Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
http://www.austurfrett.is/frettir/bodha-minni-utgjoeld-fyrir-foreldra-en-svara-fau-um-kostnadh-sveitarfelagsins
Boða minni útgjöld fyrir foreldra en svara fáu um kostnað sveitarfélagsins Framboð í Fjarðabyggð boða fríar máltíðir í skólum sveitarfélagsins og að fyrirkomulag sumarlokana í leikskólum verði endurskoðuð. Lítið var hins vegar um svör við spurningum um fjármögnun breytinganna á framboðsfundi á Breiðdalsvík. Heimamenn h...
http://www.austurfrett.is/frettir/taeplega-100-milljona-afgangur-hja-vopnafjardharhrepp
Tæplega 100 milljóna afgangur hjá Vopnafjarðarhrepp Tæplega 96 milljóna króna afgangur varð af rekstri Vopnafjarðarhrepps á síðasta ári. Skuldahlutfall sveitarfélagsins er með því besta sem gerist á landinu. Samkvæmt reglum skulu skuldir sveitarfélags ekki vera meira en 150% af tekjum en hlutfallið er 51% hjá Vopnafjar...
http://www.austurfrett.is/frettir/nyskoepunarmidhstoedh-lokar-a-austurlandi
Nýsköpunarmiðstöð lokar á Austurlandi Starfsstöð Nýsköpunarmiðstöð Íslands á Djúpavogi, þeirri einu í fjórðungnum, var lokað um síðustu mánaðarmót. Stofnunin segir að starfsstöðin hafi verið tímabundin ráðstöfun til að mæta áföllum í atvinnulífi staðarins. Einn starfsmaður var með aðsetur á stöðinni á Djúpavogi en hann...
http://www.austurfrett.is/frettir/vilhjalmur-efstur-hja-framsoknarflokki
Vilhjálmur efstur hjá Framsóknarflokki Vilhjálmur Jónsson, bæjarstjóri, er efstur á lista B lista Framsóknarfélags Seyðisfjarðar og frjálslyndra fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Vilhjálmur var fyrst kjörinn sem aðalmaður í bæjarstjórn árið 2006 en þá leiddi hann lista Framsóknarflokks, Tinda og óflokksbundinna....
http://www.austurfrett.is/frettir/greinilega-mikill-hiti-i-husinu
„Greinilega mikill hiti í húsinu“ Íbúðarhúsið á Efri Skálateig 2 í Norðfjarðarsveit er nær ónýtt eftir bruna í morgun. Þrennt var í húsinu þegar eldurinn kom út en slapp ómeitt. Talið er að kviknaði hafi í út frá feiti í potti. „Aðkoman var mjög ljót. Það var greinilegt að mjög mikill eldur var í húsinu og útidyrahurði...
http://www.austurfrett.is/frettir/nordhfjardhara-braut-ser-leidh-inn-i-ruslagryfju
Norðfjarðará braut sér leið inn í ruslagryfju Landeigandi á Norðfirði hefur fengið frest til að taka til eftir sig eftir að Norðfjarðará braut sér leið inn í ruslagryfju á landi hans þannig að rusl flæddi út í ána. Óheimilt er að urða úrgang annars staðar en á á viðurkenndum urðunarstöðum. „Svo virðist sem ábúandi hafi...
http://www.austurfrett.is/frettir/bergthora-leidhir-h-lista
Bergþóra leiðir H-lista Bergþóra Birgisdóttir, matráður, skipar fyrsta sætið á lista Samtaka um samvinnu og lýðræði sem er nýtt framboð í Djúpavogshreppi. Tveir listar voru í framboði í kosningunum 2014 og var mjótt á mununum. Nýverið kom fram listi Lifandi samfélags sem að einhverju leiti er bræðingur úr þeim tveimur....
http://www.austurfrett.is/frettir/vid-hoefum-gridarleg-vannytt-taekifaeri
„Við höfum gríðarleg vannýtt tækifæri“ „Að mínu mati er það mjög aðkallandi fyrir íslenska ferðaþjónustu að lagður verði meiri kraftur í að færa hana frekar í átt að sjálfbærni,“ segir Fáskrúðsfirðingurinn Daði Már Steinsson, en hann hlaut nýlega verðlaun fyrir framúrskarandi lokaverkefni til BS-gráðu í ferðamálafræði ...
http://www.austurfrett.is/frettir/hannes-karl-oddviti-midhflokksins-a-fljotsdalsheradhi
Hannes Karl oddviti Miðflokksins á Fljótsdalshéraði Hannes Karl Hilmarsson, verkstjóri hjá Samskipum á Egilsstöðum og Hrefna Hlín Sigurðardóttir, grunnskólakennari, skipa efstu sætin á lista Miðflokksins á Fljótsdalshéraði fyrir kosningarnar í vor. Í tilkynningu frá framboðinu segir að áherslumál þess séu að stuðla að ...
http://www.austurfrett.is/frettir/stefan-grimur-leidhir-betra-sigtun
Stefán Grímur leiðir Betra Sigtún Stefán Grímur Rafnsson, oddviti Vopnafjarðarhrepps, leiðir framboð Betra Sigtúns á Vopnafirði sem býður nú fram í annað sinn. Talsverð endurnýjun er á listanum sem fékk tvo fulltrúa kjörna í síðustu kosningum. Þrír af fjórum efstu frambjóðendum hættu á kjörtímabilinu og stendur Stefán ...
http://www.austurfrett.is/frettir/tekidh-a-moti-frigg-w-i-mjoeyrarhoefn-myndir
Tekið á móti Frigg W í Mjóeyrarhöfn – Myndir Tekið var formlega á móti fyrsta af fjórum nýjum fragtskipum Cargo W í Mjóeyrarhöfn á sunnudag. Forsvarsmenn skipafélagsins boða samkeppi í flutningum til og frá Austfjörðum. Cargo W varð til þegar Alcoa bauð út sjóflutningsstarfsemi sína í Evrópu. W-ið kemur úr leiðakerfinu...
http://www.austurfrett.is/frettir/naestu-kjarasamningar-geta-radhidh-urslitum-um-framtidh-althydhusambandsins
Næstu kjarasamningar geta ráðið úrslitum um framtíð Alþýðusambandsins Kjarasamningar á næsta ári koma til með að ráða miklu fyrir stöðu verkalýðshreyfingarinnar í landinu. Þeir snúast ekki eingöngu um launahækkanir heldur aðgang að velferðarkerfinu. Mikilvægt er að launþegahreyfingin gangi sameinuð til samninga. Þetta ...
