Search is not available for this dataset
url stringlengths 21 288 | text stringlengths 1 1.35M |
|---|---|
http://www.austurfrett.is/frettir/3044-gamla-hoffellid-til-hb-granda | Gamla Hoffellið til HB Granda
Hoffell II SU 802, skip Loðnuvinnslunnar, mun halda á loðnuveiðar fyrir HB Granda innan skamms. Skipið hefur lítið verið notað á Fáskrúðsfirði síðan nýtt Hoffell var keypt þangað síðasta sumar.
Í tilkynningu frá HB Granda segir að gert sé ráð fyrir að Hoffellið verði komið til veiða seinni... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3040-frumkvodlasetur-opnad-i-hugvangi-faum-reglulega-inn-folk-med-hugmyndir | Frumkvöðlasetur opnað í Hugvangi: Fáum reglulega inn fólk með hugmyndir
Fljótsdalshérað, AFL starfsgreinafélag, Austurbrú og AN Lausnir hafa gert samkomulag um frumkvöðlasetrið Hugvang á Egilsstöðum. Framkvæmdastjóri AN Lausna, sem hýsa setrið, segir mikla eftirspurn eftir stuðningi með fólk með hugmyndir.
„Við höfum r... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3034-barri-medh-3-mys-i-vinnu-soefnudhu-atta-thusund-fraejum-a-thremur-vikum | Barri með mýs í vinnu: Söfnuðu átta þúsund fræjum á þremur vikum
Skúli Björnsson, framkvæmdastjóri Gróðrarstöðvarinnar Barra ehf., birti fyrir skemmstu myndband á Facebook-síðu sinni og greindi frá því að ódýrt vinnuafl hefði bæst í starfsmannaflóru fyrirtækisins. Þrjár mýs höfðu komið sér vel fyrir í vinnusalnum og sö... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3028-dyrustu-arskortin-i-sund-a-austurlandi | Dýrustu árskortin í sund á Austurlandi
Dýrasta árskortið í sund er á Fljótsdalshéraði og það þriðja dýrasta í Fjarðabyggð. Í Fjarðabyggð er einnig að finna dýrustu stöku stundmiðana fyrir fullorðna.
Þetta kemur fram í nýrri verðkönnun ASÍ hjá 15 stærstu sveitarfélögum landsins sem birt var í dag.
Árskort fullorðinna í ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3043-vorhiti-a-austfjordum | Vorhiti á Austfjörðum
Afar hlýtt hefur verið í veðri á Austfjörðum um helgina og er enn. Litlu munaði að hitamet febrúarmánaðar væri slegið á Dalatanga í gær.
Hitinn mun mest hafa komist í 17,4 gráður þar um kvöldmatarleytið í gærkvöldið en hitametið er 18,1, sett þar árið 1998.
Víða var hlýtt eystra í gær, um 16 stig ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3038-dagur-leikskolans-er-i-dag-viljum-minna-a-hvadh-islenskir-leikskolar-vinna-frabaert-starf | Dagur leikskólans: Viljum minna á hvað íslenskir leikskólar vinna frábært starf
Dagur leikskólans er í dag og er hann haldinn hátíðlegur um allt land. Þetta er í áttunda skipti sem dagurinn er haldinn en 6. febrúar er merkisdagur í íslenskri leikskólasögu því á þessum degi árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar úr hópi leikskó... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3033-austfirdhingar-i-umfangsmikilli-rannsokn-a-svefnvenjum-mikilvaegt-adh-sem-flestir-taki-thatt | Austfirðingar í umfangsmikilli rannsókn á svefnvenjum: Mikilvægt að sem flestir taki þátt
Umfangsmikilrannsókn á svefnvenjum Íslendinga og tengslum við heilsufar og lífsgæði er hafin. Bréf hafa verið send á tíu þúsund einstaklinga um allt land og leynast því þó nokkrir þátttakendur hér fyrir austan.
Að rannsókninni ste... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3026-kubbafabrikkan-starfar-i-tveimur-loendum-draumurinn-adh-vera-a-seydhisfirdhi-myndir | Kubbafabrikkan starfar í tveimur löndum: Draumurinn að vera á Seyðisfirði - myndir
Kubbafabrikkan er nútímaleg og nýstárleg arkitektastofa sem opnaði í haust og er staðsett í Kaupmannahöfn í Danmörku og Seyðisfirði á Íslandi. Stofan leggur mikla áherslu á sjálfbæra og vistvæna hönnun og helsta markmið fabrikkunnar er a... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3025-eldgosinu-lykur-i-fyrsta-lagi-i-byrjun-sumars-ahyggjur-af-sofnun-mengunar-i-snjo | Eldgosinu lýkur í fyrsta lagi í byrjun sumars: Áhyggjur af söfnun mengunar í snjó
Eldgosið í Holuhrauni gæti staðið í meira en ár í viðbót. Sérfræðingar fylgjast nú betur með uppsöfnun gosefna í snjó í nágrenni eldstöðvanna sem haft gætu áhrif á umhverfið þegar snjóa leysir í vor.
Þetta kom fram í máli Andra Stefánsson... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3019-eldur-kviknadi-i-badherbergi | Eldur kviknaði í baðherbergi
Slökkviliðið á Egilsstöðum var kallað út upp úr klukkan þrjú í dag vegna elds í baðherbergi í íbúðarhúsi í bænum.
Að sögn Baldurs Pálssonar, slökkviliðsstjóra, var baðherbergið alelda þegar að var komið. Útlitið hafi ekki verið gott því eldurinn hafi verið að læsa sig í útvegg og á leið í þ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3015-sigurinn-i-taeknilego-keppninni-til-fjardhabyggdhar | Sigurinn í tæknilegó keppninni til Fjarðabyggðar
Einn + níu, lið Grunnskóla Reyðarfjarðar sigraði í tækni-og hönnunarkeppni grunnskólanema FIRST LEGO League á laugardaginn var. Alls tóku þrjú lið frá grunnskólum Fjarðabyggðar þátt í keppninni í ár, eða frá Grunnskóla Eskifjarðar, Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar.
Þá si... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3008-tveir-bilar-utaf-i-oseyrarbrekku-i-gaer-adhstaedhur-voru-mjoeg-haettulegar-myndir | Tveir útaf í Óseyrarbrekku í gær: Aðstæður voru mjög hættulegar - myndir
Tveir bílar fóru útaf í sömu brekkunni í sunnanverðum botni Stöðvarfjarðar í gær sem oft er kölluð Óseyrarbrekkan. Aðstæður voru mjög hættulegar.
