Search is not available for this dataset
url stringlengths 21 288 | text stringlengths 1 1.35M |
|---|---|
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorka-og-kr-maetast-i-mikilvaegum-leik-i-boganum-i-dag | Þór/KA og KR mætast í mikilvægum leik í Boganum í dag
Lokaumferðin í Lengjubikar kvenna í knattspyrnu hefst í dag þar sem Þór/KA og KR mætast m.a. í Boganum kl. 15:00. Bæði
lið þurfa á sigri að halda til þess að tryggja sér sæti í undanúrslitum en liðin eru jöfn að stigum með fjögur stig
í fimmta og sjötta sæti deildar... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/knattspyrnuvellirnir-koma-vel-undan-vetri | Knattspyrnuvellirnir koma vel undan vetri
Það styttist óðum í að Íslandsmótið í knattspyrnu hefjist en fyrstu leikdagar í Pepsi-deild karla eru fyrr á
dagskrá í ár vegna þátttöku U20 ára karlalandsliðsins á EM. Knattspyrnuvellir landsins koma misvel undan vetri og mun tíðafarið
næstu daga og vikur ráða miklu um ástand ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sidustu-sjuklingarnir-a-fsa-med-noroveiru-lausir-ur-einangrun | Síðustu sjúklingarnir á FSA með nóróveiru lausir úr einangrun
Sigurður E. Sigurðsson staðgengill framkvæmdastjóra lækninga á Sjúkrahúsinu á Akureyri, segir að tekist hafi að komast fyrir
nóróveirusýkinguna sem kom upp á spítalanum í byrjun síðustu viku. Búið er opna þær tvær deildir sem voru alveg
eða að hluta til loka... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/landsbyggdin-ad-lamast-undan-hau-eldsneytisverdi | Landsbyggðin að lamast undan háu eldsneytisverði
FÍB lýsir þungum áhyggjum yfir andvaraleysi stjórnvalda gagnvart verðhækkunum á bifreiðaeldsneyti. Ekki aðeins íþyngja
þær fjárhag heimilanna heldur stefnir í verulegan samdrátt í viðskiptum og þjónustu um allt land vegna minnkandi umferðar.
FÍB ítrekar því áskorun sína ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/starfsmenn-becromal-samthykktu-nyjan-samning-med-miklum-mun | Starfsmenn Becromal samþykktu nýjan samning með miklum mun
Fyrr í dag voru talin atkvæði í kosningu starfsmanna í vaktavinnu hjá Becromal sem eru félagsmenn Einingar-Iðju um nýjan samning við
fyrirtækið sem skrifað var undir hjá sáttasemjara sl. föstudag. Samningurinn var samþykktur með 92% greiddra atkvæða. Björn
Snæb... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjolbreytt-og-spennandi-dagskra-i-hofi-um-paskana | Fjölbreytt og spennandi dagskrá í Hofi um páskana
Mikið verður um að vera í Hofi yfir páskahátíðina, þar sem gestir á öllum aldri ættu að finna eitthvað við sitt
hæfi. Hápunktur vetrarstarfs Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands verður á stórtónleikum þeirra á morgun skírdag
kl. 16.00. Þá stíga 82 hljóðfæraleikarar á svið o... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samthykkt-ad-taka-upp-helgarakstur-sva-yfir-sumarmanudina | Samþykkt að taka upp helgarakstur SVA yfir sumarmánuðina
Meirihluti framkvæmdaráðs Akureyrar samþykkti á síðasta fundi ráðsins að taka á ný upp helgarakstur SVA yfir
sumarmánuðina. Á fundinum var kynntur kostnaður vegna helgarakstursins. Síðastliðin tvö sumur hefur helgarakstur SVA legið niðri þessa
mánuði.
Sigfús Arna... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/askorun-a-ritstjora-morgunbladsins-vegna-birtingu-vaendismyndar | Áskorun á ritstjóra Morgunblaðsins vegna birtingu vændismyndar
Framkvæmdastjórn Landssambands framsóknarkvenna lýsir furðu sinni á því að ritstjórn Morgunblaðsins, sem ber fulla ábyrgð
á birtingu skopmyndar af þingkonunni Siv Friðleifsdóttur sem teiknuð var sem vændiskona í Morgunblaðinu sl. laugardag, hafi ekki enn be... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/riflega-1000-manns-an-atvinnu-a-nordurlandi-eystra | Ríflega 1.000 manns án atvinnu á Norðurlandi eystra
Á Norðurlandi eystra var atvinnuleysi í mars árið 2009 8,8%, í mars 2010 var það 7,9% og í mars 2011 6,6%. Í dag eru án atvinnu
á Norðurlandi eystra 1011 manns. Á Akureyri eru að fullu án atvinnu 477 manns, 300 karlar og 177 konur. Í aldurshópnum 16-29 eru 204 að full... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/alls-20-milljonum-uthlutad-til-menningarverkefna | Alls 20 milljónum úthlutað til menningarverkefna
Menningarráð Eyþings úthlutar í dag rúmum 20 milljónum króna til menningarstarfs á starfssvæði Eyþings við
hátíðlega athöfn í Hótel Reynihlíð Mývatnssveit kl. 13.00. Þetta er í sjöunda sinn sem úthlutað er styrkjum
samkvæmt samstarfssamningi mennta- og menningarmálaráðun... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikid-um-kannabisneyslu-og-framleidsla-a-landa-hefur-aukist | Mikið um kannabisneyslu og framleiðsla á landa hefur aukist
Lögreglan á Akureyri hefur orðið vör við jafna og þétta vímuefnaneyslu. Mikið er um kannabisneyslu og framleiðsla á landa hefur aukist.
