Search is not available for this dataset
url stringlengths 21 288 | text stringlengths 1 1.35M |
|---|---|
https://www.vikubladid.is/is/frettir/buid-ad-vera-alveg-storkostlegt-aevintyri-hingad-til | Búið að vera alveg stórkostlegt ævintýri hingað til
Eikarbáturinn Húni II, sem sigldi frá Akureyri áleiðis til Færeyja sl. miðvikudag, er nú staddur í Þórshöfn en
þangað kom báturinn frá Klakksvík í gærmorgun. Í fyrramálið siglir Húni til Tvöroyri og sameinast þar
bátaflotanum sem siglir til Húsavíkur í tengslum við ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/um-150-prestar-bodadir-til-fundar-a-akureyri | Um 150 prestar boðaðir til fundar á Akureyri
Prestafélag Íslands heldur prestafund á Akureyri næstkomandi miðvikudag í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju. Um 150 prestar landsins eru boðaðir til
fundarins, þar sem á að ræða málefni kirkjunnar. Á meðal þess sem rætt verður á fundinum, er skýrsla
rannsóknarnefndar kirkjuþin... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vel-heppnadri-gonguviku-lokid | Vel heppnaðri gönguviku lokið
Gönguviku Akureyrar og nágrennis, þar sem göngur af ýmsum toga og erfiðleikastigum voru í aðalhlutverki, lauk um helgina. Framkvæmd
Gönguvikunnar, sem haldin var í þriðja sinn, tókst vel í alla staði og þátttakan góð. Gönguvikan hófst sunnudaginn 3.
júlí sl. þegar gengið var úr Öxnadal upp... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bryndis-byrjar-vel-a-norska-meistaramotinu | Bryndís byrjar vel á norska meistaramótinu
Sundkonan Bryndís Rún Hansen fer vel af stað á norska meistaramótinu í 50 m laug sem nú stendur yfir. Bryndís hefur þegar unnið
gullverðlaun í 50 m baksundi, tvö silfurverðlaun og eitt brons.
Bryndís keppir í fimm greinum á mótinu, 50 og 100 m flugsundi, 50 og 100m skriðsundi ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ohreinindi-i-heita-vatninu-a-akureyri | Óhreinindi í heita vatninu á Akureyri
Nokkuð hefur borið á því í gærkvöld og í morgun einkum á Brekkunni á Akureyri og á stöku stað í Þorpinu
að óhreininda gæti í heita vatninu. Ástæður þessa eru þær að vegna viðgerða og viðhalds á
vinnslusvæðinu á Hjalteyri þurfti að stöðva dælingu þaðan, en að öllu jöfnu er mest af þ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samtokin-drekaslod-med-fyrirlestra-a-akureyri | Samtökin Drekaslóð með fyrirlestra á Akureyri
Samtökin Drekaslóð í Reykjavík, sem eru samtök sem aðstoða þolendur hvers konar ofbeldis, verða með fyrirlestra í Rósenborg
á Akureyri á morgun, þriðjudaginn 12. júlí kl. 10.30. Á miðvikudag ætla Drekarnir í Drekaslóð svo að hafa vinnudag með
Aflskonum á Akureyri. Að Drekas... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sidanefnd-fsa-tekid-til-starfa | Siðanefnd FSA tekið til starfa
Ný þverfagleg siðanefnd tók til starfa við FSA í apríl sl. Nefndin er skipuð samkvæmt reglugerð um vísindarannsóknir á
heilbrigðissviði. Aðalmenn í siðanefnd eru; Sigmundur Sigfússon, formaður, Sigríður Sía Jónsdóttir, varaformaður, Sigurður
Kristinsson, ritari, Gunnar Þór Gunnarsson, Guð... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-aetlar-ad-styrkja-leikmannahopinn | Þór ætlar að styrkja leikmannahópinn
Knattspyrnulið Þórs ætlar að freista þess að styrkja leikmannahópinn þegar leikmannaglugginn opnar föstudaginn 15.
júlí. Samkvæmt heimildum Vikudags eru Þórsarar einna helst að leita að framherja en liðið hefur aðeins skorað níu
mörk í tíu leikjum.
Þórsarar gætu einnig þurft að kræk... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ferdamenn-kynni-ser-adstaedur-adur-en-lagt-er-i-hann | Ferðamenn kynni sér aðstæður áður en lagt er í hann
Í ljósi þess að þjóðvegur eitt verður í sundur um sinn sunnan Mýrdalsjökuls má reikna með aukinni umferð um
hálendið og þá sérstaklega Fjallabaksleið nyrðri og jafnvel Sprengisandsleið. Í ljósi þess vill Slysavarnafélagið
Landsbjörg beina því til ferðamanna að kynna s... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mateja-skoradi-tvennu-i-sigri-thorska | Mateja skoraði tvennu í sigri Þórs/KA
Mateja Zver var á skotskónum í dag fyrir lið Þórs/KA sem kom sér upp í þriðja sæti Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu
með 2:1 sigri gegn KR á KR-velli í dag, í fyrsta leiknum í 9. umferð deildarinnar. Mateja kom Þór/KA yfir seint í fyrri
hálfleik en Berglind Bjarnardóttir jafnaði f... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/toluvert-um-akstur-undir-ahrifum-fikniefna-a-akureyri | Töluvert um akstur undir áhrifum fíkniefna á Akureyri
Þó nokkuð hefur verið um akstur undir áhrifum fíkniefna á Akureyri upp á síðkastið og hefur lögreglan á Akureyri tekið
sex ökumenn úr umferð á rúmum mánuði vegna þessa. Nú síðast voru tveir stöðvaðir að kvöldi sl. mánudags
sem er heldur óvenjulegt. Það sem af er þes... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/listasafnid-a-akureyri-og-menningarmidstodin-i-listagili-sameinast | Listasafnið á Akureyri og Menningarmiðstöðin í Listagili sameinast
Listasafnið á Akureyri og Menningarmiðstöðin í Listagili verða sameinuð í eina stofnun, samkvæmt tillögu sem samþykkt var á
síðasta fundi stjórnar Akureyrarstofu. Markmið breytinganna er að efla Listagilið sem miðstöð sjónlista utan höfuðborgarsvæðisins... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrsta-skoflustungan-ad-konnasafni-i-horgarsveit-tekin-i-dag | Fyrsta skóflustungan að Konnasafni í Hörgársveit tekin í dag
Valgerður Sigurbergsdóttir matráðskona hjá verktakafyrirtækinu Skútabergi á Akureyri, tók í dag fyrstu skóflustunguna að
Vinnuvélasafni Konráðs Vilhjálmssonar, að viðstöddu fjölmenni. Safnið verður reist til minningar um eiginmann Valgerðar og mun rísa
á Mold... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hatt-bensinverd-og-kuldatid-hafa-haft-ahrif-a-ferdalog | Hátt bensínverð og kuldatíð hafa haft áhrif á ferðalög
Færri Íslendingar hafa lagt leið sína norður í land en vanalega það sem af er sumri, en svo virðist sem álíka margir útlendingar
séu á ferðinni. Um liðna helgi var mikið um að vera á Akureyri, m.a. tvö stór fótboltamót og var margt um manninn í
bænum að vanda.
