Search is not available for this dataset
url stringlengths 21 288 | text stringlengths 1 1.35M |
|---|---|
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baejarfulltruum-gert-okleift-ad-gegna-skyldum-sinum | Bæjarfulltrúum gert ókleift að gegna skyldum sínum
Meirihluti bæjarráðs Akureyrar samþykkti á fundi ráðsins nýlega, breytingu á fjárhagsáætlunarferlinu, sem felur í
sér að starfsáætlanir nefnda verði aðeins lagðar fram til kynningar í bæjarstjórn en ekki til samþykktar. Minnihlutinn greiddi
atkvæði á móti. Hermann Jón ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/lysir-ahyggjum-af-yfirvofandi-verkfalli-leikskolakennara | Lýsir áhyggjum af yfirvofandi verkfalli leikskólakennara
Stjórn Heimilis og skóla - Landssamtaka foreldra hefur miklar áhyggjur af yfirvofandi verkfalli leikskólakennara. Slíkt verkfall mun hafa mjög slæmar
afleiðingar fyrir leikskólabörn og foreldra í landinu og lamandi áhrif fyrir samfélagið í heild. Heimili og skóli... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/motmaela-fyrirhugadri-staekkun-vinbudarinnar-a-akureyri | Mótmæla fyrirhugaðri stækkun Vínbúðarinnar á Akureyri
Íbúar í grennd við Vínbúðina á Akureyri afhentu bæjarstjóra undirskriftalista í dag, þar sem sem fyrirhugaðri
stækkun verslunarinnar er mótmælt. Framkvæmdarstjóri Vínbúðarinnar segir listann engu breyta um stækkunaráform. Íbúar
við Hólabraut og Laxagötu, sem liggja ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/opid-fyrir-ataks-umsoknir | Opið fyrir Átaks - umsóknir
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Átak til atvinnusköpunar fyrir haustúthlutun 2011. Umsóknarfrestur er til og með 22. september 2011. Átak
til atvinnusköpunar er styrkáætlun iðnaðarráðuneytisins fyrir nýsköpunarverkefni og markaðsaðgerðir starfandi frumkvöðla- og
nýsköpunarfyrirtækja. Nýsk... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/innflutningur-a-kjoti-verdi-heimiladur | Innflutningur á kjöti verði heimilaður
Neytendasamtökin krefjast þess að innflutningur á kjöti verði heimilaður þegar í stað og tollar afnumdir eða í það minnsta
lækkaðir til muna. Fram hefur komið að skortur er á kjöti í landinu. Jafnframt hefur komið fram í áliti Umboðsmanns Alþingis við
erindi Samtaka verslunar og þ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/urslit-ur-herramoti-og-hjona-og-paramoti-ga | Úrslit úr Herramóti og Hjóna-og paramóti GA
Herramót GA, Heimsferða og RUB23 var haldið á Jaðarsvelli á dögunum. Keppt var í höggleik án forgjafar og
punktakeppni með forgjöf. Úrslit mótsins urðu eftirfarandi:
Punktakeppni með forgjöf
1. Stefán Ólafur Jónsson – 38 punktar
2. Ingi Hrannar Heimisson – 36 punktar
3. Allan... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/adam-orn-islandsmeistari-i-drifti | Adam Örn Íslandsmeistari í drifti
Adam Örn Þorvaldsson úr Bílaklúbbi Akureyrar tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í drifti í lokaumferðinni sem fram
fór í Hafnarfirði um helgina. Einnig tryggði Adam sér Burn-Out titilinn fyrr í sumar og þá er hann í öðru sæti á
Íslandsmótinu í sandspyrnu, þegar ein umferð er eftir. |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hafni-borgin-flugvellinum-hafnar-hun-lika-skyldum-sinum-sem-hofudborg-landsins | Hafni borgin flugvellinum hafnar hún líka skyldum sínum sem höfuðborg landsins
Hermann Jón Tómasson bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar og fyrrum bæjarstjóri á Akureyri segir að Reykjavíkurflugvöllur sé mjög
vel staðsettur þar sem hann er. "Góðar flugsamgöngur milli Reykjavíkur og helstu þéttbýlisstaða landsins er réttlæti... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/magni-i-urslitakeppnina | Magni í úrslitakeppnina
Magni frá Grenivík tryggði sér sæti í úrslitakeppninni eftir 3:2 útisigur á Sindra í D-riðli 3. deildar karla sl. laugardag.
Sindri var þegar búið að tryggja sé sæti í úrslitum og því ljóst að þessi tvö lið fara upp úr
riðlinum.
Ibra Jagne skoraði tvívegis fyrir Magna í leiknum og Ingvar Gylfaso... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stjarnan-lagdi-thorka-ad-velli-1 | Stjarnan lagði Þór/KA að velli
Stjarnan færðist nær Íslandsmeistaratitlinum í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu með 2:0 sigri gegn Þór/KA í kvöld í fyrsta
leiknum í 14. umferð deildarinnar. Ashley Bares og Hugrún Elvarsdóttir skoruðu mörk Stjörnunnar í leiknum. Stjarnan hefur nú 39 stig
á toppnum, tíu stigum meira en Va... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/allir-adilar-bera-nokkra-abyrgd-a-leka-i-thorsstukunni | Allir aðilar bera nokkra ábyrgð á leka í Þórsstúkunni
Það er mat þeirra dómkvöddu matsmana, sem fengnir voru til að meta orsakir og afleiðingar leka í nýju áhorfendastúkunni á
Þórsvellinum, að allir aðilar beri nokkra ábyrgð á því að svo illa fór að stúkan lekur. Ábyrgð
verkfræðings er talin mest, eða 41%, ábyrgð verkt... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/um-2600-nemendur-ad-hefja-nam-i-grunnskolum-akureyrar | Um 2600 nemendur að hefja nám í grunnskólum Akureyrar
Grunnskólastarf fyrir veturinn 2011-2012 fer senn að hefjast og hefst nám í grunnskólum landsins víðast hvar mánudaginn 22. ágúst. Um
2600 nemendur hefja nám við grunnskólana á Akureyri sem eru alls níu, þar á meðal eru skólarnir í Grímsey og Hrísey. Er
þetta örlíti... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/birkifeti-gerir-usla-i-berjalondum-ut-med-eyjafirdi | Birkifeti gerir usla í berjalöndum út með Eyjafirði
„Útlitið er alls ekki nógu gott hérna í námunda við mig,“ segir Sigurbjörg Snorradóttir á Krossum í
Dalvíkurbyggð um berjasprettu. Á svæðinu út með Eyjafirði eru ber mun seinna á ferðinni en vant er og nokkuð í að hægt
sé að tína þau af fullum krafti. Þá gerir birkife... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorsteinn-hengi-silfurpeninginn-a-slana | Þorsteinn: Hengi silfurpeninginn á slána
Þorsteinn Ingason fyrirliði Þórs var að vonum svekktur eftir tapið gegn KR í bikarúrslitum karla í knattspyrnu í dag. KR hafði betur
2:0. Norðanmenn voru hins vegar heilt yfir betri í leiknum en sláin þvældist heldur betur fyrir Þórsurum sem áttu alls fimm sláarskot.
