Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjolsmidjan-faer-thriggja-milljona-krona-rekstrarstyrk
Fjölsmiðjan fær þriggja milljóna króna rekstrarstyrk Á fundi félagsmálaráðs í vikuni var samþykkt að veita Fjölsmiðjunni á Akureyri þriggja milljóna króna rekstrarstyrk fyrir árið 2009. Fjölsmiðjan er atvinnutengt úrræði fyrir ungt fólk á krossgötum, sem hefur flosnað upp úr námi eða vinnu. Í Fjölsmiðjunni er ungmennum...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/korfubolti-sex-yfirgefa-thor
Körfubolti: Sex yfirgefa Þór Það verður ansi breytt lið hjá Þór sem mætir til leiks þegar 1. deild karla í körfubolta hefst í haust, en alls hafa sex leikmenn yfirgefið félagið í sumar. Þessir leikmenn eru Konrad Tota, Cedric Isom, Guðmundur Jónsson, Jón Orri Kristjánsson, Óðinn Ásgeirsson og Hrafn Jóhannesson. Tveir u...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrsti-golfvollurinn-i-thingeyjarsveit-formlega-vigdur
Fyrsti golfvöllurinn í Þingeyjarsveit formlega vígður Nýr og glæsilegur golfvöllur, Lundsvöllur, var formlega vígður sl. laugardag, að viðstöddu fjöllmenni. Völlurinn, sem er 9 holur og par 34, er við suðurjaðar Vaglaskógar, staðsettur á milli Vaglaskógar og Lundsskógar og þangað er um 30 mínútna akstur frá Akureyri. L...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tolf-sottu-um-stodu-fiskistofustjora
Tólf sóttu um stöðu fiskistofustjóra Tólf sóttu um stöðu fiskistofustjóra en umsóknarfrestur rann út síðastliðinn fimmtudag. Þrír fyrrverandi þingmenn eru meðal umsækjenda, þau sjálfstæðismaðurinn Arnbjörg Sveinsdóttir, framsóknarmaðurinn Magnús Stefánsson og Sigurjón Þórðarson fyrrverandi þingmaður Frjálslynda flokksi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nytt-hreinsivirki-afhent-fraveitu-lonsbakka
Nýtt hreinsivirki afhent fráveitu Lónsbakka Fyrr í þessum mánuði afhenti Raf ehf. fráveitu Lónsbakka formlega nýtt hreinsivirki fyrir siturvatn frá rotþró fráveitunnar. Hreinsivirkið byggir á nýrri umhverfisvænni aðferð. Hún felst í því að ósón er framleitt á staðnum með rafgreiningu lofts og því er síðan sprautað í ge...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/em-i-finnlandi-island-hefur-leik-i-dag
EM í Finnlandi: Ísland hefur leik í dag Í dag fer fram fyrsti leikur íslenska kvennalandsliðsins á Evrópumeistarmótinu í knattspyrnu, sem haldið er í Finnlandi, þegar Ísland mætir Frökkum á Tampere- leikvanginum. Akureyringar eiga sinn fulltrúa í liðinu en Rakel Hönnudóttir, fyrirliði Þórs/KA, er meðal 22 leikmanna ísl...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ljosmyndasamkeppni-a-akureyrarvoku
Ljósmyndasamkeppni á Akureyrarvöku Á föstudaginn verður Akureyrarvaka sett í Lystigarðinum á Akureyri og stendur hún yfir fram á miðnætti laugardaginn 29. ágúst. Dagskráin er afar fjölbreytt og víða stigið niður fæti þar sem allir ættu að finna eitthvað sem vekur áhuga. Meðal nýjunga er ljósmyndasamkeppni þar sem allir...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/magni-tveimur-stigum-fra-fallsaeti
Magni tveimur stigum frá fallsæti Magni frá Grenivík er aðeins tveimur stigum frá fallsæti í 2. deild karla í knattspyrnu þegar fjórar umferðir eru eftir í deildinni, eftir tap gegn Njarðvík á heimavelli sl. laugardag. Lokatölur á Grenivíkurvelli urðu 3-1 sigur Njarðvíks, þar sem þrjú af fjórum mörkum leiksins komu úr ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/steinn-theyttist-af-miklu-afli-i-utidyrahurdina
Steinn þeyttist af miklu afli í útidyrahurðina Mikil mildi þykir að ekki varð alvarlegt slys þegar tæplega hálfs kg steinn þeyttist í útidyrahurðina á heimili hjónanna Guðmundar Jóhannssonar og Ingibjargar Þórarinsdóttur, að Hörpulundi 1 á Akureyri nýlga. Höggið var gríðarlega þungt og Ingibjörg, sem var heimavið, fann...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-i-odru-saeti-a-islandsmotinu-i-4-flokki
Þór í öðru sæti á Íslandsmótinu í 4. flokki Úrslitakeppnin á Íslandsmótinu í knattspyrnu hjá 4. flokki karla fór fram um helgina á Þórsvellinum. Þau lið sem kepptu til úrslita voru að auki heimanna í Þór, Hruni, Víðir og UMFL. Lið Hruna stóð uppi sem sigurvegari, Þórsarar lentu í öðru sæti á mótinu og Víðir hafnaði í þ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/islenskt-handverk-og-vorur-ur-riki-islenskrar-natturu
Íslenskt handverk og vörur úr ríki íslenskrar náttúru Nú er verið að stofna umboðsverslun á Netinu undir heitinu "Litlu búðirnar." Verslunin mun sérhæfa sig í viðskiptum með íslenskt handverk og náttúruvörur. Í Litlu búðunum verða m.a. á boðstólum peysur, húfur, nytjahlutir, smyrsl, korn, listmunir og fjölmargt fleira....
