Search is not available for this dataset
url stringlengths 21 288 | text stringlengths 1 1.35M |
|---|---|
https://www.vikubladid.is/is/frettir/steinn-gunnarsson-tryggdi-ka-sigur-gegn-ir | Steinn Gunnarsson tryggði KA sigur gegn ÍR
Steinn Gunnarsson var hetja KA- manna í kvöld þegar hann skoraði sigurmark liðsins á uppbótartíma í 3:2 sigri liðsins á
ÍR á Akureyrarvelli í kvöld, á Íslandsmótinu í 1. deild karla í knattspyrnu. David Disztl skoraði tvívegis fyrir KA í
leiknum en mörk ÍR skoruðu þeir Karl Br... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hvanndalsbraedur-hefja-verslunarmannahelgina-a-graena-hattinum | Hvanndalsbræður hefja verslunarmannahelgina á Græna Hattinum
Það verða Hvanndalsbræður sem hefja verslunarmannahelgina á Græna Hattinum eins og undanfarin ár. Hljómsveitin mun stíga á
svið á morgun, fimmtudag, kl. 22 til 01:00 og verða einnig með tónleika á föstudag, laugardag og sunnudag. Á föstudags- og laugardagskvö... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-og-thor-i-eldlinunni-i-1-deild-karla-i-kvold | KA og Þór í eldlínunni í 1. deild karla í kvöld
KA og Þór verða bæði í eldlínunni í kvöld þegar 14. umferð 1. deildar karla á Íslandsmótinu í
knattspyrnu fer af stað, en hart er barist á toppi og botni deildarinnar. KA fær ÍR í heimsókn á Akureyrararvöll og hefst leikurinn
kl. 19:00. KA hefur 13 stig í níunda sæti deil... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oruggt-hja-thorka-gegn-haukum-a-thorsvelli | Öruggt hjá Þór/KA gegn Haukum á Þórsvelli
Haukar reyndust Þór/KA lítil fyrirstaða er liðin mættust á Þórsvelli í kvöld í Pepsi- deild kvenna í knattspyrnu.
Þór/KA vann leikinn 5:1 og er komið með 25 stig í þriðja sæti deildarinnar. Haukar sitja hins vegar áfram í næstneðsta sætinu
með þrjú stig. Rakel Hönnudóttir og Ve... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/althjodleg-leiklistarhatid-a-akureyri | Alþjóðleg leiklistarhátíð á Akureyri
Dagana 10.-15. ágúst heldur Bandalag íslenskra leikfélaga fjölþjóðlega leiklistarhátíð í Menningarhúsinu Hofi
á Akureyri. Hátíðin er á vegum NEATA, Norður-Evrópska áhugaleikhúsráðsins og verða þar sýndar leiksýningar
frá öllum Norðurlöndunum, Lettlandi, Litháen, Rúmeníu og Frakkland... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/daniel-einarsson-samdi-vid-akureyri-handboltafelag-sveinbjorn-hugsanlega-a-leidinni | Daníel Einarsson samdi við Akureyri Handboltafélag- Sveinbjörn hugsanlega á leiðinni
Daníel Einarsson skrifaði í dag undir eins árs samning við Akureyri Handboltafélag. Daníel, sem er 22 ára, kemur frá Stjörnunni og er
örvhentur hornamaður. Hann skoraði 65 mörk í N1-deildinni með Stjörnunni sl. vetur. Daníel er annar l... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/motmaela-stadsetningu-hjukrunarheimilis | Mótmæla staðsetningu hjúkrunarheimilis
Í hádeginu í dag voru þeim Geir Kristni Aðalsteinssyni forseta bæjarstjórnar og Oddi Helga Halldórssyni formanni
bæjarráðs afhentar 120 undirskriftir starfsmanna á Öldrunarheimilum Akureyrar. Það var Helga Guðrún Erlingsdóttir
hjúkrunarforstjóri sem afhenti undirskriftirnar, sem v... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/greifatorfaeran-haldin-um-helgina | Greifatorfæran haldin um helgina
Greifatorfæran 2010 verður haldin á akstursíþróttasvæði Bílaklúbbs Akureyrar laugardaginn 31. júlí
næstkomandi og hefst keppni klukkan 13:00. Keppt verður í tveimur flokkum, flokki götubíla og sérútbúinna bíla (UNLIMITED).
Á sunnudeginum 1. ágúst fer svo fyrsta umferð Íslandsmótsins í s... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sextugir-gaetu-att-rett-a-leidrettingu | Sextugir gætu átt rétt á leiðréttingu
Eining-Iðja vekur athygli á breytingum á lögum um atvinnuleysistryggingar á heimasíðu sinni sem tóku gildi í síðasta
mánuði. Breytingarnar lúta að því að þeir sem eru 60 ára eða eldri og hafa fengið skertar atvinnuleysisbætur vegna þess að
þeir hafa verið að verið að fá greiðslur ú... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/heil-umferd-i-pepsi-deild-kvenna-i-kvold | Heil umferð í Pepsi- deild kvenna í kvöld
Heil umferð fer fram í kvöld í Pepsi- deild kvenna í knattspyrnu. Á Þórsvelli tekur Þór/KA á móti Haukum og hefst
leikurinn kl. 19:00. Staða liðanna í deildinni er ólík en Þór/KA situr í þriðja sæti deildarinnar með 22 stig en Haukar hafa
þrjú stig í næstneðsta sæti. Þór/KA dug... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hestamannamot-i-horgardal-um-verslunarmannahelgina | Hestamannamót í Hörgárdal um verslunarmannahelgina
Um verslunarmannahelgina, þann 31. júlí-1. ágúst, verða haldnir opnir Bjargarleikar að Björgum í Hörgárdal. Um er
að ræða hestamannamót þar sem keppt verður í tölti í opnum flokki, fjórgangi í opnum flokki, fimmgangi í opnum flokki, 100 m
skeið og í opnum flokki í tölt... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/enn-sla-their-holu-i-hoggi-a-jadarsvelli | Enn slá þeir holu í höggi á Jaðarsvelli
Það er hreint með ólíkindum hvað golfarar á Jaðarsvelli á Akureyri eru hnitmiðaðir þessa dagana og fer það að
verða daglegur viðburður að menn fari holu í höggi á vellinum. Ingi Hrannar Heimisson frá GA er fimmti maðurinn á stuttum
tíma sem nær þeim áfanga en draumahögginu náði h... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ekki-bodid-upp-a-sundvoku-i-sundlaug-akureyrar | Ekki boðið upp á sundvöku í Sundlaug Akureyrar
„Það er nú ekki í plönunum þetta sumarið hjá okkur. Þetta hefur oft komið til umræðu en ekki verið tekinn nein
ákvörðun um þetta,” segir Elín H. Gísladóttir forstöðumaður hjá Sundlaug Akureyrar, aðspurð um hvort sundlaugin hefði
í hug að fara að fordæmi Laugardagslaugarinn... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/saeludagur-i-sveitinni-haldinn-a-laugardaginn | Sæludagur í sveitinni haldinn á laugardaginn
Næstkomandi laugardag, þann 31. júlí, verður Sæludagur í sveitinni haldinn hátíðlegur í Hörgársveit.
