Search is not available for this dataset
url stringlengths 21 288 | text stringlengths 1 1.35M |
|---|---|
http://www.austurfrett.is/frettir/moeguleikarnir-eru-nokkurn-veginn-endalausir | „Möguleikarnir eru nokkurn veginn endalausir“
Heilbrigðisstofnun Austurlands sýndi nýjan fjarlækningabúnað á náms- og atvinnulífssýningunni Að heiman og heim. Hrönn Garðarsdóttir, yfirlæknir á Egilsstöðum, segir búnaðinn kærkomna viðbót við tækjakost HSA og muni hjálpa til við það erfiða landslag sem stofnunin stríðir ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/tetta-er-tad-erfidasta-sem-vid-hofum-gert-hingad-til | „Þetta er það erfiðasta sem við höfum gert hingað til“
„Markmið söfnunarinnar er að styrkja börnin og fjölskyldu á erfiðum tíma. Sorgin er næg þótt fjárhagsáhyggjur bætist ekki ofan á,“ segir Anna Hólm Stefánsdóttir á Egilsstöðum, systir Írisar Daggar Stefánsdóttur, sem lést aðfaranótt miðvikudags eftir að hafa fengið ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/eg-er-ekki-med-neinar-tofralausnir-en-ofsalega-god-verkfaeri | „Ég er ekki með neinar töfralausnir en ofsalega góð verkfæri“
Ásthildur Kristín Garðarsdóttir, sem stendur fyrir sjálfsræktarnámskeiðinu Jákvæð sálfræði og núvitund á Egilsstöðum um miðjan mánuðinn.
Ásthildur Kristín er kennari að mennt og einnig með master í jákvæðri sálfræði frá háskólanum í Árósum. Hún er nú að fara... |
http://www.austurfrett.is/frettir/forritun-er-faerni-til-framtidar | „Forritun er færni til framtíðar“
„Þegar ég tók við starfinu byrjaði ég á því að fara yfir stöðuna til þess að átta mig á því hvaða búnaður væri til og satt best að segja var hún ekki beisin,“ segir Birgir Jónsson, skólastjóri Grunnskóla Eskifjarðar, sem á dögunum barst höfðingleg gjöf frá Eskju til eflingar tæknikenns... |
http://www.austurfrett.is/frettir/soknudu-unga-folksins | Söknuðu unga fólksins
„Mætingin var mjög góð þó svo við hefðum viljað sjá fleiri af markhópnum okkar, sem var ungt fólk í efri bekkjum grunnskóla og framhaldsskólanemar,“ segir Bára Dögg Þórhallsdóttir, verkefnastjóri náms- og atvinnulífssýningarinnar Að heiman og heim, sem haldin var á Egilsstöðum síðastliðin laugarda... |
http://www.austurfrett.is/frettir/radhherra-heitir-adh-gera-thadh-sem-haegt-er-til-adh-manna-heilbrigdhisthjonustuna | Ráðherra heitir að gera það sem hægt er til að manna heilbrigðisþjónustuna
Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, segir að á næstu dögum muni líta dagsins ljós stefnumörkun sem að hluta nýtist til að bregðast við erfiðleikum í mönnun heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. Bundnar eru vonir við fjarheilbrigðisþjónus... |
http://www.austurfrett.is/frettir/aflamet-hja-gullveri-og-ljosafelli | Aflamet hjá Gullveri og Ljósafelli
Vel hefur fiskast á árinu hjá austfirskum skipum. Hin gamalgrónu fley Ljósafell og Gullver settu aflamet fyrr í mánuðinum.
Á heimasíðu Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði er greint frá því að Ljósafellið sé komið yfir fimm þúsund tonn af veiddum afla á yfirstandandi fiskveiðiári, sem lýk... |
http://www.austurfrett.is/frettir/nenad-haettur-hja-hetti-fannst-sem-thadh-vantadhi-nytt-blodh | Nenad hættur hjá Hetti: Fannst sem það vantaði nýtt blóð
Nenad Zivanoic, þjálfari Hattar í annarri deild karla í knattspyrnu, hefur komist að samkomulagi við stjórn félagsins að láta af störfum þegar í stað. Gamalreyndir Hattarar taka við liðinu með það að markmiði að bjarga því frá falli.
Tilkynnt var um starfslok Nen... |
http://www.austurfrett.is/frettir/mikilvaegt-adh-syna-unga-folkinu-hvadh-haegt-er-adh-fast-vidh-a-austurlandi | Mikilvægt að sýna unga fólkinu hvað hægt er að fást við á Austurlandi
Um 50 fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök kynna starfsemi sýna á náms- og atvinnulífssýningunni Að heiman og heim sem haldin er á Egilsstöðum í dag. Formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi segir mikilvægt að vekja reglulega athygli á fjölbreyt... |
http://www.austurfrett.is/frettir/syna-taekifaerin-sem-eru-a-austurlandi | Sýna tækifærin sem eru á Austurlandi
Um fimmtíu fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök munu taka þátt í náms- og atvinnulífssýningunni Að heiman og heim sem haldin verður um á laugardag í íþróttahúsinu á Egilsstöðum á vegum samtakanna Ungs Austurlands. Formaður samtakanna segir skipta máli að vekja athygli á þeim atvinnu... |
http://www.austurfrett.is/frettir/leyfismal-hreindyraveidhifolks-i-lagi | Leyfismál hreindýraveiðifólks í lagi
Leyfismál hreindýraveiðifólks virðast almennt vera í góðu lagi. Enginn hefur verið staðinn að ólöglegum veiðum en Umhverfisstofnun hefur undanfarna daga sinnt eftirliti með veiðunum.
Í tilkynningu frá stofnuninni segir að undanfarna daga hafi 28 veiðimenn verið verið stöðvaðir í fyl... |
http://www.austurfrett.is/frettir/meintir-innbrotsthjofar-enn-ofundnir | Meintir innbrotsþjófar enn ófundnir
Lögreglan á Austurlandi hefur ekki enn haft á aðilum sem grunaðir eru um að hafa haft í hyggju að fara inn í mannlaus hús á svæðinu í gær þrátt fyrir mikla leit. Lögreglan hefur hins vegar gefið út lýsingu á mönnunum. Í nógu var að snúast hjá lögreglunni um síðustu helgi.
Staðfest er... |
http://www.austurfrett.is/frettir/felld-tre-oedhlast-framhaldslif | Felld tré öðlast framhaldslíf
Fyrirtækið Skógarafurðir í Fljótsdal biðlar til garðeigenda að henda ekki trjám sem þeir hafa fellt í görðum sínum. Fyrirtækið býðst til að sækja trjáboli sem nýtilegir eru í framleiðslu.
