Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
http://www.austurfrett.is/frettir/2519-aetla-ad-faekka-postburdardogum-i-dreifbyli-ur-fimm-i-thrja
Ætla að fækka póstburðardögum í dreifbýli úr fimm í þrjá Íslandspóstur hefur óskað eftir að fækka póstburðardögum á 111 bæjum í dreifbýli við sex þéttbýlisstaði á Austfjörðum úr fimm í þrjá. Í umsókn póstsins segir meðal annars kostnaður við að þjónusta heimili í sveitum megi ekki verða óeðlilega hár. Seinni hluta júní...
http://www.austurfrett.is/frettir/2515-forsvarsmenn-almannavarna-vaentanlegir-austur-til-ad-raeda-sameiginlega-vidbragdsaaetlun
Forsvarsmenn almannavarna væntanlegir austur til að ræða sameiginlega viðbragðsáætlun Fulltrúar frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra eru væntanlegir austur á morgun til að hefja undirbúning að samræmdi viðbragðs- eða rýmingaráætlun fyrir Austurlands vegna mögulegs eldgoss í Bárðarbungu. Á aðalfundi Sambands sveita...
http://www.austurfrett.is/frettir/2510-mikil-mengun-a-djupavogi-helltist-yfir-i-morgun-og-thykknar-enn
Mikil mengun á Djúpavogi: Helltist yfir í morgun og þykknar enn Austurfrétt barst þessi mynd fyrir skemmstu sem sýnir mikla loftmengun frá eldgosinu í Holuhrauni yfir Djúpavogi. Það er engin mælir á Djúpavogi svo ekki er hægt að segja til um hversu mikil hún er, en íbúar finna greinlega fyrir sviða í augum, nef og háls...
http://www.austurfrett.is/frettir/2506-utvarpsstjori-ruv-hefur-skyldum-ad-gegna-vid-alla-landsmenn
Útvarpsstjóri: RÚV hefur skyldum að gegna við alla landsmenn Stefnt er að því að fjölga störfum á vegum Ríkisútvarpsins á landsbyggðinni um 4-5 á næstu árum. Fjárhagur stofnunarinnar er afar erfiður, skuldir miklar og stöðugt skorið niður síðustu ár. Nýr útvarpsstjóri segist vilja færa áherslurnar frá umbúðunum yfir á ...
http://www.austurfrett.is/frettir/2518-malmur-til-sveita-rydgar-vegna-eldgossins-eitthvad-sem-vid-hofum-ekki-sed-her
Málmur til sveita ryðgar vegna eldgossins: Eitthvað sem við höfum ekki séð hér Bændur í Fljótsdal hafa orðið var við að tæki þeirra ryðga óeðlilega hratt eftir að mengun tók að berast frá eldgosinu í Holuhrauni tók að berast yfir svæðið. Sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun staðfestir að tærandi efni frá gosinu geti valdi...
http://www.austurfrett.is/frettir/2514-fundi-um-framtid-postmala-frestad-hyggjast-faekka-dreifingadogum
Fundi um framtíð póstmála frestað: Hyggjast fækka dreifingadögum Ákveðið hefur verið að fresta opnum fundi um framtíð póstmála sem halda átti á Egilsstöðum í dag vegna veðurs. Til stendur að fækka dreifingardögum á Austfjörðum. Innanlandsflug hefur legið niðri í morgun og er það ástæða þess að fundurinn sem halda átti ...
http://www.austurfrett.is/frettir/2508-afangastadhurinn-austurland-tekur-a-sig-mynd-heimamadhurinn-er-algert-lykilatridhidh-i-thessu-verkefni
Áfangastaðurinn Austurland tekur á sig mynd: Heimamaðurinn er algert lykilatriði í þessu verkefni Þriggja ára sameiginlegri vinnu ferðaþjónustuaðila, sveitarfélaga og samfélagsins við að skilgreina Austurland sem áfangastað var ýtt úr vör með dagsfundi á Hótel Hildibrand í Neskaupstað miðvikudaginn 24. september s.l. V...
http://www.austurfrett.is/frettir/2505-engin-samraemd-rymingaraaetlun-til-fyrir-austurland-vegna-eldgoss
Engin samræmd rýmingaráætlun til fyrir Austurland vegna eldgoss Austfirskir sveitarstjórnarmenn telja þörf á að unnin verði sameiginleg viðbragðsáætlun fyrir allan fjórðunginn vegna mögulegs eldgoss í Bárðarbungu. Formaður Sambands sveitarfélaga (SSA) segir þörf á að hafa upplýsingarnar aðgengilegar á einum stað. „Það ...
http://www.austurfrett.is/frettir/2504-frumkvodlasetri-komid-a-fot-a-djupavogi
Frumkvöðlasetri komið á fót á Djúpavogi Nýtt frumkvöðlasetur, Djúpið, tekur til starfa á Djúpavogi á næstu dögum. Setrið verður bæði opið námsmönnum og frumkvöðlum sem vinna að nýsköpunarverkefnum. Alfa Freysdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri en hún kynnti setrið og nafn þess á opnum fundi á Djúpavogi í síðustu vi...
http://www.austurfrett.is/frettir/2500-toluvert-tjon-i-eldi-i-velageymslu-slokkvilidid-tiu-minutur-a-stadinn
Töluvert tjón í eldi í vélageymslu: Slökkviliðið tíu mínútur á staðinn Töluvert tjón varð í eldsvoða í vélageymslu við bæinn Refsstað í Vopnafirði í gærkvöldi. Slökkvistarf gekk þó vel og var slökkviliðið aðeins um tíu mínútur á staðinn. „Slökkvistarfið gekk ljómandi vel en skemman var alelda þegar við komum," segir Sö...
http://www.austurfrett.is/frettir/2494-knattspyrna-fjardabyggd-tharf-ad-byggja-stuku
Knattspyrna: Fjarðabyggð þarf að byggja stúku Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar (KFF) hefur óskað eftir liðsinni bæjaryfirvalda við að byggja stúku við Eskifjarðarvöll. Slíkt er skilyrt í leyfiskerfi Knattspyrnusambands Íslands (KSÍ) fyrir lið í fyrstu deild en þar mun Fjarðabyggð spila næsta sumar. KSÍ krefst 300 aðskili...
http://www.austurfrett.is/frettir/2489-krefjast-thess-ad-dreifingu-fluor-yfir-landareignina-verdi-haett-vandamal-alversins-ordid-ad-vandamali-okkar
Krefjast þess að dreifingu flúor yfir landareignina verði hætt: Vandamál álversins orðið að vandamáli okkar Landeigendur Áreyja í Reyðarfirði hafa farið fram á það við forsvarsmenn Alcoa Fjarðaáls að dreifingu flúor frá álverinu yfir land þeirra verði hætt. Þeir segja þau háu gildi flúor sem mælst hafa í grasi á svæðin...
