Search is not available for this dataset
url stringlengths 21 288 | text stringlengths 1 1.35M |
|---|---|
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyri-og-haukar-skyldu-jofn-i-horkuleik | Akureyri og Haukar skyldu jöfn í hörkuleik
Akureyri og Haukar gerðu í kvöld 29:29 jafntefli í hörkuskemmtilegum handboltaleik í Höllinni á Akureyri í N1- deild karla. Leikurinn var
hraður og skemmtilegur þar sem sóknarleikurinn var í hávegum hafður. Aldrei munaði nema tveimur mörkum á liðunum og skiptu liðin á
að hafa ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/unglingameistaramotid-a-skidum-haldid-i-hlidarfjalli-um-helgina | Unglingameistaramótið á skíðum haldið í Hlíðarfjalli um helgina
Unglingameistaramót Íslands á skíðum verður haldið um helgina í Hlíðarfjalli, dagana 25.-27. mars, og
verður sett í Menningarhúsinu Hofi í kvöld. Keppt er í aldursflokkunum 13-14 ára og 15-16 ára í alpagreinum (svig,
stórsvig og samhliðarsvig) og skíðagöng... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skrifad-undir-fjarmognunar-samning-vegna-nys-hotels-a-akureyri | Skrifað undir fjármögnunar- samning vegna nýs hótels á Akureyri
Í dag var skrifað undir langtímafjármögnunarsamning vegna byggingar og rekstrar nýs hótels á Akureyri. Lánveitandi er Landsbankinn. Eigandi
byggingarinnar er Eignasamsteypan, en hótelið verður rekið af Icelandair Hotels. Heildarfjárfesting í þessu verkefni... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/framkvaemdir-vid-vadlaheidargong-hafa-jakvaed-efnahagsleg-ahrif | Framkvæmdir við Vaðlaheiðargöng hafa jákvæð efnahagsleg áhrif
Það hefur mjög jákvæð efnahagsleg áhrif um þessar mundir að fara í framkvæmdir sem Vaðlaheiðargöng. Ríkið
hefur beinan peningalegan ávinning af gerð ganganna. Hluti af kostnaðinum við gerð ganganna fer beint inn í ríkissjóð aftur. Líklegt
er að um 300 ársver... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/framtid-starfsendurhaefingar-nordurlands-er-otrygg | Framtíð Starfsendurhæfingar Norðurlands er ótrygg
Á fundi almannaheillanefndar Akureyrar nýlega komu fram upplýsingar um að framtíð Starfsendurhæfingar Norðurlands sé ótrygg þar sem
samningur við ríkið renni út í maí. Almannaheillanefnd lýsir áhyggjum af stöðunni en falli starfsemi Starfsendurhæfingar
Norðurlands niður... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/loftlagsradstefna-haldin-a-akureyri | Loftlagsráðstefna haldin á Akureyri
Til stendur að halda loftslagsráðstefnu vinabæja Akureyrar á Norðurlöndum á þessum ári á Akureyri. Umhverfisnefnd fjallaði um
málið á fundi sínum nýlega og þar var samþykkt að leggja til að ráðstefnan verði haldin næsta haust. Bæjarráð
Akureyrar samþykkti svo á fundi sínum í morgun f... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikid-tjon-fra-fyrsta-degi-yrdi-af-verkfalli | Mikið tjón frá fyrsta degi yrði af verkfalli
Fram hefur komið í fjölmiðlum að nú stendur yfir atkvæðagreiðsla um heimild til boðunar verkfalls starfsmanna aflþynnuverksmiðju Becromal
Iceland ehf. á Akureyri. Becromal Iceland ehf. er eitt af yngstu fyrirtækjum landsins og hefur starfsmönnum þess fjölgað jafnt og þétt ef... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sjotta-og-sidasta-sertaeka-grein-um-vadlaheidargong-avinningur-allra | Sjötta og síðasta sértæka grein um Vaðlaheiðargöng Ávinningur allra
Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Það hefur mjög jákvæð efnahagsleg áhrif um þessar mundir að fara í framkvæmdir sem Vaðlaheiðargöng.
Ríkið hefur beinan peningalegan ávinning af gerð ganganna. Hluti af kostnaðinum við gerð ganganna fer beint inn í rík... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/verda-akureyringar-deildarmeistarar-i-kvold-1 | Verða Akureyringar deildarmeistarar i kvöld?
Átjánda umferð N1-deildar karla í handbolta verður leikinn í kvöld og í Íþróttahöllinni á Akureyri fá
heimamenn Hauka í heimsókn kl. 19:00. Haukar eru í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppninni í vor. Liðið vann mikilvægan
eins marks sigur gegn HK í síðustu umferð á meðan A... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/benedikt-thad-gekk-ekkert-upp | Benedikt: Það gekk ekkert upp
Benedikt Pálsson leikmaður Þórs var eðlilega svekktur í leikslok í spjalli við Vikudag þegar ljóst var að úrvalsdeildar
draumurinn væri úr sögunni eftir tap norðanmanna gegn Val í oddaleik í kvöld, 74:96, í Höllinni á Akureyri. Benedikt segir lítið
hafa fallið með liðinu í kvöld og miklu h... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/valur-tryggdi-ser-saeti-i-urvalsdeildinni | Valur tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni
Valur tryggði sér í kvöld sæti í Iceland Express deild karla í körfubolta eftir sigur gegn Þór, 96:74, í oddaleik í
úrslitum 1. deildarinnar í Höllinni á Akureyri. Valur vann því einvígið 2:1 en allir sigrarnir í einvíginu unnust á
útivelli. Þeir Calvin Wooten og Philip Perre fó... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/born-eiga-rett-a-serstakri-vernd-og-thjonustu | Börn eiga rétt á sérstakri vernd og þjónustu
Umboðsmaður barna lýsir yfir áhyggjum af þeim niðurskurði sem átt hefur sér stað og er fyrirhugaður hjá sveitarfélögum
landsins, ekki síst í leik- og grunnskólum og tómstundastarfi. Í erindi frá umboðsmanni barna til skólanefndar Akureyrar, er minnt á að
börn eru viðkvæmur þ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/einar-orn-i-banni-gegn-akureyri | Einar Örn í banni gegn Akureyri
Einar Örn Jónsson, hornamaðurinn í liði Hauka, hefur verið úrskurðaður í eins leiks keppnisbann af Aga-og úrskurðarnefnd
HSÍ og verður ekki með liðinu er Haukar sækja Akureyri heim annað kvöld í N1-deild karla í handbolta.
