Search is not available for this dataset
url stringlengths 21 288 | text stringlengths 1 1.35M |
|---|---|
http://www.austurfrett.is/frettir/ria-jkuldal-ekki-nnur-mguleg-rri-en-skera-allt-f | Riða á Jökuldal: Ekki önnur möguleg úrræði en skera allt féð
Ólafur Jónsson, héraðsdýralæknir Norðausturumdæmis, segist ekki sjá önnur úrræði sem skili sama árangri og í baráttunni við riðu og að skera féð. Það verði gert í Merki á Jökuldal þar sem NOR98 afbrigði veikinnar greindist í byrjun mánaðarins.
„Ég sé ekki önn... |
http://www.austurfrett.is/frettir/starfsmannaorpi-skal-fari-fyrir-2014 | Starfsmannaþorpið skal farið fyrir 2014
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar hefur samþykkt áætlun um að starfsmannaþorp Alcoa Fjarðaáls að Hrauni í Reyðarfirði verði fjarlægt fyrir 31. desember 2013.
„Það hefur dregist hjá þeim af ýmsum ástæðum að fjarlægja þetta þorp en nú er komin ákveðin áætlun sem við teljum að geti gengið e... |
http://www.austurfrett.is/frettir/ekkert-starfsleyfi-fyrr-en-btt-hefur-veri-r-frveitumlum-eium | Ekkert starfsleyfi fyrr en bætt hefur verið úr fráveitumálum á Eiðum
Heilbrigðiseftirlit Austurlands hefur neitað að gefa út starfsleyfi fyrir samfellda starfsemi í húsnæðinu sem áður hýsti Alþýðuskólann á Eiðum nema þar til bætt hefur verið úr úrveitumálum þar. Eigandi húsnæðisins hefur heitið úrbótum.
HAUST hefur ítr... |
http://www.austurfrett.is/frettir/iceland-express-formar-a-fljga-fr-egilsstum-til-kaupmannahafnar-sumar | Iceland Express áformar að fljúga frá Egilsstöðum til Kaupmannahafnar í sumar
Lággjaldaflugfélagið Iceland Express áformar á að fljúga beint milli Egilsstaða og Kaupmannahafnar seinni partinn í sumar.
Heimir Már Pétursson, upplýsingafulltrúi fyrirtækisins, sagði í svari við fyrirspurn Agl.is í dag að meiningin sé að fl... |
http://www.austurfrett.is/frettir/mest-tjn-lgreglubifreia-eskifjararumdmi | Mest tjón lögreglubifreiða í Eskifjarðarumdæmi
Langmesta tjón á hvern ekinn kílómeter lögreglubifreiða á síðasta ári var í umdæmi lögreglunnar á Eskifirði. Einn árekstur við erfiðar aðstæður skýrir þessa tölu.
„Ökutæki frá okkur lenti í árekstri í febrúar 2011 í miklum krapaelg og stórskemmdist að framan,“ segir Jónas ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/rta-t-af-oddsskari-fljgandi-hlku | Rúta út af í Oddsskarði í fljúgandi hálku
Rúta með átta starfsmönnum á leið til álveri Alcoa fór út af veginum í Oddsskarði rétt fyrir klukkan átta í kvöld. Farþegar sluppu með minniháttar meiðsl.
Björgunarsveitirnar Brimrún á Eskifirði og Gerpir í Neskaupstað voru kallaðar út. Einn farþegi var fluttur til öryggis á Fj... |
http://www.austurfrett.is/frettir/rekstrarailar-ks-taka-vi-kaffi-egilsstum | Rekstraraðilar Kósý taka við Kaffi Egilsstöðum
Reyðfirðingarnir Jónas Aðalsteinn Helgason og Sandra Þorbjörnsdóttir hafa tekið yfir rekstur veitingastaðarins Kaffi Egilsstaða og þóttu eiga besta boðið í tjaldsvæðið þar við hliðina.
Jónas og Sandra reka fyrir tvo veitingastaði á Reyðarfirði, Tærgesen og Kaffi Kósý. Þau ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/rherra-umran-um-skrsluna-snst-um-hrepparg-en-ekki-efni | Ráðherra: Umræðan um skýrsluna snýst um hrepparíg en ekki efnið
Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, segir það miður að umræða um
skýrslu ráðuneytisins um Heilbrigðisstofnun Austurlands hafi snúist upp í
hrepparíg frekar en tillögur og efni skýrslunnar. Engin afstaða hefur
verið tekin til þeirra hugmynda sem þar er... |
http://www.austurfrett.is/frettir/landsbankinn-boar-til-opins-fundar-reyarfiri | Landsbankinn boðar til opins fundar á Reyðarfirði
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, verður meðal framsögumanna
á opnum fundi sem bankinn stendur fyrir á Reyðarfirði klukkan 20:00 í
Safnaðarheimilinu miðvikudaginn 15. febrúar.
Steinþór mun fjalla um stefnu Landsbankans, hlutverk hans og framtíðarsýn en sérstök... |
http://www.austurfrett.is/frettir/fjarabygg-sknu-af-skaabtakrfu-allir-vita-a-gler-getur-brotna | Fjarðabyggð sýknuð af skaðabótakröfu: Allir vita að gler getur brotnað
Sveitarfélagið Fjarðabyggð var nýverið sýknað í Hæstarétti af kröfu
fyrrum nemanda grunnskóla Eskifjarðar sem hlaut örorku þegar hann hljóp á
glerhurð í skólanum. Dómurinn staðfesti þar með dóm héraðsdóms sem
rakti slysið til aðgæsluleysis stráksins... |
http://www.austurfrett.is/frettir/dregi-um-hreindraleyfi-laugardag | Dregið um hreindýraleyfi á laugardag
Ríflega fjögur þúsund umsóknir bárust um rétt rúmlega eitt þúsund dýra hreindýrakvóta næsta árs. Dregið verður á laugardaginn.
Mikil spenna ríkir fyrir útdráttinn en hann fer fram í húsakynnum Þekkingarnets Austurlands á Egilsstöðum á laugardaginn klukkan 14:00. Hægt verður að fylgj... |
http://www.austurfrett.is/frettir/mannfjldi-austurlandi-stugur-milli-ra | Mannfjöldi á Austurlandi stöðugur milli ára
Mannfjöldi á svæðinu frá Vopnafjarðarhreppi til Djúpavogshrepps helst
stöðugur á milli ára. Tæplega þrjátíu einstaklingar bætast við. Konum
fjölgar en körlum fækkar.
Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar fyrir mannfjölda eftir sveitarfélögum miðað við 1. desember. Þann 1. des... |
http://www.austurfrett.is/frettir/hrasprent-og-g-sklason-hpi-framrskarandi-fyrirkja | Héraðsprent og G. Skúlason í hópi framúrskarandi fyrirækja
Prentverksmiðjan Héraðsprent á Egilsstöðum og Vélaverkstæði G. Skúlasonar eru fulltrúar Austfirðinga
á lista Creditinfo yfir „framúrskarandi fyrirtæki árið 2011“. Listinn
byggir á greiningu á því hvaða fyrirtæki fá bestu einkunn í styrk- og
stöðugleikamati Cred... |
http://www.austurfrett.is/frettir/tveir-austfiringar-stjrn-bjartrar-framtar | Tveir Austfirðingar í stjórn Bjartrar framtíðar
Tveir bæjarfulltrúar úr Fjarðabyggð eru meðal þeirra fjörutíu
einstaklinga sem skipa stjórn hins nýja stjórnmálaflokks, Bjartrar
framtíðar, sem stofnaður var formlega í dag.
Það eru fulltrúar Fjarðalistans, Elvar Jónsson og Stefán Már Guðmundsson sem eru fulltrúar Austfir... |
http://www.austurfrett.is/frettir/lfeyrissjur-neskaupstaar-tapai-minnstu | Lífeyrissjóður Neskaupstaðar tapaði minnstu
Lífeyrissjóður Neskaupstaðar tapaði átta milljónum króna á bankahruninu. Enginn lífeyrissjóður landsins tapaði jafn litlu í krónum talið. Heildareignir Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar eru neikvæðar samanborið við heildarskuldbindingar og stendur sjóðurinn því ekki óstuddur undir ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/bjarr-fjarabyggar-krefst-ess-a-sj-hsa-skrsluna-strax | Bæjarráð Fjarðabyggðar krefst þess að sjá HSA skýrsluna strax
Bæjarráð Fjarðabyggðar krefst þess að Velferðarráðuneytið láti þegar í
stað af hendi skýrslu sem það lét vinna að beiðni Heilbrigðisstofnunar
Austurlands um framtíðarsýn stofnunarinnar. Í skýrslunni kemur meðal
annars að deilur við fyrri starfsmenn hafi reyn... |
http://www.austurfrett.is/frettir/fskrsfiringur-nr-formaur-ungra-framsknarmanna | Fáskrúðsfirðingur nýr formaður ungra framsóknarmanna
Ásta Hlín Magnúsdóttir var í dag kjörinn nýr formaður Sambands ungra framsóknarmanna (SUF). Ásta Hlín fékk 32 atkvæði eða 53%.
Mótframbjóðandi hennar, Ragnar Stefán Rögnvaldsson fékk 28 atkvæði eða 47%. Á kjörskrá voru 66, þar af greiddu 60 atkvæði.
Ásta Hlín er fædd... |
http://www.austurfrett.is/frettir/htt-vi-lokun-fsn-sumar-dregi-r-jnustuframboi | Hætt við lokun á FSN í sumar: Dregið úr þjónustuframboði
Þrjátíu milljóna króna viðbótarframlag úr ríkissjóði bjargar því að loka
þurfi sjúkrasviði Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað í sumar. Það
dugir samt ekki til að koma í veg fyrir niðurskurð í þjónustu.
Frá þessu er greint í Austurglugganum í dag. Viðbótarframla... |
http://www.austurfrett.is/frettir/styrkir-til-atvinnumla-kvenna | Styrkir til atvinnumála kvenna
Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um styrki til atvinnumála kvenna er
velferðarráðherra veitir árlega. Styrkir þessir hafa verið veittir síðan
árið 1991 og er markmið þeirra að efla atvinnulíf og auka aðgengi
kvenna að fjármagni. Til ráðstöfunar að þessu sinni eru 30 milljónir og
er hám... |
http://www.austurfrett.is/frettir/borgarholtsskli-sl-va-t-gettu-betur | Borgarholtsskóli sló VA út í Gettu Betur
Gettu Betur lið Verkmenntaskóla Austurlands var slegið úr keppni í miður spennandi keppni á móti liði Borgarholtsskóla í kvöld.
Í fyrstu umferð Gettu Betur þetta árið atti lið Verkmenntaskóla Austurlands kappi við lið Fjölbrautarskóla Suðurnesja í æsispennandi keppni. Hún endaði... |
http://www.austurfrett.is/frettir/dav-r-leysir-af-austurlands-prfastsdmi | Davíð Þór leysir af í Austurlands- prófastsdæmi
Guðfræðingurinn Davíð Þór Jónsson verður fræðslufulltrúi
Austfjarðaprófastsdæmi frá 1. mars til 31. ágúst í leyfi séra Þorgeirs
Arasonar. Davíð er reyndar þekktastur sem útvarps- og sjónvarpsmaður,
leikari, þýðandi, skáld, ritstjóri og pistlahöfundur og
spurningahöfundur.... |
http://www.austurfrett.is/frettir/tundurdufli-eytt-hrassandi-myndband | Tundurdufli eytt á Héraðssandi: Myndband
Sprengjusveit Landhelgisgæslunnar eyddi á föstudag tundurdufli frá
síðari heimsstyrjöld sem kom í ljós við Selfljótsós á Héraðssandi.
Um var að ræða eitt dufl með sprengiefni. Því var eytt á staðnum með dínamíti og plastsprengiefni. Í frétt á vef Landhelgisgæslunnar segir að tun... |
http://www.austurfrett.is/frettir/vibnaur-vegna-lendingar-faregavlar-fr-egilsstum | Viðbúnaður vegna lendingar farþegavélar frá Egilsstöðum
Viðbúnaður var á Reykjavíkurflugvelli í morgun þegar Fokker 50 vél
Flugfélags Íslands á leið frá Egilsstöðum kom þar inn til lendingar.
Viðvörunarbúnaður gaf til kynna að lendingarbúnaður vélarinnar væri ekki
í lagi.
Í frétt frá Flugfélaginu segir að viðbúnaðaráæt... |
http://www.austurfrett.is/frettir/jens-garar-bur-sig-fram-sem-annar-varaformaur-sjlfstisflokksins | Jens Garðar býður sig fram sem annar varaformaður Sjálfstæðisflokksins
Jens
Garðar Helgason, formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar, gefur kost á sér sem
annar varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Kosið verður í embættið á
flokksráðsfundi í mars.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Jens Garðar sendi frá sér um helgina. Hann hef... |
http://www.austurfrett.is/frettir/steina-petra-ltin | Steina Petra látin
Ljósbjörg Petra María Sveinsdóttir, steinasafnari á Stöðvarfirði, lést á
hjúkrunarheimilinu Uppsölum á Fáskrúðsfirði í gærmorgun.
Petra fæddist að Bæjarstöðum við Stöðvarfjörð 24. desember árið 1922, dóttir Sveins Björgólfssonar útvegsbónda og Svanhvítar Láru Sigríðar Pétursdóttur konu hans sem bjugg... |
http://www.austurfrett.is/frettir/bjarstjrn-fjarabyggar-mtmlir-lokun-sjkrahssins | Bæjarstjórn Fjarðabyggðar mótmælir lokun sjúkrahússins
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar skorar á ríkisvaldið að veita nægilegu
fjármagni til Fjórðungssjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað til að ekki
komi til lokunar sjúkrasviðs í sumar eins og yfirstjórn
Heilbrigðisstofnunar Austurlands hefur lagt til í sparnaðarskyni.
