Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
http://www.austurfrett.is/frettir/3265-skiptum-lokid-a-throtabui-utgerdar-rumum-20-arum-eftir-gjaldthrot
Skiptum lokið á þrotabúi útgerðar rúmum 20 árum eftir gjaldþrot Skiptastjóri þrotahús Nausta hf. í Neskaupstað lauk nýverið skiptum á búinu, 22 árum eftir að fyrirtækið var úrskurðað gjaldþrota. Ekkert kom upp í lýstar kröfur. Útgerðarfélagið Nausti var stofnað í Neskaupstað árið 1989 kennt við samnefndan mát, Nausta N...
http://www.austurfrett.is/frettir/3258-95-samthykktu-verkfallsbodun-hja-undirverktokum-a-alverssvaedinu
95% samþykktu verkfallsboðun hjá undirverktökum á álverssvæðinu Starfsmenn hjá undirverktökum á álverssvæðinu í Reyðarfirði leggja niður vinnu eftir rúma viku ef ekki verður skrifað undir nýja kjarasamninga. Verkfallsboðunin var samþykkt með miklum yfirburðum. Alls voru 375 félagsmenn í AFLi starfsgreinafélagi á kjörsk...
http://www.austurfrett.is/frettir/3247-fjardabyggdarhafnir-kaupa-farthegaferju
APRÍLGABB: Fjarðabyggðarhafnir kaupa farþegaferju Stjórn Fjarðabyggðarhafna samþykkti á fundi sínum í gær að festa kaup á farþegaferju. Austurfrétt hefur það eftir heimildarmanni sínum að ferjan verður afhent í vor og að rekstur hennar verði boðinn út á evrópska efnahagssvæðinu. Markmiðið með siglingunum mun vera að bj...
http://www.austurfrett.is/frettir/3245-daemdur-fyrir-skjalafals-vidh-hrossakaup
Dæmdur fyrir skjalafals við hrossakaup Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt sextugan karlmann í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að falsa undirskrift sjálfskuldarábyrgðarmanns á skuldabréfi og fjarlægja lausamuni úr bát eftir að hann var seldur á uppboði. Ákærði hafði gengið frá kaupum á tveimur hryssum haustið 2010...
http://www.austurfrett.is/frettir/3264-24-milljonir-austur-i-riflega-40-husafridunarverkefni
24 milljónir austur í ríflega 40 húsafriðunarverkefni Minjastofnun Íslands úthlutaði nýverið 24 milljónum króna úr húsafriðunarsjóði til 42 verkefna á Austurlandi. Hæstu styrkurinn, 1,5 milljón króna, fer til gömlu kirkjunnar á Djúpavogi. Í ár er alls úthlutað rúmum 139 milljónum króna til 224 verkefna um allt land. St...
http://www.austurfrett.is/frettir/3253-kostar-ruman-halfan-milljard-ad-ljosleidaravaeda-fljotsdalsherad
Kostar rúman hálfan milljarð að ljósleiðaravæða Fljótsdalshérað Áætlað er að heildarkostnaður við að leggja ljósleiðara heim að hverju íbúðarhúsi í sveitarfélaginu Fljótsdalshéraði sé rúmur hálfur milljarður króna og að verkið taki fimm ár. Annar möguleiki er að koma upp þráðlausum sendum fyrir brot af kostnaðinum og á...
http://www.austurfrett.is/frettir/3248-rikisstjornin-skipar-starfshop-til-ad-skoda-millilandaflug-um-egilsstadi
Ríkisstjórnin skipar starfshóp til að skoða millilandaflug um Egilsstaði Ríkisstjórnin hefur að tillögu forsætisráðherra samþykkt að skipa starfshóp sem fær það hlutverk að kanna hvernig koma megi á reglulegu millilandaflugi um flugvellina á Akureyri og Egilsstöðum. Í tilkynningu frá ráðuneytinu kemur fram að hópurinn ...
http://www.austurfrett.is/frettir/3241-ekkert-akvedid-um-utibu-sparisjodsins-a-breiddalsvik-og-djupavogi
Ekkert ákveðið um útibú sparisjóðsins á Breiðdalsvík og Djúpavogi Ekkert hefur enn verið ákveðið um framtíð útibúa Sparisjóðs Vestmannaeyja á Breiðdalsvík og Djúpavogi eftir að Landsbankinn yfirtók sjóðinn í gær eftir áhlaup innistæðueigenda. „Fólk frá okkur hefur farið á alla staði og rætt við starfsfólkið. Við erum a...
http://www.austurfrett.is/frettir/3260-fyrsta-listnamsbrautin-til-studentsprofs
Fyrsta listnámsbrautin til stúdentsprófs eftir nýrri námsskrá Menntaskólinn á Egilsstöðum er fyrsti íslenski framhaldsskólinn sem býður upp á listnámsbraut til stúdentsprófs. Mennta- og menningarmálaráðuneytið staðfesti nýverið formlega að listnámsbraut skólans uppfyllti skilyrði aðalnámskrár sem fullgild námsleið til ...
http://www.austurfrett.is/frettir/3250-nog-af-grasleppu-i-sjonum-en-erfidir-markadir
Nóg af grásleppu í sjónum en erfiðir markaðir Mælingar Hafrannsóknastofnunar benda til að grásleppustofninn sé óvenju sterkur. Veiðimaður segir lágt verð og erfitt veður letja menn í veiðunum. „Það var fínasta veiði í fyrstu vitjun en síðan hefur veðrið verið erfitt. Það er leiðinlegt þegar lægðirnar koma svona á færib...
http://www.austurfrett.is/frettir/3246-fleiri-farthegar-med-i-fyrstu-ferd-norraenu-en-adur
Fleiri farþegar með í fyrstu ferð Norrænu en áður Um 350 farþegar komu með Norrænu til Seyðisfjarðar í morgun í fyrstu farþegaferð ársins. Ferjan er fyrr á ferðinni en áður og fleiri með í fyrstu ferð en áður. „Það stefnir í mikið ár, þetta er töluvert meira en ég hef áður séð með fyrstu ferð," segir Árni Elísson, toll...
http://www.austurfrett.is/frettir/3237-daemdur-fyrir-ad-birta-nektarmyndir-af-fyrrverandi-kaerustu-a-facebook
Dæmdur fyrir að birta nektarmyndir af fyrrverandi kærustu á Facebook Nítján ára karlmaður var í Héraðsdómi Austurlands fyrir helgi dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fyrir að birta fimm nektarmyndir af fyrrverandi kærustu sinni á Facebook. Dómurinn hafnaði öllum rökum drengsins. Fyrir rúmu ári birti drengurinn fimm nærmyn...
http://www.austurfrett.is/frettir/3235-utgafa-veikindavottordha-hluti-skradhra-veikinda-hugsanlega-ekki-raunveruleg
Útgáfa veikindavottorða: Hluti skráðra veikinda hugsanlega ekki raunveruleg Framkvæmdastjóri læknina hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands segir að stöðug umræða sé innan læknastéttarinnar um útgáfu veikindavottorða. Framkvæmdastjóri segir frjálslega útgáfu þeirra kosta atvinnurekendur háar fjárhæðir á hverju ári. „Í þess...