Þorsteinn b... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kr-bikarmeistari | KR bikarmeistari
KR-ingar tryggðu sér rétt í þessu sigur í Valitor-bikarkeppni KSÍ eftir 2:0 sigur gegn Þór í úrslitaleiknum á
Laugardalsvelli í dag. Norðanmenn voru betra liðið á vellinum og áttu frábæran fyrri hálfleik, en urðu fyrir miklu áfalli
rétt fyrir hálfleik er Gunnar Már Guðmundsson skallaði boltann í eigið ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/byrjunarlidin-klar-disztl-a-bekknum | Byrjunarliðin klár-Disztl á bekknum
Það styttist óðum í bikarúrslitaleik karla í knattspyrnu þar sem Þór og KR mætast á Laugardalsvellinum kl. 16:00.
Byrjunarliðin eru klár og eru leikmenn beggja liða farnir að hita upp. Jóhann Helgi Hannesson kemur aftur inn í byrjunarliðið sem og Sveinn Elías
Jónsson og Janez Vrenko,... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stemmningin-aldrei-verid-betri | "Stemmningin aldrei verið betri"
Það ríkir mikil eftirvænting og spenna hjá Mjölnismönnum, stuðningsmannaliði Þórs, fyrir bikarúrslitaleikinn gegn KR á
Laugardalsvelli í dag. Mjölnismenn munu að sjálfsögðu fylgja sínum mönnum á stórleikinn en þeir hafa stutt vel við
bakið á Þór undanfarin ár og leikmenn liðsins sjálfir... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aetlum-ekki-ad-lata-standa-a-fjarmognunarthaettinum | Ætlum ekki að láta standa á fjármögnunarþættinum
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir að í fjármálaráðuneytinu sé verið að leggja lokahönd
á skilamála og skjöl sem tengjast samkomulagi til að tryggja fjármögnun framkvæmda við Vaðlaheiðargöng.
“Samkvæmt okkar upplýsingum þá verða útboðsgögn að fullu tilbúin u... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hofum-tru-a-thvi-ad-vid-getum-stritt-theim | Höfum trú á því að við getum strítt þeim
Þór og KR mætast í stærsta einstaka knattspyrnuleik ársins í dag er liðin leika til úrslita í Valitor-bikarnum á
Laugardalsvelli kl. 16:00. Þetta er í fyrsta sinn sem Þór kemst í úrslit en í 16. sinn sem KR leikur til úrslita. Vesturbæingar hafa
leikið manna best í sumar og verð... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thrir-nyir-stjornarmenn-i-stjorn-saga-fjarfestingarbanka | Þrír nýir stjórnarmenn í stjórn Saga Fjárfestingarbanka
Þrír nýir stjórnarmenn, tóku sæti í stjórn Saga Fjárfestingarbanka í kjölfar framhaldsaðalfundar bankans sem fór
fram nýlega. Þeir eru Dr. Ágúst Egilsson, Áslaug Gunnlaugsdóttir, héraðsdómslögmaður, og Brynhildur Kristín
Ólafsdóttir. Tveir stjórnarmenn sitja áfram... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rumar-63-milljonir-krona-i-fjarhagsadstod-a-arinu | Rúmar 63 milljónir króna í fjárhagsaðstoð á árinu
Á fundi félagsmálaráðs Akureyrarbæjar í vikunni lagði Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar
fram yfirlit yfir veitta fjárhagsaðstoð eftir fyrstu sjö mánuði ársins. Útgjöldin voru kr. 63.407.983 sem er 31% hækkun miðað við
á sama tíma árið 2010. Félags... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skemmd-a-stofnlogn-ad-efra-gerdahverfi-mun-meiri-en-aaetlad-var | Skemmd á stofnlögn að efra Gerðahverfi mun meiri en áætlað var
Skemmd á stofnlögn hitaveitu að efra Gerðahverfi á Akureyri, sem sagt var frá í fréttum í gær, var mun meiri en áætlað
var í fyrstu. Var því tekin ákvörðun um að gera við lögnina til bráðabirgða í gær en halda viðgerðum
áfram í dag. Verkið hefur verið undir... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stor-evropustyrkur-til-verkmenntaskolans-a-akureyri | Stór Evrópustyrkur til Verkmenntaskólans á Akureyri
Verkmenntaskólinn á Akureyri hefur fengið stóran styrk úr Leónardo hluta menntaáætlunar Evrópusambandsins. Styrknum er ætlað
að koma á samstarfi skólans og atvinnulífsins í Eyjafirði varðandi vinnustaðanám. Einkum er horft til nemenda sem eru sterkari í verklegu
námi ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/lagfaeringar-a-husnaedi-sulna-bjorgunarsveitarinnar-a-akureyri | Lagfæringar á húsnæði Súlna, björgunarsveitarinnar á Akureyri
Þessa dagana er verið að klæða húsnæði Súlna, björgunarsveitarinnar á Akureyri, en félagið hefur safnað í
sjóð fyrir þessum framkvæmdum í töluverðan tíma. Einnig er verið að lagfæra ýmsa minni hluti innandyra og er áætlað
að viðhaldskostnaður hlaupi á 12-15 ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kertafleytingar-i-innbaenum | Kertafleytingar í Innbænum
Fjöldi fólks var við kertafleytingu í Innbænum á Akureyri í gærkvöld þar sem fórnarlamba þeirra sem létust í
kjarnorkusprengingunum í Japan í lok seinni heimsstyrjaldarinnar var minnst. Það var samstarfshópur um frið sem stóð að kertafleytingunni á
Leirutjörn en kertum hefur verið fleytt á Ak... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eldur-i-ibud-a-akureyri | Eldur í íbúð á Akureyri
Eldur kviknaði í feitipotti á eldavél í raðhúsi á Akureyri í gærkvöld og munaði minnstu að illa færi. Þegar
unglingur á heimilinu sá rjúka úr eldi í pottinum, skvetti hann vatni í pottinn, en þá breiddist eldurinn út.