„Það e... |
http://www.austurfrett.is/frettir/kpmg-boar-til-frleiksfundar-um-skattaml | KPMG boðar til fróðleiksfundar um skattamál
Endurskoðunarfyrirtækið KPMG boðar til opins fróðleiksfundar á Hótel Héraði á Egilsstöðum mánudaginn 30. janúar klukkan 16:15.
Dagskrá:
Helstu skattalagabreytingar á árinu 2011.
Guðrún Björg Bragadóttir, KPMG
Virðisaukaskattur - hvað fer helst úrskeiðis
Bragi Freyr Kristbjörn... |
http://www.austurfrett.is/frettir/vlva-aglis-hvar-hafi-hn-rtt-fyrir-sr | Völva Agl.is: Hvar hafði hún rétt fyrir sér
Fyrsti hluti spár völvu Agl.is birtist á morgun. Því er rétt að rifja upp það sem rættist í spádómi völvunnar í fyrra.
Einfaldast er að byrja á spádómnum um Icesave þar sem völvan hitti naglann á höfuðið. „Þjóðin mun hafna því aftur að greiða Icesave, það munu verða læti út a... |
http://www.austurfrett.is/frettir/er-nausynlegt-a-loka-sjkrasviinu-til-a-spara | Er nauðsynlegt að loka sjúkrasviðinu til að spara?
Ekki var samstaða innan framkvæmdastjórnar Heilbrigðisstofnunar
Austurlands (HSA) um að leggja til að loka sjúkrasviði
Fjórðungssjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað tvo mánuði í sumar í
sparnaðarskyni.
Það var Lilja Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar, sem lag... |
http://www.austurfrett.is/frettir/ntt-samgngukerfi-austurlandi | Nýtt samgöngukerfi á Austurlandi
Nýtt kerfi almenningssamgangna hefur verið tekið í notkun á Austurlandi. Þetta nýja kerfi tengir átta þéttbýliskjarna saman í fjórðungunum.
Nýja samgöngukerfið opnar nýja möguleika fyrir íbúa þéttbýlanna og einnig ferðamenn sem ætla að ferðast um landið í rútum. Á Austurlandi hefur SSA ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/ttar-steinn-rttamaur-hattar | Óttar Steinn íþróttamaður Hattar
Óttar Steinn Magnússon, fyrirliði karlaliðs Hattar í knattspyrnu, var
valinn íþróttamaður Hattar árið 2011 á þrettándagleði félagsins á
föstudagskvöld. Félagið verðlaunaði fleiri íþróttamenn við sama
tækifæri.
Óttar hefur verið lykilmaður sem miðvörður Hattarliðins síðustu ár. Síðasta á... |
http://www.austurfrett.is/frettir/vatnajkulsjgarur-sameinaur-rum-slenskum-jgrum | Vatnajökulsþjóðgarður sameinaður öðrum íslenskum þjóðgörðum?
Innan umhverfisráðuneytisins er unnið að hugmyndum að sameiningu
stjórnunar þjóðgarða og friðlýstra svæða á Íslandi í eina stofnun.
Markmiðið er að efla og styrkja starfsemi þeirra. Varað hefur við að
slíkar breytingar á stjórnun Vatnajökulsþjóðgarðs skapi ne... |
http://www.austurfrett.is/frettir/eymundur-vallanesi-hltur-flkaoruna | Eymundur í Vallanesi hlýtur Fálkaorðuna
Eymundur Magnússon, bóndi í Vallanesi á Fljótsdalshéraði, hlaut í dag
riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu fyrir frumkvæði á sviði
búskaparhátta og matvælamenningar. Forseti Íslands afhenti ellefu
Íslendingum orðuna á Bessastöðum.
Eymundur hefur undanfarin ár verið leiðandi í l... |
http://www.austurfrett.is/frettir/skiptum-loki-bi-kk-matvla | Skiptum lokið á búi KK Matvæla
Skiptum er lokið á þrotabúi KK Matvæla sem urðu gjaldþrota fyrir rúmum
tveimur árum. Eftir að fyrirtækið skipti um eigendur breyttist
starfsemin og fátt varð um ársreikninga.
KK-Matvæli voru tekin til gjaldþrotaskipta með úrskurði héraðsdóms Austurlands 1. júlí 2009. Upp í lýstar kröfur, ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/fer-runeyti-ekki-a-lgum-vi-endurskoun-stjrnunar-jgara | Fer ráðuneytið ekki að lögum við endurskoðun stjórnunar þjóðgarða?
Umhverfisráðuneytið hefur ekki enn haft samráð við sveitarstjórnir á
svæði Vatnajökulsþjóðgarð við vinnu að sameiningu stjórnunar þjóðgarða
og friðlýstra svæða. Lög um Vatnajökulsþjóðgarð gera ráð fyrir öðru.
Heimamönnum gremst þetta. Ráðuneytið segir e... |
http://www.austurfrett.is/frettir/milljars-gjaldrot-trsmiju-fljtsdalshras | Milljarðs gjaldþrot Trésmiðju Fljótsdalshéraðs
Kröfur í þrotabú Trésmiðju Fljótsdalshéraðs og tveggja skyldra félaga
námu tæpum einum og hálfum milljarði króna. Um fimmtungur þeirra fékkst
greiddur. Skiptum á búunum lauk í desember.
