Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.vikubladid.is/is/frettir/augljos-avinningur-af-thvi-ad-haetta-nota-sand-til-halkuvarna
Augljós ávinningur af því að hætta nota sand til hálkuvarna Umhverfisnefnd Akureyrar lýsir ánægju sinni með þann augljósa ávinning sem varð af því að hætta sandburði á götur bæjarins til hálkuvarna sl. vetur. Kostnaður við þrif og hreinsun gatna var marktækt minni og góðar líkur eru á að svifryk hafi minnkað þó svo ekk...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorsteinn-og-vesna-leikmenn-arsins-hja-thor
Þorsteinn og Vesna leikmenn ársins hjá Þór Þorsteinn Ingason og Vesna Smiljkovic voru kosinn leikmenn ársins í meistaraflokki Þórs í knattspyrnu á lokahófi knattspyrnudeildar félagsins sem fram fór sl. helgi á „gamla” Oddvitanum, en bæði spiluðu þau lykilhlutverk með Þórs liðinu í sumar. Þá voru þau Sveinn Óli Birgisso...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/heimilt-verdi-ad-urda-allt-ad-12000-tonn-af-sorpi-a-glerardal
Heimilt verði að urða allt að 12.000 tonn af sorpi á Glerárdal Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir urðunarstað Flokkunar Eyjafjarðar ehf. á Glerárdal, Akureyrarbæ. Samkvæmt tillögunni verður Flokkun heimilt að urða allt að 12.000 tonn af almennum og óvirkum úrgangi á ári, á nýjum hluta urðunarstað...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sa-a-toppnum-eftir-sigur-gegn-sr
SA á toppnum eftir sigur gegn SR Skautafélag Akureyrar byrjar Íslandsmótið í íshokkí karla af krafti en liðið sigraði Skautafélag Reykjavíkur,4:2, er liðin mættust í Laugardalnum sl. laugardag. SR komst tvisvar yfir í leiknum með mörkum frá Gauta Þormóðssyni en þeir Gunnar Darri Sigurðsson og Stefán Hrafnsson jöfnuðu l...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baejarfulltruinn-sigrun-sigradi-i-matreidslukeppni-thjodthekktra
Bæjarfulltrúinn Sigrún sigraði í matreiðslukeppni þjóðþekktra Á meðal viðburða í gær á sýningunni MATUR-INN 2009 í Íþróttahöllinni á Akureyri, var matreiðslukeppni þjóðþekktra. Þar öttu kappi þau Kristján Þór Júlíusson, alþingismaður, María Sigurðardóttir, leikhússtjóri, Svavar Alfreð Jónsson, sóknarprestur og Sigrún S...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sinfoniuhljomsveit-nordurlands-ad-hefja-sitt-17-starfsar
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands að hefja sitt 17. starfsár Sinfóníuhljómsveit Norðurlands er um þessar mundir að hefja sitt 17. starfsár. Frá stofnun hljómsveitarinnar hefur mikið áunnist, tónleikum fjölgað og starfsemin aukist til muna. Miklar breytingar eru framundan hjá SN því þetta verður síðasta árið fyrir flutning...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vida-halka-vegum-landsins
Víða hálka vegum landsins Á Norðurlandi eru hálkublettir á Þverárfjalli og hálka á Vatnsskarði og Öxnadalsheiði. Þæfingsfærð er á Láheiði. Hálka er á Víkurskarði. Snjóþekja er við Mývatn og í kringum Húsavík. Hálka og éljagangur á Mývatnsöræfum. Ófært er á Öxarfjarðarheiði og á Hólsandi. Þæfingsfærð er á Hálsum og fyri...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjoldi-folks-lagdi-leid-sina-a-syninguna-matur-inn-2009-i-ithrottahollinni-a-akureyri
Fjöldi fólks lagði leið sína á sýninguna MATUR-INN 2009 í Íþróttahöllinni á Akureyri Fjöldi fólks lagði leið sína í Íþróttahöllina á Akureyri í dag en þar stendur nú yfir sýningin MATUR-INN 2009. Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra opnaði sýninguna formlega í hádeginu og hann lofaði sýninguna og þá fram...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/atta-adilar-vilja-taka-thatt-i-honnun-og-framleidslu-a-husgognum-i-hof
Átta aðilar vilja taka þátt í hönnun og framleiðslu á húsgögnum í Hof Átta aðilar sýndu því áhuga að starfa með Fasteignum Akureyrarbæjar að heildarlausn í hönnun og framleiðslu á húsgögnum og búnaði í ýmis rými í Hofi menningarhúsi en skilyrði er að þátttakendur bjóði íslenska hönnun og framleiðslu. Rætt verður frekar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tekjur-akureyrarhafnar-vegna-skemmtiferdaskipa-67-milljonir
Tekjur Akureyrarhafnar vegna skemmtiferðaskipa 67 milljónir Komur skemmtiferðaskipa til Akureyrar í sumar voru 58 og hafa aðeins einu sinni verið fleiri en árið 2007 voru skipakomurnar 59. Aldrei hafa þó fleiri farþegar komið með skemmtiferðaskipum til bæjarins og í sumar en alls voru þeir um 47.600 og í áhöfn þessara ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/serleyfishafi-laekkar-oll-fargjold-um-helming-til-aramota
Sérleyfishafi lækkar öll fargjöld um helming til áramóta Á morgun laugardaginn 3. október, munu Bílar og fólk ehf. og samgönguráðuneytið hrinda af stað átaki sem miðar að því að lækka til muna verð á ferðum með áætlunarbílum fyrirtækisins. Fyrirækið sér um akstur sérleyfisleiða á Norður-, Suður- og Vesturlandi. Samgöng...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/buist-vid-thusundum-gesta-a-syninguna-matur-inn
Búist við þúsundum gesta á sýninguna MATUR-INN Sýningin MATUR-INN verður haldin á Akureyri í fjórða sinn á morgun laugardag og á sunnudag og er aðgangur ókeypis. Sýningin hefur verið haldin á tveggja ára fresti og verið fram að þessu í Verkmenntaskólanum á Akureyri en ljóst var eftir sýninguna árið 2007 að færa þyrfti ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eykt-baud-laegst-i-lokafragang-a-ithrottamidstod-giljaskola
