Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
http://www.austurfrett.is/frettir/starfsmenn-bidha-i-ovissu-eftir-breytingar-hja-hb-granda
Starfsmenn bíða í óvissu eftir breytingar hjá HB Granda Starfsmenn HB Granda á Vopnafirði bíða í óvissu eftir fréttum um frekari áform um rekstur fyrirtækisins á Vopnafirði. Breytingar verða á nýrri bolfiskvinnslu félagsins. Ellefu starfsmönnum var sagt upp í morgun. „Það er þungt hljóðið í fólki hér. Þetta eru með erf...
http://www.austurfrett.is/frettir/falleg-hugsun-vinaviku-hefur-ahrif
Falleg hugsun vinaviku hefur áhrif Vinavikan á Vopnafirði var haldin níunda árið í röð fyrir stuttu. Upplýsingafulltrúi sveitarfélagsins segir verkefnið skila sér með margvíslegum hætti til samfélagsins. „Fyrsta vinavikan var haldin árið 2010, en það var Sr. Stefán Már Gunnlaugsson sem átti hugmyndina og kom verkefninu...
http://www.austurfrett.is/frettir/vildi-gera-eitthvad-til-thess-ad-hjalpa
„Vildi gera eitthvað til þess að hjálpa“ „Það er farið að kólna svo rosalega þannig að þetta þarf að komast suður sem fyrst,“ segir Linda Sæberg á Egilsstöðum, en hún hefur tekið að sér að safna saman vetrarfatnaði og fleiru fyrir skjólstæðinga Frú Ragnheiðar í Reykjavík. Frú Ragnheiður – skaðaminnkun, er sérinnréttaðu...
http://www.austurfrett.is/frettir/stemming-a-breidhdalsvik-a-myrkum-doegum-i-oktoberlok
Stemming á Breiðdalsvík á myrkum dögum í októberlok Breiðdælingar bjóða öllum Austfirðingum í heimsókn á Menningardegi á morgun. Skipulögð dagskrá er í þorpinu frá morgni til kvölds. Fundir um starf landvarða, ljóðakvöld, kótelettukvöld og óhefðbundin messa eru meðal þess sem eru í boði um helgina. „Þetta er orðinn fas...
http://www.austurfrett.is/frettir/dagar-myrkurs-a-austurlandi-2
Dagar myrkurs á Austurlandi Dagar myrkurs hefjast á Austurlandi hefjast í dag og standa til sunnudags. Hafa þeir verið haldnir frá árinu 2000 og eru því nú í nítjánda sinn. „Þessa daga er hægt að upplifa rólega og notalega stemmningu í litlum byggðalögum þar sem komu myrkurs og skugga er fagnað. Meðal þess sem boðið er...
http://www.austurfrett.is/frettir/husasmidhjan-lokar-a-reydharfirdhi
Húsasmiðjan lokar á Reyðarfirði Húsasmiðjan hefur ákveðið að loka verslun sinni á Reyðarfirði um næstu áramót. Forstjóri fyrirtækisins segir litlar einingar á borð við verslunina á Reyðarfirði eiga erfitt uppdráttar í harðri samkeppni. Til stendur að efla verslunina á Egilsstöðum. Eftir því sem Austurfrétt kemst næst v...
http://www.austurfrett.is/frettir/husidh-onytt-eftir-eldinn
Húsið ónýtt eftir eldinn Einbýlishús á Seyðisfirði, byggt fyrir aldamótin 1900, er ónýtt eftir eldsvoða í kvöld. Staðfest er að enginn var í húsinu þegar eldurinn kom upp. Það var rétt fyrir klukkan hálf sex sem tilkynning barst um að eldur væri laus í íbúðarhúsinu að Hafnargötu 46 á Seyðisfirði. Slökkvilið Seyðisfjarð...
http://www.austurfrett.is/frettir/jeppi-lenti-a-husvegg
Jeppi lenti á húsvegg Mildi er að enginn slasaðist þegar jeppi rakst á útvegg hússins sem hýsir Nettó á Egilsstöðum í gær. Atvikið átti sér stað um klukkan fjögur. Ökumaður jeppabifreiðar var að leggja henni í stæði við húsið. Í stað þess að staðnæmast þar fór bíllinn áfram, skall á húsinu af töluverðu afli og tók vink...
http://www.austurfrett.is/frettir/sverrir-fekk-thridhjung-atkvaedha-austfirdhingar-tuktudhu-mig-til
Sverrir fékk þriðjung atkvæða: Austfirðingar tuktuðu mig til Sverrir Mar Albertsson, framkvæmdastjóri AFLs verður ekki næsti formaður Alþýðusambands Íslands. Hann beið lægri hlut gegn mótframbjóðandanum Drífu Snædal, framkvæmdastjóra Starfsgreinasambandsins, á þingi samtakanna í dag. Sverrir varaði forustumenn í hreyfi...
http://www.austurfrett.is/frettir/mikil-torf-a-hvers-kyns-valdeflingu
Mikil þörf á hvers kyns valdeflingu „Ég finn mikla þörf fyrir þessu innan fyrirtækja og í samfélaginu öllu,“ segir Helga Kristín Sæbjörnsdóttir frá Egilsstöðum, en hún er eigandi fyrirtækisins Valdefla, sem meðal annars verður með námskeiðið Valdefling kvenna á Laugarvatni um miðjan nóvember. Helga Kristín ólst upp á E...
http://www.austurfrett.is/frettir/saga-um-geysilega-thoeggun-2
Saga um geysilega þöggun „Nú halda mér engin bönd eftir langt hlé í eigin sköpun og útkomu tveggja bóka í ár,“ segir rithöfundurinn Steinunn Ásmundsdóttir, sem var að senda frá sér sína sjöttu bók, skáldævisöguna Manneskjusögu. Fyrra útgáfuhóf bókarinnar verður í Eymundsson í Smáralind í dag klukkan 17:00. Manneskjusag...
http://www.austurfrett.is/frettir/vill-skipta-a-joefnu-i-samningum-vidh-faereyinga
Vill skipta á jöfnu í samningum við Færeyinga Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegsráðherra, segir tíma til kominn að Íslendingar og Færeyingar skipti á sléttu í samningum um fiskveiðar. Skiptimyntin er kolmunni sem skiptir Austfirðinga miklu máli. Samninganefnd frá ráðuneytinu hélt utan í morgun til viðræðna í dag og á...
http://www.austurfrett.is/frettir/umbodhsmadhur-althingis-gerir-ekki-athugasemd-vidh-radhningu-baejarstjora-a-seydhisfirdhi
Umboðsmaður Alþingis gerir ekki athugasemd við ráðningu bæjarstjóra á Seyðisfirði Umboðsmaður Alþingis telur ekki ástæðu til að gera teljandi athugasemdir við ráðningarferli bæjarstjóra Seyðisfjarðarkaupstaðar. Umboðsmaðurinn telur sveitarstjórnir hafa rétt til að ráða sér framkvæmdastjóra á sjónarmiðum sem alla jafna ...
