Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
http://www.austurfrett.is/frettir/hreindraveium-loki-rettn-dr-veidd
Hreindýraveiðum lokið: Þrettán dýr óveidd Þrettán dýr vantaði upp á að allur hreindýraveiðikvóti ársins væri veiddur. Ekki tókst að endurúthluta öllum leyfum sem skilað var á tímabilinu. Nýjar kröfur um skotpróf virtust þvælast fyrir veiðimönnum. Veiðitímabilinu lauk á fimmtudag. Alls veiddust 996, 582 kýr og 414 tarfa...
http://www.austurfrett.is/frettir/rttir-blaki-byrjar-og-ftboltanum-lkur
Íþróttir: Blakið byrjar og fótboltanum lýkur Lið Þróttar Neskaupstað í blaki hefja keppni í deildakeppninni um helgina. Félagið sendir lið til keppni í fyrstu deild karla í fyrsta skipti í mörg ár. Afturelding er gestur helgarinnar. Höttur og Fjarðabyggð leika sína síðustu leiki í knattspyrnunni í sumar. Karlaliðin spi...
http://www.austurfrett.is/frettir/melartt-fresta
Melarétt frestað Búið er að fresta Melarétt í Fljótsdal, sem vera átti á morgun, fram á sunnudag. Smalamenn í Rana hafa lent í vandræðum vegna snjóa og sóst ferðin seint. Ranamenn eru því ekki væntanlegir til byggða með fé fyrr en á morgun. Smalamenn undir Fellum héldu sinni áætlun þótt þeir hefðu ekki komist jafn inna...
http://www.austurfrett.is/frettir/ekki-hgt-a-selja-fram-gistingu-eium-n-rbta-frrennslismlum
Ekki hægt að selja áfram gistingu á Eiðum án úrbóta í frárennslismálum Heilbrigðiseftirlit Austurlands telur ekki hægt að halda áfram að selja gistingu í fyrrum húsnæði Alþýðuskólans á Eiðum án þess að gerðar verði úrbætur í frárennslismálum. Mengun mældist þar yfir mörkum í sumar. HAUST neitaði síðasta vetur að gefa ú...
http://www.austurfrett.is/frettir/sfnin-bila-til-ggerarflaga-um-stuning-vi-a-koma-upp-lyftu
Söfnin biðla til góðgerðarfélaga um stuðning við að koma upp lyftu Söfnin þrjú í Safnahúsinu á Egilsstöðum hafa biðlað til góðgerðarfélaga á svæðinu um stuðning við að koma upp lyftu til að flytja gesti á milli hæða. Aðeins er snarbrattur stigi upp á þriðju hæðina þar sem Bókasafn Héraðsbúa er til húsa. „Erindi okkar s...
http://www.austurfrett.is/frettir/vatnsleki-olli-strtjni-va-myndir
Vatnsleki olli stórtjóni í VA: Myndir Miklar skemmdir urðu á húsnæði Verkmenntaskóla Austurlands í Neskaupstað í gær þegar heitavatnsrör sprakk. Nær allt gólefni á annarri hæð eyðilagðist. Gríðarlegt tjón varð í Verkmenntaskóla Austurlands í gær þegar heitavatnsrör sprakk með þeim afleiðingum að öll önnur hæð skólans s...
http://www.austurfrett.is/frettir/opi-hs-hrasdmi-laugardag
Opið hús í héraðsdómi á laugardag Opið hús verður hjá Héraðsdómi Austurlands á laugardag milli klukkan 11 og 14 í tilefni 20 ára afmælis héraðsdómstólanna. Þar gefst almenningi kostur á að kynna sér starfsemi dómstólsins og fara í skoðunarferð um dómhúsin á Lyngási 15 á Egilsstöðum. Þá gefst gestum tækifæri til að koma...
http://www.austurfrett.is/frettir/rkisendurskoun-runeyti-arf-a-styja-hsa-betur-erfium-kvrun
Ríkisendurskoðun: Ráðuneytið þarf að styðja HSA betur í erfiðum ákvörðun Ríkisendurskoðun telur að velferðarráðuneytið verði að standa þéttar að baki ákvörðununum yfirstjórnar Heilbrigðisstofnunar Austurlands eigi að takast að halda rekstrinum innan þess ramma sem markaður er á fjárlögum. Gera verði langtímaáætlanir og...
http://www.austurfrett.is/frettir/rherra-og-vegamlastjri-fer-um-austfiri
Ráðherra og vegamálastjóri á ferð um Austfirði Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra og Hreinn Haraldsson, vegamálastjóri, sátu þrjá fundi um samgöngumál á Austurlandi í síðustu viku. Í frétt af vef ráðuneytisins segir að Ögmundur fundað með samgöngunefnd Sambands sveitarfélaga á Austurlandi þar sem því hafi verið fagn...
http://www.austurfrett.is/frettir/yrlan-reyndi-bjrgun-vi-erfiar-astur
Þyrlan reyndi björgun við erfiðar aðstæður Útkall þyrlu Landhelgisgæslunnar á slysstað í Lóni í gærkvöldi reyndi mjög á áhöfn þyrlunnar. Einn maður lést eftir að hafa fallið af hestbaki þegar hann var á leið yfir ána. Fimm ferðafélögum hans þurfti að bjarga úr sjálfheldu af eyri í ánni. Frá þessu er greint á vef Landhe...
http://www.austurfrett.is/frettir/allir-ingmenn-samfylkingarinnar-norausturkjrdmi-vilja-halda-fram
Allir þingmenn Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi vilja halda áfram Allir þingmenn Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi gefa kost á sér til endurkjörs. Fleiri sýna efstu sætunum áhuga. Þannig segist Erna Indriðadóttir, upplýsinga fulltrúi Fjarðaáls, vera að íhuga stöðu sína. „Já, ég hef ákveðið að gefa kost á mér...
http://www.austurfrett.is/frettir/heimir-orsteins-mr-fannst-vi-feigir-allt-sumar
Heimir Þorsteins: Mér fannst við feigir í allt sumar Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar féll í gær úr annarri deild karla eftir 2-3 ósigur gegn Aftureldingu á Eskifjarðarvelli. Þjálfarinn, Heimir Þorsteinsson, segir ógæfuna hafa elt liðið í allt sumar og það hafi ekkert breyst í gær. Hann telur hópinn það sterkan að liðið ...
http://www.austurfrett.is/frettir/kynningarfundur-vina-vatnajkuls
Kynningarfundur Vina Vatnajökuls Kynningafundur Vina Vatnajökuls – hollvinasamtaka Vatnajökulsþjóðgarðs verður haldinn í fundarsal Gistihússins á Egilsstöðum miðvikudaginn 12. september klukkan 16:00. Vinir Vatnajökuls eru félagasamtök sem vinna meðal annars að því að afla fjár til að styðja við rannsóknir, kynningar- ...