https://www.vikubladid.is/is/frettir/framleidslurettur-i-mjolk-skerdist-um-3-a-komandi-kvotaari
Framleiðsluréttur í mjólk skerðist um 3% á komandi kvótaári Nýtt kvótaár hefst hjá mjólkurframleiðendum nú um komandi mánaðamót, 1. september og verður það óvenjulangt, til ársloka 2010 eða í 16 mánuði. Það er í samræmi við breytingar á búvörusamningi sem gerður var fyrr á árinu. Framleiðsluréttur skerðist um tæplega 3...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyringar-farnir-ad-huga-ad-uppskeru-sinni-i-matjurtargordunum
Akureyringar farnir að huga að uppskeru sinni í matjurtargörðunum Bæjarbúar sýndu því mikinn áhuga á því að rækta "garðinn sinn" í sumar. Akureyrarbær auglýsti sl. vetur matjurtagarða til leigu, þar sem bæjarbúar gætu ræktað sitt eigið grænmeti og kartöflur. Boðið var upp á um 100 garða, af tveimur stærðum til leigu vi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tap-hja-ka-og-thor-i-dag
Tap hjá KA og Þór í dag Akureyrarliðin KA og Þór máttu bæði sætta sig við tap í dag í 18. umferð 1. deildar karla í knattspyrnu. KA tapaði á heimavelli gegn ÍA með einu marki gegn engu. Ólafur Valur Valdimarsson skoraði eina mark leiksins fyrir ÍA. Á sama tíma tapaði Þór á útivelli gegn Víkingi frá Ólafsvík. Lokatölur ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vidtokur-a-murr-gaeludyrafodri-hafa-verid-mjog-godar
Viðtökur á Murr gæludýrafóðri hafa verið mjög góðar Viðtökur á framleiðslu á blautfóðri fyrir ketti og smáhunda sem framleitt er alfarið úr íslensku hráefni hafa verið góðar, en fyrirtækið Murr ehf. á Súðavík hóf nýlega framleiðslu á slíku fóðri. Akureyringurinn Þorleifur Ágústsson dýralífeðlisfræðingur er einn eigenda...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-og-thor-i-eldlinunni-i-dag
KA og Þór í eldlínunni í dag KA og Þór leika bæði í dag í 18. umferð 1. deildar karla í knattspyrnu. KA fær ÍA í heimsókn á Akureyrarvöll en ÍA er í harðri botnbaráttu í deildinni. KA- menn hafa hinsvegar lítið upp á annað en stoltið að spila eftir að hafa misst af toppbaráttunni í deildinni og sæti í efstu deild að ár...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/atvinnulausum-faekkar-um-60-milli-manada
Atvinnulausum fækkar um 60 milli mánaða Alls eru um 940 manns á atvinnuleysisskrá á Norðurlandi eystra og fækkar atvinnulausum á skrá um 60 milli júní og júlí mánaðar sem þá vorum um þúsund, samkvæmt nýrri skýrslu frá Vinnumálastofnun. Atvinnuleysið hefur verið svipað í allt sumar eða í kringum sex prósent. „Ástandið e...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oskad-eftir-abendingum-um-godan-arangur-i-fegrun-og-hirdingu-baejarins
Óskað eftir ábendingum um góðan árangur í fegrun og hirðingu bæjarins Framkvæmdadeild Akureyrarbæjar óskar eftir ábendingum frá bæjarbúum um góðan árangur í fegrun og hirðingu bæjarins. Á Akureyrarvöku, þann 28. ágúst, mun Hermann Jón Tómasson bæjarstjóri veita viðurkenningar fyrir góðan árangur í fjórum flokkum. Viður...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/staersta-tromlujardgerdarstod-i-evropu-tekin-til-starfa-i-eyjafirdi
Stærsta tromlujarðgerðarstöð í Evrópu tekin til starfa í Eyjafirði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og fyrsti þingmaður Norðausturkjördæmis ræsti nýja jarðgerðarstöð Moltu hf. formlega í dag, að viðstöddu fjölmenni. Stöðinni er ætlað að taka á móti lífrænum úrgangi af Eyjafjarðarsvæðinu og úr Þingeyjarsýslu. ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/orrustuthotur-sveima-yfir-akureyrarflugvelli
Orrustuþotur sveima yfir Akureyrarflugvelli Í gær og í dag hafa bandarískar orrustuþotur sveimað yfir Akureyrarflugvelli í svokölluðum aðflugsæfingum. Samkvæmt Varnarmálastofnun eru umræddar æfingar venjubundinn hluti af hinni svökölluðu loftrýmisgæslu Nató. Gjörningurinn er ekki geðslegri fyrir það að hann sé bundinn ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/brjostahold-koma-umtalsvert-vid-sogu-a-akureyrarvoku
Brjóstahöld koma umtalsvert við sögu á Akureyrarvöku Brjóstahöld koma umtalsvert við sögu á Akureyrarvöku því Saumakompan, saumastofa nokkur hér í bæ kallar eftir brjóstahöldum af öllum stærðum og gerðum. Brjóstahöld eru ekki bara huggulegur klæðnaður sem heillað hefur konur um aldir alda heldur hafa þeir því hlutverki...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/um-2600-nemendur-i-grunn-skolum-akureyrarbaejar-i-vetur
Um 2600 nemendur í grunn- skólum Akureyrarbæjar í vetur Vetrarstarf hefst í grunnskólum Akureyrarbæjar eftir helgi, mánudaginn 24. Ágúst og eru alls 2.586 nemendur skráðir í grunnskóla bæjarins, örlítið fleiri en var í fyrrahaust. Þar af eru 264 nemendur í 1. bekk að stíga sín fyrstu skref í grunnskóla. Lundarskóli ver...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skolastarf-i-verkmennta-skolanum-a-akureyri-hofst-i-dag
Skólastarf í Verkmennta- skólanum á Akureyri hófst í dag Haustönnin hjá Verkmenntaskólanum á Akureyri hófst í dag með afhendingu stundataflna en kl. 8.30 í fyrramálið verður fundur með nýnemum og kl. 9.55 hefst kennsla samkvæmt stundaskrá. Á fundi starfsfólks kom fram hjá skólameistara að 1380 nemendur hefðu þegar veri...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/husnaedi-vaxtarraektarinnar-a-akureyri-til-solu
Húsnæði Vaxtarræktarinnar á Akureyri til sölu Fasteignin Skólastígur 4, nýtt húsnæði sem byggt var undir Vaxtarræktina á lóð Sundlaugar Akureyrar, er nú til sölu og er óskað eftir tilboðum í bygginguna. Fasteignamat hússins er rúmar 147 milljónir króna. Þar sem byggingin er enn ófrágengin að innan er ekki komið brunabó...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/deildastjori-vinni-ad-samthaettingu-grunn-og-leikskola
Deildastjóri vinni að samþættingu grunn- og leikskóla Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum í vikunni að ráða deildarstjóra til 31. júlí 2010, vegna vinnu við samþættingu grunn- og leikskóla Hrafnagilsskóla. Vinna við samþættingu skólanna skal taka mið af framkvæmdaáætlun sem samþykkt var af skólanef...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baejarrad-akureyrar-og-sjova-i-verkefni-um-nagrannavorslu
Bæjarráð Akureyrar og Sjóvá í verkefni um nágrannavörslu Á fundi bæjarráðs Akureyrar í morgun var lagður fram tölvupóstur frá Fjólu Guðjónsdóttur f.h. Sjóvá, þar sem fram kemur að Sjóvá hafi áhuga á að afhenda íbúum Akureyrarbæjar svokallaðan verkfærakassa sem inniheldur leiðbeiningar um hvernig hefja á nágrannavörslu....