Einar hlýtur bannið vegna brots á leikmanni HK í leik liðanna í s... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hagnadur-islenskra-verdbrefa-170-milljonir-krona-i-fyrra | Hagnaður Íslenskra verðbréfa 170 milljónir króna í fyrra
Hagnaður af rekstri Íslenskra verðbréfa hf. árið 2010 nam 170 milljónum króna. Niðurstaðan er í samræmi við
áætlanir félagsins og í takt við afkomu þess árið 2009, þegar hagnaður nam 166 milljónir króna. Eiginfjárhlutfall
félagsins (CAD) var í árslok 26,7% en hlu... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/urvalsdeildarsaeti-i-hufi-i-hollinni-i-kvold | Úrvalsdeildarsæti í húfi í Höllinni í kvöld
Það er mikið undir í leik Þórs og Vals í kvöld er liðin mætast í Íþróttahöllinni á Akureyri kl.
19:15, í oddaleik í úrslitum 1. deildar karla í körfubolta. Sigurliðið tryggir sér sæti í úrvalsdeildinni næsta vetur
ásamt Þór Þorlákshöfn. Þegar farið er yfir viðureignir liðanna... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fimmta-sertaeka-grein-um-vadlaheidargong-rekstrarkostnadur-og-afborganir-af-lani | Fimmta sértæka grein um Vaðlaheiðargöng Rekstrarkostnaður og afborganir af láni
Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Vaðlaheiðargöngum fylgir rekstrarkostnaður. Skipta má þeim rekstrarkostnaði í tvennt. Annars vegar er almennur rekstrarkostnaður sem er
í öllum jarðgöngum. Það er svo sem rafmagn, malbikun á einhverra ára ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leggja-mat-a-kosti-og-galla-thess-ad-eyjafjardarsveit-skipti-um-vidskiptabanka | Leggja mat á kosti og galla þess að Eyjafjarðarsveit skipti um viðskiptabanka
Á 400. fundi sveitastjórnar Eyjafjarðarsveitar í gær, var samþykkt bókun þar sem sveitarstjórnarmenn mótmæla
þróun launakjara hjá bönkunum. Með þessu vilja sveitastjórnarmenn undirstrika mikilvægi þess að sveitarfélög noti þann
slagkraft sem ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/spurst-fyrir-um-slysatidni-a-vegakoflum-a-islandi | Spurst fyrir um slysatíðni á vegaköflum á Íslandi
Sigmundur Ernir Rúnarsson þingmaður Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi hefur sent fyrirspurn til innanríkisráðherra um
slysatíðni á þjóðvegum á Íslandi. Sigmundur spyr annars vegar á hvaða vegaköflum á Íslandi sé
slysatíðni mest miðað við milljón ekna kílómetra. Hin... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fikniefnamal-a-akureyri | Fíkniefnamál á Akureyri
Lögreglan á Akureyri handtók karl og konu í morgun vegna gruns um fíkniefnamisferli. Í húsleit sem gerð var í
kjölfarið lagði lögreglan hald á yfir 30 grömm af kannabisefni sem að grunur er á að hafi verið ætlað til sölu. Aðilar
málsins voru yfirheyrðir og sleppt að lokinni yfirheyrslu. Málið te... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stodugildum-kennara-fjolgar-i-naustaskola-giljaskola-og-brekkuskola | Stöðugildum kennara fjölgar í Naustaskóla, Giljaskóla og Brekkuskóla
Skólanefnd Akureyrar samþykkti á fundi sínum í gær tillögu að úthlutun til kennslu í grunnskólum Akureyrarbæjar
skólaárið 2011-2012. Tillagan er byggð á forsendum sem notaðar hafa verið undanfarin ár, sem grundvallast á nemendafjölda eftir
árgöngum í ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/franz-haettir-hja-nordurorku | Franz hættir hjá Norðurorku
Franz Árnason forstjóri Norðurorku tilkynnti á aðalfundi félagsins sl. föstudag, að hann myndi láta af störfum á
árinu. Geir Kristinn Aðalsteinsson formaður stjórnar þakkaði Franz vel unninn störf í þágu Norðurorku og forvera hennar. Fram
kom í máli Geirs Kristins að afkoma félagsins væri mj... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/heimsmeistaramot-kvenna-i-ishokki-haldid-her-a-landi | Heimsmeistaramót kvenna í íshokkí haldið hér á landi
Heimsmeistaramót kvenna í íshokkí í 4. deild fer fram hér á landi dagana 27. mars til 2. apríl. Þetta er í fyrsta skiptið
sem HM kvenna er haldið hér á landi en þetta er í fjórða sinn sem Ísland teflir fram liði á heimsmeistaramóti.
Fimm lið keppa á mótinu en auk Ísl... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/inga-og-sigurgeir-med-sigra-i-oddskardi | Inga og Sigurgeir með sigra í Oddskarði
Tvö stórsvigsmót voru haldin í Oddskarði um liðna helgi þar sem þau Inga Rakel Ísaksdóttir og Sigurgeir Halldórsson frá
SKA gerðu gott mót.