„Hel... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/heldur-faerri-faedingar-a-fsa-i-ar-en-i-fyrra | Heldur færri fæðingar á FSA í ár en í fyrra
Fyrstu sex mánuði ársins voru fæðingar á fæðingardeild Sjúkrahússins á Akureyri samtals 185, eða heldur færri en á
sama tímabili í fyrra, þegar fæðingar voru alls 234. Á síðasta ári var mikið að gera á fæðingardeild FSA en
þá var þar metfjöldi fæðinga.
Alls urðu fæðingarnar 5... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skagamenn-heldu-sigurgongu-sinni-afram-a-akureyri-i-kvold | Skagamenn héldu sigurgöngu sinni áfram á Akureyri í kvöld
Skagamenn héldu sigurgöngu sinni áfram er þeir sóttu KA-menn heim á Akureyrarvöll í kvöld, í 1. deild karla á
Íslandsmótinu í knattspyrnu. Lokatölur leiksins urðu 4-1, þar sem gestirnir skoruðu tvö mörk í hvorum hálfleik. Í
leikhléi var staðan 2-0 Skagamönnum í ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/starfraekja-a-mottoku-fyrir-brotajarn-og-hjolbarda-a-oseyri | Starfrækja á móttöku fyrir brotajárn og hjólbarða á Óseyri
Fyrirtækið Fura ehf. hefur óskað eftir leyfi til að starfrækja móttöku fyrir brotamálma og notaða hjólbarða í vesturhluta
húsnæðis og á lóðinni að Óseyri 3. Meirihluti skipulagsnefndar Akureyrarbæjar telur að umbeðin starfsemi geti verið á
lóðinni og var skipul... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gv-grofur-med-laegra-tilbodid-i-framkvaemdir-vid-daggarlund | GV gröfur með lægra tilboðið í framkvæmdir við Daggarlund
Tvö tilboð bárust í verkið; Daggarlundur - gatnagerð og lagnir, en tilboðin voru opnuð hjá framkvæmdadeild Akureyrarbæjar í gær.
Fyrirtækið GV gröfur ehf. átti lægra tilboðið, rúmar 28,6 milljónir króna, eða um 77% af kostnaðaráætlun, sem
hljóðaði uppá rúmar 37,... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sextiu-ar-fra-slysinu-i-oshlid-thegar-tveir-thorsarar-letust | Sextíu ár frá slysinu í Óshlíð þegar tveir Þórsarar létust
Í dag, 8. júlí, eru 60 ár liðin frá hinu hörmulega slysi þegar tveir ungir íþróttamenn í Þór létust
þegar stór steinn féll ofan á langferðabíl sem þeir voru farþegar í á ferð um Óshlíð. Af þessu tilefni og
til að heiðra minningu þessara tveggja félaga mun forma... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skipulagslysing-vegna-deiliskipulags-drottningarbrautarreits-verdi-kynnt | Skipulagslýsing vegna deiliskipulags Drottningarbrautarreits verði kynnt
Meirihluti bæjarráðs Akureyrar samþykkti á fundi ráðsins í gær, tillögu skipulagsnefndar, sem lagði til við bæjarstjórn
að skipulagslýsing vegna deiliskipulags Drottningarbrautarreits, verði kynnt almenningi og leitað verði umsagnar Skipulagsstofn... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/elmar-dan-til-ka | Elmar Dan til KA
KA hefur fengið liðsstyrk í 1. deild karla í knattspyrnu en Elmar Dan Sigþórsson hefur ákveðið að leika
með liðinu út tímabilið. Elmar lék síðast með KA sumarið 2008 en hélt þá út til Noregs. Koma Elmars er er
kærkominn fyrir KA þar sem Andrés Vilhjálmsson verður ekkert meira með í sumar vegna meiðsla.... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stodvar-ka-skagamenn-i-kvold | Stöðvar KA Skagamenn í kvöld?
KA-menn fá ærið verkefni í kvöld er liðið fær topplið ÍA í heimsókn á Akureyrarvöll í 1. deild
karla í knattspyrnu kl. 19:00 í tíundu umferð deildarinnar. Skagamenn hafa farið á kostum í sumar. Þeir hafa ekki tapað leik í fyrstu
níu umferðunum, unnið átta og gert eitt jafntefli og eru lang... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/yfirlysing-fra-stjorn-draupnis | Yfirlýsing frá stjórn Draupnis
Yfirlýsing frá stjórn Draupnis vegna þess að liðið er hætt þátttöku í 3.deild karla í knattspyrnu.
Af óviðráðanlegum orsökum neyðumst við í stjórn Draupnis til þess að draga karlalið okkur út úr
Íslandsmótinu í 3.deild karla D-riðli. Ástæðurnar fyrir þessu eru fjölmargar en þær helstar að... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/plastflosku-kastad-i-hofud-leikmanns-vals-eftir-leik | Plastflösku kastað í höfuð leikmanns Vals eftir leik
Það sauð upp úr á Þórsvelli í gærkvöld á milli stuðningsmanna Þórs og Vals í Pepsi-deild karla í
knattspyrnu sem endaði með því að leikmaður Vals, Jón Vilhelm Ákason, fékk plastflösku í hausinn. Í frétt í Vikudegi
í dag er sagt frá því að Jón Vilhelm hefði fengið gle... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eikarbaturinn-huni-ii-a-leid-til-faereyja | Eikarbáturinn Húni II á leið til Færeyja
Eikarbáturinn Húni II sigldi frá Akureyri seinni partinn í gær, áleiðis til Færeyja. Um borð eru þrettán skipverjar frá
Hollvinum Húna. Báturinn verður í Klaksvík á laugardaginn og í Þórshöfn nk. sunnudag. Á báðum stöðum
verður báturinn opinn almenningi frá kl. 13:00 til 18:00.
... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/draupnir-dregur-sig-ur-keppni | Draupnir dregur sig úr keppni
Karlalið Draupnis í knattspyrnu sem leikur 3. deild karla hefur sent beiðni til KSÍ um að fá að draga liðið úr keppni. Samkvæmt heimildum
Vikudags er það vegna þess hve erfitt er að manna liðið í útileikina, auk þess sem liðið hefur verið óheppið með meiðsli
leikmanna. Draupnir getur átt v... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-oskar-eftir-thvi-ad-framkvaemdum-vid-gervigrasvoll-verdi-flytt-um-eitt-ar | KA óskar eftir því að framkvæmdum við gervigrasvöll verði flýtt um eitt ár
Knattspyrnufélag Akureyrar hefur óskað eftir því að Akureyrarbær flýti framkvæmdum við væntanlegan gervigrasvöll á
félagssvæði KA um eitt ár, þannig að ráðist verði í jarðvegsframkvæmdir á svæðinu strax í haust og
völlurinn lagður gervigrasi vor... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baejarrad-samthykkti-tillogu-skipulagsnefndar-vardandi-dalsbraut | Bæjarráð samþykkti tillögu skipulagsnefndar varðandi Dalsbraut
Meirihluti bæjarráðs Akureyrar samþykkti á fundi sínum í morgun, tillögu skipulagsnefndar vegna deiliskipulags Dalsbrautar. Skipulagsnefnd lagði
til við bæjarstjórn, að skipulagslýsing vegna deiliskipulagsins verði kynnt almenningi, leitað verði umsagnar Sk... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skipt-um-golf-i-ithrottahusi-ka | Skipt um gólf í íþróttahúsi KA
Framkvæmdir við endurnýjun gólfs í íþróttahúsi KA eru hafnar. Byrjað var á því í gær að rífa
upp gamla dúkinn af gólfinu og til verksins notaðar stórvirkar vinnuvélar. Lengi hefur staðið til að fara í þessa framkvæmd, enda er
hún löngu tímabær. Skipt verður um gólf í húsinu og einnig um á... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/landsmot-unglingadeilda-landsbjargar-a-dalvik | Landsmót unglingadeilda Landsbjargar á Dalvík
Landsmót unglingadeilda Slysavarnafélagsins Landsbjargar fer nú fram á Dalvík dagana 6. - 10. Júlí. Mótið byggist uppá póstum
og er hver póstur sérstaklega uppbyggður með verkefni. Í póstunum er farið í allt sem tengist grunnþekkingu björgunarmannsins t.d. sig,
klifur, báta... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/metfjoldi-erlendra-ferdamanna-i-juni | Metfjöldi erlendra ferðamanna í júní
Samkvæmt talningum Ferðamálastofu fóru 65.606 erlendir ferðamenn frá landinu um Leifsstöð í júní síðastliðnum eða
11.215 fleiri en í sama mánuði í fyrra. Aukningin nemur 20,6% milli ára og hafa ferðamenn aldrei verið fleiri í júnímánuði. Ef
litið er til einstakra markaðssvæða má sjá... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/islenski-safnadagurinn-er-a-sunnudag-1 | Íslenski safnadagurinn er á sunnudag
Íslenski safnadagurinn er á sunnudaginn 10. Júlí. Af því tilefni verður leiðsögn um sumarsýningu Minjasafnsins á Akureyri;
Álfar og huldufólk. Ingibjörg H. Ágústsdóttir leiðir gesti um sýninguna. Sýningin samanstendur af útskurðarverkum Ingibjargar sem
tengjast gripum og sögum af hu... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gunnar-mar-skelfileg-domgaesla | Gunnar Már: Skelfileg dómgæsla
Gunnar Már Guðmundsson leikmaður Þórs var ósáttur í leikslok eftir 0:3 tap norðanamanna gegn Val á Þórsvelli í
kvöld í Pepsi-deild karla í knattspyrnu. Hann vandaði ekki dómara leiksins, Valgeiri Valgeirssyni, kveðjurnar í samtali við Vikudag eftir leik. „Ef
einhver leikmaður myndi sína s... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/valsmenn-a-toppinn-eftir-sigur-a-thorsvelli | Valsmenn á toppinn eftir sigur á Þórsvelli
Valsmenn tylltu sér á topp Pepsi-deildar karla í knattspyrnu í kvöld með 3:0 sigri gegn Þór á Þórsvelli í
níundu umferð deildarinnar. Leikurinn var nokkuð jafn en Valsmenn sköpuðu sér mun fleiri færi og var sigurinn sanngjarn. Þeir Jón Vilhelm
Ákason, Haukur Páll Sigurðsson og... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kvartettinn-mogil-leikur-a-heitum-fimmtudegi-i-deiglunni | Kvartettinn Mógil leikur á Heitum fimmtudegi í Deiglunni
Á Heitum fimmtudegi nr. 2 í Deiglunni í dagskrá Listasumars á Akureyri, verður að venju boðið upp á einstaklega fjölbreytta
dagskrá. Á morgun fimmtudag leikur hið rómaða band Mógil,en kvartettinn skipa Heiða Árnadóttir söngur, Hilmar Jensson
rafgítar, Joachim Bad... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/agust-torfi-radinn-forstjori-nordurorku | Ágúst Torfi ráðinn forstjóri Norðurorku
Ágúst Torfi Hauksson framkvæmdstjóri landvinnslu Brims hefur verið ráðinn forstjóri Norðurorku hf á Akureyri. Ágúst var
valinn úr hópi 36 umsækjenda um stöðuna og tekur hann við stöðunni fra Franz Árnasyni í september nk. Ágúst er 37 ára
gamall vélaverkfræðingur og lauk mastersná... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorsarar-fa-valsmenn-i-heimsokn-i-kvold | Þórsarar fá Valsmenn í heimsókn í kvöld
Fimm leikir fara fram í Pepsi-deild karla í knattspyrnu í kvöld. Á Þórsvelli tekur Þór á móti liði Vals og hefst
leikurinn kl. 19:15. Valur er í öðru sæti deildarinnar með 18 stig, tveimur stigum frá toppliði KR, og er á mikilli siglingu í deildinni eftir
fjóra sigra í röð. Þórsa... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thridji-sigur-thorska-i-rod | Þriðji sigur Þórs/KA í röð
Þór/KA vann sinn þriðja leik í röð í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu í kvöld er liðið sigraði
nýliðana í Þrótti Reykjavík 4:2 á Þórsvelli í áttundu umferð deildarinnar. Manya Makoski skoraði tvívegis fyrir
heimamenn og þær Rakel Hönnudóttir og Mateja Zver sitt markið hvor. Bæði mörk Þróttara... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tveir-fra-thor-i-leikbann | Tveir frá Þór í leikbann
Þrír leikmenn í Pepsi-deild karla voru í dag dæmdir í eins leiks keppnisbann af Aga-og úrskurðarnefnd KSÍ. Tveir af þeim koma
frá liði Þórs, þeir Ingi Freyr Hilmarsson og Jóhann Helgi Hannesson.
