Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baerinn-er-fullur-af-folki-allar-helgar
“Bærinn er fullur af fólki allar helgar“ "Það hefur verið mjög líflegt hjá okkur í vetur, mikil umferð og greinilega mikið um ferðamenn í bænum um helgar," segir Guðmundur Karl Tryggvason veitingamaður á Bautanum. Hann segir að skíðafólk sé áberandi, sem og skólahópar og fólk á leið í leikhús. „Og svo eru stór fótbolta...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kka-fa-uthlutad-keppnis-og-aefingasvaedi-a-glerardal
KKA fá úthlutað keppnis- og æfingasvæði á Glerárdal Meirihluti umhverfisnefndar Akureyrar leggst ekki gegn því að KKA verði úthlutað keppnis- og æfingasvæði á Glerárdal fyrir enduroakstur. Þó vill nefndin að svæðinu verði aðeins úthlutað til bráðabirgða í t.d. 5 ár og þá verði þessi ákvörðun tekin til endurskoðunar í l...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-la-naumlega-a-heimavelli-gegn-grindavik-b
Þór lá naumlega á heimavelli gegn Grindavík-B Þór tapaði naumlega fyrir Grindavík-B, 57:59, er liðin mættust í Íþróttahúsi Síðuskóla í gær í 1. deild kvenna í körfubolta. Staðan í hálfleik var 22:20 fyrir gestina í Grindavík. Rut Konráðsdóttir skoraði 13 stig fyrir Þór í leiknum, Linda Hlín Heiðarsdóttir 11 stig og Ern...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gudmundur-b-gudmundsson-skipar-1-saeti-a-lista-framsoknar
Guðmundur B. Guðmundsson skipar 1. sæti á lista Framsóknar Guðmundur Baldvin Guðmundsson hlaut 66% gildra atkvæða í fyrsta sæti í prófkjöri Framsóknarmanna á Akureyri. Petrea Ósk Sigurðardóttir varð í öðru sæti. Alls greiddu 1.106 einstaklingar atkvæði í prófkjörinu sem var opið öllum þeim sem kosningarétt hafa í sveit...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oruggur-sigur-kathors-gegn-vikingi
Öruggur sigur KA/Þórs gegn Víkingi KA/Þór lenti ekki í neinum vandræðum með lið Víkings er liðin mættust í KA- heimilinu í dag í N1- deild kvenna í handbolta og vann 11 marka sigur, 30:19. Það var ljóst frá fyrstu mínútu í hvað stefndi en KA/Þór skoraði fyrstu fimm mörkin í leiknum og hafði níu marka forystu í hálfleik...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sektum-vegna-hradaksturs-hefur-faekkad-mikid
Sektum vegna hraðaksturs hefur fækkað mikið Á síðasta ári komu upp 758 mál vegna hraðakstus í umdæmi lögreglunnar á Akureyri og fækkaði slíkum málum um tæplega 200 frá árinu á undan. Einnig varð umtalsverð fækkun á hraðakstursmálum frá árunum þar á undan en árið 2007 komu upp 1.494 slík mál og 1.973 mál árið 2006. Daní...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrsti-heimaleikur-kathors-a-arinu-i-dag
Fyrsti heimaleikur KA/Þórs á árinu í dag KA/Þór leikur sinn fyrsta heimaleik á árinu er liðið fær Víking í heimsókn í KA- heimilið í dag í botnbaráttuslag N1- deildar kvenna í handbolta og hefst leikurinn kl. 16:00. Þrjú stig skilja liðin að fyrir leikinn, KA/Þór hefur þrjú stig í næstneðsta sæti deildarinnar en Víking...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-hafdi-betur-gegn-ia-i-botnslagnum
Þór hafði betur gegn ÍA í botnslagnum Þór vann geysilega mikilvægan sigur á liði ÍA í kvöld, 99:79, er liðin mættust í Íþróttahúsi Síðuskóla í botnbaráttuslag í 1. deild karla í körfubolta, en fyrir leikinn voru liðin jöfn að stigum með sex stig hvort. Þar með er Þór komið með átta stig í 7. sæti deildarinnar en siguri...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/opid-profkjor-hja-framsokn-a-akureyri-a-morgun-laugardag
Opið prófkjör hjá Framsókn á Akureyri á morgun laugardag Framsóknarflokkurinn á Akureyri efnir til opins prófkjörs á morgun laugardag. Kosið verður í sex efstu sætin á framboðslista flokksins til sveitarstjórnarkosninganna 29. maí nk. Rétt til að kjósa í prófkjörinu hafa allir þeir sem öðlast hafa kosningarétt í sveita...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/alvarlegum-akaerumalum-fjolgadi-a-milli-ara
Alvarlegum ákærumálum fjölgaði á milli ára Á síðasta ári komu heldur fleiri mál inn á borð Héraðsdóms Norðurlands eystra en árið 2008. Sú breyting átti sér stað að sveitarfélögin Fjallabyggð og Langanesbyggð heyra nú til umdæmis Héraðsdóms Norðurlands eystra samkvæmt nýrri reglugerð frá 26. maí 2009. Samkvæmt upplýsing...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ibuar-a-nemendagordum-festa-krefjast-laekkunar-a-leiguverdi
Íbúar á nemendagörðum FÉSTA krefjast lækkunar á leiguverði Á fundi sem haldinn var í gærkvöld meðal íbúa nemendagarða FÉSTA, Félagsstofnunar stúdenta á Akureyri, var rætt um leiguverð nemendagarðanna sem farið hefur stigvaxandi síðustu mánuði. Staðan er nú þannig að mánaðarleiga á íbúðum á vegum FÉSTA er hærri en á alm...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vetrarithrottahatid-isi-a-akureyri-sett-thann-6-februar
Vetraríþróttahátíð ÍSÍ á Akureyri sett þann 6. febrúar Undirbúningur fyrir Vetraríþróttahátíð ÍSÍ 2010 stendur sem hæst en hátíðin fer fram á Akureyri þar sem Vetraríþróttamiðstöð Íslands er staðsett. Hátíðin verður sett laugardaginn 6. febrúar í Skautahöllinni með mikill sýningu þar sem fram koma m.a. hæfileikaríkir i...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/heildarkostnadur-vid-leikskolana-a-akureyri-um-12-milljardur