Frá klukkan ellefu um morguninn fram að miðnætti verður þétt og fjölbreytt dagskrá um alla sveitina. Dagskráin hefst á
Möðruvöllum þar sem m.a. verður keppt í „sveita-fitness... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/orvar-samuelsson-hafnadi-i-9-13-saeti | Örvar Samúelsson hafnaði í 9.-13. sæti
Örvar Samúelsson frá GA hafnaði í 9.-13. sæti á Íslandsmótinu í golfi sem haldið var í Kiðjuberginu sl. helgi.
Örvar lék alls á 297 höggum en hann vakti verðskuldaða athygli á þriðja keppnisdegi, er hann jafnaði vallarmetið. Örvar lék
þá hringinn á 68 höggum og deilir vallarmetinu... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/handtekinn-vegna-gruns-um-fikniefnaakstur | Handtekinn vegna gruns um fíkniefnaakstur
Maður um tvítugt var handtekinn um þrjú leytið í nótt við Sunnuhlíð á Akureyri grunaður um akstur undir
áhrifum fíkniefna. Að sögn lögreglunnar á Akureyri var ökumaðurinn einn í bílnum. Var hann færður á
lögreglustöðina við handtökuna þar sem frekari sýni voru tekinn úr manninu... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/helga-hjoladi-fra-akureyri-til-reykjavikur-1 | Helga hjólaði frá Akureyri til Reykjavíkur
„Þetta var alveg yndislegt og ég naut þess út í ystu æsar," segir Helga Halldórsdóttir sem á dögunum tók sig til og
hjólaði frá Akureyri til Reykjavíkur. Helga er 65 ára gömul og var komin yfir sextugt þegar hún keypti sitt fyrsta hjól, notaði til
þess peninga sem hún fékk í a... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/heyskapur-gengid-vel-hja-theim-sem-gatu-byrjad-snemma | Heyskapur gengið vel hjá þeim sem gátu byrjað snemma
Skipst hefur í tvö horn varðandi heyskap norðanlands, sumir bændur náðu að ljúka fyrri slætti áður en ótíð skall
á með rigningum en aðrir voru ekki svo langt komnir og gátu því lítið aðhafst í heyskap um langt skeið.
„Á svæðinu hér í kringum mig byrjuðu flestir kúabæ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorsarar-komnir-i-annad-saetid-eftir-sigur-gegn-leikni | Þórsarar komnir í annað sætið eftir sigur gegn Leikni
Þór komst í dag í annað sæti 1. deildar karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu með 1:0 sigri gegn Leikni á
Þórsvelli. Það var Sveinn Elías Jónsson sem skoraði eina mark leiksins í upphafi seinni hálfleiks. Þór hefur þar með 25
stig í öðru sæti deildarinnar, jafnmörg st... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/valur-og-stjarnan-leika-til-urslita-i-visa-bikar-kvenna | Valur og Stjarnan leika til úrslita í VISA- bikar kvenna
Valur og Stjarnan leika til úrslita í VISA- bikarkeppni kvenna í knattspyrnu en undanúrslitaleikirnir fóru fram í dag. Stjarnan lagði ÍBV 2:1
á Hásteinsvelli og á Hlíðarenda hafði Valur betur gegn Þór/KA 3:0. Kristín Ýr Bjarnadóttir skoraði þrennu fyrir Val
í lei... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sannfaerdur-um-sigur | Sannfærður um sigur
Þór og Leiknir R. mætast í toppslag á Íslandsmótinu í 1. deild karla í knattspyrnu á Þórsvelli á laugardaginn
kemur og hefst leikurinn kl. 18:00. Leiknir situr í öðru sæti deildarinnar með 25 stig, jafnmörg stig og Víkingur R. en með lakari markatölu.
Þór fylgir fast á hælana með 22 stig í þriðja ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/helga-hjoladi-fra-akureyri-til-reykjavikur | Helga hjólaði frá Akureyri til Reykjavíkur
„Þetta var alveg yndislegt og ég naut þess út í ystu æsar," segir Helga Halldórsdóttir sem á dögunum tók sig til
og hjólaði frá Akureyri til Reykjavíkur. Helga er 65 ára gömul og var komin yfir sextugt þegar hún keypti sitt fyrsta hjól, notaði
til þess peninga sem hún fékk í a... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/heldur-fleiri-faedingar-i-ar-a-sjukrahusinu-a-akureyri | Heldur fleiri fæðingar í ár á Sjúkrahúsinu á Akureyri
Heldur fleiri fæðingar hafa verið á fæðingardeild Sjúkrahússins á Akureyri það sem af er ári miðað við
í fyrra. Í vikunni voru skráðar 264 fæðingar á deildinni og örlítið fleiri börn því eitthvað hefur verið um
tvíburafæðingar í ár líkt og vanalega. Á sama tíma í fy... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/veidimenn-moka-upp-makril-a-pollinum-a-akureyri | Veiðimenn moka upp makríl á Pollinum á Akureyri
Það er mikið líf við Pollinnn á Akureyri þessa stundina en þar eru veiðimennn í tugatali að moka upp makríl á stöng.
