Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
http://www.austurfrett.is/frettir/gunnr-ingva-flki-fjarabygg-er-gfa
Gunnþór Ingva: Fólkið í Fjarðabyggð er gáfað Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, segir að með frumvarpi um breytingu á fiskveiðistjórnun og veiðigjöldum sé verið að draga þann drifkraft úr íslenskum sjávarútvegi sem komið hafi honum í fremstu röð á heimsvísu. Hann vill að ríkisstjórnin f...
http://www.austurfrett.is/frettir/jhanna-sig-samvinna-austfiringa-verur-vonandi-rum-landshlutum-fyrirmynd
Jóhanna Sig: Samvinna Austfirðinga verður vonandi öðrum landshlutum fyrirmynd Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir sameiningu austfirskra stoðstofnana í eina stofnun, Austurbrú, lofsvert framtak sem vonandi verði öðrum til eftirbreytni. Hún spáir því að stofnunin auki hagræði og einfaldi viðskipti austfirskr...
http://www.austurfrett.is/frettir/goar-a-hjlpai-ekki-a-f-tatt-stofu-vi-hliina
Goðar: Það hjálpaði ekki að fá tattú stofu við hliðina Gunnar Pétur Gunnarsson, einn forsvarsmanna vélhjólasamtakanna Goða á Egilsstöðum, segir að fréttir um áhuga glæpahópa sem kenna sig við vélhjól, hafi komið á versta tíma fyrir samtökin þegar þau voru nýbúin að koma sér upp félagsheimili. Nágranninn hafi heldur ekk...
http://www.austurfrett.is/frettir/veur-um-allt-austurland-farangur-flugfarega-fauk-rokinu-myndir
Óveður um allt Austurland: Farangur flugfarþega fauk í rokinu: Myndir Leiðindaveður hefur verið um mest allt Austurland í dag og útlit er fyrir að það haldi áfram fram eftir morgundeginum. Jörð er víðast hvít og færð erfið á fjallvegum eða þeir ófærir. Starfsmenn Flugfélags Íslands áttu í mestu vandræðum með að lesta s...
http://www.austurfrett.is/frettir/metumfer-um-flugvllinn-egilsstum-dag
Metumferð um flugvöllinn á Egilsstöðum í dag Metumferð var um flugvöllinn á Egilsstöðum í dag þegar Flugfélag Íslands flaug tíu ferðir austur. Þar af lentu sjö vélar fyrir eða um hádegisbil. Ástæðan fyrir ferðunum er vormót Fimleikasambands Íslands sem haldið er á Egilsstöðum um helgina. Ríflega 620 keppendur af landin...
http://www.austurfrett.is/frettir/gmundur-a-sjlfsgu-munu-norfjarargng-koma
Ögmundur: Að sjálfsögðu munu Norðfjarðargöng koma Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, segir það aðeins tímaspursmál hvenær ný göng verði gerði á milli Norðfjarðar og Eskifjarðar. Tómur ríkiskassi er ástæða fyrir töfum á framkvæmdum. Á fjórða þúsund íbúa í Fjarðabyggð skrifuðu nöfn sín á undirskriftalista sem ráðherr...
http://www.austurfrett.is/frettir/bjrgunarsveitir-til-hjlpar-feraflki-vesen-me-bla-sumardekkjum
Björgunarsveitir til hjálpar ferðafólki: Vesen með bíla á sumardekkjum Austfirskar björgunarsveitir hafa verið kallaðar nokkrum sinnum út undanfarinn sólarhring til að aðstoða ferðafólk. Eining á Breiðdalsvík sótti í morgun bíl sem var fastur í Suðurdal. Á Fjarðarheiði fór björgunarsveitin Ísólfur á Seyðisfirði til aðs...
http://www.austurfrett.is/frettir/runn-egils-hvar-er-byggastefnan
Þórunn Egils: Hvar er byggðastefnan? Þórunn Egilsdóttir, oddviti Vopnafjarðarhrepps, segir mesta orku austfirskra sveitarstjórnarmanna fara í að verja grunnstoðir samfélagsins. Hún spurði ráðherra í ríkisstjórn Íslands hvar byggðastefnan væri á ríkisstjórnarfundi á Egilsstöðum á þriðjudag. „Eins og er - þá er raunverul...
http://www.austurfrett.is/frettir/steingrmur-j-sjvartvegurinn-hefur-buri-til-a-leggja-meira-af-mrkum-til-samflagsins
Steingrímur J.: Sjávarútvegurinn hefur burði til að leggja meira af mörkum til samfélagsins Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, telur ljóst að sjávarútvegsfyrirtækin geti lagt meira til íslensks samfélags en þau gera í dag. Nýtt frumvarp um stjórnun fiskveiða og veiðileyfagjald sé málamiðlun...
http://www.austurfrett.is/frettir/rkisstjrnin-fundar-eystra-vonandi-fordmi-fyrir-r-nstu
Ríkisstjórnin fundar eystra: Vonandi fordæmi fyrir þær næstu Ríkisstjórn Íslands fundaði á Egilsstöðum í morgun. Fyrst var reglubundinn ríkisstjórnarfundur en síðan komu sveitarstjórnarmenn til fundar. Forsætisráðherra kvaðst vonast til að fundirnir eystra yrðu komandi ríkisstjórnum fordæmi. „Ég vona að þetta verði næs...
http://www.austurfrett.is/frettir/tt-dagskr-rherra-austurlandi-morgun
Þétt dagskrá ráðherra á Austurlandi á morgun Reglubundinn fundur ríkisstjórnarinnar verður haldinn á Egilsstöðum á morgun. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar nýta ferðalagið í fleiri fundi og hitta bæði sveitarstjórnarfólk og almenning. Fundarstaður er Gistihúsið á Egilsstöðum og hefst fundurinn að venju klukkan 09:00. Þetta...
http://www.austurfrett.is/frettir/karl-steinar-tilgangur-okkar-var-ekki-a-hra-ykkur
Karl Steinar: Tilgangur okkar var ekki að hræða ykkur Karl Steinar Valsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að vélhjólagengi munu reyna að koma sér fyrir á Austurlandi með því að auka framboð á fíkniefnum. Forvarnir gegn þeim séu mikilvæg í baráttunni gegn gengjunum. Hann leggur áh...
http://www.austurfrett.is/frettir/sparnor-bankasslan-kni-fram-nr-tvfaldun-launum-stjrnar
SparNor: Bankasýslan knúði fram nær tvöfaldun á launum stjórnar Bankasýsla ríkisins átti frumkvæði að því að laun stjórnarmanna í Sparisjóði Norðfjarðar verða nær tvöfölduð á nýju starfsári. Formaður stjórnarinnar segir vinnuálag stjórnarmanna hafa aukist verulega og ekki sjái fram úr því. Þá hafi launin almennt verið ...