Keppt var laugardag og sunnudag og unnu bæði Inga og Sigurgeir í flokki 17-19 ára og urðu í öðru sæti í fullorðinsflokki
báða dagana. |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/atkvaedagreidsla-um-verkfalls-bodun-hja-becromal | Atkvæðagreiðsla um verkfalls- boðun hjá Becromal
Í gær var haldinn fundur í samninganefnd Einingar-Iðju. Þar fór Ólafur Darri Andrason, deildarstjóri hagdeildar ASÍ, yfir það sem
er að gerast í kjarasamningum og eins það sem ekki er að gerast, í góðum fyrirlestri um stöðuna sem uppi er í samningamálum. Einnig
var samþy... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ma-bydur-i-heimsokn | MA býður í heimsókn
Nú standa nemendur í 10. bekk frammi fyrir því að velja sér framhaldsskóla. Forinnritun nemenda í framhaldsskóla hófst 21. mars og
stendur til 1. apríl og lokainnritun er síðan 3.-9. júní. Að því tilefni býður MA nemendum í 10. bekk, foreldrum og öðrum
áhugasömum á opið hús, til að kynna sér líf og ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stofnkostnadur-og-fjarmagns-kostnadur-vadlaheidarganga | Stofnkostnaður og fjármagns- kostnaður Vaðlaheiðarganga
Jón Þorvaldur Heiðarsson lektor við Háskólann á Akureyri og sérfræðingur á RHA, hefur skrifað sína fjórðu
sérstæku grein um Vaðlaheiðargöng, sem birtist hér á vef Vikudags, undir; Aðsendar greinar. Þar fjallar hann um stofnkostnað og
fjármagnskostnað, auk þess sem... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjorda-sertaeka-grein-um-vadlaheidargong-stofnkostnadur-og-fjarmagnskostnadur | Fjórða sértæka grein um Vaðlaheiðargöng - Stofnkostnaður og fjármagnskostnaður
Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Nú er áætlað að gerð Vaðlaheiðarganga kosti 10,4 milljarða kr. Án virðisaukaskatts er þessi upphæð 8,3 milljarðar
kr. Það er væntanlega upphæðin sem rekstrarfélagið þarf að punga út en virðisaukaskattur ætti ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nytt-felag-tekur-yfir-starfsemi-nordurskeljar-i-hrisey | Nýtt félag tekur yfir starfsemi Norðurskeljar í Hrísey
Að undanförnu hefur verið unnið að því að safna hlutafé í nýtt skelræktarfélag og endurreisa skelrækt við
Hrísey, eftir að Norðurskel varð gjaldþrota á dögunum. Á fundi um atvinnumál í Hrísey í dag, upplýsti Geir Kristinn
Aðalsteinsson forseti bæjarstjórnar Akureyr... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-sigradi-og-tryggdi-ser-oddaleik | Þór sigraði og tryggði sér oddaleik
Þór tryggði sér oddaleik í einvíginu gegn Val um sæti í úrvalsdeild karla í körfubolta með þriggja stiga sigri
í Vodafonehöllinni í kvöld, 76:73, í öðrum leik liðanna í úrslitum 1. deildarinnar. Staðan í rimmunni er því 1:1
og munu liðin mætast í hreinum úrslitaleik á miðvikudaginn k... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/askorun-til-rikisstjornarinnar-og-thingflokks-samfylkingarinnar | Áskorun til ríkisstjórnarinnar og þingflokks Samfylkingarinnar
Aðalfundar Samfylkingarinnar á Akureyri, sem haldinn í Lárusarhúsi fyrir helgi, samþykkti að skora á ríkisstjórnina og þingflokk
Samfylkingarinnar að standa við fyrirheit í stefnu flokksins og samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um innköllun allra aflah... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/reglur-vegna-unglingadansleikja-samthykktar | Reglur vegna unglingadansleikja samþykktar
Bæjarstjórn Akureyrar hefur samþykkt reglur vegna unglingadansleikja en þær höfðu áður verið samþykktar í samfélags- og
mannréttindaráði. Reglurnar eiga við um dansleiki fyrir ungmenni á aldrinum 14 - 17 ára, þar sem miðað er við fæðingarár en ekki
fæðingardag.
Það er bæjarlög... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/utankjorfundaratkvaedagreidsla-um-icesave-hafin-a-akureyri | Utankjörfundaratkvæðagreiðsla um Icesave hafin á Akureyri
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave lögin hófst hjá embætti sýslumannsins
á Akureyri sl. miðvikudag. Þjóðaratkvæðagreiðslan fer svo fram þann 9. apríl nk.
Að sögn Helgu Eymundsdóttur formanns kjörstjórnar á Akureyri fer kosni... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ekkert-nema-sigur-dugir-thorsurum-i-kvold | Ekkert nema sigur dugir Þórsurum í kvöld
Þór sækir Val heim í kvöld í Vodafonehöllina kl. 20:00 er liðin mætast öðru sinni í
úrslitum 1. deildar karla í körfubolta um hvort liðið fylgi Þór Þorlákshöfn upp í úrvalsdeildina.
Ekkert annað en sigur dugir norðmönnum í kvöld eftir tap á heimavelli í fyrsta leik liðanna á fös... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/malthing-um-tomstundir-og-ithrottir-barna-eftir-skola | Málþing um tómstundir og íþróttir barna eftir skóla
SAMTAKA, svæðisráð foreldra grunnskólabarna á Akureyri, stendur fyrir málþingi miðvikudaginn 23. mars kl. 20:00 í sal Brekkuskóla.
Umræðuefnið er börnin okkar og þeirra tómstundir/íþróttir eftir að skóla líkur.
Framsögumenn verða: Viðar Sigurjónsson, sviðsstjóri fræðs... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thridja-sertaeka-grein-um-vadlaheidargong-tekjur-af-veggjaldi | Þriðja sértæka grein um Vaðlaheiðargöng - Tekjur af veggjaldi
Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Eins og útskýrt var í grein eitt og tvö þá bendir allt til að aðalgjald 800 kr í Vaðlaheiðargöng verði til þess að
meginþorri vegfarenda velji göngin og ný umferð bætist jafnframt við þannig að fleiri fari um göngin en um Vík... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jafnrettisstjornin-fellur-a-profinu-i-nidurskurdinum | Jafnréttisstjórnin fellur á prófinu í niðurskurðinum
Stjórn Landssambands framsóknarkvenna lýsir yfir vanþóknun sinni á aðgerðir hinnar norrænu velferðar- og jafnréttisstjórnar
sem bitnað hafa illa á stöðu kvenna í íslensku samfélagi. Nýlega hefur komið í ljós að niðurskurður í
ríkisrekstrinum undanfarin tvö ár hefur k... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/island-upp-um-deild-eftir-sigur-a-hm-i-ishokki | Ísland upp um deild eftir sigur á HM í íshokkí
U18 ára landslið karla í íshokkí nældi sér í gullverðlaun á HM í 3. deild sem haldið var í
Mexíkó en Ísland lagði heimamenn í úrslitaleiknum, 4:3, eftir vítakeppni í gær. Með sigrinum komst Ísland upp í 2.
deild.
Fimm leikmenn frá Skautafélagi Akureyrar léku með íslenska l... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-bikarmeistari-i-blaki | KA bikarmeistari í blaki
KA er bikarmeistari karla í blaki eftir öruggan 3:0 sigur gegn Stjörnunni í úrslitum í Laugardalshöllinni í dag. KA byrjaði af krafti og
vann fyrstu tvær hrinurnar sannfærandi, 25:13 og 25:12. Stjarnan veitti smá mótspyrnu í þriðju hrinu sem KA vann 25:20 og titillinn í höfn.
