Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.vikubladid.is/is/frettir/motmaela-nidurskurdi-a-rekstrar-framlogum-til-oldrunarheimilanna
Mótmæla niðurskurði á rekstrar- framlögum til öldrunarheimilanna Aðstandendur heimilisfólks á Öldrunarheimilum Akureyrar mótmæla harðlega niðurskurði ríkisins á rekstrarframlögum til heimilanna. Niðurskurðurinn felur í sér að fækka þarf um sjö rými á sama tíma og mikil vöntun er á frekari úrræðum og rýmum fyrir aldraða...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-i-annad-saetid-eftir-sigur-gegn-keflavik
Þór í annað sætið eftir sigur gegn Keflavík Þórsarar lögðu Keflavík að velli, 4:3, í Boganum í dag í Lengjubikar karla í knattspyrnu. Magnús Sverrir Þorsteinsson skoraði þrennu fyrir Keflavík en fyrir Þór skoruðu þeir Jóhann Helgi Hannesson, David Disztl, Þorsteinn Ingason og Sigurður Marinó Kristjansson. KA steinlá hi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tap-a-rekstri-motuneyta-i-grunnskolum-a-akureyri
Tap á rekstri mötuneyta í grunnskólum á Akureyri Rekstur mötuneyta í grunnskólum Akureyrar hefur ekki gengið sem skyldi og tap verið á rekstrinum. Rekstrarniðurstaða skólamötuneytanna er mjög misjöfn en það sem virðist ráða mestu um afkomuna er hráefniskostnaður. Gunnar Gíslason fræðslustjóri segir að þetta tap hafi ko...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ahugi-a-ad-byggja-starfsemi-einangrunarstodvarinnar-upp
Áhugi á að byggja starfsemi einangrunarstöðvarinnar upp Félagið Holdi ehf. hefur verið með rekstur í einangrunarstöð nautgripa í Hrísey undanfarin fjögur ár og þar eru nú ríflega 20 gripir af Galloway og Limousine kyni. Áhugi er fyrir því að efla starfsemina í eynni enda sjá eigendur félagsins tækifæri til uppbyggingar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sa-vann-fyrsta-leikinn
SA vann fyrsta leikinn Skautafélag Akureyrar lagði Björninn 3:0 að velli í Skautahöll Akureyrar í kvöld í fyrsta leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í íshokkí kvenna. Þar með hafa hafa norðanstúlkur tekið 1:0 forystu í einvígi liðanna en vinna þarf þrjá leiki til að verða Íslandsmeistari. Mörk SA í kvöld skoruðu þæ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sveinbjorn-kalladur-inn-i-hopinn-fyrir-thyskalandsleikinn
Sveinbjörn kallaður inn í hópinn fyrir Þýskalandsleikinn Sveinbjörn Pétursson, markvörður Akureyrar, hefur verið kallaður inn í landsliðshópinn fyrir leikinn gegn Þýskalandi á morgun í undankeppni EM í handbolta. Björgvin Páll Gústavsson markvörður meiddist á auga undir lok æfingar hjá landsliðinu í morgun og er úr lei...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/einni-deild-a-hlid-lokad
Einni deild á Hlíð lokað Ákveðið hefur verið að loka einni deild dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri, til að mæta niðurskurði á fjálögum ríkisins 2011. Þetta var ákveðið á fundi félagsmálaráðs í vikunni. Fram kemur í bréfi frá Brit J. Bieltvedt framkvæmdastjóra Öldrunarheimila Akureyrarbæjar til aðstandenda, að ákveðið haf...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/konur-i-meirihluta-i-stjorn-felags-saudfjarbaenda-vid-eyjafjord
Konur í meirihluta í stjórn Félags sauðfjárbænda við Eyjafjörð Konur eru nú í meirihluta í stjórn Félags sauðfjárbænda við Eyjafjörð, eða þrjár talsins á móti tveimur körlum. Aðalfundur félagsins var haldinn á dögunum og kom Arnfríður Friðriksdóttir á Hálsi við Dalvík ný inn í stjórn í stað Þórsteins Jóhannessonar á Bá...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vinamot-i-skautahollinni
Vinamót í Skautahöllinni Um helgina fer fram Vinamót LSA og Slippsins í Skautahöllinni á Akureyri. Vinamótið er keppni C keppenda. 85 C keppendur úr öllum aldurshópum frá Skautafélagi Akureyrar, Skautafélagi Reykjavíkur og Birninum munu etja kappi og sýna hæfni sína á svellinu. Því má víst telja að mikið fjör verði í S...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tokum-thetta-i-thremur-leikjum
Tökum þetta í þremur leikjum Úrslitakeppnin á Íslandsmóti kvenna í íshokkí hefst í dag en það er Skautafélag Akureyrar og Björninn sem berjast um titilinn. Fyrsti leikurinn fer fram á heimavelli SA og hefst viðureignin kl. 16:00 í Skautahöllinni. Vinna þarf þrjá leiki til þess að verða Íslandsmeistari. SA hefur titil a...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-lagdi-blika-ad-velli-i-fyrsta-leik-i-undanurslitum
Þór lagði Blika að velli í fyrsta leik í undanúrslitum Þór lagði Breiðablik að velli í kvöld með níu stiga mun, 81:72, í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum úrslitakeppninnar í 1. deild karla í körfubolta en leikið var í Íþróttahöllinni á Akureyri. Þar með hefur Þór tekið 1:0 forystu í einvígi liðanna en vinna þarf tvo...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/her-sleit-eg-barnsskonum-og-her-verdur-gott-ad-slita-inniskonum
Hér sleit ég barnsskónum og hér verður gott að slíta inniskónum "Hér sleit ég barnsskónum og hér verður gott að slíta inniskónum," sagði Geir Kristinn Aðalsteinsson forseti bæjarstjórnar Akureyrar, eftir að hann hafði tekið fyrstu skóflustunguna að nýju 45 hjúkrunarrýma hjúkrunarheimili við Vestursíðu nú fyrir stundu. ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thrir-leikmenn-til-lids-vid-ka
Þrír leikmenn til liðs við KA Í dag gengu þrír leikmenn til liðs við meistaraflokk KA í knattspyrnu á lánssamningum frá Íslandsmeisturum Breiðabliks og FH, sem varð í öðru sæti Pepsi-deildarinnar á síðasta keppnistímabili. Þetta eru Blikarnir Elvar Páll Sigurðsson og Ágúst Örn Arnarson og FH-ingurinn Hafþór Þrastarson....
