Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.vikubladid.is/is/frettir/god-stemmning-fyrir-arctic-open-1
Góð stemmning fyrir Arctic Open Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig í Arctic Open mótið sem haldið verður á Akureyri 23. – 25. júní. 140 golfarar eru þegar skráðir til leiks en 20 – 30 til viðbótar komast að. Mótið hefst með opnunarhófi kl. 13 á fimmtudegi og síðan er leikið fram á nótt fimmtudag og föstudag. Mót...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baejarstjorn-frestar-staekkun-vinbudar
Bæjarstjórn frestar stækkun Vínbúðar Á bæjarstjórnarfundi í gær var tekin fyrir tillaga frá skipulagsnefnd um að heimila viðbyggingu við Vínbúð ÁTVR við Hólabraut. Viðbyggingin hefur verið mjög umdeild og í bæjarstjórn kom tillaga frá Sigurði Guðmundssyni A-lista um að fresta afgreiðslu og var hún samþykkt með 9 samhlj...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sveinbjorn-utan-hops-gegn-lettum
Sveinbjörn utan hóps gegn Lettum Markvörðurinn Sveinbjörn Pétursson hjá Akureyri verður ekki á meðal leikmanna íslenska landsliðsins í handbolta sem mætir Lettum ytra í dag kl. 16:35 í undankeppni EM. Tveir Akureyringar eru í hópnum, Oddur Gretarsson leikmaður Akureyrar Handboltafélags og Arnór Þór Gunnarsson leikmaður...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fiskverkafolk-i-eyjafirdi-ahyggjufullt
Fiskverkafólk í Eyjafirði áhyggjufullt Fiskvinnslufólk í Eyjafirði og Fjallabyggð hefur sent alþingismönnum undirskriftalista þar sem áhyggjum er lýst af áhrifum fyrirhugaðra breytinga á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Alls skrifuðu 241 manns undir bréf sem fór til þingmanna kjördæmisins í gær. Bréfið er svo hljóðandi: “Vi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/smathjodaleikar-piotr-i-lidi-motsins
Smáþjóðaleikar: Piotr í liði mótsins Piotr Kempisty, blakmaður hjá KA og íslenska landsliðinu, var valinn í lið mótsins á Smáþjóðaleikunum sem fram fóru í Liechtenstein á dögunum. Piotr var í liði mótsins sem stigahæsti leikmaðurinn í karlaflokki. Blaklið Íslands áttu annars erfitt uppdráttar á leikunum og náðu ekki ve...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gunnar-mar-fint-ad-snua-bladinu-vid
Gunnar Már: Fínt að snúa blaðinu við Gunnar Már Guðmundsson átti góðan leik á miðjunni í liði Þórs sem lagði ÍBV 2:1 á Þórsvelli í kvöld í Pepsi-deild karla í knattspyrnu. Eyjamenn voru betri aðilinn í leiknum en góð byrjun Þórsara skilaði sigrinum. „Þetta var virkilega góður sigur. ÍBV hefur verið að spila frábærlega ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/annar-tapleikur-ka-i-rod
Annar tapleikur KA í röð KA tapaði sínum öðrum leik í röð í 1. deild karla í knattspyrnu er liðið sótti Þrótt Reykjavík heim í kvöld. Lokatölur á Valbjarnarvelli urðu 1:0 sigur heimamanna. Hjörvar Hermannsson skoraði mark Þróttar í leiknum. KA hefur sjö stig í fimmta sæti deildarinnar eftir fimm leiki en Þróttarar komu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorsarar-logdu-ibv-a-thorsvelli
Þórsarar lögðu ÍBV á Þórsvelli Þórsarar unnu sterkan sigur á ÍBV á Þórsvelli í kvöld í Pepsi-deild karla í knattspyrnu. Lokatölur urðu 2:1, en öll mörkin komu í fyrri hálfleik. Þór komst í 2:0 með mörkum frá David Disztl og Sveini Elíasi Jónssyni en Ian Jeffs skoraði mark Eyjamanna. Með sigrinum er Þór komið með sex st...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eythor-ingi-tilnefndur-til-grimunnar
Eyþór Ingi tilnefndur til Grímunnar Eyþór Ingi Gunnlaugsson er tilnefndur sem "Söngvari ársins" til Íslensku leiklistarverðlaunanna – Grímunnar í ár, fyrir hlutverk sitt sem Riff Raff í Rocky Horror. "Hann er snillingur á sviði tónlistar og upprennandi stjarna í leikhúsheiminum,“ segir María Sigurðardóttir leikhússtjór...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leikur-ka-og-fjolnis-fer-fram-a-thorsvelli
Leikur KA og Fjölnis fer fram á Þórsvelli Næsti heimaleikur KA í 1. deild karla í knattspyrnu , sem verður gegn Fjölni nk. föstudag kl. 18.15, verður á Þórsvelli. Ástæðan er sú að ekki er unnt að hleypa leikmönnum og áhorfendum inn á Akureyrarvöll vegna þeirra framkvæmda sem þar eru í fullum gangi. Vonir voru bundnar v...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stulkurnar-thrjar-sluppu-vel
Stúlkurnar þrjár sluppu vel Stúlkurnar þrjár sem slösuðust er bíll þeirra fór útaf Súlnavegi á Akureyri í gær, eru ekki lífshættulega slasaðar. Samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á Sjúkrahúsi Akureyrar fóru tvær stúlknanna í aðgerð í gær vegna beinbrota og mun sú þriðja fara í aðgerð í dag. Stúlkurnar, sem alla...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/margir-sottu-um-forstjorastarf-nordurorku
Margir sóttu um forstjórastarf Norðurorku Það eru 36 umsækjendur um forstjórastarfið hjá Norðurorku en umsóknarfrestur rann út nú fyrir helgina. Heldur fleiri sendu inn umsókn en nokkrir drógu umsókn sína til baka. Það er Capacent sem sér um að vinna úr ráðningunum en á þessu stigi er ekki ljóst hvenær ráðið verður í s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/smathjodaleikar-bryndis-med-tvo-gull-og-eitt-brons
