Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.vikubladid.is/is/frettir/syningunni-freyjumyndir-lykur-i-thessari-viku
Sýningunni “Freyjumyndir” lýkur í þessari viku Nú er runnin upp síðasta vikan sem sýningin Freyjumyndir stendur yfir. Þar sýna 28 listamenn verk sín víðsvegar um Akureyri. Sýnngin er óvenjuleg og skemmtileg og hægt er að nálgast sýningarskrár í andyri Ketilhússins og eins á bloggsíðu sýningarinnar freyjumyndir.blog.is....
https://www.vikubladid.is/is/frettir/okumadur-a-slysadeild-eftir-hardan-arekstur
Ökumaður á slysadeild eftir harðan árekstur Ökumaður fólksbíls var fluttur til skoðunar á slysadeild Sjúkrahússins á Akureyri eftir harðan árekstur á gatnamótum Hlíðarbrautar og Austursíðu á öðrum tímanum í dag. Samkvæmt upplýsingum vitna á vettvangi, voru fólksbíllinn og jeppabifreið að aka í gagnstæðar áttir en við A...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-islandsmeistari-i-flokki-b-lida
Þór Íslandsmeistari í flokki B- liða Stúlkurnar í 4. flokki Þórs urðu Íslandsmeistarar í flokki B- liða eftir 2-1 sigur gegn Breiðabliki í úrslitaleiknum í gær en leikið var á Blönduósi. Þær Eva Kristín Evertsdóttir og Oddný Karólína Hafsteinsdóttir skoruðu mörk Þórs í leiknum.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stefania-ardis-og-olafur-goran-knapar-arsins
Stefanía Árdís og Ólafur Göran knapar ársins Uppskeruhátíð barna og unglinga hjá hestafélaginu Létti fór fram í Top Reiter höllinni fimmtudaginn 10. september sl. Allir krakkarnir fengu viðurkenningar fyrir þátttöku í starfi félagsins í vetur ásamt því að Lina Erkison reiðkennari veitti krökkunum viðurkenningar fyrir r...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jofn-hlutfoll-kynjanna-i-efstu-saetum-a-frambodslistum-verdi-tryggd
Jöfn hlutföll kynjanna í efstu sætum á framboðslistum verði tryggð Landsfundur jafnréttisnefnda sveitarfélaga, sem haldinn var á Ísafirði um sl. helgi, skorar á stjórnmálaflokka og önnur framboð að tryggja jöfn hlutföll kynjanna í efstu sætum á framboðslistum til sveitarstjórnarkosninga vorið 2010. Það er á ábyrgð þeir...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/adalfundi-ithrottafelagsins-thors-frestad-um-viku
Aðalfundi Íþróttafélagsins Þórs frestað um viku Aðalfundi Íþróttafélagsins Þórs, sem fram átti að fara í Hamri á morgun, þriðjudag, hefur verið frestað um viku. Sigfús Ólafur Helgason formaður Þórs gefur áfram kost á sér í formannsembættið en samkvæmt heimildum Vikudags, er líklegt að hann fái mótframboð á fundinum.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/um-29-milljona-krona-halli-a-rekstri-fsa-fyrstu-sjo-manudina
Um 29 milljóna króna halli á rekstri FSA fyrstu sjö mánuðina Samkvæmt rekstraruppgjöri Sjúkrahússins á Akureyri fyrstu sjö mánuði ársins eru gjöld umfram tekjur um 29 milljónir króna eða 1,2% miðað við fjárveitingar. Launakostnaður nemur samtals 1.929 milljónum og hefur hækkað um 2,5% miðað við fyrra ár. Laun eru um 12...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rakel-med-thrennu-i-sigri-thorska-i-kvold
Rakel með þrennu í sigri Þórs/KA í kvöld Þór/KA vann í kvöld öruggan 5-1 sigur á Aftureldingu/Fjölni er liðin mættust á Þórsvelli í 16. umferð Pepsi- deildar kvenna. Rakel Hönnudóttir skoraði þrennu fyrir heimastúlkur í leiknum og þær Arna Sif Ásgrímsdóttir og Katla Ósk Káradóttir sitt markið hvor. Aldís Mjöll Helgadót...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vinna-vid-deiliskipulag-a-nyju-athafnasvaedi-nokkva-ad-hefjast
Vinna við deiliskipulag á nýju athafnasvæði Nökkva að hefjast Á fundi skipulagsnefndar Akureyrar nýlega var tekið fyrir erindi frá Rúnari Þór Björnssyni f.h Nökkva, félags siglingarmanna á Akureyri, þar sem hann fór þess á leit að hafin verði vinna við að deiliskipuleggja nýja afhafnasvæði siglingaklúbbsins á Leirunni....
