Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.vikubladid.is/is/frettir/einstakt-taekifaeri-til-ad-kynnast-ullarvinnslu-og-framleidslu
Einstakt tækifæri til að kynnast ullarvinnslu og framleiðslu Kristinn Arnþórsson, ullarfræðingur, flytur fyrirlestur um ull og ullarframleiðslu á öldinni sem leið á Amtsbókasafninu, laugardaginn 9. janúar klukkan 14:00. Um leið verður opnuð á Amtsbókasafninu sýning Iðnaðarsafnsins um ull og ullarframleiðslu á síðustu ö...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/elin-margret-stefnir-a-annad-saetid-hja-sjalfstaedisflokknum
Elín Margrét stefnir á annað sætið hjá Sjálfstæðisflokknum Elín Margrét Hallgrímsdóttir býður sig fram í 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins sem haldið verður fyrir sveitastjórnarkosningarnar í vor þann 13. febrúar nk. Elín Margrét hefur tekið þátt í störfum Sjálfstæðisfélaganna á Akureyri um árabil og verið bæjar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/garpar-og-mammutar-taka-forystuna-i-januarmotinu-i-krullu
Garpar og Mammútar taka forystuna í Janúarmótinu í krullu Garpar og Mammútar hafa tekið forystu í sínum riðlum í Janúarmótinu í krullu og eru með fullt hús stiga eftir fyrstu tvo leikina, en önnur umferð mótsins var leikin í gær í Skautahöll Akureyrar. Í A- riðli höfðu Garpar betur gegn Skyttunum, 6:4, og Víkingar lögð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjolmenni-a-arlegri-threttandagledi-thors-i-kvold
Fjölmenni á árlegri þrettándagleði Þórs í kvöld Akureyringar kvöddu jólin með formlegum hætti og fjölmenntu á árlega þrettándagleði og brennu Íþróttafélagsins Þórs við Réttarhvamm fyrr í kvöld. Að venju var mikið um dýrðir og skemmti yngsta kynslóðin sér greinilega vel. Álfakóngur og drottning, jólasveinar, tröll, púka...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bjorgvin-hafnadi-i-24-saeti-a-heimsbikarkeppni-i-svigi
Björgvin hafnaði í 24. sæti á heimsbikarkeppni í svigi Dalvíkingurinn Björgvin Björgvinsson hafnaði í 24. sæti í heimsbikarkeppni í svigi sem fram fór í Zagreb í Króatíu í dag. Eftir fyrri ferðina var Björgvin í 29. sæti og komst áfram í seinni ferðina en aðeins 30 efstu komst áfram af 83 keppendum. Björgvin hafnaði ei...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/umferdin-a-hringveginum-jokst-um-22-milli-ara
Umferðin á hringveginum jókst um 2,2% milli ára Umferðin á 16 völdum talningarstöðum á Hringvegi var 2,2% meiri á árinu 2009 en árinu 2008. Umferðin var hinsvegar minni en hún var metárið 2007 þótt ekki muni miklu. Umferðin í nýliðnum desember var um 5% meiri en í sama mánuði árið 2008. Árið einkennist þó af mikilli um...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/island-med-fullt-hus-stiga-eftir-sigur-gegn-nordur-koreu
Ísland með fullt hús stiga eftir sigur gegn Norður- Kóreu Ísland hafði betur gegn Norður-Kóreu, 6:3, er liðin mættust í 3. deild heimsmeistaramóts 20 ára og yngri í íshokkí í Istanbúl í dag. Íslenska liðið hefur þar með fullt hús stiga eftir fyrstu tvo leikina og ætti leiðin að vera greið inn í undanúrslitin. Matthías ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hermann-jon-gefur-kost-a-ser-i-1-saetid-hja-samfylkingunni
Hermann Jón gefur kost á sér í 1. sætið hjá Samfylkingunni Hermann Jón Tómasson bæjarstjóri á Akureyri gefur kost á sér í 1. sæti á lista Samfylkingarinnar fyrir bæjarstjórnarkosningar sem fram fara í vor. Prófkjör sem ræður röð fimm efstu manna á listanum fer fram þann 30. janúar næstkomandi. Hermann Jón hefur verið b...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/solbakur-ea-med-godan-afla-eftir-stutta-veidiferd
Sólbakur EA með góðan afla eftir stutta veiðiferð Ísfisktogarinn Sólbakur EA kom til heimahafnar á Akureyri í morgun með um 90 tonna afla og var uppistaðan þorskur. Togarinn fór til veiða sl. laugardag, 2. janúar og tók túrinn því aðeins rúma fjóra sólarhringa. Sólbakur var við veiðar fyrir vestan land og úti fyrir Nor...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gert-rad-fyrir-rekstrarafgangi-hja-arnarneshreppi
Gert ráð fyrir rekstrarafgangi hjá Arnarneshreppi Fjárhagsáætlun Arnarneshrepps vegna ársins 2010 var samþykkt við síðari umræðu á fundi hreppsnefndar nýlega. Áætlunin gerir ráð fyrir að heildartekjur Arnarneshrepps verði 93,2 milljónir kórna á þessu ári og að rekstarafgangur ársins verði rúmar 1,8 milljónir kórna. Þá ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bjorgvin-i-eldlinunni-i-heimsbikarnum-i-dag
Björgvin í eldlínunni í heimsbikarnum í dag Skíðakóngurinn frá Dalvík, Björgvin Björgvinsson, verður á ferðinni í dag í heimsbikarkeppninni í svigi sem fram fer í Zagreb í Króatíu. Björgvin náði góðum árangri á sama stað í fyrra en þá varð hann í 24. sæti af 74 keppendum. Aðstæður til skíðaiðkunnar eru hins vegar ekki ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/dyrara-i-sundlaug-akureyrar-en-adrar-laugar-baejarins
Dýrara í Sundlaug Akureyrar en aðrar laugar bæjarins Nú um áramótin urðu breytingar á gjaldskrám í sundlaugar Akureyrarbæjar. Eins og fram hefur komið fá börn á grunnskólaaldri, 6-15 ára, frítt í sund en á síðasta ári greiddi þessi aldurshópur 100 krónur. Gjald fyrir fullorðna hækkar og eru nú 350 krónur í sundlaug Gle...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrsta-umferd-januarmotsins-i-krullu-leikinn-i-gaer
