Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.vikubladid.is/is/frettir/piano-trio-a-heitum-fimmtudegi
Píanó-tríó á Heitum fimmtudegi Heitir fimmtudagar á Listasumri Akureyrar halda áfram í Ketilshúsinu og á morgun þann 6. ágúst er sá sjöundi í röðinni af níu þegar píanótríó Árna Heiðars Karlssonar leikur fyrir gesti. Tríóið skipa þeir Árni Heiðar Karlsson á píanó, Gunnar Hrafnsson á kontrabassa og Scott McLemore á trom...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fiskvinnsla-a-grenivik-i-augsyn
Fiskvinnsla á Grenivík í augsýn Síðastliðin sunnudag var skrifað undir viljayfirlýsingu milli Gjögurs hf., Sæness ehf. og Grýtubakkahrepps um að þessir aðilar vinni sameiginlega að stofnun fiskvinnslu á Grenivík með það að markmiði að vinnsla hefjist eigi síðar en um áramótin 2009-2010 og samningur verði undirritaður s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hvanndalsbraedur-a-ferd-og-flugi
Hvanndalsbræður á ferð og flugi Hvanndalsbræður verða á ferð og flugi næstu daga þar sem þeir munu koma fram á nokkrum stöðum. Hljómsveitin verður með tónleika í Víkurröst í kvöld og hefjast tónleikarnir kl. 21:30 en húsið opnar hálftíma fyrr. Félagarnir verða svo á stóra sviðinu á Dalvík á Fiskideginum mikla laugardag...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/finn-arangur-ufa-a-unglingalandsmoti
Fínn árangur UFA á unglingalandsmóti Ungmennafélag Akureyrar, UFA, stóð sig með prýði á unglingalandsmóti UMFÍ sem haldið var á Sauðárkróki um helgina. Kolbeinn Höður Gunnarsson bætti sitt eigið Íslandsmet er hann sigraði í 80 m grindahlaupi pilta. Kolbeinn bar einnig sigur úr býtum í 100 og 800 m hlaupi pilta. Þá sigr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/minna-um-utkoll-hja-slokkvilidi-akureyrar
Minna um útköll hjá Slökkviliði Akureyrar Verslunarmannahelgin var róleg hjá Slökkviliði Akureyrar og voru útköll í mun minna mæli miðað við undangengnar verslunarmannahelgar. Sjúkraflutningamenn liðsins ásamt fyrstu hjálpar liðum frá Rauða krossinum voru í miðbæ Akureyrar yfir næturtímann um helgina. Þessi hópur nýtti...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samtok-hernadarandstaedinga-a-nordurlandi-motmaela
Samtök hernaðarandstæðinga á Norðurlandi mótmæla Samtök hernaðarandstæðinga á Norðurlandi hafa sent frá sér fréttatilkynningu vegna fyrirhugaðrar aðflugsæfinga á Akureyrarflugvelli og vörslu hergagna undir yfirskini loftrýmiseftirlits. Þar lýsa þeir m.a. yfir furðu sinni á því að utanríkisráðherra þjóðarinnar, Össur Sk...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sjallasandur-ii-2009-urslit
Sjallasandur II 2009- Úrslit Sjallasandspyrnan II fór fram um helgina á aksturssvæði Bílaklúbbs Akureyrar. Eitt Íslandsmet féll þegar Björn B. Steinarsson bætti eigið met í flokki mótorhjóla 500cc+ á tímanum 4, 532 sek. Helstu úrslit: Vélsleðar 1. Garðar Hallgrímsson – Ski Doo Besti tími: 4.199 sek 2. Ragnar Már Hansso...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyrarflugvollur-sem-varavollur
Akureyrarflugvöllur sem varavöllur Stórar og tignarlegar flugvélar hafa sveimað um Eyjarfjörðinn undanfarna daga þar sem þær hafa svo lent á Akureyrarflugvelli. Vélar þessar eru bandarískar flutningarvélar frá flughernum af gerðinni C- 17. Koma vélanna til Akureyrar tengjast undirbúningi vegna loftrýmisgæslu Atlantshaf...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/engar-kaerur-eftir-helgina
Engar kærur eftir helgina Engar kærur hafa borist inn á borð til lögreglunnar á Akureyri eftir verslunarmannahelgina. Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn, segir helgina hafa gengið vonum framar. Gestir og bæjarbúar hafa almennt hagað sér vel og allt farið vel fram í heildsinni. Hann segir ennfremur að á undanförnum ár...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vrenko-til-lids-vid-ka
Vrenko til liðs við KA Slóvenski varnarmaðurinn, Janez Vrenko, er genginn til liðs við KA á nýjan leik. Vrenko spilaði með KA á árunum 2006- 2008 en fékk ekki framlengdan samning eftir síðustu leiktíð. Vrenko, 26 ára, hefur leikið 68 leiki fyrir KA og skorað í þeim fjögur mörk.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vel-heppnud-hatid-a-akureyri-um-helgina
Vel heppnuð hátíð á Akureyri um helgina „Þetta var bara yndislegt og allt gekk bara ofboðslega vel,” segir Margrét Blöndal skipuleggjandi hátíðarinnar „Ein með öllu og allt undir” sem haldinn var á Akureyri um verslunarmannahelgina. Hún segir aðsókn á viðburði helgarinnar hafa verið mjög góða. „Það var eiginlega fullt ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tvo-umferdarohopp-i-morgun
Tvö umferðaróhöpp í morgun Bíll fór útaf veginum við Fagraskóg á Ólafsfjarðarvegi á milli Akureyrar og Dalvíkur undir morgun en engin slys urðu á fólki. Þá keyrði bíll á ljósastaur við Krossanesbraut á Akureyri um sex leytið í morgun en enginn slasaðist. Ekki leikur grunur á að um ölvunarakstur hafi verið að ræða í hvo...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/markadsdagur-i-laufasi-i-dag
Markaðsdagur í Laufási í dag Hinn árlegi markaðsdagur í Gamla bænum í Laufási í Eyjafirði verður haldinn í dag frá kl. 14:00 – 17:00. Á markaðnum mun að þessu sinni kenna ýmissa grasa. Þar má nefna handverk og listmuni ásamt margs konar matvöru úr héraðinu svo sem jurtate, brauð og sultur. Urtasmiðjan mun kynna vörur s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ss-byggir-baud-laegst