Frá þessu er greint í Lögbirtingablaðinu. Félögin sem um ræðir eru Kass ehf., TF Festir... |
http://www.austurfrett.is/frettir/sparisjurinn-ekki-seldur-ekkert-bo-ngu-gott | Sparisjóðurinn ekki seldur: Ekkert boð nógu gott
Hætt hefur verið sölu Sparisjóðs Norðfjarðar því ekki bárust viðunandi
tilboð. Útibúinu á Reyðarfirði verður lokað í vor til að treysta
reksturinn. Fimm einstaklingar missa vinnuna við það.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá stjórn sjóðsins í dag. Um miðjan ágúst v... |
http://www.austurfrett.is/frettir/grf-mismunun-stapi-tekur-ekki-tt-fjrmgnum-landssptalans | Gróf mismunun: Stapi tekur ekki þátt í fjármögnum Landsspítalans
Lífeyrissjóðurinn Stapi mun draga til baka þátttöku sína í
viljayfirlýsingu um fjármögnun nýs Landsspítala verði staðið við
hugmyndir um skattleggja inneignir í sjóðunum. Stjórn sjóðsins telur ekki grundvöll fyrir samvinnu þegar ráðist sé að grundvelli lí... |
http://www.austurfrett.is/frettir/sameining-jgara-akomu-heimamanna-er-sleppt | Sameining þjóðgarða: Aðkomu heimamanna er sleppt
Heimamenn á austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs vara við að hugmyndir um
sameiningu stjórnunar og friðlýstra svæða í eina stofnun gangi gegn
grunnhugmyndum Vatnajökulsþjóðgarðs um virka þátttöku heimamanna í
stjórnun hans. Þeir vara við að allt valdið verði flutt suður til
... |
http://www.austurfrett.is/frettir/rleg-yfir-htarnar-hj-lgreglunni | Róleg yfir hátíðarnar hjá lögreglunni
Jól og áramót voru róleg hjá austfirsku lögregluembættunum. Hnífaárás kom þó upp í umdæmi sýslumannsins á Seyðisfirði á annan í jólum. Það mál er til rannsóknar hjá lögreglunni á Eskifirði. Þar gekk mannlífið vel en nokkurt tjón varð að kvöldi aðfangadags í fárviðri í Neskaupstað. |
http://www.austurfrett.is/frettir/jlamessa-heydlum-organistinn-var-veurtepptur | Jólamessa í Heydölum: Organistinn var veðurtepptur
Enginn organisti var við náttsöng í Heydalakirkju á aðfangadagskvöld því
hann var veðurtepptur á Eskifirði. Presturinn segist hafa búið sig
undir tóma kirkju í veðurofsanum en sveitungar hans börðust í gegnum bylinn og fjölmenntu í kirkjuna.
Frá þessu segir séra Gunnla... |
http://www.austurfrett.is/frettir/fr-um-oddsskar-frestai-jlahaldinu | Ófærð um Oddsskarð frestaði jólahaldinu
Að minnsta kosti ein fjölskylda þurfti að fresta jólahaldi sínu vegna
ófærðar yfir Oddsskarð á aðfangadagskvöld. Vegurinn þar var lokaður frá
kvöldmat og fram að miðnætti.
Frá þessu er greint á Facebook-síðu Þrýstihóps um ný Norðfjarðargöng. „Á aðfangadagskvöld gerði vitlaust veð... |
http://www.austurfrett.is/frettir/veiijfar-gmair-jladag | Veiðiþjófar gómaðir á jóladag
Lögreglumenn á Fáskrúðsfirði gómuðu tvo veiðiþjófa í gær sem skotið
höfðu hreindýr. Þeir sögðust hafa verið á refaveiðum en ekki staðist
freistinguna þegar þeir urðu varir við dýrið.
Upp komst um verknaðinn við venjubundið umferðareftirlit. Lögreglan hafði afskipti af bifreið sem í voru me... |
http://www.austurfrett.is/frettir/segja-rherra-og-vegagerina-misnota-astu-sna | Segja ráðherra og Vegagerðina misnota aðstöðu sína
Þrýstihópur um gerð Norðfjarðarganga skorar á að gerð verð óháð úttekt
um ástand Norðfjarðarganga. Hópurinn segir Vegagerðina senda saklausa
verkamenn sína í skjóli nætur til að fjarlægja laust grjót úr göngunum.
Hópurinn sakar ráðherra og Vegagerðina um að misnota aðs... |
http://www.austurfrett.is/frettir/enn-sami-um-bjrgunarlaun-lmu | Enn ósamið um björgunarlaun Ölmu
Ekki hafa náðst samningar um björgunarlaun flutningaskipsins Ölmu sem
dregin var til hafnar á Fáskrúðsfirði fyrir rúmum mánuði. Trygging var
reidd fram áður en skipið var dregið til Akureyrar um helgina.
„Það á alveg eftir að semja um björgunarlaunin. Það er enn beðið eftir gögnum úr sj... |
http://www.austurfrett.is/frettir/oddsskarsgng-strfelld-svik-gefnum-loforum | Oddsskarðsgöng: Stórfelld svik á gefnum loforðum
Bæði Framsóknar- og Sjálfstæðisfélag Fjarðabyggðar gagnrýna harðlega
framkomnar hugmyndir í samgönguáætlun um frestum Oddsskarðsganga til
áranna 2015-2018 í stað 2012 eins og nú gildandi áætlun gerir ráð fyrir.
Þetta kemur fram í nýlegum ályktununum félaganna. Sjálfstæði... |
http://www.austurfrett.is/frettir/sra-gunnlaugur-jlin-eru-trarjtning-jarinnar | Séra Gunnlaugur: Jólin eru trúarjátning þjóðarinnar
Hin íslenska þjóð tjáir trú sína þegar hún heldur íslensk jól þar sem
fólk hittist úti á götu og óskar hvert öðru gleðilegra jóla. Það hefur
lítið breyst þrátt fyrir tækniframfarir og samfélagsbreytingar á
undanförnum árum.
„Ef einhver hefur efast um að þjóðin játi kr... |
http://www.austurfrett.is/frettir/vilhjlmur-fram-bjarstjri-seyisfiri | Vilhjálmur áfram bæjarstjóri á Seyðisfirði
Vilhjálmur Jónsson, oddviti framsóknarmanna í bæjarstjórn Seyðisfjarðar,
verður áfram bæjarstjóri. Ótímabundinn ráðningarsamningur við hann var
staðfestur af bæjarstjórn í síðustu viku.
Vilhjálmur tók við í byrjun júní þegar Ólafur Hr. Sigurðsson sagði starfi sínu skyndilega l... |
http://www.austurfrett.is/frettir/vegagerin-grjt-sem-var-losa-ekki-grjt-sem-hrundi | Vegagerðin: Grjót sem var losað, ekki grjót sem hrundi
Vegagerðin hafnar því að mynd, sem gengið hefur á samskiptavefnum
Facebook undanfarna daga, af grjóti sem á að hafa hrunið úr
Oddsskarðsgöngum í síðustu viku hafi í raun hrunið. Verktaki sem hafi
verið að hreinsa í göngunum hafi losað það.
Í frétt á vef Vegagerðari... |
http://www.austurfrett.is/frettir/inn-gunnar-rinn-atvinnufulltri-fljtsdalshras | Óðinn Gunnar ráðinn atvinnufulltrúi Fljótsdalshéraðs
Óðni Gunnari Óðinssyni hefur verið boðin staða atvinnu-, íþrótta- og
menningarfulltrúa Fljótsdalshéraðs. Starfið var auglýst fyrir skemmstu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá sveitarfélaginu. Óðinn Gunnar er mannfræðingur að mennt og hefur víðtæka reynslu af þeim má... |
http://www.austurfrett.is/frettir/vont-veur-og-llu-flugi-aflst | Vont veður og öllu flugi aflýst
Öllu innanlandsflugi hefur verið aflýst í dag vegna veðurs. Spáð er vonskuveðri í kvöld.