http://www.austurfrett.is/frettir/2502-umtalsverd-gasmengun-a-reydarfirdi-i-nott-mengun-yfir-austurland-i-dag
Umtalsverð gasmengun á Reyðarfirði í nótt: Mengun yfir Austurland í dag Yfir 2600 míkrógrömm á rúmmetra af brennisteinsdíoxíði mældust á stöðvum í Reyðarfirði um klukkan eitt í nótt. Spáð er að mengun frá gosstöðvunum við Holuhraun leggi yfir Austurland í dag. Mengunin í nótt reis og hneig snöggt og hefur frá því um kl...
http://www.austurfrett.is/frettir/2496-88-dyr-eftir-af-hreindyraveidikvotanum-i-lok-timabils
88 dýr eftir af hreindýraveiðikvótanum í lok tímabils Alls voru 88 dýr eftir óveidd þegar hreindýraveiðitímabilinu lauk í lok laugardags. Haft var samband við yfir 600 manns síðustu dagana til að reyna að koma út veiðileyfum. Þriðjungur þeirra sem fengu úthlutað leyfum í byrjun skilaði þeim inn. Síðasti veiðidagurinn v...
http://www.austurfrett.is/frettir/2493-sigrun-blondal-nyr-formadur-ssa
Sigrún Blöndal nýr formaður SSA Sigrún Blöndal, forseti bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs, er nýr formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. Sigrún kemur ný inn í stjórnina en hún hefur verið bæjarfulltrúi Héraðslistans frá árinu 2010 og tók í vor við sem forseti bæjarstjórnar. Þrjú halda áfram úr fráfarandi stjórn, þ...
http://www.austurfrett.is/frettir/2487-mikilvaegt-ad-nyta-godar-adstaedur-til-ad-na-skipinu-af-strandstad
Mikilvægt að nýta góðar aðstæður til að ná skipinu af strandstað Sviðsstjóri hjá Umhverfisstofnun segir að mikilvægt hafi verið að ná flutningaskipinu Green Freezer af strandstað í Fáskrúðsfirði á meðan aðstæður væru þar sem bestar. Skipið var dregið á flot rétt fyrir klukkan ellefu í morgun. „Á meðan skip er fast í fj...
http://www.austurfrett.is/frettir/2501-althingi-of-mikid-um-omarkviss-vinnubrogd-og-misheppnadar-fjarfestingar-i-fjarskiptamalum
Alþingi: Of mikið um ómarkviss vinnubrögð og misheppnaðar fjárfestingar í fjarskiptamálum Þingmenn úr Norðausturkjördæmi segja það ekki ganga að þeir sem ábyrgð beri á fjarskiptaþjónustu komist upp með að vísa hver á annan. Fjöldi dæma síðustu vikur um ótryggt samband kalli á markvissari viðbrögð. Á meðan sambandið sé ...
http://www.austurfrett.is/frettir/2495-ekki-buid-ad-greina-hvad-var-i-sjonum-vid-alverid
Ekki búið að greina hvað var í sjónum við álverið Enn er beðið eftir niðurstöður efnagreiningar á mengun sem varð vart í sjónum rétt hjá álveri Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði á föstudag. Mengunin hvarf fljótt sjónum úr sjónum. Í hádeginu á föstudag tóku starfsmenn álversins eftir dökkri brák á sjónum sem líktist helst o...
http://www.austurfrett.is/frettir/2492-skiptum-lokid-a-bui-skuldathaks
Skiptum lokið á búi Skuldaþaks Ekkert fékkst upp í rúmlega þrjátíu milljóna króna kröfur í þrotabú Skuldaþaks ehf. sem skráð var með lögheimili á Reyðarfirði. Samkvæmt upplýsingum úr fyrirtækjaskrá var fyrirtækið stofnað árið 2009 með þann tilgang að leigja út atvinnuhúsnæði. Það var skráð til heimilis að Hafnargötu 3 ...
http://www.austurfrett.is/frettir/2485-green-freezer-laust-af-strandstad
Green Freezer laust af strandstað Varðskipið Þór togaði flutningaskipið Green Freezer af strandstað nú rétt fyrir klukkan ellefu í morgun. Eftir að slík tilraun mistókst fyrir sólarhring var olíu dælt úr skipinu til að létta það. Skipið strandaði við bæinn Eyri í sunnanverðum Fáskrúðsfirði klukkan átta á miðvikudagskvö...
http://www.austurfrett.is/frettir/2484-niu-maelum-baett-vid-til-ad-maela-gosmengun-a-austurlandi
Níu mælum bætt við til að mæla gosmengun á Austurlandi Keyptir hafa verið fjörtíu nýir mælar til að mæla brennisteinsmengun á landinu. Níu þeirra verður komið upp á svæðinu frá Vopnafirði til Djúpavogs á næstu dögum. Ekki verður þó hægt að fylgjast með upplýsingum frá öllum þeirra í rauntíma. Í dag eru fjórir mælar á A...
http://www.austurfrett.is/frettir/2481-mengun-i-sjonum-vid-alverid
Mengun í sjónum við álverið Áhöfn hafnsögubátsins Vattar kannar nú innihald mengunarbrákar í sjónum við álver Fjarðaáls í Reyðarfirði. Hvorki er vitað hvað er á ferðinni í sjónum né hvaðan efnið kemur. „Það er verið að skoða hvað þetta er en við vitum að þetta er ekki olía," segir Steinþór Pétursson, framkvæmdastjóri F...
http://www.austurfrett.is/frettir/2478-thor-buinn-ad-hanka-i-green-freezer
Þór tilbúinn að kippa í Green Freezer Til stendur að varðskipið Þór dragi flutningaskipið Green Freezer af strandstað í Fáskrúðsfirði á háflóði á hádegi. Landhelgisgæslan ákvað í gærkvöldi að beita íhlutunarrétti sínum eftir að útgerð skipsins hafði hætt við tilraun til að losa skipið í gærkvöldi. Í tilkynningu gæslunn...
http://www.austurfrett.is/frettir/2471-fara-fram-a-fleiri-maela-til-ad-vakta-brennisteinsmengun
Fara fram á fleiri mæla til að vakta brennisteinsmengun Forsvarsmenn austfirskra sveitastjórna virðast margir hverjir uggandi yfir því að aðeins séu mælar á tveimur stöðum til að mæla mengun frá eldgosinu í Holuhrauni. Víða er þrýst á að fjölgað verði mælum. Einn mælir er í dag á Egilsstöðum og þrír í Reyðarfirði en þe...
http://www.austurfrett.is/frettir/2483-green-freezer-adstaedur-endurmetnar-eftir-ad-taugin-slitnadi
Green Freezer: Aðstæður endurmetnar eftir að taugin slitnaði Ekki tókst að draga flutningaskipið Green Freezer af strandstað í Fáskrúðsfirði á hádegi eins og vonir stóðu til. Taug varðskipsins Þórs slitnaði við átakið. Taugin slitnaði þegar komið var yfir 100 tonna átak og því þykir ljóst að skipið sitji mjög fast á st...