Þeir kumpánar verða þó með Þór sem tekur á móti Val í Pepsi-deildinni á morgun í níundu umferð
deild... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikilvaegt-ad-gera-atak-i-oryggismalum-ferdamanna | Mikilvægt að gera átak í öryggismálum ferðamanna
Vegna umræðu um öryggismál á ferðamannastöðum og nauðsynlegar úrbætur í þeim efnum, vill Ferðamálastofa benda
á að vinnuhópi sem falið var af ferðamálastjóra það vandasama verkefni að vinna stefnumótun í öryggismálum á
ferðamannastöðum, skilaði nýverið skýrslu til ráðher... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikid-um-ad-vera-i-grytubakkahreppi | Mikið um að vera í Grýtubakkahreppi
Miklar framkvæmdir standa nú yfir í Grýtubakkahreppi Viðgerð á sundlaug er lokið, nýtt þjónustuhús hefur verið reist
á tjaldstæðinu og þá stendur til að lagfæra neðsta hluta þess aðeins, en þökur sem þar voru settar á liðnu haust komu
illa undan vetri. Þá er Bæjarverk að hefja malbik... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/virkni-ehf-baud-laegst-i-framkvaemdir-vid-thrastarlund-5 | Virkni ehf. bauð lægst í framkvæmdir við Þrastarlund 5
Fyrirtækið Virkni ehf. átti lægsta tilboð í uppsteypu og fullnaðarfrágang á viðbyggingu við Þrastarlund 5 á Akureyri.
Alls bárust níu tilboð í verkið og voru sex þeirra undir kostnaðaráætlun. Gefin voru upp verð með vsk og verð að
frádregnum áætluðum endurgreiddum ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eyrun-halla-verdi-radin-skolastjori-glerarskola | Eyrún Halla verði ráðin skólastjóri Glerárskóla
Skólanefnd Akureyrarbæjar hefur samþykkt tillögu fyrir sitt leyti, um að Eyrún Halla Skúladóttir verði ráðin skólastjóri
Glerárskóla frá og með 1. ágúst nk. Alls voru fjórir umsækjendur um stöðuna og voru þeir allir boðaðir í
viðtal.
Fræðslustjóri og skólanefnd ásamt Trau... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/metumferd-um-hedinsfjardargong | Metumferð um Héðinsfjarðargöng
Um síðustu helgi fóru 887 bílar að meðaltali á dag um Héðinsfjarðargöng, frá föstudegi til sunnudags, samkvæmt
upplýsingum frá Friðleifi Inga Brynjarssyni verkefnastjóra hjá umferðardeild Vegagerðarinnar á Akureyri. Þetta er meira en fyrra helgarmet sem er
síðan um páska, 864 bílar á dag.... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jon-thor-radinn-starfsmadur-thjonustustodvar-horgarsveitar | Jón Þór ráðinn starfsmaður þjónustustöðvar Hörgársveitar
Jón Þór Brynjarsson hefur ráðinn starfsmaður þjónustustöðvar (áhaldahúss) Hörgársveitar, sem sett verður
á stofn um miðjan ágúst nk. Hann var valinn úr hópi sextán umsækjanda um starfið. Þjónustustöðin verður á
Hjalteyri en einnig verður vinnuaðstaða í Þelamerkur... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/heil-umferd-i-pepsi-deild-kvenna-i-kvold-2 | Heil umferð í Pepsi-deild kvenna í kvöld
Heil umferð fer fram í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu í kvöld en þá hefst áttunda umferð deildarinnar. Þór/KA tekur
á móti Þrótti R. á Þórsvelli kl. 18:30 en norðanstúlkur hafa verið í fínu formi í síðustu leikjum eftir
slæma byrjun. Þór/KA hefur unnið tvo leiki í röð og heldu... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bergthor-og-paul-opna-samsyningu-i-bergi-a-dalvik | Bergþór og Paul opna samsýningu í Bergi á Dalvík
Myndlistarmennirnir Bergþórs Morthens og Paul Lajeunesse opna samsýningu í Bergi á Dalvík föstudaginn 8. júlí nk. kl. 17.00. Þetta
eru tveir myndlistamenn sem nálgast málverkið á mjög ólíkan hátt en tengjast samt að því leyti að þeir vinna á
ákeðin hátt með sjálfsmyndir.... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/geir-i-fantaformi-i-svithjod | Geir í fantaformi í Svíþjóð
Handboltakappinn Geir Guðmundsson í liði Akureyrar virðist vera að ná sínu fyrra formi eftir að hafa fengið blóðtappa í
hægri hendina sem hélt honum frá keppni meirihluta síðasta tímabils.
Geir er nú staddur með U19 ára landsliðinu á Opna Evrópumótinu sem fram fer í Gautaborg í
Svíðþjóð þess... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/godur-arangur-a-special-olympics | Góður árangur á Special Olympics
Þau Jón Gunnar Halldórsson og Elísabet Þöll Hrafnsdóttir frá Sundfélaginu Óðni gerðu fína hluti á
Ólympíuleikum fatlaðra (Special Olympics) sem fram fóru í Aþenu í Grikklandi og lauk sl. mánudag.
Jón Gunnar vann gullverðlaun í 100 m fjórsundi og bronsverðlaun í 100 og 200 m bringusundi.... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tveir-teknir-vegna-fikniefnaaksturs | Tveir teknir vegna fíkniefnaaksturs
Tveir karlmenn á þrítugsaldri voru stöðvaðir á Akureyri í gærkvöld grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna.
