Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.vikubladid.is/is/frettir/soroptimistar-senda-jolapakka-til-graenlenskra-barna
Soroptimistar senda jólapakka til grænlenskra barna Soroptimistasystur á Akureyri senda jólapakka til allra barna í Ittoqqortoormiit (Scoresbysund) á Grænlandi. Að frumkvæði Helenu Dejak hafa Soroptimistar á Akureyri nú í annað sinn gefið öllum börnum frá 0 til 15 ára í Ittoqqortoormiit, á austurströnd Grænlands jólapa...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thrir-fluttir-a-slysadeild-eftir-hardan-arekstur-a-akureyri
Þrír fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur á Akureyri Þrír voru fluttir til aðhlynningar á slysadeild Sjúkrahússins á Akureyri eftir mjög harðan árekstur tveggja jeppa á gatnamótum Glerárgötu og Kaupvangsstrætis um kl.15.00 í dag. Allir þrír komust af sjálfsdáðun út úr bílunum og samkvæmt upplýsingum á vettvangi e...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baerinn-nytir-ekki-forkaupsrett-vid-solu-skolastigs-4
Bærinn nýtir ekki forkaupsrétt við sölu Skólastígs 4 Akureyrarbær mun ekki nýta sér forkaupsrétt við sölu Skólastígs 4, samkvæmt kauptilboði dags. 8. desember sl. Þetta var samþykkt á fundi bæjarráðs í morgun. Fanney Benediktsdóttir og hjónin Ágúst Guðmundsson og Guðrún Gísladóttir, sem hafa átt og rekið líkamsræktarst...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skatttekjur-horgarbyggdar-rumar-223-milljonir-a-naesta-ari
Skatttekjur Hörgárbyggðar rúmar 223 milljónir á næsta ári Sveitarstjórn Hörgárbyggðar samþykkti fjárhagsáætlun næsta árs við síðari umræðu á fundi sínum í gær. Heildarniðurstaða fjárhagsáætlunarinnar fyrir árið 2010 er sú að skatttekjur verði rúmar 223 milljónir króna og heildarrekstrarkostnaður A-hluta (nettó) verði r...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jolasongvaka-til-styrktar-maedrastyrksnefnd-akureyrar
Jólasöngvaka til styrktar Mæðrastyrksnefnd Akureyrar Minjasafnið á Akureyri stendur fyrir jólasöngvöku til styrktar Mæðrastyrksnefnd á Akureyri laugardaginn 19. desember kl 14. Ljúfir tónar þekktra jólasöngva munu óma í Minjasafnskirkjunni þegar þau Íris Ólöf Sigurjónsdóttir og Hjörleifur Hjartarson syngja jólin inn og...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ekki-verid-tekin-akvordun-um-hvada-leid-verdur-farin-i-sorphreinsimalum
Ekki verið tekin ákvörðun um hvaða leið verður farin í sorphreinsimálum Á síðasta fundi framkvæmdaráðs Akureyrarbæjar var lagður fram liður í fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa þar sem fram koma áhyggjur af sorpmálum og fyrirætlunum bæjarins í þeim efnum. Vísað var til bókunar í fundargerð umhverfisnefndar um framtíð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skammtimavistun-fatladra-a-akureyri-faerdar-godar-gjafir
Skammtímavistun fatlaðra á Akureyri færðar góðar gjafir Skammtímavistun fatlaðra á Akureyri fékk nýverið að gjöf frá Barnaspítalasjóði Hringsins tvö sjúkrarúm og eina hvíldarkerru, samtals að andvirði um 3,9 milljónir króna. Um er að ræða sérhæfðan búnað sem ætlað er að bæta aðstöðu og aðbúnað þeirra fjölfötluðu barna ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jonatan-thor-i-urvalslid-fyrstu-7-umferdanna
Jónatan Þór í úrvalslið fyrstu 7. umferðanna Úrvalslið N1- deildar karla í handbolta fyrir fyrstu 7. umferðir Íslandsmótsins var tilkynnt í hádeginu í dag. Akureyri Handboltafélag á einn leikmann í liðinu en Jónatan Þór Magnússon þótti hafa staðið sig best í stöðu miðjumanns. Þá þótti Akureyri Handboltafélag hafa yfir ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/saudfjarbaendur-motmaela-breytingum-a-skipulagi-stjornarradsins
Sauðfjárbændur mótmæla breytingum á skipulagi Stjórnarráðsins Stjórn Landssamtaka sauðfjárbænda samþykkti ályktun á fundi sínum í gær, þar sem hún mótmælir fyrirhuguðum breytingum á skipulagi Stjórnarráðsins sem fela í sér að leggja niður landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytið.Stjórnin telur afar óskynsamlegt að ætla s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kannabisefni-og-peningar-haldlagdir-vid-husleit-a-akureyri
Kannabisefni og peningar haldlagðir við húsleit á Akureyri Lögreglan á Akureyri framkvæmdi húsleit í íbúð í Glerárhverfi í gærkvöld eftir að grunsemdir höfðu kviknað um fíkniefnamisferli þar. Við húsleitina fundust rúmlega 120 grömm af hassi og smáræði af hvítum efnum, en einnig var ein kannabisplanta í ræktun í íbúðin...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ellefu-ara-stulka-tekin-ur-valsarskola-vegna-eineltis
Ellefu ára stúlka tekin úr Valsárskóla vegna eineltis Foreldrar ellefu ára gamallar stúlku, nemanda í sjötta bekk Valsárskóla á Svalbarðseyri, hafa tekið stúlkuna úr skólanum vegna langvarandi eineltis. Þau vilja ekki láta nafn síns getið, vegna dóttur sinnar, og segja að hún muni ekki mæta aftur í skólann fyrr en þeim...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/opnunartimar-a-akureyri-um-jol-og-aramot
Opnunartímar á Akureyri um jól og áramót Akureyrarstofa hefur í samstarfi við Upplýsingamiðstöð ferðamála unnið yfirlit um opnunartíma veitingahúsa og gististaða, verslana og ýmissa þjónustufyrirtækja á Akureyri um jól og áramót. Þar er um að ræða gagnlegan lista sem nýtist jafnt gestum bæjarins sem heimamönnum, en rei...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-maetir-njardvik-i-bikarnum