Heildarkostnaður við leikskólana á Akureyri um 1,2 milljarður Gert er ráð fyrir því að heildarkostnaður við leikskólana á Akureyri verði rúmur 1,2 milljarður króna á þessu ári og lækki um 11,5 milljónir frá fyrra ári. Tekjur eru áætlaðar um 220 milljónir króna og hækka um 8,4 milljónir á milli ára. Launakostnaður er áæ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/botnbarattuleikur-hja-thor-i-kvold
Botnbaráttuleikur hjá Þór í kvöld Þór og ÍA mætast í fallbaráttuslag í 1. deild karla í körfubolta í kvöld í Íþróttahúsi Síðuskóla kl. 19:15. Fyrir leikinn í kvöld eru liðin jöfn að stigum í deildinni með sex stig hvort, Þór í 7. sæti en ÍA í 8. sæti, og því mikið í húfi fyrir bæði lið. "Þessi leikur skiptir gríðarlegu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skridjoklar-i-sparifotunum-a-tonleikum-a-graena-hattinum
Skriðjöklar í sparifötunum á tónleikum á Græna hattinum Hljómsveitin Skriðjöklar birtist í sínum gamla heimabæ um helgina og leikur á tónleikum á Græna hattinum á laugardagskvöld, en ár og dagar eru síðan Jöklarnir hafa troðið upp á Akureyri. Sveitin ætlar að renna yfir feril sinn í tali og tónum en hann er víst orðinn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sveit-stefans-efst-a-akur-eyrarmotinu-i-bridds
Sveit Stefáns efst á Akur- eyrarmótinu í bridds Sveit Stefáns Vilhjálmssonar er í efsta sæti að loknu öðru kvöldi á Akureyrarmótinu í sveitakeppni hjá Bridgefélagi Akureyrar. Spiluð voru 30 spil eða einn og hálfur leikur. Eftir kvöldið eru þá búnir 3 leikir af 7. Sveit Stefáns Vilhjálmssonar kom til leiks þetta kvöldið...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sjo-fra-ska-a-hm-unglinga-i-frakklandi
Sjö frá SKA á HM unglinga í Frakklandi Skíðasamband Íslands hefur í samráði við alpagreinanefnd valið átta keppendur til þátttöku á Heimsmeistaramóti unglinga í alpagreinum sem fram fer í Frakklandi dagana 31.janúar- 6. febrúar næstkomandi. Sjö af ef þessum átta keppendum koma frá Skíðafélagi Akureyrar en þau eru Íris ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gongudeild-saa-a-akureyri-verdur-lokad-i-vor
Göngudeild SÁÁ á Akureyri verður lokað í vor Ákveðið hefur verið að loka göngudeild SÁÁ á Akureyri í vor í sparnaðarskyni. Unnið er að því að leigja húsnæði félagsins að Hofsbót 4. Anna Hildur Guðmundsdóttir dagskrárstjóri göngudeildar SÁÁ á Akureyri segir að þessi niðurstaða sé alveg hræðileg, enda muni vandinn ekki h...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baejarrad-samthykkir-hlutafjar-framlag-til-res-orkuskola
Bæjarráð samþykkir hlutafjár- framlag til RES Orkuskóla Bæjarráð samþykkti á fundi sínum í morgun hlutafjárframlag úr Framkvæmdasjóði Akureyrar að upphæð krónur 800.000 á mánuði, allt að 9,6 milljónir á árinu 2010 til RES Orkuskóla. Framlagið verður greitt með jöfnum mánaðarlegum greiðslum og er ætlað að standa straum ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/almannavarnanefnd-eyjafjardar-og-fjallabyggdar-sameinist
Almannavarnanefnd Eyjafjarðar og Fjallabyggðar sameinist Almannavarnanefnd Eyjafjarðar samþykkti á síðasta fundi sínum að leggja til við aðildarsveitarfélög nefndarinnar að leitað verði eftir samkomulagi við Fjallabyggð um sameiningu almannavarnanefndar Eyjafjarðar og Fjallabyggðar þannig að ein almannavarnanefnd verði...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hjalparsveitin-dalbjorg-i-eyja-fjardarsveit-faer-nyja-velsleda
Hjálparsveitin Dalbjörg í Eyja- fjarðarsveit fær nýja vélsleða Hjálparsveitin Dalbjörg í Eyjafjarðarsveit hefur fest kaup á tveimur nýjum vélsleðum af gerðinni Arctic Cat Crossfire 8 Sno Pro. Þeir koma í stað eldri vélsleða sem þegar hafa verið seldir. Kaupin á nýju vélsleðunum gengu hratt og vel fyrir sig með hjálp gó...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/atakid-ungt-folk-til-athafna-fer-vel-af-stad
Átakið Ungt fólk til athafna fer vel af stað „Átakið fer mjög vel af stað," segir Soffía Gísladóttir forstöðumaður Vinnumálastofnunar á Norðurlandi eystra, en nýverið var hrint af stað átaki fyrir unga atvinnuleitendur og hefur það yfirskriftina; Ungt fólk til athafna. Átakið nær til fólks á aldrinum 18 til 24 ára, en ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kathor-ur-leik-i-bikarnum-eftir-tap-gegn-fh
KA/Þór úr leik í bikarnum eftir tap gegn FH KA/Þór féll úr leik í Eimskipsbikarkeppni kvenna í handbolta í kvöld eftir tap gegn FH, 25:33, í Kaplakrika í 8- liða úrslitum keppninnar. Staðan í hálfleik var 18:13 fyrir heimamenn. Martha Hermannsdóttir var markahæst í liði KA/Þórs með 10 mörk en Ásdís Sigurðardóttir kom n...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/unglingalandsmot-umfi-verdur-haldid-i-borgarnesi
Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið í Borgarnesi Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið í Borgarnesi í sumar en stjórn Ungmennafélags Íslands komast að þessari niðurstöðu á fundi sínum í dag. Unglingalandsmót hefur aldrei áður verið haldið í Borgarnesi en landsmót var haldið þar 1997. Fimm aðilar sóttu um að halda mótið, ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/einelti-i-grunnskolum-a-akureyri-hefur-minnkad
Einelti í grunnskólum á Akureyri hefur minnkað Niðurstöður könnunar frá 2009 benda til þess að einelti í grunnskólum á Akureyri hafi minnkað og sé vel undir landsmeðaltali. Helga Halldórsdóttir deildarstjóri í Glerárskóla mætti á fund skólanefndar í vikunni og gerði grein fyrir stöðu mála á Akureyri hvað varðar einelti...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorarinn-b-oskar-eftir-lausn-fra-storfum-i-baejarstjorn
