Search is not available for this dataset
url stringlengths 21 288 | text stringlengths 1 1.35M |
|---|---|
http://www.austurfrett.is/frettir/2685-neydharkall-bjoergunarsveita | Neyðarkall björgunarsveita
Nú um helgina munu sjálfboðaliðar björgunarsveita vera á ferðinni og selja Neyðarkall björgunarsveita. Er þetta níunda árið sem farið er í slíka fjáröflun og er óhætt að segja að almenningur hafi tekið björgunarsveitafólki afar vel og er þessi sala farin að skipta björgunarsveitir verulegu má... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2682-fljotsdalsherad-ekki-haegt-ad-haegt-ad-tengja-lokun-upplysingamidhstodvar-vid-skodun-a-framlagi | Fljótsdalshérað: Ekki hægt að hægt að tengja lokun Upplýsingamiðstöðvar við skoðun á framlagi
Sveitarfélagið Fljótsdalshérað telur ekki hægt að tengja lokun Upplýsingamiðstöðvar Austurlands við skoðun á framlagi þess til stöðvarinnar. Bæði Fljótsdalshérað og Samband sveitarfélaga á Austurlandi lýsa yfir áhyggjum af stö... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2679-nettengdum-maelum-fjolgad-og-byrjad-ad-maela-brennisteinssyru | Nettengdum mælum fjölgað og byrjað að mæla brennisteinssýru
Til stendur að fjölga nettengdum mælum vegna mengunar frá eldgosinu í Holuhrauni. Þá verði hafin vöktun á styrk brennisteinssýru. Há gildi hafa mælst á Austfjörðum í morgun og gærkvöldi.
Samkvæmt tilkynningu sem Umhverfisstofnun sendi frá sér í gær er gert ráð... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2675-upplysingamidhstod-austurlands-lokad | Upplýsingamiðstöð Austurlands lokað
Upplýsingamiðstöð Austurlands á Egilsstöðum hefur verið lokað vegna rekstrarerfiðleika og óvíst er í hvaða mynd hún opnar að nýju. Þar með skerðist upplýsingagjöf til ferðamanna verulega.
Miðstöðin er landshlutamiðstöð sem hefur verið rekin af Austurbrú. Hennar helsta verkefni er að ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2684-k100-farin-a-hljoma-a-egilsstoedhum-vonum-adh-heradhsbuar-taki-okkur-vel | K100 farin að hljóma á Egilsstöðum: Vonum að Héraðsbúar taki okkur vel
Það komst í fréttirnar á dögunum að útvarpsmennirnir vinsælu Sigmar Vilhjálmsson og Jóhannes Ásbjörnsson snúa aftur í útvarp 21. nóvember næstkomandi með þátt sinn Simmi og Jói. Að þessu sinni verður þátturinn á útvarpsstöðinni K100 sem nú þegar er ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2681-garnaveiki-greind-i-hroarstungu | Garnaveiki greind í Hróarstungu
Garnaveiki hefur greinst í fé frá bænum Blöndubakka í Hróarstungu á Fljótsdalshéraði. Sjúkdómurinn er ólæknandi en hægt að koma í veg fyrir hann með bólusetningu. Fundað verður með bændum í sveitinni í kvöld.
„Fyrst er að afmarka svæði til bólusetningar," segir Eyrún Arnardóttir, héraðsd... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2678-enn-sott-um-framlengingu-stoduleyfis-kominn-timi-a-ad-thessar-blessudu-budir-fari | Enn sótt um framlengingu stöðuleyfis: Kominn tími á að þessar blessuðu búðir fari
Alcoa Fjarðaál hefur óskað eftir framlengingu á stöðuleyfi fyrir starfsmannaþorpið á Reyðarfirði til og með í október 2015. Bæjarfulltrúar segja að þetta verði í síðasta skipti sem slíkt leyfi verði framlengt.
„Það er ekki endalaust hægt ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2673-stodfirdingar-fa-studningsyfirlysingu-fra-starfsfolki-grunnskolans-a-reydarfirdi | Stöðfirðingar fá stuðningsyfirlýsingu frá starfsfólki Grunnskólans á Reyðarfirði
Um þrjátíu starfsmenn Grunnskóla Reyðarfjarðar skrifa undir stuðningsyfirlýsingu sem þeir sendu starfólki Stöðvarfjarðarskóla þar sem til stóð að hætta kennslu í eldri bekkjum. Reyðfirðingarnir leggjast einnig gegn hugmyndum um sameiningu ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2683-ein-staersta-framkvaemd-fjardhabyggdarhafnar | Ein stærsta framkvæmd Fjarðabyggðarhafna
Eins og kom fram á vef Fjarðabyggðar fyrir skemmstu hefur stækkun Norðfjarðarhafnar gengið vel. Framkvæmdin er á áætlun og verður lokið við þriðja og stærsta verkhlutann í desember næstkomandi.
Ráðist var í stækkun Norðfjarðarhafnar í ljósi vaxandi umsvifa, sem hafa smám saman v... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2680-stydja-tonlistarkennara-i-verkfalli | Styðja tónlistarkennara í verkfalli
Starfsfólk Verkmenntaskóla Austurlands sýndi tónlistarkennurum í verkfalli stuðning sinn í verki með því að bjóða kennurum úr Tónskólanum í Neskaupstað í samstöðukaffi í morgun.
Starfsfólk skólans tók höndum saman og hafði útbúið veisluborð og tók vel á móti á móti stéttarsystkinum s... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2677-slaem-loftgaedi-a-vopnafirdi-04112014 | Slæm loftgæði á Vopnafirði
Styrkur brennisteinsdíoxíðs í andrúmslofti mældist tæp 800 míkrógrömm í rúmmetra skömmu fyrir klukkan sex í kvöld. Styrkurinn hefur síðan minnkað lítillega.
Við slíkar kringumstæður er þeim sem hafa undirliggjandi öndunarfæra- eða hjartasjúkdóma, sem og börnum og barnshafandi konum, ráðlagt a... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2671-haett-vid-ad-flytja-skolaborn-fra-stodvarfirdi-til-faskrudsfjardar | Hætt við að flytja skólabörn frá Stöðvarfirði til Fáskrúðsfjarðar
Bæjarráð Fjarðabyggðar samþykkti á fundi sínum í morgun að falla frá hugmyndum um að flytja nemendur í 5. – 10. bekk Stöðvarfjarðar á Fáskrúðsfjörð. Utanaðkomandi aðili verði fenginn til að taka út rekstur sveitarfélagsins og vinna hagræðingartillögur.
Í... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2668-ibuasamtok-eskifjardar-stydja-barattu-stodfirdinga-i-skolamalum | Íbúasamtök Eskifjarðar styðja baráttu Stöðfirðinga í skólamálum
Stjórn Íbúasamtaka Eskifjarðar hefur sent íbúum Stöðvarfjarðar stuðningsyfirlýsingu vegna stöðu skólamála í plássinu.