Vegna niðurskurðar verður ekki hægt að ráða eins marga til sumarafleysinga og áður. Þegar mikið er um að vera í bænum
þýðir ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/enn-rikir-ovissa-med-framtid-starfsendurhaefingar-nordurlands | Enn ríkir óvissa með framtíð Starfsendurhæfingar Norðurlands
Á fundi almannaheillanefndar Akureyrar sl. föstudag var m.a. rætt um VIRK starfsendurhæfingarsjóð og Starfsendurhæfingu Norðurlands. Fram kom að
fjármagn til rekstrar Starfsendurhæfingar er að klárast og fyrir liggur að starfsfólki verði sagt upp. Málið er ko... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/farid-inn-i-bila-og-hus-a-akureyri | Farið inn í bíla og hús á Akureyri
Undanfarna daga hafa borist þó nokkrar tilkynningar til lögreglunnar á Akureyri um að farið hafi verið inn í ólæstar bifreiðar og
húsnæði víða um bæinn. Rótað hefur verið í bifreiðum og í því húsnæði sem farið hefur verið
inn í en litlum verðmætum stolið. Ekki hefur verið um innbrot a... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bilstjorinn-sem-ok-a-mann-a-eyjafjardarbraut-akaerdur | Bílstjórinn sem ók á mann á Eyjafjarðarbraut ákærður
Bílstjórinn sem ók á Gísla Ólaf Ólafsson, þar sem hann var að skokka á Eyjafjarðarbraut í janúar, hefur verið
ákærður fyrir manndráp af gáleysi og umferðarlagabrot. Gísli Ólafur var hlaupagarpur og hljóp ævinlega í endurskinsvesti. Hann var
réttu megin á akbrautinni ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sendinefnd-framsynar-tok-med-ser-egg-i-vofflur-til-reykjavikur | Sendinefnd Framsýnar tók með sér egg í vöfflur til Reykjavíkur
Formaður og varaformaður Framsýnar eru á leiðinni suður til fundar við Samtök atvinnulífsins um nýjan kjarasamning fyrir starfsfólk
á almennum vinnumarkaði undir vökulli stjórn ríkissáttasemjara. Sendinefndin tók með sér hamingjuegg úr íslenskum
landsnámshæ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/lysir-vonbrigdum-med-adgerdaleysi-umbodsmanns-skuldara | Lýsir vonbrigðum með aðgerðaleysi umboðsmanns skuldara
Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar Akureyrarabæjar mætti á síðasta fund
félagsmálaráðs og lagði fram gögn um þörf fyrir aukna mönnun í félagsþjónustu. Framundan eru breytingar í
starfmannamálum og æskilegt væri að bæta við stöðubroti til að ge... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hlutfallslega-flestir-16-ara-saekja-skola-a-austurlandi-og-nordurlandi-eystra | Hlutfallslega flestir 16 ára sækja skóla á Austurlandi og Norðurlandi eystra
Nemendur á skólastigum ofan grunnskóla á Íslandi voru 44.949 haustið 2010 og hafði fækkað um 435 nemendur frá fyrra ári, eða
1,6%. Þetta er í fyrsta skipti sem nemendum ofan grunnskóla fækkar á milli ára frá endurskoðun nemendaskrár Hagstofu Í... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/odinn-ihugar-ad-leggja-skona-a-hilluna | Óðinn íhugar að leggja skóna á hilluna
Óðinn Ásgeirsson leikmaður 1. deildar liðs Þórs í körfubolta íhugar að leggja skóna á hilluna að nýju.
Óðinn var lykilmaður í liði Þórs í vetur sem var hársbreidd frá því að tryggja sér sæti í
úrvalsdeildinni og var valinn besti maður liðsins í vetur.
„Það er ekkert rosalega líkle... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oddur-farinn-til-reynslu-til-thyskalands | Oddur farinn til reynslu til Þýskalands
Oddur Gretarsson handknattleiksmaður frá Akureyri hélt til Þýskalands í gær þar sem hann mun æfa með úrvalsdeildarfélaginu
Wetzslar. Oddur verður á reynslu hjá félaginu fram á föstudag og verður því kominn til landsins í tæka tíð fyrir
úrslitarimmuna gegn FH.
Oddur hefur verið að... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leikjadagskra-akureyrar-og-fh-klar | Leikjadagskrá Akureyrar og FH klár
Akureyri og FH leika til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í N1-deild karla í handbolta en bæði liðin unnu oddaleiki sína í kvöld.
Úrslitarimma liðanna hefst þriðjudaginn 26. apríl, degi fyrr en áætlað var.
Fyrsti leikurinn var settur á miðvikudeginum 27. apríl en þar sem Íþróttahöll... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oddur-ahorfendurnir-okkar-attundi-madur | Oddur: Áhorfendurnir okkar áttundi maður
„Tilfinningin er bara svakalega góð og held að ég hafi aldrei spilað jafn skemmtilegan leik í þessu húsi áður,” sagði
Oddur Gretarsson eftir sigur Akureyrar gegn HK í oddaleik í Höllinni á Akureyri í kvöld í undanúrslitum N1-deildar karla í
handbolta. Akureyri vann með þremur mö... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyri-leikur-til-urslita-eftir-sigur-i-oddaleik | Akureyri leikur til úrslita eftir sigur í oddaleik
Akureyri leikur til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta karla eftir þriggja marka sigur á HK í oddaleik á
heimavelli í kvöld, 28:25. Akureyri mætir FH í úrslitum sem hafði betur gegn Fram í oddaleik í hinni undanúrslitarimmunni.
Þetta er í fyrsta skipti sem ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/starfsgreinasambandid-lagdi-fram-tilbod-ad-kjarasamningi | Starfsgreinasambandið lagði fram tilboð að kjarasamningi
Á fundi Starfsgreinasambandsins og Samtaka atvinnulífsins sem fram fór í dag hjá Ríkissáttasemjara lagði SGS fram tilboð að kjarasamningi
við SA. Tilboð SGS hljóðaði upp á samning til eins árs með 15.000 kr. taxtahækkun frá 1. mars að telja og almenna kauphækkun ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/naegur-snjor-i-hlidarfjalli | Nægur snjór í Hlíðarfjalli
Síðasta helgi var góð í Hlíðarfjalli. Margt var um manninn sem renndi sér á skíðum í góðu færi en veður
setti ofurlítið strik í reikninginn. Nægur snjór er í fjallinu fyrir páskahelgina þegar fólk flykkist jafnan norður til að fara
á skíði og snjórinn mun einnig duga vel fyrir Andrésar andar ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/afgangur-af-rekstri-horgar-sveitar-um-6-milljonir-i-fyrra | Afgangur af rekstri Hörgár- sveitar um 6 milljónir í fyrra
Ársreikningur Hörgársveitar fyrir árið 2010 var lagður fram á síðasta fundi sveitarstjórnar. Ársreikningurinn er sá fyrsti sem
lagður er fram eftir sameiningu Arnarneshrepps og Hörgárbyggðar, sem tók gildi 12. júní 2010. Hann er í raun ársreikningur
þessara tve... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/um-1300-teikningar-fra-60-skolum-barust-i-teiknisamkeppni | Um 1300 teikningar frá 60 skólum bárust í teiknisamkeppni
Menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, tilkynnti fyrir skömmu úrslit í teiknisamkeppni Alþjóðalega
skólamjólkurdagsins, sem haldinn er hátíðlegur síðasta miðvikudag í september ár hvert. Eins og undanfarin ár barst mikill
fjöldi teikninga í samkeppnina sem Fræ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/framsoknarkonur-lysa-yfir-vanthoknun-a-skopmyndateikningu | Framsóknarkonur lýsa yfir vanþóknun á skopmyndateikningu
Framkvæmdastjórn Landssambands framsóknarkvenna lýsir yfir algjörri vanþóknun á skopmyndateikningu þá er birtist í
Morgunblaðinu laugardaginn 16. apríl síðastliðinn þar sem Siv Friðleifsdóttir, þingkona Framsóknar var teiknuð sem vændiskona.