Þórarinn B. óskar eftir lausn frá störfum í bæjarstjórn Á fundi bæjarstjórnar Akureyrar í gær las forseti upp bréf frá Þórarni B. Jónssyni bæjarfulltrúa, þar sem hann óskar eftir lausn frá störfum í bæjarstjórn. Þórarinn hefur verið varabæjarfulltrúi en átti að taka sæti aðalmanns nú um áramót, þegar Kristján Þór Júlíu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/davidskvold-i-ketilhusinu-a-faedingardegi-skaldsins-fra-fagraskogi
Davíðskvöld í Ketilhúsinu á fæðingardegi skáldsins frá Fagraskógi Fimmtudagskvöldið 21. janúar klukkan 20 verður Davíðs Stefánssonar skáldsins frá Fagraskógi minnst í Ketilhúsinu á Akureyri en skáldið fæddist þennan dag árið 1895. Ekki er um stórafmæli að ræða heldur notalega kvöldstund þar sem boðið verður upp á lestu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bjorninn-hafdi-betur-gegn-sa-i-egilshollinni-i-kvold
Björninn hafði betur gegn SA í Egilshöllinni í kvöld SA tapaði í kvöld fyrir Birninum 3:5 er liðin áttust við í Egilshöllinni á Íslandsmótinu í íshokkí karla. SA náði þar með ekki að fylgja eftir góðum sigri gegn SR í síðustu umferð en Björninn hefur stimplað sig rækilega inn á Íslandsmótið og hefur heldur betur hleypt...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/maria-segir-fra-longu-ferdalagi-um-leiklistarheiminn
María segir frá löngu ferðalagi um leiklistarheiminn Fyrsti fyrirlesturinn í fyrirlestraröð Listnámsbrautar VMA, Listasafnsins á Akureyri og Menningarmiðstöðvarinnar í Grófargili verður föstudaginn 22. janúar nk. kl. 14.50. Að þessu sinni mun María Sigurðardóttir Leikhússtjóri LA segja frá reynslu sinni af löngu ferðal...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/flugfarthegum-milli-akureyrar-og-reykjavikur-faekkadi-um-13
Flugfarþegum milli Akureyrar og Reykjavíkur fækkaði um 13% Fjöldi farþega Flugfélags Íslands var um 375.000 farþegar á árinu 2009 sem er samdráttur uppá um 11% frá fyrra ári. Fjöldi farþega í innanlandsflugi var um 350.000 og dróst saman um 12% en fjöldi farþega í millilandaflugi var um 25.000 sem er 12% aukning frá fy...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fridriksdagur-haldinn-hatidlegur-i-annad-sinn-a-fridriki-v
Friðriksdagur haldinn hátíðlegur í annað sinn á Friðriki V Þorrinn byrjar á föstudag, á sjálfan bóndadaginn, og af því tilefni verður Friðriksdagurinn haldin hátíðlegur í annað sinn á veitingastaðnum Friðriki V á Akureyri. Heiðursgestir kvöldsins, líkt í fyrra, eru þeir Friðrik Ómar Hjörleifsson söngvari og Friðrik Þór...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/opnir-hlaturjogatimar-a-akureyri
Opnir hláturjógatímar á Akureyri Fyrsti opni hláturjógatíminn á Akureyri á nýju ári verður fimmtudaginn 21.janúar kl.18.10 í Jógastöðinni Furuvöllum 13, 2.hæð og verða tímarnir vikulega á fimmtudögum fram á vor. Tímarnir eru öllum opnir og ekki er nauðsynlegt að skrá sig. Hver tími er klukkustund og samanstendur af hlá...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyrarbaer-gerist-fullgildur-adili-ad-radstefnuskrifstofunni
Akureyrarbær gerist fullgildur aðili að Ráðstefnuskrifstofunni Stjórn Akureyrarstofu hefur samþykkt að Akureyrarbær gerist fullgildur aðili að Ráðstefnuskrifstofu Íslands og að leitað verði samstarfs við hagsmunaaðila á svæðinu um hana. Bærinn hefur haft aukaaðild að skrifstofunni, en með tilkomu Hofs hefur sú spurning...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leikir-islands-a-em-i-handbolta-syndir-a-breidtjaldi-i-ka-heimilinu
Leikir Íslands á EM í handbolta sýndir á breiðtjaldi í KA-heimilinu Strákarnir okkar, í íslenska handboltalandsliðinu, hefja leik á Evrópumeistaramótinu í Austurríki í kvöld og hefst bein útsending í Sjónvarpinu kl. 19.05. Gríðarleg eftirvænting er ríkjandi meðal landsmanna, sem munu fylgjast grannt með leikjum íslensk...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mammutar-sigurvegarar-januarmotsins
Mammútar sigurvegarar Janúarmótsins Mammútar eru sigurvegarar Janúarmótsins í krullu eftir sigur gegn Görpunum í úrslitaleiknum sem fram fór í gærkvöld í Skautahöll Akureyrar. Lokatölur urðu 8:2 sigur Mammúta. Skytturnar nældu sér í bronsverðlaunin með sigri á Fífunum, 6:2, í leiknum um þriðja sætið. Önnur úrslit gærkv...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gunnar-thor-sigradi-i-storsvigi-a-bikarfis-moti-i-alpagreinum
Gunnar Þór sigraði í stórsvigi á Bikar/FIS- móti í alpagreinum Fyrsta bikarmót SKÍ í vetur var haldið sl. helgi í Hlíðarfjalli þegar Bikar/FIS- mót í alpagreinum fór fram. Keppt var í karla- og kvennaflokki í stórsvigi og svigi en alls kepptu 73 keppendur á mótinu. Í svigi í karlaflokki sigraði Brynjar Jökull Guðmundss...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/erfitt-rekstrarumhverfi-hja-jardvinnuverktokum-a-akureyri
Erfitt rekstrarumhverfi hjá jarðvinnuverktökum á Akureyri Jarðvinnuverktakar á Akureyri hafa miklar áhyggjur af því rekstrarumhverfi sem við þeim blasir næstu mánuðina, fyrir utan það að síðustu mánuðir hafa verið mjög erfiðir. Aðeins fá smærri verkefni séu í gangi og eitthvað um snjómokstur en lítið af verkefnum framu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bjarki-sigradi-i-stangarstokki-a-rig-motinu