http://www.austurfrett.is/frettir/bjartur-oddviti-samfylkingarinnar-a-vopnafirdhi
Bjartur oddviti Samfylkingarinnar á Vopnafirði Bjartur Aðalbjörnsson, leiðbeinandi og varaþingmaður, leiðir lista Samfylkingarinnar á Vopnafirði fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Flokkurinn býður þar í fyrsta sinn fram undir eigin nafni. Í tilkynningu frá framboðinu segir að það vilji auka samstöðu á Vopnafirði....
http://www.austurfrett.is/frettir/rett-adh-adhstaedhur-eru-medh-oellu-ovidheigandi
„Rétt að aðstæður eru með öllu óviðeigandi“ Íbúðalánasjóður hefur lýst vilja til að kaupa eign íbúðareiganda á Stöðvarfirði sem á hluta af húsi á móti sjóðnum. Sjóðurinn hefur ekki sinnt viðhaldi í áraraðir en virðist hafa tekið sér eftir umfjöllun fjölmiðla. Það var Austurglugginn sem sagði fyrst frá aðstæðum Lilju Jó...
http://www.austurfrett.is/frettir/endurheimt-votlendis-er-stort-loftlagsmal
„Endurheimt votlendis er stórt loftlagsmál“ Fyrstu skóflustungurnar í endurheimt votlendis í Reyðarfirði voru teknar í gær, en á næstu tveimur árum er áætlað að endurheimta 60 hektara lands sem hefur verið framræst með skurðum. Talið er að allt að 70% af losun gróðurhúsalofttegunda hér á landi komi frá framræstu og rös...
http://www.austurfrett.is/frettir/stadastadur-er-kraftmikill-og-soegufraegur-stadur
„Staðastaður er kraftmikill og sögufrægur staður“ „Það er spennandi og ögrandi verkefni að takast á við þjónustuna innan kirkjunnar,“ segir Arnaldur Máni Finnsson, sem skipaður hefur verið í embætti sóknarprests Staðastaðarprestakalls í Vesturlandsprófastsdæmi. Biskup Íslands hefur ákveðið að skipa Arnald Mána í embætt...
http://www.austurfrett.is/frettir/sigridhur-oddviti-b-listans
Sigríður oddviti B-listans Sigríður Bragadóttir, fyrrverandi bóndi að Síreksstöðum í Vopnafirði, leiðir B-lista Framsóknarflokks og óháðra í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Sigríður var í fimmta sæti listans fyrir síðustu kosningar en tók sæti í sveitarstjórn eftir að tveir fulltrúar sem ofar voru á listanum fluttu ú...
http://www.austurfrett.is/frettir/hatidhin-hefur-leitt-til-audugra-samfelags-og-aukins-skilnings-manna-a-milli
„Hátíðin hefur leitt til auðugra samfélags og aukins skilnings“ „Hátíðin hefur breyst og þróast ár frá ári og fleiri eru að verða meðvitaðir um gildi hennar í listalífinu, bæði þátttakendur og njótendur,“ segir Kristín Rut Eyjólfsdóttir, verkefnastjóri listahátíðarinnar Listar án landamæra á Austurlandi. List án landam...
http://www.austurfrett.is/frettir/tad-vantar-alltaf-eitthvad
„Það vantar alltaf eitthvað“ „Það blasir við að heilbrigðisþjónustan er mjög vanbúin tækjum og tólum en það virðist alltaf vanta fjármagn í þetta kerfi,“ segir Hjálmar Jóelsson, fráfarandi formaður Hollvinasamtaka heilbrigðisþjónustu á Fljótsdalshéraði (HHF), sem afhentu Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) formlega gj...
http://www.austurfrett.is/frettir/mikil-endurnyjun-a-lista-sjalfstaedhisflokksins-a-seydhisfirdhi
Mikil endurnýjun á lista Sjálfstæðisflokksins á Seyðisfirði Mikil endurnýjun er á lista Sjálfstæðisflokksins á Seyðisfirði fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Tveir af núverandi bæjarfulltrúum gefa ekki kost á sér áfram. Elvar Snær Kristjánsson leiðir listann en tengdamóðir hans, Arnbjörg Sveinsdóttir forseti bæja...
http://www.austurfrett.is/frettir/vill-gera-kynjafraedhi-adh-skyldunamsgrein
Vill gera kynjafræði að skyldunámsgrein Ingibjörg Þórðardóttir, varaþingmaður Vinstri grænna úr Neskaupstað, hefur lagt fram þingsályktunartillögu um að kynjafræði verði skyldufag á ölum námsgreinum. Hún telur mikilvægt að vinna gegn úreltum hugmyndum um að eðli og hlutverk karla og kvenna séu ólík. Ingibjörg lagði til...
http://www.austurfrett.is/frettir/strandveidhifrumvarp-samthykkt-thratt-fyrir-motmaeli-austfirdhinga
Strandveiðifrumvarp samþykkt þrátt fyrir mótmæli Austfirðinga Austfirskir smábátasjómenn óttast að einstakir landshlutar geti orðið að öllum möguleikum til strandveiða með samþykkt nýrra laga um strandveiðar á Alþingi í gær. Til þessa hefur strandveiðisvæðunum skipt upp í fjögur landssvæði og er nær allt Austurland á s...
http://www.austurfrett.is/frettir/manni-bloskrar-allt-tetta-dot
„Manni blöskrar allt þetta dót“ „Þetta er bara alveg frábært og hvetur okkur til þess að halda áfram og önnur göngufélög til að gera slíkt hið sama,“ segir Eyþór Friðbergsson, formaður Göngufélags Suðurfjarða, sem í gær hlaut viðurkenningu frá Náttúruverndarsamtökum Austurlands (NAUST) fyrir framlag sitt til náttúruver...
http://www.austurfrett.is/frettir/ungmenni-turfa-ad-atta-sig-a-ad-island-er-ekki-eini-starfsvettvangurinn
„Ungmenni þurfa að átta sig á að Ísland er ekki eini starfsvettvangurinn“ „Okkar hlutverk í VA er að undirbúa nemendur fyrir störf á almennum vinnumarkaði og/eða frekara nám,“ segir Lilja Guðný Jóhannesdóttir, forsvarsmaður uppbyggingar alþjóðlegs samstarfs Verkmenntaskóla Austurlands við aðra verkmenntaskóla í Evrópu....
http://www.austurfrett.is/frettir/vid-vorum-med-kollana-fulla-af-nystarlegum-hugmyndum
„Við vorum með kollana fulla af nýstárlegum hugmyndum“ „Ég hafði ekki grænan grun hvernig svona hlutir færu fram þar til núna,“ segir Rebekka Rut Svansdóttir, nemi á nýsköpunar- og tæknibraut við VA, sem tók ásamt samnemendum sínum þátt í Vörumessu Ungra frumkvöðla fyrr í þessum mánuði. Nemendur á nýsköpunar- og tæknib...
