Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
http://www.austurfrett.is/frettir/3794-fiskeldi-og-ylraekt-vidh-hlidh-sundlauga
Fiskeldi og ylrækt við hlið sundlauga? Reyðfirðingurinn Aron Leví Beck vinnur þessa dagana að rannsókn, þar sem forsendur fyrir því að starfrækja svokallað sameldi (e. aquaphonics) við hlið sundlauga á Íslandi eru kannaðar. Aron Leví er byggingafræðingur og meistaranemi í skipulagsfræði við Landbúnaðarháskóla Íslands. ...
http://www.austurfrett.is/frettir/3784-th-s-verktakar-budu-laegst-i-endurbaetur-a-heidarendanum
Þ.S. verktakar buðu lægst í endurbætur á Heiðarendanum Þ.S. verktakar á Egilsstöðum áttu lægsta boð í endurbætur á Hringveginum um Heiðarenda en tilboð voru opnuð fyrir skemmstu. Um er að ræða 6,5 km kafla frá Heiðarseli að Jökulsá á Dal sem á að styrkja og endurbæta. Gert er ráð fyrir að vegurinn verði breikkaður og l...
http://www.austurfrett.is/frettir/3776-framkvaemdir-frestast-vid-helgustadanamu
Framkvæmdir frestast við Helgustaðanámu Óvíst að nokkuð verði úr framkvæmdum við Helgustaðanámu í sumar eftir að eina tilboðinu sem barst í þær var hafnað. Náman er á rauðum lista Umhverfisstofnunar þar sem hæpið þyki að hún geti tekið við þeim fjölda ferðamanna sem hana sækir. Til stóð að laga aðstöðu og aðgengi við n...
http://www.austurfrett.is/frettir/3773-vegurinn-i-lodhmundarfjoerdh-vardh-fyrir-skemmdum-vegna-vatnavaxta
Vegurinn í Loðmundarfjörð varð fyrir skemmdum vegna vatnavaxta Vegurinn frá Borgarfirði yfir í Loðmundarfjörð varð fyrir skemmdum vegna þeirrar gríðarlegu úrkomu sem var á Austfjörðum í fyrrinótt og í gær. Unnið er að viðgerð og reiknað er með því að vegurinn verði orðinn fær í kvöld, samkvæmt Birni Sigurðssyni hjá Veg...
http://www.austurfrett.is/frettir/3791-konur-i-fyrsta-sinn-i-meirihluta-i-hafnarstjorn-fjardhabyggdhar
Konur í fyrsta sinn í meirihluta í hafnarstjórn Fjarðabyggðar Konur eru nú í fyrsta sinn í meirihluta í hafnarstjórn Fjarðabyggðar. Í kjölfar brotthvarfs Eiðs Ragnarssonar úr bæjarstjórn Fjarðabyggðar tók Pálína Margeirsdóttir sæti hans í hafnarstjórn og því eru nú þrjár konur í hópi fimm stjórnarmanna. Auk Pálínu eiga...
http://www.austurfrett.is/frettir/3781-ferdamadur-slasadist-vid-hengifoss
Ferðamaður slasaðist við Hengifoss Björgunarsveitir á Héraði voru kallaðar út um hádegisbil vegna einstaklings sem hafði slasað sig við Hengifoss. Óttast er að maðurinn sé fótbrotinn. Björgunarmenn fóru á staðinn, hlúðu að manninum og báru hann niður í björgunarbíl sem ók með hann niður á þjóðveg þar sem sjúkrabíll tók...
http://www.austurfrett.is/frettir/3775-ny-log-um-nidurgreidslu-raforku-eiga-ad-jafna-stodu-dreifbylisins
Ný lög um niðurgreiðslu raforku eiga að jafna stöðu dreifbýlisins Forstjóri RARIK telur að mikill árangur hafi náðst í jöfnun aðstöðumunar dreifbýlis og þéttbýlis með samþykkt nýrra laga um jöfnun flutningskostnaðar raforku í vor. Formaður bæjarráðs Fljótsdalshéraðs segir erfitt hafa verið að sitja undir þeirri mismunu...
http://www.austurfrett.is/frettir/3771-framkvaemdastjori-sildarvinnslunnar-sendir-radhamoennum-toninn-vegna-vidhskiptathvingana-gegn-russum
Framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar sendir ráðamönnum tóninn vegna viðskiptaþvingana gegn Rússum Gunnþór Ingvason framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupsstað sendir utanríkisráðherra og formanni utanríkismálanefndar tóninn í pistli sem birtist á heimasíðu SVN í dag. Hann segir enga efnislega umræðu hafa farið fram...
http://www.austurfrett.is/frettir/3770-hagtak-atti-laegsta-bodid-i-staekkun-vopnafjardarhafnar
Hagtak átti lægsta boðið í stækkun Vopnafjarðarhafnar Hafnarnefnd Vopnafjarðarhrepps ákvað á fundi sínum í gærkvöldi að taka tilboði Hagtaks hf. í Hafnarfirði í dýpkun og breikkun innsiglingar Vopnafjarðarhafnar. Stækka þarf höfnina til að ný skip HB Granda geti athafnað sig svo vel sé. Hagtak bauð 157 milljónir eða 68...
http://www.austurfrett.is/frettir/3766-godur-gangur-i-strandveidum-i-juli
Góður gangur í strandveiðum í júlí Strandveiðar á svæði C, sem nær yfir Austfirði, gengu vel í júlímánuði miðað við tölur frá Fiskistofu. Alls komu á land ríflega 1.157 tonn eða um helmingi meira en ráð var fyrir gert að veitt yrði á svæðinu í mánuðinum. Ástæðan er að ekki tókst að veiða allan þann kvóta sem úthlutað v...
http://www.austurfrett.is/frettir/3762-framtid-austurlands-oljos-leidinlegast-ad-hafa-ekki-fengid-ad-kvedja-lesendur
Framtíð Austurlands óljós: Leiðinlegast að hafa ekki fengið að kveðja lesendur Óljóst er hvað verður um vikublaðið Austurland eftir að Vefpressan ehf. yfirtók útgáfufélag þess Fótspor. Ritstjórinn segist ekki enn hafa heyrt í nýjum eigendum. Rúm vika er síðan tilkynnt var um eigendaskiptin og enn virðist óljóst hver fr...
http://www.austurfrett.is/frettir/3756-tekjur-austfirdinga-2015-fjardabyggd
Tekjur Austfirðinga 2015: Fjarðabyggð Austurfrétt birtir í dag árlega samantekt á tekjum Austfirðinga. Teknir eru tekjuhæstu einstaklingar hvers sveitarfélags auk nokkurra áberandi einstaklinga úr samfélaginu til að sýna betri þverskurð á samsetningu samfélaganna. Sjómenn bera höfuð og herðar yfir aðrar stéttir á Austu...
