text stringlengths 1 16.5M |
|---|
Knattspyrnustjórinn Roy Hodgson hjá Fulham viðurkennir að hann renni dálítið blint í sjóinn fyrir leikinn gegn Amkar Perm í Evrópudeild UEFA á Craven Cottage-leikvanginum í kvöld. Amkar Perm er frá Rússlandi og er staðsett austast af öllum þeim félögum sem nú leika í Evrópudeild UEFA. Hodgson segir að njósnari frá Fulh... |
„ Stærsta verkefnið sem er framundan hjá okkur er án efa barnið sem við eigum von á eftir um það bil tvo mánuði, “ segir tónlistarkonan Íris Rós í samtali við DV. Íris og unnusti hennar, Árni Beinteinn Árnason, hafa haft mörg járn í eldinum að undanförnu en á dögunum gáfu þau út níu laga plötu sem hægt er að hlusta á á... |
Tekjur Símans jukust bæði á fjórðungnum og á fyrri hluta árs, hagnaður dróst verulega saman en lausafjárstaðan hefur styrkst. Hagnaður Símans á öðrum ársfjórðungi nam 83 milljónum króna en 798 milljónum á sama tímabili fyrra árs. Hagnaður félagsins á fyrri hluta árs hefur dregist saman um 40% og nam 847 milljónum. Stöð... |
Eyjamenn þurftu að sætta sig við 0 : 1 tap gegn FH þegar liðin mættust í Pepsi-deild karla í dag. Eina mark leiksins kom á 65. mínútu en þar var að verki Steven Lennon með mark beint úr aukaspyrnu, sláin inn. Vafi lék þó á því hvort boltinn hafi allur farið yfir línuna þegar hann skoppaði niður í grasið en línuvörðurin... |
Menntaskólinn við Hamrahlíð var rýmdur síðastliðinn fimmtudag vegna sprengjuhótunar sem barst skólanum í tölvupósti. Skólanum barst önnur sambærileg hótun á föstudag en lögreglan taldi hana ekki gefa tilefni til aðgerða. Þetta kemur fram í vikupistli sem rektor MH, Steinn Jóhannsson, sendi starfsmönnum skólans í tölvup... |
Davíð Már Stefánsson davidmar@mbl.is Á þessari stundu eru hátt í hundrað manns búnir að melda sig á hvora tónleika um sig. Ætli þetta sé ekki svona áttatíu prósent sama fólkið, " segir Halldór Eldjárn en svo skemmtilega vill til að bæði hann og bróðir hans, Úlfur Eldjárn, standa fyrir útskriftartónleikum sínum nú um he... |
" Það var og er vel rökstudd skoðun SÍF að verðgildi SÍF og SH sé mjög nærri því að vera það sama. SÍF taldi því að unnt væri að ljúka sameiningarviðræðum fljótt með samkomulagi um að félögin sameinuðust á jafnvirðisgrundvelli, ef sameining þætti hagkvæm yfirleitt, " sagði Friðrik Pálsson, stjórnarformaður SÍF, á aðalf... |
Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, segir „ deginum ljósara “ að verslunin á Íslandi sé að breytast. „ Netverslun er að taka stökk. Það er óumdeilt að ríflega 50% af fatainnkaupum eru farin úr landi, með beinum eða óbeinum hætti, “ segir Andrés í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í da... |
Elisabeth Aspaker, sjávarútvegsráðherra Noregs, segir íslenska kollega hennar, Sigurð Inga Jóhannsson um að fara með rangt mál um makríldeiluna. Hún fullyrðir að samningar hafi fyrst og fremst strandað á því að Íslendingar kröfðust þess að fá að veiða makríl í grænlenskri lögsögu. Grein eftir Aspaker birtist í Morgunbl... |
Snemmbúnir Þjóðhátíðargestir komu til Vestmannaeyja í gær og var fjörugt skemmtanalíf í Eyjum fram á nótt en engin vandræði að sögn lögreglu. Svo fer að fjölga verulega í dag og svo er svonefnt húkkaraball í kvöld sem óformlega markar upphaf Þjóðhátíðarinnar. Lögregla hefur eftirlit með gestum við komuna til Eyja og er... |
STJÓRNKERFIÐ og Alþingi eru í alvarlegri afneitun gagnvart þeirri augljósu staðreynd að Reykjavík er helsta auðlind þjóarinnar. Þar sem fólkið er þar eru fyrirtækin og þar sem fólkið er þar er mannauðurinn sem er hreyfiafl atvinnulífs og auðsuppspretta framtíðar. 2020 munu 2/3 hlutar jarðarbúa verða borgarbúar. Engum b... |
Samsýning á málverkum Gísla Sigurðssonar ( 1930 - 2010 ) og Hrafnhildar Gísla, dóttur hans, var opnuð í Gróskusalnum í Garðabæ, sl. fimmtudag og stendur til nk. mánudags. Gísli fæddist í Úthlíð í Biskupstungum. Eftir verslunarpróf lá leið hans í blaðamennsku. Hann stundaði myndlist í 48 ár ásamt blaðamennsku en hann va... |