Fyrsta umferð Janúarmótsins í krullu leikinn í gær Fyrsta umferð Janúarmótsins í krullu fór fram í Skautahöll Akureyrar í gærkvöld. Fyrir leikina var dregið í riðla. Í A-riðli leika Garpar, Skytturnar, Víkingar og Svarta gengið og í B-riðli eru Büllevål, Riddarar, Mammútar og Fífurnar. Úrslit kvöldsins voru þannig: A-r...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vimuakstur-og-fikniefni-a-akureyri
Vímuakstur og fíkniefni á Akureyri Um s.l. helgi eða fyrstu helgi ársins, 1-3. janúar, voru fjórir ökumenn stöðvaðir á Akureyri grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Á einum þeirra fannst lítilræði af ætluðu örvandi efni og við nánari skoðun kom í ljós að annar ökumaður hafði meðferðis í bifreið sinni um 40 grömm...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/starfsmenn-baejarins-fjarlaegja-jolatre-vid-lodarmork
Starfsmenn bæjarins fjarlægja jólatré við lóðarmörk Líkt og undanfarin ár munu starfsmenn Framkvæmdamiðstöðvar Akureyrar fjarlægja jólatré sem sett hafa verið við lóðarmörk, dagana 7. og 8. janúar og 11. - 13. janúar nk. Einnig verða gámar staðsettir við Kaupang, Hagkaup, Hrísalund og verslunarmiðstöðina við Sunnuhlíð ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/iunn-eir-framlengir-hja-thorka
Íunn Eir framlengir hjá Þór/KA Íunn Eir Gunnarsdóttir framlengdi í gær samning sinn við Þór/KA sem leikur í úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu. Íunn tók þátt í 15 leikjum fyrir Þór/KA síðastliðið sumar og þar af var hún í byrjunarliðinu í sex leikjum. Íunn hefur vaxið mikið sem leikmaður og hefur hlutverk hennar farið st...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/threttandagledi-thors-haldin-vid-rettarhvamm-a-morgun
Þrettándagleði Þórs haldin við Réttarhvamm á morgun Þrettándagleði Íþróttafélagsins Þórs á Akureyri verður haldin kl. 19.00 á morgun, miðvikudagskvöldið 6. janúar,við Réttarhvamm og er haldin í samstarfi við Bónus og Akureyrarstofu. Það er ætíð mikið um dýrðir á Þrettándagleði Þórs sem á sér langa forsögu. Álfakóngur o...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/unnid-ad-thvi-ad-gera-urbaetur-vegna-lyktarmengunar-fra-verksmidju-moltu
Unnið að því að gera úrbætur vegna lyktarmengunar frá verksmiðju Moltu Starfsmenn Moltu ehf. hafa unnið að því undafarið að gera úrbætur vegna lyktarmengunar frá verksmiðju Moltu á Þveráreyrum í Eyjafjarðarsveit. Lykt sú sem kvartað er undan stafar að líkindum af tvennu. Lykt frá útblæstri úr tromlunum en einnig lykt f...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/island-vann-storsigur-gegn-taevan
Ísland vann stórsigur gegn Tævan Ísland vann öruggan sigur á Tævan, 11:1, í fyrsta leik sínum í 3. deild heimsmeistaramóts U20 ára landsliða í íshokkí sem fram fer þessa dagana í Istanbúl í Tyrklandi en Ísland leikur í riðli með Tyrkjum, Tævan og Norður-Kóreu. Í hinum riðlinum eru Ástralía, Nýja-Sjáland og Búlgaría. Ma...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjorir-adilar-budu-fimm-huseignir-undir-vinbudina-a-akureyri
Fjórir aðilar buðu fimm húseignir undir Vínbúðina á Akureyri Ríkiskaup auglýsti á dögunum eftir húsnæði til leigu fyrir Vínbúðina á Akureyri. Tilboðin voru opnuð þann 30. desember sl. og sendu fjögur fyrirtæki inn tilboð og buðu alls fimm húseignir víðs vegar um bæinn til leigu. Lengi hefur staðið til að finna stærra o...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/januarmotid-i-krullu-hefst-i-kvold
Janúarmótið í krullu hefst í kvöld Fyrsta umferð Janúarmótsins í krullu verður leikin í kvöld í Skautahöll Akureyrar og verður dregið í riðla skömmu fyrir mót en leikar hefjast kl. 20:00. Átta lið taka þátt í mótinu og er þeim skipt í tvo riðla. Leikdagar eru 4., 6., og 11. janúar í riðlakeppninni og verða úrslitaleiki...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leikfelag-akureyrar-frumsynir-gamanleikinn-39-threp
Leikfélag Akureyrar frumsýnir gamanleikinn 39 þrep Leikfélag Akureyrar frumsýnir nk. föstudag, 39 þrep, eða The 39 Steps, nýlegan gamanleik sem byggður er á hinni þekktu kvikmynd Alfred Hitchcock, eftir samnefndri skáldsögu John Buchan. Verkið hlaut hin virtu Olivier verðlaun sem besta gamanleikritið árið 2007 og tvenn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sigrun-bydur-sig-fram-i-2-saeti-i-profkjori-samfylkingarinnar
Sigrún býður sig fram í 2. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar Sigrún Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi á Akureyri og sölu- og þjónustufulltrúi hjá ÍsAm á Norðurlandi, býður sig fram í 2 sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar sem fram fer 30. janúar nk. Sigrún hefur gengt formennsku í félagsmálaráði Akureyrarbæjar, verið varafor...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bjorgvin-ithrottamadur-dalvikur-byggdar-i-tiunda-sinn-i-rod
Björgvin Íþróttamaður Dalvíkur- byggðar í tíunda sinn í röð Íþróttaður Dalvíkurbyggðar árið 2009 er Björgvin Björgvinsson en þetta er tíunda árið í röð sem hann hlýtur þennan titil. Björgvin er, eins og undanfarin ár, fastamaður í landsliði Skíðasambands Íslands og er án efa besti skíðamaður landsins í dag. Það hefur h...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jon-ingi-bydur-sig-fram-i-3-5-saeti-i-profkjori-samfylkingarinnar
Jón Ingi býður sig fram í 3.-5. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar Jón Ingi Cæsarsson dreifingarstjóri og varabæjarfulltrúi hefur ákveðið að gefa kost á sér í sæti 3 - 5 í prófkjöri Samfylkingarinnar á Akureyri þann 30. janúar nk. Jón Ingi hefur starfað að bæjarmálum á Akureyri í yfir tvo áratugi og hann hefur verið fo...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fleiri-leitudu-adstodar-fyrir-jolin-nu-en-adur