SS Byggir bauð lægst SS Byggir ehf. átti lægsta tilboð í byggingu 7. áfanga B við Verkmenntaskólann á Akureyri en tilboðin voru opnuð í vikunni. Alls bárust 10 tilboð í verkið. SS Byggir bauð rúmar 98,2 milljónir króna eða 86,8% af kostnaðaráætlun en Virkni ehf., sem átti næst lægsta tilboð í verkið, bauð tæplega 150 þ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kaupmenn-sattir-vid-sumarid
Kaupmenn sáttir við sumarið „Ég er mjög sprækur og sáttur við sumarið, það hefur í einu orði sagt verið frábært,“ segir Sigurður Guðmundsson í ferðamannaversluninni Viking við Hafnarstræti á Akureyri.Hann segir að mikið líf hafi verið í miðbæ Akureyrar í allt sumar og fjöldi fólks á ferðinni, heimamenn og ferðalangar b...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bilvelta-i-fnjoskadal-i-dag
Bílvelta í Fnjóskadal í dag Bifreið valt í Fnjóskadal um hálffjögur leytið í dag. Að sögn lögreglunnar á Akureyri var ungt fólk í bílnum, tveir menn og ein kona, sem öll sluppu við alvarleg meiðsl en ökumaðurinn hlaut minniháttar skurð í veltunni. Bíllinn er aftur á móti talinn ónýtur og fór því betur en á horfðist. Að...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/um-500-manns-a-oskalagatonleikum
Um 500 manns á Óskalagatónleikum Fjölmennt var á Óskalagatónleikum Óskars Péturssonar stórsöngvara og Eyþórs Inga Jónssonar organista sem fram fóru í Akureyrarkirkju í gærkvöld. Að sögn kirkjuvarðar voru um 500 manns á tónleikunum og troðfullt út að dyrum. Þeir kumpánar tóku vel valin lög og gátu gestir beðið um óskalö...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/abba-skreytir-midbae-akureyrar-i-dag
ABBA skreytir miðbæ Akureyrar í dag ABBA- þema verður í miðbæ Akureyrar í dag frá kl. 14:00- 18:00. Dans, söngur og gleði þar sem allir geta skemmt sér saman hvort sem þeir eru 2ja eða 102ja ára. Hvanndalsbræður fara í Abbabúning, Hara systur, ABBA karókíkeppni með Siggu Beinteins, lauflétt danskennsla frá Point dansst...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vantar-fleiri-farthega
Vantar fleiri farþega „Þetta gengur ágætlega en okkur vantar fleiri farþega,” segir Þorsteinn Pétursson hjá Hollvinum Húna II, en boðið hefur verið upp á siglingar í sumar með bátnum eins og undanfarin ár. Á fimmtudögum eru siglingar til Hjalteyrar ásamt skemmtilegri sögugöngu og á föstudagskvöldum er svo boðið upp á s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/umferd-med-minna-moti-til-akureyrar
Umferð með minna móti til Akureyrar Ekki hefur verið mikil bíla umferð til Akureyrar í dag en þó hefur talsverður sígandi verið eftir því sem líða hefur tekið á daginn. Að sögn varðstjóra lögreglunnar á Akureyri hefur umferðin gengið vel fyrir utan tvö minniháttar umferðaróhöpp. Lögreglan segir ennfremur að umferðin sé...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hlaupid-upp-troppur-akureyrarkirkju-i-dag
Hlaupið upp tröppur Akureyrarkirkju í dag Síðdegis í dag fer fram Kirkjutröppuhlaupið þar sem keppt verður í hlaupi upp tröppurnar við Akureyrarkirkju. Fyrsta formlega Kirkjutröppuhlaupið fór fram á Landsmóti UMFÍ nú í sumar. Þátttaka fór fram úr björtustu vonum og því hefur verið ákveðið að gera þetta að árlegum viðbu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/soguganga-um-innbaeinn-og-fjoruna-a-akureyri
Söguganga um Innbæinn og Fjöruna á Akureyri Hvert er elsta hús Akureyrar? Af hverju eru mörg hús í Innbænum kennd við danska kaupmenn? Þessum spurningum og ásamt mörgum fleirum verður svarað í gönguferð Minjasafnsins á Akureyri um Innbæinn og Fjöruna á Akureyri á morgun, laugardag, kl 14:00. Húsin og umhverfið í elsta ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fair-komnir-a-tjaldsvaedi-akureyrar
Fáir komnir á tjaldsvæði Akureyrar Fáir gestir eru á tjaldstæðunum á Akureyri enn sem komið er bæði við Hamar og á Þórunnarstræti. „Það er ekkert roslega mikið af fólki komið og þetta er bara svipað núna og um venjulega daga,” segir Tryggvi Marínósson umsjónarmaður tjaldsvæðanna, en hátíðin "Ein með öllu og allt undir"...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/andrumsloftid-elskulegt-og-ljuft-a-akureyri-um-helgina
Andrúmsloftið elskulegt og ljúft á Akureyri um helgina Undirbúningur fyrir fjölskylduhátiðina "Ein með öllu og allt undir," er á lokastigi enda verslunarmannahelgin framundan. Margrét Blöndal verkefnastjóri hátíðarinnar segir að undirbúningurinn hafi gengið vel og hún vonast eftir góðri þátttöku Akureyringa og gesta í ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/urslitaleikur-hm-i-handbolta-u-19-i-beinni-a-ruv
Úrslitaleikur HM í handbolta U-19 í beinni á RÚV Úrslitaleikur Íslands og Króatíu á heimsmeistaramóti U19 ára landsliða í handknattleik sem fram fer á Túnis annað kvöld verður sýndur í beinni útsendingu á RÚV. Akureyringurinn Oddur Gretarsson hefur leikið stórt hlutverk með íslenska liðinu á mótinu en hann skoraði sjö ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tonlist-myndlist-og-soguganga-i-bodi-a-listasumri