Þar með tókst KA a... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/brynjar-leo-islandsmeistari-i-skidagongu | Brynjar Leó Íslandsmeistari í skíðagöngu
Brynjar Leó Kristinsson frá Skíðafélagi Akureyrar varð í gær Íslandsmeistari í skíðagöngu eftir harða
keppni við Vadim Gusev, einnig frá SKA, en mótið fór fram í Hlíðarfjalli. Í þriðja sæti var Sigurbjörn
Þorgeirsson SÓ.
Í flokki 17-19 ára sigraði Gunnar Birgisson frá Ulli í kar... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/framkvaemdir-vid-annan-afanga-naustaskola-bodnar-ut | Framkvæmdir við annan áfanga Naustaskóla boðnar út
Fasteignir Akureyrarbæjar hafa auglýst eftir tilboðum í uppsteypu og utanhúsfrágang á öðrum áfanga Naustaskóla. Áfanginn mun
hýsa svokallað heimasvæði, verkgreinastofur, starfsmannarými, miðrými/sal, anddyri skólans og íþróttahús. Byggingin verður
um 3.900 fermetrar og... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jafnt-hja-selfossi-og-ka | Jafnt hjá Selfossi og KA
KA fékk sín fyrstu stig í Lengjubikar karla í knattspyrnu er liðið gerði 1:1 jafntefli við Selfoss í Akraneshöllinni í
gær. Andrés Vilhjálmsson skoraði mark KA eftir hálftíma leik en Viðar Örn Kjartansson jafnaði metin snemma í síðari
hálfleik með marki úr vítaspyrnu.
KA hefur eitt stig eftir f... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-i-urslit-bikarkeppninnar | KA í úrslit bikarkeppninnar
KA leikur til úrslita í Bridgestonebikarkeppni karla í blaki eftir 3:1 sigur gegn Þrótti R. í undanúrslitum í dag í
Laugardalshöllinni. KA mætir annaðhvort HK eða Stjörnunni í úrslitum en leikur þeirra stendur nú yfir. Í kvennaflokki tapaði KA gegn
Þrótti N. í undanúrslitum en Þróttur og HK ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/umferd-um-vadlaheidargong-mesti-ovissuthatturinn-vardandi-rekstrargrundvoll | Umferð um Vaðlaheiðargöng mesti óvissuþátturinn varðandi rekstrargrundvöll
"Umferðin um Vaðlaheiðargöng er líklega sá þáttur sem mest óvissa er um varðandi rekstrargrundvöll ganganna. Umferðin um göngin er
einnig hin hliðin á spurningunni um greiðsluviljann því eftir því sem veggjaldið er hærra því minni verður umferði... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/onnur-sertaek-grein-um-vadlaheidargong-hver-verdur-umferdin | Önnur sértæk grein um Vaðlaheiðargöng - Hver verður umferðin?
Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Umferðin um Vaðlaheiðargöng er líklega sá þáttur sem mest óvissa er um varðandi rekstrargrundvöll ganganna. Umferðin um göngin
er einnig hin hliðin á spurningunni um greiðsluviljann því eftir því sem veggjaldið er hærra því m... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/malthing-sa-i-hofi-um-jon-sigurdsson-og-atvinnulifid | Málþing SA í Hofi um Jón Sigurðsson og atvinnulífið
Í tilefni þess að á árinu verða 200 ár liðin frá fæðingu Jóns Sigurðssonar forseta efna Samtök atvinnulífsins til
málþings í Hofi á Akureyri um Jón og sýn hans á atvinnulífið. Málþingi fer fram föstudaginn 25. mars kl. 14:00-16:30.
Fjórir fyrirlesarar fjalla um áhrif ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/norlandair-baetir-vid-tveimur-flugvelum-og-fjolgar-starfsfolki | Norlandair bætir við tveimur flugvélum og fjölgar starfsfólki
Tvær nýjar flugvélar munu innan tíðar bætast í flugflota Norlandair, en fyrirtækið mun um næstu mánaðamót taka á
leigu vél af gerðinni Beech 200 og eins er fyrirhugað að kaupa Twin Otter flugvél Air Greenland. Báðar verða vélarnar í fullum reksti
á vegum fél... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bikarurslit-bli-hefjast-i-dag | Bikarúrslit BLÍ hefjast í dag
Bikarúrslit BLÍ verða haldin um helgina í Laugardalshöllinni þar sem keppt verður í karla-og kvennaflokki í Bridgestonebikarnum og fara
undanúrslitaleikirnir fram í dag.
Í karlaflokki mæta ríkjandi bikarmeistarar í KA liði Þróttar Reykjavík og HK og Stjarnan. Í kvennaflokki mætast annarsve... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/valur-i-lykilstodu-eftir-utisigur-gegn-thor | Valur í lykilstöðu eftir útisigur gegn Þór
Valur er kominn í lykilstöðu um sæti í úrvalsdeild karla í körfubolta eftir sigur gegn Þór í fyrsta leik liðanna
í úrslitum 1. deildarinnar í Íþróttahöllinni á Akureyri í kvöld. Valur sigraði með níu stiga mun, 91:82, og
leiðir einvígið 1:0 en vinna þarf tvo leiki til komast í... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hagnadur-nordlenska-rumar-170-milljonir-krona-i-fyrra | Hagnaður Norðlenska rúmar 170 milljónir króna í fyrra
Árið 2010 var Norðlenska nokkuð hagfellt. Ársvelta félagsins var 4.120 m.kr. og jókst um 11% á milli ára. Hagnaður ársins var 171
m.kr. og eigið fé er orðið jákvætt um 95 m.kr. en var neikvætt í byrjun ársins. Skuldastaða félagsins hefur batnað verulega og hafa
vaxt... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/riflega-660-umsoknir-barust-um-sumarstorf | Ríflega 660 umsóknir bárust um sumarstörf
Alls bárust 663 umsóknir um sumarstörf hjá Akureyrarbæ, sem auglýst voru á dögunum. Um er að ræða störf á sambýlum,
í öldrunarþjónustu, íþróttamannvirkjum, skrifstofustörf og fleira.