Stjórnin telur teikna... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oskad-eftir-aukafjarveitingu-vegna-orkukostnadar-i-skautahollinni | Óskað eftir aukafjárveitingu vegna orkukostnaðar í Skautahöllinni
Á síðasta fundi íþróttaráðs lagði framkvæmdastjóri íþróttadeildar fram yfirlit yfir orkukostnað í
Skautahölinni 2003-2010 þar sem fram kemur að kostnaður hefur aukist á undanförnum árum umfram framlög Akureyrarbæjar til rekstrarins.
Íþróttaráð óskar efti... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjallad-um-veidimal-fyrir-botni-eyjafjardar-a-svak-kvoldi | Fjallað um veiðimál fyrir botni Eyjafjarðar á SVAK-kvöldi
Mega smábátar veiða bleikju á Pollinum? Má veiða í ræsinu við Varðgjánna? Hver má veiða í net
í firðinum? Árni Ísaksson, forstöðumaður lax- og silungsveiðisviðs Fiskistofu, verður með erindi á SVAK-kvöldi að
Hólabraut í kvöld kl. 20.00, mánudaginn18. apríl. Þar ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kemur-i-ljos-ur-hverju-vid-erum-gerdir | Kemur í ljós úr hverju við erum gerðir
Akureyri og HK mætast í hreinum úrslitaleik í kvöld í Íþróttahöllinni á Akureyri kl. 19:30 um hvort liðið kemst
í úrslit í N1-deild karla í handbolta. HK jafnaði rimmu liðanna í 1:1 með sannfærandi sigri sl. laugardag á heimavelli og tryggði
sér oddaleik. Sama er upp á teningnum... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vel-heppnud-atvinnu-og-nyskopunarhelgi-i-ha | Vel heppnuð Atvinnu- og nýsköpunarhelgi í HA
Atvinnu- og nýsköpunarhelgin í Háskólanum á Akureyri, sem staðið hefur yfir frá því á föstudag lauk formlega nú
undir kvöld. Þá voru þau verkefni sem þátttakendur hafa unnið með yfir helgina, kynnt fyrir sex manna dómnefnd, sem valdi bestu verkefnin. Besta
verkefnið var vali... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ferskur-fiskur-unnin-a-dalvik-i-dag-kominn-a-markad-erlendis-i-fyrramalid | Ferskur fiskur unnin á Dalvík í dag - kominn á markað erlendis í fyrramálið
Starfsfólkið í landvinnslu Samherja hf. á Dalvík, alls um 120 manns, tók daginn snemma og var mætt til vinnu í frystihúsinu kl. 04.00
í morgun. Þá hófst vinnsla á ferskum fiski sem þýski togarinn Baldvin NC landaði á Dalvík en skipið var við ve... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/velsmidjan-a-akureyri-lokar-um-naestu-manadamot | Vélsmiðjan á Akureyri lokar um næstu mánaðamót
Þeir félagar Sveinn Rafnsson og Birgir Torfason, hafa ákveðið að loka veitingastaðnum Vélsmiðjunni á Akureyri um næstu
mánaðamót og verður síðasti dansleikurinn í húsinu haldinn laugardaginn 30. apríl. Þetta er vissulega tímamót
því á Vélsmiðjunni og áður Pollinum í Gránuf... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samkomulag-hefur-nadst-kjaravidraedum-vid-becromal | Samkomulag hefur náðst kjaraviðræðum við Becromal
Eini ljósi punkturinn í gær var að það náðist samkomulag í viðræðum við Becromal. „Við munum kynna samkomulagið
fyrir starfsmönnum fyrirtækisins á fundum næsta þriðjudag," segir Björn Snæbjörnsson. Það verða tveir fundur á
þriðjudaginn, kl. 14 og 17 á skrifstofu Eininga... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hk-tryggdi-ser-oddaleik-med-storsigri-i-dag | HK tryggði sér oddaleik með stórsigri í dag
HK tryggði sér oddaleik í undanúrslitarimmunni gegn Akureyri í N1-deild karla í handbolta með öruggum og verðskulduðum sigri í
Digranesi í dag, 31:23, í öðrum leik liðanna. HK var alltaf skrefinu framar í dag og gerði út um leikinn um miðjan seinni hálfleikinn
þegar liðið náð... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/svipud-adsokn-i-hlidarfjall-i-vetur-og-arid-2009 | Svipuð aðsókn í Hlíðarfjall í vetur og árið 2009
„Í heildina verður þetta alveg ágætis vetur, en vissulega hefur gengið upp og niður og veðrið hefur langt því frá alltaf
verið til friðs," segir Guðmundur Karl Jónsson forstöðumaður í Hlíðarfjalli. Rúmar tvær vikur eru þar til fjallinu
verður lokað, en gera má ráð fyrir ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sveitarstjorn-fai-til-eignar-oll-baejarhusin-i-saurbae | Sveitarstjórn fái til eignar öll bæjarhúsin í Saurbæ
Á fundi sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar í vikunni var lögð fram ályktun frá framhaldsaðalfundi Hollvinafélags
Búnaðarsögusafns Eyjafjarðar, en félagið vill hefur á stefnuskrá sinni að byggja upp búnaðarsögusafn að Saurbæ. Í
ályktunni er því m.a. beint til sveitars... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/undanurslitin-i-n1-deild-karla-halda-afram-i-dag | Undanúrslitin í N1-deild karla halda áfram í dag
Undanúrslitin í N1-deild karla í handbotla halda áfram í dag þegar Akureyri sækir HK heim og Fram og FH mætast í Framhúsinu og
hefjast leikirnir kl. 16:00.
