Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
http://www.austurfrett.is/frettir/blak-tvoe-toep-gegn-ka
Blak: Tvö töp gegn KA Karlalið Þróttar í blaki er áfram í fjórða sæti deildarinnar eftir tvo ósigra gegn toppliði KA í síðustu viku. Liðin mættust fyrst á Akureyri á þriðjudagskvöld og þann leik vann KA 3-0. KA liðið hafði yfirburði í fyrstu hrinu og vann hana 25-17. Jafnt var löngum í annarri hrinu en eftir að staðan ...
http://www.austurfrett.is/frettir/vid-aetlum-okkur-i-urslit-i-ar
„Við ætlum okkur í úrslit í ár“ Báðir framhaldsskólar fjórungsins komust áfram eftir fyrstu umferð Gettu betur, spurningakeppni framhandsskólanna. Dregið verður í aðra umferð á morgun. ME vann Menntaskólann á Laugarvatni með 39 stigum gegn 15. Liðið skipa þau Ása Þorsteinsdóttir, Björgvin Ægir Elísson og Kristófer Dan ...
http://www.austurfrett.is/frettir/hef-aldrei-att-eins-notarlega-og-goda-saengurlegu-adur
„Hef aldrei átt eins notalega og góða sængurlegu áður“ Fyrsta barnið sem fæddist á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað í ár var myndarlegur drengur sem kom í heiminn þann 3. janúar. Foreldrar hans eru þau Erla Björk Jónsdóttir og Haukur Dór Kjartansson, búsett á Reyðarfirði. „Drengurinn var tekinn með keisara og var 14...
http://www.austurfrett.is/frettir/hoffellidh-siglir-sjalft-til-eskifjardhar
Hoffellið siglir sjálft til Eskifjarðar Hoffell, flutningaskip Samskipa sem varð vélarvana skammt utan Reyðarfjarðar fyrr í kvöld, kom til hafnar á Eskifirði skömmu fyrir klukkan hálf tólf í kvöld. Þangað sigldi skipið fyrir eigin vélarafli og gekk siglingin að óskum. Skipið lét úr Mjóeyrarhöfn og hélt áleiðis til Rott...
http://www.austurfrett.is/frettir/gps-visadhi-upp-oddsskardh
GPS vísaði upp Oddsskarð Lögreglan kom til bjargar ferðamönnum sem keyrt höfðu upp Oddsskarð eftir leiðbeiningum leiðsögutækis. Áramótin voru almennt róleg hjá lögreglunni á Austurlandi. Í dagbók lögreglunnar segir að tveir erlendir ferðamenn hafi beðið um aðstoð lögreglunnar eftir að hafa ekið gamla Norðfjarðarveginn ...
http://www.austurfrett.is/frettir/varadh-vidh-urhellisrigningu-annadh-kvoeld-gaeti-raskadh-samgoengum
Varað við úrhellisrigningu annað kvöld: Gæti raskað samgöngum Veðurstofan varar við mikilli úrkomu á sunnanverðum Austfjörðum sem hefst á fimmtudagskvöld og stendur í rúman sólarhring. Hætta er á hlaup geti komið í ár og læki. „Seint á morgun eða annað kvöld kemur mikil rigning sem á að standa í rúman sólarhring. Sólar...
http://www.austurfrett.is/frettir/hoffellidh-verdhur-a-eskifirdhi-ut-vikuna
Hoffellið verður á Eskifirði út vikuna Viðgerð á Hoffelli, flutningaskipi Samskipa sem kom til Eskifjarðar á sunnudagskvöld með bilaða vél, tekur lengri tíma en áætlað var. Ljóst er að skipið lætur ekki úr höfn í þessari viku. Samkvæmt tilkynningu frá Samskipum kom í ljós við nánari skoðun að kalla þyrfti eftir varahlu...
http://www.austurfrett.is/frettir/er-edhlilegt-adh-heilbrigdhisthjonusta-lifi-a-afkomu-fyrirtaekja
Er eðlilegt að heilbrigðisþjónusta lifi á afkomu fyrirtækja? Síldarvinnslan og tengd fyrirtæki í Neskaupsatð hafa undanfarin sex ár veitt 150 milljónum króna til að efla heilbrigðisþjónustu á Austurlandi. Bæjarfulltrúar í Fjarðabyggð segja það umhugsunarvert umhverfi sem velti kostnaði af opinberum stofnunum yfir á nær...
http://www.austurfrett.is/frettir/thau-vilja-hvergi-annars-stadar-vera
„Þau vilja hvergi annars staðar vera“ „Nemendunum þykir þetta allt saman mjög merkilegt og þau stækkuðu talsvert við flutiniginn,“ segir Lísa Lotta Björnsdóttir, leikskólastjóri á Lyngholti á Reyðarfirði, en næstelsti árgangur skólans er nú fluttur í Félagslund, gamla félagsheimilið á staðnum. Stefnt hefur verið á stæk...
http://www.austurfrett.is/frettir/metoo-malefni-sem-hefur-snert-nanast-hvert-einasta-mannsbarn-i-okkar-samfelagi-sidhustu-vikurnar
#metoo: Málefni sem hefur snert nánast hvert einasta mannsbarn í okkar samfélagi síðustu vikurnar Sveitarfélagið Fjarðabyggð hyggst standa fyrir jafnréttis- og kynjafræðslu meðal starfsmanna sveitarfélagsins í ár. Þá verður myndaður starfshópur til að bregðast við kynferðislegri og áreitni í starfsumhverfi Fjarðabyggða...
http://www.austurfrett.is/frettir/kosidh-um-sameiningu-i-mars
Kosið um sameiningu í mars Kosið verður um sameiningu Fjarðabyggðar og Breiðdalshrepps laugardaginn 24. mars. Samstarfsnefnd sveitarfélaganna skilaði af sér tillögu sinni í dag. „Við teljum allar forsendur vera þannig að rétt sé að málið fari fyrir íbúana,“ segir Jón Björn Hákonarson, formaður nefndarinnar og forseti b...
http://www.austurfrett.is/frettir/astaedha-til-bjartsyni-a-seydhisfirdi-a-naestu-arum
Ástæða til bjartsýni á Seyðisfirði á næstu árum Bæjarstjóri Seyðisfjarðarkaupstaðar segir ástæðu til bjartsýni í sveitarfélaginu á næstu árum þar sem tiltekt í fjármálum sveitarfélagsins sé að skila árangri. Eins sé tekið eftir bænum á heimsvísu og það sé að þakka mikilli vinnu. Þetta kemur fram í áramótaávarpi bæjarst...