Mikill fjöldi fólks er á Torfunefsbryggjunni, einnig í fjörunni suður af bryggjunni og þá eru veiðimenn með stöng á
smábátum á Pollinum. Mikið er af makríl... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/undirbuningshopur-vegna-150-ara-afmaelis-baejarins-skipadur | Undirbúningshópur vegna 150 ára afmælis bæjarins skipaður
Tryggvi Þór Gunnarsson, Helena Þ. Karlsdóttir og Úlfhildur Rögnvaldsdóttir hafa verið skipuð í undirbúningshóp vegna 150
ára afmælis Akureyrarkaupstaðar árið 2012. Starfsmenn nefndarinnar verða Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri og Sigríður
Stefánsdóttir ve... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vel-a-annad-hundrad-synendur-a-handverkshatidinni | Vel á annað hundrað sýnendur á Handverkshátíðinni
Nú eru einungis um tvær vikur í Handverkshátíð við Hrafnagilsskóla 6.-9.ágúst og er uppsetning svæðisins komin í
gang. Þessi 18 ára gamla hátíð er að breytast í skemmtilega blöndu af vandaðri sölusýningu og festivali og nýtt að
sjá hvert ár. Allt gert með það fyrir augu... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/magni-vann-nagrannaslaginn-gegn-draupni | Magni vann nágrannaslaginn gegn Draupni
Magni lagði Draupni að velli í nágrannaslag á Grenivíkurvelli í gærkvöld, í D- riðli 3. deildar karla á
Íslandsmótinu í knattspyrnu. Lars Óli Jessen kom Magna yfir á 14. múnútu leiksins og Draupnir skoraði svo sjálfsmark snemma í
seinni hálfleik.
Magni situr í þriðja sæti riðilsi... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bryndis-run-undirbyr-sig-af-kappi-fyrir-olympiuleikana | Bryndís Rún undirbýr sig af kappi fyrir Ólympíuleikana
Bryndís Rún Hansen, sundkona hjá Óðni, æfir nú af kappi þessa dagana fyrir Ólympíuleika Ungmenna sem fara fram í
Singapure, dagana 14-26. ágúst nk. Bryndís er nýlega komin úr þriggja vikna æfingaferð til Alaborgar með
úrvalsliði Bergen og æfir fram að leikunum bæði... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/risaostar-vid-thjodveginn-vekja-athygli-vegfarenda | Risaostar við þjóðveginn vekja athygli vegfarenda
Margir vegfarendur hafa að undanförnu orðið varir við risavaxna osta við þjóðveginn og hafa þeir vakið mikla athygli. Ekki er þó um
hefðbundna osta að ræða heldur hafa nokkrar heyrúllur verið merktar vinsælum íslenskum mygluostum.
Uppátækið hefur vakið mikla athygli fól... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tenor-og-gitar-a-hadegis-tonleikum-i-ketilhusinu | Tenór og gítar á hádegis- tónleikum í Ketilhúsinu
Benedikt Kristjánsson tenór og Sergio Coto-Blanco gítarleikari flytja ljóðaflokkinn "Songs from the Chinese" eftir Benjamin Britten ásamt ýmsum
þjóðlagaútsetningum og verkum eftir John Dowland og Franz Schubert á hádegistónleikum í Ketilhúsinu á Akureyri í dag,
föstudag... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/breytingar-i-nefndum | Breytingar í nefndum
Kolbrún Sigurgeirsdóttir tekur sæti aðalmanns umhverfisnefnd Akureyrar í stað Björns Ingimarssonar, sem hefur verið ráðinn
bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs. Þá tekur Kristinn Frímann Árnason sæti varamanns í nefndinni í stað Ragnars
Sigurðssonar. Sigurjón Jóhannesson tekur sæti aðalmanns í Heilbrigðisn... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/maeldist-a-222-kilometra-hrada | Mældist á 222 kílómetra hraða
Bifhjól mældist á 222 kílómetra hraða á Svalbarðsstrandarvegi austan við Akureyri um eitt leytið sl. nótt. Ökumaður
bifhjólsins var á leið til Akureyrar og hélt för sinni áfram þó að lögreglan hafi veitt honum eftirför. Ekki er víst
að ökumaður bifhjólsins hafi hins vegar gert sér grein fy... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikil-faekkun-i-umferdarlaga-brotum-a-akureyri-a-milli-ara | Mikil fækkun í umferðarlaga- brotum á Akureyri á milli ára
Umferðarlagabrotum í júní á þessu ári fækkaði um meira en helming frá því á sama tíma í fyrra í
umdæmi lögreglunnar á Akureyri. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu embættis ríkislögreglustjóra. Í júní 2009
voru framin 332 umferðarlagabrot en 161 í ár.
Gunnar J. Jó... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sara-omarsdottir-til-lids-vid-thorka | Sara Ómarsdóttir til liðs við Þór/KA
Markvörðurinn Sara Ómarsdóttir gekk í dag til liðs við úrvalsdeildarlið Þórs/KA frá Draupni sem leikur í 1. deild.
Sara mun fá það verkefni að fylla skarð Berglindar Magnúsdóttur, sem meiddist í leik Þórs/KA gegn Grindavík á
dögunum. Ekki er vitað hversu lengi Berglind verður frá ve... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baejarrad-harmar-nidurskurd-a-opinberum-framlogum-til-ha | Bæjarráð harmar niðurskurð á opinberum framlögum til HA
Bæjarráð Akureyrar, samþykkti bókun á fundi sínum í morgun, þar sem ráðið harmar niðurskurð á opinberum
framlögum til Háskólans á Akureyri árið 2010 og lýsir yfir þungum áhyggjum af væntanlegum viðbótarniðurskurði
árið 2011. Akureyri sé og hafi í gegnum tíðina ver... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/niu-sottu-um-stodu-eldvarnar-eftirlitsmanns-a-akureyri | Níu sóttu um stöðu eldvarnar- eftirlitsmanns á Akureyri
Alls sóttu níu manns, fjórar konur og fimm karlar, um stöðu eldvarnareftirlitsmanns hjá Slökkviliði Akureyrar, sem auglýst var laust til
umsóknar á dögunum. Umsóknarfrestur rann út í síðustu viku. Magnús Viðar Arnarsson, sem starfaði sem eldvarnareftirlitsmaður, v... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyrarflugvollur-lokast-yfir-daginn-komi-til-verkfalls | Akureyrarflugvöllur lokast yfir daginn komi til verkfalls
Komi til verkfalls slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna á morgun, föstudag, mun Akureyrarflugvöllur lokast milli kl. 8:00 og 16:00. Ari Fossdal,
stöðvarstjóri Akureyrarflugvallar, segir flugvöllinn þann eina á landinu sem muni lokast. Kemur þetta til vegna þess ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fotbolta-quiz-sammarans-haldid-a-kaffi-akureyri-i-kvold | Fótbolta Quiz Sammarans haldið á Kaffi Akureyri í kvöld
Í kvöld fer fram spurningarkeppnin Fótbolta Quiz Sammarans á Kaffi Akureyri og hefst keppni kl. 21:00. Þemað í kvöld verður HM. Tveir eru saman
í liði og spreyta sig á 30 spurningum tengdum HM í fótbolta.
