Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
http://www.austurfrett.is/frettir/tryggvi-olafsson-latinn
Tryggvi Ólafsson látinn Myndlistarmaðurinn Tryggvi Ólafsson frá Norðfirði lést í gær eftir erfið veikindi. Tryggvi var í hópi þekktustu og virtustu núlifandi myndlistarmanna þjóðarinnar með sérstæðum og auðþekkjanlegum stíl. Tryggvi var fæddur árið 1940 í Neskaupstað. Hann hóf ungur að mála og nam myndlist bæði hér á l...
http://www.austurfrett.is/frettir/vopnafjoerdhur-staerstu-framkvaemdirnar-vidh-ithrottamannvirki
Vopnafjörður: Stærstu framkvæmdirnar við íþróttamannvirki Framkvæmdir við íþróttamannvirki taka til sín mest af framkvæmdafé Vopnafjarðarhrepps á næsta ári. Gert er ráð fyrir hátt í 80 milljóna afgangi af rekstri sveitarfélagsins. Heildartekjur Vopnafjarðarhrepps á næsta ári eru áætlaðar rúmir 1,1 milljarður en gjöld 1...
http://www.austurfrett.is/frettir/megnidh-af-laxinum-a-breskan-markadh
Megnið af laxinum á breskan markað Fyrstu löxunum frá eldi Laxa í Reyðarfirði var slátrað á Djúpavogi í lok nóvember. Mikil uppbygging hefur orðið hjá fyrirtækinu á skömmum tíma. Að því er fram kemur í frétt norska sjávarútvegsvefsins Undercurrent News er áætlað að slátra allt að 1670 tonnum í þessari fyrstu lotu í vet...
http://www.austurfrett.is/frettir/rumar-27-milljonir-veittar-i-styrkuthlutun-fjardaals
Rúmar 27 milljónir veittar í styrkúthlutun Fjarðaáls Formleg úthlutun samfélagsstyrkja Alcoa Fjarðaáls fór fram Tónlistarmiðstöð Austurlands á Eskifirði síðastliðinn mánudag en samtals var úthlutað styrkjum sem nema 27,5 milljónum króna. Um er að ræða styrki úr Styrktarsjóði Fjarðaáls fyrir samtals 18 milljónir, styrki...
http://www.austurfrett.is/frettir/landvardastarfid-er-baedi-skemmtilegt-og-gefandi
„Landvarðastarfið er bæði skemmtilegt og gefandi” „Störf innan náttúruverndar munu færast í aukana hér á Austurlandi líkt og þróun hefur sýnt annarsstaðar á landinu og ég get ekki annað en hvatt áhugasama til þess að kynna sér þetta,” segir Anna Berg Samúelsdóttir, umhverfisstjóri hjá Fjarðabyggð um landvarðanámskeið s...
http://www.austurfrett.is/frettir/reiknadh-medh-160-milljona-afgangi-hja-fljotsdalsheradhi
Reiknað með 160 milljóna afgangi hjá Fljótsdalshéraði Gert er ráð fyrir 160 milljóna afgangi af rekstri sveitarfélagsins Fljótsdalshéraðs í nýsamþykktri fjárhagsáætlun fyrir árið 2019. Mest framkvæmdafé fer í skóla- og íþróttamannvirki. Reiknað er með að heildartekjur sveitarfélagsins nemi 4,7 milljörðum króna og hrein...
http://www.austurfrett.is/frettir/ad-allir-standi-saman-um-samgoengubaetur-og-lati-af-hrepparyg
Að allir standi saman um samgöngubætur og láti af hrepparíg Miðstjórn Ungs Austurlands hefur sent frá sér ályktun þar sem hún lýsir yfir vonbrigðum með rýran hlut Austurlands í samgönguáætlun og að þær samgöngubætur sem Austfirðingum hefur verið lofað færist enn á ný aftar á lista forgangsverkefna. Nauðsynlegt sé að tr...
http://www.austurfrett.is/frettir/matthildur-nyr-rekstrarstjori-i-valaskjalf
Matthildur nýr rekstrarstjóri í Valaskjálf Matthildur Stefanía Þórsdóttir hefur verið ráðin sem nýr rekstrarstjóri Valaskjálf á Egilsstöðum. Hún hefur víðtæka reynslu af viðburða- og ferðaþjónustu bæði hér heima og erlendis. Matthildur nam viðskiptalögfræði við Háskólann á Bifröst og fór síðan í mastersnám til Mílanó þ...
http://www.austurfrett.is/frettir/sun-uthlutadi-styrkjum-ad-andvirdhi-44-milljonum-arid-2019
SÚN úthlutaði styrkjum að andvirði 44 milljóna króna árið 2018 Samvinnufélag útgerðarmanna í Neskaupstað (SÚN) úthlutaði 19 styrkjum úr Menningar- og viðurkenningasjóði félagsins í árslok, alls 15 milljónum. Um var að ræða seinni úthlutun ársins en í maí 2018 var rúmega 19 milljónum úthlutað úr sjóðnum. Veittir eru sty...
http://www.austurfrett.is/frettir/haegt-adh-fylgjast-medh-loftgaedhum-a-austurlandi-a-nyjum-vef
Hægt að fylgjast með loftgæðum á Austurlandi á nýjum vef Gögn frá fjórum mælistöðvum á Austurlandi verða aðgengileg á nýjum vef sem opnaður var á vegum Umhverfisstofnunar fyrir jól þar sem hægt er að fylgjast með loftgæðum. Þar má finna upplýsingar um magn brennisteinsdíoxíðs frá þremur mælistöðvum í Reyðarfirði: Hjall...
http://www.austurfrett.is/frettir/tad-getur-skipt-miklu-mali-ad-hafa-nakvaema-ungbarnvog
„Það getur skipt miklu máli að hafa nákvæma ungbarnavog“ Fulltrúar frá Marel færðu fæðingardeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað fullkomna ungbarnavog að gjöf á dögunum en fyrirtækið hefur á undanförnum árum gefið fæðingardeildum á landinu á þriðja tug slíkra voga sem leysa af hólmi eldri og ónákvæmari vogi...
http://www.austurfrett.is/frettir/verslunin-a-reydarfirdi-er-mikilvaegur-tattur-i-starfsemi-kronunnar
„Verslunin á Reyðarfirði er mikilvægur þáttur í starfsemi Krónunnar“ Bæjarráð Fjarðabyggðar fundaði með framkvæmdastjóra Krónunnar á mánudaginn. Engin áform eru um lokun verslunarinnar, heldur stendur til að efla hana. Gréta María Grétarsdóttir er framkvæmdastjóri Krónunnar. „Krónan vill sýna samfélagslega ábyrgð og er...
