text
stringlengths
1
16.5M
Bæjarráð Akraneskaupstaðar hefur samþykkt ýmsar tillögur að skipulagsbreytingum í menningarmálum ásamt nýju skipuriti og hefur vísað þeim til endanlegrar samþykktar í bæjarstjórn. Mikil undirbúningsvinna liggur að baki tillögunum, meðal annars ítarleg úttekt sem gerð var í janúar á þessu ári á rekstri menningarmála hjá...
Tveir karlar og ein kona voru úrskurðuð í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Norðurlands Eystra í dag grunuð um líkamsárás og frelsissviptingu. Fórnarlamb þeirra liggur á sjúkrahúsi með alvarlega áverka. Málið kom upp á Akureyri aðfaranótt mánudags. Þrír einstaklingar, karlamður, kærasta hans og vinur þeirra, eru grunuð um að ...
Stór aurskriða lokaði veginum um Þvottárskriður milli Lónsfjarðar og Álftafjarðar austan Hafnar í Hornafirði í nótt. Engan sakaði en flutningabílstjóri slapp með skrekkinn þegar steinn fór í gegnum stýrishúsið. Það tók starfsmenn Vegagerðarinnar nokkrar klukkustundir að ryðja veginn. Þorleifur Ólsen, starfsmaður Vegage...
Yfirvöld í Noregi hafa látið lausa tvo Sómali sem voru handteknir við þriðja mann árla á fimmtudag, grunaðir um að fjármagna hryðjuverkasamtök. Þriðji Sómalinn er hins vegar áfram í varðhaldi í Ósló.
Á neðri myndinni af tónelsku trúðunum eru 5 villur. Getur þú fundið þær? Lausn aftast.
Síðari leikirnir í átta liða úrslitum í Evrópukeppni félagsliða fara fram í kvöld og er hægt að fylgjast með á Klúbbnum við Gullinbrú. Fyrir tæpri viku voru fyrri leikirnir á dagskránni og getið þið lesið um þá hérna. 18:45 Newcastle - PSV Eindhoven ( 1 - 1 ) St James' Park - Newcastle Sir Bobby Robson þjálfari Newcast...
Alls hafa 33 félög tilkynnt þátttöku í 4. deild karla og hafa aldrei verið fleiri. Stefnir því í að þátttökulið í Íslandsmóti meistaraflokks karla verði 79, en voru 73 árið 2016. Leikið verður í fjórum riðlum, þremum með 8 liðum og einum riðli með 9 liðum. Stefnt er að því að riðlaskipting og drög að niðurröðun leikja ...
Arnar Þór Sævarsson lögfræðingur hefur hafið störf við lögfræðideild Símans. Arnar Þór lauk embættisprófi frá lagadeild Háskóla Íslands árið 1999 og fékk héraðsdómslögmannsréttindi árið 2000. Þá lauk hann prófi í verðbréfaviðskiptum árið 2001. Arnar Þór vann hjá Fjármálaeftirlitinu frá útskrift árið 1999 þar til hann h...
A-RIÐILL : Serbía – Rússland 30 : 30 Brasilía – Frakkland 22:24 Staðan : Þýskaland 110030 : 192 Frakkland 110024 : 222 Rússland 101030 : 301 Serbía 101030 : 301 Brasilía 100122 : 240 Kórea 100119 : 300 B-RIÐILL : Japan – Makedónía 29 : 38 • Dagur Sigurðsson þjálfar Japan. Ísland – Króatía 27 : 31 Barein – Spánn 23:33 •...
Ragna Björg Ársælsdóttir segist svo sannarlega vera komin í grillgírinn, enda varla annað hægt í þessari endalausu blíðu sem hefur leikið um hörund landans að undanförnu. Ragna starfar sem verkefnastjóri yfir stórri evrópskri rannsókn á vegum Keresis í Evrópu. Bæði verkefnin snúast um að skoða árangur fiskroðs til að g...
40 ár eru liðin frá því að Íslensk tónverkamiðstöð var stofnuð. Meðal markmiða á afmælisárinu er útgáfa bókar um íslensk tónskáld og vefvæðing íslenskra tónverka. Hópur íslenskra tónskálda stóð að stofnun Íslenskrar tónverkamiðstöðvar árið 1968, með það að markmiði að skrá íslenska tónlist og kynna innanlands og utan. ...