http://www.austurfrett.is/frettir/2480-ohaett-ad-neyta-matjurta-af-gossvaedinu-en-betra-ad-skola-fyrst
Óhætt að neyta matjurta af gossvæðinu en betra að skola fyrst Meiri hætta er af innöndun mengunarefna frá eldgosinu í Holuhrauni heldur en neyslu matjurta í nágrenni við gosið. Betra er þó að skola jurtirnar fyrir neyslu. Mengunin er aðallega tilkomin út af brennisteinsdíoxíði sem borist hefur víða um Austurland. Í til...
http://www.austurfrett.is/frettir/2477-gagnvirkt-spakort-um-gosmengun-a-vef-vedurstofunnar-reynt-adh-auka-maelingar-i-byggd
Gagnvirkt spákort um gosmengun á vef Veðurstofunnar: Reynt að auka mælingar í byggð Aðgengi hefur verið aukið að upplýsingum um mengun frá eldgosinu í Holuhrauni á vef Veðurstofunnar. Unnið er að ráðstöfunum til að fylgjast betur með gosmengun í byggð. Síðustu daga hefur Veðurstofan birt textaspár um dreifingu mengunar...
http://www.austurfrett.is/frettir/2470-velarbilun-i-green-freezer-bedid-med-bjorgunaradgerdir
Vélarbilun í Green Freezer: Útgerðin bað um frest til að vinna björgunaráætlun Útgerð fragtskipsins sem er strandað í Fáskrúðsfirði vinnur nú að björgunaráætlun þess. Á meðan bíða björgunaraðilar átekta, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landsbjörgu. Ekki er búist við að reynt verði að toga það af strandstað í kvö...
http://www.austurfrett.is/frettir/2482-armann-hoskuldsson-miklu-meiri-likur-en-minni-a-storu-gosi-i-bardarbungu
Ármann Höskuldsson: Miklu meiri líkur en minni á stóru gosi í Bárðarbungu Eldfjallafræðingurinn Ármann Höskuldsson segir jarðvísindamenn búast við jarðhræringarnar í Bárðarbungu leiði til stórs goss þar. Slíkt myndi valda hamfaraflóði í Jökulsá á Fjöllum og rjúfa samgöngur milli Austur- og Norðurlands. „Líkurnar eru mi...
http://www.austurfrett.is/frettir/2479-adalfundur-ssa-hafinn-a-vopnafirdi
Aðalfundur SSA hafinn á Vopnafirði Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Austurlandi 2014 var settur á Vopnafirði klukkan tíu í morgun. Hann er haldinn í Vopnafjarðarskóla og stendur í tvo daga. Á fundinum eiga seturétt fulltrúar allra átta sveitarfélaganna sem eru aðilar að Sambandi sveitarfélaga á Austurlandi. Þegar he...
http://www.austurfrett.is/frettir/2474-hafa-frest-til-klukkan-sex-ad-na-green-freezer-af-strandstad
Hafa frest til klukkan sex að ná Green Freezer af strandstað Eigendum flutningaskipsins Green Freezer, sem strandaði í gærkvöldi í Fáskrúðsfirði, var í dag veittur frestur til klukkan sex til að ná skipinu af strandstað. Von er á varðskipinu Þór á strandstað um kvöldmatarleitið. Vettvangsstjórn Landhelgisgæslunnar á st...
http://www.austurfrett.is/frettir/2469-green-freezer-strand
Green Freezer strand í Fáskrúðsfirði: Ekki bráðarhætta á ferðum Flutningaskipið Green Freezer strandaði um klukkan átta í kvöld á skeri fyrir miðjum Fáskrúðsfirði sunnanverðum. Austfirskar björgunarsveitir eru komnar á staðinn en ekki er talin bráðahætta á ferðum. Ólöf Snæhólm Baldursdóttir, upplýsingafulltrúi Landsbja...
http://www.austurfrett.is/frettir/2466-hvernig-getum-vidh-baett-menntun-barnanna-okkar-illugi-raedhir-menntamal-a-opnum-fundi-a-austurlandi
Hvernig getum við bætt menntun barnanna okkar? Illugi ræðir menntamál á opnum fundum á Austurlandi Illugi Gunnarsson, menntamálaráðherra, býður íbúum Austurlands að hitta sig á opnum fundum og ræða hvernig hægt sé að bæta menntun barna á Íslandi á miðvikudaginn 17. september. Á fundunum mun menntamálaráðherra kynna hví...
http://www.austurfrett.is/frettir/2460-sms-send-taepri-klukkustund-eftir-ad-hau-gildin-maeldust-verkferlar-ekki-til-stadar
SMS send tæpri klukkustund eftir að háu gildin mældust: Verkferlar voru ekki til staðar Almannavarnir sendu farsímanotendum í Fjarðabyggð smáskilaboð með viðvörun vegna brennisteinsmengunar um klukkustund eftir að alltof há gildi mældust á svæðinu. Ekki tókst að senda skilaboðin í alla síma á svæðinu. SMS voru send í s...
http://www.austurfrett.is/frettir/2456-undirmannad-a-sjukrahusinu-a-seydisfirdi-ekki-sparnadarradstofun-ad-fara-med-thvott-i-egilsstadi
Undirmannað á sjúkrahúsinu á Seyðisfirði: Ekki sparnaðarráðstöfun að fara með þvott í Egilsstaði Starfsmenn vantar í þvottahús sjúkrahússins á Seyðisfirði auk þess þvottavélarnar þar eru að verða úr sér gengnar. Því er farið með þvottinn í Egilsstaði og hann þveginn þar. Svæðisstjóri hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands ...
http://www.austurfrett.is/frettir/2450-um-40-omerktum-kindum-ur-lodmundarfirdi-slatrad
Um 40 ómerktum kindum úr Loðmundarfirði slátrað Búið er að slátra um 40 ómerktum kindum sem komu fram í göngum í Loðmundarfirði. Matvælastofnun fór fram á aðgerðina eftir að ábendingum stofnunarinnar var ekki sinnt. Í frétt frá stofnunni kemur fram að henni hafi borist ábendingar um vanhirt fé í firðinum í vor. Áætlað ...
http://www.austurfrett.is/frettir/2464-skolathing-haldidh-i-fyrsta-skipti-a-seydhisfirdhi-i-dag
Skólaþing haldið í fyrsta skipti á Seyðisfirði í dag Athyglisverður viðburður verður á Seyðisfirði í dag kl 17: 30 þegar Seyðisfjarðarskóli stendur í fyrsta skipti fyrir skólaþingi. Allir foreldrar og forráðamenn eru boðaðir á þingið. Jafnframt eru nemendur frá 6. bekk og upp úr kallaðir til. Þessir aðilar munu, ásamt ...
http://www.austurfrett.is/frettir/2458-langhaesta-gildi-brennisteinstviildis-sem-maelst-hefur-a-islandi
Langhæsta gildi brennisteinstvíildis sem mælst hefur á Íslandi Brennisteinstvíildi (SO2) mældist 3946 μg/m3 í andrúmslofti á loftmæli við Kollaleiru í Reyðarfirði klukkan 22:20 í kvöld. Þetta er langhæsta gildi sem mælst hefur á Íslandi. Mengunin stafar frá eldgosinu í Holuhrauni. Brennisteinsmengunin hefur lagt yfir A...
