú er í gangi. Það vantar leikmenn eins og Gareth Bale, Karim Benzema og Cristiano Ronaldo í byrjunarlið Real Madrid, en þeirra í stað byrja Isco, Marco Asensio og Alvaro Morata í fremsu víglínu í kvöld. Það virðist ekki halda neitt aftur að Real ...
Bændablaðið er mér ekki regluleg lesning. Missi því af efni þess alla jafnan. Af tilviljun sá ég blaðið sem kom út 10. okt. sl. Þar var grein sem vakti forvitni mína. Greinin fjallaði um fæðuöryggi, efni sem hlýtur að vekja okkur öll til umhugsunar. Hún var þess eðlis að hún þarfnaðist umfjöllunar. Þeir pistlar ritstjó...
Oddlaug Valdimarsdóttir fæddist í Vallarnesi í Vestmannaeyjum 5. maí 1917. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi 6. janúar síðastliðinn. Hún var dóttir hjónanna Halldóru Ólafsdóttur húsfreyju, f. 18. september 1888, og Valdimars Árnasonar útgerðarmanns, f. 13. júlí 1885. Alsystkini Oddlaugar voru Jón Bjarn...
„ Bjarni hafði samband fljótlega eftir að hann tók við og vildi fá mig á fund. Við ræddum málin og mér leist mjög vel á þetta, ' segir nýjasti leikmaður Fram, Ásgeir Marteinsson. Hann gekk í raðir Fram í gær. Ásgeir fór með HK upp í 1. deildina á liðnu sumri en viðurkennir að hafa ekki verið búinn að setja stefnuna str...
Til róttækrar skoðunar, er yfirskrift opins fundar, sem haldinn verður Iðnó í hádeginu í dag, laugardag, um alþjóðaviðskiptasamninga. Fjallað verður um togstreitu fjármagns og lýðræðis, eins og það er orðað í auglýsingu. Ræðumaður á fundinum er Ögmundur Jónasson, fyrrverandi þingmaður ráðherra Vinstri hreyfingarinnar -...
Annar dagur Nedbank Golf Challenge mótsins fór fram við erfiðar aðstæður í dag í Suður-Afríku. Mikill vindur var á svæðinu í dag og þá þurfti að fresta leik vegna þruma og eldinga þegar nokkrir kylfingar áttu eftir að ljúka leik. Kylfingar voru sendir út á völl stuttu síðar og náðu því allir að ljúka leik í dag. Það er...
Matsfyrirtækið Moodys Investors Service hefur ákveðið hækka lánshæfismat íslensku bankanna í Aaa, sem endurspeglar lánshæfismat íslenska ríkisins og er hæsta einkunn fyrirtækisins. Moodys hefu breitt aðferðafræði og útreiknikngum sínum, sem stuðlaði að hækkun á matinu. Fyrir breytinguna voru Kaupþing og Glitnir með lán...
Treysta verður á björgunarsveitir og lögreglu lendi fólk í háska utan alfaraleiðar næstu tvo sólarhringa þar sem Landhelgisgæslan hefur enga þyrlu tiltæka vegna verkfalls flugvirkja, segir forstjóri Gæslunnar Víðir Reynisson, eitt af andlitum baráttunnar hér gegn kórónuveirufaraldrinum, greindist í dag sýktur af veirun...
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna hefur í dag gengið frá sölu allra hlutabréfa í eigu Jökla hf. sem er dótturfélag SH. Er þar um að ræða 10,5% hlut í Útgerðarfélagi Akureyringa hf., tæplega 9% hlut í Sölusambandi íslenskra fiskframleiðenda hf., 5,2% hlut í Skagstrendingi hf. auk smærri hluta í öðrum félögum. Kaupandi bréfa...
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, átti fund með William Hague, utanríkisráðherra Bretlands, í Lundúnum í fyrradag. Bjarni sagði í samtali við vef Morgunblaðsins í gær að fundurinn hefði verið góður. Þeir Hague hefðu m.a. rætt samskipti Sjálfstæðisflokksins og breska Íhaldsflokksins, ástandið í Evrópu,...
Sjónvarps - og útvarpsmaðurinn Auðunn Blöndal segir GameTíví bræðrum, þeim Óla og Svessa, frá fimm bestu tölvuleikjunum sem hann hefur spilað. Auddi segist þó aldrei hafa í raun dottið inn í tölvuleiki og þegar hann hugsar um topp fimm lista, tengist þeir yfirleitt öðru en tölvuleikjum. Hann segir stoltur frá því að ha...
Borgarráð samþykkti í gær að auka fjárveitingar til Vinnuskóla Reykjavíkur fyrir næsta ár úr 290 milljónum í 365 milljónir. Þá var samþykkt að veita 150 milljónum til að fjölga sumarstörfum fyrir ungmenni hjá borgarstofnunum þar sem 17 og 18 ára börn verði í forgangi. Um var að ræða tillögur samráðshóps um sumarvinnu u...
Forstafrúin Michelle Obama þykir bæði " fit " og flott. Njóta handleggir hennar ekki síst vinsælda, svo mikilla meira að segja að þeir eru langvinsælasta viðmiðið hjá lýtalæknum sem taka að sér að laga " bingó " - vöðvann alræmda. Fegrunaraðgerðum á upphandleggsvöðvum hefur fjölgað mikið í Bandaríkjunum á undanförnum á...
Hiti og þurrkar á Norðurlandi í sumar hafa flýtt kartöfluuppskerunni um rúmar 2 vikur. Bóndi í Grýtubakkahreppi segist þó þurft að djöflast með úðunartanki í allt sumar til að halda grösunum góðum. Kartöflubændur hafa haft í nægu að snúast upp á síðkastið enda sprettan góð. Bændur í Eyjafirði höfðu áhyggjur af uppskeru...
Rökin fyrir uppbyggingu nýrra álvera á Bakka við Húsavík og í Helguvík á Vatnsleysuströnd eru vel kunn : landkostir okkar til framleiðslu rafmagns eru slíkir að við eigum ekki að láta strauminn, vatnsafl eða gufu, líða hjá án þess að virkja. Það er í fyrsta lagi. Þá eru erlendir auðhringar ánægðir yfir að koma hingað i...