https://www.vikubladid.is/is/frettir/silvia-i-a-landslidshop-islands
Silvía í A- landsliðshóp Íslands Silvía Rán Sigurðardóttir, varnarmaðurinn sterki hjá Þór/KA, hefur verið valinn í A- landslið Íslands í knattspyrnu fyrir leikinn gegn Eistum á Laugardagsvelli fimmtudaginn 17. september næstkomandi. Rakel Hönnudóttir, fyrirliðið Þórs/KA, er sem fyrr í hópnum. Silvía, sem er 17 ára gömu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stodsmolun-og-rettir-i-a-huna-vatnssyslu-um-naestu-helgi
Stóðsmölun og réttir í A-Húna- vatnssýslu um næstu helgi Dagana 19. og 20. september verður mikið fjör í Austur Húnavatnssýslu, stóðsmölun á Laxárdal og réttir í Skrapatungurétt. Gestir eiga þess kost að slást í för með gangnamönnum á eyðidalnum Laxárdal og upplifa alvöru þjóðlegt ævintýri. Þátttakendur leigja hesta hj...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sidasti-heimaleikur-thorska-i-kvold
Síðasti heimaleikur Þórs/KA í kvöld Þór/KA leikur sinn síðasta heimaleik í sumar þegar liðið fær Aftureldingu/Fjölni í heimsókn í kvöld í Pepsi- deild kvenna í knattspyrnu. Valsstúlkur hafa níu fingur á Íslandsmeistaratitlinum eftir sigur á Stjörnunni í síðastu umferð en mikil barátta er um annað sætið í deildinni mill...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samningur-a-akureyrarflugvelli-i-fullu-gildi
Samningur á Akureyrarflugvelli í fullu gildi Þorbjörn Haraldsson slökkviliðsstjóri Slökkviliðs Akureyrar segir að í gildi sé samningur milli slökkviliðsins og Flugstoða um þjónustu á Akureyrarflugvelli. Sér hafi ekki borist nein skilaboð um að sá samningur væri í uppnámi eða að fram færi endurskoðun á honum. Flugstoðir...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kostnadur-grunnskolabarna-a-bilinu-8-15-thusund-kronur
Kostnaður grunnskólabarna á bilinu 8-15 þúsund krónur Kostnaður foreldra vegna barna í grunnskóla var ræddur á fundi skólanefndar nýverið, en fyrir fundinn voru lagðar fram upplýsingar um kostnað sem foreldrar bera vegna skólagöngu barna sinna í grunnskólum bæjarins haustið 2009. Upplýsingum um kostnaðinn var safnað út...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/magni-i-slaemum-malum-eftir-tap-i-gaer
Magni í slæmum málum eftir tap í gær Lið Magna frá Grenivík er komið í afar vond mál eftir tap á heimavelli gegn Tindastól í gær í 2. deild karla í knattspyrnu. Lokatölur á Grenivíkurvelli urðu 2-1 sigur Tindastóls. Mark Magna í leiknum skoraði Númi Stefánsson en fyrir gestina skoruðu þeir Bjarki Már Árnason og Kristma...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fh-sigradi-ragnarsmotid-eftir-sigur-a-ah
FH sigraði Ragnarsmótið eftir sigur á AH Akureyri Handboltafélag tapaði í gærkvöld gegn FH í úrslitaleiknum á Ragnarsmótinu sem haldið var á Selfossi. Lokatölur í leiknum í gær urðu 36-29 og náði FH að hefna fyrir tvö töp gegn norðanmönnum sl. helgi. AH fékk því silfurverðlaunin á mótinu og Selfyssingar hirtu bronsið e...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-og-thor-med-sigra-i-dag
KA og Þór með sigra í dag KA og Þór sigruðu bæði sína leiki í 21. umferð 1. deildar karla í knattspyrnu í dag. KA vann Víking R. á Akureyrarvelli, 2-1, með mörkum frá Arnari Má Guðjónssyni og Orra Gústafssyni. Þór gerði góða ferð í Mosfellsbæinn þar sem liðið mætti Aftureldingu á Varmárvelli og vann öruggan 4-1 sigur. ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ah-leikur-til-urslita-a-ragnarsmotinu
AH leikur til úrslita á Ragnarsmótinu Akureyri Handboltafélag leikur til úrslita á Ragnarsmótinu sem haldið er á Selfossi eftir sigur á Stjörnunni í gær, 29-20. Oddur Gretarsson var markahæstur í liði norðanmanna með sjö mörk, þar af fjögur úr víti. Geir Guðmundsson skoraði fimm mörk, Árni Sigtryggsson og Heiðar Þór Að...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stjornvold-koma-engu-i-verk-og-eru-ad-thvaelast-fyrir