http://www.austurfrett.is/frettir/2454-brennisteinsdioxid-hefur-somu-ahrif-a-dyr-og-menn
Brennisteinsdíoxíð hefur sömu áhrif á dýr og menn Matvælastofnun beinir því til dýraeigenda að verja skepnur sínar fyrir loftmengun frá eldgosinu í Holuhrauni. Mengunin hefur svipuð áhrif á dýr og menn. Í tilkynningu MAST segir meðal annars að brennisteinsdíoxíð valdi ertingu í öndunarfærum og augum. Áhrifin eru meiri ...
http://www.austurfrett.is/frettir/2449-nadu-innbrotsthjofunum-strax-naesta-dag
Náðu innbrotsþjófunum strax næsta dag Lögreglan á Egilsstöðum hafði á sunnudag hendur í hári tveggja einstaklinga sem brutust þá um nóttina inn á tvo veitingastaði í bænum. Á öðrum staðnum var stolið rúmlega 30.000 krónum en 100.000 á hinum. Þeir viðurkenndu innbrotin þegar þeir náðust. Þeir vísuðu á þýfið af öðrum sta...
http://www.austurfrett.is/frettir/2461-kerfid-klikkadi-nova-bidur-vidskiptavini-afsokunar
Kerfið klikkaði: Nova biður viðskiptavini afsökunar Farskiptafyrirtækið Nova hefur beðið viðskiptavini í Fjarðabyggð afsökunar á því að kerfi fyrirtækisins klikkaði í gær þannig að sumir viðskiptavinir þess fengu ekki viðvörun frá almannavörnum sem senda var í smáskilaboðum. „Um er að ræða tvö kerfi sem senda þessi ski...
http://www.austurfrett.is/frettir/2457-akrafellid-flutt-til-mjoeyrarhafnar
Akrafellið flutt til Mjóeyrarhafnar Til stendur að flytja Akrafell, flutningaskip Samskipa sem strandaði við Vattarnes fyrir viku, úr Eskifjarðarhöfn til Mjóeyrarhafnar í dag. Þar stendur til að afferma skipið. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Samskip sendu frá sér síðdegis. Akrafellið hefur verið bundið við bryggju ...
http://www.austurfrett.is/frettir/2451-blaa-modan-fyrri-eldgos-geyma-engin-slik-fordaemi
Bláa móðan: Fyrri eldgos geyma engin slík fordæmi Viðbragðsaðilar vinna að viðbrögðum vegna brennisteinsmengunar frá eldgosinu í Holuhrauni sem vart hefur orðið á Austfjörðum. Umhverfisstofnun skoðar hvort hægt sé að koma upp fleiri mælum á svæðinu og Veðurstofan vinnur veðurspár um hvert mengunin stefnir hverju sinni....
http://www.austurfrett.is/frettir/2447-veruleg-mengun-a-reydharfirdhi-ekkert-maeldist-a-egilsstoedhum
Veruleg mengun í Reyðarfirði: Ekkert mældist á Egilsstöðum Veruleg mengun var á Reyðarfirði í dag af völdum brennisteinsdíoxíðs úr Holuhrauni og Umhverfisstofnun hvetur fólk til að vera á varðbergi. Tveir nýir mælar hafa verið settir upp. Styrkur brennisteinsdíoxíðs í lofti fór alveg upp að efri vinnuverndarmörkum um k...
http://www.austurfrett.is/frettir/2446-boern-a-reydharfirdhi-haldi-sig-innandyra
Börn á Reyðarfirði haldi sig innandyra Hár styrkur brennisteinsdíoxíðs mældist á Reyðarfirði klukkan 14 í dag. Almannavarnir hvetja til þess að Reyðfirðingar gæti vel að sér. Hæstu toppar í mælingum dagsins fóru upp í tæp 2600µg/m3. Það mesta virðist gengið yfir og gildi fara lækkandi en óvissa er um framhaldið að sögn...
http://www.austurfrett.is/frettir/2441-ferdhamoennum-bjargadh-bjoergunarsveitir-sendar-a-rangt-fjall
Ferðamönnum bjargað: Björgunarsveitir sendar á rangt fjall Hátt í 50 manns úr björgunarsveitum á Austurlandi og höfuðborgarsvæðinu tóku þátt í að bjarga manni, sem var í sjálfheldu, og félaga hans niður af Ófeigsfjalli fyrir ofan Eskifjörð á mánudag. Samkvæmt fyrstu fréttum var maðurinn í sjálfheldu í klettabelti í Hól...
http://www.austurfrett.is/frettir/2438-aska-a-hallormsstadh
Aska á Hallormsstað? Íbúar á Hallormsstað hafa undanfarna tvo daga orðið varir við fíngert ryk sem fallið hefur á bíla. Almannavarnir eru með málið til skoðunar en eru ekki reiðubúin að staðfesta hvort um öskufall sé að ræða. Þórunn Hálfdanardóttir, íbúi á Hallormsstað, segir að fyrst hafi orðið vart við að rykið lægi ...
http://www.austurfrett.is/frettir/2432-verid-ad-meta-tjonid-a-akrafellinu
Verið að meta tjónið á Akrafellinu Einhvern tíma mun taka að meta tjónið sem varð á flutningaskipinu Akrafelli sem strandaði við Vattarnes aðfaranótt laugardags. Það liggur nú bundið við bryggju á Eskifirði. Kafarar hafa verið að skoða botn skipsins auk þess sem unnið er að því að tryggja farminn sem var um borð en han...
http://www.austurfrett.is/frettir/2443-gengidh-i-skolana-a-austurlandi
Gengið í skólana á Austurlandi Árlega taka miljónir barna þátt í Göngum í skólann-verkefninu í yfir fjörtíu löndum víðsvegar um heim. Ísland tekur nú þátt í áttunda sinn og eru þó nokkrir skólar á Austurlandi með. Verkefninu verður hleypt af stokkunum í dag miðvikudaginn 10. September og lýkur svo formlega með alþjóðle...
http://www.austurfrett.is/frettir/2440-fluor-minnkar-milli-ara
Flúor minnkar milli ára Flúor í grasi lækkaði um 19% milli ára í Reyðarfirði. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem Alcoa Fjarðaál sendi frá sér í dag. Niðurstöður fyrir flúormælingar í grasi í Reyðarfirði liggja nú fyrir eftir sumarið 2014. Alls eru framkvæmdar sex mælingar; tvær í mánuði í júní, júlí og ágúst. Með...
http://www.austurfrett.is/frettir/2437-sofnadi-vidh-styrid-a-akrafellinu
Sofnaði við stýrið á Akrafellinu Yfirstýrimaður sem var á vakt þegar Akrafellið sigldi í strand á laugardagsmorgun var sofandi þegar óhappið átti sér stað. Þetta kom fram við yfirheyrslur í gær. Áhöfn skipsins var látin blása í áfengismæla eftir strandið en ekkert mældist þar. Yfirvöld á Kýpur fara með rannsóknina þar ...