http://www.austurfrett.is/frettir/mikil-spurn-eftir-ibudharhusnaedhi
Mikil spurn eftir íbúðarhúsnæði Byggingafyrirtækið Og Synir/Ofurtólið ehf hefur að undanförnu unnið að hugmyndum um byggingu íbúðarhúsa á Reyðarfirði og Eskifirði. Framkvæmdastjórinn segir töluverða spurn eftir fasteignum á svæðinu og áhuginn sé enn meiri en framkvæmdaáætlanir gefa til kynna. Og Synir eru um þessar mun...
http://www.austurfrett.is/frettir/sifellt-erfidhra-adh-fa-laekna-ut-a-land
Sífellt erfiðra að fá lækna út á land Nýr læknir kom til starfa á Seyðisfirði um miðja síðustu viku en illa gengur að manna stöður heimilislækna innan Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA) líkt og víða annars staðar á landsbyggðinni. Framkvæmdastjóri lækninga segir skipta máli að stofnunin geti tekið á móti læknakandí...
http://www.austurfrett.is/frettir/loegregluthjonar-i-haettu-vidh-adh-stilla-til-fridhar
Lögregluþjónar í hættu við að stilla til friðar Lögregluþjónar, sem kallaðir voru út um síðustu helgi vegna átaka í sumarbústaðahverfinu að Einarsstöðum á Héraði, lentu í kröppum dansi þegar hluti hópsins beindi spjótum sínum. Yfirlögregluþjónn segir atvikið tekið alvarlega. „Það var reynt að tálma framgöngu lögreglu v...
http://www.austurfrett.is/frettir/leitadh-adh-bil-eftir-innbrot-a-reydharfirdhi
Leitað að bíl eftir innbrot á Reyðarfirði Lögreglan á Austurlandi lýsir eftir litlum sendiferðabíl með númerið KSA93 eftir innbrot á Reyðarfirði aðfaranótt miðvikudags. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var brotist inn í verslunina Djáknann á Reyðarfirði, sem opnaði í byrjun nóvember í gömlu Shell-stöðinni. Farið var i...
http://www.austurfrett.is/frettir/vid-hloekkum-til-ad-heyra-sogurnar-ykkar
„Við hlökkum til að heyra sögurnar ykkar“ Alexandra Ýr Ingvarsdóttir, nemi við Verkmenntaskóla Austurlands og Karna Sigurðardóttir, forstöðumaður Menningarstofu Fjarðabyggðar, kalla um þessar mundir eftir minningum samfélagsins úr Oddsskarðsgöngunum. Alexandra Ýr er sextán ára Norðfirðingur í húð og hár. Hún hefur búið...
http://www.austurfrett.is/frettir/flugsamgongur-eiga-i-raun-ad-vera-okkar-lestarkerfi
„Flugsamgöngur eiga í raun að vera okkar lestarkerfi“ Miðstjórn Ungs Austurlands hefur sent frá sér ályktun og fagnar því að stjórnvöld hafi sett fram tilögur til að gera innanlandsflug að aðgengilegri samgöngukosti. Samtökin telja að innanlandsflug ætti að flokka sem almeningssamgöngur og líta á hina „skosku leið“ sem...
http://www.austurfrett.is/frettir/framkvaemdaaaetlun-ekki-meitludh-i-stein-eins-og-toeflurnar-sem-mose-kom-medh-af-fjallinu
Framkvæmdaáætlun ekki meitluð í stein eins og töflurnar sem Móses kom með af fjallinu Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð gagnrýna frestun á stækkun leikskólans á Eskifirði í framkvæmdaáætlun sveitarfélagsins. Fulltrúar meirihlutans segja framkvæmdaáætlun lifandi skjal sem breytist eftir þörfum og fjárhag...
http://www.austurfrett.is/frettir/segja-ma-ad-barinn-se-oopinbert-sendirad-islendinga-a-tenerife
„Segja má að barinn sé óopinbert sendiráð Íslendinga á Tenerife“ „Eigendur og starfsfólk hjólaleigunnar Bikes of the Bikes, í samráði við vini og kunningja hér á Tenerife, ákváðu að setja söfnunina af stað þegar fréttist að tryggingar bættu tjónið ekki,“ segir Hafþór Harðarson, fyrrverandi fararstjóri á Tenerife og ein...
http://www.austurfrett.is/frettir/blaa-skipid-gleypti-dypkunarskipid
Bláa skipið gleypti dýpkunarskipið „Það var dálítið mögnuð sjón að sjá bláa skipið, Rolldock Sun, bókstaflega gleypa dýpkunarskipið Galilei 2000 inn í sig,“ segir Gunnar Th. Gunnarsson á Reyðarfirði, en hann náði skemmtilegum myndum á Reyðarfirði í gær sem hann gaf Austurfrétt leyfi til að birta. Jóhann Bogason er fram...
http://www.austurfrett.is/frettir/nyir-eigendur-teknir-vidh-klif-hostel
Nýir eigendur teknir við Klif hostel Félag í eigu Esterar S. Sigurðardóttur og Ólafs Áka Ragnarssonar hefur keypt farfuglaheimilið Klif á Djúpavogi. Það er til húsa í gamla pósthúsinu á staðnum. „Þetta er húsið þar sem maður kom til að fá að hringja til Reykjavíkur. Það var mjög spennandi,“ segir Ester. Ester var á Djú...
http://www.austurfrett.is/frettir/folkid-a-borgarfirdi-vill-hafa-bud
Fólkið á Borgarfirði vill hafa búð Sjö milljónum króna úr verkefninu Betri Borgarfjörður var nýverið úthlutað til fimmtán samfélagseflandi verkefna á Borgarfirði eystra. Það var Búðin Borgarfirði sem hlaut hæsta styrkinn að þessu sinni, en verslunin hóf rekstur í júlí síðastliðnum. Styrkirnir eru hluti af verkefni Bygg...
http://www.austurfrett.is/frettir/motmaela-nidhurfellingum-af-vegaskra
Mótmæla niðurfellingum af vegaskrá Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs hefur á síðustu fundum sínum bókað mótmæli gegn fyrirhuguðum niðurfellingum heimreiða í dreifbýli sveitarfélagsins af vegaskrá. Heimreiðirnar eru annars vegar við Unaós í Hjaltastaðaþinghá og hins vegar við Mýrar í Skriðdal. Bæjarstjórn gerir athugasemdir ...
http://www.austurfrett.is/frettir/aukin-medvitund-er-fyrsta-skrefid-ad-breytingum
„Aukin meðvitund er fyrsta skrefið að breytingum“ Gestir á lokahófi verkefnisins „Austfirskt fullveldi – sjálfbært fullveldi“ voru hvattir til þess að skrifa miða með hugmyndum að því hvernig hægt væri að gera heiminn betri í daglegu lífi í anda heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Lokahófið var haldið í Menntaskólanum á ...