Fyrir helgi voru kynntar hugmyndir um að fara með börn 11 ára og eldri frá Stöðvarfirði til Fáskrúðsfjarðar frá og með næsta skólaári. Þær... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2664-aurskrida-sleit-i-sundur-ljosleidarann-til-borgarfjardar | Aurskriða sleit í sundur ljósleiðarann til Borgarfjarðar
Netsamband komst aftur á á Borgarfirði um klukkan eitt í dag en sveitarfélagið hafði þá að mestu verið sambandslaust í 20 tíma. Stóreflis aurskriða tók ljósleiðara í sundur.
Skriðan féll á milli Hólalands og Hólalandshjáleigu og fór þar yfir tvö tún og þrjá skurð... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2656-visir-hentadi-ad-eyda-ovissu-fyrr-en-sidar | Vísir: Hentaði að eyða óvissu fyrr en síðar
Framkvæmdastjóri Vísis segir betra að eyða óvissu fyrr en síðar um framtíð fiskvinnslu á Djúpavogi. Fyrirtækið tilkynnti í gær að það myndi hætta vinnslu þar um áramótin en nýtt félag mun vinna eldisfisk.
„Það passaði viðkomandi aðilum að klára þetta fyrr," segir Pétur Hafste... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2652-fljotsdalsherad-botaskylt-vegna-meidsla-i-likamsraekt-merkingar-a-ensku-ekki-nog | Fljótsdalshérað bótaskylt vegna meiðsla í líkamsrækt: Merkingar á ensku ekki nóg
Sveitarfélagið Fljótsdalshérað hefur verið dæmt til að bera skaðabótaábyrgð á helmingi líkamstjóns sem iðkandi í líkamsræktarstöð sveitarfélagsins hlaut við æfingar þar. Dómari taldi merkingum á æfingatæki hafa verið ábótavant.
Slysið varð... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2667-agust-arnorsson-radinn-utibusstjori-landsbankans-a-egilsstodum | Ágúst Arnórsson ráðinn útibússtjóri Landsbankans á Egilsstöðum
Ágúst Arnórsson hefur verið ráðinn útibússtjóri Landsbankans á Egilsstöðum og tekur hann við af Arnari Páli Guðmundssyni sem nýverið var ráðinn útibússtjóri á Akureyri.
Ágúst er 43 ára gamall og hefur starfað hjá Landsbankanum síðan 2007, fyrst sem sérfræði... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2658-logreglan-a-austfjordum-a-skammbyssur-og-kindabyssur | Lögreglan á Austfjörðum á skammbyssur og kindabyssur
Austfirsku lögregluumdæmin tvö hafa yfir að ráða kindabyssum og skammbyssum. Í Seyðisfjarðarumdæmi eru skotvopnin geymd á lögreglustöðvum en hirslur fyrir skotvopn eru í bílum í Eskifjarðarumdæmi.
Í Seyðisfjarðarumdæmi eru til fimm Glock skammbyssur og þrjár kindabys... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2655-nidhurskurdhur-i-grunnskola-stoedhvarfjardhar-ein-af-moergum-hugmyndum-sem-veridh-er-adh-raedha | Niðurskurður í Grunnskóla Stöðvarfjarðar: Ein af mörgum hugmyndum sem verið er að viðra
Eins og kom fram á ruv.is í gær hefur bæjarráð Fjarðabyggðar rætt hugmyndir um að börn á Stöðvarfirði eldri en 11 ára verði keyrð í aðra skóla í Fjarðabyggð. Þetta kom fram á fundi bæjarstjóra og fræðslustjóra með starfsfólki grunns... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2650-djupidh-frumkvoedhlasetur-opnar-a-djupavogi | Djúpið frumkvöðlasetur opnar á Djúpavogi
Djúpið frumkvöðlasetur opnar á Djúpavogi laugardaginn 1. nóvember næstkomandi. Djúpið er bækistöð sem veitir frumkvöðlum aðstöðu, skapandi umhverfi, tengslanet og faglega ráðgjöf til að vinna að nýsköpun sinni.
„Þetta er samstarfs verkefni Austurbrúar, Afls starfsgreinafélags og... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2666-alcoa-fjardaal-og-eimskipafelagid-endurnyja-samninga-um-hafnarvinnu-vid-mjoeyrarhofn | Alcoa Fjarðaál og Eimskipafélagið endurnýja samninga um hafnarvinnu við Mjóeyrarhöfn
Alcoa Fjarðaál hefur endurnýjað samninga við Eimskipafélagið að undangengnu alþjóðlegu útboði, um hafnarvinnu fyrir álverið við Mjóeyrarhöfn á Reyðarfirði til næstu fimm ára. Eimskip hefur annast þessa þjónustu fyrir Alcoa Fjarðaál all... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2657-thetta-er-daudhadomur-fyrir-stoedhvarfjoerdh-erum-medh-tarin-i-augunum | Þetta er dauðadómur fyrir Stöðvarfjörð: Erum með tárin í augunum
„Okkur lýst nákvæmlega engan vegin á þessa hugmynd, því við vitum alveg hvað þetta hefur í för með sér. Þetta samfélag deyr það er bara svo einfalt,“
Þetta segir Solveig Friðriksdóttir, kennari og trúnaðarmaður kennara í grunnskólanum á Stöðvarfirði þegar... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2653-mikill-kvoti-hverfur-med-visi-himinn-og-haf-skilur-a-milli-thess-sem-verid-hefur | Mikill kvóti hverfur með Vísi: Himinn og haf skilur á milli þess sem verið hefur
Djúpavogshreppur leitar að öðru útgerðaraðila til að taka stöðu Vísis sem í morgun staðfesti að fiskvinnslu fyrirtækisins yrði hætt þar um áramót. Sveitarstjórinn bendir á að um leið hverfi mikill kvóti úr byggðarlaginu og kallar eftir því... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2648-visir-haettir-a-djupavogi-um-aramot-vinnsla-hefst-a-ny-undir-merkjum-bulandstinds | Vísir hættir á Djúpavogi um áramót: Vinnsla hefst á ný undir merkjum Búlandstinds
Fiskvinnsla hefst á Djúpavogi undir merkjum Búlandstinds um næstu áramót. Vísir hf. hefur selt fyrirtæki á staðnum, Ósnesi, hlutafé sitt í Búlandstindi á 500 þúsund krónur.
Vísir mun afhenda Búlandstindi fasteignir sínar á Djúpavogi, sem ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2647-janne-verdur-forstodumadur-upplysingataeknimala-alcoa-a-heimsvisu | Janne verður forstöðumaður upplýsingatæknimála Alcoa á heimsvísu
Janne Sigurðsson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls, mun taka við starfi forstöðumanns upplýsingatæknimála (e. Chief Information Officer) hjá Alcoa á heimsvísu. Magnús Þór Ásmundsson tekur við forstjórastarfinu frá og með 1. nóvember.
