Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.vikubladid.is/is/frettir/arleg-messa-a-thonglabakka-i-thorgeirsfirdi
Árleg messa á Þönglabakka í Þorgeirsfirði Áhugahópur um gönguferðir og helgihald á Þönglabakka í Þorgeirsfirði boðar til messu sunnudaginn 25. júlí kl. 14.00. Þönglabakki er gamall kirkjustaður og örlitlar leifar eru enn sjáanlegar frá síðustu kirkju. Gengið verður frá Tindriðastöðum í Hvalvatnsfirði yfir hálsinn og fa...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vifilfell-bruggar-nyjan-bjor-ur-lifraent-raektudu-hraefni
Vífilfell bruggar nýjan bjór úr lífrænt ræktuðu hráefni Vífilfell hefur hafið framleiðslu á sterkum bjór úr lífrænt ræktuðu hráefni, í verksmiðju sinni á Akureyri. Vífilfell er þar með fyrsta íslenska ölgerðin til að framleiða slíkan bjór, að sögn Unnsteins Jónssonar verksmiðjustjóra. Byrjað var að tappa fyrstu lögunni...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/orvar-og-halla-klubbmeistarar-ga
Örvar og Halla klúbbmeistarar GA Örvar Samúelsson og Halla Berglind Arnarsdóttir sigruðu á Meistaramóti Golfklúbbs Akureyrar sem fram fór á Jaðarsvelli sl. helgi. Alls kepptu 128 manns í tólf flokkum á mótinu. Örvar sigraði í meistaraflokki karla á 293 höggum, í öðru sæti varð Ólafur Gylfason á 307 höggum og Þorvaldur ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/adgerda-thorf-til-laekkunar-a-umferdarhrada-i-skogarlundi
Aðgerða þörf til lækkunar á umferðarhraða í Skógarlundi Á síðasta fundi skipulagsnefndar Akureyrar var fjallað um hraðakstur í Skógarlundi. Í viðtalstíma bæjarfulltrúa fyrir nokkru, var lagður fram undirskriftalisti með 60 nöfnum þar sem skorað var á bæjaryfirvöld að grípa til ráðstafana til að stöðva hraðakstur um Skó...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-skoradi-sex-mork-a-thorsvelli-hrakfarir-ka-halda-afram
Þór skoraði sex mörk á Þórsvelli-Hrakfarir KA halda áfram Tveir leikir fóru fram á Íslandsmótinu í 1. deild karla í knattspyrnu í dag. Á Þórsvelli héldu heimamenn í Þór sigurgöngu sinni áfram er þeir lögðu HK 6:3 að velli. Ármann Pétur Ævarsson og Aleksandar Linta skoruðu tvívegis fyrir Þór í leiknum og Sigurður Marínó...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/unnid-ad-stofnun-felags-um-vadlaheidargong
Unnið að stofnun félags um Vaðlaheiðargöng Kristján Möller ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála segir að viðræður um framkvæmdir í samgöngumálum, með aðkomu lífeyrissjóðanna, séu í fullum gangi, þar á meðal um Vaðlaheiðargöng. Hann segir að í allri þessari vinnu skipti það mestu máli að Alþingi hafi samþykkt lög í...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikilvaegt-ad-skolinn-haldi-sinu-sjalfstaedi-og-sinni-serstodu
Mikilvægt að skólinn haldi sínu sjálfstæði og sinni sérstöðu Háskólinn á Akureyri þarf að skera niður um 8% fyrir næsta ár. Þessi niðurskurður samsvarar 105 milljónum króna eða 15 stöðugildum. Á háskólafundi HA í vikunni var farið yfir hvernig mæta ætti þessum niðurskurði. Stefán B. Sigurðsson, rektor skólans, segir að...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samtok-um-umferdaroryggi-stofnud-a-akureyri-i-haust
Samtök um umferðaröryggi stofnuð á Akureyri í haust „Þetta er umræða sem hefur verið í gangi í nokkur ár í sambandi við eitt og annað en náði hámarki með Bíladögum," segir Þóroddur Bjarnason, sem er í undirbúningsnefnd Samtaka um umferðaröryggi á Akureyri. Nefndin leitar eftir fólki sem lætur sig varða um umferðarörygg...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorka-i-undanurslit-visa-bikarkeppninnar
Þór/KA í undanúrslit VISA- bikarkeppninnar Þór/KA er komið í undanúrslit VISA- bikarkeppni kvenna í knattspyrnu eftir 5:1 sigur gegn FH á Kaplakrikavelli í kvöld. Rakel Hönnudóttir skoraði tvívegis fyrir Þór/KA og þær Mateja Zver, Vesna Smiljkovic og Inga Dís Júlíusdóttir eitt mark hver. Mark FH skoraði Liliana Martins...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/islenski-safnadagurinn-er-a-sunnudag
Íslenski safnadagurinn er á sunnudag Íslenski safnadagurinn er á sunnudaginn og af því tilefni bjóða söfn á Akureyri fólk velkomið á sýningar sínar án endurgjalds. Söfnin sem hér um ræðir eru; Minjasafnið, Nonnahús, Iðnaðarsafnið, Sigurhæðir og Davíðshús. Í Grýtubakkahreppi verður ýmislegt í boði á íslenska safnadaginn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/korlum-hefur-faekkad-a-atvinnu-leysisskra-en-konum-fjolgad
Körlum hefur fækkað á atvinnu- leysisskrá en konum fjölgað Í lok síðasta mánaðar voru 809 manns á atvinnuleysisskrá á Akureyri, sem er mjög svipaður fjöldi og fyrir mánuði. Karlmönnum hefur fækkað en konum fjölgað. Aðeins 124 eru í hlutastarfi sem er veruleg fækkun frá fyrra mánuði. Verkefnið ungt fólk til athafna gekk...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eirikur-bjorn-bjorgvinsson-radinn-baejarstjori-a-akureyri
Eiríkur Björn Björgvinsson ráðinn bæjarstjóri á Akureyri Meirihluti bæjarstjórnar Akureyrar hefur ákveðið að ráða Eirík Björn Björgvinsson sem bæjarstjóra á Akureyri til næstu fjögurra ára. Gengið verður frá formlegum ráðningarsamningi síðar í þessum mánuði og innhald hans kynnt í framhaldi af því. Eiríkur Björn mun he...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/syning-a-leikfangasafni-gudbjargar-i-fridbjarnarhusi