http://www.austurfrett.is/frettir/malting-a-skriduklaustri-og-i-norraena-husinu-skandinavismi-og-fullveldi
Málþing á Skriðuklaustri og í Norræna húsinu: Skandinavismi og fullveldi Í tilefni 100 ára fullveldisafmælis stendur Gunnarsstofnun fyrir málþingi um sameiningu Norðurlandanna í fortíð og framtíð. Málþingið verður haldið bæði á Skriðuklaustri og í Norræna húsinu. Málþingið verður haldið á Skriðuklaustri næstkomandi sun...
http://www.austurfrett.is/frettir/kvennafri-launabil-karla-og-kvenna-er-mest-a-austurlandi
Kvennafrí: Launabil karla og kvenna er mest á Austurlandi Í tilefni af kvennafrídeginum 24. október 2018 býður Alcoa Fjarðaál til samstöðufundar fyrir konur á Austurlandi. Fundurinn verður haldinn í matsal fyrirtækisins í dag milli klukkan 14:55 og 16:00. „Við ákváðum að bjóða upp á vettvang hér hjá Fjarðaáli þegar okk...
http://www.austurfrett.is/frettir/tvi-midur-er-torfin-mikil
„Því miður er þörfin mikil“ „Jól í skókassa“ er alþjóðlegt verkefni sem felst í því að fá börn jafnt sem fullorðna til þess að gleðja önnur börn sem lifa við fátækt, sjúkdóma og erfiðleika með því að gefa þeim jólagjafir. Tekið verður á móti skókössum í Egilsstaðakirkju næsta fimmtudag milli klukkan 17:00 og 21:00. Ver...
http://www.austurfrett.is/frettir/telur-goeng-undir-berufjoerdh-skynsamlegustu-nyframkvaemdina
Telur göng undir Berufjörð skynsamlegustu nýframkvæmdina Þingmaður Miðflokksins úr Norðvesturkjördæmi telur vert að skoða gerð tvennra jarðganga og færslu einnar brúar til að stytta leiðina milli Reykjavíkur og Austurlands um 40-60 kílómetra. Birgir Þórarinsson vakti athygli á möguleikum í vegagerð í ræðu sem hann hélt...
http://www.austurfrett.is/frettir/menn-eru-annadh-hvort-englar-edha-djoeflar-i-umraedhunni-um-fiskeldi
„Menn eru annað hvort englar eða djöflar í umræðunni um fiskeldi“ Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegsráðherra, boðar tvö ný lagafrumvörp um fiskeldi á Alþingi í vetur sem hann telur að breyta muni miklu fyrir greinina. Hann kallar eftir aukinni sanngirni í umræðu um eldið sem sem sé í dag stunduð úr skotgröfum. „Kúltú...
http://www.austurfrett.is/frettir/nuningur-vidh-bryggjuna-myndadhi-gat-a-batnum
Núningur við bryggjuna myndaði gat á bátnum Talið er að gat sem kom eftir núning við bryggju hafi orðið til þess að eikarbáturinn Saga SU 606 sökk í höfninni á Breiðdalsvík aðfaranótt 11. febrúar síðastliðins. Þetta kemur fram í skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa um atvikið. Sterkur vindur, sem fór upp í allt að 3...
http://www.austurfrett.is/frettir/vid-tok-algerlega-surrealiskt-astand
„Við tók algerlega súrrealískt ástand“ „Ég var inni í húsinu Brennu, í miðbæ Neskaupstaðar, þar sem ritstjórnarskrifstofa Austurgluggans var þá. Ég man að ég var að lesa yfir blað vikunnar sem við höfðum klárað kvöldið áður, þegar síminn hringdi. Þetta var vinur minn sem vann í netagerðinni og hann sagði mér einfaldleg...
http://www.austurfrett.is/frettir/perlurnar-eru-mikilvaegar-fyrir-svaedid
„Perlurnar eru mikilvægar fyrir svæðið“ Mikil aðsókn var í gönguleikjunum Perlur Fljótsdalshéraðs og Heiðarbýlin í göngufæri sem Ferðafélag Fljótsdalshéraðs stendur fyrir. Forsvarsmaður segir verkefnið gott fyrir samfélagið og vekji athygli aðkomufólks. Hjördís Hilmarsdóttir er í Ferðafélagi Fljótsdalshéraðs. „Við voru...
http://www.austurfrett.is/frettir/djupivogur-samthykkir-sameiningarvidhraedhur
Djúpivogur samþykkir sameiningarviðræður Sveitarstjórn Djúpavogshrepps varð í gærkvöldi síðust til að samþykkja að taka þátt í sameiningarviðræðum fjögurra sveitarfélaga á Austurlandi. Gert er ráð fyrir að viðræðum verði lokið áður en árið 2020 gengur í garð. Hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps varð fyrst til að samþykkja ...
http://www.austurfrett.is/frettir/eg-vil-ekki-ad-synir-minir-turfi-ad-vada-minn-skit
„Ég vil ekki að synir mínir þurfi að vaða minn skít“ „Ég geri varla annað en að neita viðtölum þessa dagana, en ég vildi bara tala við staðarfjölmiðilinn, þó svo ég hafi ekki einu sinni ætlað að gera það fyrst,“ sagði Norðfirðingurinn Grétar Sigursson þegar hann settist niður með blaðamanni Austurgluggans á kaffihúsi í...
http://www.austurfrett.is/frettir/her-a-vopnafirdi-standa-allir-saman
„Hér á Vopnafirði standa allir saman“ Björgunarsveitin Vopni á Vopnafirði heldur úti öflugu ungliðastarfi en rúmlega 20 ungmenni á aldrinum 13 til 18 ára starfa með félaginu. Jón Sigurðarson er formaður Björgunarsveitarinnar Vopna og hann hefur einnig haldið utan um ungmennastarf hennar í tíu ár, en deildin er fyrir þá...
http://www.austurfrett.is/frettir/lysa-yfir-vonbrigdhum-medh-samgoenguaaetlun
Lýsa yfir vonbrigðum með samgönguáætlun Sveitarstjórn Djúpavogshrepps lýsir yfir vonbrigðum með samgönguáætlun sem nýverið var lögð fram á Alþingi. Ekki er gert ráð fyrir að Axarvegur komist til framkvæmda á næsta áratug samkvæmt henni. Sveitarstjórnin gerir bæði athugasemdir við áætlunina til næstu fimmtána ára en sér...