http://www.austurfrett.is/frettir/3231-daniel-bystrom-keppid-ekki-vid-nagrannana-heldur-adra-afangastadi
Daniel Byström: Keppið ekki við nágrannana heldur aðra áfangastaði Sænski hönnuðurinn Daniel Byström segir að hönnun áfangastaða snúist ekki bara um upplifun ferðamanna heldur íbúanna líka. Austfirðingar hugsa hvernig þeir vilji miðla ímynd svæðisins. Þetta kom fram í máli Byström sem var meðal fyrirlesara á aðalfundi ...
http://www.austurfrett.is/frettir/3219-dvergkind-a-slettu-er-svo-anaegdh-medh-hana-og-hun-ma-vera-eins-lengi-og-hun-torir-myndir
Dvergkind á Sléttu: Er svo ánægð með hana og hún má vera eins lengi og hún tórir - myndir að er ekki á hverjum degi að maður heyrir um dverglömb. En á dögunum barst Austurfrétt ábending um að eitt slíkt væri að finna á bænum Sléttu í Reyðarfirði. Blaðamaður var ekki lengi að setja sig í samband við bændur á staðnum til...
http://www.austurfrett.is/frettir/3211-heldu-tundurduflid-flugvelabrak
Héldu tundurduflið flugvélabrak Sprengjusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð austur í Neskaupstað síðastliðna nótt eftir að skuttogarinn Bjartur NK120 kom með fékk tundurdufl í veiðarfæri sín og kom með til hafnar í Neskaupstað. Rúm 100 kíló af TNT sprengiefni voru í tundurduflinu. Að sögn Sigurðar Ásgrímssonar, yfirma...
http://www.austurfrett.is/frettir/3234-atkvaedagreidsla-um-verkfallsbodun-hja-undirverktokum-alcoa
Atkvæðagreiðsla um verkfallsboðun hjá undirverktökum Alcoa AFL Starfsgreinafélag hefur ákveðið að efna til atkvæðagreiðslu um boðun vinnustöðvunar hjá fyrirtækjum sem starfa sem undirverktakar hjá Alcoa Fjarðaáli við framleiðslu, viðhald og þjónustu. Verkfallsboðunin tekur til starfa verkamanna, iðnaðarmanna og verslun...
http://www.austurfrett.is/frettir/3229-kristjan-thor-rettlaetismal-ad-einstaklingar-hafi-forraedi-yfir-lifeyri-sinum-til-hinstu-stundar
Kristján Þór: Réttlætismál að einstaklingar hafi forræði yfir lífeyri sínum til hinstu stundar Heilbrigðisráðherra segir að endurskoða þurfi reglur um lífeyrisgreiðslur til þeirra sem komi inn í hjúkrunarrými þannig að á þær verði litið sem réttindi einstaklinga en ekki fjárveitingar til stofnana. „Fyrirkomulagið í dag...
http://www.austurfrett.is/frettir/3217-telja-breytta-stefnu-um-oliuleit-kalda-kvedju-til-ibua-i-fjardabyggd
Telja breytta stefnu um olíuleit kalda kveðju til íbúa í Fjarðabyggð Meirihluti bæjarráðs Fjarðabyggðar furðar sig á samþykkt nýafstaðins landsfundar Samfylkingarinnar þar sem lagst er gegn vinnslu jarðefnaeldsneytis á Íslandsmiðum. Fulltrúi minnihlutans telur ekki rétt að álykta um einstakar ályktanir stjórnmálaflokka...
http://www.austurfrett.is/frettir/3210-nytt-hjukrunarheimili-vigt-a-egilsstodum-verdur-mikil-breyting-og-bot-fyrir-heimilisfolk-og-starfsmenn
Nýtt hjúkrunarheimili vígt á Egilsstöðum: Verður mikil breyting og bót fyrir heimilisfólk og starfsmenn Fjölmenni var við vígslu nýs hjúkrunarheimilis á Egilsstöðum á laugardag. Þar með er lokið langri baráttu Héraðsmanna fyrir nýju heimili sem bætir aðstöðuna til muna. „Við gátum illa þjónustað þann hluta íbúa sveitar...
http://www.austurfrett.is/frettir/3232-nyr-uppbyggingarsjodur-austurlands
Nýr Uppbyggingarsjóður Austurlands Auglýst hefur verið eftir umsóknum í nýjan Uppbyggingarsjóð Austurlands. Tilgangur sjóðsins er að styrkja menningar- og nýsköpunarverkefni og önnur verkefni á Austurlandi. Uppbyggingarsjóður Austurlands er samkeppnissjóður sem tekur við af menningar- og vaxtarsamningum Austurlands. Sj...
http://www.austurfrett.is/frettir/3227-ferdhathjonustan-staersta-gjaldeyrisskapandi-grein-thjodharinnar
Ferðaþjónustan stærsta gjaldeyrisskapandi grein þjóðarinnar Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) fer fram á Egilsstöðum í dag, en yfirskrift fundarins er „Tækifærin liggja á landsbyggðinni". Skapti Örn Ólafsson, upplýsingafulltrúi SAF, segir það enga tilviljun að fundurinn sé haldinn á Héraði. „Það er mikil uppby...
http://www.austurfrett.is/frettir/3215-byggir-tiu-ny-herbergi-vidh-gistiheimilidh-a-skjoeldolfsstoedhum
Byggir tíu ný herbergi við gistiheimilið á Skjöldólfsstöðum Aðalsteinn Jónsson stendur í stórræðum um þessar mundir, en fyrir skemmstu hófst hann handa við framkvæmdir á Skjöldólfsstöðum þar sem hann hyggst stækka við gistiheimilið Á hreindýraslóðum og auka gistipláss. „Ég er að bæta við tíu tveggja manna herbergjum me...
http://www.austurfrett.is/frettir/3208-fyrrum-gjaldkeri-starfsmannafelags-fjardaals-akaerdur-fyrir-audgunarbrot-upp-a-taepar-atta-milljonir
Fyrrum gjaldkeri starfsmannafélags Fjarðaáls ákærður fyrir auðgunarbrot upp á tæpar átta milljónir Lögreglustjórinn á Austurlandi hefur ákært fyrrum gjaldkera Sóma, starfsmannafélags Alcoa Fjarðaáls, fyrir fjárdrátt og umboðssvik upp á samtals tæpar átta milljónir króna. Áætlað er að rúmar sex milljónir hafi hann tekið...
http://www.austurfrett.is/frettir/3206-kalladh-eftir-skjoelum-kvenna-helt-mamma-dagbok-var-amma-skuffuskald-eru-bref-langoemmu-i-geymslunni
Kallað eftir skjölum kvenna: Hélt mamma dagbók? Var amma skúffuskáld? Eru bréf langömmu í geymslunni? Nú í ár fagna landsmenn 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna. Af því tilefni efna Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn, Þjóðskjalasafn Íslands og héraðsskjalasöfnin til þjóðarátaks um söfnun á skjölum kvenna og hvet...