Greip hann þá til sökkvitækis og slökkti eldinn, en þá hafði reykur og sót bor... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sannfaerandi-sigur-ka-gegn-throtti | Sannfærandi sigur KA gegn Þrótti
KA vann í kvöld sinn þriðja leik í röð í 1. deild karla í knattspyrnu er liðið lagði Þrótt R. 4:1 á
Akureyrarvelli. KA-menn voru mun betri í kvöld og var sigurinn fyllilega verðskuldaður. Heimamenn léku einum manni fleiri síðasta hálftímann
eftir að Hallur Hallsson fékk að líta rauða sp... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/atthagafelag-torgara-a-husavik-bodar-til-hundadagagledi | Átthagafélag Torgara á Húsavík boðar til Hundadagagleði
Átthagafélag Torgara á Húsavík hefur ákveðið að boða til Hundadagagleði helgina 19. til 20. ágúst 2011. Þingsetning
verður á Rauðatorginu föstudaginn 19. ágúst kl. 20:00. Um kvöldið fer fram Sagnaþing þar sem rifjaðar verða upp gamlar og sannar
sögur af minnistæðu... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/irene-gook-er-102-ara-i-dag | Irene Gook er 102 ára í dag
Elsti íbúi Akureyrar, Irene Gook íbúi á Hlíð, er 102 ára í dag 11. ágúst. Irene er elsta barn Florence Gook og Arhurs Gook
trúboða og athafnamanns sem starfaði lengi hér á Akureyri og stofnaði m.a. Sjónarhæðarsöfnuðinn. Irene fæddist í London
11. ágúst 1909 en kom fyrst til Íslands 6 mánaða.... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bilun-stofnlogn-hitaveitu | Bilun stofnlögn hitaveitu
Bilun er í stofnlögn hitaveitu sem fæðir efra Gerðahverfið á Akureyri. Verið er að garfa niður á lögnina og
undirbúa viðgerð. Taka þarf vatn af hverfinu á meðan á viðgerðinni stendur. Reikna er með að vatnið verði tekið af um
kl. 14.30 en óvíst er hversu langan tíma viðgerðin tekur, en vonast ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjolbreytt-dagskra-i-hofi-a-odru-starfsari-menningarhussins | Fjölbreytt dagskrá í Hofi á öðru starfsári menningarhússins
Menningarhúsið Hof hefur annað starfsár sitt í dag, fimmtudaginn 11. ágúst, þegar að miðasalan opnar eftir sumarfrí og
vetrardagskráin verður kynnt. Rekstur hússins fyrsta starfsárið hefur gengið vel og er óhætt að segja að starfsemin hafi sett mark sitt á
bæj... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vinnur-ka-thridja-leikinn-i-rod | Vinnur KA þriðja leikinn í röð?
Fjórir leikir fara fram í 16. umferð 1. deildar karla í knattspyrnu í kvöld. Á Akureyrarvelli tekur KA á móti Þrótti R. og
hefst leikurinn kl. 19:00. KA hefur verið á ágætri siglingu eftir dapurt gengi í sumar. Norðanmenn hafa unnið tvo leiki í röð og fengið
7 stig af síðustu 9 mögulegum... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kaerunefnd-utbodsmala-hafnadi-krofum-a-hendur-akureyrarbae | Kærunefnd útboðsmála hafnaði kröfum á hendur Akureyrarbæ
Kærunefnd útboðsmála hefur hafnað kröfum Hamarsfells ehf. og Adarkris UAB, á hendur Akureyrarbæ. Fyrirtækin kærðu
ákvörðun Akureyrarbæjar um val á tilboði í útboðinu "Naustaskóli, uppsteypa og frágangur utanhúss." Kærunefnd
útboðsmála hafnaði kröfu kærenda um að ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tuttugasta-radstefna-nordmedia-haldin-a-akureyri | Tuttugasta ráðstefna NordMedia haldin á Akureyri
Á þriðja hundrað fjölmiðlafræðingar munu næstu daga setja svip sinn á mannlífið á Akureyri en þeir verða þar
samankomnir á alþjóðlegri norrænni ráðstefnu í Háskólanum á Akureyri. Um er að ræða 20. NordMedia
ráðstefnuna sem haldin hefur verið annað hvert ár í einhverju No... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nytt-vikurit-a-akureyri | Nýtt vikurit á Akureyri
Nýtt vikurit kemur út á Akureyri á morgun. Blaðið nefnist einfaldlega Akureyri og gefur Fótspor ehf það út. Ritstjóri er Björn
Þorláksson blaðamaður og rithöfundur. Meðal efnis í fyrsta blaðinu er úttekt á störfum L-listans sem hefur hreinan meirihluta í
bæjarstjórn á Akureyri. Einnig má nefna v... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fraleitt-ad-nordlenska-geymi-kjot | Fráleitt að Norðlenska geymi kjöt
Ingvar Már Gíslason, markaðsstjóri Norðlenska, mótmælir harðlega málflutningi um stöðu á lambakjötsmarkaði að
undanförnu. Meðal annars hafa forsvarsmenn stórra kjötvinnsla gagnrýnt hve lítið væri til af lambakjöti í landinu og nefnt m.a.
Norðlenska í því sambandi og haldið því fram að ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/falkaungi-a-logreglustodinni | Fálkaungi á lögreglustöðinni
Heldur óvenjulegur gestur fékk að gista í fangaklefa lögreglunnar á Akureyri í nótt. Var það fálkaungi sem göngufólk
fann fyrir ofan bæinn í gærkvöld og kom í hendur lögreglu. Í dag á að koma unganum til sérfræðinga hjá
Háskólanum á Akureyri en þangað til þá fær hann að sitja í grjótinu.