Akureyri og FH standa vel að vígi fyrir leikina í dag en bæði liðin eru 1:0 yfir í sínu einvígi. Það lið sem vinnur... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vinna-a-atvinnu-og-nyskopunarhelginni-a-akureyri-komin-i-fullan-gang | Vinna á Atvinnu- og nýsköpunarhelginni á Akureyri komin í fullan gang
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, setti Atvinnu- og nýsköpunarhelgina í Háskólanum á Akureyri, formlega seinni partinn í
dag. Í kjölfarið hófst annasöm vinnuhelgi hjá fjölda manns, í kvöld, á morgun laugardag og á sunnudag. Forseti Íslands hva... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tilbodi-hamarsfells-i-2-afanga-naustaskola-hafnad | Tilboði Hamarsfells í 2. áfanga Naustaskóla hafnað
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkti á fundi sínum í morgun að hafna tilboði Hamarsfells ehf./Adakris í 2. áfanga
Naustaskóla, á þeim forsendum að fyrirtækin uppfylli ekki öll skilyrði útboðslýsingar. Stjórnin samþykkti að ganga til
samninga við SS Byggi ehf. á Ak... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/forseti-islands-heidursgestur-a-atvinnu-og-nyskopunarhelginni | Forseti Íslands heiðursgestur á Atvinnu- og nýsköpunarhelginni
Nú um helgina stendur yfir Atvinnu- og nýsköpunarhelgin í Háskólanum á Akureyri. Helgin er hugsuð til þess að hvetja fólk til
athafna og vinna að nýjum og núverandi viðskiptahugmyndum. Verkefnið hófst sem samstarfsverkefnis sjálfstæðra atvinnurekenda á Akur... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/menningarsamningar-undirritadir | Menningarsamningar undirritaðir
Menningarsamningar, samningar um menningarmál og menningartengda ferðaþjónstu, til þriggja ára á milli ríkisins og sambanda sveitarfélaga um
allt land voru undirritaðir í dag. Samningarnir fela í sér að árlega verður 250,7 m.kr. varið til menningarmála og menningartengdrar
ferðaþjónustu ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vidtaekar-adgerdir-til-ad-baeta-umhverfisvernd | Víðtækar aðgerðir til að bæta umhverfisvernd
Becromal á Íslandi stendur nú í víðtækum aðgerðum til að bæta umhverfisvernd við aflþynnuverksmiðju sína í
Krossanesi við Akureyri. Aðgerðaráætlun var kynnt fyrir Umhverfisstofnun sem hefur staðfest að fyrirtækið hafi bætt úr annmörkum
varðandi þætti í starfsleyfi þess. Becr... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sjuklingar-og-starfsmenn-a-fsa-hafa-veikst-af-noroveirusykningu | Sjúklingar og starfsmenn á FSA hafa veikst af nóróveirusýkningu
Nóróveirusýking er komin upp á Sjúkrahúsinu á Akureyri, búið er að loka lyfjalækningadeild tímabundið og skipta upp,
hand- og bæklunardeild. Sigurður Sigurðsson staðgengill framkvæmdastjóra lækninga, segir að einir 6 sjúklingar og 3-4 starfsmenn hafi veiks... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/draemt-a-grasleppunni | Dræmt á grásleppunni
„Veiðin hefur verið frekar dræm, það er dauft yfir þessu," segir Jón Þorsteinsson sem gerir út á grásleppu frá
Grenivík. Síðustu grásleppuvertíðir hafa verið góðar, en nú bregður svo við að lítið veiðist.
Fjórir bátar gera út á grásleppu frá Grenivík. Sunnan- og suðvestanáttir hafa verið ríkjandi þ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/odinn-og-hulda-bestu-leikmenn-thors-i-vetur | Óðinn og Hulda bestu leikmenn Þórs í vetur
Óðinn Ásgeirsson og Hulda Þorgilsdóttir voru valin bestu leikmenn Þórs fyrir nýafstaðið
tímabil í 1. deild karla og kvenna í körfubolta, á lokahófi körfuknattleiksdeildar félagsins sem haldið var í Hamri á
dögunum. Bæði lék þau lykilhluverk með liðum sínum í vetur.
Eftirtaldir... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/atli-frabaert-ad-byrja-med-sigri | Atli: Frábært að byrja með sigri
Atli Hilmarsson þjálfari Akureyrar var ánægður með sína menn eftir sigurleikinn gegn HK í Höllinni á Akureyri í kvöld
í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum N1-deildar karla í handbolta. Eftir að hafa verið undir nánast allan fyrri hálfleikinn komu norðanmenn
sterkir inn í seinni hálflei... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tveggja-marka-sigur-akureyrar | Tveggja marka sigur Akureyrar
Akureyri vann fyrsta slaginn í einvíginu gegn HK í undanúrslitum N1- deildar karla í handbolta er liðin mættust í Höllinni á
Akureyri í kvöld. Lokatölur urðu 26:24. Þar með eru Akureyringar komnir 1:0 yfir í rimmunni en tvo sigra þarf til þess að komast í
úrslit. Liðin mætast að nýju á lau... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/verdur-natturugripasafn-akureyrar-flutt-til-hriseyjar | Verður Náttúrugripasafn Akureyrar flutt til Hríseyjar?
Á fundi stjórnar Akureyrarstofu í gær var tekið fyrir erindi frá Aðalsteini Bergdal, þar sem hann varpar fram þeirri hugmynd að koma
Náttúrugripasafni Akureyrar fyrir í Hrísey. Til stendur að koma hljóðfærasafni Gunnars Tryggvasonar fyrir á 2. hæð í
húsinu Borg, en... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/utistandandi-skuldir-vegna-kaupa-a-thjonustu-i-leik-og-grunnskola-um-16-milljonir-krona | Útistandandi skuldir vegna kaupa á þjónustu í leik- og grunnskóla um 16 milljónir króna
Á fundi bæjarráðs Akureyrar í morgun var fjallað um lið í fundargerð skólanefndar, varðandi innheimtumál skóladeildar og
skuldastöðu foreldra vegna leikskólagjalda, fæðisgjalda og frístundagjalda. Fyrir fund skólanefndar voru lagðar... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bokamarkadurinn-a-akureyri | Bókamarkaðurinn á Akureyri
Hinn árlegi Bókamarkaður Félags íslenskra bókaútgefenda er kominn til Akureyrar. Markaðurinn var opnaður í gær að
Gleráreyrum 2 og stendur til 26. apríl. Opið er alla daga frá kl. 11-18 en þó verður lokað á föstudaginn langa og páskadag.