http://www.austurfrett.is/frettir/stiller-kemur-ekki-morgun-heldur-hinn-vi-erum-ekki-a-bija-ba-um-a-loka-sig-inni
Stiller kemur ekki á morgun heldur hinn: Við erum ekki að biðja íbúa um að loka sig inni Kvikmyndatökulið Hollívúdd-myndarinnar The Secret Life of Walter Mitty, með stórstjörnuna Ben Stiller í fararbroddi, ætlar að taka upp á Seyðisfirði á fimmtudag og föstudag. Fram kemur komið að umferð um bæinn verði takmörkuð en í ...
http://www.austurfrett.is/frettir/fannst-ltinn-jkuls-lni
Fannst látinn í Jökulsá í Lóni Karlmaður á fimmtugsaldri, sem féll í Jökulsá í Lóni á áttunda tímanum í gærkvöldi fannst látinn á fyrsta tímanum í nótt. Maðurinn var í hestaferð í um 20 manna hópi þegar atvikið átti sér stað. Björgunarsveitir frá Höfn, Djúpavogi, Fáskrúðsfirði og Breiðdalsvík voru kallaðar út. Leitað v...
http://www.austurfrett.is/frettir/skriuklaustur-rannskn-sem-kollvarpar-hugmyndum-um-starfsemi-slenskum-klaustrum
Skriðuklaustur: Rannsókn sem kollvarpar hugmyndum um starfsemi í íslenskum klaustrum Tíu ára fornleifarannsókn á rústum Skriðuklausturs í Fljótsdal er lokið. Niðurstöðurnar kollvarpa fyrirliggjandi hugmyndum um starfsemi Skriðuklausturs, sem er fyrsta íslenska klaustrið sem grafið er upp í heild sinni, og gefa nýja sýn...
http://www.austurfrett.is/frettir/engin-lyfta-safnahsinu-flk-skir-ekki-bkasafni-v-a-kemst-ekki-upp-stigann
Engin lyfta í Safnahúsinu: Fólk sækir ekki bókasafnið því það kemst ekki upp stigann Aðgengi hreyfihamlaðra að Bókasafni Héraðsbúa, sem staðsett er á þriðju hæð Safnahússins á Egilsstöðum, er verulega skert. Upp á hæðina liggur aðeins snarbrattur stigi, engar lyftur fyrir hjólastóla eru í húsinu. Dæmi eru um að fólk he...
http://www.austurfrett.is/frettir/make-it-happen-austurlandi
Make it Happen á Austurlandi Austurbrú stendur fyrir ráðstefnunni „Make it Happen” – sem er haldin í tilefni af 10 ára afmæli Menningarráðs Austurlands og til að fagna 10 ára menningarsamstarfi við Vesterålen í Noregi í lok september. Ráðstefnan er einnig lokaviðburður Evrópu-verkefnisins Creative Communities sem er un...
http://www.austurfrett.is/frettir/vara-vi-stormi-ntt
Varað við stormi í nótt Veðurstofa Íslands varar við snörpum vindhviðum á Austurlandi í nótt. Tryggingafélög hvetja fólk til að huga að lausum munum og koma í veg fyrir tjón. „Ganga þarf tryggilega frá garðhúsgögnum, trampólínum, grillum og öðrum lausum munum. Setja inn í geymslu ef kostur er, en annars að fergja. Húsb...
http://www.austurfrett.is/frettir/ngja-me-atvinnulfssningu-myndir
Ánægja með atvinnulífssýningu: Myndir Um áttaíu fyrirtæki og einstaklingar kynntu vörur sínar og þjónustu á atvinnulífssýningunni Okkar samfélag sem haldin var í Egilsstaðaskóla fyrir skemmstu. Sýningarhaldarar áætla að um þrjú þúsund gestir hafi sótt sýninguna sem stóð í tvo daga. Það var atvinnumálanefnd sveitarfélag...
http://www.austurfrett.is/frettir/illa-fari-me-gott-kjt
Illa farið með gott kjöt? Nauðsynlegt er að koma hreindýrum, sem veidd eru, sem fyrst í kælt rými til að tryggja gæði kjötsins. Mynd, sem birtist af felldu dýri á Egilsstöðum í byrjun vikunnar, hefur vakið upp spurningar um meðferð á kjötinu. Myndin, sem fréttavefur DV birti á mánudag , sýnir hauslausan skrokk dýrsins ...
http://www.austurfrett.is/frettir/sldarvinnslan-kaupir-berg-huginn-skipunum-lklega-fkka-um-eitt
Síldarvinnslan kaupir Berg-Huginn: Skipunum líklega fækkað um eitt Síldarvinnslan hf í Neskaupstað (SVN) hefur undirritað kaupsamning um kaup á öllu hlutafé í útgerðarfélagi Bergur-Huginn ehf (BH) í Vestmannaeyjum. Seljandi er hlutafélag í eigu Magnúsar Kristinssonar útgerðarmanns og fjölskyldu. Kaupverð er trúnaðarmál...
http://www.austurfrett.is/frettir/biskup-kirkjan-hefur-alla-t-bori-hag-flksins-fyrir-brjsti
Biskup: Kirkjan hefur alla tíð borið hag fólksins fyrir brjósti Biskup Íslands, sr. Agnes Sigurðardóttir, segir kirkjuna alltaf hafa haft hag fólksins að leiðarljósi. Boðskapur Jesú er að hógværð skipti meira máli en sjálfsánægjan og að menn séu sannir. „Kirkjan hefur alla tíð borið hag fólksins fyrri brjósti þótt saga...
http://www.austurfrett.is/frettir/umhverfisstofnun-a-auglsa-hreindrakjt-sem-stofnunin-selur
Umhverfisstofnun á að auglýsa hreindýrakjöt sem stofnunin selur Umhverfisstofnun ber að auglýsa það hreindýrakjöt, sem henni berst, til kaups. Nokkuð er um að stofnunin fái kjöt af dýrum sem orðið hafa fyrir slysaskotum, flækst í girðingum eða dáið af öðrum ástæðum. Frá þessu er greint í Austurglugganum sem kom út í gæ...
http://www.austurfrett.is/frettir/fjarabygg-vill-a-balnasjur-leigi-fleiri-bir-t
Fjarðabyggð vill að Íbúðalánasjóður leigi fleiri íbúðir út Sveitarfélagið Fjarðabyggð hefur hvatt Íbúðalánasjóð til að setja fleiri íbúðir á leigu. Sjóðurinn hefur að einhverju leyti brugðist við þeim umleitunum en vill frekar selja húsnæði en leigja. „Við finnum fyrir aukinn þörf fyrir leiguhúsnæði í Fjarðabyggð og sv...