Eykt bauð lægst í lokafrágang á Íþróttamiðstöð Giljaskóla Fyrirtækið Eykt ehf. í Reykjavík átti lægsta tilboð í fullnaðarfrágang á Íþróttamiðstöðinni við Giljaskóla en tilboðin voru opnuð í morgun. Alls buðu 12 fyrirtæki í verkið og voru þau öll undir kostnaðaráætlun hönnuða, sem er 355,4 milljónir króna. Eykt bauðst t...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samuel-synir-myndverk-i-galleri-boxi-a-akureyri
Samúel sýnir myndverk í Gallerí BOXi á Akureyri Sýning á myndverkum eftir Samúel Jóhannsson var opnuð í Gallerí BOXi á Akureyri nýlega og stendur hún til 18. október. Sýningin er opin laugardaga og sunnudaga kl. 14:00 - 17:00. Samúel Jóhannsson (sajóh) er fæddur 29. ágúst 1946 á Akureyri. Hann vinnur myndverk sín með a...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/haskolinn-undir-hnifinn-engin-fjarveiting-i-kennslualmu
Háskólinn undir hnífinn - engin fjárveiting í kennsluálmu Fjárveiting vegna byggingar nýrrar kennsluálmu við Háskólann á Akureyri, sem nú er í smíðum, er felld niður í nýju fjárlagafrumvarpi sem Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og þingmaður kjördæmisins lagði fram í dag. Kennsluálman er langt kominn en 175 mil...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fremur-slakt-ar-i-kornraekt-vegna-ohagstaeds-tidarfars
Fremur slakt ár í kornrækt vegna óhagstæðs tíðarfars „Árið verður mjög sennilega fremur slakt hvað kornið varðar hér á Norðurausturlandi, í besta falli slakt meðalár," segir Ingvar Björnsson ráðunautur hjá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar um kornuppskeru eftir sumarið. Hann kveðst hafa á tilfinningunni að sáð hafi verið í h...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hlynur-afram-med-magna
Hlynur áfram með Magna Hlynur Svan Eiríksson, þjálfari Magna frá Grenivík, mun halda áfram með liðið næsta sumar. Magni féll sem kunnungt er úr 2. deildinni í sumar og leikur í 3. deild á næsta tímabili. Hlynur mun því stýra Magna í 3. deildinni næsta sumar en honum til aðstoðar verður Hannes Jón Jónsson.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stytting-a-nidurgreiddum-thjonustutima-a-daggaeslu-samthykkt
Stytting á niðurgreiddum þjónustutíma á daggæslu samþykkt Skólanefnd Akureyrar samþykkti fyrir sitt leyti á fundi sínum í gær, tillögu um breytingu á "Reglum um niðurgreiðslu á daggæslu í heimahúsum", sem felur í sér styttingu á niðurgreiddum þjónustutíma. Tillagan er á þá leið að niðurgreiðsluupphæð taki mið af lengd ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/haustslatrun-i-slaturhusum-nordlenska-gengur-prydilega
Haustslátrun í sláturhúsum Norðlenska gengur prýðilega Haustslátrun sauðfjár í sláturhúsum Norðlenska á Húsavík og Höfn gengur prýðilega. Á Húsavík er fyrri umferð dilkaslátrunar lokið og síðari umferð hefst á morgun, miðvikudag. Það sem af er sláturtíðinni hefur fallþungi dilka á Húsavík verið 16,17 kg, en í allri slá...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/althydusamband-nordurlands-heldur-sitt-31-thing-a-illugastodum
Alþýðusamband Norðurlands heldur sitt 31. þing á Illugastöðum Á morgun föstudag hefst 31. þing Alþýðusambands Norðurlands. Það er haldið á Illugastöðum í Fnjóskadal og stendur yfir fram á laugardag. Á dagskrá þingsins eru mörg áhugaverð mál, en aðalefni þingsins verða kjara-, velferðar- og neytendamál. Um 140 félagar f...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/adalfundur-hverfisnefndar-oddeyrar-i-kvold
Aðalfundur Hverfisnefndar Oddeyrar í kvöld Aðalfundur Hverfisnefndar Oddeyrar verður haldinn í stofu 202 á annarri hæð Oddeyrarskóla, í kvöld, 1. október kl. 20.30. Kollgáta verður með kynningu á hugmyndum um framtíðarskipulag Oddeyrarinnar. Hverfisnefndin mun veita viðurkenningu fyrir jákvæðni og uppbyggingu á Oddeyri...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/uppskeruhatid-mardallar-felags-um-menningararf-kvenna
Uppskeruhátíð Mardallar - félags um menningararf kvenna Uppskeruhátíð Mardallar verður haldin á Uppskerumánu í Fífilbrekku undir Kerlingu í Eyjafjarðarsveit, sunnudaginn 4. október milli kl. 12 og 17. Félagsfreyjur Mardallar munu bjóða upp á kynningu á starfsemi sinni og varning af ýmsu tagi, m.a. afurðir jarðar, handv...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jakobina-bjornsdottir-i-kjori-til-formanns-bsrb
Jakobína Björnsdóttir í kjöri til formanns BSRB Arna Jakobína Björnsdóttir, formaður Kjalar, stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu, hefur tilkynnt að hún bjóði sig fram til formanns BSRB á ársþingi bandalagsins, sem haldið verður í Reykjavík dagana 21.-23. október nk. Sem kunnugt er hefur Ögmundur Jónasson, heilb...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eldur-i-gomlu-husi-vid-barmahlid-a-akureyri
Eldur í gömlu húsi við Barmahlíð á Akureyri Slökkvilið Akureyrar var kallað í Barmahlíð á Akureyri á níunda tímanum í kvöld en þar logaði mikill eldur í gömlu timburhúsi. Samkvæmt upplýsingum á vettvangi var einn maður sofandi í viðbyggingu við húsið þegar komið var á staðinn. Hann var fluttur á sjúkrahús en ekki er vi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/verulegt-tjon-a-gronu-landi-vegna-utanvegaaksturs