Átta áttu pantað flug til Egilsstaða í dag. Þeir voru látnir vita í
fyrradag að tvísýnt væri um flug. Spáð er sunnan 10-15 metrum á sekúndu
og hita yfir frostmarki framan af degi. Seinni partinn snýs... |
http://www.austurfrett.is/frettir/gmundur-engir-peningar-til-fyrir-gngum | Ögmundur: Engir peningar til fyrir göngum
Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, segir það illa nauðsyn að fresta
nýjum Norðfjarðargöngum á samgönguáætlun því ríkissjóður sé tómur. Hann
viðurkennir að ganga sé þörf og hrósar heimamönnum fyrir baráttu sína.
Þetta kemur fram í nýjum pistli sem Ögmundur ritar á heimasíðu ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/alma-farin-fr-fskrsfiri | Alma farin frá Fáskrúðsfirði
Flutningaskipið Alma fór frá Fáskrúðsfirði að morgni laugardags til
Akureyrar. Þar verður sett nýtt stýri á skipið og skemmdir á því
kannaðar.
Það var norski dráttarbáturinn Stadt Valiant sem dró Ölmu af stað en skipið hefur legið við bryggju á Fáskrúðsfirði síðan 6. nóvember. Það missti þá... |
http://www.austurfrett.is/frettir/vopnafjrur-fr-hlfan-milljar-fyrir-hlut-sinn-hb-granda | Vopnafjörður fær hálfan milljarð fyrir hlut sinn í HB Granda
Vopnafjarðarhreppur hefur selt öll sín hlutabréf í útgerðarfyrirtækinu
HB Granda. Tæplega hálfur milljarður fæst fyrir bréfin. Fjárhagur
sveitarfélagsins styrkist verulega við söluna.
Það var verðbréfafyrirtækið Virðing sem gerði sveitarfélaginu tilboð í hlut... |
http://www.austurfrett.is/frettir/vilja-framhaldsskladeild-vopnafiri | Vilja framhaldsskóladeild á Vopnafirði
Hugmyndir eru uppi um að stofna framhaldsskóladeild á Vopnafirði.
Hreppsnefnd sveitarfélagsins vinnur að því að koma á fót nefnd til að
kanna möguleikana á að stofna deildina.
Hugmyndin kemur frá Foreldrafélagi Vopnafjarðarskóla. Á það hefur verið bent að þegar sé starfrækt framha... |
http://www.austurfrett.is/frettir/dmdur-fyrir-heimabrugg-vrslu-stera-og-marijana-sknaur-af-slu-fkniefna | Dæmdur fyrir heimabrugg, vörslu stera og marijúana: Sýknaður af sölu fíkniefna
Karlmaður á fertugsaldri var í gær dæmdur í héraðsdómi Austurlands fyrir vörslu fíkniefna,
stera og vera með 25 lítra af heimabrugguðum bjór og sérhæfð bruggtæki.
Dómnum þótti ekki sannað að maðurinn hefði selt fíkniefni. Ekkert mark
var tek... |
http://www.austurfrett.is/frettir/skiptum-loki-bi-festarhalds | Skiptum lokið á búi Festarhalds
Skiptum er lokið á búi Festarhalds ehf. sem í skamman tíma reyndi fyrir
sér í matvælaframleiðslu á Breiðdalsvík. Allar forgangskröfur í búið
voru greiddar og fimmtungur almennra krafna.
Forgangskröfurnar námu 1,2 milljón og almennar kröfur 9,3 milljónum. Upp í þær fengust 1,775 milljónir... |
http://www.austurfrett.is/frettir/tveir-btar-strand-vi-austfiri-einum-slarhring | Tveir bátar strand við Austfirði á einum sólarhring
Fiskibátur með fjórum um borð strandaði í Stöðvarfirði upp úr miðnætti í
nótt. Ekki tókst að ná honum á flot í nótt en það verður reynt í dag.
Annar bátur strandaði í Fáskrúðfirði seinni partinn í gær.
Rétt fyrir klukkan eitt í nótt fengu björgunarsveitir á Austurland... |
http://www.austurfrett.is/frettir/seyfiringar-vilja-stytta-sklari | Seyðfirðingar vilja stytta skólaárið
Fræðslunefnd Seyðisfjarðarkaupstaðar vill að skoðaðir verði möguleikar á
að stytta skólaárið um viku í hvorn enda til að spara í rekstri
grunnskólans. Einnig er lagt til að skoðaðir verði möguleikar í
hagræðingu skólamötuneytisins.
Þetta kemur fram í bókun frá síðasta fundi nefndari... |
http://www.austurfrett.is/frettir/stuningur-vi-lftanes-bitnar-breidalshreppi | Stuðningur við Álftanes bitnar á Breiðdalshreppi
Aukinn stuðningur úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga við hið skuldsetta
sveitarfélag Álftanes bitnar á mörgum öðrum smærri sveitarfélögum.
Breiðdalshreppur er í þeim hópi. Sveitarstjórinn segir galið að velta
vandanum yfir á önnur sveitarfélög.
Frá þessu er greint í Austurgl... |
http://www.austurfrett.is/frettir/fyrrverandi-slustjri-bm-vallr-dmdur-tveggja-mnaa-fangelsi-fyrir-fjrdrtt | Fyrrverandi sölustjóri BM Vallár dæmdur í tveggja mánaða fangelsi fyrir fjárdrátt
Fyrrverandi sölustjóri BM Vallár á Reyðarfirði var í vikunni dæmdur í
tveggja mánaða fangelsi og til að greiða fyrirtækinu 8,2 milljónir króna,
með dráttarvöxtum, í skaðabætur fyrir að hafa dregið sé fé frá
fyrirtækinu. Hluta fjárins nota... |
http://www.austurfrett.is/frettir/ll-prestakllin-hrai-sameinu-eitt | Öll prestaköllin á Héraði sameinuð í eitt
Öll prestaköllin á Fljótsdalshéraði og Seyðisfirði verða á næstunni
sameinuð um eitt. Búast má við breytingum á staðsetningum presta.
Eiða- og Vallanesprestakall sameinast strax.
Þetta var samþykkt á kirkjuþingi sem lauk á föstudag. Sameinuð verða Eiða-, Vallanes-, Seyðisfjarða... |
http://www.austurfrett.is/frettir/mtmla-niurskuri-hj-hsa-stofnunin-vart-rekstrarhf | Mótmæla niðurskurði hjá HSA: Stofnunin vart rekstrarhæf
Bæjarráð Fljótsdalshéraðs segir áhyggjuefni ef ekki er hægt að veita
grunnþjónustu vestræns velferðarkerfis nema á afmörkuðum svæðum í
nágrenni stærstu þéttbýliskjarnanna. Boðaður er niðurskurður á framlögum
til Heilbrigðisstofnunar Austurlands á fjárlögum 2012.