http://www.austurfrett.is/frettir/3200-sildarvinnslan-bydhur-99-starfsmoennum-i-ristilspeglun
Síldarvinnslan býður 99 starfsmönnum í ristilspeglun Síldarvinnslan og Heilbrigðisstofnun Austurlands hafa gert með sér samning um að öllum starfsmönnum Síldarvinnslunnar, sem náð hafa 50 ára aldri, gefist kostur á ristilspeglun þeim að kostnaðarlausu. Auk þess gefur fyrirtækið sjúkrahúsinu nýtt speglunartæki. Mun nýja...
http://www.austurfrett.is/frettir/3192-verdhlaunudh-fyrir-urvalsmjolk-fjordha-aridh-i-roedh
Verðlaunuð fyrir úrvalsmjólk fjórða árið í röð Fjórða árið í röð voru þau Steinþór Björnsson og Auðbjörg Elísa Stefánsdóttir á Hvannabrekku í Berufirði, verðlaunuð fyrir úrvalsmjólk. Verðlaun fyrir úrvalsmjólk fá þau kúabú sem leggja inn mjólk í 1. flokki A í öllum mánuðum ársins. Hvannabrekka var í ár, líkt og í fyrra...
http://www.austurfrett.is/frettir/3182-nokkud-um-utkoll-hja-austfirskum-bjorgunarsveitum-14032015
Nokkuð um útköll hjá austfirskum björgunarsveitum: Talsverðir vatnavextir Austfirskar björgunarsveitir voru kallaðar út í ýmis verkefni í veðurofsanum í morgun þótt rólegra væri hjá þeim en sveitum annars staðar á landinu. Rafmagnslína gaf sig í Breiðdal seinni partinn eftir vatnavexti. Mestar voru annirnar hjá Ísólfi ...
http://www.austurfrett.is/frettir/3205-sjonaras-og-efnamottakan-hljota-althjodhlega-umhverfisvottun-thetta-er-vaxandi-krafa-i-starfssemi-fyrirtaekja-a-islandi
Sjónarás og Efnamóttakan hljóta alþjóðlega umhverfisvottun: Þetta er vaxandi krafa í starfssemi fyrirtækja á Íslandi Sjónarás ehf. (áður Gámaþjónusta Austurlands-Sjónarás) og Efnamóttakan hf. hafa hlotið ISO 14001 umhverfisvottun. Sjónarás er 3. fyrirtæki á Austurlandi til að hljóta hljóta þessa vottun en fyrir eru Alc...
http://www.austurfrett.is/frettir/3196-365-midlar-tilbunir-ad-slokkva-a-netsambandinu-i-sveitinni-med-manadar-fyrirvara
365 miðlar tilbúnir að slökkva á netsambandinu í sveitinni með mánaðar fyrirvara Netnotendur á Fljótsdalshéraði óttast að verða netsambandslausir en 365 miðlar hyggjast hætta hætta rekstri netkerfis á svæðinu. Af þeim sökum hefur fyrirtækið um allnokkurt skeið neitað nýjum notendum um að tengjast. Bóndi í Skriðdal þarf...
http://www.austurfrett.is/frettir/3186-gert-rad-fyrir-afgangi-hja-borgarfjardarhreppi-2015
Gert ráð fyrir afgangi hjá Borgarfjarðarhreppi Gert er ráð fyrir ríflega 900 þúsund króna afgangi af rekstri Borgarfjarðarhrepps á árinu samkvæmt nýsamþykktri fjárhagsáætlun. Ráðist verður í endurbætur á félagsheimilinu Fjarðarborg. Gert er ráð fyrir tekjum upp á rúmar 127 milljónir en rekstrargjöld og fjármagnsgjöld n...
http://www.austurfrett.is/frettir/3181-rafmagnid-ekki-lengur-skammtad-a-nordfirdi-14032015
Rafmagnið ekki lengur skammtað á Norðfirði Starfsmönnum Landsnets tókst að koma straumi á raflínuna milli Eskifjarðar og Norðfjarðar um hádegisbil. Skömmtun á rafmagni á Norðfirði er því lokið. Rafmagnið fór af svæðinu upp úr klukkan fjögur í nótt. Reynt var að koma straumi á línuna nokkrum sinnum en hann hélst ekki in...
http://www.austurfrett.is/frettir/3201-fengu-sjavardyr-i-heimsokn-a-leikskolann-thetta-vakti-thvilika-lukku
Fengu sjávardýr í heimsókn í leikskólann: Þetta vakti þvílíka lukku - myndir Krakkarnir í leikskólanum Bjarkatúni á Djúpavogi fengu heldur betur óvænta heimsókn þegar einn pabbinn, Jón Ingvar Hilmarsson kom að sækja dætur sínar seinni partinn í gær. Hann var nýkomin af sjónum og hafði með í för nokkur sjávardýr sem han...
http://www.austurfrett.is/frettir/3193-ljodh-a-vegg-auglysa-eftir-ljodhum-fra-konum-a-oellum-aldri-a-fljotsdalsheradhi
Ljóð á vegg: Auglýsa eftir ljóðum frá konum á öllum aldri á Fljótsdalshéraði Í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna á Íslandi auglýsir stjórn verkefnisins „Ljóð á vegg“ eftir ljóðum eftir konur á öllum aldri, búsettum á Fljótsdalshéraði, til birtingar á veggjum nokkurra húsa í sveitarfélaginu. Fyrirhugað er ...
http://www.austurfrett.is/frettir/3185-gistinottum-a-austurlandi-faekkadi-um-helming-i-januar-2015
Gistinóttum á Austurlandi fækkaði um helming í janúar Ríflega helmingsfækkun varð á skráðum gistinóttum á Austurlandi í síðastliðnum janúar samanborið við sama mánuð í fyrra. Miklu virðist hafa munað um tökulið Fortitude. Samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands voru gistinætur á Austurlandi í janúar í ár 885 talsins samanb...
http://www.austurfrett.is/frettir/3180-rafmagn-skammtad-i-neskaupstad-14032015
Rafmagn skammtað í Neskaupstað Rafmagn er skammtað í Neskaupstað en línan milli Norðfjarðar og Eskifjarðar fór út í nótt. Viðgerðarflokkur er kominn á svæðið en ekki er ljóst hversu lengi rafmagnstruflanirnar vara. Línan leysti út klukkan kortér í fjögur. Reynt var að koma afli á hana aftur en þar sem hún hélst ekki in...
http://www.austurfrett.is/frettir/3175-varad-vid-skridufollum-i-miklu-vatnsvedri-ma-buast-vid-ad-allt-fari-a-flot
Varað við skriðuföllum í miklu vatnsveðri: Má búast við að allt fari á flot Veðurstofan miklu hvassviðri og úrkomu með hættu á ofanflóðum um nær allt land næsta sólarhringinn. Verst verður veðrið á sunnanverður landi og mun ofsinn teygja sig upp á sunnanverða Austfirði. „Það eru engar staðbundnar viðvaranir í gangi, þa...
http://www.austurfrett.is/frettir/3169-timabundid-samkomulag-um-thjonustu-dyralaeknis
Tímabundið samkomulag um þjónustu dýralæknis Matvælastofnun hefur gert tímabundið samkomulag við Hjört Magnason hjá Dýralæknastofunni á Egilsstöðum um að sinna almennri dýralæknaþjónustu á Mið-Austurlandi á meðan leitað er varanlegra lausna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stofnuninni. Samhliða var gerður samningur ...