http://www.austurfrett.is/frettir/var-skridhdalsvegurinn-hrossakaup-a-lokasprettinum
Var Skriðdalsvegurinn hrossakaup á lokasprettinum? Þingmaður Miðflokksins segir furðulegt hvernig hálfum milljarði hafi verið bætt við til framkvæmda á veginum í botni Skriðdals milli umræðna um fjárlög ársins 2018 þegar brýnni verkefni á Austurlandi bíði afgreiðslu. Þetta eru orð Bergþórs Ólasonar, þingmanns flokksins...
http://www.austurfrett.is/frettir/utgafa-byggingarleyfis-valt-a-skyringum-matskenndra-lagaakvaedha
Útgáfa byggingarleyfis valt á skýringum matskenndra lagaákvæða Sveitarfélagið Fjarðabyggð hefur verið sýknað af öllum kröfum eigenda hluta hluta húseignar á Fáskrúðsfirði um að greiða þeim lögmannskostnað sem þeir lögðu út í við að gæta hagsmuna sinna. Sveitarfélagið gaf út leyfi til að breyta þeim hluta hússins sem þe...
http://www.austurfrett.is/frettir/vopnafjoerdhur-nytt-vallarhus-staersta-framkvaemdin
Vopnafjörður: Nýtt vallarhús stærsta framkvæmdin Nýtt vallarhús verður stærsta framkvæmd Vopnafjarðarhrepps á árinu 2018. Gert er ráð fyrir ríflega 130 milljóna hagnaði af rekstri sveitarfélagsins á næsta ári. Þetta kemur fram í ársreikningi hreppsins sem samþykktur var á síðasta fundi sveitarstjórnar fyrir jól. Alls e...
http://www.austurfrett.is/frettir/sigrun-bloendal-haettir-i-sveitastjornarmalum
Sigrún Blöndal hættir í sveitastjórnarmálum Sigrún Blöndal, formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi og oddviti Héraðslistans í bæjarstjórn Fljótsdalshérað, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í sveitastjórnarkosningunum í vor. Hún segir tíma til kominn að snúa sér að nýjum verkefnum. „Já, ég ætla hætta. Það eru...
http://www.austurfrett.is/frettir/takmoerkudh-umhverfisahrif-af-efnistoeku-vidh-eyri
Takmörkuð umhverfisáhrif af efnistöku við Eyri Ekki er talið að vinnsla á 520 þúsund rúmmetrum á efni úr sjó við Eyri í Reyðarfirði hafi teljandi áhrif á umhverfið í nágrenninu. Þar er eitt stærsta setsvæðið á grunnsævi í firðinum. Þetta kemur fram í tillögu að matsáætlun sem lögð hefur verið fram fyrir hönd hafnarsjóð...
http://www.austurfrett.is/frettir/thrju-varnarholf-losna-undan-hoeftum-ridhuskilgreiningar-um-aramot
Þrjú varnarhólf losna undan höftum riðuskilgreiningar um áramót Þrjú varnarhólf fyrir sauðfjárveikivarnir á Austurlandi losna undan höftum riðuskilgreiningar um áramótin. Þar með verður aflétt höftum á flutningi á fé innan hólfanna. Um er að ræða Norðausturhólf, Héraðshólf og Austfjarðahólf. Riðutilfelli komu síðast up...
http://www.austurfrett.is/frettir/aetla-adh-loka-hringnum-fyrir-paska
Ætla að loka hringnum fyrir páska Ný hraðhleðslustöð Orku náttúrunnar (ON) var tekin í notkun á Egilsstöðum í dag. Þrjár slíkar stöðvar varða komnar í gagnið í upphafi nýs árs. Fyrsta hraðhleðslan í fjórðungnum var tekin í notkun á Djúpavogi fyrir tveimur vikum og stöð opnar á Stöðvarfirði á fyrstu dögum nýs árs. Við o...
http://www.austurfrett.is/frettir/50-bjoergunarsveitarmenn-adhstodhudhu-ferdhalanga-i-gaerkvoeldi
50 björgunarsveitarmenn aðstoðuðu ferðalanga í gærkvöldi Annríki var hjá austfirskum björgunarsveitum seinni partinn í gær og gærkvöldi. Snjóflóð lokaði veginum yfir Fagradal og flytja þurfti lækni til Seyðisfjarðar. Samkvæmt tilkynningu frá Landsbjörgu komu 50 björgunarsveitarmenn að aðgerðunum í gær. Flytja þurfti fó...
http://www.austurfrett.is/frettir/hver-er-austfirdhingur-arsins-2017
Hver er Austfirðingur ársins 2017? Austurfrétt hefur staðið fyrir kosningu um Austfirðing ársins frá því að vefurinn hóf göngu sína árið 2012. Nú gefst lesendum tækifæri til að tilnefna þá sem þeir telja eiga heima í kjörinu. Tekið verður á móti tilnefningum út sunnudaginn 7. janúar en kosningin sjálf fer af stað í kjö...
http://www.austurfrett.is/frettir/skuli-oskarsson-tekinn-inn-i-heidhurshoell-isi
Skúli Óskarsson tekinn inn í Heiðurshöll ÍSÍ Skúli Óskarsson, kraftlyftingamaður frá Fáskrúðsfirði, var í gærkvöldi tekinn inn í heiðurshöll Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Skúli er annar Austfirðingurinn sem útnefndur er í heiðurshöllina. Skúli ólst upp á Fáskrúðsfirði og þrátt fyrir að hann byggi lengst af í Rey...
http://www.austurfrett.is/frettir/loegreglan-hvetur-ferdhathjonustuadhila-til-adh-leidhbeina-ferdhamoennum
Lögreglan hvetur ferðaþjónustuaðila til að leiðbeina ferðamönnum Lögreglan á Austurlandi beinir því til ferðaþjónustuaðila að aðstoða erlenda ferðamenn til að leita upplýsingar um færð og veður. Flest útköll lögreglunnar undanfarnar tvær vikur hafa tengst ófærð. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar. Þar segir að aðst...
http://www.austurfrett.is/frettir/fagna-breytingum-a-frumvarpi-til-fjarlaga
Fagna breytingum á frumvarpi til fjárlaga Samband sveitarfélaga á Austurlandi fagnar breytingum sem gerðar voru á frumvarpi til fjárlaga á milli fyrstu og annarrar umræðu. Þetta kemur fram í tilkynningu sem sambandið sendi frá sér í morgun. Stærsta breytingin milli umræðna er 480 milljóna framlag í veginn í botni Skrið...
http://www.austurfrett.is/frettir/halfur-milljardhur-i-veginn-i-botni-skridhdals-afangi-adh-axarvegi-i-minum-huga
Hálfur milljarður í veginn í botni Skriðdals: Áfangi að Axarvegi í mínum huga Meirihluti fjárlaganefndar Alþingis hefur lagt til að 480 milljónum króna verði varið til að byggja upp veginn í botni Skriðdal áleiðis að Öxi á næsta ári. Formaður bæjarráðs Fljótsdalshéraðs fagnar þessum árangri. „Þetta er stórmál fyrir Aus...
