Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sjalfstaedismenn-a-akureyri-med-profkjor-fyrir-kosningarnar-i-vor
Sjálfstæðismenn á Akureyri með prófkjör fyrir kosningarnar í vor Á fundi hjá Fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna á Akureyri sem haldinn var í gærkvöld, var samþykkt með miklum meirihluta að halda prófkjör við val á lista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri fyrir bæjarstjórnarkosningar vorið 2010. Prófkjörið verður haldið í u...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tonleikar-sinfoniuhljomsveitar-nordurlands-a-sunnudag
Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands á sunnudag Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands verða í Glerárkirkju sunnudaginn 15. nóvember kl. 16:00. Á efnisskrá tónleikanna eru verk eftir S. Prokofieff, R. Wagner og L.van Beethoven. Stjórnandi á tónleikunum er Guðmundur Óli Gunnarsson. Sinfóníuhljómsveit Norðurlan...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyrarbaer-selur-verkid-ferd-eftir-tryggva-olafsson
Akureyrarbær selur verkið Ferð eftir Tryggva Ólafsson Stjórn Akureyrarstofu samþykkti á fundi sínum í gær, að taka tilboði Málverkasafnsins í verkið Ferð, eftir Tryggva Ólafsson, en það er í eigu bæjarins. Formlegt tilboð hljóðaði upp á 1,2 milljónir króna í peningum og að auki eftirprentanir eftir Tryggva. Stjórn Akur...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eins-marks-sigur-akureyrar-a-stjornunni-i-kvold
Eins marks sigur Akureyrar á Stjörnunni í kvöld Akureyri Handboltafélag vann eins marks sigur á Stjörnunni, 25:24, er liðin mættust í Höllinni í kvöld í 5. umferð N1- deildar karla í handbolta. Hörður Flóki Ólafsson var hetja Akureyrar í leiknum en hann varði 26 skot í leiknum, þar af 3 víti og varði í tvígang frá Stjö...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/syning-helgud-kvenfelogum-opnud-a-akureyri
Sýning helguð kvenfélögum opnuð á Akureyri Opinber skjalasöfn á Norðurlöndum hafa lengi kynnt starfsemi sína með ýmsu móti. Frá 2001 hafa þau sameinast um árlegan kynningardag sem að þessu sinni er laugardagurinn 14. nóvember. Mörg skjalasöfn opna hús sín fyrir almenningi á þessum degi og vekja athygli á ákveðnum skjal...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/buist-vid-250-erlendum-keppendum-a-nordurlandamot-u20-a-akureyri
Búist við 250 erlendum keppendum á Norðurlandamót U20 á Akureyri Frjálsíþróttasamband Íslands skrifaði í vikunni undir samstarfssamning við UMSE og UFA um rekstur og framkvæmd á Norðurlandamóti ungmenna U20. Mótið mun fara fram á Þórsvellinum dagana 28. - 29. ágúst á næsta ári. Mótið var haldið í borginni Vasaa í Finnl...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/utsvarsprosenta-a-akureyri-verdi-obreytt-a-milli-ara
Útsvarsprósenta á Akureyri verði óbreytt á milli ára Vinna við gerð fjárhagsáætlunar Akureyrarbæjar fyrir næsta er í fullum gangi. Á fundi bæjarráðs í morgun var samþykkt að leggja til við bæjarstjórn að útsvarsprósenta verði óbreytt á milli ára, eða 13,28%. Stefnt er að því að taka fjárhagsáætlun til fyrri umræðu í bæ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nyjar-samgonguframkvaemdir-bodnar-ut-a-naestunni
Nýjar samgönguframkvæmdir boðnar út á næstunni Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að haldið verði áfram undirbúningi vegna útboða á samgönguframkvæmdum. Meðal framkvæmda eru fyrsti áfangi í breikkun Suðurlandsvegar, samgöngumiðstöð í Reykjavík og Vaðlaheiðargöng í einkaframkvæmd. ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyri-maetir-stjornunni-i-hollinni-i-kvold
Akureyri mætir Stjörnunni í Höllinni í kvöld Akureyri Handboltafélag leikur sinn annan heimaleik á tímabilinu í kvöld þegar Stjarnan kemur í heimsókn í Höllina, í 5. umferð N1- deildar karla í handbolta. "Við ætlum okkur að sjálfsögðu sigur í kvöld eins og í öllum öðrum leikjum,” segir Jónatan Þór Magnússon fyrirliði A...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fimm-fra-sa-i-u-20-ara-landslidid
Fimm frá SA í U-20 ára landsliðið Fimm leikmenn frá Skautafélagi Akureyrar voru í dag valdir í landsliðshóp karla í íshokkí, skipað leikmönnum 20 ára og yngri, sem heldur til Tyrklands þann 3. janúar næstkomandi og tekur þátt í 3. deild heimsmeistaramótsins. Leikmennirnir fimm eru þeir Ingólfur Tryggvi Elíasson, Sigurd...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-saekir-b-lid-keflavikur-heim-i-subway-bikarnum
Þór sækir B- lið Keflavíkur heim í Subway- bikarnum Í dag var dregið í 16- liða úrslit Subway- bikarkeppni kvenna í körfubolta og dróst Þór gegn B- liði Keflavíkur. Þór dróst sem seinna lið upp úr pottinum og þarf því að sækja Keflavíkurliðið heim. Leikirnir í 16- liða úrslitunum fara fram dagana 5.-7. desember nk. Lið...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/agust-thor-arnason-nyr-raedis-madur-thyskalands-a-akureyri
Ágúst Þór Árnason nýr ræðis- maður Þýskalands á Akureyri Ágúst Þór Árnason aðjúnkt við Háskólann á Akureyri, hefur verið skipaður ræðismaður Þýskalands á Akureyri. Sendiherra Þýskalands á Íslandi, dr. Karl-Ulrich Müller, afhenti Ágústi Þór skipunarbréf sitt við hátíðarlega athöfn fyrr í kvöld. Hann tekur við embættinu ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kathor-i-8-lida-urslit-bikarkeppninnar