Verulegt tjón á grónu landi vegna utanvegaaksturs Borist hafa upplýsingar um utanvegaakstur á merktri braut ofan viðbótarsvæðis KKA í Hlíðarfjalli og náðst hafa myndir af bifhjólamönnum langt utan svæðis KKA. Full ástæða er til að stöðva þennan utanvegaakstur, segir í bókun skipulagsnefndar frá því í morgun. Skipulagsn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samkeppni-um-merki-tonlistarskolans-a-akureyri
Samkeppni um merki Tónlistarskólans á Akureyri Efnt hefur verið til opinnar samkeppni um nýtt merki/logo Tónlistarskólans á Akureyri. Allir geta tekið þátt og eru nemendur Tónlistarskólans hvattir sérstaklega til að koma með hugmyndir. Besta hugmyndin verður þróuð með Geimstofunni. Tillögum skal skilað á skrifstofu tón...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eydum-stadalimyndum-leyfum-haefileikum-ad-njota-sin
“Eyðum staðalímyndum – leyfum hæfileikum að njóta sín” Á morgun, fimmtudaginn 1. október verður haldin á vegum Jafnréttisstofu, málstofa á Hótel KEA undir yfirskriftinni; "Eyðum staðalímyndum - leyfum hæfileikum að njóta sín". Í kynningu segir að fyrirtæki hafi ekki efni á að láta hæfileika fara forgörðum en staðlaðar ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/adalfundur-og-leikmannakynning-ah-i-kvold
Aðalfundur og leikmannakynning AH í kvöld Aðalfundur Akureyri Handboltafélags verður haldinn í kvöld á efri hæð Greifans. Fundurinn hefst kl. 20:00 og verða hefðbundinn aðalfundastörf á dagskrá. Klukkutíma síðar hefst svo hin árlega leikmannakynning hjá AH. Allir áhugamenn og stuðningsmenn Akureyri Handboltafélags eru ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/adalfundur-hverfisnefndar-lunda-og-gerdahverfis-i-kvold
Aðalfundur Hverfisnefndar Lunda- og Gerðahverfis í kvöld Aðalfundur Hverfisnefndar Lunda- og Gerðahverfis verður haldinn á sal Lundarskóla kl. 20.00 í kvöld, miðvikudaginn 30. september. Á dagskrá eru venuleg aðalfundarstörf sem og umræður um nágrannavörslu, stígagerð og skipulagsmál í hverfinu. Gestir fundarsins eru þ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bingo-i-siduskola-til-styrktar-fjolskyldu-stefans-mas
Bingó í Síðuskóla til styrktar fjölskyldu Stefáns Más Ungur drengur á Akureyri, Stefán Már Harðarson 13 ára, greindist með heilaæxli fyrir rúmu ári og frá þeim tíma hefur heilsu hans hrakað mikið. Hann stundaði nám 8. bekk í Síðuskóla sl. vetur og með miklum viljastyrk gat hann sótt skóla nokkuð reglulega, þrátt fyrir ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thrir-fra-akureyri-i-u19-ara-landslidid
Þrír frá Akureyri í U19 ára landsliðið Þrír leikmenn frá Akureyri hafa verið valdir í leikmannahóp U19 ára landslið karla í knattspyrnu sem leikur þrjá leiki í undankeppni EM í Bosníu dagana 7.-12. október nk. Þetta eru þeir Andri Fannar Stefánsson og Haukar Heiðar Hauksson frá KA og Gísli Páll Helgason frá Þór. Móther...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aetlar-ad-fleyta-ser-yfir-200-metra-langt-vatn-a-jeppa-sinum
Ætlar að fleyta sér yfir 200 metra langt vatn á jeppa sínum Um helgina mun torfærukappinn Gísli Gunnar Jónsson, félagi í Bílaklúbbi Akureyrar, reyna að fleyta sér yfir 200 metra langt og 80 metra djúpt vatn á jeppa sínum. „Þetta er sent út í beinni og það má ekkert klikka," segir torfærukappinn Gísli Gunnar Jónsson. Ha...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mota-a-tillogur-til-frekari-sameiningar-sveitarfelaga
Móta á tillögur til frekari sameiningar sveitarfélaga Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Kristján L Möller og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, Halldór Halldórsson hafa undirritað yfirlýsingu um að móta tillögur sem leitt geta til frekari sameiningar sveitarfélaga. Ráðherra mun síðan leggja áætlun fyrir Alþ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skolamjolkin-saekir-a-i-samkeppni-vid-safa-og-gosdrykki
Skólamjólkin sækir á í samkeppni við safa og gosdrykki Skólabörn á Íslandi drekka 4% meiri mjólk en í fyrra eftir að byrjað var að bjóða ískalda mjólk úr sérstökum mjólkurkælum Mjólkursamsölunnar í skólum landsins. Á morgun, 30 september, býður Mjólkursamsalan öllum 50 þúsund grunnskólabörnum landsins endurgjaldslaust ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samid-um-snjohreinsun-og-halkuvarnir-a-lonsbakka
Samið um snjóhreinsun og hálkuvarnir á Lónsbakka Sveitarstjórn Hörgárbyggðar hefur samið við Túnþökusölu Kristins ehf. um snjóhreinsun og hálkuvarnir á Lónsbakka, í kjölfar útboðs. Aðrir sem buðu í verkið voru Þórhallur Matthíasson ehf. og GV Gröfur ehf.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-haustmotsmeistarar-2009
KA Haustmótsmeistarar 2009 KA gerði góða hluti á Haustmóti Blaksambands Íslands (BLÍ) sem haldið var í Kópavogi um síðustu helgi. Alls kepptu 26 lið á mótinu og var spilað í tveimur deildum í kvennaflokki og í einni deild í karlaflokki. Í 1. deild karla gerði KA sér lítið fyrir og sigraði alla sína leiki á mótinu, 2:0....