http://www.austurfrett.is/frettir/semur-vidh-elsta-og-staersta-forlag-danmerkur
Semur við elsta og stærsta forlag Danmerkur Samið hefur verið um útgáfurétt á Millulendingu, fyrstu skáldsögu Fellbæingsins Jónasar Reynis Gunnarssonar, við Gyldendal, stærsta og elsta forlag Danmerkur. Þetta kemur fram í tilkynningu sem forlag Jónasar, Partus, sendi frá sér í dag. Áður hefur verið staðfest að bókin ko...
http://www.austurfrett.is/frettir/sigmundur-davidh-fluttur-adh-austan
Sigmundur Davíð fluttur að austan Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrum forsætisráðherra, er fluttur frá Hrafnabjörgum í Jökulsárhlíð á Fljótsdalshéraði þar sem hann hefur haft lögheimili sitt undanfarin fjögur ár. Sigmundur er nú skráður til heimilis á Akureyri. Samkvæmt þjóðskrá er Sigmundur nú skráður til heimilis í ...
http://www.austurfrett.is/frettir/vara-vidh-veginum-i-fannardal
Vara við veginum í Fannardal Lögreglan á Austurlandi varar við ósléttum veginum í Fannardal að nýju Norðfjarðargöngunum þar sem vegurinn er ósléttur. Flest verkefni lögreglunnar í síðustu viku tengdust umferðaróhöppum. Varað er við vegarkaflanum frá gangamunnanum að Skálateigi í dagbók lögreglunnar. Þar segir að í vegi...
http://www.austurfrett.is/frettir/tryggir-vonandi-adh-vidh-thurfum-ekki-i-nidhurskurdh
Tryggir vonandi að við þurfum ekki í niðurskurð Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands vonast til að 450 milljóna aukning til heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni fleyti stofnuninni í gegnum árið 2018. Varað var við að óbreytt fjárlög þýddu niðurskurð. Meirihluti fjárlaganefndar lagði fram breytingatillögu við fjár...
http://www.austurfrett.is/frettir/neitadhi-adh-gefa-blodhsyni-thvi-hann-var-hraeddur-vidh-sprautur
Neitaði að gefa blóðsýni því hann var hræddur við sprautur Héraðsdómur Austurlands hefur svipt karlmann ökuréttindum fyrir ölvunarakstur. Maðurinn neitaði að gefa blóðsýni eftir að hann var færður á lögreglustöð en krafðist þess að móðir hans yrði fengin til verksins. Það var um klukkan hálf þrjú aðfaranótt aðfangadags...
http://www.austurfrett.is/frettir/annar-afangi-mjoeyrarhafnar-og-vidhbygging-vidh-leikskola-staerstu-verkefnin
Annar áfangi Mjóeyrarhafnar og viðbygging við leikskóla stærstu verkefnin Annar áfangi Mjóeyrarhafnar og viðbygging á leikskólanum Lyngholti á Reyðarfirði verða stærstu framkvæmdir sveitarfélagsins Fjarðabyggðar á næsta ári. Gert er ráð fyrir að afgangur af rekstri sveitarfélagsins á næsta ári nemi 432 milljónum króna....
http://www.austurfrett.is/frettir/obreytt-framlag-til-hsa-erfitt-adh-hagraedha-frekar-an-thess-adh-skerdha-thjonustu
Óbreytt framlag til HSA: Erfitt að hagræða frekar án þess að skerða þjónustu Framlög til heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni, þar með talið Heilbrigðisstofnunar Austurlands, eru óbreytt í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2018 miðað við það frumvarp sem lagt fram af fyrri ríkisstjórn í haust. Stjórnendur stofnunarinnar tel...
http://www.austurfrett.is/frettir/enn-engin-aukning-til-heilbrigdhisstofnana-a-landsbyggdhinni
Enn engin aukning til heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni Enga aukningu er að finna í framlögum til heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni frá tillögum síðustu ríkisstjórnar þrátt fyrir að velferðarráðuneytið hafi sent frá sér tilkynningu um aukin framlög í. Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands heldur enn í vonina...
http://www.austurfrett.is/frettir/serstakt-adh-bodhidh-se-i-serfraedhilaekna-svo-their-komi-ut-a-land
Sérstakt að boðið sé í sérfræðilækna svo þeir komi út á land Bæjarfulltrúar á Fljótsdalshéraði telja að endurskoða verði kerfið um þjónustu sérfræðilækna til að tryggja að þeir veiti einnig þjónustu á landsbyggðinni. Ekki dugi að auka peninga í heilbrigðismála ef kerfið sé gallað. „Það er ekki nógu að setja bara meiri ...
http://www.austurfrett.is/frettir/stefan-grimur-afram-oddviti
Stefán Grímur áfram oddviti Stefán Grímur Rafnsson verður áfram oddviti Vopnafjarðarhrepps. Frá þessu var gengið formlega í gær á sveitarstjórnarfundi þar sem nýr meirihluti tók við völdum. Leiðtogar Betra Sigtúns og K-lista félagshyggju höfðu skipt oddvitasætinu með sér á milli ára en það var í höndum Sigtúnslistans þ...
http://www.austurfrett.is/frettir/fjarskipti-efld-vidh-mjoafjoerdh
Fjarskipti efld við Mjóafjörð Bæjarstjóri Fjarðabyggðar er bjartsýnn á að lausn finnist á fjarskiptasambandi við Dalatanga í Mjóafirði fyrir áramót en þá rennur út samningur um gervihnattasamband við staðinn. Sambandið skiptir máli, bæði fyrir öryggi ábúenda, íbúa í nágrenninu og sjófarenda. Vonast er til að ljósleiðar...
http://www.austurfrett.is/frettir/segir-vinnumenninguna-a-austurlandi-haettulega
Segir vinnumenninguna á Austurlandi hættulega Launamunur kynjanna virðist hvergi meiri á landinu en Austurlandi. Vinnumenningin á Austurlandi ýtir undir hann og skapar valdaójafnvægi inni á heimilunum. Launamunurinn er mestur í Fjarðabyggð, heildartekjur kvenna þar eru 54% af heildartekjum karla. Á landsvísu eru laun k...
http://www.austurfrett.is/frettir/helgin-adhventa-gunnars-a-fjoeldamoergum-tungumalum-i-tilefni-afmaelis
Helgin: Aðventa Gunnars á fjöldamörgum tungumálum í tilefni afmælis „Gunnarsstofnun var opnuð 1997. Það var þó ekki í þeirri mynd sem hún er í dag, en stofnunin varð ekki menningarsetur fyrr en árið 2000. Það er ótrúlegt hversu margt hefur gerst á þessum tíma og hvernig við erum nú í þessu stóra og flotta húsi með mikl...