Það eru aðstandendur vefsíðunnar sammarinn.com standa fyrir... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyrarbaer-kaupir-um-6000-ilat-fyrir-lifraent-sorp | Akureyrarbær kaupir um 6.000 ílát fyrir lífrænt sorp
Reiknað er með að tæplega 6.000 þúsund ílát fyrir lífrænt sorp verði keypt frá Promens Dalvik ehf., vegna nýrra samninga um
sorphirðu í Akureyrarbæ um svokallað þriggja íláta kerfi. Helgi Már Pálsson, deildarstjóri hjá framkvæmdadeild Akureyrar,
segir hvert ílát muni... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vid-munum-berjast-afram | Við munum berjast áfram"
„Við munum berjast áfram en við tókum stórt skref aftur á bak með þessum úrslitum og þetta verður erfitt,” segir Dragan
Kristinn Stojanovic þjálfari Þórs/KA. Eftir 2:3 tap liðsins gegn Breiðabliki á Kópavogsvelli í Pepsi- deild kvenna í
knattspyrnu sl. þriðjudag, eru meistaravonir Þórs/KA afar... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eydis-og-sigrun-magna-a-lokatonleikum-sumarsins | Eydís og Sigrún Magna á lokatónleikum sumarsins
Þær stöllur Eydís Franzdóttir, óbóleikari, og Sigrún Magna Þórsteinsdóttir, orgelleikari, munu leika fyrir gesti á
lokatónleikum Sumartónleika í Akureyrarkirkju, sunnudaginn 25. júlí kl. 17.00. Tónleikarnir munu hefjast með konsert fyrir óbó og
strengjasveit eftir Händel ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/johann-gunnar-radinn-thjalfari-kathors | Jóhann Gunnar ráðinn þjálfari KA/Þórs
Jóhann Gunnar Jóhannsson hefur verið ráðinn þjálfari hjá meistaraflokki KA/Þórs í
handbolta kvenna. Jóhann gerir tveggja ára samning við félagið, en hann þjálfaði 3. flokk karla hjá KA sl. vetur og gerði
þá að Íslandsmeisturum.
Engar breytingar hafa verið á leikmannahópi liðsins en... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hola-i-hoggi-fjorum-sinnum-a-fimm-dogum-a-jadarsvelli | Hola í höggi fjórum sinnum á fimm dögum á Jaðarsvelli
Kylfingar gera það ekki endasleppt á Jaðarsvelli á Akureyri. Í gær fór Hjörvar Maronsson kylfingur úr GA holu í höggi á
6. braut. Hann sló með 7. járni, kúlan lenti á flötinni og rúllaði beint í holu. Eins og fram hefur komið fór Björgvin
Þorsteinsson holu í höggi t... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/atli-jens-og-johann-helgi-i-banni-gegn-leikni-a-laugardaginn | Atli Jens og Jóhann Helgi í banni gegn Leikni á laugardaginn
Þeir Atli Jens Albertsson og Jóhann Helgi Hannesson leikmenn Þórs, munu taka út leikbann á laugardaginn kemur í
leiknum mikilvæga gegn Leikni á Þórsvelli í toppbaráttu 1. deildar karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu.
Þetta er mikil blóðtaka fyrir Þór, sem þarf... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-vann-akureyrarslaginn-gegn-ka | Þór vann Akureyrarslaginn gegn KA
Þór hafði betur gegn KA á Þórsvelli í gærkvöld á Íslandsmótinu í 2. flokki
karla í knattspyrnu. Þór vann leikinn 3:0 og voru það þeir Ottó Hólm Reynisson, Alexander Már Hallgrímsson og Kristinn
Þór Rósbergsson sem skoruðu mörk Þórs í leiknum. Með sigrinum er Þór komið með 12 stig í fjó... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/atvinnuleysi-mest-medal-folks-a-aldrinum-16-24-ara | Atvinnuleysi mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára
Á öðrum ársfjórðungi 2010 voru að meðaltali 16.200 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 8,7% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 9,4%
hjá körlum og 8% hjá konum. Frá öðrum ársfjórðungi 2009 til annars ársfjórðungs 2010 fækkaði atvinnulausum um 500
manns. Þegar litið er t... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorka-for-illa-ad-radi-sinu-a-kopavogsvelli | Þór/KA fór illa að ráði sínu á Kópavogsvelli
Titilvonir Þórs/KA dvínuðu verulega í kvöld er liðið tapaði 2:3 gegn liði Breiðabliks á Kópavogsvelli í
Pepsi- deild kvenna í knattspyrnu. Þór/KA hafði leikinn í höndum sér eftir tæplega hálftíma leik en staðan var
þá 2:0 fyrir norðanstúlkur og Blikastúlkur einum manni færri... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/trio-agnars-mas-magnussonar-pianoleikara-i-ketilhusinu | Tríó Agnars Más Magnússonar píanóleikara í Ketilhúsinu
Á Heitum Fimmtudegi nr. 4 á Listasumri 22. júlí n.k. leikur tríó Agnars Más Magnússonar píanóleikara í Ketilhúsinu.
Með honum koma fram þeir Scott McLemore trommari og Andri Ólafsson bassaleikari. Agnar mun flytja efni af nýútkomnum geisladiski sínum Kvika sem hlau... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/larus-orri-gengur-til-lids-vid-skagamenn | Lárus Orri gengur til liðs við Skagamenn
Lárus Orri Sigurðsson er afar óvænt genginn í raðir Skagamanna frá Þór. Þetta staðfesti Þórður
Þórðarson þjálfari ÍA í samtali við Fótbolta.net. Lárus Orri þjálfaði Þór í sumar en hætti
vegna erfiðleika í samskiptum við aðalstjórn félagsins. Hann kom til Þórs árið 2005 og lék 61... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ny-slokkvibifreid-til-slokkvilids-akureyrar | Ný slökkvibifreið til Slökkviliðs Akureyrar
Ný slökkvibifreið Slökkviliðs Akureyrar kom til landsins sl. fimmtudag og norður á laugardag. Bifreiðin er þriggja ára Mercedes Benz Actros, afar
vel með farin og lítur út sem ný, enda einungis verið notuð sem lánsbifreið frá framleiðanda til slökkviliða sem voru að
bíða efti... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/keppt-i-fiskidagskappreidum-thann-5-agust | Keppt í Fiskidagskappreiðum þann 5. ágúst
Fimmtudaginn 5. ágúst nk. kl 17:00 verða haldnar kappreiðar á
Hringsholtsvelli í Svarfaðardal við Dalvík. Þar verður keppt í 100 m skeiði fljúgandi start, 250 m brokk, stökk og skeið úr
startbásum, með rafrænni tímatöku. Vegleg peningaverðlaun verða fyrir þrjú efstu sætin í hve... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sveitamarkadur-i-eyjafjardar-sveit-a-sunnudogum | Sveitamarkaður í Eyjafjarðar- sveit á sunnudögum
Efnt er til Sumardags á sveitamarkaði í Eyjafjarðarsveit í fimmta sinn nú í sumar. Markaðurinn er á torgi Gömlu
Garðyrkjustöðvarinnar við Hrafnagil og þar er boðinn til sölu fjölbreyttur varningur sem bæði gleður munn og maga svo sem brauð og bökur,
sultur og saftir auk ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorka-saekir-breidablik-heim-i-kvold | Þór/KA sækir Breiðablik heim í kvöld
Þór/KA sækir Breiðablik heim í kvöld á Kópavogsvöllinn í Pepsi- deild kvenna í knattspyrnu og
hefst leikurinn kl. 19:15. Þór/KA þarf nauðsynlega á sigri að halda í leiknum til þess að halda í við topplið Vals.