http://www.austurfrett.is/frettir/3768-leidhretting-vegna-tekjulista
Leiðrétting vegna tekjulista Við vinnslu tekjulista Austurfréttar fyrir Fljótsdalshérað urðu þau mistök að Benedikt Ólason, ýtustjóri, var sagður vera með 1,4 milljónir í tekjur á mánuði. Farið var mannavillt því tekjurnar munu tilheyra nafna hans Benedikt Lárusi Ólasyni, flugstjóra. Nokkur munur virðist því á mönnum í...
http://www.austurfrett.is/frettir/3765-hestar-sluppu-i-thettbyli-a-egilsstoedhum-of-algengt-af-soegn-loegreglu
Hestar sluppu í þéttbýli á Egilsstöðum: Of algengt að sögn lögreglu Austurfrétt barst veður af því að hestar væru lausir í þéttbýli á Egilsstöðum um fimmleytið í dag. Blaðamaður fór á vettvang og þá var blessunarlega búið að ná hestunum í taum efst á Fagradalsbrautinni. Hestarnir voru tveir talsins og voru það bændur á...
http://www.austurfrett.is/frettir/3761-bill-i-vanda-i-austdalsa
Bíll í vanda í Austdalsá Björgunarsveitin Ísólfur á Seyðisfirði var kölluð út upp úr hádegi í dag vegna bíls sem var fastur út í miðri Austdalsá en í bílnum voru tveir farþegar auk bílstjóra. Mikið er í ánni og var því sveitin kölluð út á F1 sem er hæsti forgangur. Björgunarmenn brugðust skjótt við, fóru á staðinn, haf...
http://www.austurfrett.is/frettir/3755-tekjur-austfirdinga-2015-vopnafjordur
Tekjur Austfirðinga 2015: Vopnafjörður Austurfrétt birtir í dag árlega samantekt á tekjum Austfirðinga. Teknir eru tekjuhæstu einstaklingar hvers sveitarfélags auk nokkurra áberandi einstaklinga úr samfélaginu til að sýna betri þverskurð á samsetningu samfélaganna. Sjómenn bera höfuð og herðar yfir aðrar stéttir á Aust...
http://www.austurfrett.is/frettir/3767-gridharleg-urkoma-a-austurlandi-sidhastlidhinn-solarhring-skridhuhaetta-i-seydhisfirdhi-myndir
Gríðarleg úrkoma á Austurlandi síðastliðinn sólarhring: Skriðuhætta í Seyðisfirði - Myndir Veðurstofan hefur sent frá sér viðvörun þar sem lýst er yfir óvissuástandi vegna skriðuhættu á Austfjörðum, í kjölfar mikilla rigninga í fjórðungnum síðasta sólarhring. Mest var úrkoman í nótt, en þá rigndi gríðarlega og mældist ...
http://www.austurfrett.is/frettir/3763-einn-kaldasti-julimanudur-sogunnar
Einn kaldasti júlímánuður sögunnar Nýliðinn júlímánuður er sá þriðji kaldasti sem mælst hefur á Egilsstöðum. Úrkoma á svæðinu hefur á móti verið meiri en í meðalári. Þetta kemur fram í samantekt Veðurstofunnar fyrir tíðarfar í júlí. Meðalhiti á Egilsstöðum var 7,6°C í júlí sem er um þremur gráðum kaldara en í meðalári....
http://www.austurfrett.is/frettir/3757-tekjur-austfirdinga-2015-fljotsdalsherad
Tekjur Austfirðinga 2015: Fljótsdalshérað Austurfrétt birtir í dag árlega samantekt á tekjum Austfirðinga. Teknir eru tekjuhæstu einstaklingar hvers sveitarfélags auk nokkurra áberandi einstaklinga úr samfélaginu til að sýna betri þverskurð á samsetningu samfélaganna. Sjómenn bera höfuð og herðar yfir aðrar stéttir á A...
http://www.austurfrett.is/frettir/3754-forsaetisradherra-borgar-helmingi-minni-skatta-eftir-brotthvarf-audlegdarskatts
Forsætisráðherra borgar helmingi minni skatta eftir brotthvarf auðlegðarskatts Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, borgar helmingi minna í opinber gjöld í ár heldur en í fyrra. Aðalástæðan er að auðlegðarskattur er fallinn úr gildi. Þetta kemur fram ef álagningarskrár á Fljótsdalshéraði eru skoðaðar en Sigm...
http://www.austurfrett.is/frettir/3753-tekjur-austfirdinga-2015-seydisfjordur
Tekjur Austfirðinga 2015: Seyðisfjörður Austurfrétt birtir í dag árlega samantekt á tekjum Austfirðinga. Teknir eru tekjuhæstu einstaklingar hvers sveitarfélags auk nokkurra áberandi einstaklinga úr samfélaginu til að sýna betri þverskurð á samsetningu samfélaganna. Sjómenn bera höfuð og herðar yfir aðrar stéttir á Aus...
http://www.austurfrett.is/frettir/3747-sildarvinnslan-gagnrynir-dramatiskan-frettaflutning
Síldarvinnslan gagnrýnir dramatískan fréttaflutning Óhapp varð í Reykjavíkurhöfn í gær, þegar unnið var að vélarviðgerðum í skipi Síldarvinnslunnar, Birtingi NK-124. Síldarvinnslan sendi frá sér tilkynningu í dag þar sem fréttaflutningur af atvikinu er gagnrýndur. Engir fjölmiðlar höfðu samband við skipstjóra Birtings ...
http://www.austurfrett.is/frettir/3742-eskja-undirbyr-nytt-athafnasvaedi
Eskja undirbýr nýtt athafnasvæði Eskja hf. á Eskifirði hefur sótt um nýtt athafnasvæði til að byggja upp frekari starfsemi tengda fyrirtækinu neðan við núverandi fiskimjölsverksmiðju. Nota á tækifærið meðfram gerð Norðfjarðarganga til að byggja svæðið upp þótt ekki sé ákveðið hvað verði byggt þar upp. Bæjaryfirvöld í F...
http://www.austurfrett.is/frettir/3733-famennasta-braedsluhelgi-fra-2011
Fámennasta Bræðsluhelgi frá 2011? Vegagerðin áætlar að um 5700 manns hafi heimsótt Borgarfjörð eystri í síðustu viku í tengslum við tónlistarhátíðina Bræðsluna. Það er nokkru færri en undanfarin ár. Þetta kemur fram í frétt á vef Vegagerðarinnar þar sem teknar eru saman umferðartölur yfir Vatnsskarð frá árinu 2010. Sam...
http://www.austurfrett.is/frettir/3751-tekjur-austfirdinga-2015-breiddalsvik
Tekjur Austfirðinga 2015: Breiðdalsvík Austurfrétt birtir í dag árlega samantekt á tekjum Austfirðinga. Teknir eru tekjuhæstu einstaklingar hvers sveitarfélags auk nokkurra áberandi einstaklinga úr samfélaginu til að sýna betri þverskurð á samsetningu samfélaganna. Sjómenn bera höfuð og herðar yfir aðrar stéttir á Aust...