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skiptihelgi-i-hlidarfjalli-a-dalvik-og-siglufirdi
Skiptihelgi í Hlíðarfjalli, á Dalvík og Siglufirði Þeir sem eiga vetrarkort á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli eða á Dalvík og Siglufirði geta skíðað á hverju þessara svæða sem er um helgina þegar fyrsta skiptihelgi vetrarins verður að veruleika. Vetrarkortshafar framvísa vetrarkortum sínum í afgreiðslu hvers skíðasvæðis og...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/islandsmeistarakeppni-sleda-hundaklubbs-islands
Íslandsmeistarakeppni Sleða- hundaklúbbs Íslands Sleðahundaklúbbur Íslands heldur sína fyrstu Íslandsmeistarakeppni í hundasleðaakstri á Mývatni 13. mars næstkomandi. Mikill undirbúningur hunda og manna nær hámarki með þessari keppni sem hefst kl. 10:01 að morgni sunnudags. Keppni í opnum greinum hefst að loknu hádegis...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oddur-og-sveinbjorn-ekki-med-til-thyskalands
Oddur og Sveinbjörn ekki með til Þýskalands Oddur Gretarsson og markvörðurinn Sveinbjörn Pétursson í liði Akureyrar verða ekki með íslenska landsliðinu sem mætir Þjóðverjum á sunnudaginn kemur í undankeppni EM í handbolta. Báðir voru þeir utan hóps í sigurleiknum gegn Þýskalandi sl. miðvikudag og fóru ekki með liðinu ú...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/radstefnu-og-fundahold-hafa-faerst-i-hof
Ráðstefnu- og fundahöld hafa færst í Hof „Það hefur orðið töluverður samdráttur hér í ráðstefnu- og fundahaldi með tilkomu Menningarhússins Hofs, slíkir viðburðir fara að stórum hluta fram þar um þessar mundir," segir Sigurbjörn Sveinsson hótelstjóri á Hótel Kea. Hann segir að á móti komi að margir þeirra sem leggja le...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nytt-syningargalleri-opnar-i-listagilinu-a-akureyri
Nýtt sýningargallerí opnar í Listagilinu á Akureyri Mjólkurbúðin, nýtt sýningargallerí í Listagilinuá Akureyri, opnar á morgun laugardaginn 12. mars kl. 15.00. Í tilefni þess opna myndlistakonurnar Mireya Samper og Ásta Vilhelmína Guðmundsdóttir myndlistasýningu sína: Í Sjávarmáli. Fjöllistamaðurinn George Hollanders m...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thetta-er-sigurblanda
„Þetta er sigurblanda" Sigurður Sveinn Sigurðsson leikmaður Skautafélags Akureyrar hefur ekki tölu á hversu margir Íslandsmeistaratitlarnir eru orðnir hjá honum en þeir eru býsna margir. Sigurður varð á dögunum Íslandsmeistari með SA er liðið lagði SR í oddaleik. Hann var að vonum kampakátur í leikslok enda náði SA að ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/erum-ad-toppa-a-rettum-tima
Erum að toppa á réttum tíma Úrslitakeppnin í 1. deild karla í körfubolta hefst í kvöld þar sem Þór, Breiðablik, Skallagrímur og Valur berjast um eitt laust sæti í úrvalsdeildinni næsta vetur. Í undanúrslitum mætast Þór og Breiðablik annars vegar og Skallagrímur og Valur hins vegar. Þór tekur á móti Breiðablik í Íþrótta...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leikfelag-akureyrar-frumsynir-gamanleikinn-farsaell-farsi
Leikfélag Akureyrar frumsýnir gamanleikinn; Farsæll farsi Leikfélag Akureyrar frumsýnir á morgun föstudag, gamanleikinn; Farsæll farsi, eftir þá Philip LaZebnik og Kingsley. Verkið verður sýnt í Samkomuhúsinu en leikstjóri er María Sigurðardóttir. Aðeins tveir leikarar komu við sögu í verkinu, þau Edda Björg Eyjólfsdót...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thetta-var-god-askorun-og-er-enn
Þetta var góð áskorun og er enn Guðmundur Hólmar Helgason leikmaður Akureyrar Handboltafélags hefur fengið aukna ábyrgð í liði norðanmanna í vetur. Eftir að þeir Jónatan Þór Magnússon og Árni Þór Sigtryggsson yfirgáfu félagið sl. vor kom það í hlut Guðmundar og Geirs Guðmundssonar að stíga upp og fylla þeirra skarð sem...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrsta-skoflustungan-ad-nyju-hjukrunarheimili-vid-vestursidu
Fyrsta skóflustungan að nýju hjúkrunarheimili við Vestursíðu Á morgun, föstudaginn 11. mars kl. 14:00, verður tekin fyrsta skóflustunga að nýju hjúkrunarheimili við Vestursíðu 9 á Akureyri. Þar á að rísa 45 hjúkrunarrýma hjúkrunarheimili á árunum 2011-2012. Heildarkostnaður er áætlaður um 1,25 milljarðar króna auk búna...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baejarrad-hafnar-beidni-fallorku-um-ad-reisa-virkjun-i-glera
Bæjarráð hafnar beiðni Fallorku um að reisa virkjun í Glerá Bæjarráð Akureyrar telur ekki ástæðu til að ráðast í virkjun í Glerá að svo stöddu og samþykkti á fundi sínum í morgun, með 3 atkvæðum, gegn atkvæði Ólafs Jónssonar D-lista, að hafna erindi Fallorku ehf. Fyrirtækið hafði óskað eftir að Akureyrarbær tæki afstöð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/arekstur-a-vikurskardi
Árekstur á Víkurskarði Flutningabifreið og fólksbíll skullu saman í vestanverðu Víkurskarði um tíuleytið í morgun. Veginum var lokað vegna óhappsins fram eftir morgni, á meðan verið var að koma bílunum af vettvangi. Gunnar Jóhannesson hjá lögreglunni á Akureyri segir að engin slys hafi orðið á fólki, en aðstæður í Víku...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ekki-lengur-not-fyrir-varpholt-fyrir-skolastarf