http://www.austurfrett.is/frettir/afl-yfirstttin-berst-fyrir-a-endurheimta-fyrri-lfsstl-og-senda-launaflki-reikninginn
AFL: Yfirstéttin berst fyrir að endurheimta fyrri lífsstíl og senda launafólki reikninginn Almennt launafólk gæti á næstu misserum þurft að borga niðurfellingu skulda hinna tekjuhærri. Inn á þær brautir virðist umræðan ætla ári fyrir kosningar. Þeir sem misstu fyrri stöðu í hruninu berjast fyrir að ná aftur fyrri lífss...
http://www.austurfrett.is/frettir/rkisstjrnin-fundar-austurlandi-tilefni-stofnunar-austfirskra-stostofnana
Ríkisstjórnin fundar á Austurlandi í tilefni stofnunar austfirskra stoðstofnana Ríkisstjórn Íslands fundar á Egilsstöðum á þriðjudag, sama dag og haldinn verður stofnfundur sameinaðrar stoðstofnunar á Austurlandi á Reyðarfirði. Á stofnfundinum mun ríkisstjórnin undirrita viðaukasamninga vegna sameiningar stoðstofnana o...
http://www.austurfrett.is/frettir/ekki-miki-bakvi-essa-spaa-ykjustu-bandidos-liar-fer-um-pskana
Ekki mikið á bakvið þessa spaða: Þykjustu Bandidos-liðar á ferð um páskana Orðrómur um að meðlimir Bandidos hefðu heimsótt Egilsstaði um páskahelgina á ekki við rök að styðjast. Einstaklingar sem sögðust tilheyra vélhjólagenginu gera það ekki. „Það kom upp orðrómur um að 3-4 einstaklingar sem gistu í sumarhúsi við Egil...
http://www.austurfrett.is/frettir/andlt-sigurur-skar-plsson
Andlát: Sigurður Óskar Pálsson Sigurður Óskar Pálsson, fyrrverandi kennari og skólastjóri á Borgarfirði eystri og Eiðum andaðist á Dvalarheimilinu Hlíð þann 26. apríl. Sigurður Óskar fæddist í Breiðuvík við Borgarfjörð eystra 27.desember 1930. Hann var yngsta barn hjónanna Páls Sveinssonar og Þuríðar Gunnarsdóttur og j...
http://www.austurfrett.is/frettir/ivar-ingimars-vill-bua-a-austurlandi
Ívar Ingimars: Ég vil búa í samfélagi sem ungt fólk vill búa í og flytja til Stöðfirðingurinn Ívar Ingimarsson flutti heim fyrir mánuði eftir þrettán ára feril sem knattspyrnumaður í Englandi og er sestur að á Egilsstöðum. Ívar lætur sig austfirsk samfélagsmál varða og tekur virkan þátt í umræðunni. Þá vinnur hann að f...
http://www.austurfrett.is/frettir/skar-borg-alcoa-einokar-ekki-flugstin-heldur-fjlgar-eim
Óskar Borg: Alcoa einokar ekki flugsætin heldur fjölgar þeim Óskar Borg, innkaupastjóri Alcoa Fjarðaáls, segir skipta töluvert miklu fyrir fyrirtækið að Reykjavíkurflugvöllur verði áfram á sínum stað. Hann segir samninga Alcoa við Flugfélag Íslands hafa aukið framboð á flugsætum milli Egilsstaða og Reykjavíkur. Rangt s...
http://www.austurfrett.is/frettir/um-100-manns-rin-til-sumarafleysinga-hj-fjarali
Um 100 manns ráðin til sumarafleysinga hjá Fjarðaáli Liðlega 450 manns sóttu um sumarstörf hjá Alcoa Fjarðaáli og hafa rúmlega eitt hundrað manns verið ráðin úr þeim hópi. Það er svipaður fjöldi og undanfarin ár. Guðný Björg Hauksdóttir, framkvæmdastjóri mannauðsmála hjá Fjarðaáli, segir að um 40% þeirra sem ráðin voru...
http://www.austurfrett.is/frettir/fimmtn-konur-tskrifaar-af-stjrnendanmskeii
Fimmtán konur útskrifaðar af stjórnendanámskeiði Fimmtán konur útskrifuðust nýverið af námskeiði Tengslanets austfirskra kvenna (TAK) og KPMG sem bar yfirskriftina „Konur í stjórnir.“ Markmiðið er að fjölga konum í stjórnum stofnana og fyrirtækja á Austurlandi. Þetta er í annað sinn sem TAK skipuleggur námskeið fyrir k...
http://www.austurfrett.is/frettir/fyrrum-fbi-maur-leiddi-tkuli-sem-leitai-ormsins
Fyrrum FBI-maður leiddi tökulið sem leitaði ormsins Bandarískt kvikmyndatökulið var við tökur í Fljótsdal í síðustu viku við leit að Lagarfljótsorminum. Til hópsins sást á árbökkum Jökulsár. Um tuttugu manna hópur frá stöðinni hreiðraði um sig við Hrafnkelsstaði í síðustu viku. Hann mun hafa verið frá bandarísku sjónva...
http://www.austurfrett.is/frettir/hannes-bjarna-ferin-frir-mr-innihald-barttumlin
Hannes Bjarna: Ferðin færir mér innihald í baráttumálin Forsetaframbjóðandinn Hannes Bjarnason er ánægður með ferð sína um Austfirði þótt heldur fámennt hafi verið á þeim fundum sem hann hafi auglýst. Honum finnst vænt um að hitta fólk og hlusta á það. „Það er fyrst núna sem ég er að fá innihald í baráttumálin mín,“ se...
http://www.austurfrett.is/frettir/naust-lgleg-vopn-fer-vi-fuglaveiar
NAUST: Ólögleg vopn á ferð við fuglaveiðar Félagar í Náttúruverndarsamtökum Austurlands (NAUST) hafa áhyggjur af því að fuglaveiðimenn sé á ferð með öflugri vopn en löglegt er. Þeir vilja að stjórnvöld herði eftirlit með slíkum vopnum. Þá hafa þeir áhyggjur af aukinni ásókn í eggjatínslu sem geti skaðað fuglastofna. Þe...
http://www.austurfrett.is/frettir/naust-vill-hera-eftirlit-me-fuglaveium-aldrei-mistk-a-skjta-flka
NAUST vill herða eftirlit með fuglaveiðum: Aldrei mistök að skjóta fálka Félagar í Náttúruverndarsamtökum Austurlands (NAUST) skora á stjórnvöld að herða eftirlit með fuglaveiðum. Þeir lýsa yfir áhyggjur sínum af drápum á friðuðum fuglum og segja heiður veiðimanna í veði verði ekki komið í veg fyrir þau. „Að skjóta fál...