http://www.austurfrett.is/frettir/busavgslur-ofbeldi-og-niurlging-ea-skemmtun-fyrir-alla
Busavígslur: Ofbeldi og niðurlæging eða skemmtun fyrir alla? Ekki eru allir á eitt sáttir um þær hefðir sem víða tíðkast í framhaldsskólum landsins við busavígslur. Deilt er um hvort þær séu skemmtun eða andlegt ofbeldi og niðurlæging. Dæmi eru um að nemendur hafi heimtað harðari busanir þegar búið hafi verið að róa þæ...
http://www.austurfrett.is/frettir/jkuldlingar-spuu-til-sn-landgrsluverlaununum
Jökuldælingar sópuðu til sín landgræðsluverðlaununum Ábúendur á tveimur bæjum á Jökuldal fengu í síðustu viku landgræðsluverðlaunin 2012. Bæði hafa þeir grætt upp eigin jarðir en einnig leitt landgræðslustarf í dalnum. Það voru Arnór Benediktsson og Ingifinna Jónsdóttir, bændur á Hvanná II, Jökuldal, Benedikt Arnórsson...
http://www.austurfrett.is/frettir/austfiringum-boi-freyska-atvinnulfssningu
Austfirðingum boðið á færeyska atvinnulífssýningu Þriggja manna sendinefnd frá Rúnavík, vinabæ Fljótsdalshéraðs, heimsótti atvinnulífssýninguna Okkar samfélag sem haldin var nýverið á Egilsstöðum. Austfirskum fyrirtækjum var á móti boðið á stærstu atvinnusýningu Færeyja í haust. Sendinefndina skipuðu þau Sæunn Ólavsdot...
http://www.austurfrett.is/frettir/smri-geirsson-a-voru-ger-hrp-a-mr-gtum-reykjavkur
Smári Geirsson: Það voru gerð hróp að mér á götum Reykjavíkur Smári Geirsson, fyrrum forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar, segist hafa sætt líflátshótunum í aðdraganda byggingar álvers Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði. Samstaða heimamanna er að hans mati forsendan fyrir að atvinnuverkefni á borð við álverið komist á laggir...
http://www.austurfrett.is/frettir/nr-leikskli-heitir-tjarnarskgur
Nýr leikskóli heitir Tjarnarskógur Nýr sameinaður leikskóli á Egilsstöðum heitir Tjarnarskógur. Nýr leikskólastjóri er kominn til starfa og unnið að því að lægja þær öldur sem sköpuðust við sameiningu leikskólanna Tjarnarlands og Skógarlanda síðasta vetur. Guðný Anna Þóreyjardóttir er nýr leikskólastjóri og kom til sta...
http://www.austurfrett.is/frettir/vegagerin-varar-vi-snj-austfirskum-heium
Vegagerðin varar við snjó á austfirskum heiðum Vegagerðin varar við snjómuggu á Fjarðarheiði og Hellisheiði eystri og mögulega einnig efst á Oddsskarði í kvöld og í nótt en mikið kuldakast gengur yfir allt landið sem kemur hvað harðast niður á Austfirðingum. „Þar sem vegir eru víða blautir eða rakir er rétt að vera á v...
http://www.austurfrett.is/frettir/fjaral-fimm-ra-fyrsti-fundurinn-me-alcoa-um-lei-og-norsk-hydro-htti-vi
Fjarðaál fimm ára: Fyrsti fundurinn með Alcoa um leið og Norsk Hydro hætti við Fyrsti fundur forsvarsmanna Alcoa og ríkisstjórnar Íslands um hugsanlegt álver í Reyðarfirði var haldinn sama dag og Norsk Hydro tilkynnti að það væri hætt við þátttöku í slíku verkefni. Æðstu stjórnendur Alcoa tóku strax þátt í viðræðunum. ...
http://www.austurfrett.is/frettir/best-af-brslunni-2012-myndir
Best af Bræðslunni 2012: Myndir Tónlistarhátíðin Bræðslan var að venju haldin á Borgarfirði eystri síðustu vikuna í júlí. Á aðalkvöldinu komu fram Contalgen Funeral, Lovely Lion, Valgeir Guðjónsson, Mugison og Fjallabræður. Hátíðin nær þó yfir fleiri kvöld og að þessu sinni voru Coney Island Babies, Tilbury og Kiryama ...
http://www.austurfrett.is/frettir/fjarabygg-fjrmlastjrinn-htti-eftir-rj-daga-starfi
Fjarðabyggð: Fjármálastjórinn hætti eftir þrjá daga í starfi Nýr fjármálastjóri Fjarðabyggðar kom til starfa eftir verslunarmannahelgina og hætti í lok þeirrar viku. Framundan er fjárhagsáætlanagerð hjá sveitarfélaginu. Austurglugginn greinir frá þessu og segir Indriða Indriðason, sem ráðinn var eftir umsóknarferli hjá...
http://www.austurfrett.is/frettir/banna-a-nota-fjrhjl-vi-hreindraveiar
Bannað að nota fjórhjól við hreindýraveiðar Ólöglegt er að fara til hreindýraveiða á fjórhjóli eða sækja á því fallna bráð. Mynd af hauslausu hreindýri á fjórhjóli sem lagt var á fjölförnu svæði á Egilsstöðum um helgina hefur fengið mikla athygli í fjölmiðlum. Samkvæmt reglum um vernd, friðum og veiðar á villtum fuglum...
http://www.austurfrett.is/frettir/magns-r-alcoa-leggur-herslu-a-n-norfjarargng-komi-sem-fyrst
Magnús Þór: Alcoa leggur áherslu á að ný Norðfjarðargöng komi sem fyrst Magnús Þór Ásmundsson, forstjóri Alcoa á Íslandi, segir fyrirtækið taka virkan þátt í íslenskri samfélagsumræðu, sérstaklega þegar um er að ræða austfirsk hagsmunamál. Samgöngu- og heilbrigðismál hafa þar farið hæst. „Við leggjum mikla áherslu á að...
http://www.austurfrett.is/frettir/stefana-kristins-strir-nju-hrasfrttablai
Stefanía Kristins stýrir nýju héraðsfréttablaði Stefanía G. Kristinsdóttir verður ritstjóri héraðsfréttablaðsins Austurlands sem hefur göngu sína í byrjun september. Blaðið tilheyrir keðju sem gefur út átta staðarfréttablöð. Blaðið verður fríblað og dreift í öll hús frá Hornafirði til Vopnafjarðar. Útgáfutíðnin hefur e...
http://www.austurfrett.is/frettir/rherra-vibinn-austfirska-kuldanum
Ráðherra óviðbúinn austfirska kuldanum Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, var ekki búin undir vísirinn að austfirska haustveðrinu sem tók á móti henni á Skriðuklaustri í gær. Ráðherrann þurfti að fá lánaðar flíkur til að halda á sér hita. „Síðan ég kom austur er ég búinn að fá þrjár flíkur lánaðar. ...