Tónlist, myndlist og söguganga í boði á Listasumri Að vanda verður mikið um að vera í tengslum við Listasumar á Akureyri næstu daga, þar sem í boði verða fjölmargar listsýningar, auk þess sem tónlistin verður fyrirferðarmikil. Þá býður Minjasafnið á Akureyri upp á sögugöngu um Innbæinn á laugardag. Herlegheitin hefast ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/brasilisk-sveifla-a-heitum-fimmtudegi-i-deiglunni
Brasilísk sveifla á Heitum Fimmtudegi í Deiglunni Á sjötta Heitum Fimmtudegi Listasumars í kvöld 30. júlí, verður brasilísk sveifla eins og hún gerist best, í algleymi í Deiglunni á Akureyri. Það er brasilíska söng- og leikkonan Jussaman da Silva sem fer fyrir sínu liði sem flytur bossa nova og sömbur frá Brasilíu á þa...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorsteinn-mar-hefur-aldrei-verid-skattfaelinn-madur
Þorsteinn Már hefur aldrei verið skattfælinn maður Vegna umfjöllunar um álagningu opinberra gjalda vill Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja koma á framfæri "að tæplega 70% þeirra skattgreiðslna sem undirritaður greiðir eru tilkomnir vegna flutnings á hlutabréfum í Samherja hf. sem voru í minni persónulegu eigu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/anna-gunndis-klaedist-buningi-ur-hinum-sokknum
Anna Gunndís klæðist búningi úr hinum sokknum Hvað verður alltaf um hinn sokkinn eftir þvott? Sokkaskrímslið ógurlega skartar sínu fegursta á Ráðhústorgi á Akureyri kl. 13, laugardaginn 1. ágúst og gengur sem leið liggur eftir göngugötunni upp í Listagil. Jonna í samvinnu við Saumakompuna hefur hannað búninginn sem Ann...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorsteinn-mar-greidir-haestu-gjoldin-her-a-landi
Þorsteinn Már greiðir hæstu gjöldin hér á landi Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja greiðir hæstu gjöldin í umdæmi skattstofunnar á Norðurlandi eystra í ár, tæpar 170 milljónir króna og eru þetta jaframt hæstu gjöldin á Íslandi í ár. Af heildargjöldum Þorsteins Más er útsvarið 3,7 milljónir króna. Jóhannes Jó...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/einar-sigthorsson-i-eins-leiks-bann
Einar Sigþórsson í eins leiks bann Aga og úrskurðarnefnd KSÍ kom saman sl. þriðjudag og þar sem leikmenn voru úrskurðaðir í leikbann. Einar Sigþórsson, Þór, fær eins leiks bann og mun hann því missa af heimaleiknum gegn Víkingi R. í næstu umferð í 1. deild karla. Kristján Páll Hannesson, leikmaður 2. deildarliðs Magna,...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/magni-lagdi-topplidid-a-heimavelli
Magni lagði toppliðið á heimavelli Magni gerði sér lítið fyrir og sigraði topplið Reynir S., 3-0, þegar liðin mættust á Grenivíkurvelli í gærkvöld í 2. deild karla í knattspyrnu. Hreggviður H. Gunnarsson skoraði tvívegis fyrir Magna í leiknum og Baldvin Ólafsson gerði eitt mark. Eftir leikinn er Magni kominn með 16 sti...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oddur-skoradi-sjo-og-island-i-urslit
Oddur skoraði sjö og Ísland í úrslit Oddur Gretarsson, leikmaður Akureyri Handboltafélags, skoraði sjö mörk í sigri Íslands á Túnis í undanúrslitum Heimsmeistarkeppni U- 19 ára landsliða karla í handbolta sem haldin er í Túnis. Lokatölur leiksins urðu 33-31 fyrir Ísland eftir að staðan í hálfleik var 15-14 Túnis í vil....
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jafnt-a-thorsvelli-i-kvold
Jafnt á Þórsvelli í kvöld Þór/KA og Fylkir skildu jöfn, 3-3, er liðin mættust í kvöld í Pepsi- deild kvenna í knattspyrnu á Þórsvellinum. Fylkir komst 2-0 yfir í leiknum en Þór/KA jafnaði í 2-2 með mörkum frá Örnu Sif Ásgrímsdóttur og Bojönu Besic. Gestirnir komust yfir á nýjan leik þegar skammt var til leiksloka en Ma...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/finnur-ehf-baud-laegst-i-framkvaemdir-a-eyrarlandsvegi
Finnur ehf. bauð lægst í framkvæmdir á Eyrarlandsvegi Finnur ehf. bauð lægst í hellulögn gangstétta við Eyrarlandsveg á Akureyri en tilboð voru opnuð í dag. Fyrirtækið bauðst til að vinna verkið fyrir rúmar 10,7 milljónir króna, eða sem nemur um 74% af kostnaðaráætlun. Alls bárust fimm tilboð í verkið og voru fjögur þe...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/geir-markahaestur-i-lidi-islands-a-olympiuleikum-aeskunnar
Geir markahæstur í liði Íslands á Ólympíuleikum æskunnar Handboltamaðurinn og Þórsarinn, Geir Guðmundsson, var markahæsti leikmaður U- 17 ára landsliðs Íslands í handbolta á Ólympíuleikum æskunnar sem lauk á dögunum. Ísland hafnaði í sjöunda sæti á mótinu. ,,Þetta var rosalega gaman. Við lentum í 7. sætinu og ég held a...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rakel-i-lidi-7-12-umferdar
Rakel í liði 7.- 12. umferðar Rakel Hönnudóttir, leikmaður Þórs/KA, var valinn í lið 7- 12. umferðar Pepsi- deildar kvenna en liðið var tilkynnt í hádeginu í dag í höfuðstöðvum KSÍ. Rakel hefur spilað einstaklega vel með Þór/KA í sumar og er markahæst í deildinni ásamt Kristínu Ýr Bjarnadóttur leikmanni Vals með 15 mör...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorka-faer-fylki-i-heimsokn-i-kvold