http://www.austurfrett.is/frettir/tolir-ekki-ad-fara-a-sofn-tar-sem-stendur-ma-ekki-snerta
Þolir ekki að fara á söfn þar sem stendur; má ekki snerta „Manni finnst maður vera öðruvísi á einhvern hátt,“ segir Seyðfirðingurinn Aron Fannar Skarphéðisson, sem í samvinnu við forvarnarfulltrúa staðarins býður bæjarbúum nú innsýn í heim einhverfs einstaklings. Elí Freysson, frændi Arons, gaf nýverið út lítið hefti s...
http://www.austurfrett.is/frettir/tanni-travel-bydur-ollum-i-gamaldags-rutuferdh
Tanni Travel býður öllum í gamaldags rútuferð „Við erum að bjóða öllum sem vilja í sunnudagsbíltúr þann 6. maí næstkomandi. Dagurinn verður innblásinn af gömlu góðu rútuferðastemmingunni þar sem maður er manns gaman,“ segir Díana Mjöll Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar Tanna Travel sem fagnar 25 ára af...
http://www.austurfrett.is/frettir/hildur-leidhir-seydhisfjardharlistann
Hildur leiðir Seyðisfjarðarlistann Hildur Þórisdóttir, verslunareigandi og varabæjarfulltrúi, leiðir Seyðisfjarðarlistann, framboðslista félagshyggjufólks á Seyðisfirði í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Í tilkynningu frá listanum segir að hann sé skipaður fólki sem vilji leggja gróskumiklu mannlífi og samfélagi staða...
http://www.austurfrett.is/frettir/tetta-verdur-bylting-fyrir-ithrottalif-i-sveitarfelaginu
„Þetta verður bylting fyrir íþróttalíf í sveitarfélaginu“ „Ég er einstaklega ánægður með að hönnunin sé komin í gang,“ segir Davíð Þór Sigurðarson, formaður íþróttafélagsins Hattar, en skrifað var undir samninga vegna hönnunar og verkefnastjórnunar á nýrri viðbyggingu við íþróttamiðstöðina á Egilsstöðum á dögunum. Sefn...
http://www.austurfrett.is/frettir/200-milljona-hagnadhur-hja-fljotsdalsheradhi
200 milljóna hagnaður hjá Fljótsdalshéraði 200 milljóna hagnaður varð af rekstri sveitarfélagsins Fljótsdalshéraðs á síðasta ári. Reksturinn er heilt yfir heilbrigður en afborganir af skuldum taka í. 200 milljóna hagnaður varð af rekstri sveitarfélagsins í fyrra sem fyrr segir en afgangurinn fyrir afskriftir og fjármag...
http://www.austurfrett.is/frettir/a-eg-adh-fara-ut-og-eiga-ekki-neitt
„Á ég að fara út og eiga ekki neitt?“ Íbúðareigandi á Stöðvarfirði segir sinnuleysi Íbúðalánasjóðs gagnvart viðhaldi hafa valdið það miklum skemmdum á íbúðinni að hún sé óíbúðarhæf. Eigandinn sér fram á að þurfa að skilja við skuldlausa íbúðina án þess að fá neitt fyrir hana. „Ég fæ þau svör að þetta séu reglur, sjóður...
http://www.austurfrett.is/frettir/ormsteiti-i-sidhasta-sinn-i-sumar
Ormsteiti í síðasta sinn í sumar? Til stendur að hvíla héraðshátíðina Ormsteiti á Fljótsdalshéraði í óákveðinn tíma og taka upp nýtt fyrirkomulag eftir þetta ár. Ákvörðunin kemur í kjölfar dvínandi áhuga á undanförnum árum. Þetta er niðurstaða bæjarstjórnar en hún byggir á tillögum starfshóps sem skipaður var um framtí...
http://www.austurfrett.is/frettir/steinar-ingi-leidhir-heradhslistann
Steinar Ingi leiðir Héraðslistann Steinar Ingi Þorsteinsson, knattspyrnuþjálfari og framkvæmdastjóri og Kristjana Sigurðardóttir, verkefnastjóri, skipa framboðslista Héraðslista, samtaka félagshyggjufólks á Fljótsdalshéraði fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Nokkur endurnýjun er á listanum, sem myndar meirihluta ...
http://www.austurfrett.is/frettir/anna-oddviti-sjalfstaedhisflokks-og-ohadhra
Anna oddviti Sjálfstæðisflokks og óháðra Anna Alexandersdóttir, forseti bæjarstjórnar á Fljótsdalshéraði, leiðir lista Sjálfstæðisflokks og óháðra á Fljótsdalshéraði í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Gunnar Jónsson, formaður bæjarráðs sem setið hefur fyrir hönd Á-lista, er í öðru sætinu. Listinn var samþykktur á fund...
http://www.austurfrett.is/frettir/nytt-frambodh-i-djupavogshreppi
Nýtt framboð í Djúpavogshreppi Nýtt framboð, Lifandi samfélag, hefur verið kynnt til sögunnar í Djúpavogshreppi. Á listanum eru fulltrúar af báðum framboðunum sem sæti eiga í sveitarstjórn. Í framvarðarsveit listans eru meðal annars Þorbjörg Sandholt, sem situr í núverandi sveitarstjórn fyrir Framfaralistann og Kári Sn...
http://www.austurfrett.is/frettir/heradhslistinn-undirbyr-frambodh
Héraðslistinn undirbýr framboð Tillaga stjórnar Héraðslistans, samtaka félagshyggjufólks á Fljótsdalshéraði, um að listinn biði ekki fram í sveitarstjórnarkosningunum í vor var felld á aðalfundi á laugardag. Þess í stað var skipuð uppstillingarnefnd til að raða á listann. Stjórn listans sendi í byrjun mánaðarins frá sé...
http://www.austurfrett.is/frettir/tad-eru-otal-godar-astaedur-fyrir-thvi-adh-geyma-bilinn-heima
„Það eru ótal góðar ástæður fyrir því að geyma bílinn heima" „Hugmyndin kviknaði þegar við vorum að leggja línurnar fyrir árið 2018 í stýrihópnum um heilsueflandi samfélag,“ segir Eva Jónudóttir, þjónustufulltrúi Seyðisfjarðarkaupstaðar, um bíllausa viku, sem hófst á Seyðisfirði í gær." Á heimasíðu Seyðisfjarðarkaupsta...
http://www.austurfrett.is/frettir/andres-skulason-haettur
Er Andrés Skúlason hættur? Óvíst er hvort Andrés Skúlason, oddviti Djúpavogshrepps, gefur kost á sér á sér til áframhaldandi setu í sveitarstjórn. Andrés hefur farið fyrir sveitarstjórninni frá árinu 2002. Nafn Andrésar er hvergi að finna á nýjum framboðslista Lifandi samfélags sem kynntur var í gær. Þar eru hins vegar...