http://www.austurfrett.is/frettir/nyr-meirihluti-a-vopnafirdhi
Nýr meirihluti á Vopnafirði Betra Sigtún og B-listi Framsóknarmanna og óháðra hafa gert með sér samkomulag um meirihluta í hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps út kjörtímabilið. Fyrri meirihluti Betra Sigtúns og K-lista félagshyggjufólks sprakk á sveitarstjórnarfundi á fimmtudagskvöld vegna deilna um sveitarstjórann. Á fundi...
http://www.austurfrett.is/frettir/djupavogshreppur-sameiningarvidhraedhur-komnar-i-frost
Djúpavogshreppur: Sameiningarviðræður komnar í frost Sameiningarviðræðum Djúpavogshrepps, Skaftárhrepps og sveitarfélagsins Hornafjarðar hefur verið frestað að sinni. Oddviti Djúpavogshrepps segir ríkisstjórnarslit, hugmyndir um lágmarksstærð sveitarfélaga og breytingu á stefnu Jöfnunarsjóðs hafa hægt á viðræðum í haus...
http://www.austurfrett.is/frettir/sildarvinnslan-hefur-veridh-lansoem-medh-oeflugt-starfsfolk-og-sterkt-bakland
Síldarvinnslan hefur verið lánsöm með öflugt starfsfólk og sterkt bakland Í dag eru 60 ár liðin síðan heimamenn í Neskaupstað komu saman og stofnuðu Síldarvinnslunnar. Núverandi framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir öflugt bakland hafa skipt máli til að fyrirtækið yrði eitt öflugasta sjávarútvegsfyrirtæki landsins í dag...
http://www.austurfrett.is/frettir/hafnadhi-endurupptoeku-meidhyrdhamals
Hafnaði endurupptöku meiðyrðamáls Endurupptökunefnd hefur hafnað beiðni karlmanns á Eskifirði um að dómur yfir honum fyrir meiðyrði gegn lögregluþjóni verði tekin upp að nýju. Maðurinn taldi sig hafa ný gögn sem sönnuðu mál hans. Upphaflega var gefin út ákæra í sjö töluliðum gegn manninum fyrir ærumeiðandi ummæli sem h...
http://www.austurfrett.is/frettir/lodhnuvinnslan-ottast-adh-mengun-fra-auknu-laxeldi-skadhi-faskrudhsfjoerdh
Loðnuvinnslan óttast að mengun frá auknu laxeldi skaði Fáskrúðsfjörð Stjórn Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði mótmælir áformum um laxeldi í Fáskrúðsfirði. Eldi á allt að 15.000 tonnum af laxi í firðinum eru í umsagnarferli. Í yfirlýsingu Loðnuvinnslunnar er lagst gegn áformunum vegna þeirra umhverfisáhrifa sem eldið kan...
http://www.austurfrett.is/frettir/sildarvinnslan-semur-um-nysmidhi-tveggja-nyrra-skipa
Síldarvinnslan semur um nýsmíði tveggja nýrra skipa Síldarvinnslan hefur skrifað undir samninga við norskt fyrirtæki um nýsmíði á tveimur nýjum togurum. Alls undirrituðu fulltrúar fjögurra íslenskra útgerða samninga um smíði á sjö samskonar skipum. Nýsmíðin er liður í endurnýjun á ísfisktogara Síldarvinnslunnar sem til...
http://www.austurfrett.is/frettir/vidh-konur-eigum-allar-thessar-frasagnir
„Við konur eigum allar þessar frásagnir“ „Þetta er tíu konur, allsstaðar að úr samfélaginu okkar, sem ætla að lesa upp frásagnir kvenna sem hafa stigið fram í #metoo byltingunni sem nú er Í gangi. Með þessu munu þær að varpa ljósi á þann veruleika sem er saga okkar allra ,“ segir Halldóra Malin Pétursdóttir, leikkona. ...
http://www.austurfrett.is/frettir/deilur-um-sveitarstjorann-eydhiloegdhu-meirihlutasamstarfidh-a-vopnafirdhi
Deilur um sveitarstjórann eyðilögðu meirihlutasamstarfið á Vopnafirði Meirihlutasamstarfi K-lista og Betra Sigtúns í hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps lauk á fimmtudag eftir að fulltrúar K-lista fóru fram á að sveitarstjóranum yrði sagt upp vegna samstarfsörðugleika. Fulltrúar nýs meirihluta telja að óráðlegt hefði verið ...
http://www.austurfrett.is/frettir/selja-jolatre-til-reykjavikur
Selja jólatré til Reykjavíkur Skógarbændur á Fljótsdalshéraði hafa undanfarna daga gert jólatré klár sem send verða suður til Reykjavíkur til sölu. Heimamarkaðurinn er samt mikilvægastur fyrir þá. Undanfarin ár hafa tré frá Austurlandi verið til sölu hjá Skógræktarfélagi Hafnarfjarðar og Skógræktarfélagi Reykjavíkur. Í...
http://www.austurfrett.is/frettir/helgin-godh-stemming-og-lett-dagskra-i-notalegu-og-rolegu-um-hverfi
Helgin: „Góð stemming og létt dagskrá í notalegu og rólegu um hverfi“ „Hefð er orðin fyrir því að kvenfélagið standi fyrir þessum skemmtilega degi þar sem fólk kemur saman í upphafi aðventu og nýtur góðrar stemmningar og léttrar dagskrár í notalegu og rólegu umhverfi. Við hlökkum til að sjá ykkur,“ segir Katrín Högnadó...
http://www.austurfrett.is/frettir/likamsaras-a-reydharfirdhi
Líkamsárás á Reyðarfirði Lögreglan á Austurlandi rannsakar líkamsárás í heimahúsi á Reyðarfirði um síðustu helgi. Málið telst að mestu upplýst. Karlmaður réðist á konu á heimili hennar á Reyðarfirði um síðustu helgi. Konan hlaut meiðsli en ekki alvarleg. Gerandinn var farinn af staðnum þegar lögregla kom á svæðið en ha...
http://www.austurfrett.is/frettir/austfirdhingar-minnst-hrifnir-af-katrinu
Austfirðingar minnst hrifnir af Katrínu Stuðningur við Katrínu Jakobsdóttur sem næsta forsætisráðherra Íslands er minnstur á Austfjörðum samanborið við önnur landssvæði. Þrátt fyrir þetta er Katrín sá einstaklingur sem flestir Austfirðingar vilja sjá í embættið. Þetta kemur fram í könnum sem Zenter gerði fyrir stuðning...