Sýning á leikfangasafni Guðbjargar í Friðbjarnarhúsi Friðbjarnarhús í Innbænum á Akureyri fær nýtt hlutverk næstkomandi sunnudag, á íslenska safnadaginn, en þann dag kl. 14.00 verður opnuð þar sýning á leikfangasafni myndlistakonunnar Guðbjargar Ringsted. Þar verða til sýnis dúkkur af öllum stærðum og gerðum, dúkkuföt,...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/johann-helgi-tryggdi-thor-thrju-stig-a-akureyrarvelli
Jóhann Helgi tryggði Þór þrjú stig á Akureyrarvelli Jóhann Helgi Hannesson var hetja Þórsara í kvöld er hann skoraði bæði mörk liðsins í 2:0 sigri gegn KA á Akureyrarvelli í kvöld í 1. deild karla í knattspyrnu. Jóhann Helgi skoraði bæði mörkin á átta mínútna kafla í seinni hálfleik. Þar með er Þór komið í þriðja sæti ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tidinda-vardandi-radningu-baejarstjora-ad-vaenta-fyrir-helgi
Tíðinda varðandi ráðningu bæjarstjóra að vænta fyrir helgi „Við erum á síðustu metrunum og það dregur væntanlega til tíðinda fyrir helgina," segir Geir Kristinn Aðalsteinsson forseti bæjarstjórnar Akureyrar. Bæjarráð fundaði í morgun um ráðningu nýs bæjarstjóra og segir Geir að hópurinn sé að þrengjast verulega. „Það e...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nytt-fyrirkomulag-sorphirdu-i-gomlu-horgarbyggd
Nýtt fyrirkomulag sorphirðu í gömlu Hörgárbyggð Næstu daga verður tunnum fyrir flokkaðan heimilisúrgang dreift á heimili í þeim hluta sveitarfélagsins Hörgársveitar sem var Hörgárbyggð. Þetta er gert á grundvelli samnings sem gerður var haustið 2009 við Gámaþjónustu Norðurlands ehf. Í fyrstu a.m.k. hefur sameining Hörg...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/konrad-tota-thjalfar-meistaraflokka-thors
Konrad Tota þjálfar meistaraflokka Þórs Körfuknattleiksdeild Þórs gekk í gær frá ráðningu Konrads Tota sem þjálfara beggja meistaraflokka Þórs í körfuknattleik auk þess sem hann mun leika með karlaliðinu. Sigurður Grétar Sigurðsson verður aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla. Þá mun Ólafur Torfason snúa á heimaslóðir ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/yfir-30-umsoknir-um-stodu-sveitarstjora-i-svalbardsstrandarhreppi
Yfir 30 umsóknir um stöðu sveitarstjóra í Svalbarðsstrandarhreppi Alls bárust 38 umsóknir um stöðu sveitarstjóra í Svalbarðsstrandarhreppi en frestur til að sækja um stöðuna rann út nú nýverið. Nokkrir drógu umsókn sína til baka m.a. vegna nafnbirtingar og af öðrum ástæðum að sögn Guðmundar Bjarnasonar oddvita Svalbarð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/orrustan-um-akureyri-i-kvold
Orrustan um Akureyri í kvöld KA og Þór mætast í nágrannaslag í kvöld á Akureyrarvelli kl. 19:00 á Íslandsmótinu í 1. deild karla í knattspyrnu. Staða liðanna í deildinni er ólík. Þór er á góðri siglingu og hefur 15 stig í fjórða sæti deildarinnar og getur með sigri í kvöld komið sér í 18 stig í þriðja sæti deildarinnar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thyskur-konsertorganisti-a-sumartonleikum-i-akureyrarkirkju
Þýskur konsertorganisti á sumartónleikum í Akureyrarkirkju Það er þýski konsertorganistinn Ulrike Northoff sem kemur fram á öðrum tónleikunum í tónleikaröðinni Sumartónleikar í Akureyrarkirkju, sunnudaginn 11. júlí kl. 17.00. Á efnisskránni eru verk eftir Buxtehude, Bach, Gustav Merkel, Gigout og Dubois. Ulrike Northof...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gv-grofur-budu-laegst-i-framkvaemdir-i-thingvallastraeti
G.V. Gröfur buðu lægst í framkvæmdir í Þingvallastræti Fyrirtækið G.V. Gröfur ehf. átti lægsta tilboð í framkvæmdir við áfanga 1 í Þingvallastræti á Akureyri en tilboðin voru opnuð í morgun. Fyrirtækið bauð rúmar 26,8 milljónir króna, eða 86,6% af kostnaðaráætlun en alls sendu fjögur fyrirtæki tilboð í verkið. Finnur e...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stormot-i-frjalsithrottum-haldid-a-akureyri
Stórmót í frjálsíþróttum haldið á Akureyri Norðurlandamót unglinga í frjálsíþróttum, undir 20 ára, verður haldið á Þórsvelli á Akureyri, dagana 28.-29. ágúst næstkomandi. Von er á rúmlega 200 efnilegustu frjálsíþróttamönnum Norðurlandanna sem munu etja kappi í hinum ýmsu greinum frjálsíþróttanna. Þá verður einnig keppt...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gudmundur-freyr-sigradi-a-innanfelagsmoti-ga
Guðmundur Freyr sigraði á innanfélagsmóti GA Innanfélagsmót Golfklúbbs Akureyrar í boði Nettó voru haldin á Jaðarsvelli á dögunum. Í flokki fullorðna sigraði Guðmundur Freyr Aðalsteinsson með 41 punkt, Vigfús Ingi Hauksson og Björn Auðunn Ólafsson voru jafnir í öðru og þriðja sæti með 39 punkta og Eymundur Lútersson va...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/redist-a-starfsmann-fjolskyldu-deildar-akureyrarbaejar
Réðist á starfsmann fjölskyldu- deildar Akureyrarbæjar Kona var dæmd í skilorðsbundið fangelsi til tveggja ára í Héraðsdómi Norðurlands eystra í síðustu viku fyrir að ráðast á starfsmann fjölskyldudeildar Akureyrarbæjar og hóta honum lífláti. Atburðurinn átti sér stað á bifreiðastæði við Rósenborg fimmtudaginn 14. janú...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/david-disztl-i-eins-leiks-bann