Fleiri leituðu aðstoðar fyrir jólin nú en áður Um 200 fjölskyldur nutu aðstoðar Hjálparstarfs kirkjunnar fyrir jólin og á fimmta hundrað manns leitaði til Mæðrastyrksnefndar Akureyrar að þessu sinni. Allir sem óskuðu aðstoðar fengu matarpakka og gjafakort með ákveðinni upphæð í verslunum. Jón Oddgeir Guðmundsson hjá Hj...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sigrun-bjork-gefur-kost-a-ser-i-1-saeti-i-profkjori-sjalfstaedisflokksins
Sigrún Björk gefur kost á sér í 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins Forseti bæjarstjórnar Akureyrar, Sigrún Björk Jakobsdóttir, gefur kost á sér í 1. sæti Sjálfstæðisflokksins í prófkjöri, fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í maí 2010, sem haldið verður 13. febrúar nk. Sigrún Björk hefur verið bæjarfulltrúi frá ári...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/agaetur-arangur-nordlendinga-a-jolamoti-ir
Ágætur árangur norðlendinga á Jólamóti ÍR Þriðja Jólamót frjálsíþróttadeildar ÍR var haldið mánudaginn 28. desember síðastliðin í Laugardagshöllinni og fór hópur af keppendum frá norðurlandi á mótið sem náði fínum árangri. Hafdís Sigurðardóttir, HSÞ, sigraði í langstökki kvenna er hún stökk 5, 62 metra og varð önnur í ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/foru-a-motorhjolum-upp-a-sulur
Fóru á mótorhjólum upp á Súlur Þeir félagar Finnur Aðalbjörnsson og Gunnar Hákonarson, gerðu sér lítið fyrir á dögunum og fóru á mótorcrosshjólum alla leið upp á Súlur. Undir hjólunum eru öflug nagladekk og sagði Finnur að aðstæður hefðu verið ákjósanlegar, harðfenni frá Fálkafelli og upp á topp og tók ferðin aðeins um...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/flestir-a-ferdinni-vegna-einkaerinda
Flestir á ferðinni vegna einkaerinda „Eitt af því sem ýmsum kom á óvart í könnuninni í sumar var að um fjórðungur allra þeirra sem voru á ferð um könnunarstaðina voru búsettir á höfuðborgarsvæðinu sem rímar þó ágætlega við þann fjölda sem er á ferð í sumarleyfi. Síðastliðið haust hefur hlutfall höfuðborgarbúa vissulega...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rakel-honnudottir-ithrottamadur-arsins-hja-thor
Rakel Hönnudóttir íþróttamaður ársins hjá Þór Knattspyrnukonan Rakel Hönnudóttir er íþróttamaður ársins hjá Þór fyrir árið 2009 en kjörinu var lýst í opnu húsi í Hamri í dag. Rakel stóð sig frábærlega á sviði knattspyrnunnar á árinu sem leið og var lykilmaður í liði Þórs/KA í úrvalsdeild kvenna sem náði sínum besta ára...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/opid-i-hlidarfjalli-og-adstaedur-godar
Opið í Hlíðarfjalli og aðstæður góðar Mjög góð aðsókn hefur verið að skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli yfir hátíðarnar. Í dag er frá kl 10 - 16 og þar eru mjög góðar aðstæður til skíðaiðkunar, 8 stiga frost og léttur andvari. Aðsóknarmet voru sett að skíðasvæðinu á milli jóla og nýárs, þegar 1200 og 1300 manns komu þangað á ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/roleg-og-thaegileg-aramotavakt-hja-slokkvilidi-akureyrar
Róleg og þægileg áramótavakt hjá Slökkviliði Akureyrar Áramótavakt Slökkviliðs Akureyrar var róleg og þægileg. Fjögur sjúkraflug voru farin á síðasta sólahring ásamt flutningum. Dælubíll liðsins var kallaður út í gærkvöld þar sem tilkynnt var um eld í fjölbýlishúsi í Tröllagili. En glampi frá arineldi speglaðist í glug...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kveikt-i-aramotabrennunni-a-akureyri-kl-2030
Kveikt í áramótabrennunni á Akureyri kl. 20.30 Akureyringar á öllum aldri og gestir í bænum hafa fjölmennt á áramótabrennu við Réttarhvamm á gamlárskvöld undanfarin ár og viðbúið er að þar verði einnig fjölmennt í kvöld, enda ágætis veður. Kveikt verður í brennunni kl. 20.30 og hálftíma síðar verður boðið upp glæsilega...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/allar-gotur-a-akureyri-eiga-ad-vera-greidfaerar-fyrir-aramot
Allar götur á Akureyri eiga að vera greiðfærar fyrir áramót „Það gengur ljómandi vel og við gerum ráð fyrir að allar götur bæjarins verði greiðfærar fyrir áramót," segir Gunnþór Hákonarson yfirverkstjóri framkvæmdadeildar Akureyrarbæjar. Síðustu daga hefur snjó kyngt niður á Akureyri og mikil vinna hefur verið við að h...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aformum-um-ad-fella-nidur-sjomannaafslattinn-motmaelt
Áformum um að fella niður sjómannaafsláttinn mótmælt Aðalfundur Sjómannadeildar Framsýnar- stéttarfélags mótmælir harðlega áformum stjórnvalda um að fella niður sjómannaafsláttinn í áföngum og leggja þar með stóraukna skattbyrði á herðar sjómanna. Sjómannaafslátturinn hefur verið hluti af kjörum sjómanna í um hálfa öld...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ragnar-snaer-haettur-ad-spila-i-grikklandi
Ragnar Snær hættur að spila í Grikklandi Akureyringurinn Ragnar Snær Njálsson er hættur að spila með liði A.O. Dimou Thermaikou í Grikklandi eftir um hálfs árs dvöl hjá félaginu. Ástæðan fyrir brottflutningi Ragnars frá félaginu eru fjárhagsvandræði sem forystumenn félagsins glíma við. Í samtali við Fréttablaðið í dag ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/steingrimur-j-sigfusson-nordlendingur-arsins