Tilkynnt var um breytingarna... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2639-umhverfisstofnun-otaekt-ad-maelarnir-detti-ut | Umhverfisstofnun: Ótækt að mælarnir detti út
Engar upplýsingar var að fá um loftgæði á Héraði eða Reyðarfirði um helgina. Mælar sem dreifðir eru um svæðið eru vaktaðir og látið vita þegar þeir fara yfir viðmiðunarmörk.
„Við erum mjög undrandi. Stundum hefur einn og einn mælir dottið út en það er sjaldgæft að margir det... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2635-erna-rut-satt-thott-eg-hafi-bara-fengid-eina-manneskju-til-ad-breyta-vidhorfi-sinu | Erna Rut: Sátt þótt ég hafi bara fengið eina manneskju til að breyta viðhorfi sínu
Nýstúdent kallar eftir fræðslu um kynjafræði meðal nemenda og kennara í framhaldsskólum. Hún segir afar neikvætt viðhorf finnast í garð femínista meðal beggja hópanna.
„Karlrembustælar voru áberandi meðal margra eldri karlkynskennara. Mé... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2631-husfyllir-a-hadegisfundi-a-kvennafridaginn-a-seydisfirdi-ojafnrettis-gaetir-enn-i-hugsunarhaetti-okkar | Húsfyllir á hádegisfundi á kvennafrídaginn á Seyðisfirði: Ójafnréttis gætir enn í hugsunarhætti okkar
Á sjötta tug kvenna sótti hádegisverðarfund á Seyðisfirði í dag sem haldinn var í tilefni kvennafrídagsins. Skipuleggjandi viðburðarins segir enn töluvert óunnið í jafnréttisbaráttunni þótt jafnrétti eigi að vera bundi... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2645-nu-er-haegt-adh-leigja-hljodhbaekur-a-bokasafninu-vonum-adh-thetta-falli-vel-i-kramidh | Nú er hægt að leigja hljóðbækur á bókasafninu: Vonum að þetta falli vel í kramið
Nokkur af almenningsbókasöfnunum á Austurlandi fengu styrk úr Samfélagssjóði Alcoa í vor til kaupa á hljóðbókum sem sárlega hefur vantað á söfnin.
Fyrsti skammturinn af bókum kom austur fyrir skemmstu og voru þær afhentar á haustfundi Aust... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2638-roleg-vika-hja-loegreglu-27okt2014 | Róleg vika hjá lögreglu
Helgin og seinni hluti síðustu viku var rólegur hjá austfirskum lögreglumönnum. Ökumenn lentu þó sums staðar í vanda í hálku í Seyðisfjarðarumdæmi.
Helst var erill í kringum brottför Norrænu en tveir flutningabílar festust á Fjarðarheiði. Í kjölfarið lentu rútur sem voru þar á ferð í vandræðum e... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2633-heydalaprestur-vill-adgerdir-til-ad-fjolga-i-thjodkirkjunni | Heydalaprestur vill aðgerðir til að fjölga í þjóðkirkjunni
Gunnlaugur Stefánsson, sóknarprestur í Heydölum í Breiðdal, leggur til að kirkjuráð skipi þriggja manna starfshóp sem vinni tillögur sem miði að því að fjölga meðlimum í þjóðkirkjunni.
Tillaga Gunnlaugs er meðal þingmála sem liggja fyrir kirkjuþingi sem hófst í... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2630-ekki-sandad-fyrir-fjarbilinn-engir-sensar-teknir-med-fulllestadha-bilana | Ekki sandað fyrir fjárbílinn: Engir sénsar teknir með fulllestaða bílana
Starfsmenn Norðlenska eru óhressir með þjónustu Vegagerðarinnar í kringum flutninga fyrirtækisins á fé leið til slátrunar. Þeir eru ekki sammála mati þjónustuaðilans á aðstæðum.
„Við erum með fulla bíla af lifandi skepnum og förum ekki upp snarbra... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2640-umferdharohapp-fyrir-framan-bonus-oemurlegt-thegar-folk-stingur-af-eftir-akeyrslu | Umferðaróhapp fyrir framan Bónus: Ömurlegt þegar fólk stingur af eftir ákeyrslu
Það óhapp átti sér stað á bílaplaninu fyrir framan Bónus á Egilsstöðum síðastliðin miðvikudag að keyrt var á bíl Fríðu Björnsdóttur, leiðbeinandi hjá Stólpa. Töluvert tjón er á bílnum og virðist sem að ökumaðurinn sem olli tjóninu hafi stun... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2637-verkfall-laekna-hja-hsa-oryggi-tryggt-en-thjonusta-skerdist | Verkfall lækna hjá HSA: Öryggi tryggt en þjónusta skerðist
Læknar verða á vakt um allt Austurland og sinna bráðaþjónustu þótt verkfall þeirra hafi hafist á miðnætti. Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands segir verkfallið ekki ógna öryggi en skerða þjónustu.
„Við fylgjum öryggismönnun, sem er skilgreind, þannig að ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2632-litil-veidi-a-fyrsta-degi-rjupnaveida-2014 | Lítil veiði á fyrsta degi rjúpnaveiða: Snéru frá út af þoku
Þoka gerði austfirskum rjúpaskyttum erfitt fyrir á fyrsta degi rjúpaveiðitímabilsins í gær. Veiðmaður segir þá sem héldu til fjalla í gær lítið hafa haft upp úr krafsinu.
„Við byrjuðum á Öxi í morgun en snérum þaðan vegna þoku. Þá fórum við yfir í Fáskrúðsfjör... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2626-buid-ad-urda-hvalinn-vid-breiddalsvik | Búið að urða hvalinn við Breiðdalsvík
Búrhvalurinn, sem rak á land við Snæhvamm í Breiðdal fyrir viku, hefur verið urðaður þar í fjörunni. Landeigandi nýtti sér rétt til að nýta tennurnar úr dýrinu.
Hvalurinn strandaði í fjörunni aðfaranótt síðasta föstudags en var lifandi þegar fyrst var byrjað að skoða hann um hádegi... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2624-jon-bjorn-rekstur-fjardabyggdar-er-thungur | Jón Björn: Rekstur Fjarðabyggðar er þungur
Forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar viðurkennir að nefndum sveitarfélagsins sé þröngur stakkur sniðinn við gerð fjárhagsáætlunar. Sveiflur í helstu atvinnustoðum sveitarfélagsins geta reynst því dýrar og vaxtakostnaður er mikill baggi á því.