Stjórnvöld koma engu í verk og eru að þvælast fyrir "Stjórnvöld koma engu í verk, þessi ríkisstjórn stendur alls ekki undir væntingum og hefur ekkert gert af því sem var búið að lofa. Þegar kemur að því að fara að gera eitthvað, draga menn lappirnar út af einhverjum sjónarmiðum sem mér finnst að ekki eigi að ráða varða...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rettad-i-illugastadarett-i-fnjoskadal-i-50-ar
Réttað í Illugastaðarétt í Fnjóskadal í 50 ár Réttað var í Illugastaðarétt í Fnjóskadal sl. sunnudag en um þessar mundir eru 50 ár frá því að fyrst var réttað þar, haustið 1959. Þegar mest var, upp úr 1970, komu 10-12 þúsund kindur í réttina úr fyrstu göngum en að þessu sinni voru rétt um 2000 kindur í réttinni. Gangna...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/list-illa-a-hugmyndir-um-afnam-sjomannaafslattar
Líst illa á hugmyndir um afnám sjómannaafsláttar Fulltrúum útvegs- og sjómanna líst ekki alls kostar á hugmyndir þær sem Björn Valur Gíslason þingmaður og varaformaður fjárlaganefndar viðraði á dögum í þá veru að ríkið hætti að greiða með sjómannaafslætti en kostnaður sem af honum hlýst verði færður yfir á útgerðina. S...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ah-med-nauman-sigur-a-selfyssingum
AH með nauman sigur á Selfyssingum Akureyri Handboltafélag vann nauman sigur á Selfossi í sínum fyrsta leik á Ragnarsmótinu sem fram fer á Selfossi, en mótið er liður í undirbúningi AH fyrir leiktímabilið sem hefst í næsta mánuði. Lokatölur leiksins urðu 29-28 AH í vil. Árni Sigtryggson og Heimir Árnason voru atkvæðame...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tvaer-andanefjur-saust-a-pollinum-i-morgun
Tvær andanefjur sáust á Pollinum í morgun Tvær andanefjur sáust á Pollinum á Akureyri í morgun. Þessar sjaldséðu hvalategundir hafa lítið sést þar frá því fyrrasumar, þegar þær heilluðu bæjarbúa og gesti með skemmtilegum tilburðum. Andanefjurnar sáust frá Torfunefsbryggju hefur fjöldi fólks verið að mynda hvalina.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/urdun-verdur-haett-a-glerardal-innan-tveggja-ara
Urðun verður hætt á Glerárdal innan tveggja ára Urðun verður hætt á Glerárdal innan tveggja ára, starfsleyfi urðunarstaðarins þar rann út 1. júlí í sumar, en un Umhverfisstofun mun gefa út tímabundið starfsleyfi til tveggja ára. Eiður Guðmundsson framkvæmdastjóri hjá Flokkun Eyjafjarðar segir að félagið hafi að undanfö...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/riflega-240-ibudir-i-byggingu-i-naustahverfi
Ríflega 240 íbúðir í byggingu í Naustahverfi Ríflega 240 íbúðir eru í byggingu í Naustahverfi á Akureyri um þessar mundir, sem að sögn Péturs Bolla Jóhannessonar skipulagsstjóra, er nálægt því að vera tveggja ára skammtur hvað þörfina varðar í eðlilegu árferði. Samkvæmt Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018 er gert ráð að ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/snjoframleidsla-hefst-i-hlidarfjalli-eftir-tvo-manudi
Snjóframleiðsla hefst í Hlíðarfjalli eftir tvo mánuði „Við stefnum að því að hefja snjóframleiðslu um mánaðamótin október nóvember líkt og venja er til og opna skíðasvæðið mánuði síðar," segir Guðmundur Karl Jónsson forstöðumaður skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli. Fjallið var hvítt einn morgunin nýlega og létu viðbrögð ekk...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/auglyst-eftir-tilbodum-i-loka-framkvaemdir-vid-giljaskola
Auglýst eftir tilboðum í loka- framkvæmdir við Giljaskóla Fasteignir Akureyrarbæjar hafa auglýst eftir tilboðum í fullnaðarfrágang á Íþróttamiðstöðinni við Giljaskóla. Eins og fram hefur komið hefur verktakinn sem sá um framkvæmdirnar sagt sig frá verkinu. Auglýst er eftir tilboðum í lokafrágang á íþróttahúsi sem mun h...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/andri-fannar-a-skotskonum-med-u19-ara-landslidinu