Kristján Karl Kristjánsson rekstrarstjóri segir að mark... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bokasafnsdagur-i-dag | Bókasafnsdagur í dag
Upplýsing, félag bókasafns- og upplýsingafræða, í samstarfi við bókasöfn á Íslandi heldur Bókasafnsdag í dag,
fimmtudaginn 14. apríl. Tilgangur dagsins er að vekja athygli á mikilvægi bókasafna fyrir þjóðfélagið. Amtsbókasafnið á
Akureyri tekur virkan þátt í hátíðarhöldunum en safnið kom að tveimur... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/urslitakeppnin-i-n1-deild-karla-hefst-i-kvold | Úrslitakeppnin í N1-deild karla hefst í kvöld
Úrslitakeppnin í N1-deild karla í handbolta hefst í kvöld en í undanúrslitum mætast annars vegar Akureyri og HK og hins vegar FH og Fram.
Þau lið sem fyrr vinna tvo leiki mætast í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn. Fyrsti leikur Akureyrar og HK fer fram í
Íþróttahöllinni ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-islandsmeistari-i-blaki | KA Íslandsmeistari í blaki
KA er Íslandsmeistari karla í blaki eftir 3:1 sigur gegn HK í Fagralundi í kvöld. KA vann einvígið 2:0 og er því þrefaldur
meistari. Líkt og í fyrra er liðið handhafandi allra titlana sem í boði eru en fyrir var liðið deildar- og bikarmeistari. HK vann fyrstu hrinuna
í kvöld, 25:22, en KA van... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skraning-i-sumarbudirnar-a-holavatni-i-fullum-gangi-1 | Skráning í sumarbúðirnar á Hólavatni í fullum gangi
Skráning í sumarbúðir KFUM og KFUK að Hólavatni er nú í fullum gangi en í sumar verður boðið uppá sjö dvalarflokka
fyrir börn á aldrinum 7-14 ára. Sumarstarfið hefst 2. júní með Frumkvöðlaflokki fyrir 7-8 ára stráka og stelpur en lokadagur flokksins
er laugardaginn 4.... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/alvarlegt-ad-eftirlitsadilar-hafi-ekki-fylgst-naegilega-vel-med | Alvarlegt að eftirlitsaðilar hafi ekki fylgst nægilega vel með
Á fundi umhverfisnefndar Akureyrar í gær fóru fram umræður um starfsemi Becromal og mengunina sem þar varð fyrir skemmstu. Umhverfisnefnd undirstrikar,
í bókun, alvarleika málsins, þó svo að umhverfisáhrif hafi verið óveruleg. Það þykir miður og alvarlegt a... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/atvinnurekendur-verid-erfidir-vegna-ataka-um-stjorn-fiskveida | Atvinnurekendur verið erfiðir vegna átaka um stjórn fiskveiða
Aðalfundur Einingar-Iðju var haldinn í Menningarhúsinu HOFI á Akureyri í gærkvöld. Félagsmenn fjölmenntu á fundinn og sagði
Björn Snæbjörnsson, formaður félagsins, m.a. er hann flutti skýrslu stjórnar að starfsárið hefði einkennst af undirbúningi
kjarasamnin... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/afslattur-af-gatnagerdargjoldum-a-akureyri | Afsláttur af gatnagerðargjöldum á Akureyri
Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti einróma á fundi sínum nýlega að veita 20% afslátt af gatnargerðargjöldum í bænum
frá 1. janúar 2011 til 30. júní 2012. Hér er um umtalsverðar fjárhæðir að ræða og má sem dæmi nefna að veittur
afsláttur fyrir 150 m2 einbýlishús er um 600.000 kr. ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/verdur-ka-islandsmeistari-i-kvold | Verður KA Íslandsmeistari í kvöld?
HK og KA mætast í kvöld í Fagralundi í öðrum leik liðanna í úrslitum MIKASA-deildar karla í blaki. KA leiðir
einvígið 1:0 og getur með sigri í kvöld tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn annað árið í röð.
KA vann fyrsta leik liðanna 3:2 í KA-heimilinu á mánudaginn var í hörkuspennandi le... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thykir-midur-ad-konum-faekki-i-valda-og-ahrifastodum-flokksins | Þykir miður að konum fækki í valda- og áhrifastöðum flokksins
Andrea Hjálmsdóttir bæjarfulltrúi Vinstri grænna á Akureyri segir aðspurð, að það sé óheppilegt fyrir eina
stjórnmálaafl landsins sem kennir sig við kvenfrelsi að Guðfríður Lilja Grétarsdóttir hafi ekki verið kjörin til að sinna hlutverki
þingflokksformanns ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/lid-umferda-15-21-i-n1-deild-karla-valid | Lið umferða 15-21 í N1-deild karla valið
Lið umferða 15-21 í N1-deild karla í handbolta var tilkynnt í dag. Akureyringar eiga einn leikmann í liðinu en Bjarni Fritzson var valinn í
hægra hornið í úrvalsliðinu. Besti leikmaður umferðanna er leikmaður FH og fyrrum leikmaður Akureyrar, Ásbjörn Friðriksson, en sá
hefur far... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjogur-honnunarfyrirtaeki-ad-hefja-starfsemi-vid-radhustorg | Fjögur hönnunarfyrirtæki að hefja starfsemi við Ráðhústorg
Fjögur ný fyrirtæki eru að hefja starfsemi að Ráðhústorgi 7 á Akureyri. Þau eiga það öll sameiginlegt að vera með
skapandi starfsemi, þó að mismunandi toga. Þetta eru arkitektastofan Breyta, ljósmyndastofan Guðrún Hrönn Fótografía og
fatahönnunarfyrirtækin ODDd... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/frekari-tafir-a-vinnu-vid-svalbardsstrandarveitu | Frekari tafir á vinnu við Svalbarðsstrandarveitu
Vinna við miðlunargeymi vatnsveitunnar á Svalbarðsströnd reyndist mun umfangsmeiri en áætlað var í fyrstu. Því þarf enn
að biðja íbúa að fara sparlega með kalda vatnið. Þegar farið var að þrífa miðlunargeyminn komi í ljós
að tæring var meiri en búist var við og því tekin... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/framsoknarkonur-lysa-yfir-vanthoknun-a-akvordun-meirihluta-thingflokks-vg | Framsóknarkonur lýsa yfir vanþóknun á ákvörðun meirihluta þingflokks VG
Stjórn Landssambands framsóknarkvenna lýsir yfir vanþóknun sinni á ákvörðun meirihluta þingflokks Vinstrihreyfingarinnar græns
framboðs að víkja Guðfríði Lilju Grétarsdóttur úr sæti þingflokksformanns. Ákvörðunin sé ekki síst
dapurleg í ljósi þeirr... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jon-yfirgefur-herbudir-sa | Jón yfirgefur herbúðir SA
Jón Benedikt Gíslason, fyrirliði Skautafélags Akureyrar, hyggst yfirgefa félagið og leika í Danmörku næsta tímabil. Jón, sem er
27 ára, hefur reynslu af atvinnumennsku en hann var t.a.m. atvinnumaður í Kína fyrir þó nokkrum árum.