„Við höfum verið bjartsýnni á að me... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2618-skogarmitill-fannst-a-stofugolfi-a-egilsstodum-thetta-er-ekki-ad-hellast-yfir-okkur | Skógarmítill fannst á stofugólfi á Egilsstöðum: Þetta er ekki að hellast yfir okkur
Lifandi skógarmítill fannst nýverið í íbúðarhúsnæði á Egilsstöðum. Sérfræðingur segir ekki nýtt að þeir finnist á Austfjörðum þótt ekki sé víst að þeir séu landlægir hér.
„Þetta er ógeðslegt kvikindi, pínulítil kúla og um sentímetri á s... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2614-jens-gardar-bydur-sig-fram-til-formanns-nyrra-landssamtaka-i-sjavarutvegi | Jens Garðar býður sig fram til formanns nýrra landssamtaka í sjávarútvegi
Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar, hefur tilkynnt að hann bjóði sig fram til formanns á sameiginlegum aðalfundi Landssambands íslenskra útvegsmanna og Samtaka fiskvinnslustöðva sem haldinn verður í lok mánaðarins. Fyrir fundi... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2608-hvasst-a-seydisfirdi-hurd-af-thorshamri-fauk-ut-a-sjo | Hvasst á Seyðisfirði: Hurð af Þórshamri fauk út á sjó
Björgunarsveitarmenn úr Ísólfi á Seyðisfirði komu til hjálpar á ellefta tímanum í morgun þegar hurð á suðurgafli hússins Þórshamars fauk upp. Bálhvasst hefur verið á Seyðisfirði í nótt og í morgun.
Svo heppilega vildi til að aðsetur björgunarsveitarinnar er í næsta ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2622-uthlutad-ur-vaxtarsamningi-haestu-styrkirnir-til-lunga-skolans-og-starfsfolk-is | Úthlutað úr Vaxtarsamningi: Hæstu styrkirnir til LungA-skólans og starfsfolk.is
LungA-lýðháskólinn sem tók til starfa á Seyðisfirði í haust og ráðningarskrifstofan og starfsmannaleigan Starfsfolk.is fengu hæstu styrkina í haustúthlutum Vaxtarsamnings Austurlands.
Átta verkefni voru styrkt að þessu sinni um alls 9,5 mil... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2617-althingi-lunga-skolinn-vaenleg-leid-til-adh-hjalpa-nemendum-ad-finna-sina-leid-i-lifinu | Alþingi: LungA skólinn vænleg leið til að hjálpa nemendum að finna sína leið í lífinu
Þingmaður Bjartrar framtíðar hrósar LungA lýðháskólanum á Seyðisfirði og telur hann geta hjálpað við að draga úr brottfalli nemenda í íslensku skólakerfi. Menntamálaráðherra segir skólann áhugavert verkefni en fara verði varlega í að ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2612-rjupnaveidhin-adh-hefjast-a-foestudag | Rjúpnaveiðin að hefjast á föstudag
Á föstudaginn hefst rjúpnaveiðitímabilið. Það stendur í 12 daga þar sem veiða má þrjá daga í senn frá föstudegi til sunnudags, fjórar helgar í röð. Síðasti veiðidagur er 16. nóvember. Ekki er víst að veðrið verði veiðimönnum hliðhollt alla dagana og mikilvægt að huga vel að því við un... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2607-tvaer-rutur-ut-af-a-fagradal-i-halku | Tvær rútur út af á Fagradal í hálku
Tvær rútur fuku út af veginum yfir Fagradal í morgun. Nokkur óhöpp hafa orðið í mikilli hálku á Austfjörðum í morgun og í gær en ekki hafa orðið slys á fólki.
Rúta með 30 starfsmenn á leið til vinnu í álverinu fór út af á Fagradal í morgun. Önnur rúta var send til að sækja fólkið en ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2621-ekki-ahyggjur-af-brennisteini-eda-fluor-i-grodri-i-byggd | Ekki áhyggjur af brennisteini eða flúor í gróðri í byggð
Niðurstöður rannsókna á grassýnum af átta austfirskum bæjum gefa ekki til kynna ástæðu til að hafa áhyggjur af brennisteini eða flúor í byggð. Meira er þó af efnunum þar en í fyrra, trúlega vegna mengunar frá eldgosinu í Holuhrauni.
Þetta kemur fram í tilkynningu... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2615-erla-dora-vogler-nyr-ferda-og-menningarmalafulltrui-djupavogs | Erla Dóra Vogler nýr ferða- og menningarmálafulltrúi Djúpavogs
Erla Dóra Vogler, jarðfræðingur og óperusöngkona, hefur verið ráðin nýr ferða- og menningarmálafulltrúi Djúpavogshrepps. Fjórtán sóttu um stöðuna sem sveitarstjórinn segir sanna að háskólamenntað fólk vilji búa á landsbyggðinni.
Ráðning Erlu Dóru tekur gild... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2611-einfalda-framsetningu-a-upplysingum-um-loftgaedi | Einfalda framsetningu á upplýsingum um loftgæði og mælum fjölgað
Framsetning upplýsinga á vefnum loftgæði.is hefur verið einfölduð en þar hafa menn fylgst með mengun frá eldgosinu í Holuhrauni.
Á forsíðu vefsins er nú hægt að sjá tölur um brennisteinsmengun frá öllum nettengdum mælum í rauntíma. Fimm slíkir eru á Austu... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2604-groftur-nordfjardarganga-halfnadur | Gröftur Norðfjarðarganga hálfnaður
Fimmtíu prósenta markinu var náð um helgina, þegar verktaki Norðfjarðarganga var búinn að sprengja rúm 50% gangaleiðarinnar. Gröfturinn hefur alla jafna gengið vel, ef undan eru skilin tvö stór setbergslög Eskifjarðarmegin, sem hafa tafið framvinduna nokkuð.
Í síðustu viku voru grafni... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2603-fjorir-slosudust-i-bilslysi-a-fagradal | Þrír lemstraðir eftir bílslys á Fagradal
Þrír voru fluttir á sjúkrahús eftir árekstur tveggja bifreiða á Fagradal á föstudagskvöld, þar af var einn sendur á Akureyri með sjúkraflugi.
Tveir bílar sem komu úr gagnstæðum áttum rákust saman og enduðu báðir utanvegar. Tveir voru í öðrum bílnum og einn í hinum. Að slysinu ko... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2599-yfirloegregluthjonninn-lagdhi-oloeglega | Yfirlögregluþjónninn lagði ólöglega: Ég vísa þessu bara til föðurhúsana. Var í fullum rétti
Opnunarhátíð Hulduhlíðar fór fram fyrir fullu húsi um helgina. Um 300 gestir samglöddust íbúum á þessum merku tímamótum og skoðuðu sig um í nýjum heimkynnum hjúkrunarheimilisins á Eskifirði.