http://www.austurfrett.is/frettir/midhflokkurinn-stadhfestir-lista-i-fjardhabyggdh
Miðflokkurinn staðfestir lista í Fjarðabyggð Rúnar Már Gunnarsson þjónustustjóri í Neskaupstað leiðir lista Miðflokksins í Fjarðabyggð og Lára Elísabet Eiríksdóttir framkvæmdastjóri á Eskifirði verður í öðru sæti. Listi flokksins var samþykktur á deildarfundi í gærkvöldi en rúm vika er síðan deild flokksins í Fjarðabyg...
http://www.austurfrett.is/frettir/baejarfulltruar-i-efstu-saetunum-hja-framsokn-i-fjardhabyggdh
Bæjarfulltrúar í efstu sætunum hjá Framsókn í Fjarðabyggð Bæjarfulltrúarnir Jón Björn Hákonarson, Pálína Margeirsdóttir og Hulda Sigrún Guðmundsdóttir skipa efstu sætin hjá Framsóknarflokkunum í Fjarðabyggð. Framboðslisti flokksins var samþykktur á félagsfundi á fimmtudag. Jón Björn Hákonarson, oddviti listans, segist ...
http://www.austurfrett.is/frettir/kurr-yfir-samfloti-medh-ohadhum
Kurr yfir samfloti með óháðum Kurr er meðal Sjálfstæðisfólks á Fljótsdalshéraði yfir framboði í sveitarfélaginu í slagtogi með óháðum. Óánægðir fundargestir gengu á dyr eftir að listinn var samþykktur á fulltrúaráðsfundi á fimmtudag. Gengið var frá framboðslistanum á fundinum á fimmtudag og að þessu sinni eru einstakli...
http://www.austurfrett.is/frettir/vonast-til-adh-oexi-opnist-um-hadegidh
Vonast til að Öxi opnist um hádegið Von er á að vegurinn yfir Öxi opni upp úr hádegi en honum var lokað í gærkvöldi vegna vatnavaxta. Leysingar eru eystra enda hlýtt í veðri og nokkuð vott. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni flæddi vatn víða mikið meðfram veginum. Þá lónaði upp á hann við Innri og Ytri Víná og afleg...
http://www.austurfrett.is/frettir/taeplega-60-kindum-logadh-vegna-vanfodhrunar
Tæplega 60 kindum lógað vegna vanfóðrunar Matvælastofnun aflífaði á föstudag tæplega 60 kindur á austfirsku sauðfjárbýli. Féð var illa á sig komið vegna vannæringar og ekki hugað líf. Stofnunin hefur ítrekað gert athugasemdir við aðbúnað á bænum. Í tilkynningu stofnunarinnar kemur ekki fram hvar í fjórðungnum býlið er ...
http://www.austurfrett.is/frettir/hopslysaaefing-i-nordhfirdhi
Hópslysaæfing í Norðfirði Almannavarnanefnd Fjarða heldur hópslysaæfingu í Norðfjarðarsveit á morgun, laugardaginn 14. Apríl, þar sem æfð verða viðbrögð við rútuslysi. Af þeim völdum má gera ráð fyrir nokkurri umferð neyðaraðila í Neskaupstað og Norðfjarðarsveit frá kl.10:00 og fram yfir hádegi en æfingin sjálf hefst k...
http://www.austurfrett.is/frettir/badhhusi-vakar-vidh-urridhavatn-aetladh-adh-verdha-segull-fyrir-ferdhamenn
Baðstað Vakar við Urriðavatn ætlað að verða segull fyrir ferðamenn Baðstaður við Urriðavatn á Fljótsdalshéraði verður opnaður í júní 2019 ef allt gengur að óskum. Vonast er til að tugir þúsunda gesta sæki staðinn árlega sem efla muni atvinnulíf á Fljótsdalshéraði. Verkefnið hefur til þessa verið kallað Ylströndin en í ...
http://www.austurfrett.is/frettir/taepar-14-gradhur-a-hallormsstadh
Tæpar 14 gráður á Hallormsstað Austfirðingar hafa notið dagsins þar sem hitatölur hafa víða farið yfir tveggja stafa markið. Mesti hiti á landinu í dag mældist á Hallormsstað. Mest fór hitinn í 13,8° á Hallormsstað á fjórða tímanum á Hallormsstað og á Seyðisfirði fór hann í 13,2°. Hitinn var þó ekki bundinn við láglend...
http://www.austurfrett.is/frettir/a-listinn-bydhur-ekki-fram-gamli-kjarninn-ordhinn-threyttur
Á-listinn býður ekki fram: Gamli kjarninn orðinn þreyttur Á-listi áhugafólks um sveitarstjórnarmál býður ekki fram á Fljótsdalshéraði í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Fráfarandi oddviti framboðsins segir að ekki hafi gengið að endurnýja framboðslistann. „Fyrst og síðast er ástæðan að menn voru ekki tilbúnir að manna...
http://www.austurfrett.is/frettir/til-okkar-leitar-ungt-folk-sem-a-ad-baki-ljota-reynslu-ur-sinum-fyrstu-samboendum
„Til okkar leitar ungt fólk sem á að baki ljóta reynslu úr sínum fyrstu samböndum“ „Við sjáum að ofbeldi getur verið til staðar í samböndum unglinga án þess að forráðamenn og jafnvel ungmennin sjálf geri sér grein fyrir því,“ segir Þóra Björt Sveinsdóttir, ráðgjafi hjá Stígamótum, en samtökin fyrirlestra um verkefnið S...
http://www.austurfrett.is/frettir/gefur-ut-tonlist-innblasna-af-verkum-storvals
Gefur út tónlist innblásna af verkum Stórvals Útgáfutónleikar nýrrar hljómplötu sem byggir á málverkum Stefáns Jónssonar frá Möðrudal, eða Stórvals, er meðal þess sem Austfirðingar geta notið um helgina. Af öðrum má nefna leikhús, listsýningar og nágrannaslag í bikarkeppninni í knattspyrnu. Það er Charles Ross, sem ken...
http://www.austurfrett.is/frettir/umraedha-um-gedhheilbrigdhismal-a-voerum-allra-ungmenna
Umræða um geðheilbrigðismál á vörum allra ungmenna Húsfyllir var á sal Menntaskólans á Egilsstöðum í dag á ungmennaþingi ungmennaráðs Fljótsdalshéraðs þar sem geðheilbrigðismál voru rædd. Formaður ráðsins segir geðheilbrigðismál ofarlega í hugum ungmenna. „Þau eru á allra vörum í sinni víðustu mynd og eru mikið rædd mi...