http://www.austurfrett.is/frettir/ari-trausti-flk-sagi-mr-a-bja-mig-ekki-fram-v-g-tki-fylgi-fr-ru
Ari Trausti: Fólk sagði mér að bjóða mig ekki fram því ég tæki fylgi frá Þóru Ari Trausti Guðmundsson segir að lagt hafi verið að honum að bjóða sig ekki fram til forseta Íslands þar sem það gæti spillt möguleikum Þóru Arnórsdóttur á að fella sitjandi forseta, Ólaf Ragnar Grímsson. Ari Trausti heimsótti yfir tuttugu st...
http://www.austurfrett.is/frettir/1-ma-austurlandi
1. maí á Austurlandi AFL Starfsgreinafélag stendur fyrir hátíðahöldum um allt Austurland á morgun, 1. maí, á alþjóðadegi verkamanna. 1. maí hátíðarföld AFLs fara fram á eftirfarandi stöðum: Vopnafjörður Hátíðardagskrá verður í Félagsheimilinu Miklagarði kl. 14:00. Kvenfélagskonur sjá um kaffiveitingar. Tónlistaratriði ...
http://www.austurfrett.is/frettir/helmingur-sjkraflugs-til-norfjarar-fellt-niur
Helmingur sjúkraflugs til Norðfjarðar fellt niður Brýnt er að bæta flugvöllinn á Norðfirði þannig hann þjóni sjúkraflugi. Fella þarf niður um helming fyrirhugaðra ferða þangað vegna aðstæðna. Reykjavíkurflugvöllur er nauðsynlegur til að Landsspítalinn standi undir nafni sem slíkur. „Vegna veðurfars og brautaraðstöðu á ...
http://www.austurfrett.is/frettir/rni-gunnarsson-mikilvgi-reykjavkurflugvallar-verur-ekki-ngu-miki-treka
Árni Gunnarsson: Mikilvægi Reykjavíkurflugvallar verður ekki nógu mikið ítrekað Ásókn í innlandsflug hrynur verði miðstöð farþegaflugsins flutt úr Vatnsmýrinni í Reykjavík. Starfsemin þar hefur löngu sprengt af sér núverandi flugstöð en dráttur hefur orðið á úrbótum. „Mikilvægi Reykjavíkurflugvallar verður ekki undirst...
http://www.austurfrett.is/frettir/ekki-arf-a-skera-fleira-f-merki
Ekki þarf að skera fleira fé í Merki Ekki er þörf á að skera fleira fé í bili vegna riðuhreinsunar á bænum Merki á Jökuldal. Öll þau sýni sem tekin voru úr því fé sem skorið var eftir að sýkt kind var greind þar í febrúar reyndust neikvæð. Riðuafbrigðið sem greindist í Merki var NOR98 sem er talið minna smitandi en önn...
http://www.austurfrett.is/frettir/forsetaframbjandi-mtti-ekki-eigin-fund
Forsetaframbjóðandi mætti ekki á eigin fund Hannes Bjarnason, forsetaframbjóðandi úr Skagafirði, mætti ekki á fund sem hann hafði sjálfur boðað til á Eskifirði í dag. Blaðamaður Agl.is virtist sá eini á Eskifirði sem hafði áhuga á fundinum og mætti á réttum tíma. Þá var hins vegar enginn Hannes á svæðinu og allar dyr l...
http://www.austurfrett.is/frettir/hannes-bjarna-austfjrum
Hannes Bjarna á Austfjörðum Forsetaframbjóðandinn Hannes Bjarnason verður á ferðinni um Austfirði í dag og á morgun. Hannes hefur hringferð sína í hádeginu í Egilsbúð, Neskaupstað en verður í Kirkju- og menningarmiðstöðinni á Eskifirði klukkan 17:00 og á Fjarðarhóteli Reyðarfirði klukkan 20:30. Morgundagurinn hefst á f...
http://www.austurfrett.is/frettir/gmundur-framt-reykjavkurflugvallar-kvein-jaratkvagreislu
Ögmundur: Framtíð Reykjavíkurflugvallar ákveðin í þjóðaratkvæðagreiðslu? Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, segir það ekki einkamál Reykvíkinga um hvar miðstöð innanlandsflugs eigi að vera í framtíðinni. Sjálfur vilji hann hafa völlinn áfram í Vatnsmýrinni. Hann spáir því að flugsamgöngur verði meira notaðar á næst...
http://www.austurfrett.is/frettir/erfitt-fyrir-venjulegan-launamann-a-kyngja-frekari-hkkunum-flugfargjldum
Erfitt fyrir venjulegan launamann að kyngja frekari hækkunum á flugfargjöldum Austfirskir sveitarstjórnarmenn vara við neikvæðum áhrifum aukinna álagna á innanlandsflug. Erfitt sé orðið fyrir venjulegan launamanna að ferðast milli Austurlands og Reykjavíkur með flugi. „Fullt fargjald fram og tilbaka á leiðinni Vopnafjö...
http://www.austurfrett.is/frettir/buust-til-a-passa-brnin-fyrir-ru
Buðust til að passa börnin fyrir Þóru Gestir á fundi forsetaframbjóðandans Þóru Arnórsdóttur í Menntaskólanum á Egilsstöðum í gær buðust til að passa börnin hennar meðan hún einbeitti sér að framboðinu. Hún segir það forgangsmál sitt, verði hún kjörin, að vinna að sameiningu íslensku þjóðarinnar. Fjölskyldumál Þóru haf...
http://www.austurfrett.is/frettir/handstrur-flutningur-strfum-r-fjarabygg
Handstýrður flutningur á störfum úr Fjarðabyggð Bæjarráð Fjarðabyggðar lýsir þungum áhyggjum af áhrifum fyrirhugaðra breytinga á reglum um stjórn fiskveiða á atvinnulíf í sveitarfélaginu. Í raun sé verið að handflytja störf og fjármuni af svæðinu. Þetta kemur fram í umsögn bæjarráðsins til Alþingis um frumvarpið og ský...
http://www.austurfrett.is/frettir/oludreifing-fr-forgang-a-svum-fjarabygg-fyrir-leit-drekasvinu
Olíudreifing fær forgang að svæðum í Fjarðabyggð fyrir leit á Drekasvæðinu Olíudreifing ehf. og sveitarfélagið Fjarðabyggð hafa undirritað viljayfirlýsingu sem tryggir fyrirtækinu forgang að 2,2 hektara lóðum undir mögulega þjónustumiðstöð fyrir þau fyrirtæki sem ætla að vinna olíu á Drekasvæðinu. Olíudreifing heitir þ...