Ekki lengur not fyrir Varpholt fyrir skólastarf Skólanefnd Akureyrarbæjar telur að ekki séu not fyrir húsnæði Varpholts fyrir skólastarf. Nefndin hefur því óskað eftir því við Fasteignir Akureyrarbæjar að skólanefnd verði leyst undan leiguskyldum af húsinu. Fyrir síðasta fundi lá að ræða og taka ákvörðun um afstöðu til...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kannabisraektun-a-akureyri
Kannabisræktun á Akureyri Lögreglan á Akureyri stöðvaði í gærkvöld kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi á Akureyri. Hald var lagt á 6 kannabisplöntur, um tíu grömm af marihuana og tæki og tól til ræktunar. Par á þrítugsaldri var handtekið vegna málsins en sleppt að loknum yfirheyrslum og telst málið upplýst. Lögreglan...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/birna-og-audur-i-18-manna-landslidshopnum
Birna og Auður í 18 manna landsliðshópnum Apostol Apostolov, landsliðsþjálfari A landsliðs kvenna í blaki hefur valið 18 leikmenn í æfingahóp vegna keppni á Smáþjóðaleikunum í Liechtenstein í byrjun júní í sumar. Leikmennirnir koma úr sjö félögum og eru tveir leikmenn frá KA í hópnum, þær Auður Anna Jónsdóttir og Birna...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stefnt-ad-thvi-ad-taka-vadlaheidargong-i-notkun-i-arslok-2014
Stefnt að því að taka Vaðlaheiðargöng í notkun í árslok 2014 Stefnt er að því að auglýsa forval vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Vaðlaheiðargöng á næstu tveimur til þremur vikum og hefja framkvæmdir við gerð ganganna með haustinu. Áætlað er að taka Vaðlaheiðargöng í notkun í árslok 2014 og er heildarkostnaður við fram...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stofnfundur-hlutafelagsins-vadlaheidarganga-hf-a-morgun
Stofnfundur hlutafélagsins Vaðlaheiðarganga hf. á morgun Boðað hefur verið til stofnfundar hlutafélagsins Vaðlaheiðarganga hf. á morgun miðvikudaginn 9. mars kl. 10 á Hótel KEA Akureyri. Félagið verður stofnað samkvæmt heimild í lögum um stofnun hlutafélaga um vegaframkvæmdir sem Alþingi samþykkti 16. júní 2010. Hlutha...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stytta-i-oskilum-hja-logreglunni-a-akureyri
Stytta í óskilum hjá lögreglunni á Akureyri Hver er maðurinn? Lögreglan á Akureyri óskar eftir upplýsingum um eiganda styttu sem að er í óskilum hjá lögreglunni á Akureyri. Styttan fannst í Giljahverfi á Akureyri í lok febrúar. Þeir sem að geta gefið upplýsingar um styttuna eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband vi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sa-islandsmeistari-i-ishokki-1
SA Íslandsmeistari í íshokkí Skautafélag Akureyrar er Íslandsmeistari karla í íshokkí eftir öruggan 6:2 sigur gegn SR í oddaleik liðanna í Skautahöll Akureyrar í kvöld. SA vinnur einvígið 3:2 eftir að hafa lent 0:2 undir. Það var frábær fyrsta lota heimamanna sem lagði grunninn að sigrinum í kvöld. Heimamenn komust í 3...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nordurorka-haettir-med-kattarslaginn-a-radhustorgi
Norðurorka hættir með kattarslaginn á Ráðhústorgi Norðurorka hf. hefur tekið ákvörðun um að hætta með kattarslaginn á Ráðhústorgi á öskudaginn en undanfarin ár hefur þeim krökkum sem mæta á Ráðhústorg fækkað mjög og virðist sem þessi viðburður eigi undir högg að sækja í samkeppninni, segir m.a. í fréttatilkynningu frá ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bolvud-vitleysa-og-leleg-tilraun-hja-sr
„Bölvuð vitleysa og léleg tilraun hjá SR” „Þetta er bara bölvuð vitleysa og léleg tilraun hjá SR til þess að vinna titilinn á tækniatriðum,” segir Sigurður Sveinn Sigurðsson leikmaður Skautafélags Akureyrar í samtali við Vikudag. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í morgun hefur SR kært SA vegna þátttöku Josh Gribbens þj...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/urslitin-i-ishokki-karla-radast-i-kvold
Úrslitin í íshokkí karla ráðast í kvöld Hreinn úrslitaleikur fer fram í Skautahöll Akureyrar í kvöld á Íslandsmóti karla í íshokkí þegar Skautafélag Akureyrar og Skautafélag Reykjavíkur eigast við í fimmta leik liðanna kl. 19:00. SA lenti 0:2 undir í einvíginu en liðið kom til baka og hefur unnið síðustu tvo leiki og j...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kempur-keppa-i-hlidarfjalli
Kempur keppa í Hlíðarfjalli Svokallað Kempumót verður haldið í Hlíðarfjalli laugardaginn 19. mars þar sem þeir sem náð hafa 30 ára aldrinum mega taka þátt. Gerðar verða undantekningar fyrir kempur á aldrinum 28 til 29 ára sem hættu keppni fyrir minnst tveimur árum. Um er að ræða liðakeppni þar sem liðin standa af fjóru...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/songleikurinn-harid-i-hofi
Söngleikurinn Hárið í Hofi Leikhópurinn Silfurtunglið vinnur nú að uppsetningu á söngleiknum Hárinu sem verður frumsýnt í Hofi 15. apríl næstkomandi. Hárið er einn vinsælasti söngleikur allra tíma og verður nú í fyrsta sinn frumsýndur í atvinnuleikhúsi á Akureyri. Söngleikurinn er eftir þá James Rado og Gerome Ragni en...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stada-kynjanna-a-vinnumarkadi-til-umraedu-a-barattudegi-kvenna
Staða kynjanna á vinnumarkaði til umræðu á baráttudegi kvenna Á alþjóðlegum baráttudegi kvenna á morgun, þriðudaginn 8. mars, verður boðað til hádegisfundar á Akureyri, þar sem rætt verður um stöðu kvenna og karla á vinnumarkaði, launajafnrétti og aðgerðir sem geta stuðlað að jafnrétti kynjanna. Fundurinn fer fram á Hó...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fvsa-stefnir-ad-thvi-ad-fjolga-um-eina-ibud-i-borginni