V... |
http://www.austurfrett.is/frettir/heimabakkelsi-ekki-gaman-a-heyra-rherra-sem-setja-lg-og-skammast-yfir-a-fari-s-eftir-eim | Heimabakkelsi: Ekki gaman að heyra ráðherra sem setja lög og skammast yfir að farið sé eftir þeim
Forsvarsmönnum Heilbrigðiseftirlits Austurlands (HAUST) þykir ekki gaman
heyra fyrrverandi ráðherra skammast yfir að farið sé yfir lögum sem
þeir hafa sett. Tvö frumvörp liggja nú fyrir Alþingi um leyfa sölu
matvæla í góðg... |
http://www.austurfrett.is/frettir/leyft-a-framkvma-vi-steinbogann-jkuls-dal-forseti-bjarstjrnar-einn-mti | Leyft að framkvæma við steinbogann í Jökulsá á Dal: Forseti bæjarstjórnar einn á móti
Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs hefur samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi
fyrir lagningu fiskvegar framhjá steinboganum í Jökulsá á Dal. Svæðið er
á náttúruminjaskrá. Forseti bæjarstjórnar greiddi einn atkvæði gegn
leyfinu. Hann vill fre... |
http://www.austurfrett.is/frettir/vs-gefur-sund-hfur-austurlandi | VÍS gefur þúsund húfur á Austurlandi
Um eitt þúsund Austfirðingar með F plús tryggingu hjá VÍS hafa að
undanförnu nælt sér í húfur sem þeim standa til boða. Umdæmisstjórinn er
hæstánægður með viðtökurnar.
„Það er varla nógu sterkt til orða tekið að húfurnar hafi runnið út eins og heitar lummur. Á skömmum tíma höfum við... |
http://www.austurfrett.is/frettir/hannes-lknir-vill-rmar-30-milljnir-btur | Hannes læknir vill rúmar 30 milljónir í bætur
Hannes Sigmarsson,
fyrrverandi yfirlæknir Heilbrigðisstofnunar Austurlands í Fjarðabyggð vill rúmar 30
milljónir króna í bætur fyrir ólögmæta uppsögn og aðdróttanir gegn
persónu hans og æru.
Frá þessu er greint í DV í dag en Hannes hefur höfðað mál gegn Heilbrigðisstofnun A... |
http://www.austurfrett.is/frettir/elvar-jnsson-xi-er-lxusframkvmd | Elvar Jónsson: Öxi er lúxusframkvæmd
Elvar Jónsson, oddviti Fjarðalistans í bæjarstjórn Fjarðabyggðar, lýsir
Axarvegi sem „skemmtilegum valkosti yfir sumarmánuðina.“ Óskynsamlegt sé
þó að setja nýjan heilsársveg þar í forgang í austfirskum vegamálum.
Þetta kemur fram í viðtali við Elvar í nýjasta tölublaði Austurglugga... |
http://www.austurfrett.is/frettir/vonbrigi-a-ekki-hafi-nst-samstaa-um-nframkvmdir-vegager-austurlandi | Vonbrigði að ekki hafi náðst samstaða um nýframkvæmdir í vegagerð á Austurlandi
Fulltrúar í bæjarstjórn Fjarðabyggðar segja það vonbrigði að ekki hafi
náðst samstaða á nýafstöðum aðalfundi Sambands Sveitarfélaga á
Austurlandi um nýframkvæmdir í vegagerð á Austurlandi.
Á fundinum var samþykkt að Norðfjarðargöng væru í f... |
http://www.austurfrett.is/frettir/nett-opnar-egilsstum | Nettó opnar á Egilsstöðum
Verslanakeðjan Samkaup opnaði um helgina Nettó verslun í húsnæðinu sem
áður hýsti kjörbúð Kaupfélags Héraðsbúa á Egilsstöðum. Verslunin hefur
fengið algjöra andlitslyftingu.
„Miklar breytingar hafa verið gerðar á versluninni. Aðstaða fyrir viðskiptavini hefur verið bætt og innkaupavögnum fjölg... |
http://www.austurfrett.is/frettir/of-ltil-arsemi-af-krahnjkavirkjun-mia-vi-str | Of lítil arðsemi af Kárahnjúkavirkjun miðað við stærð
Arðsemi af rekstri fyrstu fjögurra ára Kárahnjúkavirkjunar er lægri en
vænst hafði verið. Áætlanir sem gerðar voru um kostnað áður en virkjunin
var reist hafa ekki staðist.
Þetta kom fram í viðtali við Hörð Arnarson, forstjóra Landsvirkjunar, í Kastljósi Ríkissjónva... |
http://www.austurfrett.is/frettir/eirkur-bjrn-menn-tldu-mig-of-miki-plitkinni-fyrir-austan | Eiríkur Björn: Menn töldu mig of mikið í pólitíkinni fyrir austan
Eiríkur Björn Björgvinsson, fyrrverandi bæjarstjóri á Fljótsdalshéraði,
segir helsta mun á starfinu þar og á Akureyri, þar sem hann starfar nú,
að hann einbeiti sér betur að rekstrinum nyrðra. Pólitísk vinna eystra
hafi mögulega haft neikvæð áhrif á feri... |
http://www.austurfrett.is/frettir/er-byggavandinn-skortur-flagsroska | Er byggðavandinn skortur á félagsþroska?
Framfarafélag Fljótsdalshéraðs heldur upp á 25 ára afmæli sitt á
föstudag með málþingi þar sem yfirskriftin er „Er byggðavandinn skortur á
félagsþroska.“
Dagurinn hefst á aðalfundi félagsins klukkan 15:00 á Hótel Héraði á Egilsstöðum. Málþingið sjálft hefst að honum loknum klukk... |
http://www.austurfrett.is/frettir/breidalsvk-ekki-veri-landa-meiru-rm-15-r | Breiðdalsvík: Ekki verið landað meiru í rúm 15 ár
Rúmlega 1300 tonnum var landað á Breiðdalsvík á seinasta fiskveiðiári. Ekki hefur meiri afli komið þar á land frá árinu 1995.
Frá þessu er greint í nýjasta fréttabréfi Breiðdalsvíkurhrepps. Þar segir að hin jákvæða þróun hafi byrjað í mars 2010 þegar fyrstu beitingavéla... |
http://www.austurfrett.is/frettir/krfubolti-ruggur-sigur-hattar-rmanni | Körfubolti: Öruggur sigur Hattar á Ármanni
Höttur vann Ármann í fyrstu deild karla í körfuknattleik 93-77 þegar
liðin mættust á Egilsstöðum á fimmtudagskvöld. Með sigrinum komst Höttur
í fjórða sæti deildarinnar. Bandaríkjamaðurinn Michael Sloan átti enn
einn stórleikinn.