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag en þar segir Jón í viðtal... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-vann-fyrsta-leikinn | KA vann fyrsta leikinn
KA hafði betur gegn HK í kvöld, 3:2, er liðin mættust í KA-heimilinu í fyrsta leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í blaki karla.
Leikurinn var jafn og spennandi. HK vann fyrstu hrinuna en KA svaraði með sigri í tveimur næstu, 25:19 og 25:22. HK jafnaði metin í 2:2 með sigri í
fjórðu hrinu, 25... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bokasafnsdagur-a-fimmtudag | Bókasafnsdagur á fimmtudag
Upplýsing, félag bókasafns- og upplýsingafræða, í samstarfi við bókasöfn á Íslandi heldur Bókasafnsdag, fimmtudaginn
14. apríl nk. Tilgangur dagsins er að vekja athygli á mikilvægi bókasafna fyrir þjóðfélagið. Bókasöfn gegna mikilvægu
hlutverki sem miðstöð fræðslu og þekkingar, fyrir framboð ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/forinnritun-i-framhaldsskola-veldur-ohagraedi-i-vma | Forinnritun í framhaldsskóla veldur óhagræði í VMA
Forinnritun í framhaldsskóla lauk um mánaðamótin og þá var ljóst að 454 höfðu valið Verkmenntaskólann á
Akureyri. Hjalti Jón Sveinsson skólameistari VMA segir að forinnritun sé fyrst og fremst hugsuð til að jafna nemendum niður á framhaldsskóla
í Reykjavík.
„Hún veldur... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sidustu-jazzta-tonleikarnir | Síðustu Jazzta tónleikarnir
Síðustu tónleikar í röð heitra tónleika sem bera nafnið Jazzta, verða á Götubarnum á Akureyri miðvikudaginn 13. apríl
kl. 21.00. Um er að ræða jazztónleika með nýju yfirbragði á vegum Tónlistarskólans á Akureyri og Jazzklúbbs Akureyrar.
Þetta eru jafnframt síðustu tónleikarnir í Jazzta tónle... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/saenskur-midvordur-til-reynslu-hja-ka | Sænskur miðvörður til reynslu hjá KA
Sænskur miðvörður að nafni Boris Lumbana frá sænska úrvalsdeildarfélaginu Örebro verður á reynslu hjá meistaraflokki KA
í knattspyrnu næstu daga. Lumbana er væntanlegur til landsins í dag.
Lumbana er 20 ára en hefur þó töluverða reynslu í fótboltanum og m.a. tekið þátt í mörgum leik... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/iris-vann-threfalt-a-icelandair-cup | Íris vann þrefalt á Icelandair Cup
Íris Guðmundsdóttir frá SKA vann þrefalt á Icelandair Cup sem haldið var í Hlíðarfjalli um helgina. Keppt var í svigi
bæði á laugardag og sunnudag en ekki voru aðstæður til keppni í stórsvigi eins og til stóð.
Íris sigraði báða dagana í sviginu í kvennaflokki. Í fyrri keppninni hafnað... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-og-hk-maetast-i-fyrsta-leik-i-urslitum-i-kvold | KA og HK mætast í fyrsta leik í úrslitum í kvöld
KA og HK hefja einvígið um Íslandsmeistaratitilinn í blaki karla í kvöld en liðin mætast þá í KA-heimilinu kl. 19:30.
Það lið sem fyrr vinnur tvo leiki verður Íslandsmeistari. KA er ríkjandi meistari og á möguleika á að vinna þrennuna annað
árið í röð. Liðin mætast öðru ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/faekkun-hjukrunarryma-a-akur-eyri-thegar-farin-ad-hafa-ahrif | Fækkun hjúkrunarrýma á Akur- eyri þegar farin að hafa áhrif
Margrét Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri segir að fækkun hjúkrunarrýma í
bænum sé þegar farin að hafa áhrif. Ekki sé verið að taka inn í laus pláss á meðan verið er að ná niður
fjölda rýma á öldrunarheimilum, í samræmi við kröf... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/manya-med-thrennu-fyrir-thorka | Manya með þrennu fyrir Þór/KA
Manya Makoski fer vel af stað með Þór/KA en þessi bandaríska knattspyrnukona skoraði þrennu er Þór/KA vann öruggan 4:0 sigur gegn
Stjörnunni í Boganum í gær í A-deild Lengjubikars kvenna. Einnig skoraði Katla Óska Káradóttir fyrir heimamenn í gær.