David Disztl í eins leiks bann David Disztl, leikmaður 1. deildarliðs KA, hefur verið dæmdur í eins leiks keppnisbann af Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ. Disztl mun þó ekki missa af nágrannaslagnum gegn Þór á fimmtudaginn kemur, þar sem bannið tekur gildi á hádegi á föstudag. Þess í stað missir Disztl af útileik KA gegn Vík...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rakel-med-thrennu-og-thorka-i-annad-saetid
Rakel með þrennu og Þór/KA í annað sætið Þór/KA lagði Aftureldingu að velli 4:0 er liðin áttust við á Þórsvelli í kvöld á Íslandsmótinu í Pepsi- deild kvenna í knattspyrnu. Rakel Hönnudóttir skoraði þrennu fyrir Þór/KA í leiknum og Mateja Zver eitt mark. Með sigrinum er Þór/KA komið með 19 stig í öðru sæti deildarinnar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bydur-upp-a-frian-utreikning-vegna-gengistryggdra-lana
Býður upp á frían útreikning vegna gengistryggðra lána Fyrirtækið Sparnaður ehf. á Akureyri hefur ákveðið að bjóða öllum einstaklingum upp á útreikning að kostnaðarlausu sem sýna hvaða áhrif Hæstaréttardómur hefur á gengistryggða lánasamninga, sem og þau tilmæli sem FME og Seðalbanki Íslands hafa sent frá sér. Fyrirtæk...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hljomsveitin-park-projekt-a-heitum-fimmtudegi-i-deiglunni
Hljómsveitin Park Projekt á Heitum fimmtudegi í Deiglunni Hljómsveitin Park Projekt leikur á Heitum fimmtudegi á Listasumri á Akureyri í Deiglunni 8. júlí kl. 21.30. Hrund Ósk Árnadóttir syngur með hljómsveitinni. Park Projekt hefur á síðustu árum vakið mikla athygli með frískum flutningi á grípandi jazzi. Park Projekt...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/heldur-faerri-brottfarir-erlenda-gesta-um-leifsstod
Heldur færri brottfarir erlenda gesta um Leifsstöð Brottfarir erlendra gesta um Leifsstöð í júní voru 53.500, eitt þúsund færri en í júní á síðasta ári. Fækkunin nemur tveimur prósentum milli ára. Frá áramótum hafa 170.400 erlendir gestir farið frá landinu, 8.500 færri en árinu áður, fækkunin nemur tæpum fimm prósentum...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kfc-stadur-og-bensinstod-i-hafnarstraeti
KFC staður og bensínstöð í Hafnarstræti? Bæjarstjórn hefur samþykkt að senda í auglýsingu skipulag í suðurhluta miðbæjarins þar sem setja á upp bensínstöð (Hafnarstræti 80) og nýja skyndibitastað fyrir Kentucky Fried Chicken, KFC (Hafnarstræti 78) með bílalúgu. Þetta hefur í för með sér talsverða breytingu á svæðinu en...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/pollamot-thors-ad-nordan
Pollamót Þórs - Að norðan Hér að neðan má sjá þáttinn "AÐ norðan" sem er af sjónvarpsstöðinni N4 en hann fjallar um Pollamót Þórs sem fram fór um helgina. Smella hér til að horfa
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorka-faer-aftureldingu-i-heimsokn-i-kvold
Þór/KA fær Aftureldingu í heimsókn í kvöld Þór/KA fær Aftureldingu í heimsókn á Þórsvöll í kvöld kl. 18:30 þegar heil umferð fer fram á Íslandsmótinu í Pepsi- deild kvenna í knattspyrnu. Þór/KA situr í þriðja sæti deildarinnar með 16 stig en Afturelding hefur 13 stig í fimmta sætinu. Toppliðin tvö, Breiðablik og Valur ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/malbikun-k-m-atti-laegsta-tilbod-i-malbikun-a-akureyri
Malbikun K-M átti lægsta tilboð í malbikun á Akureyri Fyrirtækið Malbikun K-M ehf. á Akureyri átti lægra tilboðið í verkið; yfirlagnir með malbiki á Akureyri en tilboðin voru opnuð hjá Vegagerðinni nýlega. Fyrirtækið bauð rúmlega 31,6 milljónir króna í verkið, eða 101,9% af kostnaðaráætlun. Malbikunarstöðin Hlaðbær-Col...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gudmundur-radinn-sveitarstjori-horgarsveitar
Guðmundur ráðinn sveitarstjóri Hörgársveitar Á fundi sveitarstjórnar Hörgársveitar 30. júní sl. var Guðmundur Sigvaldason ráðinn sveitarstjóri í Hörgársveit á nýbyrjuðu kjörtímabili. Hann varð sveitarstjóri í Hörgárbyggð á síðasta kjörtímabili. Þá var hann sveitarstjóri á Stokkseyri og Skagaströnd á árunum 1983-1990.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/barattan-vid-skogarkerfil-heldur-afram-i-eyjafjardarsveit
Baráttan við skógarkerfil heldur áfram í Eyjafjarðarsveit Í Eyjafjarðarsveit eru menn á þriðja ári átaksverkefnis við eyðingu skógarkerfils í sveitinni. Reynslan hefur sýnt að til að vinna bug á kerflinum þurfi að aleitra þannig að annar gróður drepst á því svæði sem eitrað er. Með þeim hætti deyr kerfillinn, en fræin ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/island-faer-timabundna-undanthagu-fra-reglum-um-aksturs-og-hvildartima-atvinnubilstjora
Ísland fær tímabundna undanþágu frá reglum um aksturs- og hvíldartíma atvinnubílstjóra Yfirstjórn ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA, hefur samþykkt undanþágur fyrir Ísland frá nokkrum ákvæðum reglna um aksturs- og hvíldartíma atvinnubílstjóra í farmflutningum. Undanþágurnar gilda tímabundið frá 30. október 2010 til 15. aprí...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jafnrettisstofa-lysir-yfir-anaegju-med-skipan-i-nefndir-baejarins