„Það voru mjög erfiðar akstursaðstæður á þessu svæði í gær. Snjór, mjög hvasst og mjög mikil hálka á ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3023-ibuafundir-i-fjardabyggd-vegna-eldgossins-i-holuhrauni | Íbúafundir í Fjarðabyggð vegna eldgossins í Holuhrauni
Tveir almennir upplýsingafundir verða haldnir í Fjarðabyggð í dag um jarðhræringarnar í Bárðabungu og eldgosið í Holuhrauni í samvinnu við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, en Austurland er það landsvæði sem hvað oftast hefur þurft að glíma við SO2 gasmengunin... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3017-okkar-folk-er-tilbuid-ad-lata-sverfa-til-stals | „Okkar fólk er tilbúið að láta sverfa til stáls"
„Kröfur okkar eru bæði sanngjarnar og eðlilegar. Grundvallaratriði er að fólk geti framfleytt sér og sínum af dagvinnulaunum í stað þurfa að treysta á yfirvinnu, aukavinnu og akkorð," segir Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir formaður AFLs Starfsgreinafélags á Austurlandi.
Star... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3011-a-thridhja-tug-kanabis-plantna-gerdhar-upptaekar-a-austurlandi | Á þriðja tug kannabis planta gerðar upptækar á Austurlandi
Lögreglan á Austurlandi lagði hald á þriðja tug kannabis platna í fyrradag. Ræktunin sem var í heimahúsi var gerð upptæk. Auk efnanna lagði lögregla hald á ræktunarbúnað og lítilsháttar af öðrum efnum.
Lögreglan staðfesti þetta í samtali við Austurfrétt í dag e... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3005-norsku-skipin-dugleg-ad-landa-lodnu-a-austfjordum | Norsku skipin dugleg að landa loðnu á Austfjörðum
Norsk loðnuveiðiskip hafa tvo daga landað yfir 10 þúsund tonnum af loðnu á Austfjörðum sem er álíka mikið og þau veiddu alla síðustu vertíð. Um helmingur þeirra loðnu sem þau hafa landað á vertíðinni hefur farið til Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði.
Norsku skipin lönduð... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3022-gudrun-og-signy-verda-yfirverkefnastjorar-hja-austurbru | Guðrún og Signý verða yfirverkefnastjórar hjá Austurbrú
Guðrún Áslaug Jónsdóttir og Signý Ormarsdóttir hafa verið ráðnar sem yfirverkefnastjórar Austurbrúar. Þær voru báðar starfsmenn Austurbrúar fyrir en þessar ráðningar eru í samræmi við nýtt skipurit Austurbrúar sem samþykkt var á framhaldsársfundi stofnunarinnar í ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3016-pinnidh-a-minnidh-langflestir-medh-thetta-a-hreinu | Pinnið á minnið: Langflestir með þetta á hreinu!
Viðskiptavinir verslana eru löngu orðnir vanir að posinn snúi að þeim sem verslar, sem staðfestir þar kortagreiðslur með pin-númeri í stað undirskriftar. Korthafar sem muna ekki pinnið hafa hingað til getað staðfest greiðslur með því að ýta á græna takkann á posanum. En ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3009-lodnuskipin-bida-i-rod-a-eskifirdi | Loðnuskipin bíða í röð á Eskifirði
Norsk loðnuveiðiskip bíða nú í biðröð eftir að geta landað á Eskifirði. Sjö skip liggja þar við bryggju í dag og bíða ýmist eftir að geta landað eða þess að brælu á miðunum linni þannig þau geti farið út á ný.
Níu norsk skip hafa komið til Eskifjarðar það sem af er vertíðinni með á bi... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3001-edlilegt-ad-almannathjonusta-rikisins-se-ekki-bara-i-bodi-a-hofudborgarsvaedinu | Eðlilegt að almannaþjónusta ríkisins sé ekki bara í boði á höfuðborgarsvæðinu
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar hvetur ríkisvaldið til að velja verkefnum staðsetningar með tilliti til aðstæðna á hverjum stað og eðli verkefnanna. Eðlilegt sé að dreifa almannaþjónustu um landið.
Þetta kemur fram í nýlegri bókun bæjarstjórnar Fja... |
http://www.austurfrett.is/frettir/3000-bestu-hrutlombin-fra-slettu-og-burstarfelli | Bestu hrútlömbin frá Sléttu og Bustarfelli
Bændur á Sléttu í Reyðarfirði og Bustarfelli í Vopnafirði áttu hæst dæmdu austfirsku hrútlömbin síðasta haust. Sérfræðingur í sauðfjárrækt segir lambadóma hafa verið glæsilegri í haust en nokkru sinni áður.
Þetta kemur fram í samantekt Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins á sauðfjá... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2994-folk-er-enn-adh-stelast-i-selarlaug-utan-opnunartima-mer-finnst-thetta-oemurlegt | Fólk er enn að stelast í Selárlaug utan opnunartíma: Mér finnst þetta ömurlegt
Selárlaug hefur lengi verið einn af gimsteinum Vopnafjarðar. Lengi vel var aðgengi að lauginni allan sólarhringinn allan ársins hring, en það breyttist á síðasta ári þegar gerðar voru breytingar bæði á húsnæði og rekstri sundlaugarinnar þar ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2988-toluvert-af-slysum-i-fljugandi-halku | Töluvert af slysum í fljúgandi hálku
Nokkuð hefur verið um hálkuslys á Austfjörðum um helgina. Læknir minnir fólk á að fara varlega og búa sig vel.
Sex leituðu aðstoðar lækna um helgina eftir að hafa dottið í hálku um helgina, þorri þeirra á Héraði.
Í síðustu viku hlýnaði og frystu á víxl og því hefur hlaðist upp mikil... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2983-fab-lab-heilladhi-radhherrann | FAB LAB heillaði ráðherrann
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðarráðherra, gerði lykkju á leið sína í ferð þegar hún var á Egilsstöðum í síðustu viku og kynnti sér Fab Lab-stofu Verkmenntaskóla Austurlands í Neskaupstað.
Elvar Jónsson, skólameistari, tók á móti ráðherra, sem þótti mikið til Fab Labsins koma. Með ráðherra... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2999-fjardhabyggdh-verklegt-er-vitidh-hlytur-veglegan-styrk | Fjarðabyggð: Verklegt er vitið hlýtur veglegan styrk
Magnús Þór Ásmundsson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls, afhenti í dag Páli Björgvini Guðmundssyni, bæjarstjóra, styrkúthlutun Alcoa Foundation til skólaverkefnisins Verklegt er vitið. Styrkurinn nemur samtals um 11 milljónum króna.