KA/Þór í 8- liða úrslit bikarkeppninnar KA/Þór komst í kvöld í 8- liða úrslit Eimsbikarkeppni kvenna í handbolta er liðið lagði Víking að velli, 36:13, í KA- heimilinu í kvöld í 16- liða úrslitum keppninnar. Heimastúlkur höfðu leikinn í hendi sér frá fyrstu mínútu og leiddu með 14 mörkum í hálfleik, 18:4. KA/Þór skorað...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/framsoknarmenn-a-akureyri-efna-til-profkjors
Framsóknarmenn á Akureyri efna til prófkjörs Á fundi fulltúaráðs Framsóknarfélaganna á Akureyri í gærkvöld, var samþykkt að viðhafa prófkjör við val í sex efstu sæti á framboðslista Framsóknarflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2010. Rétt til þátttöku hafa félagar í Framsóknarfélögunum á Akureyri og aðrir stuðn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sr-vann-tveggja-marka-sigur-a-sa-i-kvold
SR vann tveggja marka sigur á SA í kvöld SR hafði betur gegn SA er liðin mættust í kvöld í Skautahöll Akureyrar á Íslandsmótinu í íshokkí karla. Lokatölur leiksins urðu 5:3 sigur SR. Aðeins eitt mark var skorað í fyrsta leikhluta og það gerði Orri Blöndal fyrir heimamenn. Daniel Kolar kom SR í 2:1 í öðrum leikhluta með...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hjorleifur-halldorsson-skak-meistari-skakfelags-akureyrar
Hjörleifur Halldórsson skák- meistari Skákfélags Akureyrar "Öldungurinn" Hjörleifur Halldórsson, 65 ára, sigraði á Haustmóti Skákfélags Akureyrar, eftir afar spennandi keppni við Tómas Veigar Sigurðarson. Tómas hafði leitt mótið frá upphafi og var með hálfan vinning í forskot á Hjörleif fyrir síðustu umferð. Hjörleifur...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fimleikafelag-akureyrar-vann-til-fjogurra-verdlauna-a-threpamoti
Fimleikafélag Akureyrar vann til fjögurra verðlauna á þrepamóti Gymnova þrepamót í áhaldafimleikum var haldið í Kópavógi sl. laugardag og þar átti Fimleikafélag Akureyrar 21 keppenda. Krakkarnir stóðu sig með prýði á mótinu og vann félagið til fjögurra verðlauna en keppt var í 3., 4. og 5. Þrepi drengja og 3. og 4. Þre...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sofnudur-sjounda-dags-adventista-kaupir-gamla-lund
Söfnuður Sjöunda dags aðventista kaupir Gamla Lund Söfnuður Sjöunda dags aðventista á Akureyri hefur keypt Gamla Lund við Eiðsvallagötu og þar verður framtíðarkirkja safnaðarins í bænum. Söfnuðurinn hefur ekki haft fastan samastað um langa hríð og ekki átt eigið húsnæði í bænum í um hálfa öld. Draumur aðventista er að ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/slaturtid-a-husavik-ekki-gengid-betur-i-annan-tima
Sláturtíð á Húsavík ekki gengið betur í annan tíma Sláturtíð hefur ekki í annan tíma gengið betur en í haust, að sögn Sigmundar Hreiðarssonar stöðvarstjóra Norðlenska á Húsavík. Þar á bæ var slátrað 72.439 lömbum og 4.795 fullorðum ám, alls 200 fleiri en í fyrra. Þess má og geta til gamans að Grímur á Rauðá kom með 13 ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nytt-frumvarp-til-breytinga-a-logum-um-stjorn-fiskveida-lagt-fram
Nýtt frumvarp til breytinga á lögum um stjórn fiskveiða lagt fram Í dag leggur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Jón Bjarnason fram á Alþingi nýtt frumvarp. Frumvarpið er samið í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, en með því eru lagðar til breytingar á lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breyti...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/adgerdaraaetlun-vegna-ofbeldis-a-heimilum-og-kynferdislegs-ofbeldis-kynnt
Aðgerðaráætlun vegna ofbeldis á heimilum og kynferðislegs ofbeldis kynnt Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar, Katrín Björg Ríkarðsdóttir framkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindadeildar og Margrét Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri HAK kynntu drög að endurskoðaðri aðgerðaráætlun Akureyrarbæjar vegna ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sa-og-sr-maetast-i-skautaholl-akureyrar-i-kvold
SA og SR mætast í Skautahöll Akureyrar í kvöld Skautafélag Akureyrar og Skautafélag Reykjavíkur leiða saman hesta sína í kvöld í Skautahöll Akureyrar, þegar liðin eigast við á Íslandsmótinu í íshokkí karla. Fyrir leikinn eru liðin jöfn að stigum með 9 stig í deildinni en SR hefur leikið einum leik minna. Leikurinn í kv...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/landspitalamalid-kynnt-a-akureyri
Landspítalamálið kynnt á Akureyri Landssamtök lífeyrissjóða og Landspítali efna til sameiginlegs kynningarfundar um viljayfirlýsingu lífeyrissjóða og heilbrigðisráðherra varðandi nýjan Landspítala á Hótel KEA á Akureyri á fimmtudaginn kemur, 12. nóvember, kl. 16:00. Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra ávarpar samk...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kaeru-eyktar-um-ad-stodva-samningsgerd-vid-ss-byggi-hafnad
Kæru Eyktar um að stöðva samningsgerð við SS Byggi hafnað Kærunefnd útboðsmála hefur hafnað kröfu Eyktar ehf., um að stöðva samningsgerð í kjölfar útboðs við lokafrágang á Íþróttamiðstöð Giljaskóla á Akureyri. Eykt kærði þá ákvörðun Fasteigna Akureyrarbæjar að ganga til samninga við SS-Byggi ehf. eftir útboð. Eykt átti...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ekki-ordid-vart-vid-samdratt-i-matvoruverslunum
