Search is not available for this dataset
url stringlengths 21 288 | text stringlengths 1 1.35M |
|---|---|
http://www.austurfrett.is/frettir/vilja-undirbua-vindmyllur-a-svaedhi-sem-er-a-natturuminjaskra | Vilja undirbúa vindmyllur á svæði sem er á náttúruminjaskrá
Orkusalan kynnti í gær hugmyndir sínar um að rannsaka vindorku á Héraðssandi með hugsanlega byggingu vindmylla í huga fyrir íbúum. Svæðið er á náttúruminjaskrá sem mikilvægt svæði fugla. Ekki er ljóst hvaða áhrif vindmyllurnar myndu hafa á fuglana.
„Við höfðum... |
http://www.austurfrett.is/frettir/namsefnid-hugsad-fyrir-yngstu-kynslodina | Námsefnið hugsað fyrir yngstu kynslóðina
Minjasafn Austurlands hefur undanfarna mánuði unnið að gerð nýs námsefnis fyrir grunnskóla og er það hugsað sem stuðningur við skólaheimsóknir á safnið.
Minjasafnið hlaut styrk úr Safnasjóði árið 2015 til að efla safnfræðslu sína en í því fólst meðal annars að láta vinna námsefn... |
http://www.austurfrett.is/frettir/heimsfrumsyning-a-treyjunni-er-fra-seydhisfirdhi | „Heimsfrumsýning á treyjunni er frá Seyðisfirði“
Upphitunarmyndband frá KSÍ fyrir heimsmeistaramótið í fótbolta í sumar var tekið upp á Seyðisfirði í síðustu viku. Búningarnir verða svo frumsýndir á morgun.
Í samtali við fulltrúa frá KSÍ kemur fram að grunnhugmyndin hafi alltaf verið sú að taka auglýsinguna upp í falle... |
http://www.austurfrett.is/frettir/allt-of-margir-sem-telja-ad-tetta-komi-ser-ekki-vid | „Allt of margir sem telja að þetta komi sér ekki við“
„Þú þarft aðeins að hafa verið félagi í viku til þess að bjóða þig fram í stjórn og hafa kosningarétt á aðalfundi,“ segir Margrét Árnadóttir, formaður félagasamtakanna Ungt Austurland, en félagið leitar nú eftir einstaklingum til að starfa með félaginu.
Ung Austurla... |
http://www.austurfrett.is/frettir/pall-breidhfjoerdh-palsson-radhinn-framkvaemdastjori-hitaveitu-egilsstadha-og-fella | Páll Breiðfjörð Pálsson ráðinn framkvæmdastjóri Hitaveitu Egilsstaða og Fella
Páll Breiðfjörð Pálsson, véla- og rekstrarverkfræðingur, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Hitaveitu Egilsstaða og Fella (HEF) frá og með 1. maí. Hann segist spenntur fyrir að takast á við áskoranir sem fylgja nýju starfi.
Páll er fæddur ár... |
http://www.austurfrett.is/frettir/telja-sjalfbodhalidha-adheins-mega-fegra-folkvanga-og-fjoerur | Telja sjálfboðaliða aðeins mega fegra fólkvanga og fjörur
AFL Starfsgreinafélag hefur farið þess á leit við sveitarfélög á Austurlandi að þau takmarki notkun sína á sjálfboðaliðum við verk á þeirra vegum. Sjálfboðaliðarnir geti aðeins unnið afar afmörkuð störf sem annars væru ekki unnin af launafólki.
Í tilkynningu sem... |
http://www.austurfrett.is/frettir/bidhla-til-radhherra-um-adhstodh-vidh-mjoafjoerdh | Biðla til ráðherra um aðstoð við Mjóafjörð
Bæjarstjóri Fjarðabyggðar hefur óskað eftir því við ráðherra sveitarstjórnarmála að hann beiti sér fyrir aðgerðum sem miði að því að tryggja framtíð útgerðar í Mjóafirði. Byggðakvóti sem úthlutað hefur verið þangað er fallinn úr gildi og fæst ekki endurnýjaður.
Eins og Austurf... |
http://www.austurfrett.is/frettir/aetla-adh-kanna-hug-ibua-til-sameiningar | Ætla að kanna hug íbúa til sameiningar
Forsvarsmenn sveitarfélaganna Fljótsdalshéraðs, Djúpavogshrepps, Seyðisfjarðarkaupstaðar, Borgarfjarðarhrepps, Vopnafjarðarhrepps og Fljótsdalshreppur eru að ná samkomulagi um gera könnun fyrir kosningar í vor um hug íbúa sveitarfélaganna til sameiningar.
Samkvæmt drögum að könnun... |
http://www.austurfrett.is/frettir/undirbua-gervihnattamaelingar-til-adh-fylgjast-medh-strandartindi | Undirbúa gervihnattamælingar til að fylgjast með Strandartindi
Veðurstofa Íslands undirbýr nú gervihnattamælingar til að fylgjast með sífrera í Strandartindi sem er ofan við sunnanverðan Seyðisfjarðarkaupstað. Hætta er á að hlýnandi loftslag geti valdið skriðuföllum úr tindinum. Mikil skriða féll úr honum síðasta sumar... |
http://www.austurfrett.is/frettir/utankjoerfundaratkvaedhagreidhsla-fer-haegt-af-stadh | Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer hægt af stað
Innan við 20 manns hafa kosið enn sem komið er utan kjörfundar í atkvæðagreiðslu um sameiningu Breiðdalshrepps og Fjarðabyggðar sem fram ver síðar í mánuðinum. Tveir hreppsstjórar voru skipaðir tímabundið til að taka á móti atkvæðum.
Kosið verður 24. mars en utankjörfundar... |
http://www.austurfrett.is/frettir/fagna-lokun-skrifstofunnar-i-reykjavik | Fagna lokun skrifstofunnar í Reykjavík
Svæðisráð austursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs fagnar því að ákveðið hafi verið að loka skrifstofu garðsins í miðborg Reykjavíkur í hagræðingarskyni. Barist er um framtíðaraðsetur aðalskrifstofu þjóðgarðsins.
Fögnuðurinn kemur fram í bókun frá síðasta fundi ráðsins í kjölfar þess að ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/thoerf-a-meira-fjarmagni-til-vetrarthjonustu | Þörf á meira fjármagni til vetrarþjónustu
Ráðherra samgöngumála segir ljóst að þörf sé á meira fjármagni til vetrarþjónustu á vegum í ljósi örra breytinga á atvinnusókn og umferð ferðamanna. Kostnaður Vegagerðarinnar við vetrarþjónustu nemur 35 milljónum á dag það sem af er ári.