http://www.austurfrett.is/frettir/3163-thotur-easyjet-bidu-af-ser-vedrid-a-egilsstodum
Þotur EasyJet biðu af sér veðrið á Egilsstöðum Tvær þotur frá breska lággjaldaflugfélaginu EasyJet lentu á flugvellinum á Egilsstöðum síðdegis í dag en ekki var hægt að lenda í Keflavík vegna veðurs. Ríflega 300 farþegar voru um borð. Önnur vélin var að koma frá Basel í Sviss en hin frá Edinborg í Skotlandi. Í þeim vor...
http://www.austurfrett.is/frettir/3156-endurvinnslukort-djupavogshrepps-komidh-i-gagnidh
Endurvinnslukort Djúpavogshrepps komið í gagnið Á síðastliðnum 7 árum hefur Náttúran.is staðið að þróun Endurvinnslukorts sem tekið hefur á sig ýmsar myndir. Endurvinnslukortið er bæði til í vef-og app-útgáfu og fyrirtækið hefur notið stuðnings umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, Úrvinnslusjóðs, SORPU bs., Sorpstöðvar...
http://www.austurfrett.is/frettir/3171-bida-eftir-svorum-um-fjarmagn-i-ny-hjukrunarrymi
Bíða eftir svörum um fjármagn í ný hjúkrunarrými Forsvarsmenn Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA) bíða eftir svörum frá velferðarráðuneytinu um hvort fjármagn fáist til að fjölga hjúkrunarrýmum þegar flutt verður inn í nýtt hjúkrunarheimili á Egilsstöðum. Þörf er á þeim til að stytta biðlista. „Í dag eru 23 hjúkruna...
http://www.austurfrett.is/frettir/3168-borgarafundur-um-fjarskiptasamband-a-heradhi-i-kvoeld
Borgarafundur um fjarskiptasamband á Héraði í kvöld Upplýsinga- og umræðufundur um fjarskiptasamband á Fljótsdalshéraði verður haldinn í Egilsstaðaskóla í kvöld, fimmtudag, og hefst fundurinn klukkan 20. Þar verður farið yfir mögulegar lagnaleiðir á ljósleiðara um dreifbýli og þéttbýli, ásamt því að velta upp ýmsum lau...
http://www.austurfrett.is/frettir/3160-leidindavedur-i-adsigi-haett-vid-ad-ofaert-verdi-i-mest-allt-kvold
Leiðindaveður í aðsigi: Hætt við að ófært verði í mest allt kvöld Versnandi veðri er spáð á Austurlandi og Austfjörðum upp úr klukkan sex. Veðurfræðingur ráðleggur Austfirðingum að geyma ferðir á milli staða til morguns. „Eftir klukkan sex í kvöld fer að rjúka upp með skafrenningi og snjókomu. Það verður mjög hvasst á ...
http://www.austurfrett.is/frettir/3144-sveitasnakk-frabaert-taekifaeri-fyrir-austfirdhinga-til-adh-stydhja-vidh-nyskoepun-i-heimabyggdh
Sveitasnakk: Frábært tækifæri fyrir Austfirðinga til að styðja við nýsköpun í heimabyggð Sveitasnakk, snakk úr heimaræktuðum gulrófum, kemur á markað í vor ef allar vonir og væntingar um fjármögnun ganga eftir á næstu vikum. Berfirðingarnir, bændurnir, tónlistarfólkið, Bulsumeistararnir og hjónakornin Svavar Pétur Eyst...
http://www.austurfrett.is/frettir/3170-hrognavertidin-loks-farin-ad-ganga-thokkalega
Hrognavertíðin loks farin að ganga þokkalega Hrognavinnsla stendur nú yfir úr þremur skipum hjá Síldarvinnslunni í Neskaupstað. Dyntótt veður hefur sett strik í reikninginn á loðnuvertíðinni. „Þetta er loksins farið að ganga þokkalega. Bjarni Ólafsson landaði í gær, Birtingur er undir núna og Börkur bíður við bryggju e...
http://www.austurfrett.is/frettir/3166-oanaegja-med-breytingar-a-vaktakerfi-a-ekki-ad-laekka-laun-starfsmanna
Óánægja með breytingar á vaktakerfi: Á ekki að lækka laun starfsmanna Starfsmenn í væntanlegu hjúkrunarheimili á Egilsstöðum eru ósáttir við áform yfirstjórnar Heilbrigðisstofnunar Austurlands um breytingar á vaktafyrirkomulagi. Þeir þurfa að mæta oftar vinnu eða taka næturvaktir til að halda sömu kjörum. Stjórnendur s...
http://www.austurfrett.is/frettir/3158-hreindyr-a-beit-vidh-utidyrnar-a-merki-thetta-gerist-oft-herna
Hreindýr á beit við útidyrnar á Merki: Þetta gerist oft hérna Sólrún Hauksdóttir, bóndi á Merki á Jökuldal fékk heimsókn frá hópi hreindýra a dögunum. „Dýrin voru bara á beit rétt við útidyrnar hjá mér. En ég kippi mér ekki mikið upp við það. Þetta gerist oft hérna. Þau eru gjarnan hér í kring,“ segir Sólrún, eða Solla...
http://www.austurfrett.is/frettir/3142-austfirskar-bjorgunarsveitir-a-leid-upp-a-vatnajokul-til-bjargar-gonguskidamonnum
Austfirskar björgunarsveitir á leið upp á Vatnajökul til bjargar gönguskíðamönnum Austfirskar björgunarsveitir eru lagðar af stað inn á Vatnajökul til aðstoðar tveimur erlendum gönguskíðamönnum sem óskað hafa eftir hjálp. Þeir neituðu að koma niður af jöklinum á þriðjudag þrátt fyrir að hafa verið upplýstir um slæma ve...
http://www.austurfrett.is/frettir/3140-opinn-kynningarfundur-um-soknarfaeri-stodvarfjardar
Opinn kynningarfundur um sóknarfæri Stöðvarfjarðar Starfshópur um sóknarfæri Stöðvarfjarðar heldur kynningarfund um tillögur sínar í menningarsal Stöðvarfjarðar í kvöld. Hópurinn var skipaður í nóvember og segir í tilkynningu hans að strax hafi verið lögð áhersla á góða samvinnu við bæjarbúa. Viðbrögð íbúa hafi verið „...
http://www.austurfrett.is/frettir/3134-sandi-rigndi-yfir-flugfarthega-okyrrd-sem-sast-ekki-a-vedurspam
Sandi rigndi yfir flugfarþega: Ókyrrð sem sást ekki á veðurspám Farþegum sem fóru með kvöldflugi Flugfélags Íslands austur í Egilsstaði í gærkvöldi var nokkuð brugðið eftir mikla ókyrrð. Vélinni var snúið við eftir að hafa orðið fyrir sterkri fjallabylgju þegar hún var á leið inn til lendingar. „Það er rétt að flugið a...