http://www.austurfrett.is/frettir/opinn-fundur-snfellsstofu-morgun
Opinn fundur í Snæfellsstofu á morgun Starfsemi stjórnar austursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs og framtíðarsýn svæðisins verða kynntar á opnum fundi í Snæfellsstofu á morgun, sumardaginn fyrsta, klukkan 14:00. Að auki verða kynntar niðurstöður af samráðsfundi um veiðar sem haldinn var í síðasta mánuði, helstu verkefni næst...
http://www.austurfrett.is/frettir/stri-milli-landsbyggar-og-reykjavkur-aldrei-veri-harara
Stríðið milli landsbyggðar og Reykjavíkur aldrei verið harðara Austfirskir sveitarstjórnarmenn hafa miklar áhyggjur af framtíð Reykjavíkurflugvallar og áformum borgaryfirvalda um að færa völlinn eða loka hluta hans. Ekki gangi að staðsetning hans sé háð geðþóttaákvörðunum borgarfulltrúa hverju sinni. „Ég held að stríði...
http://www.austurfrett.is/frettir/afl-alvarlega-vegi-a-heilu-byggarlgunum-me-frumvarpi-um-stjrnum-fiskveia
AFL: Alvarlega vegið að heilu byggðarlögunum með frumvarpi um stjórnum fiskveiða Stjórn AFLs Starfsgreinafélags varar við hugsanlegum áhrifum af frumvarpi ríkisstjórnarinnar sem liggur fyrir Alþingi um breytingar á fiskveiðistjórnum og um upptöku auðlindaskatts í sjávarútvegi. Stjórnin telur að með frumvarpinu sé „alva...
http://www.austurfrett.is/frettir/n-norfjarargng-strax-sfnun-undirskrifta-gengur-vel
Ný Norðfjarðargöng strax: Söfnun undirskrifta gengur vel Aðstandendur undirskriftarsöfnunar þar sem skorað er á Alþingi og ríkisstjórn Íslands að byrja strax á nýjum Norðfjarðargöngum eru ánægðir með hvernig gengið hefur. Markmiðið er að fá alla íbúa Fjarðabyggðar, átján ára og eldri, til að skrifa undir. Bæjarstjórn F...
http://www.austurfrett.is/frettir/er-veri-a-ffltta-nemendur-sngkeppni-framhaldssklanna
Er verið að féflétta nemendur í söngkeppni framhaldsskólanna? Vinsældakosning um hvaða lög komast í lokakeppni söngvakeppni framhaldsskólanna er markaðsbrella til að féflétta nemendur skólanna. Fyrirkomulagið rýrir verulega möguleika minni skólanna. Þetta er mat Þorbjarnar Rúnarssonar, sem er í námsleyfi sem áfangastjó...
http://www.austurfrett.is/frettir/rkisendurskoun-stendur-vi-skrsluna-um-hannes-lkni
Ríkisendurskoðun stendur við skýrsluna um Hannes lækni Ekkert hefur komið fram sem gefur tilefni til að endurskoða niðurstöður sem settar eru fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar um embættisfærslur Hannesar Sigmarssonar, fyrrverandi yfirlæknis í Fjarðabyggð. Vinnubrögð við skýrsluna voru í samræmi við reglur og heimildir ...
http://www.austurfrett.is/frettir/ra-arnrs-og-ari-trausti-heimskja-austurland
Þóra Arnórs og Ari Trausti heimsækja Austurland Forsetaframbjóðendurnir Ari Trausti Guðmundsson og Þóra Arnórsdóttir eru væntanleg til Austurlands í vikunni. Ari Trausti verður með tvo opna fundi en Þóra heimsækir fyrst og fremst vinnustaði. Þóra ætlar að heimsækja Seyðfirðinga og Héraðsbúa á morgun en Eskfirðinga, Rey...
http://www.austurfrett.is/frettir/austurglugginn-biur-hannes-afskunar-skun-um-flsun-sagur-reiumaur-skrslu
Austurglugginn biður Hannes afsökunar á ásökun um fölsun: Sagður óreiðumaður í skýrslu Héraðsfréttablaðið Austurglugginn hefur dregið fullyrðingar um að Hannes Sigmarsson, fyrrverandi yfirlæknir Heilbrigðisstofnunar Austurlands í Fjarðabyggð, hafi falsað endurlífgun á sjúklingi til baka. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar, s...
http://www.austurfrett.is/frettir/rr-hlisleitendur-me-norrnu
Þrír hælisleitendur með Norrænu Þrír karlmenn, sem komu til Seyðisfjarðar með ferjunni Norrænu í morgun frá Danmörku, hafa óskað eftir hæli á Íslandi. Þeir voru stöðvaðir af tollvörðum og spurðir um skilríki en gátu ekki framvísað neinum gildum ferðaskilríkjum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Seyðisfir...
http://www.austurfrett.is/frettir/eymundur-vallanesi-tilnefndur-til-umhverfisverlauna-norurlandars
Eymundur í Vallanesi tilnefndur til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs Eymundur Magnússon, bóndi í Vallanesi á Fljótsdalshéraði, var í dag tilnefndur til náttúru- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs. Verðlaunin eru veitt fyrir að efla líffræðilegan fjölbreytileika. Alls eru ellefu aðilar tilnefndir til verðlaunanna o...
http://www.austurfrett.is/frettir/hlsln-er-ryggissvi-heiagsa
Hálslón er öryggissvæði heiðagæsa Gæsavarp á vatnasvæði Kárahnjúkavirkjunar hefur aukist undanfarin ár. Lónið og girðingar í kring nýtast gæsinni sem öryggissvæði. Varpi hefur á móti seinkað þar sem það svæði sem áður kom fyrst undan snjó er nú undir vatni. Þetta kemur fram í nýlegri skýrslu Náttúrustofu Austurlands se...
http://www.austurfrett.is/frettir/dmdur-fyrir-ofbeldi-var-drukkinn-og-tlai-a-hjlpa-dyraveri
Dæmdur fyrir ofbeldi: Var drukkinn og ætlaði að hjálpa dyraverði Tæplega þrítugur karlmaður var í vikunni dæmdur í héraðsdómi Austurlands fyrir valdbeitingu og ofbeldi þegar hann henti öðrum manni út af skemmtistað þannig meiðsli hlutust af. Sá dæmdi, sem er vanur dyravörður en var undir áhrifum að skemmta sér þetta kv...
http://www.austurfrett.is/frettir/stjrnarskr-og-kvtafrumvarp-fundur-me-magnsi-nordal
Stjórnarskrá og kvótafrumvarp: Fundur með Magnúsi Norðdal Samfylkingin á Fljótsdalshéraði og Seyðisfirði stendur fyrir opnun félagsfundi á Seyðisfirði annað kvöld þar sem tekin verða fyrir stjórnarskrármál og kvótafrumvarp. Magnús Norðdahl, þingmaður, verður gestur fundarins. Magnús, sem situr á þingi í fjarveru Katrín...