Yfirlögregluþjónninn á Eskifirði Jóna... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2595-sjalfbodhastarfidh-skiladhi-bjoergunarsveitinni-geisla-1-2-milljonum-krona | Sjálfboðastarfið skilaði björgunarsveitinni Geisla 1,2 milljónum króna: Þetta er ekkert nema heiður
Björgunarsveitin Geisli á Fáskrúðsfirði fékk á dögunum góða og vel þegna heimsókn þegar nokkrir starfsmenn Alcoa Fjarðaáls komu ásamt fjölskyldumeðlimum til að taka til hendinni við endurbætur á aðstöðu björgunarsveitari... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2592-soelumet-i-fiskbudhinni-er-fyrst-og-fremst-thakklatur | Sölumet í fiskbúðinni: Er fyrst og fremst þakklátur
Það er nóg að gera hjá Eika í Kjöt og Fiskbúð Austurlands og það er greinilegt að íbúar á Héraði kunna að meta matseld hans því fyrir skemmstu sló Eiki sölumet í heitum mat í búðinni.
„Þetta var rosalegur dagur við seldum 126 matarskammta og það var um 44 kg af kjöti ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2602-rugl-ad-gera-a-dekkjaverkstaedum-gaetum-verid-tvofalt-fleiri-ad-vinna | „Rugl að gera" á dekkjaverkstæðum: Gætum verið tvöfalt fleiri að vinna
Biðraðir höfðu myndast á austfirskum dekkjaverkstæðum þegar starfsmenn komu þar til vinnu í morgun. Atgangur hefur verið þar í dag enda snjó kyngt niður í fjórðungnum.
„Það var komið fullt af bílum og biðröð hér fyrir utan þegar við opnuðum upp úr k... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2598-fjolmenni-vid-opnun-nys-hjukrunarheimilis-flutt-inn-a-fimmtudagur | Fjölmenni við opnun nýs hjúkrunarheimilis: Flutt inn á fimmtudag
Fjölmenni sótti opnunarhátíð nýs hjúkrunarheimilis, Hulduhlíðar, á Eskifirði í dag. Húsnæðið er talið marka ný viðmið í aðstöðu fyrir aldraða.
„Þetta er fyrsta húsið sem ríkið byggir frá grunni eftir nýjum viðmiðum velferðarráðuneytisins. Það er rýmra en ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2594-nyrri-stjorn-falid-ad-skoda-stodu-gaf | Nýrri stjórn falið að skoða stöðu GÁF
Nýrri stjórn GÁF ehf. hefur verið falið að fara yfir stöðu félagsins og gera tillögur til úrbóta. Nær engar tekjur hafa komið inn í félagið síðan það var stofnað.
„Stjórn var falið að fara ofan í saumana á þessu máli og má vænta þess að hún skili af sér tillögum til sveitarfélagann... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2591-grimsstadir-ljost-ad-ahugi-nubos-dvinar-eftir-thvi-sem-verkefnid-dregst | Grímsstaðir: Ljóst að áhugi Nubos dvínar eftir því sem verkefnið dregst
Stjórnarmenn GÁF ehf. óttast að áhugi kínverska kaupsýslumannsins Huang Nubos á að koma upp starfsemi á Grímsstöðum á Fjöllum eftir því sem verkefnið dregst á langinn. Skuldir félagsins, sem tvö austfirsk sveitarfélög eiga hlut í, námu níu milljónu... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2600-andlat-inga-rosa-thordardottir | Andlát: Inga Rósa Þórðardóttir
Inga Rósa Þórðardóttir, fyrrum deildarstjóri Svæðisútvarps Austurlands, lést á Landspítalanum í Reykjavík á fimmtudag.
Inga Rósa fæddist að Garðastræti í Reykjavík 2. desember 1954. Hún var einkabarn þeirra Þórðar Guðmundssonar frá Efri-Gerðum í Garði og Ingibjargar Guðjónsdóttur frá Hvam... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2596-hvalreki-i-breiddal-virdist-vera-i-andarslitrunum | Hvalreki í Breiðdal: Virðist vera í andarslitrunum
Þrettán metra búrhval rak á land í fjörunni innan við Snæhvamm í Breiðdal í morgun. Það er með lífsmarki en líffræðingar telja það vera að drepast. Sjaldgæft er að lifandi búrhveli reki á land.
„Það er lífsmark með honum en Páll Leifsson, sérfræðingur sem er með okkur,... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2593-vilja-fjardarheidargong-strax-a-eftir-nordfjardargongum-eda-fyrr | Vilja Fjarðarheiðargöng strax á eftir Norðfjarðargöngum eða fyrr
Bæjarstjórn Seyðisfjarðar skorar á þingmenn að tryggja að Fjarðarheiðargöng fari inn á samgönguáætlun strax að loknum Norðfjarðargöngum eða fyrr.
Þetta kemur fram í ályktun frá síðasta fundi bæjarstjórnar. Þar er þakkað fyrir þá ákvörðun að ráðast í kjarn... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2590-islensk-yfirvold-styra-rannsokninni-a-strandi-akrafells | Íslensk yfirvöld stýra rannsókninni á strandi Akrafells
Íslensk yfirvöld fara með yfirumsjón á strandi Akrafells í Reyðarfirði og Green Freezers í Fáskrúðsfirði en bæði atvikin teljast að mestu upplýst. Bæði skipin voru skráð erlendis og er venjan að hafa samráð við rannsóknaraðila í fánaríkinu.
Þetta segir Jón A. Ingó... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2585-aldrei-staerra-skip-lagst-ad-bryggju-a-nordfirdi | Aldrei stærra skip lagst að bryggju á Norðfirði
Flutningaskipið Wild Peony, sem lagðist að bryggju í Norðfjarðarhöfn á sunnudagsmorgun, er hið stærsta sem þangað hefur komið.
Skipið er skráð í Panama og smíðað árið 1998. Það er 140 metrar að lengd, 22 metrar á breidd, ristir 8,7 metra og er 9859 brúttótonn.
Að því er f... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2577-syknadur-af-akaeru-um-fjarsvik-hafdi-ekki-efni-a-ad-borga-thegar-a-reyndi | Sýknaður af ákæru um fjársvik: Hafði ekki efni á að borga þegar á reyndi
Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað karlmann á þrítugsaldri af ákæru um fjársvik með því að hafa aldrei ætlað sér að borga fyrir gistingu sem hann keypti. Dómurinn taldi manninn hafa sýnt vilja til að greiða fyrir gistinguna en ekki reynst borgun... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2572-laegri-fluorgildi-i-heysynum-ur-reydarfirdi | Lægri flúorgildi í heysýnum úr Reyðarfirði
Flúorgildi í heysýnum úr Reyðarfirði hafa lækkað verulega milli ára, að því er fram kemur í tilkynningu frá Alcoa Fjarðaáli.