http://www.austurfrett.is/frettir/3129-simasambandslaust-i-tvo-daga-a-efra-jokuldal
Símasambandslaust í tvo daga á Efra-Jökuldal Símasambandslaust hefur verið á bæjum á Efra-Jökuldal í dag og í gær eftir bilun á Gagnheiði. Unnið er að viðgerð samkvæmt upplýsingum frá Mílu. Sigurrós Jónsdóttir, samskiptastjóri fyrirtækisins, segir að önnur bilun hafi komið upp þegar verið var að endurnýja búnað á Gagnh...
http://www.austurfrett.is/frettir/3119-niu-sottu-um-starf-fulltrua-hja-seydisfjardarkaupstad
Níu sóttu um starf fulltrúa hjá Seyðisfjarðarkaupstað Níu einstaklingar sóttu um starf atvinnu-, menningar- og íþróttafulltrúa hjá Seyðisfjarðarkaupstað sem auglýst var í síðasta mánuði. Umsækjanda er ætlað að hafa umsjón með starfsemi sveitarfélagsins sem tengist viðkomandi sviðum auk þess að hafa umsjón með kynningar...
http://www.austurfrett.is/frettir/3137-gudhrun-bergmann-stigur-fram-a-austurlandi-er-sma-austfirdhingur-i-mer
Guðrún Bergmann stígur fram á Austurlandi: Er smá Austfirðingur í mér Það er alltaf nóg að gera hjá Guðrúnu Bergmann, framkvæmdastjóra, rithöfund og fyrirlesara. Um komandi helgi eða þann 7. - 9. mars verður hún á ferð hér á Austurlandi til að halda námskeið með TAK konum og kynna ferðir nýstofnaðrar ferðaskrifstofu. "...
http://www.austurfrett.is/frettir/3133-batur-halfur-a-kafi-i-slippnum-a-seydisfirdi-myndir
Bátur hálfur á kafi í slippnum á Seyðisfirði - Myndir Björgunarsveitin Ísólfur var kölluð út eftir hádegi í dag til að bjarga bát sem var að sökkva í slippnum á Seyðisfirði. „Það var annar bátur utan á honum og við erum búnir að bjarga honum," segir Guðjón Már Jónsson, björgunarsveitarmaður á vettvangi. Svo virðist sem...
http://www.austurfrett.is/frettir/3128-yrdi-sjonarsviptir-ef-vid-misstum-alla-stadbundnu-fjolmidlana
Yrði sjónarsviptir ef við misstum alla staðbundnu fjölmiðlana Fulltrúar í bæjarstjórn Fjarðabyggðar telja mikilvægt að styðja við staðbundna fjölmiðlun á Austurlandi. Þeir telja mikilvægt að ræða málið á sameiginlegum vettvangi austfirskra sveitarstjórna. „Við höfum reynt að styðja við útgáfu Austurgluggans enda er ein...
http://www.austurfrett.is/frettir/3117-sigmundur-david-natturuleg-throun-ef-storf-flytjast-i-borgin-en-vandnidsla-ef-thau-fara-i-hina-attina
Sigmundur Davíð: Náttúruleg þróun ef störf flytjast í borgina en valdníðsla ef þau fara í hina áttina Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, segir að ekki sé hægt að sitja undir allt annarri umræðu eftir því hvort störf flytjist út á land eða til borgarinnar. Stundum þurfi stórtækar aðgerðir til að ná árangri ...
http://www.austurfrett.is/frettir/3136-sautjan-sottu-um-verkefnastjora-brothaetta-byggda
Sautján sóttu um verkefnastjóra brothætta byggða Sautján einstaklingar sóttu um starf verkefnastjóra brothætta byggða sem auglýst var fyrir skemmstu. Von er á því að ráðið verði í starfið á næstu dögum. Verkefnið er samstarfsverkefni Byggðastofnunar, Austurbrúar og Sambands sveitarfélaga á Austurlandi um að styrkja byg...
http://www.austurfrett.is/frettir/3131-byssur-til-stadar-i-austfirskum-logreglubilum
Byssur til staðar í austfirskum lögreglubílum Umdæmi lögreglunnar á Austurlandi er eitt þriggja umdæma sem er með skammbyssur í lögreglubifreiðum. Lögreglustjórar meta þörfina á staðsetningu vopna. Þetta er meðal þess sem fram kemur í svari Ólafar Nordal, innanríkisráðherra, við fyrirspurn sem Katrín Jakobsdóttir, form...
http://www.austurfrett.is/frettir/3122-nordfjardargong-akvedid-ad-grafa-lengra-nordfjardarmegin
Norðfjarðargöng: Ákveðið að grafa lengra Norðfjarðarmegin Ákveðið hefur verið að grafa stærri hluta nýrra Norðfjarðarganga Fannardalsmegin frá en upphaflega var áætlað. Setlag hefur tafið framvinduna Eskifjarðarmegin. Nú hillir undir að gangagröftur komist í eðlilegt horf á ný í Eskifirði, en erfið setlög hafa tafið fr...
http://www.austurfrett.is/frettir/3116-katrin-juliusdottir-svidur-ad-sja-tha-stefnu-sem-samfelagid-er-ad-taka
Katrín Júlíusdóttir: Svíður að sjá þá stefnu sem samfélagið er að taka Þingmenn Samfylkingarinnar segja erfitt að horfa upp á þá stefnu ríkisstjórnarinnar að lækka skatta á tekjuhærri hópa en auka gjöld á tekjulægri hópa. Íslenskt samfélag stefni aftur inn í það andrúmsloft sem ríkti fyrir hrunið 2008. „Mér svíður að s...
http://www.austurfrett.is/frettir/3115-hefur-tekidh-myndir-af-nokkrum-kynslodhum-austfirdhinga-langskemmtilegast-adh-mynd-boernin
Hefur tekið myndir af nokkrum kynslóðum Austfirðinga: Langskemmtilegast að mynda börnin Þann 11. febrúar síðastliðinn náði ljósmyndarinn Jósef L. Marinósson þeim áfanga að taka fjörtíuþúsundustu passa- og stúdíómyndatökuna sína. Hann hefur starfað sem ljósmyndari á Egilsstöðum frá árinu 1972. Jósef eða Jobbi eins og ha...
http://www.austurfrett.is/frettir/3112-hefdu-att-ad-hugsa-sig-tvisvar-adur-en-thau-birtu-modgandi-umfjollun-um-muhamedstru
Hefðu átt að hugsa sig tvisvar áður en þau birtu móðgandi umfjöllun um Múhameðstrú Formaður sóknarnefndar Berunessóknar leggst gegn því að ákvæði um refsingu við guðlasti verði fjarlægt úr almennum hegningarlögum. Nauðsynlegt sé að aðhald sé til staðar. Þetta kemur fram í umsögn Berunessóknar um tillögu um breytingu á ...
http://www.austurfrett.is/frettir/3105-mikill-snjor-a-egilsstodum-2402215-myndir
Mikill snjór á Egilsstöðum – Myndir Egilsstaðabúar, líkt og aðrir Austfirðingar, vöknuðu upp við afar mikinn snjó í morgun. Um hádegi í morgun byrjaði að hvessa og snjóa en eftir kvöldmat bætti verulega í. Þegar íbúar komu á fætur í morgun voru bæði hús og bílar á kafi. Sumir þurftu að moka sig út úr húsum sínum en aðr...