„Við sækjum tré sem búið er að falla, í stað þess að urða þau þar sem þau verða að engu og það er dýr ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/frumkvoedhlar-laera-adh-virkja-ibua-i-brothaettum-byggdhum | Frumkvöðlar læra að virkja íbúa í brothættum byggðum
Alþjóðlegu verkefni sem miðar að því að efla frumkvöðla í brothættum byggðum var hleypt af stokkunum á Borgarfirði eystra í vikunni. Þátttakandi segir áhugavert að læra hvernig nýta megi kraftinn í heimafólki.
Byggðastofnun leiðir þátttöku Íslands í verkefninu, sem h... |
http://www.austurfrett.is/frettir/lykilatridhi-adh-lata-vita-ef-skrytinn-hlutur-finnst | Lykilatriði að láta vita ef skrýtinn hlutur finnst
Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar gerðu á mánudag óvirka sprengju sem fjórir ungir drengir í fjöruferð fundu í Seyðisfirði. Sprengjan var virk og ljóst að illa hefði farið ef hún hefði sprungið í meðförum drengjanna. Móðir segir mikilvægt að útskýra fyrir börnum... |
http://www.austurfrett.is/frettir/borgarfjoerdhurinn-half-moraudhur-i-morgun | Borgarfjörðurinn hálf mórauður í morgun
Sjórinn á Borgarfirði varð hálf mórauður á tíma í morgun vegna framburðar úr Fjarðará. Ekki er fyllilega ljóst hver uppruni efnisins er. Sjónarvottur segir hafa verið magnað að fylgjast með firðinum.
„Við vorum á leiðinni út í höfn milli tíu og ellefu. Þegar við komum upp á Hamar... |
http://www.austurfrett.is/frettir/varadh-vidh-grunsamlegum-mannaferdhum-i-neskaupstadh | Varað við grunsamlegum mannaferðum í Neskaupstað
Lögreglan á Austurlandi sendi fyrir stundu frá sér tilkynningu þar sem varað var við grunsamlegum mannaferðum í bænum.
Þar segir að borist hafi ábending um einstakling að banka á dyr í Neskaupstað. Atferli einstaklingsins sé í samræmi við lýsingar víðs vegar á landinu þa... |
http://www.austurfrett.is/frettir/affoell-a-dyrum-medh-stadhsetningartaeki-vegna-veidha | Afföll á dýrum með staðsetningartæki vegna veiða
Tvö dýr með staðsetningartæki á vegum Náttúrustofu Austurlands voru skotin við veiðar í vikunni. Forstöðumaður stofnunarinnar segir viðbúið afföll verði á merktum dýrum og leitast verði eftir að koma tækjunum á ný dýr.
Á heimasíðu Náttúrustofunnar er greint frá því að an... |
http://www.austurfrett.is/frettir/sjaldsedh-fluga-fannst-a-joekuldal | Sjaldséð fluga fannst á Jökuldal
Flugutegund úr sunnanverðri Evrópu kom óvænt fram á Jökuldal í byrjun mánaðarins. Tæpur áratugur er síðan slík fluga fannst síðast á Norðurlöndum. Vísbendingar eru um að stofninn sé óvenju stór í ár.
Flugan heitir á latnesku Aeshna affinis eða Southern migrant hawker eða Blue-eyed hawke... |
http://www.austurfrett.is/frettir/thad-vilja-allir-vera-med-aerslabelg | „Það vilja allir vera með ærslabelg“
„Mér sýnist belgurinn nýtast mjög vel, það eru alltaf krakkar á honum nema í mikilli rigningu,“ segir Jón Ólafur Eiðsson, meðlimur í foreldrafélagi Grunnskóla Reyðarfjarðar, en félagið stóð fyrir söfnun og uppsetningu ærslabelgs á Reyðarfirði í sumar.
Sannkallað ærslabelgjaæði hefur... |
http://www.austurfrett.is/frettir/alvarlegt-adh-ekki-seu-laeknar-medh-fasta-vidhveru-allt-aridh | Alvarlegt að ekki séu læknar með fasta viðveru allt árið
Bæjaryfirvöld á Seyðisfirði telja alvarlega stöðu í heilbrigðisþjónustu á staðnum. Forseti bæjarstjórnar á Seyðisfirði segir mönnun lækna á staðnum á sumrin ekki í takt við þörfina. Víða er erfitt að manna læknastöður á landsbyggðinni.
„Okkur hefur fundist fyrirk... |
http://www.austurfrett.is/frettir/tu-att-ad-geta-farid-ut-svifandi-a-skyi | „Þú átt að geta farið út svífandi á skýi“
„Mig hefur lengi dreymt um að stofna mitt eigið fyrirtæki, en ég hef meira og minna unnið við afgreiðslu- og þjónustustörf frá því ég var unglingur,“ segir Reyðfirðingurinn Vigdís Hallgrímsdóttir, sem lætur drauminn rætast með því að opna verslunina Gallerí 730 í Molanum á Reyð... |
http://www.austurfrett.is/frettir/vid-viljum-ad-voerumerkid-takn-verdi-gaedastimpill | „Við viljum að vörumerkið Tákn verði gæðastimpill“
„Við erum nýtt fyrirtæki og þróumst hratt og því er engin leið að segja hvað verður næstu mánuði,“ segir Auðbergur Gíslason, forsprakki hönnunarstofunnar Tákn, sem að mestu er skipuð austfirskum einstaklingum.
Auðbergur, sem sjálfur lærði framleiðslutækni með áherslu á... |
http://www.austurfrett.is/frettir/skugganefja-talin-hafa-rekidh-a-land-i-reydharfirdhi | Skugganefju talið hafa rekið á land í Reyðarfirði
Mögulegt er að tvær skugganefjur, hvalategund sem er fremur sjaldséð hér við land, hafi rekið upp á austfirskar strendur í vikunni. Óvenju marga hvali hefur rekið á austfirskar fjörur á árinu. Ekki er vitað hvað veldur.
Tilkynnt hefur verið um þrjá hvalreka á Austfjörðu... |
http://www.austurfrett.is/frettir/litidh-meiddur-eftir-veltu | Lítið meiddur eftir veltu
Ökumaður fólksbifreiðar má teljast heppinn að hafa sloppið lítið meiddur eftir út af akstur í Fjarðarheiði seinni part föstudags.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu mun bíllinn hafa farið út af veginum og oltið þar til hann hafnaði ofan í á.