http://www.austurfrett.is/frettir/vantar-minni-ibudhir-fyrir-eldra-folk
Vantar minni íbúðir fyrir eldra fólk Íbúðir í hjúkrunarheimilinu Sundabúð eru of litlar fyrir fólk sem er tekið að eldast og vill flytja í smærra húsnæði. Framboð á íbúðarhúsnæði er eitt af því sem hamlar uppbyggingu á Vopnafirði. Þetta er meðal þess sem fram kemur í greinargerð sveitarfélagsins sem lögð var fram á síð...
http://www.austurfrett.is/frettir/markmidid-er-adh-lifga-upp-a-skammdegidh
„Markmiðið er að lífga upp á skammdegið“ „Það verður eitthvað í gangi í flestum verslunum þar til tíu um kvöldið,“ segir Margrét Árnadóttir, starfsmaður Þjónustusamfélagsins á Héraði, um viðburðinn Haustkvöld á Egilsstöðum á fimmtudaginn. Þetta er í þriðja skipti sem samskonar viðburður er haldinn á Egilsstöðum. „Markm...
http://www.austurfrett.is/frettir/tetta-er-malefni-sem-allir-tengja-vid
„Þetta er málefni sem allir tengja við“ „Hér var svaka stuð í gær og við vorum ótrúlega ánægð að fá svo góða þátttöku,“ segir Dagmar Ýr Stefánsdóttir, upplýsingafulltrúi Alcoa Fjarðaáls, en í fjölmargir lögðu leið sína í fyrirtækið í gær og perluðu armbönd til styrktar Krafts, styrktarfélags ungs fólks sem hefur greins...
http://www.austurfrett.is/frettir/ekki-rett-adh-baejarfulltruar-skammist-ut-i-starfsmenn-a-fundi
Ekki rétt að bæjarfulltrúar skammist út í starfsmenn á fundi Bæjarfulltrúar meirihluta og bæjarstjóri Fjarðabyggðar áminntu bæjarfulltrúa Miðflokksins fyrir orð hans í garð starfsmanna sveitarfélagins á bæjarstjórnarfundi á fimmtudag. Ekki væri rétt að bera sakir á þá sem ekki sætu fundinn og gætu ekki svarað fyrir sig...
http://www.austurfrett.is/frettir/thrju-sveitarfeloeg-hafa-samthykkt-adh-hefja-formlegar-vidhraedhur-um-sameiningu
Þrjú sveitarfélög hafa samþykkt að hefja formlegar viðræður um sameiningu Fljótsdalshérað, Seyðisfjarðarkaupstaður og Borgarfjarðarhreppur hafa samþykkt að fara í formlegar sameiningarviðræður og Djúpavogshreppur tekur ákvörðun síðar í dag. Gangi viðræðurnar að óskum verður kosið um sameiningu þeirra fyrir lok árs 2019...
http://www.austurfrett.is/frettir/vitnadhi-i-kim-larsen-i-jomfruarraedhunni
Vitnaði í Kim Larsen í jómfrúarræðunni María Hjálmarsdóttir, varaþingmaður frá Eskifirði, vitnaði í danska tónlistarmanninn Kim Larsen þegar hún flutti jómfrúarræðu sína á Alþingi í dag. Hún ræddi þar stöðu barna sem eiga foreldra sem standa einhverra hluta vegna höllum fæti. „Herra forseti. Mig langar aðeins að vitna ...
http://www.austurfrett.is/frettir/tetta-var-augnablik-i-minu-lifi-tar-sem-eg-maetti-ollu-minu-lifi
„Þetta var augnablik í mínu lífi þar sem ég mætti öllu mínu lífi“ „Í rauninni er ég bara í rusli, ég er búinn að gráta svo mikið af þakklæti,“ segir Fellbæingurinn og guðfræðingurinn Hjalti Jón Sverrisson, sem vígður var til prests síðastliðinn laugardag. Hann hefur verið skipaður safnaðarprestur í Laugarnesprestakalli...
http://www.austurfrett.is/frettir/80-thusund-krona-reikningur-vardh-adh-450-thusund-krona-domsmali
80 þúsund króna reikningur varð að 450 þúsund króna dómsmáli Héraðsdómur Austurlands hefur gert karlmanni á þrítugsaldri að greiða organista alls 450.000 krónur í málskostnað og fyrir þjónustu í jarðarför. Maðurinn neitaði að greiða reikning organistans því hann skildi prestinn á þá á leið að þjónusta organista og kórs...
http://www.austurfrett.is/frettir/alltaf-gleymist-austurland
„Alltaf gleymist Austurland“ Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar og þingmaður Norðausturkjördæmis, vakti athygli á naumum hlut Austurlands í nýrri samgönguáætlun þegar hún var tekin til fyrstu umræðu á Alþingi í vikunni. Samgönguráðherra segir að þau verkefni hafi hlotið forgang sem auki öryggi mest. „Ég vil spy...
http://www.austurfrett.is/frettir/vilja-skodha-moeguleikann-a-gjaldtoeku-af-alvoeru
Vilja skoða möguleikann á gjaldtöku af alvöru Fulltrúar í bæjarstjórn Seyðisfjarðar eru tilbúnir að skoða af fullri alvöru að innheimta veggjöld í Fjarðarheiðargöng verði það til þess að flýta fyrir framkvæmdum. Formaður bæjarráðs segir tíðindi í síðustu viku skapa vendipunkt í gangabaráttunni. „Bæjarstjórn hefur áður ...
http://www.austurfrett.is/frettir/treysta-a-thingmenn-adh-beita-ser-fyrir-fjardharheidhargoengum
Treysta á þingmenn að beita sér fyrir Fjarðarheiðargöngum Bæjarráð Seyðisfjarðarkaupstaðar lýsir yfir miklum vonbrigðum með að ekki sé útlit fyrir að framkvæmdir við Fjarðarheiðargöng hefjist fyrr en eftir tíu ár, samkvæmt samgönguáætlun sem lögð var fyrir Alþingi nýverið. Í bókun bæjarráðs frá í síðustu viku segir að ...
http://www.austurfrett.is/frettir/her-vil-eg-vera-og-vinna-fyrir-mitt-folk
„Hér vil ég vera og vinna fyrir mitt fólk“ Inga Rún Sigfúsdóttir, félagsráðgjafi og fjölskyldufræðingur, opnaði nýverið fyrirtækið Fjölskylduþjónustu Austurlands á Reyðarfirði. Markmið þess er að veita persónulega og faglega þjónustu sem mætir þörfum skjólstæðinga. Inga Rún hefur meira og minna starfað sem félagsráðgja...