http://www.austurfrett.is/frettir/3745-tekjur-austfirdhinga-2015-borgarfjoerdhur-eystri
Tekjur Austfirðinga 2015: Borgarfjörður eystri Austurfrétt birtir í dag árlega samantekt á tekjum Austfirðinga. Teknir eru tekjuhæstu einstaklingar hvers sveitarfélags auk nokkurra áberandi einstaklinga úr samfélaginu til að sýna betri þverskurð á samsetningu samfélaganna. Sjómenn bera höfuð og herðar yfir aðrar stétti...
http://www.austurfrett.is/frettir/3739-taeplega-3000-farthegar-komu-medh-costa-fortuna-til-seydhisfjardhar
Tæplega 3000 farþegar komu með Costa Fortuna til Seyðisfjarðar Skemmtiferðaskipið Costa Fortuna kom til Seyðisfjarðar síðastliðinn sunnudag með tæplega 3000 farþega. Þetta er í annað sinn í sumar sem þetta gríðarstóra skip leggst við bryggju á Seyðisfirði, en aldrei hafa fleiri farþegar komið með skemmtiferðaskipi til ...
http://www.austurfrett.is/frettir/3730-sjomenn-veigra-ser-vid-standa-a-rettindum-sinum-af-otta-vid-ad-missa-plassin
Sjómenn veigra sér við að standa á réttindum sínum af ótta við að missa plássin Framkvæmdastjóri AFLs Starfsgreinafélags segir sjómenn hrædda að leita réttar síns gagnvart útgerðum af ótta við að missa pláss sín þar. Austurfrétt sagði fyrir helgi frá dómi héraðsdóms Austurlands þar sem útgerð smábáts var dæmd til að gr...
http://www.austurfrett.is/frettir/3749-tekjur-austfirdinga-2015-djupivogur
Tekjur Austfirðinga 2015: Djúpivogur Austurfrétt birtir í dag árlega samantekt á tekjum Austfirðinga. Teknir eru tekjuhæstu einstaklingar hvers sveitarfélags auk nokkurra áberandi einstaklinga úr samfélaginu til að sýna betri þverskurð á samsetningu samfélaganna. Sjómenn bera höfuð og herðar yfir aðrar stéttir á Austur...
http://www.austurfrett.is/frettir/3744-tekjur-austfirdinga-2015-fljotsdalshreppur
Tekjur Austfirðinga 2015: Fljótsdalshreppur Austurfrétt birtir í dag árlega samantekt á tekjum Austfirðinga. Teknir eru tekjuhæstu einstaklingar hvers sveitarfélags auk nokkurra áberandi einstaklinga úr samfélaginu til að sýna betri þverskurð á samsetningu samfélaganna. Sjómenn bera höfuð og herðar yfir aðrar stéttir á...
http://www.austurfrett.is/frettir/3734-nordfjardargong-snjoflodavarnargardur-i-fannardal
Norðfjarðargöng: Snjóflóðavarnargarður í Fannardal Snjóflóðavarnargarður var byggður í vetur og vor neðan Sörlagils í Fannardal, en snjóflóð féllu þar í fyrravetur. Ákveðið var að lengja gangagröft Norðfjarðarmegin um 200 metra frá því sem upphaflega var gert ráð fyrir og var efnið að stórum hluta nýtt til þess að gera...
http://www.austurfrett.is/frettir/3725-brefberinn-veikur-og-ekkert-borid-ut-a-seydisfirdi-fra-thridjudegi
Bréfberinn veikur og ekkert borið út á Seyðisfirði frá þriðjudegi Póstur hefur ekki verið borinn út á Seyðisfirði síðan á þriðjudag vegna veikinda bréfbera. Svæðisstjóri Íslandspósts segir Seyðfirðinga sýna aðstæðum skilning og taka þeim af stillingu. „Við erum bara með einn starfsmann á Seyðisfirð. Hann er í sumarfrí ...
http://www.austurfrett.is/frettir/3722-gullbergsfjolskyldan-borgar-haestu-skattana-eystra
Gullbergsfjölskyldan borgar hæstu skattana eystra Þrír af fyrrum eigendum útgerðarfélagsins Gullbergs á Seyðisfirði eru á meðal þeirra tuttugu sem greiða hæstu opinberu gjöldin samkvæmt yfirliti frá ríkisskattstjóra um álagningu einstaklinga. Hæstur er Adolf Guðmundsson, fyrrum framkvæmdastjóri, sem greiðir rúmar 102 m...
http://www.austurfrett.is/frettir/3718-nyr-kjarasamningur-undirritadhur-hja-alcoa-fjardhaali
Nýr kjarasamningur undirritaður hjá Alcoa Fjarðaáli Nýr kjarasamningur var undirritaður hjá Alcoa Fjarðaáli þann 17. júlí. Samningurinn er á milli AFLs starfsgreinafélags, Rafiðnaðarsambands Íslands og Alcoa Fjarðaáls og gildir hann til fimm ára. Enn eiga þó starfsmenn Fjarðaáls eftir að greiða atkvæði um samninginn. H...
http://www.austurfrett.is/frettir/3713-varla-um-oviljaverk-adh-raedha-40-golfploetum-stolidh-a-seydhisfirdhi
„Varla um óviljaverk að ræða“: 40 gólfplötum stolið á Seyðisfirði Starfsfólki Tækniminjasafnsins á Seyðisfirði brá heldur í brún í morgun þegar verið var að undirbúa árlega Smiðjuhátíð og í ljós kom að spýtuplötur sem leggja átti í stórt veitingatjald voru horfnar. Í samtali við Austurfrétt nú eftir hádegi segir Pétur ...
http://www.austurfrett.is/frettir/3709-unglingarnir-i-blokkinni-aukid-lif-i-midvangi-6
Únglíngarnir í blokkinni: Aukið líf í Miðvangi 6 Eigandi fjölbýlishússins Miðvangs 6 á Egilsstöðum bindur vonir við að aukið líf sé að færast í húsið. Lokið var við húsið árið 2010 en upphaflega stóð til að þar yrðu fyrst og fremst íbúðir fyrir eldri borgara. Nýverið keyptu Eyjólfur Skúlason og Sigrún Bjarnadóttir íbúð...
http://www.austurfrett.is/frettir/3721-skipverja-daemdar-4-4-milljonir-i-vangoldin-laun
Sjómanni dæmdar 4,4 milljónir í vangoldin laun Héraðsdómur Austurlands dæmdi nýverið útgerð til að greiða sjómanni á smábát 4,4 milljónir auk dráttarvaxta í vangoldin laun og fyrir ólögmæta uppsögn. Með dóminum er meðal annars staðfest að tiltekinn kjarasamningur bindur atvinnurekendur í tiltekinni grein eða starfssvæð...
http://www.austurfrett.is/frettir/3715-hafna-thvi-ad-annadh-en-fagleg-sjonarmid-radi-for-i-jardgangamalum
Hafna því að annað en fagleg sjónarmið ráði för í jarðgangamálum Bæjarráð Fljótsdalshéraðs mótmælir því að annað en fagleg sjónarmið ráði för í stefnumótun fyrir jarðgangagerð á Austurlandi. Ráðið ítrekar enn fremur að austfirsk sveitarfélög standi við þau áherslur sem þau hafi lagt á sínum sameiginlega vettvangi. Þett...