Ökumaður var einn í bílnum og slapp lítið meiddur. Ti... |
http://www.austurfrett.is/frettir/helgin-sarin-sjast-ekki-alltaf-utan-a-folki | Helgin; „Sárin sjást ekki alltaf utan á fólki“
„Ég er sjálfur svo þakklátur fyrir að eiga góða geðheilsu og geri mér fulla grein fyrir því að það er alls ekki sjálfgefið. Þegar maður er hraustur finnst mér nauðsynlegt að láta eitthvað af hendi rakna og styðja þá sem þurfa á því að halda,“ segir Bjarni Þór Haraldsson á ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/ibuar-aminntir-um-adh-laesa-husum-og-bilum | Íbúar áminntir um að læsa húsum og bílum
Lögreglunni hefur ekki enn tekist að hafa hendur í hári þeirra sem grunaðir eru um að hafa brotist inn í hús í Fellabæ um miðjan mánuðinn. Þjófagengi hafa hrellt íbúa víða um land í sumar.
Austurfrétt greindi frá því nýverið að brotist hefði verið inn í tvö hús í Fellabæ. Hjá lö... |
http://www.austurfrett.is/frettir/fyrstu-dagarnir-hafa-farid-i-ad-kynnast-starfsfolkinu | Fyrstu dagarnir hafa farið í að kynnast starfsfólkinu
„Haustið leggst vel í mig og ég er mjög spenntur fyrir starfinu,“ segir Karl Óttar Pétursson, nýr bæjarstjóri Fjarðabyggðar, en hann kom til vinnu í síðustu viku.
Karl Óttar er 47 ára gamall og hefur undanfarin ár starfað sem forstöðumaður lögfræðisviðs Arion-banka.... |
http://www.austurfrett.is/frettir/vid-verdum-sjalf-ad-hafa-gaman-af-tessu | „Við verðum sjálf að hafa gaman af þessu“
Við hefjum leikinn formlega á morgun og dagskrá helgarinn fer að mestu fram í Blómabæjarhúsinu, sem sumir kalla Fóðurblönduhúsið,“ segir Jóhann G. Jóhannsson, annar þeirra sem fer fyrir Ormsteiti, héraðshátíð Fljótsdalshéraðs, þetta árið.
Ormsteiti er í umsjá Menningarsamtaka H... |
http://www.austurfrett.is/frettir/egilsstadhir-komnir-a-facebook | Egilsstaðir komnir á Facebook
Þeir sem búa, eða eru aldir upp á Egilsstöðum, geta nú loksins kennt sig við staðinn á Facebook. Markaðssérfræðingur segir mikilvægt fyrir sveitarfélög og aðra viðburðahaldara að geta tengt sig við ákveðna staði til að vekja athygli á vöru sinni.
Þeir sem búa á Egilsstöðum þekkja að erfitt... |
http://www.austurfrett.is/frettir/hreinsunaradhgerdhum-lokidh-a-faskrudhsfirdhi | Hreinsunaraðgerðum lokið á Fáskrúðsfirði
Hreinsunaraðgerðir virðast hafa gengið vel eftir að umtalsvert magn af olíu fór í sjóinn á Fáskrúðsfirði í gær. Skjót viðbrögð björguðu miklu.
„Við teljum að það hafi náðst að hreinsa ágætlega upp,“ segir Hákon Ásgrímsson, framkvæmdastjóri Fjarðabyggðarhafna en hafnaryfirvöld be... |
http://www.austurfrett.is/frettir/daemdur-fyrir-adh-tvikjalkabrjota-mann-medh-hnefahoeggi | Dæmdur fyrir að tvíkjálkabrjóta mann með hnefahöggi
Héraðsdómur Austurland hefur dæmt karlmann í 45 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að veita öðrum hnefahögg í andlitið með þeim afleiðingum að sá síðarnefndi tvíkjálkabrotnaði. Sá brotlegi taldist eiga sér málsbætur en þær réttlættu ekki gjörninginn.
Atvikið átti sér ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/kynningarfundur-um-nyjan-thjodhgardh | Kynningarfundur um nýjan þjóðgarð
Nefnd sem vinnur að tillögum um þjóðgarð á miðhálendinu heldur opinn kynningarfund um verkefnið á Egilsstöðum í dag.
Umhverfis- og auðlindaráðherra, skipaði nýverið þverpólitíska nefnd um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu. Í nefndinni eiga sæti fulltrúar allra þingflokka á Alþingi auk t... |
http://www.austurfrett.is/frettir/tad-var-kominn-timi-a-ad-endurnyja-tessi-svaedi | „Það var kominn tími á að endurnýja þessi svæði“
„Það eru allir bara mjög ánægðir með þessar framkvæmdir,“ segir Marinó Stefánsson, sviðsstjóri framvæmda umhverfissviðs Fjarðabyggðar um endurnýjum leiksvæða við grunnskólana á Reyðarfirði og Eskifirði.
Í sumar hefur verið unnið að endurbótum leiksvæða við grunnskólana á... |
http://www.austurfrett.is/frettir/eg-segi-ad-tetta-seu-ekki-bornin-her-i-baenum | „Ég segi að þetta séu ekki börnin hér í bænum“
„Maður er rosa hissa á að svona gerist hérna hjá okkur á litla Reyðarfirði, þetta er bara eitthvað sem maður sér í fréttunum,“ segir Sælín Sigurjónsdóttir á Reyðarfirði um skemmdarverk sem framin voru á eigum hennar aðfaranótt laugardags.
Sælín segir að allt hafi verið eðl... |
http://www.austurfrett.is/frettir/modir-eina-nemanda-grunnskola-mjoafjardar-kennir-honum-i-vetur | Móðir eina nemanda Grunnskóla Mjóafjarðar kennir honum í vetur
„Hún fékk val um að fara í burtu í vetur en hún gat ekki hugsað sér það,“ segir Erna Ólafsdóttir frá Mjóafirði sem mun í vetur kenna dóttur sinni Jóhönnu Björgu Sævarsdóttur sem er að fara í níunda bekk, en hún verður eini nemandinn í Grunnskóla Mjóafjarðar... |
http://www.austurfrett.is/frettir/daemdur-fyrir-adh-hota-loegregluthjonum-liflati | Dæmdur fyrir að hóta lögregluþjónum lífláti
Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt karlmann í 45 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir ólögmætan vopnaburð og hafa haft í hótunum við tvo lögregluþjóna.
Atvikið átti sér stað utan við veitingastað í lok febrúar. Maðurinn var ákærður fyrir að bera á sér lítinn vasahníf, sinna ekk... |
http://www.austurfrett.is/frettir/goegn-vantar-um-bryr-i-islenska-vegakerfinu | Gögn vantar um brýr í íslenska vegakerfinu
Takmörkuð gögn virðast til um framkvæmdir við brýr í íslenska vegakerfinu. Gögnin gætu nýst við viðhald brúanna og áhættugreiningu. Litlar áhyggjur virðist þurfa að hafa af austfirskum brúm.