http://www.austurfrett.is/frettir/hannes-fordmir-umfjllun-austurgluggans
Hannes fordæmir umfjöllun Austurgluggans Hannes Sigmarsson, fyrrverandi yfirlæknis Heilbrigðisstofnunar Austurlands í Fjarðabyggð, segir umfjöllun héraðsfréttablaðsins Austurgluggans um embættisfærslur hans „ranga og villandi.“ Ríkisendurskoðun er gagnrýnd fyrir vinnubrögð við gerð skýrslu um vinnu Hannesar. Ríkisendur...
http://www.austurfrett.is/frettir/fjarabygg-leggst-gegn-lokun-afgreislu-pstsins-mjafiri
Fjarðabyggð leggst gegn lokun afgreiðslu póstsins á Mjóafirði Bæjaryfirvöld í Fjarðabyggð leggjast gegn fyrirhugaðri lokun Íslandspósts á Mjóafirði. Þau efast um að fjárhagslegur ávinningur sé af lokuninni eins og fyrirtækið heldur fram. Búið er að segja upp afgreiðslumanni og húsnæði póstsins á Mjóafirði og rennur það...
http://www.austurfrett.is/frettir/vopnfiringar-glair-rj-fyrirtki-vilja-leita-a-olu-drekasvinu
Vopnfirðingar glaðir: Þrjú fyrirtæki vilja leita að olíu á Drekasvæðinu Þrjú fyrirtæki hafa sótt um að leita að olíu á Drekasvæðinu en öðru útboði um rannsóknar- og vinnsluleyfi lauk í gær. Forsvarsmenn Vopnafjarðarhrepps fagna niðurstöðunum en olíuvinnsla á sviðinu gæti fært sveitarfélaginu gríðarlegar tekjur. „Fyrir ...
http://www.austurfrett.is/frettir/tafir-mli-hannesar-dmur-eftir-pska
Tafir á máli Hannesar: Dómur eftir páska Dómsuppsaga í máli Hannesar Sigmarssonar, fyrrverandi yfirlæknis Heilbrigðisstofnunar Austurlands í Fjarðabyggð, hefur tafist í Héraðsdómi Austurlands. Til stóð að dómur lægi fyrir um miðjan mars en það dregst fram eftir aprílmánuði. Frá þessu er greint í DV. Hannes krefst 26,7 ...
http://www.austurfrett.is/frettir/yfirlknir-rukkai-fyrir-endurlfgun-sem-aldrei-fr-fram
Yfirlæknir rukkaði fyrir endurlífgun sem aldrei fór fram Hannes Sigmarsson, fyrrverandi yfirlæknir Heilbrigðisstofnunar Austurlands í Fjarðabyggð, á að hafa rukkað fyrir endurlífgun sem aldrei fór fram. Landlæknisembættið segir það aðeins gert í einum tilgangi, til að ofgreidd laun. Vegna þessa var Hannesi vikið frá st...
http://www.austurfrett.is/frettir/einn-sslumaur-austurlandi
Einn sýslumaður á Austurlandi? Sýslumannsumdæmin á Austurlandi verði sameinuð í eitt gangi hugmyndir innanríkisráðherra, sem birtast í frumvarpi il laga um framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í hérað, eftir. Nýju landsbyggðar umdæmin eiga að verða öflugri þjónustustofnanir en þau sem fyrir eru sem auki möguleikann ...
http://www.austurfrett.is/frettir/veiigjald-er-landsbyggarskattur-gullberg-ntt-innan-vi-fimm-rum
Veiðigjald er landsbyggðarskattur: Gullberg ónýtt á innan við fimm árum Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ og eigandi útgerðarfyrirtækisins Gullbergs á Seyðisfirði, spáir því að nýtt frumvarp um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu geri út af við fyrirtæki hans á innan við fimm árum verði það samþykkt á Alþingi. Hann s...
http://www.austurfrett.is/frettir/clint-eastwood-leitar-a-100-hraustum-austfiringum
Clint Eastwood leitar að 100 hraustum Austfirðingum Leikstjórinn margrómaði Clint Eastwood verður með leikaraprufur fyrir nýjustu mynd sína, sem til stendur að taka upp á Austurlandi, klukkan 14:00 á Hótel Héraði í dag. Leitað er að 100 hraustum Austfirðingum til að leika í bardagasenum myndarinnar. Frá þessu er greint...
http://www.austurfrett.is/frettir/austfar-fjararheii-er-dragbtur-starfsemina
Austfar: Fjarðarheiði er dragbítur á starfsemina Takmarka hefur þurft fólksflutninga í vetrarsiglingum farþegaferjunnar Norrænu til Seyðisfjarðar vegna þess farartálma sem Fjarðarheiði er. Vegurinn þar er dragbítur á starfsemina. „Smyril Line hefur orðið að takmarka fólksflutninga í vetrarsiglingum vegna þeirra vandamá...
http://www.austurfrett.is/frettir/160-milljna-krna-tap-hj-fljtsdalshrai
160 milljóna króna tap hjá Fljótsdalshéraði Sveitarfélagið Fljótsdalshérað tapaði rúmlega 160 milljónum króna á síðasta ári þrátt fyrir að áætlanir gerðu ráð fyrir hagnaði. Veltufé frá rekstri hefur á móti aukist. Rúmlega 650 milljóna hagnaður varð af rekstri sveitarfélagsins fyrri afskriftir, fjármagnsliði og tekjuska...
http://www.austurfrett.is/frettir/hnnun-algjrt-vintri-a-vinna-me-austfirsku-efnin
Hönnun: Algjört ævintýri að vinna með austfirsku efnin Tíu nemendur frá Konunglega breska listaháskólanum (Royal Collage of Art) skemmtu sér gríðarlega við nám og ferðir á Austurlandi í síðustu viku. Hluti af vinnu hópsins var sýndur á Hönnunarmars um helgina. „Ferðin var skipulögð af hinni ímynduðu ferðaskrifstofu Ódy...
http://www.austurfrett.is/frettir/svn-erfitt-hefi-veri-a-klra-kvtann-n-nja-skipsins
SVN: Erfitt hefði verið að klára kvótann án nýja skipsins Forsvarsmenn Síldarvinnslunnar í Neskaupstað eru ánægðir með nýja skiptið Börk NK 122 sem bættist í flotann í síðasta mánuði. Þeir segja að erfitt hefði verið að klára loðnukvótann án þess. Loðnukvóti Síldarvinnslunnar kláraðist í vikunni en Börkur landaði 16.80...