Smáþjóðaleikar: Bryndís með tvö gull og eitt brons Bryndís Rún Hansen, sundkona úr Óðni og Bergensvømmerne, náði fínum árangri á Smáþjóðaleikunum sem fram fóru í Liechtenstein á dögunum. Bryndís keppti með kvennasveit Íslands í 4x200m skriðsundi og 4x100m skriðsundi og nældu þær sér í gullverðlaun í báðum greinum. Einn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorsarar-fa-eyjamenn-i-heimsokn-i-kvold
Þórsarar fá Eyjamenn í heimsókn í kvöld Þrír leikir fara fram i sjöundu umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu í kvöld en þetta er jafnframt síðasta umferð deildarinnar fyrir þriggja vikna hlé vegna EM U21 árs landsliða. Á Þórsvelli taka heimamenn á móti ÍBV og hefst leikurinn kl. 19:15. Eyjamenn hafa byrjað sumarið ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/olafur-samdi-vid-snaefellinga
Ólafur samdi við Snæfellinga Körfuknattleiksmaðurinn Ólafur Halldór Torfason skrifaði í dag undir samning við úrvalsdeildarfélag Snæfells. Þetta kemur fram á heimasíðu Snæfells. Ólafur lék með Þór í vetur og var einn besti maður liðsins. Hann skoraði að meðaltali 14,1 stig í leik og tók 12.1 frákast, auk þess að gefa 2...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/adsoknarsprengja-i-ha
Aðsóknarsprengja í HA Nýtt met hefur verið sett í fjölda rafrænna umsókna við Háskólann á Akureyri í ár, en umsóknarfrestur um skólavist rann út nú um helgina. Alls hafa 1030 umsóknir borist sem er um 15% fleiri en sóttu um skólavist í fyrra. Að sögn Dagmarar Ýrar Stefánsdóttur er þessi mikla sprenging sérstaklega ánæg...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ny-forstodumadur-kennslusvids-ha
Ný forstöðumaður kennslusviðs HA Steinunn Aðalbjarnardóttir hefur verið ráðin nýr forstöðumaður kennslusviðs við Háskólann á Akureyri. Tekur hún við starfinu af Sigrúnu Magnúsdóttur. Steinunn hefur verið starfandi við Háskólann um árabil og gegnt þar ýmsum trúnaðarstörfum og var meðal annars um tíma í starfi forstöðuma...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/unglingavinnan-byrjud
Unglingavinnan byrjuð Unglingavinnan byrjaði í dag og fengu krakkarnir heldur kuldalegar móttökur hjá veðurguðunum svona fyrsta daginn. Það breytir þó ekki því að þeim þótti flestum gott að komast í smá vinnu þó ekki sé það mikið. Yngra árið sem hér sést við störf ásamt leiðbeinanda sínum við að tína rusl á Hjalteyrarg...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/magni-med-fullt-hus-stiga
Magni með fullt hús stiga Magni frá Grenivík fer vel af stað í D-riðli 3. deildar karla í knattspyrnu. Að þremur umferðum loknum er Magni með fullt hús stiga, eða níu stig, ásamt Sindra sem vermir toppsætið með hagstæðari markatölu. Liðin mætast einmitt í toppslag um helgina á Sindravelli. Magni vann lið Einherja í síð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fluttar-a-slysadeild-eftir-utafakstur
Fluttar á slysadeild eftir útafakstur Þrjár stúlkur á átjánda ári voru fluttar á slysadeild Sjúkrahúss Akureyrar í gærkvöld eftir að bíll þeirra fór útaf veginum við Súlnaveg á Akureyri og stakkst inn í moldarbarð. Að sögn lögreglu eru stúlkurnar ekki alvarlega slasaðar, en töluvert brotnar og lemstraðar. Bíllinn er þó...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tveggja-daga-sjomannadagshatid
Tveggja daga sjómannadagshátíð Í dag, laugardag verður glæsileg fjölskyldudagskrá að Hömrum sem hefst klukkan 13með fótboltamóti og klukkan 14 mun leikkonan Jana María Guðmundsdóttir setjahátíðina og slá á létta strengi. Mikki refur og Lilli klifurmús mæta á svæðið, Súkkulaðikarlarnir kæta börnin, Gulliver geislabaugur...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baejarnefnd-med-varnadarord-vegna-baejarhatida
Bæjarnefnd með varnaðarorð vegna bæjarhátíða Ýmsar bæjarhátíðir eru nú framundan og eru Bíladagar sennilega fyrsta hátíðin þetta sumarið. Þessar hátíðir eru margar hverjar haldnar að undirlagi bæjarins eða í þökk yfirvalda. Í samfélags- og mannréttindaráði urðu í vikunni umræður um ábyrgð foreldra á ólögráða ungmennum ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skipulagsnefnd-vill-ad-atvr-staekki-vid-holabraut
Skipulagsnefnd vill að ÁTVR stækki við Hólabraut Meirihluti skipulagsnefndar Akureyrar hefur samþykkt fyrir sitt leyti að heimila ÁTVR að byggja 1126 fm viðbyggingu að grunnfleti og jafn háa núverandi húsnæði að Hólabraut. Um þessa tillögu hafa verið talsverðar deildur og margar athugasemdir bárust. Nú hefur skipulagsn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorka-og-fylkir-maetast-i-bikarnum
Þór/KA og Fylkir mætast í bikarnum Í dag var dregið í 16 liða úrslitum Valitor bikars kvenna í knattspyrnu í höfuðstöðum KSÍ. Þór/KA fékk heimaleik gegn Fylki, en liðin mættust einmitt í deildarleik á dögunum þar sem Þór/KA vann 3:1 á heimavelli. Bikarmeistarar Vals sækja Blika heim í Kópavoginn en þessi félög hafa oft...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/starfsmenn-landsbyggdarsveitarfelaga-2-flokks
Starfsmenn landsbyggðarsveitarfélaga 2. flokks? „Er skrítið þó við spyrjum hvort starfsmenn sveitarfélaga á landsbyggðinni séu annars flokks íbúar í þessu landi?“ Þannig spyr stjórn Einingar Iðju í ályktun frá því fyrr í dag þar sem fjallað er um að ekki komi til greina að samið verði um lakari kjör til handa starfsólk...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fimm-fa-adgengisvottun