http://www.austurfrett.is/frettir/folk-var-bara-hraert-yfir-tessu
„Fólk var bara hrært yfir þessu“ Nýstofnuð Sinfóníuhljómsveit Austurlands hélt sína fyrstu tónleika 1. desember. Húsfyllir var á tónleikunum, sem haldnir voru í Menningarmiðstöð Austurlands á Eskifirði, þar sem brot úr nokkrum frægustu sinfóníuverkum heims voru leikin. „Hugmyndin að sveitinni fæddist í kaffispjalli hei...
http://www.austurfrett.is/frettir/unnidh-medh-sveitarfelagidh-austurland
Unnið með Sveitarfélagið Austurland Fulltrúar í samstarfsnefnd um sameiningu sveitarfélaganna Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar hafa náð niðurstöðu um vinnuheiti á væntanlegt sameinað sveitarfélag og meginmarkmið í viðræðunum. Þetta kemur fram í tilkynningu sem send var ú...
http://www.austurfrett.is/frettir/settu-ser-markmid-um-utgafuna-i-arsbyrjun
Settu sér markmið um útgáfuna í ársbyrjun „Jórunn Viðar var ótrúlegur listamaður, mikill frumkvöðull, bæði frumlegt tónskáld og mikils metinn píanóleikari,“ segir Erla Dóra Vogler mezzosópran, en hún og Eva Þyri Hilmarsdóttir píanóleikari voru að gefa út geisladiskinn „Jórunn Viðar – Söngvar“. Jórunn hefði orðið 100 ár...
http://www.austurfrett.is/frettir/garnaveiki-greind-i-austfjardhaholfi
Garnaveiki greind í Austfjarðahólfi Garnaveiki hefur greinst í sauðfé frá Þrándarstöðum á Fljótsdalshéraði. Þetta er í fyrsta skipti sem garnaveiki greinist á svæðinu í rúm 30 ár. Allt fé í hólfinu verður bólusett. Í tilkynningu MAST segir að sjúkdómurinn hafi uppgötvast eftir að sjö vetra kind á búinu drapst skyndileg...
http://www.austurfrett.is/frettir/snjoflodh-tok-lyftuskur-i-oddsskardhi
Snjóflóð tók lyftuskúr í Oddsskarði Töf verður á að hægt verði að opna byrjendabrekkuna á skíðasvæðinu í Oddsskarði eftir að snjóflóð hreif með sér lyftuskúrinn þar um helgina. „Það slitnar úr efra klettabeltinu af löngu svæði en flóðið er ekki þykkt. Ofan við lyftuhúsið er smá hjalli og fram af honum fer mjó buna sem ...
http://www.austurfrett.is/frettir/nadu-hvorki-gitarnum-og-skjavarpanum
Náðu hvorki gítarnum né skjávarpanum „Við erum tryggð en ekki fyrir þessu innbroti þar sem ekki voru rimlar fyrir gluggunum,“ segir Breiðdælingurinn Herdís Hrönn Árnadóttir sem rekur barinn Nostalgia á Tenerife, en þjófar létu greipar sópa á staðnum fyrr í vikunni. Herdís Hrönn og maður hennar, Sævar Lúðvíksson, hafa u...
http://www.austurfrett.is/frettir/skoska-leidhin-var-mikilvaegt-innlegg-i-umraedhuna
Skoska leiðin var mikilvægt innlegg í umræðuna Starfshópur um framtíð innanlandsflugs leggur til að fargjöld fyrir þá sem búa fjarri Reykjavík verði niðurgreidd um 50% frá árinu 2020. Formaður hópsins segir góðan stuðning við hugmyndir um að skilgreina innanlandsflug sem almenningssamgöngur á Alþingi. „Auðvitað er fólk...
http://www.austurfrett.is/frettir/farthegar-skelkadhir-eftir-okyrrdh-yfir-egilsstoedhum
Farþegar skelkaðir eftir ókyrrð yfir Egilsstöðum Farþegum sem voru um borð í flugvél Air Iceland Connect sem snúið var frá Egilsstaðaflugvelli rétt fyrir lendingu var boðin áfallahjálp þegar þeir komu aftur til Reykjavíkur. Óvænt og mikil ókyrrð varð til þess að hætt var við lendingu. Austurfrétt greindi frá atvikinu á...
http://www.austurfrett.is/frettir/snuidh-vidh-rett-fyrir-lendingu
Snúið við rétt fyrir lendingu Flugvél Air Iceland Connect, sem lenda átti á Egilsstöðum á níunda tímanum í morgun, var snúið við rétt fyrir lendingu vegna ókyrrðar. „Það er ekki mjög algegnt að það verði mikil ókyrrð í kringum Egilsstaði en það getur þó komið fyrir,“ segir Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri flugfélagsin...
http://www.austurfrett.is/frettir/menn-hafa-veridh-ofeimnir-vidh-umraedhuna
„Menn hafa verið ófeimnir við umræðuna“ Minnihlutinn í bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs sakar meirihlutann um að kæfa umræðu um fráveitumál í sveitarfélaginu. Fulltrúar meirihlutans hafna þeim ásökunum og segja minnihlutann reyna að drepa umræðunni á dreif. Nokkuð snörp skoðanaskipti urðu á síðasta fundi bæjarstjórnar þar ...
http://www.austurfrett.is/frettir/flugfargjoeld-nidhurgreidd-um-helming-fra-2020
Flugfargjöld niðurgreidd um helming frá 2020 Starfshópur um framtíð innanlandsflugs leggur til að flugfargjöld fyrir íbúa sem búa langt frá höfuðborgarsvæðinu verði niðurgreidd um allt að helming frá árinu 2020. Í fyrstu verður hámark á hversu margar ferðir eru niðurgreiddar. Þetta kemur fram í tillögum starfshópsins s...
http://www.austurfrett.is/frettir/thad-ma-spila-frispigolf-allt-arid
„Það má spila frispígolf allt árið“ „Ég hef unnið að því að leita leiða til að fjármagna frispígolfvöll í bænum og nú hefur ætlunarverkið tekist,“ segir Dagný Erla Ómarsdóttir, atvinnu-, menningar- og íþróttafulltrúi á Seyðisfirði, en í nóvember voru sex körfur settar upp. Frispígolf er skemmtileg almenningsíþrótt sem ...
http://www.austurfrett.is/frettir/helgin-fullveldishatidh-og-fleira
Helgin: Fullveldishátíð og fleira Ísland varð frjálst og fullvalda ríki með gildistöku sambandslaganna 1. desember 1918. Frá því eru liðin hundrað ár og þess hefur verið minnst um land allt á árinu með ýmis konar viðburðum sem meðal annars verða á fjórum stöðum á Austurlandi um helgina. Ýmislegt annað verður einnig um ...