Í skólum Fjarðabyggðar er nú unnið markvi... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2991-nyr-tomstunda-og-forvarnafulltrui-hja-fljotsdalsheradhi | Nýr tómstunda- og forvarnafulltrúi hjá Fljótsdalshéraði
Adda Steina Haraldsdóttir hefur verið ráðin tómstunda- og forvarnafulltrúi hjá Fljótsdalshéraði og hóf hún störf um miðjan janúar.
Hér er að hluta til um nýtt starf að ræða hjá sveitarfélaginu, en auk þess að hafa umsjón með Vegahúsinu ungmennahúsi, mun tómstunda-... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2987-mesti-hreindyrakvotinn-fra-upphafi-og-breytingar-a-reglum-um-greidhslufyrirkomulag-eg-tel-thetta-miklu-betra-a-allan-hatt | Mesti hreindýrakvótinn frá upphafi og breytingar á reglum um greiðslufyrirkomulag: Tel þetta miklu betra á allan hátt
Búið er að opna fyrir umsóknir á hreindýraveiðar fyrir veiðitímabil 2015. Heimilt verður að veiða 1412 hreindýr á árinu sem er mesti hreindýrakvóti frá upphafi. Undanfarin ár hefur ásókn í hreindýraveið... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2981-launafl-tryggingagjaldid-bitur-i | Launafl: Tryggingagjaldið bítur í
Fjármálastjóri Launafls segir að tryggingagjald leggjast af miklu afli á meðalstórt fyrirtæki á landsbyggðinni eins og Launafl. Fjármunir sem fari í tryggingagjaldið nýtist ekki í frekari uppbyggingu fyrirtækisins á meðan.
Þetta kom fram í máli Ásgeirs Ásgeirssonar, fjármálastjóra Laun... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2995-fyrsta-lanidh-til-austurlands | Fyrsta lánið til Austurlands: Þetta er sannkölluð gleðitíðindi
Frábær mæting var á kynningarfundinn "Tækifæri fyrir konur" sem haldinn var fyrr í síðustu viku en samtals mættu 43 konur á Egilsstöðum og Reyðarfirði. Þar voru m.a. kynntar nýjar leiðir fyrir konur sem vilja stofna eigin atvinnurekstur en fyrsta og eina lá... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2990-fengu-heyrullur-i-gardhinn-i-ovedhrinu-i-gaer-thetta-var-svo-sannarlega-heyfengur | Fengu heyrúllur í garðinn í óveðrinu í gær: Þetta var svo sannarlega heyfengur
„Það var Helvítis Dyrfjalla-gustur hérna á Borgarfirði í gær. Þegar við vöknuðum fundum við þessar fínu rúllur frá Kobba í Njarðvík sem voru búnar að leita skjóls í garðinum hjá okkur,“ segir Hafþór Snjólfur Helgason á fésbókarsíðunni sinni ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2985-tuttugu-milljona-evropustyrkur-til-lunga-skolans | Tuttugu milljóna Evrópustyrkur til LungA skólans.
Rekstur LungA skólans á Seyðisfirði hefur verið tryggður næstu tvö árin eftir að verkefnið fékk tuttugu milljóna króna styrk úr æskulýðsáætlun Evrópusambandsins. Annar skólastjóra skólans segir styrkinn efla undirstöðurnar.
„Við erum mjög ánægð með þennan styrk," segir ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2979-voeku-konur-oeflugar-a-lidhnu-ari-loegdhu-ruma-miljon-krona-til-samfelagsins-a-djupavogi | Vökukonur öflugar á liðnu ári: Lögðu rúma miljón til samfélagsins á Djúpavogi
Kvenfélagið Vaka á Djúpavogi lét heldur betur til sín taka á nýliðnu ári eins og svo mörg undanfarin ár. Árið 2014 lagði kvenfélagið rúmlega eina miljón króna til samfélagsins á Djúpavogi.
„Það var tekin ákvörðun fyrir nokkrum árum að peningu... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2976-fjardarheidargong-70-milljonir-i-frekari-rannsoknir | Fjarðarheiðargöng: 70 milljónir í frekari rannsóknir
Gert er ráð fyrir að sjötíu milljónum verði varið í frekari rannsóknar fyrir Fjarðarheiðargöng á þessu ári. Seyðfirðingar fagna því að verkið haldi áfram.
„Menn fagna þessum fjármunum því þetta er í samræmi við þá rannsóknaráætlun sem Vegagerðin hefur lagt fram um ve... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2971-fjardhabyggd-til-framtidar-vitum-ad-thad-eru-miklar-skodanir-um-malin | Fjarðabyggð til framtíðar: Vitum að það eru miklar skoðanir um málin
Í kvöld byrjar þriggja daga fundaferð á vegum sveitarfélagsins Fjarðabyggðar í þéttbýliskjörnum sveitarfélagsins undir yfirskriftinni „Fjarðabyggð til framtíðar." Það verður stefna sveitarfélagsins í ýmsum málaflokkum rædd með íbúum. Bæjarstjórinn seg... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2960-tinna-rut-austfirdingur-arsins-2014-vidurkenningin-hjalpar-mer-ad-halda-minu-striki | Tinna Rut Austfirðingur ársins 2014: Viðurkenningin hjálpar mér að halda mínu striki
Lesendur Austurfréttar völdu Tinnu Rut Guðmundsdóttur frá Reyðarfirði sem Austfirðing ársins 2014. Hún sagði í Austurglugganum í lok nóvember frá áralangri baráttu sinni við átröskun. Hún segir viðurkenninguna mikinn heiður sem hjálpi ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2951-katrin-jakobsdottir-gengur-ekki-ad-folk-megi-ekki-fara-um-landid-nema-med-strikamerki-i-simanum | Katrín Jakobsdóttir: Gengur ekki að fólk megi ekki fara um landið nema með strikamerki í símanum
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, gerir ráð fyrir að frumvarp iðnaðar- og viðskiptaráðherra um náttúrupassa verði umdeilt á Alþingi í vor. Nærtækara sé að rukka fyrir ákveðna þjónustu fr... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2975-nyr-kurlari-i-gagnidh-a-heradhi-sex-sinnum-oeflugri-en-sa-gamli | Nýr kurlari í gagnið á Héraði: Sex sinnum öflugri en sá gamli
Nýtt tæki til að kurla trjávið var gangsett í fyrsta sinn á Hallormsstað síðastliðinn föstudag. Tækið er margfalt öflugra en eldri kurlari sem þar hefur verið í notkun.