Fimm fá aðgengisvottun Hótel KEA, Menningarhúsið Hof , Hótel Natur, Ferðaþjónustan Skjaldarvík og Ferðaþjónustan Öngulstöðum verður afhent fyrst allra á Norðurlandi vottun aðgengis á Hótel KEA föstudaginn 3.júní kl.12.00. Þessir aðilar hafa látið taka út mannvirki sín með tilliti til aðgengis fyrir fatlaða og birta upp...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ss-byggir-baud-laegst-i-byggingu-hjukrunarheimilis-a-akureyri-1
SS Byggir bauð lægst í byggingu hjúkrunarheimilis á Akureyri Fyrirtækið SS Byggir bauð lægst tilboð í uppsteypu og fullnaðarfrágang 45 rýma hjúkrunarheimilis við Vestursíðu 9 en alls bárust fjögur tilboð í verkið og voru þrjú þeirra undir kostnaðaráætlun, sem hljóðaði upp á rúmar 838,2 milljónir króna. SS Byggir bauð u...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/yfirlysing-um-uppbyggingu-i-thingeyjarsyslum
Yfirlýsing um uppbyggingu í Þingeyjarsýslum Fjögur sveitarfélög á Norðausturlandi og Katrín Júlíusdóttir, iðnaðaráðherra hafa undirritað viljayfirlýsingu um miklar framkvæmdir á svæðinu. Í viljayfirlýsingunni er lögð áhersla á mikilvægi þess að nýta jarðvarma í Þingeyjarsýslum til umfangsmikillar atvinnuuppbyggingar og...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/haukar-logdu-ka-menn-i-boganum
Haukar lögðu KA-menn í Boganum Haukar urðu fyrstir til að leggja KA-menn að velli í 1.deild karla í knattspyrnu í sumar með 2:0 sigri í Boganum í dag í fjórðu umferð deildarinnar. Bæði mörk Hauka komu í fyrri hálfleik. Það fyrra skoraði Hilmar Rafn Emilsson með skalla eftir aukaspyrnu á 12. mínútu, en það síðara skorað...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sigur-fyrir-ahugafelag
Sigur fyrir áhugafélag „Við erum að rifna úr stolti,” segir Halldór Sigurgeirsson formaður Freyvangsleikhússins. Félagið sýndi verkið Góði dátinn Svejk í Þjóðleikhúsinu sl. sunnudaginn og fékk sýning góðar mótttökur hjá áhorfendum. „Það er skemmst frá því að segja að við stútfylltum Þjóðleikhúsið og það voru rauðglóand...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/framsyn-visar-kjaradeilu-til-sattasemjara
Framsýn vísar kjaradeilu til sáttasemjara Samninganefnd Framsýnar- stéttarfélags samþykkti á fundi sínum í gærkvöldi að vísa kjaradeilu félagsins við sveitarfélögin til Ríkissáttasemjara þar sem lítið hefur þokast í viðræðum og þolinmæði félagsins því á þrotum. Þess verður jafnframt krafist að ríkissáttasemjari boði þe...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/heil-umferd-i-1-deild-karla-i-dag-1
Heil umferð í 1. deild karla í dag KA og Haukar mætast í Boganum í dag kl. 16:00 í fjórðu umferð 1. deildar karla í knattspyrnu. KA hefur byrjað deildina af krafti og er sem stendur í öðru sæti deildarinnar með sjö stig, tveimur stigum á eftir toppliði ÍA. Haukar, sem léku í úrvalsdeild í fyrra, eru í fjórða sæti með s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hlynur-frabaert-ad-fa-svona-byrjun
Hlynur: Frábært að fá svona byrjun Hlynur Svan Eiríksson stjórnaði Þór/KA í fyrsta sinn í kvöld er liðið lagði Fylki 3:1 á Þórsvelli í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu. Fín byrjun hjá Hlyni sem fékk lítinn tíma með liði sínum fyrir leikinn í kvöld, en hann tók sem kunnugt er óvænt við liði Þórs/KA í gærkvöld af Viðari ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ammoniaksleki-hja-ua
Ammoníaksleki hjá ÚA Slökkvilið Akureyrar var kallað út um kl 20:40 í kvöld vegna ammóníaksleka í húsakynnum ÚA. Höfðu menn verið að vinna við hreinsunarstörf inni í húsinu þegar leiðsla eða þétting á leiðslu gaf sig og ammonínak byrjaði að leka út. Fyrirframákveðið viðbúnaðarkerfi fór í gang og kom slökkviliðið á stað...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sanngjarn-sigur-thorska-gegn-fylki
Sanngjarn sigur Þórs/KA gegn Fylki Þór/KA er komið upp í fjórða sæti Pepsi-deildar kvenna eftir verðskuldaðan 3:1 sigur gegn Fylki á Þórsvelli í kvöld. Þór/KA var alltaf skrefinu framar í leiknum en Fylkisstúlkur sýndu þó klærnar á köflum og með smá heppni hefðu þær getað fengið eitthvað úr leiknum. Rakel Hönnudóttir, ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kvennahlaup-isi-haldid-a-laugardaginn
Kvennahlaup ÍSÍ haldið á laugardaginn Árlegt kvennahlaup ÍSÍ verður haldið um allt land laugardaginn 4. júní næstkomandi. Hlaupið vekur jafnan mikla athygli en hlaupið er á yfir 90 stöðum bæði hér á landi og erlendis. Á Akureyri er hlaupið frá Ráðhústorginu kl. 11:00. Vegalengdir í boði eru 2 km og 4 km. Forskráning er...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/redist-a-sambyliskonu-sina
Réðist á sambýliskonu sína Karlmaður hefur verið dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi af Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir grófa líkamsárás gegn sambýliskonu sinni. Árásin átti sér stað á heimili þeirra þann 10. júlí á síðasta ári. Maðurinn sló konuna m.a. í andlitið og tók um axlir hennar og hrinti henni á afturbak, me...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eldur-i-becromal
Eldur í Becromal Eldur kom upp í einni af vélum Becromal í aflþynnuverksmiðju fyrirtækissins við Krossanes í gær. Starfsmenn verksmiðjunnar brugðust skjótt við og slökktu eldinn með slökkvitækjum og höfðu slökkt allan eld þegar slökkviliðið kom á vettvang. Nokkrar skemmdir urðu á vélinni sem kviknaði í en eldurinn hafð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorka-og-fylkir-maetast-a-thorsvelli-i-kvold