Þetta kemur fram í svari Sigurðar Inga J... |
http://www.austurfrett.is/frettir/gloedh-og-anaegdh-yfir-adh-vera-komin-til-nyrra-heimkynna | Glöð og ánægð yfir að vera komin til nýrra heimkynna
Sjö manna fjölskylda á flótta kom til Reyðarfjarðar á miðvikudaginn var. Þar með eru komnir þeir 19 flóttamenn sem væntanlegir voru til sveitarfélagsins í byrjun árs. Framundan er að kynnast nýjum heimkynnum.
„Það er aðdáunarvert hversu vel samfélagið hefur sameinast... |
http://www.austurfrett.is/frettir/tidharfar-sem-er-ekki-vinur-snjomokstursreikningsins | Tíðarfar sem er ekki vinur snjómokstursreikningsins
Snjómokstursmenn á Austurlandi hafa haft í nógu að snúast undanfarna viku. Víðast hvar hefur snjóað duglega og segja má að snjókoman sé stöðug. Snjórinn er laus í sér en safnast þegar saman kemur.
„Þetta gengur en er mikil vinna. Við hreinsuðum allan bæinn í gær og fy... |
http://www.austurfrett.is/frettir/telur-svaedid-eiga-margvisleg-spennandi-taekifaeri | Telur svæðið eiga margvísleg spennandi tækifæri
„Ég hlakka til að takast á við starfið. Mér líður vel á Austurlandi og tel svæðið eiga margvísleg tækifæri sem spennandi verður að vinna að, segir Gunnar Gunnarsson, sem ráðinn hefur verið nýr framkvæmdarstjóri Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands.
Gunnar kemur til st... |
http://www.austurfrett.is/frettir/daemdur-fyrir-ogna-manni-medh-veidhihnifi | Dæmdur fyrir ógna manni með veiðihnífi
Rétt liðlega tvítugur karlmaður var nýverið dæmdur í héraðsdómi Austurlands fyrir brot á vopnalögum og almennum hegningarlögum fyrir að ógna öðrum með beittum veiðihnífi.
Atvikið átti sér stað á þungarokkshátíðinni Eistnaflugi síðasta sumar. Ákærði var þar á ferð með feðgum þegar ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/vel-skipulagdhur-listvidhburdhur-a-heimsmaelikvardha-sem-er-lyftistoeng-fyrir-samfelagidh | Vel skipulagður listviðburður á heimsmælikvarða sem er lyftistöng fyrir samfélagið
Alþjóðlega samtímalistasýningin Rúllandi snjóbolti á Djúpavogi var meðal þeirra verkefna sem fengu viðurkenningu þegar Eyrarrósin var afhent í Neskaupstað í gær. Sveitarstjórinn segir viðurkenninguna staðfesta að hátíðin sé á réttri leið... |
http://www.austurfrett.is/frettir/mesta-starfsanaegjan-i-verkmenntaskola-austurlands | Mesta starfsánægjan í Verkmenntaskóla Austurlands
Mesta starfsánægjan í ríkisstofnunum á Austurlandi er í Verkmenntaskóla ef marka má árlega könnun SFR á stofnun ársins. Menntaskólinn á Egilsstöðum er meðal þeirra stofnana þar sem starfsánægja hefur aukist mest.
Mælikvarði SFR er settur saman úr flokkunum stjórnun, sta... |
http://www.austurfrett.is/frettir/litlu-munadhi-adh-kviknadhi-i-gufubadhinu | Litlu munaði að kviknaði í gufubaðinu
Gufubaðsklefi Íþróttahússins á Seyðisfirði er ónothæfur eftir að of í honum ofhitnaði í gær. Litlu máttu muna að eldur kæmi upp í klefanum og breiddist út.
„Forstöðukonan hringdi og sagði að loftræstikerfið hefði slegið út og hún fyndi skrýtna lykt,“ segir Kristján Kristjánsson for... |
http://www.austurfrett.is/frettir/samgoenguradhherra-heitir-adh-beita-ser-fyrir-adhgerdhum-til-adh-gera-innanlandsflug-hagstaedhara | Samgönguráðherra heitir að beita sér fyrir aðgerðum til að gera innanlandsflug hagstæðara
Ráðherra samgöngumála hét því á Alþingi í síðustu viku að beita sér fyrir aðgerðum sem gera innanlandsflug að hagstæðari valkosti en nú er. Niðurgreiðsla til íbúa á svæðum með takmarkaðar samgöngur, líkt og þekkist í Skotlandi, er... |
http://www.austurfrett.is/frettir/yfir-20-umsaekjendur-um-starf-framkvaemdastjora-hef | Yfir 20 umsækjendur um starf framkvæmdastjóra HEF
Meira en 20 umsóknir bárust um starf framkvæmdastjóra Hitaveitu Egilsstaða og Fella sem rann út í lok janúar. Á heimasíðu Capacent, sem heldur utan um ráðningarferlið, kemur fram að viðtöl standi yfir við umsækjendur.
Í auglýsingu var gerð krafa um menntun sem nýtist í ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/erlendu-starfsmennirnir-hafa-itrekadh-lent-i-donalegum-vidskiptavinum | "Erlendu starfsmennirnir hafa ítrekað lent í dónalegum viðskiptavinum"
„Ég fann mig knúna til þess að skrifa þessi skipaboð vegna þess að erlendu starfsmennirnir okkar hafa ítrekað verið að lenda í dónalegum viðskiptavinum,“ segir Dýrunn Pála Skaftadóttir, verslunarstjóri í Olís á Reyðarfirði, um miða sem hangir við af... |
http://www.austurfrett.is/frettir/flottafolkidh-threytt-eftir-langt-ferdhalag | Flóttafólkið þreytt eftir langt ferðalag
Þrjár fjölskyldur á flótta frá Írak komu loks til nýrra heimkynna sinna í Fjarðabyggð í gærkvöldi. Stjórnarmaður í deild Rauða krossins í Neskaupstað segir að vel hafi gengið að undirbúa komu fólksins sem safnar nú kröftum á ný eftir langt ferðalag.
„Við tókum á móti þeim og sýn... |
http://www.austurfrett.is/frettir/ok-oefugu-megin-vidh-blindhaedharskilti | Ók öfugu megin við blindhæðarskilti
Lögreglan á Austurlandi hafði um helgina afskipti af erlendum ökumanni sem var ekki með íslenskar umferðarreglur á hreinu. Sá hafði misskilið þýðingu örvanna á skiltunum sem marka akreinar á blindhæðum.
Sagt er frá því á Facebook-síðu lögreglunnar að afskipti hafi verið höfð af erlen... |
http://www.austurfrett.is/frettir/malstofur-og-hradstefnumot-i-menntabudhum | Málstofur og hraðstefnumót í Menntabúðum
„Tilgangurinn er að við lærum af hvort öðru sem jafningjar, verðum öruggari hvað varðar tæknina og eflum þannig tæknikennslu á Austurlandi,“ segir Helga Ósk Snædal Þórormsdóttir, verkefnastjóri yfir Austmennt, menntabúðum fyrir kennara og stjórnendur á Austurlandi.