http://www.austurfrett.is/frettir/rigningar-skoeddudhu-burdharloeg-i-veginum-i-fannardal
Rigningar sködduðu burðarlög í veginum í Fannardal Endurvinna þarf hluta vegarins í Fannardal að hinum nýju Norðfjarðargöngum vegna skemmda á slitlagi. Talið er að rigningar á meðan unnið var við veginn í haust séu orsökin. Íbúar á Norðfirði hafa verið efins um ástand nýja vegarins í Fannardal að Norðfjarðargöngum efti...
http://www.austurfrett.is/frettir/thetta-hefur-vakidh-mikla-gledhi
„Þetta hefur vakið mikla gleði“ „Okkur finnst mjög skemmtilegt á skautum og þetta er frábært hreyfing. Við fórum til Akreyrar á skautasvellið þar og fannst það alveg frábært! Okkur langaði til að gera eitthvað hér á Egilsstöðum líka, svo við útbjuggum þetta skautasvell í garðinum okkar, “ segir Jana Janicková, íbúi í L...
http://www.austurfrett.is/frettir/sjoe-austfirsk-fyrirtaeki-taka-thatt-i-ratsjanni
Sjö austfirsk fyrirtæki taka þátt í Ratsjánni Sjö austfirsk fyrirtæki takka þátt í nýsköpunar- og þróunarverkefninu Ratsjánni á Austurlandi sem hófst í gær. Ratsjáin er ætluð stjórnendum í ferðaþjónustu sem vilja efla og auka hæfni sína. Verkefnið hóf göngu sína haustið 2016 með þátttöku átta fyrirtækja af landinu öllu...
http://www.austurfrett.is/frettir/15-5-milljonir-austur-til-adh-ljosvaedha-strjalbyl-sveitarfeloeg
15,5 milljónir austur til að ljósvæða strjálbýl sveitarfélög Djúpavogshreppur er í hópi þeirra sveitarfélaga sem fá hæsta styrkinn af sérstakri úthlutun samgöngu- og sveitastjórnarráðherra til ljósleiðavæðingar strjálbýlla sveitarfélaga. Fjórtán sveitarfélögum er boðinn alls 90 milljóna styrkur auk þess sem níu milljón...
http://www.austurfrett.is/frettir/vonast-til-adh-finna-heitt-vatn-i-nytanlegu-magni-i-naestu-borun
Vonast til að finna heitt vatn í nýtanlegu magni í næstu borun Sveitarstjórn Djúpavogshrepps hefur ákveðið að stofna félag undir heitinu Hitaveita Djúpavogshrepps ehf. til að leita að heitu vatni í sveitarfélaginu. Fyrri rannsóknir hafa gefið góð fyrirheit. Oddvitinn vonast til að leitin gangi hratt og vel enda séu mik...
http://www.austurfrett.is/frettir/gott-nordhanrok-ofaert-i-hamarsfirdhi-vegna-vedhurs
Gott norðanrok: Ófært í Hamarsfirði vegna veðurs Veginum frá Djúpavogi að Þvottá var lokað upp úr hádeginu vegna veðurs. Um 60 m/s vindhviður hafa mælst í Hamarsfirði. „Það er gott norðanrok hér en enginn snjór að ráði. Eftir 25 ár á Reyðarfirði finnst manni þetta ekki snjór,“ segir Eiður Ragnarsson. Hann býr á Djúpavo...
http://www.austurfrett.is/frettir/telja-lofsteininn-hafa-sprungidh-sunnan-vidh-jan-mayern
Telja lofsteininn hafa sprungið sunnan við Jan Mayern Stjörnufræðingur telur að loftsteinninn sem sást fyrir rúmri viku yfir Austurlandi hafi sprungið sunnan við Jan Mayern. Hann hafi verið um margt sérstakur. Í fyrsta lagi var hann óvenju bjartur, svo að sjónarvottum brá við þótt um dag væri. Í öðru lagi virtist stein...
http://www.austurfrett.is/frettir/djupavogshreppur-hlytur-vidhurkenningu-fyrir-brautrydhjendastarf-i-thagu-minjaverndar
Djúpavogshreppur hlýtur viðurkenningu fyrir brautryðjendastarf í þágu minjaverndar Minjastofnun Íslands hefur veitt Djúpavogshreppi sérstaka viðurkenningu fyrir mikilvægt brautryðjendastarf í þágu minjaverndar. Viðurkenningin er veitt fyrir sérstaka áherslu á verndun menningararfs í stefnumörkun sveitarfélagsins á svið...
http://www.austurfrett.is/frettir/opnun-ganganna-ekki-bara-stor-afangi-fyrir-ibua-neskaupstadhar
Opnun ganganna ekki bara stór áfangi fyrir íbúa Neskaupstaðar Bæjarfulltrúar í Fjarðabyggð glöddust yfir opnun Norðfjarðarganga og færslu þjóðvegar 1 á síðasta fundi bæjarstjórnar. Þeir telja aðferðafræðina við færslu vegarins vera vegarnesti inn í framtíðina. „Það er óþarfi að taka fram að þetta er mikill og stór áfan...
http://www.austurfrett.is/frettir/sertaeki-byggdhakvotinn-fyrsta-raunhaefa-leidhin-til-adh-koma-aflaheimilum-aftur-i-byggdharlagidh
Sértæki byggðakvótinn fyrsta raunhæfa leiðin til að koma aflaheimilum aftur í byggðarlagið Útgerðarmaður á Breiðdalsvík segir sértækan byggðakvóta sem úthlutað er í byggðarlagið í gegnum Byggðastofnun skipta miklu máli fyrir staðinn. Nýr bátur hefur verið keyptur til að veiða kvóta sem úthlutað var í haust. „Ég tel Bre...
http://www.austurfrett.is/frettir/fodhurblandan-lokar-a-egilsstoedhum
Fóðurblandan lokar á Egilsstöðum Fóðurblandan lokar verslun sinni á Egilsstöðum um næstu mánaðarmót. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að ekki sé lengur grundvöllur fyrir rekstrinum. „Þetta hefur verið nokkurra ára taprekstur. Við höfum leitað leiða til að auka veltuna en ekki gengið,“ segir Eyjólfur Sigurðsson, fram...
http://www.austurfrett.is/frettir/fagridalur-opinn
Fagridalur opinn Vegagerðin opnaði veginn yfir Fagradal klukkan rúmlega ellefu en honum var lokað í morgun vegna ófærðar og vonskuveðurs. Víða er illfært á Austurlandi. Í tilkynningu Vegagerðarinnar er varað við því að þótt vegurinn hafi verið opnaður sé þar áfram mjög erfitt ferðaveður. Lokaði hefur verið í morgun frá...