Þór/KA og Fylkir mætast á Þórsvelli í kvöld Þór/KA og Fylkir mætast í kvöld í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu kl. 18:30 á Þórsvelli. Norðanstúlkur mæta til leiks með nýjan þjálfara við stjórnvölinn en Hlynur Svan Eiríksson stýrir liðinu í sínum fyrsta leik í kvöld, en eins og Vikudagur greindi frá í gær tók Hlynur við...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/grunadur-um-fikniefnaakstur
Grunaður um fíkniefnaakstur Lögreglan á Akureyri stöðvaði ungan ökumann um 10 leytið í gærkvöld sem grunaður er um fíkniefnaakstur. Maðurinn var staddur á Glerárgötu er lögreglan varð hans var. Þá kom einnig í ljós að maðurinn er án ökuréttinda. Hann var handtekinn á staðnum og blóðsýni tekinn og send til rannsóknar. A...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vidar-haettur-med-thorka
Viðar hættur með Þór/KA Viðar Sigurjónsson er hættur sem þjálfari kvennaliðs Þórs/KA í knattspyrnu. Þetta staðfesti Unnsteinn Jónsson formaður knattspyrnudeildar Þórs í samtali við Vikudag rétt í þessu. Hlynur Svan Eiríksson hefur verið ráðinn í hans stað og stýrir því Þór/KA gegn Fylki á morgun er liðin mætast á Þórsv...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-og-haukar-leika-i-boganum
KA og Haukar leika í Boganum Áfram er hringlað með leikstaði knattspyrnuliða á Akureyri. Nú er búið að færa leik KA og Hauka í 1. deild karla á fimmtudaginn kemur inn í Bogann, en KA hafði óskað eftir að fá að spila á Þórsvelli sem var samþykkt, þar sem Akureyrarvöllur er ekki tilbúinn. Það var hins vegar ósk KA-manna ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/orvar-i-4-5-saeti-a-fyrsta-stigamoti-sumarins
Örvar í 4.-5. sæti á fyrsta stigamóti sumarins Fyrsta stigamót sumarins í Eimskipsmótaröðinni í golfi fór fram á Garðarvelli um helgina. Sex keppndur frá Golfklúbbi Akureyrar kepptu á mótinu en bestum árangri af þeim náði Örvar Samúelsson, sem hafnaði í 4.-5. sæti ásamt Helga Birki Þórissyni GSE. Siguvegarar mótsins ur...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/verdbolga-ognar-samningum
Verðbólga ógnar samningum Búast má við því að verðbólgan í landinu verði komin um eða yfir 5% í lok sumar að mati sérfræðinga Arionbanka sem fluttu erindi á sérstaklega vel sóttum morgunverðarfundi á bankans á Hótel KEA í morgun. Að sögn Ásdísar Kristjánsdóttur forstöðumanns greiningarsviðs gerði til þess að gera nýleg...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sveinbjorn-og-oddur-i-hopnum-gegn-lettum-og-austurriki
Sveinbjörn og Oddur í hópnum gegn Lettum og Austurríki Guðmundur Þórður Guðmundsson landsliðsþjálfari hefur valið 18 leikmenn til þátttöku í tveimur landsleikjum gegn Lettum og Austurríki sem fram fara í undankeppni EM 2012. Markvörðurinn Sveinbjörn Pétursson og Oddur Gretarsson leikmenn Akureyrar eru í hópnum. Þá er A...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jord-skalf-a-siglufirdi-i-nott
Jörð skalf á Siglufirði í nótt Jörð skalf á Siglufirði í nótt en um kl. 4:16 mældist jarðskjálfti upp á 3,3 að Richter. Skjálftinn varð um 16 kílómetra norðaustur af Siglufirði og urðu íbúar hans var í bænum. Að sögn Steinunnar S. Jakobsdóttur verkefnisstjóra jarðváreftirlits á Veðurstofu Íslands er ekki líklegt að aðr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oddur-fer-ekki-til-wetzlar-ekkert-heyrt-fra-grosswallstadt
Oddur fer ekki til Wetzlar- Ekkert heyrt frá Grosswallstadt Enn er óvissa um hvort handboltamaðurinn Oddur Gretarsson leiki með Akureyri næsta vetur. Það er þó ljóst að hann fer ekki til þýska liðsins Wetzlar, en hann býður ennþá eftir að heyra frá forráðarmönnum Grosswallstadt í Þýskalandi, sem einnig hefur haft Odd u...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/grindvikingar-logdu-thorsara-orugglega-ad-velli
Grindvíkingar lögðu Þórsara örugglega að velli Grindavík fagnaði öruggum sigri gegn Þór í kvöld er liðin mættust á Grindavíkurvelli í sjöttu umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu. Lokatölur urðu 4:1. Heimamenn höfðu 3:0 forystu í hálfleik með mörkum frá þeim Robbie Winters, Yacine Si Salem og Jóhanni Helgasyni. Alex...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leikur-ka-og-hauka-fer-fram-a-thorsvelli
Leikur KA og Hauka fer fram á Þórsvelli Leikur KA og Hauka í 1. deild karla í knattspyrnu á fimmtudaginn kemur mun fara fram á Þórsvelli. Upphaflega átti leikurinn að fara fram á Akureyrarvelli en stefnt var að því að völlurinn yrði tilbúinn þann 2. júní. Svo er hins vegar ekki og einnig standa enn framkvæmdir við stúk...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jafnvel-samid-i-kvold-eda-a-morgun
Jafnvel samið í kvöld eða á morgun Kjölur félag starfsfólks í almannaþjónustu var ekki með í því þeim kjarasamningapakka sem skrifað var undir hjá sáttasemjara í gær. Arna Jakobína Björnsdóttir formaður félagsins var í Karphúsinu þarg Vikudagur náði tali af henni í dag og kvaðst hún telja að samningar gætu jafnvel náðs...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kvedst-ekki-vera-ad-safna-husum