Ekki orðið vart við samdrátt í matvöruverslunum Fólk sækir í ódýrari vörur, leitar uppi tilboð og reynir hvað það getur til að gera hagstæð innkaup. Dýrar innfluttar vörur sem þóttu sjálfsagðar í innkaupakerrunni fyrir tveimur árum heyra nú sögunni til og eru ekki lengur á boðstólum. „Það hafa orðið töluverðar munsturb...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/starfsendurhaefing-nordurlands-sjai-um-rekstur-menntasmidju-kvenna
Starfsendurhæfing Norðurlands sjái um rekstur Menntasmiðju kvenna Samfélags- og mannréttindaráð samþykkti á síðasta fundi sínum að taka upp viðræður um áframhaldandi samstarf við Starfsendurhæfingu Norðurlands um rekstur Menntasmiðju kvenna, á grundvelli núverandi samnings. Margrét Ríkarðsdóttir lét bóka á fundinum að ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/manudagur-gegn-maedu-a-ny-i-akureyrarkirkju
Mánudagur gegn mæðu á ný í Akureyrarkirkju Síðasta vetur efndi Akureyrarkirkja til samveru í Safnaðarheimili kirkjunnar undir yfirskriftinni; Mánudagar gegn mæðu. Nú hefur verið ákveðið að endurvekja þessar samverur. Sú fyrsta verður í kvöld, mánudaginn 9. nóvember kl. 20. Þar talar Corinne Demspey, prófessor í trúarbr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/anaegja-med-thann-goda-arangur-sem-nadst-hefur-i-ferdathjonustunni
Ánægja með þann góða árangur sem náðst hefur í ferðaþjónustunni Aðalfundur Ferðamálasamtaka Íslands, sem var haldinn á Akureyri í vikunni, lýsir yfir mikilli ánægju sinni með þann góða árangur sem náðst hefur í ferðaþjónustunni á yfirstandandi ári. Þrotlaus vinna fjölda aðila við markaðssetningu og móttöku ferðamanna u...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-sigradi-b-lid-grindavikur
Þór sigraði B- lið Grindavíkur Þór hélt í dag áfram sigurgöngu sinni í 1. deild kvenna í körfubolta þegar liðið vann B- lið Grindavíkur, 49:44, er liðin mættust í Grindavík í dag. Eftir tap í fyrstu tveimur leikjunum í deildinni hefur Þór unnið síðustu þrjá leiki og hefur sex í deildinni eftir 5. umferðir.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/framhaldsskolar-fai-naudsynlegt-fjarmagn-til-ad-sinna-logbundnum-skyldum
Framhaldsskólar fái nauðsynlegt fjármagn til að sinna lögbundnum skyldum "Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2010 sem nú liggur fyrir Alþingi birtist niðurskurður á fjárveitingum til framhaldsskóla með þrenns konar hætti. Í fyrsta lagi er gert ráð fyrir að framlög lækki frá fjárlögum yfirstandandi árs um tæplega 850 milljó...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/reyndi-ad-smygla-lyfjum-og-sprautum-i-fangelsid-a-akureyri
Reyndi að smygla lyfjum og sprautum í fangelsið á Akureyri Lögreglan á Akureyri handtók stúlku á tvítugsaldri í gærkvöld, þegar hún reyndi að kasta pakka inn í fangelsisgarðinn á Akureyri. Einnig var einn refsifangi í fangelsinu handtekinn, grunaður um að hafa ætlað að taka á móti pakkanum. Pakkinn reyndist innihalda l...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-sigradi-i-odrum-leiknum-i-rod
Þór sigraði í öðrum leiknum í röð Þór vann sinn annan leik í röð í 1. deild kvenna í körfubolta þegar liðið sigraði Laugdælinga í dag, 54:44, er liðin mættust á Laugarvatni í 4. umferð deildarinnar. Eftir brösótta byrjun í deildinni hefur Þór heldur betur spýtt í lófana og fengið fjögur stig af síðustu fjórum mögulegum...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/threttan-marka-tap-hja-kathor-gegn-stjornunni
Þrettán marka tap hjá KA/Þór gegn Stjörnunni KA/Þór tapaði með þrettán marka mun gegn Stjörnunni, 19:32, þegar liðin mættust í N1- deild kvenna í handbolta í KA-heimilinu í dag. Florentina Stanciu í marki Stjörnunnar var heimastúlkum erfið en hún átti stórleik í dag og varði 28 skot, þar af 3 víti og lagði þar með grun...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sala-arskorta-hja-leikfelagi-akureyrar-gekk-vel
Sala árskorta hjá Leikfélagi Akureyrar gekk vel Sala árskorta hjá Leikfélagi Akureyrar gekk mjög vel og „er á pari við undanfarin ár," segir Egill Arnar Sigurþórsson framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar en alls seldust um 1800 kort sem er svipað og verið hefur síðastliðin tvö ár. „Þetta gekk vonum framar og ekki annað...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kathor-maetir-stjornunni-i-dag
KA/Þór mætir Stjörnunni í dag KA/Þór leikur sinn þriðja heimaleik í röð í N1- deild kvenna í handbolta í dag þegar liðið fær Stjörnuna í heimsókn. Fyrirfram má búast við erfiðum leik hjá KA/Þór sem er enn án stiga í næstneðsta sæti deildarinnar, en Stjarnan hefur farið vel af stað og er í 2. sæti deildarinnar með sex s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-ur-leik-i-bikarnum-1
Þór úr leik í bikarnum Þór féll í kvöld úr leik í 32- liða úrslitum Subway- bikarkeppni karla í körfubolta er liðið tapaði naumlega á heimavelli gegn Skallagrími, 101:103 en leikið var í Síðuskóla. Wesley Hsu var stigahæstur í liði Þórs í kvöld með 28 stig, Páll Halldór Kristinsson skoraði 22 stig og Sigmundur Óli Eirí...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/orkuveita-husavikur-selur-raforkuhluta-fyrirtaekisins
Orkuveita Húsavíkur selur raforkuhluta fyrirtækisins Orkuveita Húsavíkur ehf., sem er í eigu sveitarfélagsins Norðurþings, hefur selt raforkuhluta fyrirtækisins til RARIK ohf. og Orkusölunnar ehf. Með kaupunum eignast RARIK rafdreifikerfi Orkuveitunnar og Orkusalan tekur við sölustarfsemi fyrirtækisins. Orkustöðin - vi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/full-kirkja-var-af-folki-a-styrktartonleikum-aflsins