Þetta kemur fram í nýrri samantekt verkfræðistofunnar Eflu fyrir Vegagerðina sem grein... |
http://www.austurfrett.is/frettir/islandspostur-opnar-a-nyjum-stadh-a-egilsstoedhum | Íslandspóstur opnar á nýjum stað á Egilsstöðum
Íslandspóstur opnaði í gær nýja afgreiðslu sína á Egilsstöðum. Pósturinn er nú kominn í Kaupvang 6 þar sem áður var byggingavörudeild Kaupfélags Héraðsbúa. Svæðisstjórinn segir gamla húsið ekki hafa hentað starfseminni lengur.
„Okkur líst mjög vel á þetta húsnæði. Þetta er... |
http://www.austurfrett.is/frettir/vel-gengur-adh-reisa-nytt-netaverkstaedhi | Vel gengur að reisa nýtt netaverkstæði
Framkvæmdir ganga vel við nýtt netaverkstæði Fjarðanets í Neskaupstað sem rís á nýrri landfyllingu austan loðnubræðslu Síldarvinnslunnar. Stefnt er að því að loka húsinu fyrir veturinn og taka það í notkun næsta vor.
„Þetta hefur gengið vel,“ segir Jón Einar Marteinsson, framkvæmd... |
http://www.austurfrett.is/frettir/sjo-milljonir-veittar-til-samfelagseflandi-verkefna-a-breidhdalsvik | Sjö milljónum veitt til samfélagseflandi verkefna á Breiðdalsvík
„Styrkirnir skipta mjög miklu máli og gera það að verkum að við getum byggt upp fjölbreyttara samfélag,“ Friðrik Árnason, eigandi Hótels Bláfells, en sjö milljónum króna úr verkefninu Breiðdælingar móta framtíðina var úthlutað til fjórtán samfélagseflandi... |
http://www.austurfrett.is/frettir/til-hvers-er-listaverkaradh-ef-thadh-er-ekki-nytt | Til hvers er listaverkaráð ef það er ekki nýtt?
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Fjarðabyggðar setja spurningamerki við hvernig staðið var að málum þegar ákveðið var að afþakka tilboð listamannsins Odee um að gefa sveitarfélaginu listaverkið Jötunheima á sundlaugina á Eskifirði. Meirihlutinn vill fara yfir ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/kvikmyndatoekur-i-oddsskardhi | Kvikmyndatökur í Oddsskarði
Nýjasta kvikmynd leikstjórans Hlyns Pálmasonar verður tekin upp í Oddsskarði í vikunni. Búast má við töfum á umferð um skarðið vegna þess.
Kvikmyndin er tekin upp á nokkrum stöðum um landið en í frétt Eystrahorns frá í júní kemur fram að aðaltökustaðurinn sé húsið Stekkaklettur sem stendur v... |
http://www.austurfrett.is/frettir/bruin-yfir-berufjoerdh-adh-vera-tilbuin | Brúin yfir Berufjörð að verða tilbúin
Ný brú yfir Berufjörð er að verða tilbúin. Verr hefur gengið með veginn að henni og útlit er fyrir að hinn nýi vegkafli verði ekki tilbúinn á tilsettum tíma.
Brúardekkið var steypt í einni lotu um miðja síðustu viku. Það tók um 20 klukkutíma og voru 12 steypubílar víðs vegar af lan... |
http://www.austurfrett.is/frettir/byggja-upp-fullkomna-thjonustumidhstoedh-fyrir-laxeldidh | Byggja upp fullkomna þjónustumiðstöð fyrir laxeldið
Egersund Island á Eskifirði hyggur á framkvæmdir á næstunni til að efla þjónustu við aukið laxeldi við Austfirði. Komið verður upp þvottastöð fyrir laxapoka sem verður sú fullkomnasta á landinu. Framkvæmdir á staðnum hefjast innan tíðar og verður stöðin klár til notku... |
http://www.austurfrett.is/frettir/inniraektun-er-skynsamleg-baedi-efnahags-og-umhverfislega | „Inniræktun er skynsamleg, bæði efnahags- og umhverfislega“
Ástralski hugvitsmaðurinn Chris Wilkins hefur í sumar byggt upp aðstöðu til að rækta bæði matjurtir og fiska í gömlu hænsnahúsi á Valþjófsstað í Fljótsdal. Hann segir inniræktun áhugaverðan valkost fyrir Íslendinga sem búi við langa, dimma vetur og flytji inn ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/strakum-lidur-illa-og-kunna-ekki-ad-bidja-um-hjalp | „Strákum líður illa og kunna ekki að biðja um hjálp“
„Einn daginn vöknuðum við upp við vondan draum. Allt í kring um okkur voru strákar, vinir okkar og kunningjar í blóma lífsins að deyja,“ segir Viktor Sigurjónsson, leikstjóri og framleiðandi stuttmyndarinnar Lífið á eyjunni sem tekin verður upp á Seyðisfirði í vikunn... |
http://www.austurfrett.is/frettir/tvaer-biladhar-flugvelar-a-leidh-til-og-fra-egilsstoedhum-i-dag | Tvær bilaðar flugvélar á leið til og frá Egilsstöðum í dag
Talsverð röskun hefur orðið á farþegaflugi til og frá Egilsstöðum í dag þar sem bilanir komu upp í tveimur vélum Air Iceland Connect. Önnur vélin átti að fara frá Egilsstöðum í morgun og hin að fara austur klukkan þrjú.
Eftir því sem Austurfrétt kemst næst kom ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/brotist-inn-i-tvoe-hus-i-fellabae | Brotist inn í tvö hús í Fellabæ
Lögreglan á Austurlandi leitar að einstaklingum sem grunaðir eru að hafa brotist inn í tvö hús í Fellabæ í gær. Grunur er um að reynt hafi verið að fara inn víðar.
Þær upplýsingar fengust hjá lögreglunni að síðustu daga hefði verið tilkynnt um að farið hefði verið inn í tvö hús í Fellabæ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/sektadhir-fyrir-utanvegaakstur | Sektaðir fyrir utanvegaakstur
Hver ökumaður þeirra þriggja jeppabifreiða sem um helgina keyrðu utanvegar við Þríhyrningsá á Fljótsdalshéraði greiddi í morgun 100.000 króna sekt fyrir spjöllin. Ljóst er að landið þarf áratugi til að jafna sig.
Fara þarf yfir ána á leiðinni frá Möðrudal inn að Vatnajökli. Þegar ferðalang... |
http://www.austurfrett.is/frettir/austfirdhingum-bodhidh-upp-a-heilsufarsmaelingar | Austfirðingum boðið upp á heilsufarsmælingar
SÍBS og samstarfsfélög bjóða íbúum Austurlands í ókeypis heilsufarsmælingu í næstu viku. Skorað er á alla þá sem ekki eru undir eftirliti heilbrigðisstarfsmanna og ekki þekkja gildin sín að nota tækifærið og fá mælingu.