FVSA stefnir að því að fjölga um eina íbúð í borginni Félag verslunar- og skrifstofufólks á Akureyri og nágrenni hefur gert tilboð í fjórar íbúðir í Reykjavík en hefur hug á að selja þær þrjár íbúðir sem það á nú í borginni. Gangi áformin eftir mun félagið hafa einni fleiri íbúð yfir að ráða þar en áður. Fram kom í mál...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tresmidjan-olur-baud-laegst-i-innrettingasmidi-i-stukuna-a-akureyrarvelli
Trésmiðjan Ölur bauð lægst í innréttingasmíði í stúkuna á Akureyrarvelli Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkti á fundi sínum fyrir helgina að ganga til samninga við Trésmiðjuna Öl ehf. um smíði innréttinga í stúkuna á Akureyrarvelli en fyrirtækið átti lægsta tilboð í verkið. Alls bárust þrjú tilboð í verkið og voru...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stapi-stefnir-almc-hf-til-greidslu-a-krofum-sjodsins
Stapi stefnir ALMC hf. til greiðslu á kröfum sjóðsins Á dögunum var þingfest stefna í Héraðsdómi Reykjavíkur, þar sem Stapi lífeyrissjóður stefnir ALMC hf. (áður Straumur-Burðarás fjárfestingarbanki) til greiðslu á kröfum sjóðsins, en þeim kröfum var lýst of seint vegna mistaka Lögmannsstofunar ehf., eins og kunnugt er...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hljomsveitin-robonia-i-undan-urslit-i-hljomsveitarkeppni
Hljómsveitin Robonia í undan- úrslit í hljómsveitarkeppni Akureyrska hljómsveitin Robonia er kominn í undanúrslit í hljómsveitarkeppninni Emergenza festival sem haldin er um þessar mundir í Osló í Noregi. Emergenza festival er ein stærsta tónlistarkeppni í Evrópu og hefur verið haldin árlega frá árinu 1992. Meðlimir Ro...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/umraedan-um-thjodgildin-heldur-afram-i-glerarkirkju
Umræðan um þjóðgildin heldur áfram í Glerárkirkju Umræðan um þjóðgildin heldur áfram í Glerárkirkju og í kvöld kl. 20.00 er Guðmundur Baldvin Guðmundsson fulltrúi Framsóknarflokksins framsögumaður. Hann mun ræða um þjóðgildin lýðræði og jöfnuð. Þetta er fimmta mánudagskvöldið í röð þar sem hópur fólks sest niður og ræð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samgongur-a-nordurleidinni-ur-skordum-vegna-ovedurs-og-ofaerdar
Samgöngur á norðurleiðinni úr skorðum vegna óveðurs og ófærðar Vegna ófærðar og óveðurs á Öxnadals- og Holtavörðuheiði hefur áætlunarbílum Sternu sem áttu að fara frá Reykjavík til Akureyrar og frá Akureyri til Reykjavíkur kl. 08:30 verið frestað. Ákveðið verður kl. 11:00 hvort farið verður kl. 12:00. Þungfært er á Vat...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oruggt-hja-blikum-gegn-thor
Öruggt hjá Blikum gegn Þór Breiðablik sigraði Þór nokkuð örugglega, 4:1, er liðin mættust í Akraneshöllinni í gær í Lengjubikar karla í knattspyrnu. Arnar Már Björgvinsson skoraði tvívegis fyrir Blika og þeir Kristinn Steindórsson og Haukur Baldvinsson sitt mark hvor. Mark Þórs skoraði Jóhann Helgi Hannesson. Þór og Br...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thungfaert-og-storhrid-a-oxnadalsheidi-og-skyggni-slaemt-a-heidum
Þungfært og stórhríð á Öxnadalsheiði og skyggni slæmt á heiðum Á Norðvesturlandi eru víða hálka, hálkublettir, éljagangur og skafrenningur. Þungfært og stórhríð er Öxnadalsheiði. Búast má við að skyggni sé slæmt á heiðum. Á Norðausturlandi er greiðfært en þó er einhver éljagangur. Á Austurlandi er víðast greiðfært þó e...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sa-knudi-fram-oddaleik
SA knúði fram oddaleik SA knúði fram oddaleik gegn SR með útisigri er liðin áttust við í fjórða sinn í dag í úrslitakeppni karla á Íslandsmótinu í íshokkí í Skautahöllinni í Laugardal. Lokatölur urðu 2:1 þar sem Josh Gribben skoraði sigurmark SA þremur mínútum fyrir leikslok. Áður hafði Andri Már Mikaelsson komið SA yf...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-maetir-islandsmeisturum-breidabliks-i-dag
Þór mætir Íslandsmeisturum Breiðabliks í dag Þórsarar mæta sjálfum Íslandsmeisturum Breiðabliks í Lengjubikar karla í knattspyrnu í dag og hefst leikurinn kl. 17:00 í Akraneshöllinni. Blikar hafa ekki byrjað mótið vel og eru án stiga í sjötta sæti eftir tvo leiki með markatöluna 0:6. Þór hefur unnið einn leik og tapað ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjolbreytileikinn-er-helsti-styrkur-nordurlands
Fjölbreytileikinn er helsti styrkur Norðurlands Ímynd Norðurlands var yfirskrift ráðstefnu og vinnufundar sem haldin var í Hofi á Akureyri sl. mánudag. Tæplega 200 manns sátu ráðstefnuna og um 90 manns tóku þátt í hópavinnu eftir að henni lauk. Flestir þátttakendurnir tengdust ferðaþjónustunni en einnig tóku þátt sveit...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sr-og-sa-maetast-i-fjorda-sinn-i-dag
SR og SA mætast í fjórða sinn í dag Skautafélag Reykjavíkur og Skautafélag Akureyrar mætast í fjórða sinn í dag í Skautahöllinni í Laugardal kl. 13:15 í úrslitakeppninni um Íslandsmeistaratitilinn í íshokkí karla. Staðan í einvíginu er 2:1 SR í vil, sem getur með sigri í dag tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn. Vinni SA...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eignir-ur-throtabui-nordurskeljar-i-hrisey-auglystar-til-solu