Breiðablik er í þriðja sæti deildarinnar með 20 stig, tveimur stigum minn... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-og-ka-maetast-a-thorsvelli-i-kvold-i-2-flokki-karla | Þór og KA mætast á Þórsvelli í kvöld í 2. flokki karla
Þór og KA mætast á Þórsvelli í kvöld kl. 20:00 á Íslandsmótinu í 2. flokki karla í knattspyrnu.
Aðeins munar einu stigi á liðunum í deildinni, KA hefur 10 stig í áttunda sæti en Þór níu stig í níunda
sæti. |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjoldi-folks-i-hrisey-og-a-midaldadogum-ad-gasum | Fjöldi fólks í Hrísey og á Miðaldadögum að Gásum
Fjöldi fólks kom í Hrísey um helgina þegar Fjölskyldu- og skeljahátíðin fór þar fram. Dagskráin var þétt
skipuð og fjölbreytt og áttu gestir, sem voru á öllum aldri, auðvelt með að finna eitthvað við sitt hæfi. Þá hefur fjöldi
fólks einnig komið á árlega Miðaldadaga á Gá... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leidsogn-um-ljosmyndasyningu-minjasafnins-a-sunnudag | Leiðsögn um ljósmyndasýningu Minjasafnins á sunnudag
Hefur þu séð eina fyrstu íslensku paparazzi myndina? Hefur þú séð mynd af fyrstu konunni sem kaus á Íslandi ? Viltu kynnast
ljósmyndurnum Tryggva Gunnarssyni, Önnu Schöth, Vigfúsi Sigurgeirssyni og Tryggva Gunnarssyni ásamt fleirum? Nú er tækifærið
því sunnudaginn 25... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/landslidskonur-styra-aefingum-hja-yngri-flokkum-a-akureyri | Landsliðskonur stýra æfingum hjá yngri flokkum á Akureyri
Landsliðskonurnar Katrín Ómarsdóttir og Þóra B. Helgadóttir munu heimsækja nokkur bæjarfélög á norðaustur- og
austurlandi dagana 20.-23. júlí og stýra þar æfingum fyrir ungar knattspyrnustelpur.
Þóra hefur undanfarin ár skipað sér sess sem einn fremsti markvörðu... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/engar-nidurstodur-um-orsakir-leka-i-stuku-a-thorsvellinum | Engar niðurstöður um orsakir leka í stúku á Þórsvellinum
Hugsanlegar orsakir þess að leka hefur orðið vart í nýrri stúku á Þórsvellinum eru þær að hún hafi ekki verið
nægilega járnabundin. Skýrsla Verkís hf um lekann í stúkunni var lögð fram á fundi stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar
nýverið.
Oddur Helgi Halldórsson for... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kolbeinn-hodur-vann-fjorfalt-a-mi-i-frjalsum-ithrottum | Kolbeinn Höður vann fjórfalt á MÍ í frjálsum íþróttum
UFA og UMSE unnu til fjölda Íslandsmeistaratitla á Meistaramóti Íslands 15- 22 ára í frjálsum íþróttum,
sem haldið var í Kaplakrika í Hafnarfirði sl. helgi. Hátt í 200 keppendur frá 16 félögum tóku þátt á
mótinu.
UFA vann til alls ellefu Íslandsmeistaratitla og vann... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hugin-lagdi-dalvikreyni-ad-velli | Hugin lagði Dalvík/Reyni að velli
Dalvík/Reynir tapaði sínum fyrsta leik í sumar í D- riðli 3. deildar karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu, er liðið
lá gegn Hugin 4:5 á Seyðisfjarðarvelli sl. laugardag. Jack Hands skoraði tvívegis fyrir Hugin í leiknum og þeir Egill Þorsteinsson,
Birgir Hákon Jóhannsson og Friðjón Gunn... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thad-eru-morg-spennandi-verkefni-framundan | Það eru mörg spennandi verkefni framundan
Jón Hrói Finnsson hefur verið ráðinn sveitarstjóri í Svalbarðsstrandarhreppi. Hann var valinn úr stórum hópi umsækjenda og
kemur til starfa innan tíðar. „Mér líst mjög vel á þetta nýja starf, það eru mörg spennandi verkefni framundan," segir
Jón Hrói. Fyrst í stað segir hann að... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ellen-og-thorsteinn-a-sumar-tonleikum-i-akureyrarkirkju | Ellen og Þorsteinn á sumar- tónleikum í Akureyrarkirkju
Sumartónleikaröðin í Akureyrarkirkju heldur áfram í dag, sunnudaginn 18. júlí kl. 17.00, en nú er það hin ástsæla
söngkona Ellen Kristjánsdóttir sem kemur fram ásamt Þorsteini Einarssyni gítarleikara. Á efnisskránni er hugljúf tónlist sem Ellen
er þekkt fyrir að f... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bjorgvin-for-holu-i-hoggi-annan-daginn-i-rod-a-jadarsvelli | Björgvin fór holu í höggi annan daginn í röð á Jaðarsvelli.