Kveðst ekki vera að safna húsum Thomas Martin Seiz, nýr eigandi Hrafnabjarga einbýlishússins glæsilega í Vaðlaheiðinni sem áður var í eigu Jóhannesar Jónssonar, hyggst flytja inn í húsið á næsta ári ásamt fjölskyldu sinni, að því er fram kemur í Fréttablaðinu í dag. "Við erum að laga innréttingar og breyta einu og öðru...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/enn-ovissa-med-odd-og-ingimund
Enn óvissa með Odd og Ingimund Enn er óvissa um hvort handboltamaðurinn Oddur Gretarsson leiki með Akureyri næsta vetur en bæði Wetzlar og Grosswallstadt í Þýskalandi íhuga að bjóða honum samning. Þá er einnig lítið að frétta af viðræðum milli Akureyrar og Ingimundar Ingimundarsonar landsliðsmanns, en hann mun einnig v...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tjaldbuar-vid-thingvallastraeti
Tjaldbúar við Þingvallastræti Það var ekkert sérstaklega sumarlegt á Akureyri í morgun, aðeins rúmlega 2ja stiga hiti og örlítið snjófjúk. Það kom hins vegar ekki í veg fyrir að tjaldbúar í tveimur tjöldum á tjaldstæðinu við Þingvallastræti svæfu enn vært. Raunar er ekki búið að opna tjaldstæðið og túnið meira og minna...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sjotta-umferd-pepsi-deildar-karla-klarast-i-kvold
Sjötta umferð Pepsi-deildar karla klárast í kvöld Sjöttu umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu sem hófst í gær, lýkur í kvöld með þremur leikjum. Á Grindavíkurvelli taka heimamenn á móti Þór og hefst leikurinn kl. 20:00. Þórsarar sitja í næstneðsta sæti deildarinnar með þrjú stig eftir fjóra leiki, en Grindavík hefu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nytingarhlutfallid-um-72
Nýtingarhlutfallið um 72% Akureyrarbær hefur sent börnum á aldrinum 6-11 ára tómstundaávísanir frá árinu 2007. Ávísanirnar jafngilda 10 þús. kr. sem hægt er að nýta til niðurgreiðslu á íþrótta- og tómstundastarfi. Kristinn H. Svanbergsson íþróttafulltrúi kynnti tómstundaávísanir barna á síðasta fundi almannaheillanefnd...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hatidarmessa-vegna-150-ara-afmaelis
Hátíðarmessa vegna 150 ára afmælis Í dag, sunnudaginn 29. maí kl. 14:00, verður hátíðarmessa vegna 150 ára afmælis þeirrar kirkju sem nú stendur í Lögmannshlíð. Vígðir þjónar kirkjunnar þjóna, Jón A. Baldvinsson, vígslubiskup á Hólum prédikar. Að messu lokinni er boðið til messukaffis í safnaðarheimili Glerárkirkju. Al...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/elvar-pall-hetja-ka-manna-a-kopavogsvelli
Elvar Páll hetja KA-manna á Kópavogsvelli Elvar Páll Sigurðsson var hetja KA er hann skoraði þrennu í 4:3 sigri norðanmanna gegn HK á Kópavogsvelli í dag í þriðju umferð 1. deildar karla í knattspyrnu. HK hafði 3:1 forystu í hálfleik en mögnuð endurkoma KA í seinni hálfleik skilaði þremur stigum í hús hjá norðanmönnum....
https://www.vikubladid.is/is/frettir/poesia-kom-til-akureyrar-i-morgun
Poesia kom til Akureyrar í morgun Skemmtiferðaskipið MSC Poesia kom til Akureyrar í morgun en skipið mun vera við Íslandsstrendur næstu daga. Skipið er gríðarlega stórt, um 95.000 tonn að stærð og um 300 metrar á lengd. Fjöldi fólks streymdi frá skipinu við Akureyrarhöfn í morgun en um 2.500 farþegar eru um borð, auk 9...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/heil-umferd-i-1-deild-karla-i-dag
Heil umferð í 1. deild karla í dag Heil umferð fer fram í dag í 1. deild karla í knattspyrnu. Á Kópavogsvelli tekur HK á móti KA og hefst leikurinn kl. 14:00. KA-menn hafa byrjað deildina vel, liðið er í þriðja sæti með fjögur stig eftir tvo leiki og hefur mætt tveimur liðum sem spáð var góðu gengi í sumar, ÍR og Leikn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/auglysingar-auka-ekki-neyslu
Auglýsingar auka ekki neyslu Innanríkisráðherra hefur lagt fram frumvarp um algjört bann við áfengisauglýsingum. Verði frumvarpið að lögum má sekta einstaklinga, fyrirtæki og fjölmiðla um allt að 10 milljónir króna fyrir svo mikið sem láta sjást í bjórdós eða tjá sig um rauðvín, ef það gæti flokkast sem “viðskiptaorðse...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oskynsamlegt-a-timum-atvinnuleysis
Óskynsamlegt á tímum atvinnuleysis Valgerður Jónsdóttir framkvæmdastjóri Norðurlandsskóga segir að töluverður samdráttur verði í framkvæmdum í sumar miðað við síðasta ár, en fjárveitingar hafi lækkað verulega. Áætlað er að gróðursetja um 500.000 þúsund plöntur í sumar, sem er um 200 þúsund plöntum minna en var í fyrra ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nylidaslagur-i-16-lida-urslitum-bikarins
Nýliðaslagur í 16-liða úrslitum bikarins Það verður nýliðaslagur í 16-liða úrslitum Valitor-bikar karla í knattspyrnu en úrvalsdeildarliðin Þór og Víkingur R. drógust saman, þegar dregið var í höfuðstöðvum KSÍ í dag. Þórsarar komu á undan upp úr pottinum og því mætast liðin á Þórsvelli, sunnudaginn 19. júní. Stórleikur...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/dregid-i-16-lida-urslitum-bikarins-i-dag
Dregið í 16-liða úrslitum bikarins í dag Í dag kl. 12:10 verður dregið í 16 liða úrslitum Valitors bikars karla en drátturinn fer fram í höfuðstöðvum KSÍ. Eitt félag kemur úr 2. deild, Hamar en fimm félög koma úr 1. deild og tíu úr Pepsi-deild karla. Félögin sem verða í pottinum eru: Hamar BÍ/Bolungarvík ÍBV Þróttur R....