Eignir úr þrotabúi Norðurskeljar í Hrísey auglýstar til sölu Skiptastjóri þrotabús Norðurskeljar ehf. í Hrísey, sem var lýst gjaldþrota á dögunum, hefur auglýst helstu eignir félagsins til sölu. Stefnt er að því að selja eignirnar með áframhaldandi rekstur í huga en þó er heimilt að gera tilboð í einstaka eignir. Helst...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ellefu-af-threttan-grendarstodvum-a-akureyri-komnar-upp
Ellefu af þrettán grendarstöðvum á Akureyri komnar upp Alls eru komnar upp ellefu af þrettán fyrirhuguðum grenndarstöðvum á Akureyri. Ekki eru tiltækar nýtingartölur úr þeim grenndargámum sem lengst hafa verið í notkun en heildarlosun í janúar í ár er mun meiri en í janúar 2010. Þetta kemur fram í svari við fyrirspurn ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/atvinnuleysi-kaupmattarryrnun-og-ooryggi-einkenndi-lidid-ar
Atvinnuleysi, kaupmáttarrýrnun og óöryggi einkenndi liðið ár Atvinnuleysi, kaupmáttarrýrnun og óöryggi sem einkenndi liðið ár líkt og árið 2009 í starfsemi Félags verslunar- og skrifstofufólks á Akureyri og nágrenni og bitnaði á félagsmönnum ekki síður en öðrum launþegum. Þetta kom fram í máli Úlfhildar Rögnvaldsdóttur...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-med-sigur-i-lokaumferdinni
Þór með sigur í lokaumferðinni Þór tryggði sér í kvöld annað sætið í 1. deild karla í körfubolta með sigri gegn Hetti á útivelli, 125:98, í lokaumferð deildarinnar. Þór endar með 26 stig í öðru sæti deildarinnar og hefur tryggt sér heimaleikjaréttinn í úrslitakeppninni þar sem liðið mætir Breiðabliki á 4-liða úrslitum....
https://www.vikubladid.is/is/frettir/listmunauppbod-vofflukaffi-og-skrallball-i-ketilhusinu
Listmunauppboð, vöfflukaffi og skrallball í Ketilhúsinu Listmunauppboð og vöfflukaffi verða í Ketilhúsinu á morgun, laugardaginn 5. mars, til styrktar Eriku Lind Isaksen, Paul eiginmanni hennar og börnunum þeirra þremur en fjölskyldan missti allt sitt í jarðskjálftunum á Nýja Sjálandi. Fjölskyldan flutti frá Akureyri í...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/yfir-hundrad-thusund-manns-hafa-heimsott-hof
Yfir hundrað þúsund manns hafa heimsótt Hof Góð stemmning var í Hofi síðastliðna helgi en þá var liðið hálft ár frá opnun hússins. Af því tilefni var ákveðið að opna húsið upp á gátt og bjóða gestum að skoða sig um og kynna sér starfsemina. Fulltrúar allra þeirra sem eru með starfsemi í húsinu voru á staðnum auk þess s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikilvaegur-leikur-thors-gegn-hetti-i-kvold-1
Mikilvægur leikur Þórs gegn Hetti í kvöld Þórsarar eiga mikilvægan leik fyrir höndum í kvöld er liðið sækir Hött heim á Egilsstaði í lokaumferð 1. deildar karla í körfubolta. Þór er sem stendur í öðru sæti deildarinnar með 24 stig og sigur í kvöld ætti að duga norðamönnum til þess að tryggja annað sætið, sem gefur heim...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/likhus-og-kapella-rekin-an-studnings-fra-hinu-opinbera
Líkhús og kapella rekin án stuðnings frá hinu opinbera „Ég held að það sé mjög mikilvægt að það finnist viðunandi lausn á þessu máli," segir sr. Svavar Alfreð Jónsson sóknarprestur í Akureyrarkirkju um þá stöðu sem uppi er í rekstri Kirkjugarða Akureyrar. Smári Sigurðsson framkvæmdastjóri Kirkjugarða Akureyrar nefndi í...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stefan-nyti-taekifaerid-thegar-thad-gefst
Stefán: Nýti tækifærið þegar það gefst Stefán Guðnason átti góða innkomu í mark Akureyrar í kvöld í sigri gegn Val í N1-deild karla í handbolta, 23:20. Stefán kom inn á um miðjan síðari hálfleikinn eftir að Sveinbjörn Pétursson hafði skipt sér útaf. Sveinbjörn hafði þó engu síður átt fínan leik með 13 skot varin í mark...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sa-heldur-einviginu-gangandi-med-sigri-gegn-sr
SA heldur einvíginu gangandi með sigri gegn SR Skautafélag Akureyrar kom í veg fyrir að Skautafélag Reykjavíkur fagnaði Íslandsmeistaratitlinum í íshokkí karla í kvöld með 3:2 sigri á heimavelli í þriðja leik liðanna. Staðan í einvíginu er 2:1 SR í vil og fer næsti leikur fram á sunnudaginn kemur á heimvelli SR-inga. Þ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyri-hefndi-fyrir-tapid-i-bikarnum
Akureyri hefndi fyrir tapið í bikarnum Akureyri náði fram hefndum gegn Valsmönnum eftir tapið í bikarnum á dögunum með því að leggja þá að velli í deildarleik í kvöld á heimavelli í N1-deild karla í handbolta. Akureyri vann með þremur mörkum, 23:20. Bæði lið spiluðu skelfilegan sóknarbolta í fyrri hálfleik og voru mark...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hjukrunarrymum-faekkar-um-tvo-og-dvalarrymum-um-atta
Hjúkrunarrýmum fækkar um tvö og dvalarrýmum um átta Á fundi bæjarráðs Akureyrar í morgun var lagt fram til kynningar svar velferðarráðuneytisins. um endanlegar fjárveitingar til Öldrunarheimila Akureyrar. Þar kemur fram að velferðarráðuneytið samþykkir að fjölga um 3 hjúkrunarrými frá fyrri skerðingu og í viðbót að bre...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aukin-samvinna-stettarfelaga-i-althyduhusinu