Innkalla þurfti fjórar bifreiðar af Toyota Prius gerð hér á Íslandi en alls þarf Toyota að innkalla 52.903 bíla í Evrópu vegna uppfærslu sem gera þarf á hugbúnaði í ABS-bremsukerfi bílsins. Páll Þorsteinsson upplýsingafulltrúi Toyota segir að þessi gerð af Prius hafi verið kynnt hér á landi í september og að fjórir bíl... |
Árleg minningarathöfn fallina sem tóku þátt í uppreisn gyðinga gegn þjóðverjum í Varsjá árið 1943 var í dag og tóku þúsundir þátt. 75 ár frá því að atburðirnir áttu sér stað. Forseti Póllands, Andzrej Duda, leiddi athöfnina í dag sem var haldinn við minnisvarða þeirra sem létu lífið samkvæmt AFP. 19. apríl 1943 gerðu 7... |
Atvinnulausum fjölgaði um 11.200 manns á milli ára, sam jafngildir um 5,4 prósentustiga hækkun. Alls voru 17 þúsund einstaklingar atvinnulausir í mars síðastliðnum og fjölgaði um 3.900 eða um tæp 30% milli mánaða, samkvæmt árstíðaleiðréttum tölum Hagstofu Íslands. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi var 8,3% í mars, sem er um... |
Baldur Guðmundsson, leiðsögumaður í veiði, varð fyrir því að veiðigalla hans og öðrum veiðibúnað var stolið um helgina. „ Veiðigallanum mínum, sem ég endurnýjaði í júlí var stolið af svölunum mínum í Furugrund 79 um helgina, “ skrifar leiðsögumaðurinn Baldur Guðmundsson á Facebook. Hann heitir fundarlaunum fyrir gallan... |
Hjálparstofnunin Save the Children segir að herskáir íslamistar afhöfði börn, allt niður í 11 ára gömul, í héraðinu Cabo Delgado í norðurhluta Mósambík. Ein móðir sagði stofnuninni að hún hefði fylgst með þegar 12 ára sonur hennar var drepinn með þessum hætti, skammt frá staðnum þar sem hún faldi sig með hinum börnunum... |
Hlutabréf lækkuðu í verði í helstu kauphöllum Evrópu í dag. FTSE - 100 hlutabréfavísitalan í Lundúnum lækkaði um 0,79% og CAC - 40 vísitalan í París lækkaði um 0,92%. Þá hefur DAX vísitalan í Frankfurt lækkað um 0,66%. |
Ný lög um neytendalán sem tóku gildi um síðustu mánaðamót gera að verkum að erfiðara verði fyrir fólk að fá lán hjá bönkum og fjármálastofnunum. Hagfræðingur hjá ASÍ segir viðbúið að fólk hrekist út á leigumarkað en þar ríkir nú þegar ófremdarástand vegna takmarkaðs framboðs. Lögin voru samþykkt hér á Alþingi í lok síð... |
Kristín Soffía Jónsdóttir fæddist í Gilsfjarðarbrekku 14. nóvember 1909. Hún lést á Landakoti 3. desember síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Fíladelfíukirkjunni 14. desember. Hún var fíngerð, glaðlynd og guðhrædd kona. Ég minnist hennar best þegar hún var að segja sögu sína. Röddin var þýð en ákveðin. Orðin komu... |
Einar Freyr Elínarson, bóndi í Sólheimahjáleigu í Mýrdal var í gær kjörinn nýr formaður Samtaka ungra bænda. Samtökin hafa þungar áhyggjur af stöðu Landbúnaðarháskóla Íslands. Á aðalfundinum í gær voru tekin fyrir mál sem eru ungum bændum efst í huga um þessar mundir. Þar má nefna málefni Landbúnaðarháskóla Íslands, in... |
Eftir Sigrúnu Birnu Birnisdóttur Grunnlaun kennara á Íslandi hækka að meðaltali umtalsvert minna með auknum starfsaldri í OECD ríkjunum. Hlutfall grunnlauna grunnskólakennara hér á landi í efsta launaflokki eftir 15 ára starfsaldur af byrjunarlaunum er 1,32 og 1,31 í framhaldsskólum, en í OECD ríkjunum er meðaltalið á ... |
Veðmálasíðan Betsson.com telur mestar líkur á því að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, verði endurkjörinn í forsetakosningunum sem fara fram 30. júní næstkomandi. Ólafur Ragnar er með stuðulinn 1,2 á meðan Þóra Arnórsdóttir, sem er talin næstlíklegust til að hreppa embættið, fær stuðulinn 3,6. Ari Trausti Guðmun... |
Ef bátur sekkur af því að hann er ofhlaðinn er ofhleðslan orsök slyssins. Þess vegna er öfugt að farið ef sagt er : " Orsök slyssins var rakin til ofhleðslu " – en svipað er nokkuð algengt. Slysið var, þvert á móti, rakið til ofhleðslu - - hún var orsök slyssins. Maður rekur afleiðinguna til orsakarinnar. |
Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni segir máltækið. Það kom upp í hugann þegar litið var á nöfn stúlknanna í landsliðinu í knattspyrnu, en foreldrar margra þeirra gerðu garðinn frægan sem afreksmenn í íþróttum á árum áður. Margrét Lára Viðarsdóttir, íþróttamaður ársins 2007, ein s... |