Kylfingurinn Björgvin Þorsteinsson, margfaldur Íslandsmeistari í golfi, gerir það ekki endasleppt á Jaðarsvellinum á Akureyri. Björgvin
fór holu í höggi í 9. sinn á ferlinum í gærmorgun og í dag gerði hann sér lítið fyrir og fór aftur holu í
höggi og nú í 10. ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-vard-af-mikilvaegum-stigum-i-toppbarattunni-ka-ur-fallsaeti | Þór varð af mikilvægum stigum í toppbaráttunni- KA úr fallsæti
Þórsarar urðu af mikilvægum stigum í toppbaráttu 1. deildar karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu í dag, er liðið
tapaði 0:2 gegn Fjölni á Fjölnisvelli. Það var Aron Jóhannsson sem skoraði bæði mörk Fjölnis í leiknum. Á sama tíma
vann KA mikilvægan 3:0 sigur ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjoldi-gesta-komid-i-vaglaskog-thad-sem-af-er-sumri | Fjöldi gesta komið í Vaglaskóg það sem af er sumri
Töluverður fjöldi gesta hefur komið í Vaglaskóg það sem af er sumri. Sigurður Skúlason skógarvörður segir að fjöldinn
sé svipaður og undanfarin ár. Um 3.800 gistinætur voru í júní síðastliðnum og er það svipaður fjöldi og á sama
tíma í fyrra. Veðrið var einstaklega got... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hart-barist-a-toppi-og-botni-1-deildar-karla-i-knattspyrnu | Hart barist á toppi og botni 1. deildar karla í knattspyrnu
Fjórir leikir fara fram í 1. deild karla í knattspyrnu í dag og verða bæði Akureyrarliðin KA og Þór í eldlínunni. Staða
liðanna er þó mjög mismunandi, þar sem Þórsarar eru í toppbaráttu en KA-menn í fallbaráttu. Mótið er aðeins
hálfnað og það á margt eftir að ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stefnt-ad-thvi-ad-setja-upp-nyja-barnalyftu-i-hlidarfjalli | Stefnt að því að setja upp nýja barnalyftu í Hlíðarfjalli
Fyrirhugað er að ráðast í framkvæmdir í Hlíðarfjalli í haust þar sem stefnt er að því að bæta við annarri
barnalyftu, ásamt því að bæta nestisaðstöðu fyrir skíðafólk. „Við stefnum að því að setja upp barnalyftu
sunnan við núverandi Hólabraut. Við teljum að þegar... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bjorgvin-for-holu-i-hoggi-i-9-sinn | Björgvin fór holu í höggi í 9. sinn
Kylfingurinn Björgvin Þorsteinsson, margfaldur Íslandsmeistari í golfi, fór holu í höggi í 9. sinn á ferlinum á golfvelli
Golfklúbbs Akureyrar að Jaðri í morgun. Björgvin náði þessu draumahöggi á 11. holu með 9 járni og var boltafarið 1,5 metra
frá holu. |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sigurdur-bjarnason-formadur-fyrsta-hverfisrads-grimseyjar | Sigurður Bjarnason formaður fyrsta hverfisráðs Grímseyjar
Almennur íbúafundur var haldinn í Grímsey sl. þriðjudag. Á fundinum lét samráðsnefndin af störfum og gáfu nefndarmenn ekki
kost á sér til áframhaldandi setu. Voru þeim þökkuð góð störf í þágu Grímseyjar og ekki síst Garðari
Ólasyni, fráfarandi formanni. Í kjölfa... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aflamark-i-thorski-verdur-160-thusund-tonn-a-naesta-fiskveidiari | Aflamark í þorski verður 160 þúsund tonn á næsta fiskveiðiári
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð um leyfilegan heildarafla fiskveiðiárið 2010/11, sem
hefst 1. september nk. Aflamark í þorski verður 160 þúsund tonn, 50 þúsund tonn í ýsu og ufsa, 13 þúsund tonn í
grálúðu og 12... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hestapestin-ad-ganga-yfir | Hestapestin að ganga yfir
Hestapestin sem leikið hefur íslenska hrossastofninn grátt undanfarna mánuði virðist vera gengin yfir hjá stórum hluta hesta á Akureyri og
Eyjafjarðarsvæðinu að sögn Elfu Ágústsdóttur dýralæknis á Akureyri. Hún segir að nú vænti menn þess
að ná því sem eftir lifir sumars, eða í það minnsta ágú... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/berglind-ekki-alvarlega-meidd | Berglind ekki alvarlega meidd
Berglind Magnúsdóttir markvörður Þórs/KA, sem lenti í miklu samstuði við leikmann Grindavíkur í leik liðanna
í gær á Þórsvellinum í Pepsi- deild kvenna, mun ekki vera alvarlega meidd. Í fyrstu var óttast að hún væri
kjálkabrotin en niðurstöður röntgenmyndatöku í dag leiddu í ljós að svo va... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vilja-ad-skipud-verdi-nefnd-i-atvinnumalum-sem-heyri-beint-undir-baejarrad | Vilja að skipuð verði nefnd í atvinnumálum sem heyri beint undir bæjarráð
"Kosningaloforð L-listans var að endurvekja Atvinnumálanefnd og endurskilgreina hlutverk Akureyrarstofu, því vekur það furðu okkar að málaflokknum
skuli nú stefnt í vinnuhóp sem heyrir undir Akureyrarstofu með óljós markmið og stefnu," segir í sa... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyrararmot-ufa-i-frjalsum-haldid-um-adra-helgi | Akureyrararmót UFA í frjálsum haldið um aðra helgi
Akureyrarmót UFA verður haldið helgina 24.- 25. júlí næstkomandi á Þórsvelli. Um stigakeppni verður að ræða og
verða veittir bikarar fyrir stigahæsta félag í hverjum aldursflokki og einnig stigahæsta félag mótsins.
Þá fá allir keppendur þátttökuverðlaun og einnig verða... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eldur-i-togara-i-hafnarfjardarhofn-i-eigu-dotturfelags-samherja | Eldur í togara í Hafnarfjarðarhöfn í eigu dótturfélags Samherja
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út eftir hádegi í Hafnarfjarðarhöfn, eftir að eldur kviknaði í
vélarrúmi þýska frystitogarans Kiel í höfninni. Reyk lagði frá togaranum og voru allar stöðvar sendar á vettvang. Reykkafarar
fóru um borð en staðfest... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skemmdarverk-unnin-a-golfvellinum-a-akureyri | Skemmdarverk unnin á golfvellinum á Akureyri
Skemmdaverk voru unnin á tækjum við vélarskemmu á golfvellinum að Jaðri á Akureyri í nótt. Einnig var spólað og spænt
á nýrri flöt en tjónið hleypur á hundruðum þúsunda, segir Steindór Ragnarsson, vallarstjóri.