http://www.austurfrett.is/frettir/helgin-vid-smidum-dagskrana-eftir-torfum
Helgin: „Við smíðum dagskrána eftir þörfum“ Haustroðinn er árlegur viðburður sem mörgum þykir mjög vænt um og það mætti efla hann og styrkja í allar áttir,“ segir Dagný Erla Ómarsdóttir, verkefnastjóri uppskeru- og markaðshátíðarinnar Haustroða sem fram fer á Seyðisfirði á morgun, laugardag. „Segja má að með Haustroðan...
http://www.austurfrett.is/frettir/okkur-finnst-toerf-a-ad-raeda-gedheilbrigdismal
„Okkur finnst þörf á að ræða geðheilbrigðismál“ Á morgun, föstudag, verður opið geðheilbrigðisþing í Valaskjálf á Egilsstöðum undir yfirskriftinni Batnandi fólki er best að lifa: Samtal um geðheilbrigði. Það eru Rauði krossinn á Héraði- og Borgarfirði eystra, HSA, félagsþjónusta Fljótsdalshéraðs og Hugarafl sem standa ...
http://www.austurfrett.is/frettir/itreka-oskir-um-adh-ahrif-a-hofsa-verdhi-skodhudh-vandlega
Ítreka óskir um að áhrif á Hofsá verði skoðuð vandlega Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps leggur áherslu á að vel verði hugað að áhrif virkjunar í Þverá á búsetusvæði laxa sem ganga í Hofsá þegar umhverfisáhrif virkjunarinnar verða metin. Sveitarstjórn tók matsáætlun virkjunarinnar til umræðu á fundi sínum í síðustu viku...
http://www.austurfrett.is/frettir/alcoa-styrkir-nam-i-idhn-og-taekninam-a-fljotsdalsheradhi
Alcoa styrkir nám í iðn- og tæknigreinum á Fljótsdalshéraði Tveir ungir nemendur af leikskólanum Hádegishöfða í Fellabæ veittu í vikunni móttöku styrk úr samfélagssjóði Alcoa til sveitarfélagsins Fljótsdalshéraðs. Styrkurinn er ætlaður til að bæta kennslu í raunvísindatengdum greinum. Styrkurinn er upp á 80 þúsund doll...
http://www.austurfrett.is/frettir/vilja-adh-tekidh-verdhi-tillit-til-umhverfissjonarmidha-og-dyravelferdhar-vidh-opinber-innkaup-a-matvoeru
Vilja að tekið verði tillit til umhverfissjónarmiða og dýravelferðar við opinber innkaup á matvöru Tveir þingmenn úr Norðausturkjördæmi eru meðal flutningsmanna að tillögu til þingsályktunar um vistvæn opinber innkaup á matvöru. Markmið frumvarpsins er bætt velferð dýra og verndun umhverfis. Samkvæmt tillögunni er fjár...
http://www.austurfrett.is/frettir/vid-erum-liklega-ad-vera-fyrirmynd-adh-einhverju-leyti
„Við erum líklega að verða fyrirmynd að einhverju leyti“ Enn eitt aðsóknarmetið var slegið á Tæknidegi fjölskyldunnar sem haldinn var í Verkmenntaskóla Austurlands síðastliðinn laugardag, en verkefnastjóri telur að um 1700 manns hafi mætt á staðinn. „Í fyrra skrifuðu sig um 1200 manns í gestabókina og þá töldum við að ...
http://www.austurfrett.is/frettir/kom-betri-kennari-heim-fra-kina
Kom betri kennari heim frá Kína „Það skiptir öllu máli að læra tungumálið í því samfélagi sem þú býrð, það er erfitt að komast inn í það án þess og mikil hætta á að lenda utanveltu,“ segir Berglind Einarsdóttir kennari, en metþátttaka hefur verið í íslenskukennslu á vegum Austurbrúar í Djúpavogshreppi að undanförnu. Um...
http://www.austurfrett.is/frettir/urskurdhir-hafa-ekki-ahrif-a-laxeldi-eystra
Úrskurðir hafa ekki áhrif á laxeldi eystra Nýir úrskurðir um starfsleyfi fiskeldis á Austfjörðum hafa ekki áhrif á rekstur laxeldir á Austfjörðum. Þeir kunna hins vegar að hafa áhrif á starfsleyfi sem sótt hefur verið um. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi fyrir helgi úr gildi ákvarðanir Umhverfisstonunar...
http://www.austurfrett.is/frettir/eitt-er-vist-tad-verdur-gaman
Eitt er víst – það verður gaman! „Að mörgu þarf að huga og núna er aðalmálið að finna gott fólk á svæðinu sem skipar í nefndir og önnur fjölbreytt verkefni sem þarf að manna,“ segir Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Ungmennafélags Íslands, en Landsmót UMFÍ 50+ verður haldið í Neskaupstað næsta sumar. Landsmó...
http://www.austurfrett.is/frettir/gavin-morrison-verdur-forstodumadur-skaftfells-a-seydisfirdi
Gavin Morrison verður forstöðumaður Skaftfells á Seyðisfirði „Mér finnst mjög áhugavert hversu stóru hlutverki Skaftfell gegnir fyrir Seyðisfjörð sem menningar, félagsleg og fræðslumiðstöð fyrir samfélagið og gesti,” segir Gavin Morrison, sem ráðinn hefur verið sem forstöðumaður Skaftfells - myndlistarmiðstöð Austurlan...
http://www.austurfrett.is/frettir/vandamalidh-adh-allir-eru-a-sumardekkjum
Vandamálið að allir eru á sumardekkjum Talsverður erill var hjá lögreglu og björgunarsveitum í gær við að aðstoða ferðalanga í vandræðum á fjallvegum. Tvær bílveltur voru tilkynntar og tveir árekstrar á Breiðdalsheiði. Dagurinn byrjaði með bílveltu á Öxi um klukkan ellefu og skömmu síðar var tilkynnt um aðra veltu á Jö...
http://www.austurfrett.is/frettir/hvit-frodha-vall-upp-ur-brunni
Hvít froða vall upp úr brunni Ekki er vitað hvaðan hvít froða, sem vall upp úr brunni á mótum Fénaðarklappar og Kaupvangs á Egilsstöðum í dag, kom. Froðan vakti nokkra athygli vegfarenda. Froðan vall upp úr brunninum milli tvö og þrjú í dag. Einhverjir héldu að það væri farið að snjóa en þegar nánar var að gáð reyndist...
http://www.austurfrett.is/frettir/leikum-okkur-ad-sildinni
„Leikum okkur að síldinni“ „Megintilgangurinn með þessu verkefni er að hafa gaman og sýna fram á möguleikana sem liggja í síldinni sem og öðrum afurðum Austurlands,“ segir smurbrauðsjómfrúin Tinna Rut Ólafsdóttir, um „síldarsmakk“ sem verður á Randúlfssjóhúsi á Eskifirði í kvöld. Tinna Rut er búsett á Norðfirði og vann...