Þór/KA fær Fylki í heimsókn í kvöld Þór/KA tekur á móti Fylki í kvöld er liðin mætast á Þórsvellinum í Pepsi- deild kvenna í knattspyrnu. Aðeins þrjú stig skilja liðin að fyrir leikinn, Þór/KA hefur 25 stig í fjórða sæti deildarinnar en Fylkir er sæti neðar með 22 stig. Það má því búast við hörkurimmu milli þessara lið...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skemmdir-unnar-a-buningsklefa-i-nyju-thorsstukunni
Skemmdir unnar á búningsklefa í nýju Þórsstúkunni Starfsmönnum Íþróttafélagsins Þórs var heldur brugðið þegar þeir sáu að skemmdir höfðu verið unnar á einum búningsklefanum í nýju stúkunni. Um er að ræða annan búningsklefann sem ætlaður er fyrir gestaliðin. Sigfús Ólafur Helgason formaður og framkvæmdastjóri Þórs sagði...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nyr-golfvollur-opnadur-a-akureyri
Nýr golfvöllur opnaður á Akureyri Golfklúbbur Akureyrar, hefur í samkomulagi við Akureyrarbæ, opnað lítinn golfvöll norðan við eiginn völl við Miðhúsabraut. Tilgangurinn er að koma til móts við þá sem ekki eru í golfklúbbi en langar að prufa og æfa sig við ásættanlegar aðstæður.Völlurinn er opinn öllum áhugasömum um go...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-og-thor-topudu-i-kvold
KA og Þór töpuðu í kvöld KA og Þór máttu bæði sætta sig við tap í kvöld í 1. deild karla í knattspyrnu. KA tapaði á heimavelli gegn Leikni R. þar sem lokatölur urðu 2-0 sigur gestanna. Þór tapaði gegn ÍR á útivelli en leiknum lauk með 1-0 sigri ÍR þar sem Árni Freyr Guðnason skoraði eina mark leiksins. Leikur KA og Lei...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/adalfundur-aflsins-haldinn-a-akureyri-i-kvold
Aðalfundur Aflsins haldinn á Akureyri í kvöld Aðalfundur Aflsins verður haldinn í kvöld, þriðjudaginn 28. júlí, í húsnæði Aflsins að Brekkugötu 34 á Akureyri, gengið inn bakatil. Aflið, samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi á Norðurlandi, hóf starfsemi sína árið 2002. Það hefur marg sýnt sig að starfsemin er mjög b...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oddur-a-hm-u-21-ars-landslida
Oddur á HM U-21 árs landsliða Oddur Grétarsson hefur verið valinn í U-21 árs landsliðshóp Íslands sem heldur til Egyptalands til þátttöku í lokakeppni Heimsmeistaramótsins í handbolta karla í byrjun ágúst. Ísland leikur í riðli með Argentínu, Egyptalandi, Katar, Kuwait og Þýskalandi og byrja mótið með leik á móti heima...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ss-byggir-baud-laegst-i-byggingu-7-afanga-vid-vma
SS Byggir bauð lægst í byggingu 7. áfanga við VMA SS Byggir ehf. átti lægsta tilboð í byggingu 7. áfanga B við Verkmenntaskólann á Akureyri en tilboðin voru opnuð nú í morgun. Alls bárust 10 tilboð í verkið. SS Byggir bauð rúmar 98,2 milljónir króna eða 86,8% af kostnaðaráætlun en Virkni ehf., sem átti næst lægsta tilb...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-tekur-a-moti-leikni-r-i-kvold-thor-saekir-ir-heim
KA tekur á móti Leikni R. í kvöld- Þór sækir ÍR heim KA og Leiknir R. eigast við á Akureyrarvelli í kvöld í 14. umferð 1. deildar karla í knattspyrnu. Fyrir leikinn munar fimm stigum á liðunum, KA hefur 20 stig í sjötta sæti deildarinnar en Leiknir er í níunda sæti með 15 stig. KA tapaði dýrmætum stigum í toppbaráttu d...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oddur-skoradi-tvo-island-i-undanurslit
Oddur skoraði tvö- Ísland í undanúrslit Oddur Grétarsson, leikmaður Akureyri Handboltafélags, skoraði tvö mörk í sigri Íslands á Noregi í gær, 43-37, á Heimsmeistaramóti U-19 ára landsliða karla í handbolta sem fram fer í Túnis. Með sigrinum komst Ísland í undanúrslit keppninnar og mæta sigurvegurum í leik Spánar og Tú...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vidraedur-vid-erlent-fyrirtaeki-um-nyja-verksmidju
Viðræður við erlent fyrirtæki um nýja verksmiðju „Við höfum í nógu að snúast og verkefnin eru mörg þó þau hafi breyst svolítið frá því sem var fyrir um ári eða svo," segir Magnús Þór Ásgeirsson framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar. Unnið er að fjölda verkefna, en Magnús kynnti þau á fundi bæjarráðs nýverið...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjorir-ur-magna-i-draupni
Fjórir úr Magna í Draupni Lið Draupnis sem spilar í 3. deild karla hefur verið að sanka að sér leikmönnum núna seinni partinn í júlí og fengið til sín fimm nýja leikmenn, þar af fjóra úr Magna. Þessir leikmenn er Guðni Kárason, Sinisa Pavlica, Sveinn Orri Vatnsdal Sveinsson og Víðir Örn Jónsson frá Magna og Garðar Stef...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/anna-sigradi-purity-herbsrose
Anna sigraði Purity Herbs/Rose Golfklúbbur Akureyrar hélt opið kvennamót í golfi sl. helgi undir nafninu Purity Herbs/Rose. Keppt var í einum flokki, punktakeppni með forgjöf og var það Anna Einarsdóttir GA sem sigraði á 37 punktum. Í öðru sæti varð Leanne Carol Leggett GA með 35 punkta, Anna Freyja Eðvarsdóttir GA var...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hvanndalsbraedur-senda-fra-ser-nytt-lag
Hvanndalsbræður senda frá sér nýtt lag Hljómsveitin Hvanndalsbræður mun senda frá sér nýtt lag á miðvikudaginn 29. júlí nk sem ber heitið "Vinkona" . Lala.., lagið sem bandið sendi frá sér í byrjun sumars, hefur fengið gríðalega góð viðbrögð landsmanna og situr sem stendur í 5. sæti á Tonlist.is, 6. sæti á Fm 957 lista...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/myndlistarsyning-i-ingolfsfirdi-a-strondum