Jólaveröld vaknar er nýtt jólalag eftir Gunnar Inga Guðmundsson og Nínu Richter, í flutningi Rakelar Pálsdóttur. Lagið kom út á miðnætti aðfaranótt 15. nóvember. Texti lagsins fjallar um sigur ljóssins yfir myrkrinu á þessum fallega árstíma og ætti því að geta snert hátíðlega taug í öllum, óháð jólahefðum. Rakel flytja... |
Fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons lést, ásamt tólf öðrum í mikilli sprengingu í Beirút um hádegisbil í dag. Hundrað manns, að minnsta kosti, særðust. |
Manuel Pellegrini, þjálfari Malaga á Spáni, fær samning sínum hjá félaginu rift í sumar, en spænskir fjölmiðlar greindu frá þessu í gær. Pellegrini hefur gert afar góða hluti með Malaga, en liðið komst meðal annars í 8 - liða úrslit Meistaradeildar Evrópu á þessari leiktíð. Roberto Mancini var þá rekinn frá Manchester ... |
Drög að húsreglum barna sem vilja halda haus á ofbeldisheimilum byggðar á reynslusögum hundraða barna sem dvalið hafa í Kvennaathvarfinu. Heima er bestað vera sem minnst, því að alls staðar, líka í myrkrinu á skólalóðinni, í ísköldu strætóskýli eða hlaupandi yfir Miklubrautina ertu öruggari en heima. Samt ; heima er be... |
TAFLFÉLAGIÐ Hellir og Edda útgáfa standa sameiginlega að tólf móta röð á ICC-skákþjóninum, sem kallast Bikarsyrpa Eddu útgáfu. Annað mótið verður haldið sunnudaginn 18. apríl kl. 20 og verða veitt verðlaun í boði Eddu útgáfu. Þátttakendur skrá sig til leiks á www.sjonar.hornid.com ( þeir sem skráðu sig fyrir fyrsta mót... |
Þór Þorlákshöfn tapaði naumlega gegn nágrönnum sínum í Grindavík í framlengdum leik í úrvalsdeild karla í körfubolta í kvöld. Lokatölur í Þorlákshöfn urðu 92 - 94. Leikurinn var jafn í upphafi en eftir fimm mínútna leik gerðu Grindvíkingar áhlaup og juku forskotið í tíu stig, 10 - 20. Þórsarar skoruðu síðustu fimm stig... |
Framundan hjá FEIF Árleg ráðstefna alþjóðasamtakana FEIF 2013 verður haldin í Strassborg, Frakklandi dagana 8. - 10. febrúar næstkomandi. Siðferði, reglur og frístundareiðmennska verða í brennidepli ráðstefnunar sem er opin fyrir alla virka meðlimi aðildarfélaga FEIF, nefndarmanna innan FEIF og annara sem tengjast star... |
Fernando Alonso varði í dag þá ákvörðun síns gamla keppinautar, Michaels Schumacher, að snúa aftur til keppni í formúlu - 1 þótt árangurinn hafi verið harla lítill undanfarið hálft annað ár. Alonso og Schumacher háðu marga harða hildi er sá fyrrnefndi keppti fyrir Renault og Schuymacher fyrir Ferrari. Rimma þeirra um h... |
Sjálfstæðisflokkurinn í borginni ákveður á morgun með hvaða hætti stillt verður upp á lista flokksins fyrir kosningarnar í vor. Niðurstaðan kann að hafa áhrif á hverjir bjóða sig fram til forystu. Fyrirfram var búist við hitafundi þegar stjórn Varðar kom saman til fundar hér í Valhöll í dag. Deilt var um tvær tillögur ... |
Kjóllinn var ekki valinn af handahófi, segja sérfræðingar, því hann er táknberi. Mikilvægt tákn Meghan var klædd svörtum kjól úr silki. Kjóllinn er með V-hálsmáli og skreyttur hvítum lótusblómum yfir hægri öxl. Lótusblómið er mikilvægt tákn í nokkrum menningarheimum. Það táknar meðal annars sköpun og upphaf en á sama t... |
Ítalski fjölmiðlamaðurinn Gianluca Di Marzio segir að Barcelona sé nálægt því að fá Kevin-Prince Boateng óvænt á láni frá Sassuolo. Di Marzio er oft fyrstur með fréttirnar og hann henti þessu fram á Twitter í dag. Sky Italia bætti síðan við að Barcelona borgi tvær milljónir evra fyrir lánssamning út tímabilið. Hinn 31 ... |
Kári Árnason gæti leikið sinn síðasta landsleik í kvöld er Ísland mætir Englandi á Wembley. Hann segir að miklar tilfinningar hafi verið í mögulega hans síðustu landsliðsferð en hann útilokar þó ekkert. Ísland mætir Englandi á Wembley í kvöld í síðasta leik liðsins í A-deild Þjóðadeildarinnar í bili að minnsta kosti. E... |
Fyrrverandi Framsóknarþingmaðurinn og blómaskreytingameistarinn Vigdís Hauksdóttir auglýsti fellihýsið sitt til sölu á facebook í vikunni. Ástæðan fyrir sölunni er þó ekki sú að hún sé komin með nóg af Íslandi og ætli að hætta að ferðast um landið. Síður en svo. „ Ég er svo sannarlega ekki hætt að ferðast er svo sannar... |