Jafnréttisstofa lýsir yfir ánægju með skipan í nefndir bæjarins Á síðasta fundi bæjarráðs var lagt fram bréf frá Jafnréttisstofu þar sem nýkjörinni bæjarstjórn Akureyrarbæjar er óskað til hamingju með það að hafa skipað konur og karla í nefndir á vegum bæjarins í samræmi við jafnréttislög. Jafnframt hvetur Jafnréttisst...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aevar-thor-les-upp-ur-bok-sinni-a-amtsbokasafninu
Ævar Þór les upp úr bók sinni á Amtsbókasafninu Stórkostlegt líf herra Rósar og fleiri sögur af ótrúlega venjulegu fólki, er smásagnasafn um venjulegt fólk í óvenjulegum aðstæðum og óvenjulegt fólk í venjulegum aðstæðum. Höfundurinn er Ævar Þór Benediktsson og les hann upp úr bók sinni á Amtsbókasafninu á Akureyri á mo...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gonguvika-stendur-yfir-a-akureyri-og-i-eyjafirdi
Gönguvika stendur yfir á Akureyri og í Eyjafirði Um helgina hófst vikulöng dagskrá á Akureyri og í Eyjafirði þar sem göngur af ýmsum toga og erfiðleikastigum eru í aðalhlutverki. Gönguvikan er samvinnuverkefni Akureyrarstofu, Naturalis, Ferðafélags Akureyrar, Glerárdalshringsins 24X24 og Ferðamálafélags Hríseyjar. Dags...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/frjalsithrottaskoli-umfi-haldinn-a-akureyri
Frjálsíþróttaskóli UMFÍ haldinn á Akureyri Dagana 12-16. júlí nk. verður Frjálsíþróttaskóli UMFÍ haldinn á Akureyri en UFA og UMSE sjá um skólann. Frjálsíþróttaskóli UMFÍ er ætlaður ungmennum á aldrinum 11–18 ára. Ungmennin koma saman á hádegi á mánudegi en skólanum lýkur á hádegi á föstudegi í sömu viku. Aðaláhersla e...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ifc-pollamotsmeistari-2010
IFC Pollamótsmeistari 2010 IFC er Pollamótsmeistari 2010 en Pollamót Þórs og Icelandair var haldið í 22. sinn á Þórsvelli sl. helgi. Í Lávarðadeild var það Víkingur sem sigraði, Fylkir sigraði í Öðlingadeild, Valur vann í Skvísudeild og KR sigraði í Ljónynjudeild. Nánar verður fjallað um mótið í Vikudegi nk. fimmtudag.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stefan-og-jon-orn-sigrudu-sinn-flokk-i-egilsstadatorfaerunni
Stefán og Jón Örn sigruðu sinn flokk í Egilsstaðatorfærunni Keppendur frá Bílaklúbbi Akureyrar voru allt í öllu á Egilsstaðartorfærunni sem fram fór sl. helgi. Keppt var í flokki götubíla og í sérútbúnum flokki og höfnuðu keppendur BA í þremur efstu sætunum í báðum flokkum. Í flokki götubíla sigraði Stefán Bjarnhéðinss...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hvanndalsbraedur-med-nytt-lag
Hvanndalsbræður með nýtt lag Hvanndalsbræður hafa sent frá sér nýjan singul af lagi sem heitir “Besservisser “ á allar útvarpsstöðvar en hljómsveitin hefur farið hamförum með lögin Gleði og glens, Fjólu og Vinsæll á þessu ári. Lögin Lala og vinkona hafa einnig ómað mikið. Ráðist verður í gerð myndbands við lagið og er ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vaetusamt-en-nokkud-fridsaelt
Vætusamt en nokkuð friðsælt Nokkur ölvun var í bænum í nótt og gistu fáeinir fangageymslur lögreglu vegna ölvunar, en heilt yfir fór skemmtanahald vel fram. Þúsundir gesta eru nú á Akureyri vegna knattspyrnumótanna sem verið hafa hér og hefur framferði þeirra yfirleitt verið til mikillar fyrirmyndar. Svo virðist sem ge...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kammerkor-akraness-a-sumartonleikum
Kammerkór Akraness á sumartónleikum Sumartónleikar í Akureyrarkirkju verða haldnir í júlímánuði og er þetta í 24. skipti sem tónleikaröðin fer fram. Tónleikarnir skipa mikilvægan sess í menningarlífi Akureyrar og hefst tónleikaröðin að þessu sinni með tónleikum Kammerkórs Akraness undir stjórn Sveins Arnars Sæmundssona...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skrifad-undir-med-styrktaradilum-og-bjarna-fritzsyni
Skrifað undir með styrktaraðilum og Bjarna Fritzsyni Akureyri Handboltafélag hefur skrifað undir samninga við aðalstyrktaraðila sína á næsta ári, en það eru Norðlenska, Sportver-Hummel, og Vífilfell. Samhliða var skrifað undir samning við Bjarna Fritzson sem mun spila með Akureyri næsta vetur. Undirskrift samninganna f...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mannmergd-i-baenum-allt-gengur-afallalaust
Mannmergð í bænum - allt gengur áfallalaust “Það er búið að vera mjög mikið að gera og alveg sérstaklega skemmtilegt,” segir Gréta Björnsdóttir veitingamaður á Bláu könnunni þegar Vikudagur náði tal af henni síðdegis. Umtalsverður mannfjöldi var í miðbænum og naut þess að þrátt fyrir vota veðurspá hefur hann að mestu h...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vilhelm-vann-threnn-verdlaun-a-opna-thyska
Vilhelm vann þrenn verðlaun á Opna þýska Vilhelm Hafþórsson sundkappi frá Sundfélaginu Óðni, stóð sig með miklum sóma á Opna þýska meistaramótinu í sundi sem fram fór á dögunum, en þangað fór hann með landsliði Íþróttasambands fatlaðra. Vilhelm vann til þriggja verðlauna á mótinu. Hann sigraði í 200 m skriðsundi og var...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baejarrad-lysir-yfir-vonbrigdum-med-tillogu-gegn-styttingu-hringvegarins
Bæjarráð lýsir yfir vonbrigðum með tillögu gegn styttingu hringvegarins „Þetta er mikið hagsmunamál fyrir okkur bæjarbúa á Akureyri sem eru að fara þarna um og ef þú skreppur til þess að heimsækja ættingja eða vini í Reykjavík að þá munar þetta 28 kílómetrum,” segir Oddur Helgi Halldórsson formaður bæjarráðs Akureyrar....