Andri Fannar á skotskónum með U19 ára landsliðinu Andri Fannar Stefánsson, leikmaður KA, skoraði þriðja og síðasta mark U19 ára landsliðs karla í knattspyrnu er liðið mætti Skotum ytra í gær. Leiknum lauk með 3-1 sigri Íslands. Markið skoraði Andri úr vítaspyrnu á 86. mínútu leiksins. Auk Andra Fannars skoruðu þeir Pap...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baejarrad-gerir-athugasemdir-vid-frumvarp-til-umferdarlaga
Bæjarráð gerir athugasemdir við frumvarp til umferðarlaga Á fundi bæjarráðs Akureyrar í morgun voru lagðar fram athugasemdir við frumvarp til umferðarlaga. Bæjarráð telur að ekki komi til greina að horfið verði frá gildandi rétti, sbr. 3. mgr. 108. gr. umferðarlaga, að stöðubrotagjald sem sveitarfélög innheimta renni t...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/grunnskolanemendur-i-fraedsluferd-med-huna-ii
Grunnskólanemendur í fræðsluferð með Húna II Nú standa yfir ferðir með bátnum Húna II fyrir nemendur í sjötta bekk í grunnskólum Akureyrar. Ferðirnar eru samstarfsverkefni Hollvina Húna, Grunnskóldeildar Akureyrarbæjar og Háskólans á Akureyri. Ferðin samanstendur af fræðslu um öryggisatriði varðandi sjóferðir, sögu Aku...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eldur-i-bil
Eldur í bíl Slökkvilið Akureyrar var kallað að malarkrúsunum neðan Hlíðarfjalls fyrir stundu en þar var mikill eldur í fólksbíl, sem lá á toppnum utan vegarslóða. Enginn var í bílnum og enginn nálægur þegar slökkviliðið kom á staðinn og ekki er vitað hvort kveikt var í bílnum eða hvort upp kom eldur í honum eftir að ha...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjolmenningarstefna-mun-nytast-akureyrarbae-vel
Fjölmenningarstefna mun nýtast Akureyrarbæ vel Á fundi bæjarstjórnar Akureyrar nýlega var tekin fyrir fundargerð samfélags- og mannréttindaráðs, þar sem Fjölmenningarstefna Eyþings var lögð fram til kynningar ásamt handbók um móttöku innflytjenda í skóla. Bæjarstjórn fagnar gerð sameiginlegrar Fjölmenningarstefnu fyrir...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/melchior-dundurfrettir-og-bravo-a-graena-hattinum
Melchior, Dúndurfréttir og Bravó á Græna hattinum Það verður mikið um að vera á Græna hattinum næstu daga, þar sem í boði verða spennandi tónleikar, með Melchior, Dúndurfréttum og Bravó-bítlunum. Á fimmtudagskvöld verða útgáfutónleikar með Melchior kl. 21.00 en hljómsveitin er komin með nýja plötu sem hefur fengið góða...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aleksandar-linta-i-bann
Aleksandar Linta í bann Aleksandar Linta, leikmaður Þórs í 1. deild karla í knattspyrnu, hefur verið dæmdur í eins leiks keppnisbann af Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ. Linta mun því missa af útileik Þórs gegn Aftureldingu nk. laugardag.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/storsigur-thorska-a-keflavik-i-kvold
Stórsigur Þórs/KA á Keflavík í kvöld Þór/KA vann 9-0 stórsigur á lánlausu liði Keflavíkur er liðin mættust í kvöld á Sparisjóðsvellinum í Pepsi- deild kvenna í knattspyrnu. Þær Mateja Zver og Rakel Hönnudóttir sáu um að skora öll mörk Þórs/KA í kvöld en Mateja skoraði fimm mörk og Rakel fjögur. Eftir leikinn er Þór/KA ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hausthatid-foreldrafelags-glerarskola-og-hverfisnefndar
Hausthátíð Foreldrafélags Glerárskóla og hverfisnefndar Laugardaginn 12. september verður haldin hverfishátíð við Glerárskóla í samstarfi hverfisnefndar Holta- og Hlíðahverfis og Foreldrafélags Glerárskóla. Nemendur í Glerárskóla og hverfisbúar, ungir sem aldnir, eru hvattir til að mæta og skemmta sér saman. Þátttakend...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/pepsi-deild-kvenna-af-stad-a-nyjan-leik
Pepsi- deild kvenna af stað á nýjan leik Pepsi- deild kvenna í knattspyrnu fer af stað á nýjan leik í kvöld eftir hlé sem gert var á deildinni vegna EM í knattspyrnu kvenna í Finnlandi. Þór/KA heldur til Reykjanesbæjar á mætir Kelfavík í 16. umferð deildarinnar. Þór/KA er í 4. sæti deildarinnar með 30 stig, fimm stigum...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/golfmotarod-barna-og-unglinga