Þór Þorfinnsson, skógarvörður á Hallormsstað, segir að nýi kurlarinn framleiði líka mun b... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2970-kopur-kominn-aftur-a-eskifjoerdh-eftir-20-ara-fjarveru-thadh-er-aedhislegt-adh-koma-batnum-heim-eftir-oell-thessi-ar | Kópur kominn aftur á Eskifjörð eftir 20 ára fjarveru: Það er æðislegt að koma bátnum heim eftir öll þessi ár.
Sá skemmtilegi viðburður átti sér stað í byrjun janúar að Kópur Su 460 kom aftur til Eskifjarðar eftir tuttugu ára millilendingu í Hafnarfirði.
„Þessi bátur er smíðaður 1978 og er sem sagt síðasti báturinn sem ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2959-ny-adhstadha-i-oddskardhi-fyrir-snjobretti | Ný aðstaða í Oddskarði fyrir snjóbretti
Fjarðabyggð og Brettafélag Fjarðabyggðar undirrituðu í dag samstarfssamning um uppbyggingu á aðstöðu í Oddsskarði til snjóbrettaiðkunar.
Samningurinn var undirritaður í Skíðamiðstöðinni í Oddsskarði síðdegis í dag. Um stórt skref er að ræða fyrir Brettafélagið, sem hefur á skömmu... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2950-fyrsta-skoflustungan-tekin-ad-nyjum-leikskola-i-neskaupstad | Fyrsta skóflustungan tekin að nýjum leikskóla í Neskaupstað
Leikskólabörn á Sólvöllum aðstoðuðu þegar fyrsta skóflustungan var tekin að nýjum leikskóla á Neseyri í Neskaupstað í gær. Gert er ráð fyrir að nýi skólinn verði tekinn í notkun síðsumars 2016.
Það voru þeir Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri, Jón Björn Há... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2973-buist-vid-500-manns-a-mannamot-markadsstofanna | Búist við 500 manns á Mannamót markaðsstofanna
Markaðsstofur landshlutanna standa fyrir viðburðinum Mannamót 2015 sem fer fram á morgun. Mannamótum er ætlað að mynda og efla tengsl á milli ferðaþjónustufyrirtækja á Íslandi og auka dreifingu ferðamanna um landið allt.
Það eru markaðstofur landshlutanna sem setja upp við... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2969-samstarf-um-baettan-namsarangur-thadh-var-mikill-samhugur-og-jakvaedhni-a-fundinum | Samstarf um bættan námsárangur: Það var mikill samhugur og jákvæðni á fundinum
Föstudaginn 16. janúar síðastliðin skrifuðu skólastjórnendur leik- og grunnskóla á Austurlandi undir viljayfirlýsingu um bættan námsárangur, með sérstakri áherslu á læsi og stærðfræði.
Skólastjórnendur eru með þessu að fylgja eftir ákvörðunu... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2955-nordfjardargong-setlag-mun-haegja-a-greftrinum | Norðfjarðargöng: Setlag mun hægja á greftrinum
Útlit er fyrir að verulega hægist á greftri nýrra Norðfjarðarganga á næstunni því nýtt setbergslag blasir við Eskifjarðarmegin. Útlit er fyrir að það verði eitt það þykkasta sem graftarmenn hafa lent í.
Gangagröftur hófst á ný 5. janúar, eftir 15 daga hlé um jól og áramót.... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2949-ragnheidur-elin-borgar-ekki-fyrir-natturupassa-til-ad-horfa-a-fossinn-heldur-fyrir-utsynispallinn | Ragnheiður Elín: Borgar ekki fyrir náttúrupassa til að horfa á fossinn heldur fyrir útsýnispallinn
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra segist skynja samstöðu um að afla þurfi fjár til uppbyggingar á helstu ferðamannastöðum þjóðarinnar. Eftir tíu daga mælir hún fyrir frumvarpi um náttúrupassa sem þegar er orðið umdeilt. Hún s... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2948-stor-norsk-fyrirtaeki-fylgjast-med-throuninni-i-austfirsku-fiskeldi | Stór norsk fyrirtæki fylgjast með þróuninni í austfirsku fiskeldi
Stærstu norsku fiskeldisfyrirtækin eru sögð fylgjast náið með gangi mála í fiskeldi á Austfjörðum. Forsvarsmenn austfirskra fiskeldisfyrirtækja segja rúm fyrir umtalsverðar vöxt í greininni hérlendis.
Í Noregi er að verða búið að fullnýta þau svæði sem h... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2944-ragnheidur-elin-vildi-oska-thess-ad-vid-gaetum-bara-rukkad-utlendingana | Ragnheiður Elín: Vildi óska þess að við gætum bara rukkað útlendingana
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra segir ekki hægt að leggja eingöngu komugjöld á flug frá útlöndum. Samkvæmt reglum EES yrði einnig að leggja það á innanlandsflug en það sé ekki stefna ríkisstjórnarinnar.
Þetta kom fram í máli ráðherrans á kynningarfund... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2940-rafmagn-aftur-a-i-skriddal-a-thridja-timanum | Rafmagn aftur á í Skriðdal á þriðja tímanum
Rafmagn komst aftur á í Skriðdal rétt fyrir klukkan þrjú í nótt. Rúma tíu tíma tók að finna bilunina.
Rafmagn fór út á Völlum, í Fljótsdal og Skriðdal rétt fyrir klukkan ellefu í gærmorgun. Fljótlega tókst að koma aftur á rafmagni í Fljótsdal og á Völlum en Skriðdælingar þurf... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2937-alcoa-hafnar-asokunum-sjomannafelags-islands-um-ad-grafa-undan-islenskum-sjomonnum | Alcoa hafnar ásökunum Sjómannafélags Íslands um að grafa undan íslenskum sjómönnum
Alcoa Fjarðaál hafnar því að fyrirtækið grafi undan íslenskum sjómönnum með samningum um sjóflutninga. Fyrirtækið var sakað um óásættanlega viðskiptahætti á aðalfundi Sjómannafélags Íslands fyrir skemmstu.
Í ályktun fundarins eru Rio Tin... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2947-vinna-hafin-vid-uttekt-a-skolastarfi-a-fljotsdalsheradi | Vinna hafin við úttekt á skólastarfi á Fljótsdalshéraði
Vinna er hafin við úttekt á skólastarfi í grunn- og tónlistarskólum á Fljótsdalshéraði. Markmiðið er að fá tillögur að úrbótum í skólastarfi í sveitarfélaginu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá oddvitum listanna fjögurra sem sæti eiga í bæjarstjórn Fljótsdalshéra... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2943-laekkun-oliuverds-fjolgar-odyrari-flugsaetum | Lækkun olíuverðs fjölgar ódýrari flugsætum
Flugfélag Íslands hyggst kynna viðbrögð við lækkandi eldsneytisverði á næstu dögum. Þegar hefur ódýrari flugsætum verið fjölgað.