http://www.austurfrett.is/frettir/treysta-a-adh-lodhnuleit-verdhi-haldidh-afram
Treysta á að loðnuleit verði haldið áfram Útgerðarmenn á Austurlandi treysta á að áfram verði haldið leit að loðnu en nánast ekkert fannst í haustleiðangri Hafrannsóknastofnunar. Ýmsar blikur eru á lofti með sveiflur í uppsjávartegundum sem Austfirðingar byggja mikið á. „Við Austfirðingar erum nú orðnir vanir því að ha...
http://www.austurfrett.is/frettir/hugarfar-er-ekki-medhfaeddur-eiginleiki
Hugarfar er ekki meðfæddur eiginleiki Jákvætt hugarfar skiptir lykilmáli í hvernig fólk tekst á við hlutina þegar það mætir eiginleikum. Besta leiðin til að skapa jákvætt andrúmsloft í hópi er að tryggja að allir hafi þar hlutverk. Þetta var meðal þess sem kom fram í fyrirlestrum undir merkjum jákvæðrar Fjarðabyggðar s...
http://www.austurfrett.is/frettir/finnst-eg-alltaf-nokkud-tengdur-nordfirdhingum
„Finnst ég alltaf nokkuð tengdur Norðfirðingum“ „Ég er löngu byrjaður ad telja niður dagana og undirbúningurinn er á fullu. Svo skilst mér að allt sé á kafi í snjó þannig að þetta verður kannski enn meira ævintýri fyrir mig sem hef ekki enn séð snjókorn í vetur,“ segir söngvarinn góðkunni Eiríkur Hauksson í samtali við...
http://www.austurfrett.is/frettir/setti-islandsmet-i-600-metra-hlaupi
Setti Íslandsmet í 600 metra hlaupi Björg Gunnlaugsdóttir, UÍA, setti um síðustu helgi Íslandsmet í 600 metra hlaupi 12 ára stúlkna innanhúss á Silfurleikum ÍR. Björg hlaut alls þrenn gullverðlaun á mótinu. Björg, sem æfir með Hetti, hljóp á tímanum 1:43,87 mín. Björg bætti eldra met, sem sett var árið 2013, um 6 hundr...
http://www.austurfrett.is/frettir/vonar-ad-sambandid-haldi-tho-hun-hafi-klippt-a-lasinn
Vonar að sambandið haldi þó hún hafi klippt á lásinn „Þetta er pínu viðkvæmt mál því það er svo mörgum sem finnst þetta fallegt,“ segir Lára Björnsdóttir, landvörður á Austfjörðum, sem klippti á fyrsta „ástarlásinn“ á svæðinu í vikunni. Svokallaðir ástarlásar eru þekkt fyrirbæri um allan heim, en pör rita nöfn sín á þá...
http://www.austurfrett.is/frettir/fjardharheidhi-vaentanlega-lokadh-i-kvoeld
Fjarðarheiði væntanlega lokað í kvöld Búist er við að veginum yfir Fjarðarheiði verði lokað seinni partinn í dag og ófært verði yfir Mývatns- og Möðrudalsöræfi eftir að þjónustu lýkur í kvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Vegagerðin sendi frá sér í hádeginu. Samkvæmt henni má búast við að heiðinni verði lokað um ...
http://www.austurfrett.is/frettir/ord-brietar-hofdu-ahrif-a-framgang-verkefnisins
Orð Bríetar höfðu áhrif á framgang verkefnisins Undanfarna mánuði hefur Hús Handanna á Egilsstöðum unnið að þróun nýrrar vöru í tengslum við 100 ára fullveldi Íslands. Verkefnið er unnið í samstarfi við Steinrúnu Óttu Stefánsdóttur vöruhönnuð og Eik á Miðhúsum og framleitt að hluta hjá Pes grafískri hönnun í Fellabæ. A...
http://www.austurfrett.is/frettir/beinlinis-logidh-upp-a-thridhja-orkupakkann
„Beinlínis logið upp á þriðja orkupakkann“ Hilmar Gunnlaugsson, lögmaður hjá Sókn lögmannsstofu á Egilsstöðum, varð nýverið fyrsti Íslendingurinn til að ljúka meistaranámi á sviði orkuréttar sem fjórir evrópskir háskólar standa saman að. Lokaritgerð Hilmars fjallaði um áhrif þriðja orkupakka Evrópusambandsins á Ísland ...
http://www.austurfrett.is/frettir/komandi-kynslodir-eiga-adh-njota-tess-sama-og-vid
Komandi kynslóðir eiga að njóta þess sama og við Verkmenntaskóli Austurlands fékk í gær afhentan grænfánann, viðurkennngu fyrir skóla fyrir að sinna umhverfisverkefnum. Sérstök umhverfisnefnd hefur verið starfandi innan skólans frá haustinu 2016 Sérstök umhverfisnefnd hefur verið starfandi innan skólans frá haustinu 20...
http://www.austurfrett.is/frettir/bera-er-saet-seidandi-og-sjodhheit
„Bera er sæt, seiðandi og sjóðheit“ „Ég hef alltaf verið hrifinn af sterkum mat og þykja „hot-sósur“ skemmtileg leið til að njóta þess,“ segir Djúpavogsbúinn William Óðinn Lefever sem stefnir að því að setja á markað fyrstu íslensku hot-sósuna (hot-sauce) og nefnist hún Bera. Óðinn segir hugmyndina hafa kviknað þegar h...
http://www.austurfrett.is/frettir/telur-reykskynjara-hafa-bjargadh-lifi-heimilisfolks
Telur reykskynjara hafa bjargað lífi heimilisfólks Slökkviliðsstjóri segir reykskynjara og árvekni heimilisfólks hafa skipt sköpum þegar eldur kom upp í einbýlishúsi í Neskaupstað í gærkvöldi. Nokkrar skemmdir eru á húsinu eftir eldsvoðann. Það var rétt fyrir hálf ellefu í gærkvöldi sem slökkvilið Fjarðabyggðar fékk út...
http://www.austurfrett.is/frettir/vegagerdhin-komin-langt-yfir-heimildir-i-berufirdhi
Vegagerðin komin langt yfir heimildir í Berufirði? Forsvarsmenn Djúpavogshrepps telja Vegagerðina hafa tekið tæplega þrefalt meira efni úr námu í Berufirði en heimilað var í framkvæmdaleyfi, áður en hún sótti um leyfi til að taka meira vegna vegagerðar yfir fjörðinn. Efnistaka í því magni sem um ræðir gæti kallað á bre...