Full kirkja var af fólki á styrktartónleikum Aflsins Framkvæmdanefnd Aflsins hélt styrktartónleika í Akureyrarkikju í gærkvöld og var kirkjan full af fólki. Framkvæmdanefndin fékk til liðs við sig um 45 tónlistarmenn og tæknimenn og allir gáfu vinnu sína. Það skapaðist ótrúleg stemmning þegar félagar í Karlakór Akureyr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-og-skallagrimur-maetast-i-bikarnum-i-kvold
Þór og Skallagrímur mætast í bikarnum í kvöld Þór og Skallagrímur mætast í kvöld í 32- liða úrslitum Subway bikarkeppni karla í körfubolta. Leikurinn hefst kl. 19:15 og er leikið í Síðuskóla
https://www.vikubladid.is/is/frettir/grunur-um-influensu-i-svinum-a-svinabui-i-horgarbyggd
Grunur um inflúensu í svínum á svínabúi í Hörgárbyggð Grunur hefur vaknað um inflúensu í svínum á einu svínabúi í Eyjafirði. Sýni verða tekin í dag og send til rannsóknar á Tilraunastöð HÍ að Keldum. Svínaflensa smitast ekki með svínakjöti og fólki stafar því engin hætta af neyslu þess. Til að hindra útbreiðslu smits t...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hagnadur-af-landsmoti-umfi-um-18-milljonir-krona
Hagnaður af Landsmóti UMFÍ um 18 milljónir króna „Þetta kom út réttu megin við núllið. Við erum að halda að þetta séu um 18 milljónir króna í hagnað," segir Sigurður H. Kristjánsson, formaður UMSE, en uppgjörsfundur vegna Landsmóts UMFÍ var haldinn í síðustu viku. Sigurður segir útkomuna vera eina bestu í sögu Landsmót...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stangveidimenn-a-akureyri-koma-saman-til-haustfagnadar
Stangveiðimenn á Akureyri koma saman til haustfagnaðar Vetrarstarf Stangveiðifélags Akureyrar, SVAK, hefst í kvöld, föstudaginn 6. nóvember kl. 20.30, með haustfagnaði í Lionssalnum Skipagötu 14. Erlendur Steinar, formaður SVAK, segir frá starfsemi félagsins og gerir upp veiðisumarið 2009. Ármann Guðmundsson kynnir fjö...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sigur-hja-akureyri-i-spennuthrungnum-leik
Sigur hjá Akureyri í spennuþrungnum leik Akureyri Handboltafélag vann í kvöld geysilega mikilvægan sigur á Gróttu er liðin mættust á Seltjarnarnesi N1- deild karla í handbolta. Lokatölur leiksins urðu 22:21 norðanmönnum í vil, eftir að Grótta hafði haft yfir í hálfleik, 11:9. Leikurinn var gríðarlega jafn og spennandi ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/straetisvagn-sva-knuinn-af-lifdisil-sem-framleiddur-er-a-akureyri
Strætisvagn SVA knúinn af lífdísil sem framleiddur er á Akureyri Orkey ehf., Mannvit og Strætisvagnar Akureyrar hófu í dag samstarfsverkefni, sem gengur út á að einn af strætisvögnum SVA mun verða knúinn af lífdísil, framleiddum í tilraunaverksmiðju Mannvits og Orkeyjar á Akureyri. Hermann Jón Tómasson bæjarstjóri skri...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stofnfjareigendur-i-fyrrum-sparisjodi-nordlendinga-stofna-samtok
Stofnfjáreigendur í fyrrum Sparisjóði Norðlendinga stofna samtök Á fjölmennum fundi í Hlíðarbæ í gærkvöld voru stofnuð samtök stofnfjáreigenda í fyrrum Sparisjóði Norðlendinga. Tilgangur samtakanna er að standa vörð um hagsmuni félagsmanna og bankastarfsemi sem byggir á gildum samhjálpar og félagshyggju. Tilgangi sínum...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/grotta-akureyri-handboltafelag-a-sporttvis
Grótta- Akureyri Handboltafélag á Sporttv.is Leikur Gróttu og Akureyri Handboltafélags í N1- deild karla í handbolta verður sýndur í beinni útsendingu á Sporttv.is. Að venju mun Greifinn bjóða upp aðstöðu á efri hæð hússins þar sem fólk getur komið saman og fylgst með leiknum á breiðtjaldi. Leikurinn í kvöld hefst kl. ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nordurlandamot-i-frjalsum-ithrottum-a-akureyri-a-naesta-ari
Norðurlandamót í frjálsum íþróttum á Akureyri á næsta ári Norðurlandamót í frjálsum íþróttum, 19 ára og yngri, verður haldið á Þórsvellinum á Akureyri á næsta ári, nánar tiltekið dagana 28. og 29. ágúst. Búast má við að keppendur verði á bilinu 250 til 300. Ungmennasamband Eyjafjarðar og Ungmennafélag Akureyrar annast ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/johannes-bjarnason-haettir-i-baejarstjorn-naesta-vor
Jóhannes Bjarnason hættir í bæjarstjórn næsta vor Jóhannes G. Bjarnason bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins á Akureyri, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi setu í bæjarstjórn á næsta kjörtímabili, af persónulegum ástæðum. Jóhannes er eini bæjarfulltrúi flokksins og hann hefur setið í bæjarstjórn í átt...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vel-heppnud-uppskeruhatid-ferdathjonustunnar-a-nordurlandi
Vel heppnuð uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi Markaðsstofa ferðamála á Norðurlandi hefur staðið fyrir uppskeruhátíðum ferðaþjónustunnar á Norðurlandi undanfarin 5 ár. Uppskeruhátíðin var haldin í Mývatnssveit þetta árið og þótti takast einstaklega vel enda einmuna blíða, sól og blanka logn svo fjöll og fugl...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jakvaedri-nidurstodu-a-uttekt-samninga-vid-heilbrigdisraduneyti-fagnad