Að... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/dalvikreynir-la-gegn-topplidinu | Dalvík/Reynir lá gegn toppliðinu
Höttur lagði Dalvík/Reyni 4:1 er liðin mættust á Vilhjálmsvelli í gær í 2. deild karla í knattspyrnu. Höttur komst
í 4:0 með mörkum frá Óttari Steini Magnússyni, Stefáni Eyjólfssyni, Ragnari Péturssyni og Vilmari Sævarssyni. Dalvík/Reynir
náði að klóra í bakkann í uppbótartíma með marki... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorka-jafnadi-i-uppbotartima-gegn-val | Þór/KA jafnaði í uppbótartíma gegn Val
Þór/KA og Valur gerðu í kvöld 1:1 jafntefli á Þórsvelli í 13. umferð Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu. Laufey
Ólafsdóttir kom Val yfir snemma í seinni hálfleik og það mark virtist ætla að duga Valsstúlkum til sigurs. Þegar var komið
fram í uppbótartíma fékk Þór/KA hins vegar dæm... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/a-allra-vorum-stydur-hjartveik-born | Á allra vörum styður hjartveik börn
Góðgerðarfélagið „Á allra vörum" leggur nú af stað í sína fjórðu landssöfnun. Um er að ræða
kynningar- og fjáröflunarátak þar sem þjóðin sameinast og lætur gott af sér leiða. Félagið velur árlega eitt
viðráðanlegt verkefni og hefur m.a. safnað fyrir SKB, Ljósið og Krabbameinsfélag Ís... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/formadur-framsynar-fagnar-ummaelum-forsaetisradherra | Formaður Framsýnar fagnar ummælum forsætisráðherra
Formaður Framsýnar, Aðalsteinn Á. Baldursson, fagnar yfirlýsingum forsætisráðherra í morgun um að ekki séu uppi áform um
að leggja á matarskatt á almenning. Hann segist hafa heimildir fyrir því að ríkistjórnin hafi haft það til skoðunar, en með
þessum orðum forsætisráð... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skip-utgerdarfelags-akureyringa-fa-ny-nofn | Skip Útgerðarfélags Akureyringa fá ný nöfn
Útgerðarfélag Akureyringa hefur nú tekið við þeim tveim togurum sem fylgdu með í kaupum Samherja hf. á eignum Brims á Akureyri.
Skipið Sólbakur EA 1 fær aftur sitt gamla nafn Kaldbakur EA 1. Hinn ísfisktogarinn Mars RE 305 fær einnig sitt fyrra nafn Árbakur EA 5.
Skipstjóri á ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/landslidsmarkvordur-faereyja-til-kathors | Landsliðsmarkvörður Færeyja til KA/Þórs
KA/Þór hefur fengið landsliðsmarkvörð Færeyja, Fríðu Peterson, til liðs við félagið fyrir átökin í
N1-deild kvenna í handbolta í vetur. Fríða er 25 ára og lék með meistaraliði Færeyja sl. vetur.
Að sögn Erlings Kristjánssonar, formanns KA/Þórs, er ólíklegt að liðið styrki sig fre... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/toppslagur-a-thorsvelli-i-kvold | Toppslagur á Þórsvelli í kvöld
Þór/KA og Valur mætast í toppslag í kvöld í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu kl. 18:30 á Þórsvelli í 13.
umferð deildarinnar. Liðin eru í öðru og þriðja sæti, Valur hefur 28 stig en Þór/KA 22 stig. Valsstúlkur þurfa nauðsynlega
á sigri að halda til þess að missa ekki topplið Stjörnunnar o... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/arleg-kaffisala-a-holavatni | Árleg kaffisala á Hólavatni
Árleg kaffisala sumarbúða KFUM og KFUK að Hólavatni í Eyjafjarðarsveit fer fram sunnudaginn 14. ágúst kl. 14.30-17.00. Á staðnum eru
leiktæki fyrir börnin, hoppukastali, trampólín og bátar. Þá verður nýbyggingin opin en stefnt að því að taka hana í
notkun sumarið 2012. Aðsókn í sumar var sú ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/forslatrun-hefst-um-midjan-agust-hja-nordlenska | Forslátrun hefst um miðjan ágúst hjá Norðlenska
Norðlenska hefur tekið ákvörðun um verðlagningu sauðfjárafurða haustið 2011. Verðskráin tekur tillit til sjónarmiða
bæði almennings og bænda. Norðlenska verður með samkeppnishæft verð til bænda og mun endurskoða verðskrána ef tilefni verður til.
Einungis er um eina verðsk... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skuggamyndir-fra-bysans-a-heitum-fimmtudegi | Skuggamyndir frá Býsans á Heitum fimmtudegi
Á sjöunda Heitum Fimmtudegi þann 11. ágúst verður magadanstónlist frá Makedóníu í fókus í Deiglunni. Sveitin
Skuggamyndir frá Býsans stendur fyrir stuðinu en tónleikarnir hefjast kl. 21:30.
Það eru þeir Ásgeir Ásgeirsson á tambouragítar, Haukur Gröndal á klarinett, Þorgrímur ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/faereyingar-logdu-islendinga-ad-velli-i-landskeppni-i-skak | Færeyingar lögðu Íslendinga að velli í landskeppni í skák
Færeyingar sigruðu Íslendinga í landskeppni í skák sem fram fór á Húsavík og Akureyri um helgina. Færeyingar fengu samtals 12,5
vinninga en Íslendingar 9,5 vinninga. Þetta er í annað sinn í röð sem Færeyingar leggja Íslendinga að velli í landskeppni.
Færeyingar ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oskad-eftir-abendingum-um-fallega-garda-a-akureyri | Óskað eftir ábendingum um fallega garða á Akureyri
Framkvæmdadeild Akureyrarbæjar óskar eftir ábendingum frá bæjarbúum um góðan árangur í fegrun og hirðingu bæjarins.
Sérstaklega verður horft til hönnunar, frágangs lóðar/athafnasvæðis, viðhalds, hirðingar, umgengni, fjölbreytilegs plöntuvals og
aðlaðandi götumyndar. Ef... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/magni-einum-sigri-fra-urslitum | Magni einum sigri frá úrslitum
Magni er aðeins einum sigri frá sæti í úrslitakeppninni eftir góða ferð austur á Seyðisfjörð þar sem liðið
lagði Huginn 2:1 að velli í D-riðli 3. deildar karla sl. helgi.