http://www.austurfrett.is/frettir/2431-blaa-modan-haestu-gildi-brennisteinsdioxids-sem-maelst-hafa-i-byggd-herlendis
Bláa móðan: Hæstu gildi brennisteinsdíoxíðs sem mælst hafa í byggð hérlendis Sóttvarnarlæknir varar fólk við mikilli áreynslu utandyra á meðan blá brennisteinstvíildismóða liggur yfir Austfjörðum. Gildi sem mældust í gær eru þau hæstu sem mælst hafa í byggð á Íslandi. Mengunin er áþekk því sem gerist í stórborgum. Meng...
http://www.austurfrett.is/frettir/2442-makrillinn-sifellt-feitari-og-stinnari
Makríllinn sífellt feitari og stinnari Makrílveiðin hjá skipunum sem landa til vinnslu í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað hefur gengið vel að undanförnu. Seinni partinn í gær var Bjarni Ólafsson AK í höfn að aflokinni löndun, Börkur NK var að veiðum og Beitir NK að landa. Beitir kom til hafnar síðastliðna n...
http://www.austurfrett.is/frettir/2439-fjardhabyggdh-tekur-i-notkun-nyjan-serutbuinn-bil-fyrir-ferdhathjonustu-fatladhra
Fjarðabyggð tekur í notkun nýjan sérútbúinn bíl fyrir ferðaþjónustu fatlaðra Ferðaþjónusta fatlaðra tók í gær notkun nýja og sérútbúna bifreið fyrir þjónustu við ferlifatlaða. Bifreiðin er í alla staði glæsileg og mikilvægur liðsauki við félagsþjónustu Fjarðabyggðar. Það var því ánægjuleg stund þegar Páll Björgvin Guðm...
http://www.austurfrett.is/frettir/2435-ekki-nema-rum-500-ar-sidan-gjoska-ur-bardarbungukerfinu-dreifdist-yfir-austurland
Ekki nema rúm 500 ár síðan gjóska úr Bárðarbungukerfinu dreifðist yfir Austurland Jarðfræðingur telur að verði gjóskugos í Bárðarbungukerfinu séu talsverðar líkur á að gjóskan dreifist í nokkrum mæli yfir Austurland miðað við fyrirliggjandi vitneskju um eldri atburði. Hann beinir því til manna að huga að hugsanlegum vö...
http://www.austurfrett.is/frettir/2430-litid-sofid-a-vattarnesi-i-gaer-myndir
Lítið sofið á Vattarnesi í gær – Myndir Tugir björgunarsveitamanna af Austurlandi tóku þátt í björgunaraðgerðum flutningaskipsins Akrafells við Vattarnes í gær. Skipið kom til hafnar á Eskifirði klukkan fjögur nótt, um sólarhring eftir að það strandaði. Það var fjölveiðiskipið Aðalsteinn Jónsson sem náði Akrafellinu á ...
http://www.austurfrett.is/frettir/2429-akrafellid-laust-af-strandstad
Akrafellið laust af strandstað Akrafellið, sem strandaði um klukkan fimm í morgun við Vattarnes, var dregið á flot rétt fyrir miðnætti á flóði af fjölveiðiskipinu Aðalsteini Jónssyni. Togarinn togaði Akrafellið áfram en hafnsögubáturinn Vöttur frá Reyðarfirði hélt í skutinn. Aðalsteinn mun toga Akrafellið inn til Reyða...
http://www.austurfrett.is/frettir/2426-a-ad-reyna-ad-toga-i-kvold-akrafellid-lausara-en-thad-var
Á að reyna að toga í kvöld: Akrafellið lausara en það var Til stendur að reyna að draga Akrafellið af strandstað við Vattarnes á flóði í kvöld. Búið er að koma taug í skipið sem virðist lausara en áður. „Varðskipið er að reyna að koma taug í afturendann og Aðalsteinn Jónsson heldur í framendann," segir Grétar Helgi Gei...
http://www.austurfrett.is/frettir/2422-sigldi-a-fullri-ferdh-a-skeridh
Sigldi á fullri ferð á skerið Allt bendir til þess að Akrafell, skip Samskipa sem strandaði í Reyðarfirði í morgun, hafi siglt á mikilli ferð beint á sker sem liggur örskammt undan landi við bæinn Vattarnes. Mjög gott veður er á strandstað og mikill viðbúnaður. Ætla má að skipið hafa verið á allt að 12 til 13 hnúta hra...
http://www.austurfrett.is/frettir/2418-lenti-upp-a-odrum-bil-a-bilastaedi-i-midbae-egilsstada
Lenti upp á annan bíl á bílastæði í miðbæ Egilsstaða Undarlegt óhapp varð í miðbæ Egilsstaða fyrir hádegið þegar ökumaður varð fyrir því óláni að keyra upp á annan bíl sem lagt var í stæði. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var ökumaðurinn að leggja bíl sínum í rólegheitum í stæði þegar honum fipaðist og steig á bensín...
http://www.austurfrett.is/frettir/2428-blaa-modhan-styrkur-brennisteinsdioxidhs-er-undir-heilsuverndarmoerkum
Bláa móðan: Styrkur brennisteinsdíoxíðs er undir heilsuverndarmörkum Haldið verður áfram mælingum á efnum úr hinni bláu móðu sem legið hefur yfir Austfjörðum í dag og í gær. Mælingar í dag sýndu ekki nákvæm gildi en ljóst er að styrkur brennisteinsdíoxíðs (SO²) í mistrinu er undir heilsuverndarmörkum. Starfsmenn Heilbr...
http://www.austurfrett.is/frettir/2425-slaemar-adstaedur-i-akrafellinu-fyrst-i-morgun-buid-ad-thetta-i-velarryminu
Slæmar aðstæður í Akrafellinu fyrst í morgun: Búið að þétta í vélarrýminu Kafarar náðu síðdegis að þétta vélarrými Akrafells, sem strandaði við Vattarnes í nótt. Ef vel gengur að dæla úr skipinu getur verið að reynt verði að ná því á flot um miðnætti. Aðstæður voru slæmar þegar fyrstu björgunarsveitarmennirnir komu um ...
http://www.austurfrett.is/frettir/2421-flutningaskip-strand-i-reydharfirdhi-mikill-leki-og-haetta-a-mengunarslysi
Flutningaskip strandaði í Reyðarfirði: Mikill leki og hætta á mengunarslysi Akrafell, skip Samskipa, strandaði á skeri við Vattarnes milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar á fimmta tímanum í morgun. Mikill leki kom að skipinu og skipverjar hafa verið fluttir um borð í björgunarskip. Allar björgunarsveitir á Austfjörðum...