http://www.austurfrett.is/frettir/lafur-ragnar-enginn-valdhafi-stenst-vald-flksins
Ólafur Ragnar: Enginn valdhafi stenst vald fólksins Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, segir að samfélagsmiðlar séu að breyta sýn og þátttöku fólks í lýðræði. Valdhafar geti ekki lengur stýrt því hvaða málefni eru til umræðu. Þetta kom fram í máli forsetans á ráðstefnunni „Ungt fólk og lýðræði“ á Hvolsvelli í...
http://www.austurfrett.is/frettir/ast-orkell-plsson-rinn-framkvmdastjri
AST: Þorkell Pálsson ráðinn framkvæmdastjóri Þorkell Pálsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri væntanlegrar sjálfseignarstofnunar sem verður til við sameiningu austfirskra stoðstofnana (AST). Hann hefur meðal annars unnið hjá KEA og Eimskipum. Í tilkynningu segir að Þorkell hafi „mikla reynslu af stjórnun fyrirtækja ...
http://www.austurfrett.is/frettir/lra-vilbergs-erum-bin-a-selja-hugmyndina
Lára Vilbergs: Erum búin að selja hugmyndina Lára Vilbergsdóttir, verkefnisstjóri Þorpsins hönnunarsamfélags á Austurlandi, er ánægð með þær viðtökur sem kynningar Þorpsins hlutu á Hönnunarmars um helgina. Lára kynnti verkefnið í heild sinni ásamt austfirsku hráefni, svo sem trjávið, ull, stein, hreindýraleður og ál. „...
http://www.austurfrett.is/frettir/fyrirtkjum-gengur-illa-a-ra-flk-rtt-fyrir-atvinnuleysi
Fyrirtækjum gengur illa að ráða fólk þrátt fyrir atvinnuleysi Mörgum austfirskum fyrirtækjum gengur illa að ráða fólk þrátt fyrir atvinnuleysið á svæðinu. Ein af ástæðunum er talin vera óhentugur opnunartími leikskóla. Sveitarfélögin eru hvött til að endurskoða hann. Atvinnuleysi hefur minnkað á svæðinu. Þetta kemur fr...
http://www.austurfrett.is/frettir/fljtsdalshra-starfsmenn-leiksklanna-vilja-fresta-sameiningu
Fljótsdalshérað: Starfsmenn leikskólanna vilja fresta sameiningu Starfsmenn leikskólanna Skógarlands og Tjarnarlands vilja að ákvörðun bæjaryfirvalda á Fljótsdalshéraði um að sameina leikskólana verði endurskoðuð. Bæjarstjórnin hafnar því og telur ýmsan ávinning felast í sameiningunni. „Það er skoðun okkar að of skammu...
http://www.austurfrett.is/frettir/noraustan-10-ungt-mennta-flk-sr-tkifri-heimaslum
Norðaustan 10: Ungt, menntað fólk sér tækifæri á heimaslóðum Vöruþróunarverkefni, sem byggjast á austfirskum, hráefnum gera það eftirsóknarvert fyrir unga, nýmenntaða vöruhönnuði með rætur á Austurlandi að snúa aftur í heimahagana. Verkefnið Norðaustan 10 er dæmi um slíkt. Norðaustan 10 er vöruþróunarverkefni þar sem h...
http://www.austurfrett.is/frettir/bjrn-ingimars-vi-krefjumst-ess-a-stjrnvld-tryggi-lggslu-sem-til-arf
Björn Ingimars: Við krefjumst þess að stjórnvöld tryggi þá löggæslu sem til þarf Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs, segist treysta því að stjórnvöld standi við bakið á sveitarfélaginu og styrki löggæsluna í baráttunni gegn skipulögðum glæpum. Lögreglan óttast að vélhjólagengi vilji koma á fót starfsemi á ...
http://www.austurfrett.is/frettir/elilegt-a-str-hluti-starfsemi-ast-veri-stasettur-fjarabygg
Eðlilegt að stór hluti starfsemi AST verði staðsettur í Fjarðabyggð Bæjarfulltrúar Fjarðabyggðar vilja að stór hluti starfsemi nýrrar stoðstofnunar á Austurlandi verði staðsettur í sveitarfélaginu. Þeir telja eðlilegt að stærsta sveitarfélagið á svæðinu fái eitthvað í sinn hlut. „Eðlilegt hlutfall af störfum hjá stofnu...
http://www.austurfrett.is/frettir/hitamet-um-helgina
Hitamet um helgina? Ekki er útilokað að sett verði hitamet fyrir marsmánuð um helgina en spáð er hlýju veðri á landinu öllu. Sumarblíða virðist ætla að ríkja á Austurlandi fram á mánudag. Veðurstofan spáir suðlægum áttum og 8-14 stiga hita á Austurlandi um helgina. Á mánudag er spáð allt að 16 hita á Norðausturlandi en...
http://www.austurfrett.is/frettir/r-reihjlameistara-eskifiri-hells-angels
Úr reiðhjólameistara á Eskifirði í Hells Angels Einar „Boom“ Marteinsson hefur töluvert í íslenskum fjölmiðlum að undanförnu sem forseti Íslandsdeildar vélhjólagengisins Hells Angels. Einar vakti þó fyrst athygli fyrir afrek í reiðhjólakeppni og íþróttum þegar hann var barn á Eskifirði. Það var sumarið 1985 sem BFÖ (Bi...
http://www.austurfrett.is/frettir/iceland-express-kynnir-beint-flug-milli-egilsstaa-og-kaupmannahafnar
Iceland Express kynnir beint flug milli Egilsstaða og Kaupmannahafnar Iceland Express mun fljúga í þrjár vikur milli Egilsstaða og Kaupmannahafnar frá og með mánudeginum 13. ágúst. Þetta er liður í vilja félagsins til að efla ferðaþjónustu á landsbyggðinni en vikurnar á undan verður einnig flogið milli Akureyrar og Kau...
http://www.austurfrett.is/frettir/opnir-fundir-um-evrpuml
Opnir fundir um Evrópumál Evrópustofa, upplýsingamiðstöð ESB á Íslandi, efnir til opinna funda um Evrópumál á Austurlandi dagana 13.og 14. mars. Sendiherra ESB á Íslandi, Timo Summa, ræðir um stöðuna innan Evrópusambandsins og gang mála í aðildarviðræðum sambandsins við Ísland. Erindi sendiherrans verður á ensku en boð...
http://www.austurfrett.is/frettir/tuttugu-tma-bartta-fyrir-lfi-hunds-hvernig-er-jnusta-vi-draeigendur-austurlandi
Tuttugu tíma barátta fyrir lífi hunds: Hvernig er þjónusta við dýraeigendur á Austurlandi? Fleiri tíma getur tekið að ná í dýralækna á Austurlandi í bráðatilfellum. Tækjabúnaður þeirra er að auki af skornum skammti. Austfirskur hundaeigandi spyr hvernig hægt sé að bæta dýralæknaþjónustu á landsbyggðinni þannig aðrir þu...