http://www.austurfrett.is/frettir/stjornutjaldid-verdur-mikil-upplifun-fyrir-alla
Stjörnutjaldið verður mikil upplifun fyrir alla „Fjöldi þeirra sem mætir til okkar fer vaxandi ár frá ári, en um 1500 gestir komu í fyrra,“ segir Þorbjörg Ólöf Jónsdóttir, áfangastjóri Verkmenntaskóla Austurlands, en Tæknidagur fjölskyldunnar verður haldinn í skólanum næstkomandi laugardag. Þetta er í sjötta sinn sem A...
http://www.austurfrett.is/frettir/skodha-tharf-ahrif-virkjunar-a-laxfiska-i-hofsa
Skoða þarf áhrif virkjunar á laxfiska í Hofsá Skoða þarf möguleg áhrif af virkjun Þverár í Vopnafirði á uppeldisstöðvar fyrir laxfiska sem veiðast í Hofsár. Ger er ráð fyrir tveggja hektara uppistöðulóni og vatni verði miðlað um niðurgrafna pípu niður í stöðvarhús á láglendi. Þetta kemur fram í tillögu að matsáætlun se...
http://www.austurfrett.is/frettir/gangnamalin-fyrirferdhamikil-fyrstu-dagana
Gangnamálin fyrirferðamikil fyrstu dagana Aðalheiður Borgþórsdóttir tók við starfi bæjarstjóra Seyðisfjarðarkaupstaðar í byrjun vikunnar. Hún segist hlakka til að takast á við starfið þótt mikið af verkefnum bíði hennar. „Mér líst vel á þetta. Þetta er dálítið yfirþyrmandi til að byrja með, það er mikið af verkefnum se...
http://www.austurfrett.is/frettir/medh-tvo-tveggja-metra-menn-til-verndar-a-fundum-medh-starfsmannaleigum
Með tvo tveggja metra menn til verndar á fundum með starfsmannaleigum Framkvæmdastjóri AFLs starfsgreinafélags segist sleginn en ekki hissa á frásögnum í fréttaskýringaþættinum Kveik á RÚV í gærkvöldi um meðferð á erlendu starfsfólki sem þrælað er út nánast kauplaust. Hann segir slíka meðferð ekki geta viðgengist nema ...
http://www.austurfrett.is/frettir/lidhsheildin-ordin-sterk-i-lokaaefingunni
Liðsheildin orðin sterk í lokaæfingunni „Meginmarkmið með æfingu sem þessari er að æfa flugslysaáætlun en hana má heimfæra á öll hópslys og því má segja að verið sé að efla hópslysaviðbragð í umdæminu,“ segir Elva Tryggvadóttir, verkefnastjóri neyðarviðbúnaðar hjá Isavia, en hún stýrði flugslysaæfingu ISAVIA og almanna...
http://www.austurfrett.is/frettir/nyja-bokin-er-frekar-politisk
„Nýja bókin er frekar pólitísk“ Önnur bók listamannsins Hafsteins Hafsteinssonar á Norðfirði kemur út í október og ber nafnið „En við erum vinir“. Um sjálfstætt framhald fyrri bókar hans er að ræða. Hafsteinn gaf út bókina „Enginn sá hundinn“ árið 2016. Hún var tilnefnd til barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar fyrir be...
http://www.austurfrett.is/frettir/ekki-stadha-sem-seydhfirdhingar-edha-austfirdhingar-geta-unadh
„Ekki staða sem Seyðfirðingar eða Austfirðingar geta unað“ Forseti bæjarstjórnar á Seyðisfirði segir það áfall að ekki sé gert ráð fyrir framkvæmdum við Fjarðarheiðargöng fyrr en eftir tíu ár í nýrri samgönguáætlun. Seyðfirðingar binda vonir við að áætlunin breytist í meðförum Alþingis. „Þetta er vægt til orða tekið gr...
http://www.austurfrett.is/frettir/nyr-vegur-um-vatnsskardh-a-naesta-ari
Nýr vegur um Vatnsskarð á næsta ári Nýr vegur um Vatnsskarð eystra verður stærsta nýframkvæmdin í vegagerð á Austurlandi á næstu árum verði fimm ára samgönguáætlun samþykkt óbreytt. Hún var formlega lögð fram á Alþingi í gær. Endurbyggja á veginn til Borgarfjarðar eystra algjörlega á tímabilinu. Á næsta ári er bæði ger...
http://www.austurfrett.is/frettir/bornin-eru-alveg-dolfallin
„Börnin eru alveg dolfallin“ „Pétur og úlfurinn er sígilt verk sem Bessi Bjarnason gerði ódauðlegt fyrir okkur öll á sínum tíma,“ segir Karna Sigurðardóttir, forstöðukona Menningarstofu Fjarðabyggðar, en kvintettinn NA5 flytur verkið í Fellabæ og á Breiðdalsvík á laugardaginn. Um samstarfsverkefni við Tónlistarmiðstöð ...
http://www.austurfrett.is/frettir/fjardhabyggdh-hafnadhi-beidhni-eistnaflugs-um-tveggja-milljona-styrk
Fjarðabyggð hafnaði beiðni Eistnaflugs um tveggja milljóna styrk Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur hafnað beiðni tónlistarhátíðarinnar Eistnaflugs um tveggja milljóna króna styrk fyrir næsta ár. Enn er verið að greiða úr skuldum eftir hátíðina 2017. Í bókun bæjarráðs frá á mánudag segir að ráðið geti ekki orðið við beiðninn...
http://www.austurfrett.is/frettir/godir-hlutir-gerast-haegt
„Góðir hlutir gerast hægt“ Tehúsið Hostel á Egilsstöðum opnaði síðastliðið vor en húsið er upprunalega gamalt trésmíðaverkstæði. Eigendurnir segja gildi starfseminnar vera gleði, sjálfbærni og heiðarleika. Áður en hjónin Halldór Warén og Agnes Brá Birgisdóttir festu kaup á húsinu var þar rekinn staðurinn Kaffi Egilssta...
http://www.austurfrett.is/frettir/okeypis-namskeid-i-pakistanskri-matargerd-a-seydisfirdi
Ókeypis námskeið í pakistanskri matargerð á Seyðisfirði „Þegar ég kom til landsins fyrir tíu árum síðan var ekki einu sinni hægt að kaupa turmeric í Bónus. Það er nú sem betur allt að breytast og ég vil taka þátt í þeirri breytingu,“ segir Azfar Karim frá Pakistan, sem ætlar að kenna matargerð frá sínu heimalandi á Sey...