Tíska og fótbolti eru ekki kannski ekki orð sem tala saman en atvinnumenn í knattspyrnu eru oftar en ekki fyrirmyndir fyrir unga krakka. Hjörvar Hafliðason, Dr. Football hefur verið að ræða um fötin, skóna og úrin sem íslenskir atvinnumenn eru að vinna með. „ Það er mikill áhugi finn ég á þessu, Dr. Football er frábær ...
Hagfræðingur ASÍ segir 95% lánum til fasteignakaupa fylgja talsverð áhætta. Lítið þurfi út af að bera til að svo skuldsettur eigandi fasteignar lendi í vandræðum. Verktaki á höfuðborgarsvæðinu, Þak byggingafélag, hefur sett tíu litlar stúdíóíbúðir í fjölbýlishúsi á Kársnesi í Kópavogi á sölu og býðst til að lána kaupen...
Samkvæmt heimildum Fótbolti.net er Svíinn Kjell Jonevret á meðal þeirra sem hafa sótt um starf landsliðsþjálfara Íslands. Nafni hans og ferilskrá hefur verið komið á framfæri við stjórn KSÍ og er hann nú til skoðunar ásamt öðrum kandítötum. Hinn 49 ára Jonevret hefur starfað mestan hluta síns þjálfarferils innan heimal...
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað frá meiðyrðamáli Stofnunar múslima og tveggja stjórnarmanna samtakanna, Hussein Aloudi og Karim Askari, gegn Salmann Tamimi, formanni Félags múslima á Íslandi, 365 miðlum hf., ritstjóra fyrirtækisins, Kristínu Þorsteinsdóttur, og fréttakonunni Nadine Guðrúnu Yaghi vegna ummæla sem bi...
Sautján manns er saknað eftir að skip sökk undan strönd Líberíu, að því er ríkisstjórn Vestur-Afríkuríkisins og strandgæslan þar í landi greina frá í dag. Eugene Lenn Nagbe, siglingastjóri Líberíu, segir við fréttastofu AFP að leitar - og björgunaraðgerðir standi enn yfir. Landhelgisgæslan í Monrovia hefur dregið 11 ma...
Hin tólf ára Darci Lynne hefur vakið gríðarlega mikla athygli í raunveruleikaþáttunum America's Got Talent. Lynne hefur nokkuð sérstakan hæfileika en hún er einstaklega góður búktalari. Hún mætti á dögunum með brúðuna sína á sviðið og söng ástarlag til Mel B. Lagið sem varð fyrir valinu var Who's Loving You með Jackson...
Ár hvert, um mánaðamótin október-nóvember, er menningarhátíðin Vökudagar haldin á Akranesi í boði bæjaryfirvalda. Tilgangur er að efla menningarlíf í bænum og lífga upp á skammdegið. Með hverju árinu hefur dagskrá Vökudaga orðið viðameiri og þátttaka fyrirtækja og stofnana aukist jafnt og þétt. Eitt af því sem er í boð...
Samtök danskra svæðisstjórna, stjórnsýslueininga á milli ríkisstjórnar og sveitarfélaga, vilja að verð á sígarettum verði hækkað um 100 prósent og fari úr 40 krónum dönskum í 80, eða 720 íslenskum krónum í 1.440. Jafnframt fara samtökin fram á að lög verði sett um að verslanir skuli geyma allt tóbak undir borðum, að sí...
Jarðfræðingur sem var við rannsóknir á Jan Mayen nýverið blöskraði rusl og plastmengun í og við strendur eyjunnar. Allt frá stígvélum til heilu veiðarfæranna er rusl sem að einhverju leiti hefur ferðast um þúsund kílómetra leið yfir hafið, frá Íslandi. Í ágústmánuði fóru nokkrir jarð - og jöklafærðingar til Jan Mayen í...