http://www.austurfrett.is/frettir/afbrotunum-fjlgar-fljtt-ef-gengin-skjta-rtum
Afbrotunum fjölgar fljótt ef gengin skjóta rótum Egilsstaðir eru næsti áfangastaður vélhjólagengja á Íslandi. Staðurinn er vel staðsettur gagnvart flutningaleiðum inn í landið. Lögreglan leggur allt kapp á að ekki takist að setja upp slíkan hóp þar. „Ég tel það kappsmál okkar núna að leggja þunga í að koma í veg fyrir ...
http://www.austurfrett.is/frettir/250-milljna-hagnaur-hj-vopnafjararhreppi-fyrra
250 milljóna hagnaður hjá Vopnafjarðarhreppi í fyrra Rúmlega 250 milljóna króna hagnaður varð hjá Vopnafjarðarhreppi í fyrra. Miklu munar þar um hagnað af sölu hlutabréfa í HB Granda. Sá hagnaður nýttist einnig til að greiða niður lán sveitarfélagsins. Þetta kom fram við fyrstu umræðu ársreiknings 2011 á síðasta fundi ...
http://www.austurfrett.is/frettir/start-og-goar-eru-engin-glpasamtk
START og Goðar eru engin glæpasamtök Þau tvö vélíþróttafélög sem starfa á Egilsstöðum, Akstursíþróttafélagið Starf og Bifhjólaklúbburinn Goðar tengjast ekki skipulagðri glæpastarfsemi. Þau vinna þvert á móti því að skipulögð glæpastarfsemi skjóti rótum á svæðinu undir fölsku flaggi. Lögreglan óttast að Egilsstaðir séu ...
http://www.austurfrett.is/frettir/allt-a-rs-bi-eftir-slfrijnustu-fyrir-austfirsk-grunnsklabrn
Allt að árs bið eftir sálfræðiþjónustu fyrir austfirsk grunnskólabörn Allt að árs bið er eftir sálfræðiþjónustu fyrir austfirsk grunnskólabörn á vegum Skólaskrifstofu Austurlands. Enn frekari skortur er á talmeinaþjónustu, nær enign talþjálfun er í fjórðungnum. Þetta kemur fram í nýjustu ársskýrslu stofnunarinnar. Að m...
http://www.austurfrett.is/frettir/aeins-eldri-kindum-sltra-merki
Aðeins eldri kindum slátrað í Merki Aðeins kindum fimm vetra og eldri verður lógað á bænum Merki á Jökuldal í fyrstu þar sem sérstakt afbrigði af riðu greindist nýlega, samkvæmt tillögum yfirdýralæknis. Ítarlega verður fylgst með stofninum og sýni úr kindunum greind. Þetta kemur fram í tillögunum sem birtar voru á fimm...
http://www.austurfrett.is/frettir/enn-ekkert-kvei-um-niurskur-merki
Enn ekkert ákveðið um niðurskurð í Merki Landbúnaðaryfirvöld hafa ekki enn tekið neina ákvörðun um framtíð fjár á bænum Merki á Jökuldal þar sem riða af NOR98 stofni greindist í síðasta mánuði. Yfirdýralæknir segir unnið eins hratt og hægt er. „Við erum að skoða alla möguleika en reynum að vinna eins hratt og við getum...
http://www.austurfrett.is/frettir/ast-hringurinn-rengist-um-njan-framkvmdastjra
AST: Hringurinn þrengist um nýjan framkvæmdastjóra Verkefnastjórn austfirskra stoðstofnana þokast nær því að ráða framkvæmdastjóra fyrir hina væntanlegu stofnun. Stofnunin hefur gengið hægar en vonir stóðu til. Umsækjendur um stöðuna voru 24 en umsóknarfrestur rann út í lok febrúar. Eftir það voru átta teknir í viðtöl ...
http://www.austurfrett.is/frettir/blhvasst-borgarfiri-akpltur-fuku-af-frystihsinu
Bálhvasst á Borgarfirði: Þakplötur fuku af frystihúsinu Bálhvasst hefur verið víða á Austurlandi í dag og samgöngur farið úr skorðum. Þakplötur rifnuðu af gamla frystihúsinu á Borgarfirði eystri. Vindurinn fór upp í 30 m/s í snörpustu vindhviðunum á Borgarfirði í dag. Þar losnuðu nokkrar þakplötur af gamla frystihúsinu...
http://www.austurfrett.is/frettir/hsa-mlinu-loki-bili-friur-fyrir-frekari-niurskuri
HSA málinu lokið í bili: Friður fyrir frekari niðurskurði Bæjarfulltrúar í Fjarðabyggð líta svo á að deilum við yfirstjórn Heilbrigðisstofnunar Austurlands vegna skýrslu um framtíð stofnunarinnar sé lokið. Þeir telja sig hafa fengið vilyrði fyrir því að ekki sé unnið eftir hugmyndum í skýrslunni og niðurskurðartímabili...
http://www.austurfrett.is/frettir/ekki-ng-a-kanna-lfeyrisrttindin-korteri-fyrir-tku-lfeyris
Ekki nóg að kanna lífeyrisréttindin korteri fyrir töku lífeyris Stjórn Stapa lífeyrissjóðs boðaði til almenns sjóðsfélagafundar á Reyðarfirði í gærkvöd. Kvöldið áður var sambærilegur fundur á Höfn í Hornafirði og í kvöld verður svo fundað á Vopnafirði. Tilefni fundanna er nýleg skýrsla um úttekt á fjárfestingarstefnu, ...
http://www.austurfrett.is/frettir/markasstofan-vinnur-eftir-sama-verkefnalista-og-fyrri-r
Markaðsstofan vinnur eftir sama verkefnalista og fyrri ár Ekki er ástæða til að hafa áhyggjur af því markaðssetning Austurlands bíði skaða af því þótt hægar gangi að sameina austfirskar stoðstofnanir heldur en vonir stóðu til. Verkefnið á að endanum að skila sterkari, faglegri stofnunum heldur en fyrir voru. Ekki er ve...
http://www.austurfrett.is/frettir/krahnjkavirkjun-hryjuverkahttu
Kárahnjúkavirkjun í hryðjuverkahættu? Mannvirki Kárahnjúkavirkjunar virðast þau íslensku mannvirki sem helst virðast í hættu fyrir hryðjuverkaárásum. Áhættan telst þó fremur lítil. Umferðarslys, sjóslys og náttúruvár eru þeir þættir sem helst ógna öryggi Austfirðinga. Þetta kemur fram í nýju áhættumati Almannavarna sem...