Austmennt eru... |
http://www.austurfrett.is/frettir/thurfa-adh-skipta-golf-i-felagsheimilinu-eftir-leka | Þurfa að skipta gólf í félagsheimilinu eftir leka
Skipta þarf um gólfið í gamla salnum í félagsheimilinu Herðubreið eftir vatnsleka þar í byrjun febrúar. Nýta á tækifærið til að breyta húsinu.
Gólfið í gamla íþróttasalnum, sem að undanförnu hefur verið notaður sem matsalur, eyðilagðist þegar hitavatnslögn í húsinu gaf ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/hvernig-vaeri-ad-breyta-umraedunni | „Hvernig væri að breyta umræðunni?“
„Ástæða þess að þetta málefni varð fyrir valinu er sú að okkur sem að þessu stöndum finnst umræðan er mikið til neikvæð í samfélaginu um allt mögulegt,“ segir Salóme Rut Harðardóttir, forvarnarfulltrúi í Verkmenntaskólanum í Neskaupstað, en skólinn í samvinnu við fjölskyldusvið Fjarð... |
http://www.austurfrett.is/frettir/stort-skref-til-baettrar-thjonustu-vidh-hjartasjuklinga-a-austurlandi | „Stórt skref til bættrar þjónustu við hjartasjúklinga á Austurlandi“
„Með tilkomu nýs hjartaómtækis er stigið stórt skref til bættrar þjónustu við hjartasjúklinga á Austurlandi,“ segir Gizur Gottskálksson, hjartalæknir, um nýtt hjartaómtæki sem komið er í Umdæmissjúkrahúsið í Neskaupstað.
Síldarvinnslan í Neskaupstað g... |
http://www.austurfrett.is/frettir/mikidh-gekk-a-thegar-ain-ruddi-sig | Mikið gekk á þegar áin ruddi sig
Mikil átök hafa verið þegar áin Hrafnkela ruddi sig um miðjan dag á laugardag. Vegurinn inn að Aðalbóli er stórskemmdur og neðan við Vaðbrekku hefur áin hlaðið upp nokkurra metra háum klakabúntum.
„Það var stífla fyrir neðan bæinn sem áin rann undir og framhjá. Hún hefur tekið þá stíflu... |
http://www.austurfrett.is/frettir/ekki-astaedha-til-adh-ottast-orma-i-sandkoessum | Ekki ástæða til að óttast orma í sandkössum
Skipt var um sand í sandkassa við leikskólann Skógarland á Egilsstöðum í gær eftir að kattaspóluormur fannst í sandinum. Sérfræðingur segir takmarkaða hættu hafa verið á ferðinni en rétt hafi verið gefa ekki afslátt af öryggi barnanna.
Starfsmenn leikskólans kölluðu til Heilb... |
http://www.austurfrett.is/frettir/kyndiofninn-mun-borga-brusann | „Kyndiofninn mun borga brúsann“
„Það eru virkilega spennandi tímar framundan,“ segir Bjarki M. Jónsson, eigandi Skógarafurða í Fljótsdal, en fyrirtækið fyrir skemmstu fyrsta sérsmíðaða timburflutningabíl landsins, ásamt vínekrudráttarvél.
Timburflutningabíllinn samanstendur af bíl með hleðslupalli og krana og sérsmíðuð... |
http://www.austurfrett.is/frettir/thrysta-a-adh-fa-byggdhakvota-til-mjoafjardhar | Þrýsta á að fá byggðakvóta til Mjóafjarðar
Bæjaryfirvöld í Fjarðabyggð róa nú að því öllum árum að tryggja að áfram verði úthlutað byggðakvóta til Mjóafjarðar. Bæjarráð telur hættu á byggðaröskum fái Mjóifjörður ekki kvóta. Engu af hinum almenna byggðakvóta á yfirstandandi fiskveiðiári var úthlutað til staðarins.
Bæjar... |
http://www.austurfrett.is/frettir/borgfirdhingar-safna-undirskriftum-fyrir-baettum-veg-vidh-viljum-ekki-leggjast-i-eydhi | Borgfirðingar safna undirskriftum fyrir bættum veg: Við viljum ekki leggjast í eyði
Íbúar á Borgarfirði eystra hafa hrundið af stað söfnun undirskrifta til stuðnings málstað sínum fyrir bættum veg til staðarins. Talsmaður söfnunarinnar vonast til að baráttan skili því að Borgfirðingar fái áheyrn ráðamanna.
Yfir 1600 ma... |
http://www.austurfrett.is/frettir/afl-telur-adh-segja-eigi-upp-kjarasamningum-gegndarlausar-haekkanir-til-theirra-aedhstu | AFL telur að segja eigi upp kjarasamningum: Gegndarlausar hækkanir til þeirra æðstu
Stjórn og trúnaðarráð AFLs starfsgreinafélags samþykkti á fundi sínum í gær að segja eigi upp núgildandi kjarasamningum. Formaður félagsins segir skattbyrði á láglaunafólk hafa aukist ógnvænlega á síðustu árum.
Áskorun fundarins kemur í... |
http://www.austurfrett.is/frettir/leki-i-kerskala-fjardhaals | Leki í kerskála Fjarðaáls
Álver Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði var aftengt raforkukerfinu í kvöld eftir að leki kom upp í kerskála. Upplýsingafulltrúi segir starfsmenn ekki hafa verið í neinni hættu.
Þegar leki kemur upp í keri er það orðið óþétt og rennur þá bráðið ál niður í söfnunarkjallara.
Dagmar Ýr Stefánsdóttir, ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/byrja-adh-steypa-borgarfjardharveginn-gaman-adh-sja-langthradh-vegagerdharskilti-myndir | Byrja að steypa Borgarfjarðarveginn: Gaman að sjá langþráð vegagerðarskilti – Myndir
Íbúar á Borgarfirði eystra söfnuðust saman í Njarðvíkurskriðum í gær og byrjuðu að steypa veginn þar um. Gjörningurinn var til að minna á að enn eru 28 km ómalbikaðir milli Borgarfjarðar og næsta þéttbýlisstaðar, Egilsstaða.
„Borgfirði... |
http://www.austurfrett.is/frettir/varadh-vidh-haettu-a-skridhufoellum-a-austfjoerdhum | Varað við hættu á skriðuföllum á Austfjörðum
Veðurstofa Íslands varar við hættu á skriðuföllum í rigningum næsta sólarhringinn. Þetta er annað vatnsveðrið sem gengur yfir fjórðunginn í vikunni. Minni háttar skemmdir urðu á vegum á miðvikudag.