http://www.austurfrett.is/frettir/fra-cherkasy-til-borgarfjardhar
Frá Cherkasy til Borgarfjarðar Iryna Boiko flutti til Borgarfjarðar eystra fyrir sjö árum úr úkraínskri stórborg til að geta búið með manninum sínum sem fékk þar atvinnu. Hún segir Borgfirðinga hafa tekið sér opnum örmum en vildi gjarnan að þeir væru fleiri. „Ég kom til Íslands 5. september 2011. Við bjuggum fyrstu fim...
http://www.austurfrett.is/frettir/hafnaradhstadha-i-finnafirdhi-2025
Hafnaraðstaða í Finnafirði 2025? Framkvæmdastjóri þýska fyrirtækisins Bremenports spáir því að fyrsti vísir að hafnaraðstöðu í Finnafirði verði tilbúinn árið 2025. Fjárfestingasjóður í eigu Guggenheim fjölskyldunnar hefur sýnt áhuga á að taka þátt í verkefninu. „Ég trúi að þarna verði komin höfn árið 2025 en við eigum ...
http://www.austurfrett.is/frettir/nemendur-gefa-ut-dagatal-med-afmaelisdogum-allra-i-baenum
Nemendur gefa út dagatal með afmælisdögum allra í bænum „Með þessu verkefni samþættum við námsefni í upplýsinga- og tæknimennt og íslensku,“ segir Jóna Björg Sveinsdóttir, umsjónarkennari við Grunnskólann á Borgarfirði eystra, en nemendur skólans gefa árlega út dagatal með afmælisdögum allra íbúa staðarins. „Í rauninni...
http://www.austurfrett.is/frettir/helgin-tad-er-stutt-i-raeturnar
Helgin: „Það er stutt í ræturnar“ „Hún er litrík, dramatísk og falleg,“ segir söngvarinn Stefán Jakobsson eða Stebbi JAK gaf nýverið út sína fyrstu sólóplötu sem ber titilinn JAK, en hann verður með útgáfutónleika í Valaskjálf á Egilsstöðum ásamt bandi sínu í kvöld. Platan hefur hlotið mjög góðar viðtökur og á henni sý...
http://www.austurfrett.is/frettir/20-milljonir-austur-i-byggdhaverkefni
20 milljónir austur í byggðaverkefni Tvö austfirsk verkefni fá samanlagt tuttugu milljónir króna frá samgöngu- og sveitastjórnarráðherra á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar. Formlega séð er styrkjunum úthlutað samkvæmt samningum við Samband sveitarfélaga að Austurlandi en stjórn þess fór yfir einstakar umsóknir o...
http://www.austurfrett.is/frettir/skrifstofa-stapa-lokudh-vegna-flutninga
Skrifstofa Stapa lokuð vegna flutninga Skrifstofa lífeyrissjóðsins Stapa í Neskaupstað verður lokuð fimmtudag og föstudag vegna flutninga. Opnað verður á nýjum stað eftir helgi. Stapi varð til með sameiningu Lífeyrissjóðs Austurlands og Lífeyrissjóðs Norðurlands. Árum saman hafa því skrifstofur lífeyrissjóðs verið á an...
http://www.austurfrett.is/frettir/fangelsisdomur-fyrir-adh-brjotast-inn-i-sumarbustadhi
Fangelsisdómur fyrir að brjótast inn í sumarbústaði Tveir karlmenn hafa verið dæmdir fyrir að brjótast inn sumarbústaði á Einarsstöðum í júní síðastliðnum og stela þaðan lausamunum. Annar maðurinn er dæmdur í tíu mánaða fangelsi þar sem hann braut gegn skilorði sem hann var á. Í flestum tilfellum brutu mennirnir upp ly...
http://www.austurfrett.is/frettir/threttan-thusund-gestir-a-austurfrett-i-sidhustu-viku
Þrettán þúsund gestir á Austurfrétt í síðustu viku Ríflega þrettán þúsund einstakir notendur heimsóttu Austurfrétt í síðustu viku. Þeir hafa aldrei verið fleiri á þessu almanaksári. Þetta kemur fram í samantekt vefmælingar Modernus fyrir síðustu viku þar sem vefurinn er í áttunda sæti yfir mest lesnu vefina, í annað sk...
http://www.austurfrett.is/frettir/thurfum-adh-audhvelda-kynslodhaskipti-i-landbunadhi
Þurfum að auðvelda kynslóðaskipti í landbúnaði Berglind Häsler, varaþingmaður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, gerði matvælaframleiðslu á Íslandi að umtalsefni í jómfrúarræðu sinin á Alþingi í dag. Berglind situr á þingi þessa dagana sem varamaður þar sem Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir er fjarverandi. Berglind þe...
http://www.austurfrett.is/frettir/samningur-um-nyjan-boerk-synir-sterka-stoedhu-karstensens
Samningur um nýjan Börk sýnir sterka stöðu Karstensens Forsvarsmenn danska skipasmíðafyrirtækisins Karstensens Skibsværft eru hæstánægðir með að hafa orðið fyrir valinu við gerð nýs Barkar NK fyrir Síldarvinnsluna. Samherji og Síldarvinnslan sömdu í haust við Karstensens um smíði tveggja uppsjávarveiðiskipa. Það sem Sa...
http://www.austurfrett.is/frettir/ratcliffe-kaupir-jardhir-i-vopnafirdhi-og-oliulindir-i-nordhursjo
Ratcliffe kaupir jarðir í Vopnafirði og olíulindir í Norðursjó Breski auðjöfurinn Jim Ratcliffe hefur styrkt eignarhald sitt á jarðnæði í Vopnafirði með kaupum á meirihluta hlutafjár í Veiðiklúbbnum Streng. Á sama tíma á fyrirtæki hans, Ineos, í viðræðum um kaup á olíu- og gaslindum í Norðursjó. Fréttablaðið greindi fr...
http://www.austurfrett.is/frettir/tekur-40-ar-adh-fullklara-storskipahoefn-i-finnafirdhi
Tekur 40 ár að fullklára stórskipahöfn í Finnafirði Gengið verður frá samkomulagi um stofnun tveggja hlutafélaga sem gegna lykilhlutverki við uppbyggingu stórskipahafnar í Finnafirði fyrir árslok. Talsmenn þýska fyrirtækisins Bremenports segja um langtímaverkefni með víðtækri uppbyggingu að ræða. Robert Howe, framkvæmd...
http://www.austurfrett.is/frettir/vel-til-adh-vinna-saebjugu-verdhlaunidh-sem-framurstefnuhugmynd-i-sjavarutvegi
Vél til að vinna sæbjúgu verðlaunuð sem Framúrstefnuhugmynd í sjávarútvegi Davíð Freyr Jónsson frá Egilsstöðum tók á fimmtudag við verðlaunum fyrir Framúrstefnuhugmynd Sjávarútvegsráðstefnunnar 2018. Davíð Freyr fer fyrir fyrirtækinu Auroa Seafood sem ásamt öðrum vinnur að því að þróa vinnsluvélar fyrir sæbjúgu. „Fyrst...