http://www.austurfrett.is/frettir/vegagerdh-hafin-i-skridhdal
Vegagerð hafin í Skriðdal Framkvæmdir eru hafnar við nýjan veg fyrir botni Skriðdals. Héraðsverk er aðalverktaki við verkið sem á að vera klárt næsta haust. Framkvæmdir hófust um miðjan mánuðinn og er Héraðsverk búið að koma sér upp vinnubúðum fyrir botni Skriðuvatns. Byrjað er að taka skeringar undir fyllingar fyrir v...
http://www.austurfrett.is/frettir/heradhsverk-baudh-laegst-i-njardhvikurskridhur
Héraðsverk bauð lægst í Njarðvíkurskriður Héraðsverk átti lægsta tilboðið í vegagerð um Njarðvíkurskriður en það var nokkuð yfir kostnaðaráætlun. Þetta kom í ljós þegar tilboð í verkið voru opnuð hjá Vegagerðinni í gær. Tvö tilboð bárust, annars vegar frá Héraðsverki sem bauð tæpar 250 milljónir en hins vegar frá Þ.S. ...
http://www.austurfrett.is/frettir/thrautreyndur-thjofur-daemdur-i-18-manadha-fangelsi
Þrautreyndur þjófur dæmdur í 18 mánaða fangelsi Héraðsdómur Suðurlands dæmdi nýverið pólskan karlmann í eins og hálfs árs fangelsi fyrir fjölmörg innbrot hérlendis, meðal annars á Austfjörðum. Rétt þótt að hneppa manninn í fangelsi í ljósi langs brotaferils víða um Evrópu. Karlmaðurinn var handsamaður eystra í lok júní...
http://www.austurfrett.is/frettir/svidhssetja-leit-adh-flugvel-i-fljotinu
Sviðssetja leit að flugvél í fljótinu Íbúar á Fljótsdalshéraði eiga hvorki að láta sér bregða við að sjá ljós á Lagarfljóti í kvöld né reyk stíga upp frá flugvellinum á Egilsstöðum á laugardag. Hvort tveggja mun eiga uppruna sinn í flugslysaæfingu sem haldin verður um helgina. Í æfingunni um helgina verður bæði um að r...
http://www.austurfrett.is/frettir/jakkafatajoga-a-egilsstodum
Jakkafatajóga á Egilsstöðum „Jakkafatajóga eru jógatímar sem eru sérsniðnir að fólki á vinnutíma. Við mætum á staðinn á fyrirfram ákveðnum tíma í samráði við stjórnendur. Leiðum stuttan og hnitmiðaðan jógatíma sem tekur aðeins 20 mínútur þannig að nú er engin afsökun að segjast ekki hafa tíma fyrir heilsuræktina þegar ...
http://www.austurfrett.is/frettir/umfjollun-um-austurland-i-skotuliki-i-utvarpi-og-sjonvarpi-allra-landsmanna
Umfjöllun um Austurland í skötulíki í útvarpi og sjónvarpi allra landsmanna „Öflug fréttaþjónusta eykur vitund íbúanna um landshlutann sinn, gæði hans, drifkraft, þróun og öflugt mannlíf auk þess sem það vekur alla landsmenn til vitundar um tilveru hans og hlutverk í samfélaginu öllu,“ segir Jóney Jónsdóttir, verkefnas...
http://www.austurfrett.is/frettir/allir-thurfa-ad-berjast-vid-skrimslid-undir-ruminu
Allir þurfa að berjast við skrímslið undir rúminu Námskeiðið miðar að því að hvetja ungt fólk til þess að sjá tækifærin og framkvæma hugmyndir. Ég mun fara yfir mína reynslu, hvað hefur virkað fyrir mig og hvað ég er að læra og tileinka mér á hverjum degi,“ segir tónlistamaðurinn Jón Hilmar Kárason verður með spennandi...
http://www.austurfrett.is/frettir/tad-vantar-alltaf-blod
„Það vantar alltaf blóð“ Blóðbankinn verður með blóðsöfnun á heilsugæslunni Egilsstöðum í dag og á heilsugæslu Alcoa Fjarðaáls seinnipartinn á morgun. Hjúkrunarfræðingur hjá Blóðbankanum vill hvetja íbúa til þess að koma og gefa blóð. Ef þú ert á aldrinum 18-65 ára, yfir 50 kíló að þyngd og við góða heilsu gætir þú ger...
http://www.austurfrett.is/frettir/tarna-er-landid-okkar-gudni-tarna-er-island
„Þarna er landið okkar, Guðni, þarna er Ísland“ Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson og frú Eliza Reid voru í opinberri heimsókn á Borgarfirði eystri, Fljótsdalshéraði og í Fljótsdalshreppi á dögunum. Í ferðinni heimsóttu þau skóla, stofnanir og fyrirtæki og hittu fjölmarga íbúa að máli. Þetta var fyrsta opinbera hei...
http://www.austurfrett.is/frettir/salthusmarkadurinn-lokar-og-noto-opnar
Salthúsmarkaðurinn lokar og Notó opnar Á laugardaginn er síðasti opnunardagur sumarsins í Salthúsmarkaðnum á Stöðvarfirði þar sem heimamenn selja fjölbreytt handverk. Þann 6. október verður hins vegar fyrsti opnunardagur vetrarins í nytjamarkaðnum Notó á Djúpavogi sem foreldrafélagið á staðnum heldur utan um sem fjáröf...
http://www.austurfrett.is/frettir/tetta-er-nanast-lygilega-einfalt
„Þetta er nánast lygilega einfalt“ „Námskeiðið er ótrúlega skemmtilegt en á sama tíma mjög lærdómsríkt. Fólk fer út með verkfæri sem getur haft jákvæð áhrif á alla þætti lífsins,“ segir Bjartur Guðmundsson hjá Optimized Performance, en hann verður með námskeiðið „Óstöðvandi í topp tilfinningalegu ástandi“ á Egilsstöðum...
http://www.austurfrett.is/frettir/sigidh-minnkar-i-berufirdhi
Sigið minnkar í Berufirði Heldur hefur hægst á siginu í nýja veginum yfir Berufjörð að undanförnu þótt það sé ekki hætt. Sýni hafa verið tekin úr botninum undir landfyllingunni til að greina jarðlög. Í svari við fyrirspurn Austurfréttar segir að sigsvæðið hafi að undanförnu minnkað að umfangi og sé nú mest á 50-100 met...
http://www.austurfrett.is/frettir/malverkasyning-og-fjoltefli-a-egilsstadaflugvelli
Helgin: Málverkasýning og fjöltefli á Egilsstaðaflugvelli Mikið verður um að vera á Egilsstaðaflugvelli um helgina, en þar opnar málverkasýning Tolla í dag og morgun býður Hjörvar Steinn Grétarsson skákmeistari til fjölteflis í flugstöðinni. „Á síðasta ári kom ég að máli við Isavia með þá hugmynd að nýta húsakostinn á ...