Spáð er suðaustan 15-23 m/s og talsverðri rigningu á Austfjörðum fram til hád... |
http://www.austurfrett.is/frettir/gg-thjonusta-ur-tveimur-starfsmoennum-i-sextan-a-rumu-ari | GG Þjónusta: Úr tveimur starfsmönnum í sextán á rúmu ári
GG Þjónusta ehf. var meðal þeirra sem fengu hæstu stöku styrkina úr Uppbyggingarsjóði Austurlands þegar úthlutað var úr sjóðnum í síðustu viku. Fyrirtækið sérhæfir sig í þrifaþjónustu fyrir matvælafyrirtæki og hefur vaxið hratt á skömmum tíma.
„Við byrjuðum í des... |
http://www.austurfrett.is/frettir/oekumadhurinn-bjargadist-er-bill-for-i-hoefnina-a-faskrudsfirdi | Ökumaðurinn bjargaðist er bíll fór í höfnina á Fáskrúðsfirði
Karlmaður var fluttur til aðhlynningar á Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað í morgun eftir að bíll sem hann ók fór út af hafnarbakkanum á Fáskrúðsfirði.
Samkvæmt upplýsingum lögreglunni á Austurlandi var flughált á hafnarsvæðinu í morgun, en maðurinn var á le... |
http://www.austurfrett.is/frettir/skoladagvist-fjorda-laegst-i-fjardabyggdh | Skóladagvist fjórða lægst í Fjarðabyggð
Fjarðabyggð stendur nokkuð vel að vígi miðað við önnur sveitarfélög þegar gjaldskrár varðandi skóladagvistun, hressingu og hádegismat í grunnskólum eru skoðaðar, en verðlagseftirlit ASÍ kannaði breytingar á gjaldskrám milli áranna 2017 og 2018.
Mikill munur er milli sveitarfélaga... |
http://www.austurfrett.is/frettir/sjomadur-a-sumrin-og-bakpokaferdalangur-a-veturna | „Sjómaður á sumrin og bakpokaferðalangur á veturna“
„Ég hef ekki farið í neitt útkall ennþá, sem betur fer, og vonandi verður það bara þannig áfram,“ segir Steinunn Káradóttir, sem gekk nýverið til liðs við slökkviliðið á Borgarfirði eystri og er hún þar með fyrsta konan sem starfar sem slökkviliðsmaður hjá Brunavörnum... |
http://www.austurfrett.is/frettir/akaerdhur-fyrir-adh-falsa-numer-a-eftirvagni | Ákærður fyrir að falsa númer á eftirvagni
Lögreglustjórinn á Austurlandi hefur ákært ríflega þrítugan karlmann fyrir skjalafals með að setja nýja númeraplötu á eftirvagn. Nokkrar skrautlegar ákærur vegna umferðarlagabrota hafa verið gefnar út af lögreglustjóranum að undanförnu.
Brotið átti sér stað síðasta haust. Maður... |
http://www.austurfrett.is/frettir/uthlutadh-ur-uppbyggingarsjodhi-haestu-styrkirnir-a-seydhisfjoerdh | Úthlutað úr Uppbyggingarsjóði: Hæstu styrkirnir á Seyðisfjörð
Listahátíðin LungA og menningarmiðstöðin Skaftfell fengu hæstu styrkina þegar úthlutað var úr Uppbyggingarsjóði Austurlands á mánudag. Alls var úthlutað rúmum 60 milljónum til yfir 80 verkefna sem efla atvinnuþróun og menningu í landshlutanum.
Þetta er fjórð... |
http://www.austurfrett.is/frettir/engin-slys-a-folki-i-ohappi-a-fagradal | Engin slys á fólki í óhappi á Fagradal
Engin slys urðu á fólki en jeppabifreið skemmdist töluvert í árekstri á Fagradal í gærkvöldi. Ekki voru fleiri beiðnir um aðstoð þótt veðrið væri vont í gærkvöldi og frameftir nóttu.
Óhappið varð á tíunda tímanum í gær á þann hátt að jeppinn lenti á stórum jeppa sem var að draga a... |
http://www.austurfrett.is/frettir/faskrudhsfirdhingar-vilja-fa-adh-kjosa-um-fiskeldi | Fáskrúðsfirðingar vilja fá að kjósa um fiskeldi
Nýrri stjórn íbúasamtaka Fáskrúðsfjarðar hefur verið falið að reyna að koma á kosningu meðal íbúa til að fá fram hug þeirra til fiskeldis í firðinum. Íbúar hafa miklar áhyggjur af mengun í firðinum frá eldinu en talsmenn eldisfyrirtækjanna segja rannsóknir sýna að hana þu... |
http://www.austurfrett.is/frettir/mikil-anaegja-medhal-fjarnema-vidh-me | Mikil ánægja meðal fjarnema við ME
97% fjarnema við Menntaskólann á Egilsstöðum lýsa yfir ánægju sinni með námið í kennslukönnun skólans fyrir nýliðna haustönn. Spannafyrirkomulagið er það sem nemendurnir lýsa mestri ánægju með.
Um 51% segja fjarnámið vera mjög gott og 46% gott. Ánægja með fjarnámið hefur aukist þó nok... |
http://www.austurfrett.is/frettir/vid-fundum-taekifaeri-sem-vid-munum-vinna-afram-med | „Við fundum tækifæri sem við munum vinna áfram með“
„Starfsfólk, jafnt karlar sem konur, hafa almennt lýst ánægju sinni með þetta frumkvæði og þátttakan í fundunum sem haldnir voru var góð,“ segir segir Dagmar Ýr Stefánsdóttir, upplýsingafulltrúi Alcoa Fjarðaáls, en upp á síðkastið hefur verið fundaröð hjá fyrirtækinu ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/vonast-eftir-adh-fa-verslun-fyrir-voridh | Vonast eftir að fá verslun fyrir vorið
Íbúar og velunnarar á Borgarfirði eystra telja algjört forgangsatriði að koma dagvöruverslun í þorpinu sem fyrst á laggirnar á ný. Húsnæðis- og samgöngumál eru þeim einnig ofarlega í huga.
Þetta voru forgangsmál íbúaþings sem haldið var á Borgarfirði um helgina en með því hófst þá... |
http://www.austurfrett.is/frettir/eg-helt-hann-kaemi-ekki-til-baka-aftur | „Ég hélt hann kæmi ekki til baka aftur“
„Hann var bara búinn að sitja inni hjá okkur í tvær til þrjár mínútur þegar hann datt út,“ segir Reyðfirðingurinn Þórir Stefánsson, sem var annar þeirra sem tilnefndur var skyndihjálparmaður árins 2017 eftir að hann kom bróður sínum til bjargar eftir hjartaáfall.