http://www.austurfrett.is/frettir/3712-varla-um-oviljaverk-ad-raeda-40-golfplotum-stolid-a-seydhisfirdi
Varla um óviljaverk að ræða": 40 gólfplötum stolið á Seyðisfirði Starfsfólki Tækniminjasafnsins á Seyðisfirði brá heldur í brún í morgun þegar verið var að undirbúa árlega Smiðjuhátíð og í ljós kom að spýtuplötur sem leggja átti í stórt veitingatjald voru horfnar. Í samtali við Austurfrétt nú eftir hádegi segir Pétur K...
http://www.austurfrett.is/frettir/3708-kviknadi-i-gamalli-og-yfirgefinni-rafstod-eftirsja-i-sogulegum-minjum
Kviknaði í gamalli og yfirgefinni rafstöð: Eftirsjá í sögulegum minjum Aflögð rafstöð við bæinn Fossgerði á Berufjarðarströnd skemmdist illa í eldi seinni partinn í gær. Slökkvistarfið gekk vel en eldsupptök eru óljós. Landeigandi segir stefnt að því að gera stöðina upp á nýtt. „Það var greinilega búið að krauma í kofa...
http://www.austurfrett.is/frettir/3720-benz-inn-fundinn-en-hjartalinurita-stolid-a-breiddalsvik
Benz-inn fundinn en hjartalínurita stolið á Breiðdalsvík Mercedes Benz-bifreið sem stolið var af flugvellinum á Egilsstöðum í gær er fundinn. Þá var brotist inn í heilsugæsluna á Breiðdalsvík í nótt. Fyrr í dag var auglýst eftir svörtum Benz ML250 jeppa, árgerð 2015 á vegum bílaleigunnar Hertz. Við eftirgrennslan lögre...
http://www.austurfrett.is/frettir/3714-ibuar-spurdir-alits-vid-motun-afangastadarins-austurlands
Íbúar spurðir álits við mótun áfangastaðarins Austurlands Ferðamálasamtök Austurlands (FAUST), Austurbrú og sveitarfélögin í fjórðungnum standa nú fyrir könnun meðal bæði ferðamanna og íbúa um viðhorf þeirra og upplifun af Austurlandi. Könnunin er hluti af verkefninu Áfangastaðurinn Austurland. Könnunin er lokahnykkuri...
http://www.austurfrett.is/frettir/3710-velur-serstok-dekk-fyrir-borgfirdinga
Velur sérstök dekk fyrir Borgfirðinga Kristdór Þór Gunnarsson, rekstrarstjóri Dekkjahallarinnar á Egilsstöðum, segir íbúa á Borgarfirði eystra þurfa slitsterkari dekk heldur en aðra vegna ástands vegarins þangað. Það hefur verið sérstaklega slæmt í sumar og framundan er stærsta ferðahelgi ársins til staðarins. „Já, ég ...
http://www.austurfrett.is/frettir/3707-vegurinn-til-borgarfjardar-onytur-kann-ekki-nogu-mikid-af-lysingarordum
Vegurinn til Borgarfjarðar ónýtur: Kann ekki nógu mikið af lýsingarorðum Jón Þórðarson, sveitarstjóri Borgarfjarðarhrepps, segir sig skorta orð til að lýsa veginum til Borgarfjarðar eystri sem hafi verið með versta móti í sumar. Framundan er stærsta ferðahelgi sumarsins til staðarins. „Ég kann ekki nógu mikið af lýsing...
http://www.austurfrett.is/frettir/3705-farsaella-ad-vinna-med-throuninni-faekkar-i-sveitum-thratt-fyrir-ljosleidara-og-malbikadar-heimreidar
Farsælla að vinna með þróuninni: Fækkar í sveitum þrátt fyrir ljósleiðara og malbikaðar heimreiðar Þróun í tækni og samgöngum til sveita virðist meðal annars hafa leitt til fólksfækkunar sem aftur leiðir til fækkunar í skólum í sveitunum. Slík varð raunin í skólasamfélaginu í kringum Hallormsstaðarskóla en svipuð dæmi ...
http://www.austurfrett.is/frettir/3698-gratt-i-fjollum-i-morgun
Grátt í fjöllum í morgun Afar kuldalegt var um að litast á Austfjörðum í morgun en gránað hafði í hæstu fjallatinda. Snjóföl var meðfram veginum yfir Fjarðarheiði og enn hvítara í Gagnheiði. Samkvæmt tölum frá Veðurstofunni var hiti um frostmark á Fjarðarheiði um klukkan átta í morgun. Sömuleiðis var grátt í tinda við ...
http://www.austurfrett.is/frettir/3692-of-snemmt-ad-fullyrda-nokkud-um-adstaedur-til-gangagerdar-undir-fjardarheidi
Of snemmt að fullyrða nokkuð um aðstæður til gangagerðar undir Fjarðarheiði Of snemmt er að fullyrða nokkuð um aðstæður til jarðgangagerðar undir Fjarðarheiði fyrr en frekari rannsóknir hafa farið fram. Ljóst er verkefnið verður snúið þar sem göngin verða ein lengstu veggöng í Evrópu. Fyrstu athuganir benda heldur til ...
http://www.austurfrett.is/frettir/3689-blaengur-farinn-til-veida
Blængur farinn til veiða Nýr Blængur NK, sem Síldarvinnslan keypti í byrjun mánaðarins, hélt til veiða um síðustu helgi. Forstjóri fyrirtækisins segir að keypt hafi verið öflugt skip sem bjóði upp á ýmsa möguleika. Blængur hét síðast Freri RE og kemur frá Ögurvík. Upphaflega hét skipið Ingólfur Arnarson og var smíða á ...
http://www.austurfrett.is/frettir/3701-erlendir-ferdhamenn-taka-vel-i-adh-borga-100-kr-fyrir-salernisferdhina
Erlendir ferðamenn taka vel í að borga 100 krónur fyrir salernisferðina Fyrr í sumar var opnuð ný klósettaðstaða í Egilsstaðastofu, við tjaldsvæðið á Egilsstöðum. Þar geta ferðamenn komið við og farið á klósettið fyrir eitt hundrað krónur. Ferðamönnum finnst ekkert tiltökumál að borga fyrir að nota klósettaðstöðuna, sa...
http://www.austurfrett.is/frettir/3697-rutufarthegum-visad-i-bakgardinn-til-ad-haegja-ser-fer-ekki-upp-i-gard-a-naestunni-nema-i-stigvelum
Rútufarþegum vísað í bakgarðinn til að hægja sér: Fer ekki upp í garð á næstunni nema í stígvélum Fararstjóri hjá ferðaskrifstofunni Ferðamiðlun vísaði rútufarþegum upp í garðinn við íbúðarhúsið á Skjöldólfsstöðum á Jökuldal til að gera þarfir sínar í kvöld. Heimilisfólkið segist löngu vera komið með upp í kok af slíkr...