http://www.austurfrett.is/frettir/runar-gunnarsson-leidhir-midhflokkinn-i-fjardhabyggdh
Rúnar Gunnarsson leiðir Miðflokkinn í Fjarðabyggð Norðfirðingurinn Rúnar Gunnarsson mun leiða framboð Miðflokksins í Fjarðabyggð í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Þetta var tilkynnt að loknum stofnfundi Miðflokksfélags Fjarðabyggðar á Reyðarfirði á laugardag. Á fundinum var samþykkt að flokkurinn byði fram í sveitarf...
http://www.austurfrett.is/frettir/stefan-bogi-og-gunnhildur-efst-hja-framsokn-a-heradhi
Stefán Bogi og Gunnhildur efst hjá Framsókn á Héraði Bæjarfulltrúarnir Stefán Bogi Sveinsson og Gunnhildur Ingvarsdóttir skipa tvö efstu sæti framboðslista Framsóknarflokksins á Fljótsdalshéraði fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Félagsfundur samþykkti í gær tillögu uppstillingarnefndar. Þriðja sætið skipar Guðfi...
http://www.austurfrett.is/frettir/christoph-merschbrock-radhinn-verkefnastjori-haskolaseturs-austfjardha
Christoph Merschbrock ráðinn verkefnastjóri Háskólaseturs Austfjarða Gengið hefur verið frá ráðningu Christoph Merschbrock sem verkefnastjóra Háskólaseturs Austfjarða. Christoph kemur til starfa 1. ágúst næstkomandi. Christoph er fæddur í Þýskalandi og lauk Dipl.-Ing. í byggingartæknifræði frá Hochschule Ostwestfalen-L...
http://www.austurfrett.is/frettir/halfur-milljardhur-i-afgang-hja-fjardhabyggdh
Hálfur milljarður í afgang hjá Fjarðabyggð Tæplega 500 milljóna króna afgangur varð af rekstri sveitarfélagsins Fjarðabyggðar á síðasta ári. Það er nokkru betri afkoma en ráð var fyrir gert. Skuldir sveitarfélagsins eru enn miklar en vel hefur gengið að greiða þær niður. Samkvæmt nýsamþykktum ársreikningi sveitarfélags...
http://www.austurfrett.is/frettir/sendiherra-esb-heimsaekir-austurland
Sendiherra ESB heimsækir Austurland Sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi, Michael Mann, hóf í gærmorgun heimsókn sína til Austurlands og mun ferðast um svæðið fram á fimmtudag. Sendiherrann kemur til með að heimsækja ýmsa vinnustaði og menningarstofnanir og hitta fólk víðs vegar að, úr stjórnmálum, atvinnulífi og men...
http://www.austurfrett.is/frettir/betra-sigtun-leitar-adh-frambjodhendum
Betra Sigtún leitar að frambjóðendum Stefán Grímur Rafnsson, oddviti sveitarstjórnar á Vopnafirði, hefur ákveðið að gefa kost á sér áfram til setu í sveitarstjórn undir merkjum Betra Sigtúns. Miklar breytingar hafa orðið á framboðinu á kjörtímabilinu. „Já, í grófum dráttum þýðir þetta að ég held áfram ef ég fæ fólk með...
http://www.austurfrett.is/frettir/ibuar-fljotsdalsheradhs-hlynntastir-sameiningu-vopnfirdhingar-og-fljotsdaelingar-andvigir
Íbúar Fljótsdalshéraðs hlynntastir sameiningu: Vopnfirðingar og Fljótsdælingar andvígir Íbúar Fljótsdalshéraðs eru þeir einu sem eru áberandi fylgjandi sameiningu sex sveitarfélaga á Austurlandi. Aðrir sameiningarkostir fá dræmar undirtektir en víða er vilji til aukins samstarfs. Fljótsdælingar og Vopnfirðingar vilja e...
http://www.austurfrett.is/frettir/jens-gardhar-afram-oddviti-sjalfstaedhismanna-i-fjardhabyggdh
Jens Garðar áfram oddviti Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð Jens Garðar Helgason verður áfram oddviti Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð, líkt og hann hefur verið frá 2010. Talsverð endurnýjun er á framboðslista flokksins en tillaga uppstillingarnefndar var samþykkt samhljóða á fundi fulltrúaráðs í gærkvöldi. Flokkuri...
http://www.austurfrett.is/frettir/leggja-til-adh-heradhslistinn-bjodhi-ekki-fram
Leggja til að Héraðslistinn bjóði ekki fram Stjórn Héraðslistans, samtaka félagshyggjufólks á Fljótsdalshéraði, hefur ákveðið að leggja til að listinn bjóði ekki fram í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Ástæðan er að enginn finnst til að leiða listann. „Við höfum ekki fundið þann einstakling sem tilbúinn er að taka odd...
http://www.austurfrett.is/frettir/landsbyggdhalatte-i-bodhi-a-n4
Landsbyggðalatté í boði á N4 Nýr umræðuþáttur, Landsbyggðalatté, hefur göngu sína á sjónvarpsstöðinni N4 á morgun. Þátturinn verður helgaður byggðamálum. Í þættinum verða landsmálin rædd af áhugafólki um samfélags- og byggðarmál á forsendum ólíkra landsbyggða, velt upp mikilvægum viðfangsefnum sem sjaldnast eru talin t...
http://www.austurfrett.is/frettir/undirbuningur-adh-frambodhi-midhflokksins-i-fjardhabyggdh-langt-kominn
Undirbúningur að framboði Miðflokksins í Fjarðabyggð langt kominn Útlit er fyrir að kjósendur í Fjarðabyggð geti valið milli fjögurra framboða í sveitastjórnarkosningunum í vor þar sem Miðflokkurinn bætist í hópinn. Deild flokksins í sveitarfélaginu verður stofnuð á morgun. Flokksfélagar segjast finna áhuga á nýja fram...
http://www.austurfrett.is/frettir/thver-flutningabill-lokadhi-veginum-um-fagradal
Þver flutningabíll lokaði veginum um Fagradal Vegurinn um Fagradal var lokaður í rúman klukkutíma í morgun eftir að flutningabíll fór þversum í Grænafelli. Veginum var lokað um klukkan hálf níu í morgun en opnaður að nýju rétt fyrir tíu. Töluverð umferð var þá um dalinn. Veginum þar yfir var lokað um kvöldmatarleytið í...