https://www.vikubladid.is/is/frettir/grimseyjardagur-haldinn-i-fyrsta-sinn
Grímseyjardagur haldinn í fyrsta sinn Það verður mikið um að vera í Grímsey um helgina en þá verður í fyrsta sinn efnt til Grímseyjardags. Upphitunin hefst í kvöld með kráarkvöldi á Kríunni en á morgun laugardag verður fjölbreytt dagskrá frá morgni til kvölds.Ragnhildur Hjaltadóttir í Grímsey segir að allir eyjarskeggj...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/pall-vorum-ekki-alveg-i-fullum-gir
Páll: Vorum ekki alveg í fullum gír „Þetta var nú ekkert merkilegt sem við buðum uppá og við vorum ekki alveg í fullum gír. Ég held að maður hefði alveg fundið skemmtilegri hluti að gera ef maður hefði verið almennur áhugamaður,” sagði Páll Viðar Gíslason þjálfari Þórs, eftir öruggan 5:0 sigur sinna manna gegn Leikni F...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oruggt-hja-thor-i-boganum
Öruggt hjá Þór í Boganum Þórsarar áttu nokkuð greiða leið inn í 16-liða úrslit Valitor-bikar karla í knattspyrnu er liðið tók á móti 3. deildar liði Leikni F. í Boganum í kvöld í 32-liða úrslitum. Fyrirfram var búist við öruggum sigri Þórs og það kom á daginn. Heimamenn unnu leikinn örugglega 5:0, en leikurinn var aldr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baejarrad-samthykkti-viljayfir-lysingu-um-aukningu-stofnfjar-i-sparisjodi-hofdhverfinga
Bæjarráð samþykkti viljayfir- lýsingu um aukningu stofnfjár í Sparisjóði Höfðhverfinga Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi sínum í morgun, viljayfirlýsingu milli Sparisjóðs Höfðhverfinga, KEA svf, Sæness ehf og Akureyrarkaupstaðar um aukningu stofnfjár í Sparisjóði Höfðhverfinga. Bæjarráð vísaði viljayfirlýsingunni og...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aukin-launauppbot-med-mai-launum-hja-samherja
Aukin launauppbót með maí-launum hjá Samherja Í nýsamþykktum kjarasamningum eru ákvæði um tvær eingreiðslur sem eiga að greiðast ofan á laun nú um mánaðamótin. Þær nema samtals 60 þúsund krónum. Samherji hefur ákveðið að rúmlega tvöfalda þessar umsömdu greiðslur. Allir starfsmenn í landi, sem hafa unnið hjá fyrirtækinu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/isar-baud-laegst-i-endurnyjun-adrennslispipu-laxa-ii
Ísar bauð lægst í endurnýjun aðrennslispípu Laxá II Fjögur tilboð bárust í endurnýjun aðrennslispípu Laxá II í Þingeyjarsveit en tilboðin voru opnuð hjá Landsvirkjun í morgun. Ísar ehf. átti lægsta tilboð, rúmar 158,2 milljónir króna. ÞS Verktakar áttu næst lægsta tilboð, tæpar 170 milljónir króna, Trésmiðjan Rein ehf....
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baejarrad-lysir-yfir-megnri-oanaegju-med-lokun-starfsstodvar-jais-a-akureyri
Bæjarráð lýsir yfir megnri óánægju með lokun starfsstöðvar ja.is á Akureyri Bæjarráð Akureyrar lýsir í bókun frá fundi sínum í morgun, yfir megnri óánægju með ákvörðun Já Upplýsingaveitna hf. að loka starfsstöð ja.is á Akureyri. Fyrirtækið hefur um áraraðir, bæði fyrir og eftir einkavæðingu, notið þjónustu góðs og trau...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samid-vid-gv-grofur-um-undirbuning-vegna-malbikunar
Samið við GV Gröfur um undirbúning vegna malbikunar Fyrirtækið GV Gröfur ehf. átta lægsta tilboð í verðfyrirspurn framkvæmdardeildar vegna verksins; Kjarnaskógur og Hamrar - undirbúningur vegna malbikunar. Kostnaðaráætlun hönnuða nam um 9,5 milljónum króna en GV Gröfur buðust til að vinna verkið fyrir rúmar 5,3 milljón...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/betri-i-dag-en-i-gaer-radstefna-um-nam-og-gaedi-i-haskolum
Betri í dag en í gær – ráðstefna um nám og gæði í háskólum Ráðstefnan Betri í dag en í gær um nám og gæði í háskólum verður haldin við Háskólann á Akureyri 30.-31. maí næstkomandi. Íslenskir háskólar standa um þessar mundir að mörgu leyti á tímamótum og ekki síst varðandi gæðamál. Unnið er að nýju skipulagi gæðaeftirli...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ny-framtidarsyn-fyrir-felagsmidstodvar-unglinga
Ný framtíðarsýn fyrir félagsmiðstöðvar unglinga Samfélags- og mannréttindaráð samþykkti á fundi sínum í vetur að fela vinnuhópi skipuðum fulltrúum úr samfélags- og mannréttindaráði og frá samfélags- og mannréttindadeild að móta framtíðarsýn fyrir félagsmiðstöðvar unglinga. Tillögur vinnuhópsins voru lagðar fyrir síðast...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-faer-5-milljona-krona-styrk-fra-ksi
KA fær 5 milljóna króna styrk frá KSÍ Stjórn KSÍ ákvað á fundi sínum 19. maí síðastliðinn að úthluta rúmlega 30 milljónum úr Mannvirkjasjóði KSÍ og er þetta í fjórða skiptið sem úthlutað er úr sjóðnum. Alls var úthlutað til 9 verkefna en umsóknir voru 11 talsins. KA fékk styrk upp á 5 milljónir króna vegna endurbóta vi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-og-leiknir-f-maetast-i-boganum-i-kvold
Þór og Leiknir F. mætast í Boganum í kvöld 32-liða úrslitin í Valitor-bikar karla í knattspyrnu klárast í kvöld með fimm leikjum. Í Boganum tekur Þór á móti Leikni frá Fáskrúðsfirði kl. 19:15. Heimamenn verða að teljast mun sigurstranglegri í kvöld, þar sem Þór leikur í úrvalsdeild en Leiknir í 3. deild, auk þess sem n...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ahofnin-a-oddeyrinni-motmaelir-frumvorpum-sjavarutvegs-og-landbunadarradherra