Steingrímur J. Sigfússon Norðlendingur ársins Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, er Norðlendingur ársins 2009 að mati hlustenda Útvarps Norður- og Austurlands. Kjörinu var lýst í sérstakri áramótaútsendingu í dag. Þrettán voru tilnefndir en Steingrímur hlaut nokkuð afgerandi kosningu. Í öðru sæti í kjörinu var...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jon-ingi-krullumadur-arsins
Jón Ingi krullumaður ársins Jón Ingi Sigurðsson, fyrirliði Mammúta og íslenska landsliðsins í krullu, hefur verið útnefndur krullumaður ársins 2009. Jón Ingi vinnur þar með nafnbótina í annað sinn en hann var einnig valinn krullumaður ársins árið 2005. Jón Ingi stýrði liði Mammúta til margra sigra á árinu og er liðið á...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyri-faer-rumlega-62-milljona-krona-aukaframlag-ur-jofnunarsjodi
Akureyri fær rúmlega 62 milljóna króna aukaframlag úr Jöfnunarsjóði Akureyrarkaupstaður fær um 62,5 milljónir króna greiddar af aukaframlagi úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga í ár, þar af um 60 milljóna króna framlag vegna lágra meðaltekna. Grýtubakkahreppur fær um 12,9 milljónir króna greiddar og þar af 9,5 milljóna krón...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/landsvirkjun-kaupir-hlut-nordurorku-i-theistareykjum
Landsvirkjun kaupir hlut Norðurorku í Þeistareykjum Landsvirkjun og Norðurorka hafa gert samning um kaup Landsvirkjunar á 32% hlut Norðurorku í hlutafélaginu Þeistareykjum ehf. Eftir kaupin á Landsvirkjun 64% hlut í félaginu en aðrir hluthafar eru Orkuveita Húsavíkur og Þingeyjarsveit. Fyrir hlutinn eru greiddar 4,5 mi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sjomannaafslatturinn-er-hluti-af-kjorum-sjomanna
Sjómannaafslátturinn er hluti af kjörum sjómanna Félagsfundur Sjómannafélags Eyjafjarðar, sem haldinn var í gær, lýsir megnustu óánægju með þau vinnubrögð stjórnvalda að ráðast sérstaklega að kjörum sjómanna með því að afnema sjómannaafsláttinn eins og gert var með lögum nú rétt fyrir jólin. Sjómannaafslátturinn er hlu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/arna-sif-asgrimsdottir-valinn-i-a-landslidshopinn-i-knattspyrnu
Arna Sif Ásgrímsdóttir valinn í A- landsliðshópinn í knattspyrnu Arna Sif Ásgrímsdóttir, leikmaður Þórs/KA, hefur verið valinn í 25 manna landsliðshóp kvenna í knattspyrnu sem kemur til æfinga í janúar á næsta ári, en Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari tilkynnti hópinn í gær. Er þetta í fyrsta skiptið sem Arn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gagnryna-faekkun-aaetlunarferda-milli-husavikur-og-akureyrar
Gagnrýna fækkun áætlunarferða milli Húsavíkur og Akureyrar Framsýn- stéttarfélag gagnrýnir ákvörðun Vegagerðarinnar um að fækka verulega áætlunarferðum milli Húsavíkur og Akureyrar frá og með næstu áramótum með því að draga úr fjárveitingum til samgöngumála. Það á einnig við um fjármagn til áætlunarferða frá Húsavík ti...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fritt-i-sund-fyrir-grunnskolaborn-a-akureyri-fra-aramotum
Frítt í sund fyrir grunnskólabörn á Akureyri frá áramótum Frá næstu áramótum fá grunnskólabörn á Akureyri frítt í sundlaugar bæjarins og því verður 12% ódýrara fyrir fjögurra manna fjölskyldu að fara í sund á nýju ári. Þetta kom fram í máli Ólafs Jónssonar formanns íþróttaráðs í hófi sem Afreks- og styrktarsjóður Akure...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samthykkt-ad-baeta-kostnad-sem-vard-af-haekkun-tryggingagjalds
Samþykkt að bæta kostnað sem varð af hækkun tryggingagjalds Fyrir fundi skólanefndar Akureyrar nýlega, lá beiðni frá Hjallastefnunni ehf. um að hækkun á tryggingagjaldi, sem lagt var á alla launagreiðendur fyrr á þessu ári, verð bætt ásamt öðrum hækkunum sem orðið hafa á launatengdum gjöldum síðan 1. desember 2008. Ekk...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aframhald-a-samstarfi-thors-og-ka-vid-rekstur-kvennadeilda
Áframhald á samstarfi Þórs og KA við rekstur kvennadeilda Stjórnir og starfsmenn KA og Þórs komu saman í KA-heimilinu í gær og gerðu sér glaðan dag. Þessi siður var tekinn upp á s.l ári en þá buðu Þórsarar stjórn og starfsmönnum KA til veislu í Hamri félagsheimili Þórs, sem tókst mjög vel. Stjórnir Þórs og KA hafa á un...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikill-fjoldi-folks-a-skidum-i-hlidarfjalli-1
Mikill fjöldi fólks á skíðum í Hlíðarfjalli Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli er opið í dag frá kl. 11 - 19 en kl. 8:30 í morgun var þar 8 stiga frost og nánast logn. Í gær var einhver fjölsóttasti dagur milli jóla og áramóta frá upphafi en um 1.200 manns mættu á skíði og bretti og skemmtu sér vel í stórkostlegu færi. Starfsf...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bekkpressumot-kfa-haldid-i-jotunheimum-a-gamlarsdag
Bekkpressumót KFA haldið í Jötunheimum á Gamlársdag Hið árlega bekkpressumót KFA, „Gamlársmótið”, verður haldið á Gamlársdag, fimmtudaginn 31. desember, í stórasalnum í Jötunheimum. Alls er 17 keppendur skráðir til leiks í sjö þyngdarflokkum. Keppnin hefst kl. 13:00 en vigtun fer fram tveim tímum áður. Þá er það einnig...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/haukar-deildarbikarmeistarar-eftir-dramatiskan-sigur-gegn-akureyri