http://www.austurfrett.is/frettir/2417-arni-pall-ma-ekki-vera-undir-dyntum-farra-utgerda-komid-hvada-byggdir-fa-thrifist
Árni Páll: Má ekki vera undir dyntum fárra útgerða komið hvaða byggðir fá þrifist Formaður Samfylkingarinnar segir að landsmenn verði að fara í samræður um það í hvaða átt fiskveiðistjórnunarkerfi landsins stefnir. Hann óttast að samþjöppun kvóta hafi alvarleg áhrif á byggðir landsins. „Við þurfum að teikna sjávarútveg...
http://www.austurfrett.is/frettir/2427-vilja-ekki-fa-oliu-i-vidkvaemt-lifrikid-engin-mengun-synileg
Vilja ekki fá olíu í viðkvæmt lífríkið: Engin mengun sýnileg Engin olíumengun er sýnileg á strandstað flutningaskipsins Akrafells við Vattarnes. Tæki og tól hafa verið flutt á staðinn þannig hægt sé að bregðast við ef olía byrjar að leka úr skipinu. „Það er viðkvæmt lífríki á svæðinu og við viljum ekki fá svartolíu út ...
http://www.austurfrett.is/frettir/2424-loegregla-rannsakar-tildroeg-strandsins
Lögregla rannsakar tildrög strandsins Rannsókn lögreglu á tildrögum þess að flutningaskipið Akrafell strandaði við Vattarnes snemma í morgun er að sögn á viðkvæmu stigi. Lögregla hefur rætt við skipstjórann og skipverja. „Við höfum okkar grun eða vísbendingar en getum ekkert látið uppi um það“, sagði Þórhallur Árnason,...
http://www.austurfrett.is/frettir/2419-arni-pall-tviskinnungur-ad-sla-um-sig-med-flutningi-fiskistofu-a-sama-tima-og-opinber-storf-eru-logd-nidur
Árni Páll: Tvískinnungur að slá um sig með flutningi Fiskistofu á sama tíma og opinber störf eru lögð niður Formaður Samfylkingarinnar telur talsmenn ríkisstjórnarinnar á hálum ís með að slá um sig með flutningi Fiskistofu út á land á sama tíma og þar tapist opinber störf, einkum í heilbrigðiskerfinu. Hann varar við au...
http://www.austurfrett.is/frettir/2415-arni-pall-islenska-kronan-er-kugunartaeki-gagnvart-vinnandi-folki
Árni Páll: Íslenska krónan er kúgunartæki gagnvart vinnandi fólki Formaður Samfylkingarinnar telur það borna von að Íslendingar geti búið við sambærileg lífskjör og aðrar þjóðir á Norðurlöndunum á meðan þeir notist við íslensku krónuna. Á meðan verði erfitt að sannfæra Íslendinga til að snúa aftur heim eftir nám erlend...
http://www.austurfrett.is/frettir/2413-kristjan-moller-samstada-heimamanna-forsenda-jardganga
Kristján Möller: Samstaða heimamanna forsenda jarðganga Kristján L. Möller, þingmaður Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi, segir einarða samstöðu heimamanna lykilforsendu þess að jarðgöng komi. Það sé reynsla hans af baráttu Siglfirðinga fyrir göngum. „Á Siglufirði tala menn um fyrir og eftir síld og fyrir og eftir ...
http://www.austurfrett.is/frettir/2407-nordfjardargeng-erfitt-setbergslag-tefur-verkid
Norðfjarðargöng: Erfitt setbergslag tefur verkið Erfitt setbergslag heftir nú framvindu á nýjan leik Eskifjarðarmegin. Setbergið er nú rúmlega 7 m þykkt og sýnir mjög svipaða hegðun og stóra setbergslagið sem tafði framvindu í vor. Setbergið var ekki til vandræða framan af, meðan það náði ekki upp fyrir veggi ganganna,...
http://www.austurfrett.is/frettir/2398-hreindyraveidhar-ganga-haegt-kaemi-ekkert-a-ovart-adh-thetta-yrdhi-i-sidhasta-skipti-sem-menn-fengu-adh-velja-ser-tima
Hreindýraveiðar ganga hægt: Mér kæmi hreinlega ekkert á óvart að þetta yrði í síðasta skipti sem menn fengu að velja sér tíma Hreindýraveiðitímabilið hófst 15. júlí og varir til 20. september nk. og er því ríflega hálfnað. Austurfrétt heyrði í Jóhanni G. Gunnarssyni starfsmanni Umhverfisstofnunnar á Egilsstöðum og spur...
http://www.austurfrett.is/frettir/2393-sigurdhur-bloendal-latinn
Sigurður Blöndal látinn Sigurður Blöndal, fyrrverandi skógræktarstjóri, lést á Egilsstöðum á þriðjudag á nítugasta aldursári. Sigurður fæddist 3. nóvember 1924 á Mjóanesi á Völlum. Faðir hans var Benedikt Gísli Magnússon Blöndal, kennari og bóndi, og móðir hans var Sigrún Pálsdóttir, skólastýra. Sigurður lauk stúdentsp...
http://www.austurfrett.is/frettir/2408-starfshopur-skipadur-um-gjaldtoku-i-innanlandsflugi-valdimar-o-fulltrui-austurlands
Starfshópur skipaður um gjaldtöku í innanlandsflugi: Valdimar O. fulltrúi Austurlands Valdimar O. Hermannsson, formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi og bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð, hefur verið skipaður í starfshóp innanríkisráðherra um gjaldtöku í innanlandsflugi. Gert er ráð fyrir að hópurinn skili af sér till...
http://www.austurfrett.is/frettir/2402-austfirsk-jardlog-leystu-radgatu-um-vatn-a-planetunni-mars
Austfirsk jarðlög leystu ráðgátu um vatn á plánetunni Mars Bandarískir sérfræðingar hafa notfært sér jarðlög á Austurfjörðum til að lesa út úr upplýsingum um Mars. Háskólar senda hingað hópa nemenda til að ná sér í frekari þekkingu. „Árið 2008 fengum við stórkostlegar innrauðar myndir frá Mars allir töldu sýna zeólíta....
http://www.austurfrett.is/frettir/2396-eldgosidh-i-holuhrauni-sedh-fra-fjallkolli-i-hrafnkelsdal
Eldgosið í Holuhrauni séð frá Fjallkolli í Hrafnkelsdal Hraungosið í Holuhrauni helst stöðugt þó ekkert lát sé jarðskjálftavirkni á svæðinu. Bjarminn af gosinu sést víða og fylgjast margir með úr fjarlægð. Blaðamaður Austurfréttar slóst í för með Aðalsteini Sigurðarsyni, bónda á Vaðbrekku þegar hann skellti sér upp á F...
http://www.austurfrett.is/frettir/2391-endurskodun-a-starfsemi-og-stjornskipulagi-austurbruar-tillogur-starfshattanefndar-ad-skyrast
Endurskoðun á starfsemi og stjórnskipulagi Austurbrúar: Tillögur starfsháttanefndar að skýrast Starfsháttanefnd Austurbrúar hefur sent drög að tillögum um breytingar á stjórnskipulagi og starfsemi til umsagnar hjá aðilum sem standa að sjálfseignarstofnuninni. Lokatillögur nefndarinnar verða síðan lagðar fyrir framhalds...