Skemmdarvargarnir keyrðu svo um svæðið og unnu skemmdarverk á ný... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hin-arlega-fjolskyldu-og-skeljahatid-i-hrisey-um-helgina | Hin árlega fjölskyldu- og skeljahátíð í Hrísey um helgina
Um helgina verður mikið um að vera í Hrísey, þegar fjölskyldu- og skeljahátíðin fer þar fram. Dagskráin, sem stendur frá
föstudegi og fram á sunnudag, er afar fjölbreytt og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Eyjabúðin, GalleríPerla og
veitingahúsið Brek... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hilmar-sigurjonsson-fyrirlidi-ka-i-blaki-hugsanlega-a-forum-fra-felaginu | Hilmar Sigurjónsson fyrirliði KA í blaki hugsanlega á förum frá félaginu
Svo gæti farið að Hilmar Sigurjónsson blakmaðurinn sterki frá KA yfirgefi félagið í haust og leiki með Stjörnunni næsta
tímabil. Hilmar var lykilmaður hjá KA sem vann þrefalt í vor og ljóst að missirinn yrði mikill fyrir norðanmenn fari svo Hilmar... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ovist-hversu-alvarleg-meidsli-berglindar-eru | Óvíst hversu alvarleg meiðsli Berglindar eru
Berglind Magnúsdóttir, markvörður Þórs/KA, var borin af leikvelli í gær á sjúkrabörum eftir harkalegt samstuð við
leikmann Grindavíkur, í leik liðanna í Pepsi-deildinni á Þórsvellinum í gærkvöld. Atvikið átti sér stað á
lokasekúndum fyrri hálfleiks. Fyrirgjöf kom þá fyrir ma... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-a-toppinn-eftir-jafntefli-gegn-fjardabyggd | Þór á toppinn eftir jafntefli gegn Fjarðabyggð
Þór er komið á toppinn í 1. deild karla í knattspyrnu eftir 1:1 jafntefli gegn Fjarðabyggð á Eskifjarðarvelli í kvöld.
Þór hefur nú 22 stig í deildinni, jafnmörg stig og Leiknir R. og Víkingur R. en betra markahlutfall. Það var Ármann Pétur Ævarsson
sem skoraði mark Þórs í... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorka-vann-oruggan-sigur-a-grindavik-a-thorsvellinum | Þór/KA vann öruggan sigur á Grindavík á Þórsvellinum
Þór/KA vann öruggan 5:0 sigur í kvöld á liði Grindavíkur er liðin mættust á Þórsvelli í Pepsi- deild kvenna
í knattspyrnu. Þar með minnkaði Þór/KA forystu Vals niður í fjögur stig, en norðanstúlkur virðast ætla að vera
þær einu sem ætla að veita Valsstúlkum einhverja... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tunthokusala-kristins-baud-laegst-i-vetrarthjonustu-i-eyjafirdi | Túnþökusala Kristins bauð lægst í vetrarþjónustu í Eyjafirði
Túnþökusala Kristins ehf. á Akureyri átti lægsta tilboð í verkið: Vetrarþjónusta 2010 - 2013, Eyjafjörður að vestan, en
þar m.a. um að ræða snjómokstur, hálkuvarnir og færðargreiningu. Tilboðin voru opnuð hjá Vegagerðinni í gær en alls sendu
átta aðilar tilbo... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jazztonleikar-i-ketilhusinu-a-heitum-fimmtudegi | Jazztónleikar í Ketilhúsinu á Heitum fimmtudegi
Á Heitum Fimmtudegi nr. 3 á Listasumri, þann 15. júlí, verða einstakir tónleikar í boði í Ketilhúsinu á Akureyri kl.
21.30. Þá flytja margrómaðir jazztónlistarmenn, þau Egill Ólafsson (söngur), Ragnheiður Gröndal (söngur), Kjartan Valdimarsson
(píanó), Sigurður Flosason (... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sveinn-elias-og-funicello-i-bann | Sveinn Elías og Funicello í bann
Þeir Sveinn Elías Jónsson og Guiseppe P. Funicello leikmenn 1. deildar liðs Þórs í knattspyrnu, hafa verið
úrskurðaðir í eins leiks keppnisbann af Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ. Þeir félagar verða engu að síður með Þór
í útileiknum gegn Fjarðabyggð í kvöld, þar sem bannið tekur ekki gildi ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stal-slattutraktor-og-ytti-honum-ofan-i-tjorn | Stal sláttutraktor og ýtti honum ofan í tjörn
Maður var dæmdur í átta mánaða fangelsi, þar af sex mánuði skilorðsbundið, í Héraðsdómi Norðurlands eystra
í síðustu viku fyrir margvísleg hegningarlagabrot sl. haust. Maðurinn braust m.a. inn í geymsluskemmu við tjaldstæðið að Hömrum í
september sl. og tók þaðan í heimilda... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hlynur-og-jona-hlif-syna-saman-herlendis-og-erlendis | Hlynur og Jóna Hlíf sýna saman hérlendis og erlendis
Hlynur Hallsson og Jóna Hlíf Halldórsdóttir vinna áfram saman að þríleiknum "Áfram með smjörlíkið!" sem fer fram
í Reykjavík, á Djúpavík, og í Berlín í sumar og haust. Þetta er í fyrsta sinn sem þau vinna saman að
sýningaröð en þau eiga að baki víðtæka reynslu af sýn... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leikid-a-thorsvelli-og-akureyrarvelli-i-kvold | Leikið á Þórsvelli og Akureyrarvelli í kvöld
Það verður nóg í boði fyrir knattspyrnuáhugamenn á Akureyri í kvöld þar sem bæði verður leikið á
Þórsvelli og Akureyrarvelli í meistaraflokki. Þór/KA fær Grindavík í heimsókn á Þórsvöll í Pepsi- deild
kvenna og KA tekur á móti ÍA í 1. deild karla. Báðir leikirnir hefjast kl.... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jon-hroi-radinn-sveitarstjori-svalbardsstrandarhrepps | Jón Hrói ráðinn sveitarstjóri Svalbarðsstrandarhrepps
Jón Hrói Finnsson var í dag ráðinn sveitarstjóri í Svalbarðsstrandarhreppi. Hann var valinn úr stórum hópi umsækjenda
og segir Guðmundur Bjarnason oddviti að menn séu ánægðir með að nýr sveitarstjóri sé kominn til starfa í
hreppnum. „Það er gott að þetta er búið og ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/huseignin-ad-thingvallastraeti-23-a-akureyri-til-solu | Húseignin að Þingvallastræti 23 á Akureyri til sölu
Húseignin Þingvallastræti 23 á Akureyri hefur verið auglýst til sölu. Um er að ræða gamla Iðnskólann á Akureyri, ásamt
tilheyrandi leigulóðarréttindum. Húsið er í góðu ásigkomulagi og hefur verið nýtt af Háskólanum á Akureyri sem
skrifstofu- og kennlushúsnæði. Brunabó... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/erlendur-gerdi-gott-mot-a-smathjodaleikunum-i-kypur | Erlendur gerði gott mót á Smáþjóðaleikunum í Kýpur
Erlendur Jóhannesson frá Kraftlyftingafélagi Akureyrar var á meðal keppenda frá Íslandi sem hafnaði í öðru sæti
á Smáþjóðaleikunum í lyftingum, sem haldnir voru í Kýpur sl. helgi.