Brynjar Skúlason kom heimamönnum yfir snemma leiks en Ibra Jagne jafnaði metin fyrir hálfleik. Það var svo Davíð Jón S... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/handverksmadur-arsins-og-solubas-arsins-a-handverkshatid | Handverksmaður ársins og sölubás ársins á Handverkshátíð
Þriðja degi Handverkshátíðar á Hrafnagili er lokið og hafa 13.000 gestir heimsótt hátíðina. Sýningin í ár
einkennist af fjölbreyttum og vönduðum sýningarbásum. Hefð er fyrir því að veita verðlaun fyrir handverksmann ársins og
sölubás ársins á Handverkshátíð.
Guðr... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-steinla-i-gardabaenum | Þór steinlá í Garðabænum
Stjarnan skellti Þór 5:1 í Garðabænum í dag er liðin mættust í 14. umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu. Stjarnan hafði 2:1
yfir í hálfleik en tók svo öll völd í þeim seinni. Þórsarar fara því ekki með gott vegnesti í næsta leik, sem er
bikarúrslitaleikurinn gegn KR á laugardaginn. Garðar J... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/islenskur-sigur-a-opna-nordurlandamotinu-i-knattspyrnu | Íslenskur sigur á Opna Norðurlandamótinu í knattspyrnu
Íslenska unglingalandsliðið í knattspyrnu, skipað leikmönnum 17 ára og yngri, sigraði á Opna Norðurlandamótinu, er liðið lagði
Dani að velli í úrslitaleik á Þórsvellinum í dag. Eina mark leiksins skoraði KA-maðurinn Ævar Ingi Jóhannesson í fyrri
hálfleik. Ísland át... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/erlendir-ferdamenn-i-vanda-i-skyndidalsa | Erlendir ferðamenn í vanda í Skyndidalsá
Fyrr í dag lentu erlendir ferðamenn í hættu í Skyndidalsá þegar þeir óku í ána á röngum stað þannig að
hún reif bíl þeirra með sér og bar hann um 50 metra niður með straumnum. Um var að ræða svissnesk hjón á besta aldri sem voru
á leið í Lónsöræfi. Þegar bíllinn stöðvaðist í ánn... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikill-mannfjoldi-a-dalvik | Mikill mannfjöldi á Dalvík
Lögreglan á Dalvík hefur haft í nógu að snúast að undanförnu en gríðarlegur mannfjöldi hefur verið í bænum
í tengslum við Fiskidaginn mikla en hátíðahöldin náðu hámarki í gær. Talið er að á milli 20 og 30 þúsund
manns hafi sótt bæinn heim. Mikil ölvun var í bænum en skemmtanahald fór þó að me... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-saekir-stjornuna-heim-lykilmenn-hvildir | Þór sækir Stjörnuna heim-Lykilmenn hvíldir
Þórsarar munu hvíla þrjá lykilmenn er liðið sækir Stjörnuna heim í Pepsi-deild karla í knattspyrnu í dag kl.
17:00 í 14. umferð deildarinnar. Þetta eru þeir Jóhann Helgi Hannesson, Sveinn Elías Jónsson og Janez Vrenko. Þeir eru allir á gulum
spjöldum og yrðu í leikbanni í úrsl... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/annar-sigur-ka-i-rod | Annar sigur KA í röð
KA heldur áfram að fjarlægast fallsæti en liðið vann sinn annan leik í röð í 1. deild karla í knattspyrnu með 2:1 sigri gegn Haukum
á Ásvöllum í dag. KA komst í 2:0 með mörkum frá Elmari Dan Sigþórssyni og Davíði Rúnari Bjarnasyni en Hilmar
Trausti Arnarsson minnkaði muninn fyrir Hauka á lokamínútu... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/erlendir-ferdamenn-sluppu-med-skrekkinn-thegar-ruta-lenti-ofan-i-blautuloni | Erlendir ferðamenn sluppu með skrekkinn þegar rúta lenti ofan í Blautulóni
Litlu munaði að illa færi fyrr í dag þegar rúta full af tékkneskum ferðamönnum lenti ofan í Blautulóni á Fjallabaksleið
nyrðri. Tékkarnir, sem eru 22 talsins, komust allir á þurrt af sjálfsdáðum og gátu hringt eftir aðstoð. Voru björgunarsveitir... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjarborgin-vid-vindheima-lagfaerd | Fjárborgin við Vindheima lagfærð
Ofan við Vindheima á Þelamörk er fallega gerð hringlaga grjóthleðsla með allt að mannhæðarháum veggjum. Mannvirkið hefur verið
nefnt Fjárborg, Sauðaborg eða Vindheimaborg. Mannvirkið hefur staðið ótrúlega vel, en nokkuð grjót hefur þó hrunið úr
því, líklega vegna þess að skepnur hafa nu... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/selveidar-i-horga | Selveiðar í Hörgá
Menn sem voru við veiðar í Hörgá í vikunni urðu varir við sel sem hafði gengið upp í ána. Brugðist var skjótt
við enda getur selur valdið miklum usla í lífríki árinnar og truflað veiðar verulega. Hann er því enginn aufúsugestur. Selurinn
var skotinn á færi og hræið fjarlægt.
Þetta er ekki í fyrsta ski... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eftirlyst-bifreid-fundin | Eftirlýst bifreið fundin
Hyundai Sonata bifreiðin með skráningarnúmerinu SY 152 sem lögreglan á Akureyri lýsti eftir í gærdag er fundin. Fannst hún eftir
ábendingu vegfaranda eftir að hann hafði séð að lýst var eftir bifreiðinni. |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sannfaerdur-um-ad-mjog-margir-borgarbuar-vilja-hafa-reykjavikurflugvoll-afram-a-sinum-stad | Sannfærður um að mjög margir borgarbúar vilja hafa Reykjavíkurflugvöll áfram á sínum stað
Oddur Helgi Halldórsson formaður bæjarráðs Akureyrar segir að Reykjavíkurflugvöllur eigi að vera áfram í Vatnsmýrinni.
"Afstaða mín til Reykjavíkurflugvallar er skýr, það er hlutverk höfuðborgarinnar að sjá til þess að það sé
lífv... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/handverkshatidin-ad-hefjast | Handverkshátíðin að hefjast
Handverkshátíðin við Hrafnagilsskóla verður opnuð í dag föstudaginn 5. ágúst kl. 12.00. Hátíðin er sannkölluð
fjölskylduhátíð þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi. Hundrað sýnendur sýna handverk sitt og hönnun þar sem
rammíslenskt hráefni er áberandi.