Staða efstu liðanna er jöfn í deildinni en... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/taep-60-sogdu-nei-vid-icesve | Tæp 60% sögðu nei við Icesve
Tæp 60 prósent Íslendinga sögðu nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave-samingana í gær. Talningu er lokið
í öllum kjördæmum. Hvarvetna var öruggur meirihluti fyrir því að hafna samningunum en mestur var munurinn í Suðurkjördæmi, þar
sem tæp 73% þeirra sem greiddu atkvæði sögu nei. Í Norð... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mjog-hefur-dregid-ur-kosningathatttoku-a-akureyri | Mjög hefur dregið úr kosningaþátttöku á Akureyri
Mjög hefur dregið úr kosningaþátttöku á Akureyri eftir því sem liðið hefur á daginn, samkvæmt upplýsingum Helgu
Eymundsdóttur formanns kjörstjórnar. Eins og fram kemur hér á síðunni, tóku Akureyringar vel við sér og fjölmenntu á
kjörstað í morgun og kl. 11.00 var kjörsók... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/takmarkad-rymi-og-skolinn-fullsetinn-segir-skolameistari-vma | Takmarkað rými og skólinn fullsetinn, segir skólameistari VMA
Hjalti Jón Sveinsson skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri segir útilokað að verða við þeim hugmyndum sem stjórnvöld hafa
viðrað um að bjóða öllum ungmennum yngri en 25 ára skólavist næsta haust. "Við höfum aðeins takmarkað rými og eins og sakir
standa ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/infuensan-i-renun-a-akureyri | Infúensan í rénun á Akureyri
Inflúensufaraldurinn sem lagðist á Akureyringa í febrúar sl. er í rénun. Samkvæmt upplýsingum Þóris Þórissonar
yfirlæknis á Heilusgæslustöðinni á Akureyri, eru ný tilfelli nánast hætt að greinast. Hann segir að eftirstöðvar flensunnar,
sem oftast er þrálátur ertingshósti, geti varað í allt ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kosningathatttakan-a-akureyri-ad-sla-oll-met | Kosningaþátttakan á Akureyri að slá öll met
Helga Eymundsdóttir formaður kjörstjórnar á Akureyri segir að kosningaþátttakan í Icesave-kosningunum sé að slá öll met.
Hún segir að biðröð hafi verið fyrir utan VMA þegar kjörstaður var opnaður kl. 09.00 í morgun. Tveimur tímum síðar eða kl.
11.00 höfðu 1184 kosið á Akureyr... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gas-ad-finna-i-ollum-holum | Gas að finna í öllum holum
„Markmiðið með þessum rannsóknum er fyrst og fremst að færa sönnur á að á Glerárdalssorphaugnum finnist gas í
nýtanlegu magni og hversu mikið gasmagnið er í heild," segir Franz Árnason framkvæmdastjóri Norðurorku, en fyrr í vikunni luku starfsmenn
Ræktunarsambands Flóa og Skeiða borunum á sor... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-og-hk-berjast-um-islandsmeistaratitilinn-i-blaki | KA og HK berjast um Íslandsmeistaratitilinn í blaki
Það verða KA og HK sem leika til úrslita um Íslandsmeistaratitil karla í blaki. Þetta varð ljóst í gær eftir 3:0 sigur HK
gegn Stjörnunni í oddaleik í undanúrslitum.
Fyrsti leikur í úrslitunum fer fram næstkomandi mánudagskvöld í KA-heimilinu kl. 19:30 en vinna þarf t... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bjarni-annar-markahaesti-leikmadur-n1-deildarinnar | Bjarni annar markahæsti leikmaður N1-deildarinnar
Bjarni Fritzson leikmaður Akureyrar hafnaði í öðru sæti yfir markahæstu leikmenn N1-deildar karla í handbolta en lokaumferð deildarinnar
fór fram sl. fimmtudag. Bjarni skoraði 164 mörk í 21 leik en markakóngur er Ragnar Jóhannsson frá Selfossi með 172 mörk. Þetta kemur ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bryndis-sigradi-i-50-m-flugsundi | Bryndís sigraði í 50 m flugsundi
Norðlenska sundkonan Bryndís Rún Hansen sigraði í 50 m flugsundi í dag á Íslandsmeistaramótinu í 50 laug sem fram fer þessa
dagana í Laugardalslauginni.
Bryndís synti á 27,66 sekúndum en hún keppir fyrir lið sitt Bergen í Noregi. Í öðru sæti varð Ingibjörg Kristín
Jónsdóttir og þriðja E... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vadlaheidargong-styrkja-adrar-vegaframkvaemdir | Vaðlaheiðargöng styrkja aðrar vegaframkvæmdir
Á fjölmennum fundi um samgöngubætur og samfélagsleg áhrif þeirra sem haldinn var á Akureyri í gær, lagði Jón Þorvaldur
Heiðarsson, lektor við HA, áherslu á að einmitt núna, þegar vextir eru lágir og atvinnuleysi mikið, sé rétta tækifærið
til að ráðast í gerð Vaðlaheiðargang... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tvo-skip-samherja-londudu-a-akureyri-i-vikunni | Tvö skip Samherja lönduðu á Akureyri í vikunni
Tvö af frystiskipum Samherja hf., Oddeyrin EA og Snæfell EA, komu til heimahafnar á Akureyri í vikunni, með góðan afla. Skipin voru við veiðar fyrir
vestan land í þrjár vikur og er sameiginlegt aflaverðmæti þeirra um 320 milljónir króna.
Oddeyrin var með 435 tonna afla upp... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ninnundrin-i-boxinu | Ninnundrin í Boxinu
Ninna Þórarinsdóttir opnar sýningu sína Ninnuundrin í Boxinu, sal Myndlistarfélagsins í Listagilinu á Akureyri á morgun
laugardaginn 9. apríl kl. 14.00. Sýningin verður samansafn gamalla og nýrra verka hönnuðarins og myndskreytisins Ninnu Þórarinsdóttur.
Ninnundur er samansafn af furðuverum, ævintýr... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bjorgvinshatid-i-hofi | Björgvinshátíð í Hofi
Velunnarar Björgvins Guðmundssonar, tónskálds, efna til hátíðardagskrár í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri 10. apríl nk. kl.