Mældur er blóðþrýstingur, blóðfita, blóðsykur, súrefnis... |
http://www.austurfrett.is/frettir/hvorki-landeigendur-sveitarfelagidh-alfar-huldufolk-edha-adhrir-gatu-veitt-leyfi | „Hvorki landeigendur, sveitarfélagið, álfar, huldufólk eða aðrir gátu veitt leyfi“
Umhverfisstofnun skoðar hvort rétt hafi verið staðið að verki þegar veitt var leyfi til útskurðar í kletta í Stöðvarfirði fyrr á árinu. Tekist er á um skilgreiningu í náttúruverndarlögum um hvað teljist einstakt náttúrufyrirbrigði.
Umhve... |
http://www.austurfrett.is/frettir/tad-er-gullfoss-geysir-og-dinerinn | „Það er Gullfoss, Geysir og Dinerinn“
Skálinn Diner var opnaður á Egilsstöðum þann 1. maí síðastliðinn í því húsnæði sem Shell-skálinn var áður. Eins og nafnið gefur til kynna er um að ræða veitingastað að amerískri fyrirmynd.
Eigandi staðarins er Þráinn Lárusson en rekstrarstjóri er Björn Berg Pálsson. „Þráinn var búi... |
http://www.austurfrett.is/frettir/halslon-snemma-a-yfirfall | Hálslón snemma á yfirfall
Hálslón fór á yfirfall á föstudagskvöld. Einu sinni áður í rekstrarsögu Kárahnjúkavirkjunar hefur það gerst svo snemma. Rennsli þar er nú meira en í yfirstandandi Skaftárhlaupi.
Samkvæmt frétt frá Landsvirkjun fór lónið á yfirfall klukkan ellefu á föstudagskvöld. Tíu ár eru síðan það fylltist ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/vid-verdum-ad-bera-abyrgd-a-okkar-rusli-fram-a-sidustu-stundu | „Við verðum að bera ábyrgð á okkar rusli fram á síðustu stundu“
Nýrri og glæsilegri flokkunarsamstæðu hefur nú verið komið fyrir í miðbæ Djúpavogs en styrkur frá Uppbyggingarsjóði Austurlands hlaust til verksins í tengslum við Cittaslow-stefnu hreppsins.
Á heimasíðu Djúpavogshrepps segir að samstæðan sé góð leið til þe... |
http://www.austurfrett.is/frettir/seydhisfjoerdhur-minnihlutinn-vildi-radha-arnbjoergu-og-gagnrynir-radhningarferlidh | Seyðisfjörður: Minnihlutinn vildi ráða Arnbjörgu og gagnrýnir ráðningarferlið
Minnihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í bæjarstjórn Seyðisfjarðarkaupstaðar gagnrýnir vinnubrögð meirihluta Seyðisfjarðalistans við ráðningu nýs bæjarstjóra sem staðfest var á bæjarstjórnarfundi í gær vegna skorts á gögnum. Forseti... |
http://www.austurfrett.is/frettir/lykilatridhi-adh-sveitarstjornarfolk-setjist-saman-yfir-malin | „Lykilatriði að sveitarstjórnarfólk setjist saman yfir málin“
Páll Björgvin Guðmundsson, sem í lok júní lét af störfum sem bæjarstjóri Fjarðabyggðar eftir átta ára starf, segir það lykilatriði að sveitarstjórnarfólk á Austurlandi setjist niður og komi sér saman um hvaða baráttumál eigi að vera í forgangi. Núverandi fyr... |
http://www.austurfrett.is/frettir/vel-lukkudh-verslunarmannahelgi | Vel lukkuð verslunarmannahelgi
Verslunarmannahelgin var með friðsamara móti í umdæmi lögreglunnar á Austurlandi. Nokkuð var þó um að ökumenn væru teknir fyrir of hraðan akstur.
„Þetta er ein albesta verslunarmannahelgi sem ég hef upplifað,“ sagði Jónas Wilhelmsson, yfirlögregluþjónn, í samtali við Austurfrétt.
Stærsta ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/austfirskum-baendum-heimilt-adh-flytja-hey-til-noregs | Austfirskum bændum heimilt að flytja hey til Noregs
Bændum í fjórum af fimm varnarhólfum á svæðinu milli Jökulsár á Fjöllum og Jökulsár á Breiðamerkursandi er heimilt að flytja hey út til Noregs. Þetta eru niðurstöður athugunar Matvælastofnunar.
Ósk hefur borist frá Noregi um að fá keypt hey frá Íslandi en miklir þurrk... |
http://www.austurfrett.is/frettir/gekk-vel-adh-draga-velarvana-bat-til-hafnar | Gekk vel að draga vélarvana bát til hafnar
Björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar í Neskaupstað, Hafbjörg, var kölluð út rétt fyrir klukkan fimm í gær á fyrsta forgangi þegar Eyji NK varð vélarvana rétt utan Norðfjarðar.
Tveir skipverjar voru um borð og amaði ekkert að þeim.
Hafbjörg tók Eyja í tog og kom með ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/eins-og-i-betlehem-oell-gistiheimili-full-i-rigningunni-i-gaer | Eins og í Betlehem: Öll gistiheimili full í rigningunni í gær
Austfirsk gistiheimili neyddust til að vísa gestum frá í gærkvöldi sem leituðu skjóls undan miklum rigningum á landinu síðustu daga. Rekandi gistihúss segir ferðamennina almennt hafa verið vel búna en haft þörf fyrir að komast í skjól.
„Þetta var svolítið ei... |
http://www.austurfrett.is/frettir/amaelisvert-adh-slaka-a-oeryggiskroefum-thegar-buidh-er-adh-selja-skip | Ámælisvert að slaka á öryggiskröfum þegar skip eru seld
Rannsóknarnefnd samgönguslysa átelur harðlega að slakað sé á öryggiskröfum þótt skip séu að skipta um eigendur. Þetta er niðurstaða úr rannsókn nefndarinnar á slysi um borð um Barða NK, skipi Síldarvinnslunnar, í fyrrasumar.
Barði NK fór til nýrra eigenda í Rússla... |
http://www.austurfrett.is/frettir/hlyjasti-julimanudhur-sem-maelst-hefur-a-dalatanga | Hlýjasti júlímánuður sem mælst hefur á Dalatanga
Meðalhiti hefur aldrei mælst hærri í júlí á Dalatanga í sögu 80 ára veðurmælinga þar heldur en í nýafstöðnum mánuði. Hæsti meðalhiti á landinu var á Hallormsstað.