VÍKINGUR Heiðar Ólafsson verður einleikari á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Háskólabíói kl. 19.30 í kvöld. Víkingur er ungur að árum en hefur þegar vakið mikla athygli fyrir hæfileika sína. " Ég var beðinn að spila Píanókonsert Jóns Nordal. Það var reyndar fyrsta verkið sem ég lék með hljómsveit, ég spilaði þ...
Meðfylgjandi myndir voru teknaraf gestum á verðlaunahátíð á vegum Kvikmyndir.is og Myndir mánaðarins sem fram fór í Egilshöll í kvöld. KvikmyndinÓróihrifsaði til sín öll áhorfenda verðlaun fyrir íslenskar myndir. Baldvin Zophoniasson var valinn besti leikstjórinn, Atli Óskar Fjalarsson besti leikarinn, Hreindís Ylva Ga...
Gerald Darmanin, innanríkisráðherra Frakklands, hefur fyrirskipað innri rannsókn á aðgerðum lögreglunnar gegn farand - og flóttafólki í París í gærkvöldi. Lögregluþjónar fjarlægðu tjaldbúðir sem búið var að reisa á torgi í austurhluta borgarinnar og ráðherrann segir myndefni af vettvangi vera sláandi. Lögreglan segir t...
Utanríkisráðherra Japans, Seiji Maehara, sagði af sér embætti í gær í kjölfar þess að upp komst að hann hafði þegið fé frá 72 ára kóreskum kvenkyns grillhúseiganda, sem ekki er japanskur ríkisborgari. Lögum samkvæmt í Japan mega stjórnmálamenn ekki þiggja framlög frá erlendum ríkisborgurum og Maehara viðurkenndi að haf...
Í undirbúningi er nýtt frumvarp um greiðsluaðlögun, sem meðal annars felur í sér að sett verði á fót ný stofnun, Umboðsmaður skuldara. Frumvarpið verður að norrænni fyrirmynd, og verða fyrstu heildstæðu lög um greiðsluaðlögun. Þetta kom meðal annars fram þegar ráðherrar í ríkisstjórninni kynntu aðgerðir til að taka á s...
Landsbankinn hefur gefið út yfirlýsingu um að Sprota-sparibaukar sem fyrirtækið afhenti séu ekki leikföng. Þeir geti verið hættulegir ungum börnum, kunni smámynt að detta úr baukunum. Þetta segir á vef bankans. Þá segir að baukurinn hafi af hálfu framleiðanda ranglega verið merktur með CE-merkingu. Það hafi gefið til k...
' Írland 2001. Sam myndbönd. VHS ( 90 mín. ). Bönnuð innan 16 ára. Leikstjóri : John Carney. Aðalleikendur : Cillian Murphy, Tricia Vessey, Jonathan Jackson, Stephen Rea, Paul Hickey. ' UNGLINGURINN Jonathan ( Murphy ) á við skapagerðarbresti að stríða sem leiða til þess að hann gerir sér lítið fyrir og reynir að svipt...
Umhverfisstofnun segir í tilkynningu á heimasíðu sinni telja að í ljósi upplýsinga um aukningu á styrk flúors í beinum og í ljósi sívaxandi álframleiðslu hér á landi að komin séu upp veigamikil rök fyrir því að ráðist verði í heildstæða úttekt á styrk flúors í beinum og tönnum stórra, langlífra, íslenskra grasbíta. Að ...
Ekki er hægt að segja nú um stundir hvort lífeyrissjóðirnir tapi fjármunum á falli Kaupþings. Þetta er mat Arnars Sigurmundssonar, formanns Landssambands lífeyrissjóða. Hann segir lífeyrissjóðina hafa lagt fram ýtrustu kröfur í þrotabú Kaupþings og muni sum þeirra verða skuldajafnaðar til móts við gjaldeyrisskiptasamni...
Geirfuglinn er líklega fyrsta dýrategundin sem mannkynið ýtti fram af ystu nöf með fullri vitund. Sagan af því hvernig geirfuglinn dó út er sögð á 900 handskrifuðum síðum, sem tveir Bretar skráðu í Íslandsferð upp úr miðri 19. öld og varðveittar eru á bókasafni Cambridge-háskóla. Gísli Pálsson gpals@hi.is Dýrafræðisafn...