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sjukraflutningaskolinn-med-endurlifgunarnamskeid-i-palestinu
Sjúkraflutningaskólinn með endurlífgunarnámskeið í Palestínu Sjúkraflutningaskólinn í samstarfi við Rauða kross Íslands hefur tekið að sér að vera með námskeið í sérhæfðri endurlífgun II fyrir sjúkraflutningamenn, hjúkrunarfræðinga og lækna í Palestínu. Er þetta fyrsti áfanginn í því að koma þessari menntun til skila á...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/utlit-fyrir-ad-rekstur-skolamotu-neytanna-standist-aaetlun
Útlit fyrir að rekstur skólamötu- neytanna standist áætlun Á fundi skólanefndar Akureyrar í vikunni var farið var yfir rekstrarstöðu skólamötuneyta miðað við fyrri hluta ársins og útgönguspá fyrir árið. Fram kom að útlit er fyrir að rekstur skólamötuneytanna standist áætlun ársins 2009. Þá lá fyrir fundinum tillaga um ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gengid-um-eydibyggdir-thegjandadals-i-adaldal
Gengið um eyðibyggðir Þegjandadals í Aðaldal Hið þingeyska fornleifafélag og Fornleifastofnun Íslands stóðu á dögunum fyrir gönguferðum fram á Þegjandadal í Aðaldal. Farnar voru tvær ferðir sú fyrri 8. ágúst og sú síðari 12. ágúst. Gengið var fram að Ingiríðarstöðum þar sem fornleifafræðingar hafa verið að stöfum í sum...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skolar-geri-vidbragdsaaetlun-vegna-influensufaraldurs
Skólar geri viðbragðsáætlun vegna inflúensufaraldurs Á fundi skólanefndar Akureyrar í vikunni, var tekið fyrir erindi frá menntamálaráðuneytinu þar sem tilkynnt er um undirbúning viðbragðsáætlana vegna inflúensufaraldurs. Ýmsar upplýsingar um heimsfaraldur inflúensu er að finna á http://www.influensa.is og http://www.a...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/undirbuningur-fyrir-akureyrar-voku-stendur-sem-haest
Undirbúningur fyrir Akureyrar- vöku stendur sem hæst Undirbúningur fyrir Akureyrarvöku sem haldin er 28. og 29. ágúst stendur sem hæst og er í mörg horn að líta fyrir Guðrúnu Þórsdóttur verkefnisstýru Akureyrarvöku sem heldur utan um dagskrána með aðstoð Akureyrarstofu. Dagskráin er farin að taka á sig mynd og gætir ým...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/landsmonnum-faekkar-en-akureyringum-fjolgar
Landsmönnum fækkar en Akureyringum fjölgar Samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár voru landsmenn 319.246 hinn 1. júlí sl., en þeir voru 319.355 fyrir ári. Þetta jafngildir því að íbúum á landinu hafi fækkað um 109 á einu ári eða um 0,03%. Langt er síðan íbúum Íslands fækkaði milli ára en það átti sér síðast stað árið 1889. Akurey...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aga-og-urskurdarnefnd-ksi-einar-sigthorsson-i-tveggja-leikja-bann
Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ: Einar Sigþórsson í tveggja leikja bann Einar Sigþórsson leikmaður Þórs, var úrskurðaður í tveggja leikja bann af Aga- og Úrskurðarnefnd KSÍ. Einar fékk beint rautt spjald í tapleik Þórs gegn HK á dögunum og missti af sigurleiknum gegn Selfyssingum í gær í kjölfarið. Einar mun einnig missa af...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-hnatumeistarar
KA Hnátumeistarar Stúlkurnar úr A- liði KA í sjötta flokki sigruðu á Hnátumóti KSÍ fyrir Norður- og Austurland sem fram fór á Egilstöðum um helgina. Stúlkurnar unnu alla sína leiki á mótinu nokkuð örugglega en alls tóku sex lið þátt á mótinu. Þá hafnaði B- lið KA í þriðja sæti mótsins.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-lagdi-topplid-selfoss-ad-velli-ka-tapadi-a-asvollum
Þór lagði topplið Selfoss að velli- KA tapaði á Ásvöllum Þór gerði sér lítið fyrir og lagði topplið Selfoss að velli, 1-0, er liðin mættust í kvöld á Þórsvellinum í 1. deild karla í knattspyrnu. Það var Hreinn Hringsson sem skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu á 24. mínútu leiksins. KA þurfti að sætta sig við tap g...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/godur-gangur-i-rannsokn-a-ofbeldis-og-frelsissviptingarmali
Góður gangur í rannsókn á ofbeldis- og frelsissviptingarmáli Rannsókn lögreglu á ofbeldis- og frelsissviptingarmáli sem upp kom á Akureyri í síðastliðinni viku gengur vel. Lögregla hefur lagt mikinn kraft í rannsóknina og liggur nú fyrir greinargóð mynd af atburðum. Síðan málið kom upp hafa starfað sleitulaust að henni...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leikskolinn-naustatjorn-opnar-deild-i-naustaskola
Leikskólinn Naustatjörn opnar deild í Naustaskóla Leikskólinn Naustatjörn opnaði fimmtu deildina sína í dag, á sex ára afmælisdegi leikskólans. Þetta er deild sem er aðeins með elstu börnum skólans, fædd 2004, og hún er staðsett í Naustaskóla. Fyrstu nemendur Naustaskóla eru því leikskólakrakkar sem verða grunnskólakra...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjorar-frumsyningar-hja-leikfelagi-akureyrar-i-vetur
Fjórar frumsýningar hjá Leikfélagi Akureyrar í vetur Leikfélag Akureyrar frumsýnir fjögur leikrit á komandi leikári og verður fyrsta frumsýningin í Rýminu þann 9. október nk. Þá verður leikritið; Lilja, eftir Jón Gunnar Þórðarson frumsýnt en verkið er lauslega byggt á þekktri kvikmynd Lukas Moodyssons, Lilya 4 ever, se...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/draupnir-lauk-leik-i-fimmta-saeti