Það voru 220 manns mættir í íþróttahúsið á Egil... |
http://www.austurfrett.is/frettir/jnna-rs-reiddist-fulltrum-fjarabyggar-hnttu-xi | Jónína Rós reiddist fulltrúum Fjarðabyggðar: Hnýttu í Öxi
Jónína Rós Guðmundsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segist hafa
reiðst fulltrúum Fjarðabyggðar á nýafstöðnum fundi með fulltrúum
austfirskra sveitarfélaga fyrir viðhorf þeirra til uppbyggingu
Axarvegar.
„Mér fannst leiðinlegt að heyra að í Fjarðabyggð væru m... |
http://www.austurfrett.is/frettir/feramlasamtk-austurlands-endurskipulg | Ferðamálasamtök Austurlands endurskipulögð
Markaðsstofa Austurlands og Ferðamálasamtök Austurlands sameinast á
næstunni undir merkjum Ferðamálasamtaka Austurlands. Þetta var samþykkt á
aukaaðalfundi samtakanna sem fram fór á Hallormsstað fyrir skemmstu.
Þessi breyting er liður í endurskipulagningu á stoðkerfi Austurlan... |
http://www.austurfrett.is/frettir/starfsmannaorpi-fr-a-standa-fram-vor | Starfsmannaþorpið fær að standa fram á vor
Vinnubúðir Alcoa Fjarðaáls, sem standa að Hrauni í Reyðarfirði, verða
þar áfram fram á vor. Sveitarfélagið Fjarðabyggð vill að þær verði
horfnar fyrir lok næsta árs.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd Fjarðabyggðar hefur samþykkt óskir Aloca um að framlengja stöðuleyfi búðar... |
http://www.austurfrett.is/frettir/alcoa-vill-stkka-lveri-reyarfiri-aukin-orka-r-krahnjkavirkjun | Alcoa vill stækka álverið á Reyðarfirði: Aukin orka úr Kárahnjúkavirkjun
Alcoa Fjarðaál á í viðræðu við Landsvirkjun um kaup á orku fyrir
hugsanlega stækkun álversins í Reyðarfirði. Allt að tvö hundruð manns
gætu fengið vinnu við stækkunina sem yrði upp á 40 þúsund tonn.
Þetta staðfestir Tómas Már Sigurðsson, forstjóri... |
http://www.austurfrett.is/frettir/fundur-um-samgngur-og-feraml-borgarfiri-morgun | Fundur um samgöngur og ferðamál á Borgarfirði á morgun
Opinn fundur um samgöngur og ferðamál verður haldinn á Hótel Álfheimum,
Borgarfirði eystri, á morgun. Fundurinn hefst klukkan níu í fyrramálið
og stendur fram yfir kaffi.
Um er að ræða kynningu á verkefni sem styrkt er af Norðurslóðaáætlun Evrópusambandsins og þeim... |
http://www.austurfrett.is/frettir/tla-a-reisa-lkaplaverksmiju-reyarfiri | Ætla að reisa álkaplaverksmiðju á Reyðarfirði
Fyrirtækið ALUCAB ehf. áformar að reisa álkaplaverksmiðju á Reyðarfirði.
Fyrirtækið hefur fengið samþykki bæjaryfirvalda á álversreitnum.
Frá þessu er greint í nýjasta tölublaði Austurgluggans. Þórður Snorri Óskarsson er framkvæmdastjóri hins nýstofnaða fyrirtækis en hann g... |
http://www.austurfrett.is/frettir/austfiringar-slegnir-nfn-eirra-sem-ltust-af-slysfrum-austurlandi-gr | Austfirðingar slegnir: Nöfn þeirra sem létust af slysförum á Austurlandi í gær
Austfirðingar eru slegnir eftir atburði gærdagsins þar sem stúlka á
átjánda ári fórst í bílslysi á Fagradal og rúmlega fertugur karlmaður dó
í vinnuslysi á Djúpavogi. Bænastund verður þar í kvöld.
Viðbrögð Austfirðinga hafa meðal annars veri... |
http://www.austurfrett.is/frettir/djpivogur-vilja-selja-eignir-til-a-rtta-vi-fjrhag-sveitarflagsins | Djúpivogur: Vilja selja eignir til að rétta við fjárhag sveitarfélagsins
Sveitarstjórn Djúpavogshrepps leitar leiða til að selja fasteignir í
eigu sveitarfélagsins til að rétta við fjárhag þess. Hann hefur verið
bágborinn um nokkurt skeið og eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga
bæði fylgst sérstaklega með Djúpavo... |
http://www.austurfrett.is/frettir/fljtsdalshra-minnihlutinn-vill-sameina-tnlistarsklana-og-unglingadeildir-grunnskla | Fljótsdalshérað: Minnihlutinn vill sameina tónlistarskólana og unglingadeildir grunnskóla
Minnihluti fræðslunefndar Fljótsdalshéraðs vill að skoðaðir verði
möguleikar á að sameina tónlistarskólana í sveitarfélaginu og
unglingadeildir Fellaskóla og Egilsstaðaskóla. Meirihlutinn vill skoða
aðrar hagræðingarleiðir. Nefndi... |
http://www.austurfrett.is/frettir/rjpa-veidd-af-jveginum-jkuldal-utan-veiitma | Rjúpa veidd af þjóðveginum á Jökuldal utan veiðitíma
Tíu dagar eru enn í að rjúpnaveiðar hefjist í ár og kvótinn er af
skornum skammti. Um helgina sást samt til rjúpnaskyttu á þjóðveginum um
Jökuldal.
Frá þessu segir notandi á spjallvefnum Hlað.is þar sem skotveiðiáhugamenn ræða saman. „Þegar að ég ætlaði að taka fram ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/banaslys-djpavogi-krani-fll-mann | Banaslys á Djúpavogi: Krani féll á mann
Rúmlega fertugur karlmaður lést í vinnuslysi við höfnina á Djúpavogi í
dag. Slysið varð laust fyrir klukkan þrjú í dag. Krani í landi, sem
notaður var við að nota salt úr skipi, brotnaði og féll á mann sem þarna
var við vinnu sína. Lögreglan á Eskifirði og Vinnueftirlit ríkisins ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/metveii-breidals-sumar | Metveiði í Breiðdalsá í sumar
Nýtt met var slegið í veiði í Breiðdalsá í sumar þegar 1430 laxar komust
á land. Stærsti laxinn var tíu kílógramma hrygna. Ríflega fimm hundruð
laxar veiddust á Jöklusvæðinu.
Þetta kemur fram í frétt á vef veiðiþjónustunnar Strengja. Þar segir að jöfn veiði hafi verið í Breiðdalsá allt sum... |
http://www.austurfrett.is/frettir/heilsueflandi-framhaldsskli-va | Heilsueflandi framhaldsskóli í VA
Heilsueflandi framhaldsskóli, verkefni landlæknisembættisins var hleypt af stokkunum í Verkmenntaskóla Austurlands miðvikudaginn þann 19. október.