Sá fyrri var stöðvaður um kvöldmatarleytið í gærkvöld við bæjarmörkin en sá seinni um þrjú leytið í
nótt innanbæjar. Lögreglan á Akureyri segir þetta óvenjulegt á mánudagskv... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikill-erill-var-a-slysa-og-bradamottoku-fsa-um-helgina | Mikill erill var á slysa- og bráðamóttöku FSA um helgina
Mikill erill var á slysa- og bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri, FSA, um helgina en mikið var um að vera í bænum, m.a. N1
mótið í knattspyrnu á KA-svæðinu og Pollamótið á Þórs-svæðinu. Um 20 komur má rekja beint til þessara
viðburða. Sjúkraflutningamenn og læk... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aukid-umferdareftirlit-a-thjodvegum | Aukið umferðareftirlit á þjóðvegum
Embætti ríkislögreglustjóra hefur úthlutað 33 milljónum króna samkvæmt samgönguáætlun og
umferðaröryggisáætlun Alþingis til að að halda uppi umferðareftirliti á þjóðvegum landsins í sumar.
Lögregluembættið á Akureyri fékk 3.500.000 kr. styrk en hæsta styrkinn fékk lögregluembættið á S... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sogufelagid-stendur-fyrir-samkeppni-um-athyglisverdar-minningar | Sögufélagið stendur fyrir samkeppni um athyglisverðar minningar
Sögufélag Eyfirðinga fagnar á þessu ári 40 ára afmæli og af því tilefni stendur félagið fyrir samkeppni um athyglisverðar
minningar. Skorað er á alla, unga sem aldna, konur og karla, að hugleiða hvað á dagana hefur drifið og setja á blað minningaleiftur. V... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/pall-vidar-eigum-fina-moguleika | Páll Viðar: Eigum fína möguleika
„Mér líst bara vel á þetta og það var fyrir öllu að fá heimaleikinn,“ sagði Páll Viðar Gíslason
þjálfari Þórs við Vikudag um bikardráttinn í undanúrslitum karla í knattspyrnu. Þórsarar fengu heimaleik gegn ÍBV er
dregið var í hádeginu í dag og verður leikið á Þórsvelli fimmtudaginn 28. ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-fekk-heimaleik-gegn-ibv-i-bikarnum | Þór fékk heimaleik gegn ÍBV í bikarnum
Þórsarar fengu heimaleik gegn ÍBV er dregið var í undanúrslit Valitor-bikar í karla í dag. Í hinni viðureigninni mætast
BÍ/Bolungarvík og KR fyrir vestan. Einnig var dregið í kvennaflokki og þar mætast Afturelding og Valur annars vegar og Fylkir og KR hins vegar. Í
karlaflokki far... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ologmaett-ad-gefa-ekki-ut-kjorbref-fyrir-varamann | Ólögmætt að gefa ekki út kjörbréf fyrir varamann
Ólögmætt var af hálfu Akureyrarbæjar að gefa ekki út kjörbréf fyrir þriðja mann á lista Bæjarlistans, þegar
sú staða kom upp fyrir bæjarstjórnarfund í apríl síðastliðnum, að hvorki fyrsti né annar maður listans komst á fund
bæjarstjórnar. Þetta kemur fram í úrskurði inna... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vigdis-vigir-ljodasetur-islands-a-siglufirdi | Vigdís vígir Ljóðasetur Íslands á Siglufirði
Ljóðasetur Íslands á Siglufirði verður formlega tekið í notkun föstudaginn 8. júlí við hátíðlega athöfn sem
hefst kl. 15. Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands vígir setrið, en hún er þekkt fyrir áhuga sinn á ljóðum.
Þórarinn Eldjárn og fleiri ljóðskáld munu lesa... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/asgeir-buinn-ad-skrifa-undir-hja-akureyri | Ásgeir búinn að skrifa undir hjá Akureyri
Handboltamaðurinn Ásgeir Jónsson hefur gengið frá samningi við Akureyri fyrir næstu leiktíð en Ásgeir undirritaði samningin sl.
föstudag. Eins og Vikudagur hefur greint frá því náðist samkomulag milli Ásgeirs og Akureyrar í vor.
Ásgeir, sem er línumaður, æfði með Akureyrarliðin... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/dregid-i-undanurslitum-bikarins-i-dag | Dregið í undanúrslitum bikarins í dag
Dregið verður í undanúrslit í bikarkeppni karla og kvenna í knattspyrnu í hádeginu í dag. Í karlaflokki eru Þór,
BÍ/Bolungarvík, KR og ÍBV í pottinum en í kvennaflokki eru það Valur, Fylkir, KR og Afturelding.
Í karlaflokki fara undanúrslitin fram fimmtudaginn 28. júlí og úrslitale... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skipulagsslysing-vegna-drottningarbrautarreits-verdi-kynnt | Skipulagsslýsing vegna Drottningarbrautarreits verði kynnt
Skipulagsnefnd Akureyrarbæjar samþykkti á fundi sínum í vikunni að leggja til við bæjarstjórn að skipulagslýsing vegna deiliskipulags
Drottningarbrautarreits verði kynnt almenningi og leitað verði umsagnar skipulagsstofnunar og annarra umsagnaraðila um skipulag... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kr-ingar-hlutu-n1-bikarinn | KR-ingar hlutu N1 bikarinn
Glæsilegu N1-mót KA í knattspyrnu lauk í gær en krakkarnir voru einstaklega heppnir með veður þar sem sól og blíða með
sumarhita var ríkjandi. N1-bikarinn í ár fyrir samanlagðan árangur hlýtur KR. Úrslitin úr öllum deildum mótsins má sjá
hér að neðan.
Úrslit í frönsku deildinni:
1. sæti KR 1
... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ruglandinn-innan-rikisstjornarflokkanna-storskadar-atvinnulifid | Ruglandinn innan ríkisstjórnarflokkanna stórskaðar atvinnulífið
„Ítarleg greinargerð sérfræðihóps sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra segir
skýrt og greinilega að frumvarp ríkisstjórnarflokkanna um breytingar á stjórn fiskveiða sé á margan hátt skaðlegt
sjávarútvegi og þar með starfsfólki fyrirtækjanna og reyndar öllu... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-gerir-nyjan-samning-vid-n1 | KA gerir nýjan samning við N1
Gengið var frá nýjum fimm ára samningi milli knattspyrnudeildar KA og N1 um áframhaldandi samstarf á Hótel KEA sl. föstudag.