Meðalhitinn í júlí á Dalatanga var 10,2 gráður og er það hlýjasti júlímánuður sem mælst hefur í 80 ára sögu ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/eg-hefdi-ekki-nad-til-teirra-nema-med-hjalp-heimamanna | „Ég hefði ekki náð til þeirra nema með hjálp heimamanna“
„Við þurfum öll að hjálpast að og láta vita ef við sjáum eitthvað misjafnt,“ segir landvörðurinn Lára Björnsdóttir um síendurtekinn stuld á silfurbergi úr Helgustaðanámu við Eskifjörð.
Helgustaðanáma var friðlýst sem náttúruvætti árið 1975 sem merkir að ekki er h... |
http://www.austurfrett.is/frettir/jardhgoeng-og-husnaedhismal-efst-a-forgangslistanum | Jarðgöng og húsnæðismál efst á forgangslistanum
Aðalheiður Borgþórsdóttir var í gær ráðin nýr bæjarstjóri Seyðisfjarðarkaupstaðar. Aðalheiður þekkir vel hjá bænum þar sem hún var ferða- og menningarfulltrúi í 17 ár. Hún segist hlakka til við að vinna að eflingu staðarins.
„Ég hlakka til að takast á við þetta nýja verke... |
http://www.austurfrett.is/frettir/spennt-adh-halda-afram-nyjungum-i-skolastarfinu | Spennt að halda áfram nýjungum í skólastarfinu
Lilja Guðný Jóhannesdóttir hefur verið skipuð skólameistari Verkmenntaskóla Austurlands. Lilja hefur starfað í skólanum síðustu ár og segist spennt fyrir starfinu.
„Starfið leggst gífurlega vel í mig. Við höfum farið af stað með mikið af nýjungum á síðustu árum og það verð... |
http://www.austurfrett.is/frettir/eistnaflug-heitir-thvi-adh-taka-kynferdhisafbrotamal-foestum-toekum | Eistnaflug heitir því að taka kynferðisafbrotamál föstum tökum
Skipuleggjendur tónlistarhátíðarinnar Eistnaflugs í Neskaupstað hafa sent frá sér yfirlýsingu um að hátíðin taki það alvarlega ef gestum hennar séu byrluð lyf. Grunur er um tvö slík tilfelli á hátíðinni í ár.
Viðbrögð skipuleggjenda koma í kjölfar fréttar A... |
http://www.austurfrett.is/frettir/leitadh-adh-brennuvargi-i-neskaupstadh | Leitað að brennuvargi í Neskaupstað
Lögreglan á Austurlandi leitar að upplýsingum um íkveikju á gömlu leikskólalóðinni í Neskaupstað í fyrrakvöld. Mynd af verknaðinum hefur gengið á samfélagsmiðlum en af henni er ekki hægt að greina hver var að verki.
„Lögregla var kölluð til í fyrrakvöld ásamt slökkviliði. Þegar við k... |
http://www.austurfrett.is/frettir/fyrst-a-dagskranni-adh-kynnast-samfelaginu | Fyrst á dagskránni að kynnast samfélaginu
Þór Steinarsson, nýr sveitarstjóri á Vopnafirði, hóf störf hjá sveitarfélaginu í dag. Hann hlakkar til að kynnast staðnum og fólkinu sem þar býr og líst vel á sig í nýju umhverfi.
„Mér líst vel á þetta verkefni. Það er öflugt fólk í sveitarstjórninni, fjárhagsstaða sveitarfélag... |
http://www.austurfrett.is/frettir/tetta-er-eins-og-heimilisidnadur | „Þetta er eins og heimilisiðnaður“
„Við erum búnar að loka dæminu og nú er bara verið að huga að uppstillingu fyrir helgina,“ segir Guðrún Smáradóttir, en hún sér um skipulagningu fjölskylduhátíðarinnar Neistaflugs ásamt dætrum sínum Eyrúnu Björgu og Maríu Bóel Guðmundsdætrum.
„Þetta er eins og heimilisiðnaður, við vin... |
http://www.austurfrett.is/frettir/hert-umferdhareftirlit-um-helgina | Hert umferðareftirlit um helgina
Lögreglan á Austurlandi verður sýnileg á vegum umdæmisins um helgina. Von er á mikilli umferð þar sem tvær stórar hátíðir fara fram, annars vegar Bræðslan á Borgarfirði og hins vegar Franskir dagar á Fáskrúðsfirði.
„Við verðum með öflugt eftirlit, bæði með hrakaakstri og ölvunarakstri,“... |
http://www.austurfrett.is/frettir/jardhir-a-heradhi-i-erlendri-eigu | Jarðir á Héraði í erlendri eigu
Tveir Danir, sem auðgast hafa á matvælaframleiðslu, eiga saman þrjár jarðir á Jökuldal og í Jökulsárhlíð. Eyðibýli í Jökuldalsheið hefur bæst í safn Jim Ratcliffe. Svissneskur bankamaður keypti nýverið jörð í Fljótsdal, samkvæmt samantekt sem vikublaðið Austurglugginn birtir í dag.
Frétt... |
http://www.austurfrett.is/frettir/kalla-eftir-samtali-um-stoedhu-sjalfbodhalidha | Kalla eftir samtali um stöðu sjálfboðaliða
Forsvarsfólk Móður Jarðar sem rekur lífræna ræktun í Vallanesi á Fljótsdalshéraði kalla eftir samtali um hvað aukin viðurkenning á sjálfboðaliðavinnu við ýmis störf geti fyrir íslenskt þjóðfélag. AFL Starfsgreinafélag segir sjálfboðaliða sem notaðir séu í atvinnurekstri grafa ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/nokkrir-hafa-tegar-bokad-ser-gistingu-fyrir-naestu-braedslu | „Nokkrir hafa þegar bókað sér gistingu fyrir næstu Bræðslu“
„Helgin gekk alveg svakalega vel, við erum öll mjög ánægð með hvernig til tókst og höfum ekki heyrt neitt annað en gleði og meiri gleði,“ segir Bræðslustjórinn Áskell Heiðar Ásgeirsson um nýliðna helgi. Aukin löggæsla var á vegum í kringum Borgarfjörð og Egils... |
http://www.austurfrett.is/frettir/grunur-um-adh-tveimur-konum-hafi-veridh-byrludh-olyfjan | Grunur um að tveimur konum hafi verið byrluð ólyfjan
Lögreglan á Austurlandi hefur til skoðunar tvö mál frá þeirri helgi sem Eistnaflug var haldið í Neskaupstað þar sem grunur er um að konum hafi verið byrluð ólyfjan. Yfirlögregluþjónn segir málin alvarleg en erfið í rannsókn.