Félag ungra bænda á Norðurlandi st... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/systrasyningu-johonnu-og-drafnar-lykur-um-helgina | Systrasýningu Jóhönnu og Drafnar lýkur um helgina
"Systrasýningu" Jóhönnu Friðfinnsdóttur og Drafnar heitinnar Friðfinnsdóttur í Ketilhúsinu á Akureyri, lýkur um helgina, 6.-7.
ágúst. Listakonan Jóhanna og aðstandur Drafnar verða á staðnum sýningarhelgina, taka á móti gestum og fræða þá um
listmunina.
Jóhanna Friðfinns... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/logreglan-lysir-eftir-bifreid | Lögreglan lýsir eftir bifreið
Lögreglan á Akureyri lýsir eftir bifreiðinni SY152 sem er Hyundai Sonata árgerð 1995, blá/græn að lit. Bifreiðin var tilkynnt stolin
þann 31 ágúst síðastliðinn. Ef fólk verður vart við bifreiðina er það beðið um að hafa samband við lögregluna |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fylkir-sigradi-i-arbaenum | Fylkir sigraði í Árbænum
Fylkir lagði Þór/KA að velli, 3:1, er liðin áttust við í Árbænum í kvöld í 12. umferð Pepsi-deildar kvenna í
knattspyrnu. Fjolla Shala skoraði tvívegis fyrir Fylki og Heiða Antonsdóttir eitt mark. Mark Þórs/KA skoraði Manya Makoski. Þór/KA er áfram
í þriðja sæti deildarinnar þrátt fyrir tapið í... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hulda-tekur-saeti-formanns-i-umhverfisnefnd | Hulda tekur sæti formanns í umhverfisnefnd
Á fundi bæjarráðs Akureyrar í morgun var samþykkt eftirfarandi tillaga L-listans um breytingar á fulltrúum listans í umhverfisnefnd: Hulda
Stefánsdóttir tekur sæti formanns í stað Sigmars Arnarssonar. Páll Steindórsson tekur sæti aðalmanns í stað Sigmars. Páll
tekur jafnframt ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vis-einn-af-bakhjorlum-hofs-naestu-thrju-starfsarin | VÍS einn af bakhjörlum Hofs næstu þrjú starfsárin
VÍS og Menningarhúsið Hof á Akureyri hafa undirritað samstarfssamning um að VÍS verði einn af bakhjörlum Hofs næstu þrjú
starfsárin. Vel á annað hundrað þúsund gesta heimsóttu Hof á fyrsta starfsári en húsið var opnað í lok síðasta
sumars. Hof skipar mikilvægan sess í m... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/brasilisk-sveifla-a-heitum-fimmtudegi-i-deiglunni-1 | Brasilísk sveifla á Heitum fimmtudegi í Deiglunni
Á sjötta Heitum Fimmtudegi, í kvöld 4. ágúst, verður brasilísk sveifla í algleymi í Deiglunni, eins og hún gerist best.
Tónleikarnir hefjast kl. 21:30. Það er brasilíska söng- og leikkonan Jussaman da Silva sem fer fyrir sínu liði sem flytur bossa nova og sömbur frá
Bra... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tangokvedja-til-kristjans | Tangókveðja til Kristjáns
Kristjana Arngrímsdóttir og hljómsveit efna til tónleika í Bergi menningarhúsi á Dalvík að
kvöldi Fiskidagsins mikla, 6. ágúst kl. 21:00. Tónleikarnir verða mögnuð tangóveisla þar sem flutt verður efni af geisladiskinum
Tangó fyrir lífið, sem Kristjana gaf út í mars sl.
Hljómsveitin sem starfa... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thridji-deildarsigur-thors-i-rod | Þriðji deildarsigur Þórs í röð
Þórsarar halda sigurgöngu sinni áfram í Pepsi-deild karla í knattspyrnu en liðið vann sinn þriðja leik í röð með
3:0 sigri gegn Fram í kvöld á heimavelli. Gunnar Már Guðmundsson kom Þór yfir í kvöld eftir fimm mínútna leik og
staðan 1:0 í hálfleik. Varamennirnir Sigurður Marinó Kristjánss... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/framkvaemdir-hafnar-i-daggarlundi-a-akureyri | Framkvæmdir hafnar í Daggarlundi á Akureyri
Framkvæmdir í Daggarlundi og Brálundi á Akureyri eru hafnar. Það eru framkvæmdadeild og Norðurorka sem standa fyrir verkinu en um er að
ræða jarðvegsskipti og lagningu fráveitu- og vatnslagna í Daggarlund og í Brálund að hluta. Heildarlengd gatna er um 200 m og skal verkinu s... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/framkvaemdaleyfi-vegna-vadlaheidarganga-samthykkt-i-svalbardsstrandarhreppi | Framkvæmdaleyfi vegna Vaðlaheiðarganga samþykkt í Svalbarðsstrandarhreppi
Skipulagsnefnd Svalbarðsstrandarhrepps samþykkti á fundi sínum í gær að mæla með útgáfu framkvæmdaleyfis vegna
Vaðlaheiðarganga. Nefndin telur mikilvægt að tekið sé fram í texta framkvæmdaleyfisins að gengið verði frá göngu- og
hjólreiðastíg. Sve... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/i-kreppunni-blomstar-handverk-og-honnun | Í kreppunni blómstar handverk og hönnun
Verið er að leggja lokahönd á undirbúning Handverkshátíðar 2011 sem fram fer dagana 5. - 8. ágúst nk. í Hrafnagilsskóla
í Eyjafjarðarsveit. Fjölbreytnin hefur aldrei verði meiri og sýnir hún glöggt þá miklu grósku sem er í íslensku handverki og
hönnun í dag. Af þeim hundrað sýnen... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fimm-leikir-i-pepsi-deild-karla-i-kvold | Fimm leikir í Pepsi-deild karla í kvöld
Fimm leikir fara fram í Pepsi-deild karla í knattspyrnu í kvöld í 13. umferð deildarinnar. Á Þórsvelli tekur Þór á
móti botnliði Fram kl. 19:15. Átta stig skilja liðin að, Þórsarar eru í níunda sæti með 14 stig en Fram hefur sex stig á
botninum og þarf því virkilega á þremur stig... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ok-inn-i-nautgripahjord-a-eyjafjardarbraut | Ók inn í nautgripahjörð á Eyjafjarðarbraut
Ungur ökumaður slapp lítið meiddur þegar hann ók inn í nautgripahjörð á Eyjafjarðarbraut Vestri um klukkan tvö í nótt.