https://www.vikubladid.is/is/frettir/pollamotid-hafid-a-thorsvelli
Pollamótið hafið á Þórsvelli Pollamót Þórs og Icelandair hófst á Þórsvelli kl. 8:00 í morgun og er nú haldið í 22. sinn. Að þessu sinni eru 63 lið skráði til leiks þ.e. þrjár deildir hjá körlunum, Pollar, Lávarðar og Öðlingar, samtals 48 lið. Hjá konunum er leikið í tveimur deildum þ.e. Skvísur og Ljónynjur samtals 15 ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tom-gledi-og-gestirnir-til-fyrirmyndar
Tóm gleði og gestirnir til fyrirmyndar „Það gengur framúrskarandi vel og krakkarnir og aðrir gestir eru til fyrirmyndar,” sagði Gunnar Níelson í mótsstjórn N1- mótsins í samtali við Vikudag í morgun. N1- mótið er í fullum gangi á KA- svæðinu og þrátt fyrir að sólin hafi verið í felum og rigningin ráðið ríkjum hafa vall...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/junimanudur-sa-sjoundi-hlyjasti-fra-upphafi-maelinga
Júnímánuður sá sjöundi hlýjasti frá upphafi mælinga Nýliðinn júní hefur verið einn sá hlýjasti frá upphafi mælinga víðast hvar um landið. Meðalhitinn á Akureyri í mánuðinum var 11,2 gráður og er það 2,1 stig yfir meðaltali. Þetta mun vera sjöundi hlýjasti júnímánuður á Akureyri síðan mælingar hófust haustið 1881. Sólar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fh-skaut-ka-ur-keppni
FH skaut KA úr keppni Íslandsmeistararnir í FH unnu öruggan 3:0 sigur gegn KA á Kaplakrikavelli í kvöld, er liðin áttust við í 8- liða úrslitum VISA- bikarkeppni karla í knattspyrnu. Ólafur Páll Snorrason skoraði tvívegis fyrir FH og Matthías Vilhjálmsson skoraði eitt mark. Þar með eru FH- ingar komnir í undanúrslit ke...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/munnharpa-davids-komin-i-leitirnar
Munnharpa Davíðs komin í leitirnar Alltaf er gaman þegar fágætir munir rata aftur til síns heima eftir að hafa verið lengi á flakki og jafnvel verið taldir glataðir. Það sannaðist í gær þegar Jón B. Guðlaugsson kom færandi hendi í Davíðshús á Akureyri, heimili skáldsins Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi. Jón hafði í f...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bid-eftir-baejarstjora
Bið eftir bæjarstjóra Meirihluti bæjarstjórnar á Akureyri hefur enn ekki gengið frá ráðningu nýs bæjarstjóra en stefnt hafði verið að því að ljúka málinu fyrir mánaðarmót. “Skýringin á því er sú að við héldum að þetta væri enga stund gert og tæki í mesta lagi viku. Fjöldi umsækjenda og mannvalið hefur hins vegar gert þ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kem-til-thess-ad-berjast-um-titla
„Kem til þess að berjast um titla" „Þetta leggst bara dúndrandi vel í mig og verður vonandi afskaplega skemmtilegt,” segir Bjarni Fritzson handboltakappi í samtali við Vikudag, sem á morgun mun skrifa undir eins árs samning við Akureyri Handboltafélag og leika með liðinu næstu leiktíð. Bjarni spilaði með FH á síðasta t...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/lif-og-fjor-a-akureyri
Líf og fjör á Akureyri Það er heldur betur líf og fjör á Akureyri þessa stundina þar sem N1- mótið í knattspyrnu er í fullum gangi á KA- svæðinu. Pollamótið hefst svo á Þórsvelli í fyrramálið og stendur yfir fram á laugardagskvöld. Mikill fjöldi gesta er kominn í bæinn og að sögn Tryggva Marinóssonar, forstöðumanns tja...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nordurthing-semur-vid-ejs-um-rekstur-og-thjonustu
Norðurþing semur við EJS um rekstur og þjónustu Norðurþing hefur samið við EJS um rekstur og þjónustu á upplýsingakerfum Norðurþings til næstu fjögurra ára. Þessi samningur kemur í kjölfarið á góðu samstarfi síðustu þriggja ára. Í framhaldi af undirritun samningsins hefur EJS blásið til sóknar á svæðinu og opnað starfs...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/draupnir-burstadi-samherja
Draupnir burstaði Samherja Draupnir burstaði Samherja 7:1 í Boganum gærkvöld í D- riðli 3. deildar karla í knattspyrnu. Davíð Jónsson og Snorri Páll Guðbjörnsson skoruðu báðir tvívegis fyrir Draupni og þeir Ægir S. Reynisson, Ingi Þór Stefánsson og Óskar Þór Jónsson skoruðu sitt markið hver. Mark Samherja skoraði Lászl...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/frabaert-taekifaeri-ad-maeta-fh
Frábært tækifæri að mæta FH „Ég er bara mjög ánægður með að fá tækifæri til þess að spila við eitt besta lið Íslands,” segir Sandor Matus fyrirliði KA. Norðanmenn eiga verðugt verkefni fyrir höndum í kvöld þegar þeir sækja FH heim á Kaplakrikavöll kl. 18:00 í 8- liða úrslitum VISA- bikarkeppni karla. KA sló Grindavík ú...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorka-skellti-kr-fjogur-null-a-thorsvelli
Þór/KA skellti KR fjögur núll á Þórsvelli Þór/KA lagði KR að velli 4:0 er liðin mættust á Þórsvelli í kvöld í áttundu umferð Pepsi- deildar kvenna í knattspyrnu. Þór/KA átti hreint magnaðan fyrri hálfeik þar sem liðið skoraði öll fjögur mörkin. Vesna Smiljkovic skoraði tvívegis fyrir Þór/KA og þær Mateja Zver og Elva F...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ufa-og-umse-med-fjolda-gullverdlauna-a-sumarleikum-hsth