Sundsvall Dragons vann fimmta sigurinn í röð í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld þegar liðið lagði ecoÖrebro, 102 - 87, á heimavelli. Jakob Örn Sigurðarson og Hlynur Bæringsson áttu báðir flottan leik fyrir heimamenn, en Jakob skoraði 25 stig og hitti úr sjö af ellefu þriggja stiga skotum sínum. Hlynur gældi ... |
' Björgvin Guðmundsson skrifar um einokun : " Það er því hlálegt þegar foringjar Sjálfstæðisflokksins þykjast hafa verið einhverjir baráttumenn gegn einokun og auðhringum. " ' SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN undir forustu Ólafs Thors kom á einokun við útflutning saltfisks. Aðeins einn aðili mátti flytja út allan saltfisk, SÍF. S... |
Sigurlín Hermannsdóttir birti á Leirnum á sunnudag fallegt haustljóð, " Haustfeta " : Nú fyllist allt loftið af fiðrildum smáum sem feta sig tilbúin inn í kalt haust með látlausa vængi í litunum gráum já, líttu í kringum þig, eitt þarna skaust. Þótt fjáranum verri á vorin þau ögra vaknandi gróðri sem er þeirra beit það... |
Keppendur af Vestfjörðum í Hraðabraut í öðrum þætti af Skólahreysti ( 25. mars 2015 ). |
Lágfargjaldaflugfélagið Go mun ekki fljúga til Íslands í sumar, eins og það hefur gert undanfarin tvö ár. Megin ástæðan er sögð sú, að lendingargjöld og afgreiðslukostnaður á Keflavíkurflugvelli sé allt of hár fyrir lágfargjaldaflugfélög. Go útilokar þó ekki að félagið muni enduskoða flug til Íslands á næsta ári ef for... |
LANDBÚNAÐARRÁÐHERRA byggði ákvörðun sína m.a. á umsögnum nokkurra stofnana um umsókn Nautgriparæktarfélags Íslands til að flytja inn norska fósturvísa. Hér verður stiklað á stóru í þeim umsögnum : * Fagráð í nautgriparækt skilaði inn tvískiptu áliti, annars vegar umsögn meirihluta ráðsins, þar sem mælt er með því að NR... |
Fyrst þetta : Ég átti trúnaðarmann til fjölda ára sem var fjármálastjóri Ríkisútvarpsins, Hörður Vilhjálmsson að nafni ; gæfumenni og gáfaður unnandi menningar. Hann sagði við mig 199x þegar ég var að harma árlegan niðurskurð á fjárveitingum til tónlistardeildar : Þetta er rétt að byrja. Þetta er ekki búið. Þegar afnot... |
Ragna Majasdóttir fæddist á Leiru í Grunnavíkurhreppi 6. nóvember 1911. Hún lést á Sjúkrahúsinu á Ísafirði 26. mars síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Majas Jónsson, f. 19. maí 1881, d. 7. september 1919, og Guðrún Elísabet Guðmundsdóttir, f. 8. október 1884, d. 9. júní 1974. Ragna giftist 9. október 1937 Ólafi Magnús... |
David Beckham og Victoria eiginkona hans eiga von á sínu fjórða barni en frá þessu er greint á BBC. Fyrir eiga þau synina þrjá, Brooklyn, Romeo og Cruz en ekki kemur fram hvort kynið það sé. Barnið sem Victoria ber undir belti mun fæðast í sumar. Fjölskyldan er þessa dagana stödd í Englandi þar sem Beckham mun æfa með ... |
Baksvið Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Nýbirt gögn um flutningsjöfnuð benda til þess að spurn eftir húsnæði geti farið minnkandi á næstunni. Samkvæmt tölum Þjóðskrár Íslands hækkaði íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lítið milli mánaða í júnímánuði, eða um 0,2%. Verðþróun íbúða í sérbýli leiðir hækkanir á höfuðb... |
Bílasala dróst saman í desember vegna minni nýskráningu bílaleigubíla í mánuðinu. Bílaleigubílar voru 48% af heildarnýskráningum fólksbíla ársins 2016. Sala á nýjum bílum í desember 2016 dróst saman um 16,2% ef tekið er mið af sama tímabili ári fyrr. Nýskráðir fólksbílar á þessu tímabili voru 706 talsins á móti 842 ári... |
Svínakjötsframleiðendur um allan heim eru nú beðnir að endurskoða framleiðsluáætlanir sínar með tilliti til hraðrar enduruppbyggingar í svínaræktinni í Kína í kjölfar áfalla sem landið lenti í vegna afrísku svínapestarinnar. Þurftu Kínverjar þá að fella milljónir svína og treysta að stærstum hluta á innflutning á svína... |