Einn nautgripur drapst og annar var svo mikið meiddur að dýralæknir aflífaði hann á staðnum.
Ökumaðurinn telur sig hafa ekið á að minnsta kosti þrjá gripi og ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/landskeppni-vid-faereyinga-i-skak-haldin-a-nordurlandi | Landskeppni við Færeyinga í skák haldin á Norðurlandi
Um næstu helgi fer fram landskeppni við Færeyinga í skák og verður teflt á Húsavík og Akureyri. Keppnin fer hún nú fram
í 17. sinn og hafa skákfélög af Norður- og Austurlandi séð um keppnina fyrir Íslands hönd og liðsmenn þeirra skipað sveit
Íslands. Færeyingar unnu... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/spaenskur-framherji-til-thorska | Spænskur framherji til Þórs/KA
Spænski framherjinn Maria Perez Fernandez er genginn í raðir Þórs/KA og mun leika með liðinu það sem eftir er Pepsi-deildar kvenna þetta
tímabilið. Þór/KA heldur því áfram að styrkja hópinn fyrir seinni hluta tímabilsins en nýlega gekk hin bandaríska Diane
Coldwell til liðs við norðanliði... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samkomulag-um-uppgjor-afleidusamninga-milli-stapa-og-landsbankans | Samkomulag um uppgjör afleiðusamninga milli Stapa og Landsbankans
Stapi lífeyrissjóður og Landsbanki Íslands hf. hafa náð samkomulagi um uppgjör á afleiðusamningum, en deilt hefur verið um uppgjör
þessara samninga allt frá hruni. "Þetta eru búnir að vera langir og strangir samningar milli þessara aðila, allt frá því í
... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hus-reist-undir-kaffihus-i-lystigardinum-naesta-vetur | Hús reist undir kaffihús í Lystigarðinum næsta vetur
„Þetta verður örugglega krefjandi verkefni, en ég er bjartsýnn á að það muni ganga upp," segir Njáll Trausti Friðbertsson en
félag hans 1912 veitingar átti hagstæðasta tilboðið í rekstur kaffihúss og minjagripasölu sem reist verður í Lystigarðinum á
Akureyri á komand... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aetla-ad-syna-mig-og-sanna | Ætla að sýna mig og sanna
„Þetta leggst rosalega vel í mig og það er gaman að fá svona tækifæri til að sýna sig og sanna. Það er svo vonandi að
maður nýti það,” segir knattspyrnumaðurinn Atli Sigurjónsson leikmaður Þórs. Hollenska úrvalsdeildarliðið N.E.C.
Nijmegen hefur boðið Atla að koma til æfinga hjá liðinu og mu... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjolbreytt-dagskra-a-fiskideginum-mikla-a-dalvik | Fjölbreytt dagskrá á Fiskideginum mikla á Dalvík
Fjölskylduhátíðin Fiskidagurinn mikli er nú haldinn í ellefta sinn. Frá upphafi hefur markmið hátíðarinnar verið að
fólk komi saman, hafi gaman og borði fisk. Ennfremur er allur matur og skemmtan á hátíðarsvæðinu ókeypis. Það má segja að
setning Fiskidagsins mikla sé með... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samherji-tekur-formlega-vid-rekstri-ua | Samherji tekur formlega við rekstri ÚA
Togarinn Baldvin NC 100 kom til Akureyrar í kvöld með fyrsta aflann til vinnslu í fiskiðjuveri Útgerðarfélags Akureyringa en vinnsla hefst á
morgun. Þar með má segja að starfsemi ÚA sé formlega hafin á vegum nýrra eigenda en í byrjun maí var gengið frá samningi
milli Brims og Samh... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rolegt-a-halendinu-yfir-verslunarmannahelgina | Rólegt á hálendinu yfir verslunarmannahelgina
Umferð hefur gengið vel um verslunarmannahelgina á hálendinu að sögn hálendisvaktar Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Svo virðist
sem minni umferð sé núna á hálendinu en hefur verið undanfarnar verslunarmannahelgar. Ekki er gott að segja hvað veldur en veðrið er
búið að ve... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/um-2000-faerri-ferdamenn-til-hriseyjar-i-juni-i-ar-en-i-fyrra | Um 2000 færri ferðamenn til Hríseyjar í júní í ár en í fyrra
Mun færri ferðamenn lögðu leið sína til Hríseyjar í júní en í sama mánuði í fyrra og munar þar um 2000 manns,
að sögn Smára Thorarensen á Hríseyjarferjunni Sævari. Í júní árið 2010 fóru um 7000 manns með ferjunni til
eyjarinnar en þeir voru 5000 í ár. „Júní v... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/syningu-ornu-lykur-med-listamannsspjalli-a-fimmtudag | Sýningu Örnu lýkur með listamannsspjalli á fimmtudag
Fimmtudaginn 4. ágúst lýkur sýningu Örnu G. Valsdóttur, myndlistakonu, í Flóru í Listagilinu á Akureyri með listamannsspjalli.
Spjallið hefst klukkan 20.00. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Kvöldið er gott tækifæri fyrir þau sem eiga eftir að sjá sýninguna og
... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hefdum-viljad-sa-betri-utkomu-eftir-sidasta-leikar | Hefðum viljað sá betri útkomu eftir síðasta leikár
Leikfélag Akureyrar mun bjóða upp á þrjár sýningar á næsta ári á eigin vegum og átta gestasýningar í
samstarfi við aðra. Meðal sýninga er Gulleyjan í samstarfi við Borgarleikhúsið og verður önnur af tveimur stóru sýningum LA
á komandi vetri. Þá mun leikfélagið einnig s... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/talsvert-ad-gera-en-skemmtanahald-gekk-vel | Talsvert að gera en skemmtanahald gekk vel
Talsvert var að gera hjá lögreglunni á Akureyri í nótt vegna skemmtanahalds á Akureyri. Mikill fjöldi fólks var í miðbæ
Akureyrar í gærkvöldi og nótt og þó nokkur ölvun. Lögreglan þurfti aðallega að hafa afskipti af fólki sem hafði
sofnað ölvunarsvefni utandyra víðs vegar um b... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyringar-og-gestir-njota-fjolbreytrar-dagskrar-a-einni-med-ollu | Akureyringar og gestir njóta fjölbreytrar dagskrár á Einni með öllu
Akureyringar og fjölmargir gestir bæjarins njóta fjölbreyttrar dagskrár á fjölskylduhátíðinni Ein með öllu, sem hófst sl.