Heildarfjöldi umsókna liggur þó ekki fyrir enn þar sem bærinn á eftir að auglýsa nokkrar stöður... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samfylkingin-fagnar-stofnun-felags-um-valaheidargong | Samfylkingin fagnar stofnun félags um Valaheiðargöng
Samfylkingin á Akureyri fagnar þeim mikilvæga áfanga, sem stofnun félags um Vaðlaheiðargöng eru fyrir samgöngu- og atvinnumál á
svæðinu. Með Vaðlaheiðargöngum tengjast saman atvinnusvæði í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum með öruggari hætti en nú
er.
Þetta kemur fram í á... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/veidi-i-eyjafjardara-a-uppleid | Veiði í Eyjafjarðará á uppleið
„Veiði í Eyjafjarðará er á uppleið, sem er ánægjulegt," segir Ágúst Ásgrímsson formaður Veiðifélags
Eyjafjarðarár. Aðalfundur félagsins var haldinn á dögunum. Á fundinum var ákveðið að arður fyrir árið 2010 skyldi
notaður til að byggja upp lífríki árinnar.
„Aðalverkefnið á því sviði nú er... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kynjud-fjarhagsaaetlanagerd-kallar-a-breytingar-i-hugsun-og-verki | Kynjuð fjárhagsáætlanagerð kallar á breytingar í hugsun og verki
Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti á fundi sínum í vikunni fram lagða þriggja ára áætlun 2012-2014 með 6 atkvæðum
gegn atkvæði Sigurðar Guðmundssonar A-lista. Andrea Sigrún Hjálmsdóttir V-lista, Guðmundur Baldvin Guðmundsson B-lista, Hermann Jón
Tómasson S-l... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ferdaarid-2011-fer-vel-af-stad | Ferðaárið 2011 fer vel af stað
Tæplega 23 þúsund erlendir gestir heimsóttu Ísland í nýliðnum febrúarmánuði og er um að ræða 2.500 fleiri brottfarir
en í febrúarmánuði 2010. Erlendum gestum fjölgaði því um 12,6% í febrúarmánuði á milli ára.
Janúar og febrúar lofa góðu fyrir ferðasumarið en þessa tvo mánuði hafa 45 þúsun... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samherji-gefur-nestishus-i-hlidarfjalli | Samherji gefur nestishús í Hlíðarfjalli
Síðdegis í gær var undirritað í Hlíðarfjalli gjafaafsal sem felur í sér að Samherji hf. gefur Akureyrarbæ til fullrar eignar og
umráða nýtt nestishús sem risið hefur á skíðasvæðinu. Húsið skal vera til afnota fyrir alla skíðaiðkendur og
sér í lagi afdrep og nestisaðstaða fyrir ne... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jon-thorvaldur-skrifar-um-vadla-heidargong-og-umfjollun-fib | Jón Þorvaldur skrifar um Vaðla- heiðargöng og umfjöllun FÍB
Jón Þorvaldur Heiðarsson lektor við Háskólann á Akureyri og sérfræðingur á RHA, skrifar grein í Vikudag í gær og
svo aðra á vef blaðsins, vikudagur.is - aðsendar greinar, í dag, þar sem hann fjallar um Vaðlaheiðargöng. Í báðum greinum fjallar
Jón Þorvaldur m.a... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrsta-sertaeka-grein-um-vadlaheidargong-greidsluvilji-vegfarenda | Fyrsta sértæka grein um Vaðlaheiðargöng - Greiðsluvilji vegfarenda
Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Vegfarendur eru tilbúnir til að greiða fyrir það að stytta sér leið. Þeir eru tilbúnir að borga fyrir það að aka
færri kílómetra en ella og spara með því tíma og kostnað. Fyrir tíð Hvalfjarðarganga var óljóst hversu miki... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/verdur-horkurimma-en-vid-erum-klarir | Verður hörkurimma en við erum klárir
Þór og Valur munu berjast um síðara lausa sætið í úrvalsdeild karla í körfubolta næsta vetur og fer fyrsti leikur liðanna fram
í kvöld í Íþróttahöllinni á Akureyri kl. 19:15. Vinna þarf tvo leiki til þess að komast upp um deild, leikið er heima og heiman
en komi til oddaleiks verður... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/selfoss-og-akureyri-skildu-jofn | Selfoss og Akureyri skildu jöfn
Selfoss og Akureyri skildu jöfn í kvöld er liðin mættust á Selfossi í 17. umferð N1-deild ar karla í handbolta. Lokatölur
urðu 31:31 en Akureyri hafði fjögurra marka forystu í hálfleik, 15:11. Akureyri fer þar með upp í 28 stig á toppi deildarinnar en Selfoss hefur
sjö stig í neðsta sæti... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baejarstjorn-taki-upp-kynjada-aaetlanagerd-i-framtidinni | Bæjarstjórn taki upp kynjaða áætlanagerð í framtíðinni
Á fundi samfélags- og mannréttindaráðs í vikunni fóru fram umræður um kynjaða fjárhagsáætlanagerð og möguleika
þess að Akureyrarbær taki upp slíkt vinnulag. Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri kynnti hugmyndafræðina. Ráðið hvetur hvetur
bæjarstjórn til að hafa þett... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kjaramal-i-framhaldsskolum-og-starfsadstaedur-i-brennidepli | Kjaramál í framhaldsskólum og starfsaðstæður í brennidepli
Aðalfundur Félags framhaldsskólakennara er haldinn á Grand Hóteli, Reykjavík, í dag og á morgun föstudag. Á fundinum eru
kjaramál í framhaldsskólum og starfsaðstæður framhaldsskólakennara í brennidepli en yfirskrift fundarins er „Staða
framhaldsskólans". Kjaras... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baejarrad-samthykkti-ad-leggja-2-milljonir-i-nytt-skelraektarfelag | Bæjarráð samþykkti að leggja 2 milljónir í nýtt skelræktarfélag
Á fundi bæjarráðs Akureyrar í morgun var tekið fyrir erindi frá Birni Gíslasyni f.h. Tækifæris hf þar sem óskað var eftir
þátttöku Akureyrarbæjar í endurreisn skelræktar við Hrísey með hlutafjárframlagi að upphæð kr. 2.000.000 í nýju
skelræktarfélagi. Bæja... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/verda-akureyringar-deildarmeistarar-i-kvold | Verða Akureyringar deildarmeistarar í kvöld?
Svo gæti farið að Akureyri Handboltafélag landi sínum fyrsta titli í sögu félagsins í kvöld þegar N1-deild karla í handbolta
hefst á ný eftir hlé. Til að það takist þarf Akureyri að vinna Selfoss á útivelli og FH að tapa á heimavelli gegn
Aftureldingu.