http://www.austurfrett.is/frettir/2406-sam-felagid-tekur-yfir-make-by-thorpid
SAM - félagið tekur yfir MAKE by Þorpið Í gær var undirritaður samningur milli Austurbrúar og SAM-félagsins, grasrótarfélags skapandi fólks á Austurlandi, sem kveður á um yfirfærslu verkefnisins MAKE by Þorpið til SAM-félagsins. Fram til þessa hefur Austurbrú hýst verkefnið sem hefur það að markmiði að efla skapandi sa...
http://www.austurfrett.is/frettir/2399-halslon-er-fullt-og-rennsli-verdhur-a-yfirfalli
Hálslón er fullt og rennsli verður á yfirfalli Íbúar við Jökulsá á Brú fengu svo hljóðandi tilkynningu frá Landsvirkjun í morgun: Hálslón er fullt og rennsli verður á yfirfalli. Eins og íbúar við Jökulsá á Brú þekkja er Jökulsáin tær bergvatnsá allt sumarið. En frá og með deginum í dag þegar lónið fylltist verður Jökul...
http://www.austurfrett.is/frettir/2394-thrainn-larusson-kaupir-valaskjalf-hugmyndin-er-adh-faera-valaskjalf-aftur-til-vegs-og-soma
Þráinn Lárusson kaupir Valaskjálf : Hugmyndin er að færa Valaskjálf aftur til vegs og sóma Eins og Austfirðingar hafa tekið eftir hefur Valaskjálf verið til sölu í þó nokkurn tíma. Loks er kominn kaupandi , en athafnamaðurinn Þráinn Lárusson festi kaup á húsinu í gær. „Ég er ekki búinn að kaupa Valaskjálf þannig lagað,...
http://www.austurfrett.is/frettir/2390-boernin-virt-adh-vettugi-i-umferdhinni
Börnin virt að vettugi í umferðinni Í vikunni hafa starfsmenn VÍS á Egilsstöðum sinnt gangbrautarvörslu á Tjarnarbraut við Egilsstaðaskóla og Fagradalsbraut. Mörg börn fara yfir götuna á þessum stöðum og hafa foreldrar áhyggjur af öryggi þeirra enda er bílum oft ekið hratt þarna um og þungaflutningar jafnframt töluverð...
http://www.austurfrett.is/frettir/2389-joekuldaelingar-flyta-smalamennsku-erum-bunir-adh-vera-i-startholunum
Jökuldælingar flýta smalamennsku: Erum búnir að vera í startholunum Í ljósi þess að gos hófst rétt eftir miðnætti í gær nyrst í Holuhrauni norður af Dyngjujökli hafa bændur á norðanverðum Jökuldal ákveðið að flýta smalamennsku um eina viku. „Við ætlum að smala og taka heim fé úr svonefndum Fjallgörðum sem afmarkast af ...
http://www.austurfrett.is/frettir/2383-fljotsdaelingar-smala-betra-ad-gera-thetta-en-gera-ekki-neitt
Fljótsdælingar smala: Betra að gera þetta en gera ekki neitt Fljótsdælingar hyggjast halda til fjalla um helgina og smala fé af innstu svæðunum. Það flýtir fyrir ef rýma þarf svæðið ef eldgos hefst við norðanverðan Vatnajökul. „Þetta sparar mönnum eins og einn dag ef það þarf að smala, hvenær sem það verður," segir Eyj...
http://www.austurfrett.is/frettir/2380-heitavatnslaust-a-ollu-veitusvaedi-hef-a-morgun
Heitavatnslaust á öllu veitusvæði HEF á morgun Heitavatnslaust verður á öllu veitusvæði Hitaveitu Egilsstaða og Fella (HEF) frá því klukkan 9:00 í fyrramálið og fram eftir degi. Verið er að tengja nýja stofnlögn hitaveitunnar í Fellabæ. Þeim tilmælum er bent til íbúa að gæta þess að neysluvatnskranar séu örugglega loka...
http://www.austurfrett.is/frettir/2375-thydingamidstod-utanrikisraduneytisins-opnud-a-seydisfirdi-vonandi-sjaum-vid-stodina-vaxa
Þýðingamiðstöð utanríkisráðuneytisins opnuð á Seyðisfirði: Vonandi sjáum við stöðina vaxa Utanríkisráðherra opnaði í gær starfsstöð þýðingamiðstöðvar ráðuneytisins á Seyðisfirði. Þrír starfsmenn munu starfa þar en stöðin er sú þriðja á landsbyggðinni. Fulltrúar ráðuneytisins segja þann mannauð sem til staðar sé hafa rá...
http://www.austurfrett.is/frettir/2387-kjoet-og-fiskbudh-austulands-lokar-oemurleg-tilfinning-adh-thurfa-adh-gera-thetta
Kjöt- og fiskbúð Austurlands lokar: Ömurleg tilfinning að þurfa að gera þetta! Kjöt- og fiskbúð Austurlands var formlega opnuð á Egilsstöðum þann 24. janúar og hefur Eiríkur Auðunn Auðunsson eða Eiki eins og hann er alltaf kallaður staðið vaktina síðan. En hann mun ekki gera það mikið lengur þar sem verslunin lokar í d...
http://www.austurfrett.is/frettir/2382-david-thor-skipadur-heradsprestur-i-austurlandsprofastsdaemi
Davíð Þór skipaður héraðsprestur í Austurlandsprófastsdæmi Biskup Íslands hefur ákveðið að skipa Davíð Þór Jónsson, guðfræðing, í embætti héraðsprests í Austurlandsprófastsdæmi. Skipunin tekur gildi frá og með 1. nóvember 2014. Davíð Þór lauk guðfræðinámi árið 2011 og starfaði eftir það sem fræðslufulltrúi Múlaprófasts...
http://www.austurfrett.is/frettir/2378-engar-busavigslur-i-va-og-me-i-ar-thetta-gengur-bara-ekki-lengur
Engar busavígslur í VA og ME í ár: Þetta gengur bara ekki lengur! Busavígslur hafa verið árviss viðburður í skólum landsins í byrjun nýs skólaárs. Skiptar skoðanir eru um ágæti þessarar hefðar sem nú eru bannaðar í Verkmenntaskóla Austurlands og Menntaskólanum á Egilsstöðum. Þessa dagana eru framhaldsskólar landsins að...
http://www.austurfrett.is/frettir/2374-mast-mikilvaegt-ad-tryggja-dyrum-hreint-vatn-ef-til-eldgoss-kemur
MAST: Mikilvægt að tryggja dýrum hreint vatn ef til eldgoss kemur Matvælastofnun hefur gefið út leiðbeiningar til dýraeigenda vegna hættu á eldgosi eldstöðinni Bárðarbungu. Hættan er hvað mest ef til öskufalls kemur. Bændur hafa verið í viðbragðsstöðu síðustu daga, klárað að heyja og jafnvel smalað fé sínu niður af hál...