http://www.austurfrett.is/frettir/3691-banna-umferd-velknuinna-okutaekja-a-bulandsdal-a-hreindyraveiditimabilinu
Banna umferð vélknúinna ökutækja á Búlandsdal á hreindýraveiðitímabilinu Sveitarstjórn Djúpavogshrepps samþykkti á síðasta fundi sínum bann við umferð vélknúinna ökutækja á innan við göngubrú sem liggur yfir Búlandsá og uppbyggður vegur liggur að. Ástæðan eru alvarlegar og endurteknar umkvartanir sem fulltrúum sveitarf...
http://www.austurfrett.is/frettir/3688-aformar-flug-milli-egilsstada-og-lunduna-truum-ad-leidin-skapi-nyjan-markad
Áformar flug milli Egilsstaða og Lundúna: Trúum að leiðin skapi nýjan markað Clive Stacey, eigandi ferðaskrifstofunnar Discover the World, segist hafa trú á að hægt verði að auka enn frekar ferðamannastreymi til Íslands með beinu flugi milli Egilsstaða og Gatwick flugvallar við London. Til stendur að gera tilraunir með...
http://www.austurfrett.is/frettir/3700-nordfjardargong-bru-a-eskifjardara
Norðfjarðargöng: Brú á Eskifjarðará Vinna er hafin við byggingu brúar á Eskifjarðará. Verktaki er Vélaverkstæði Hjalta Einarssonar, VHE. Heldur hægar gekk að grafa Norðfjarðargöng í síðustu viku heldur en að undanförnu. Staurar voru reknir niður í setið á vormánuðum, til að byggja undirstöður brúarinnar á og er þegar b...
http://www.austurfrett.is/frettir/3694-blafaninn-dreginn-ad-huni-a-borgarfirdi-i-threttanda-sinn
Bláfáninn dreginn að húni á Borgarfirði í þrettánda sinn Bláfáninn var dreginn að hún við höfnina á Borgarfirði eystra í þrettánda sinn fyrir skemmstu. Verkefnið var innleitt hérlendis og hafa Borgfirðingar því verið með frá byrjun. Bláfáninn er alþjóðleg umhverfisviðurkenning sem veitt er smábátahöfnum og baðströndum ...
http://www.austurfrett.is/frettir/3690-daemdur-fyrir-meidyrdi-gagnvart-logregluthjoni-skeytingarleysi-um-sannleiksgildi
Dæmdur fyrir meiðyrði gagnvart lögregluþjóni: Skeytingarleysi um sannleiksgildi Héraðsdómur Austurlands dæmdi í dag karlmann á sextugsaldri fyrir meiðyrði í garð lögregluþjóns. Sakfellt var fyrir umæli þar sem lögregluþjónninn var sakaður um að hafa sent ungum stúlkum kynferðisleg skilaboð. Ekki var sakfellt fyrir ásak...
http://www.austurfrett.is/frettir/3685-bida-vaentanlega-eftir-nidurstodum-starfshops-adur-en-akvordun-um-millilandaflug-liggur-fyrir
Bíða væntanlega eftir niðurstöðum starfshóps áður en ákvörðun um millilandaflug liggur fyrir Verkefnastjóri hjá Austurbrú segir að líklega verði beðið eftir niðurstöðum starfshóps um millilandaflug frá Egilsstöðum áður en endanleg ákvörðun liggur fyrir um flug þaðan til Bretlands. Stór bresk ferðaskrifstofa áformar vik...
http://www.austurfrett.is/frettir/3681-enginn-sotti-um-stodu-heradsdyralaeknis
Enginn sótti um stöðu héraðsdýralæknis Enginn sótti um stöðu héraðsdýralæknis í Austurumdæmi sem auglýst var öðru sinni nýverið. Ekkert hefur verið ákveðið um framhaldið en staðan hefur verið laus nánast frá áramótum. Þetta kemur fram í svari Bjarka R. Kristjánssonar, forstöðumanns rekstrar- og mannauðssviðs Matvælasto...
http://www.austurfrett.is/frettir/3676-varaformadur-fib-efins-um-fjardarheidargong-heidin-er-nu-oft-opin
Varaformaður FÍB efins um Fjarðarheiðargöng: Heiðin er nú oft opin Varaformaður Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) hefur áhyggjur af öryggi og umhverfi Fjarðarheiðarganga. Hann hvetur til þess að menn skoði að sameina Austfirði með styttri göngum milli Fjarðanna í suðri. „Það vantar ekki nema 2-3 göng til að loka þ...
http://www.austurfrett.is/frettir/3672-gudmundur-bjarnason-latinn
Guðmundur Bjarnason látinn Guðmundur Bjarnason, fyrrverandi bæjarstjóri Fjarðabyggðar, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað á laugardagsmorgun. Guðmundur fæddist 17. júlí árið 1949 í Neskaupstað, yngstur þriggja barna Láru Halldórsdóttur og Bjarna Guðmundssonar. Guðmundur varð stúdent frá Menntaskólanum á Laugarv...
http://www.austurfrett.is/frettir/3666-eistnaflug-thjonustugjaldid-stendur-bara-undir-hluta-kostnadar-sveitarfelagsins
Eistnaflug: Þjónustugjaldið stendur bara undir hluta kostnaðar sveitarfélagsins Kurr hefur verið meðal tónleikagesta á Eistnaflugi með þjónustugjald sem bætist við miðaverð á hátíðina. Sveitarfélagið Fjarðabyggð ber umtalsverðan kostnað af hátíðarhaldinu. Helgarpassinn kostar 15 þúsund krónur en til viðbótar þarf að gr...
http://www.austurfrett.is/frettir/3680-hreindyraveidhar-hafnar-sjoe-tarfar-felldir-a-veidhisvaedhi-7
Hreindýraveiðar hafnar: Sjö tarfar felldir á veiðisvæði 7 Á miðnætti hófst hreindýraveiðitímabilið og samkvæmt Jóhanni G. Gunnarssyni hjá Umhverfisstofnun á Egilsstöðum er nú þegar búið að fella sjö tarfa, alla á veiðisvæði 7 í Djúpavogshreppi. Ekki er óvanalegt að veiðin fari hratt af stað, en róist síðan örlítið efti...
http://www.austurfrett.is/frettir/3675-engin-tilbod-i-hallormsstadarskola
Engin tilboð í Hallormsstaðarskóla Engin formleg tilboð bárust í Hallormsstaðarskóla áður en frestur til þess rann út í lok júní. Húsnæðið verður auglýstur aftur hjá fasteignasölum innan skamms. Bæjarráð staðfesti sölumeðferðina á fundi sínum í gær. Í fundargerð starfshóps um málefni skólans kemur fram að engin formleg...
http://www.austurfrett.is/frettir/3670-fidhrildin-haetta-starfsemi-styrkja-fimleikadeild-hattar-um-ruma-milljon
Fiðrildin hætta starfsemi – Styrkja fimleikadeild Hattar um rúma milljón Í gær lauk 40 ára sögu þjóðdansafélagsins Fiðrildanna á Fljótsdalshéraði með formlegum hætti á Gistihúsinu á Egilsstöðum. Eignum félagsins var ráðstafað til góðra málefna og starfseminni slitið, en lítil starfsemi hefur verið í félaginu undanfarin...