http://www.austurfrett.is/frettir/bilvelta-i-halku-a-fjardharheidhi
Bílvelta í hálku á Fjarðarheiði Bílvelta varð á Fjarðarheiði snemma í morgun. Krapi er víða á fjallvegum en umferð hefur að öðru leyti gengið áfallalaust það sem af er degi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu valt bifreiðin við Heiðarvatn á Fjarðarheiði um klukkan sjö í morgun. Ökumaður var einn í bílnum og var fluttur ...
http://www.austurfrett.is/frettir/hyggjast-beina-vidhskiptum-fra-vis
Hyggjast beina viðskiptum frá VÍS Sveitarfélagið Fjarðabyggð mun ekki framlengja samninga sína við Vátryggingafélag Íslands í mótmælaskyni við ákvörðun fyrirtækisins að loka skrifstofu sinni á Reyðarfirði. Þetta kemur fram í bókun frá fundi bæjarráðs í gær. VÍS tilkynnti í síðustu viku að þjónustuskrifstofum fyrirtækis...
http://www.austurfrett.is/frettir/motmaela-naumum-hlut-austurlands-a-samgoenguaaetlun
Mótmæla naumum hlut Austurlands á samgönguáætlun Stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi skorar á samgönguráðherra að hafa samráð við landshlutasamtök áður en endanleg drög að samgönguáætlun verða lögð fram. Ekki verður byrjað á Fjarðarheiðargöngum næstu tíu árin miðað við fyrstu drög. Fyrir helgi bárust fréttir af...
http://www.austurfrett.is/frettir/landsnet-medh-vidhbunadh-ut-af-moegulegri-isingu
Landsnet með viðbúnað út af mögulegri ísingu Landsnet sendi í morgun frá sér viðvörun um möguleg áhrif mikillar úrkomu og slyddu sem von er á í nótt á flutningskerfi raforku á Austurlandi. Vakt er á svæðinu en ekki er talið að veðrið hafi teljandi áhrif á kerfið. „Það er bakki með ákafri úrkomu sem fer suður yfir austa...
http://www.austurfrett.is/frettir/vis-sameinar-skrifstofur-a-egilsstoedhum-og-reydharfirdhi
VÍS sameinar skrifstofur á Egilsstöðum og Reyðarfirði Vátryggingafélag Íslands hefur ákveðið að sameina þjónustuskrifstofur sínar á Egilsstöðum og Reyðarfirði frá og með næstu mánaðarmótum. Breytingin er hluti af endurskipulagningu þjónustumiðstöðva VÍS. Í tilkynningu frá fyrirtækinu í gær segir að framtíðarsýn þess ha...
http://www.austurfrett.is/frettir/sjalfsagt-adh-baendur-a-naestu-baejum-nyti-jardhirnar
Sjálfsagt að bændur á næstu bæjum nýti jarðirnar Tveir danskir auðmenn, sem saman eiga fimm jarðir á Fljótsdalshéraði, hyggjast nýta eftirlaunaárin til að verja meiri tíma á Íslandi. Í samfloti við annan félaga eiga þeir hlut í sjöttu jörðinni í Breiðdal. Svisslendingurinn Rudolf Walter Lamprecth hefur nýverið keypt fj...
http://www.austurfrett.is/frettir/i-von-um-betri-lidan-og-namsarangur
Í von um betri líðan og námsárangur Fræðslunefnd Fjarðabyggðar hefur lagt til að nemendum verði bannað að koma með snjalltæki í skóla. Í umsögn skólastjórnenda í Fjarðabyggð um tillögu bæjarráðs segir að snjalltæki spili stóra rullu í kennslu og sveitarfélagið verði að tryggja öllum nemendum aðgang að slíkum tækjum til...
http://www.austurfrett.is/frettir/snilldin-felst-i-adh-opna-fyrir-umraedhuna
„Snilldin felst í því að opna fyrir umræðuna“ „Við heyrum oft að fólk er með hugmyndir en veit ekki hvernig það á að bera sig að við að koma þeim á framfæri,“ segir Fanney Björk Friðriksdóttir, sem situr í menningarmálanefnd Vopnafjarðar, en nefndin biðlar nú til íbúa sveitarfélagsins að hugmyndum menningartengdum verk...
http://www.austurfrett.is/frettir/vonandi-verdur-tidarfarid-hagstaett
„Vonandi verður tíðarfarið hagstætt“ Áætlað er að framkvæmdir við endurbyggingu Borgarfjarðarvegar hefjist í haust, en Vegagerðin hefur óskað eftir tilboðum í verkið. Um er að ræða kaflinn er frá Ytri Hvannagilsá í Njarðvík og um Njarðvíkurskriður að Landsenda á Borgarfirði eystra, alls 4,8 kílómetrar. Sveinn Sveinsson...
http://www.austurfrett.is/frettir/spurning-hvort-putin-maeti-ekki-lika
„Spurning hvort Putin mæti ekki líka“ „Aðal vandræðin eru sú að fólk heldur að þetta sé bara eitthvað djók,“ segir Kristinn Jónasson á Eskifirði um aðkomu Valhallar að Rússneskum kvikmyndadögum á Íslandi. Valhöll á Eskifirði tekur þátt í Rússneskum Kvikmyndadögum á Íslandi en þar verða sýndar tvær myndir, annars vegar ...
http://www.austurfrett.is/frettir/tetta-er-nokkurs-konar-hradstefnumot
„Þetta er nokkurs konar hraðstefnumót“ „Þetta er mjög skemmtilegt framtak og frændur okkar Færeyingar vonast til þess að efla viðskiptasamband og samstarf fyrirtækja í Færeyjum og á Austurlandi,“ segir Jónína Brynjólfsdóttir, verkefnastjóri hjá Austurbrú, en Sendistofa Færeyja á Íslandi og Austurbrú standa fyrir fyrirt...
http://www.austurfrett.is/frettir/skrifadi-bref-til-sjalfar-sin-ur-framtidinni
Skrifaði bréf til sjálfar sín úr framtíðinni „Þetta var mjög gaman. Ég var alls ekki spennt fyrir þessu og bjóst ekki við miklu, en svo var þetta bara mjög skemmtilegt,“ segir Dagný Erla Gunnarsdóttir, nemandi í 9. bekk í Egilsstaðaskóla, um þátttöku sína í verkefninu Listalest Listaháskóla Íslands sem haldið var undir...