Áhöfnin á Oddeyrinni mótmælir frumvörpum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Áhöfnin á Oddeyrinni EA-210 hefur sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu, þar sem hún mótmælir framkomnum frumvörpum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. "Sem hefur í för með sér tekjuskerðingu og störf okkar séu sett í hættu og kvótinn jafnv...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gunnlaugur-attum-i-fullu-tre-vid-tha
Gunnlaugur: Áttum í fullu tré við þá Gunnlaugur Jónsson, þjálfari KA, var brattur eftir tapleik liðsins gegn Grindavík í Boganum í kvöld, í 32-liða úrslitum Valitor-bikar karla í knattspyrnu. Grindavík vann 2:1 og er komið áfram í 16-liða úrslit. Í fyrra sló KA Grindavík úr keppni í 16-liða úrslitum en dæmið snerist vi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/svifryksmaelar-hafa-verid-meira-og-minna-biladir-i-allan-vetur
Svifryksmælar hafa verið meira og minna bilaðir í allan vetur Á síðasta fundi umhverfisnefndar Akureyrarbæjar var lögð fram fyrirspurn frá Andreu Sigrúnu Hjálmsdóttur bæjarfulltrúa V-lista. Fram kom í stefnuræðu formanns umhverfisnefndar sem flutt var á fundi bæjarstjórnar í byrjun mánaðarins að svifryksmælar í bænum h...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-ur-leik-i-bikarnum
KA úr leik í bikarnum Grindavík er komið áfram í 16-liða úrslit Valitor-bikar karla í knattspyrnu eftir 2:1 sigur gegn KA í Boganum í kvöld. Michal Pospisil skoraði bæði mörk Grindavíkur í leiknum en Hallgrímur Mar Steingrímsson skoraði mark KA. Gestirnir voru betri í leiknum og sigurinn sanngjarn, sem hefði getað orði...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/felagsmenn-einingar-idju-samthykktu-nyjan-kjarasamning
Félagsmenn Einingar-Iðju samþykktu nýjan kjarasamning Félagsmenn Einingar-Iðju sem starfa á almenna vinnumarkaðinum samþykktu með miklum meirihluta nýjan samning við Samtök atvinnulífsins sem skrifað var undir þann 5. maí sl. Póstatkvæðagreiðsla á meðal félagsmanna stóð yfir frá 11. maí til kl. 17 í gær. Á kjörskrá vor...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/isavia-tekur-vid-vidbunadar-thjonustu-a-akureyrarflugvelli
Isavia tekur við viðbúnaðar- þjónustu á Akureyrarflugvelli Á síðasta fundi framkvæmdaráðs var rætt um uppsögn þjónustusamnings um viðbúnaðarþjónustu á flugvellinum á Akureyri. Fram kom að Isavia ohf stendur við uppsögn sína og tekur þann 1. desember nk. við þeim hluta í starfsemi flugvallarins sem nú er sinnt að Slökkv...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gudlaugur-tekinn-vid-kathor-lidid-leikur-i-n1-deildinni-a-ny
Guðlaugur tekinn við KA/Þór-Liðið leikur í N1-deildinni á ný Guðlaugur Arnarsson, varnarjaxlinn í liði Akureyrar, hefur verið ráðinn þjálfari KA/Þórs í handbolta kvenna fyrir næsta vetur. Honum til aðstoðar verður Martha Hermannsdóttir og mun hún einnig leika með liðinu. Þá mun KA/Þór taka þátt í N1-deild kvenna að nýj...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bjorgunarsveitarmenn-grennslast-fyrir-um-thyskan-ferdamann
Björgunarsveitarmenn grennslast fyrir um þýskan ferðamann Eftirgrennslan eftir þýskum ferðamanni sem saknað er og talinn er vera staddur norðan Vatnajökuls bar engan árangur í nótt. Vélsleðamenn frá Flugbjörgunarsveitinni á Hellu, Hjálparsveitinni Dalbjörg í Eyjafirði og Súlum, björgunarsveitinni á Akureyri fóru í nótt...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sla-ka-menn-grindvikinga-aftur-ut-ur-keppni
Slá KA-menn Grindvíkinga aftur út úr keppni? 32-liða úrslit Valitor-bikar karla í knattspyrnu hefjast í kvöld með ellefu leikjum. Í Boganum tekur KA á móti úrvalsdeildarliði Grindavíkur kl. 19:15. Liðin mættust einnig í bikarnum í fyrra, þá í 16-liða úrslitum, og þar sló KA Grindavík úr keppni á útivelli eftir vítaspyr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/arsreikningur-sidasta-ars-synir-sterka-fjarhagsstodu
Ársreikningur síðasta árs sýnir sterka fjárhagsstöðu Á fundi sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar í gær, var ársreikningur sveitarfélagsins fyrir árið 2010 tekinn til síðari umræðu og samþykktur. Niðurstaða ársreiknings sýnir sterka fjárhagsstöðu sveitarfélagsins í erfiðu árferði. Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thetta-litur-ekkert-serstaklega-vel-ut
„Þetta lítur ekkert sérstaklega vel út" „Þetta lítur ekkert sérstaklega vel út og maí mánuður var ekki að hjálpa mikið til,” segir Steindór Ragnarsson vallarstjóri golfvallarsvæðis að Jaðri. Nýliðinn vetur, sem varla er þó liðinn miðað við veðurfar síðustu daga, er einn sá versti í mörg ár á vellinum og hefur klakamynd...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrirtaekjasofnun-vegna-grimsvatnagossins
Fyrirtækjasöfnun vegna Grímsvatnagossins Eins og landsmönnum er kunnugt, hefur gosið í Grímsvötnum, sem hófst þann 21. maí s.l. þegar valdið bændum og búaliði á því svæði, sem harðast hefur orðið úti af þess völdum, miklu tjóni og enn er ekki ljóst hversu víðtækt það er. Sem betur fer eru stofnanir og sjóðir í landinu ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/komur-a-dag-og-gongudeild-fsa-aldrei-verid-fleiri-en-i-fyrra