http://www.austurfrett.is/frettir/elvar-jnsson-hreppargur-er-nskyldur-fasisma
Elvar Jónsson: Hrepparígur er náskyldur fasisma Elvari Jónssyni, oddvita Fjarðalistans, líkar illa að vera sakaður um að ala á hrepparíg í deilunum sem staðið hafa um Heilbrigðisstofnun Austurlands. Hann segir hrepparíg náskyldan öfgastefnum eins og fasisma. „Það er alvarlegt að ásaka einhvern um hrepparíg. Hrepparígur...
http://www.austurfrett.is/frettir/sprengjuhtun-hj-alcoa
Sprengjuhótun hjá Alcoa Lögreglunni á Eskifirði barst um miðjan janúar hótun um sprengju hjá Alcoa Fjarðaáli. Fljótlega kom í ljós að um gabb var að ræða. Málið er samt litið alvarlegum augum. Frá þessu er greint í DV í dag. Hótunin var send í tölvupósti úr tölvu sem staðsett er í álverinu. Margir hafa aðgang að henni ...
http://www.austurfrett.is/frettir/er-markassetning-austurlands-lausu-lofti
Er markaðssetning Austurlands í lausu lofti? Ferðaþjónustuaðilum víða á Austurlandi þykir ganga hægt að koma nýrri stoðstofnun austfirskra sveitarfélaga á laggirnar. Þeir óttast að seinagangurinn geti haft slæm áhrif á ferðamannasumarið á Austurlandi þar sem ekki sé nægur kraftur í markaðssetningu svæðisins á lykiltíma...
http://www.austurfrett.is/frettir/vopnfirskir-unglingar-lta-til-sn-taka-rleg-poppmessa
Vopnfirskir unglingar láta til sín taka: Árleg poppmessa Árleg poppmessa og kaffisala æskulýðsfélags Hofsprestakalls, Kýros, verður haldin í Vopnafjarðarkirkju klukkan 15:00 á morgun, sunnudaginn 11. mars. Messan verður með nýstárlegu sniði með áherslu á fjölbreytt tónlistar-og leikatriði á léttum nótum með gleðina í f...
http://www.austurfrett.is/frettir/auknar-lgur-skaa-austfirska-ferajnustu
Auknar álögur skaða austfirska ferðaþjónustu Forsvarsmenn Ferðamálasamtaka Austurlands hafa áhyggjur af því að aukin gjöld á ferðalög innanlands hafi neikvæð áhrif á austfirska ferðaþjónustu. Gjöldin tengjast bæði flugi og eldsneyti einkabifreiða. Gert er ráð fyrir hækkun á lendingar-, farþega- og leiðsögugjöldum á Rey...
http://www.austurfrett.is/frettir/slandspstur-vill-loka-pstafgreislu-mjafiri
Íslandspóstur vill loka póstafgreiðslu á Mjóafirði Íslandspóstur hyggst loka póstafgreiðslu sinni á Mjóafirði í sparnaðarskyni. Of lítil umsvif hafa verið þartil að fyrirtækið telji sig geta haldið úti þjónustunni. Landpóstur á að þjóna Mjófirðingum í staðinn. Bæjarfulltrúar í Fjarðabyggð segja lokunina enn eitt dæmið ...
http://www.austurfrett.is/frettir/kynningarfundur-um-vakann-morgun
Kynningarfundur um Vakann á morgun Kynningarfundur verður um Vakann, nýtt gæða- og umhverfiskerfi íslenskrar ferðaþjónustu, á Hótel Hérað á morgun, þriðjudag 6. mars frá klukkan 11:00-13:30. „Markmiðið með VAKANUM er að efla gæði og öryggi í ferðaþjónustu á Íslandi með handleiðslu og stuðningi, ásamt því byggja upp sam...
http://www.austurfrett.is/frettir/skgarnir-eru-jaraulind-margfldum-strfum-vi-skgrkt-nstu-rum
Skógarnir eru þjóðarauðlind: Margföldum á störfum við skógrækt á næstu árum Umsvif við skógarhögg og aðra vinnslu tengda skógrækt munu aukast verulega á næstu árum. Fjármagn vantar til að hámarka þá nýtingu og gæði sem hægt er að ná úr austfirskum skógum. „Við erum að búa til þjóðarauðlind svo við þurfum ekki að sækja ...
http://www.austurfrett.is/frettir/mgulegt-a-hafa-samrmd-prf-sama-tma-og-gngur-og-rttir
Ómögulegt að hafa samræmd próf á sama tíma og göngur og réttir Tímasetning samrændra könnunarprófa í fjórðu, sjöundu og tíundu bekkjum grunnskóla þykir óhentug fyrir krakka í sveitum. Á þetta benda bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs og skólanefnd Hallormstaðarskóla. Bæjarstjórnin samþykkti fyrir skemmstu tillögu Stefáns Boga...
http://www.austurfrett.is/frettir/einar-rafn-a-st-ekki-til-a-loka-skurstofu-og-fingardeild-norfiri-og-flytja-egilsstai
Einar Rafn: Það stóð ekki til að loka skurðstofu og fæðingardeild á Norðfirði og flytja í Egilsstaði Einar Rafn Haraldsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA) segir að ekki standi til loka skurðstofu og fæðingardeild Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað og flytja í Egilsstaði. Hann ítrekar að skýrsla sem ...
http://www.austurfrett.is/frettir/fljtsdalshra-og-fjarabygg-ganga-eftir-lgheimilisskrningum-ba
Fljótsdalshérað og Fjarðabyggð ganga á eftir lögheimilisskráningum íbúa Misjafnt er hversu hart austfirsk sveitarfélög fylgja því eftir að íbúar þeirra séu skráðir innan þeirra. Stærri sveitarfélög virðast fylgja því fastar eftir heldur en þau minni. Fljótsdalshérað og Fjarðabyggð hafa að undanförnu gengið sérstaklega ...
http://www.austurfrett.is/frettir/eskfiringar-hugasamir-um-samstu
Eskfirðingar áhugasamir um Samstöðu Lilja Mósesdóttir, leiðtogi hins nýja stjórnmálaafls Samstöðu, segir áhuga Austfirðinga á framboðinu koma sér á óvart. Sérstaklega hafi hún orðið var við áhuga frá Eskifirði. Frá þessu er greint í vikublaðinu Austurglugganum en flokkurinn hélt nýverið opinn fund á Egilsstöðum. Um tut...
http://www.austurfrett.is/frettir/brugust-vi-sk-um-a-kaupa-rm-einum-og-hlfum-tma
Brugðust við ósk um að kaupa rúm á einum og hálfum tíma Það tók Hollvinasamtök sjúkrahúss Seyðisfjarðar (HSSS) ekki nema einn og hálfan tíma að afgreiða beiðni yfirlæknis stofnunarinnar um að kaupa rafdrifið hjúkrunarrúm sem vantaði fyrir einn sjúkling þar. Frá þessu er greint á vef Seyðisfjarðarkaupstaðar en sjúklingu...