http://www.austurfrett.is/frettir/vildu-skora-a-stadalimynd-ahrifavaldsins
Vildu skora á staðalímynd áhrifavaldsins Austfirsku frumkvöðlarnir Ásbjörn Þorsteinsson frá Eskifirði og Auðun Bragi Kjartansson frá Egilsstöðum halda úti síðunni WHO CAN SEE YOU, sem bæði er hönnunarmerki og stökkpallur fyrir áhugasama út í heim samfélagsmiðla. Ásbjörn og Auðun Bragi eru báðir búsettir í Kaupmannahöfn...
http://www.austurfrett.is/frettir/engin-vegagerdh-i-berufirdhi-medhan-bedhidh-er-eftir-svari-skipulagsstofnunar
Engin vegagerð í Berufirði meðan beðið er eftir svari Skipulagsstofnunar Vegagerðin hefur óskað eftir að Skipulagsstofnun skoði hvort rétt sé að breytingar sem hafa orðið á framkvæmdum við nýjan veg yfir Berufjörð skuli fara í umhverfismat. Vegagerðin er í bið á meðan. Hreppsnefnd Djúpavogshrepps hafnaði á fundi sínum ...
http://www.austurfrett.is/frettir/folk-tarf-alls-ekki-ad-hraedast-sameiningar
„Fólk þarf alls ekki að hræðast sameiningar“ Rauðakrossdeildin á Vopnafirði hefur nú sameinast við deildina Héraði og Borgarfirði eystra og ber nýja deildin nafnið Rauði krossinn í Múlasýslu. Formaður deildarinnar á Vopnafirði segir sameininguna efla báðar deildir. Stofnfundur þessarar sameinuðu deildar var haldinn á B...
http://www.austurfrett.is/frettir/helgin-jonas-sig-med-tvenna-utgafutonleika
Helgin: Jónas Sig með tvenna útgáfutónleika Jónas Sig verður með tvenna útgáfutónleika á Austurlandi um helgina þar sem hann kynnir plötu sína Milda hjartað sem kemur út í nóvember. Tónleikarnir verða í Havarí í Berufirði á laugardag og í Valaskjálf á Egilsstöðum á sunnudag. Milda hjartað er fjórða sólóplata Jónasar og...
http://www.austurfrett.is/frettir/tad-er-miklu-vidurkenndara-ad-eiga-vid-gedraen-vandamal-i-dag
„Það er miklu viðurkenndara að eiga við geðræn vandamál í dag“ „Mætingin var vonum framar, en yfir 100 manns mættu á viðburðinn,“ segir Erla Jónsdóttir, formaður Ungmennaráðs Fljótsdalshéraðs, sem stóð fyrir viðburðinum „Útmeð´a“ í Vegahúsinu á Egilsstöðum í vikunni. Útmeð´a er samstarfsverkefnis Geðhjálpar og Hjálpars...
http://www.austurfrett.is/frettir/sveitarstjorn-sagdhi-nei-vidh-frekari-efnistoeku
Sveitarstjórn sagði nei við frekari efnistöku Sveitarstjórn Djúpavogshrepps hefur meinað Vegagerðinni að taka frekara efni úr Svartagilslæk í Berufirði. Jafnframt skoði Skipulagsstofnun áhrif efnistökunnar. Efni úr námunni hefur verið nýtt í nýjan veg yfir Berufjörð. Hann átti að vera tilbúinn í september en er það ekk...
http://www.austurfrett.is/frettir/27-a-lista-framurskarandi-fyrirtaekja
27 á lista framúrskarandi fyrirtækja 27 fyrirtæki af Austurlandi eru á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki á Íslandi en listinn var kynntur í vikunni. Fimm nýliðar eru í hópnum. Creditinfo hefur birt listann undanfarin níu ár. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að fyrirtækin eigi það sameiginlegt að vera áb...
http://www.austurfrett.is/frettir/skattur-sem-kemur-verst-nidhur-a-fyrirtaekjum-i-fjardhabyggdh
Skattur sem kemur verst niður á fyrirtækjum í Fjarðabyggð Bæjarráð Fjarðabyggðar mótmælir því að til standi að hækka veiðigjöld á uppsjávarstofna, umfram aðra, um tíu prósent. Bæjarfulltrúi segir þá gjaldtöku sem boðuð er ekki standa undir sér til lengri tíma litið. „Það segir sig sjálft að þessi skattur kemur verst ni...
http://www.austurfrett.is/frettir/stjorn-veidha-a-saebjugum-i-klessu
Stjórn veiða á sæbjúgum í klessu Sjávarútvegsráðherra segir nauðsynlegt að herða reglur um veiðar á sæbjúgum. Stór hluti þeirra er veiddur út fyrir Austfjörðum. Skipstjóri segir þar hafa verið stundaðar ólympískar veiðar í haust. „Menn eru að berjast inni í þessu hólfi að ná sem mestum afla. Þetta eru eiginlega ólympís...
http://www.austurfrett.is/frettir/hissa-a-adh-ekki-vaeri-loegdh-meiri-ahersla-a-fjarhagsaaetlun-i-stjorn-hef
Hissa á að ekki væri lögð meiri áhersla á fjárhagsáætlun í stjórn HEF Fulltrúi Héraðslistans í stjórn Hitaveitu Egilsstaða og Fella (HEF) gagnrýnir að upplýsingar um fjárhagsáætlun fyrirtækisins á næsta ári hafi verið lagðar fram í bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs áður en þær voru afgreidd af stjórn fyrirtækisins. Fulltrúa...
http://www.austurfrett.is/frettir/laegri-gjaldskrar-edha-meiri-thjonusta
Lægri gjaldskrár eða meiri þjónusta? Meirihluti Fjarðalista og Framsóknarflokks í bæjarráði Fjarðabyggðar fellst ekki á tillögur Sjálfstæðisflokks um breytingar á fjárhagsáætlun ársins 2019. Flokkurinn vill lækka fasteignamatsstuðul, lækka gjaldskrá hitaveitu og fallið verði frá lækkunum á skólamáltíðum. Meirihlutinn s...
http://www.austurfrett.is/frettir/ekki-rett-adh-fara-i-sameiningar-i-kjoelfar-neikvaedhrar-koennunar
Ekki rétt að fara í sameiningar í kjölfar neikvæðrar könnunar Meirihluti hreppsnefndar Vopnafjarðarhrepps felldi á síðasta fundi tillögu minnihlutans um að óska eftir aðild að viðræðum fjögurra sveitarfélaga á Austurlandi um sameiningu. Íbúakönnun sem gerð var í vor sýndi ekki vilja Vopnfirðinga til sameiningar. Fulltr...