Jákvæðri niðurstöðu á úttekt samninga við heilbrigðisráðuneyti fagnað Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti samhljóða bókun á fundi sínum í gær, þar sem fagnað er jákvæðri niðurstöðu úttektar á þremur samningum milli heilbrigðisráðuneytisins og Akureyrarbæjar. Úttektin staðfesti að þessi verkefni hafi almennt verið unnin af ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kea-uthlutar-styrkjum-ur-menningar-og-vidurkenningasjodi
KEA úthlutar styrkjum úr Menningar- og viðurkenningasjóði Fjármálaráðherra, Steingrímur J. Sigfússon og framkvæmdstjóri KEA, Halldór Jóhannsson afhentu í dag styrki úr Menningar- og viðurkenningasjóði KEA. Þetta er í 76. sinn sem KEA veitir styrki úr sjóðnum og fór úthlutunin fram í Listasafninu á Akureyri. Auglýst var...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bryndis-run-hlaut-atta-gullverdlaun-a-haustmoti-fjolnis
Bryndís Rún hlaut átta gullverðlaun á Haustmóti Fjölnis Sundfélagið Óðinn sópaði að sér verðlaunum á Haustmóti Fjölnis í sundi sem haldið var í Laugardagslauginni um sl. helgi en tæplega 40 sundmenn frá Óðni tóku þátt á mótinu. Bryndís Rún Hansen fór fyrir sínu félagi og vann til flestra gullverðlauna fyrir Óðinn á mót...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/styrktartonleikar-i-akureyrar-kirkju-a-fimmtudag
Styrktartónleikar í Akureyrar- kirkju á fimmtudag Tónleikar til styrktar Aflsins, samtaka gegn kynferðis- og heimilisofbeldi, verða haldnir í Akureyrarkirkju fimmtudaginn 5. nóvember kl. 20.00. Fram koma; Karlakór Akureyrar- Geysir, Friðrik Ómar, Óskar Pétursson, Inga Eydal, Hundur í óskilum og Heimir Ingimarsson. Kynn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/styrkir-veittir-vegna-vinnufram-lags-vid-handverkshatidina
Styrkir veittir vegna vinnufram- lags við Handverkshátíðina Fulltrúar sýningarstjórnar Handverkshátíðar á Hrafnagili afhentu í vikunni félagasamtökum sem unnu að sýningunni styrki vegna vinnuframlags þeirra í tengslum við framkvæmdina. Sýningin sem haldin var á Hrafnagili dagana 7. - 10. ágúst var sú best sótta í sautj...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stalthilsbryggja-i-krossanesi-verdi-lengd-um-120-metra
Stálþilsbryggja í Krossanesi verði lengd um 120 metra Skipulagsnefnd Akureyrar leggur til við bæjarstjórn að breyting á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018 verði auglýst en breytingin felst í lengingu á núverandi stálþilsbryggju í Krossanesi til suðvesturs um 120 metra. Jafnframt leggur skipulagsnefnd til að breyting á d...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ibuar-vid-fossland-hljota-umhverfisverdlaun-eyjafjardarsveitar
Íbúar við Fossland hljóta umhverfisverðlaun Eyjafjarðarsveitar Líkt og undanfarin ár veitir umhverfisnefnd Eyjafjarðarsveitar umhverfisverðlaun til þeirra íbúa sveitarinnar sem þykja skara fram úr hvað varðar umgengni og snyrtilegt umhverfi. Viðurkenningarnar hafa ýmist verið ein eða fleiri. Í ár ákvað nefndin að bregð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kea-sendir-grunnskolabornum-a-felagssvaedinu-hofudkluta
KEA sendir grunnskólabörnum á félagssvæðinu höfuðklúta KEA hefur sent öllum börnum í 1. til 5. bekk í grunnskólum á félagssvæðinu höfuðklúta með merki félagsins. Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA afhenti fríðum hópi barna í Glerárskóla klútana í morgun.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/andri-fannar-samdi-vid-ka-til-eins-ars
Andri Fannar samdi við KA til eins árs Andri Fannar Stefánsson, leikmaður 1. deildar liðs KA í knattspyrnu, hefur endurnýjað samning sinn við félagið til eins árs. Samningur Andra Fannars við KA átti að renna út um áramótin og samkvæmt heimildum fotbolta.net, mun meirihluti félaganna í Pepsi- deildinni hafa haft samban...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/heimild-fyrir-byggingu-45-nyrra-hjukrunarryma-fagnad
Heimild fyrir byggingu 45 nýrra hjúkrunarrýma fagnað Félagsmálaráð Akureyrar fagnar heimild ríkisstjórnarinnar fyrir byggingu 45 nýrra hjúkrunarrýma á Akureyri, sem munu taka við af Kjarnalundi. Félagsmálaráð leggur til við bæjarstjórn að fyrirhuguð lóð þurfi að rúma um 100 rými horft til framtíðar og óskar eftir hugmy...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrirlestur-um-kannabisefni-og-afleidingar-kannabisneyslu
Fyrirlestur um kannabisefni og afleiðingar kannabisneyslu Þórarinn Tyrfingsson yfirlæknir SÁÁ, verður með fyrirlestur um kannabisefni og afleiðingar kannabisneyslu, á Akureyri í dag, mánudaginn 2. nóvember. Á undanförnum árum hefur þeim hugmyndum vaxið fiskur um hrygg meðal ungs fólks að kannabisefni séu ekki eins slæm...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sigrar-hja-ka-i-blakinu-i-dag
Sigrar hjá KA í blakinu í dag KA gerði góða hluti á Íslandsmótinu í blaki í dag en leikið var í KA- heimilinu í MIKASA- deild karla- og kvenna. Í karlaflokki lagði KA Stjörnuna að velli, 3:1. Piotr Kempisty var stigahæstur í liði KA með 27 stig og Hilmar Sigurjónsson kom næstur með 21 stig. Í kvennaflokki hafði KA betu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-hafdi-betur-gegn-skallagrimi
Þór hafði betur gegn Skallagrími Þór landaði naumum sigri gegn Skallagrími, 55:52, er liðin mættust í Síðuskóla í 3. umferð 1. deildar kvenna í körfubolta í gær. Mikið jafnræði var með liðunum í leiknum og leiddu gestirnir með þremur stigum í hálfleik, 31:28. Þór reyndist hins vegar sterkari á lokasprettinum og landaði...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/syningin-evudaetur-i-listasafninu-a-akureyri