Draupnir lauk leik í fimmta sæti Draupnisstelpur töpuðu stórt gegn FH í lokaleik sínum í B- riðli 1. deildar kvenna í knattspyrnu, er liðin mættust í Boganum sl. sunnudag. FH sigraði örugglega í leiknum með átta mörkum gegnu einu. Það var Katrín Vilhjálmsdóttir sem skoraði mark Draupnis í leiknum. Draupnir hafnaði í fi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tillaga-ad-breytingu-a-deiliskipu-lagi-voru-og-fiskihafnar-verdi-samthykkt
Tillaga að breytingu á deiliskipu- lagi Vöru- og fiskihafnar verði samþykkt Skipulagsnefnd Akureyrar samþykkti á síðasta fundi sínum að leggja til við bæjarstjórn að tillaga að breytingu á deiliskipulagi Vöru- og fiskihafnar á Oddeyri verði samþykkt. Breytingin felst í að hafnarsvæði er stækkað til vesturs við Strandgö...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/einar-logi-til-danmerkur
Einar Logi til Danmerkur Akureyringurinn og handboltaskyttan, Einar Logi Friðjónsson, hefur skrifað undir tveggja ára samning við danska handknattleiksfélagið , Ribe- Esbjerg HH, sem leikur í næstefstu deild í Danmörku en frá þessu er greint á handboltavefnum, haanbold.com, í morgun. Einar Logi er uppalinn KA- maður og...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-maetir-topplidinu-i-kvold-sex-stiga-leikur-a-asvollum
Þór mætir toppliðinu í kvöld- Sex stiga leikur á Ásvöllum Það eru erfið verkefni sem bíða Akureyrarliðanna, Þórs og KA í kvöld, þegar 17. umferð 1. deildar karla í knattspyrnu fer af stað. Þór fær topplið Selfoss í heimsókn en KA sækir Hauka heim að Ásvöllum en Haukar eru í öðru sæti deildarinnar. Eftir stórt tap gegn ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aaetlun-um-laekkun-umferdarhrada-i-ibudarhverfum
Áætlun um lækkun umferðarhraða í íbúðarhverfum Skipulagsstjóri Akureyrar í samvinnu við framkvæmdadeild lagði fram á síðasta fundi skipulagsnefndar, tillögu um að næstu hverfi, sem gerð verði að 30 km hverfi, verði Giljahverfi, Síðuhverfi, Háskólasvæðið (Norðurslóð), Gerðahverfi II, Lundahverfi, Teigahverfi og Suður-Br...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/adsokn-ad-idnadarsafninu-a-akureyri-aukist-um-30
Aðsókn að Iðnaðarsafninu á Akureyri aukist um 30% "Það er mjög gott hljóðið í okkur þessa dagana," segir Arndís Bergsdóttir safnstjóri Iðnaðarsafnsins um aðsókn að safninu í sumar. "Það var um 30% aukning í gestafjölda núna í júlí miðað við sama mánuð í fyrra og ég held að við getum mjög vel við það unað," sagir hún. E...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jafnt-hja-dalvikreyni-tap-hja-draupni
Jafnt hjá Dalvík/Reyni- Tap hjá Draupni Dalvík/Reynir og Völsungur gerðu 1-1 jafntefli á Dalvíkurvelli í næstsíðustu umferð D- riðils 3. deildar karla í knattspyrnu sl. laugardag. Mark Dalvíkur/Reynis í leiknum skoraði Gunnar Már Magnússon en Kristján G. Óskarsson skoraði fyrir Völsung. Í sama riðli tók Draupnir á móti...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-pollameistari-i-sjotta-flokki
Þór Pollameistari í sjötta flokki Pollamót KSÍ fyrir Norður- og Austurland fór fram á Akureyri um sl. helgi en þar kepptu drengir í sjötta flokki í knattspyrnu í flokki A- og B- liða. Alls tóku fimm lið þátt á mótinu og voru allir leikir spilaðir á KA- vellinum. Strákarnir í Þór gerðu sér lítið fyrir og sigruðu í öllum...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/verdlaun-veitt-fyrir-hugmyndir-um-sparnad-hja-akureyrarbae
Verðlaun veitt fyrir hugmyndir um sparnað hjá Akureyrarbæ Snemma í vor var auglýst eftir hugmyndum starfsmanna hjá Akureyrarbæ um lækkun kostnaðar í rekstri sveitarfélagsins. Tekið var fram að hugmyndirnar mættu ná til allra rekstrarþátta í starfseminni hvort sem um væri að ræða laun eða önnur rekstrargjöld. Bæjarstjór...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/frabaer-arangur-umse-a-mi
Frábær árangur UMSE á MÍ Lið UMSE varð stigahæsta félagið á Meistaramóti Íslands 11- 14 ára í frjálsum íþróttum sem haldið var um helgina á Höfn í Hornarfirði. Félagið hlaut alls 489,3 stig á mótinu og sigraði með afgerandi hætti en alls kepptu 29 krakkar frá UMSE á mótinu. Einnig urðu 11 ára stelpur og 12 ára stelpur ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/braust-inn-i-ibudarhus-og-let-husradanda-vita
Braust inn í íbúðarhús og lét húsráðanda vita Maður sem braust inn í íbúðarhús við Bogasíðu á Akureyri sl. föstudag, reyndi nýja og frumlega leið til þess að beina gruni frá sjálfum sér. Hann brá á það ráð að hringja í húsráðanda íbúðarinnar sem hann hafði brotist inn í og sagðist hafa séð mann fara inn í íbúðina hans ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikilvaegur-sigur-hja-magna
Mikilvægur sigur hjá Magna Magni vann afar mikilvægan sigur á ÍH/HV er liðin mættust á Grenivíkurvelli sl. laugardag í 2. deild karla í knattspyrnu. Lokatölur leiksins urðu 4-2 sigur Magna. Ingvar Gíslason skoraði tvívegis fyrir Magna í leiknum, Frans Veigar Garðarsson gerði eitt mark og fjórða mark Magna var sjálfsmar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/konan-sem-lest-i-bilslysi-i-langadal-var-fra-akureyri