Haukar deildarbikarmeistarar eftir dramatískan sigur gegn Akureyri Haukar eru deildarbikarmeistarar í handbolta karla eftir dramatískan sigur á Akureyri, 25:24, er liðin mættust í úrslitum í Íþróttahúsinu við Strandgötu í kvöld. Allt stefndi í framlengingu þegar nokkrar sekúndur lifðu leiks en staðan var þá 24:24 og Ha...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/marka-tharf-framtidarskipulag-sorphirdu
Marka þarf framtíðarskipulag sorphirðu Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar hefur samþykkt tvö erindi frá Flokkun og Moltu, en annars vegar var óskað eftir viðbótarhlutafé frá Eyjafjarðarsveit í Moltu ehf. að upphæð rúmlega 2 milljónir króna og hins vegar að sveitarfélögin sem standa að Flokkun veiti stjórn fyrirtækisins h...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorvaldur-i-halfs-ars-leyfi-a-fsa
Þorvaldur í hálfs árs leyfi á FSA Þorvaldur Ingvarsson, framkvæmdastjóri lækninga á Sjúkrahúsinu á Akureyri, fer í 6 mánaða launalaust leyfi frá 8. janúar n.k. Á þeim tíma mun Þorvaldur m.a. sinna rannsóknum sem hann hefur unnið að. Staðgengill hans, Sigurður E. Sigurðsson, mun leysa Þorvald af sem framkvæmdastjóri læk...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/verd-a-skolamaltidum-obreytt-fra-naestu-aramotum
Verð á skólamáltíðum óbreytt frá næstu áramótum Skólanefnd Akureyrar samþykkti á síðasta fundi sínum að verð á skólamáltíðum verði óbreytt frá næstu áramótum. Á fundinum var lagt fram yfirlit yfir rekstrarstöðu skólamötuneyta fyrir árið 2009 og spáð fyrir um reksturinn árið 2010. Fram kom að það stefnir í tveggja millj...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ovaentur-sigur-bjarnarins-gegn-sa-i-kvold
Óvæntur sigur Bjarnarins gegn SA í kvöld Björninn gerði sér lítið fyrir og sigraði Skautafélag Akureyrar nokkuð óvænt í kvöld á þeirra eigin heimavelli er liðin mættust í Skautahöll Akureyrar á Íslandsmótinu í íshokkí karla. SA hefur haft gott tak á liði Bjarnarins undanfarna leiki en urðu að lúta í lægri hlut í kvöld....
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyri-leikur-til-urslita-i-deildarbikarnum
Akureyri leikur til úrslita í Deildarbikarnum Akureyri Handboltafélag leikur til úrslita gegn Haukum í Deildarbikarkeppni karla í handbolta eftir níu marka sigur á FH í dag, 35:26, er liðin mættust í íþróttahúsinu við Strandgötu. Oddur Gretarsson fór á kostum fyrir lið Akureyrar og skoraði 11 mörk. Akureyri byrjaði lei...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/halka-halkublettir-og-snjothekja-vida-um-land
Hálka, hálkublettir og snjóþekja víða um land Víða um land er hálka á vegum og eða snjóþekja þótt ástandið sé mun skárra en í gær, samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar. Hálkublettir eru í Húnavatnssýslum en þegar kemur austar á Norðurlandi er víðast hvar hálka eða snjóþekja og sumstaðar él. Talsverð ofankoma er á Austu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aramotamotid-i-krullu-haldid-i-skautahollinni-a-morgun
Áramótamótið í krullu haldið í Skautahöllinni á morgun Hið árlega Áramótamót í krullu verður haldið í Skautahöll Akureyrar á morgun, mánudaginn 28. desember. Áætlað er að hefja leik kl. 19:00 en dregið verður í lið hálftíma fyrr. Spilaðir verða þrír fjögurra umferða leikir eftir Scenkel- kerfinu (stig, umferðir, steina...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kjori-ithrottamanns-thors-2009-lyst-a-opnu-husi
Kjöri Íþróttamanns Þórs 2009 lýst á opnu húsi Kjöri Íþróttamanns Þórs 2009 verður lýst á opnu húsi í Hamri á morgun, sunnudaginn 27. desember. Dagskráin hefst kl. 14 og stendur til kl. 16. Þar verða heiðursmerki Þórs afhent, landsliðsfólks félagsins kynnt og verðlaunað, ræðumaður dagsins flytur ávarp, annáll verður flu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/haett-vid-keppni-i-kvennaflokki-a-dagnyjarmotinu
Hætt við keppni í kvennaflokki á Dagnýjarmótinu Skíðafélag Akureyrar hefur ákveðið að hætta við keppni í kvennaflokki á Dagnýjarmótinu á skíðum sem átti að fara fram dagana 27.- 28. desember í Hlíðarfjalli. Skíðadeild Ármanns stefnir engu að síður á að halda keppni í karlaflokki þessa sömu daga í Hlíðarfjalli. Áætlað e...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/allt-a-kafi-i-snjo-a-akureyri
Allt á kafi í snjó á Akureyri Mikil snjókoma hefur verið norðanlands og enn snjóar víða með tilheyrandi ófærð á vegum. Á Akureyri hefur kyngt niður snjó, víða er illfært um bæinn og eitthvað um að bílar sitji fastir hér og þar. Þungfært er í næsta nágrenni við Akureyri og Víkurskarð er ófært. Á Norðurlandi er hálka og ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/opid-i-hlidarfjalli-og-kjorid-skidafaeri
Opið í Hlíðarfjalli og kjörið skíðafæri Opið er á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli til kl. 16 í dag en þar eru þrjár lyftur opnar, Fjarkinn, Hólabraut og Auður. Strompurinn er einnig opinn en ótroðinn. Um hádegisbil var ágætt veður í fjallinu, 5 stiga frost og 4-5 m/s. Göngubraut var troðinn um kl. 10 í morgun. Mikið hefur ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jolatonleikar-kvennakors-akureyrar-og-karlakors-dalvikur
Jólatónleikar Kvennakórs Akureyrar og Karlakórs Dalvíkur Á morgun, sunnudaginn 27. desember verða tvennir jólatónleikar með Kvennakór Akureyrar og Karlakór Dalvíkur. Fyrri tónleikarnir verða í Akureyrarkirkju kl 16:00, en þeir seinni í Dalvíkurkirkju kl. 21:00. Forsala aðgöngumiða er í Pennanum og við innganginn á kr. ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/dagnyjarmotid-haldid-milli-jola-og-nyars