http://www.austurfrett.is/frettir/okkar-samflag-minning-til-okkar-um-a-sem-vel-er-gert
Okkar samfélag: Áminning til okkar um það sem vel er gert Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs segir atvinnulífssýninguna Okkar samfélag, sem sett var í Egilsstaðaskóla í morgun, ekki síst vera áminningu til íbúa á svæðinu um það sem vel er gert í samfélaginu. „Okkur hættir til að sjá ekki það sem vel er ger...
http://www.austurfrett.is/frettir/ssa-lgbanni-akstur-sternu-fylgt-eftir-me-skaabtamli
SSA: Lögbanni á akstur Sternu fylgt eftir með skaðabótamáli? Samband sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) er reiðubúið að fylgja eftir lögbanni á áætlunarakstur Sterna milli Hafnar og Egilsstaða með skaðabótamáli verði aksturinn ekki stöðvaður. Framkvæmdastjóri rútufyrirtækisins hefur lýst því yfir að það ætli að halda áf...
http://www.austurfrett.is/frettir/tekjur-austfiringa-2012-fjarabygg
Tekjur Austfirðinga 2012: Fjarðabyggð Agl.is birtir í dag árlega samantekt á tekjum Austfirðinga. Teknir eru tekjuhæstu einstaklingar hvers sveitarfélags auk nokkurra einstaklinga úr samfélaginu til að sýna betri þverskurð á samsetningu samfélaganna. Sjómenn, lykilstarfsmenn Alcoa-Fjarðaáls og læknar eru áberandi í top...
http://www.austurfrett.is/frettir/tekjur-austfiringa-2012-fljtsdalshra
Tekjur Austfirðinga 2012: Fljótsdalshérað Agl.is birtir í dag árlega samantekt á tekjum Austfirðinga. Teknir eru tekjuhæstu einstaklingar hvers sveitarfélags auk nokkurra einstaklinga úr samfélaginu til að sýna betri þverskurð á samsetningu samfélaganna. Sjómenn, lykilstarfsmenn Alcoa-Fjarðaáls og læknar eru áberandi í...
http://www.austurfrett.is/frettir/hrasskjalasafni-hefur-ekki-efni-a-vera-me-ormsteiti
Héraðsskjalasafnið hefur ekki efni á að vera með í Ormsteiti Héraðsskjalasafn Austurlands tekur ekki þátt í Héraðshátíðinni Ormsteiti að þessu sinni eins og undanfarin ár. Gjarnan hefur það verið með í veglegri dagskrá í Safnahúsinu á Egilsstöðum. Ástæðan er bágur fjárhagur safnsins. „Orsakast það af samdrætti í rekstr...
http://www.austurfrett.is/frettir/laxarennan-vi-steinbogann-tilbin
Laxarennan við Steinbogann tilbúin Laxarennan við svonefndan Steinboga í Jökulsá á Dal er tilbúin og var opnuð fyrir verslunarmannahelgi. Laxar eru farnir að veiðast fyrir ofan bogann. Fram kemur á vef veiðiþjónustunnar Strengja að veiði hafi gengið vel fyrstu dagana eftir opnun fiskrennunnar. Suma dagana hefur allt að...
http://www.austurfrett.is/frettir/tekjur-austfiringa-2012-vopnafjararhreppur
Tekjur Austfirðinga 2012: Vopnafjarðarhreppur Agl.is birtir í dag árlega samantekt á tekjum Austfirðinga. Teknir eru tekjuhæstu einstaklingar hvers sveitarfélags auk nokkurra einstaklinga úr samfélaginu til að sýna betri þverskurð á samsetningu samfélaganna. Sjómenn, lykilstarfsmenn Alcoa-Fjarðaáls og læknar eru áberan...
http://www.austurfrett.is/frettir/tekjur-austfiringa-2012-seyisfjrur
Tekjur Austfirðinga 2012: Seyðisfjörður Agl.is birtir í dag árlega samantekt á tekjum Austfirðinga. Teknir eru tekjuhæstu einstaklingar hvers sveitarfélags auk nokkurra einstaklinga úr samfélaginu til að sýna betri þverskurð á samsetningu samfélaganna. Sjómenn, lykilstarfsmenn Alcoa-Fjarðaáls og læknar eru áberandi í t...
http://www.austurfrett.is/frettir/portgalskar-herotur-vi-fingar-egilsstum
Portúgalskar herþotur við æfingar á Egilsstöðum Íbúar á Egilsstöðum hafa orðið var við töluverðan hávaða nokkrum sinnum í dag sem kemur frá flugvellinum. Portúgalskar herþotur hafa þar verið við æfingar. Tæplega sjötíu manna hópur frá portúgalska lofthernum kom hingað til lands í byrjun vikunnar með sex F-16 orrustuþot...
http://www.austurfrett.is/frettir/tour-de-ormurinn-hjlreiakeppni-umhverfis-lagarfljti
Tour de Ormurinn: Hjólreiðakeppni umhverfis Lagarfljótið UÍA, í samstarfi við ferðaþjónustufyrirtækið Austurför og með stuðningi Fljótsdalshéraðs og Fljótsdalshrepps, stendur fyrir hjólreiðakeppninni Tour de Ormurinn sunnudaginn 12. ágúst. Boðið verður upp á 68 og 103 km leiðir. Keppendur verða ræstir úr Hallormsstaðar...
http://www.austurfrett.is/frettir/tekjur-austfiringa-2012-djpavogshreppur
Tekjur Austfirðinga 2012: Djúpavogshreppur Agl.is birtir í dag árlega samantekt á tekjum Austfirðinga. Teknir eru tekjuhæstu einstaklingar hvers sveitarfélags auk nokkurra einstaklinga úr samfélaginu til að sýna betri þverskurð á samsetningu samfélaganna. Sjómenn, lykilstarfsmenn Alcoa-Fjarðaáls og læknar eru áberandi ...
http://www.austurfrett.is/frettir/tekjur-austfiringa-2012-fljtsdalshreppur
Tekjur Austfirðinga 2012: Fljótsdalshreppur Agl.is birtir í dag árlega samantekt á tekjum Austfirðinga. Teknir eru tekjuhæstu einstaklingar hvers sveitarfélags auk nokkurra einstaklinga úr samfélaginu til að sýna betri þverskurð á samsetningu samfélaganna. Sjómenn, lykilstarfsmenn Alcoa-Fjarðaáls og læknar eru áberandi...
http://www.austurfrett.is/frettir/tekjur-austfiringa-2012-borgarfjararhreppur
Tekjur Austfirðinga 2012: Borgarfjarðarhreppur Agl.is birtir í dag árlega samantekt á tekjum Austfirðinga. Teknir eru tekjuhæstu einstaklingar hvers sveitarfélags auk nokkurra einstaklinga úr samfélaginu til að sýna betri þverskurð á samsetningu samfélaganna. Sjómenn, lykilstarfsmenn Alcoa-Fjarðaáls og læknar eru ábera...