Konan sem lést í bílslysi í Langadal var frá Akureyri Sú sem lést í banaslysinu í Langadal í Húnavatnssýslu s.l. föstudagskvöld hét Margrét Jósefsdóttir til heimilis að Vesturgili 12, Akureyri. Hún var fimmtíu ára og lætur eftir sig eiginmann og uppkomin börn. Tildrög slyssins eru enn í rannsókn.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/arleg-grenivikurgledi-i-fullum-gangi
Árleg Grenivíkurgleði í fullum gangi Hin árlega Grenivíkurgleði hófst á tjaldstæðinu á Grenivík í gær og verður fram haldið þar og víðar í bænum í dag, laugardag. Grenivíkurgleðin er fjölskylduskemmtun sem ætluð er íbúum Grýtubakkahrepps, ættingjum, vinum og vandamönnum. Í ár er gleðin haldin í sjötta sinn og er hún í ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vilja-aukna-adstodu-fyrir-kennslu-og-thjalfun-afreksithrottafolks
Vilja aukna aðstöðu fyrir kennslu og þjálfun afreksíþróttafólks Fyrir síðasta fundi íþróttaráðs Akureyrar lágu minnisblöð frá forsvarsmönnum afrekssviða Verkmenntaskólans á Akureyri og Menntaskólans á Akureyri, þar sem farið er fram á það við Akureyrarbæ að skólarnir fá aukna aðstöðu fyrir kennslu og þjálfun afreksíþró...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/flugbrautarlenging-opnud-1
Flugbrautarlenging opnuð Í dag var lengd flugbraut á Akureyrarflugvelli ásamt nýju aðflugi formlega tekin í notkun. Jafnframt hefur ýmiss aðflugsbúnaður verið endurnýjaður og endurbættur sem eykur öryggi í aðflugi að flugvellinum og stuðlar að enn betri nýtingu á honum. Heildarkostnaður við verkið er um 1,7 milljarðar ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stort-tap-hja-thor-i-kvold
Stórt tap hjá Þór í kvöld Þór tapaði í kvöld fyrir HK er liðin mættust á Kópavogsvelli í 1. deild karla í knattspyrnu. Lokatölur urðu 3-0 sigur HK. Gestirnir í Þór spiluðu síðustu mínútur leiksins einum manni færri þar sem Einar Sigþórsson fékk að líta rauða spjaldið á 73. mínútu leiksins. Mörk heimamanna í leiknum sko...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/iceland-express-fra-akureyri-til-london-1
Iceland Express frá Akureyri til London Iceland Express ætlar að hefja beint áætlunarflug frá Akureyri til London/Gatwick næsta sumar. Fyrst um sinn er gert ráð fyrir vikulegu flugi, á mánudögum. Forstjóri félagsins tilkynnti þetta við opnun nýstækkaðrar flugbrautari á Akureyri nú áðan. “Iceland Express hefur um langt ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-saekir-hk-heim-i-kvold
Þór sækir HK heim í kvöld Þór á erfiðan útileik fyrir höndum í kvöld er liðið sækir HK heim í 1. deild karla í knattspyrnu. Þór vann Víking R. 1-0 á heimavelli sl. föstudag þar sem Kristján Steinn Magnússon skoraði eina mark leiksins fyrir Þór á uppbótartíma. Þórsarar hafa verið á miklu skriði í deildinni eftir frekar ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikilvaegur-sigur-ka-i-kvold
Mikilvægur sigur KA í kvöld KA vann í kvöld nauðsynlegan heimasigur á liði Aftureldingar er liðin mættust á Akureyrarvelli í 1. deild karla í knattspyrnu. Gestirnir komust yfir í leiknum en KA svaraði með tveimur mörkum og unnu að lokum 2-1 sigur. Leikmenn Aftureldingar voru öllu hressari í upphafi leiks og fengu nokku...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/margret-a-sardinelluveidar-vid-marokko
Margrét á sardínelluveiðar við Marokkó Fjölveiðiskip Samherja, Margrét EA, hélt í gærkvöldi af stað til Marokkó í Norður Afríku þar sem skipið mun fara á sardinelluveiðar, en sardinella er fiskur sem um margt svipar til smásíldar. Fiskinum verður landað í Marokkó þar sem hann verður ýmist unninn eða seldur ferskur. “Jú...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/island-sigradi-nordmenn
Ísland sigraði Norðmenn Ísland vann tíu marka sigur á Norðmönnum fyrr í dag í umspili um sæti 13-16 á Heimsmeistaramóti U21 árs landsliða karla í handbolta, sem haldin er í Egyptalandi. Akureyringurinn Oddur Gretarsson var að venju atkvæðamikill fyrir Íslenska liðið og var næstmarkahæsti leikmaður liðsins með fimm mörk...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjogur-tilvik-svinaflensu-a-nordurlandi
Fjögur tilvik svínaflensu á Norðurlandi Á annað hundrað manns hafa greinst með svínaflensuna hér á landi og þar af eru fjórir á Norðurlandi. Þorvaldur Ingvarsson, forstöðumaður lækninga hjá Sjúkrahúsi Akureyrar, segir að þeim sem fái einkenni svínaflensunnar, sé bent á að leita til Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri þa...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/faerri-komast-ad-en-vilja
Færri komast að en vilja Á þriðja hundrað manns var hafnað um skólavist hjá Verkmenntaskólanum á Akureyri fyrir nk. haust. Að sögn skólameistarans, Hjalta Jóns Sveinssonar, er það talsvert meira en verið hefur undanfarin ár og segir Hjalti að skýringin sé sú að skólinn sé einfaldlega fulhlaðinn. Helst er það eldra fólk...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akvordun-um-hradahindranirnar-tekinn-i-haust
Ákvörðun um hraðahindranirnar tekinn í haust Ekki er ennþá búið að taka ákvörðun um það hvort hraðahindranirnar tvær sem settar voru upp í gilinu á Akureyri í sumar munu verða þar áfram. Helgi Már Pálsson, deildarstjóri hjá Akureyrarbæ, segir þá vera að bíða eftir síðustu vikunni í ágúst þegar mesti ferðamannastraumuri...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-tekur-a-moti-aftureldingu-i-kvold