Sýningin Evudætur í Listasafninu á Akureyri Nú stendur yfir í Listasafninu á Akureyri, sýningin Evudætur, en þar eru á ferðinni þær stöllur Þórunn Elísabet Sveinsdóttir (Tóta), Þorbjörg Halldórsdóttir (Tobba) og Hrafnhildur Arnardóttir. Þessar vinkonur eiga það sameiginlegt að hafa unnið um skeið hjá Fríðu frænku þar s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/heimilisofbeldi-hefur-aukist-mikid-eftir-ad-kreppan-skall-a
Heimilisofbeldi hefur aukist mikið eftir að kreppan skall á Heimilisofbeldi hefur aukist mikið frá því kreppan skall á og er ekkert lát á tilkynningum þar um. „Við tókum eftir því að aukning hér fyrir norðan hófst í desember í fyrra, þá kom yfir okkur holskefla tilkynninga sem var óvanalegt, því jólamánuðurinn er yfirl...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sa-lagdi-bjorninn-orugglega-ad-velli-i-kvold
SA lagði Björninn örugglega að velli í kvöld Skautafélag Akureyrar vann í kvöld öruggan 7:2 sigur á Birninum er liðin mættust í Egilshöllinni á Íslandsmótinu í íshokkí karla. SA komst í 5:0 strax í fyrstu lotu leiksins og lagði þar með grunninn að sigrinum. Steinar Grettisson fór mikinn fyrir SA í kvöld og skoraði þren...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/enn-tapar-kathor
Enn tapar KA/Þór KA/Þór tapaði sínum fjórða leik í röð í N1- deild kvenna í handbolta þegar liðið tapaði fyrir Haukum með tíu marka mun, 24:34, er liðin áttust við í KA- heimilinu í dag. Það var einna helst markvarslan sem skyldi liðin að í dag en Heiða Ingólfsdóttir átti afbragðsleik í marki Hauka og varði 18 skot í l...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/enn-langt-i-land-hvad-vardar-raunverulegt-jafnretti
Enn langt í land hvað varðar raunverulegt jafnrétti Arnfríður Aðalsteinsdóttir, verkefnisstjóri á Jafnréttisstofu sagði á fundi um jafnréttismál á Akureyri, að þótt lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, hafi verið í gildi í rúm 30 ár, sé enn í langt í land hvað varðar raunverulegt jafnrétti. "Jafnrétti kyn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/haukar-saekja-kathor-heim-i-dag
Haukar sækja KA/Þór heim í dag KA/Þór á erfitt verkefni fyrir höndum í dag þegar liðið tekur á móti sterku liði Hauka í 4. umferð N1- deildar kvenna í handbolta. KA/Þór situr í 8. sæti deildarinnar og bíður enn eftir sínum fyrstu stigum í deildinni, en Haukar hafa fjögur stig í 5. sæti deildarinnar. Leikurinn í dag hef...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/breyting-a-deiliskipulagi-i-budargili-verdi-samthykkt
Breyting á deiliskipulagi í Búðargili verði samþykkt Fjórar athugasemdir bárust við breytingu á deiliskipulagi í Búðargili á Akureyri en á svæðinu stendur til að fjölga frístundahúsum umtalsvert. Í svari skipulagsnefndar við athugasemdunum kemur m.a. fram að allar fyrirhugaðar breytingar séu innan þess svæðis sem skilg...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fimmtiu-ar-fra-upphafi-nordurflugs-a-akureyri
Fimmtíu ár frá upphafi Norðurflugs á Akureyri Sunnudaginn 1. nóvember nk. verða liðin 50 ár síðan flugvélin TF-JMH kom til Íslands og lenti á Akureyrarflugvelli eftir flug frá Bandaríkjunum um Kanada og Grænland. Síðasta áfangann, frá Syðri-Straumfirði á Grænlandi til Akureyrar, var flogið í blíðskaparveðri og tók flug...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/svinaflensufaldurinn-a-akureyri-i-hamarki
Svínaflensufaldurinn á Akureyri í hámarki Svínaflensufaraldur sem geisar á Akureyri virðist vera í hámarki um þessar mundir. Í síðustu viku voru nokkrir sjúklingar lagðir inn á Sjúkrahúsið á Akureyri. Þrír sjúklingar voru á sjúkrahúsi í vikunni, tveir á almennri deild og einn að útskrifast af gjörgæsludeild. Allir eru ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-la-a-heimavelli-i-kvold
Þór lá á heimavelli í kvöld Þór náði ekki fylgja eftir góðum útisigri sínum gegn ÍA í síðustu umferð í 1. deild karla í körfubolta, þegar liðið tapaði í kvöld á heimavelli fyrir Þór frá Þorlákshöfn, 73:85, en leikið var í Síðuskóla. Wesley Hsu var stigahæstur í liði norðanmanna með 15 stig og næstur kom Bjarki Ármann O...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oddur-skoradi-thrju-fyrir-pressulidid-i-kvold
Oddur skoraði þrjú fyrir Pressuliðið í kvöld Íslenska karlalandsliðið í handbolta sigraði Pressuliðið örugglega, 38:25, er liðin mættust í kvöld í æfingaleik í Laugardagshöllinni. Staðan í hálfleik var 19:14 landsliðinu í vil, sem hafði yfirhöndina allan leikinn. Tveir leikmenn Akureyri Handboltafélags léku með Pressul...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyri-maetir-fh-i-bikarnum
Akureyri mætir FH í bikarnum Í kvöld var dregið í 16- liða úrslit karla og kvenna í Eimskipsbikarkeppninni í handbolta. Í karlaflokki dróst Akureyri Handboltafélag gegn FH og í kvennaflokki dróst KA/Þór gegn Víkingi. Bæði Akureyri Handboltafélag og KA/Þór komu á undan upp úr pottinum og fá því heimaleikjaréttinn mikilv...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/forstjori-rafs-a-akureyri-hlaut-umhverfisverdlaun-liu