Þór mætir Njarðvík í bikarnum Í dag var dregið í 8- liða úrslit í Subway- bikarkeppninni í körfubolta. Í kvennaflokki drógst Þór gegn Njarðvík. Þar sem Þór kom sem seinna lið upp úr pottinum fær Njarðvík heimaleikjaréttinn. Leikið verður í keppninni 16.- 18. janúar á næsta ári. Drátturinn lítur þannig út: Fjölnir - Lau...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/okumadur-slapp-med-skrekkinn-eftir-bilveltu-a-borgarbraut
Ökumaður slapp með skrekkinn eftir bílveltu á Borgarbraut Ökumaður lítils sendibíls slapp með skrekkinn er bíll hans valt á Borgarbraut á Akureyri nú á þriðja tímanum og hafnaði á hliðinni utan vegar og í öfuga akstursstefnu. Ekki mátti þó miklu muna að bíllinn færi fram af háum kanti. Ökumaðurinn komst af sjálfsdáðum ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/andrea-kylfingur-arsins-hja-ga
Andrea kylfingur ársins hjá GA Andrea Ásgrímsdóttir var kjörinn kylfingur ársins fyrir árið 2009 hjá Golfklúbbi Akureyrar á Aðalfundi félagsins í Jaðri sl. fimmtudag. Andrea varð Íslandsmeistari kvenna 35 ára og eldri á árinu en það mót var haldið hér á Akureyri sl. sumar. Andrea hefur sex sinnum orðið Akureyrarmeistar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/althydubandalagid-a-akureyri-gefur-tvaer-milljonir
Alþýðubandalagið á Akureyri gefur tvær milljónir Alþýðubandalagsfélagið á Akureyri hefur afhent Öldrunarheimilum Akureyrar tvær milljónir króna að gjöf til minningar um Lárus Björnsson (1893-1985) og Sigurð Kristjánsson (1909-1998) sem báðir áttu sitt ævikvöld á Öldrunarheimilinu Hlíð. Lárus arfleiddi Alþýðubandalagið ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/atak-og-vaxtarraektin-sameinast
Átak og Vaxtarræktin sameinast Fanney Benediktsdóttir og hjónin Ágúst Guðmundsson og Guðrún Gísladóttir, sem hafa átt og rekið líkamsræktarstöðina Átak við Strandgötu á Akureyri, hafa keypt húseignina Skólastíg 4. Um er að ræða 2000 fermetra líkamsræktarhús milli Íþróttahallarinnar og Sundlaugar Akureyrar og er það key...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kea-og-sparisjodir-styrkja-hjalparstarf-kirkjunnar
KEA og sparisjóðir styrkja Hjálparstarf kirkjunnar Í framhaldi af útgáfu KEA kortsins hófst samstarf á milli KEA og sparisjóðanna á félagssvæði KEA. Sparisjóðirnir hófu útgáfu á KEA debet- og kreditkortum til félagsmanna og nú hafa aðilar samstarfsins ákveðið að styrkja gott málefni á svæðinu. Halldór Jóhannsson, framk...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/framhald-samnings-la-og-baejarins-raedst-af-samningi-vid-menntamalaraduneyti
Framhald samnings LA og bæjarins ræðst af samningi við menntamálaráðuneyti Fulltrúar úr stjórn Leikfélags Akureyrar, þeir Egill Arnar Sigþórsson, Kjartan Ólafsson og Ólafur Aðalgeirsson komu á fund stjórnar Akureyrarstofu í síðustu viku og fóru yfir starfsemina og það sem framundan er. Þá var rætt um endurnýjun samning...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/utgjold-baejarstjods-akureyrar-aukast-um-120-milljonir
Útgjöld bæjarstjóðs Akureyrar aukast um 120 milljónir Tillögur sem fyrir liggja í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar um hækkun tryggingagjalds úr 7% í 8,6% munu auka útgjöld bæjarsjóðs Akureyrarbæjar um 120 milljónir króna á næsta ári. Hermann Jón Tómasson bæjarstjóri sagði við fyrri umræðu fjárhagsáætlunar á fundi b...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/dregid-i-ridla-fyrir-deildarbikarkeppnina
Dregið í riðla fyrir deildarbikarkeppnina Dregið var í riðla fyrir deildarbikarkeppni karla og kvenna í knattspyrnu fyrir árið 2010 í gær. Í karlaflokki er leikið í þremur átta liða riðlum í A- deild og eru það liðin 24 í tveimur efstu deildunum sem skipa A- deildina. Tvö efstu liðin í hverjum riðli komast í 8- liða úr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/lesid-upp-ur-nyjum-ljodabokum-a-amtsbokasafninu
Lesið upp úr nýjum ljóðabókum á Amtsbókasafninu Oft vilja ljóð lenda undir í umfjöllun um jólabækurnar og vill Amtsbókasafnið bæta úr því. Á morgun, þriðjudaginn 15. desember kl. 17:15, koma tveir kunnir einstaklingar á Amtsbókasafnið á Akureyri og lesa upp úr nýjum ljóðabókum sínum. Þetta eru þeir Bragi V. Bergmann og...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/annasom-helgi-hja-slokkvilidinu-a-akureyri
Annasöm helgi hjá Slökkviliðinu á Akureyri Helgin var annasöm hjá Slökkviliðinu á Akureyri en 15 sinnum var liðið kallað út til starfa. Þrettán sinnum voru sjúkrabílar kallaðir til þar af í 7 almenna flutninga en inn á milli komu upp 6 neyðarflutningar. F-1 sjúkraflug kom upp á laugardagsmorgun og var sá aðili fluttur ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/selma-haett-med-kathor
Selma hætt með KA/Þór Selma Malmquist, markvörður í liði KA/Þórs í N1- deild kvenna í handbolta, hefur ákveðið að hætta að leika með liðinu. Ástæðan fyrir brotthvarfi Selmu ku vera meiðslavandræði og annir í námi. Selma hefur verið aðalmarkvörður liðsins það sem af er vetri og ljóst að þetta er mikil blóðtaka fyrir KA/...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ryr-uppskera-hja-kathor-um-helgina
Rýr uppskera hjá KA/Þór um helgina Lið KA/Þórs kemur tómhent heim úr helgarferðinni suður þar sem liðið spilaði tvo leiki í N1- deild kvenna í handbolta. KA/Þór tapaði fyrir Fylki í gær og mættu svo Haukum á Ásvöllum í dag þar sem heimamenn unnu þrettán marka sigur, 33:20, en munurinn var aðeins tvö mörk í hálfleik, 14...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thriggja-marka-sigur-hja-sa-gegn-birninum