KA tekur á móti Aftureldingu í kvöld Leikið verður á Akureyrarvelli í kvöld þegar KA fær Aftureldingu í heimsókn í 16. umferð 1. deildar karla í knattspyrnu. Eftir góðan útisigur gegn Fjarðabyggð í síðasta leik eiga KA- menn enn möguleika á úrvalsdeildarsæti á næsta ári. Fyrir leikinn er KA í fjórða sæti deildarinnar m...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ha-ekki-sameinadur-hi
HA ekki sameinaður HÍ Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra sagði á Alþingi í gær að ekki yrði farið að tillögum erlendrar sérfræðiganefndar um sameiningu háskóla, en nefndin lagði til að skólarnir yrðu sameinaðir í tvo skóla, einn ríkisháskóla og annan einkaskóla. Þetta fól í sér að Háskólinn á Akureyri yrði sameinað...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oddur-skoradi-sex-i-sigri-islands
Oddur skoraði sex í sigri Íslands Oddur Gretarsson, leikmaður Akureyri Handboltafélags, skoraði sex mörk fyrir Ísland í sigri gegn Qatar í gær í lokaleik Íslands á HM U21 árs karla í handbolta sem fram fer í Egyptalandi. Lokatölur leiksins urðu 35-23. Ísland mætir Noregi í krossspili um 13-16 sætið á mótinu.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ofbeldis-og-frelsissviptingarmal-i-rannsokn
Ofbeldis- og frelsissviptingarmál í rannsókn Lögreglan á Akureyri rannsakar mál þar sem manni á þrítugsaldri var haldið föngnum í fjölbýlishúsi á Akureyri og beittur líkamsmeiðingum. Þrír aðilar eru í haldi lögreglu vegna málsins og hafa þeir verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Málið er á frumstigi og því vill lögreglan...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gudmundur-oli-og-larus-orri-i-bann
Guðmundur Óli og Lárus Orri í bann Guðmundur Óli Steingrímsson, KA, var dæmdur í eins leiks bann af Aga- og úrkurðarnefnd KSÍ. Bannið tekur ekki gildi fyrr en á hádegi á föstudag þannig að Guðmundur Óli verður gjaldgengur í liði KA sem fær Aftureldingu í heimsókn á morgun en missir af útileiknum gegn Haukum þann 18. ág...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ungur-madur-tekinn-fyrir-vimuakstur-i-nott
Ungur maður tekinn fyrir vímuakstur í nótt Ungur maður var tekinn fyrir vímuefnaakstur um fimm leytið í nótt á Akureyri og er þetta í þriðja skiptið í þessari viku sem ökumaður undir vímuefnum er stöðvaður af lögreglunni á Akureyri. Síðastliðin mánudag var annar ökumaður stöðvaður vegna vímuefnaaksturs og hann var svo ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/dalvikreynir-i-odru-saeti-d-ridils
Dalvík/Reynir í öðru sæti D- riðils Dalvík/Reynir gerði góða ferð til Vopnafjarðar er liðið lagði Einherja að velli í D- riðli 3. deildar karla í knattspyrnu í gærkvöld. Lokatölur á Vopnafjarðarvelli urðu 2-1 sigur Dalvíkur/Reynis. Mörk gestanna í leiknum skoruðu þeir Viktor Már Jónasson og Guðmundur Kristinn Kristinss...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/magni-i-fallsaeti-eftir-tap-i-kvold
Magni í fallsæti eftir tap í kvöld Lið Magna frá Grenivík er komið í fallsæti eftir tap gegn Hvöt á heimavelli en liðin mættust á Grenivíkurvelli í kvöld í 2. deild karla í knattspyrnu. Lokatölur leiksins urðu 3-2 sigur Hvatar. Númi Stefánsson og Ibra Jagne skoruðu mörk Magna í leiknum. Eftir tapið í kvöld er Magni kom...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/svekkjandi-jafntefli-hja-thorka-i-kvold
Svekkjandi jafntefli hjá Þór/KA í kvöld Þór/KA og Stjarnan gerðu í kvöld 1-1 jafntefli er liðin mættust á Þórsvellinum í 15. umferð Pepsi- deildar kvenna í knattspyrnu. Heimastúlkur náðu forystunni snemma í fyrri hálfleik en gestirnir jöfnuðu leikinn þegar tíu mínútur voru eftir af leiknum og þar við sat. Jafnræði var ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/lifid-er-allt-svo-spennandi
Lífið er allt svo spennandi Irene Gook fagnar 100 ára afmæli í dag og af því tilefni var nú síðdegis boðið til kaffisamsætið á Hlíð þar sem hún býr. Mikið fjölmenni var á staðnum og hið aldargamla afmælisbarn lék á alls oddi og heilsaði á báða bóga vandamönnum og samferðarfólki frá langri ævi. Irene er elsta barn Arhur...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/finn-arangur-thors-og-ka-a-kroksmotinu
Fínn árangur Þórs og KA á Króksmótinu Hið árlega Króksmót Tindastóls og Fisk Seafood var haldið í 22. sinn á Sauðárkróki um helgina. Um 900 keppendur frá 19 félögum tóku þátt í mótinu sem skiptist í 104 lið. Keppt var í 5., 6., og 7. flokki drengja og áttu Þór og KA sína fulltrúa á mótinu. Hjá Þór lentu bæði A- og B- l...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/brotist-inn-i-idnadarsafnid
Brotist inn í Iðnaðarsafnið “Lögreglan vann sitt verk hratt og snöfurmannlega og við höfum endurheimt það sem stolið var,” segir Arndís Bergsdóttir safnstjóri á Iðnaðarsafninu í samtali við Vikudag. Brotist var inn í safnið um sexleytið í gær, og einhverjum tugum þúsunda stolið þar. Þjófavarnarkerfi fór í gang og ummer...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vidurkennir-fiskveidibrot