Í tilefni verkefnisins var haldin dagskrá í íþróttahúsi skólans um morguninn. Bæjarstjóri Fjarðabyggðar hélt ræðu og hvatti nemendur skólan... |
http://www.austurfrett.is/frettir/landsbankinn-skir-a-lfsvali-vill-fjrar-eignir-hornafiri-uppbo | Landsbankinn sækir að Lífsvali: Vill fjórar eignir í Hornafirði á uppboð
Landsbankinn hefur farið fram á að fjórar fasteignir í eigu Lífsvals
ehf. í sveitarfélaginu Hornafirði verði settar á nauðungauppboð.
Eignirnar eru allar á Mýrunum. Um er að ræða Flatey, jörð og lóð, Haukafell og Kyljuholt. Kröfur Landsbankans í h... |
http://www.austurfrett.is/frettir/banaslys-fagradal-morgun | Banaslys á Fagradal í morgun
Stúlka á átjánda ári fórst í umferðarslysi á Fagradal í morgun. Vinkona
hennar, sem var farþegi, slasaðist mikið og var flutt með sjúkraflugi
til Reykjavíkur. Bænastund verður í Eskifjarðarkirkju í kvöld.
Tilkynnt var um slysið upp úr klukkan hálf níu ú kvöld. Vörubifreið, sem kom frá Egils... |
http://www.austurfrett.is/frettir/alvarlegt-slys-fagradal-vegurinn-lokaur | Alvarlegt slys á Fagradal: Vegurinn lokaður
Vegurinn um Fagradal er lokaður vegna alvarlegs umferðarslyss. Þar rákust vörubíll og fólksbíll, sem komu úr sitt hvorri áttinni, saman um hálf níu leytið í morgun.
Slysið varð rétt ofan við Grænafell. Í fyrstu fréttum mishermt að rúta hefði rekist á fólksbílinn en ekki
vörub... |
http://www.austurfrett.is/frettir/afl-byggastefna-rkisins-einkennist-af-kjrdmapoti | AFL: Byggðastefna ríkisins einkennist af kjördæmapoti
Félagsmenn í AFLi Starfsgreinafélagi lýsa aðgerðum ríkisstjórnarinnar í
byggðamálum sem tilviljanakenndum og þær einkennist af kjördæmapoti.
Þeir telja verkalýðshreyfinguna þann aðila sem best sé treystandi til
þess að stýra upplýstri umræðu um mögulega aðild Ísland... |
http://www.austurfrett.is/frettir/leita-a-magnetti-ti-fyrir-austfjrum | Leitað að magnetíti úti fyrir Austfjörðum?
Fyrirtækið Sóley Minerals hefur sótt um að leita að magnetíti úti fyrir
Austfjörðum. Sveitarfélögin Vopnafjarðarhreppur og Fljótsdalshérað hafa
veitt jákvæða umsögn þar um. Um nýjan vettvang er að ræða í mögulegri
nýtingu náttúruauðæva við Ísland.
Fyrritækið ætlar að leita að ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/alcoa-afhenti-fjrstyrki-va | Alcoa afhenti fjárstyrki í VA
Í morgun var styrkur afhentur til nýnema sem sótt höfðu um styrk til náms í grunndeild raf- og málmiðndeilda í Verkmenntaskóla Austurlands.
Fjárstyrkur var veittur til fjögurra nýnema úr Alþjóða samfélagssjóði Alcoa til nýnema á raf- og málmiðnaðarbraut í VA. Um er að ræða styrk sem Alcoa ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/vkingur-ak-landai-fyrstu-lonu-vertarinnar-vopnafiri | Víkingur AK landaði fyrstu loðnu vertíðarinnar á Vopnafirði
Víkingur AK, skip HB Granda, landaði fyrstu loðnu vertíðarinnar á
Vopnafirði í gærmorgun. Stýrimaður á skipinu segir ástandið á miðunum
gott.
Skipið kom með um 1000 tonn af „stórri og fallegri loðnu“ sem fékkst í grænlenskri lögsögu. Á vef fyrirtækisins er haf... |
http://www.austurfrett.is/frettir/enn-og-aftur-arf-a-skera-niur-stjrnendur-hsa-leita-illskstu-leiarinnar | Enn og aftur þarf að skera niður: Stjórnendur HSA leita illskástu leiðarinnar
Framlag ríkisins til Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA) skerðist um
rúmar 70 milljónir króna gangi hugmyndir sem settar eru fram í fjárlögum
eftir. Að auki þarf stofnunin að ná niður um 150 milljóna vegna halla á
rekstri og frestaðs sparn... |
http://www.austurfrett.is/frettir/tv-mengunarslys-norfjararhfn-stuttum-tma | Tvö mengunarslys í Norðfjarðarhöfn á stuttum tíma
Úrgangur frá skipum og fiskimjölsverksmiðju hafa tvisvar á skömmum tíma
farið í höfnina á Norðfirði. Heimamenn eru óánægðir með uppsögn
Umhverfisstofnunar á þjónustusamningum við Heilbrigðiseftirlit
Austurlands (HAUST) um eftirlit með fiskimjölsverksmiðjum.
Þann 21. sep... |
http://www.austurfrett.is/frettir/hjn-fr-egilsstum-unnu-tuttugu-milljna-krna-bnusvinning | Hjón frá Egilsstöðum unnu tuttugu milljóna króna bónusvinning
Hjón frá Egilsstöðum duttu í lukkupottinn í sumar þegar þau unnu 22
milljóna króna bónusvinning í Víkingalottóinu. Þau geymdu seðilinn á
öruggum stað þar til þau áttu næst ferð í borgina.
Frá þessu er greint á vef Íslenskrar getspár. Þar segir að þau hafi ve... |
http://www.austurfrett.is/frettir/fastur-flutningabll-tafi-umfer-um-oddsskar | Fastur flutningabíll tafði umferð um Oddsskarð
Um eins og hálfs tíma töf varð upp úr hádegi í gær á umferð um Oddskarð. Krapi var á veginum og erfið færð.
Frá þessu er sagt á Facebook-síðu hóps sem berst fyrir nýjum göngum
milli Norðfjarðar og Eskifjarðar. Þar kemur fram að flutningabíll hafi
setið fastur í skarðinu og... |
http://www.austurfrett.is/frettir/dmdur-tk-vl-og-grkassa-r-bl-eigu-lsingar | Dæmdur: Tók vél og gírkassa úr bíl í eigu Lýsingar
Hálfþrítugur karlmaður var í gær dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið
fangelsi í Héraðsdómi Austurlands fyrir fjárdrátt. Maðurinn fjarlægði
vél, gírkassa og útvarpstæki úr bifreið í eigu
fjármögnunarfyrirtækisins. Dómari gagnrýnir að rannsókn málsins hafi að
mestu l... |
Subsets and Splits
No community queries yet
The top public SQL queries from the community will appear here once available.