Þriggja marka sigur hjá SA gegn Birninum Skautafélag Akureyrar gerði góða ferð suður um helgina er liðið sigraði Björninn, 6:3, í Egilshöllinni í gær á Íslandsmóti karla í íshokkí. Sigurður Sveinn Sigurðsson skoraði tvívegis fyrir SA í leiknum og þeir Stefán Hrafnsson, Jóhann Már Leifsson, Josh Gribben og Gunnar Darri ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vegrid-sett-upp-til-ad-baeta-oryggi-a-eyjafjardarbraut
Vegrið sett upp til að bæta öryggi á Eyjafjarðarbraut Umfangsmiklar framkvæmdir standa nú yfir á veginum milli Akureyrar og Hrafnagils í Eyjafjarðarsveit, eins og vegfarendur hafa orðið varir við. Um er að ræða verkið; Eyjafjarðarbraut vestri, Litli Hammur - Hrafnagil, afvötnun og endurbætur. Verktakafyrirtækið GV Gröf...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-a-topp-mikasa-deildarinnar
KA á topp MIKASA- deildarinnar Karlalið KA tyllti sér á topp MIKASA- deildarinnar er liðið sigraði HK í Digranesi í gær, 3:1, á Íslandsmótinu í blaki. KA vann fyrstu tvær hrinurnar, 25:18 og 25:21 en HK vann þá þriðju 25:20. KA hafði svo betur í fjórðu hrinu, 26:24, og verður á toppi deildarinnar yfir hátíðarnar með 10...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fylkir-hafdi-betur-gegn-kathor
Fylkir hafði betur gegn KA/Þór Fylkir vann nauman sigur á KA/Þór, 25:23, er liðin mættust í Fylkishöllinni í dag í N1- deild kvenna í handbolta eftir að staðan var jöfn í hálfleik, 11:11. Arna Valgerður Erlingsdóttir var markahæst í liði KA/Þórs í leiknum með 8 mörk, Martha Hermannsdóttir skoraði 7 mörk og þær Emma Sar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samrad-haft-vid-gerd-fjarhags-aaetlunar-akureyrarbaejar
Samráð haft við gerð fjárhags- áætlunar Akureyrarbæjar Meirihlutinn í bæjarstjórn Akureyrar bauð minnihluta til samstarfs vegna vinnu við gerð fjárhagsáætlunar líkt og gert var á liðnu ári en þá tóku öll framboðin þátt í gerð og samþykkt áætlunarinnar. Oddvitar allra framboða tóku þátt í í gerð áætlunarinnar, en áhersl...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/agaett-skidafaeri-i-hlidarfjalli-2
Ágætt skíðafæri í Hlíðarfjalli Stekkjastaur sást bregða fyrir í Hlíðarfjalli snemma í morgun en þar er skíðasvæðið opið til kl. 16.00. Gott skíðafæri er á svæðinu og allar lyftur opnar. Reyndar má segja að nú sé hálfgert vorfæri, 5 stiga hiti og andvari. Opið verður í Hlíðarfjalli á morgun frá kl. 10.00-16.00.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samherji-veitti-styrki-samtals-ad-upphaed-60-milljonir-krona
Samherji veitti styrki samtals að upphæð 60 milljónir króna Útgerðarfyrirtækið Samherji veitti fyrir stundu styrki til ýmissa samfélagsverkefna á Akureyri og Dalvík, samtals að upphæð 60 milljónir króna. Athöfnin fór fram í Flugsafni Íslands á Akureyrarflugvelli að viðstöddu fjölmenni. Fulltrúar íþróttafélaga á svæðinu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/syning-a-myrkraverkum-i-verksmidjunni-a-hjalteyri
Sýning á “myrkraverkum” í Verksmiðjunni á Hjalteyri Sýning á nokkrum "myrkraverkum" þeirra Gústavs Geirs Bollasonar, Þórarins Blöndal, Florence Lucas, Roland Moreau og Vincent Chhim, verður opnuð í Verksmiðjunni á Hjalteyri laugardaginn 12. desember kl. 17. Yfirskrift sýningarinnar er; Zombí, en verkin samanstanda af h...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bodid-verdur-upp-a-flugeldasyningu-a-akureyri-a-gamlarskvold
Boðið verður upp á flugeldasýningu á Akureyri á gamlárskvöld Frétt Vikudags í gær þess efnis að Súlur, björgunarsveitin á Akureyri myndi ekki standa fyrir flugeldasýningu á gamlárskvöld líkt og undanfarin ár, þar sem ekki hafi tekist að fá aðila til að standa straum af kostnaði við hana, vakti mikla athygli. Strax í kj...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ny-sending-af-boluefni-vaentanleg-i-naestu-viku
Ný sending af bóluefni væntanleg í næstu viku Ný sending af bóluefni vegna svínaflensunnar kemur á Heilsugæslustöðina á Akureyri á fimmtudag í næstu viku, 17. desember. Þórir V. Þórisson farsóttarlæknir í Eyjafirði segir að með þeim skammti sem þá berst til heilsugæslunnar verði hægt að bólusetja í nokkra daga. Þeir se...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sjo-leikmenn-fra-sa-i-u18-ara-landslidid
Sjö leikmenn frá SA í U18 ára landsliðið Fyrsti æfingahópur U18 ára landsliðs karla í íshokkí fyrir keppni í Narva í Eistlandi í mars á næsta ári hefur verið valinn og á Skautafélag Akureyrar sjö fulltrúa í liðinu. Þeir eru Einar Ólafur Eyland, Bergur Gíslason, Ingólfur Elíasson, Úlfur Bragi Einarsson, Gunnar Darri Sig...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/haukar-numeri-of-storir-fyrir-akureyri-i-kvold
Haukar númeri of stórir fyrir Akureyri í kvöld Haukar höfðu betur gegn Akureyri Handboltafélagi, 24:20, er liðin mættust í Íþróttahöllinni í kvöld í N1- deild karla í handbolta. Sigurinn var þó mun öruggari en tölurnar gefa til kynna og strax í upphafi leiks gáfu gestirnir tóninn fyrir það sem koma skyldi og var í raun...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tveir-fra-ka-a-nordurlandamotid-i-blaki