http://www.austurfrett.is/frettir/2384-borun-haett-a-fjardarheidi-oheppni-ad-borinn-hitti-a-sprungu
Borun hætt á Fjarðarheiði: Óheppni að borinn hitti á sprungu Bormenn sem í sumar hafa safnað jarðsýnum af Fjarðarheiði eru hættir að bora. Borinn festist á um 420 metra dýpi. Það hefur ekki áhrif á framvindu mögulegra jarðganga undir heiðina þótt borinn hafi ekki komist jafn djúpt og vonast var eftir. „Það endaði á að ...
http://www.austurfrett.is/frettir/2381-othett-jardlog-tefja-borun-i-gegnum-fjardarheidi
Óþétt jarðlög tefja borun í gegnum Fjarðarheiði Bormenn sem safna jarðsýnum úr Fjarðarheiði hafa verið í vandræðum vegna þess hversu sprungið bergið virðist vera þegar neðar dregur. Þeir reyna að komast framhjá sprungunum með að steypa upp í bergið. „Þetta gekk fínt niður í 383 metra en eftir það höfum við þurft að ste...
http://www.austurfrett.is/frettir/2376-fann-fyrir-jardhskjalfta-i-hrafnkelsdal-eg-la-bara-upp-i-rumi-og-aetladhi-adh-fara-adh-leggja-mig-thegar-eg-fann-greinilegan-titringi-sem-bara-jokst
Fann fyrir jarðskjálfta í Hrafnkelsdal: Ég lá upp í rúmi og ætlaði að fara að leggja mig þegar ég fann greinilegan titring Jarðhræringar við Bárðabungu heldur áfram og segir Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra að jarðskjálftavirkni í norðanverðum Vatnajökli sé enn stöðug og jarðskjálftar öflugri. Jarðskjálfti af stær...
http://www.austurfrett.is/frettir/2372-skyggnst-inn-i-nordfjardargong-myndband
Skyggnst inn í Norðfjarðargöng – Myndband Hlynur Sveinsson, myndatökumaður í Neskaupstað, gægðist í gær inn í ný Norðfjarðargöng en búið er að grafa rúm 40% af heildarlengd ganganna í bergi. Í síðustu viku voru grafnir samtals 93,8 metrar, þar af 30,8 metrar Eskifjarðarmegin og 63 Norðfjarðarmegin. Alls er búið að graf...
http://www.austurfrett.is/frettir/2371-breytti-gomlu-sjoppunni-a-hallormsstad-i-isbud
Breytti gömlu sjoppunni á Hallormsstað í ísbúð Ísbúð hefur starfað í sumar á Hallormsstað þar sem söluskálinn Laufið var til húsa árum saman. Eigandi ísbúðarinnar segist hafa opnað búðina til þess að lífga upp á staðinn. „Ég keypti húsið því mér fannst ótækt að það væri lokað. Ég vildi fríkka upp á það því sjoppan er a...
http://www.austurfrett.is/frettir/2364-litidh-eldgos-hafidh-i-dyngjujoekli-budhidh-adh-virkja-bodhunaraaetlun-bjoergunarsveita-a-austurlandi
Lítið eldgos hafið í Dyngjujökli: Búðið að virkja boðunaráætlun Björgunarsveita á Austurlandi Samkvæmt fréttatilkynningu frá Almannavörnum er lítið eldgos hafið í Dyngjujökli. Búið er að virkja boðunaráætlun Björgunarsveita hér á Austurlandi. Vísindamenn Veðurstofu Íslands telja að lítið eldgos sé hafið undir sporði Dy...
http://www.austurfrett.is/frettir/2360-ferdamenn-syna-fullan-skilning-a-lokunum-a-fjollum-aldrei-meira-ad-gera-hja-halendisvaktinni
Ferðamenn sýna fullan skilning á lokunum á Fjöllum: Aldrei meira að gera hjá hálendisvaktinni Ferðamenn hafa almennt sýnt skilning og tillitssemi gagnvart lokunum á umferð um hálendið norðan Dyngjujökuls. Björgunarsveitir af Austurlandi hafa staðið vaktina síðustu daga og haft óvenju mikið að gera. „Það var mikil umfer...
http://www.austurfrett.is/frettir/2357-fjardaal-laun-stjornenda-hafa-haekkad-med-sambaerilegum-haetti-og-hja-odrum-stafsmonnum
Fjarðaál: Laun stjórnenda hafa hækkað með sambærilegum hætti og hjá öðrum stafsmönnum Upplýsingafulltrúi Alcoa Fjarðaáls segir launahækkanir stjórnenda ekki hafa verið meiri en þær sem almennir starfsmenn hafa notið. Laun hjá fyrirtækinu hafa almennt hækkað um 5% síðustu misseri. Miðað við úttekt Austurfréttar á launum...
http://www.austurfrett.is/frettir/2367-nordfjardargong-vara-vid-umferd-storra-farartaekja-vid-innkeyrsluna-til-eskifirdi
Norðfjarðargöng: Vara við umferð stórra farartækja við innkeyrsluna til Eskifjarðar Verktaki Norðfjarðarganga hefur nú hafið vinnu við að keyra í landfyllingar austan við Norðfjarðarveg (92) skammt sunnan sundlaugarinnar á Eskifirði, þar sem komið er inn í bæinn frá Reyðarfirði. Rétt á meðan verið er að stækka fyllingu...
http://www.austurfrett.is/frettir/2362-menn-tilbunir-ef-til-goss-kemur-algengast-ad-svona-kvikuinnskot-storkni-nidur-i-jordinni
Menn tilbúnir ef til goss kemur: Algengast að svona kvikuinnskot storkni niður í jörðinni Deildarstjóri almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra segir Austfirðinga vel undirbúna ef til eldgoss kemur í Bárðarbungu. Kvikuinnskot er í eldstöðinni og aðeins í 10% tilvika verða þau að eldgosum. Mögulegar afleiðingar eru samt...
http://www.austurfrett.is/frettir/2359-bardarbunga-baendur-klara-heyskap-og-eru-tilbunir-ad-smala
Bárðarbunga: Bændur klára heyskap og eru tilbúnir að smala Öskugos úr Bárðarbungu gæti haft gríðarleg áhrif á sauðfjárbændur á Austurlandi. Þeir keppast nú við að klára heyskap og þeir sem næst eru eldstöðinni undirbúa að smala fé sínu af hálendinu. „Menn eru farnir að tala saman," segir Guðrún Agnarsdóttir, bóndi á Ho...
http://www.austurfrett.is/frettir/2356-sumarfri-a-italiu-valda-seinkunn-a-opnun-hulduhlidar
Sumarfrí á Ítalíu valda seinkunn á opnun Hulduhlíðar Opnun nýs hjúkrunarheimilis á Eskifirði tefst um tvo mánuði þar sem ekki tókst að afhenda ný húsgögn í tæka tíð. Seinkunin hefur annars lítil áhrif á starfsemina. Til stóð að vígja nýja hjúkrunarheimilið á mánudaginn var, þann 18. ágúst en félagsmálanefnd Fjarðabyggð...