Golfmótaröð barna- og unglinga Í sumar hafa fimm golfklúbbar á Norðurlandi staðið fyrir golfmótaröð fyrir börn og unglinga. Þetta eru Golfklúbbur Akureyrar, Golfklúbbur Húsavíkur, Golfklúbburinn Hamar á Dalvík, Golfklúbbur Ólafsfjarðar og Golfklúbbur Sauðárkróks. Alls voru fjögur mót haldin í sumar og fóru þau fram á D...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/atvinnuataksverkefni-baejarins-hefur-gengid-vel
Atvinnuátaksverkefni bæjarins hefur gengið vel Á fundi stjórnar Akureyrarstofu nýlega var farið yfir stöðu atvinnuátaksverkefnis bæjarins sem Akureyrarstofa hefur umsjón með. Verkefnið hefur gengið vel en í samstarfi bæjarins og Vinnumálastofnunar hafa orðið til störf sem fela í sér um 80 mannmánuði. Til verkefnisins v...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/heilmikil-dagskra-a-akureyri-i-tilefni-af-degi-laesis
Heilmikil dagskrá á Akureyri í tilefni af degi læsis Heilmikil dagskrá verður í gangi á Akureyri í dag, bæði í Háskólanum og einnig á Amtsbókasafninu, í tilefni af degi læsis og mun m.a. menntamálaráðherra taka þátt í dagskránni. Frá árinu 1965 hafa Sameinuðu þjóðirnar helgað 8. september málefnum læsis. Að þessu sinni...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikil-aukning-a-gestakomum-i-upplysingamidstodina-a-akureyri
Mikil aukning á gestakomum í upplýsingamiðstöðina á Akureyri Á fundi stjórnar Akureyrarstofu nýlega var farið yfir þjónustu upplýsingamiðstöðvarinnar í sumar, reksturinn það sem af er ári og stefnu til framtíðar. Mikil aukning varð á gestakomum í miðstöðina, í júlí komu að meðaltali 856 manns á dag í samanburði við 678...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/laugafiskur-veitir-fjarhagslegan-studning-til-augnadgerda-i-nigeriu
Laugafiskur veitir fjárhagslegan stuðning til augnaðgerða í Nígeríu Laugafiskur, dótturfyrirtæki Brims hf., hefur í mörg ár veitt fjárhagslegan stuðning til augnaaðgerða í Nígeríu, en Afríkuríkið er einn stærsti kaupandi þurrkverkunarinnar. Slíkur stuðningur, sem fleiri fyrirtæki koma að, þar á meðal íslensk og færeysk...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/radist-verdur-i-urbaetur-a-akur-eyrarvelli-og-aefingasvaedi-ka
Ráðist verður í úrbætur á Akur- eyrarvelli og æfingasvæði KA Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkti á fundi sínum fyrir helgina, með fyrirvara um samþykki bæjarráðs, að nú í haust verði ráðist í nauðsynlegar úrbætur á Akureyrarvelli og minniháttar lagfæringar á æfingasvæði KA. Kostnaður við verkefnið er áætlaður all...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kammerkorinn-hymnodia-heldur-i-tonleikaferd-til-sviss
Kammerkórinn Hymnodia heldur í tónleikaferð til Sviss Kammerkórinn Hymnodia á Akureyri er á leið í tónleikaferð til Sviss dagana 9. - 16. september. Kórinn kemur fram á þrennum tónleikum, í Zürich, Wettingen og Umiken. Í Wettingen tekur kórinn þátt í tuttugu ára afmæli Íslendingafélagsins í Sviss. Í farteskinu hefur Hy...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/frestur-til-ad-skoda-rumlega-6600-okutaeki-ad-renna-ut
Frestur til að skoða rúmlega 6600 ökutæki að renna út Þann 1. október n.k. mun sýslumaðurinn í Bolungarvík leggja vanrækslugjald á eigendur húsbíla, bifhjóla og ferðavagna sem ekki hafa farið með þá til skoðunar fyrir þann tíma. Ferðavagnar eru tjaldvagnar, fellihýsi og hjólhýsi. Samkvæmt tölum Umferðarstofu frá 4. sep...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baejarstjori-afhenti-starfsfolki-asprents-stils-brostuverdlaun
Bæjarstjóri afhenti starfsfólki Ásprents Stíls Brostuverðlaun Hermann Jón Tómasson bæjarstjóri á Akureyri afhenti starfsfólki Ásprents - Stíls viðurkenningu við setningu Akureyrarvöku í Lystigarðinum á dögunum. Viðurkenningin er veitt fyrir frumkvæði og framkvæmd átaksins "Brostu með hjartanu". Átakið stappaði stálinu ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ah-hefdi-betur-i-aefingaleikjunum-gegn-fh