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baejarstjorn-akureyrar-fer-med-alla-sveitarstjorn-i-grimsey
Bæjarstjórn Akureyrar fer með alla sveitarstjórn í Grímsey Á fundi bæjarráðs Akureyrar í morgun var lögð fram tillaga og minnisblað varðandi málefni Grímseyjar eftir sameiningu. Í samræmi við tillögur samstarfsnefndar um sameiningu Akureyrarkaupstaðar og Grímseyjarhrepps, sem lagðar voru fram fyrir kosningar um sameini...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/adalfundur-samtaka-strand-gaeslna-og-sjoherja-a-akureyri
Aðalfundur Samtaka strand- gæslna og sjóherja á Akureyri Í dag hófst á Akureyri fjögurra daga aðalfundur Samtaka strandgæslna og sjóherja tuttugu þjóða á Norður Atlantshafi. Þar funda um áttatíu fulltrúar þessara þjóða en auk þess fer fram umfangsmikil björgunar- og mengunarvarnaæfing. Við Kolbeinsey verður sviðsett al...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/unnid-ad-urbotum-a-akureyrarvelli
Unnið að úrbótum á Akureyrarvelli Vinna við nauðsynlegar úrbætur á Akureyrarvelli eru hafnar. Til stendur að taka upp torf á samtals um 2.500 fermetrum víðs vegar um völlinn, bæta þar við jarðvegi og leggja torfið aftur. Gunnar Gunnarsson framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar KA segir ráðgert að ljúka framkvæmdum í þessu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samkeppni-um-lysingu-i-forsal-i-hofi-menningarhusi
Samkeppni um lýsingu í forsal í Hofi menningarhúsi Fasteignir Akureyrarbæjar hafa auglýst eftir áhugasömum aðilum til samstarfs um heildarlausn í hönnun og framleiðslu á húsgögnum og búnaði í ýmis rými í Hofi menningarhúsi. Skilyrði er að þátttakendur bjóði íslenska hönnun og framleiðslu. Einnig hefur verið efnt til sa...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/afram-unnid-ad-fullum-krafti-ad-straumsmalinu-hja-stapa
Áfram unnið að fullum krafti að Straumsmálinu hjá Stapa Unnið hefur verið af fullum krafti að því að koma kröfu Stapa lífeyrissjóðs, upp á um 4 milljaðra króna, á hendur Straumi Fjárfestingarbanka að. Á þessari stundu er þó of snemmt að segja til um hvort líkur séu á að farsæl niðurstaða náist eða ekki. Eins og fram he...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikid-ad-gera-a-bilaverkstaedum-a-akureyri
Mikið að gera á bílaverkstæðum á Akureyri „Fólk er farið að hugsa mun betur en áður um gömlu bílana sína, það er alveg augljóst," segir Ari Þór Jónsson þjónustustjóri á bílaverkstæði Höldurs. Í sama streng tekur Gunnar Helgi Rafnsson hjá Toyota bílaverkstæði á Akureyri. Ari Þór segir að mikið sé að gera á verkstæðinu, ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/haukur-heidar-leikmadur-arsins-hja-ka
Haukur Heiðar leikmaður ársins hjá KA Haukur Heiðar Hauksson var valinn besti leikmaður KA í sumar á lokahófi Knattspyrnudeildar félagsins sem fram fór á Hótel KEA sl. laugardag. Haukur Heiðar spilaði lykilhlutverk hjá KA í sumar en hann var einnig valinn „Móði” ársins af Vinum Móða, stuðningsmannafélagi KA. Þá var Hal...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorka-endadi-i-thridja-saeti-deildarinnar
Þór/KA endaði í þriðja sæti deildarinnar Þór/KA sigraði KR á útivelli, 3:2, í lokaumferð Pepsi- deildar kvenna í knattspyrnu sem fram fór í dag. Það dugði þó ekki til þess að ná öðru sæti deildarinnar sem gefur Evrópusæti því Breiðablik sigraði GRV á sama tíma með sjö mörkum gegn engu og náði öðru sætinu í deildinni á ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ah-hafnadi-i-thridja-saeti-a-hafnarfjardarmotinu
AH hafnaði í þriðja sæti á Hafnarfjarðarmótinu Akureyri Handboltafélag hafnaði í þriðja sæti á Hafnarfjarðarmótinu í handbolta um helgina en alls kepptu fjögur lið á þessu æfingarmóti. Akureyri tapaði fyrir Haukum í fyrsta leiknum, 24:27 en vann svo nauman sigur á FH í næsta leik þar sem lokatölur urðu 34:33 fyrir AH. ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/barattan-um-evropusaetid-i-dag-hirdir-rakel-gullskoinn
Baráttan um Evrópusætið í dag- Hirðir Rakel gullskóinn? Það skýrist í dag hvaða lið fylgir Val í Evrópukeppnina þegar síðustu leikir lokaumferðar í Pepsi- deild kvenna í knattspyrnu fara fram. Þór/KA, Stjarnan og Breiðablik berjast um annað sætið deildarinnar en liðin þrjú eru öll jöfn að stigum fyrir leikina í dag með...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/alhvit-jord-a-akureyri-i-morgun
Alhvít jörð á Akureyri í morgun Jörð var alhvít á Akureyri þegar bæjarbúar risu úr rekkju í morgun og enn snjóar. Ökumenn þurfa að skafa snjó af bílum sínum áður en lagt er af stað og víða um bæinn getur verið hálka á götum. Það er því vissara fyrir vegfarendur að fara að öllu með gát. Félagar í Súlum, björgunarsveitin...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/logreglan-oskar-eftir-upplysingum-vardandi-stuld-a-velsleda
Lögreglan óskar eftir upplýsingum varðandi stuld á vélsleða Lögreglan á Akureyri óskar eftir upplýsingum varðandi stuld á vélsleða sem stolið var á tímabilinu 9. september til 12. september sl. Vélsleðinn var inni í vélsleðakerru við Freyjunes á Akureyri en þegar eigandinn hugðist kanna með kerruna þann 12. september v...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/myndavelar-hafi-eftirlit-med-hradakstri-a-akureyri
Myndavélar hafi eftirlit með hraðakstri á Akureyri Jóhannes G. Bjarnason bæjarfulltrúi Framsóknarflokks hefur lagt til að Akureyrarbær hafi frumkvæði að því að keyptar verði nokkrar myndavélar til að hafa eftirlit með hraðakstri í bænum. Hann segir alltof mikið um að bílum sé ekið of hratt innanbæjar og hvetur ökumenn ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/god-vidbrogd-og-ahugi-fyrir-nagrannavorslu