Bjarki sigraði í stangarstökki á RIG mótinu Bjarki Gíslason, frjálsíþróttamaður frá UFA, sigraði í stangarstökki í flokki sveina á alþjóðlega íþróttamótinu, Reykjavík International Games, sem haldið var sl. helgi í Laugardagshöllinni. Bjarki stökk 4, 42 m í stangarstökkinu en auk þess hafnaði hann í öðru sæti í grindah...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/framlog-til-reksturs-lista-safnsins-a-akureyri-laekkud
Framlög til reksturs Lista- safnsins á Akureyri lækkuð Á síðasta fundi stjórnar Akureyrarstofu, kemur fram í bókun, að náðst hefur samkomulag við Art.is sem annast rekstur Listasafnsins á Akureyri um breytingar á samningi bæjarins og félagsins. Breytingarnar miða að því að draga úr kostnaði við rekstur safnsins, til sa...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/opid-profkjor-framsoknarflokks-ins-a-akureyri-a-laugardag
Opið prófkjör Framsóknarflokks- ins á Akureyri á laugardag Framsóknarflokkurinn á Akureyri efnir til opins prófkjörs nk. laugardag, 23. janúar 2010. Kosið verður í sex efstu sætin á framboðslista flokksins til sveitarstjórnarkosninganna sem fara fram 29. maí nk. Rétt til að kjósa í prófkjörinu hafa allir þeir sem öðlas...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyri-i-undanurslit-bikarkeppninnar
Akureyri í undanúrslit bikarkeppninnar Akureyri Handboltafélag er komið í undanúrslit bikarkeppninnar í 2. flokki karla í handbolta eftir fimm marka sigur gegn HK, 32:27, í Íþróttahöll Akureyrar í gær. Akureyri leiddi með einu marki í hálfleik, 14:13. Oddur Gretarsson fór mikinn í liði heimamanna og skoraði 11 mörk í l...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/andrea-og-baldvin-saekjast-eftir-1-saetinu-hja-vg-a-akureyri
Andrea og Baldvin sækjast eftir 1. sætinu hjá VG á Akureyri Andrea Hjálmsdóttir aðjúnt við HA og Baldvin H. Sigurðsson bæjarfulltrúi, gefa bæði kost á sér í 1. sæti í forvali hjá Vinstrihreyfingunni grænu framboði á Akureyri, fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor. Aðeins Edward Huijbens gefur kost á sér í 2. sætið. Kri...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-ur-leik-i-bikarkeppninni
Þór úr leik í bikarkeppninni Þór er úr leik í Subway- bikarkeppni kvenna í körfubolta eftir tap gegn Njarðvík í 8- liða úrslitum, 83:48, er liðin áttust við í Ljónagryfjunni Njarðvík í gær. Staðan í hálfleik var 39:21 fyrir heimamenn. Rut Konráðsdóttir skoraði 16 stig fyrir Þór í leiknum, Erna Rún Magnúsdóttir 12 stig,...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oruggt-hja-stjornunni-gegn-kathor
Öruggt hjá Stjörnunni gegn KA/Þór Stjarnan vann öruggan sigur á KA/Þór, 36:22, er liðin mættust í Mýrinni í N1- deild kvenna í handbolta í dag. Staðan í hálfleik var 19:13 fyrir Stjörnuna. Martha Hermannsdóttir var markahæst í liði KA/Þórs í leiknum með 6 mörk, Arna Valgerður Erlingsdóttir skoraði 5 mörk, þær Emma Sard...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sa-a-toppinn-eftir-oruggan-sigur-gegn-sr
SA á toppinn eftir öruggan sigur gegn SR SA átti ekki í teljandi vandræðum með erkifjendur sína í SR er liðin mættust í Skautahöll Akureyrar í kvöld á Íslandsmóti karla í íshokkí. Lokatölur leiksins urðu 6:0 heimamönnum í vil. Eftir markalausan fyrsta leikhluta fóru heimamenn á kostum í öðrum leikhluta. Annar leikhluti...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/dregid-ur-sumarafleysingum-og-faerri-adgerdir-a-skurdstofu
Dregið úr sumarafleysingum og færri aðgerðir á skurðstofu „Mér sýnist við vera réttu megin striks, reksturinn er í jafnvægi og jafnvel í einhverjum plús," segir Halldór Jónsson forstjóri Sjúkrahúsins á Akureyri um rekstur nýliðins árs. Á því ári var Sjúkrahúsinu gert að draga úr útgjöldum um sem nemur 300 milljónum kró...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/grunngildi-vg-i-rikisstjorn
Grunngildi VG í ríkisstjórn Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs haldinn á Akureyri 15.-16. janúar lýsir yfir fullum stuðningi við störf ríkisstjórnar Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs og Samfylkingar og telur áframhaldandi ríkisstjórnarsamstarf flokkanna vera kjölfestu fyrir samfélagið í gegn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hundaskitur-ut-um-alla-leikskolalod
Hundaskítur út um alla leikskólalóð Allt of margir hundaeigendur láta hjá líða að hreinsa upp skít eftir hunda sína. Á Akureyri virðist ástandið vera með allra versta móti, alla vega hefur töluvert verið kvartað, m.a. til Vikudags, yfir hundaskít á göngustígum víðs vegar um bæinn. Starfsfólki leikskólans Síðusels var n...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gildagur-i-listagilinu-a-akureyri
Gildagur í Listagilinu á Akureyri Það verður ljúf stemmning í Listagilinu á Akureyri í dag laugardag þegar gallerí og Listasafnið á Akureyri opna nýjar sýningar, auk þeirra sýninga sem opnaðar voru í byrjun árs. Bæjarbúar og gestir geta rölt á milli staða og notið lista og menningar. Í GalleríBOXi opnar klukkan 14 sýni...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/frabaer-endasprettur-hja-thor-i-sigri-gegn-skallagrimi
Frábær endasprettur hjá Þór í sigri gegn Skallagrími Þór er komið í 2. sætið í 1. deild kvenna í köfubolta eftir sigur gegn Skallagrími, 58:55, er liðin mættust í Borgarnesi í gær. Þór átti frábæran endasprett í leiknum en Skallagrímur hafði sjö stiga forystu í leiknum þegar rétt um tvær mínútur lifðu leiks. Norðanstúl...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sa-og-sr-maetast-i-skautahollinni-i-kvold