Þetta kemur fram í svari Árna Gunnarssonar, forstjóra Flugfélags Íslands, í svari við fyrirspurn Austurfréttar um hvort lækkandi heimsmarkaðsverð á ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2939-rafmagnslaust-i-skriddal-i-um-tiu-tima | Rafmagnslaust í Skriðdal í um tíu tíma
Rafmagnslaust hefur verið á flestum bæjum í Skriðdal síðan á ellefta tímanum í morgun. Illa gengur að finna bilunina sem virðist vera í jörðu.
„Okkar menn eru orðnir heitir, það er búið að einangra bilunina við ákveðið svæði," segir Ólafur Birgisson, deildarstjóri netreksturs RARI... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2935-jokuldalur-versta-mengunin-sidan-gosid-byrjadi | Jökuldalur: Versta mengunin síðan gosið byrjaði
Hlutfall brennisteinstvíoxíðs í andrúmslofti mældist 7800 míkrógrömm í rúmmetra um klukkan tvö í gærdag á Jökuldal.
„Þetta er mesta mengunin sem mælst hefur í dalnum síðan gosið byrjaði. En þetta er samt svo óvænt, af því það hefur dregið úr gosinu og gaslosuninni, en veð... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2945-hyggjast-halda-malthing-um-oliumal | Hyggjast halda málþing um olíumál
Sveitarfélagið Fjarðabyggð áformar að standa fyrir málþingi um olíuleit, vinnslu og umhverfisáhrif í vor. Olíumálaráðherrar Noregs er meðal þeirra sem sýnt hafa áhuga á að koma að slíku þingi.
Þetta kom fram í máli Jóns Björns Hákonarsonar, forseta bæjarstjórnar Fjarðabyggðar, á síðast... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2942-afl-undirbyr-krofugerd-horfur-a-hordum-kjaravetri | AFL undirbýr kröfugerð: Horfur á hörðum kjaravetri
AFL-Starfsgreinafélag efnir til fjögurra félagsfunda á næstu dögum í tengslum við gerð mótun kröfugerðar félagsins vegna komandi kjaraviðræðna. Formaður félagsins segir fundina mikilvæga því þar verði línurnar lagðar.
„Á þessum fundum verður grunnurinn að kröfugerð AFL... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2938-breiddalur-margfalt-fleiri-mys-en-undanfarin-ar | Breiðdalur: Margfalt fleiri mýs en undanfarin ár
Bændur í Breiðdal segja margfalt fleiri mýs á ferðinni þar heldur en síðustu ár og tala um faraldur. Mýsnar hafa valdið tjóni á heyforða og jafnvel lagst á sauðfé.
„Þetta er ekkert í líkingu við það sem verið hefur. Það er helst hægt að líka þessu við faraldur. Magnið á ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2934-vegna-kosningar-a-austurfirdingi-arsins-leidrett-eftir-aras-fra-tolvuforriti | Vegna kosningar á Austurfirðingi ársins: Leiðrétt eftir árás frá tölvuforriti
Atkvæðatölur í kosningu á Austfirðingi ársins hafa verið leiðréttar eftir að í ljós kom að átt hafði verið við kjörið með tölvuforriti. Takmarkanir hafa verið settar til að koma í veg fyrir að það endurtaki sig.
„Það var sýnt fram á það með ó... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2931-sloekkvilidh-djupavogs-auglysir-eftir-sloekkvilidhsmoennum-hvetjum-menn-og-konur-adh-saekja-um | Slökkvilið Djúpavogs auglýsir eftir slökkviliðsmönnum: Hvetjum menn og konur að sækja um
Slökkviliði Djúpavogs auglýsir eftir slökkviliðskörlum og konum um þessar mundir en engin kona er meðal starfandi slökkviliðsmanna á Austurlandi í dag. Fækkað hefur í liðinu síðustu ár.
Starfið er hlutastarf sem felur í sér að sinn... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2927-petur-blondal-alitsgjafar-lita-a-alverin-eins-og-marsbua | Pétur Blöndal: Álitsgjafar líta á álverin eins og Marsbúa
Tilkoma Fjarðaáls hefur skotið styrkari stoðum undir áliðnað á Íslandi. Vísar eru að verða til að frekari úrvinnslu með tilkomu álklasans.
„Þetta eru ekki bara álverin heldur líka það sem skapast í kringum þau," sagði Pétur Blöndal, framkvæmdastjóri Samáls, samt... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2923-26-opinber-storf-topudust-i-hruninu-a-austurlandi-mest-skorid-nidur-hja-hsa | 26 opinber störf töpuðust í hruninu á Austurlandi: Mest skorið niður hjá HSA
Ársverkum ríkisins á Austurlandi fækkaði um tæp 26 á árabilinu 2007-2011. Niðurskurðurinn kom harðast niður á Heilbrigðisstofnun Austurlands og bitnaði fremur á konum en körlum.
Þetta kemur fram í skýrslunni „Breytingar á fjölda ríkisstarfsman... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2919-mesti-hiti-sem-maelst-hefur-milli-jola-og-nyars-herlendis | Mesti hiti sem mælst hefur milli jóla og nýárs hérlendis
Tvö hitamet voru sett milli jóla og nýárs á veðurstöðinni á Skjaldþingsstöðum í Vopnafirði. Hiti í mánuðinum var annars í meðallagi á Austurlandi.
Þetta kemur fram í yfirliti Veðurstofu Íslands yfir tíðarfar á landinu í desember.
Þann 29. desember mældist 16 stig... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2930-sjo-austfirskir-listamenn-hljota-listamannalaun | Sjö austfirskir listamenn hljóta listamannalaun
Sjö Austfirðingar eru í hópi þeirra 267 sem hljóta listamannalaun í ár. Sviðslistafólkið Pétur Ármannsson og Brogan Davison tilheyra hópi sem hlýtur tólf mánaða laun.