http://www.austurfrett.is/frettir/adalfundur-sambands-sveitarfelaga-a-austurlandi
Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Austurlandi 52. aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) var haldinn á Hallormsstað síðastliðna helgi. Kjörnir fulltrúar þeirra sjö sveitarfélaga sem mynda landshlutasamtökin samþykktu á fundinum sameiginlegar ályktanir landshlutans. Þá voru afhent Menningarverðlaun SSA ...
http://www.austurfrett.is/frettir/fjoegur-handtekin-fyrir-adh-raekta-kannabis
Fjögur handtekin fyrir að rækta kannabis Fjórir einstaklingar voru handteknir í gær þegar lögregla stöðvaði kannabisræktun í Fellabæ og á Breiðdalsvík. Í tilkynningu lögreglunnar segir að tveir karlar og tvær konur hafi verið handtekin í þágu rannsóknarinnar sem sé enn í gangi. Ekki er ljóst nákvæmlega hversu mikið mag...
http://www.austurfrett.is/frettir/folk-kemur-aftur-og-aftur
„Fólk kemur aftur og aftur“ „Námskeiðið er alltaf jafn vinsælt og fólk kemur allsstaðar að,“ segir Davíð Baldursson, sóknarprestur á Eskifirði, um gospelnámskeið sem nú er haldið í Tónleikamiðstöð Austurlands í sextánda skipti. Aðgangur er ókeypis á námskeiðið sem endar með glæsilegum tónleikum. Námskeiðið hefst í kvöl...
http://www.austurfrett.is/frettir/nemendum-tykir-mikid-sport-ad-vera-i-eins-vettlingum
Nemendum þykir mikið sport að vera í eins vettlingum Kvenfélag Reyðarfjarðar afhenti leikskólanum Lyngholti á Reyðarfirði áttatíu pör af vettlingum á dögunum. Eru þeir hugsaðir til þess að lána á litlar hendur þegar á þarf að halda. „Við förum stundum út tvisvar til þrisvar á dag og eiga vettlingarnir það til að blotna...
http://www.austurfrett.is/frettir/baejarrad-fjardabyggdar-itrekar-bokun-sina-vegna-utgafu-laxeldisleyfa
Bæjarráð Fjarðabyggðar ítrekar bókun sína vegna útgáfu laxeldisleyfa Fyrirhuguð 10.000 tonna viðbótarframleiðsla á laxi í Reyðarfirði hefur verið til meðferðar í stjórnsýslunni frá árinu 2012. Umsóknarferlið hefur staðið í sex ár og engin lausn er í sjónmáli. Á fundi bæjarráðs Fjarðabyggðar í gær var eftirfarandi bókun...
http://www.austurfrett.is/frettir/vid-stefnum-hatt
„Við stefnum hátt“ „Það er mikill heiður og hvatning að fá slík verðlaun,“ segir Hákon Hansson formaður stjórnar Breiðdalsseturs, en hann veitti menningarverðlaunum SSA viðtöku á haustþingi samtakanna sem haldið var á Hallormsstað síðastliðna helgi. Menningarverðlaun SSA hafa verið veitt einstaklingi eða stofnun á Aust...
http://www.austurfrett.is/frettir/forsetahjonin-i-opinberri-heimsokn
Forsetahjónin í opinberri heimsókn Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson og frú Eliza Reid halda í opinbera heimsókn til Borgarfjarðar eystri, Fljótsdalshéraðs og Fljótsdalshrepps á morgun og lýkur henni á fimmtudag. Í ferðinni munu þau heimsækja skóla, stofnanir og fyrirtæki í þessum sveitarfélögum og hitta fjölmarga ...
http://www.austurfrett.is/frettir/madur-var-audvitad-bullandi-stressadur
„Maður var auðvitað bullandi stressaður“ „Efst í huga er þakklæti til viðskiptavina minna síðasta áratug og velvild í minn garð,“ segir Ingunn Eir Andrésdóttir, eigandi Snyrtistofu Ingunnar, en tíu ár er síðan hún opnaði og af því tilefni verður boðið til veislu þar í dag. Ingunn Eir er Eskfirðingur en maður hennar Pál...
http://www.austurfrett.is/frettir/tad-tydir-ekki-ad-bida-endalaust
„Það þýðir ekki að bíða endalaust“ „Nýsköpun er lykillinn að framþróun allra samfélaga og er því nauðsynlegt að koma í veg fyrir stöðnun og jafnvel hnignun þeirra samfélaga sem hafa reitt sig á svipaðan atvinnubúskap ár frá ári,“ segir Daníel G. Daníelsson, verkefnafulltrúi hjá Icelandic Startups, sem hvetur alla til a...
http://www.austurfrett.is/frettir/vid-kollum-eftir-mjolkurfraedinemum
„Við köllum eftir mjólkurfræðinemum“ „Stéttin er að eldast og það eru ekki nema þrír til fjórir í náminu á ári þannig að endurnýjunin er ekki næg,“ segir mjólkurfræðingurinn Þorsteinn Ingi Steinþórsson, sem stóð vaktina fyrir útibú Mjólkursamsölunnar á Egilsstöðum á náms- og atvinnulífssýningunni Að heiman og heim. Hjá...
http://www.austurfrett.is/frettir/gestir-ferdast-500-ar-aftur-i-timann-med-hjalp-taekninnar
Gestir ferðast 500 ár aftur í tímann með hjálp tækninnar Nýtt sýndarveruleikaherbergi hefur verið opnað í Gunnarshúsi á Skriðuklaustri. Þar býðst gestum að stíga inn í fortíðina og skoða byggingar miðaldaklaustursins með hjálp nýjustu tækni. „Þetta er fyrsta gerð af sýndarveruleika af miðaldraklaustrinu og mun stafræn ...
http://www.austurfrett.is/frettir/eg-spai-tvi-ad-borgarfjoerdur-eystri-verdi-bali-nordursins
„Ég spái því að Borgarfjörður eystri verði Balí norðursins“ „Ég þreytist ekki á að breiða boðskapinn um mikilvægi öndunar, slökunar og sjálfsumhyggju,“ segir Sigrún Halla Unnarsdóttir en hún stendur fyrir jógahelgi á Borgarfirði eystra ásamt Auði Völu Gunnarsdóttur um miðjan september. „Ég hef ekki enn hitt þann einsta...
http://www.austurfrett.is/frettir/fyrsta-menningarhatid-barna-og-ungmenna-sem-haldin-er-i-heilum-landshluta
„Fyrsta menningarhátíð barna- og ungmenna sem haldin er í heilum landshluta“ „Þetta er fyrsta hátíðin og sem vonandi er komin til að vera og verður enn öflugri á næstu árum,“ segir Signý Ormarsdóttir um menningarhátíð barna- og ungmenna (BRAS) sem sett verður á laugardaginn og stendur út september. Hátíðin er áhersluve...