http://www.austurfrett.is/frettir/hringvegurinn-opinn-rafbilum
Hringvegurinn opinn rafbílum Hringvegurinn á nú að vera orðinn fær rafbílaeigendum eftir að ný hleðslustöð Orku náttúrunnar var tekin í notkun í Mývatnssveit í síðustu viku. Þrjár nýjar stöðvar á Austurlandi gegna lykilhlutverki í rafvæðingu hringsins. Algegnt er að minni rafbílar komist um 100 km á hleðslunni. Milli M...
http://www.austurfrett.is/frettir/fjordha-idhnbyltingin-vidhfangsefnin-politisk-frekar-en-taeknileg
Fjórða iðnbyltingin: Viðfangsefnin pólitísk frekar en tæknileg Mikil þörf er á að efla menntun samhliða örum tæknibreytingum á næstu árum. Svara þarf mörgum siðferðislegum álitamálum sem fylgja nýrri tækni. Prófessor við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík segir að þörf sé á kjarkmiklum pólitískum ákvörðunum. „Tæk...
http://www.austurfrett.is/frettir/mikil-anaegja-med-maedravernd-og-faedingardeild-hsa
Mikil ánægja með mæðravernd og fæðingardeild HSA „Það skiptir Heilbrigðisstofnun Austurlands miklu máli að fá svo góðar niðurstöður,“ segir Adda Birna Hjálmarsdóttir, gæðastjóri HSA, um könnun sem framkvæmdastjórn stofnunarinnar stóð nýlega fyrir meðal kvenna sem sóttu mæðravernd innan HSA og viðhorfi þeirra til fæðing...
http://www.austurfrett.is/frettir/menntastefna-cittaslow-samin-a-djupavogi
Menntastefna Cittaslow samin á Djúpavogi Fulltrúar frá Ítalíu, Íslandi og Belgíu komu nýverið saman á Djúpavogi til að semja menntastefnu hinna alþjóðlegu Cittaslow-samtaka sem Djúpavogshreppur er aðili að. Skólastjórinn segir að síðar meir muni menn líta á helgina á Djúpavogi sem stórviðburð. „Cittaslow byggir á nokkr...
http://www.austurfrett.is/frettir/rumar-64-milljonir-austur-i-husafridhunarverkefni
Rúmar 64 milljónir austur í húsafriðunarverkefni Rúmar 64 milljónir voru veittar til margvíslegra austfirskra verkefna þegar úthlutað var úr húsafriðunarsjóði fyrir skemmstu. Faktorshúsið á Djúpavogi er það verkefni sem hæsta styrkinn fær á landsvísu. Að þessu sinni er veitt tíu milljónum til Faktorshússins en endurbyg...
http://www.austurfrett.is/frettir/thrjar-umsoknir-um-tvaer-skolastjorastoedhur
Þrjár umsóknir um tvær skólastjórastöður Þrjár umsóknir bárust um tvær stöður skólastjóra við austfirskra grunnskóla sem auglýstar voru lausar nýverið. Í Fellaskóla á Fljótsdalshéraði var Þórhalla Sigmundsdóttir, kennari á Hellu, eini umsækjandinn. Sverrir Gestsson skólastjóri lætur þar af störfum fyrir næsta skólaár. ...
http://www.austurfrett.is/frettir/eydis-leidhir-fjardhalistann
Eydís leiðir Fjarðalistann Fjarðalistinn, listi félagshyggjufólks í Fjarðabyggð, varð í gærkvöldi fyrsta austfirska framboðið til að kynna frambjóðendur sína fyrir sveitastjórnarkosningarnar í lok maí. Eydís Ásbjörnsdóttir, bæjarfulltrúi, leiðir listann. Fjarðalistinn á í dag þrjá bæjarfulltrúa en Elvar Jónsson, oddvit...
http://www.austurfrett.is/frettir/segir-sjavarutveginn-skattlagdhan-umfram-adhrar-atvinnugreinar
Segir sjávarútveginn skattlagðan umfram aðrar atvinnugreinar Stjórnarformaður Síldarvinnslunnar í Neskaupstað segir sjávarútveg bera þyngri skattbyrði heldur en aðrar íslenskar atvinnugreinar. Auðlindagjöldin séu ekki eina dæmið um það. „Síldarvinnslan fer hins vegar ekki varhluta af breytingum í rekstrarumhverfinu fre...
http://www.austurfrett.is/frettir/afskaplega-anaegdhur-medh-nidhurstoedhuna
Afskaplega ánægður með niðurstöðuna Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar og formaður samstarfsnefndar um sameiningu Breiðdalshrepps og Fjarðabyggðar, segist ánægður með afgerandi úrslit í sameiningarkosningu sveitarfélaganna í dag. „Ég er afskaplega ánægður. Þetta er afgerandi beggja vegna við. Vis...
http://www.austurfrett.is/frettir/ja-i-fyrstu-toelum-ur-fjardhabyggdh
Já í fyrstu tölum úr Fjarðabyggð Meirihluti þeirra sem greiddu atkvæði í kosningu um sameiningu Fjarðabyggðar og Breiðdalshreppi í Fjarðabyggð samþykktu sameininguna samkvæmt fyrstu tölum sem bárust 23:20. Þegar talin höfðu verið 43,3% atkvæða í Fjarðabyggð eða 521 atkvæði höfðu 400 sagt já eða 76,8% en 121 nei eða 23,...
http://www.austurfrett.is/frettir/nytingaraaetlun-mikilvaeg-i-umraedhuna-um-skipulag-fjardhanna
Nýtingaráætlun mikilvæg í umræðuna um skipulag fjarðanna Hjá Fjarðabyggð er unnið að nýtingaráætlun fyrir firði sveitarfélagsins. Kortlögð er núverandi nýting með það að markmiði að hægt sé að skipuleggja betur hvernig nýta megi þá í framtíðinni. Bæjarstjórinn gagnrýnir skort á löggjöf á þessu sviði. Forsendur vinnunna...
http://www.austurfrett.is/frettir/matti-ekki-birta-myndir-i-neikvaedhu-samhengi
Mátti ekki birta myndir í neikvæðu samhengi Persónuvernd telur AFL Starfsgreinafélag hafa brotið lög með að birta myndir sem teknar voru þegar lögregla var kvödd til vegna meintra brota fyrirtækisins Móður jarðar sumarið 2016. Persónuvernd telur að verkalýðsfélagið ekki hafa sýnt sanngirni í meðferð persónuupplýsinga s...
http://www.austurfrett.is/frettir/mikil-gledhi-a-breidhdalsvik
Mikil gleði á Breiðdalsvík Hákon Hansson, oddviti Breiðdalshrepps, segir mikla ánægju þar með úrslit sameiningarkosningar hreppsins og Fjarðabyggðar. Yfir 85% sögðu já í hvoru sveitarfélagi. „Við sátum hérna 20 manns og fylgdumst með talningunni og biðum svo eftir lokatölunum í Fjarðabyggð. Það ríkir mikil gleði hér,“ ...