Búningaóða söngkonan Lady GaGa hefur tekið saman við fyrrverandi unnusta sinn. Lady GaGa skildi við barþjóninn Luc Carl fyrir nokkrum árum síðan en hún hefur nú ákveðið að gefa sambandinu annað tækifæri. Að sögn People's Magazine er fyrsti diskur Lady GaGa alfarið um ástarsamband þeirra skötuhjúa og lag hennar " You an... |
Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is NOKKUR titringur er á milli ríkisstjórnarflokkanna í kjölfar yfirlýsinga forystumanna Framsóknarflokksins um að flokkurinn muni beita sér af öllu afli fyrir því að ákvæði um sameign þjóðarinnar á auðlindum verði tekið inn í stjórnarskrá. Einnig er kurr meðal sjálfstæðismanna vegna ákv... |
Icelandair hefur á síðustu dögum dregið úr flugframboði sínu um allt að 30 prósent. Óvissa ríkir um háannatíma sumarsins en félagið gerir að óbreyttu ráð fyrir að draga úr flugframboði um að minnsta kosti 25 prósent miðað við það sem áður hafði verið kynnt. Þetta kemur fram í tilkynningu fram Icelandair Group sendi á K... |
Ekki hefur sést jafnt lítið til sólar í Reykjavík í hundrað ár samkvæmt mælingum Veðurstofu Íslands. Einungis 70 sólskinsstundir voru í borginni í júní. Það hefur engum á suðvestur horninu dulist að veðrið hefur ekki verið sumarlegt það sem af er sumri. Reykjavík var 1,6 gráðum undir meðalhita síðustu 10 ára og hæsti h... |
Þessi duglega stúlka, Elín Ásta Finnsdóttir, var með hlutaveltu til styrktar Rauða krossi Íslands og safnaði hún kr. 1.684. |
„ Ég skil hins vegar ekki hvert þið eruð að fara strákar þegar þið segist vera á móti því að nýta áfram orkuna í landinu. “ Þetta sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins í viðtali í þættinum Harmageddon á Xinu 977 í gær eftir að þáttastjórnendur höfðu mælt gegn frekari stóriðjuframkvæmdum. „ Það er mis... |
Í hádegisfréttum okkar heyrum við í Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um stöðuna í bólusetningum hér á landi og þá ákvörðun Pfizer að framkvæma ekki hjarðónæmisrannsókn hér á landi sem kom í ljós í gær. Hún segist vongóð um að búið verði að bólusetja meirihluta þjóðarinnar í sumar. Þá fjöllum við um húsnæðisma... |
Öryrkjar 19 ára og yngri eru 136 prósentum fleiri hér á landi en í nágrannalöndunum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu sem Tryggvi Þór Herbertsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, kynnti í dag ásamt heilbrigðisráðherra. Skýrslan nefnistFjölgun öryrkja - orsakir og afleiðingarog þar kemur fra... |
Baldur Arnarson baldura@mbl.is Kórónuveirufaraldurinn gæti kostað ferðaþjónustuna á þriðja hundrað milljarða í ár. Vegna mikilllar óvissu er þó erfitt að spá um þetta ár. Þetta kemur fram í áætlun Íslandsbanka og Samtaka ferðaþjónustunnar fyrir Morgunblaðið. Miðað var við tímabilið frá miðjum mars og út ágúst og að tek... |
Thomas Michael Keneally ( fæddur 7. október 1935 ), einnig þekktur sem Tom Keneally, er ástralskur rithöfundur. Hann tók upp nafnið " Mick " fram til ársins 1964 í þeirri von að fjölskylda hans myndi síður þekkja bækur hans, en byrjaði svo að nota fullt nafn sitt. Hann er helst þekktur fyrir skáldsögu sína " Schindler'... |
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun í dag fara fram á gæsluvarðhald yfir einum manni vegna rannsóknar á manndrápi í Kórahverfi í Kópavogi í gær. Um erlendan ríkisborgara er að ræða, karlmann, sem var handtekinn í gær ásamt tveimur öðrum. Fréttablaðið skýrir frá þessu. Eins og DV skýrði frá í gær lést karlmaður um þrítug... |
Fjármálaeftirlitið hefur nú til rannsóknar átta mál sem lúta að meintu gjaldeyrissvindli. Um er að ræða háar fjárhæðir og er talið að þetta hafi áhrif á gengi íslensku krónunnar. Í kvöldfréttum RÚV kom fram að málin snúist um tekjur af útflutningi sem ekki er skilað til Íslands í samræmi við lög um gjaldeyrisskil. Gunn... |
Það verður að segjast eins og er að framganga Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra í Úkraínumálinu er til fyrirmyndar. Gunnar Bragi drífur sig til Úkraínu, talar við heimamenn, sýnir þeim stuðning í baráttunni fyrir lýðræði og gegn yfirgangi og spillingu. Við getum ekki horft á þetta gerast eins og ekkert sé. Þa... |