Tveir frá KA á Norðurlandamótið í blaki Endanlegir hópar hafa verið valdir í U17 ára landsliði karla og kvenna í blaki sem heldur til keppni á Norðurlandamótið sem haldið verður í IKAST í Danmörku dagana 20.-22. desember næstkomandi. KA mun eiga tvo fulltrúa í keppninni en þær Sesselja Fanneyjardóttir og Harpa Björnsdó...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/lysir-ahyggjum-af-oheillathroun-a-utbods-og-vinnumarkadi
Lýsir áhyggjum af óheillaþróun á útboðs-og vinnumarkaði Stjórn Fagfélagsins - stéttarfélags fagfólks í byggingariðnaði, lýsir yfir miklum áhyggjum af þeirri óheillaþróun sem á sér stað á útboðs-og vinnumarkaði í bygginga- og verktakastarfsemi um þessar mundir. Ekki verði betur séð en að fallið hafi verið frá öllum regl...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/alls-barust-1346-umsoknir-um-skolavist-a-voronn-i-vma
Alls bárust 1346 umsóknir um skólavist á vorönn í VMA Um 230 nýjar umsóknir bárust um skólavist á vorönn í Verkmenntaskólanum á Akureyri. Alls bárust 1346 umsóknir um skólavist á vorönninni, þar af 1115 umsóknir frá nemendum voru fyrir í skólanum á haustönn. Alls var 103 umsóknum hafnað og eiga því 1.243 nemendur skóla...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/grunnskolinn-i-hrisey-og-leikskolinn-sameinadir
Grunnskólinn í Hrísey og leikskólinn sameinaðir Skólanefnd Akureyrar samþykkti á fundi sínum vikunni tillögum um að Grunnskólinn í Hrísey og leikskólinn Smábær verði formlega sameinaðir í einn skóla sem ber nafnið Hríseyjarskóli. Hríseyjarskóli mun verða samsettur af leikskóladeild og grunnskóladeild sem er undir stjór...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyri-maetir-haukum-i-sidasta-heimaleik-arsins-i-kvold
Akureyri mætir Haukum í síðasta heimaleik ársins í kvöld Í kvöld hefst 9. umferð N1- deildar karla í handbolta með tveimur leikjum og beinast flest augu að leik Akureyri Handboltafélags og Hauka sem eigast við í Íþróttahöll Akureyrar. Fyrir leikinn munar aðeins einu stigi á liðunum en Haukar hafa 12 stig á toppi deilda...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/logreglan-a-akureyri-upplysir-innbrot
Lögreglan á Akureyri upplýsir innbrot Lögreglan á Akureyri hefur upplýst innbrot sem framið var s.l. september í verslunina í Vaglaskógi í Fnjóskadal. Þar voru fjórir drengir á aldrinum 17-19 ára að verki. Þar var stolið talsverðu af sælgæti, gosi, drykkjarvörum og ýmsum smáhlutum. Einnig voru unnar nokkrar skemmdir á ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samthykkt-ad-ganga-fra-endurnyjun-samnings-vid-hjallastefnuna
Samþykkt að ganga frá endurnýjun samnings við Hjallastefnuna Meirihluti skólanefndar Akureyrar samþykkti á fundi sínum í vikuni, að fela fræðslustjóra að ganga frá endurnýjun samnings við Hjallastefnuna ehf. um rekstur leikskólans Hólmasólar í samræmi við umræður á fundinum. Samningur sem gerður var við Hjallastefnuna ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sameiginleg-upplysingasida-verslana-a-akureyri-opnud
Sameiginleg upplýsingasíða verslana á Akureyri opnuð Í dag opnar sameiginleg upplýsingasíða verslana á Akureyri. Markmiðið með vefnum er að safna saman á einn stað upplýsingum um verslanir á Akureyri s.s. staðsetningu, opnunartíma, vörur og þjónustu. Hver verslun verður með sitt eigið svæði á vefnum þar sem hægt er að ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/traustur-rekstur-og-miklar-framkvaemdir-a-naesta-ari
Traustur rekstur og miklar framkvæmdir á næsta ári Bæjarstjórn Dalvíkurbyggðar tók fjárhagsáætlun fyrir árið 2010 til fyrri umræðu á fundi sínum í gær. Bæjarstjórnin stendur öll að áætluninni. Traustur rekstur og miklar framkvæmdir á árinu einkenna áætlunina. Helstu niðurstöður eru þær að A hlutinn skilar afgangi uppá ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sa-eldri-vann-grannaslaginn
SA eldri vann grannaslaginn SAjun og SAsen mættust í Skautahöll Akureyrar á Íslandsmótinu í íshokkí í meistaraflokki kvenna í kvöld þar sem lokatölur urðu 4:2 sigur SAsen. Saraha Smiley skoraði tvívegis fyrir SAsen í leiknum og þær Hanna Björgvinsdóttir og Guðrún Viðarsdóttir sitt markið hver. Mörk SAjun skoruðu Telma ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/naumt-tap-gegn-wales-a-evropumotinu-i-krullu
Naumt tap gegn Wales á Evrópumótinu í krullu Íslenska liðið spilaði einn af sínum bestu leikjum í dag, gaf liði sem er í toppbaráttu riðilsins ekkert eftir og minnstu munaði að Íslendingum tækist að snúa leiknum sér í hag í næstsíðustu umferðinni. Íslendingar byrjuðu vel á móti Wales og náðu þremur stigum strax í fyrst...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/deildarbikarkeppnin-verdur-a-sinum-stad
Deildarbikarkeppnin verður á sínum stað Deildarbikarkeppni karla og kvenna í handbolta verður leikin milli jóla og nýárs en í umræðunni var að leggja keppnina niður þar sem úrslitakeppni í N1- deildinni hefur verið tekinn upp að nýju. Fjögur efstu liðin í N1- deild karla og kvenna leika í deildarbikarnum og eru ágætis ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mun-fleiri-karlar-leita-eftir-adstod-kirkjunnar-en-adur
Mun fleiri karlar leita eftir aðstoð kirkjunnar en áður Sumir fá aðstoð frá Hjálparstofnun kirkjunnar oftar en einu sinni í mánuði. Mun fleiri karlar sækja eftir aðstoð en áður og meðal þeirra hefur verið stór hópur erlendra karlmanna. Aukningin er mikil milli ára og mjög breytt samsetning hópsins m.a. fólk í vinnu með...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gert-rad-fyrir-hallalausum-rekstri-hja-akureyrarbae-a-naesta-ari