Samningurinn felur í sér stuðning N1 um framkvæmd N1-mótsins auk þess sem félagið verður næstu fimm árin aðal styrktaraðili
knattspyrnudeildar KA.
Samstarf Olíufélag... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ingi-freyr-skaut-thorsurum-i-undanurslit-bikarins | Ingi Freyr skaut Þórsurum í undanúrslit bikarins
Varnarmaðurinn Ingi Freyr Hilmarsson var hetja Þórs í dag er hann tryggði liði sínu 2:1 sigur á Grindavík á Þórsvelli
í 8-liða úrslitum Valitor-bikar karla í knattspyrnu í framlengdum leik. Ingi skoraði sigurmarkið á lokamínútu framlengingarinnar
þegar allt stefndi í vít... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rumlega-200-nynemar-i-hvorum-framhaldsskolanna | Rúmlega 200 nýnemar í hvorum framhaldsskólanna
Vel er sótt í báða framhaldsskólana á Akureyri fyrir komandi haust. Um 370 nýnemar sóttu um inngöngu í skólavist við
Menntaskólann á Akureyri og verða um 230 nemendur teknir inn. Í haust verða því um 750 nemendur í skólanum sem er álíka mikið
og sl. skólaár. Um 200 nýnemar... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/soffia-verdi-radin-framkvaemdastjori-busetudeildar-akureyrarbaejar | Soffía verði ráðin framkvæmdastjóri búsetudeildar Akureyrarbæjar
Félagsmálaráð Akureyrarbæjar samþykkti samhljóða á fundi sínum í vikunni að mæla með því að
Soffía Lárusdóttir verði ráðin í starf framkvæmdastjóra búsetudeildar. Inda Björk Gunnarsdóttir formaður
félagsmálaráðs og Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri k... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aetlum-okkur-afram-i-undanurslitin | Ætlum okkur áfram í undanúrslitin"
Fyrsti leikur í 8-liða úrslitum Valitor-bikar karla fer fram á Þórsvelli í dag en þá tekur Þór á móti
Grindavík og hefst leikurinn kl. 16:00. Liðin eru á svipuðum slóðum í neðri hluta Pepsi-deildarinnar þar sem munar aðeins stigi á
liðunum. Liðin mættust í deildarleik á dögunum þar s... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hlutafe-i-moltu-ehf-verdur-aukid-um-40-milljonir-krona | Hlutafé í Moltu ehf. verður aukið um 40 milljónir króna
Samþykkt var á hluthafafundi í Moltu ehf. í vikunni heimild til stjórnar að auka hlutafé félagsins um 40 milljónir króna.
Bæjarráð Akureyrar hefur samþykkt að taka þátt í fyrirhugaðri hlutafjáraukningu fyrir allt að 25 milljónir króna.
Bærinn á hlut í félaginu í g... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skipulagsferli-vegna-dalsbrautar-verdur-eins-opid-og-mogulegt-er | Skipulagsferli vegna Dalsbrautar verður eins opið og mögulegt er
Staðgengill skipulagsstjóra á Akureyri lagði fram á fundi skipulagsnefndar vikunni, tillögu að skipulagslýsingu vegna deiliskipulags Dalsbrautar. Um
er að ræða skipulagslýsingu, matslýsingu og tilkynningu framkvæmdar. Meirihluti skipulagsnefndar samþykkti... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/knattspyrnuveisla-a-akureyri | Knattspyrnuveisla á Akureyri
Það er líf og fjör á knattspyrnuvöllum Akureyrar þessa dagana. N1-mót KA hófst á miðvikukdag, þar sem 1.500 drengir í 5.
flokki frá 37 félögum um allt land etja kappi á KA-svæðinu. Ef foreldrar og fararstjórarar eru taldir með má áætla að um 2.000
manns séu á bænum vegna N1-mótsins. Þá hófs... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sumartonleikar-hefjast-i-akureyrarkirkju-i-25-sinn-a-sunnudag | Sumartónleikar hefjast í Akureyrarkirkju í 25. sinn á sunnudag
Tónleikaröðin Sumartónleikar í Akureyrarkirkju hefst sunnudaginn 3. júlí nk. Tónleikar verða kl. 17:00 alla sunnudaga í
júlímánuði og er ókeypis á þá alla. Þetta er í 25. skipti sem tónleikaröðin fer fram, en Sumartónleikarnir er
önnur elsta tónleikaröðin á... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stefnt-ad-staekkun-aflthynnuverk-smidju-becromal-i-krossanesi | Stefnt að stækkun aflþynnuverk- smiðju Becromal í Krossanesi
Skipulagsnefnd Akureyrarbæjarar samþykkti á fundi sínum í vikunni að heimila Becromal Properties að leggja fram tillögu að breytingu á
deiliskipulagi sem síðan yrði auglýst, vegna umsóknar um stækkun lóðar og byggingarreits að Krossanesi 4. Hugmyndir eru uppi... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jonasarsetur-opid-i-juli | Jónasarsetur opið í júlí
Að Hrauni í Öxnadal er starfrækt Jónasarsetur til minningar um Jónas Hallgrímsson, skáld og náttúrufræðing. Þar hefur
verið komið upp sýningu sem rekur æviferil hans og störf. Á sýningunni er brugðið upp myndum af honum sem lifandi skáldi, „fyrsta
nútímaskáldi Íslendinga" sem „fann fegurð íslen... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/pollamot-thors-og-icelandair-hafid | Pollamót Þórs og Icelandair hafið
Pollamót Þórs og Icelandair í knattspyrnu hófst á Þórsvelli í morgun en rúmlega 500 keppendur eru
skráðir til leiks í um 50 liðum. Keppt er í fimm deildum, þremur karladeildum og tveimur kvennadeildum. Karladeildirnar eru Polladeild (30+),
Lávarðadeild (40+) og Öðlingar (45+). Kvennade... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bjarki-baetti-islandsmetid-i-unglingaflokki | Bjarki bætti Íslandsmetið í unglingaflokki
Bjarki Gíslason, frjálsíþróttamaður hjá UFA, setti nýtt unglingamet í stangarstökki í vikunni þegar hann stökk
4,90 m á innanfélagsmóti hjá ÍR. Eldra metið, sem var 4,80 m, átti Bjarki ásamt Einari Daða Lárussyni, en yfir þá
hæð stökk Bjarki í Evrópubikarkeppninni fyrr í mánuð... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/god-thatttaka-i-akureyrarhlaupi | Góð þátttaka í Akureyrarhlaupi
Akureyrarhlaup Íslenskra verðbréfa fór fram í gærkvöldi þar sem þátttakendur voru 130, sem er heldur meira en undanfarin
ár.