SA og SR mætast í Skautahöllinni í kvöld Í kvöld leikur Skautafélag Akureyrar sinn fyrsta leik á árinu á Íslandsmótinu í íshokkí karla, er liðið fær Skautafélag Reykjavíkur í heimsókn í Skautahöll Akureyrar og hefst leikurinn kl. 17:30. Fyrir leikinn munar tveimur stigum á liðunum, SR hefur 19 stig í efsta sæti deildar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyri-i-8-lida-urslit-i-utsvari-eftir-sigur-a-hafnarfirdi-i-kvold
Akureyri í 8 liða úrslit í Útsvari eftir sigur á Hafnarfirði í kvöld Lið Akureyrar tryggði sér sigur í 8 liða úrslitum í spurningakeppninni Útsvari í kvöld með glæsilegum sigri á liði Hafnarfjarðar í 16 liða úrslitum í beinni útsendingu í Sjónvarpinu í kvöld. Lið Akureyrar tók forystuna snemma í keppni kvöldsins og gaf...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjolmargir-keppendur-fra-akureyri-a-althjodlegu-moti-i-reykjavik
Fjölmargir keppendur frá Akureyri á alþjóðlegu móti í Reykjavík Alþjóðlega íþróttakeppnin, Reykjavík International Games, verður haldin í Laugardalshöllinni á morgun þann 16. janúar. Það er Íþróttabandalag Reykjavíkur sem stendur að mótshaldinu en keppendur verða um 2000 og þar af eru erlendir keppendur um 300. Fjölmar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tillaga-um-byggingu-dreifistodvar-grenndarkynnt-a-ny
Tillaga um byggingu dreifistöðvar grenndarkynnt á ný Norðurorka hefur sótt um 4m x 7m stóra lóð fyrir dreifistöð sunnan Undirhlíðar á Akureyri. Erindið var grenndarkynnt í desember sl. og bárust tvær athugasemdir. Skipulagsnefnd samþykkti á fundi sínum í vikunni að fela skipulagsstjóra að grenndarkynna tillöguna að nýj...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kaeru-a-hendur-vifilfelli-fyrir-brot-a-afengislogum-visad-fra
Kæru á hendur Vífilfelli fyrir brot á áfengislögum vísað frá Á fundi samfélags- og mannréttindaráðs Akureyrar í vikunni var lagt fram bréf frá embætti lögreglustjórans á Akureyri frá því í desember sl., vegna kæru ráðsins á hendur forsvarsmönnum Vífilfells hf. á Akureyri fyrir brot á áfengislögum, þar sem tilkynnt er a...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/umfang-islenskrar-ferda-thjonustu-ox-a-sidasta-ari
Umfang íslenskrar ferða- þjónustu óx á síðasta ári Íslensk ferðaþjónusta má vel við una eftir árið 2009. Þrátt fyrir hnattræna kreppu og versnandi afkomu ferðaþjónustunnar í Evrópu, óx umfang íslenskrar ferðaþjónustu á síðasta ári. Þennan vöxt má ekki síst rekja til þess að erlendum ferðamönnum fjölgaði frá mörgum hels...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/heildarkostnadur-vid-grunnskola-akureyrar-27-milljardar-krona
Heildarkostnaður við grunnskóla Akureyrar 2,7 milljarðar króna Samkvæmt fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2010 verður heildarkostnaður við grunnskóla bæjarins rúmir 2,7 milljarðar króna og hækkar um rúmar 84 milljónir frá áætlun ársins 2009. Gert er ráð fyrir því að launakostnaður lækki lítillega eða um 12,8 mil...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-sigradi-hott-med-thriggja-stiga-mun
Þór sigraði Hött með þriggja stiga mun Þór vann gríðarlega mikilvægan sigur á Hetti í gærkvöld í baráttunni í neðri hluta 1. deildar karla í körfubolta, er liðin mættust á Egilsstöðum. Þór sigraði með naumindum, 75:72, og vann sér hinn þrjú mikilvæg stig í botnbaráttu deildarinnar. Eftir sigurinn er Þór komið með sex s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fikniefni-og-thyfi-a-akureyri-og-i-reykjavik
Fíkniefni og þýfi á Akureyri og í Reykjavík Lögreglan á Akureyri hafði afskipti af tveimur karlmönnum á tvítugs- og þrítugsaldri í gær. Um er að ræða "góðkunningja" lögreglunnar og fann lögreglan hjá þeim um 50 grömm af amfetaíni sem þeir höfðu reynt að kasta frá sér er lögregla gerði sig tilbúna til að stöðva ökutæki ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjalla-um-handboltalandslidid-innan-sem-utan-vallar-a-em
Fjalla um handboltalandsliðið innan sem utan vallar á EM „Við verðum með viðtöl og umfjöllun eftir leiki og einnig verðum við með videoklippur sem við munum setja inn á síðuna og þannig getur fólk fylgst með strákunum þarna úti," segir Hjalti Þór Hreinsson. Hann og félagi hans, Reynir Albert Þórólfsson, halda út til Au...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikilvaegur-leikur-thors-gegn-hetti-i-kvold
Mikilvægur leikur Þórs gegn Hetti í kvöld Þór leikur afar mikilvægan leik í kvöld í 1. karla í körfubolta, er liðið sækir Hött heim á Egilsstaði. Aðeins tvö stig skilja liðin að, Höttur er í 7. sæti með sex stig en Þór í 8. sæti með fjögur stig og því um algjöran fallbaráttuslag að ræða og hefst leikurinn kl. 20:00. Ná...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/anna-opnar-syninguna-mikado-i-galleri-radhus
Anna opnar sýninguna MIKADO í Gallerí Ráðhús Listakonan Anna Gunnarsdóttir opnar sýningu í Gallerí Ráðhús, sem er staðsett í bæjarstjórnarsal ráðhússins, á morgun föstudaginn 15. janúar kl. 12.00. Sýninguna nefnir hún MIKADO en verkin eru unnin út frá japanska spilinu mikado þar sem leikmenn spila með prik. Öll verkin ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stjorn-samtaka-um-betri-byggd-gerir-athugasemd-vid-bokun-baejarstjornar