http://www.austurfrett.is/frettir/3662-vill-baejarstjorn-fjardabyggdar-ad-seydisjordur-verdi-endastod-til-framtidar
Vill bæjarstjórn Fjarðabyggðar að Seyðisfjörður verði endastöð til framtíðar? Forsvarsmenn bæjarráða Fjarðabyggðar og Seyðisfjarðarkaupstaðar eru ósammála um heppilegustu gangatenginguna fyrir Seyðisfjörð. Formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar lýsti í fréttum RÚV þeirri skoðun að betra væri að byrja á göngum frá Seyðisfirði...
http://www.austurfrett.is/frettir/3678-nordfjardargong-buid-ad-grafa-yfir-sjo-kilometra
Norðfjarðargöng: Búið að grafa yfir sjö kílómetra Nú er búið að grafa meira en 7 km leiðarinnar milli Eskifjarðar og Norðfjarðar, rúma 3 km frá Norðfirði og rúma 4 km frá Eskifirði. Það eru því aðeins um 500 metrar eftir þar til slegið verður í gegn. Búist er við því að jarðfræðin verði fremur hagstæð á þeirri leið sem...
http://www.austurfrett.is/frettir/3674-lunga-sett-i-fimmtanda-sinn-kaerleiksrik-athofn
LungA sett í fimmtánda sinn: Kærleiksrík athöfn LungA-hátíðin á Seyðisfirði var sett í fimmtánda sinn í gærkvöldi í félagsheimilinu Herðubreið. Fjölþjóðlegur listahópur flutti þar gjörning þar sem unnið var út frá hugtakinu samkennd. „Þetta var andleg, kærleiksrík, falleg og persónuleg athöfn," segir Björt Sigfinnsdótt...
http://www.austurfrett.is/frettir/3667-mjog-jakvaed-teikn-um-moguleika-a-millilandaflugi
Mjög jákvæð teikn um möguleika á millilandaflugi Framkvæmdastjóri Austurbrúar segir „mjög jákvæð teikn á lofti" í viðræðum við stóran breskan ferðaþjónustuaðila um beint flug á milli Egilsstaða og Englands á næsta ári. Næsta viðræðulota verður í ágúst. Austurbrú hefur leitt málið fyrir hönd Austfirðinga síðustu mánuði....
http://www.austurfrett.is/frettir/3661-eistnaflug-born-leyfd-til-klukkan-tiu-tonlistarhatidum-er-mismunad
Eistnaflug: Börn leyfð til klukkan tíu – Skipuleggjandi segir hátíðum mismunað Tónlistarhátíðin Eistnaflug í Neskaupsstað sendi frá sér tilkynningu í gærkvöldi þess efnis að lögreglustjórinn á Austurlandi hefði ákveðið að börn mættu ekki koma inn í tónleikasalinn á Eistnaflugi. Það er rangt, samkvæmt lögreglunni á Eski...
http://www.austurfrett.is/frettir/3659-unnid-dag-og-nott-a-egilsstadanesi
Unnið dag og nótt á Egilsstaðanesi Verið er að endurnýja stofnlögn hitaveitunnar á milli Egilsstaða og Fellabæjar. Unnið hefur verið dag og nótt að verkinu undanfarið og allt gengið samkvæmt áætlun, samkvæmt Guðmundi Davíðssyni, framkvæmdastjóra Hitaveitu Egilsstaða og Fella. „Það er verið að endurnýja stofnlögn hitave...
http://www.austurfrett.is/frettir/3631-vilhjalmur-g-palsson-sart-ad-missa-storu-sjodina
Vilhjálmur G. Pálsson: Sárt að missa stóru sjóðina Allt stefnir í að innan tíðar verði Sparisjóður Austurlands, sem þar til í apríl var kenndur við Norðfjörð, einn af fjórum sparisjóðum sem eftir eru í landinu en þrír stórir sjóðir hafa horfið undir bankana nýverið. Vilhjálmur G. Pálsson, sparisjóðsstjóri, er jafnframt...
http://www.austurfrett.is/frettir/3622-kannast-ekki-vid-refadauda-a-austurlandi
Kannast ekki við refadauða á Austurlandi Hvorki líffræðingar né grenjaskyttur kannast við óvenjulegan refadauða á Austurlandi. Þótt afföll kunni að vera á stofninum annars staðar sjást þess engin merki eystra. Stundin birti um síðustu helgi frétt á vef sínum undir fyrirsögninni „Refadauði um allt land" sem virðist fyrs...
http://www.austurfrett.is/frettir/3610-thorvaldur-johannsson-vildi-austurland-i-eitt-sveitarfelag
Þorvaldur Jóhannsson: Vildi Austurland í eitt sveitarfélag Þorvaldi Jóhannssyni, fyrrum bæjarstjóra á Seyðisfirði og framkvæmdastjóra Sambands sveitarfélaga á Austurlandi, þykir það miður að ekki hafi verið unnið áfram með hugmynd um sameiningu Austurlands í eitt sveitarfélag. Þetta kemur fram í ítarlegu viðtali við Þo...
http://www.austurfrett.is/frettir/3636-eidur-ragnars-haettir-i-baejarstjorn-fjardabyggdar
Eiður Ragnars hættir í bæjarstjórn Fjarðabyggðar Eiður Ragnarsson, fulltrúi Framsóknarflokks í bæjarstjórn Fjarðabyggðar, hefur sagt sig úr bæjarstjórninni. Ástæðan er að hann er að flytja aftur á æskustöðvarnar í Djúpavogshreppi. Afsögn Eiðs var samþykkt á síðasta fundi bæjarráðs Fjarðabyggðar og honum þakkað samstarf...
http://www.austurfrett.is/frettir/3627-af-hverju-eru-egilsstadhir-og-fellabaer-ekki-a-facebook
Af hverju eru Egilsstaðir og Fellabær ekki á Facebook? Spurning fyrirsagnarinnar hefur kvalið margan manninn á Fljótsdalshéraði um árabil, en fyrir þá sem ekki vita þá er staðreyndin sú að á samskiptamiðlinum Facebook er hvorki hægt að velja Egilsstaði né Fellabæ sem heimabæ sinn. Ástæðan fyrir þessu er öllu saman er ó...
http://www.austurfrett.is/frettir/3615-vorverkum-saudfjarbaenda-seinkad-um-tvaer-til-thrjar-vikur
Vorverkum sauðfjárbænda seinkað um tvær til þrjár vikur Kalt vor hefur gert það að verkum að vorverk sauðfjárbænda eru mun seinna á ferðinni en ella. Féð hefur verið lengur heima á túnum sem aftur seinkar heyskap. „Það eru flestir að verða lausir við féð núna en eru vanir að vera lausir við það fyrir sautjándann," segi...