Góð viðbrögð og áhugi fyrir nágrannavörslu Viðbrögð og áhugi íbúa við hugmyndinni um nágrannavörslu á Akureyri hafa verið mjög góð, að sögn Hermanns Jóns Tómassonar bæjarstjóra, en hverfisnefndum bæjarins var kynnt hugmyndin í lok ágúst sl. á fundi með fulltrúum Sjóvár og Akureyrarbæjar. Á þeim fundi voru skipaðir þrír...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/atli-mar-tekinn-vid-dalvikreyni
Atli Már tekinn við Dalvík/Reyni Atli Már Rúnarsson hefur verið ráðinn þjálfari Dalvíkur/Reynis sem spilar í 3. deild karla í knattspyrnu. Atli mun auk þess spila með liðinu á næstu leiktíð en hann lék í marki Þórs framan af í sumar en þar áður var hann spilandi þjálfari Magna. Atli tekur við starfinu af Jóhanni Hreiða...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eftirspurn-eftir-fjarhagsadstod-hja-fjolskyldudeild-ad-aukast
Eftirspurn eftir fjárhagsaðstoð hjá fjölskyldudeild að aukast Á fjölskyldudeild Akureyrarbæjar er eftirspurn eftir fjárhagsaðstoð að aukast aftur og þyngri einstaklingar koma í viðtöl miðað við fyrri ár. Fleiri eru áfengis- og fíkniefnaneytendur og yfirleitt er það ungt fólk sem um ræðir. Á heilsugæslunni er verið að u...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/lid-akureyrar-i-utsvari-i-sjonvarpinu-annad-kvold
Lið Akureyrar í Útsvari í Sjónvarpinu annað kvöld Lið Akureyrar í spurningakeppni sveitarfélaganna, Útsvari, mætir liði Borgarbyggðar annað kvöld, laugardagskvöldið 26. september, í beinni útsendingu Sjónvarpsins. Fyrir hönd Akureyringa keppa að þessu sinni þau Erlingur Sigurðarson, Hilda Jana Gísladóttir og Pálmi Óska...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/borgarafundur-um-greidslu-verkfall-haldinn-a-akureyri
Borgarafundur um greiðslu- verkfall haldinn á Akureyri Borgarafundur um fyrirhugað greiðsluverkfall verður haldinn á Akureyri mánudagskvöldið 28 september kl: 20:00 í Deiglunni. Fundurinn er sá fyrsti sem haldin er í vetur á vegum Borgarafundanefndarinnar á Akureyri. Margrét Ingibjörg Ríkarðsdóttir, húsnæðislánagreiðan...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thjonustugamar-fyrir-skidaleigu-settir-upp-i-hlidarfjalli
Þjónustugámar fyrir skíðaleigu settir upp í Hlíðarfjalli Á fundi íþróttaráðs Akureyrar í dag voru lögð fram drög að kostnaðaráætlun vegna flutnings og uppsetningar á þjónustugámum í Hlíðarfjalli. Íþróttaráð telur nauðsynlegt að huga að bættri aðstöðu fyrir viðskiptavini Hlíðarfjalls og samþykkir því fyrir sitt leyti að...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ah-tapadi-gegnum-haukum
AH tapaði gegnum Haukum Akureyri Handboltafélag tapaði í kvöld gegn Haukum, 24:27, í sínum fyrsta leik á Hafnarfjarðarmótinu. Oddur Grétarsson var markahæstur í liði AH í kvöld með sex mörk en Guðmundur Helgason kom næstur með fimm mörk. Björgvin Hólmgeirsson var atkvæðamestur í liði Hauka með sex mörk og þeir Pétur Pá...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/dag-og-gongudeildir-geddeildar-flytja-i-sel
Dag- og göngudeildir geðdeildar flytja í Sel Nú styttist í að starfsemi dag- og göngudeilda geðdeildar FSA flytjist yfir í Sel, en framkvæmdir á húsinu sem áður var hjúkrunarheimili hafa staðið yfir um skeið. Halldór Jónsson framkvæmdastjóri Sjúkrahússins á Akureyri segir að starfsemi göngudeildar verði flutt fyrstu da...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/arna-sif-med-tvo-mork-i-sigri-islands
Arna Sif með tvö mörk í sigri Íslands Arna Sif Ásgrímsdóttir, leikmaður Þórs/KA, skoraði tvívegis í 5-0 sigri Íslands á Rúmeníu en leikurinn fór fram í Portúgal fyrr í kvöld. Leikurinn var síðasti leikur Íslands í undanriðli EM U19 ára landsliða kvenna í knattspyrnu. Með sigrinum komst Ísland áfram í milliriðla keppnin...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leikskolinn-fludir-thatttakandi-i-comeniusar-verkefni
Leikskólinn Flúðir þátttakandi í Comeniusar verkefni Börn og starfsfólk á leikskólanum Flúðum á Akureyri taka þátt í Comeniususar - verkefni. Aðilar að verkefninu eru leikskólar frá Englandi, Frakklandi, Ítalíu, Rúmeníu og Svíþjóð, auk Flúða, og stendur vinna við verkefnið yfir í 2 ár. Þema verkefnisins er „mín saga - ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kea-styrkir-ka-og-thor
KEA styrkir KA og Þór Framkvæmdastjóri KEA, Halldór Jóhannsson, hefur skrifað undir styrktarsamninga við Íþróttafélagið Þór og Knattspyrnufélag Akureyrar (KA). Um er að ræða heildarsamninga sem taka til allra deilda félaganna og gilda þeir til eins árs. KEA hefur lengi stutt vel við íþróttafélögin en á samningstímanum ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/verdur-eyjafjordur-vaxtarbroddur-islands
Verður Eyjafjörður vaxtarbroddur Íslands? Í kvöld kl. 20.00 bjóða Rannís og Háskólinn á Akureyri í Vísindakaffi á veitingastaðnum Friðiki V á Akureyri undir yfirskriftinni; Verður Eyjafjörður vaxtarbroddur Íslands? Þetta er gert í tilefni af Evrópuviku vísindanna. Spekingar frá Háskólanum á Akureyri, þeir: Hreiðar Þór ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hafnarfjardarmotid-hefst-i-dag