Samfylkingin skákar í skjólinu að hafa enn þriðjungs fylgi þjóðarinnar. Ráðherrar hennar ætla því að hanga á stólunum út kjörtímabilið að ráði Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Kjósendur hafa hins vegar ekki enn áttað sig á, að Samfylkingin ber ábyrgð á hruni þjóðarinnar. Sat á fundum með Davíð um hrunið í upphafi ársi...
Klínísk starfsemi Sjúkrahússins á Akureyri verður frá 1. janúar næstkomandi fjármögnuð í samræmi við umfang veittrar þjónustu þar sem byggt er á DRG ; alþjóðlegu flokkunarkerfi sjúkdóma. Hildigunnur Svavarsdóttir forstjóri sjúkrahússins á Akureyri og María Heimisdóttir forstjóri Sjúkratrygginga Íslands undirrituðu samn...
Sex ára palestínsk stúlka var drepin af ísraelskum hermönnum í bænum Khan Yunis á suðurhluta Gasasvæðisins í dag, að því er palestínskir læknar hafa greint frá. Stúlkan, Rania Siam, lést annaðhvort af völdum skots úr byssu eða vegna þess að hún fékk í sig brot úr úr sprengikúlu, að því er heimildir herma. Stúlkan lést ...
05. mars 2015 Hátt í 30 mál afgreidd á Búnaðarþingi Búnaðarþingi 2015 lauk á ellefta tímanum í gærkvöldi og var fjöldi mála afgreiddur í gær. Meðal þeirra var samþykkt að öll áform um sölu á Hótel Sögu verði lögð til hliðar næstu þrjú árin eða þar til Búnaðarþing tekur ákvörðun um annað. Einnig var samþykkt að stjórn B...
Banamein Yassers Arafats gæti hafa verið eitrun, segir fulltrúi ríkisstjórnar Palestínumanna í Frakklandi, þar sem leiðtoginn geispaði golunni. Fulltrúinn segir að í líki Arafats hafi fundist ákveðin eiturefni sem vanalega finnist ekki í veiku fólki. Þó séu engar sannanir fyrir því að eitrað hafi verið fyrir Arafat, en...
Annalísa Hermannsdóttir setti saman föstudagslagalista Vísis að þessu sinni. Hún gerir draumkennt rafpopp og gefur það út undir eiginnafni sínu. Fyrr í vikunni kom út stuttskífan 00:01, en hún er það fyrsta sem Annalísa sendir frá sér. Eins og gefur að skilja vegna tíðinda vikunnar er lítið um tónleikahald á döfinni hj...
Athugið að í tölunum hér að ofan er húshitun undanskilin, en þar sem hús eru kynnt með rafmagni fer 70 - 90% raforkunnar í hitun samkvæmt upplýsingum á vef Orkuseturs og því mun meiri raforkunotkun en þar sem hús eru kynnt á annan hátt. Það tímabil einkenndist af síaukinni notkun á tiltölulega orkufrekum tækjum á heimi...
BANASLYS varð þegar ökumaður bifhjóls ók út af Krýsuvíkurvegi við Bláfjallaafleggjara síðdegis í gær. Bifhjólamaðurinn, sem var rúmlega þrítugur og úr Reykjavík, var úrskurðaður látinn skömmu eftir komuna á slysadeild. Skv. upplýsingum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu missti maðurinn stjórn á bifhjólinu í beygju, rann...
MIÐSTJÓRN Alþýðusambands Íslands, ASÍ, samþykkti harðyrta ályktun í gær þar sem mótmælt er " framferði " ítalska verktakafyrirtækisins Impregilo í samskiptum þess við launafólk á Kárahnjúkasvæðinu. Ákveðið var að sendinefnd á vegum ASÍ og fleiri landssambanda verkalýðsfélaga færi á svæðið í dag til að ræða við verkamen...
FH tyllti sér á topp úrvalsdeildar karla, Olísdeildarinnar, í kvöld með því að kjöldraga leikmenn Fram 34 : 18 í Kaplakrika. Leikurinn var einstefna frá upphafi til enda og var FH með sex marka forskot í hálfleik, 14 : 8. Leikmenn FH gáfu tóninn strax í byrjun með frábærri vörn og framúrskarandi markvörslu Daníels Frey...