Þá yrði Akureyri með 2... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bandarikjamadur-til-reynslu-hja-ka | Bandaríkjamaður til reynslu hjá KA
Bandaríski framherjinn Daniel J. Howell, 25 ára, kom í vikunni til reynslu hjá KA og mun hann æfa og spila með liðinu á næstunni
í Lengjubikarnum.
Howell þekkir ágætlega til í íslenska boltanum því hann spilaði með Gróttu í fyrstu deildinni í fyrra. Þar
skoraði hann fimm mörk í 21 lei... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/umferdarohopp-a-vikurskardi-og-svalbardsstrond | Umferðaróhöpp á Víkurskarði og Svalbarðsströnd
Flutningabíll valt út af veginum á Víkurskarði í gær. Ökumaðurinn, sem var einn í bílnum var fluttur til skoðunar á
slysadeild Sjúkrahússins á Akureyri, en hann mun hafa sloppið með skrekkinn. Bíllinn var á leið til Egilsstaða frá Akureyri en
ástæða þess að hann fór út af ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tvo-stig-sem-vid-aetlum-ad-taka | Tvö stig sem við ætlum að taka
N1-deild karla í handbolta rúllar af stað á ný í kvöld með heilli umferð eftir stutt landsleikjahlé og sækir Akureyri Selfoss
heim kl. 18:30. Akureyri er sem fyrr á toppnum með 27 stig og hefur sex stiga forystu á FH sem er í öðru sæti með 21 stig. Selfoss vermir hins vegar
botninn með ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sa-islandsmeistari-i-ishokki-kvenna-1 | SA Íslandsmeistari í íshokkí kvenna
SA er Íslandsmeistari í íshokkí kvenna eftir 4:1 sigur gegn Birninum á heimavelli í kvöld í þriðja leik liðanna. SA vann
einvígið 3:0 og varði þar með titilinn frá því í fyrra. Annað árið í röð er því tvöfaldur sigur
í íshokkíinu hjá Akureyringum en karlalið SA var sem kunnugt er Ísl... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/norska-strandgaeslan-faerdi-togarann-solbak-ea-til-hafnar | Norska strandgæslan færði togarann Sólbak EA til hafnar
Sólbakur EA, ísfisktogari Brims, var færður til hafnar í Noregi í gærkvöld af norsku strandgæslunni, samkvæmt því sem fram
kemur norska vefmiðlinum itromsö.no. Togarinn var á veiðum í norskri lögsögu og samkvæmt fréttum fór togarinn á milli
veiðisvæða án þess að t... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rikisstjornin-standi-fyrir-innspytingu-i-hagkerfid | Ríkisstjórnin standi fyrir innspýtingu í hagkerfið
Forystumenn Alþýðusambandsins og SA áttu í morgun fund með sjö ráðherrum ríkisstjórnarinnar, þar á meðal
forsætis- og fjármálaráðherra. Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ segir á heimasíðu sambandsins, fundinn hafa verið efnisríkan en
á honum fóru aðilar vinnumarkaðarins y... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ithrottaahugamenn-geta-stadid-med-sinu-lidi-a-jais | Íþróttaáhugamenn geta staðið með sínu liði á Já.is
Já hefur hleypt af stokkunum verkefninu „Hverjir eru bestir?" í samstarfi við íþróttafélögin í landinu sem felst í
því að einstaklingar geta nú birt merki síns íþróttafélags við hlið skráningar sinnar á Já.is. Stuðningsmenn
íþróttafélaga geta þannig lagt félagi sínu li... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hunavallaleid-eykur-umferdaroryggi | Húnavallaleið eykur umferðaröryggi
Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
Undirrót þessara skrifa er frétt sem undirritaður las í Fréttablaðinu 15. febrúar síðastliðnum. Fréttin bar yfirskriftina:
Engin flýtiframkvæmd án veggjalda. Í fréttinni eru meðal annars sýnd tölfræðileg gögn um tíu hættulegustu vegarkaflana
í dreifb... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stada-atvinnumala-i-hrisey-til-umraedu-a-opnum-fundi | Staða atvinnumála í Hrísey til umræðu á opnum fundi
Opinn fundur um stöðu atvinnumála í Hrísey og áhrif þeirra á búsetu í eyjunni verður haldinn í veitingahúsinu Brekku
mánudaginn 21. mars klukkan 16.00. Bæjarfulltrúum og þingmönnum kjördæmisins hefur verið sérstaklega boðið á fundinn og eru
íbúar Hríseyjar og fólk á E... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sa-getur-tryggt-ser-islandsmeistarartitilinn-i-kvold | SA getur tryggt sér Íslandsmeistarartitilinn í kvöld
Skautafélag Akureyrar og Björninn mætast í Skautahöll Akureyrar í kvöld kl. 19:00 í þriðja leik liðanna um
Íslandsmeistarartitilinn í íshokkí kvenna. SA hefur 2:0 yfir í einvíginu og getur með sigri í kvöld tryggt sér titilinn. Björninn
er hins vegar í erfiðri stöðu ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sigurgeir-gefur-ekki-kost-a-ser-til-endurkjors-i-stjorn-kuabaenda | Sigurgeir gefur ekki kost á sér til endurkjörs í stjórn kúabænda
Sigurgeir Hreinsson, varaformaður Landssambands kúabænda og bóndi á Hríshóli í Eyjafjarðarsveit, hefur ákveðið að gefa
ekki kost á sér til endurkjörs í stjórn Landssambands kúabænda á næsta aðalfundi sambandsins sem haldinn verður á
Hótel Kea á Akureyri 2... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyrarmesssa-i-bustadakirkju-a-sunnudag | Akureyrarmesssa í Bústaðakirkju á sunnudag
Akureyrarmessa verður í Bústaðakirkju í Reykjavík sunnudaginn 20. mars nk. kl. 14.00. Sóknarprestur þar er Akureyringurinn séra Pálmi
Matthíasson. Ræðumaður Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir, Tindatríóið kemur fram, Atli Guðlaugsson, Bjarni og Guðlaugur
Atlasynir og Jónas Þórir á ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stressid-for-a-null-einni | "Stressið fór á núll einni"
„Þetta var fín reynsla fyrir mig þó að úrslitin hafi ekki verið þau bestu,” segir Sveinbjörn Pétursson markvörður
Akureyrar, sem spilaði sinn fyrsta „alvöru” landsleik er Ísland steinlá gegn Þjóðverjum ytra í undankeppni EM í handbolta sl.
helgi.