16.00. þar sem úrval úr verkum þessa merka tónskálds verður flutt. Hátíðardagskráin er haldin í tilefni af
því að þann 26. apríl nk. eru 120 ár liðin frá fæðingu Björgvins, e... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjolskylduhjalpin-leitar-ad-nyju-husnaedi-og-verkefnastjora | Fjölskylduhjálpin leitar að nýju húsnæði og verkefnastjóra
Fjölskylduhjálp Íslands hefur rekið starfsstöð að Freyjunesi 4 á Akureyri frá því um miðjan nóvember sl. og hefur mikill
fjöldi fólks fengið matarúthlutanir frá þeim tíma. Fjölskylduhjálpin er að missa húsnæðið í Freyjunesi en
síðasta matarúthlutunin þar verður... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vinnuhopur-a-vegum-akureyrar-baejar-skodar-erlent-samstarf | Vinnuhópur á vegum Akureyrar- bæjar skoðar erlent samstarf
Á fundi bæjarráðs Akureyrar í gær var fjallað um Northern Forum samtökin sem Akureyrarbær á aðild að. Engin árgjöld voru
greidd fyrir árin 2009 og 2010 samkvæmt sérstakri undanþágu sem samtökin veittu. Fjallað var um áframhaldandi aðild að samtökunum. Einnig
ky... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/isi-daemdi-sa-i-hag | ÍSÍ dæmdi SA í hag
Dómstóll ÍSÍ dæmdi í gær Skautafélagi Akureyrar í hag en Skautafélag Reykjavíkur
hafði kært þátttöku Josh Gribbens með liði SA í úrslitaleikjum Íslandsmóts karla í íshokkí gegn SR. SA varð
Íslandsmeistari í síðasta mánuði með því að leggja SR, 3:2, í úrslitaeinvíginu og heldur því titlinum
samkvæmt þ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-ur-leik-eftir-tap-gegn-throtti | KA úr leik eftir tap gegn Þrótti
KA er úr leik á Íslandsmóti kvenna í blaki eftir 0:3 á heimavelli tap gegn Þrótti Neskaupsstað í undanúrslitum
í gærkvöld. Þróttur vann einvígið 2:0. Gestirnir höfðu yfirburði í leiknum í gær og unnu fyrstu tvær hrinurnar 25:13
og 25:11. KA beit frá sér í þriðju hrinu en það dugði ekki ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/heimir-verdur-erfitt-gegn-hk | Heimir: Verður erfitt gegn HK
Eftir leiki kvöldsins í lokaumferð N1-deildar karla í handbolta er ljóst hvaða lið eigast við í undanúrslitum þegar úrslitakeppnin
hefst eftir viku. Akureyri og HK mætast annars vegar og FH og Fram hins vegar. Úrslitakeppnin hefst fimmtudaginn eftir viku þann 14. apríl og verður fyrsti lei... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyri-vann-og-maetir-hk-i-undanurslitum | Akureyri vann og mætir HK í undanúrslitum
Akureyri vann níu marka sigur gegn Fram, 35:26, er liðin mættust í Höllinni á Akureyri í kvöld í lokaumferð N1-deildar karla
í handbolta. Akureyringar enda deildina með 33 stig í efsta sæti en Fram 23 stig í þriðja sæti. Á sama tíma lagði FH lið HK
í Kópavogi, 29:27, sem þýðir ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baerinn-greiddi-um-24-milljonir-krona-i-drattarvexti-i-fyrra | Bærinn greiddi um 2,4 milljónir króna í dráttarvexti í fyrra
Akureyrarbær greiddi tæpar 2,4 milljónir króna í dráttarvexti á árinu 2010. Þetta kom fram í svari
fjármálastjóra bæjarins við fyrirspurn Höllu Bjarkar Reynisdóttur bæjarfulltrúa á fundi bæjarráðs í morgun.
Á fundinum samþykkti bæjarráð að vísa ársreikningi A... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/endanlegur-hm-hopur-valinn-johann-mar-dettur-ut | Endanlegur HM hópur valinn-Jóhann Már dettur út
Olaf Eller þjálfari karlalandsliðsins í íshokkí og Josh Gribben aðstoðarþjálfari hans hafa valið endanlegan 22
manna landsliðshóp sem keppir á HM í 2. deild í Króatíu. Þeir sem detta út úr hópnum eru Jóhann Már
Leifsson fá Skautafélagi Akureyrar og Patrick Aedel.
Hópurinn... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/islandsmeistaramotid-i-50-m-laug-hefst-i-kvold | Íslandsmeistaramótið í 50 m laug hefst í kvöld
Íslandsmeistaramótið í 50 laug hefst í Laugardalslauginni í kvöld kl.18:00 og stendur fram á sunnudagskvöld. Allir helstu sundmenn
landsins verða samankomnir á mótinu og auk þess að keppa um Íslandsmeistaratitla verður reynt við lágmörk fyrir mót erlendis
eins og Evrópumót... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/icelandair-cup-haldid-i-hlidarfjalli-um-helgina | Icelandair Cup haldið í Hlíðarfjalli um helgina
Icelandair Cup FIS mót fer fram í Hlíðarfjalli um helgina, dagana 8.-10. apríl, þar sem flest af sterkustu skíðafólki landsins
verður samankomið. Keppt verður í svigi á föstudag og sunnudag en í stórsvigi á laugardag.
Mótið hefst kl. 17:00 á morgun, föstudag, og lýkur eft... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/lagid-ad-eilifu-mun-hljoma-a-utvarpsstodvum-landsins | Lagið Að eilífu mun hljóma á útvarpsstöðvum landsins
Leikhópurinn Silfurtunglið stendur nú í æfingum á söngleiknum Hárinu sem verður frumsýndur í Menningarhúsinu Hofi þann
14. apríl nk. Á dögunum fór hópurinn í upptökuver og tók upp lagið "Að eilífu". Lagið er ágæt kynning
á því sem koma skal, en leikarar sýningarinn... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gunnhildur-opnar-syningu-i-mjolkurbudinni-listagili | Gunnhildur opnar sýningu í Mjólkurbúðinni Listagili
Gunnhildur Þórðardóttir opnar sýninguna Slóðir/Trails í Mjólkurbúðinni Listagili laugardaginn 9. apríl kl. 15.00. Á
sýningunni eru málverk, grafíkverk og skúlptúrar sem sækja sér innblástur í hin mismunandi ferðalög lífsins þar sem
maðurinn skilur eftir sig spor og te... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nyr-menningar-og-atvinnumalafulltrui-i-horgarsveit-kominn-til-starfa | Nýr menningar- og atvinnumálafulltrúi í Hörgarsveit kominn til starfa
Skúli Gautason kom til starfa sem menningar- og atvinnumálafulltrúi í Hörgársveit í vikunni. Um er að ræða nýtt starf sem
stofnað var til í tengslum við sameiningu Arnarneshrepps og Hörgárbyggðar á síðasta ári. Hlutverk menningar- og
atvinnumálafullt... |
Subsets and Splits
No community queries yet
The top public SQL queries from the community will appear here once available.