UFA og UMSE með fjölda gullverðlauna á Sumarleikum HSÞ Keppendur frá UFA og UMSE gerðu góða hluti á Sumarleikum HSÞ í frjálsum íþróttum sem haldnir voru á Laugum sl. helgi. UFA vann alls 39 gullverðlaun en UMSE 26 gullverðlaun. Auk þess unnu bæði félög til fjölda brons- og silfurverðlauna á mótinu. Þá má geta þess að S...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/minnisvardi-um-fyrsta-golfvollinn-a-akureyri-faerdur-til
Minnisvarði um fyrsta golfvöllinn á Akureyri færður til Framkvæmdir eru í fullum gangi á gatnamótum Naustatanga og Hjalteyrargötu við Slippsstöðina á Akureyri, þar sem verið er að koma fyrir minnisvarða um fyrsta golfvöll Golfklúbbs Akureyrar. Á þessum stað var fyrst leikið golf í bænum árið 1935 og var völlurinn í not...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorka-og-kr-maetast-a-thorsvelli-i-kvold
Þór/KA og KR mætast á Þórsvelli í kvöld Heil umferð fer fram í Pepsi- deild kvenna í knattspyrnu í kvöld. Á Þórsvelli fer fram stórleikur kvöldsins þar sem Þór/KA og KR eigast við kl. 18:30. Tvö stig skilja liðin að fyrir leikinn, Þór/KA hefur 13 stig í þriðja sæti deildarinnar en KR 11 stig í fjórða sæti. Eins og stað...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/luxussnekkjan-vid-torfunef
Lúxussnekkjan við Torfunef Skútan Hetarios sem legið hefur við festar við Torfunefsbryggju undanfarna viku eða svo mun nú næst halda til Blönduóss. Hún kom hingað frá Bermúdaeyjum á dögunum en hvar sem þetta glæsilega fley fer vekur hún verðskuldaða athygli. Skútan er gljáfægð og stífbónuð í hólf og gólf og lítur út fy...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/keyrdi-a-tvo-bila-og-stakk-af
Keyrði á tvo bíla og stakk af Keyrt var á tvo kyrrstæða fólksbíla við Oddeyrargötu 4 á Akureyri í hádeginu í gær og lét ökumaðurinn sem olli árekstrinum sig hverfa af vettvangi. Mildi þykir að enginn var í bílunum tveimur, sem voru lagðir í bílastæði. Báðir bílarnir skemmdust töluvert og þurfti að draga annan bílinn í ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/risaskammtur-af-ferdamonnum
Risaskammtur af ferðamönnum! Í dag munu á milli 5000 og 6000 ferðamann koma til Akureyrar með skemmtiferðaskipum en þetta lætur nærri að vera um 10% þess ferðamannafjölda sem væntanlegur er í bæinn í sumar með þessum hætti. Ferðamennirnir koma með þremur skemmtiferðaskipum, tveimur sem flokkast sem mjög stór og einu mi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tvo-umferdarohopp-i-gaerkvoldi
Tvö umferðaróhöpp í gærkvöldi Ekið var á stúlku á Mýrarvegi í gærkvöldi um kl 23:00 þar sem hún var að fara yfir gangbraut við gatnamót Mýrarvegar og Þingvallastrætis. Bíllinn var að beygja inn á Mýrarveg, og var ekki á mikili ferð og urðu meiðsli stúlkunnar óveruleg. Í gærkvöldi varð annað óhapp þegar bifreið valt á H...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjolmennasta-knattspyrnumot-sem-hefur-verid-haldid-a-islandi
Fjölmennasta knattspyrnumót sem hefur verið haldið á Íslandi Hið árlega N1-mót KA í knattspyrnu fyrir 5. aldursflokk drengja verður haldið á KA-svæðinu á Akureyri dagana 30. júní – 3. júlí. Mótið er nú haldið í 24. skipti og hefur aldrei verið fjölmennara. Í mótinu taka þátt um 1500 strákar og með þjálfurum og liðsstjó...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nagrannaslag-ka-og-thors-frestad-um-viku
Nágrannaslag KA og Þórs frestað um viku Nágrannaslag KA og Þórs á Íslandsmótinu í 1. deild karla í knattspyrnu sem átti að fara fram á Akureyrarvelli næstkomandi fimmtudag, hefur verið frestað um eina viku eða fram til fimmtudagsins 8. júlí. Þetta kemur til vegna leik FH gegn BATE Borisov í Meistaradeild Evrópu þann 14...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bergur-elias-endurradinn
Bergur Elías endurráðinn Bergur Elías Ágútsson hefur verið endurráðinn sem sveitarstjóri Norðurþings. Byggðarráð samþykkti ráðninguna á síðasta fundi sínum. Bergur Elías hefur verið sveitarstjóri Norðurþings síðan sveitarfélagið var stofnað 2006 með sameiningu fjögurra minni sveitarfélaga.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/numer-eitt-er-ad-okkur-haetti-ad-faekka
Númer eitt er að okkur hætti að fækka Guðný Sverrisdóttir hefur verið ráðin sveitarstjóri í Grýtubakkahreppi, en starfinu ætti hún að vera kunnug, hefur gengt því undanfarin 23 ár.„Mér líst bara vel á þetta, sveitarfélagið stendur vel fjárhagslega og atvinnuástand er afar gott,“ segir Guðný. „Nú hefur ákveðinn kafli í ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-shellmotsmeistari-i-6-flokki-drengja
Þór Shellmótsmeistari í 6. flokki drengja Þórsarar fögnuðu sigri á Shellmótinu í knattspyrnu sem haldið var í Vestmanneyjum sl. helgi. Þar var 6. flokkur drengja í aðalhlutverki og Þórsarar tryggðu sér sigur á mótinu með því að leggja Stjörnuna að velli, 2:1, í úrslitaleiknum. Þá vann lið Þórs 3 Surtseyjarbikarinn á mó...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hradahindrun-faerd
Hraðahindrun færð Uppfærð frétt Búið er að færa aðra hraðahindrunina sem verið hefur í Gilinu upp á Þingvallastræði til móts við Sundlaug Akureyrar. Hin hraðahindrunin var einnig tekin úr Gilinu enda voru þær settar þar vegna Bíladaga. Að sögn Helga Más Pálssonar hjá Framkvæmdamiðstöð bæjarins hafa hraðahindranirnar ve...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorka-saekir-fh-heim-i-8-lida-urslitum-bikarkeppninnar