Myndlistarsýning í Ingólfsfirði á Ströndum Myndlistarsýningin; Lýðveldið við fjörðinn, verður opnuð laugardaginn 1. ágúst nk., kl. 14.00 í Kvennabragganum á Eyri, Ingólfsfirði á Ströndum. Sýningin í Kvennabragganum, yfirgefinni verbúð, er hluti af þríþættu sýningarverkefni sem hverfist um hugmyndir um íslenska lýðveldi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ovenjumikil-fraeull-a-akureyri-i-ar
Óvenjumikil fræull á Akureyri í ár Óvenju mikið hefur borið á svokallaðri fræull, sem hefur „snjóað" í miklum mæli víðsvegar um Norðurland í sumar. „Þetta er sem sagt fræull af kvenplöntum asparinnar," segir Björgvin Steindórsson, garðyrkjufræðingur í Lystigarðinum á Akureyri. Hann segir fræullina hafa blómgast óvenju ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/geir-med-atta-mork-i-sigri-islands
Geir með átta mörk í sigri Íslands Geir Guðmundsson, handboltamaður úr Þór, skoraði átta mörk fyrir U- 17 ára handboltalandslið Íslands sem sigraði Finna, 30- 27, á Ólympíuleikum æskunnar sl. föstudag sem fram fóru í Finnlandi í síðustu viku. Ísland hafnaði í sjöunda sæti Ólympíuleikana með sigrinum.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sigur-og-tap-hja-draupni
Sigur og tap hjá Draupni Draupnir lék tvo leiki í D- riðli 3. deildar karla í knattspyrnu um helgina. Á laugardaginn var sigraði Draupnir Leikni F. á Búðagrund með einu marki gegn engu og var það Víðir Örn Jónsson sem skoraði mark Draupnis í leiknum. Á sunnudaginn síðasta lék Draupnir gegn Huginn á Seyðisfjarðarvelli þ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fleiri-teknir-fyrir-fikniefnaakstur-en-olvunarakstur
Fleiri teknir fyrir fíkniefnaakstur en ölvunarakstur Lögreglan á Akureyri stöðvaði ökumann fyrir fíkniefnaakstur í vikunni og var þetta fimmti ökumaðurinn sem er tekinn fyrir fíkniefnaakstur í bænum í vikunni og eru þeir orðnir 54 frá áramótum. Þá hafa 49 verið teknir fyrir ölvunarakstur á sama tímabili. „Þetta virðist...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fasteignamarkadur-a-akureyri-ad-taka-vid-ser
Fasteignamarkaður á Akureyri að taka við sér „Við höfum greint batamerki á fasteignamarkaði, eftirspurn hefur aukist og sölur eru fleiri, bæði beinar og í skiptum. Þessi breyting gefur vísbendingar um að það frost sem einkennt hefur markaðinn undanfarin misseri sé nú á enda,“ segir Björn Guðmundsson hjá Fasteignasölunn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/magni-sigradi-i-niu-marka-leik
Magni sigraði í níu marka leik Magni vann gríðarlega mikilvægan útisigur á Hetti er liðin mættust á Fellavelli í 13. umferð 2. deildar karla í knattspyrnu í gærkvöld, í sannkölluðum markaleik. Alls voru níu mörk skoruð í leiknum sem endaði með 5-4 sigri Magna. Hreggviður Heiðberg Gunnarsson skoraði tvö mörk fyrir Magna...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/farthegum-um-akureyrarflugvoll-faekkar-milli-ara
Farþegum um Akureyrarflugvöll fækkar milli ára Farþegum um Akureyrarflugvöll hefur fækkað um 18,6% á fyrstu 6 mánuðum ársins miðað við sama tíma á liðnu ári. Alls fóru 92.491 farþegi um völlinn á fyrri helmingi ársins en voru 113.663 í fyrra. Farþegar nú í ár eru um það bil jafnmargir og voru á sama tímabili árið 2006,...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrstir-til-ad-aka-hringinn-a-innlendu-eldsneyti
Fyrstir til að aka hringinn á innlendu eldsneyti Kapparnir Einar Vilhjálmsson og Ómar Ragnarsson munu um helgina aka kringum landið á bíl knúnum íslensku metani. Þetta er í fyrsta skipti sem hringvegurinn er ekinn á bíl knúnum al-íslensku eldsneyti, sem í þokkabót er umhverfisvænt. Með leiðangrinum er vakin athygli á þ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sogusyning-landsmota-umfi-a-amtsbokasafninu
Sögusýning Landsmóta UMFÍ á Amtsbókasafninu Nú stendur yfir á Amtsbókasafninu á Akureyri, hundrað ára afmælissýning Landsmóta UMFÍ. Þar er á skemmtilegan og lifandi hátt varpað ljósi á 100 ára sögu landsmótanna og stendur sýningin fram yfir verslunarmannahelgi. Á sýningunni, sem Björn G. Björnsson sýningarhönnuður hefu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorsteinn-setti-nytt-islenskt-met-i-60-metra-hlaupi
Þorsteinn setti nýtt íslenskt met í 60 metra hlaupi Frjálsíþróttakappinn Þorsteinn Ingvarsson úr HSÞ setti nýtt íslenskt met í 60 m hlaupi, á sérstöku móti sem haldið var í hálfleik í leik Þórs og KA í 1. deild karla í knattspyrnu á Þórsvellinum sl. miðvikudagskvöld. Þorsteinn hljóp vegalengdina á 6,90 sek. Þar sem þet...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/syning-hlyns-sett-upp-aftur-og-framlengd-um-manud
Sýning Hlyns sett upp aftur og framlengd um mánuð Verkið sem Hlynur Hallsson setti upp í Gallerí Víð8ttu hefur verið stolið í tvígang en vegna þrjósku listamannsins og sýningarstjóranna hefur það verið sett upp í þriðja skipti og sýningin verið framlengd um mánuð. Litla Skerið í Tjörninni sem myndaðist þegar Drottninga...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oruggur-sigur-thorska-a-grv-i-kvold