http://www.austurfrett.is/frettir/3603-samkeppniseftirlitid-buid-ad-vera-i-tvo-ar-ad-skoda-tengsl-sildarvinnslunnar-vid-eigendur
Samkeppniseftirlitið búið að vera í tvö ár að skoða tengsl Síldarvinnslunnar við eigendur Samkeppniseftirlitið er enn að skoða tengsl Síldarvinnslunnar við aðaleigendur sína, Gjögur og Samherja. Hún hefur staðið í rúm tvö ár. „Staða athugunar Samkeppniseftirlitsins á því máli er sú að það er enn í skoðun en lyktir máls...
http://www.austurfrett.is/frettir/3634-ottar-gudmundsson-tharf-ad-fa-straka-til-ad-tala-ef-theim-lidur-illa
Óttar Guðmundsson: Þarf að fá stráka til að tala ef þeim líður illa Smávægileg atvik geta oft verið kveikjan að því að ungir karlmenn láti verða af því að fremja sjálfsvíg en um leið endapunkturinn á löngu ferli. Geðlæknir segir að opna þurfi umræðuna til að gera þeim gert að tala um líðan sína. „Það eru engin dauðsföl...
http://www.austurfrett.is/frettir/3626-hlaupa-hringinn-til-styrktar-sjalfsvigsforvoernum-thadh-eru-fleiri-sem-latast-af-voeldum-sjalfsviga-en-i-bilslysum
Hlaupa hringinn til styrktar sjálfsvígsforvörnum: „Það eru fleiri sem látast af völdum sjálfsvíga en í bílslysum“ Í gærkvöldi hljóp tólf manna hlaupahópur undir merkjum forvarnarverkefnisins Útmeð‘a í gegnum Egilsstaði á leið sinni í kringum landið. Hópurinn safnar áheitum til að stuðla að auknum forvörnum gegn sjálfsv...
http://www.austurfrett.is/frettir/3612-djupivogur-throun-midbaejarins-taki-mid-af-folki-edli-thess-og-thorfum
Djúpivogur: Þróun miðbæjarins taki mið af fólki, eðli þess og þörfum Tæplega þrjátíu manns mættu á íbúafund um skipulagsmál á Djúpavogi á fimmtudaginn í síðustu viku. Þar voru kynnt þau þemu sem hafa verið höfð að leiðarljósi við gerð nýs deiliskipulags fyrir miðbæjarsvæðið á Djúpavogi og íbúum var gefinn kostur á að t...
http://www.austurfrett.is/frettir/3600-their-sem-thurfa-ad-nota-innanlandsflug-tapa-a-flutningi-flugvallarins
Þeir sem þurfa að nota innanlandsflug tapa á flutningi flugvallarins Áætlaður ábati af nýjum flugvelli í Hvassahrauni byggist nær eingöngu á íbúum höfuðborgarsvæðisins sem nýta sér millilandaflug. Farþegar í innanlandsflugi tapa á nýjum velli. Þetta kemur fram í niðurstöðum Rögnunefndarinnar svokölluðu, um flugvallarst...
http://www.austurfrett.is/frettir/3599-seydisfjordur-vid-eigum-engin-ord-en-vid-eigum-hvert-annad
Seyðisfjörður: „Við eigum engin orð en við eigum hvert annað" Við setningu 120 ára afmælis Seyðisfjarðarkaupstaðar í gærkvöldi sameinuðust gestir í bæn eftir alvarlegt bílslys í firðinum í vikunni þar sem ung stúlka lést og önnur slasaðist alvarlega. Forseti bæjarstjórnar notaði ávarp sitt til að þakka viðbragðsaðilum ...
http://www.austurfrett.is/frettir/3592-vonast-eftir-ad-satt-se-komin-um-veglinu-um-berufjardarbotn
Vonast eftir að sátt sé komin um veglínu um Berufjarðarbotn Sveitarstjórn Djúpavogshrepps undirbýr breytingu á aðalskipulagi hreppsins með nýrri veglínu um Berufjarðarbotn þannig að hægt verði að ráðast ráðast í veglagningu þar. Hún treystir því að landeigendur fyrir botni fjarðarins séu nú orðnir sáttir um eina veglín...
http://www.austurfrett.is/frettir/3589-seydisfjordur-haldid-verdur-upp-a-afmaelid-en-med-alvarlegri-blae
Seyðisfjörður: Haldið verður upp á afmælið en með alvarlegri blæ Hátíðarhöld í tilefni 120 kaupstaðarafmælis Seyðisfjarðar hefjast í kvöld. Reikna má með einhverjum breytingum á dagskránni en bæjarbúar eru í áfalli eftir hörmulegt bílslys sem varð þar á þriðjudagskvöld. Rúmlega tvítug stúlka fórst í því og önnur liggur...
http://www.austurfrett.is/frettir/3580-midbaejartorgid-gert-ad-solveigartorgi
Miðbæjartorgið gert að Sólveigartorgi: Megum aldrei sofna á verðinum í jafnréttisbaráttunni Miðbæjartorgið á Seyðisfirði var nefnt Sólveigartorg á almennum hátíðarfundi sem haldinn var þar á föstudag í tilefni af 100 ára kosningarétti kvenna. Forseti bæjarstjórnar minnti á að áfanginn hefði náðst með dugnaði og elju ka...
http://www.austurfrett.is/frettir/3597-petur-johann-styrkir-soefnun-fyrir-hjartahnodhtaeki-a-seydhisfirdhi
Pétur Jóhann styrkir söfnun fyrir hjartahnoðtæki á Seyðisfirði Grínistinn Pétur Jóhann Sigfússon verður með uppistandssýningu sína „Pétur Jóhann: Óheflaður“ á Seyðisfirði í kvöld. Hann hyggst láta hluta miðaverðs sýningarinnar renna til Lionsklúbbsins á Seyðisfirði, sem safnar fyrir hjartahnoðtæki. Í gær tilkynnti Pétu...
http://www.austurfrett.is/frettir/3591-grunur-um-laumufarthega-med-norraenu
Grunur um laumufarþega með Norrænu Horft var eftir laumufarþega þegar Norræna lagðist að bryggju á Seyðisfirði í morgun en enginn slíkur fannst. Ferjan var annars sneisafull af farþegum og fragt. Samkvæmt upplýsingum Austurfréttar sáust ummerki um borð sem hugsanlega gátu hafa verið eftir laumufarþega. Enginn slíkur fa...
http://www.austurfrett.is/frettir/3587-engar-timasetningar-a-frekari-tillogum-i-fjardabyggd
Engar tímasetningar á frekari tillögum í Fjarðabyggð Bæjaryfirvöld í Fjarðabyggð skoða nú nánari útfærslu á tillögum sem kynntar voru í skýrslum KPMG og Skólastofunnar um framtíðartilögun rekstrar sveitarfélagsins í vor. „Við erum að vinna að ýmsum verkefnum sem tengjast fjármálum og rekstri sveitarfélagsins um þessar ...
http://www.austurfrett.is/frettir/3579-bjargar-ferdamonnum-reglulega-ur-austdalsa-snyst-um-heildstaeda-nalgun-a-island-sem-afangastad
Bjargar ferðamönnum reglulega úr Austdalsá: Snýst um heildstæða nálgun á Ísland sem áfangastað Staðarhaldari á Skálanesi í Seyðisfirði segir þörf á framtíðarsýn fyrir ferðaþjónustu til að tryggja öryggi þeirra sem heimsækja Ísland. Henni verði líka að fylgja fjármagn í takt við arð ríkisins af greininni. Staðarhaldarar...