Komur á dag- og göngudeild FSA aldrei verið fleiri en í fyrra Á geðdeild FSA hafa menn áhyggjur af stöðu langveikra. Verið er að skoða möguleika í samstarfi við búsetudeild Akureyrarbæjar. Starfsemi dag- og göngudeildar hefur vaxið milli ára. Fjöldi sjúklinga sem fékk þjónustu á deildinni jókst lítillega en umtalsverð ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyringur-vann-9-milljonir-krona-a-skafmida
Akureyringur vann 9 milljónir króna á skafmiða Honum fannst svo sannarlega skemmtilegt að skafa, Akureyringnum sem keypti sér á dögunum „7, 9, 13" skafmiða Happaþrennunnar í Hagkaupi á Akureyri. Á miðanum leyndist 9 milljón króna vinningur. Vinningshafinn trúði varla sínum eigin augum þegar hann skóf af miðanum. Hann s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/a-fjorda-hundrad-manns-a-vorfundi-samorku
Á fjórða hundrað manns á Vorfundi Samorku Á fjórða hundrað manns munu taka þátt í Vorfundi Samorku sem haldinn verður í Hofi á Akureyri dagana 26.-27. maí. Alls verða flutt 39 erindi, að meðtöldu ávarpi iðnaðarráðherra, þar sem m.a. verður fjallað um rammaáætlun, virkjanakosti framtíðar, eftirspurn eftir raforku á Ísla...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tvo-tilbod-barust-i-framkvaemdir-vid-hrafnagilsskola
Tvö tilboð bárust í framkvæmdir við Hrafnagilsskóla Tvö tilboð bárust í framkvæmdir á skólalóð og bílastæði við Hrafnagilsskóla. Tilboðin voru opnuð fyrir helgina og voru þau bæði yfir kostnaðaráætlun, sem hljóðaði upp á tæpar 12,2 milljónir króna. Lægra tilboðið átti fyrirtækið Græna lauf ehf., um 12,7 milljónir króna...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mun-faerri-lokid-haskolamenntun-a-landsbyggdinni
Mun færri lokið háskólamenntun á landsbyggðinni Árið 2010 hafa rúmlega 56 þúsund manns á aldrinum 16-74 lokið háskólanámi, eða um fjórðungur íbúa á Íslandi á sama aldursbili. Háskólamenntuðum hefur fjölgað nokkuð frá árinu 2003, þegar þeir voru 22% íbúa. Um 36% íbúa hafa lokið starfs- og framhaldsmenntun, þ.e. lokið ná...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vetrarfaerd-halka-snjothekja-skafrenningur-eda-ofaerd
Vetrarfærð, hálka, snjóþekja, skafrenningur eða ófærð Á Norðvesturlandi er hálka á Holtavörðuheiði, Þverárfjalli og á Siglufjarðarvegi milli Hofsós og Siglufjarðar. Hálkublettir á Vatnsskarði og Öxnadalsheiði. Um Norðausturland er víða vetrarfærð, hálka, snjóþekja, og skafrenningur. Ófært er á Vopnafjarðarheiði, Sandví...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sjukraflug-komid-i-gang
Sjúkraflug komið í gang Nú er orðið fært fyrir sjúkraflug en það hefur verið ófært síðan gosið hófst í Grímsvötnum. Sjúkraflugvél Mýflugs er nú að flytja tvo sjúklinga frá Egilsstöðum til Reykjavíkur og mun að því loknu fara aftur til Egilsstaða og ná í aðra tvo sjúklinga. Óskað var eftir fyrra fluginu nú í morgun og h...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vill-hlutlausar-upplysingar-um-efnahagslegar-afleidingar-lagafrumvarps-um-stjorn-fiskveida
Vill hlutlausar upplýsingar um efnahagslegar afleiðingar lagafrumvarps um stjórn fiskveiða Stjórn Akureyrarstofu hefur óskað eftir kynningu á nýju frumvarpi um stjórn fiskveiða á Íslandi og svo fljótt sem auðið er hlutlausum upplýsingum um efnahagslegar afleiðingar þess. Stjórnin samþykkti á síðasta fundi sínum að fela...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ekkert-lat-a-hridarbylnum-nordaustan-og-austanlands
Ekkert lát á hríðarbylnum norðaustan- og austanlands Ekkert lát á hríðarbylnum norðaustan- og austanlands. Helstu breytingarnar eru þær að við sjóinn og á láglendi norðaustanlands hækkar hiti lítið og gerir krapaslyddu í kvöld. Við Eyjafjörð og vestantil á Norðurlandi er spáð éljum eða snjókomu víðast hvar og eins og n...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/dregid-hefur-ur-atvinnuleysi
Dregið hefur úr atvinnuleysi Á fundi stjórnar Akureyrarstofu fyrir helgi var lagt fram yfirlit um átaksverkefni Akureyrarbæjar og Vinnumálastofnunar vegna atvinnuleysis á árinu 2011 og farið yfir framkvæmd þeirra. Jafnframt kynntar nýjustu tölur um atvinnuleysi á Akureyri og Norðurlandi eystra. Fram kom að dregið hefur...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/olafur-bragi-greifameistari
Ólafur Bragi Greifameistari Greifatorfæran fór fram á Akureyri um helgina en þetta var jafnframt fyrsta umferðin á Íslandsmótinu í torfæru. Ólafur Bragi Jónsson hlaut nafnbótina Greifinn 2011 að þessu sinni, en það er sá keppandi sem nær flestum stigum í keppninni. Einnig voru veitt tilþrifaverðlaun í torfærunni og fék...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oskufall-a-akureyri
Öskufall á Akureyri Í gærkvöld fór að bera á öskufalli á Akureyri vegna eldgossins í Grímsvötnum og sást það vel á bílum bæjarbúa í morgun. Sundlaug Akureyrar var lokuð fyrsta klukkutímann í morgun, þar sem starfsfólk þurfti að þrífa ösku á útisvæðinu, í laugunum, pottunum og á bökkunum. Fyrstu gestir sem mættu í laugi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nemendur-naustaskola-hlupu-til-styrktar-unicef
Nemendur Naustaskóla hlupu til styrktar UNICEF Það var mikið fjör í Naustaskóla á Akureyri í morgun en þar voru krakkarnir að hlaupa og reyna fyrir sér í ýmsum þrautum til styrktar UNICEF. Krökkunum var safnað saman á sparkvelli skólans um kl. 10 og var þeim þá skipt í fimm hópa sem fóru á mismunandi stöðvar. Á stöðvun...