Dagnýjarmótið haldið milli jóla og nýárs Dagnýjarmótið verður haldið í Hlíðarfjalli dagana 27. og 28. desember næstkomandi, en um er að ræða alþjóðlegt mót í svigi í flokki karla og kvenna 15 ára og eldri. Mótið átti upphaflega að fara fram dagana 18. og 19. desember en var aflýst vegna veðurs. Búast má við sterku móti...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/starfsemi-saa-a-akureyri-i-lausu-lofti-vegna-bodads-nidurskurdar
Starfsemi SÁÁ á Akureyri í lausu lofti vegna boðaðs niðurskurðar „Staðan er einfaldlega sú ef fram heldur sem horfir, að við verðum að draga saman seglin og stöndum frammi fyrir því að hætta starfsemi okkar hér á Akureyri og/eða á Staðarfelli," segir Anna Hildur Guðmundsdóttir dagskrárstjóri hjá SÁÁ á Akureyri. SÁÁ þar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ahyggjur-af-haettuastandi-vid-gangbrautir-yfir-thingvallastraeti
Áhyggjur af hættuástandi við gangbrautir yfir Þingvallastræti Skólanefnd Akureyrar samþykkti á síðasta fundi sínum að fela formanni og fræðslustjóra að boða til fundar strax á nýju ári með fulltrúum framkvæmdadeildar, lögreglu og Lundarskóla til að leita viðunandi lausna strax á hættuástandi við gangbrautir yfir Þingva...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vida-halka-halkublettir-og-eljagangur-a-nordurlandi
Víða hálka, hálkublettir og éljagangur á Norðurlandi Á Norðurlandi eru hálkublettir og éljagangur í Húnavatnssýslum og í kringum Blönduós, snjóþekja og éljagangur er á Vatnsskarði, í Skagafirði og á Þverárfjalli. Snjóþekja og snjókoma er einnig á Öxnadalsheiði og raunar í öllum Eyjafirðinum. Þungfært er svo á Hólasandi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eftirlit-med-olvunarakstri-a-jolafostu
Eftirlit með ölvunarakstri á jólaföstu Eins og önnur lögreglulið í landinu hefur lögreglan á Eyjafjarðarsvæðinu, þ.e. Akureyri, Dalvík, Ólafsfirði og Siglufirði, verið með sérstakt eftirlit með ölvunarakstri á Jólaföstunni. Alls hafa verið stöðvaðar 1.156 bifreiðar á öllum tímum sólarhringsins alla daga vikunnar. Af þe...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aflaverdmaeti-vilhelms-thorsteinssonar-ea-rumir-27-milljardar-krona
Aflaverðmæti Vilhelms Þorsteinssonar EA rúmir 2,7 milljarðar króna Skip Samherja hafa aflað vel á árinu sem nú er að líða. Alls hafa sjö skip félagsins veitt samtals 94.400 tonn á árinu og er aflaverðmæti þeirra samtals rúmlega 5,3 milljarðar króna. Aflahæsta skipið er Vilhelm Þorsteinsson EA, með samtals 45.000 tonn o...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stjornendur-leiti-leida-til-ad-draga-ur-yfirvinnu
Stjórnendur leiti leiða til að draga úr yfirvinnu Í tengslum við afgreiðslu á fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir næsta ár á fundi bæjarstjórnar í gær, voru jafnframt samþykktar samhljóða, bókanir varðandi starfsáætlanir, kaup á vörum og þjónustu og áherslur við framkvæmd fjárhagsáætlunar. a) Starfsáætlanir Bæjarstjórn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sjalfstaediskonur-sofnudu-til-styrktar-maedrastyrksnefndum
Sjálfstæðiskonur söfnuðu til styrktar mæðrastyrksnefndum Sjálfstæðiskvennafélagið Vörn Akureyri safnaði 500 þúsund krónum fyrir Mæðrastyrksnefnd Akureyrar, ásamt söluaðilum stuðningskorta og þar af söfnuðst 230 þúsund krónur á Glerártorgi sl. laugardag. Fjármunirnir voru afhentir Mæðrastyrksnefnd í morgun. Söfnuninni, ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/til-skodunar-ad-kaupa-kennslu-fyrir-atvinnulausa-i-framhaldsskolum
Til skoðunar að kaupa kennslu fyrir atvinnulausa í framhaldsskólum Vinnumálastofnum er að velta því fyrir sér að kaupa kennslu fyrir atvinnulausa í framhaldsskólum. Horfur á næsta ári eru heldur skárri en reiknað var með og er gert ráð fyrir aðeins minna atvinnuleysi en á þessu ári en hvert prósent í atvinnuleysi kosta...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/uppbyggingu-samgongumid-stodvar-i-reykjavik-verdi-hradad
Uppbyggingu samgöngumið- stöðvar í Reykjavík verði hraðað Á fundi bæjarstjórnar Akureyrar í gær óskaði Jóhannes Gunnar Bjarnason bæjarfulltrúi eftir umræðu um málefni Reykjavíkurflugvallar og samgöngumiðstöðvar í Vatnsmýrinni. Bæjarstjórn samþykkti bókun með 11 samhljóða atkvæðum, þar sem skorað er á samgönguyfirvöld o...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kristjan-thor-faer-lausn-fra-storfum-i-baejarstjorn-akureyrar
Kristján Þór fær lausn frá störfum í bæjarstjórn Akureyrar Á fundi bæjarstjórnar Akureyrar í gær, las forseti upp bréf frá Kristjáni Þór Júlíussyni alþingismanni og bæjarfulltrúa, þar sem hann óskaði eftir lausn frá störfum í bæjarstjórn frá og með næstu áramótum. Ástæða þess að Kristján Þór biðst lausnar er vegna ófyr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/arekstur-a-akureyri-og-bilvelta-i-eyjafjardarsveit
Árekstur á Akureyri og bílvelta í Eyjafjarðarsveit Einn var fluttur á slysadeild Sjúkrahússins á Akureyri eftir harðan árekstur á gatnamótum Glerárgötu og Þórunnarstrætis á Akureyri um ellefu leytið í gærkvöld. Var annarri bifreiðinni ekið í veg fyrir hina á grænu ljósi. Báðar bifreiðarnar voru óökufærar, samkvæmt uppl...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/elmar-dan-faerir-sig-um-set-i-noregi
Elmar Dan færir sig um set í Noregi Akureyringurinn og fyrrum leikmaður KA, Elmar Dan Sigþórsson, hefur ákveðið að söðla um í Noregi og mun yfirgefa knattspyrnufélagið Tornado Máloy sem leikur í 3. deild og mun ganga til liðs við 2. deildar liðið Forde. Elmar gekk í raðir Tornado Máloy sl. vor og átti eitt ár eftir af ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorka-faer-aukin-lidsstyrk