Stjórn Samtaka um betri byggð gerir athugasemd við bókun bæjarstjórnar Á fundi bæjarráðs Akureyrar í morgun var tekið fyrir erindi frá stjórn Samtaka um betri byggð, þar sem gerðar eru athugasemdir við bókun bæjarstjórnar Akureyrarkaupstaðar um Reykjavíkurflugvöll og samgöngumiðstöð í Vatnsmýrinni. Bæjarráð bendir á að...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/andrea-gefur-kost-a-ser-i-1-saeti-hja-vg-a-akureyri
Andrea gefur kost á sér í 1. sæti hjá VG á Akureyri Andrea Hjálmsdóttir gefur kost á sér í 1. sæti á lista Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs til bæjarstjórnarkosninga á Akureyri í vor. Hún hefur verið félagi í VG til margra ára og unnið að ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Vinstri græn á Akureyri. Velferðarmál eru Andre...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gonguferd-med-joni-hjaltasyni-um-soguslodir-a-akureyri
Gönguferð með Jóni Hjaltasyni um söguslóðir á Akureyri Jón Hjaltason er leiðsögumaður í gönguferð um söguslóðir á Akureyri laugardaginn 16. janúar nk. kl. 13.00. Lagt verður upp frá Sigurhæðum þar verður hressing að aflokinni göngu. Jón hefur á undanförnum árum unnið það þrekvirki, að skrifa sögu Akureyrar allt frá upp...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bryndis-run-hansen-ithrottamadur-akureyrar-2009
Bryndís Rún Hansen Íþróttamaður Akureyrar 2009 Bryndís Rún Hansen sundkona úr Óðni er Íþróttamaður Akureyrar 2009, en kjörinu var lýst í hófi í Ketilshúsinu fyrr í kvöld. Alls voru 15 íþróttamenn tilnefndir af aðildarfélögum ÍBA. Í öðru sæti varð knattspyrnukonan Rakel Hönnudóttir frá Þór/KA og í þriðja sæti handboltak...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikill-ahugi-er-a-ull-og-ullarvinnslu
Mikill áhugi er á ull og ullarvinnslu Á annað hundrað manns sóttu fyrirlestur Kristins Arnþórssonar, ullarfræðings, í Amtsbókasafninu á Akureyri sl. laugardag, en hann fjallaði um ull og ullarvinnslu. Á sama tíma var opnuð, í Amtsbókasafninu, sýning á vegum Iðnaðarsafnsins á Akureyri um ull og ullarframleiðslu á síðust...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bryndis-run-hansen-sundkona-arsins-hja-odni
Bryndís Rún Hansen sundkona ársins hjá Óðni Bryndís Rún Hansen var útnefnd sunkona ársins 2009 á uppskeruhátíð Sundfélagsins Óðins, sem haldið var í Brekkuskóla í gærkvöld. Bryndís átti frábært í sundinu og vann þrjá Íslandsmeistaratitla, auk þess hún stóð sig frábærlega á Evrópumóti unglinga í Prag í sumar, þar sem hú...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fimm-saekja-um-ad-halda-unglingalandsmot-umfi-i-sumar
Fimm sækja um að halda Unglingalandsmót UMFÍ í sumar Fimm aðilar sækja um að halda 13. Unglingalandsmót Ungmennafélags Íslands í sumar en umsóknarfrestur þess efnis rann út 10. janúar sl. Þeir sem sækja um eru Ungmennasamband Borgarfjarðar, UMSB, með móthald í Borgarnesi, Ungmennasamband Vestur-Skaftafellssýslu, USVS, ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ragnar-snaer-skodar-adstaedur-i-thyskalandi
Ragnar Snær skoðar aðstæður í Þýskalandi Ragnar Snær Njálsson handboltakappi frá Akureyri hélt í dag til Þýskalands þar sem hann skoðar aðstæður hjá 3. deildarliðinu HSC Bad Neustadt næstu daga, en eins og greint var frá í Vikudegi í síðustu viku hafa tvö lið frá Þýskalandi verið að fylgjast með gangi mála hjá Ragnari ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/um-67-milljonir-krona-i-fjarhagsadstod-i-fyrra
Um 67 milljónir króna í fjárhagsaðstoð í fyrra Á fundi félagsmálaráðs Akureyrar í gær var lagt fram yfirlit yfir veitta fjárhagsaðstoð á síðasta ári. Heildarúrgjöld Akureyrarbæjar til fjárhagsaðstoðar á árinu 2009 að teknu tilliti til endurgreiddra lána urðu tæpar 67 milljónir króna sem er lækkun um 0,5% á milli ára. Þ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/flokksradsfundur-vinstri-graenna-haldinn-a-akureyri-um-helgina
Flokksráðsfundur Vinstri grænna haldinn á Akureyri um helgina Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs verður haldinn á Akureyri um næstu helgi en flokksráðið er æðsta vald flokksins milli landsfunda. Að þessu sinni má búast við að komandi kosningar setji svip sinn á umræðuna, bæði þjóðaratkvæðagreiðsla...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/valkostir-vegna-stadsetningu-nys-hjukrunarheimilis-kynntir
Valkostir vegna staðsetningu nýs hjúkrunarheimilis kynntir Á fundi félagsmálaráðs Akureyrar í gær, kynnti Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri, valkosti varðandi staðsetningu nýs hjúkrunarheimilis á Akureyri. Um er að ræða 5 lóðir sem staðsettar eru tiltölulega miðsvæðis á Akureyri þ.e. á Drottningarbrautarreit, á K...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/garpar-og-mammutar-leika-til-urslita-a-januarmotinu-i-krullu
Garpar og Mammútar leika til úrslita á Janúarmótinu í krullu Garpar og Mammútar leika til úrslita á Janúarmótinu í krullu en riðlakeppni mótsins lauk í gærkvöld með fjórum leikjum í Skautahöll Akureyrar. Í A- riðli sigruðu Garpar lið Víkinga, 3:6, og Skytturnar unnu Svarta gengið, 6:1. Garpar unnu þar með riðilinn en l...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gudmundur-gefur-kost-a-ser-i-3-6-saeti-hja-vg-a-akureyri
Guðmundur gefur kost á sér í 3.-6. sæti hjá VG á Akureyri Guðmundur Helgi Helgason hefur ákveðið að gefa kost á sér í 3.-6. sæti í forvali Vinstri-grænna á Akureyri fyrir bæjarstjórnarkosningar í vor. Guðmundur Helgi er 45 ára matreiðslumeistari og starfar sem hótelstjóri og matreiðslumaður á Hótel Núpi í Dýrafirði sem...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/threttan-gefa-kost-a-ser-i-profkjori-sjalfstaedisflokksins