http://www.austurfrett.is/frettir/segir-metafla-utskyra-mismun-i-isprosentu
Segir metafla útskýra mismun í ísprósentu Framkvæmdastjóri Búlandstinds á Djúpavogi segir einstaklega góða veiðiferð útskýra mikinn mun í ísprósentu á afla fyrirtækisins milli þess hvort eftirlitsmenn frá Fiskistofu voru viðstaddir löndun eða ekki. Í fréttaskýringaþættinum Kveik á RÚV í gærkvöldi var fjallað um brottka...
http://www.austurfrett.is/frettir/daemdur-fyrir-adh-skalla-og-hota-fyrrverandi-kaerustu
Dæmdur fyrir að skalla og hóta fyrrverandi kærustu Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt karlmann á fertugsaldri í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á hana og hóta bæði henni og fleirum sem stóðu henni nærri alvarlegum líkamsmeiðingum. Sambandi þeirra lauk á árinu 2014. Það vor skallaði maðurinn konun...
http://www.austurfrett.is/frettir/vigahnoetturinn-sast-vidha-af-austfjoerdhum
Vígahnötturinn sást víða af Austfjörðum Vígahnöttur sem íbúar á Breiðdalsvík urðu varir við í fyrradag virðist hafa sést víða á Austfjörðum, meðal annars Höfn og Reyðarfirði. Eins og Austurfrétt greindi frá í gær sáu tveir íbúar á Breiðdalsvík blágrænt ljós á himni í stutta stund klukkan kortér yfir þrjú á þriðjudag. L...
http://www.austurfrett.is/frettir/lokadh-fram-a-laugardag
Lokað fram á laugardag? Vísbendingar eru um að ekki verið hægt að opna fjallvegi á Austurlandi á ný fyrr en á laugardagsmorgun. Leiðir eru nú óðum að lokast vegna óveðurs. Leiðinni yfir Mývatns- og Möðrudalsöræfi var lokað um klukkan þrjú í dag eftir að rúta með ferðamönnum keyrði aftan á snjóruðningstæki. Í tilkynning...
http://www.austurfrett.is/frettir/blagraent-ljos-sast-skjotast-yfir-breidhdalsvik
Blágrænt ljós sást skjótast yfir Breiðdalsvík Íbúar á Breiðdalsvík sá í gærdag blágrænt ljós á mikilli ferð yfir bænum. Stjörnufræðingur telur mestar líkur á að um hafi verið að ræða loftstein sem kom inn í gufuhvolf jarðar. „Þetta var blágrænt langt ljós, rétt yfir klettunum hjá bænum og stefndi á ægilegri ferð á fjal...
http://www.austurfrett.is/frettir/fljotsdalsheradh-bidhst-afsoekunar-a-aflifun-kattar
Fljótsdalshérað biðst afsökunar á aflífun kattar Ekki var farið eftir lögum og reglum þegar dýraeftirlitsmaður sveitarfélagsins Fljótsdalshéraðs aflífaði kött sem hann fjarlægði af heimili á Egilsstöðum í byrjun síðustu viku. Húsráðandi á Egilsstöðum óskaði aðfaranótt mánudagsins í síðustu viku eftir að villiköttur sem...
http://www.austurfrett.is/frettir/naermyndirnar-breyta-leikritinu-i-kvikmynd
Nærmyndirnar breyta leikritinu í kvikmynd Leikritið Með gull í tönn, sem sett var upp hjá Leikfélagi Fljótsdalshéraðs í kvöld, verður sýnt í kvikmyndaútgáfu í kvöld. Leikstjórinn segir það búa til aukna dramatík að fara með tökuvélina upp að leikurunum. „Ég þurfti að fara upp á svið til að taka yfir axlirnar á leikurun...
http://www.austurfrett.is/frettir/thrir-meiddust-i-rutuslysi-i-vidhidal
Þrír meiddust í rútuslysi í Víðidal Þrír farþegar slösuðust lítillega þegar rúta með 25 erlendum ferðamönnum ók aftan á snjóruðningstæki í Víðidal á Fjöllum í dag. Björgunarsveitir aðstoðuð fólkið til byggða sem og fleiri ferðamenn sem voru í vandræðum á Fjöllum. Þrír farþegar kenndu sér meins en ekki svo mikils að þör...
http://www.austurfrett.is/frettir/ruta-medh-ferdhamoennum-lenti-aftan-a-snjoplog
Rúta með ferðamönnum lenti aftan á snjóplóg Björgunarsveitir eru á leiðinni í Víðidal á Fjöllum þar sem rúta með erlendum ferðamönnum ók aftan á snjómoksturstæki á þriðja tímanum í dag. Enginn mun vera alvarlega slasaður eftir slysið. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunin á Egilsstöðum er enginn lífshættulega slasaður e...
http://www.austurfrett.is/frettir/spa-godhu-ari-fyrir-islenskan-sjavarutveg
Spá góðu ári fyrir íslenskan sjávarútveg Sérfræðingar Íslandsbanka spá 4% aukningu verðmætis sjávarafurða á næsta ári. Sjávarútvegurinn virðist standa sterkt þrátt fyrir verkfall sjómanna í byrjun árs. Á sama tími og verðmæti afurða eykst fækkar störfum í greininni. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu bankans um íslenskan...
http://www.austurfrett.is/frettir/koerfubolti-allt-i-baklas-i-thridhja-leikhlut
Körfubolti: Allt í baklás í þriðja leikhluta Afleitur þriðji leikhluti gerði út af við Hött sem heimsótti topplið Tindastóls á Sauðarkróki í úrvalsdeild karla í körfuknattleik karla í gærkvöldi. Liðið er enn án sigurs eftir átta deildarleiki. Jafnt var með liðunum og var Höttur meira að segja yfir á tímabili snemma í ö...
http://www.austurfrett.is/frettir/villtum-stofnum-talin-stafa-litil-haetta-af-eldisfiski-i-matsskyrslu
Villtum stofnum talin stafa lítil hætta af eldisfiski í matsskýrslu Efasemdum er lýst um að kynblöndun eldislax við villtan lax sé óafturkræf í frummatsskýrslu Fiskeldis Austfjarða um aukið eldi á vegum fyrirtækisins í Berufirði og Fáskrúðsfirði. Umhverfisáhrif af auknu eldi eru almennt metin óveruleg eða afturkræf. St...
http://www.austurfrett.is/frettir/nyjum-nordfjardargongum-akaft-fagnadh-myndir
Nýjum Norðfjarðargöngum ákaft fagnað – Myndir Yfir þúsund manns mættu þegar ný Norðfjarðargöng voru opnuð á laugardag. Segja má að stöðug hátíðarhöld hafi verið á Eskifirði og Norðfirði alla helgina. Gestir létu það ekki á sig fá þótt kalt væri í veðri og fjölmenntu með hlýju í hjarta að gangamunnanum Eskifjarðarmegin....