Viðurkennir fiskveiðibrot Skipstjórinn áSólbak EA, sem varðskipið Ægir stóð að ólöglegum veiðum út af Vestfjörðum í fyrradag og fylgdi síðan til hafnar á Akureyri hefur viðurkennt að hafa í misgáningi notað röng veiðarfæri á þessu veiðisvæðinu. Hann hafi verið með ýsupoka á trollinu en ekki þorskpoka, sem áskilið er að...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gudmundur-holmar-aefdi-med-storlidi-kiel
Guðmundur Hólmar æfði með stórliði Kiel Hinn 17 ára gamli handknattleiksmaður frá Akureyri, Guðmundur Hólmar Helgason, datt svo sannarlega í lukkupottinn á dögunum þegar honum bauðst að æfa með þýska stórliðinu Kiel sem Alfreð Gíslason þjálfar. Með liðinu leika stjörnur á borð við franska landsliðsmarkvörðinn, Thierry ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/storleikur-a-thorsvelli-i-kvold
Stórleikur á Þórsvelli í kvöld Það verður stórslagur á Þórsvellinum í kvöld þegar Þór/KA fær Stjörnuna í heimsókn í Pepsi- deild kvenna í knattspyrnu. Þrjú stig skilja liðin af fyrir leikinn, Stjarnan er í þriðja sæti deildarinnar með 32 stig en Þór/KA í fjórða sæti með 29 stig. Eftir glæsilegan útisigur gegn Val í síð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oddur-markahaestur-i-tapleik-gegn-argentinu
Oddur markahæstur í tapleik gegn Argentínu Akureyringurinn Oddur Gretarsson var markahæstur í liði Íslands sem tapaði í kvöld gegn Argentínu, 25-23, á heimsmeistaramóti U21 árs landsliða karla í handbolta sem fram fer í Egyptalandi. Ísland hefur leikið fjóra leiki á mótinu, tapað þremur og unnið einn leik og komast þar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/listaverk-afhjupad-a-fiskideginum
Listaverk afhjúpað á Fiskideginum Á Fiskideginum mikla á Dalvík, laugardaginn 8. ágúst, var afhjúpað járn- og glerlistaverkið Vitinn í nýja menningarhúsinu Bergi. Listaverkið er eftir Höllu Har, gler- og myndlistakonu. Hún gaf Dalvíkurbyggð verkið til minningar um Friðleif Jóhannsson (f.1873 d.1967), sem var afi eiginm...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/solbakur-tekinn-fyrir-meint-fiskveidibrot
Sólbakur tekinn fyrir meint fiskveiðibrot Varðskipið Ægir stóð togarann Sólbak að meintum ólöglegum togveiðum á Vestfjarðamiðum í gær í hólfi þar sem áskilið er að hafa svokallaða smáfiskaskilju eða ákveðna lágmarskmöskvastærð. Fylgdi vvarðskipið Sólbaki til hafnar á Akureyri og komu þeir að bryggju snemma í morgun. Nú...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kvennalid-draupnis-sigradi-ia
Kvennalið Draupnis sigraði ÍA Draupnir sigraði ÍA, 3-1, er liðin mættust í Boganum í B- riðli 1. deildar kvenna í knattspyrnu sl. föstudag. Katrín Vilhjálmsdóttir skoraði tvívegis fyrir Draupni í leiknum og Katrín Andrésdóttir skoraði eitt mark. Þegar ein umferð er eftir í deildinni er Draupnir í 5. sætinu með tíu stig...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/storsigur-dalvikurreynis-a-heimavelli
Stórsigur Dalvíkur/Reynis á heimavelli Dalvík/Reynir vann stórsigur á liði Leiknis F. er liðin mættust á Dalvíkurvelli í D- riðli 3. deildar karla sl. fimmtudag. Lokatölur leiksins urðu 5-0 sigur Dalvíkur/Reynis. Viktor Már Jónasson skoraði tvívegis fyrir heimamenn í leiknum og þeir Jón Örvar Eiríksson, Kristinn Þór Bj...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/metadsokn-a-handverkshatidina-a-hrafnagili
Metaðsókn á Handverkshátíðina á Hrafnagili Metaðsókn er á Handverkshátíðina á Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit og nýjustu tölur sýna að á þriðja degi af fjórum hafa yfir 15 þúsund manns sótt hana heim. Bros á hverju andliti í 20 stiga hita og sól hefur skapað frábæra stemningu á hátíðarsvæðinu. Hönnunarsamskeppni um nýskö...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/urbaetur-a-aefingasvaedi-ka-og-akureyrarvelli
Úrbætur á æfingasvæði KA og Akureyrarvelli Á síðasta fundi stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar voru skoðaðar úrbætur á æfingasvæði íþróttafélagsins KA og hvort og hvað þurfi að gera til að Akureyrarvöllur geti þjónað KA sem keppnisvöllur. Í framhaldinu var samþykkt að fela starfsmönnum FA í samráði við íþróttafulltrúa og...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fiskidagurinn-mikli-er-einstok-hatid-a-heimsvisu
Fiskidagurinn mikli er einstök hátíð á heimsvísu Gríðarlegur mannfjöldi hefur verið á Dalvík síðustu daga og í dag, á sjálfan Fiskidaginn mikla, er talið að gestir hafi verið um og yfir 30 þúsund talsins. Þetta er í níunda sinn sem hátíðin er haldin og hefur aðsókn aldrei verið eins góð og í dag. Þorsteinn Már Baldvins...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikilvaegur-sigur-thorska-a-val
Mikilvægur sigur Þórs/KA á Val Kvennalið Þórs/KA vann gríðarlega mikilvægan sigur á Val, er liðin áttust við í 14. umferð Pepsideildarinnar í knattspyrnu á Hlíðarenda í gærkvöld. Lokatölur leiksins urðu 2:1 og skoraði Mateja Zver bæði mörk norðanstúlkna, það síðara þegar tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan le...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyrarlidin-i-eldlinunni-i-kvold