Gert ráð fyrir hallalausum rekstri hjá Akureyrarbæ á næsta ári Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2010 verður lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn í dag, þriðjudaginn 8. desember. Áætlunin gerir ráð fyrir hallalausum rekstri samstæðunnar þrátt fyrir minni tekjur að raunvirði og aukin útgjöld á vissum sviðum. ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/alag-a-ovigtadan-afla-sem-fluttur-er-a-markad-erlendis
Álag á óvigtaðan afla sem fluttur er á markað erlendis Til að jafna stöðu þeirra sem ljúka vigtun sjávarafla hér á landi og þeirra sem vigta afla sinn erlendis hefur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Jón Bjarnason nú ákveðið að frá og með næstu áramótum skuli botnfiskafli sem fluttur er óunninn á markað erlendis án ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/pall-vidar-nyr-framkvaemdarstjori-knattspyrnudeildar-thors
Páll Viðar nýr framkvæmdarstjóri knattspyrnudeildar Þórs Páll Viðar Gíslason hefur verið ráðinn í starf framkvæmdarstjóra hjá knattspyrnudeild Þórs. Páll mun taka við embættinu á byrjun næsta árs en hann tekur við af Þórólfi Sveinssyni sem lét af störfum sl. september. Páll, sem er menntaður íþróttakennari, er félaginu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hatidardagskra-i-ma-a-fimmtudaginn
Hátíðardagskrá í MA á fimmtudaginn Í tilefni af lokadegi 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi og degi Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna, verður flutt hátíðardagskrá í Kvosinni í Menntaskólanum á Akureyri fimmtudaginn 10. desember nk. Dagskráin hefst kl. 16.15 og erindi flytja Kristín Ástgeirsdóttir framkvæmda...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/elin-erla-og-halldora-stodu-sig-vel-i-bergen
Elín Erla og Halldóra stóðu sig vel í Bergen Norðurlandameistaramót unglinga í sundi var haldið í Bergen í Noregi um sl. helgi þar sem 11 sundmenn kepptu fyrir Íslands hönd og í þeim hópi voru þær Elín Erla Káradóttir og Halldóra Sigríður Halldórsdóttir úr Sundfélaginu Óðni, sem báðar eru 15 ára gamlar. Báðar stóðu sig...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leikmenn-iba-fognudu-sigri-i-bikarkeppni-ksi-fyrir-40-arum
Leikmenn ÍBA fögnuðu sigri í bikarkeppni KSÍ fyrir 40 árum Það ríkti góð stemmning í Deiglunni á Akureyri í kvöld, þegar þar komu saman "gamlar" knattspyrnuhetjur úr ÍBA, sem fögnuðu sigri í bikarkeppni KSÍ fyrir nákvæmlega 40 árum, þann 7. desember 1969. Allir leikmenn liðsins, sem og þjálfarinn, Einar Helgason, eru e...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/islendingar-unnu-godan-sigur-a-hvit-russum-a-em-i-krullu
Íslendingar unnu góðan sigur á Hvít-Rússum á EM í krullu Íslendingar unnu góðan sigur á Evrópumótinu í krullu í dag þegar þeir lögðu Hvít-Rússa, 10-4. Liðið spilaði vel í dag, sérstaklega í síðari hluta leiksins. Þetta er annar sigur íslenska landsliðsins á mótinu en eftir sigur í fyrsta leik, komu þrír tapleikir röð. ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sjalfstaediskonur-stydja-barnafjolskyldur-i-vanda
Sjálfstæðiskonur styðja barnafjölskyldur í vanda Sjálfstæðiskonur um land allt hafa tekið höndum saman og efna til söfnunar fyrir Mæðrastyrksnefndir um land allt. Söfnunin, Tökum höndum saman - styðjum barnafjölskyldur í vanda, hófst í dag mánudaginn 7. desember og stendur til 20. desember nk. Söfnuninni var formlega h...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nemendur-tonlistarskolans-a-akureyri-med-jolatonleika
Nemendur Tónlistarskólans á Akureyri með jólatónleika Nemendur Tónlistarskólans á Akureyri sitja ekki auðum höndum á aðventunni og halda jólatónleika víðs vegar um bæinn næstu daga. Í kvöld kl. 20.00 verða jólatónleikar í Akureyrarkirkju, þar sem boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá. Jólatónleikar verða svo haldnir í...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/dagatal-eimskips-fyrir-arid-2010-er-nu-komid-ut
Dagatal Eimskips fyrir árið 2010 er nú komið út Dagatal Eimskips kom fyrst út árið 1928 og hefur verið prentað á hverju ári síðan, ef undanskilin eru tvö ár. Hið fyrra var í lok seinni heimsstyrjaldarinnar þegar skortur á aðföngum hamlaði útgáfu, en seinna skiptið var á sjöunda áratug síðustu aldar, án þess að vitað sé...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/islendingar-topudu-thridja-leiknum-i-rod-a-em-i-krullu
Íslendingar töpuðu þriðja leiknum í röð á EM í krullu Vonir íslenska krullulandsliðsins um sigur á því belgíska í leik liðanna í B-flokki á Evrópumótinu í krullu í morgun, gengu ekki eftir. Miðað við styrkleika liðanna áttu Íslendingar að geta unnið Belgana en til þess þurfti liðið að ná góðum leik. Sú var ekki raunin ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/spara-a-i-styrkjum-til-almenningssamgangna-um-10-a-naesta-ari
Spara á í styrkjum til almenningssamgangna um 10% á næsta ári Vegna niðurskurðar á fjárveitingum og nokkurs hallareksturs er nauðsynlegt að draga saman og spara í styrkjum til almenningssamgangna sem nemur um 10 prósentum á næsta ári. Í fjárlagafrumvarpinu fyrir 2010 nema fjárframlög til styrkja til almennings- samgang...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baldvin-stefnir-a-fyrsta-saetid-en-kristin-stigur-til-hlidar