Víkingum hefur borist nýtt tilboð frá norska úrvalsdeildarliðinu Aalesund í miðjumanninn Aron Elís Þrándarson, samkvæmt öruggum heimildum Morgunblaðsins. Í síðustu viku fengu Víkingar tilboð í Aron sem var hafnað í fyrradag en forráðamenn norska liðsins hafa nú sent Víkingum nýtt tilboð í leikmanninn og ætla Víkingar a... |
Fjölmargir kunnir Íslendingar sóttu um starf bæjarstjóra í Árborg, en listi yfir umsækjendur var birtiur á vefsíðu bæjarins í dag. Á meðal umsækjenda eru Gunnar I. Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri í Kópavogi, Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur, Inga Jóna Þórðardóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi, Einar Mar Þórðarso... |
Nú hefur þeim sem nota kreditkort borist jólareikningurinn. Búast má við að útgjöldin, ekki síst matarreikningurinn, reynist mörgu heimilinu þung í skauti. Eins og fram hefur komið í tillöguflutningi Samfylkingarinnar er matvara yfir 50% dýrari hér en meðaltal Evrópulanda samkvæmt vandaðri könnun Evrópulanda. Ísland og... |
Bílaumboðið Askja stendur fyrir jeppasýningu nk. laugardag, 25. febrúar, klukkan 12 - 16. Þar verða sýndir Mercedes-Benz og Kia jeppar og jepplingar af öllum og stæðrum og gerðum. Að auki fylgir kaupauki öllum staðfestum kaupum á jeppum þennan dag. Úr Kia deildinni verða sýndir Kia Sorento Arctic Edition og Kia Sportag... |
Þingmenn á Bandaríkjaþingi hafa ekki náð samkomulagi um ríkisútgjöld og allt útlit er fyrir verulega röskun á starfsemi ríkisins. |
Barcelona vann öruggan sigur í La Liga í dag. Levante kom í heimsókn. Memphis Depay kom Börsungum yfir á 6. mínútu með marki úr vítaspyrnu. Luuk de Jong bætti við marki á 14. mínútu. Ansu Fati gerði svo þriðja mark Barca og innsiglaði 3 - 0 sigur í uppbótartíma leiksins. Barcelona er nú í fimmta sæti deildarinnar með 1... |
Xi Jinping, forseti Kína, skálar við Katrínu, hertogaynju af Cambridge, í veislu í Buckingham-höll í fyrrakvöld, á fyrsta degi heimsóknar kínverska forsetans til Bretlands. Xi og breski forsætisráðherrann David Cameron staðfestu í gær að náðst hefði samkomulag um að kínverskt orkufyrirtæki fjárfesti í kjarnorkuveri í H... |
Raheem Sterling leikmaður Manchester City hefur sagt frá því að hann vilji spila utan Englands. Hann hefur ekki spilað eins mikið og hann hefði viljað undanfarið hjá félaginu en hann skoraði 30 mörk í 51 leik tímabilið 2019 - 20. Honum tókst hinsvegar aðeins að skora 14 mörk á síðustu leiktíð, þá hefur hann aðeins byrj... |
Werder Bremen saknaði Mesut Özil ekki mikið í kvöld er liðið rúllaði yfir ítalska liðið Sampdoria í umspili Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Sampdoria á samt enn möguleika og mark Pazzini undir lok leiksins gæti reynst afar dýrmætt þegar upp verður staðið. Leikirnir í kvöld voru fyrri leikir liðanna í umspilinu. Úrslit ... |
Kórónuveiran hefur haft gríðarlegt áhrif á virði knattspyrnumanna og ljóst að félög geta ekki borgað jafn hátt verð og í venjulegu árferði. Þannig hefur virði Kylian Mbappe sem er verðmætasti knattspyrnumaður í heimi lækkað verulega. Virði Lionel Messi lækkar mest en kappinn fer niður um tæplega 23,2 prósent þrátt fyri... |
Í nýjasta Bændablaðinu er ítarlegt yfirlit yfir fjárréttir á landinu. Hér fyrir neðan má sjá lista yfir réttir á Suðurlandi í stafrófsröð. Fyrstu réttir haustsins verða í Skaftárrétt í Skaftárhreppi í Vestur-Skaftafellssýslu þann 6. september og síðasti réttardagurinn er 22. september þegar réttað verður í Landrétt við... |
Fjárfestar vestanhafs óttast mögulega lækkun á lánshæfiseinkunn. Helstu hlutabréfavísitölur lækkuðu við opnun markaða á Wall Street í dag. S & P 500 vísitalan lækkaði sjöunda viðskiptadaginn í röð. Nýir hagvísar í Bandaríkjunum benda til veikari bata og þá óttast fjárfestar mögulega lækkun á lánshæfiseinkunn ríkisins. ... |
Lögreglan í Keflavík stöðvaði í nótt ökumann bíls í venjubundnu eftirliti. Upp kom grunur um fíkniefnamisferli og við leit á ökumanni og í bílnum fannst lítilræði af meintum fíkniefnum. Lögreglan segir að málið teljist upplýst. Einn ökumaður var kærður fyrir ógætilegan akstur en hann ók á eftir lögreglubíl á Reykjanesb... |