Þar sem Björgvin Páll Gústafsson varð fyrir m... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tonleikar-til-styrktar-minningarsjodi-um-thorgerdi-s-eiriksdottur | Tónleikar til styrktar minningarsjóði um Þorgerði S. Eiríksdóttur
Á morgun, miðvikudaginn 16. mars kl. 18:00 og fimmtudaginn 17. mars kl. 20:00 verða haldnir tvennir tónleikar til styrktar minningarsjóði um Þorgerði S.
Eiríksdóttur. Á morgun koma fram nemendur í miðnámi og á fimmtudag nemendur í framhaldsnámi. Tónleika... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/okumadur-fluttur-a-slysadeild-eftir-ad-bill-hans-hafnadi-a-bilskursvegg | Ökumaður fluttur á slysadeild eftir að bíll hans hafnaði á bílskúrsvegg
Ungur ökumaður var fluttur til aðhlynningar á slysadeild Sjúkrahússins á Akureyri eftir að hann missti stjórn á bíl sínum
á Drottningarbraut á Akureyri og hafnaði á bílsskúrsvegg og girðingu við hús á horni Aðalstrætis og Drottningarbrautar á
þriðj... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/odinn-sigradi-i-2-deild-i-bikarkeppni-ssi | Óðinn sigraði í 2. deild í Bikarkeppni SSÍ
Bikarkeppni SSÍ var haldin í Reykjanesbæ um liðna helgi þar sem sundfélög landsins kepptu sín á milli í liðakeppni. Keppt
var í 1. og 2. deild í karla-og kvennaflokki. Strákarnir í Óðni sigruðu í 2. deild og voru nálægt því að tryggja sig
áfram upp í 1. deildina.
Til þess hefð... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hollvinafelag-bunadarsogusafns-eyjafjardar-stofnad-i-solgardi | Hollvinafélag Búnaðarsögusafns Eyjafjarðar stofnað í Sólgarði
Stofnfundur Hollvinafélags Búnaðarsögusafns Eyjafjarðar var haldinn í Sólgarði í Eyjafjarðarsveit á dögunum, en hlutverk þess
er að hafa frumkvæði að stofnun búvéla- og búnaðarsögusafns í Eyjafirði og koma að rekstri þess. Í ályktun sem
samþykkt var á fundin... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/greidslusida-valitor-er-orugg | Greiðslusíða VALITOR er örugg
Vegna umfjöllunar um Örugga greiðslusíðu VALITOR vill fyrirtækið benda á að: Örugg greiðslusíða VALITOR tryggir öryggi í
meðferð kortaupplýsinga og að varsla slíkra upplýsinga sé í höndum VALITOR en ekki söluaðila. Tölvukerfi VALITOR eru örugg og
uppfylla öll skilyrði um meðferð kortaupplý... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikill-ahugi-a-syningu-leikfelags-horgdaela | Mikill áhugi á sýningu Leikfélags Hörgdæla
Eining-Iðja bauð félagsmönnum sínum sem eru lífeyrisþegar sýningu leikritsins; Með fullri reisn, sem Leikfélag Hörgdæla
sýnir á Melum í Hörgárdal. Vegna gríðarlegrar eftirspurnar hefur félagið ákveðið að bjóða þessum
félagsmönnum sínum á aðra sýningu, þar sem strax fylltist á ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baejarstjori-raedi-vid-hunvetninga-um-mismunandi-hagsmuni | Bæjarstjóri ræði við Húnvetninga um mismunandi hagsmuni
Vegagerðin hefur að undanförnu kynnt tillögu um nýjan stofnveg, svonefnda Húnavallaleið, sem myndi stytta leiðina milli Reykjavíkur og Akureyrar um 14
km. Bæjarráð Akureyrar samþykkti á síðasta fundi sínum að fela bæjarstjóra að óska eftir fundi með
sveitarstjórum... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/minningartonleikar-um-sera-petur-thorarinsson-i-laufasi | Minningartónleikar um séra Pétur Þórarinsson í Laufási
Nú fer hver að verða síðastur að ná sér í miða á minningartónleika um sr. Pétur Þórarinsson í
Laufási, sem verða haldnir í menningarhúsinu Hofi laugardaginn 19 mars kl. 20:00. Þar koma fram norðlenskir listamenn; hljóðfæraleikarar,
kórar, tríó, kvartett og einsöngv... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sa-i-godri-stodu-eftir-sigur-i-kvold | SA í góðri stöðu eftir sigur í kvöld
SA er komið í vænlega stöðu í baráttunni við Björninn um Íslandsmeistaratitilinn í íshokkí kvenna eftir 3:2 sigur
í kvöld í Egilshöllinni. SA leiðir einvígið 2:0. Liðin mætast á miðvikudagskvöldið kemur í þriðja leik
liðanna í Skautahöll Akureyrar kl. 19:00 og þar getur SA tryggt sé... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vorur-fyrir-eina-milljon-keyptar-med-stolnum-kreditkortum | Vörur fyrir eina milljón keyptar með stolnum kreditkortum
Guðmundur Ómarsson eigandi og framkvæmdastjóri Eldhafs ehf. segist hafa orðið fyrir stórfelldu kortasviki í netverslun sinni á dögunum,
þar sem vörur fyrir um eina milljón króna voru keyptar með stolnum kreditkortum. Eldhaf er endursöluaðili Apple á Norðurlandi,... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aflamarks-og-krokaaflamarks-skipum-faekkad-mikid | Aflamarks- og krókaaflamarks- skipum fækkað mikið
Fiskiskipum í aflamarks- og krókaaflamarkskerfinu hefur fækkað um 286 á síðustu fimm árum, þ.e. frá 2006 - 2011 eða um 31%
samkvæmt samantekt LÍÚ, byggðri á gögnum Fiskistofu. Sé hins vegar horft á þróunina síðastliðinn áratug kemur
í ljós að fækkunin nemur 62,6%.
Alls ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/utkall-vegna-foks | Útkall vegna foks
Hjálparsveitin Dalbjörg var kölluð út um hálf níu leitið í morgun vegna þaks sem var að fjúka á bænum
Litla-Garði í Eyjafjarðarsveit. Þakplötur voru farnar að týnast af hlöðu sem nýtt er sem hesthús og tamningaraðstaða á
bænum.