Baldvin stefnir á fyrsta sætið en Kristín stígur til hliðar „Ég er bísperrtur og stefni ótrauður á fyrsta sætið," segir Baldvin H. Sigurðsson oddviti Vinstri grænna í bæjarstjórn Akureyrar, en flokkurinn mun að líkindum efna til forvals við val á frambjóðendum á lista við sveitarstjórnarkosningar næsta vor. Kristín Sig...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/auglyst-eftir-nyjum-motshaldara-fyrir-unglingalandsmot-umfi
Auglýst eftir nýjum mótshaldara fyrir unglingalandsmót UMFÍ Á stjórnarfundi Ungmennafélags Íslands, sem haldinn var í Reykjavík í dag, var ákveðið að auglýsa eftir nýjum mótshaldara fyrir Unglingalandsmót UMFÍ 2010. Umsóknarfrestur verður til 10. janúar 2010. Grundarfjarðabær og Héraðssamband Snæfellsnes- og Hnappadals...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-i-8-lida-urslit-subway-bikarkeppni-kvenna
Þór í 8- liða úrslit Subway- bikarkeppni kvenna Þór komst í gær áfram í 8- liða úrslit Subway- bikarkeppni kvenna í körfubolta með öruggum sigri á B- liði Keflavíkur, 87:57, en leikið var í Toyotahöllinni í Keflavík. Staðan í hálfleik var 36:31 fyrir Þór. Rut Konráðsdóttir var stigahæst í liði Þórs í leiknum með 24 sti...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/islenska-landslidid-tapadi-fyrir-thvi-ungverska-i-krullu
Íslenska landsliðið tapaði fyrir því ungverska í krullu Fyrr í dag lék íslenska krullulandsliðið sinn annan leik á Evrópumótinu þetta árið og má segja að liðsmenn hafi komið niður á jörðina eftir góðan sigur á Slóvökum í fyrsta leiknum. Andstæðingarnir í dag voru Ungverjar og reyndust þeir mun sterkari en andstæðingarn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tonleikum-russneska-song-og-dansflokks-kosakka-aflyst
Tónleikum rússneska söng- og dansflokks kósakka aflýst Ekkert verður af tónleikum rússneska söng- og dansflokks kósakka, „Derzhava" sem auglýstir voru í Ketilhúsinu á Akureyri, miðvikudaginn 9. desember, vegna veikinda. Hópurinn átti að skemmta í Reykjavík í gær en þeir tónleikar féllu einnig niður. Hópurinn hefur fari...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rokrett-skref-ad-faera-malefni-fatladra-til-sveitarfelaganna
Rökrétt skref að færa málefni fatlaðra til sveitarfélaganna Bæjarráð Akureyrar fagnar þeirri ákvörðun að færa málefni fatlaðra í heild sinni yfir til sveitarfélaganna og telur það rökrétt skref að stíga eftir góða reynslu Akureyringa og fleiri sveitarfélaga á þessu sviði. Jafnframt hefur Akureyrarbær þjónustað önnur sv...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sigur-hja-islenska-lidinu-i-fyrsta-leik-a-em-i-krullu
Sigur hjá íslenska liðinu í fyrsta leik á EM í krullu Íslendingar unnu fyrsta leik sinn á Evrópumótinu í krullu fyrr í dag. Liðið lék gegn Slóvökum og byrjaði mjög vel, komst í 5-0 eftir fjórar umferðir en þá sóttu Slóvakar í sig veðrið og minnkuðu muninn í 5-3 eftir sex umferðir. Íslendingar neituðu að gefa eftir fors...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fh-vann-niu-marka-sigur-gegn-kathor-i-dag
FH vann níu marka sigur gegn KA/Þór í dag FH vann verðskuldaðan níu marka sigur á KA/Þór, 39:30, er liðin mættust í KA-heimilinu í N1- deild kvenna í handbolta dag. Gestirnir frá Hafnarfirði byrjuðu leikinn vel og náðu sex marka forystu um miðjan fyrri hálfleik, 13:7. Norðanstúlkur náðu að saxa forskot gestanna niður í...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/arnaldur-soknarprestur-i-glerarkirkju-a-forum-til-noregs
Arnaldur sóknarprestur í Glerárkirkju á förum til Noregs „Ég er bara að pakka niður og við förum fljótlega eftir áramót," segir Arnaldur Bárðarson sóknarprestur í Glerárkirkju en hann ásamt fjölskyldu, eiginkonu og fimm börnum á aldrinum 6 til 19 ára er á förum til Noregs. Þar hefur hann fengið stöðu sóknarprests í bæn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kathor-og-fh-maetast-i-ka-heimilinu-i-dag
KA/Þór og FH mætast í KA- heimilinu í dag KA/Þór og FH mætast í KA-heimilinu í dag í N1- deild kvenna í handbolta. Fyrir leikinn munar þremur stigum á liðunum, FH hefur sex stig í 6. sæti deildarinnar eftir sjö leiki en KA/Þór þrjú stig í 8. sæti eftir níu leiki. Leikurinn hefst kl. 14:00.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hreinsum-rusl-i-kringum-okkar-veitingastadi
Hreinsum rusl í kringum okkar veitingastaði Sveinn Rafnsson veitingamaður á Kaffi Akureyri og Vélsmiðjunni, segir að starfsfólk staðanna hafi til langs tíma lagt sig fram um að hreinsa til í kringum þá báða, eftir að þeim hefur verið lokað um helgar. Hann segir það vissulega rétt að allt of mikið rusl sé sjáanlegt í mi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fimm-fra-ka-i-forvalshopi-fyrir-nordurlandamotid-i-blaki
Fimm frá KA í forvalshópi fyrir Norðurlandamótið í blaki Um helgina fara fram æfingar hjá forvalshópi U17 ára landsliði karla og kvenna í blaki fyrir Norðurlandamótið sem haldið verður dagana 20.-22. desember næstkomandi í Ikast í Danmörku. KA eiga fimm fulltrúa í hópunum, einn í karlaflokki en fjóra í kvennaflokki. Í ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gert-rad-fyrir-39-milljona-krona-rekstrarafgangi-i-eyjafjardarsveit
Gert ráð fyrir 39 milljóna króna rekstrarafgangi í Eyjafjarðarsveit Fyrri umræða fjárhagsáætlunar Eyjafjarðarsveitar fyrir árið 2010 var í vikunni en á fundinum var einnig til endurskoðunar fjárhagsáætlun fyrir yfirstandandi ár. Síðari umræða um fjárhagsáætlun verður 11. desember nk. „Við gerð fjárhagsáætlunar 2009 var...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/margret-thora-og-bjorn-lesa-ur-bokum-sinum