Aukin samvinna stéttarfélaga í Alþýðuhúsinu Gengið hefur verið frá samkomulagi fjögurra stéttarfélaga sem aðsetur hafa í Alþýðuhúsinu við Skipagötu um samnýtingu á þriðju hæð hússins, en félögin hafa eignast stuðurhluta þeirrar hæðar. Félögin sem um ræðir eru Félag verslunar- og skrifstofufólks á Akureyri, Félag málmið...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/verdur-sr-islandsmeistari-i-kvold
Verður SR Íslandsmeistari í kvöld? Skautafélag Reykjavíkur getur orðið Íslandsmeistari í íshokkí karla með sigri gegn Skautafélagi Akureyrar í kvöld, er liðin mætast á heimavelli norðanmanna kl. 19:00 í þriðja leik liðanna. SR leiðir einvígið 2:0 en vinna þarf þrjá leiki til þess að verða Íslandsmeistari. SA er ríkjand...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thurfum-ad-gira-okkur-strax-upp
Þurfum að gíra okkur strax upp Akureyri og Valur mætast í kvöld í Íþróttahöllinni á Akureyri kl. 19:00 er 16. umferð N1-deildar karla í handbolta hefst með þremur leikjum. Valsmenn höfðu betur í bikarslag liðanna sl. helgi og því eiga heimamenn harma að hefna. Akureyri er í fínum málum í deildinni á toppnum með 25 stig...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/endurskodunar-stadfestingar-radherra-krafist
Endurskoðunar staðfestingar ráðherra krafist Stjórn Landssambands íslenskra vélsleðamanna mótmælir harðlega þeirri ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur, umhverfisráðherra, að samþykkja með undirskrift sinni þá umdeildu ákvörðun stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs að takmarka einhliða og verulega aðgengi almennings að þjóðgarðinu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/g-hjalmarsson-baud-laegst-i-jardvegsskipti-vegna-hjukrunarheimilis
G. Hjálmarsson bauð lægst í jarðvegsskipti vegna hjúkrunarheimilis Fyrirtækið G. Hjálmarsson hf. átti lægsta tilboð í jarðvegsskipti vegna byggingu hjúkrunarheimilis við Vestursíðu 9 á Akureyri. Fyrirtækið bauð rúmar 38,8 milljónir króna í verkið, eða 79,7% af kostnaðaráætlun. Alls bárust fjögur tilboð í verkið og voru...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sveinbjorn-besti-leikmadur-umferda-8-14
Sveinbjörn besti leikmaður umferða 8-14 Sveinbjörn Pétursson markvörður Akureyrar var í hádeginu í dag valinn besti leikmaður umferða 8-14 í N1-deild karla í handbolta. Sveinbjörn hefur farið á kostum í marki norðanmanna í vetur og var í gær valinn í landsliðshópinn fyrir tvo leiki gegn Þjóðverjum í marsmánuði. Þá var ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samthykkt-um-kattahald-i-akureyrarkaupstad-samthykkt
Samþykkt um kattahald í Akureyrarkaupstað samþykkt Bæjarstjórn samþykkti framlagða Samþykkt um kattahald í Akureyrarkaupstað með 10 atkvæðum gegn atkvæði Sigurðar Guðmundssonar A-lista en seinni umræða fór fram í bæjarstjórn í gær. Einnig var samþykkt gjaldskrá fyrir kattahald í Akureyrarkaupstað. Eftirlitsgjald verður...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sr-i-lykilstodu-eftir-sigur-gegn-sa-a-heimavelli
SR í lykilstöðu eftir sigur gegn SA á heimavelli SR er komið í lykilstöðu í baráttunni við SA um Íslandsmeistararitilinn í íshokkí karla eftir 3:2 sigur á heimavelli í kvöld í framlengdum leik. Egill Þormóðsson var hetja SR er hann skoraði gullmark í framlengingunni. Björn Sigurðsson og Gauti Þormóðsson voru einnig á m...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gamathjonuta-nordurlands-baud-laegst-i-sorphirdu-fra-heimilum
Gámaþjónuta Norðurlands bauð lægst í sorphirðu frá heimilum Fimm fyrirtæki sendu inn tilboð í sorphirðu í Eyjafjarðarsveit árin 2011-2015 en tilboðin voru opnuð í dag. Þrjú fyrirtæki buðu í alla fjóra hluta verksins, þ.e. í sorphirðu frá heimilum, umhleðslu og akstur á Sölvabakka, umsjón gámasvæða og umsjón á gámi undi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/alyktad-um-atvinnumal-reykjavikurflugvoll-og-vadlaheidargong
Ályktað um atvinnumál, Reykjavíkurflugvöll og Vaðlaheiðargöng Aðalfundur Félags málmiðnaðarmanna Akureyri, sem haldinn var sl. laugardag, hvetur ríkisstjórn Íslands til að stuðla ákveðið að því að stórefla atvinnulífið í Þingeyjarsýslum sem allra fyrst. Aðalfundurinn bendur á að skoðanakannanir meðal íbúanna á undanför...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/b-hreidarsson-baud-laegst-i-vinnu-i-heimavistarhusi-hrafnagilsskola
B. Hreiðarsson bauð lægst í vinnu í heimavistarhúsi Hrafnagilsskóla Fyrirtækið B. Hreiðarsson ehf. átti lægsta tilboð í vinnu við breytingar og innréttingar á 2. hæð heimavistarhúss Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit en tilboðin voru opnuð í morgun. Fyrirtækið bauð tæpar 15 milljónir króna í verkið, sem er 69,9% af kos...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oddur-og-sveinbjorn-i-hopnum-sem-maetir-thyskalandi
Oddur og Sveinbjörn í hópnum sem mætir Þýskalandi Guðmundur Þórður Guðmundsson landsliðsþjálfari hefur valið 18 leikmenn til þátttöku í tveimur landsleikjum gegn Þjóðverjum sem fram fara í mánuðinum í undankeppni EM 2012. Þar eru þeir Oddur Gretarsson og markvörðurinn Sveinbjörn Pétursson frá Akureyri á meðal leikmanna...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tryllt-ahorfendasyning-a-rocky-horror-i-hofi
Tryllt áhorfendasýning á Rocky Horror í Hofi Mikil stemmning var í Hofi síðastliðið föstudagskvöld þegar áhorfendasýning var haldin á söngleik Leikfélags Akureyrar - Rocky Horror. Meðal áhorfenda var hinn eini sanni Páll Óskar ásamt fleiri MH-ingum, sem héldu fyrir skemmstu upp á 20 ára Rocky Horror-sýningarafmæli sitt...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gunnar-thor-og-sigurgeir-med-sigra-a-fis-bikarmoti