http://www.austurfrett.is/frettir/sameingin-samthykkt-i-breidhdalshreppi
Sameingin samþykkt í Breiðdalshreppi 85% þeirra sem kusu á Breiðdalsvík í dag um sameiningu Breiðdalshrepps og Fjarðabyggðar greiddu atkvæði með sameiningu. Alls greiddu 100 atkvæði og sögðu 85 þeirra já. 14 sögðu nei en einn seðill var auður. Á kjörskrá voru 155 og kjörsókn því 64,5%. Í Fjarðabyggð verður talið á Eski...
http://www.austurfrett.is/frettir/er-besta-lausnin-adh-staekka-hadegishoefdha
Er besta lausnin að stækka Hádegishöfða? Bæjarstjórn Fljótsdalshérað hefur hafið skoðun á því hvort rétt sé að fylgja eftir fyrri áætlunum um stækkun leikskólans Hádegishöfða í Fellabæ. Efasemdir eru um að lóð skólans sé nógu stór auk þess sem börnum á Egilsstöðum fjölgi mun hraðar en í Fellabæ. „Það kom upp meiningarm...
http://www.austurfrett.is/frettir/verkefnid-i-hoendum-vopnfirdinga-fra-byrjun
Verkefnið í höndum Vopnfirðinga frá byrjun „Ég hef brennandi áhuga á öllu sem viðkemur sögu Vopnafjarðar,“ segir Berghildur Fanney Hauksdóttir, sem fer fyrir hópi fólks á Vopnafirði sem áformar að endurútgefa Vopnfirðingasögu í sumar eða haust. Fanney segir hugmyndina hafa kviknað fyrir nokkrum árum eftir að hópur fólk...
http://www.austurfrett.is/frettir/sameining-samthykkt-medh-yfirburdhum
Sameining samþykkt með yfirburðum Íbúar í Fjarðabyggð og Breiðdalsvík samþykktu í dag sameiningu sveitarfélaganna í kosningu með afgerandi kosningu. Tæp 87% sögðu já í Fjarðabyggð en 85% í Breiðdalsvík. Alls greiddu 1203 atkvæði í Fjarðabyggð, þar af 1035 eða 86,76% já. 158 eða 13,24% sögðu nei. Tíu seðlar voru auðir e...
http://www.austurfrett.is/frettir/hafnarholminn-fekk-mest-ur-framkvaemdasjodhi-ferdhamanna
Hafnarhólminn fékk mest úr Framkvæmdasjóði ferðamanna Austfirsk verkefni fengu 217 milljónir þegar tilkynnt var um úthlutum úr Framkvæmdasjóði ferðamanna í gær. Borgarfjarðarhreppur fær hæsta styrkinn á landsvísu til uppbyggingar í Hafnarhólma. Minnst 85 milljónir eru eyrnamerktar austfirskum áfangastöðum í þriggja ára...
http://www.austurfrett.is/frettir/mikilvaegt-adh-fara-a-kjoerstadh
Mikilvægt að fara á kjörstað Forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar og formaður sameiningarnefndar Fjarðabyggðar og Breiðdalshrepps telur almennan stuðning í sveitarfélögunum fyrir sameiningu. Kosið verður um hana á morgun. „Allar kosningar eru hátíðlegar í eðli sínu því þá erum við að fagna lýðræðinu og ákvörðunarrétti f...
http://www.austurfrett.is/frettir/sameiningin-einstakt-taekifaeri
Sameiningin einstakt tækifæri „Ég held að það styrki bæði samfélögin að sameinast á þessum tímapunkti, því aðstæður hér í dag eru mjög góðar miðað við oft áður,“ segir Elís Pétur Elísson athafnamaður á Breiðdalsvík. Um helgina verður kosið um sameiningu Breiðdalshrepps og Fjarðabyggðar. Algjör viðsnúningur á rekstri Br...
http://www.austurfrett.is/frettir/kennara-skortir-ef-ekkert-verdhur-adh-gert
Kennara skortir ef ekkert verður að gert Forstöðumaður Skólaskrifstofu Austurlands varar við því að kennaraskortir blasi við innan fárra ára ef ekki verður gripið til gripið til aðgerða. Staða í leikskólum á svæðinu er sérstaklega varhugaverð. Þetta var meðal þess sem fram kom í erindi Sigurbjörns Marinóssonar, forstöð...
http://www.austurfrett.is/frettir/vilja-adh-lifeyrissjodhir-beiti-ahrifum-sinum-til-adh-halda-aftur-af-launum-stjornenda
Vilja að lífeyrissjóðir beiti áhrifum sínum til að halda aftur af launum stjórnenda Stjórn AFLs Starfsgreinafélags skorar á lífeyrissjóði Alþýðusambandsfélaga að beita hlutafjáreign sinni í hlutafélögum til að koma í veg fyrir stjórnlausa sjálftöku stjórnenda fyrirtækjanna. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á...
http://www.austurfrett.is/frettir/mikill-styrkur-i-menningarlegu-tilliti
Mikill styrkur í menningarlegu tilliti Dýrunn Pála Skaftadóttir, formaður menningar- og safnanefndar Fjarðabyggðar, telur að ef sameiningu Fjarðabyggðar og Breiðdalshrepps verði eftir morgundaginn verði það jákvæð viðbót við þá fjölbreyttu flóru sem Fjarðabyggð hefur uppá að bjóða í menningarlegu tilliti. „Það er mikil...
http://www.austurfrett.is/frettir/hardhur-arekstur-eftir-adh-bill-for-a-oefugan-vegarhelming
Harður árekstur eftir að bíll fór á öfugan vegarhelming Mildi þykir að engin slys hafi orðið á fólki í hörðum árekstri skammt sunnan við Djúpavog seinni part laugardag. Báðir bílarnir eru gjörónýtir. Annar bíllinn fór á öfugan vegarhelming og virðist ökumaður hans ekki hafa verið með hugann við aksturinn. Bílarnir tvei...
http://www.austurfrett.is/frettir/taeplega-thriggja-milljardha-hagnadhur-sildarvinnslunnar
Tæplega þriggja milljarða hagnaður Síldarvinnslunnar 2,9 milljarða hagnaður varð af rekstri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað á síðasta ári. Aukning var í framleiðslu og afla en samdráttur í verðmæti. Þetta kemur fram í tilkynningu sem send var út að loknum aðalfundi fyrirtækisins sem haldinn var í Neskaupstað í dag. Hei...