Þrettán gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins Framboðsfrestur vegna prófkjörs Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor, rann út í kvöld og bárust 13 tilkynningar um framboð. Prófkjörið fer fram laugardaginn 13. febrúar nk. Ekki kemur fram í tilkynningu frá flokknum hvaða sæti ei...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/toluvert-um-nyskraningar-atvinnulausra-um-aramot
Töluvert um nýskráningar atvinnulausra um áramót Mikið hefur verið að gera hjá Vinnumálastofnun Norðurlands eystra á Akureyri í byrjun árs, m.a. var töluvert um nýskráningar nú um áramót að sögn Soffíu Gísladóttur forstöðumanns. Hún segir að frá því í haust hafi smátt og smátt verið að fjölga á atvinnuleysisskrá. Ástan...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oruggur-sigur-akureyrar-gegn-valthrotti
Öruggur sigur Akureyrar gegn Val/Þrótti Strákarnir í 2. flokki Akureyrar Handboltafélags unnu tíu marka sigur á Val/Þrótti, 36:26, er liðin mættust í Íþróttahöll Akureyrar á Íslandsmótinu í handbolta sl. laugardag. Akureyri leiddi með fjórum mörkum í hálfleik, 18:14. Eftir sex umferðir er Akureyri á toppi deildarinnar ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samid-verdi-vid-syrusson-um-honnun-og-framleidslu-a-husgognum-i-hof
Samið verði við Sýrusson um hönnun og framleiðslu á húsgögnum í Hof Á síðasta fundi stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar, voru kynntar niðurstöður dómnefndar sem skipuð var til að meta tillögur sem bárust í hönnun og framleiðslu á húsgögnum og lausum búnaði í Fljótið, veitingastað og forsal menningarhússins Hofs. Dómnefnd...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ithrottamadur-akureyrar-2009-utnefndur-a-midvikudag
Íþróttamaður Akureyrar 2009 útnefndur á miðvikudag Alls eru fimmtán íþróttamenn tilnefndir í kjöri til Íþróttamanns Akureyrar 2009 en kjörinu verður lýst í hófi í Ketilhúsinu næstkomandi miðvikudagskvöld. Við það tækifæri mun Hermann Jón Tómasson bæjarstjóri skrifa undir styrktarsamninga við ungt og efnilegt íþróttafól...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/atakid-ungt-folk-til-athafna-hefst-i-vikunni
Átakið Ungt fólk til athafna hefst í vikunni „Þetta er mjög spennandi átak og ég bind miklar vonir við að það skili árangri," segir Soffía Gísladóttir forstöðumaður Vinnumálastofnunar á Norðurlandi eystra, um ný tækifæri fyrir unga atvinnuleitendur sem félags- og tryggingamálaráðuneytið kynnti nýverið. Yfirskrif þess e...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/island-fekk-silfur-a-hm-i-tyrklandi
Ísland fékk silfur á HM í Tyrklandi Íslenska karlalandsliðið í íshokkí skipað leikmönnum 20 ára og yngri, hafnaði í öðru sæti á heimsmeistarmótinu í 3. deild í íshokkí eftir 3:1 tap gegn Ástralíu í dag í úrslitaleiknum sem fram fór í Istanbúl Tyrklandi. Ísland hafði fyrir leikinn tryggt sér sæti í 2. deild en varð að l...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/blakmadurinn-poitr-kempisty-ithrottamadur-ka
Blakmaðurinn Poitr Kempisty Íþróttamaður KA Blakmaðurinn Poitr Kempisty er Íþróttamaður KA 2009 en kjöri hans var lýst í hófi í KA-heimilinu fyrr í dag, að viðstöddu fjölmenni. Í öðru sæti í kjörinu varð knattspyrnumaðurinn Haukur Heiðar Hauksson og í þriðja sæti júdókonan Helga Hansdóttir. Alls voru sex íþróttamenn ti...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sasen-vann-dramatiskan-sigur-a-birninum
SAsen vann dramatískan sigur á Birninum SAsen vann nauman og dramatískan sigur á Birninum, 5:4, er liðin mættust í Skautahöllinni á Akureyri í gærkvöld á Íslandsmótinu í íshokkí kvenna. Jafnræði var með liðinum í leiknum og staðan eftir fyrstu lotu var 1:0 fyrir gestina. Gestirnir í Birninum bættu við einu marki í anna...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sigrar-hja-ka-i-blakinu-i-dag-1
Sigrar hjá KA í blakinu í dag Blakið fór af stað á nýjan leik í dag í MIKASA- deild karla og kvenna eftir hlé þar sem KA var í eldlínunni er liðið tók á móti Stjörnunni í KA- heimilinu í karla- og kvennaflokki. Leikur KA og Stjörnunnar í karlaflokki var hörkuleikur en fór svo að lokum að heimamenn lönduðu sigri, 3:2. P...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/island-leikur-til-urslita-a-hm-eftir-sigur-gegn-nyja-sjalandi
Ísland leikur til úrslita á HM eftir sigur gegn Nýja- Sjálandi Ísland tryggði sér í dag sæti í úrslitaleiknum í 3. deild heimsmeistaramótsins í íshokkí karla U20 ára landsliða sem fram fer í Istanbúl í Tyrklandi, er liðið lagði Nýja- Sjáland örugglega af velli, 4:0, í undanúrslitum mótsins. Matthías Sigurðsson skoraði ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stefnir-i-barattu-hja-vg-a-akureyri-um-fyrsta-saetid
Stefnir í baráttu hjá VG á Akureyri um fyrsta sætið Það stefnir í baráttu um efsta sætið á framboðslista Vinstri grænna á Akureyri fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor. Andrea Hjálmsdóttir, aðjunkt við Háskólann á Akureyri, er að íhuga það alvarlega að bjóða sig fram í 1. sætið. Áður hafði Baldvin H. Sigurðsson bæjarf...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tvaer-syningar-opna-i-dali-gallery-i-dag