Margrét Þóra og Björn lesa úr bókum sínum Margrét Þóra Þórsdóttir og Björn Þorláksson mæta á Amtsbókasafnið á morgun laugardag kl. 14.00 og lesa upp úr bókum sínum, Harmleikur í Héðinsfirði og Heimkoman, ásamt því að fjalla um þær og svara spurningum gesta. Harmleikur í Héðinsfirði, heitir ný bók sem Tindur gefur út. H...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jordin-hals-i-i-fnjoskadal-auglyst-til-leigu
Jörðin Háls I í Fnjóskadal auglýst til leigu Biskupsstofa hefur auglýst jörðina Háls I í Fnjóskadal til leigu ef viðunandi tilboð fæst. Háls I er í um 30 mín. akstursfjarlægð frá Akureyri og liggur að þjóðvegi 1. Á jörðinni er tvílyft íbúðarhús um 190 fm. að stærð, auk útihúsa. Hlutar jarðarinnar eru þegar í útleigu og...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hermann-jon-vill-leida-lista-samfylkingarinnar-afram
Hermann Jón vill leiða lista Samfylkingarinnar áfram Hermann Jón Tómasson bæjarstjóri og oddviti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Akureyrar stefnir að því að leiða lista flokksins áfram í bæjarstjórnarkosningunum í vor. Hann gefur kost á sér í 1. sætið í prófkjöri flokksins í janúar. Hermann Jón telur eðlilegt að oddvit...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jolaannir-i-laufasi
Jólaannir í Laufási Jólastemning mun ríkja í Gamla bænum í Laufási sunnudaginn 6. desember frá kl. 13:30 -16.30. Þá verður hægt að fylgjast með undirbúningi jólanna eins og hann var í gamla sveitasamfélaginu. Jólaundirbúningurinn hefst með fjölskylduguðsþjónustu í Laufáskirkju kl 13:30 þar sem sr. Bolli Pétur Bollason ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/notaleg-kvoldstund-med-ljufum-veitingum-a-fridriki-v
Notaleg kvöldstund með ljúfum veitingum á Friðriki V Konur með penna, er yfirskrift á dagskrá í tali og tónum, sem flutt verður á veitingastaðnum Friðriki V á morgun laugardag kl. 20.00, þar sem í boði verður notarleg kvöldstund með ljúfum veitingum. Skyggnst verður aftur í tímann, með flutningi á ljóðum og sögum eftir...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bokin-islensk-knattspyrna-komin-ut-i-29-sinn
Bókin Íslensk knattspyrna komin út í 29. sinn Íslensk knattspyrna 2009, eftir Víði Sigurðsson íþróttafréttamann, er 29. bókin í samnefndum bókaflokki sem hóf göngu sína árið 1981. Mjög ítarlega er fjallað um efri deildir karla og kvenna á Íslandsmótinu, einnig um neðri deildirnar, bikarkeppnina, landsleiki Íslands í öl...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bautamotid-haldid-i-skautahollinni-um-helgina
Bautamótið haldið í Skautahöllinni um helgina Bautamótið í íshokkí fer fram í Skautahöll Akureyrar um helgina, 5-. 6. desember, en mótið er fyrsti hluti af þremur á Íslandsmótinu í 4. flokki. Á mótinu keppa A og B lið frá Skautafélagi Reykjavíkur, Birninum og Skautafélagi Akureyrar. Íslandsmótið samanstendur af þremur ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fimmta-bindi-sogu-akureyrar-er-komid-ut
Fimmta bindi Sögu Akureyrar er komið út Fimmta bindi Sögu Akureyrar, eftir Jón Hjaltason, er komið út og voru fyrstu eintök bókarinnar afhent í Ásprent í morgun, þar sem bókin var prentuð. Höfundurinn hefur verið með bókina í vinnslu sl. fjögur ár en hún hefst með landgöngu Breta þann 17. maí 1940 og endar á 100 ára af...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjogurra-marka-sigur-akureyrar-gegn-topplidi-vals-i-kvold
Fjögurra marka sigur Akureyrar gegn toppliði Vals í kvöld Akureyri Handboltafélag gerði sér lítið fyrir og vann fjögurra marka sigur á toppliði Vals, 29:25, er liðin mættust í kvöld í Höllinni á Akureyri í 8. umferð N1- deildar karla í handbolta. Með sigrinum komst Akureyri upp að hlið Vals á toppi deildarinnar með 11 ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gaedi-og-afhendingaroryggi-eru-krafa-markadarins
Gæði og afhendingaröryggi eru krafa markaðarins "Gæði og afhendingaröryggi eru krafa markaðarins," sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, í erindi sem hann flutti á morgunverðarfundi Matís, AVS og Samtaka fiskvinnslustöðva um vannýtt tækifæri í íslenskum sjávarútvegi. Í erindi sínu rakti Þorsteinn mikilvæ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ibuar-kvarta-yfir-framgongu-byggingaverktaka-vid-undirhlid
Íbúar kvarta yfir framgöngu byggingaverktaka við Undirhlíð Á fundi bæjarráðs Akureyrar í morgun var tekið fyrir erindi frá íbúum í Miðholti 2, 4 og 6, Stafholti 1 og Stórholti 11, 14 og 16 þar sem þeir vilja koma á framfæri kvörtun vegna framgöngu byggingaverktaka á byggingareitnum Undirhlíð 1-3. Einnig beina þeir þeir...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bjorgunarsveitirnar-tvaer-i-dalvikurbyggd-sameinast
Björgunarsveitirnar tvær í Dalvíkurbyggð sameinast Samningur um sameiningu tveggja björgunarsveita í Dalvikurbyggð var undirritaður í vikunni. Björgunarsveitin Dalvík og Björgunarsveit Árskógsstrandar sameinuðu krafta sína svo úr verður stærri og öflugri sveit. Hin nýja sveit, sem mun starfa undir merkjum Björgunarsvei...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vel-heppnadir-styrktartonleikar-kvennakors-akureyrar