http://www.austurfrett.is/frettir/einleikurinn-pabbi-er-dinn-sndur-seyisfiri
Einleikurinn Pabbi er dáinn sýndur á Seyðisfirði Einleikurinn Pabbi er dáinn verður sýndur í Bláu kirkjunni á Seyðisfirði þriðjuagskvöldið 31. júlí klukkan 20:00. Tveir íslenskir leiklistarnemar ferðast hringinn með leikritið. Verkið fjallar um hinn 26 ára gamla Kára sem heimsækir leiði föður síns, mánuði eftir andlát ...
http://www.austurfrett.is/frettir/ekkert-lgbann-fiskveginn
Ekkert lögbann á fiskveginn Sýslumaðurinn á Seyðisfirði hefur vísað frá kröfu landeigenda neðan við svonefndan Steinboga í Jökulsá á Dal að lögbann verði sett á framkvæmdir við fiskveg um Steinbogann. Þær upplýsingar fengust hjá embættinu í dag að lögbannskröfunni hefði verið vísað frá þar sem hún hefði ekki verið tali...
http://www.austurfrett.is/frettir/arionbaki-styur-atvinnulfssninguna-okkar-samflag
Arionbaki styður atvinnulífssýninguna Okkar samfélag Í vikunni var undirritaður samningur milli Arion banka á Egilsstöðum og sveitarfélagsins Fljótsdalshéraðs um að bankinn verði einn af aðalbakhjörlum atvinnulífssýningarinnar Okkar samfélags sem haldin verður á Egilsstöðum 18. og 19. ágúst. Sýningin Okkar samfélag er ...
http://www.austurfrett.is/frettir/tekjur-austfiringa-2012-breidalshreppur
Tekjur Austfirðinga 2012: Breiðdalshreppur Agl.is birtir í dag árlega samantekt á tekjum Austfirðinga. Teknir eru tekjuhæstu einstaklingar hvers sveitarfélags auk nokkurra einstaklinga úr samfélaginu til að sýna betri þverskurð á samsetningu samfélaganna. Sjómenn, lykilstarfsmenn Alcoa-Fjarðaáls og læknar eru áberandi ...
http://www.austurfrett.is/frettir/lgreglan-um-300-manns-blsu-borgarfiri
Lögreglan: Um 300 manns blésu á Borgarfirði Tæplega 300 manns blésu í öndunarmæla lögreglunnar áður en þeir keyrðu af stað frá Borgarfirði eystri í gærmorgun að lokinni tónlistarhátíðinni Bræðslunni. Eftir að nokkrir ökumenn höfðu verið stöðvaðir á Héraði ákvað lögreglan að kanna þá alla. Það olli talsverðum töfum á um...
http://www.austurfrett.is/frettir/fari-fram-lgbann-framkvmdum-vi-steinboga
Farið fram á lögbann á framkvæmdum við Steinboga Landeigendur neðan Steinbogans í Jökulsá á Dal hafa sent sýslumanni kröfu um að lögbann verði sett á framkvæmdir við laxastiga við bogann. Þeir segja gögn vanta sem sanni að framkvæmdirnar hafi þau áhrif sem ætlast er til. Framkvæmdaaðilar hafa óskað eftir að breytingum ...
http://www.austurfrett.is/frettir/mtmla-uppsgnum-sjkralia-sundab
Mótmæla uppsögnum sjúkraliða í Sundabúð Austurlandsdeild Sjúkraliðafélags Íslands mótmælir harðlega boðuðum uppsögnum sjúkraliða á hjúkrunarheimilinu Sundabúð Vopnafirði og þeim breytingum á rekstrarfyrirkomulagi hjúkrunarheimilisins sem Heilbrigðisstofnun Austurlands boðar. Þetta kemur fram í ályktun sem stjórnin send...
http://www.austurfrett.is/frettir/ssa-fkk-lgbann-akstur-sternu-fyrirtki-sinnti-ekki-vivrunum
SSA fékk lögbann á akstur Sternu: Fyrirtækið sinnti ekki viðvörunum Samband sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) fékk lögbann á akstur Sternu á leiðinni Egilsstaðir-Höfn-Egilsstaðir. Rúta fyrirtækisins var ekki kyrrsett á Egilsstöðum í gær. Fyrirtækið skoðar rétt sinn. „Um áramótin 2011 – 2012 tók Samband sveitarfélaga á ...
http://www.austurfrett.is/frettir/allir-stoppair-og-ltnir-blsa-vi-eia-klukkutma-tf-umfer
Allir stoppaðir og látnir blása við Eiða: Klukkutíma töf á umferð Miklar tafir urðu á umferð um Eiðaþinghá eftir hádegi í dag þegar lögreglan stöðvaði alla vegfarendur og lét þá blása. Flestir voru að koma af tónlistarhátíðinni Bræðslunni sem haldin var á Borgarfirði um helgina. Vegfarendur gagnrýna hvernig staðið var ...
http://www.austurfrett.is/frettir/bar-hafa-hyggjur-af-gangi-hreindra-suurfjrum
Íbúar hafa áhyggjur af ágangi hreindýra á suðurfjörðum Ágangur hreindýra á sunnanverðum Austfjörðum hefur aukist nokkuð í vetur. Bændur í Breiðdal hafa kvartað undan áganginum og á Stöðvarfirði óttast menn um skógrækt. Hrafn Baldursson, íbúi á Stöðvarfirði, viðrar áhyggjur sínar af ágangi hreindýranna í bréfi sem hann ...
http://www.austurfrett.is/frettir/hreindraveii-hafin-fyrsti-tarfurinn-felldur-breidal
Hreindýraveiði hafin: Fyrsti tarfurinn felldur í Breiðdal Hreindýraveiðitímabilið hófst í gær en fram að mánaðarmótum er aðeins heimilt að fella tarfa. Sá fyrsti náðist í Breiðdal. Fyrsti tarfurinn náðist strax á miðnætti í gær. Hann vó 100 kg og var skotinn á 50 metra færi í Breiðdal. Eiður Gísli Guðmundsson var leiðs...
http://www.austurfrett.is/frettir/eldur-kom-upp-b-reyarfiri
Eldur kom upp í íbúð á Reyðarfirði Par með ungt barn komst út úr íbúð sinni á Reyðarfirði eftir að eldur kom þar upp í gærmorgun. Faðirinn náði að slökkva eldinn áður en slökkviliðið kom á staðinn. Eldurinn kom upp á baðherbergi en barnið var þar inni. Faðirinn kom því út og slökkti eldinn. Hann var fluttur á Fjórðungs...