Þórir og Jón Ges... |
http://www.austurfrett.is/frettir/vid-munum-berjast-fram-a-sidasta-dag | „Við munum berjast fram á síðasta dag“
„Ég slæ varnagla við fiskeldi í opnum sjókvíum. Það er enn of margt óljóst, meðal annars hefur ekki verið sýnt með rökstuddum hætti fram á að þau stórtæku áform sem uppi eru skaði ekki lífríki fjarða,“ segir Berglind Häsler, bóndi og matvælaframleiðandi á Karlsstöðum í Berufirði, ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/falkinn-er-floginn-heim | Fálkinn er floginn heim
„Við höfðum bara tvo daga til að bregðast við,“ segir Gauti Jóhannesson, sveitarstjóri á Djúpavogi, en Djúpavogshreppur festi nýverið kaup á útskorum fálka eftir myndhöggvarann Ríkarð Jónsson, sem seldur var á uppboði hjá Chiswick-uppboðshúsinu í London í byrjun febrúar.
Safn með verkum og áhöld... |
http://www.austurfrett.is/frettir/tetta-er-vodalega-leidinlegt | „Þetta er voðalega leiðinlegt“
„Nei, það veit enginn hvað gerðist, við höfum ekki hugmynd um það,“ segir Friðrik Árnason, eigandi eikarbátsins Sögu SU 606, sem sökk í höfninni á Breiðdalsvík aðfaranótt sunnudags.
Friðrik, sem einnig er eigandi Hótels Bláfells á Breiðdalsvík, hefur nýtt bátinn sem er 21 brúttótonn, til ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/tveir-af-thremur-fulltruum-fjardhalistans-haetta | Tveir af þremur fulltrúum Fjarðalistans hætta
Tveir af þremur bæjarfulltrúum Fjarðalistans hafa ákveðið að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi setu í bæjarstjórn. Uppstillinganefnd mun raða upp á listann fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.
„Í fyrsta lagi tel ég átta ár ágætis tíma, í öðru lagi er ég í nægum öðru... |
http://www.austurfrett.is/frettir/efla-skipaflotann-fyrir-siglingar-til-reydharfjardhar | Efla skipaflotann fyrir siglingar til Reyðarfjarðar
Hollenska skipafélagið Cargow, sem reglulega siglir til Reyðarfjarðar samkvæmt samningum við Alcoa, hefur tekið ákveðið að endurnýja skipakost sinn með fjórum nýjum flutningaskipum.
Fyrsta skipið, Frigg W, var afhent í byrjun þessa mánaðar. Þrjú til viðbótar eru vænta... |
http://www.austurfrett.is/frettir/teigarhorn-buidh-undir-adh-geta-tekidh-vidh-sextiu-thusund-gestum-a-ari | Teigarhorn búið undir að geta tekið við sextíu þúsund gestum á ári
Gert er ráð fyrir að lágmarki 60 þúsund gestir muni sækja Teigarhorn heim árlega í nýju deiliskipulagi fyrir svæðið sem Skipulagsstofnun hefur staðfest. Hluti af framkvæmdum á svæðinu felst í að færa Hringveginn frá bænum.
Í dag liggur vegurinn 50 metra... |
http://www.austurfrett.is/frettir/skora-a-alcoa-adh-afletta-verkbanni | Skora á Alcoa að aflétta verkbanni
AFL Starfsgreinafélag hefur sent forstjóra Alcoa á heimsvísu áskorun um að falla frá verkbanni og ganga til samninga við verkalýðsfélag í verksmiðju þess í Kanada.
Um eitt þúsund starfsmenn í álverksmiðju sem er í eigu Alcoa og Rio Tinto í Bécancour í Quebec í Kanada hafa verið í verk... |
http://www.austurfrett.is/frettir/ibuathing-a-borgarfirdhi-um-helgina | Íbúaþing á Borgarfirði um helgina
Verkefninu Brothættar byggðir verður hleypt af stokkunum á Borgarfirði eystra um helgina með íbúaþingi. Þingið er ætlað að vera veganestið fyrir verkefnið sem stendur í allt að fjögur ár.
Þingið stendur í tvo daga og er ekki fyrirfram mótuð dagskrá, heldur geta allir viðstaddir stungið... |
http://www.austurfrett.is/frettir/keyrdhi-a-haedharsla-vidh-faskrudhsfjardhargoeng | Keyrði á hæðarslá við Fáskrúðsfjarðargöng
Tíu umferðaróhöpp hafa orðið í umdæmi lögreglunnar á Austurlandi undanfarnar tvær vikur og hefur hálkan reynst ökumönnum erfið. Einn var kærður fyrir að aka með of háan farm um Fáskrúðsfjarðargöng.
Upp komst um aksturinn þar sem ökumaðurinn ók á hæðarslá framan við göngin Reyða... |
http://www.austurfrett.is/frettir/fridhrik-baud-best | „Friðrik bauð best“
„Þetta er skemmtilegur íslenskur siður, við fáum aldrei tertu þegar við löndum í Noregi,” sögðu skipstjórnendurnir á fjölveiðiskipinu Østerbris, þegar þeir lönduðu fyrsta kolmunnaafla landsins í ár á Fáskrúðsfirði í gær.
Norska fjölveiðiskipið Østerbris kom að landi á Fáskrúðsfirði í gær með 2250 to... |
http://www.austurfrett.is/frettir/smalar-fluttir-til-lodhmundarfjardhar-medh-vardhskipi | Smalar fluttir til Loðmundarfjarðar með varðskipi
Fjórir smalar og þrír smalahundar voru á laugardag fluttir með varðskipinu Tý frá Seyðisfirði til Loðmundarfirði. Talsvert hefur verið af fé í firðinum í vetur sem ekki tókst að smala í haust. Sumar kindanna hafa jafnvel hafst þar við lengur.
Í frétt frá gæslunni kemur ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/samningur-undirritadhur-um-mottoeku-flottafolks | Samningur undirritaður um móttöku flóttafólks
Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra og Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, undirrituðu í gær samning um móttöku fjögurra flóttafjölskyldna frá Írak. Samningurinn felur í sér verkskiptingu milli ríkis og sveitarfélags.
Alls er um að ræ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/midhflokkurinn-skodhar-frambodhsmal-thadh-er-madhur-adh-tala-vidh-mann | Miðflokkurinn skoðar framboðsmál: Það er maður að tala við mann
Félagar í Miðflokknum skoða þessa dagana möguleika á framboðum til sveitastjórna á Austurlandi. Lengst eru málin komin í Fjarðabyggð og á Fljótsdalshéraði en áhugi er á framboðum víðar um kjördæmið.