Isco, leikmaður Real Madrid á Spáni, segir að það sé ekki til betr staður í heiminum til þess að þróa leik sinn en hjá Madrídarliðinu. Spænski landsliðsmaðurinn gekk til liðs við Real Madrid frá Malaga í sumar fyrir um 30 milljónir evra, en hann gerði fimm mörk í fyrstu sex leikjum liðsins. Hann hefur ekki skorað síðan... |
Níu réttindalausir ökumenn voru stöðvaðir í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Fimm þeirra reyndust hafa verið sviptir ökuleyfi og fjórir höfðu aldrei öðlast ökuréttindi. Á sama tímabili voru fimmtíu umferðaróhöpp tilkynnt til lögreglunnar en þrjú þeirra má rekja til aksturs undir áhrifum áfengis eða ... |
Brynjar Þór Björnsson kom mikið við sögu þegar KR vann ævintýralegan sigur á Tindastóli, 87 - 94, í 12. umferð Domino's deildar karla fyrir rúmlega viku síðan. Brynjar fékk umdeilda óíþróttamannslega villu í 1. leikhluta. Hann var svo heppinn að fjúka ekki af velli þegar hann sló til Björgvins Hafþórs Ríkharðssonar sne... |
David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, var ekki með hugann við það sem hann var að gera og Nicolas Sarkozy, þáverandi Frakklandsforseti, hugsaði aðallega um að auka veg Frakka þegar og eftir að Atlantshafsbandalagið leiddi hernaðaríhlutun í Líbíu árið 2011. Þetta segir Barack Obama Bandaríkjaforseti í viðtali sem b... |
Björgunaraðgerðum hefur verið hætt í skemmtiferðaskipinu Costa Concordia sem liggur á hliðinni undan ströndum Ítalíu. Skipið hefur færst úr stað og því er ekki talið óhætt fyrir björgunarmenn að athafna sig í því. Staðfest er að ellefu séu látnir en 23 er enn saknað. Vonir manna um að finna fólk á lífi í skipinu hafa d... |
Tímaritið Mannlíf á afmæli því í sumar hefur blaðið komið út sleitulaust í 20 ár. Forsíðuandlitin eru fjölmörg, svo ekki sé talað um opinskáu viðtölin og athyglisverðu greinarnar. Gerður Kristný Guðjónsdóttir hefur verið ritstjóri blaðsins undanfarin 6 ár og segir hún blaðið hafa tekið talsverðum breytingum í gegnum tí... |
Á föstudag varð ljóst að aðalvísitala Nasdaq-kauphallarinnar, Nasdaq Composite Index, væri komin í dumbungsham ( e. bear market ). Við lokun markaða á föstudag hafði vísitalan lækkað um 21,9% frá því hún náði hámarki þann 29. ágúst síðastliðinn. Samkvæmt skilgreiningu þarf lækkunin að vera meiri en 20% svo að tala megi... |
FERNANDO Alonso, ökumaður Renault, kom fyrstur í mark í fyrsta kvöldkappakstri sögunnar í Formúlu 1 í keppni sem fram fór í Singapúr í gær. Annar varð Nico Rosberg á Williams og þriðji Lewis Hamilton á McLaren. Er þetta fyrsti mótssigur Renault í tvö ár og fyrsta sinn sem Alonso kemst á verðlaunapall á árinu. Segja má ... |
Harður árekstur tveggja bíla varð snemma í gærmorgun við Skorholt í Melasveit. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Borgarnesi voru bílarnir gjörónýtir. Ökumenn og farþegar, alls þrír, voru fluttir á Sjúkrahúsið á Akranesi en meiðsli þeirra eru talin minniháttar og er það jafnframt talið kraftaverk miðað við aðstæður... |
Skv. gagni með yfirskriftinni „ Vetrarafkoma íslenskra hreindýrakálfa “, sem Náttúrustofa Austurlands ( NA ) sendi umhverfisráðherra 17. júlí sl., var meðaldánartíðni hreindýrakálfa, veturinn 2018 - 2019, 21%. Dánartíðnin var frá 9% upp í 45%, eftir svæðum. Er 45% talan ógnvekjandi ; annar hvor kálfur fórst. Skv. talni... |
Hæstiréttur dæmdi í gær sveitarfélagið Garð til að greiða fyrrverandi deildarstjóra við Gerðaskóla biðlaun í tólf mánuði eftir að staða hans var lögð niður. Var sveitarfélaginu gert að greiða honum tæplega 5 milljónir króna með dráttarvöxtum. Með þessu sneri Hæstiréttur við dómi héraðsdóms sem hafði ekki talið manninn ... |
Sigurjón Sighvatsson, kvikmyndaframleiðandi og athafnamaður, hefur selt hlut sinn í Sjóklæðagerðinni hf, sem á og framleiðir vörur undir merkinu 66 gráður norður. SFII slhf., sem er meðal annars í eigu Helga Rúnars Óskarssonar, forstjóra Sjóklæðagerðarinnar, hefur eignast allt hlutafé í fyrirtækinu. Sigurjón og fulltrú... |