Öruggur sigur Þórs/KA á GRV í kvöld Þór/KA vann í kvöld stórsigur á liði GRV er liðin mættust í 12. umferð Pepsi- deildar kvenna í knattspyrnu á Þórsvellinum. Gestirnir í GRV byrjuðu leikinn ágætlega en heimastúlkur tóku fljótlega öll völd í leiknum og unnu að lokum 7-0 sigur, sem hefði þó hæglega geta orðið stærri. Fy...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skemmtistadir-opnir-lengur-um-verslunarmannahelgina
Skemmtistaðir opnir lengur um verslunarmannahelgina Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi sínum í morgun, beiðni fulltrúum Vina Akureyrar, um lengri opnunartíma skemmtistaða um verslunarmannahelgina með þeirri breytingu að lengri opnunartími verði til kl. 05:00. Þá veitti bæjarráð leyfi til að efna til unglingaskemmtana...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thrjar-fra-thorka-i-40-manna-landslidshop
Þrjár frá Þór/KA í 40 manna landsliðshóp Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu, hefur valið 40 manna undirbúningshóp fyrir úrslitakeppni EM sem fram fer í Finnlandi 23. ágúst til 10. september en hópurinn verður skorinn niður í 22 leikmenn áður haldið verður til Finnlands. Þór/KA á þrjá ful...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hvernig-leistu-ut-nitjanhundrudsjotiu-og-eitthvad
Hvernig leistu út nítjánhundruðsjötíu og eitthvað? Ljósmyndasýningin Hvernig leistu út nítjánhundruðsjötíu og eitthvað? verður opnuð í vikunni fyrir verslunarmannahelgi. Þar verður hægt að sjá hvernig bæjarbúar litu út á árunum 1970-1979 og tilefnið er Abba þema helgarinnar. Þetta er einn liður í hátíðinni "Ein með öll...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/maerudagar-a-husavik
Mærudagar á Húsavík Mærudagar hófust á Húsavík í dag, fimmtudag og standa fram á sunnudag. Lögð er áhersla á fjölskylduvæna dagskrá þar sem bæði ungir og aldnir fái að njóta sín. Þátttaka heimamanna skiptir höfuð máli í að skapa þá góðu stemmningu sem hefur verið undanfarin ár. Bænum er skipt upp í þrjú hverfi sem hver...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/finn-arangur-a-simamotinu
Fínn árangur á Símamótinu Símamótið fór fram í Kópavogi sl. helgi þar sem 5., og 6. flokkur kvenna í knattspyrnu hjá Þór og KA tóku þátt og stóðu stúlkurnar sig með ágætum. Bestum árangri hjá KA náði A- liðið í 6. flokki sem hafnaði fjórða sæti á mótinu. Hjá Þór náði A- lið 5. flokks bestum árangri en liðið hafnaði ein...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/agaetur-arangur-thors-og-ka-a-nikulasarmotinu
Ágætur árangur Þórs og KA á Nikulásarmótinu Hið árlega Nikulásarmót í knattspyrnu var haldið á Ólafsfirði sl. helgi þar sem lið frá KA og Þór voru meðal keppenda. Hjá KA kepptu lið í 6., og 7. flokki á mótinu og er skemmst frá því að segja að 7. flokkir vann mótið í flokki A,-B og C- liða. Hjá Þór var vann A- lið 6. fl...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorka-faer-grv-i-heimsokn-i-kvold
Þór/KA fær GRV í heimsókn í kvöld Pepsi- deild kvenna í knattspyrnu hefst í kvöld á nýjan leik eftir tæplega þriggja vikna pásu og leikur Þór/KA gegn GRV á Þórsvellinum í 12. umferð deildarinnar. Þór/KA lagði Breiðablik 2-0 í síðasta deildarleik og er í fjórða sæti deildarinnar með 22 stig en GRV er tíu stigum neðar í ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-sigradi-ka-i-dramatiskum-vigsluleik-a-nyjum-thorsvelli
Þór sigraði KA í dramatískum vígsluleik á nýjum Þórsvelli Þór hafði betur í nágrannaslagnum gegn KA er liðin mættust í vígsluleik á nýja Þórsvellinum í 1. deild karla í knattspyrnu í kvöld, þar sem sigurmarkið kom á lokamínútu leiksins. Þórsarar komust í 2-0 eftir 24. mínútna leik með mörkum frá þeim Matthíasi Erni Fri...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/heimsins-fyrsta-swing-og-lindy-hop-hatidin-haldin-i-olafsfirdi
Heimsins fyrsta Swing og Lindy hop hátíðin haldin í Ólafsfirði Heimsins fyrsta Swing og Lindy hop hátíðin verður haldin í Tjarnarborg Ólafsfirði helgina 7.-8. ágúst nk. "Forsagan er sú að fyrir um hálfu ári síðan hafði samband við mig maður að nafni Hakan Duran frá Tyrklandi sem búsettur er í Reykjavík. Hann er formaðu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjolbreytt-dagskra-i-tengslum-vid-listasumar-a-akureyri
Fjölbreytt dagskrá í tengslum við Listasumar á Akureyri Að vanda verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá í tengslum við Listasumar á Akureyri næstu daga. Hljómsveitin Trúnó með Tómasi R. Einarssyni og Ragnheiði Gröndal spilar á Heitum fimmtudegi í Ketilhúsinu 23. júlí kl. 21.30. Auk Tómasar og Ragnheiðar leika Davíð Þór...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stefan-karel-a-landslidsaefingar
Stefán Karel á landsliðsæfingar Stefán Karel Torfason, körfuboltamaður hjá Þór, hefur verið valinn til æfinga með U16 ára drengjalandsliðið Íslands í körfubolta. Æfingarnar fara fram í DHL höll KR- inga um helgina en alls voru 27 drengir boðaðir til æfinga.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/torfaera-steingrimur-og-hafsteinn-sigurvegarar
Torfæra: Steingrímur og Hafsteinn sigurvegarar Lokaumferðir Íslandsmótsins í torfæru fóru fram um helgina í malarkrúsunum í Kollafirði. Það voru þeir Steingrímur Bjarnason í flokki götubíla og Hafsteinn Þorvaldsson í flokki sérútbúinna bíla sem stóðu uppi sem Íslandsmeistarar í torfæru árið 2009. Báðir keppa þeir fyrir...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/storleikur-i-fotbolta-a-nyja-ithrottasvaedi-thors-i-kvold