„Það eru pælingar í gangi, mikill áhugi en ekkert í hendi... |
http://www.austurfrett.is/frettir/rullandi-snjobolti-og-lunga-skolinn-tilnefnd-til-eyrarrosarinnar | Rúllandi snjóbolti og LungA skólinn tilnefnd til Eyrarrósarinnar
LungA skólinn á Seyðisfirði og Rúllandi snjóbolti á Djúpavogi eru meðal þeirra verkefna sem tilnefnd eru til Eyrarrósarinnar, viðurkenningar fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni. Verðlaunin verða afhent í Neskaupstað eftir tæpan mánuð.
... |
http://www.austurfrett.is/frettir/skyr-fyrirmaeli-virka-vel-a-makann-lika | „Skýr fyrirmæli virka vel á makann líka“
„Foreldrar þurfa ávallt að setja reglurnar en við leggjum áherslu á að gera það með jákvæðum og uppbyggilegum hætti,“ segja þær Hlín Stefánsdóttir og Dagbjört Kristinsdóttir, kennarar á foreldrafærnisnámskeiði sem hefst á Egilsstöðum á morgun.
Um er að ræða átta vikna námskeið í... |
http://www.austurfrett.is/frettir/ekki-haegt-adh-adhgreina-vatn-og-skolp-thadh-kemur-saman | „Ekki hægt að aðgreina vatn og skólp, það kemur saman“
Hart var deilt um framtíðarlausnir í fráveitumálum fyrir þéttbýlið á Egilsstöðum og Fellabæ á fjölmennum íbúafundi í gær. Þrætt var um hvort lausnirnar uppfylltu kröfur og kostnað við þær.
Í dag eru þrjár skólphreinsistöðvar sem hreinsa skólp áður en það rennur út ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/talsverdhar-breytingar-fram-undan-a-sveitarstjornum | Talsverðar breytingar fram undan á sveitarstjórnum
Undirbúningur framboðsmála fyrir sveitarstjórnarkosningarnar á Austurlandi eru skammt á veg komnar en kosið verður laugardaginn 26. maí. Útlit er fyrir talsverða endurnýjun, fimmtungur fulltrúa segist ákveðinn í að hætta.
Austurglugginn hefur undanfarnar vikur sent öll... |
http://www.austurfrett.is/frettir/jatadhi-fjardratt-fra-starfsmannafelagi | Játaði fjárdrátt frá starfsmannafélagi
Fyrrverandi formaður starfsmannafélags VHE á Reyðarfirði hefur verið dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að draga sér fé úr sjóðum félagsins. Sú upphæð sem var til skoðunar lækkaði við meðferð málsins.
Upp komst um brotin í byrjun árs 2016. Viðkomandi var formaður fé... |
http://www.austurfrett.is/frettir/thoerf-a-tveimur-studhningsfjoelskyldu-fyrir-hverja-fjoelskyldu-a-flotta | Þörf á tveimur stuðningsfjölskyldu fyrir hverja fjölskyldu á flótta
Deildir Rauða krossins í Fjarðabyggð undirbúa þessa dagana að taka á móti fjórum flóttamannafjölskyldum sem væntanlegar eru til sveitarfélagsins upp úr miðjun febrúar. Sjálfboðaliðar Rauða krossins hjálpa flóttamönnunum út í samfélagið.
„Hlutverk okkar... |
http://www.austurfrett.is/frettir/engar-islandstoekur-i-lokaseriu-fortitude | Engar Íslandstökur í lokaseríu Fortitude
Engar Íslandstökur verða í þriðju og síðustu þáttaröðinni af bresku spennuþáttunum Fortitude sem teknir verða upp á næstunni. Útitökur fyrir fyrstu þáttaraðirnar tvær ásamt fleiri atriðum voru teknar upp á Austfjörðum.
Þetta staðfesti talsmaður Sky sjónvarpsstöðvarinnar, sem kau... |
http://www.austurfrett.is/frettir/tuttugu-sottu-um-starf-verkefnastjora-haskolaseturs | Tuttugu sóttu um starf verkefnastjóra Háskólaseturs
Tuttugu einstaklingar sóttu um stöðu verkefnastjóra Háskólaseturs Austfjarða (HáAust) en umsóknarfrestur rann út í byrjun síðustu viku.
Verkefnastjóranum er ætlað að vinnu við stofnun Háskólaseturs Austurfjarða á grundvelli samnings sem undirritaður var í júní. Að því... |
http://www.austurfrett.is/frettir/austurland-er-vagga-uppsjavarvinnslu-a-islandi | „Austurland er vagga uppsjávarvinnslu á Íslandi“
„Það má ekki gleyma því að Austurland er vagga uppsjávarvinnslu á Íslandi og hér eru mörg önnur fyrirtæki í uppsjávarvinnslu,“ segir Páll Snorrason framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Eskju um nýlegt hátækni frystihús á Eskifirði. Að austan á N4 leit við í Eskju ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/slaem-fjallskil-ahyggjuefni | Slæm fjallskil áhyggjuefni
Dýraeftirlitsmaður segir það áhyggjuefni að grípa þurfi til aðgerða til að ná fjölda fjár af fjöllum í janúar. Matvælastofnun fylgist með gangi mála en hefur takmarkaðar heimildir til að grípa inn í.
Austurfrétt og RÚV hafa undanfarna daga greint frá því að smalar á Austurlandi hafi undanfarn... |
http://www.austurfrett.is/frettir/ad-reita-arfa-og-forgangsrada-i-lifinu | „Að reita arfa og forgangsraða í lífinu“
„Mig langar til þess að fá fólk til að hugsa hvernig það vill hafa sína forgangsröðun í daglegu lífi,“ segir Rakel Rán Sigurbjörnsdóttir, fjölskyldumeðferðarfræðingur, sem verður með opinn fyrirlestur í Nesskóla á Norðfirði í kvöld.
Það er foreldrafélag Nesskóla sem stendur að f... |
http://www.austurfrett.is/frettir/telja-goeng-undir-mjoafjardharheidhi-ekki-leysa-neinn-vanda | Telja göng undir Mjóafjarðarheiði ekki leysa neinn vanda
Bæjarstjórn Seyðisfjarðarkaupstaðar telur hugmyndir um göng undir Mjóafjarðarheiði og þaðan til suðurs yfir í Fannardal í Norðfirði ekki vera þá samgöngulausn sem bæjarbúar þurfi á að halda.
Í bókun bæjarstjórnarinnar frá í síðustu viku er bent á að daginn fyrir ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/er-skattaumhverfi-a-islandi-alger-frumskogur | Er skattaumhverfi á Íslandi alger frumskógur?
„Ýmsar breytingar hafa orðið á skattalögunum á síðastliðnu ári, þar með talið í tengslum við ferðaþjónustu,“ segir Magnús Jónsson, hluthafi hjá KPMG á austurlandi, sem stendur fyrir árlegum skattafróðleik á Egilsstöðum á morgun.