Gunnar Þór og Sigurgeir með sigra á FIS-bikarmóti Sigurgeir Halldórsson og Gunnar Þór Halldórsson frá SKA báru sigur úr bítum í karlaflokki á FIS/Bikarmóti í alpagreinum sem haldið var á Dalvík um helgina. Sigurgeir sigraði í stórsvigi, Jakob Helgi Bjarnson varð annar og Ritthichai Khamsa-Ing þriðji, en báðir keppa þei...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/helt-ad-vid-gaetum-loksins-gert-glerardalinn-ad-folkvangi
Hélt að við gætum loksins gert Glerárdalinn að fólkvangi Ingimar Eydal fyrrverandi formaður náttúruverndarnefndar Akureyrar hefur sent öllum bæjarfulltrúum og varabæjarfulltrúum á Akureyri bréf, vegna hugmynda Fallorku ehf. um að virkja Glerá. Ingimar óskar öllum til hamingju með að sorpurðun hafi verið hætt á Glerárda...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/forum-ohraeddir-i-leikinn
Förum óhræddir í leikinn Skautafélag Reykjavíkur og Skautafélag Akureyrar mætast öðru sinni í kvöld í úrslitakeppni karla á Íslandsmótinu í íshokkí Skautahöllinni í Laugardal kl. 20:15. SR leiðir einvígið 1:0 eftir 6:4 sigur í fyrsta leik liðanna á Akureyri sl. sunnudag. SA Víkingar þurfa því á sigri að halda í kvöld e...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/minningartonleikar-haldnir-um-sera-petur-i-laufasi
Minningartónleikar haldnir um séra Pétur í Laufási „Í bljúgri bæn" er yfirskrift minningartónleika um sr. Pétur Þórarinsson í Laufási, sem verða haldnir í Menningarhúsinu Hofi laugardaginn 19. mars kl. 20:00. Þar koma fram norðlenskir listamenn; hljóðfæraleikarar, kórar, tríó, kvartett og einsöngvarar, en hljómsveitars...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vrenko-gerdi-eins-ars-samning-vid-thor
Vrenko gerði eins árs samning við Þór Janez Vrenko skrifaði í gær undir eins árs samning við meistaraflokk Þórs í knattspyrnu. Vrenko hefur leikið með KA síðan árið 2006 en þessi 29 ára slóvenski varnarmaður á 97 leiki að baki með KA í deild og bikar.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/starfsfolki-vid-kennslu-i-grunn-skolum-faekkar-annad-arid-i-rod
Starfsfólki við kennslu í grunn- skólum fækkar annað árið í röð Haustið 2010 eru 7.589 starfsmenn í 6.858 stöðugildum í grunnskólum á Íslandi. Þar af eru 4.886 starfsmenn við kennslu í 4.671 stöðugildi. Starfsfólki fækkaði á milli ára annað árið í röð. Starfsmönnum við kennslu, þ.e. skólastjórnendum, deildarstjórum og ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thrir-fulltruar-fra-akureyri-i-nyrri-landskjorstjorn
Þrír fulltrúar frá Akureyri í nýrri landskjörstjórn Akureyringar eru fyrirferðarmiklir í nýrri landskjörstjórn sem kosin var á Alþingi í dag. Þrír af fimm aðalmönnum í nýrri landsstjórn eru frá Akureyri, þeir Freyr Ófeigsson fyrrverandi héraðsdómari við Héraðsdóm Norðurlands eystra, Björn Jósef Arnviðarson sýslumaður á...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hreinn-thor-meiddur-a-ny-mogulega-ur-leik-i-vetur
Hreinn Þór meiddur á ný-Mögulega úr leik í vetur Varnarjaxlinn í liði Akureyrar, Hreinn Þór Hauksson, mun ekki spila með liðinu næstu vikurnar í það minnsta í N1-deild karla í handbolta vegna meiðsla. Hreinn varð fyrir hnjaski í bikarleiknum gegn Val á laugardaginn var og þar rifu sig upp nárameiðsli sem hafa plagað Hr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/petur-heidar-i-radir-thors
Pétur Heiðar í raðir Þórs Pétur Heiðar Kristjánsson er gengin í raðir meistaraflokk Þórs í knattspyrnu á nýjan leik. Pétur er uppalinn Þórsari en hefur leikið með Stryn í Noregi undanfarin þrjú ár. Þetta er staðfest á fotbolti.net. Þá gæti Janez Vrenko leikmaður KA einnig verið á leiðinni til Þórs en eins og Vikudagur ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mottumars-hefst-a-nyjan-leik
„Mottumars“ hefst á nýjan leik „Mottumars" er yfirskrift mánaðarlangs átaks Krabbameinsfélags Íslands um karlmenn og krabbamein, sem hófst formlega í dag þegar úrvalslið lögreglumanna og slökkviliðsmanna öttu kappi í íshokkí og skoruðu hvort á annað í liðakeppni í mottukeppninni. Átakið er tvíþætt, árvekniátak og fjárö...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/auka-tharf-tengsl-baejaryfirvalda-a-akureyri-vid-atvinnulifid
Auka þarf tengsl bæjaryfirvalda á Akureyri við atvinnulífið Starfshópur Akureyrarstofu um atvinnumál hefur nú lokið störfum og skilað skýrslu um vinnu sína. Geir Kristinn Aðalsteinsson formaður starfshópsins mætti á síðasta fund stjórnar Akureyrarstofu og gerði ásamt Sigmundi Ófeigssyni grein fyrir niðurstöðunum. Megin...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/janez-vrenko-i-vidraedum-vid-thor
Janez Vrenko í viðræðum við Þór Knattspyrnudeild Þórs og Janez Vrenko leikmaður KA eru í viðræðum um hugsanleg félagskipti leikmannsins. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Vikudags má jafnvel búast við því að Janez gangi í raðir Þórs í dag. Ef samningar nást mun þessi 29 ára leikmaður gera eins árs samning við Þór, sem un...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/malum-faekkadi-umtalsvert-hja-logreglunni-a-akureyri