Tvær sýningar opna í DaLí Gallery í dag Tvær sýningar opna í DaLí Gallery á Akureyri í dag, laugardag, kl. 14.00. Það eru jafnframt fyrstu sýningar ársins í DaLí Gallery og eru þar á ferð listakonurnar Margrét Buhl og Jana María Guðmundsdóttir. Myndlistakonan Margrét Buhl opnar í DaLí Gallery og vinnur Margrét innsetni...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sex-stiga-tap-hja-thor-gegn-kfi-i-kvold
Sex stiga tap hjá Þór gegn KFÍ í kvöld Þór tapaði gegn KFÍ á heimavelli með sex stiga mun, 68:74, er liðin mættust í kvöld í íþróttahúsi Síðuskóla í 1. deild karla í körfubolta. Þór situr því áfram í þriðja neðsta sæti deildarinnar með fjögur stig en KFÍ er hinsvegar komið í toppsætið eftir sigurinn með 18 stig. Óðinn ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/utkollum-hja-slokkvilidi-akur-eyrar-faekkadi-a-milli-ara
Útköllum hjá Slökkviliði Akur- eyrar fækkaði á milli ára Útköll Slökkviliðs Akureyrar 2009 voru 2,068 talsins og er það fækkun í heildarfjölda útkalla á milli áranna 2008 og 2009 um 8,6%. Slökkviliðið var boðað út 158 sinnum á dælubílum á síðasta ári og er það fjölgun milli ára um 34 útköll. Slökkviliðið var kallað út ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mun-fleiri-aka-undir-ahrifum-vimuefna
Mun fleiri aka undir áhrifum vímuefna Mun fleiri ökumenn voru teknir fyrir akstur undir áhrifum ávana og fíkniefna, í umdæmi lögreglunnar á Akureyri, á síðasta ári en áður 2008, samkvæmt bráðabirgðatölum. Í fyrra komu 100 slík mál upp en 50 árið 2008. Innbrotsmálum fækkaði nokkuð á milli ára, voru 69 í fyrra en 85 árið...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/valdis-anna-saekist-eftir-3-5-saeti-hja-samfylkingunni
Valdís Anna sækist eftir 3.-5. sæti hjá Samfylkingunni Valdís Anna Jónsdóttir hefur gefið kost á sér í 3.- 5. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar á Akureyri sem fer fram dagana 29. - 30. janúar næstkomandi. Valdís Anna hefur verið virkur félagi í Samfylkingunni frá árinu 2005 og hefur þar gegnt mörgum trúnaðarstörfum. H...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-faer-kfi-i-heimsokn-i-kvold
Þór fær KFÍ í heimsókn í kvöld Þór hefur leik að nýju í kvöld í 1. deild karla í körfubolta er liðið fær KFÍ í heimsókn í íþróttahús Síðuskóla. Búast má við erfiðum leik fyrir heimamenn þar sem KFÍ er tólf stigum ofar í deildinni í 2. sæti með 16 stig, en Þór hefur fjögur stig í 8. sæti. Þór má því illa við að misstíga...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/adstaedur-med-besta-moti-i-hlidarfjalli-1
Aðstæður með besta móti í Hlíðarfjalli Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli hefur verið vel sótt síðustu daga og vikur en enda aðstæður til skíða- og brettaiðkunar með allra besta móti. Í dag, föstudag er opið í Hlíðarfjalli frá kl. 12 - 19. Þar eru veður gott, eins stigs frost og logn.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/threttan-gefa-kost-a-ser-i-profkjori-samfylkingarinnar
Þrettán gefa kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar Alls gefa þréttan frambjóðendur kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar á Akureyri helgina 29.-30. janúar nk. en framboðsfrestur rann út nú á miðnætti. Aðeins Hermann Jón Tómasson bæjarstjóri gefur kost á sér í 1. sætið en þau Sigrún Stefánsdóttir bæjarfulltrúi og ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oruggur-sigur-islands-gegn-tyrkjum-i-lokaumferd-ridlakeppninnar
Öruggur sigur Íslands gegn Tyrkjum í lokaumferð riðlakeppninnar Íslenska karlalandsliðið í íshokkí U20 ára og yngri lenti ekki í neinum vandræðum með lið Tyrkja, er liðin áttust við í kvöld í lokaumferð riðlakeppninnar í 3. deild heimsmeistaramótsins í íshokkí sem haldið er í Istanbúl í Tyrklandi. Lokatölur leiksins ur...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/agaetur-arangur-nordlendinga-a-jolamoti-ir-1
Ágætur árangur norðlendinga á Jólamóti ÍR Þriðja Jólamót frjálsíþróttadeildar ÍR var haldið mánudaginn 28. desember síðastliðin í Laugardagshöllinni og fór hópur af keppendum frá norðurlandi á mótið sem náði fínum árangri. Hafdís Sigurðardóttir, HSÞ, sigraði í langstökki kvenna er hún stökk 5, 62 metra og varð önnur í ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/god-sala-i-kjoti-um-hatidarnar-en-erfidir-manudir-framundan
Góð sala í kjöti um hátíðarnar en erfiðir mánuðir framundan „Okkar vörur seldust mjög vel og í samræmi við það sem við höfðum gert ráð fyrir. Framleiðslueiningar okkar á Húsavík og Akureyri eru með mjög mikla afkastagetu í jólavörunum sem við fullnýtum og í raun gott betur," segir Ingvar Gíslason markaðsstjóri Norðlens...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kvenfelagskonur-faera-nyfaeddum-bornum-handprjonada-hufu
Kvenfélagskonur færa nýfæddum börnum handprjónaða húfu Öll börn sem fæðast á þessu ári munu fá handprjónaða húfu að gjöf frá Kvenfélagasambandi Íslands. Kvenfélagskonur um allt land hafa ákveðið að ráðast í þetta verkefni í tilefni af 80 ára afmæli sambandsins. Gert er ráð fyrir því að um 5.000 börn fæðist á þessu ári....
https://www.vikubladid.is/is/frettir/grimseyingar-motmaela-fyrirhugadri-faekkun-ferjusiglinga
Grímseyingar mótmæla fyrirhugaðri fækkun ferjusiglinga Á fundi bæjarráðs Akureyrar í morgun var lagður fram undirskriftalisti með nöfnum 56 Grímseyinga um ályktun sem send var til samgönguráðuneytisins og Vegagerðarinnar. Þar mótmæla þeir harðlega fyrirhugaðri fækkun ferjusiglinga til Grímseyjar, úr þremur ferðum á vik...