http://www.austurfrett.is/frettir/austfirdhingar-telja-sig-oeruggari-en-adhra
Austfirðingar telja sig öruggari en aðra Íbúar á Austurlandi telja sig öruggari en aðra landsmenn miðað við nýja könnun Ríkislögreglustjóra. Áhyggjur af innbrotum eru hvergi lægri en kynferðisbrot virðast tíðari. 82% íbúa á Austurlandi telja sig mjög örugga eina á ferli í sínu byggðarlagi eftir að myrkur er skollið á. ...
http://www.austurfrett.is/frettir/almennur-vilji-fyrir-sameiningu-breidhdalshrepps-og-fjardhabyggdhar
„Almennur vilji fyrir sameiningu Breiðdalshrepps og Fjarðabyggðar“ Á laugardag verður kosið um sameiningu Fjarðabyggðar og Breiðdalshrepps. Hákon Hansson, oddviti Breiðdalshrepps, segir að fjárhagsstaða hreppsins hafi frá síðustu sveitarstjórnarkosningum batnað til mikilla muna. Samkvæmt viðmiði sem Samband íslenskra s...
http://www.austurfrett.is/frettir/vegir-a-austurlandi-i-laegstu-flokkum
Vegir á Austurlandi í lægstu flokkum Vegir á Austurlandi fá almennt lægstu einkunn, eina og tvær stjörnur, í úttekt EuroRAP. Nýi vegurinn til Vopnafjarðar er sá sem kemur best út en Fjarðarheiði er í lægsta flokki. Stjörnugjöf EuroRAP fyrir Ísland var gerð opinber í vefsjá í gær. Úttektin byggir á hversu öruggir vegirn...
http://www.austurfrett.is/frettir/asokn-i-ibudhalodhir-a-reydharfirdhi
Ásókn í íbúðalóðir á Reyðarfirði Fjórum íbúðalóðum á Reyðarfirði var úthlutað á síðasta fundi eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar Fjarðabyggðar. Varaformaður nefndarinnar segir að afsláttur á gatnagerðargjöldum hafi skapað hvata til bygginga auk þess sem eftirspurn sé eftir húsnæði fyrir ungar fjölskyldur. „Þetta er...
http://www.austurfrett.is/frettir/jakvaedhni-i-gardh-sameiningar
Jákvæðni í garð sameiningar Allar líkur á að sameining Breiðdalshrepps og Fjarðabyggðar verði samþykkt í kosningu á laugardag ef marga má viðmælendur Austurgluggans. Skólamál og fjármál virðast efst í huga íbúa. Íbúar í Breiðdal virðast ætla að kjósa með sameiningunni og fjölmenna á kjörstað, samkvæmt fréttaskýringu se...
http://www.austurfrett.is/frettir/vidal-valal-adh-spila-oddahrinu-eins-og-adh-spila-i-lottoinu
Vidal Valal: Að spila oddahrinu eins og að spila í lottóinu Þjálfari Þróttar segir liðið hafa skort trú á verkefnið til að gera út af við HK í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts karla í blaki í gær. HK vann leikinn í Neskaupstað í upphækkun í oddahrinu í gær og getur tryggt sér sæti í úrslitarimmunni í þrið...
http://www.austurfrett.is/frettir/viljum-setja-fram-raunhaefa-aaetlun-sem-stenst
„Viljum setja fram raunhæfa áætlun sem stenst“ Formaður samgönguráðs segir að setja þurfi fram samgönguáætlun á Alþingi í haust sem taki mið af þeim fjármunum sem ætlaðir séu til samgöngumála á næstu árum. Aðkallandi samgöngumál séu í öllum landsfjórðungum. „Við erum að vinna í forgangsröðun en það þarf að liggja fyrir...
http://www.austurfrett.is/frettir/rymingin-stendur-fram-yfir-hadegi
Rýmingin stendur fram yfir hádegi Rýming vegna hættu á snjóflóðum úr Strandartindi við sunnanverðan Seyðisfjörð verður í gildi fram yfir hádegi en byggingar á tveimur reitum þar voru rýmdar í gærkvöldi. Áframhaldið verður metið í samráði við Veðurstofuna. Í gær féllu svokölluð vot flóð úr tindinum og eitt þeirra fór yf...
http://www.austurfrett.is/frettir/lausagoengufe-fellt-i-lodhmundarfirdhi
Lausagöngufé fellt í Loðmundarfirði Tæplega þrjátíu útigangskindur voru felldar í Loðmundarfirði um síðustu helgi í aðgerðum á vegum Matvælastofnunar og þriggja sveitarfélaga á Austurlandi. Ekki var talið hægt að ná kindunum með öðrum leiðum. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Matvælastofnun (MAST) sendi frá sér í morg...
http://www.austurfrett.is/frettir/leitum-allra-leidha-til-adh-taka-thatt-i-skynsoemu-verkefni
„Leitum allra leiða til að taka þátt í skynsömu verkefni“ Ráðherra samgöngumála hefur falið Vegagerðinni að skoða hvort hægt sé að bæta veginn um Njarðvíkurskriður í sumar samhliða því sem farið verður í aðrar framkvæmdir á svæðinu. Ráðherrann voru í dag afhentir undirskriftalistar með nöfnum ríflega 2500 einstaklinga ...
http://www.austurfrett.is/frettir/vonast-til-adh-afletta-ovissuastandi-i-kvoeld
Vonast til að aflétta óvissuástandi í kvöld Vonast er til að hægt verði að aflétta óvissuástandi vegna snjóflóða á Seyðisfirði þegar styttir endanlega upp í kvöld. Rýmingu vegna snjóflóðahættu var aflétt upp úr klukkan þrjú í dag. Í gærkvöldi voru rýmd hús hús á tveimur reitum undir Strandartindi í sunnanverðum Seyðisf...
http://www.austurfrett.is/frettir/grjothardhur-fengur-hja-ljosafellinu
Grjótharður fengur hjá Ljósafellinu Áhöfnin á Ljósafellinu frá Fáskrúðsfirði krækti í heldur óvenjulegan feng í síðustu veiðiferð þegar margra tonna steinn kom upp í trollinu. Skipstjórinn segir merkilegt að veiðarfærið hafi haldið í átökunum. „Það er ótrúlegt að trollið skyldi koma heilt upp. Ef við hefðum híft hratt ...
http://www.austurfrett.is/frettir/konurnar-flytja-thegar-opinbera-thjonustan-minnkar
Konurnar flytja þegar opinbera þjónustan minnkar Niðurskurður á opinberri þjónustu hefur meiri áhrif á búsetu kvenna en karla á dreifbýlum samkvæmt nýrri norrænni samantekt. Menntaðar konur á barneignaraldri eru líklegastar til að flytja í burtu. Tryggja þarf fjölbreyttari atvinnutækifæri og efla aðgengi og menntun og ...