Þór/KA fær aukin liðsstyrk Þór/KA fékk aukin liðsstyrk í dag fyrir baráttuna í Pepsi- deild kvenna í knattspyrnu á næsta ári er þær systur, Arna Benný og Gígja Harðardætur gengu til liðs við félagið. Þær hafa báðar leikið með Völsungi undanfarið og þykja mjög efnilegar knattspyrnukonur.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thyskir-kvikmyndagerdarmenn-gera-biomynd-um-jolasidi-a-islandi
Þýskir kvikmyndagerðarmenn gera bíómynd um jólasiði á Íslandi Þýskir kvikmyndagerðarmenn eru staddir hér á landi þessa dagana en tilgangurinn með heimsókninni er að gera 45 mínútna bíómynd um jólasiði á Íslandi. Hópurinn hefur átta daga til að vinna myndina, sem á svo að sýna næsta haust á þýskri sjónvarpsstöð, sem sen...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/yfirlysing-fra-einingu-idju-vegna-fretta-sjonvarpsins
Yfirlýsing frá Einingu-Iðju vegna frétta Sjónvarpsins Vegna frétta Ríkissjónvarpsins kl. 19 í gær, þar sem fjallað var um að forystumenn verkalýðshreyfingarinnar komi í veg fyrir að upplýsingar um stjórnarfólk í félögunum komi fram í gagnagrunni sem Jón Jósep Bjarnason er með í smíðum, vill Eining-Iðja taka eftirfarand...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/arleg-blysfor-gegn-stridi-a-morgun-thorlaksmessu
Árleg blysför gegn stríði, á morgun Þorláksmessu Friðarframtak stendur fyrir árlegri blysför gegn stríði, á morgun Þorláksmessu. Safnast verður saman klukkan 20.00 fyrir framan Samkomuhúsið í Hafnarstræti á Akureyri og gengið niður á Ráðhústorg þar sem haldinn verður útifundur. Dagskrá fundarins: Ösp Kristjánsdóttir fr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ibuum-akureyrar-fjolgadi-um-41-a-milli-ara
Íbúum Akureyrar fjölgaði um 41 á milli ára Þann 1. desember sl. voru íbúar á Akureyri 17.563 og hafði fjölgað um 41 frá sama tíma í fyrra. Fjölgunin helgast af því að Akureyri og Grímsey sameinuðust á árinu en þann 1. desember 2008 voru íbúar Grímseyjar 92. Af sveitarfélögum í Eyjafirði hefur íbúum fjölgað hlutfallsega...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rikisborgarar-fra-48-thjodlondum-busettir-a-akureyri
Ríkisborgarar frá 48 þjóðlöndum búsettir á Akureyri Íbúum með erlent ríkisfang fækkaði um 10,2% á Akureyri á síðasta ári, miðað við árið á undan, eða um 52 einstaklinga, úr 512 í 460. Ástæðurnar eru bæði brottflutningur og að einhverjir hafa öðlast íslenskan ríkisborgararétt. Á síðustu 10 árum hefur erlendum ríkisborgu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/islensk-verdbref-styrkja-maedrastyrksnefnd
Íslensk verðbréf styrkja Mæðrastyrksnefnd Íslensk verðbréf hf. á Akureyri afhentu í dag Mæðrastyrksnefnd á Akureyri hálfa milljón króna að að gjöf og mun nefndin nýta fjármunina til þess að styðja skjólstæðinga sína nú fyrir jólin. Þetta er annað árið í röð sem Íslensk verðbréf færa nefndinni styrk, en styrkurinn kemur...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/arleg-uthlutun-ur-afreks-og-styrktarsjodi-akureyrar
Árleg úthlutun úr Afreks- og styrktarsjóði Akureyrar Hin árlega úthlutun úr Afreks- og styrktarsjóði Akureyrar fer fram í hófi sem haldið verður í Íþróttahöllinni á Akureyri þriðjudaginn 29. desember nk. kl. 16.15, þar sem afhent verða viðurkenningarskjöl íþróttaráðs Akureyrar til hvers félags fyrir sig. Árangur akurey...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ithrottarad-telur-naudsynlegt-ad-felagssvaedi-kka-verdi-staekkad
Íþróttaráð telur nauðsynlegt að félagssvæði KKA verði stækkað Íþróttaráð Akureyrar telur nauðsynlegt að félagssvæði KKA - akstursíþróttafélags torfæru- og vélsleðamanna, verði stækkað fyrir Enduro starfsemi félagsins og sér ekki neina annmarka á því að félaginu verði úthlutað landsvæði samkvæmt tillögu skipulagsnefndar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bjorninn-sigradi-sasen-i-vitakeppni
Björninn sigraði SAsen í vítakeppni Björninn hefði betur gegn SAsen er liðin mættust í Egilshöllinni sl. laugardag á Íslandsmótinu í íshokkí í meistaraflokki kvenna. Ekkert mark var skorað í venjulegum leiktíma og því þurfti að framlengja. Ekki tókst liðunum heldur að koma pökknum í netið í framlengingunni og því réðus...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tolf-gefa-kost-a-ser-i-profkjori-framsoknarflokksins-a-akureyri
Tólf gefa kost á sér í prófkjöri Framsóknarflokksins á Akureyri Alls gefa 12 manns kost á sér í prófkjöri Framsóknarflokksins á Akureyri fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor en frestur til að tilkynna þátttöku rann út í gær sunnudag. Þrír gefa kost á sér í 1. sæti listans, þau Gerður Jónsdóttir, Guðmundur B. Guðmundss...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sex-tilnefndir-sem-ithrottamadur-arsins-hja-ka
Sex tilnefndir sem íþróttamaður ársins hjá KA KA hefur gefið út tilnefningar fyrir íþróttamann ársins hjá félaginu fyrir árið 2009 en kjörið fer fram á afmælisdegi félagsins, þann 8. janúar næstkomandi. Alls eru sex manns tilnefndir og eru þeir eftirfarandi: Blakdeild: Auður Anna Jónsdóttir Piotr Slawomir Kempisty Hand...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rekstur-slippsins-akureyri-aldrei-gengid-betur