http://www.austurfrett.is/frettir/3102-otal-verkefni-hja-logreglu-og-bjorgunarsveitum-i-ofaerdinni
Ótal verkefni hjá lögreglu og björgunarsveitum í ófærðinni Töluvert hefur verið um útköll hjá bæði lögreglu og björgunarsveitum á Austurlandi undanfarinn sólarhring vegna mikils fannfergis í fjórðungnum. „Við erum búnir að fara í ótal verkefni sérstaklega í gær og jafnframt björgunarsveitir. Það hafa verið vandræði á F...
http://www.austurfrett.is/frettir/3114-austfirdhingar-i-afriku
Austfirðingar í Afríku Djúpavogsbúinn Aron Daði Þórisson er á ferðalagi um Afríku um þessar mundir og hefur verið mestan part þessa árs. Þar hefur hann ferðast með öðrum Djúpavogsbúa, eða réttara sagt Hamarsdælingi, honum Ugniusi Hervar Didziokas. Þeir félagar hafa ferðast vítt og breitt um Afríku og eru þeir nú staddi...
http://www.austurfrett.is/frettir/3108-sildarvinnslan-er-menntsproti-atvinnulifsins-2015-verdhlaunin-skipta-fyrirtaekinu-miklu-mali
Síldarvinnslan er menntasproti atvinnulífsins 2015: Verðlaunin skipta fyrirtækinu miklu máli Í síðustu viku voru menntaverðlaun atvinnulífsins veitt í annað sinn en Menntaverðlaunin eru viðurkenning til fyrirtækja sem staðið sig hafa vel á sviði fræðslu- og menntamála. Það var Síldarvinnslan hf. á Neskaupstað sem hlaut...
http://www.austurfrett.is/frettir/3104-sigurdhur-kari-12-ara-bydhur-upp-a-snjomokstur-hann-er-storhuga-og-faer-gjarnan-svona-hugmyndir
Sigurður Kári 12 ára býður upp á snjómokstur: Hann er stórhuga og fær gjarnan svona hugmyndir Þegar blaðamaður Austurfréttar átti leið um sjoppu á Eskifirði fyrir skemmstu vakti athygli hans auglýsing sem hékk þar upp á vegg. Þar var 12 ára strákur að bjóða uppá snjómoksturs þjónustu. Austurfrétt langaði að vita meira ...
http://www.austurfrett.is/frettir/3101-allt-a-kafi-i-snjo-foreldrar-a-heradi-bednir-um-ad-halda-bornum-sinum-heima
Allt á kafi í snjó: Foreldrar á Héraði beðnir um að halda börnum sínum heima Foreldrar skólabarna á Fljótsdalshéraði eru beðnir um að hafa börn sín heima þar til færð er orðin betri á svæðinu. Gríðarlegt fannfergi hefur safnast þar upp í nótt. Í tilkynningu sveitarfélagsins segir að ljóst sé að ófærð muni hamla öllu sk...
http://www.austurfrett.is/frettir/3113-alcoa-myndbandid-i-haesta-mata-ovenjulegt-og-grunsamlegt
Alcoa: Myndbandið í hæsta máta óvenjulegt og grunsamlegt Upplýsingafulltrúi Alcoa Fjarðaáls kann ekki skýringar á tilurð myndbands í Kastljósi í kvöld sem sýnir álflúoríð streyma á gólf opinnar áfyllingarstöðvar. Rannsókn er hafin á atvikinu en svo virðist sem verklagsreglum hafi ekki verið fylgt. „Þessi hurð er ekki o...
http://www.austurfrett.is/frettir/3107-varad-vid-byl-i-kvold-bileigendur-hvattir-til-ad-leggja-ekki-uti-i-vegkontum
Varað við byl í kvöld: Bíleigendur hvattir til að leggja ekki úti í vegköntum Austfirsk sveitarfélög beina því til íbúa að leggja faratækjum sínum þannig að þau hamli ekki snjómokstri. Öll tiltæk tæki hafa verið að störfum undanfarinn sólarhring og útlit er fyrir að enn bæti í snjóinn seinni partinn. Bíleigendur er hva...
http://www.austurfrett.is/frettir/3103-stefna-og-framtidharsyn-ferdhathjonustunnar-i-motun
Stefna og framtíðarsýn ferðaþjónustunnar í mótun Á föstudaginn kemur þann 27. febrúar mun Austurbrú standa fyrir stefnumótunarfundi í samvinnu við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og Samtök ferðaþjónustunnar. Umfjöllunarefnið er mótun stefnu og framtíðarsýnar í íslenskri ferðaþjónustu. Fundurinn er öllum opinn og á...
http://www.austurfrett.is/frettir/3100-austfirsk-hoennun-og-austfirskur-humor-vakti-lukku-og-mikla-athygli-a-mid-atlantic-syningunni-i-ar-vildum-vekja-athygli-a-okkur-a-annan-hatt-myndir
Austfirsk hönnun og austfirskur húmor vakti mikla lukku: Vildum vekja athygli á okkur á annan hátt - myndir Mid-Atlantic ferðasýninging fró fram í Laugardagshöllinni þann 5-7. febrúar síðastliðin. Sýningin er haldin í Reykjavík ár hvert og er á vegum Icelandair. Þar koma saman þeir helstu sem starfa í ferðamannaiðnaðin...
http://www.austurfrett.is/frettir/3097-snaelduvitlaust-vedur-a-modrudalsoraefum-lokunarhlidid-brotnadi-af
Snælduvitlaust veður á Möðrudalsöræfum: Lokunarhliðið brotnaði af Björgunarsveitarmenn af Jökuldal eru á leið upp á Möðrudalsöræfi að sækja bíla sem eru í vandræðum þar. Lokunarskilti við Skjöldólfsstaði brotnaði af í veðurofsanum. „Þegar þeir losuðu læsinguna sem heldur því föstu og ætluðu að fara að loka fauk skiltið...
http://www.austurfrett.is/frettir/3086-lodnuveidar-vonum-ad-vedur-og-veidar-verdi-thokkaleg-thad-sem-eftir-er
Loðnuveiðar: Vonum að veður og veiðar verði þokkaleg það sem eftir er Veiði á loðnu hefur glæðst í vikunni með nýjustu göngunni. Framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar vonast til að hægt verði að veiða nógu lengi til að klára kvótann. „Þetta hefur gengið betur eftir að loðnan færði sig upp á grunnið," sagði Gunnþór Ingvaso...
http://www.austurfrett.is/frettir/3082-romantiskir-a-reydharfirdhi-karlmenn-mjoeg-duglegir-adh-kaupa-konudagskoekuna-myndir
Rómantískir á Reyðarfirði: Karlmenn mjög duglegir að kaupa konudagskökuna - Myndir Konudagurinn er á sunnudaginn og það er í mörg horn að líta hjá Sesam bakaríi og brauðhúsi á Reyðarfirði. Í fjölda ára hafa bakarar þar hannað sína eigin konudagsköku og selt eins og heitar lummur á konudaginn. „Við höfum gert þetta leng...