Meðaltal sýna árið 2014 var 11,6 ugF/g, samanborið við 24,1 ugF/g sumarið 2013, sem er lækkun um 52%. Viðmiðunarmörk fyrir flúor í heyi samkvæmt vöktuna... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2566-steingrimur-j-vidh-haekkudum-ekki-skatta-af-mannvonsku | Steingrímur J.: Við hækkuðum ekki skatta af mannvonsku
Steingrímur J. Sigfússon, oddviti Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norðausturkjördæmi, lýsir miklum áhyggjum af þeirri stefnu sem sitjandi ríkisstjórn hafi markað með fjárlagafrumvarpi næsta árs. Hann segir greinilegt að menn séu lagðir aftur af stað til á... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2583-almannavarnir-enn-ad-throa-sms-sendingar-trulega-verid-gott-ad-senda-a-fleiri-senda | Almannavarnir enn að þróa SMS-sendingar: Trúlega verið gott að senda á fleiri senda
Viðvaranir almannavarna vegna gosmengunar á Efri Jökuldal í gær bárust ekki til allra íbúa á svæðinu. Talsmenn almannavarna segja enn verið að þróa sendingarnar.
„SMS boðin sem send voru í gær fóru á farsímasendi sem staðsettur er á Jök... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2576-notkun-endurskinsmerkja-abotavant-a-ekki-von-a-adh-notkun-endurskinsmerkja-se-oedhruvisi-a-austurlandi-en-a-hoefudhborgarsvaedhinu | Notkun endurskinsmerkja ábótavant: Þetta er svipað vítt og breitt um landið
Í könnun á vegum Vís sem var gerð í síðustu viku kemur í ljós að sex af hverjum tíu börnum og fullorðnum, eða 58% eru ekki með endurskinsmerki. Þótt hlutfallið sé allt of hátt er það töluvert betra en á sama tíma í fyrra þegar þrír af hverjum f... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2569-th-s-verktakar-thadh-hefur-alltaf-veridh-oliuskilja-vidh-thetta-hus | Þ.S. verktakar: Það hefur alltaf verið olíuskilja við þetta hús
Framkvæmdastjóri Þ.S. verktaka á Egilsstöðum er óhress með vinnubrögð Heilbrigðiseftirlits Austurlands sem hugðist beita fyrirtækið dagsektum þar sem olíuskilja væri ekki við húsnæði fyrirtækisins. Hann segir eftirlitið hafa verið með rangar teikningar í h... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2565-ottast-ad-ny-embaetti-fai-ekki-fjarmagn-til-ad-halda-uppi-obreyttri-thjonustu | Óttast að ný embætti fái ekki fjármagn til að halda uppi óbreyttri þjónustu
Forsvarsmenn austfirskra sveitarstjórna hafa áhyggjur af fjármagni til sýslumanns og lögreglustjóraembætta. Ný embætti eiga að taka til starfa um áramót. Þeir hvetja ráðherra til að standa við gefin fyrirheit um óbreytta og jafnvel eflda þjónus... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2578-mengun-i-joekuldal-maelist-3400-mikrogroemm-a-rummetra-finnum-vel-fyrir-menguninni | Mengun í Jökuldal mælist 3400 míkrógrömm á rúmmetra: Finnum vel fyrir menguninni
Íbúar í Jökuldal hafa fundið fyrir mikilli brennisteinsdíoxíð mengun frá Holuhrauni í dag og sýna mælar 3400 míkrógrömm á rúmmetra.
„Mælirinn byrjaði að pípa á milli níu og tíu í morgun, og um hádegi sýndi hann 3400 míkrógrömm á rúmmetra o... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2573-vopnafjordur-faer-mestan-byggdakvota | Vopnafjörður fær mestan byggðakvóta
Vopnafjörður er það byggðarlag á Austfjörðum sem fær mestan byggðarkvóta fyrir fiskveiðiárið 2014/15. Sjö byggðarlög á svæðinu fá kvóta.
Vopnfirðingar fá 300 tonna þorskígildiskvóta sem er hámarksúthlutun. Fimm önnur byggðarlög á landinu fá sama skammt.
Alls koma ríflega 1000 tonn af... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2568-bjarkey-gunnarsdottir-fjarlagafrumvarpid-er-fjandsamlegt-landsbygghinni | Bjarkey Gunnarsdóttir: Fjárlagafrumvarpið er fjandsamlegt landsbyggðinni
Bjarkey Gunnarsdóttir, sem situr á þingi fyrir Vinstrihreyfinguna- grænt framboð í Norðausturkjördæmi, segir flutning Fiskistofu til Akureyrar ekki vega upp á móti þeim opinberu störfum sem tapist í niðurskurði stjórnvalda á þjónustu á landsbyggði... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2564-steingrimur-j-kosningabarattan-2013-su-naest-dyrasta-i-islandssogunni | Steingrímur J.: Kosningabaráttan 2013 sú næst dýrasta í Íslandssögunni
Steingrímur J. Sigfússon, oddviti Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norðausturkjördæmi, kallar síðustu kosningabaráttu til Alþingis einhverja þá dýrustu í Íslandssögunni og þjóðin verði lengi að borga af henni.
„Síðustu kosningum var stolið ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2559-fyrirtaeki-bregdast-vid-yfirvofandi-dagsektum-og-koma-upp-oliuskiljum | Fyrirtæki bregðast við yfirvofandi dagsektum og koma upp olíuskiljum
Fyrirtækin ÞS verktakar og Rafey á Egilsstöðum hafa brugðist við kröfum Heilbrigðiseftirlits Austurlands og komið upp olíuskiljum á starfssvæði sínu. HAUST hugðist beita dagsektum ef ekki yrði bætt úr.
Bæði fyrirtækin eru með starfsstöðvar við Miðás á... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2553-fjarhopur-i-sjalfheldu-i-miklum-vatnavoxtum-i-skriddal | Fjárhópur í sjálfheldu í miklum vatnavöxtum í Skriðdal
Ríflega fjörutíu kindur eru strandaglópar úti í Grímsá í Skriðdal sem vaxið hefur gríðarlega í mikilli rigningu undanfarinn sólarhring. Eigandi kindanna segir ekkert ama að þeim og bíður þess að vatnið í ánni minnki.
„Þetta eru 40 gemlingar og 3 fullorðnar kindur s... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2546-sif-hauksdottir-radin-verkefnastjori-hja-breiddalshreppi | Sif Hauksdóttir ráðin verkefnastjóri hjá Breiðdalshreppi
Sif Hauksdóttir, skólastjóri Grunnskóla Breiðdalshrepps, hefur verið ráðin verkefnastjóri hjá sveitarfélaginu. Hún og hreppsnefndarmenn munu skipa með sér starfi sveitarstjóra.