http://www.austurfrett.is/frettir/engin-akvoerdhun-tekin-um-uppbot-til-saudhfjarbaenda
Engin ákvörðun tekin um uppbót til sauðfjárbænda Framkvæmdastjóri Norðlenska segir að enn liggi ekki fyrir ákvörðun um hvort sauðfjárbændum verði greidd uppbót eftir sláturtíð. Vel hefur gengið að flytja út kjöt en verðið af innanlandsmarkaði skiptir mestu máli. Félag Sauðfjárbænda á Norðausturlandi skoruðu nýverið á s...
http://www.austurfrett.is/frettir/arekstur-a-eskifirdhi
Árekstur á Eskifirði Tveir bílar skullu saman við nýju vegamótin til Eskifjarðar í dag. Einn var fluttur á sjúkrahús eftir óhappið. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu varð slysið með þeim hætti að ökumaður sem var að koma úr nýju Norðfjarðargöngunum ætlaði að beygja til vinstri inn til Eskifjarðar en uggði ekki að sér o...
http://www.austurfrett.is/frettir/korter-adh-sloekkva-eldinn-i-alverinu
Kortér að slökkva eldinn í álverinu Skamma stund tók að ráða niðurlögum elds sem kviknaði í álveri Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði í nótt. Litlar skemmdir urðu og engin hætta á ferðum fyrir starfsfólk. Eldurinn kviknaði á fimmta tímanum í nótt út frá glussaleka í tæki í steypuskálanum. Dagmar Ýr Stefánsdóttir, upplýsinga...
http://www.austurfrett.is/frettir/madhur-stunginn-medh-hnif
Maður stunginn með hníf Tvær alvarlegar líkamsárásir voru kærðar til lögreglunnar á Austurlandi um liðna helgi. Í báðum er vitað hverjir voru að verki. Í annarri árásinni kjálkabrotnaði einstaklingur eftir að hafa verið sleginn í andlitið í heimahúsi. Í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi segir að málsatvik séu k...
http://www.austurfrett.is/frettir/mikil-dagskra-i-fjardharbyggdh-alla-helgina-thegar-nordhfjardhargoeng-verdha-opnudh
Mikil dagskrá í Fjarðabyggð alla helgina þegar Norðfjarðargöng verða opnuð „Göngin hafa gríðarlega þýðingu fyrir Fjarðabyggð sem og allt Austurland. Þessi nýju göng eru stórt skref í að gera Austurland allt í einu atvinnu- og þjónustusvæði. Íbúar eru að sjálfsögðu mjög spenntir fyrir morgundeginum, enda hafa men beðið ...
http://www.austurfrett.is/frettir/madhur-leyfir-ser-adh-halda-adh-their-hafi-gefidh-ser-nidhurstoedhuna-fyrst
„Maður leyfir sér að halda að þeir hafi gefið sér niðurstöðuna fyrst“ Bæjarfulltrúar á Fljótsdalshéraði eru gagnrýnir á skýrslu Vegagerðarinnar vegna flutnings vegnúmersins 1 af Breiðdalsheiði niður á Suðurfjarðaveg. Þá óttast þeir að lítið hald sé í yfirlýsingum ráðherra um að heilsársvegur yfir Öxi sé forgangsverkefn...
http://www.austurfrett.is/frettir/hvetja-ungt-folk-til-adh-henda-ser-i-hina-djupu-laug-stjornmalanna
Hvetja ungt fólk til að henda sér í hina djúpu laug stjórnmálanna „Þessi hugmynd að hafa einhverskonar pepp fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar kviknaði innan samtakanna fyrir nokkrum mánuðum. Við viljum og ætlumst til að ungt fólk fái að hafa áhrif á samfélagið á Austurlandi og því langar okkur til þess að hvetja u...
http://www.austurfrett.is/frettir/ahyggjur-af-hradhaakstri-i-nordhfjardhargoengum
Áhyggjur af hraðaakstri í Norðfjarðargöngum Starfsmenn sem enn eru að störfum í Norðfjarðargöngum verða fyrir óþægindum af hraðaakstri í göngunum. Til skoðunar er að loka göngunum tímabundið ef ekki hægist á umferðinni. Þótt göngin hafi verið opnuð á laugardag er enn nokkur vinna eftir í þeim og verður unnið í þeim næs...
http://www.austurfrett.is/frettir/helgin-gaman-adh-fa-taekifaeri-til-adh-syna-myndirnar-minar
Helgin: „Gaman að fá tækifæri til að sýna myndirnar mínar“ „Það er mjög gaman að fá tækifæri til að sýna myndirnar mínar á æskuslóðunum og fá að koma aðeins heim að knúsa kisann minn hann Grísling.. og auðvitað knúsa líka hina í fjölskyldunni minni. Ég er mjög spennr fyrir kvöldinu, þetta verður gaman, “ segir Guðný Ró...
http://www.austurfrett.is/frettir/thetta-er-ometanleg-vidhurkenning-og-klapp-a-bakidh
„Þetta er ómetanleg viðurkenning og klapp á bakið“ Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslandi veitti í gær LungA, Listahátíð ungs fólks á Austurlandi, heiðursviðurkenningu við hátíðlega athöfn á afmælishátíð Erasmus+ sem fram fór í Hörpu. Björt Sigfinnsdóttir framkvæmdastjóri og Aðalheiður Borgþórsdóttir, einn af stofnendu...
http://www.austurfrett.is/frettir/sumum-fannst-thetta-hraedhileg-tilhugsun
„Sumum fannst þetta hræðileg tilhugsun“ Dagarnir 31. október til 3. nóvember 2017 hafa verið símalausir dagar í Fellaskóla. Hugmyndin með þessi er að kanna kosti og galla símanotkunar í skólastarfinu og ná með því umræðu við nemendur um þeirra upplifun. Það hefur verið hávær umræða í samfélaginu um símanotkun ungmenna ...
http://www.austurfrett.is/frettir/vidh-skorum-a-sem-flesta-adh-maeta-og-taka-thatt-i-gledhinni-medh-okkur
„Við skorum á sem flesta að mæta og taka þátt í gleðinni með okkur“ „Félagsmiðstöðva- ungmennahúsadagurinn er haldinn á hverju ári og er tilgangur hans að kynna starfsemi og benda á mikilvægi félagsmiðstöðva. Farið verður í nokkra skemmtilega leiki og haldin verður spurningakeppni á milli foreldra og ungmenna. Við skor...