Austurfrétt hefur áður rætt við Margréti S... |
http://www.austurfrett.is/frettir/eg-vil-hvetja-smaframleidendur-til-ad-selja-a-tessum-markadi | „Ég vil hvetja smáframleiðendur til að selja á þessum markaði“
„Aðal hausverkurinn er að fjölga framleiðendum,“ segir segir Guðný Harðardóttir, einn af eigendum Breiðdalsbita og stjórnandi Matarmarkaðs Austurlands-REKO, en fyrsti markaðsdagurinn verður næstkomandi þriðjudag á Fóðurblönduplaninu við hliðina á Bónus á Eg... |
http://www.austurfrett.is/frettir/vilja-akvoerdhun-um-fjardharheidhargoeng-i-haust | Vilja ákvörðun um Fjarðarheiðargöng í haust
Bæjarstjórn Seyðisfjarðarkaupstaðar leggur áherslu á að Fjarðarheiðargöng sjáist á nýrri samgönguáætlun sem væntanleg er á Alþingi í haust. Rétt sé að farið verið í göngin strax að loknum Dýrafjarðargöngum.
Þetta kemur fram í áskorun sem fráfarandi bæjarstjórn samþykkti á síð... |
http://www.austurfrett.is/frettir/vilja-heilsarsveg-yfir-oexi-inn-a-samgoenguaaetlun | Vilja heilsársveg yfir Öxi inn á samgönguáætlun
Sveitarstjórn Djúpavogshrepps telur eðlilegt að ráðist verði í gerð heilsársvegar yfir Öxi í framhaldi af vegabótum í botni Skriðdals. Það sé í samræmi við ályktanir aðalfunda Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA).
Þetta kemur fram í áskorun sem samþykkt var á síðast... |
http://www.austurfrett.is/frettir/mikill-ahugi-a-hellisfirdhi | Mikill áhugi á Hellisfirði
Fasteignasali segir mikinn áhuga á jörðinni Hellisfirði í samnefndum firði sem auglýst var til sölu í byrjun vikunnar. Hinir áhugasömu telja það jafnvel kost að ekki sé akvegur í fjörðinn.
„Ég finn mjög mikinn áhuga, bæði innlendra sem erlendra aðila,“ segir Ævar Dungal, fasteignasali hjá Dom... |
http://www.austurfrett.is/frettir/fluor-yfir-vidhmidhunarmoerkum-i-juni | Flúor yfir viðmiðunarmörkum í júní
Flúor mældist yfir viðmiðunarmörkum í sýnum sem tekin voru í Reyðarfirði í júní. Hættara er við að flúorgildin aukist þegar sumrin eru þurr og hlý líkt og verið hefur. Áfram verður fylgst með flúorlosun frá álverinu í Reyðarfirði.
Það er Náttúrustofa Austurlands sem mælir styrks flúor... |
http://www.austurfrett.is/frettir/tetta-er-ordin-ein-stor-fjolskylda-sem-alltaf-er-jafn-gaman-ad-hitta | „Þetta er orðin ein stór fjölskylda sem alltaf er jafn gaman að hitta“
„Undirbúningur gengur vel og fyrsti viðburður Bræðsluvikunnar verður í Fjarðaborg í kvöld þar sem boðið verður upp á Borgfirskan tónlistarbræðing og barsvar. Svo rekur hver viðburðurinn annan fram að tónleikunum sjálfum á laugardagskvöldið,“ segir b... |
http://www.austurfrett.is/frettir/sex-manadha-fangelsi-fyrir-hnifsstungu | Sex mánaða fangelsi fyrir hnífsstungu
Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt karlmann á fertugsaldri í sex mánaða fangelsi fyrir að stinga annan með hníf. Refsingin er ákveðin með hliðsjón af brotasögu þess dæmda.
Atvikið átti sér stað um miðjan nóvember í fyrra en fram kemur í dóminum að maðurinn hafi stungið annan í svef... |
http://www.austurfrett.is/frettir/eg-fekk-bara-gamla-filinginn | „Ég fékk bara gamla fílinginn“
„Júní er fjölmennasti mánuður sem við höfum fengið á tjaldstæðunum síðan talningar hófust árið 2001 og júlí lofar mjög góðu,“ segir Bergrún Arna Þorsteinsdóttir, aðstoðarskógarvörður og umsjónarmaður tjaldstæðanna í Hallormsstað.
Bergrún Arna segir að gistinætur í júní á tjaldsvæðunum í A... |
http://www.austurfrett.is/frettir/buidh-adh-fella-tolf-tarfa | Búið að fella tólf tarfa
Búið er að fella tólf hreindýrstarfa á veiðitímabilinu sem hófst á sunnudag. Veiðikvótinn er stærri en nokkru sinni fyrr en hlutfall tarfa í veiðunum hefur dregist saman. Ekki má byrja að veiða kýr fyrr en 1. ágúst.
„Þetta fer rólega af stað, eins og áður,“ segir Jóhann Guttormur Gunnarsson, st... |
http://www.austurfrett.is/frettir/allt-sem-er-an-leyfa-er-ekki-gott | „Allt sem er án leyfa er ekki gott“
Austfirskir ferðaþjónustuaðilar fagna hertu eftirliti með heimagistingu, meðal annars í ljósi nýrra talna um að óskráð heimagisting hafi hvergi aukist jafn mikið og í fjórðungnum. Formaður Ferðamálasamtaka Austurlands segir að starfsemi án leyfa komi niður á þeim sem fari eftir reglu... |
http://www.austurfrett.is/frettir/fyrstu-makrilfarmarnir-komnir-til-austfjardha | Fyrstu makrílfarmarnir komnir til Austfjarða
Fyrsti makrílaflinn til Austfjarða á þessari kom til Vopnafjarðar í síðustu viku. Sá fyrsti til Norðfjarðar kom í gær og skip fleiri útgerða eru farin til veiða.
Fyrsti aflinn til Vopnafjarðar var blandaður með síld en á þriðjudag kom Víkingur AK með 600 tonn og Venus í gær ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/thad-verda-allir-ad-passa-glosin-sin | „Það verða allir að passa glösin sín“
„Ég er alveg líkamlega búin að jafna mig en sálin er enn voðlega ónýt eftir þessa reynslu,“ segir Margrét Sigurðardóttir, sem var hætt komin eftir að hafa verið byrlað ólyfjan á tónlistarhátíðinni Eistnaflugi um helgina.
Í gær greindi Austurfrétt frá því að hátíðin hefði gengið vel... |
http://www.austurfrett.is/frettir/sextiu-ar-fra-fyrsta-sildarfarminum | Sextíu ár frá fyrsta síldarfarminum
Haldið var upp á þann áfanga í Neskaupstað í gær að sextíu ár eru liðin frá því að tekið var á móti fyrsta síldarfarminum í verksmiðju Síldarvinnslunnar. Um leið var minnst þeirra sem látist hafa við störf hjá fyrirtækinu.