Í STAÐ þess að senda jólakort styrkti Bláa lónið hf. Stígamót um kr 200.000, Grímur Sæmundsen, framkvæmdastjóri Bláa lónsins hf., færði Stígamótum gjöfina. Díana Sigurðardóttir, Bergrún Sigurðardóttir og Rúna Jónsdóttir tóku á móti gjöfinni fyrir hönd Stígamóta.
Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður Breiðabliks, sem lengi átti sæti í íslenska landsliðinu í knattspyrnu, getur ekki þegið boð um að fara til Parísar og sjá viðureign Íslands og Frakklands á EM í fótbolta á sunnudaginn. Hann þarf sama dag að leika með félögum sínum í Breiðabliki gegn ÍBV í Borgunarbikarnum. Gunnleifur...
Konungleg kerruferð Það er alltaf jafn forvitnilegt að ganga um bæinn og margt að sjá sérstaklega ef maður er keyrður um í kerru með útsýni í allar áttir og tígulegan varðhund sér við hlið.
Indverska lögreglan hefur handtekið 16 einstaklinga í tengslum við morð á tveimur mönnum í norðausturhluta landsins. Talið er að mennirnir tveir séu í hópi fólks sem drepið hefur verið á Indlandi á síðustu vikum eftir að skæður orðrómur fór á flug um tengsl fólksins við meintan barnaránshring. Mennirnir tveir, þeir Abi...
Vefsíða Samtaka verslunar og þjónustu, www.svth.is, varð fyrir vírusárás í síðustu viku og hefur það haft þær afleiðingar að erlendir þjónustuaðilar hafa lokað fyrir aðgang að síðunni. Vefsíðan hefur þegar verið hreinsuð af vírusum og er verið að vinna í því að greiða úr þessari flækju en vefsíðan er enn lokuð, samkvæm...
Formlega hefur verið gengið frá sölu Iceland Seafood Corporation í Bandaríkjunum, dótturfélags SÍF, til Sjóvíkur ehf. Söluverðið er 26,5 milljón evra en að auki tekur Sjóvík yfir skuldir sem nema 22 milljónum evra. Í tilkynningu frá SÍF kemur fram að söluhagnaður félagsins nemi um 18 milljónum evra. Þá hefur Benedikt S...
Fjölnir og Stjarnan gerðu 1 : 1 jafntefli í 18. umferð Pepsideildar karla í knattspyrnu í kvöld en liðin áttust við á Fjölnisvelli. Hvort lið bætir því einu stigi í safnið. Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is Fjölnismenn voru sterkari aðilinn í fyrri háfleik og Gunnar Már kom heiamönnum yfir aá 24. m + inútu en með ...
Björn Þórðarson fæddist á Hraunum í Fljótum 19. sept. 1913. Hann andaðist á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar 5. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Þórunn Ólafsdóttir, f. í Reykjavík 14. apríl 1884, d. 18. nóvember 1972, og Þórður Guðni Jóhannesson, f. á Sævarlandi í Skefilstaðahreppi í Skagafirði 13. júlí 1890, d....
Forsvarsmaður hugbúnaðarfyrirtækis á Akureyri telur að háskólanám í heimabyggð sé ein af ástæðunum fyrir því að starfsstöð fyrirtækisins í bænum fari sístækkandi. Einn af nýjum starfsmönnum fyrirtækisins segir að hann hefði ekki látið drauma sína rætast hefði hann ekki getað sótt draumanámið á Akureyri. Skrifstofur Ste...
Ráðstefnan Strandbúnaður sem fjallar um fiskeldi, skeldýrarækt og þörungarækt verður haldin á Grand Hótel dagana 21. til 22. mars. " Þetta er þriðja ráðstefnan og áherslur hafa ekki breyst mikið. Enn er verið að fara yfir allt eldi á Íslandi, " segir Þorleifur Eiríksson, dýrafræðingur og framkvæmdastjóri rannsóknafyrir...