Stórleikur í fótbolta á nýja íþróttasvæði Þórs í kvöld Það verður sannkallaður stórleikur í kvöld þegar Þór tekur á móti grönnum sínum í KA á nýja íþróttasvæði Þórs við Hamar, í 1. deild karla í knattspyrnu. Fyrir leikinn munar fimm stigum á liðunum, KA er í fjórða sæti með 20 stig en Þór í áttunda sæti með 15 stig. „Þ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/draupnir-steinla-a-saudarkroki
Draupnir steinlá á Sauðárkróki Draupnir sótti ekki gull í greipar þegar liðið sótti Tindastól heim í gærkvöld í 1. deild kvenna í knattspyrnu. Lokatölur á Sauðárkróksvelli urðu 5-0 sigur Tindastóls. Eftir leikina er Draupnir í 5. sæti riðilsins með sjö stig eftir átta leiki.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/motorhjolamenn-gera-ser-dagamun-a-akureyri
Mótorhjólamenn gera sér dagamun á Akureyri Um helgina fara fram hjóladagar á Akureyri þar sem mótorhjólamenn víðast hvar af landinu koma saman og gera sér dagamun. Þetta er fjórða árið sem hátíðin fer fram og er hún haldin á vegum Mótorhjólasafns Íslands. Hátíðin verður sett annað kvöld, föstudag, þar sem m.a. verður g...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gudmundur-baud-laegst-i-hafnar-framkvaemdir-i-grimsey
Guðmundur bauð lægst í hafnar- framkvæmdir í Grímsey Guðmundur K. Guðlaugsson á Dalvík, átti lægsta tilboð í verkið; harðviðarbryggja og skutaðstaða í Grímsey en tilboð voru opnuð í morgun. Tilboð Guðmundar hljóðaði upp á rúmar 16,6 milljónir króna, eða um 65% af kostnaðaráætlun en alls bárust fjögur tilboð í verkið. K...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/messa-a-thonglabakka-i-fjordum-a-sunnudag
Messa á Þönglabakka í Fjörðum á sunnudag Áhugahópur um gönguferðir og helgihald á Þönglabakka boðar til messu sunnudaginn 26. júlí nk. kl. 14.00. Messað verður undir berum himni á grunni Þönglabakkakirkju. Byggð í Fjörðum lagðist af 1944 og kirkjan var tekin ofan. Þau sem vilja koma til messu geta ekið sem leið liggur ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oddur-med-fjogur-mork-i-sigri-islands
Oddur með fjögur mörk í sigri Íslands Oddur Grétarsson, leikmaður Akureyri Handboltafélags, skoraði fjögur mörk fyrir Ísland er liði lagði Púertó Ríkó að velli, 35-23, í fyrsta leik sínum á Heimsmeistaramóti U19 ára landsliða karla í handbolta sem fram fer í Túnis þessa dagana. Ísland leikur seinna í dag gegn Frökkum.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tveir-teknir-fyrir-fikniefnaakstur-a-akureyri
Tveir teknir fyrir fíkniefnaakstur á Akureyri Lögreglan á Akureyri stöðvaði tvo ökumenn í gærkvöld grunaða um fíkniefnaakstur. Þann fyrri stöðvuðu þeir um áttaleytið og þann seinni tæplega klukkustund síðar. Mennirnir, sem eru báðir á þrítugsaldri, voru teknir úr umferð og færðir til yfirheyrslu. Þá voru einnig tveir a...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thjalfari-og-tveir-leikmenn-skrifa-undir-samninga-vid-ah
Þjálfari og tveir leikmenn skrifa undir samninga við AH Akureyri Handboltafélag heldur áfram að styrkja lið sitt fyrir komandi leiktíð. Þeir Jónatan Þór Magnússon fyrirliði liðsins og Rúnar Sigtryggsson þjálfari, endurnýjuðu báðir samninga sína við félagið í dag. Þá skrifaði Heimir Örn Árnason einnig undir samning við ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eldur-i-ibud-i-adalstraeti-a-akureyri
Eldur í íbúð í Aðalstræti á Akureyri Slökkviliðið á Akureyri var kallað út á fjórða tímanum í dag, er tilkynnt var um reyk í húsinu að Aðalstræti 13. Fjölmargir slökkviliðsmenn eru á staðnum og eru þeir byrjaðir að rífa klæðingu hússins, sem er bárujárnsklætt timburhús. Í húsinu eru tvær íbúðir og var íbúðin sem elduri...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/draupnir-lagdi-ia-a-utivelli
Draupnir lagði ÍA á útivelli Draupnir bar sigurorð á ÍA er liðin áttust við á Akranesvelli í B- riðli 1. deildar kvenna í knattspyrnu í gær. Lokatölur leiksins urðu 2-1 sigur Draupnis. Rakel Óla Sigmundsdóttir skoraði bæði mörk Draupnis í leiknum en Karítas Hrafns Elvarsdóttir skoraði mark ÍA. Eftir leikinn er Draupnir...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyringar-fjolmennir-i-landslidshopunum-a-skidum
Akureyringar fjölmennir í landsliðshópunum á skíðum Valið hefur verið í landsliðshópa SKÍ fyrir veturinn 2009-2010. Valið var í karla- og kvennalið, tvo unglingahópa í alpagreinum og í A- landslið í skíðagöngu. Skíðafélag Akureyrar (SKA) á fjölmarga fulltrúa í landsliðshópunum. Í karlalandsliðið voru valdir þeir Björgv...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/urslit-landsmotsins-i-golfi-35-ara-og-eldri
Úrslit Landsmótsins í golfi 35 ára og eldri Landsmót 35 ára og eldri í golfi fór fram á Jaðarsvelli Golfklúbbs Akureyrar um síðastliðna helgi. Alls tóku 189 manns þátt í mótinu og var keppt í fjórum flokkum karla og þremur flokkum kvenna. Í fyrsta flokki karla sigraði Arnar Sigurbjörnsson og í fyrsta flokki kvenna var ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/magni-tapadi-thridja-leiknum-i-rod