Brogan og Pétur, sem meðal annars hafa sett upp verkið Dansaðu fyrir mig og nú síðast verk um Steina-Petr... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2926-einar-mar-radinn-skolastjori-nesskola | Einar Már ráðinn skólastjóri Nesskóla
Einar Már Sigurðarson, skólastjóri Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar hefur verið ráðinn skólastjóri Nesskóla í Neskaupstað.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá sveitarfélaginu Fjarðabyggð. Einar Már var á árum áður skólameistari Verkmenntaskóla Austurlands og forstöðumaður Skólaskrifstofu ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2921-rarik-von-a-ad-aflstodin-verdi-fljotlega-flutt-til-baka | RARIK: Von á að aflstöðin verði fljótlega flutt til baka
Fjórar af sex færanlegum varaaflstöðvum RARIK eru staðsettar í Norður-Þingeyjasýslu í dag, þar á meðal sú sem átti að þjóna Austurlandi. Forsvarsmenn RARIK segja ekkert hafa bent til þess við reglubundna skoðun í sumar að spennir við Ormsstaði í Breiðdal myndi ge... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2918-vegfarendur-hafi-serstaka-varud-a-vegna-breidra-eftirvagna | Vegfarendur hafi sérstaka varúð á vegna breiðra eftirvagna
Samgöngustofa vill hvetja vegfarendur með ferð með eftirvagna til sérstakrar varúðar þar sem vegir eru þrengri en ella vegna snjóruðninga. Þá sé mikilvægt að allur búnaður vagnanna sé í lagi.
Samgöngustofu barst í morgun erindi frá vegfaranda sem mætt hafði tve... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2929-adalsteinn-jonsson-landadi-fyrstu-lodnunni-a-austfjordum | Aðalsteinn Jónsson landaði fyrstu loðnunni á Austfjörðum
Aðalsteinn Jónsson, skip Eskju, kom með fyrstu loðnuna sem landað er á Austfjörðum. Skipið kom inn til Eskifjarðar um átta leytið í gærkvöldi með 1195 tonn.
„Þetta er ágætis loðna að sjá en við erum reyndar ekki byrjaðir að vinna hana," segir Haukur Jónsson, verk... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2925-nidhurstada-sannleiksnefndarinnar-vekur-heimsathygli-vafasom-samsetning-nefndarinnar | Niðurstaða sannleiksnefndarinnar vekur heimsathygli: Vafasöm samsetning nefndarinnar
Niðurstaða sannleiksnefndar Fljótsdalshéraðs um sannleiksgildi myndbands sem talið er sýna Lagarfljótsorminn hefur vakið heimsathygli. Ekki eru þó allir jafn sannfærðir um niðurstöðuna sem er vefengd í efa af þýska stórblaðinu Der Spie... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2920-vilja-ad-landhelgisgaeslunni-verdi-gert-kleift-ad-tryggja-oryggi-sjomanna | Vilja að Landhelgisgæslunni verði gert kleift að tryggja öryggi sjómanna
Sjómannasamband Íslands krefst þess að stjórnvöld geri starfsfólki Landhelgisgæslunnar kleift að standa við markmið um öryggi sjófarenda. Viðbragðstími gæslunnar þegar tvö flutningaskip strönduðu úti fyrir Austfjörðum í september er talinn óviðuna... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2917-radherra-ferdast-um-landid-til-ad-kynna-natturupassa | Ráðherra ferðast um landið til að kynna náttúrupassa
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra ferðast um landið á næstu dögum til að kynna frumvarp um náttúrupassa á opnum fundum. Slíkur fundur verður á Egilsstöðum næsta mánudag.
„Af hverju náttúrupassi?" er yfirskriftin á fundunum en á þeim mun Ragnhe... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2916-tonlistarlifid-breytist-ekki-tekjur-af-netspilun-agaetis-bubot | Tónlistarlífið breytist ekki: Tekjur af netspilun ágætis búbót
Milliliðir í tónlistarbransanum vilja alltaf fá sinn skerf þótt umhverfið sé að breytast með tilkomu streymis tónlistar yfir netið. Austfirðingur sem gefur tónlist sína út sjálfur segir tekjur frá netveitum eins og Spotify ágætis viðbót.
„Tónlistarmannalífi... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2911-siminn-setur-upp-4g-a-reydarfirdi | Síminn setur upp 4G á Reyðarfirði
Síminn hefur komið upp 4G farsímasendi á Reyðarfirði. Þessi fjórða kynslóð farsímasenda eflir sambandið til muna, þar sem hraðinn um netið eykst. Auk þess leyfir tæknin áhorf í háskerpu og niðurhal kvikmynda á mettíma.
4G farsímanet Símans nær nú til ríflega 72% landsmanna. Það hefur s... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2908-haalvarlegt-mal-thegar-husin-kolna-og-atvinnulifid-lamast-ut-af-rafmagnsleysi | Háalvarlegt mál þegar húsin kólna og atvinnulífið lamast út af rafmagnsleysi
Sveitarstjórn Breiðdalshrepps telur óásættanlegt RARIK þurfi að vera betur í stakk búið til að takast á skakkaföll en raunin var þegar sveitarfélagið var án rafmagns í sólarhring tíu dögum fyrir jól.
Í bréfi sem sveitarstjórn samþykkti að send... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2904-10-mest-lesnu-greinarnar-a-austurfrett-arid-2014 | 10 mest lesnu greinarnar á Austurfrétt árið 2014
Austurfrétt naut metaðsóknar á árinu og við höfum tekið saman lista yfir þær greinar sem oftast voru lesnar. Aðsendar greinar, einkum um Norrænu eru áberandi á listanum.
1. Einn mesti snjór sem við höfum fengið: Fjögurra metra hár snjóskafl í munna Oddsskarðsganga
Mokstu... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2915-fyrsti-austfirdhingur-arsins-faeddur | Fyrsti Austfirðingur ársins fæddur
Fyrsti Austfirðingur ársins fæddist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Neskaupstað klukkan 7:45 í gærmorgun, mánudaginn 5. janúar. Það er stúlka sem vegur rúm fjögur kíló og er 53 sentimetrar á lengd.
„Þetta gekk ótrúlega vel. Ég missti vatnið um þrjú í fyrrinótt og kom með sjúkrabíl hingað á ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2910-bill-valt-i-vopnafirdi | Bíll valt í Vopnafirði
Bílvelta varð við Ljótsstaði í Vopnafirði á föstudag. Ökumaðurinn var einn í bílnum og slapp ómeiddur. Áramótin voru annars róleg hjá lögreglunni á Austurlandi.
Ökumaðurinn hringdi sjálfur eftir aðstoð og lét lögregluna síðan vita af því að hann myndi sjálfur sjá um að fjarlægja bílinn.
Í dagbók ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2907-mikil-mengun-a-jokuldal-02012015 | Mikil mengun á Jökuldal
Hlutfall brennisteinstvíoxíðs í andrúmslofti mældist 3900 míkrógrömm í rúmmetra um klukkan hálf átta í kvöld.
Tölurnar eru frá handmæli á Eiríksstöðum á Jökuldal. Mælingar vantar frá öðrum handmælum en íbúar í Fljótsdal segja svo mikla mengun þar að hún sé sjáanleg í kvöldmyrkrinu.