Erlendur átti gott mót með íslenska liðinu og var sérstaklega verðlaunaður fyrir bestan á... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorka-maetir-val-a-utivelli-i-undanurslitum-bikarkeppninnar | Þór/KA mætir Val á útivelli í undanúrslitum bikarkeppninnar
Þór/KA mætir Val á útivelli í undanúrslitum VISA- bikarkeppni kvenna í knattspyrnu og ÍBV fær heimaleik gegn
Stjörnunni en dregið var í hádeginu í dag í karla- og kvennaflokki í höfuðstöðum KSÍ. Leikið verður í
undanúrslitum kvenna laugardaginn 24. júlí kl. 14... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrsti-fundur-starfshops-um-atvinnumal-a-fimmtudag | Fyrsti fundur starfshóps um atvinnumál á fimmtudag
Fyrsti fundur starfshóps um atvinnumál á Akureyri verður haldinn nk. fimmtudag. L-listinn skipar tvo fulltrúa í starfshópinn og aðrir flokkar einn
fulltrúa en formaður er Geir Kristinn Aðalsteinsson oddviti L-listans og forseti bæjarstjórnar.
Oddur Helgi Halldórsson fo... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mateja-zver-besti-leikmadur-fyrri-umferdar-pepsi-deildarinnar | Mateja Zver besti leikmaður fyrri umferðar Pepsi- deildarinnar
Í morgun var tilkynnt um val á bestu leikmönnum fyrri umferðar Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu en það eru þjálfarar deildarinnar
og RÚV sem standa að kjörinu. Mateja Zver, leikmaður Þórs/KA, var kjörinn besti leikmaðurinn en Mateja hefur farið á kostum m... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/buist-vid-fjolbreyttri-og-liflegri-vestnorden-kaupstefnu-a-akureyri | Búist við fjölbreyttri og líflegri Vestnorden kaupstefnu á Akureyri
Nú eru rétt um tveir mánuðir þar til hin árlega Vestnorden ferðakaupstefnan verður haldin. Íslendingar sjá um framkvæmdina í
ár og má búast við fjölbreyttri og líflegri kaupstefnu. Segja má að Vestnorden 2010 hafi vissa sérstöðu. Bæði fer hún
nú fram í... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gv-grofur-budu-laegst-i-lagningu-hitaveitu-i-eyjafjardarsveit | GV Gröfur buðu lægst í lagningu hitaveitu í Eyjafjarðarsveit
Fyrirtækið GV Gröfur ehf. á Akureyri átti lægsta tilboð í lagningu hitaveitu frá Botni að Grund og Finnastöðum í
Eyjafjarðarsveit en tilboðin voru opnuð á dögunum. Alls tóku fimm fyrirtæki þátt í lokuðu útboði í verkið. GV
Gröfur buðu um 29,7 milljónir króna ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/niu-ara-stulka-fra-akureyri-keppti-a-hm-barna-i-fitness | Níu ára stúlka frá Akureyri keppti á HM barna í fitness
Sesselja Sif Óðinsdóttir, 9 ára fimleikastelpa frá Akureyri, keppti um síðustu helgi á heimsmeistaramóti
barna í fitness. Mótið var haldið í Bratislava í Slóvakíu og þar mættu margar af bestu fimleikastúlkum í heiminum til
leiks. Keppendur voru tæplega eitt hundra... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/efnt-til-fiskidagshlaups-6-agust | Efnt til Fiskidagshlaups 6. ágúst
Í tilefni af 10 ára afmæli Fiskidagsins mikla á Dalvík verður föstudaginn 6. ágúst boðið upp á almenningshlaup sem
skokkhópurinn Eyrarskokk á Akureyri stendur fyrir í samstarfi við Fiskidaginn. Ekkert skráningargjald verður í hlaupið. Í fyrsta lagi verður
boðið upp á að skokka Svarfaða... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjoldi-folks-skodadi-sofn-a-akureyri-a-islenska-safnadaginn | Fjöldi fólks skoðaði söfn á Akureyri á Íslenska Safnadaginn
Íslenski Safnadagurinn var í gær, sunnudag, og af því tilefni var frítt inn á öll söfn Akureyrar. Fjöldi fólks nýtti
tækifærið og skoðaði fjölbreytt söfn bæjarins. Hefðbundin dagskrá var í Davíðshúsi, Nonnahúsi, á Minjasafninu
og Sigurhæðum, en nýjar sýningar ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/reidmadurinn-namskeidsrod-fyrir-ahugafolk-um-reidmennsku | Reiðmaðurinn námskeiðsröð fyrir áhugafólk um reiðmennsku
Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands, í samvinnu við Landssamband hestamannafélaga og Félag hrossabænda, opna nú fyrir
nýja námshópa í áfangaskipt tveggja ára nám í reiðmennsku, hrossarækt og almennu hestahaldi. Námið sem kallast
Reiðmaðurinn má taka með vin... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/magni-lagdi-hugin-ad-velli | Magni lagði Hugin að velli
Magni lagði Huginn að velli, 3:2, er liðin mættust á Seyðisfjarðarvelli í gær á Íslandsmótinu
í D- riðli 3. deildar karla í knattspyrnu. Davíð Jón Stefánsson og Hreggviður Karlsson komu Magna í 2:0 í fyrri hálfleik.
Friðjón Gunnlaugsson minnkaði muninn fyrir Hugann snemma í seinni hálfleik en... |
Subsets and Splits
No community queries yet
The top public SQL queries from the community will appear here once available.