http://www.austurfrett.is/frettir/gerdhu-athugasemd-vidh-adh-fa-fundargerdh-i-stadh-thess-adh-fundur-vaeri-haldinn
Gerðu athugasemd við að fá fundargerð í stað þess að fundur væri haldinn Bæjarráð Fjarðabyggðar vísaði liðum af fundi eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar aftur til nefndarinnar þar sem ekki var rétt boðað til fundar nefndarinnar. Formaður nefndarinnar ber við tímapressu en segir að hætt hafi verið við þegar athugase...
http://www.austurfrett.is/frettir/frumskoepunarkrafturinn-kitladur
Frumsköpunarkrafturinn kitlaður „Á námskeiðunum eru þátttakendur leiddir inn í tónlistariðkun á þeirra eigin forsendum. Enginn aðgangseyrir er á námskeiðin sem henta öllum áhugasömum og engar kröfur eru gerðar um grunnþekkingu í tónlist. Við hvetjum þátttakendur til að koma með sín eigin hljóðfæri af öllu tagi,“ segir ...
http://www.austurfrett.is/frettir/thadh-var-ekki-fjarskortur-a-heilsugaeslunni-i-gaer
„Það var ekki fjárskortur á heilsugæslunni í gær“ „Ég bara trúði þessu varla þegar ég sá þær storma þarna inn,“ segir ferðaþjónustubóndinn Sævar Guðjónsson á Eskifirði, um kind með tvö lömb sem rötuðu inn í húsnæði heilsugæslunnar á Eskifirði um miðjan dag í gær. Sævar var að keyra í gegnum Eskifjörð þegar hann sá kind...
http://www.austurfrett.is/frettir/metmanudhur-hja-gullveri
Metmánuður hjá Gullveri Togarinn Gullver á Seyðisfirði hefur aldrei landað meiri afla á einum mánuði heldur en í nýafstöðnum októbermánuði. Veiðar hafa gengið vel austur af landinu. „Það hittist vel á með landanir í mánuðininum og það gekk mjög vel. Það hjálpar líka mikið að við erum með nægan kvóta,“ segir Rúnar Laxda...
http://www.austurfrett.is/frettir/sambandsleysi-a-sudhurfjoerdhum
Farsímasamband komið á Suðurfirði Viðgerð er lokið á bilun sem olli því að farsímasambandslaust varð frá Stöðvarfirði til Álftafjarðar í morgun. Bilun kom upp í búnaði hjá Mílu á Stöðvarfirði í nótt. Varahlutur var sendur austur með fyrsta flugi í morgun og komst samband á fyrir hádegi. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum...
http://www.austurfrett.is/frettir/sviptur-oekuleyfi-fyrir-vitaverdhan-oelvunarakstur
Sviptur ökuleyfi fyrir vítaverðan ölvunarakstur Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt karlmann til að sæta sviptingu ökuleyfis í tvö og hálft ár fyrir vítaverðan akstur undir áhrifum áfengis. Litlu mátti muna að maðurinn æki framan á bíl sem kom úr gagnstæðri átt. Atvikið átti sér stað ofan við álverið á Reyðarfirði í byr...
http://www.austurfrett.is/frettir/profastdaemid-leggur-mikla-aherslu-a-aeskulydsstarf
„Prófastdæmið leggur mikla áherslu á æskulýðsstarf“ Landsmótið er stærsti árlegi viðburður kirkjunnar. Í ár voru þátttakendur um 300 talsins en oft hafa um 700 ungmenni tekið þátt,“ segir Sigríður Tryggvadóttir, prestur á Seyðisfirði, sem kom að vel heppnuðu landsmóti Æskulýðssambands þjóðkirkjunnar (ÆSKÞ) fór fram á E...
http://www.austurfrett.is/frettir/soeluverdh-fasteigna-adh-nalgast-byggingarkostnadh
Söluverð fasteigna að nálgast byggingarkostnað Fasteignasali segir austfirskan fasteignamarkað, einkum á Fljótsdalshéraði, hafa verið óvenju líflegan það sem af er ári. Tvær vikur eru síðan flutt var inn í síðustu íbúðirnar í fjölbýlishúsinu að Miðvangi 6 í miðbæ Egilsstaða. Húsið er í daglegu tali kennt við Hlymsdali,...
http://www.austurfrett.is/frettir/faereyingar-eiga-naesta-leik
Færeyingar eiga næsta leik Enn er ósamið um gagnkvæmar veiðar Íslendinga og Færeyinga í lögsögu hvors annars. Tíminn sem er til stefnu styttist því íslensk skip hafa sótt í færeyska lögsögu í upphafi loðnuvertíðar. Í húfi er kolmunnakvóti sem skiptir Austfirðinga töluverðu máli. „Það var unnið að samningsdrögum og aðil...
http://www.austurfrett.is/frettir/thau-vinnubroegdh-sem-stundudh-eru-i-sjomannafelaginu-eru-adh-koma-i-dagsljosidh
„Þau vinnubrögð sem stunduð eru í Sjómannafélaginu eru að koma í dagsljósið“ Forusta AFLs Starfsgreinafélags telur ekki rétt að hafa afskipti af deilum innan Sjómannafélags Íslands þótt hún sé gagnrýnin á þau vinnubrögð sem innan félagsins hafi verið viðhöfð, meðal annars að reynt hafi verið að grafa undan öðrum verkal...
http://www.austurfrett.is/frettir/rjupnaskytta-oekklabrotnadhi-a-veidhum
Rjúpnaskytta ökklabrotnaði á veiðum Karlmaður er ökklabrotinn eftir að hafa runnið niður fjallshlíð við rjúpnaveiðar á föstudag. Lögreglan hefur haft eftirlit með skyttum sem verið hafa með allt sitt á hreinu. Atvikið átti sér stað í Fljótsdal á föstudag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu mun maðurinn hafa runnið til í...
http://www.austurfrett.is/frettir/baejarstjorn-fjardabyggdar-motmaelir-lokun-husasmidjunnar-a-reydarfirdi
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar mótmælir lokun Húsasmiðjunnar á Reyðarfirði Bæjarstjórn Fjarðabyggðar mótmælir ákvörðun Húsasmiðjunnar um lokun verslunar á Reyðarfirði harðlega, en málið var tekið fyrir á fundi bæjarstjórnar í gær. Eins og Austurfrétt greindi frá í vikunni hefur Húsasmiðjan ákveðið að loka verslun sinni á Re...