Þór/KA sækir FH heim í 8- liða úrslitum bikarkeppninnar Þór/KA mætir FH á útivelli í 8- liða úrslitum VISA- bikarkeppni kvenna í knattspyrnu, en dregið var í hádeginu í dag í höfuðstöðvum KSÍ. Leikið verður í 8- liða úrslitum föstudaginn 9. júlí næstkomandi og hefjast allir leikirnir kl. 19:15. Fylgst var með bikardræt...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leik-kr-og-thorska-vixlad
Leik KR og Þórs/KA víxlað Leikur KR og Þórs/KA í Pepsi- deild kvenna í knattspyrnu sem átti að fara fram á KR- velli næstkomandi miðvikudag, þann 30. júní, hefur verið færður til og mun fara fram á Þórsvelli kl. 19:00 þann sama dag.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/verkefni-sem-tharf-ad-leysa
Verkefni sem þarf að leysa „Þetta var fínn fundur og menn sögðu sína skoðun umbúðalaust,” segir Þórgnýr Dýrfjörð hjá Akureyrarstofu. Fundað var í hádeginu sl. fimmtudag þar sem valdir íbúar bæjarins, Akureyrarstofa, forsvarsmenn Bílaklúbbs Akureyrar, lögregla og bæjarstjórn fóru yfir Bíladagshátíðina sem haldin var í b...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-steinla-a-leiknisvelli
KA steinlá á Leiknisvelli KA tapaði gegn Leikni R. 0:3 á Leiknisvelli í dag, er liðin áttust við í áttundu umferð Íslandsmótsins í 1. deild karla í knattspyrnu. Kristján Páll Jónsson skoraði tvívegis fyrir Leikni í dag og Brynjar Benediktsson skoraði eitt mark. Leiknir er þar með komið í toppsæti deildarinnar með 18 st...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/slattur-i-fullum-gangi
Sláttur í fullum gangi „Slátturinn er víða kominn af stað og gengur ágætlega,” segir Hólmgeir Karlsson hjá Bústólpa. Bændur í Eyjafjarðarsveit hófu fyrsta slátt um miðjan mánuðinn og er heyskapurinn kominn vel á skrið. „Sprettan í Eyjafirði hefur verið ágætt og þótt það hafi ekki verið hlýtt í vor að þá hjálpaði það ti...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vantar-plass-fyrir-30-leikskolaborn
Vantar pláss fyrir 30 leikskólabörn Á fyrsta fundi nýrrar skólanefndar bæjarins fyrir helgina kom fram að bærinn getur ekki boðið öllum leikskólabörnum yfir 18 mánaða aldrei leikskólapláss í vetur. Þetta kom fram í kynningu Bjargar Sigurvinsdóttur leikskólafulltrúa og sagði hún að enn vantaði pláss fyrir ríflega 30 bör...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-og-ir-skildu-jofn-a-thorsvelli
Þór og ÍR skildu jöfn á Þórsvelli Þór og ÍR gerðu 2:2 jafntefli á Þórsvelli í dag á Íslandsmótinu í knattspyrnu í 1. deild karla. ÍR komst í 2:0 í fyrri hálfleik en heimamenn náðu að jafna metin í þeim seinni. Það voru þeir Aleksandar Linta og Jóhann Helgi Hannesson sem skoruðu mörk Þórs í leiknum en Árni Freyr Guðnaso...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/evropumeistaramot-epc-2010-i-kraftlyftingum-i-fullum-gangi-a-akureyri
Evrópumeistaramót EPC 2010 í kraftlyftingum í fullum gangi á Akureyri Evrópumeistaramót EPC 2010 í kraftlyftingum stendur nú yfir á Akureyri og er keppnin haldin í íþróttahúsi Glerárskóla. Um gríðarlega stórt mót er að ræða þar sem fjölmargir keppendur allstaðar af úr heiminum taka þátt. Um 30-40 Íslendingar eru á meða...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/toppslagur-a-thorsvelli-i-dag-fritt-a-vollinn
Toppslagur á Þórsvelli í dag- Frítt á völlinn Stórleikur áttundu umferðarinnar á Íslandsmótinu í 1. deild karla í knattspyrnu fer fram á Þórsvelli í dag þegar Þór og ÍR eigast við. ÍR situr á toppi deildarinnar með 16 stig en Þór hefur 14 stig í þriðja sæti og með sigri í dag ná norðanmenn toppsætinu. Slippurinn á Akur...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/slapp-obrotin-eftir-7-metra-fall
Slapp óbrotin eftir 7 metra fall Stúlka um tvítugt datt ofan af þaki á fjölbýlishúsi við Grænugötu á Akureyri um hálf fimm leytið í dag. Stúlkan rann fram af þakinu og var þetta um 7 metra fall niður og lenti hún á grilli sem var þar fyrir neðan og virðist grillið hafa dregið talsvert úr fallinu að sögn lögreglu. Þótt ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorka-vann-niu-marka-sigur-gegn-fjardabyggdleiknir
ÞórKA vann níu marka sigur gegn Fjarðabyggð/Leiknir Þór/KA lenti ekki í neinum vandræðum með lið Fjarðabyggðar/Leiknis á Þórsvelli í kvöld í VISA- bikarkeppni kvenna í knattspyrnu. Þór/KA hafði mikla yfirburði í leiknum og sigraði 9:0 en sigurinn hefði hæglega getað orðið stærri. Þar með eru norðanstúlkur komnar áfram ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/haldlogd-fikniefni-og-vimuefnaakstur
Haldlögð fíkniefni og vímuefnaakstur Síðdegis í gær stöðvaði lögreglan á Akureyri bifreið í Hörgárdal. Í bifreiðinni voru tveir menn um tvítugt. Vaknaði grunur um að ökumaðurinn væri undir áhrifum vímuefna og voru mennirnir handteknir í framhaldi af því. Við leit í bifreiðinni fundust síðan 250 gr. af kannabisefnum og ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-saekir-fh-heim-i-bikarnum
KA sækir FH heim í bikarnum KA býður verðugt verkefni í 8- liða úrslitum VISA- bikarkeppni karla en liðið dróst gegn Íslandsmeisturum FH á útivelli þegar dregið var í hádeginu í dag höfuðstöðvum KSÍ. Leikið verður í 8- liða úrslitum sunnudaginn 11. júlí og mánudaginn 12. júlí. Ekki er orðið ljóst hvaða leikir fara fram...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/raunavoxtun-upp-a-313-kynnt-a-manudag