Í 5 km hlaupi kom Ásdís Káradóttir fyrst í mark á 22:29, önnur kvenna var Brynja Björg Bragadóttir og þriðja var
Líney Elíasdóttir. Annar í mark og fyrstur karla va... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/lif-og-fjor-i-gamla-baenum-i-laufasi | Líf og fjör í Gamla bænum í Laufási
Það verður líf og fjör í Laufási laugardaginn 2. júlí nk. en þá gefst gestum og gangandi kostur á að upplifa
lífið eins og það var á 19. öld í burstabæ í Gamla bænum í Laufási, á starfsdegi að sumri. Dagskráin stendur
frá kl. 13.30-16.00 og hefst í kirkjunni, þar sem sr Gylfi Jónsson... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gonguvika-a-akureyri-og-i-nagrenni-hefst-um-helgina | Gönguvika á Akureyri og í nágrenni hefst um helgina
Um helgina hefst rúmlega vikulöng dagskrá á Akureyri og í Eyjafirði þar sem göngur af ýmsum toga og erfiðleikastigum eru hafðar í
hávegum. Gönguvikan er samvinnuverkefni Akureyrarstofu, Naturalis, Ferðafélags Akureyrar, Glerárdalshringsins 24X24 og Ferðafélagsins Hörg... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vegagerdin-syknud-af-krofu-iav-vegna-utbods-hedinsfjardarganga | Vegagerðin sýknuð af kröfu ÍAV vegna útboðs Héðinsfjarðarganga
Vegagerðin (Íslenska ríkið) var 29. júní sýknuð af kröfu Íslenskra aðalverktaka hf og NCC International as um skaðbætur
vegna þess að hætt var við útboð Héðinsfjarðaganga, fyrra útboð sem opnað var í lok maí 2003. Hæstiréttur
hafði kveðið upp dóm um að skað... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vildi-motmaela-thvi-ad-flugvollurinn-i-baejarlandinu-se-notadur-fyrir-hernadarbrolt | Vildi mótmæla því að flugvöllurinn í bæjarlandinu sé notaður fyrir hernaðarbrölt
Meirihluti bæjarráðs Akureyrar felldi á fundi ráðsins í morgun tillögu Andreu Sigrúnar Hjálmsdóttur V-lista, þar sem
hún lagði til við bæjaryfirvöld á Akureyri að þau mótmæli því að flugvöllurinn í bæjarlandinu sé
notaður fyrir hernaðarbrö... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/lions-a-islandi-afhendir-blindrafelaginu-193-milljonir | Lions á Íslandi afhendir Blindrafélaginu 19,3 milljónir
Lionshreyfingin á Íslandi afhenti Blindrafélaginu afrakstur söfnunarinnar „Rauð fjöður" sl. þriðjudag. Söfnunin fór fram
8.-10. apríl s.l og söfnuðust alls rúmlega 19,3 milljónir króna sem runnu óskertar til kaupa á talgervli, með íslensku talmáli,
sem verið er að... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/andres-ur-leik | Andrés úr leik
Andrés Vilhjálmsson miðvallarleikmaður KA er úr leik það sem eftir er tímabilsins. Andrés meiddist á hné í
deildarleik á dögunum gegn Selfossi en þetta kemur fram á fotbolti.net. Guðmundur Óli Steingrímsson er einnig frá í 2-3 vikur vegna
meiðsla.
Jákvæðu fréttirnar fyrir KA-menn eru að miðjumaðurinn Srd... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vinabaejarmot-i-dalvikurbyggd | Vinabæjarmót í Dalvíkurbyggð
Vinabæjarmót hefst í Dalvíkurbyggð á morgun 1. júlí og stendur það fram á sunnudag. Von er á um 60
þátttakendum á mótið frá öllum vinabæjum Dalvíkurbyggðar, en þeir eru Viborg í Danmörku, Borga í Finnlandi, Hamar
í Noregi og Lundur í Svíþjóð. Gestirnir eru bæði fulltrúar sveitarfélaganna og... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hringheimar-i-listasafninu | Hringheimar í Listasafninu
Í sumar taka Safnasafnið á Svalbarðsströnd og Listasafnið á Akureyri saman höndum í verkefninu „safn í safni" en það byggist
á því að sýna hluti úr safneign eins safns í öðru safni og varpa þannig ljósi á menningarsöguleg tengsl safnanna.
Safnasafnið sýnir nú verk Katrínar Jósefsdóttur (Kötu ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skrifad-undir-kjarasamning | Skrifað undir kjarasamning
Rétt fyrir kl. 10 í morgun var skrifað undir nýjan samning við Samband íslenskra sveitarfélaga. Félögin sem koma að þessum samningi
eru Starfsgreinasamband Íslands f.h. nokkurra félaga, Kjölur, og Flóbandalagið fyrir Eflingu og Verkalýðs- og sjómannafélag
Keflavíkur. |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-tapadi-i-olafsvik | KA tapaði í Ólafsvík
Víkingur Ólafsvík hafði betur á heimavelli gegn KA er liðin mættust í kvöld í níundu umferð 1. deildar karla í
knattspyrnu. Lokatölur á Ólafsvíkurvelli, 2:1. KA komst yfir snemma í leiknum með marki frá Hallgrími Mar Steingrímssyni en Artjoms
Goncars og Guðmundur Steinn Hafsteinsson sáu til þess að... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gamla-linda-steikhus-bydur-audvitad-lindubuff | Gamla Linda Steikhús býður auðvitað Lindubuff!
Gamla Linda - Steikhús er heiti á nýjum veitingastað sem opnaður verður í Linduhúsinu svonefnda við Hvannavelli eftir um það bil einn
mánuð, en framkvæmdir við nauðsynlegar breytingar standa nú sem hæst. Veitingastaðurinn verður þar sem Býflugan og blómið
var áður til hú... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/heitir-fimmtudagar-a-listasumri-a-akureyri | Heitir fimmtudagar á Listasumri á Akureyri
Heitir fimmtudagar eru löngu orðnir ómissandi þáttur í Listasumri á Akureyri og nú verður að venju boðið upp á
einstaklega fjölbreytta dagskrá á níu tónleikum. Í Deiglunni í Gilinu verða fyrstu jazztónleikarnir undir þessu nafni haldnir
á morgun, fimmtudaginn, 30. júní, kl. 21... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sex-lida-ishokki-deild-i-haust | Sex liða íshokkí deild í haust?