AH hefði betur í æfingaleikjunum gegn FH Akureyri Handboltafélag spilaði sína fyrstu æfingaleiki á undirbúningstímabilinu um helgina þegar félagið lék tvo leiki við FH í Höllinni á Akureyri. Fyrri viðureignin lauk með sigri AH, 27-23, þar sem Árni Sigtryggsson og Jónatan Þór Magnússon voru markahæstir hjá heimamönnum m...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/folksflutningar-gaetu-hjalpad-okkur-ad-takast-a-vid-kreppuna
Fólksflutningar gætu hjálpað okkur að takast á við kreppuna Þóroddur Bjarnason prófessor í félagsfræði við Háskólann á Akureyri segir helstu ástæðuna fyrir því að fólki á Íslandi hafi nú fækkað í fyrsta skipti frá 19. öld sé að finna á Austurlandi og aðeins á tveimur stöðum þar, í strjálbýlinu og á Reyðarfirði. Það ten...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/orkusetur-a-akureyri-tekur-i-notkun-rafdrifna-vespu
Orkusetur á Akureyri tekur í notkun rafdrifna vespu Orkusetur á Akureyri hefur eignast vespu, eða létt bifhjól, sem gengur fyrir rafmagni. Sigurður Friðleifsson framkvæmdastjóri segir þetta vel við hæfi, enda sé eitt af markmiðum Orkuseturs að innleiða raforku í samgöngur. Vespuna á m.a. að nota til að kynna notkun og ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thridja-tap-magna-i-rod-1
Þriðja tap Magna í röð Magni tapaði sínum þriðja leik í röð í 2. deild karla í knattspyrnu er liðið beið lægri hlut gegn Víði í gærkvöld á Grenivíkurvelli. Lokatölur urðu 2-1 sigur Víðis. Þegar aðeins tvær umferðir eru eftir í deildinni er Magni í 10. sæti deildarinnar með 19 stig, tveimur stigum frá fallsæti. Það verð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/framkvaemdir-vid-byggingu-fjolbylishuss-ad-hefjast
Framkvæmdir við byggingu fjölbýlishúss að hefjast Byggingafyrirtækið SS Byggir áformar að hefja framkvæmdir við byggingu fjölbýlishúss við Undirhlíð á Akureyri í lok þessa mánaðar. Um er að sjö hæða hús með samtals 26 íbúðum og er þetta fyrra húsið af tveimur sem byggt verður á þessum reit. Sigurður Sigurðsson framkvæm...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stefnt-ad-utflutningi-um-30-afurda-af-saudfe
Stefnt að útflutningi um 30% afurða af sauðfé Norðlenska stefnir að útflutningi á rúmlega 30% sauðfjárframleiðslunnar í ár, en að mati forsvarsmanna félagsins er allt eins líklegt að útflutningsþörfin geti orðið meiri en það á næsta ári. Verðlagning sauðfjárafurða þetta haustið er ákvörðuð í skugga erfiðra aðstæðna í þ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-lagdi-fjardabyggd-i-kvold-tap-hja-ka
Þór lagði Fjarðabyggð í kvöld- Tap hjá KA Þór lagði Fjarðabyggð af velli í kvöld er liðin mættust á Þórsvellinum í 1. deild karla í knattspyrnu. Lokatölur leiksins urðu 1-0 sigur Þórs og var það Jóhann Helgi Hannesson sem skoraði eina mark leiksins fyrir heimamenn. Á sama tíma tapaði KA fyrir ÍR á útivelli þar sem loka...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/metsumar-ad-baki-hja-bilaleigu-holdurs
Metsumar að baki hjá bílaleigu Höldurs „Þetta var mjög gott sumar, eitt það allra besta í manna minnum," segir Steingrímur Birgisson framkvæmdastjóri Hölds, bílaleigu. Mikill fjöldi erlendra ferðamanna sótti Ísland heim og ferðaðist drjúgur hluti þeirra um landið með bílaleigubílum. Höldur var með um 2100 bíla í umferð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sera-solveig-lara-i-thriggja-manada-namsleyfi
Séra Solveig Lára í þriggja mánaða námsleyfi Séra Solveig Lára Guðmundsdóttir sóknarprestur í Möðruvallaprestakalli verður í námsleyfi í desember, janúar og febrúar nk. Á meðan mun Hjörtur Pálsson búa á Möðruvöllum ásamt konu sinni, Steinunni Bjarman, og þjóna prestakallinu. Næsta guðsþjónusta í prestakallinu verður fj...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/althjodadagur-laesis-thridjudaginn-8-september