http://www.austurfrett.is/frettir/tjrvi-hrafnkels-httur-bjarstjrn-einbeitir-sr-a-fyrirtkinu
Tjörvi Hrafnkels hættur í bæjarstjórn: Einbeitir sér að fyrirtækinu Tjörvi Hrafnkelsson, bæjarfulltrúi Héraðslistans, hefur sagt af sér embætti. Ástæðuna segir hann vera miklar annir í fyrirtækjum sínum sem starfa í tölvugeiranum. Tjörvi hefur verið í leyfi af þessum sökum frá bæjarstjórninni síðan í september. Þetta k...
http://www.austurfrett.is/frettir/einelti-fsn-m-g-ekki-bara-vera-frii
Einelti á FSN: Má ég ekki bara vera í friði? Starfsmaður hjúkrunardeildar Fjórðungssjúkrahússins Neskaupstað (FSN) segist hafa upplifað sig sem fórnarlamb eineltis þau þrjú ár sem hún hafi unnið á deildinni. Hún hafi ítrekað kvartað yfir framkomunni við sig en ekkert breyst. Úrræðaleysi valdi því að ekkert sé gert. „Þa...
http://www.austurfrett.is/frettir/ofveii-gnar-makrlstofninum
Ofveiði ógnar makrílstofninum Hætta er að makrílstofninn hrynji verði áfram veitt úr honum meira en Hafrannsóknarstofnunin leggur til. Hlýnun sjávar ógnar loðnustofninum. Þorskstofninn er á uppleið eftir mögur ár. Þetta kom fram á opnum fundi sem Hafrannsóknarstofnun hélt á Eskifirði í dag um ástand fiskistofna á Íslan...
http://www.austurfrett.is/frettir/hallarekstur-safnahsinu
Hallarekstur í Safnahúsinu Milljóna tap varð á rekstri bæði Héraðsskjalasafns Austurlands og Minjasafns Austurlands á síðasta ári. Tapið á rekstri Héraðsskjalasafnsins í fyrra varð 5,3 milljónir króna. Í fundargerð stjórnar safnsins segir að hallareksturinn sé tilkominn vegna lægri tekna en ráð var fyrir gert og aukins...
http://www.austurfrett.is/frettir/gmaflagi-tali-fyrir-a-fylgja-ekki-starfsleyfi
Gámafélagið átalið fyrir að fylgja ekki starfsleyfi Bæjaryfirvöld á Fljótsdalshéraði átelja Íslenska gámafélagið fyrir að fylgja ekki skilyrðum sem sett voru í starfsleyfi moltugeymslu fyrirtækisins í Mýnesi. Heilbrigðiseftirlit Austurlands gerði alvarlegar athugasemdir við aðkomu að svæðinu í eftirlitsferð sinni fyrir...
http://www.austurfrett.is/frettir/herds-orgeirsdttir-forsetinn-ekki-a-sitja-lengur-en-8-r
Herdís Þorgeirsdóttir: Forsetinn á ekki að sitja lengur en í 8 ár Herdís Þorgeirsdóttir, forsetaframbjóðandi, heimsótti Austurland á dögunum. Á hraðri yfirferð um byggðakjarna Austurlands kom hún víða við og heimsótti fyrirtæki og stofnanir. Austurglugginn fylgdist með Herdísi er hún var stödd í ALCOA Fjarðaál á föstud...
http://www.austurfrett.is/frettir/opinn-fundur-hj-hafr
Opinn fundur hjá Hafró Hafrannsóknastofnunin boðar til opins fundar um veiðiráðgjöf komandi fiskveiðiárs og starfsemi stofnunarinnar á Mjóeyri (Randulffssjóhúsi), Eskifirði, laugardaginn 16. júní kl. 14:00. Jóhann Sigurjónsson ásamt sérfræðingum mun kynna nýútkomna skýrslu stofnunarinnar. Að erindum loknum verður opnað...
http://www.austurfrett.is/frettir/orkell-httur-hj-austurbr-eftir-aeins-rj-mnui-starfi
Þorkell hættur hjá Austurbrú eftir aðeins þrjá mánuði í starfi Þorkell Pálsson hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri Austurbrúar eftir aðeins þrjá mánuði í starfi. Í tilkynningu segir að samkomulag hafi orðið milli hans og stjórnar um að nýr aðili leiði stofnunina næstu skrefin. Í lok júní sendu starfsmenn stofnu...
http://www.austurfrett.is/frettir/fjararl-flytur-t-mesta-vrumagn-slandi
Fjarðarál flytur út mesta vörumagn á Íslandi Fjarðaál flutti út vörur fyrir um 95 milljarða króna á síðasta ári. Ál nemur um 40% af öllum vöruútflutningi frá landinu, sem er svipað hlutfall og útflutningur sjávarafurða, og nemur hlutur Fjarðaáls í honum um 17 prósentum. Ekkert annað fyrirtæki flytur út meira vörumagn. ...
http://www.austurfrett.is/frettir/bjrn-bjarstjri-akkai-fyrir-skilning-nausynlegum-agerum-til-a-taka-skuldum
Björn bæjarstjóri þakkaði fyrir skilning á nauðsynlegum aðgerðum til að taka á skuldum Björn Ingimarsson notaði tækifærið í hátíðarræðu sinni við 17. júní hátíðarhöldin á Egilsstöðum í dag til að þakka fyrir skilning og samstarf sem hefði einkennt vinnu við að taka á skuldavanda sveitarfélagsins Fljótsdalshéraðs. Björn...
http://www.austurfrett.is/frettir/balnasjur-tlar-a-setja-rflega-50-austfirskar-eignir-slu
Íbúðalánasjóður ætlar að setja ríflega 50 austfirskar eignir í sölu Íbúðalánasjóður hefur sett, eða er að setja, 54 húseignir í sölumeðferð á svæðinu frá Langanesbyggð til Hornafjarðar. Sjóðurinn á 237 eignir á svæðinu. Frá þessu er greint í nýjasta tölublaði Austurgluggans. Óvíst er hvort og hver áhrifin verða á faste...
http://www.austurfrett.is/frettir/opi-hs-veiihsinu-rhvammi-vi-hofs-vopnafiri
Opið hús í veiðihúsinu Árhvammi við Hofsá, Vopnafirði Opið hús verður í veiðihúsinu Árhvammi við Hofsá í Vopnafirði á morgun en í vetur hafa staðið yfir framkvæmdir við húsið. Eftir breytingu á húsinu er boðið upp á 7 tveggja manna herbergi með baði, þar af eitt herbergi með aðgengi fyrir hjólastól, og tvö eins manns h...
http://www.austurfrett.is/frettir/kersmija-opnu-vi-lveri-reyarfiri
Kersmiðja opnuð við álverið á Reyðarfirði Ný kersmiðja var opnuð við álver Alcoa á Reyðarfirði í dag. Iðnaðarráðherra ásamt forstjóra álversins klipptu á borða í tilefni þess. Nýja kersmiðjan var opnuð með pompi og prakt, veitingar og skemmtiatriði voru ekki af verri kantinum við athöfnina. Bergþór Pálsson lét sjá sig ...