http://www.austurfrett.is/frettir/valdamiklir-menn-er-aesispennandi-glaepasagnabalkur
Valdamiklir menn er æsispennandi glæpasagnabálkur „Sagan tengist Austurlandi aðeins og þá sérstaklega síðasta bókin,“ segir rithöfundurinn Jón Pálsson á Seyðisfirði, en þriðja og síðasta bók hans í lokahluta glæpasagnaþríleiksins Valdamiklir menn kom út á dögunum. Bókin ber heitið Valdamiklir menn: Þriðja morðið en fyr...
http://www.austurfrett.is/frettir/heildraen-nalgun-sem-tekur-a-ollum-tattum-heilsu
Heildræn nálgun sem tekur á öllum þáttum heilsu „Þetta er mikilvægt verkefni því að lífsstílssjúkdómar eru stórt vandamál og það skortir langtímaúrræði og forvarnir“ segir Hrönn Grímsdóttir, náms- og starfsráðgjafi, hjá Austurbrú, sem er að fara að taka þátt í Erasmus verkefninu „Líf og heilsa“. Austurbrú er þátttakand...
http://www.austurfrett.is/frettir/frettaskyring-hb-grandi-gaf-og-hb-grandi-tok
Fréttaskýring: HB Grandi gaf og HB Grandi tók Að morgni þriðjudags var boðað til starfsmannafundar hjá HB Granda á Vopnafirði. Tilefnið var að tilkynna um að til standi að hætta bolfiskvinnslu þar í núverandi mynd sem þýðir að 16-17 störf hjá félaginu leggjast af. Bolfiskvinnslunni var ætlað að minnka árstíðabundnar sv...
http://www.austurfrett.is/frettir/30-afslattur-i-tilefni-30-ara-afmaelis
30% afsláttur í tilefni 30 ára afmælis Þrjátíu prósenta afsláttur var á öllum vörum, nema tóbaki, í versluninni Kauptúni á Vopnafirði í dag í tilefni þess að þrjátíu ár eru liðin frá opnun hennar. Kaupmaðurinn segir að reksturinn hafi oft verið strembinn í gegnum tíðina en Vopnfirðingar verið tryggir viðskiptavinir. „Þ...
http://www.austurfrett.is/frettir/bidha-eftir-adh-heyra-af-hugmyndum-hb-granda
Bíða eftir að heyra af hugmyndum HB Granda Oddviti Vopnafjarðarhrepps segir íbúa þar slegna yfir uppsögnum í fiskvinnslu stærsta atvinnurekanda staðarins, HB Granda, í gær. Þeir vona að stjórnendur fyrirtækisins finni aðrar leiðir til að halda uppi atvinnu. „Það eru allir slegnir yfir þessu. Það var ellefu manns sagt u...
http://www.austurfrett.is/frettir/mer-var-gefin-trautseigja-i-voeggugjof
„Mér var gefin þrautseigja í vöggugjöf“ „Það var í fyrsta skipti í haust sem mér hálf féllust hendur og ég áttaði mig á því að ég var farin að velta vöngum yfir því hvort við ættum að loka þessu,“ segir Una Sigurðardóttir, sem rekur Sköpunarmiðstöðina á Stöðvarfirði ásamt manni sínum, Vincent Wood og Rósu Valtingojer. ...
http://www.austurfrett.is/frettir/framlag-til-austurlands-litilsvirdhandi-og-amaelisvert
Framlag til Austurlands lítilsvirðandi og ámælisvert Stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) lýsir yfir mikilli óánægju með fjárveitingar til framkvæmda í landshlutanum í umsögn sinni um samgönguáætlun 2019-2033. Stjórnin vonar að hlutur fjórðungsins verði réttur og tekið tillit til forgangsröðunar sem ítreka...
http://www.austurfrett.is/frettir/fannst-gautavik-langt-i-burt-istan
Fannst Gautavík „langt-í-burt-istan“ „Það felast mikil tækifæri og að mörgu leyti aukin lífsgæði í því að búa út á landi. Sífellt fleiri eru að átta sig á því sem hefur orðið til þess að þróunin er að snúist við. Síðastliðin tvö ár fluttu fleiri úr þéttbýli í dreifbýli en öfugt, í fyrsta sinn síðan 1906,“ segir Oddný A...
http://www.austurfrett.is/frettir/opid-malthing-um-byggdamal
Opið málþing um byggðamál „Ég hvet alla sem áhuga hafa að líta við og taka þátt í umræðu um þessi byggðatengdu mál,“ segir Þórarinn Lárusson, formaður Framfarafélag Fljótsdalshéraðs, en félagið heldur í samvinnu við byggðasamtökin Landsbyggðin lifi málþing um byggðamál á Hótel Héraði næsta föstudag. Málþingið og öllum ...
http://www.austurfrett.is/frettir/bolfiskvinnslu-i-nuverandi-mynd-haett
Bolfiskvinnslu í núverandi mynd hætt Ellefu starfsmönnum HB Granda á Vopnafirði var í morgun sagt upp vegna breytinga á starfsemi fyrirtækisins þar. Til stendur að hætta bolfiskvinnslu á staðnum í núverandi mynd. „Við héldum fund með starfsmönnum í morgun þar sem tilkynnt var ákvörðun um að bolfiskvinnslu í núverandi m...
http://www.austurfrett.is/frettir/thungar-ahyggjur-eftir-uppsagnir-a-vopnafirdhi
Þungar áhyggjur eftir uppsagnir á Vopnafirði Ellefu starfsmönnum var í dag sagt upp störfum í frystihúsi HB Granda á Vopnafirði. Framkvæmdastjóri AFLs Starfsgreinafélags segist hafa þungar áhyggjur af áhrifunum á nærsamfélagið. Í tilkynningu frá AFLi segir að ellefu starfsmönnum hafi verið sagt upp í dag. Áður hafi ver...
http://www.austurfrett.is/frettir/hefdhi-veridh-betra-adh-geta-lent-a-hoefn
Hefði verið betra að geta lent á Höfn Æskilegt er að opna verði fyrir millilandaflug um flugvöllinn á Hornafirði til að auka öryggi flugfarenda. Það er ein af ábendingum Rannsóknarnefndar samgönguslysa eftir rannsókn á því þegar lítil vél á leið til Egilsstaða sendi frá sér neyðarkall. Atvikið átti sér stað í 4. júlí 2...
http://www.austurfrett.is/frettir/kviknadhi-i-einbylishusi-a-seydhisfirdhi
Kviknaði í einbýlishúsi á Seyðisfirði Mikill eldur kom upp í einbýlishúsi á Seyðisfirði á sjötta tímanum í kvöld. Talið er að húsið hafi verið mannlaust þegar eldurinn kom upp, það hefur þó ekki verið staðfest. Slökkvilið var búið að ná tökum á eldinum fyrir klukkan sjö. Tilkynning barst um eldinn um klukkan hálf sex í...