Við slíkar kr... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2903-austfirskur-frettaannall-2014 | Austfirskur fréttaannáll 2014
Article Index
Austfirskur fréttaannáll 2014
Janúar
Febrúar
Mars
Apríl
Maí
Júní
Júlí
Ágúst
September
Október
Nóvember
Desember
All Pages
Page 1 of 13
Björgunarsveitarmenn voru sennilega ein uppteknasta starfsstétt Austurlands á árinu. Það byrjaði á útköllum til bjargar ferðalöngum í snjó en... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2914-vinnsla-hafin-hja-bulandstindi-a-djupavogi | Vinnsla hafin hjá Búlandstindi á Djúpavogi
Í dag mættu 25 starfsmenn til vinnu hjá Búlandstindi ehf. á Djúpavogi en í kjölfar brotthvarfs Vísis af svæðinu var þetta gamla nafn endurvakið í nýju fiskvinnslufyrirtæki sem hóf vinnslu formlega í morgun.
Fyrirtækið er í eigu Ósness og Fiskeldis Austfjarða. Elís Hlynur Gréta... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2909-ithrottamidhstoedhin-a-djupavogi-faer-godha-gjoef | Íþróttamiðstöðin á Djúpavogi fær góða gjöf
Á dögunum færði Kvenfélagið Vaka á Djúpavogi Íþróttamiðstöðinni veglega gjöf. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem kvenfélagið lætur gott af sér leiða í bæjarfélaginu. Þær hafa komið víða við og styrkt hin ýmsu málefni í sínu góða starfi á Djúpavogi.
Það voru þær Bergþóra Birgisd... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2905-thorvaldur-johannsson-hlytur-falkaorduna | Þorvaldur Jóhannsson hlýtur fálkaorðuna
Þorvaldur Jóhannsson, fyrrum bæjarstjóri og skólastjóri á Seyðisfirði, var á meðal ellefu einstaklinga sem fengu riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu í dag við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.
Í tilkynningu frá embætti forseta Íslands segir að Þorvaldur hljóti krossinn fyrir fra... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2902-adheins-ein-raudh-jol-i-joekuldal-sidhan-1997-thadh-var-eitthvadh-vidh-thetta-ar | Aðeins ein rauð jól í Jökuldal síðan 1979: Það var eitthvað við þetta ár - myndir
Páll Halldórsson bóndi á á Hákonarstöðum í Jökuldal segir að það hafi einungis verið ein rauð jól í Jökuldal síðastliðin 35 ár.
„Mér reiknast til að jólin núna séu þau þrítugustu og fimmtu hjá mér hér á Hákonarstöðum og að mínu viti hafa ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2901-heimahjukrun-og-rekstur-sundabudar-afram-a-hendi-vopnfirdinga | Heimahjúkrun og rekstur Sundabúðar áfram á hendi Vopnfirðinga
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra og Ólafur Áki Ragnarsson, sveitarstjóri Vopnarfjarðarhrepps, undirrituðu í dag endurnýjaðan samning sem felur í sér að Vopnafjarðarhreppur mun áfram sjá um rekstur hjúkrunarheimilisins Sundabúðar og heimahjúkrunar í... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2897-sumarhiti-a-skjaldthingsstodum | Sumarhiti á Skjaldþingsstöðum
Sumarhiti mældist víða á Austfjörðum í dag þrátt fyrir að á dagatalinu standi desember. Hæst fór hitinn í sextán stig á Skjaldþingsstöðum í Vopnafirði.
Það var á fimmta tímanum í dag sem þessi hiti mældist í Vopnafirði en yfir tíu stiga hiti hefur verið síðan í morgun. Þar hefur einnig ver... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2893-kostnadur-af-garnaveikinni-fellur-a-baendur | Kostnaður af garnaveikinni fellur á bændur
Bændur bera sjálfir kostnað af aðgerðum vegna garnaveiki sem greindist nýverið á Fljótsdalshéraði. Veikin leggst á jórturdýr en á ekki að vera hættuleg mönnum.
Garnaveikin er ólæknandi sjúkdómur sem leggst á öll jórturdýr, þ.e. sauðfé, geitur, nautgripi og hreindýr. Veikin bar... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2886-roleg-nott-hja-sjukraflutningum | Róleg nótt hjá sjúkraflutningum
Síðastliðinn sólarhringur hefur verið fremur rólegur hjá austfirskum sjúkraflutninga- og slökkviliðsmönnum.
Hjá slökkviliði Fjarðabyggðar, sem sér einnig um sjúkraflutninga í sveitarfélaginu, fengust þær upplýsingar eftir hádegið að komin tvö sjúkrabílaútköll á aðfanga- og jóladag.
Hjá l... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2900-i-fimm-ar-a-taergesen-vantar-ferdamenn-austur-yfir-veturinn | Í fimm ár á Tærgesen: Vantar ferðamenn austur yfir veturinn
Í byrjun desember voru liðin fimm ár frá því að Jónas Helgason veitingamaður hóf rekstur í Tærgesen-húsi á Reyðarfirði. Hann er stoltur af langri sögu hússins sem innan skamms gæti öðlast heimsfrægð.
„Þetta hefur verið veitinga- og gistihús frá árinu 1938 og e... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2896-hvetur-folk-til-adh-spa-i-fridharbodhskapinn-a-gamlarsdag-eg-tok-thetta-bara-upp-hja-sjalfum-mer | Hvetur fólk til að spá í friðarboðskapinn á gamlársdag: Ég tók þetta bara upp hjá sjálfum mér
Pétur Kristjánsson, þjóðfræðingur frá Seyðisfirði hvetur sem flesta til að taka sér tíma á gamlársdag eða gamlárskvöld til að syngja lagið Imagine eftir John Lennon og hugsa um friðarboðskapinn.
„Þetta gengur einfaldlega út á ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2888-gafu-hsa-hnodthjark | Gáfu HSA hnoðþjark
Forsvarsmenn Ungmennafélagsins Ássins færðu nýverið Heilbrigðisstofnun Austurlands á Egilsstöðum Lucas hnoðþjark sem safnað var fyrir á árinu.
Eiríkur Þorri Einarsson, úr stjórn Ássins og sjúkraflutningamaður, færði HSA gjöfina og tók Óttar Ármannsson yfirlæknir á Egilsstöðum við henni.
Söfnunin hófs... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2885-storidjuskoli-alcoa-fjardaals-utskrifar-50-nemendur-a-arinu | Stóriðjuskóli Alcoa Fjarðaáls útskrifar 50 nemendur á árinu
Um miðjan desember útskrifuðust fyrstu nemendur frá Stóriðjuskóla Alcoa Fjarðaáls, alls 20 manns, sem lokið hafa bæði grunn- og framhaldsnámi við skólann, en námið tekur tvö og hálft ár.