Þetta staðfesti Hákon Hansson, oddviti hreppsnefndar, í samtali við Austurfrétt í dag.... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2542-green-freezer-dreginn-i-burtu | Green Freezer dreginn í burtu
Flutningaskipið Green Freezer er á förum frá Fáskrúðsfirði á morgun. Norskur dráttarbátur sem draga mun það til Póllands kom til Fáskrúðsfjarðar í dag.
Skipið strandaði í Fáskrúðsfirði þann 17. september síðastliðinn og var dregið af strandstað þremur dögum síðar. Stýri þess og skrúfa lösk... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2558-aetlum-vid-ad-vera-a-haelunum-i-midbaejarskipulaginu-farid-af-stad-i-byrjun-naesta-ars | Ætlum við að vera á hælunum í miðbæjarskipulaginu? Farið af stað í byrjun næsta árs
Hefja á vinnu við endurskoðun skipulags miðbæjarins á Egilsstöðum í byrjun næsta árs. Fulltrúi minnihlutans kallaði eftir pólitíski stefnumótun um málið á bæjarstjórnarfundi í síðustu viku.
„Ætlum við að vera á hælunum og taka við þessu... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2550-bedid-eftir-betra-vedri-fyrir-green-freezer-oljost-um-afdrif-akrafells | Beðið eftir betra veðri fyrir Green Freezer: Óljóst um afdrif Akrafells
Flutningaskipið Green Freezer liggur enn við bryggju á Fáskrúðsfirði en beðið er eftir betra veðri áður en það verður dregið frá landinu. Enn er óljóst um afdrif Akrafells sem er á Reyðarfirði.
Norskur dráttarbátur kom til Fáskrúðsfjarðar á laugard... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2544-austurbru-meira-hefur-farid-urskeidis-en-menn-reiknudu-med | Austurbrú: Meira hefur farið úrskeiðis en menn reiknuðu með
Fyrrum fulltrúi sveitarstjórnarmála hjá Austurbrú telur að ekki sé nóg gert til að aðgreina starf Sambands sveitarfélaga á Austurlandi og Austurbrúar í nýju skipuriti stofnunarinnar. Ánægja virðist með tillögur um breytt skipulag stofnunarinnar sem samþykktar ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2541-faekkad-i-yfirstjorn-hsa-tveir-haettir-strax | Fækkað í yfirstjórn HSA: Tveir hættir strax
Eitt og hálft stöðugildi í yfirstjórn Heilbrigðisstofnunar Austurlands verður lagt niður í skipulagsbreytingum sem nú standa yfir. Eitt stoðsvið stofnunarinnar verður lagt niður og talsverðar hrókeringar eru meðal svæðisstjóra. Tveir yfirmenn eru þegar hættir þótt breytingarn... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2556-tekjur-af-hreindyrum-duga-ekki-fyrir-rannsoknum-natturustofu-austurlands | Tekjur af hreindýrum duga ekki fyrir rannsóknum Náttúrustofu Austurlands
Heildartekjur eftirlitsaðila og landeigenda af sölu hreindýraveiðileyfa á síðasta ári voru rúmar 133 milljónir króna. Kostnaður Náttúrustofu Austurlands og Umhverfisstofnunar af rannsóknum er áþekkur en Náttúrustofan þarf að afla sértekna til að m... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2547-samkaup-stod-ekki-til-ad-loka-a-borgarfirdi | Samkaup: Stóð ekki til að loka á Borgarfirði
Framkvæmdastjóri Samkaupa segir að ekki hafi staðið til að loka verslun fyrirtækisins á Borgarfirði eystri. Nýir aðilar tóku við rekstri hennar í morgun.
„Við höfum átt í vissum vandræðum með að manna búðina," segir Ómar Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samkaupa.
Starfsmaður f... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2543-verslun-samkaupa-a-borgarfirdhi-eystri-seld-nyir-eigendur-toku-vidh-i-morgun-fengum-ekki-langan-umhugsunarfrest | Nýir eigendur tóku við kjörbúðinni á Borgarfirði í morgun: Fengum ekki langan umhugsunarfrest
Það voru heldur betur sviptingar á Borgarfirði Eystri um helgina þegar Samkaup seldi verslun sína þar á föstudaginn. Það voru hjónin Arngrímur Viðar Ásgeirsson og Þórey Sigurðardóttir sem keyptu búðina, en Borgfirðingar þekkja... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2540-vinna-hafin-vid-gerd-sameiginlegrar-vidbragdsaaetlunar-ekki-haegt-ad-vona-thad-besta-og-slappa-af | Vinna hafin við gerð sameiginlegrar viðbragðsáætlunar: Ekki hægt að vona það besta og slappa af
Vinna er hafin við gerð sameiginlegrar viðbragðsáætlunar fyrir allt Austurland vegna afleiðinga öskugoss í Bárðarbungu eða gasmengunar frá eldgosinu í Holuhrauni. Deildarstjóri almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra segir b... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2537-haekkudh-mengunargildi-a-breidhdalsvik-og-nagrenni | Hækkuð mengunargildi víða á Austurlandi í dag
Samkvæmt tilkynningu frá almannavörnum hafa háir mengunartoppar mælst nú um hádegið eða um 1400 - 1700 µg/m3 á Breiðdalsvík og nágrenni. Einnig má búast við mengun frá eldgosinu í Holuhrauni á Djúpavogi og Fáskrúðsfirði og víðar á Austurlandi í dag.
Fólk á svæðinu er beðið ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2534-landsbankinn-utibusstjorinn-a-egilsstodum-tekur-vid-a-akureyri | Landsbankinn: Útibússtjórinn á Egilsstöðum tekur við á Akureyri
Arnar Páll Guðmundsson, sem hefur verið útibússtjóri Landsbankans á Egilsstöðum, hefur verið ráðinn útibússtjóri bankans á Akureyri.
Þetta kemur fram í tilkynningu sem bankinn sendi frá sér í morgun. Um leið hyggst bankinn efla fyrirtækjaþjónustu sína á No... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2530-adolf-gudmundsson-ekki-audvelt-ad-standa-i-thessum-sporum | Adolf Guðmundsson: Ekki auðvelt að standa í þessum sporum
Framkvæmdastjóri Gullbergs á Seyðisfirði segir það ekki auðvelda aðstöðu að tilkynna um að félagið hafi verið selt til Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Hann merkir kvíða meðal starfsmanna en hluthafar hafi lagt á það áherslu að staðið yrði vörður um starfsemi á ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2527-trunadarmadur-starfsfolkid-er-hraett | Trúnaðarmaður: Starfsfólkið er hrætt
Trúnaðarmaður starfsmanna hjá Brimbergi á Seyðisfirði segir starfsmenn uggandi um framtíð sína í ljósi þeirrar þróunar sem orðið hafi annars staðar á landinu. Tækifæri felist hins vegar í því ef staðið verður við fyrirheit um áframhaldandi útgerð og vinnslu á staðnum.