http://www.austurfrett.is/frettir/hafnir-skipa-eskju-er-a-flagslegt-rttlti-a-hafa-af-okkur-atvinnu
Áhafnir skipa Eskju: Er það félagslegt réttlæti að hafa af okkur atvinnu? Áhafnir skipa Eskju á Eskfirði sameinast í mótmælum gegn fyrirhuguðum breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Þær styðja aðgerðir útvegsmanna sem lagst hafa hart gegn breytingunum. „Er það „félagslegt réttlæti“ og nýliðun að hafa af okkur atvinn...
http://www.austurfrett.is/frettir/fiskimjlsverksmija-eskju-rafvdd-framkvmt-fyrir-hlfan-milljar-krna
Fiskimjölsverksmiðja Eskju rafvædd: Framkvæmt fyrir hálfan milljarð króna Eskja hf. hyggst í sumar ráðast í rafvæðingu fiskimjölsverksmiðjunnar á Eskifirði. Verkið er talið kosta um hálfan milljarð króna. Fjármálastjóri fyrirtækisins segir það gefa því samkeppnisforskot að geta auglýst að það noti endurnýjanlega orku. ...
http://www.austurfrett.is/frettir/dorrit-vildi-ekki-a-lafur-htti-vi-a-htta
Dorrit vildi ekki að Ólafur hætti við að hætta Dorrit Moussaieff, forsetafrú, gaf skýrt til kynna að hún hefði verið ósammála ákvörðun eiginmanns síns, Ólafs Ragnars Grímssonar, um að gefa áfram kost á sér sem forseti Íslands. Ólafur gaf til kynna í nýársvarpi sínu að hann ætlaði að hætta en snérist hugur eftir að hafa...
http://www.austurfrett.is/frettir/starfsmenn-mjlverksmiju-eskju-hefur-etta-flk-nokkru-sinni-stigi-um-bor-skip
Starfsmenn mjölverksmiðju Eskju: Hefur þetta fólk nokkru sinni stigið um borð í skip? Starfsmenn fiskimjölsverksmiðju Eskju furða sig á upphrópun ýmissa álitsgjafa gegn sjávarútvegsfyrirtækjum og starfsmönnum þeirra. Þeir skora á ríkisstjórn Íslands að draga til baka frumvörp um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu....
http://www.austurfrett.is/frettir/ra-arnrs-vissi-ekki-af-ngju-hinna-frambjandanna-me-fyrirkomulag-kapprnanna
Þóra Arnórs: Vissi ekki af óánægju hinna frambjóðandanna með fyrirkomulag kappræðnanna Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi, segist ekki hafa vitað af ósætti mótframbjóðenda sinna Ara Trausta Guðmundssonar, Herdísar Þorgeirsdóttur, Andreu Ólafsdóttur og Hannesar Bjarnasonar með fyrirkomulag sjónvarpskappræðna á Stöð ...
http://www.austurfrett.is/frettir/stefn-bogi-skilur-fyrrverandi-forstisrherra-ekki-hugtaki-stostofnun
Stefán Bogi: Skilur fyrrverandi forsætisráðherra ekki hugtakið stoðstofnun? Stefán Bogi Sveinsson, forseti bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs, segir nýlegan leiðara í Morgunblaðinu benda til þess að fyrrverandi forsætisráðherra þjóðarinnar skilji ekki hugtakið stoðstofnun. Það endurspegli áhersluna sem verið hafi á málefni...
http://www.austurfrett.is/frettir/lafur-ragnar-bessastair-sasta-stoppistin-sem-hindrar-a-landi-veri-stjrnlaust
Ólafur Ragnar: Bessastaðir síðasta stoppistöðin sem hindrar að landið verði stjórnlaust Bessastaðir eru síðasta tækifæri þjóðarinnar til að grípa inn í sé hún ósátt við ákvörðun Alþingis. Hlutverk forsetans er að vera milligöngumaður þegar slík gjá myndar á milli þings og þjóðar að mati Ólafs Ragnars Grímssonar, forset...
http://www.austurfrett.is/frettir/lafur-og-dorrit-heimskja-austurland
Ólafur og Dorrit heimsækja Austurland Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands og Dorrit Moussaieff, forsetafrú halda tvo fundi á Austurlandi í byrjun næstu viku. Þeir eru hluti af baráttu Ólafs fyrir endurkjöri í forsetaembættið. Stuðningsmenn Ólafs og Dorritar halda opinn fund á Hótel Héraði á Egilsstöðum, sunnudaginn...
http://www.austurfrett.is/frettir/sami-aili-tekinn-tvisvar-fyrir-fkniefnaakstur-um-helgina
Sami aðili tekinn tvisvar fyrir fíkniefnaakstur um helgina Lögreglan í Fjarðabyggð tók sama manninn tvisvar vegna gruns um að hann keyrði undir áhrifum fíkniefna. Við húsleit hjá manninum fannst rúmlega hálft kíló af kannabisi og tæki til ræktunar. Lögreglan hafði fyrst afskipti af manninum við reglubundið umferðarefti...
http://www.austurfrett.is/frettir/arion-banki-bur-til-morgunfundar-um-efnahagslfi
Arion banki býður til morgunfundar um efnahagslífið Arion banki býður til morgunfundar á Hótel Héraði í fyrramálið, miðvikudaginn 30. maí þar sem horfurnar í efnahagslífi þjóðarinnar verða til umræðu. Dagskrá: Hagvöxtur í skjóli hafta: -Kristrún M. Frostadóttir, sérfræðingur í greiningardeild Krónan: Hvað er framundan?...
http://www.austurfrett.is/frettir/jens-garar-tlar-a-stofna-reikning-sparnor-strax-fyrramli-til-a-mtmla-lokun-landsbankans
Jens Garðar: Ætlar að stofna reikning í SparNor strax í fyrramálið til að mótmæla lokun Landsbankans Landsbanki Íslands hefur ákveðið að loka útibúum sínum á Eskifirði og Fáskrúðsfirði í umfangsmiklum hagræðingaraðgerðum sem ná til starfsemi bankans um allt land. Formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar hvetur bæjarbúa til að ...
http://www.austurfrett.is/frettir/rhallur-orsteins-mr-var-hta-lflti-fyrir-a-mtmla-virkjuninni
Þórhallur Þorsteins: Mér var hótað lífláti fyrir að mótmæla virkjuninni Þórhallur Þorsteinsson, formaður Ferðafélags Fljótsdalshéraðs til margra ára, segist hafa sætt margs konar árásum fyrir andstöðu sína gegn Eyjabakka- og Kárahnjúkavirkjunum á sínum tíma. Vináttubönd hafi slitnað og reynt verið að hrekja hann úr sta...