Fundurinn verður haldinn á Hótel Héraði á mor... |
http://www.austurfrett.is/frettir/alvarlegar-athugasemdir-vidh-astand-leiktaekja-a-lodh-eskifjardharskola | Alvarlegar athugasemdir við ástand leiktækja á lóð Eskifjarðarskóla
Nemendur og aðstandendur grunnskólans á Eskifirði hafa áhyggjur af ástandi leiktækja á lóð skólans. Heilbrigðiseftirlit telur að viðhaldi verði ekki frestað öllu lengur.
Skólaráð og nemendaráð skólans héldu nýverið sameiginlegan fund og sendu að honum ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/sameiningarvidhraedhur-djupavogshrepps-hornafjardhar-og-skaftarhrepps-slegnar-af | Sameiningarviðræður Djúpavogshrepps, Hornafjarðar og Skaftárhrepps slegnar af
Nefnd um mögulega sameiningu Djúpavogshrepps, Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Skaftárhrepps hefur lokið störfum án þess að skila af sér formlegu áliti um mögulega sameiningu.
Þetta kemur fram í tilkynningu sem nefndin sendi frá sér í dag.
Þa... |
http://www.austurfrett.is/frettir/20-tima-rafmagnsleysi-i-fellum | 20 tíma rafmagnsleysi í Fellum
Sex bæir í Fellum á Fljótsdalshéraði eru enn án rafmagns eftir raflína í sveitinni skemmdist í miklu ísingarveðri í gær og fyrradag. Viðgerðarflokkur var að til klukkan tvö í nótt en samt tókst ekki að koma rafmagni á bæina.
Rafmagnslaust var á Krossi, Setbergi, Birnufelli, Meðalnesi, Rau... |
http://www.austurfrett.is/frettir/norraena-bidhur-eftir-farthegum-og-fragt | Norræna bíður eftir farþegum og fragt
Ferjan Norræna bíður á Seyðisfirði eftir að hægt verði að aka yfir Fjarðarheiði. Heiðin hefur verið lokuð í á annan sólarhring og hefur hvorki verið hægt að koma farmi til eða frá Seyðisfirði.
„Við bíðum eftir því hvenær Fjarðarheiðin opnar. Veðrið ætti að vera gengið niður seinni ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/varadh-vidh-snjoflodhahaettu-a-austfjoerdhum | Varað við snjóflóðahættu á Austfjörðum
Veðurstofa Íslands hefur sent frá sér viðvörun vegna snjóflóðahættu á Austfjörðum vegna versnandi veðurspár fyrir svæðið.
Í spá Veðurstofunnar frá í dag segir að gert sé ráð fyrir vaxandi norðaustanátt með mikilli snjókomu til fjalla en slyddu eða rigningu á láglendi. Gert er ráð ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/thurfa-adh-minnka-landvoerslu-i-thjodhgardhinum | Þurfa að minnka landvörslu í þjóðgarðinum
Útlit er fyrir að minnka þurfi landvörslu á austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs og stytta opnunartíma Snæfellsstofu í ár. Fjárframlög til þjóðgarðsins hafa ekki aukist á sama tíma og umferð um garðinn vex og landssvæðið sem fylgjast þarf með stækkar.
„Þetta er ekki í takt við neit... |
http://www.austurfrett.is/frettir/thrju-snjoflodh-lokudhu-fagradal | Þrjú snjóflóð lokuðu Fagradal
Þrjú snjóflóð úr Grænafelli lokuðu veginum í Fagradal í morgun. Verið er að opna Mývatns- og Möðrudalsöræfi og jeppafært er orðið á Fjarðarheiði.
Klukkan var langt gengin í níu í morgun þegar vegurinn yfir Fagradal opnaði en honum var lokað vegna óveðurs upp úr kvöldmat í gær.
Þrjú snjófló... |
http://www.austurfrett.is/frettir/vid-turfum-ad-standa-uppur | „Við þurfum að standa uppúr“
„Það var smá vesen að fá að hafa teppið, en það gilda ákveðnar reglur um útlit á slíkri sýningu. Við tókum samt áhættuna og mættum með það og smelltum því á gólfið í lok dags með leyfi frá stjórnendum sýningarinnar,“ segir María Hjálmarsdóttir, verkefnastjóri hjá Austurbrú, um dregilinn sem... |
http://www.austurfrett.is/frettir/fjorar-fjoelskyldur-a-flotta-a-leidh-til-fjardhabyggdhar | Fjórar fjölskyldur á flótta á leið til Fjarðabyggðar
Fjórar flóttamannafjölskyldur eru væntanlegar til Fjarðabyggðar um miðjan næsta mánuð. Félagsmálastjóri segir samfélagið vel í stakk búið að taka á móti fólkinu og spennt fyrir að kynnast því.
Von er á fjórum fjölskyldum, alls 19 manns. Fólkið kemur frá Írak en hefur... |
http://www.austurfrett.is/frettir/matt-bara-ekki-raena-fyrirtaekid-titt | „Mátt bara ekki ræna fyrirtækið þitt“
Vélaverkstæðið G. Skúlason er annað tveggja fyrirtækja á Austurlandi sem hefur verið á lista Creditinfo um framúrskarandi fyrirtæki þau átta ár sem hann hefur verið birtur.
Síðastliðin átta ár hefur Creditinfo unnið ítarlega greiningu sem sýnir hvaða íslensku fyrirtæki teljast til ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/snjoflodhin-sjast-thegar-birtir-til-fjalla | Snjóflóðin sjást þegar birtir til fjalla
Dregið hefur úr snjóflóðahættu á Austfjörðum. Vitað er um nokkur flóð sem fallið hafa undanfarinn sólarhring. Mikið hefur bætt á snjóinn í dag og í gær.
Í nýrri spá frá ofanflóðadeild Veðurstofunnar sem birt var seinni partinn í dag hefur hættustig vegna snjóflóða á svæðinu veri... |
http://www.austurfrett.is/frettir/hreindyrakvotinn-aldrei-veridh-meiri | Hreindýrakvótinn aldrei verið meiri
Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur ákveðið að auka hreindýraveiðikvóta ársins um 135 dýr, eða rúm 10% frá síðasta ári. Eftir því sem næst verður komist er þetta stærsti veiðikvóti sem leyfður verið verið.
Alls er heimilt að veiða 1450 dýr, 1061 kú og 389 tarfa sem er 10% aukning fr... |
http://www.austurfrett.is/frettir/noto-vonandi-kominn-til-ad-vera | „Notó vonandi kominn til að vera“
Nytjamarkaðurinn Notó á Djúpavogi er starfræktur til styrktar barna- og unglingastarfi Djúpavogshrepps. Markaðurinn er nýr af nálinni en hefur farið mjög vel af stað.