Ábúandi hafði náð að hefta frekara fok áður en að björgunarsveitin kom á s... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bjorgvin-gudmundsson-og-rjupnafell | Björgvin Guðmundsson og Rjúpnafell
Valgeir Sigurðsson skrifar
Það gladdi mig mjög þegar ég las í Mogganum "mínum" 6. janúar s.l., að nokkur hópur manna hefði bundizt samtökum um að
heiðra minningu Björgvins Guðmundssonar tónskálds á stórafmæli hans, en 26. apríl næstkomandi verða hundrað og tuttugu ár
liðin frá því að ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hafa-ahyggjur-af-umferdarhrada-i-tveimur-gotum | Hafa áhyggjur af umferðarhraða í tveimur götum
Á síðasta fundi skipulagsnefndar Akureyrar voru tekin fyrir erindi frá íbúum bæjarins, sem bæjaráð vísaði til nefndarinnar.
Erindin lúta að m.a. áhyggjum fólks af umferðarhraða, annars vegar um Hrafnagilsstræti og hins vegar um Tjarnatún en báðar þessar
götur eru skilgrein... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/uppreiknadur-heildarkostnadur-vid-hedinsfjardargong-142-milljardar | Uppreiknaður heildarkostnaður við Héðinsfjarðargöng 14,2 milljarðar
Í umræðu um Héðinsfjarðargöng hafa komið upp villandi upplýsingar um kostnað við göngin og samanburð á upphaflegri
áætlun og endanlegri útkomu, segir á vef Vegagerðarinnar. Uppreiknuð upphafleg áætlun er 12,1 milljarðar króna en uppreiknaður
heildarkos... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/yfirlysing-fra-johannesi-engin-uppsogn-til | Yfirlýsing frá Jóhannesi: Engin uppsögn til
Jóhannes Valgeirsson, knattspyrnudómari frá Akureyri, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna orða Gylfa Þórs Orrasonar, formanns
dómaranefndar KSÍ, í fjölmiðlum í febrúar. Yfirlýsinguna má lesa hér að neðan.
"Vegna yfirlýsingar Gylfa Þórs Orrasonar, formanns dómaranefndar KSÍ, ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jazzta-tonleikar-numer-tvo-a-gotubarnum-a-akureyri | Jazzta tónleikar númer tvö á Götubarnum á Akureyri
Jazzta tónleikarnir á Götubarnum við Hafnarstræti á Akureyri þann16. febrúar sl. tókust mjög vel, mikil stemmning og fullt af
fólki, að sögn Jóns Hlöðvers Áskelssonar formanns Jazzklúbbs Akureyrar. Miðvikudaginn 16. mars kl. 21:00 hefjast svo aðrir Jazzta
tónleikar í r... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vida-ovedur-og-erfid-faerd | Víða óveður og erfið færð
Hálkublettir eru enn sumstaðar á Norðurlandi, einkum útvegum. Óveður er á Vatnsskarði, Siglufjarðarvegi og Hámundarstaðahálsi.
Hólasandur er ófær. Hálka er á Mývatnsöræfum. Á Vesturlandi er óveður við Hafnarfjall og í Borgarfirði
áleiðis upp í Reykholt. Óveður er á norðanverðu Snæfellsnesi og ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/flugsafnid-mikilvaegt-fyrir-ferdathjonustu-og-menningarlif | Flugsafnið mikilvægt fyrir ferðaþjónustu og menningarlíf
Á fundi stjórnar Akureyrarstofu fyrir helgi var tekið fyrir erindi frá Svanbirni Sigurðssyni f.h. Flugsafns Íslands þar sem óskað er eftir
stuðningi Akureyrarbæjar við rekstur safnsins með sambærilegum hætti og önnur söfn í bænum.
Stjórn Akureyrarstofu telur uppb... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bjorninn-og-sa-maetast-odru-sinni-i-kvold | Björninn og SA mætast öðru sinni í kvöld
Björninn og Skautafélag Akureyrar mætast öðru sinni í kvöld í einvígi liðanna um
Íslandsmeistaratitilinn í íshokkí kvenna. SA vann fyrsta leikinn fyrir norðan sl. laugardag en nú mætast liðin á heimavelli Bjarnarins í
Egilshöllinni og hefst leikurinn kl. 19:15 í kvöld.
Vinna þar... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gafu-rumar-tvaer-milljonir-til-styrktarfelags-hringsins | Gáfu rúmar tvær milljónir til Styrktarfélags Hringsins
Um nítján þúsund viðskiptavinir tryggingafélagsins Sjóvár í Stofni fengu nýlega endurgreiddan hluta af iðgjöldum
sínum vegna síðasta árs hjá félaginu. Í ár nam heildarendurgreiðslan til viðskiptavinanna tæpum 400 milljónum króna.
Hana innleystu viðskiptavinir á lok... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thak-ad-fjuka-a-sveitabae-i-eyjafjardarsveit | Þak að fjúka á sveitabæ í Eyjafjarðarsveit
Hjálparsveitin Dalbjörg í Eyjafjarðarsveit hefur verið kölluð út vegna þaks sem er að fjúka á sveitabæ í Eyjafirði
en mjög hvasst er í firðinum þessa stundina. Tugir björgunarsveitamanna frá björgunarsveitunum Húnum, Heiðari, Strönd, Blöndu, Brák
og Ok unnu fram á nótt við að ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/viktor-med-gott-mot-a-islandsmotinu-i-kraftlyftingum | Viktor með gott mót á Íslandsmótinu í kraftlyftingum
Íslandsmótið í kraftlyftingum fór fram í Njarðvík um helgina. KFA átti tvo keppendur á mótinu, þá
Viktor Samúelsson og Rögnvald Björnsson. Viktor átti gott mót, hann lyfti 715 kg í samanlögðu og það dugði til sigurs í hans
þyngdarflokki sem er 100 kg og yfir.
Hann si... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-i-urslit-um-saeti-i-efstu-deild | Þór í úrslit um sæti í efstu deild
Þór er komið áfram í úrslit um sæti í úrvalsdeildinni í körfubolta eftir sigur gegn Breiðabliki á
útivelli í kvöld, 87:84, í undanúrslitum 1. deildar karla. Þór vann einvígið 2:0. Konrad Tota fór fyrir stigaskorun í liði
Þórs í kvöld með 22 stig og þeir Ólafur Torfason og Wesley Hsu s... |
Subsets and Splits
No community queries yet
The top public SQL queries from the community will appear here once available.