Forstjóri Rafs á Akureyri hlaut Umhverfisverðlaun LÍÚ Árni Bergmann Pétursson, hugvitsmaður og forstjóri Rafs ehf. á Akureyri, hlaut í dag Umhverfisverðlaun LÍÚ 2009 fyrir fyrir rannsóknar- og þróunarvinnu við svokallaða rafbjögunarsíu. Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, afhenti Árna verðlaunin á aðal...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/garpar-bikarmeistarar-i-krullu
Garpar bikarmeistarar í krullu Garpar eru bikarmeistarar í Krullu eftir að liðið lagði Fífurnar örugglega að velli, 9:0, í úrslitaleiknum í Skautahöll Akureyrar í gærkvöld, en alls kepptu átta lið á mótinu. Þetta er í sjötta skiptið sem Bikarmót Krulludeildarinnar er haldið og hafa Garparnir þrívegis borið sigur úr být...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samherji-kaupir-fiskvinnslu-fyrirtaeki-a-husavik
Samherji kaupir fiskvinnslu- fyrirtæki á Húsavík Útgerðarfyrirtækið Samherji á Akureyri hefur keypt fiskvinnslufyrirtækið Fjörfisk á Húsavík, en þar starfa 15 manns. Öllum starfsmönnum fyrirtækisins var sagt upp störfum eftir bankahrunið, en nú er stefnt að því að efla starfsemi þess til muna. Fiskvinnslufyrirtækið Fjö...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/endurvinnslutunnur-vid-oll-heimili-i-horgarbyggd
Endurvinnslutunnur við öll heimili í Hörgárbyggð Gert er ráð fyrir endurvinnslutunnum við öll heimili í endurnýjuðum samningi um sorphirðu, sem Hörgárbyggð hefur gert við Gámaþjónustu Norðurlands ehf. Framundan eru miklar breytingar á meðhöndlun úrgangs á Eyjafjarðarsvæðinu, sem m.a. munu leiða til þess að kostnaður vi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vilja-faera-akureyrarbae-fridbjarnarhus-til-eignar
Vilja færa Akureyrarbæ Friðbjarnarhús til eignar Á fundi bæjarráðs Akureyrar í morgun var tekið fyrir erindi frá fulltrúum Góðtemplarareglunnar á Akureyri þar sem þeir lýsa yfir áhuga á að afhenda Akureyrarbæ Friðbjarnarhús til eignar, með það fyrir augum að því verði komið í umsjá Minjasafnsins á Akureyri. Bæjarráð þa...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/umferdarkonnun-a-olafsfjardar-vegi-a-morgun-og-laugardag
Umferðarkönnun á Ólafsfjarðar- vegi á morgun og laugardag Háskólinn á Akureyri, í samvinnu við Vegagerðina, mun standa fyrir umferðarkönnun á Ólafsfjarðarvegi, milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar og á Siglufjarðarvegi við Ketilás á morgun, fimmtudaginn 29. október og laugardaginn 31. október n.k. Könnunin stendur yfir frá k...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skolaborn-nyta-undirgong-undir-horgarbraut-ekki-naegilega-vel
Skólabörn nýta undirgöng undir Hörgárbraut ekki nægilega vel Oddur Helgi Halldórsson bæjarfulltrúi L-lista lýsti á fundi bæjarráðs Akureyrar nýlega, áhyggjum yfir því að skólabörn nýti sér ekki nægilega nýju undirgöngin undir Hörgárbraut heldur fari ennþá yfir götuna. Málið var til umræðu á síðasta fundi framkvæmdaráðs...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/islenski-dansflokkurinn-synir-verdlaunud-verk-a-akureyri
Íslenski dansflokkurinn sýnir verðlaunuð verk á Akureyri Um helgina sýnir Íslenski dansflokkurinn tvær sýningar í Samkomuhúsinu á Akureyri, á morgun föstudag og á laugardag. Í samstarfið við LA býður dansflokkurinn Norðlendingum upp á þrjú af vinælustu verkum síðustu ára. Þetta er frábært tækifæri fyrir Norðlendinga ti...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/framhaldsadalfundur-grasrotar-haldinn-i-kvold
Framhaldsaðalfundur GRASRÓTAR haldinn í kvöld Áhugafólk um nýsköpunarmiðstöð og iðngarða, GRASRÓT, hefur auglýst framhaldsstofnfund í kvöld, miðvikudaginn 28. október, kl. 20.00 í gömlu Slippstöðinni. Félagið hefur það að markmiði að koma á fót fjölþættri þróunarmiðstöð fyrir atvinnusköpun og menningartengd verkefni me...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/varad-vid-hugmyndum-um-sam-einingu-og-nidurlagningu-embaetta
Varað við hugmyndum um sam- einingu og niðurlagningu embætta Á aðalfundi Félags lögfræðinga á Norður- og Austurlandi, sem haldinn var á Egilsstöðum nýlega, var samþykkt ályktun þar sem mótmælt er eindregið og varað við framkomnum hugmyndum um sameiningu og niðurlagningu ýmissa mikilvægra embætta sem nú starfa á landsby...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyri-daemdur-sigur-gegn-fjolni
Akureyri dæmdur sigur gegn Fjölni Akureyri Handboltafélag er komið í 16- liða úrslit Eimsbikarkeppni karla í handbolta, án þess þó að hafa nokkuð fyrir því. Þannig er mál með vexti að Akureyri dróst gegn Fjölni í 32- liða úrslitum bikarsins, en lið Fjölnis dró sig út úr keppninni á dögunum. Akureyri var því dæmdur eink...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/okumadur-fluttur-a-slysadeild-a-akureyri-eftir-utafakstur
Ökumaður fluttur á slysadeild á Akureyri eftir útafakstur Ökumaður fólksbifreiðar var fluttur til aðhlynningar á slysadeild Sjúkrahússins á Akureyri á tíunda tímanum í kvöld, eftir að bíll hans fór út af Leiruvegi, fram af háum kanti og hafnaði á hliðinni í flæðarmálinu norðan við veginn. Samkvæmt upplýsingum á vettvan...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/saga-gagnfraedaskola-akureyrar-komin-ut-a-bok
Saga Gagnfræðaskóla Akureyrar komin út á bók Í dag kom út bókin; Gagnfræðaskóli Akureyrar - saga skóla í sextíu og sjö ár. Ritnefnd var skipuð þeim Bernharð Haraldssyni, Baldvini Bjarnasyni og Magnúsi Aðalbjörnssyni. Þá skrifaði Sverrir Pálsson einn kafla í bókinni. Gagnfræðaskóli Akureyrar á sér langa og litríka sögu....