http://www.austurfrett.is/frettir/3593-vonast-til-ad-glaeda-tjarnargardinn-lifi-med-frisbigolfvelli
Vilja til að glæða Tjarnargarðinn lífi með frisbígolfvelli Bæjarfulltrúar á Fljótsdalshéraði vonast til að líf færist í Tjarnargarðinn á Egilsstöðum þegar fyrsta frisbígolfvellinum á Austurlandi verður komið það upp. Ekki eru þó allir sammála um þá framkvæmd enda garðurinn skilgreindur sem skrúðgarður í gildandi skipul...
http://www.austurfrett.is/frettir/3590-hoffellid-farid-fram-ur-ollum-vaentingum-og-veitt-fyrir-1-5-milljard-krona
Hoffellið farið fram úr öllum væntingum og veitt fyrir 1,5 milljarð króna Tekið var á móti Hoffellinu á Fáskrúðsfirði með köku í gærmorgun þegar það kom að landi með 1.360 tonn af kolmunna. Þar með er heildaraflaverðmæti skipsins, sem keypt var síðasta sumar, komið yfir 1,5 milljarð króna. „Skipið hefur reynst í alla s...
http://www.austurfrett.is/frettir/3583-tvaer-fluttar-slasadar-sudur-eftir-bilslys-a-seydisfirdi
Banaslys á Seyðisfirði Ung kona lést í bílslysi á Seyðisfirði rétt fyrir miðnætti í gær og önnur liggur alvarlega slösuð á Landsspítalanum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu fór bíll þeirra út af veginum og niður talsverðan bratta ofan við Hafsíld á leiðinni út á Vestdalseyri. Önnur konan kastaðist út úr bílnum en beit...
http://www.austurfrett.is/frettir/3575-ferdamenn-dregnir-upp-ur-austdalsa
Ferðamenn dregnir upp úr Austdalsá Björgunarsveitin Ísólfur á Seyðisfirði var kölluð út nú síðdegis þegar beiðni um aðstoð barst frá tveimur erlendum ferðalöngum sem fest höfðu bílaleigubíl sinn á leiðinni í Skálanes, nánar tiltekið í Austdalsánni. Björgunarsveitin fór þegar á staðinn. Þegar þangað var komið höfðu ferð...
http://www.austurfrett.is/frettir/3573-feneyjalistamadur-vinnur-landamerkjadeilu
Feneyjalistamaður vinnur landamerkjadeilu Héraðsdómur Austurlands dæmdi nýverið listamanninum Christoph Jules Buchel og Nínu Magnúsdóttur konu hans í vil í deilu um landamerki tveggja jarða utarlega í Seyðisfirði. Þau höfðu áður verið sýknuð af kröfum í gagnstefnu í sama máli. Deilan snérist um landamerki jarðanna Aust...
http://www.austurfrett.is/frettir/3560-um-900-manns-i-fyrstu-sumarferd-norraenu
Um 900 manns í fyrstu sumarferð Norrænu Á milli 800 og 900 manns komu með Norrænu til Seyðisfjarðar í morgun en ferjan er nú komin á sumartíma sinn á fimmtudögum. Lögreglumenn fræddu ferðamenn um reglur um utanvegaakstur á hafnarbakkanum. Í land fóru 450 ökutækni og á milli 800 og 900 manns. Ferjan kom um klukkan hálf ...
http://www.austurfrett.is/frettir/3553-engin-ahaetta-tekin-med-neysluvatn-vilja-ekki-leyfa-hesthus-a-vatnsveitusvaedi
Engin áhætta tekin með neysluvatn: Vilja ekki leyfa hesthús á vatnsveitusvæði Heilbrigðisnefnd Austurlands vill ekki heimila byggingu hesthúss á grannsvæði vatnsveitunnar á Eskifirði. Vatnsveitan þykir viðkvæm en þar hefur komið upp mengun í leysingum auk þess sem aðallindirnar geta þornað upp. Það var umhverfis- og au...
http://www.austurfrett.is/frettir/3549-hluthafafundur-busaeldar-a-egilsstodum-tekur-afstodu-til-kauptilbods-kjarnafaedis-i-nordlenska
Hluthafafundur Búsældar á Egilsstöðum tekur afstöðu til kauptilboðs Kjarnafæðis í Norðlenska Hluthafafundur Búsældar ehf., sem hefst í Valaskjálf á Egilsstöðum klukkan eitt í dag, tekur afstöðu til kauptilboðs Kjarnafæðis á öllum hlutabréfum Búsældar í Norðlenska matborðinu ehf. sem stendur að baki kjötiðnaðarfyrirtæki...
http://www.austurfrett.is/frettir/3569-hjukrunarfraedingar-settu-a-sig-sorgarbond-lakari-stodu-kvenna-er-vidhaldid
Hjúkrunarfræðingar settu á sig sorgarbönd: Lakari stöðu kvenna er viðhaldið Hjúkrunarfræðingar og nemar við Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað söfnuðust saman utan við húsið í gær á 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna og settu á sig sorgarbönd. Með því vildu þær mótmæla lögum sem sett voru á verkfall hjúkrunarfræðing...
http://www.austurfrett.is/frettir/3557-sigurbjorg-ingunn-radin-tonskolastjori-a-seydisfirdi
Sigurbjörg Ingunn ráðin tónskólastjóri á Seyðisfirði Sigurbjörg Ingunn Kristínardóttir hefur verið ráðin skólastjóri við Tónlistarskóla Seyðisfjarðar til eins árs. Sigurbjörg er tónmenntakennari frá Tónlistarskóla Reykjavíkur. Hún hefur starfað sem kennari við tónlistarskóla Seyðisfjarðar og organisti við Seyðisfjarðar...
http://www.austurfrett.is/frettir/3551-kauptilbod-kjarnafaedis-i-nordlenska-strafellt
Kauptilboð Kjarnafæðis í Norðlenska kolfellt Yfirgnæfandi meirihluti hluthafa í Búsæld, móðurfélagi kjötiðnaðarfyrirtækisins Norðlenska, hafnaði í dag kauptilboði frá Kjarnafæði á hluthafafundi sem haldinn var á Egilsstöðum. Sjötíu prósent þeirra sem greiddu atkvæði voru á móti kauptilboðinu, 16,6% sögðu já og 13,4% sk...
http://www.austurfrett.is/frettir/3546-alcoa-fjardhaal-veitir-samfelagsstyrki
Alcoa Fjarðaál veitir samfélagsstyrki Vorúthlutun samfélagsstyrkja úr styrktarsjóði Alcoa Fjarðaáls fór fram í Sláturhúsinu á Egilsstöðum föstudaginn 11. júní. Veittir voru 34 styrkir til fjölbreyttra verkefna á Austurlandi fyrir um 8 milljónir samtals. Sem dæmi um verkefni sem hlutu styrk má nefna grunnskólann á Beiðd...