http://www.austurfrett.is/frettir/austfirskt-byggingarefni-i-utras-a-adh-baeta-husnaedhi-og-laekka-byggingakostnadh
Austfirskt byggingarefni í útrás? Á að bæta húsnæði og lækka byggingakostnað Múrverk Austurlands (MVA) hefur undanfarin tvö ár tekið þátt í þróun nýrra innveggja undir vörumerkinu Thermo Tec. Fyrstu veggirnir hafa verið reistir hérlendis en þegar er byrjað að skoða möguleika á sölu veggjanna til Noregs. Efnið drekkur v...
http://www.austurfrett.is/frettir/fjardharheidhi-lokudh-vegna-ohapps
Fjarðarheiði lokuð vegna umferðaróhapps Um klukkan sjö í morgun lokaðist Fjarðarheiði þegar flutningabíll með tengivagn fór út af veginum. Engin slys urðu á fólki og er unnið að því að koma bílnum aftur upp á veginn. Vegurinn er lokaður vegna óhappsins og liggja ekki fyrir upplýsingar um hvenær hann verður opnaður á ný...
http://www.austurfrett.is/frettir/tiu-sottu-um-stodu-framkvaemdastjora-fjardabyggdarhafna
Tíu sóttu um stöðu framkvæmdastjóra Fjarðabyggðarhafna Níu karlar og ein kona sóttu um stöðu framkvæmdastjóra Fjarðabyggðarhafna en umsóknarfrestur um stöðuna rann út í síðustu viku. Framkvæmdastjórinn ber ábyrgð á stjórnun og rekstri hafna sveitarfélagsins. Meðal annars voru gerðar kröfur um háskólapróf sem nýttist í ...
http://www.austurfrett.is/frettir/ekki-bara-spurning-um-adh-komast-yfir-bruna
„Ekki bara spurning um að komast yfir brúna“ Flóðið í Lagarfljóti í lok september eykur þrýsting á að byggð verði ný brú yfir Fljótið milli Egilsstaða og Fellabæjar. Áhyggjur voru af því að brúin gæfi sig. Hún skiptir ekki bara máli fyrir flutninga fólks og varnings því um hana liggja vatns-, rafmagns- og fjarskiptalag...
http://www.austurfrett.is/frettir/ungmennaradh-hvetur-ungt-folk-til-adh-kjosa-2
Ungmennaráð hvetur ungt fólk til að kjósa Ungmennaráð Fljótsdalshéraðs hefur áhuga á að hvetja ungt fólk til að nýta kosningarétt sinn. Þau sendu því öllum framboðum í Norðausturkjördæmi spurningar sem þau höfðu áhuga á svörum við. Með þessu vildu þau hjálpa ungu fólki að gera upp hug sinn og nýta kosningarétt sinn í k...
http://www.austurfrett.is/frettir/skora-a-nordlenska-ad-haekka-verd-til-saudfjarbaenda
Skora á Norðlenska að hækka verð til sauðfjárbænda Formenn fjögurra félaga sauðfjárbænda í Norðausturkjördæmi hafa sent stjórnendum Norðlenska áskorun um að hækka verð til sauðfjárbænda. Þeir telja að þær forsendur sem gefnar voru í upphafi sláturtíðar fyrir lækkun afurðaverð haldi ekki. Þetta kemur fram í ályktuninni ...
http://www.austurfrett.is/frettir/dagar-myrkurs-a-austurlandi
Dagar Myrkurs á Austurlandi „Spor menningarmiðlun, sem samanstendur af þeim Benný Sif Ísleifsdóttur frá Eskifirði, Fríðu Björk Ólafsdóttur og Völu Smáradóttur sáu um gerð sýningarinnar. Þær bjuggu til þessa hugmynd og sendu okkur efniviðinn sem við síðan bættum við munum héðan frá okkar safni svo úr varð herbergi verbú...
http://www.austurfrett.is/frettir/smali-a-fjorhjoli-slasadhist-eftir-adh-hafa-keyrt-ofan-i-skurdh
Smali á fjórhjóli slasaðist eftir að hafa keyrt ofan í skurð Smali á fjórhjóli slasaðist við að detta af hjólinu eftir að hafa ekið ofan í skurð. Í Neskaupstað valt bifreið eftir að ökumaðurinn misreiknaði sig þegar hann var að snúa við. Þetta er meðal þess sem fram kemur í dagbók lögreglunnar fyrir síðustu viku. Fjórh...
http://www.austurfrett.is/frettir/thau-ljoma-alveg-af-gledhi
„Þau ljóma alveg af gleði“ „Það skemmtu sér allir mjög vel og eru mjög spenntir fyrir næstu ferð að ári. Ég hef verið með öll árin, en þetta er svo gefandi og það er gaman að sjá hversu frábært ferðafélögunum finnst þetta. Þau ljóma alveg af gleði“ segir Heiðar Broddason hjá Austurlandsdeild 4x4. Síðastliðin laugardag ...
http://www.austurfrett.is/frettir/alveg-otrulegt-hversu-vel-folk-tok-i-thetta
„Alveg ótrúlegt hversu vel fólk tók í þetta“ „Það var búin að vera umræða hér í bænum um að nýta þennan tiltekna blett betur og hversu gaman væri að fá ærslabelg á hann. Við maðurinn minn, Óli Heiðar Árnason, stofnuðum síðan Facebookhóp og á þriðja degi voru meðlimir orðnir 300 manns. Það var því augljóst að áhuginn á ...
http://www.austurfrett.is/frettir/reykjavikurflugvollur-skal-vera-afram-thar-sem-hann-er
Reykjavíkurflugvöllur skal vera áfram þar sem hann er Frambjóðendur í Norðausturkjördæmi eru á einu máli að Reykjavíkurflugvöllur verði áfram á sínum stað. Margir þeirra hallast að því að ríkið þurfi að grípa inn í að tryggja veru vallarins til lengri tíma. Spurt var út í framtíð flugvallarins á framboðsfundi Austurfré...
http://www.austurfrett.is/frettir/breiddalshreppur-sameining-vid-fjardabyggd-heppilegasti-kosturinn
Breiðdalshreppur: Sameining við Fjarðabyggð heppilegasti kosturinn Heppilegast er fyrir Breiðdalshrepp að sameinast Fjarðabyggð, samkvæmt nýrri skýrslu sem unnin var fyrir hreppinn. Landfræðilegar aðstæður ráða þar miklu. Þátttaka í sveitarstjórn og hagræðing í rekstri eru lykilatriði sem mæla með sameiningu. Þetta kem...
http://www.austurfrett.is/frettir/fjorir-austfirdingar-a-lista-pirata
Fjórir Austfirðingar á lista Pírata Sævar Þór Halldórsson, landvörður á Teigarhorni, er efstur þeirra sem lögheimili eiga á Austurlandi á lista Pírata í Norðausturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar. Þrír aðrir Austfirðingar eru á listanum. Spurningin er reyndar hversu lengi Sævar Þór, sem skipar fjórða sætið, mun tel...