http://www.austurfrett.is/frettir/3075-soefnunarreikningur-stofnadhur-eftir-brunann-i-berufirdhi-draumurinn-adh-koma-husinu-i-fokhelt-astand-fyrir-haustidh
Söfnunarreikningur stofnaður eftir brunann í Berufirði: Draumurinn að koma húsinu í fokhelt ástand fyrir haustið Eins og kunnugt er gerðist sá sorglegi atburður fyrir skemmstu að hið merka hús Steinaborg á Berufjarðarströnd brann til kaldra kola. Nú er Bergur Hrannar Guðmundsson eigandi og ábúandi strax farin að huga a...
http://www.austurfrett.is/frettir/3095-sex-sottu-um-starf-skrifstofustjora-vopnafjardarhrepps
Sex sóttu um starf skrifstofustjóra Vopnafjarðarhrepps Sex umsóknir bárust um starf skrifstofustjóra Vopnafjarðarhrepps sem auglýst var laust fyrir skemmstu. Sveitarstjórn ákvað á fundi sínum í síðustu viku að bjóða Baldri Kjartanssyni starfið. Auglýst var eftir einstaklingi með reynslu af störfum við reikningshald og ...
http://www.austurfrett.is/frettir/3085-katrin-juliusdottir-ekki-skapa-vaentingar-um-thad-sem-thu-getur-ekki-stadid-vid
Katrín Júlíusdóttir: Ekki skapa væntingar um það sem þú getur ekki staðið við Varaformaður Samfylkingarinnar viðurkennir að of miklar væntingar hafi verið skapaðar þegar fyrsta hreina vinstri stjórnin á Íslandi tók við völdum vorið 2009. Þá hafi mönnum mistekist að koma því sem vel hafi verið gert á framfæri en setið u...
http://www.austurfrett.is/frettir/3081-fyrstu-mal-af-betra-fljotsdalsheradh-afgreidd-gufubadh-i-sundlaugina-og-aukin-lysing-a-gangbrautum-og-stigum
Fyrstu mál af Betra Fljótsdalshérað afgreidd: Gufubað í sundlaugina og aukin lýsing á gangbrautum og stígum Á fundi bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs í gær var tekin fyrir afgreiðsla á tveimur málum sem komu til nefnda sveitarfélagsins í gegn um lýðræðisvefinn Betra Fljótsdalshérað. Þetta eru fyrstu málin sem tekin eru ti...
http://www.austurfrett.is/frettir/3073-sendiherra-kanada-a-ferdh-um-fjardhabyggdh
Sendiherra Kanada á ferð um Fjarðabyggð Stewart Wheeler, sendiherra Kanada á Íslandi, hefur ferðast vítt og breitt um Fjarðabyggð á undanförnum dögum, en hann er staddur þar á eigin vegum í stuttu fríi. Í gær kynnti hann sér meðal annars starfsemi Alcoa Fjarðaáls og uppbyggingu á vegum franska verkefnisins á Fáskrúðsfi...
http://www.austurfrett.is/frettir/3094-lodnuveidar-borkur-kom-med-2000-tonn-eftir-30-tima-skottur
Loðnuveiðar: Börkur kom með 2000 tonn eftir 30 tíma skottúr Börkur NK landaði í dag yfir 2000 tonnum af loðnu á Norðfirði eftir rúmlega sólarhringsferð. Farið var í kapp við tímann þar sem óveðri var spáð á miðunum. „Já, það var keyrt dálítið stíft á útleiðinni. Við fórum upp í 18-19 hnúta til að vera á undan veðrinu,"...
http://www.austurfrett.is/frettir/3084-lineik-anna-natturupassinn-verdur-ekki-samthykktur-i-theirri-mynd-sem-hann-er
Líneik Anna: Náttúrupassinn verður ekki samþykktur í þeirri mynd sem hann er Þingmaður Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi segir að frumvarp um náttúrupassa verði ekki samþykkt án breytinga. Forsætisráðherra vill skoða aðrar leiðir því rangt virðist að rukka Íslendinga fyrir aðgengi að eigin landi. „Ég held að nát...
http://www.austurfrett.is/frettir/3078-fjardhabyggdh-komdu-thinu-a-framfaeri
Fjarðabyggð: Komdu þínu á framfæri Ert þú á aldrinum 15 til 30 ára og vilt koma skoðunum þínum á framfæri við þá sem bera ábyrgð á málefnum ungs fólks í Fjarðabyggð? Æskulýðsvettvangurinn stendur fyrir fundi með ungu fólki í Grunnskóla Stöðvarfjarðar, miðvikudaginn 25. febrúar, kl. 13:00 til 15:30. Viðfangsefni fundari...
http://www.austurfrett.is/frettir/3072-katrin-juliusdottir-reykjavikurflugvollur-er-ekkert-ad-fara
Katrín Júlíusdóttir: Reykjavíkurflugvöllur er ekkert að fara Varaformaður Samfylkingarinnar vonast til þess að áralöngum deilum um staðsetningu Reykjavíkurflugvallar fari fljótt að ljúka þannig að hægt verði að byggja upp samgöngumannvirki til framtíðar í Reykjavík. „Ég er sjálf þeirrar skoðunar að þessi völlur sé ekke...
http://www.austurfrett.is/frettir/3071-oseyrarbrekka-a-lista-yfir-umferdharoeryggisadhgerdhir-hja-vegagerdhinni
Óseyrarbrekka á lista yfir umferðaröryggisaðgerðir hjá Vegagerðinni Í lok janúar fóru tveir bílar útaf í sömu brekkunni, í sunnanverðum botni Stöðvarfjarðar, sem oft er kölluð Óseyrarbrekka. Akstursaðstæður voru mjög erfiðar. Snjór, mjög hvasst og mikil hálka var á veginum. Óhöppin áttu sér stað með nokkurra klukkutíma...
http://www.austurfrett.is/frettir/3068-samningur-um-soknaraaetlun-austurlands
Samningur um sóknaráætlun Austurlands Atvinnu- og nýsköpunarráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðuneyti og Samband sveitarfélaga á Austurlandi hafa undirritað samning um sóknaráætlun Austurlands 2015 til 2019. Alls renna um 95 milljónir króna til Austurlands. Sigrún Blöndal, formaður SSA segir samninginn hafa mikla þý...
http://www.austurfrett.is/frettir/3057-breiddalsvik-ekki-sed-annad-eins-lif-her-i-morg-ar
Breiðdalsvík: Ekki séð annað eins líf hér í mörg ár Elís Pétur Elísson, útgerðarmaður á Breiðdalsvík, fagnar tilkomu fiskvinnslu Ísfisks á staðnum eins og margir aðrir íbúar. Áætlað er að þjónusta við útgerð og vinnslan skapi 15-20 störf á staðnum. „Það er búið að vera mokfiskerí í allt haust og ég hef aldrei séð annað...