Rekstur Slippsins Akureyri aldrei gengið betur Verkefnastaða Slippsins Akureyri hefur verið með allra besta móti á þessu ári og hefur reksturinn aldrei gengið betur frá því nýir eigendur tóku við rekstrinum seinni hluta ársins 2005. "Það hefur verið mjög mikið að gera allt þetta ár og mikil yfirvinna, þrátt fyrir að vi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vida-halka-halkublettir-og-skafrenningur-a-vegum-landsins
Víða hálka, hálkublettir og skafrenningur á vegum landsins Víða eru hálka, hálkublettir og skafrenningur á vegum landsins og því ástæða fyrir vegfarendur að fara með gát. Á Norðvesturlandi er hálka og éljagangur á Vatnsskarði og á Öxnadalsheiði. Á Norðausturlandi er hálka, hálkublettir og skafrenningur. Snjóþekja og él...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ovist-med-opnun-skidasvaedisins-i-hlidarfjalli
Óvíst með opnun skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli Alls óvíst er hvort hægt verður að opna skíðasvæðið í Hlíðarfjalli í dag vegna veðurs en frekari upplýsingar munu liggja fyrir kl. 12.00. Ekki var hægt að opna skíðasvæðið í gær vegna veðurs og því varð heldur ekkert af alþjóðlega skíðamótinu sem þar átti að vera. Til stóð ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/einn-fluttur-a-sjukrahus-eftir-bilslys-a-moldhaugnahalsi
Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys á Moldhaugnahálsi Bílslys varð rétt fyrir utan Akureyri, á svokölluðum Moldhaugnahálsi, á áttunda tímanum í kvöld. Einn var fluttur á sjúkrahús með nokkur meiðsl, sem þó eru ekki talin lífshættuleg. Hann gat sjálfur hringt á neyðarlínuna og beðið um hjálp, og var með meðvitund all...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rumlega-100-nemendur-brautskradir-fra-vma
Rúmlega 100 nemendur brautskráðir frá VMA Alls voru 110 nemendur brautskráðir frá Verkmenntaskólanum á Akureyri í gær, af hinum ýmsu brautum hans. Fram kom í máli Hjalta Jóns Sveinssonar skólameistara, að hópurinn væri óneitanlega í stærri kantinum miðað við það sem tíðkast hefur í desember en þetta geti verið mjög bre...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fagna-studningi-vid-ithrotta-og-tomstundastarf-a-akureyri
Fagna stuðningi við íþrótta- og tómstundastarf á Akureyri Íþróttaráð Akureyrar fagnar velvilja stjórnar og starfsfólks Samherja í garð íþrótta- og tómstundafélaga á Akureyri og þakkar fyrirtækinu rausnarleg framlög sem munu gera félögunum starf þeirra og þjónustu mun aðgengilegri en ella á þessum tímum þar sem erfitt e...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/annar-flokkur-akureyrar-i-8-lida-urslit-bikarkeppninnar
Annar flokkur Akureyrar í 8- liða úrslit bikarkeppninnar Strákarnir í 2. flokki hjá Akureyri Handboltafélagi eru komnir áfram í 8- liða úrslit Bikarkeppni HSÍ eftir nauman sigur gegn Gróttu í gær, 30:28, er liðin mættust á Seltjarnarnesi. Staðan hálfleik var 15:13 fyrir Akureyri. Akureyri verður því meðal keppenda þega...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/valur-hafdi-betur-gegn-thor-i-1-deildinni-i-korfubolta
Valur hafði betur gegn Þór í 1. deildinni í körfubolta Þórsarar náðu ekki að fylgja eftir góðum sigri á Hrunamönnum í 1. deild karla í körfubolta á dögunum, er Valsmenn komu í heimsókn í íþróttahús Síðuskóla í kvöld. Gestirnir úr Reykjavík fóru með sigur af hólmi, 76-58, eftir að hafa haft nauma forystu í hálfleik, eft...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikilvaegt-ad-haegja-a-frekari-framkvaemdum
Mikilvægt að hægja á frekari framkvæmdum Áhersla verður lögð á að ljúka þeim stóru framkvæmdum á vegum Akureyrarbæjar sem þegar eru hafnar. Stærstu verkefnin sem í þann flokk falla eru bygging menningarhússins Hofs og íþróttamiðstöð við Giljaskóla. Á næsta ári verður varið um 1,4 milljarði króna til framkvæmda á vegum ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/koraslod-i-midbae-akureyrar-a-morgun-laugardag
Kóraslóð í miðbæ Akureyrar á morgun laugardag Það verður hátíðlegt stemmning í miðbæ Akureyrar á morgun laugardag þegar félagar úr eftirfarandi kórum; Kirkjukór Akureyrarkirkju, Kirkjukór Glerárkirkju, Karlakór Akureyrar,-Geysi, Kvennakór Akureyrar og Kvennakórnum Emblu, mynda kóraslóð frá klukkan 14. 30 - 17.00 víðsve...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-hefur-leik-a-ny-i-korfuboltanum-i-kvold
Þór hefur leik á ný í körfuboltanum í kvöld Þór fer af stað á nýjan leik í 1. deild karla í körfubolta í kvöld eftir stutt hlé þegar Valur mætir í heimsókn í Íþróttahús Síðuskóla. Fyrir leikinn munar sex stigum á liðinum, Valur hefur tíu stig í 4. sæti deildarinnar en Þór er í 8. sæti með fjögur stig. Eftir röð af tapl...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/deildarbikarkeppnin-leikinn-i-hafnarfirdi
Deildarbikarkeppnin leikinn í Hafnarfirði Deildarbikarkeppni HSÍ í handbolta verður leikinn í Strandgötu í Hafnarfirði dagana 27.- 28. desember. Fjögur efstu lið í úrvalsdeild karla og kvenna taka þátt á mótinu og verður Akureyri Handboltafélag á meðal keppnisliða í karlaflokki ásamt Val, Haukum og FH. Fyrst verður lei...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baejarrad-styrkir-motorhjola-safnid-a-akureyri
Bæjarráð styrkir Mótorhjóla- safnið á Akureyri Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi sínum í gær að styrkja Mótorhjólasafnið um eina milljón króna á ári í þrjú ár. Mótorhjólasafnið var stofnað í desember 2007, til minningar um Heiðar Þ. Jóhannsson, sem lést í hörmulegu bifhjólaslysi sumarið 2006. Mótorhjólasafnið fékk e...