Málum fækkaði umtalsvert hjá lögreglunni á Akureyri Á síðsta ári komu 2.839 mál til kasta lögreglunnar á Akureyri og fækkaði málum um rúmlega 900 frá árinu 2009. Samkvæmt upplýsingum Daníels Guðjónssonar yfirlögregluþjóns hefur málum fækkað jafnt og þétt frá árinu 2007 og munar þar mestu um mikla fækkun umferðarlagabro...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/atvinnuleysi-a-landinu-76-a-sidasta-ari
Atvinnuleysi á landinu 7,6% á síðasta ári Á árinu 2010 voru 180.900 á vinnumarkaði. Af þeim voru 167.300 starfandi en 13.700 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 81%, hlutfall starfandi 74,9% og atvinnuleysi var 7,6%. Fjöldi atvinnulausra stendur nánast í stað frá árinu 2009, en frá árinu 2008 hefur atvin...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-skoradi-atta-mork-i-storsigri-gegn-selfyssingum
Þór skoraði átta mörk í stórsigri gegn Selfyssingum Þórsarar áttu ekki í vandræðum með Selfyssinga í Lengjubikar karla í knattspyrnu og unnu 8:0 er liðin áttust við í Boganum í dag í riðli 1 í A-deild. Atli Sigurjónsson og Sveinn Elías Jónsson skoruðu tvö mörk hvor fyrir Þór og þeir Ármann Pétur Ævarsson, David Disztl ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sr-skellti-sa-a-akureyri
SR skellti SA á Akureyri SR gerði sér lítið fyrir og skellti nýkrýndum deildarmeisturum SA Víkingum, 6:4, í Skautahöll Akureyrar í kvöld í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppni karla á Íslandsmótinu í íshokkí. SR komst í 5:1 en gestirnir höfðu 2:1 yfir eftir fyrsta leikhluta og skoruðu svo þrjú mörk gegn engu heimamanna ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/felag-malmidnadarmanna-akureyri-gefur-fsa-eina-milljon
Félag málmiðnaðarmanna Akureyri gefur FSA eina milljón Aðalfundur Félags málmiðanaðarmanna Akureyri var haldinn í gær, laugardaginn 26. ferbrúar. Fundurinn var mjög vel sóttur og kom fram að atvinnuástand í hjá félögum er almennt gott og bjartsýni ríkir um framtíðarhorfur í atvinnumálum. Þá sýna reikningar félagsins að...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/opid-hus-i-hofi-i-dag
Opið hús í Hofi í dag Í tilefni þess að hálft ár er liðið frá opnun Menningarhússins Hofs á Akureyri verður opið þar upp á gátt í dag, sunnudaginn 27. febrúar milli kl. 13-15. Notendur hússins verða á staðnum og kynna starfsemi sína. Á meðal þess sem verður um að vera í húsinu í dag er: Kvikmynd Arnar Inga um byggingar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aldrei-verid-sterkari-en-nuna
„Aldrei verið sterkari en núna” Úrslitakeppnin á Íslandsmóti karla í íshokkí hefst í dag þegar SA Víkingar og SR mætast í Skautahöll Akureyrar kl. 17:00. SA hefur titil að verja en SR komst ekki í úrslitakeppnina í fyrra og því ljóst að þeir eru hungraðir í titilinn. Vinna þarf þrjá leiki til þess að landa Íslandsmeist...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyri-og-valur-maetast-aftur-a-fimmtudag
Akureyri og Valur mætast aftur á fimmtudag Eins og flestum er orðið kunnugt þurftu Akureyringar að sjá á eftir Eimskipsbikarnum í hendur Valsmanna í úrslitaleiknum í handbolta karla í Laugardalshöllinni í gær. Akureyringar þurfa þó ekki að bíða lengi eftir að svara fyrir það tap en liðin mætast einmitt í næstu umferð N...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ia-burstadi-ka-i-boganum
ÍA burstaði KA í Boganum KA-menn fara ekki vel af stað í Lengjubikar karla í knattspyrnu. Norðanmenn steinlágu gegn ÍA í Boganum í gær, 0:5, og eru því án stiga eftir fyrstu tvo leikina í riðli 1 í A-deild. ÍA er hins vegar með sex stig eftir tvo leiki á toppnum. Gary Martin skoraði fjögur mörk fyrir ÍA í leiknum og Ma...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/atli-svekkjandi-ad-na-ekki-betri-leik
Atli: Svekkjandi að ná ekki betri leik Atli Hilmarsson þjálfari Akureyrar var sár og svekktur í samtali við Vikudag eftir tveggja marka tap gegn Valsmönnum, 24:26, í bikarúrslitaleik karla í handbolta í Laugardalshöllinni í dag. „Þetta eru mikil vonbrigði. Við spiluðum bara ekki nógu vel í dag og áttum slakan leik og þ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/valur-bikarmeistari-i-handbolta-eftir-sigur-gegn-akureyri
Valur bikarmeistari í handbolta eftir sigur gegn Akureyri Valur er bikarmeistari í handabolta karla eftir tveggja marka sigur gegn Akureyri, 26:24, í Laugardalshöllinni í dag. Hörður Fannar Sigþórsson hefði getað jafnað leikinn fyrir Akureyri í 25:25 þegar hálf mínúta var eftir en Hlynur Morthens varði frá honum í mark...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kostnadur-vid-snjomokstur-a-vikurskardi-86-milljonir-a-5-arum
Kostnaður við snjómokstur á Víkurskarði 86 milljónir á 5 árum Kostnaður við vetrarþjónustu á Víkurskarði á síðasta ári, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir, nam tæpum 19 milljónum króna. Á fimm ára tímabili, árin 2006-2010, er kostnaður við snjómokstur á Víkurskarði samtals um 86,5 milljónir króna, samkvæmt upplýsingum frá...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/erum-klarir-i-slaginn-og-fullir-tilhlokkunar
Erum klárir í slaginn og fullir tilhlökkunar Bikarúrslitaleikurinn milli Akureyrar og Vals í handbolta karla fer fram í dag í Laugardalshöllinni kl. 16:00. Vikudagur sló á þráðinn til þjálfara beggja liða og heyrði í þeim í hljóðið fyrir þennan stærsta einstaka handboltaleik ársins. Atli Hilmarsson, þjálfari Akureyrar,...