Alþjóðadagur læsis þriðjudaginn 8. september Á degi læsis er fólk hvar sem er á landinu hvatt til að lesa upp fyrir hvert annað, segja sögur, fara með ljóð eða á annan hátt nota málið til ánægjulegra samskipta. Árið 1965 tileinkuðu Sameinuðu þjóðirnar ár hvert 8. september mikilvægi læsi fyrir lífsgæði og baráttunni ge...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrstu-rettir-haustsins-i-eyjafirdi-um-helgina
Fyrstu réttir haustsins í Eyjafirði um helgina Fyrstu réttir haustsins í Eyjafirði verða um komandi helgi en á laugardag verður réttað í Gljúfurárrétt í Höfðahverfi og Hraungerðisrétt í Eyjafjarðarsveit og á sunnudag verður einnig réttað á tveimur stöðum í Eyjafjarðarsveit, Möðruvallarétt og Þverárrétt. Ólafur G. Vagns...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrstu-aefingaleikir-ah-um-helgina
Fyrstu æfingaleikir AH um helgina Akureyri Handboltafélag hefur undirbúninginn fyrir komandi leiktíð af alvöru um helgina þegar liðið spilar tvo æfingaleiki við FH í Höllinni á Akureyri. Fyrri leikurinn fer fram annað kvöld, föstudag, kl. 20:30 og sá síðari á laugardaginn kemur kl. 11:30. Akureyri Handboltafélag setur ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tafir-hafa-ordid-a-framkvaemdum-vid-naustaskola
Tafir hafa orðið á framkvæmdum við Naustaskóla Skólastjóri Naustaskóla mætti á fundi skólanefndar Akureyrar í vikunni og gerði grein fyrir stöðu mála í skólanum, en framkvæmdir við skólann hafa dregist umfram það sem vitað var um. Fram kom að eldri deildin byrjaði skóla einum degi seinna en áætlað var. Fram kom hjá skó...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/menningarminjadagur-evropu-a-sunnudaginn
Menningarminjadagur Evrópu á sunnudaginn Menningarminjadagur Evrópu verður haldinn sunnudaginn 6. september n.k. Þema dagsins að þessu sinni er torfhús í fortíð og nútíð. Meðal staða sem opnir verða er gamli bærinn í Laufási. Bærinn er hluti húsasafns Þjóðminjasafns Íslands en í umsjá Minjasafnsins á Akureyri. Í Laufás...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-og-thor-i-eldlinunni-a-morgun
KA og Þór í eldlínunni á morgun KA og Þór verða bæði eldlínunni á morgun í 1. deild karla í knattspyrnu. KA sækir ÍR heim á ÍR- völlinn en Þór tekur á móti Fjarðarbyggð á Þórsvellinum. „Mér líst bara sæmilega á leikinn gegn Fjarðabyggð og það verður gott að vera á heimavelli,” segir Páll Viðar Gíslason, aðstoðarþjálfar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/greifi-hjalpar-bjarneyju
Greifi hjálpar Bjarneyju Bæjarstjórinn á Akureyri, Hermann Jón Tómasson, afhenti nýlega leyfi fyrir 500. hundinum á Akureyri en þar er um að ræða sérþjálfaðan hund sem mun aðstoða fatlaða stúlku í bænum. Bjarney Guðrún Jónsdóttir er átta ára og með arfgengan vöðvasjúkdóm og skerta hreyfigetu og þarf því mikla aðstoð vi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hlutfall-fagmenntadra-starfs-manna-i-leikskolum-um-85
Hlutfall fagmenntaðra starfs- manna í leikskólum um 85% Á fundi skólanefndar í vikunni kom m.a. fram að innritun barna í leikskóla Akureyrarbæjar er að mestu lokið. Alls voru 280 börn innrituð þetta haustið og voru 20 þeirra fædd árið 2008. Að auki voru 50 börn flutt á milli leikskóla að ósk foreldra. Ekkert barn er nú...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vidamikil-bjorgunaraefing-a-akureyrarflugvelli-a-laugardag
Viðamikil björgunaræfing á Akureyrarflugvelli á laugardag Laugardaginn 5. september mun eiga sér stað æfing á Akureyri á vegum SNAM þjónustunnar. SNAM stendur fyrir „Swedish national air medevac" en það felur í sér samstarf nokkurra aðila í Svíþjóð sem bjóða upp á þjónustu til að flytja sjúklinga af hamfara- og átakasv...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/larus-orri-og-janez-vrenko-i-bann