ÚRSLIT í ræðukeppni grunnskólanna í Reykjavík réðust í Ráðhúsinu á ellefta tímanum í gærkvöldi. Lið Ölduselsskóla og Hagaskóla öttu kappi um málefnið hreinskilni. Fóru leikar svo að Hagaskólinn sigraði mjög naumlega eða með 11 stiga mun, 2.193 gegn 2.182, en nemendur hans töluðu með hreinskilni. Fögnuðu nemendur Hagask...
Þingsályktun um fullgildingu samnings milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu ( EFTA ) og Króatíu. Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að fullgilda fyrir Íslands hönd samning milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu ( EFTA ) og lýðveldisins Króatíu sem undirritaður var í Vaduz 21. júní 2001. Samþykkt á Alþingi 20. ...
Greint var frá því fyrr í kvöld að Dagný Brynjarsdóttir hafi ákveðið að hætta að leika sem atvinnumaður með NWSL-liðinu Portland og leika þess í stað með Selfossi hér heima næstu tvö árin. Margir reka upp stór augu við þessa ákvörðun Dagnýjar sem er á hápunkti ferils síns að koma heim úr atvinnumennsku. Dagný útskýrir ...
HK og Breiðablik mættust í Kópavogsslag í Pepsi Max-deild karla í fótbolta í kvöld. Birnir Snær Ingason skoraði eina mark leiksins í fyrri hálfleik og tryggði HK 1 - 0 sigur í Kórnum. HK fór með sigrinum upp fyrir KA í 9. sæti deildarinnar en Breiðablik situr áfram í 5. sæti. Blikar hafa ekki unnið í fimm síðustu leikj...
Enn einu sinni þurfum við hér á Fótbolti.net að birta fréttir af því að Jody Morris leikmaður Leeds United hefur verið handtekinn. Hann var nú fyrir skömmu handtekinn í þriðja sinni á um mánuði vegna nauðgunarmáls en í þetta skiptið var hann aftur tekinn vegna árásar á konu í Leeds, sama mál og hann var tekinn áður fyr...
" ÉG held það sé mjög erfitt að segja hvað gekk ekki upp hjá okkur í kvöld. Við sóttum nánast allan leikinn og vorum með fullt af sendingum fyrir markið. Við eigum að vinna þennan leik – við eigum að gera það. Þeir börðust náttúrlega eins og ljón og við vissum það fyrir leikinn en við fengum fullt af möguleikum til að ...
Sólarlag Skonnorta Norðursiglingar, Opal, kom til hafnar í Reykjavík í gær eftir siglingu frá Grænlandi, en skipið hefur verið þar síðustu sex vikur að sigla með farþega í ævintýraferðum um Scoresbysund. Opal verður áfram í Reykjavík í tengslum við ráðstefnuna Making Marine Applications Greener 2016, hvar gestum verður...
Watford tryggði sér í dag sæti í ensku úrvalsdeildinni þegar liðið lagði Leeds 3 : 0 á Þúsaldarvellinum í Cardiff. Darius Henderson gerði þriðja mark Watford úr vítaspyrnu á 84. mínútu en áður hafði Jay DeMerit komið liðinu yfir á 24. mínútu og Neil Sullivan markvörður gerði síðan sjálfsmark á 56. mínútu, en hann sló b...
120 - 130 tonna afli Engey RE kom til hafnar í Reykjavík í hádeginu í gær eftir fyrstu veiðiferð ársins. Að sögn Friðleifs Einarssonar skipstjóra er ekki annað hægt að segja en að nýtt ár byrji vel. Aflinn var á milli 120 og 130 tonn af fiski en verið var að veiðum á Vestfjarðamiðum. ,, Við hófum veiðar í Víkurálnum í ...
Lífvörður bresku hirðarinnar gæti átt yfir höfði sér 21 dags vist í herfangelsi og allt að 1000 sterlingspunda sekt, tæplega 200.000 krónur, fyrir að hafa stigið dans meðan hann stóð vörð fyrir utan Buckingham-höll í London. Myndskeið af danssporum varðarins, sem sjá má hér að neðan, fór sem eldur í sinu um netheima ef...