fimmtudag og stendur alla helgina. Skemmtidagskrá var á Ráðhústorgi í dag, þar sem Páll Óskar Hjálmtýsson var á
meðal skemmtikraft... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/saeludagur-i-sveitinni | Sæludagur í sveitinni
Fjöldi fólks lagði leið að Möðruvöllum í Hörgársveit í dag, þegar haldinn var Sæludagur í sveitinni. Þar var
m.a. haldið sveitafitness og traktorsspyrna og var keppni bæði spennandi og skemmtileg. Blómagarðar voru opnir, upplestur var á ljóðum í
Möðruvallakirkju, kirkjukórin seldi vöfflukaffi í Le... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/glaesilegar-konur-a-arlegu-hatta-og-pilsamoti-ga | Glæsilegar konur á árlegu Hatta og pilsamóti GA
Um 40 konur mættu til leiks í árlegu í Hatta og pilsamóti Golfklúbbs Akureyrar í gær og voru þær hver annarri glæsilegri.
Leikin var 9 holu punktakeppni, auk þess sem veitt voru verðlaun fyrir fæstu puttin, þar sem keppt var um forláta verðlaunagrip sem allar konur vilja ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/afurdir-beint-fra-byli-til-solu-i-huldubud-i-horgardal | Afurðir beint frá býli til sölu í Huldubúð í Hörgárdal
Hulda Arnsteinsdóttir og Róbert Fanndal, bændur í Litla-Dunhaga í Hörgárdal, opnðu í dag verslunina Huldubúð. Þar eru til
sölu afurðir beint frá býli og segir Hulda að hugmyndin sé að hafa opið alla daga nema þriðjudag frá kl. 16-18. Í Litla-Dunhaga er
stundaður kú... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/reykjavikurflugvollur-einn-af-lykilthattum-i-thessari-bradathjonustu | Reykjavíkurflugvöllur einn af lykilþáttum í þessari bráðaþjónustu
Alls hafa verið farin yfir 260 sjúkraflug á vegum Slökkviliðs Akureyrar það sem af er ári. Í þessum ferðum hafa verið fluttir
rúmlega 270 sjúklingar. "Þessi fjöldi sjúkrafluga er alveg í samræmi við fjölda ferða á sama tíma á síðasta
ári. Ferðir erlendis... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stjornlagarad-afhenti-frumvarp-ad-nyrri-stjornarskra | Stjórnlagaráð afhenti frumvarp að nýrri stjórnarskrá
Stjórnlagaráð, afhenti forseta Alþingis, Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, frumvarp að nýrri stjórnarskrá í
Iðnó í dag. Frumvarpið var samþykkt einróma með atkvæðum allra ráðsfulltrúa á síðasta fundi ráðsins,
miðvikudaginn 27. júlí síðastliðinn. Í frumvarpinu er gert rá... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aukin-loggaesla-um-verslunarmannahelgina | Aukin löggæsla um verslunarmannahelgina
Ríkislögreglustjóri í samvinnu við lögregluembætti landsins og tollgæsluna stendur fyrir hertu eftirliti gegn sölu, meðferð og neyslu
ólöglegra fíkniefna um verslunarmannahelgina. Eftirlitið er til viðbótar við aðra löggæslu og er ætlað að efla og styrkja eftirlit
og afskipti ten... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hugmyndir-um-hotel-og-veitingahus-a-drottningarbrautarreitnum | Hugmyndir um hótel og veitingahús á Drottningarbrautarreitnum
Fjárfestingar hafa sýnt því áhuga að byggja upp starfsemi á Drottningarbrautarreitnum svokallaða á Akureyri, sem nær frá
Kaupvangsstræti suður að Samkomuhúsi. Oddur Helgi Halldórsson formaður bæjarráðs, segir að á þessu svæði sé gert
ráð fyrir ráð fyrir veit... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tveir-a-slysadeild-eftir-likamsaras | Tveir á slysadeild eftir líkamsárás
Tveir voru fluttir á slysadeild Sjúkrahússins á Akureyri á fimmta tímanum í nótt eftir að maður hafði ráðist á
þá og veitt þeim áverka. Atvikið átti sér stað á Strandgötu og var árásarmaðurinn horfinn þegar
lögreglumenn komu á vettvang. Hann er ófundinn og málsatvik eru enn óljós.
Að... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ferdafolki-fjolgadi-i-grimsey-um-leid-og-vedur-batnadi | Ferðafólki fjölgaði í Grímsey um leið og veður batnaði
„Júní var erfiður, því er ekki að neita og þar skipti tíðarfarið mestu," segir Ragnhildur Hjaltadóttir í Grímsey um
ferðamannastraum til eyjarinnar. Það sem af er júlí hafa ferðamenn hins vegar streymt til eyjarinnar enda batnaði veðrið til muna þegar hann
gekk í g... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/framkvaemdaleyfi-vegna-vadlaheidarheidarganga-samthykkt-i-thingeyjarsveit | Framkvæmdaleyfi vegna Vaðlaheiðarheiðarganga samþykkt í Þingeyjarsveit
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar samþykkti á fundi sínum í dag framkvæmdaleyfi vegna Vaðlaheiðarganga og var sveitarstjóra falið að
gefa það út enda verði gengið frá samningum um greiðslu fyrir leyfið. Skipulags- og umhverfisnefnd hafði áður tekið drö... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjolskylduhatidin-ein-med-ollu-hefst-a-akureyri-i-dag | Fjölskylduhátíðin Ein með öllu hefst á Akureyri í dag
Hin árlega fjölskylduhátíð Ein með öllu, hefst á Akureyri í dag, fimmtudag og stendur alla helgina. Líkt og áður er
áhersla er lögð á að bæjarbúar og gestir upplifi sem bestu stemmninguna. Sem fyrr eru það Vinir Akureyrar sem standa að
hátíðinni. Skúli Gautason fors... |
Subsets and Splits
No community queries yet
The top public SQL queries from the community will appear here once available.