Vel heppnaðir styrktartónleikar Kvennakórs Akureyrar Kvennakór Akureyrar stóð fyrir sínum árlegu tónleikum til styrktar Mæðrastyrksnefnd Akureyrar þann 29. nóvember sl. Þetta var í 7. sinn sem kórinn hélt þessa tónleika og tókust þeir afar vel. Í lok tónleikanna voru Ingu Ellertsdóttur frá Mæðrastyrksnefnd Akureyrar af...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/storleikur-i-hollinni-i-kvold
Stórleikur í Höllinni í kvöld Það verður sannkallaður stórleikur í Íþróttahöll Akureyrar í kvöld þegar Akureyri Handboltafélag og Valur eigast við í N1- deild karla í handbolta. Valur trónir á toppi deildarinnar með 11 stig en Akureyri situr í 4. sæti með 9 stig og getur með sigri í kvöld tyllt sér á topp deildarinnar ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ofaert-er-a-milli-olafsfjardar-og-dalvikur-vegna-snjofloda
Ófært er á milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur vegna snjóflóða Ófært er á milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur vegna snjóflóða, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni nú í morgunsárið. Á Norðurlandi er víðast hvar hálka. Hálka og éljagangur er á Þverárfjalli og hálkublettir á Vatnsskarði. Hálka og skafrenningur er Öxnadalsheiði. Á...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vegurinn-um-olafsfjardarmula-lokadist-vegna-snjofloda
Vegurinn um Ólafsfjarðarmúla lokaðist vegna snjóflóða Vegurinn um Ólafsfjarðarmúla lokaðist fyrr í dag vegna snjóflóða. Bílum var ekið inn í snjóflóðið báðum megin frá, en engan sakaði og búið er að losa alla bíla sem festust í flóðinu. Víða um land er slæmt veður og ófærð. Á Norðurlandi er stórhríð á kafla austan Laug...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thrju-gull-til-ka-a-althjodlegu-judomoti
Þrjú gull til KA á alþjóðlegu júdómóti Um sl. helgi fór fram alþjóðlegt júdómót fyrir 20 ára og yngri í Danmörku þar sem lið KA átti þrjá keppendur sem sópuðu til sín verðlaunum. Bergþór Steinn Jónsson sigraði í -66 kg flokki og hlaut bronsverðlaun í opnum flokki. Adam Brand Þórarinsson sigraði í -81 kg flokki og vann ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/buinn-ad-hlakka-til-i-heilt-ar-ad-kvida-fyrir-jolabadinu
Búinn að hlakka til í heilt ár, að kvíða fyrir jólabaðinu Mikið líf og fjör verður í Mývatnssveit um helgina og þannig verður það allar helgar fram að jólum. Á laugardaginn verða handverkskonur úr Dyngjunni með árlegan laufabrauðsdag í Mývatnsstofu. Hefur þessi viðburður notið sífellt meiri vinsælda ár hvert en þá gefs...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samfylkingin-a-akureyri-samthykkti-opid-profkjor
Samfylkingin á Akureyri samþykkti opið prófkjör Félagsfundur Samfylkingarinnar á Akureyri ákvað í kvöld að haldið verði opið rafrænt prófkjör þann 30. janúar 2010 um efstu fimm sætin á lista flokkins næsta vor. Kosin var prófkjörsstórn sem falið var að fullmóta og ganga frá reglum prófkjörsins í samræmi við niðurstöðu ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stefan-hrafnsson-tryggdi-sa-sigur-gegn-sr-i-kvold
Stefán Hrafnsson tryggði SA sigur gegn SR í kvöld Skautafélag Akureyrar hafði betur gegn Skautafélagi Reykjavíkur, 5:4, er liðin mættust í kvöld í Skautahöllinni í Laugardal á Íslandsmótinu í íshokkí karla. Eftir venjulegan leiktíma var staðan jöfn, 4:4, og því þurfti að framlengja leikinn. Þar reyndist Stefán Hrafnsso...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/islandsklukkunni-hringt-niu-sinnum-a-fullveldisdaginn
Íslandsklukkunni hringt níu sinnum á fullveldisdaginn Að venju var haldið upp á fullveldisdaginn 1. desember í Háskólanum á Akureyri. Dagurinn hefur jafnan verið tileinkaður stúdentum enda tóku þeir virkan þátt í dagskránni. Hátíðardagskrá var við Íslandsklukkuna þar sem Stefán B. Sigurðsson rektor flutti ávarp og fyrr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hus-hakarla-jorundar-i-hrisey-afhent-akureyrarbae
Hús Hákarla Jörundar í Hrísey afhent Akureyrarbæ Í dag, þriðjudaginn 1. desember, var Hús Hákarla Jörundar í Hrísey afhent Fasteignum Akureyrarbæjar til eignar og umsjónar við formlega athöfn í eyjunni. Einnig var undirritaður samningur á milli Akureyrarstofu og Ferðamálafélags Hríseyjar um rekstur hússins og þróun og ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/malthing-a-akureyri-um-norraent-samstarf-a-krepputimum
Málþing á Akureyri um norrænt samstarf á krepputímum Á morgun, miðvikudaginn 2. desember verður haldið í Ketilhúsinu á Akureyri málþing um norrænt samstarf á krepputímum undir yfirskriftinni; Er grasið grænna hinum megin? Málþingið stendur yfir frá kl. 16-18. Markmið með málþinginu er að skapa tækifæri til umræðu um st...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skytturnar-gimli-cup-meistarar-i-krullu
Skytturnar Gimli Cup meistarar í krullu Þriðja krullmót vetrarins hjá Krulludeild Skautafélags Akureyrar, Gimli Cup, lauk í gærkvöldi en átta lið úr röðum Krulludeildar SA tóku þátt á mótinu og voru það Skytturnar sem stóðu uppi sem sigurvegarar en liðið vann sex leiki af sjö á mótinu. Í öðru sæti urðu Mammútar með fim...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skorad-a-stjornvold-ad-auka-kvota-nu-thegar
Skorað á stjórnvöld að auka kvóta nú þegar Félagslegir trúnaðarmenn Einingar-Iðju sem starfa í fiskvinnslu á Eyjafjarðarsvæðinu, hafa sent frá ályktun, þar sem skorað er á stjórnvöld að auka kvóta nú þegar. Ljóst sé að mörg fyrirtæki munu loka í lengri tíma ef ekkert verði að gert og setji það störf fiskvinnslufólks í ...