Það var síldarskipið Gullfaxi sem kom með fyrsta farminn í ve... |
http://www.austurfrett.is/frettir/litil-ahrif-af-verkfalli-a-hsa | Lítil áhrif af verkfalli á HSA
Vonast er til að fæðingarþjónusta á umdæmissjúkrahúsi Austurlands í Neskaupstað skerðist lítið þrátt fyrir að bann við yfirvinnu ljósmæðra gangi í gildi á miðnætti.
Ein fæðingardeild er rekin innan vébanda Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA) og er hún staðsett í Neskaupstað.
„Hjá okkur... |
http://www.austurfrett.is/frettir/talidh-adh-um-tvoe-tonn-af-lysi-hafi-endadh-i-hoefninni | Talið að um tvö tonn af lýsi hafi endað í höfninni
Talið er að um tvö tonn af lýsi hafi farið í höfnina á Fáskrúðsfirði í mengunaróhappi fyrir tæpum tveimur vikum. Umhverfisstofnun fór fram á að fjaran yrði vöktuð en best sé að láta náttúruna brjóta niður efnið.
Óhappið varð með þeim hætti að ekki var skrúfað nógu vel ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/kaerleikssveit-bydhur-upp-a-knus-a-eistnaflugi | Kærleikssveit býður upp á knús á Eistnaflugi
Þungarokkshátíðin Eistnaflug hefst á Norðfiðri í kvöld en fyrstu gestirnir mættu á svæðið á mánudag. Eftir erfitt ár í fyrra veltur framtíð hátíðarinnar á aðsókninni í ár. Framkvæmdastjórinn, sem jafnframt er nýráðinn bæjarstjóri í Fjarðabyggð, er bjartsýnn enda sól í heiði.... |
http://www.austurfrett.is/frettir/hallormsstadhur-heitasti-stadhur-landsins-i-juni | Hallormsstaður heitasti staður landsins í júní
Hæsti meðalhiti á landinu í nýliðnum júnímánuði var á Hallormsstað. Mánuðurinn var sá næst heitasti sem mælst hefur á Dalatanga í 80 ára sögu veðurathugana þar.
Þetta kemur fram í yfirliti Veðurstofu Íslands yfir tíðarfar í júní. Mánuðurinn var hlýr og sólríkur á austanver... |
http://www.austurfrett.is/frettir/adhstodh-vidh-heimferdh-i-fyrsta-sinn-fra-2001 | Aðstoð við heimferð í fyrsta sinn frá 2001
Virkja þurfti tryggingar hjá Ferðamálastofu til að koma farþegum á vegum Ferðaskrifstofu Austurlands (FA Travel) heim frá Alicante í lok apríl eftir að skrifstofan fór í rekstrarstöðvun. Ekki hefur þurft að grípa til slíkra aðgerða í tæp tuttugu ár.
Þetta kemur fram í svari Fe... |
http://www.austurfrett.is/frettir/threttan-umsoknir-um-stoedhu-sveitarstjora-a-vopnafirdhi | Þrettán umsóknir um stöðu sveitarstjóra á Vopnafirði
Þrettán einstaklingar, sjö karlar og sex konur, sóttu um stöðu sveitarstjóra Vopnafjarðarhrepps en umsóknarfrestur rann út á mánudag.
Auglýst var eftir jákvæðum og hugmyndaríkum einstaklingi með hæfni í mannlegum samskiptum sem hefði áhuga og metnað fyrir uppbyggingu... |
http://www.austurfrett.is/frettir/sjomanni-bjargadh-a-heradhsfloa | Sjómanni bjargað á Héraðsflóa
TF-Sýn, þyrla Landhelgisgæslunnar, bjargaði sjómanni eftir að eldur kom upp í báti hans á Héraðsflóa á þriðja tímanum í dag. Sjómaðurinn er við góða heilsu eftir atvikið.
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar bárust neyðarboð frá sjómanninum á þriðja tímanum í dag en samkvæmt fyrstu boðum var bát... |
http://www.austurfrett.is/frettir/karl-ottar-nyr-baejarstjori-i-fjardhabyggdh | Karl Óttar nýr bæjarstjóri í Fjarðabyggð
Karl Óttar Pétursson, lögmaður hjá Arion banka, hefur verið ráðinn nýr bæjarstjóri í Fjarðabyggð. Frá ráðningunni var gengið á fundi bæjarráðs í morgun.
Karl Óttar er 47 ára gamall og hefur undanfarin ár starfað sem forstöðumaður lögfræðisviðs Arion-banka. Hann er Austfirðingur ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/valdimar-o-radhinn-sveitarstjori-bloenduosbaejar | Valdimar O. ráðinn sveitarstjóri Blönduósbæjar
Valdimar O. Hermannsson, fyrrum formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi, hefur verið ráðinn nýr sveitarstjóri Blönduósbæjar. Gengið var frá ráðningunni fyrir helgi.
Valdimar sat í bæjarstjórn Fjarðabyggðar fyrir Sjálfstæðisflokkinn frá árunum 2006 þar til í byrjun þe... |
http://www.austurfrett.is/frettir/aldrei-stadhidh-til-adh-fela-eitt-ne-neitt | „Aldrei staðið til að fela eitt né neitt“
Til stendur að veita bæjarfulltrúum á Fljótsdalshéraði aðgang að gögnum er varða áætlanir um nýja fráveitu í þéttbýlinu á Egilsstöðum og Fellum. Meirihlutinn í bæjarstjórn telur rétt að stíga varlega til jarðar þar sem um gögn einkahlutafélags sé um að ræða. Tillögu minnihlutan... |
http://www.austurfrett.is/frettir/badhir-skalarnir-firnastorir | Báðir skálarnir firnastórir
Byggingar að Stöð í Stöðvarfirði, sem taldar eru vera frá því fyrir landnám, eru stærri en áður var haldið. Efniviður virðist vera þar til rannsókna tíu ár til viðbótar.
„Báðir skálarnir eru firnastórir,“ segir Bjarni F. Einarsson, fornleifafræðingur sem stýrir uppgreftrinum að Stöð í nýjast... |
http://www.austurfrett.is/frettir/varadh-vidh-hvassvidhri-i-dag | Varað við hvassviðri í dag
Vegagerðin hefur sent frá sér viðvörun til ferðalanga á leið um Austurland í dag vegna hvassviðris sem er á leiðinni.
Í tilkynningu Vegagerðarinnar segir að vaxandi lægð fari norður fyrir Austurland í dag. Henni fylgi norðvestan-átt, sérstaklega á Norðausturland frá því síðdegis og fram eftir... |
Subsets and Splits
No community queries yet
The top public SQL queries from the community will appear here once available.