Hafnarfjarðarmótið hefst í dag Hafnarfjarðarmótið 2009 í handknattleik hefst í dag en Akureyri Handboltafélag er á meðal fjögurra liða sem taka þátt á mótinu. Auk AH keppa FH, Haukar og Valur á mótinu og því ljóst að um afar sterkt æfingamót er að ræða. Leikið verður dagana 24.- 26. september í Íþróttahúsinu við Strand...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nyting-fristundahusa-i-budagili-a-akureyri-verid-god
Nýting frístundahúsa í Búðagili á Akureyri verið góð Fyrirtækið Sæluhús Akureyri ehf. hefur rekið fimm frístundahús í Búðargili sunnan Sjúkrahússins á Akureyri sl. 18 mánuði og hefur nýtingin verið góð. Nýlega samþykkti bæjarstjórn samhljóða tillögu skipulagsnefndar, þess efnis að heimila fyrirtækinu að byggja tvö frís...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tonlistarhatidin-akureyri-rokkar-heppnadist-vel
Tónlistarhátíðin Akureyri Rokkar heppnaðist vel Tónlistarhátíðin; Akureyri Rokkar, var haldin í Ungmenna-Húsinu í Rósenborg um liðna helgi. Allt í allt spreyttu sig hvorki fleiri né færri en 10 rokkhljómsveitir á föstudags- og laugardagskvöld. Mikil stemming var og gestir hátt í þrjúhundruð. Meðal hljómsveita sem spilu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/undirbuningur-forvarnardagsins-i-naestu-viku-er-hafinn
Undirbúningur forvarnardagsins í næstu viku er hafinn Á fundi skólanefndar Akureyrar í vikunni var tekið fyrir erindi frá verkefnisstjóra Forvarnardagsins, þar sem fram kemur að undirbúningur forvarnardagsins 2009 er hafinn. Dagurinn verður haldinn, eins og var áætlað á síðasta ári, þann 30. september nk. sem er miðvik...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyrarmotid-i-krullu-hefst-a-manudagskvold
Akureyrarmótið í krullu hefst á mánudagskvöld Krullufólk á Akureyri er komið á fullt og mánudagskvöldið 28. september hefst fyrsta mót vetrarins, Akureyrarmótið. Mótið verður leikið á mánudagskvöldum og lýkur því snemma í nóvember. Gera má ráð fyrir að um átta lið með um 40 manns innanborðs taki þátt í mótum vetrarins ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sigfus-olafur-endurkjorinn-formadur-ithrottafelagsins-thors
Sigfús Ólafur endurkjörinn formaður Íþróttafélagsins Þórs Sigfús Ólafur Helgason var endurkjörinn formaður Íþróttafélagsins Þórs á aðalfundi félagsins í kvöld. Aðrir stjórnarmenn félagsins, þeir Árni Óðinsson, Nói Björnsson og Páll Jóhannesson voru einnig endurkjörnir í stjórn. Halldór Áskelsson var endurkjörinn í vara...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/foreldrar-grunnskolabarna-a-akureyri-anaegdir-med-skolana
Foreldrar grunnskólabarna á Akureyri ánægðir með skólana Á fundi skólanefndar Akureyrar í vikunni voru kynntar niðurstöður kannanna sem unnar hafa verið af skólaþróunarsviði HA á viðhorfum kennara í leikskólum og kennara í grunnskólum 2007-2008 til skólastarfs og foreldra barna í grunnskólum 2008-2009, til skólastarfs....
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tre-arsins-2009-er-hengibjork-i-kjarnaskogi-a-akureyri
Tré ársins 2009 er hengibjörk í Kjarnaskógi á Akureyri Tré ársins 2009 er hengibjörk (Betula pendula) í Kjarnaskógi á Akureyri. Hengibjörk er fágæt trjátegund hérlendis og er tréð í Kjarnaskógi sérlega glæsilegur fulltrúi tegundarinnar. Sérstaða og fegurð trésins í íslensku umhverfi gerir það verðugt til útnefningar. T...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/brotist-inn-i-skataskalann-falkafell-ofan-akureyrar
Brotist inn í skátaskálann Fálkafell ofan Akureyrar Brotist var inn í skátaskálann Fálkafell ofan Akureyrar um helgina að því talið er. Skátafélagið Klakkur á og rekur skálann og þegar tveir félagar voru á ferð við Fálkafell í dag sáu þeir hvar búið var að brjóta stóran glugga á vesturhlið skálans og glerið hreinsað úr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/framkvaemdir-vid-vadlaheidar-gong-hefjist-thegar-a-naesta-ari
Framkvæmdir við Vaðlaheiðar- göng hefjist þegar á næsta ári Kjördæmisþing Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi beinir þeim tilmælum til ríkisstjórnar og Alþingis að taka atvinnu- og samgöngumál í kjördæminu föstum tökum. Vaðlaheiðargöng eru forgangsverkefni í atvinnu-, samgöngu- og ferðamálum kjördæmisins. Afar mikil...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hljomsveitin-manar-fra-selfossi-a-graena-hattinum
Hljómsveitin Mánar frá Selfossi á Græna hattinum Hljómsveitin Mánar frá Selfossi kemur fram tónleikum á Græna hattinum á Akureyri helgina 25. og 26. september nk. Hljómsveitin kom síðast fram á Akureyri fyrir tæpum 40 árum, í Dynheimum, sem þá kallaðist Lón en nú Rýmið. Haukur Tryggvason veitingamaður á Græna hattinum ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/magni-fallinn-nidur-i-3-deild
Magni fallinn niður í 3. deild Magni frá Grenivík er fallinn niður í 3. deild eftir tap gegn Gróttu á útivelli í lokaumferð 2. deildar karla í knattspyrnu sl. laugardag. Lokatölur á Gróttuvelli urðu 3-2 sigur heimamanna. Þeir Steinar Logi Rúnarsson og Ingvar Már Gíslason skoruðu mörk Magna í leiknum en mörk heimamanna ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/minnt-a-mikilvaegi-thess-ad-sporna-vid-loftlagsbreytingum-i-heiminum
Minnt á mikilvægi þess að sporna við loftlagsbreytingum í heiminum Í dag, 21. september 2009, eru skipulagðar yfir 2.300 misstórar samkomur í um 130 löndum um allan heim til að minna á mikilvægi þess að sporna við loftslagsbreytingum í heiminum. Á Akureyri verður gjörningur og samkoma við Ráðhúsið kl. 16.30. Hér vantar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nyja-kaffibrennslan-faer-firmabikarinn-til-vardveislu-annad-arid-i-rod