Helga Rún Guðjónsdóttir er í forsvari fyrir Notó. „Það hefur verið í umræðunni lengi að það væri þörf á nytjamarkaði í ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/hafa-smaladh-taeplega-100-kindum-i-vopnafirdhi-sidhan-i-haust | Hafa smalað tæplega 100 kindum í Vopnafirði síðan í haust
Smalar í Vopnafirði hafa komið tæplega 100 kindum niður af heiðunum þar í kring síðan í lok október. Smali segir ekki gott að vita af fénu upp á fjöllum í vetrarhörkum.
„Við er komnir með 94 stykki síðan í lok október,“ segir Ragnar Antonsson, sem hefur farið fl... |
http://www.austurfrett.is/frettir/ekki-haegt-adh-nota-hluta-oliubirgdhastoedhvar-vegna-jardhsigs | Ekki hægt að nota hluta olíubirgðastöðvar vegna jarðsigs
Ekki er hægt að nota hluta af olíubirgðastöð Skeljungs á Eskifirði vegna jarðsigs. Starfsleyfi fyrir slíkar stöðvar á Seyðisfirði eru gefin út til takmarkaðs tíma þar sem skipulag skortir.
Þetta kemur fram í auglýsingu fyrir starfsleyfi stöðvarinnar. Þar segir að... |
http://www.austurfrett.is/frettir/vard-ad-haetta-i-vinnunni-vegna-dagvistunarleysis | Varð að hætta í vinnunni vegna dagvistunarleysis
„Við komum Esjari syni okkar hvergi að. Ég fór í 40% vinnu sem ég gat svo ekki sinnt vegna barnsins, þannig að maðurinn minn réði sig í þrjár vinnur til þess að vega upp mitt tekjutap. Þar af leiðandi er hann allt að 12 tíma fjarri heimilinu á dag og hittir son sinn rétt... |
http://www.austurfrett.is/frettir/ibuum-i-neskaupstadh-radhlagt-adh-sjodha-neysluvatn-urhelli-a-foestudag-talidh-rot-mengunar | Íbúum í Neskaupstað ráðlagt að sjóða neysluvatn: Úrhelli á föstudag talið rót mengunar
Íbúum í Neskaupstað var í morgun ráðlagt að sjóða neysluvatn eftir að fjöldi jarðvegsgerla reyndist yfir mörkum. Veitustjóri telur líklegt að vatnsbúskapurinn hafi raskast í úrhellisrigningum á föstudag.
„Það rigndi yfir 100 mm eftir... |
http://www.austurfrett.is/frettir/taeplega-200-kindum-smaladh-eftir-aramot | Tæplega 200 kindum smalað eftir áramót
Hátt í tvö hundruð kindum hefur verið smalað saman í Fljótsdalshreppi það sem af er þessu ári. Fjallskilastjóri segir að breyta verði skipulagi á fjallskilum þegar fjáreigendur sinna ekki ákalli um að koma fé sínu heim.
„Ástæðurnar sem að baki liggja. Að hluta til er þetta skipula... |
http://www.austurfrett.is/frettir/heppinn-adh-fara-ekki-lengra-en-a-minnisvardhann | Heppinn að fara ekki lengra en á minnisvarðann
Einn meiddist lítillega þegar bifreið með fjóra innanborðs skautaði út úr beygjunni við Neðri-Staf á leiðinni til Seyðisfjarðar í gær. Bifreiðin endaði á minnisvarðanum sem þar stendur og geta farþegarnir prísað sig sæla með að hafa hafnað þar.
Samkvæmt upplýsingum frá lög... |
http://www.austurfrett.is/frettir/tveir-haettulegustu-vegkaflar-landsins-a-austurlandi | Tveir hættulegustu vegkaflar landsins á Austurlandi
Suðurfjarðarvegur milli Fáskrúðsfjarðar og Breiðdalsvíkur og vegurinn frá Fellabæ að gatnamótunum við Úlfsstaði á Völlum eru þeir kaflar í íslenska vegakerfinu þar sem flest alvarleg slys verða miðað við umferðarþunga. Sérfræðingur í umferðaröryggi segir ástand austfi... |
http://www.austurfrett.is/frettir/vidha-skemmdir-a-vegum-eftir-rigningar-helgarinnar | Víða skemmdir á vegum eftir rigningar helgarinnar
Skemmdir urðu á vegum í flestum sveitarfélögum á Austurlandi í miklu hlákuveðri síðasta föstudag. Vegagerðin vinnur að viðgerðum eftir því sem kostur er.
Á vef Vegagerðarinnar má finna yfirlit yfir þær skemmdir sem urðu á vegum í óveðrinu um helgina.
Á Seyðisfjarðarvegi... |
http://www.austurfrett.is/frettir/hefdhi-viljadh-greidha-meira-til-samfelagsins | Hefði viljað greiða meira til samfélagsins
Sigfús Vilhjálmsson á Brekku í Mjóafirði er sá útvegsmaður sem borgar lægst veiðigjöld á landinu fiskveiðiárið 2016-2017. Síldarvinnslan í næsta firði greiðir mest austfirskra útgerða og þriðju hæstu gjöldin á landsvísu.
Rætt er við Sigfús í nýjasta tölublaði Fiskifrétta en ha... |
http://www.austurfrett.is/frettir/vatnidh-i-neskaupstadh-i-lagi | Vatnið í Neskaupstað í lagi
Ekki er lengur nauðsynlegt að sjóða vatn í Neskaupsstað. Talið er að yfirborðsvatn hafi borist í vatnsból í Fannardal í miklum rigningum á föstudag.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá sveitarfélaginu Fjarðabyggð og Heilbrigðiseftirliti Austurlands.
Sýni sem tekin voru á mánudag leiddu í ljós... |
http://www.austurfrett.is/frettir/mikilvaegt-ad-stiga-ut-fyrir-landamoerkin | Mikilvægt að stíga út fyrir landamörkin
„Þetta er ótrúlega spennandi, ég vissi alveg að þetta væri það, en ekki svona,“ segir Berglind Häsler, ferðaþjónustubóndi í Havarí á Karlsstöðum í Berufirði. Havarí er eitt tíu fyrirtækja sem tekur þátt í Startup Tourism í ár.
Startup Tourism er tíu vikna viðskiptahraðall í umsjá... |
http://www.austurfrett.is/frettir/grannaslagur-fyrir-opnum-tjoldum-i-kvold | Grannaslagur fyrir opnum tjöldum í kvöld
„Það er vissulega mjög áhugavert að dragast á móti þeim,“ segir Jökull Logi Sigurbjarnarson, meðlimur liðs Verkmenntaskóla Austurlands í Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna. Skólinn mætir grönnum sínum í Menntaskólanum á Egilsstöðum í annarri umferð keppninnar í kvöld... |
Subsets and Splits
No community queries yet
The top public SQL queries from the community will appear here once available.