http://www.austurfrett.is/frettir/3049-frodleiksfundi-frestad
Fróðleiksfundi frestað Fróðleiksfundi KPMG um skattamál, sem halda átti á Egilsstöðum í dag, hefur verið frestað um viku vegna veðurs. Allt innanlandsflug hefur legið niðri í morgun og því komast ekki allir frummælendur á staðinn. Nýr fundartími er á þriðjudaginn eftir viku, 17. febrúar klukkan 16:00 á Hótel Héraði.
http://www.austurfrett.is/frettir/3070-hoskuldur-thor-afar-serstakt-ad-thurfa-ad-standa-i-stappi-um-hverja-kronu-vid-isavia
Höskuldur Þór: Afar sérstakt að þurfa að standa í stappi um hverja krónu við ISAVIA Þingmaður Framsóknarflokksins segir það sérstakt hversu tregir stjórnendur ISAVIA séu að nota hagnað stofnunarinnar til að byggja upp aðra flugvelli en í Keflavík. Stuðningur við millilandaflug um Egilsstaðaflugvöll virðist vera farinn ...
http://www.austurfrett.is/frettir/3066-egilsstadastofa-opnud-og-hus-handanna-tekur-vid-upplysingamidhstod-austurlands
Egilsstaðastofa opnuð og tekur Hús handanna við Upplýsingamiðstöð Austurlands? Búið er að opna upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn á Egilsstöðum undir nafni Egilsstaðastofa. Hús handanna tekur við rekstri Upplýsingamiðstöðvar Austurlands til eins árs en henni var lokað í byrjun nóvember. Skrifað var undir samninga milli ...
http://www.austurfrett.is/frettir/3052-ibuafundur-a-nordhfirdhi-um-ofanflodhavarnir
Íbúafundur á Norðfirði um ofanflóðavarnir Íbúafundurinn verður í Safnahúsinu í Neskaupstað, fimmtudaginn 12. febrúar kl. 20:00. Kynntar verða fyrirhugaðar framkvæmdir vegna ofanflóðavarna undir Urðarbotnum og undir Nes- og Bakkagiljum. Á fundinn mæta Hafsteinn Pálsson, Ofanflóðasjóði, Kristín Martha Hákonardóttir og Bj...
http://www.austurfrett.is/frettir/3048-storeflis-bjorg-fellu-a-veginn-i-mjoafirdi
Stóreflis björg féllu á veginn í Mjóafirði Tveir stærðarinnar steinar féllu á veginn í Mjóafirði á sunnudagsmorgun. Áætlað er að annar þeirra sé um 20 tonn að þyngd. „Menn áttu alveg von á þessu, steinarnir voru þannig staðsettir,“ segir Guðjón Halldórsson, íbúi á Mjóafirði. „Þeir hafa verið lengi uppi í hlíðinni við H...
http://www.austurfrett.is/frettir/3069-fellaskoli-boekudhu-300-bollur-fyrir-nemendur-og-kennara-thadh-var-mikil-anaegja-medh-thetta-myndir
Fellaskóli: Bökuðu 300 bollur fyrir nemendur og kennara: Það var mikil ánægja með þetta - myndir Bolludagurinn var haldin hátíðlegur í Fellaskóla í dag, en foreldrar og kennarar skólans sameinuðu krafta sína og bökuðu bollur fyrir alla nemendurna í skólanum. Þar sem einn nemandi í 2. bekk í Fellaskóla er með bráðaofnæm...
http://www.austurfrett.is/frettir/3063-nemendur-va-medh-skolafund-vildum-fa-alit-og-skodhanir-krakkana
Nemendur VA með skólafund: Vildum fá álit og skoðanir krakkana Síðastliðin þriðjudag var haldinn skólafundur í Verkmenntaskóla Austurlands. Fundurinn var óvenjulegur að því leyti að nemendaráð skólans sá um fundinn. Viðfangsefni fundarins var félagslíf skólans. Nemendum var skipt í þrjá hópa og fengu tækifæri til að ko...
http://www.austurfrett.is/frettir/3050-thorrinn-gudh-og-lukkan-stjornar-thvi-hvort-hakarlinn-verdhur-godhur
Þorrinn: Guð og lukkan stjórnar því hvort hákarlinn verður góður Þorrinn er gengin í garð í allri sinni dýrð og hafa margir gætt sér að gómsætum þorramat með öllu tilheyrandi undanfarna daga. Hákarl er eitthvað sem er ómissandi í þorrabakkann að margra mati. Hreinn Björgvinsson, trillukarl frá Vopnafirði hefur verkað o...
http://www.austurfrett.is/frettir/3047-fundadd-um-framtidina-i-fjardabyggd-i-dag
Fundað um framtíðina í Fjarðabyggð í dag Hvernig sérðu atvinnutækifæri og nýsköpun þróast í þínu samfélagi? Verða börnin þín við stjórnvölinn eftir tuttugu ár? Í dag verður haldinn fundur í Fjarðabyggð um byggðaþróun á norðurslóðum Norðurlanda þar sem meðal annars verður reynt að svara þessum spurningum. Fundirnir eru ...
http://www.austurfrett.is/frettir/3046-skattadagur-margir-velta-fyrir-ser-hvada-ahrif-breytingar-a-skattalogum-hafa-a-reksturinn
Skattadagur: Margir velta fyrir sér hvaða áhrif breytingar á skattalögum hafa á reksturinn Forsvarsmenn fyrirtækja, einkum í ferðaþjónustu, velta margir fyrir sér hvaða áhrif breytingar á skattalögum um síðustu áramót koma til með að hafa á rekstur þeirra. Þá eru enn mörg fyrirtæki sem glíma við eftirköst hrunsins. Þet...
http://www.austurfrett.is/frettir/3042-mannbjorg-er-steinaborg-i-berufirdi-brann-til-grunna
Mannbjörg er Steinaborg í Berufirði brann til grunna Mannbjörg varð er býlið Steinaborg í Berufirði brann til grunna seinni partinn í dag. Húsið var alelda er slökkvilið kom á staðinn. Útkall barst slökkviliði Djúpavogs klukkan 17:27 og voru allir bílar og tiltækt lið staðarins ræst út auk þess sem kallað var út slökkv...
http://www.austurfrett.is/frettir/3035-21-austfirskt-fyrirtaeki-a-lista-yfir-framurskarandi-fyrirtaeki
22 austfirskt fyrirtæki á lista yfir framúrskarandi fyrirtæki Ríflega 20 austfirsk fyrirtæki tóku á móti viðurkenningum frá Creditinfo í gær sem framúrskarandi fyrirtæki ársins 2014. Matið byggir á ýmsum þáttum í rekstri fyrirtækjanna. Alls hlutu 577 fyrirtæki viðurkenninguna í ár eða 1,7% af þeim tæplega 33.000 fyrirt...
http://www.austurfrett.is/frettir/3030-skolahaldi-haett-a-hallormsstad-fra-og-med-naesta-skolaari
Skólahaldi hætt á Hallormsstað frá og með næsta skólaári Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs samþykkti á fundi sínum í gær að hætta skólahaldi á Hallormsstað. Unnið verður að nýjum samningi um samstarf við Fljótsdalshrepp um samstarf í skólamálum. Í bókun bæjarstjórnar er vísað til þess að börnum í skólahverfinu hafi fækkað s...