Nýja Kaffibrennslan fær firmabikarinn til varðveislu annað árið í röð Um 50 fyrirtæki voru skráð til leiks í Firmakeppni GA í golfi sem fram fór á Jaðarsvelli í gær. Það voru þeir Rúnar Antonsson og Geir Kristinn Aðalsteinsson sem spiluðu betri bolta til sigurs fyrir Nýju Kaffibrennsluna annað árið í röð og fær fyrirtæ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mogleikamidstodin-fyrir-folk-i-atvinnuleit-opnar-a-ny
Mögleikamiðstöðin fyrir fólk í atvinnuleit opnar á ný Möguleikamiðstöðin í Rósenborg opnar aftur fimmtudaginn 24. september nk. kl. 10.00. Möguleikamiðstöðin er sérstaklega ætluð fólki í atvinnuleit og er hlutverk miðstöðvarinnar að þjóna þeim sem vilja nýta tímann til fulls. Möguleikamiðstöðin verður í kjölfarið opin ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/framsoknarmenn-ahyggjufullir-vegna-slaemrar-stodu-baejarsjods
Framsóknarmenn áhyggjufullir vegna slæmrar stöðu bæjarsjóðs Almennur félagsfundur í Framsóknarfélagi Akureyrar sem haldinn var nýlega lýsir yfir áhyggjum vegna mjög slæmrar stöðu bæjarsjóðs Akureyrarbæjar. Fram hefur komið að Akureyrarbær er eitt af skuldsettustu sveitarfélögum landsins. Fundurinn hvetur bæjaryfirvöld ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/islandsmeistararnir-kenna-a-nylidanamskeidi-i-krullu
Íslandsmeistararnir kenna á nýliðanámskeiði í krullu Íslandsmeistararnir í krullu efna til nýliðanámskeiðs í krullu í Skautahöllinni á Akureyri, í kvöld. mánudagskvöldið 21. september kl. 20-22 og miðvikudagskvöldið 23. september kl. 21-23. Allir eru velkomnir. Allur búnaður er til staðar í Skautahöllinni en nauðsynleg...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leiga-fyrir-afnot-af-skolum-vegna-ithrottamota-of-ha
Leiga fyrir afnot af skólum vegna íþróttamóta of há „Það er sjálfsagt að rukka eitthvað, en leigan núna er alltof há og hana þarf að lækka," segir Jóhannes G. Bjarnason bæjarfulltrúi Framsóknarflokks sem óskaði eftir umræðu í bæjarráði nýverið um leigu á skólamannvirkjum til íþróttafélaga í tengslum við íþróttamót í bæ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rekstur-i-nyju-thjonustuhusi-vid-oddeyrarbryggju-bodinn-ut
Rekstur í nýju þjónustuhúsi við Oddeyrarbryggju boðinn út Hafnasamlag Norðurlands bs. hefur auglýst eftir tilboðum í rekstur á aðstöðu í nýju þjónustuhúsi vestan við Oddeyrarbryggju á Akureyri. Reist verður 160 fermetra þjónustuhús á hafnarsvæðinu, en í því er ætlunin að verði móttökuaðstaða fyrir farþega skemmtiferðas...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sa-lagdi-bjorninn-i-1-umferd-islandsmotsins-i-ishokki
SA lagði Björninn í 1. umferð Íslandsmótsins í íshokkí Skautafélag Akureyrar, SA, vann góðan sigur á Birninum er liðin áttust við í kvöld í fyrstu umferð á Íslandsmótinu í íshokkí. Leikurinn fór fram í Skautahöllinni á Akureyri og höfðu heimamenn 4:2 sigur, í annars jöfnum og spennandi leik. SA skoraði fyrsta mark leik...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tap-hja-thor-a-heimavelli-en-sigur-hja-ka-a-utivelli
Tap hjá Þór á heimavelli en sigur hjá KA á útivelli Haukar sýndu styrk sinn er þeir komu norður til Akureyrar í dag og lögðu Þór að velli 3:2 í lokaumferð 1. deildar á Íslandsmótinu í knattspyrnu og var þetta fyrsta tap Þórs og nýja Þórsvellinum. Á sama tíma gerði KA góða ferð í Kópavoginn, þar sem liðið vann HK 3:2 og...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vinnsla-hafin-a-ny-hja-nordurskel-i-hrisey
Vinnsla hafin á ný hjá Norðurskel í Hrísey Vinnsla hófst á ný hjá Norðurskel í Hrísey í liðinni viku eftir þriggja mánaða framleiðslustopp sem upp kom vegna eitraðra þörunga í Eyjafirði, en um var að ræða lömunareitrun PSP sem greindist í kræklingi í Eyjafirði á liðnu sumri. Eitrun þessi kemur upp af og til hvarvetna þ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/lokaumferd-1-deildar-karla-i-dag
Lokaumferð 1. deildar karla í dag Í dag fer fram síðasta umferð 1. deildar karla í knattspyrnu og verða bæði Þór og KA í eldlínunni. Þór fær Hauka í heimsókn á Þórsvöllinn en Haukar tryggðu sér sæti í efstu deild að ári í síðustu umferð. KA lýkur leik á útivelli en þeir gulklæddu sækja HK heim á Kópavogsvöll. Þá sækir ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vidurkenning-fyrir-frumkvaedi-ad-utivistarmalum-a-akureyri
Viðurkenning fyrir frumkvæði að útivistarmálum á Akureyri Félagskapurinn SAUMÓ sem samanstendur af sönnum áhugamönnum um útivist og uppbyggilegar athafnir mun á morgun, laugardaginn 19. september, afhenda þremur frumkvöðlum á Akureyri viðurkenningu fyrir frumkvæði að útivistarmálum. Afhendingin fer fram í Listasafninu ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/liknardeild-verdur-ekki-reist-a-akureyri-i-brad
Líknardeild verður ekki reist á Akureyri í bráð „Í því ástandi sem nú ríkir er ekki svigrúm til að hefja nýja starfsemi," segir Halldór Jónsson framkvæmdastjóri Sjúkrahússins á Akureyri spurður um áform varðandi opnun líknardeildar við Sjúkrahúsið. „Við erum með málið í bið." Til hefur staðið um nokkurt skeið að opna l...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/raett-um-ad-flytja-sorp-ur-eyjafirdi-i-refasveit
Rætt um að flytja sorp úr Eyjafirði í Refasveit Lengi hefur verið stefnt að því að loka urðunarstaðnum á Glerárdal. Nú hillir loks undir lausn þess máls og endurheimt Glerárdals sem útivistarsvæðis fyrir Akureyringa og gesti bæjarins. Svæðið bíður uppá mikla möguleika til útivistar en urðunarstaður í minni dalsins hefu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rakel-med-mark-i-storsigri-islands