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rekstur-haskolans-a-akureyri-verid-tekinn-fostum-tokum
Rekstur Háskólans á Akureyri verið tekinn föstum tökum Ríkisendurskoðun gaf út skýrslu í júní sl. um fjármálastjórn 50 valinna stofnana þar sem birt var spá um afkomu þeirra í árslok. Almennt hefur ekki verið farið að tilmælum Ríkisendurskoðunar sem fram komu í skýrslunni um að tafarlaust verði brugðist við til að bæta...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gudlaugur-og-oddur-valdir-i-pressulidid
Guðlaugur og Oddur valdir í Pressuliðið Guðlaugur Arnarsson og Oddur Grétarsson, leikmenn Akureyri Handboltafélags, hafa verið valdir í Pressuliðið sem leikur æfingaleik gegn íslenska landsliðinu í handbolta, fimmtudaginn 29. október nk. Það voru íþróttafréttamenn sem völdu lið Pressunnar, sem skipar eingöngu leikmönnu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjolbreytt-urval-bangsa-a-syningu-i-amtsbokasafninu
Fjölbreytt úrval bangsa á sýningu í Amtsbókasafninu Þessa dagana stendur yfir bangsasýning í Amtsbókasafninu á Akureyri, í tilefni af Alþjóðlega bangsadeginum, sem er í dag þriðjudaginn 27. október. Fjölmargir bæjarbúar hafa lánað bangsa sína á sýninguna og þar er að finna fjölbreytt úrval bangsa af ýmsum stærðum. Lagt...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skytturnar-akureyrarmeistarar-i-krullu
Skytturnar Akureyrarmeistarar í krullu Skytturnar urðu Akureyrarmeistarar í krullu eftir sigur á Görpunum í úrslitaleik í Skautahöllinni í gærkvöld. Átta lið úr röðum Krulludeildar Skautafélags Akureyrar tóku þátt í mótinu en þetta er í sjötta sinn sem keppt er um þennan titil. Keppt var í tveimur riðlum og fóru síðan ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fiskvinnsluvelar-settar-upp-i-frystihusinu-a-grenivik
Fiskvinnsluvélar settar upp í frystihúsinu á Grenivík Unnið er að því þessa dagana að setja fiskvinnsluvélar og flæðilínu niður í frystihúsinu á Grenivík og gengur verkið samkvæmt áætlun að sögn Inga Jóhanns Guðmundssonar framkvæmdastjóra Gjögurs, sem fyrir verkefninu stendur. Gjögur gerir út þrjú skip, Hákon, Vörð og ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sidrofid-i-samfelaginu-til-umraedu-a-borgarafundi
Siðrofið í samfélaginu til umræðu á borgarafundi Hafa stjórnmálamenn tapað meðvitundinni fyrir samfélaginu? Fyrir hverja eru þeir að vinna? Sjálfan sig? Flokkinn? Kjördæmið? Þjóðina? Þetta eru efnin sem verða tekin til umfjöllunar á næsta borgarafundi á Akureyri, sem verður haldinn í Deiglunni fimmtudaginn 29. október ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ekki-haegt-ad-ljuka-uppsetningu-a-ahorfendapollum-i-hollinni
Ekki hægt að ljúka uppsetningu á áhorfendapöllum í Höllinni Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar getur ekki orðið við áskorun aðalfundar Akureyrar Handboltafélags, þess efnis að lokið verði við uppsetningu á áhorfendabekkjum í Íþróttahöllinni sem fyrst, þar sem ekki sé gert ráð fyrir þeim í fjárhagsáætlun. Stjórnin getur he...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/geta-grunnskolar-og-ithrotta-hreyfingin-unnid-meira-saman
Geta grunnskólar og íþrótta- hreyfingin unnið meira saman? Fyrsti súpufundur Þórs, Veitingahússins Greifans og Vífilfells, veturinn 2009 - 2010 verður haldinn í Hamri miðvikudaginn 28 október nk. kl. 12.00 - 13.00. Fundarefni: Geta grunnskólarnir og íþróttahreyfingin á Akureyri unnið meira saman? Gestir fundarins: ‚Úlf...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eykt-kaerir-akvordun-stjornar-fasteigna-akureyrarbaejar
Eykt kærir ákvörðun stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar Fyrirtækið Eykt ehf. í Reykjavík hefur kært þá ákvörðun Fasteigna Akureyrarbæjar að ganga til samninga við SS Byggi ehf. vegna útboðs á lúkningu framkvæmda við Íþróttamiðstöð Giljaskóla. Eykt átti lægsta tilboð í verkið en SS Byggir það næst lægsta í útboði á dögunu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sigur-og-tap-hja-ka-i-blakinu
Sigur og tap hjá KA í blakinu Blaklið KA í karla- og kvennaflokki voru í eldlínunni í dag þegar liðin spiluðu sína fyrstu heimaleiki á Íslandsmótinu í blaki, en leikið var í KA- heimilinu. Karlalið KA mætti HK í fyrri leik dagsins. KA byrjaði betur og vann fyrstu tvær hrinurnar. HK vann hins vegar næstu þrjár hrinur og...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/uppsagnir-hja-byr-a-akureyri
Uppsagnir hjá Byr á Akureyri Þremur starfsmönnum Byrs á Akureyri, í 2,7 stöðugildum, hefur verið sagt upp störfum. Örn Arnar Óskarsson yfirmaður Byrs á Akureyri segir helstu ástæðurnar vera þær að forsendur hafi breyst frá því sem var snemma árs 2008 eins og alkunna sé. Hann segir að fyrirtæki þurfi að endurskoða stefn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gistinottum-i-vaglaskolgi-fjolgadi-a-milli-ara
Gistinóttum í Vaglaskólgi fjölgaði á milli ára Mun fleiri ferðamenn gistu í Vaglaskógi síðastliðið sumar miðað við í fyrrra. Alls voru gistinætur í sumar 16.765 talsins en voru 13.902 sumarið 2008. Í júní í ár voru ríflega 3.100 gestir í Vaglaskógi, um 8.200 í júlí og 5.400 í ágúst. Sumarið 2008 voru fleiri gestir í Va...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tolf-marka-tap-hja-kathor-gegn-fylki
Tólf marka tap hjá KA/Þór gegn Fylki KA/Þór tapaði illa gegn Fylki, 15:27, er liðin mættust í KA- heimilinu í dag í 3. umferð N1- deildar kvenna í handbolta. Fylkir hafði sex marka forystu í hálfleik, 14:8, og gerði út um leikinn í upphafi seinni hálfleiks með því að skora fyrstu fimm mörkin og lagði þar með grunninn a...