„Andrúmsloftið... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2536-bleikar-og-saetar-og-lata-gott-af-ser-leidha-skorum-a-oennur-fyrirtaeki-adh-gera-eins | Bleikar og sætar og láta gott af sér leiða: Skorum á önnur fyrirtæki að gera eins!
Í tilefni af bleikum október ætla stelpurnar á hárgreiðslustofunni Hár.is í Fellabæ styðja við átakið með því að láta 100 kr. af hverri klippingu renna til Krabbameinsfélags Austurlands í október.
"Þetta er liður hjá okkur í að vekja ath... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2533-kviknadi-i-ut-fra-rafkerfi-drattarvelar | Kviknaði í út frá rafkerfi dráttarvélar
Bruni sem varð í vélaskemmu við Refsstað í Vopnafirði fyrir tveimur vikum hefur verið rakinn til bilunar í rafkerfi dráttarvélar sem stóð í skemmunni.
Þetta staðfesti Jónas Wilhelmsson, yfirlögregluþjónn á Eskifirði, við Austurfrétt í dag.
Eldur varð fyrst laus í dráttarvélinni o... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2529-gunnthor-ingvason-mikil-abyrgd-sem-fylgir-kaupum-sem-thessum | Gunnþór Ingvason: Mikil ábyrgð sem fylgir kaupunum
Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, segir hluthafa Gullbergs hafa lagt á það áherslu að útgerð og fiskvinnslu yrði haldið áfram á Seyðisfirði í viðræðum um kaup Síldarvinnslunnar á Gullbergi. Hann álítur að kaupsamningurinn endurspegli þ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2526-loegreglumanni-i-seydhisfjardharumdaemi-vikidh-fra-stoerfum-umfangsmikil-rannsokn | Grunaður um að hafa stungið sektunum í vasann: Umfangsmikil rannsókn á mögulegum brotum lögreglumanns
Lögreglumanni á Egilsstöðum var í lok ágúst vikið frá störfum vegna gruns um að hann hefði stungið sektum fyrir umferðarlagabrot í vasann. Yfirlögregluþjónn á Eskifirði, sem fer með rannsókn málsins, segir rannsóknina ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2535-kjartan-thorkelsson-grundvallaratridi-ad-vinna-vidbragdsaaetlanir-i-samvinnu-vid-ibuana | Kjartan Þorkelsson: Grundvallaratriði að vinna viðbragðsáætlanir í samvinnu við íbúana
Samráð við íbúa er lykilþáttur í gerð viðbragðsáætlana vegna eldgosa. Sú vinna tók átta ár. Íbúar hefðu viljað rýma víðar í Eyjafjallajökulsgosinu 2010.
„Við byrjuðum á hættumati árið 2002 og í framhaldinu var rýmingar- og viðbragðsá... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2531-islenskir-thjodhstigar-viknaslodhir-skilgreint-sem-eitt-besta-goengusvaedhi-landsins | Íslenskir þjóðstígar: Víknaslóðir skilgreint sem eitt besta göngusvæði landsins
Á vef Ferðamálastofu kemur fram að út er komin skýrsla um verkefnið Íslenskir þjóðstígar. Viðfangsefni þessa verkefnisins er að móta stefnu fyrir íslenskt þjóðstígakerfi en innan þess verða vinsælustu gönguleiðir landsins.
Í verkefninu er m... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2528-vilhjalmur-jonsson-vaentum-thess-adh-kaupin-styrki-atvinnulifid | Vilhjálmur Jónsson: Væntum þess að kaupin styrki atvinnulífið
Vilhjálmur Jónsson, bæjarstjóri á Seyðisfirði, væntir þess að kaup Síldarvinnslunnar á útgerðinni Gullbergi og fiskvinnslufyrirtækinu Brimbergi efli atvinnulífið á staðnum. Hann telur það skipta máli að um fyrirtæki úr nágrannabyggð sé að ræða.
„Bæjarstjórni... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2525-sildarvinnslan-kaupir-gullberg | Síldarvinnslan kaupir Gullberg UPPFÆRT
Síldarvinnslan hefur gengið frá kaupum á útgerðinni Gullbergi sem gerir út togarann Gullver og frystihúsinu Brimbergi á Seyðisfirði. Starfsfólk hefur verið boðað til fundar klukkan tíu.
Fundað var fyrr í morgun með bæjarstjórn Seyðisfjarðar fyrr í morgun.
Tíu dagar eru síðan Adolf... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2523-jon-bjorn-nyr-formadur-austurbruar-verkefnin-eru-naeg | Jón Björn nýr formaður Austurbrúar: Verkefnin eru næg
Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar í Fjarðabyggð, var í dag kjörinn nýr formaður stjórnar Austurbrúar að loknum framhaldsaðalfundi stofnunarinnar. Fyrsta verk stjórnarinnar var að ráða Jónu Árnýju Þórðardóttur áfram sem framkvæmdastjóra til áramóta.
„Við tö... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2516-vidsnuningur-a-rekstri-breiddalshrepps | Viðsnúningur á rekstri Breiðdalshrepps
Útlit er fyrir að rekstur Breiðdalshrepps sé á leið í rétta átt miðað við milliuppgjör ársins. Miðað við útgönguspá næst þó ekki takmark fjárhagsáætlunar.
Eftir 25 milljóna tap árið 2012 var talin ástæða til aðgerða enda virtust vart forsendur fyrir áframhaldandi rekstri þeirra áf... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2513-mengunarmaelum-a-austurlandi-fjolgad | Mengunarmælum á Austurlandi fjölgað
Á síðasta símafundi Almannavarna ríkisins þar sem fulltrúar almannavarna og sveitarfélaga vítt um land fá nýjustu upplýsingar um stöðu eldsumbrota í Holuhrauni og umbrota í Bárðarbungu, kom fram að fyrirhuguð uppsetning mæla víða um land til mælinga eiturefna og loftgæða.
Nú eru komn... |
http://www.austurfrett.is/frettir/2507-mikil-fjoelgun-safngesta-a-bustarfelli-eftir-adh-millidalaleidhin-var-tekin-i-notkun | Mikil fjölgun safngesta á Bustarfelli eftir að millidalaleiðin var tekin í notkun
Minjasafninu að Bustarfelli í Hofsárdal í Vopnafirði hefur nú verið lokað eftir sumarvertíðina en safnið er opið ár hvert frá 10. júní til 10. september. Austurfrétt heyrði í Berghildi Fanney Hauksdóttur safnstjóra og spurði hana hvernig ... |
Subsets and Splits
No community queries yet
The top public SQL queries from the community will appear here once available.