Rakel með mark í stórsigri Íslands Rakel Hönnudóttir, leikmaður Þórs/KA, skoraði síðasta marki Íslands í 12-0 sigri liðsins gegn Eistum á Laugardagsvelli í kvöld. Leikurinn var liður í undankeppni HM í knattspyrnu kvenna árið 2011. Sigurinn í kvöld er sá stærsti sem A- landslið Íslands í knattspyrnu hefur unnið frá upp...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sa-hefur-leik-a-islandsmotinu-um-helgina
SA hefur leik á Íslandsmótinu um helgina Skautafélag Akureyrar (SA) leikur sinn fyrsta leik á Íslandsmótinu í íshokkí þegar liðið fær Björninn frá Reykjavík í heimsókn á laugardaginn kemur. SA hefur fengið til liðs við sig nýjan þjálfara en sá heitir Josh Gribben og kemur frá Kanada. Félagið hefur misst tvo leikmenn fr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/la-frumsynir-vid-borgum-ekki-vid-borgum-ekki
LA frumsýnir; Við borgum ekki, við borgum ekki Leikfélag Akureyrar frumsýnir á morgun, föstudag, leikritið; Við borgum ekki, við borgum ekki, eftir Dario Fo í Samkomuhúsinu. Næstu sýningar eru svo um helgina en sýningin er samstarfsverkefni Nýja Íslands, Borgarleikhússins og Leikfélags Akureyrar. Hér er á ferðinni splu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/felagsmenn-kea-ordnir-16-thusund
Félagsmenn KEA orðnir 16 þúsund Undanfarin þrjú ár hefur félagsmönnum KEA fjölgað jafnt og þétt og svo er nú komið að þeir eru orðnir 16 þúsund talsins. Halla Stefánsdóttir á Akureyri reyndist vera 16 þúsundasti félagsmaðurinn og af því tilefni afhenti framkvæmdastjóri KEA, Halldór Jóhannsson, henni KEA kortið með form...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/telur-ithrottafelog-greida-of-haa-leigu-fyrir-skolahusnaedi
Telur íþróttafélög greiða of háa leigu fyrir skólahúsnæði Á fundi bæjarráðs Akureyrar í morgun var rætt um leigu á skólahúsnæði til íþróttafélaga í bænum vegna íþróttamóta. Í bókun Jóhannesar G. Bjarnason bæjarfulltrúa Framsóknarflokks kemur fram að hann telji að íþróttafélögin greiði of háa leigu fyrir afnot af skólam...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tonlistarskolinn-og-ungmennahus-i-samstarf
Tónlistarskólinn og UngmennaHús í samstarf Í vetur eru Tónlistarskólinn á Akureyri og UngmennaHús í Rósenborg möguleikamiðstöð, í tilraunaverkefni með samstarf og fær Tónlistarskólinn til afnota kennsluaðstöðu í Rósenborg. Starfsfólk Tónak fær jafnframt aðgang að kaffiaðstöðu og getur pantað tónleikasal eða aðra aðstöð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nidurskurdur-a-byggdakvota-haft-ahrif-a-atvinnuastand-i-hrisey
Niðurskurður á byggðakvóta haft áhrif á atvinnuástand í Hrísey Á fundi bæjarráðs Akureyrar í morgun var rætt um byggðakvóta í Hrísey og kæru vegna úthlutunar fyrir fiskveiðirárið 2008-2009. Lagt var fram afrit af bréfi frá Þresti Jóhannssyni f.h. Útgerðarfélagsins Hvamms ehf. og Smára Thorarensen f.h. Eyfangs ehf. þar ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gudmundur-oli-i-bann
Guðmundur Óli í bann Guðmundur Óli Steingrímsson, leikmaður KA í 1. deild karla í knattspyrnu, hefur verið úrskurðaður í eins leiks keppnisbann af Aga- og Úrskurðarnefnd KSÍ. Guðmundur Óli mun því missa af lokaleik KA á tímabilinu sem mætir HK á útivelli næstkomandi laugardag.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rakel-byrjar-gegn-eistum-a-morgun
Rakel byrjar gegn Eistum á morgun Rakel Hönnudóttir, fyrirliði Þórs/KA, verður í byrjunarliði Íslands sem mætir Eistum á Laugardagsvelli annað kvöld í undankeppni HM 2011. Rakel mun spila á hægri á kanti. Liðið lítur þannig út: Markvörður Þóra B. Helgadóttir Hægri bakvörður Sif Atladóttir Vinstri bakvörður Ólína G. Við...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrirkomulag-rjupnaveida-i-haust-med-breyttu-snidi-fra-fyrra-ari
Fyrirkomulag rjúpnaveiða í haust með breyttu sniði frá fyrra ári Umhverfisráðherra hefur ákveðið að fyrirkomulag rjúpnaveiða í haust verði með nokkuð breyttu sniði frá fyrra ári. Tveimur helgum verður bætt við tímabilið en á móti kemur að veiðihelgar verða styttar úr fjórum dögum í þrjá. Því verða veiðidagar átján eins...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/metfjoldi-gesta-a-smamuna-safnid-i-eyjafjardarsveit
Metfjöldi gesta á Smámuna- safnið í Eyjafjarðarsveit Aldrei hafa fleiri gestir sótt Smámunasafnið í Eyjafjarðarsveit og nú í sumar en heildarfjöldinn var um 5.000 manns. Síðasta opnunarhelgi sumarsins var um síðustu helgi og er safnið nú lagst í vetrardvala. Í vetur geta hópar þó fengið að skoða safnið í samráði við fo...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mun-minni-eftirspurn-eftir-studentaibudum-a-akureyri
Mun minni eftirspurn eftir stúdentaíbúðum á Akureyri Mun minni eftirspurn hefur verið eftir stúdentaíbúðum á Akureyri í haust en áður. Haraldur Kruger hjá Félagsstofnun stúdenta staðfestir að nú séu 20 íbúðir tómar á stúdentagörðunum, af 163 íbúðum sem Félagsstofnun er með á sínum snærum. Þetta er algjörlega ný staða, ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kropparnir-styrkja-kvennaknatt-spyrnuna-a-akureyri
Kropparnir styrkja kvennaknatt- spyrnuna á Akureyri Alda Karen Ólafsdóttir Hjaltalín, formaður Kroppanna, styrktarfélags meistaraflokks og 2. flokks Þórs/KA í knattspyrnu, afhenti Hönnu Dóru Markúsdóttur fjölmiðlafulltrúa kvennaráðs, ríflega 60.000 króna fjárstyrk í leikhléi á leik Þórs/KA og Aftureldingar/Fjölnis á Þó...