Raunávöxtun upp á 3,13% kynnt á mánudag Á ársfundi Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrar sem haldin verður á mánudaginn verður kynnt niðurstaða ársreiknings, en sjóðurinn skilaði 3,13% raunávöxtun á síðasta ári en meðaltal raunávöxtunar sjóðsins síðustu 5 ár hefur verið 4,68%. Þetta er mikill viðsnúningur frá árinu 2008 ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/lagt-til-ad-thokuleggja-torgid
Lagt til að þökuleggja torgið - Uppfærð frétt “Já ég hef mikla trú á því að þetta verði gert,” segir Sigurður Guðmundsson bæjarfulltrúi og árheyrarfulltrúi í bæjarráði. Á fyrsta fundi nýs bæjarráðs í gær bar hann fram tillögu um að Ráðhústorgið yrði þökulagt í ár. Málinu var vísað til framkvæmdaráðs. Sigurður var í for...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ss-byggir-ekki-umsaekjandi
SS Byggir ekki umsækjandi Ranghermt var í Vikudegi í gær að Sigurður Sigurðarson byggingaverkfræðingur sem er einn umsækjenda um stól bæjarstjóra á Akureyri væri Sigurður Sigurðarson, sem kenndur er við byggingafyrirtækið SS Byggir. Umsækjandinn er hins vegar annar maður og eru báðir beðnir velvirðingar á þessum mistök...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bikarleikur-a-thorsvelli-i-kvold
Bikarleikur á Þórsvelli í kvöld Þór/KA og Fjarðabyggð/Leiknir mætast á Þórsvelli í kvöld kl. 18:45 í 16- liða úrslitum VISA- bikarkeppni kvenna í knattspyrnu. Fyrirfram verða norðanstúlkur að teljast mun sigurstranglegri, en Fjarðabyggð/Leiknir situr um miðja deild í B- riðli 1. deildarinnar á meðan Þór/KA er í toppbar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-afram-i-8-lida-urslit-visa-bikarkeppninnar
KA áfram í 8- liða úrslit VISA- bikarkeppninnar KA komst í kvöld áfram í 8- liða úrslit VISA- bikarkeppni karla í knattspyrnu, er liðið sigraði Grindavík á Grindavíkurvelli í 16- liða úrslitum eftir vítaspyrnukeppni og bráðabana. Staðan eftir venjulegan leiktíma var 1:1. David Disztl kom KA yfir úr vítaspyrnu seint í f...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stulkna-blasarasveit-fra-randers
Stúlkna blásarasveit frá Randers Það verða án efa skemmtilegir blásarasveitartónar sem munu berast frá gestum sem Akureyrarbær tekur á móti 26. júní - 3. júlí. Þarna verður á ferðinni 30 stúlkna blásarasveit á aldrinum 12 - 25 ára frá Randers, vinabæ Akureyrar í Danmörku og kallast sveitin Randers Pigegarde. Hljómsveit...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/daemdur-fyrir-likamsaras-1
Dæmdur fyrir líkamsárás Maður hefur verið dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að sparka í höfuð liggjandi manns aðfaranótt 4. október sl með þeim afleiðingum að maðurinn hlaut mar- og fleiðuráverka á höfði og andliti og tognun á kjálkalið. Atvikið varð á gatnamótu garðsbrautar og Stóragarða á Húsavík. Ákærði...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hyggur-ekki-a-formannsframbod
Hyggur ekki á formannsframboð „Fyrsta atriðið er það að það eru allir í kjöri á landsfundi en ég geri ekki ráð fyrir því að ég gefi kost á mér. Það að flokkurinn stilli saman krafta sína er miklu mikilvægara en einhverjar persónur,” segir Kristján Þór Júlíusson þingmaður Sjálfstæðisflokksins, aðspurður um hvort hann hy...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vilja-verslanir-lokadar-a-sunnudogum
Vilja verslanir lokaðar á sunnudögum Meirihluti bæjarbúa á Akureyri og nágrenni vilja að verslanir séu almennt lokaðar á sunnudögum, ef marka má niðurstöður úr vefkönnun Vikudags. Könnunin var framkvæmd um tveggja vikna skeið og voru þátttakendur hátt í 400 manns. Spurt var: Ert þú fylgjandi því að verslanir séu lokaða...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/spain-best-fyrir-nordurland-um-helgina
Spáin best fyrir Norðurland um helgina Góðviðrisdagar á Akureyri og nágrenni virðast ætla að halda eitthvað áfram og samkvæmt veðurspá Veðurvaktarinnar ehf., verður besta veðrið á Norðurlandi um helgina. Búast má við því að hitinn verði almennt á bilinu 14- 15 stig á Norðurlandi og yfirleitt léttskýjað. Það stefnir því...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-saekir-grindavik-heim-i-kvold-i-visa-bikarnum
KA sækir Grindavík heim í kvöld í VISA- bikarnum KA sækir úrvalsdeildarlið Grindavíkur heim í kvöld er liðin mætast kl. 17:30 á Grindavíkurvelli í 16- liða úrslitum VISA- bikarkeppni karla. Grindavík hefur ekki átt góðu gengi að fagna í Pepsi- deildinni og sitja í næstneðsta sæti deildarinnar. KA situr um miðja deild í...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/einstakt-taekifaeri-fyrir-mig
„Einstakt tækifæri fyrir mig” Handboltakappinn Oddur Gretarsson lék sína fyrstu "alvöru" A- landsleiki fyrir Íslands hönd á dögunum, er liðið mætti Dönum í tveimur leikjum hér heima og Brasilíu ytra. Oddur nýtti tækifærið vel og skoraði samtals níu mörk. „Þetta var mjög gaman og bara einstakt fyrir mig að fá þetta tæki...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sniglabandid-25-ara
Sniglabandið 25 ára. Sniglabandið hefur aldarfjórðungs afmælisveislu sína á Græna hattinum á laugardagskvöldið kl. 22. Farið verður yfir sögu hljómsveitarinnar í tali og tónum. Rifjað verður upp eitt og annað sem á daga þessarar litríku hljómsveitar hefur drifið. Ævintýrin, ruglið, píurnar og poppararnir. Ekkert dregið...