Magni tapaði þriðja leiknum í röð Magni tapaði sínum þriðja leik í röð í 2. deild karla í knattspyrnu er félagið beið ósigur á heimavelli gegn liði Hamars sl. föstudag. Lokatölur á Grenivíkurvelli urðu 2-1 sigur Hamars. Mark Magna í leiknum skoraði Símon Símonarsson en þeir Jón Kári Ívarsson og Kristinn Ingi Halldórsso...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jon-a-nafnaveidum-vegna-sogu-akureyrar
Jón á nafnaveiðum vegna Sögu Akureyrar Jón Hjaltason leggur nú lokahönd á ritun 5. bindis Sögu Akureyrar. Undanfarna mánuði hefur hann verið á nafnaveiðum og orðið vel ágengt en skortir þó enn fáein nöfn. Vikudagur vill hlaupa undir bagga með söguritara og birta myndir í næstu tölublöðum með ósk um að menn snúi sér til...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/verulegt-rekstrartap-hja-buseta-a-akureyri-i-fyrra
Verulegt rekstrartap hjá Búseta á Akureyri í fyrra Verulegt rekstrartap varð hjá Búseta á Akureyri á síðasta ári, sem gengur á efnahag félagsins. Félagið hefur nýtt sér frystingu lána hjá Íbúðalánasjóði til að takast á við tímabundna erfiðleika í rekstri og einstaklingum sem hafa misst vinnu/tekjur hefur boðist að grei...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-sigradi-ia-a-skaganum
Þór sigraði ÍA á Skaganum Þór vann sinn þriðja leik í röð í 1. deild karla í knattspyrnu er liðið lagði ÍA að velli í dag. Ívar Haukur Sævarsson kom ÍA yfir í leiknum en Þór svaraði með tveimur mörkum frá þeim Ármanni Pétri Ævarssyni og Aleksandar Linta. Lokatölur á Akranesvelli 2-1 sigur Þórs, sem eftir sigurinn eru k...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-lagdi-topplidid-ad-velli
KA lagði toppliðið að velli KA gerði sér lítið fyrir og lagði topplið Selfoss að velli, 2-0, er liðin mættust á Akureyrarvelli í dag í 12. umferð 1. deildar karla í knattspyrnu. Það voru þeir Bjarni Pálmason og David Disztl sem skoruðu mörk KA- manna í leiknum. Gestirnir frá Selfossi fengu nánast ekkert færi í leiknum ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aformum-um-ad-radast-i-gerd-vadlaheidarganga-fagnad
Áformum um að ráðast í gerð Vaðlaheiðarganga fagnað Stjórn Eyþings hefur samþykkt ályktun, þar sem áformum um að ráðast í gerð Vaðlaheiðarganga er fagnað og er samgönguráðherra hvattur til að standa fast við þau áform. Í minnisblaði með nýgerðum stöðugleikasáttmála ríkisstjórnarinnar og aðila vinnumarkaðarins eru lista...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-maetir-topplidi-selfoss-i-dag
KA mætir toppliði Selfoss í dag KA fær Selfoss í heimsókn í dag er liðin mætast á Akureyrarvelli í 1. deild karla í knattspyrnu. Selfoss er á toppi deildarinnar með 26 stig en KA er í sjötta sæti með 17 stig. Það er því gríðarlega mikilvægt fyrir KA að ná hagstæðum úrslitum úr leiknum í dag, ætli liðið sér ekki dragast...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikil-sala-a-bilum-og-ferdataekjum-a-akureyri
Mikil sala á bílum og ferðatækjum á Akureyri Sala á bílum og ferðatækjum hefur gengið vonum framar á bílasölum á Akureyri það sem af er sumri, eftir niðursveiflu sl. vetur. „Salan hefur verið mjög góð hjá okkur í notuðum bílum og það er mikið líf," segir Haukur Ármannsson hjá Toyota Akureyri. „Þetta er svona að verða l...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ny-gjaldskra-fyrir-heima-thjonustu-a-akureyri
Ný gjaldskrá fyrir heima- þjónustu á Akureyri Félagsmálaráð Akureyrar hefur samþykkt tillögu að nýrri gjaldskrá fyrir heimaþjónustu og vísað henni til bæjarráðs. Um er að ræða breytingu bæði á gjaldi og uppbyggingu gjaldskrárinnar. Tekjutenging er að mestu afnumin en eftir sem áður eru þeir undanþegnir gjaldi sem eingö...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/midaldadagar-ad-gasum
Miðaldadagar að Gásum Hinn forni Gásakaupstaður vaknar til lífsins næstu daga en frá 18.-21. júlí nk. verða þar haldnir miðaldadagar, undir yfirskriftinni; Ferð inní fortíðina. Opið verður frá kl. 11-17 á morgun laugardag og á sunnudag og frá kl. 12-16 mánudag og þriðjudag. Gásir eru 11 km fyrir norðan Akureyri, við Hö...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bestu-hestar-og-knapar-landsins-keppa-a-akureyri
Bestu hestar og knapar landsins keppa á Akureyri Íslandsmótið í hestaíþróttum fer fram þessa dagana á Hlíðarholtsvelli í Lögmannshlíð, á svæði Hestamannafélagsins Léttis á Akureyri. Keppnin hófst í gærmorgun, er fram haldið í dag en mótinu lýkur svo um miðjan dag á morgun laugardag. Margir bestu knapar og gæðingar land...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/city-bus-sightseeing-nyjung-i-ferdathjonustu-a-akureyri
City Bus Sightseeing - nýjung í ferðaþjónustu á Akureyri Ferðalöngum á Akureyri gefst nú sá kostur að skoða bæinn með CITY BUS Sightseeing. Um er að ræða sex vikna tilraunaverkefni og er hugmyndin fyrst og fremst að veita þeim ferðamönnum skemmtiferðaskipanna sem ekki fara austur fyrir fjall nýjan valkost en öðrum ferð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/arna-sif-skoradi-i-tapleik-islands
Arna Sif skoraði í tapleik Íslands Arna Sif Ásgrímsdóttir, Þór/KA, skoraði mark Íslands í tapleiknum gegn Svíum á Evrópumeistaramóti U19 ára landsliða kvenna í knattspyrnu sem fram fer í Hvíta- Rússlandi. Arna Sif og Silvía Rán Sigurðardóttir voru báðar í byrjunarliði íslenska liðsins. Mark Íslands kom undir lok fyrri ...