Gengi bréfa í bandaríska félaginu AMR, móðurfélagi American Airlines, tóku á rás við opnun markaða í Bandaríkjunum í dag og hækkuðu þau mest um rúm 7,20 prósent. Gengið dalaði lítillega eftir því sem á leið. Þetta er fyrsti viðskiptadagur ársins vestanhafs á árinu en fjármálamarkaðir í Bandaríkjunum voru lokaðir í gær ... |
Bandaríkjastjórn hefur tilkynnt þeirri bresku að ekki verði sóst eftir því að tveir vígamenn Íslamska ríkisins, sem þekktir hafa verið undir viðurnefninu Bítlarnir, verði dæmdir til dauða. Mennirnir tveir, Alexanda Kotey og Elshafee Elsheikh, voru hluti af fjögurra manna teymi sem kallaðir voru Bítlarnir vegna breska h... |
Herra forseti. Það mun hafa verið í desembermánuði, sem hæstv. fjmrh. svaraði fsp. frá hv. 1. þm. Norðurl. v. um það, hvenær fasteignamatið nýja tæki gildi. Ég ætla, að hæstv. ráðh. hafi svarað eitthvað á þá leið, að hann byggist við, að fasteignamatið tæki gildi 1. marz. Nú eru fimm dagar þangað til, og þess vegna ley... |
Brendan Rodgers, stjóri Liverpool segir að Jordan Henderson geti fyllt skarðið sem að Steven Gerrard mun skilja eftir sig, þegar hann yfirgefur félagið í sumar. Gerrard er á förum í MLS-deildina en hann hefur spilað í sautján ár með Liverpool og verið lykilmaður liðsins síðan hann braut sér fyrst leið inn í aðalliðið á... |
Jón Dagur Þorsteinsson lék allan leikinn í liði AGF sem tapaði á heimavelli gegn AaB í danska boltanum í dag. Staðan var markalaus fyrstu 37 mínútur leiksins en gestirnir frá Álaborg náðu að setja þrjú mörk á sex mínútna kafla fyrir leikhlé. Heimamenn í Árósum náðu að klóra í bakkann en tókst ekki að skora meira en eit... |
Richarlison, leikmaður Everton á Englandi, fékk tækifæri í brasilíska landsliðinu á dögunum í leikjum gegn Bandaríkjunum og El Salvador. Richarlison hefur nú spilað tvo landsleiki og gert tvö mörk en hann hefur náð gríðarlegum árangri á stuttum tíma. Richarlison var keyptur til Everton frá Watford í sumar eftir að hafa... |
Tvö snjóflóð hafa fallið í dal norðan Hlíðarhryggs í Hlíðarfjalli í þessum mánuði. Eitt snjóflóðið féll fyrr í mánuðinum og hitt í síðustu viku. Á sama tíma féll krap og blautur snjór við svokallaða, stromplyftu, sem er efsta lyftan í fjallinu, en engar skemmdir urðu á lyftunni. Samkvæmt upplýsingum frá Hlíðarfjalli þy... |
Ekkert verður af því að Þórður Guðjónsson, landsliðsmaður í knattspyrnu og leikmaður Las Palmas á Kanaríeyjum, verði lánaður til enska úrvalsdeildarliðsins Derby County. Í gær slitnaði upp úr samningaviðræðum á milli félaganna en Derby vildi fá Þórð að láni í þrjá mánuði með hugsanleg kaup í huga. Las Palmas vildi fá 3... |
Þingmaður Pírata, Helgi Hrafn Gunnarsson, tilkynnir að hann muni ekki bjóða sig fram til komandi þings. Helgi Hrafn Gunnarsson þingmaður Pírata tilkynnti í myndbandi að hann hafi ákveðið að bjóða sig ekki fram í komandi þingkosningum. Þó segist hann muni bjóða sig fram í næstu þingkosningum þar á eftir, hvort sem það e... |
Eldgosið í Holuhrauni hefur staðið í rúmlega fjóra mánuði, enn er mikið hraunflæði í Holuhrauni og sighraði öskju Bárðarbungu verulegur. Mikil jarðskjálftavirkni er enn í Bárðarbungu. Undanfarnar vikur hefur hún þó verið nokkru minni en hún var fyrstu mánuði umbrotanna. Flatarmál hraunsins er nú 84,6 ferkílómetrar að s... |
Fjögur stig á móti Tyrklandi og Moldóvu í undankeppni EM 2020 skiluðu íslenska karlalandsliðinu í knattspyrnu upp um eitt sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem var birtur í dag. Íslenska landsliðið er í 39. sæti listans og fer upp fyrir Suður-Kóreu á listanum. Íslenska landsliðið nálgaðist líka Rúmeníu á listanum en Rú... |
LÆKNAR sem sinnt hafa neyðarbílnum eru settir í algjörlega óviðunandi læknisfræðilega stöðu með þeirri ákvörðun að hætta að láta lækni fylgja neyðarbílnum, að því er segir í yfirlýsingu frá læknum neyðarbílsins og deildarlæknum á slysa - og bráðasviði Landspítalans. Á morgun eiga læknar að hætta að manna neyðarbíl Land... |
Subsets and Splits
No community queries yet
The top public SQL queries from the community will appear here once available.