Akureyrarliðin í eldlínunni í kvöld Akureyrarliðin, Þór, KA og Þór/KA verða öll að spila í kvöld á Íslandsmótinu í knattspyrnu. Á Þórsvellinum tekur Þór á móti Víkingi R. er liðin eigast við í 15. umferð 1. deildar karla í knattspyrnu. Aðeins þrjú stig skilja liðin af fyrir leikinn, Þór er í 9. sæti deildarinnar með 18...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/handverkshatid-vid-hrafnagilsskola-sett-i-dag
Handverkshátíð við Hrafnagilsskóla sett í dag Handverkshátíð við Hrafnagilsskóla verður sett í dag í 17. sinn við hátíðlega athöfn. Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra, mun setja hátíðina formlega. Margt verður að gerast í tengslum við hátíðina en yfir 100 einstaklingar og félög taka þátt. Hönnunarsamkeppn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/magni-la-gegn-ksleiftri-a-olafsfirdi
Magni lá gegn KS/Leiftri á Ólafsfirði Magni tapaði gegn KS/Leiftri er liðin mættust á Ólafsfjarðarvelli í gærkvöld í 2. deild karla í knattspyrnu. Lokatölur leiksins urðu 2-1 sigur heimamanna í KS/Leiftri. Þeir Guðjón Gunnarsson og Ragnar H. Hauksson skoruðu mörk heimamanna í leiknum en mark Magna gerði Ibra Jagne, sem...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thusundir-gesta-komnir-til-dalvikur
Þúsundir gesta komnir til Dalvíkur Um þúsundir gesta eru þegar komnir til Dalvíkur þar sem Fiskidagurinn mikli verður haldinn hátíðlegur á morgun. Að sögn mótshaldara hafa aldrei fleiri gestir verið komnir til Dalvíkur á fimmtudagskvöldi líkt og var í gær. Öll tjaldsvæði eru orðinn full og hefur fólk tekið upp á því að...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/dularfullt-ljos-fell-til-jardar-vid-svalbardsstrond
Dularfullt ljós féll til jarðar við Svalbarðsströnd Lögreglan á Akureyri og menn úr björgunarsveitinni Súlum leituðu án árangurs í nótt á Svalbarðsströnd og á Miðvíkurfjalli að einhverju, sem skýrt gæti torkennilegt grænleitt ljós, sem tilkynnt var um að þar hafi fallið til jarðar laust eftir miðnætti. Lögregla efast e...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/alftagerdisbraedur-a-graena-hattinum-i-kvold
Álftagerðisbræður á Græna Hattinum í kvöld Álftagerðisbræður munu halda sína fyrstu tónleika á Græna Hattinum á Akureyri í kvöld. Þeir Sigfús, Gísli, Óskar og Pétur Péturssynir munu væntanlega taka sín þekktustu lög og hefjast tónleikarnir kl. 21.00 en húsið opnar kl. 20.00. Forsala á tónleikana er í Eymundsson í Hafna...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samtok-hernadarandstaedinga-efna-til-motmaelastodu
Samtök hernaðarandstæðinga efna til mótmælastöðu Samtök hernaðarandstæðinga á Norðurlandi efna til mótmælastöðu við Akureyrarflugvöll laugardaginn 8. ágúst nk. kl. 14:30, til að mótmæla aðflugsæfingum bandarískra orrustuflugvéla og vörslu hergagna á flugvellinum. Samtökin mótmæla harðlega þeim heræfingum NATO sem hér e...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kertafleytingar-vid-minjasafnstjornina-i-kvold
Kertafleytingar við Minjasafnstjörnina í kvöld Kertafleytingar fara fram í kvöld á Akureyri, Reykjavík og Egilsstöðum. Tilefnið er minningarathöfn vegna fórnarlambanna sem létu lífið í kjarnorkuárás á borgirnar Hiroshima og Nagasaki fyrir 64 árum síðan. Kertum hefur verið fleytt á Akureyri af þessu tilefni á hverju ári...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/anaegja-med-logreglustorf-a-nordurlandi
Ánægja með lögreglustörf á Norðurlandi „Mér finnst þetta mjög gott og sýna það að fólk ber traust til okkar þó eitthvað á móti blási af og til,” segir Ólafur Ásgeirsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Akureyri, um niðurstöður könnunar sem Capacent Gallup gerði fyrir ríkislögreglustjóra og náði yfir allt la...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/dean-og-disztl-i-bann
Dean og Disztl í bann Dean Martin og David Disztl hjá KA voru báðir úrskurðaðir í eins leiks keppnisbann af Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ. Þeir missa því af mikilvægum útileik gegn Fjarðabyggð í 1. deild karla í knattspyrnu sem fram fer annað kvöld. Það er ljóst að þetta er mikil blóðtaka fyrir KA sem enn eigir von um úrv...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bill-valt-i-oxnadal-i-gaerkvold
Bíll valt í Öxnadal í gærkvöld Jeppi fór útaf veginum í Öxnadal skammt frá Akureyri um kvöldmatarleytið í gær. Fimm manns voru í bílnum og slapp fólkið með litla áverka eftir veltuna. Jeppinn, sem dró stórt hjólhýsi í eftirdragi, var að fara fram úr öðrum bíl sem hafði kerru í eftirdragi þegar óhappið varð. Við framúra...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rakel-fer-til-finnlands
Rakel fer til Finnlands Rakel Hönnudóttir, leikmaður Þórs/KA, var valinn í 22 manna hóp kvennalandsliðs Íslands í knattspyrnu sem keppir á Evrópumeistaramótinu í Finnlandi í lok ágúst. Þær Arna Sif Ásgrímsdóttir og Sylvía Rán Sigurðardóttir, sem komust í 40 manna úrtakshóp, hlutu hinsvegar ekki náð fyrir augum þjálfara...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/keyrt-a-reidhjolamann-a-akureyri
Keyrt á reiðhjólamann á Akureyri Keyrt var á reiðhjólamann við Mímisbraut á Akureyri nú fyrir skömmu. Lögregla og sjúkrabíll eru á staðnum og er verið að flytja hjólreiðarmanninn til aðhlynningar á Sjúkrahús Akureyrar. Að sögn lögreglunnar á Akureyri er sú slasaða kona á miðjum aldri. Ekki er ljóst um alvarleika áverka...