http://www.austurfrett.is/frettir/fljtsdalshra-stofnaili-a-flagi-um-kaup-grmsstum-atvinnuml-fyrir-sveitarflagi
Fljótsdalshérað stofnaðili að félagi um kaup á Grímsstöðum: Atvinnumál fyrir sveitarfélagið Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs samþykkti í gær að sveitarfélagið yrði aðili að GáF ehf. sem undirbýr kaup á Grímsstöðum á Fjöllum með það að augum að leigja það til kínverska fjárfestisins Huang Nubo. Einu atkvæði munaði í atkvæða...
http://www.austurfrett.is/frettir/batlur-leirttar-ekkingarnet-ingeyinga-tekur-byrg-rngum-tlum
Íbúatölur leiðréttar: Þekkingarnet Þingeyinga tekur ábyrgð á röngum tölum Leiðréttar tölur um íbúaþróun á mið-Austurlandi hafa verið birtar á vef sjálfbærniverkefnis á Austurlandi. Þekkingarnet Þingeyinga tekur ábyrgð á mistökunum. Sjálfbærniverkefnið er í eigu Landsvirkjunar og Alcoa Fjarðaáls en Þekkingarnet Þingeyin...
http://www.austurfrett.is/frettir/austfirsku-framhaldssklarnir-koma-vel-t-knnunum-me-fimmti-besti-landinu
Austfirsku framhaldsskólarnir koma vel út í könnunum: ME fimmti besti á landinu Útskriftarnemar úr Menntaskólanum á Egilsstöðum og Verkmenntaskóla Austurlands spjara sig vel þegar komið er í háskólanám. ME er í fimmta sæti nýrrar könnunar tímaritsins Frjálsrar verslunar yfir bestu framhaldsskóla landsins. Þetta er í an...
http://www.austurfrett.is/frettir/seyfiringar-sna-eyri-samstu-eftir-brunann-endurreisum-lruna
Seyðfirðingar sýna Eyþóri samstöðu eftir brunann: Endurreisum Láruna! Bæjarbúar á Seyðisfirði hafa boðað til samstöðu- og hugmyndafundar í félagsheimilinu Herðubreið annað kvöld eftir að veitingastaðurinn Kaffi Lára brann í gærkvöldi. Boðað er til fundarins undir yfirskriftinni „endurreisum Láruna“ í bíósalnum í Herðub...
http://www.austurfrett.is/frettir/roddur-seljan-hlaut-dugnaarforksverlaun-heimilis-og-skla
Þóroddur Seljan hlaut dugnaðarforksverðlaun Heimilis og skóla Þóroddur Helgason Seljan, fræðslustjóri Fjarðabyggðar og fyrrverandi skólastjóri Grunnskóla Reyðarfjarðar, hlaut Dugnaðarforksverðlaun Heimilis og skóla í dag. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Þjóðmenningarhúsinu. „Það er ekki síst fyrir tilstuð...
http://www.austurfrett.is/frettir/1000-bum-of-miki-sjlfbrnimlingu
1000 íbúum of mikið í sjálfbærnimælingu? Samkvæmt útreikningum Agl.is er íbúafjölgun á mið-Austurlandi frá upphafi stóriðjuframkvæmda aðeins um þúsund manns. Því er haldið fram í niðurstöðum sjálfbærniverkefnis fyrir Austurland að fjölgunin hafi verið tvö þúsund. Mistök virðast hafa orðið við gagnaútreikning á íbúum í ...
http://www.austurfrett.is/frettir/hugmynd-a-viskframleislu-hlutskrpust-austurlandi
Hugmynd að viskíframleiðslu hlutskörpust á Austurlandi Hugmynd að viskíframleiðslu og byggingu verksmiðju til hennar á Austurlandi þótti besta viðskiptahugmyndin á Atvinnu- og nýsköpunarhelginni sem fram fór helgina 11. – 13. maí í Fjarðabyggð. Hugmyndin er hugarfóstur Gillian ‘Dillý’ Haworth. Stofnun fiskisafns á Brei...
http://www.austurfrett.is/frettir/eldur-lrunni-seyisfiri-bjarbar-miur-sn-yfir-brunanum-myndir
Eldur í Lárunni á Seyðisfirði: Bæjarbúar miður sín yfir brunanum: Myndir Eldur kom upp í veitingastaðnum Kaffi Láru á Seyðisfirði um klukkan átta leytið í kvöld. Ekki er vitað um eldsupptök en ljóst er að skemmdir eru miklar. Slökkvilið er á staðnum að reyna að ná tökum á eldinum. Bæjarbúar eru margir hverjir samankomn...
http://www.austurfrett.is/frettir/fjarabygg-styur-auglsingar-en-kostar-r-ekki
Fjarðabyggð: Styður auglýsingar en kostar þær ekki Bæjarráð Fjarðabyggðar kemur ekki fjárhagslega að auglýsingum sem birtar hafa verið undanfarna daga þar sem fyrirhugaðar breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu eru gagnrýnar. Ráðið styður þær hins vegar efnislega. Þetta kemur fram í tilkynningu sem ráðið sendi frá sér...
http://www.austurfrett.is/frettir/stefnumtunarvinna-seyisfiri
Stefnumótunarvinna á Seyðisfirði Á fundi 26.mars hófst vinna við stefnumótun fyrir Seyðisfjarðarkaupstað. Sjö hópar hafa síðan þá unnið að fyrstu skrefunum í ferlinu undir styrkri stjórn fyrirliða sinna, hver og einn hópur að fjalla um ákveðið málefni. Málefnaflokkarnir sem ákveðnir hafa verið að stefnumótunin nái yfir...
http://www.austurfrett.is/frettir/vopnfiringar-me-kaupunum-grmsstum
Vopnfirðingar með í kaupunum á Grímsstöðum Vopnafjarðarhreppur er eitt þeirra þriggja sveitarfélaga sem staðfest hafa aðild sína að félagi um kaup á jörðinni Grímsstöðum á Fjöllum sem til stendur að leigja kínverska kaupsýslumanninum Huang Nubo. Fljótsdalshérað fylgist með framvindu mála. Sveitarstjórinn Þorsteinn Stei...
http://www.austurfrett.is/frettir/flk-me-snjallar-lausnir-rstefna-nherja-htel-hrai
Fólk með snjallar lausnir: Ráðstefna Nýherja á Hótel Héraði Tölvufyrirtækið Nýherji stendur fyrir ráðstefnu á Hótel Héraði á morgun, þriðjudaginn 15. maí, þar sem kynntar verða upplýsingatæknilausnir fyrir fyrirtæki. 14:00-14:10 Opnun - Emil Einarsson, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Nýherja. 14:10-14:40 Nýherji í ský...