Alls hafa fimmtíu manns lokið námi við skólann á árinu. Auk þeirra tuttug... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2899-dyralaeknamal-radherra-skodar-stoduna-a-nyju-ari | Dýralæknamál: Ráðherra skoðar stöðuna á nýju ári
Ráðherra landbúnaðarmála mun skoða fjárveitingar til dýralæknamála þegar nýtt ár verður gengið í garð. Matvælastofnun hefur farið fram á aukið fjármagn en erfitt hefur reynst að manna dýralæknastöður á Austurlandi og í Þingeyjasýslum.
„Menn munu setjast yfir málið á nýju... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2894-roleg-jol-hja-logreglunni-2014 | Róleg jól hjá lögreglunni
Jólahátíðin var róleg hjá austfirskum lögregluþjónum. Það var svarið hjá yfirlögregluþjónunum tveimur þegar haft var samband við þá í morgun.
Töluvert var af fólki á dansleik í Valaskjálf á Egilsstöðum á laugardagskvöld. Á sama tíma var einnig ball í Valhöll á Eskifirði en þar mun hafa verið f... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2887-tomas-arnason-latinn | Tómas Árnason látinn
Tómas Árnason, fyrrum þingmaður og ráðherra frá Seyðisfirði, lést á Landsspítalanum á aðfangadag, 91 árs að aldri.
Tómas fæddist á Hánefsstöðum í Seyðisfirði þann 21. júlí árið 1923 og nam við Alþýðuskólann á Eiðum. Hann tók stúdentspróf frá Menntaskólanum á Akureyri, lögfræðipróf frá Háskóla Íslan... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2884-aldrei-fleiri-hreindyr-verid-keyrd-nidur-a-einu-ari | Aldrei fleiri hreindýr verið keyrð niður á einu ári
Náttúrustofa Austurlands varar ökumenn á Austurlandi við hreindýrum á vegum á Austurlandi í skammdeginu. Yfir þrjátíu dýr hafa lent fyrir bíl það sem af er ári og hafa aldrei verið fleiri dýr verið keyrð niður á einu ári.
Frá Mýrum og að minnsta kosti að Djúpavogi eru... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2883-sjo-sottu-um-stodu-tomstunda-og-forvarnafulltrua | Sjö sóttu um stöðu tómstunda- og forvarnafulltrúa
Sjö einstaklingar sóttu um stöðu tómstunda- og forvarnafulltrúa Fljótsdalshéraðs en umsóknarfrestur rann út um miðjan desember.
Í auglýsingu segir að starfið feli meðal annars í sér umsjón með ungmennahúsi á Egilsstöðum, að vinna á forvörnum á breiðum grunni og að vinna... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2875-postbillinn-thversum-i-graenafelli | Póstbíllinn þversum í Grænafelli
Flutningabíll frá Íslandspósti á leið með póst frá Egilsstöðum til Reykjavíkur lenti þversum neðst í Grænafelli á leiðinni á áttunda tímanum í kvöld.
Þær upplýsingar fengust hjá póstinum að atvikið hefði ekki verið alvarlegt, bíllinn hefði runnið til í hálku og setið fastur.
Hann verður... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2871-kviknadi-i-drattarvel-a-verkstaedi-eitt-thad-furdulegasta-sem-eg-hef-sed | Kviknaði í dráttarvél á verkstæði: Eitt það furðulegasta sem ég hef séð
Ótrúlegt tilviljun virðist hafa ráðið því að ekki fór verr þegar kviknaði í dráttarvél hjá raftækjaverkstæðinu Rafey á Egilsstöðum í gærmorgun. Hiti frá eldinum bræddi vatnslögn þannig að vatn sprautaðist úr henni yfir eldinn og slökkti hann.
„Þett... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2860-mast-ekki-bodlegt-astand-a-thjonustu-dyralaekna-a-austurlandi | MAST: Ekki boðlegt ástand á þjónustu dýralækna á Austurlandi
Matvælastofnun (MAST) viðurkennir að ástand þjónustu dýralækna á mið-Austurlandi sé ekki ásættanleg á meðan ekki er hægt að gera þjónustusamning við dýralækni um að sinna svæðinu. Ítrekað hefur verið auglýst eftir umsækjendum en enginn gefið sig fram. Stofnun... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2879-sms-i-simann-til-ad-fylgjast-med-straeto-a-landsbyggdinni | SMS í símann til að fylgjast með strætó á landsbyggðinni
Strætó býður farþegum sínum á landsbyggðinni að fá SMS-skilaboð í símann sinn með upplýsingum ef breytingar verða á leið viðkomandi.
Þessi þjónusta kemur sér vel í færð eins og verið hefur undanfarna daga og vikur, þar sem veður hefur hamlað eðlilegum almenningss... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2874-samkeppni-um-nafn-a-nytt-hjukrunarheimili-a-egilsstoedhum-oskum-eftir-adh-nafnidh-eigi-ser-einhverja-soegu | Samkeppni um nafn á nýtt hjúkrunarheimili á Egilsstöðum: Óskum eftir að nafnið eigi sér einhverja sögu
Byggingarnefnd hjúkrunarheimilisins á Egilsstöðum auglýsir eftir nafni á nýja hjúkrunarheimilið við Blómvang 1.
„Við vorum sammála um að það væri viðeigandi að þetta væri nafn sem kæmi héðan, frá íbúum svæðisins, en e... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2868-afgreida-jolakort-fyrir-allt-landid-thyrftum-ad-vera-her-20-tima-a-solarhring | Afgreiða jólakort fyrir allt landið: Þyrftum að vera hér 20 tíma á sólarhring
Starfsmenn Myndsmiðjunnar á Egilsstöðum hafa haft í nógu að snúast síðustu daga en fyrirtækið fær mikið af pöntunum um jólakort alls staðar af landinu. Þá segir framkvæmdastjóri vaxandi spurn eftir framköllun mynda.
„Við fáum 50-70 pantanir á... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2858-nordfjardargong-besta-vikan-til-thessa | Norðfjarðargöng: Besta vikan til þessa
Met var slegið í greftri Norðfjarðarganga í síðustu viku þegar grafinn var alls 141 metri til samans á báðum stöfnum. Norðfjarðarmegin voru grafnir 74 metrar en 67 metrar Eskifjarðarmegin.
Jarðlög hafa verið þokkalega hagstæð gangagreftrinum undanfarið og engin erfið jarðlög tafið... |
Subsets and Splits
No community queries yet
The top public SQL queries from the community will appear here once available.