Svo gæti farið að sex lið muni leika á Íslandsmóti karla í íshokkí næsta vetur en uppi eru hugmyndir um að öll
þrjú liðin, SA, SR og Björninn, muni tefla fram tveimur liðum í haust. Það myndi þá vera án innbyrðisviðureigna.
SA telfdi fram tveimur liðum sl. vetur en ekkert varð úr því að ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/karlmadur-daemdur-fyrir-kynferdisbrot | Karlmaður dæmdur fyrir kynferðisbrot
Tvítugur karlmaður var í vikunni dæmdur í 15 mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir
kynferðisbrot gegn stúlku. Hefur maðurinn haft ítrekað samræði við hana frá því um mitt árið 2010 á heimili sínu
og hennar, en hann var 19 ára og hún 13 ára þegar brotin... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/syningin-fridland-fuglanna-opnud-i-svarfadardal | Sýningin Friðland fuglanna opnuð í Svarfaðardal
„Friðland fuglanna" heitir óvenjuleg sýning sem opnar föstudaginn 1. júlí kl 16:00, á Náttúrusetrinu á Húsabakka
í Svarfaðardal. Sýningin er sérstaklega sniðin að börnum en hæfir þó ekki síður fullorðnum og fjallar um fugla í
öllum sínum endalausa margbreytileika.
Við ger... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tveir-leikir-i-1-deild-karla-i-kvold | Tveir leikir í 1. deild karla í kvöld
Níunda umferð 1. deildar karla í knattspyrnu hefst í kvöld með tveimur leikjum en þá mætast annars vegar Víkingur
Ólafsvík og KA á Ólafsvíkurvelli og hins vegar Haukar og HK á Ásvöllum. Báðir leikirnir hefjast kl. 20:00.
Víkingur og KA eru á sömu slóðum í neðri hluta deildarinnar, ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sterkur-utisigur-hja-thorka | Sterkur útisigur hjá Þór/KA
Þór/KA vann afar sterkan útisigur gegn Breiðabliki í kvöld í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu. Lokatölur á
Kópavogsvelli urðu 2:4. Manya Makoski skoraði tvívegis fyrir Þór/KA í leiknum og þær Mateja Zver og Sandra María Jessen sitt markið
hvor. Bæði mörk Breiðabliks skoraði Fanndís Friðriksd... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/agaet-stada-i-byggingaidnadi-a-akureyri | Ágæt staða í byggingaiðnaði á Akureyri
„Ég held að við höfum náð botninum síðasta vetur og nú fari þetta hægt og sígandi upp á við," segir Heimir
Kristinsson hjá Fagfélaginu um stöðu mála í byggingaiðnaði á Akureyri. Hann segir að staðan sé með ágætum
núna, verktakar hafi næg verkefni og það fækki á atvinnuleysisskrá d... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/erum-tilbunir-i-samvinnu-um-nytingu-a-gasinu | Erum tilbúnir í samvinnu um nýtingu á gasinu
Mælingar á gasmagni og samsetningu gassins á sorphaugnum á Glerárdal á Akureyri, sem fram fóru meðfram rannsóknarborunum á
sorphaugnum á vegum Norðurorku hf. og lauk í apríl sl., liggja nú fyrir. Helstu niðurstöður eru þær að metanmyndun nemi nú allt
að 3,5 milljónum Nm3 á á... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/finnur-baud-laegst-i-framkvaemdir-a-hjalteyri | Finnur bauð lægst í framkvæmdir á Hjalteyri
Þrjú fyrirtæki á Akureyri sendu inn tilboð í framkvæmdir á Hjalteyri, sem opnuð voru á dögunum. Um er að ræða
gatnagerð, ásamt holræsagerð og gerð útrásar. Fyrirtækið Finnur ehf. átti lægsta tilboð í verkið, tæpar 9,6
milljónir króna og var það eina tilboðið sem var undir kos... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/irb-sigradi-a-ami-odinn-i-thridja-saeti | ÍRB sigraði á AMÍ-Óðinn í þriðja sæti
Íþróttabandalag Reykjanesbæjar (ÍRB) bar sigur úr býtum á AMÍ sundmótinu sem haldið
var á Akureyri um helgina. Sundfélagið Ægir varð í öðru sæti en Sundfélagið Óðinn varð í
þriðja sæti. Rúmlega 270 sundmenn frá 12 félögum tóku þátt, ásamt nokkrum Færeyingum.
Lokastaða mótsins:
1. Í... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorka-saekir-blika-heim-i-kvold | Þór/KA sækir Blika heim í kvöld
Það fer heil umferð fram í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu í kvöld en þá hefst sjöunda umferð deildarinnar. Tveir leikir
hefjast kl. 18:00 en þá mætast annars vegar Breiðablik og Þór/KA á Kópavogsvelli og hins vegar ÍBV og Grindavík á
Hásteinsvelli. Aðrir leikir hefjast kl. 19:15.
Þór/K... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrsti-hopurinn-sem-lykur-haskolabru-a-akureyri | Fyrsti hópurinn sem lýkur Háskólabrú á Akureyri
Á dögunum útskrifuðust 16 nemendur úr Háskólabrú Keilis. Þetta er fyrsti hópurinn sem útskrifast úr frumgreinanámi
á Akureyri í staðnámi. Háskólabrú Keilis á Akureyri er samstarfsverkefni Keilis og Símenntunarmiðstöðvar Eyjafjarðar.
Í Háskólabrú er boðið upp á nám fyrir e... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyrarbaer-semur-vid-stefnu-hugbunadarhus | Akureyrarbær semur við Stefnu hugbúnaðarhús
Akureyrarbær hefur samið við Stefnu hugbúnaðarhús um að taka í notkun Moya-vefumsjónarkerfið fyrir heimasíður bæjarins. Seinna
í sumar og með haustinu verður lokið vinnu við nýjar útgáfur af heimasíðunum www.akureyri.is og www.visitakureyri.is, ásamt með
undirsíðum fyrir ýmsa... |
Subsets and Splits
No community queries yet
The top public SQL queries from the community will appear here once available.