Lárus Orri og Janez Vrenko í bann Þeir Lárus Orri Sigurðsson þjálfari Þórs og Janez Vrenko leikmaður KA, fengu báðir eins leiks bann þegar Aga- og Úrskurðarnefnd KSÍ kom saman í gær. Lárus Orri mun því ekki stýra liði Þórs sem tekur á móti Fjarðabyggð nk. föstudag á Þórsvellinum og Vrenko mun sömuleiðis missa af útilei...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hermann-jon-tekur-vid-formennsku-i-stjornsyslunefnd
Hermann Jón tekur við formennsku í stjórnsýslunefnd Á fundi bæjarstjórnar Akureyrar í gær voru samþykktar breytingar á fulltrúum í tveimur nefndum bæjarins. Hermann Jón Tómasson bæjarstjóri hefur tekið við formennsku í stjórnsýslunefnd af Sigrúnu Björk Jakobsdóttur fráfarandi bæjarstjóra, sem verður varaformaður nefnda...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jon-leitar-enn-ad-nofnum-vegna-sogu-akureyrar
Jón leitar enn að nöfnum vegna Sögu Akureyrar Jón Hjaltason sagnfræðingur leggur nú lokahönd á ritun 5. bindis Sögu Akureyrar. Undanfarna mánuði hefur hann verið á nafnaveiðum og orðið vel ágengt en skortir þó enn fáein nöfn. Vikudagur hefur lagt sitt af mörkum og aðstoðað Jón með birtingu á myndum, með ósk um að fólk ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/arnarneshreppur-styrkir-hollvinasamtok-huna-ii
Arnarneshreppur styrkir Hollvinasamtök Húna II Hreppsnefnd Arnarneshrepps samþykkti á síðasta fundi sínum að styrkja Hollvinasamtök Húna II að upphæð kr. 50.000 vegna ferða þeirra til Hjalteyrar nú í sumar. Húni II hefur siglt til Hjalteyrar á fimmtudögum í sumar, þar sem m.a. hefur verið boðið upp á skemmtilega sögugö...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/breyttur-utivistartimi-barna-og-unglinga
Breyttur útivistartími barna og unglinga Útivistartími barna og unglinga tók breytingum þann 1. september sl. Frá þeim tíma mega 12 ára börn og yngri vera úti til kl. 20.00 og 13 til 16 ára unglingar mega vera úti til kl. 22.00. Bregða má út af reglunum fyrir síðartalda hópinn þegar unglingar eru á heimleið frá viðurke...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ahrif-kreppunnar-a-buferlaflutninga-og-mannfjoldathroun-a-islandi
Áhrif kreppunnar á búferlaflutninga og mannfjöldaþróun á Íslandi Þóroddur Bjarnason prófessor fjallar um mannfjöldaþróun á Íslandi síðustu öldina og þær breytingar sem orðið hafa á fyrstu sex mánuðum þessa árs með áherslu á mismunandi stöðu mála í einstökum landshlutum, í fyrirlestri á félagsvísindatorgi í Háskólanum á...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/laun-eda-starfshlutfall-verid-skert-hja-riflega-thridjungi-launamanna
Laun eða starfshlutfall verið skert hjá ríflega þriðjungi launamanna Ríflega þriðjungur eða 35% þeirra sem eru í launaðri vinnu hafa lent í því að laun eða starfshlutfall hefur verið skert frá hruni bankanna í október. Þetta kemur fram í skoðanakönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir ASÍ í júní. Flestir eða rúmlega 18% ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rynihopur-leggur-til-aukid-samstarf-i-haskolakerfinu
Rýnihópur leggur til aukið samstarf í háskólakerfinu Rýnihópurinn sem menntamálaráðherra skipaði telur mikilvægt að menntamálaráðuneytið beiti sér fyrir aðgerðum sem stuðla að auknu samstarfi í háskólakerfinu, eflingu á gæðamati og eftirliti og hefji endurskoðun á fjármögnun háskólanna. Einnig leggur hópurinn til áætlu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/breyta-tonlistardeild-i-tonlistarskola
Breyta tónlistardeild í tónlistarskóla Samþykkt hefur verið á fundi sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps að gera tilraun með breytt skipulag á tónlistarnámi í hreppnum, þe. Að breyta tónlistardeild í sjálfstæða rekstareiningu eða tónlistarskóla. Um er að ræða tímabundna ráðstöfun sem hefst á morgun, 1. september og ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/johann-haettur-sem-thjalfari-dalvikurreynis
Jóhann hættur sem þjálfari Dalvíkur/Reynis Jóhann Hreiðarsson, spilandi þjálfari Dalvíkur/Reynis, mun ekki þjálfa liðið áfram á næsta tímbili. Að sögn Jóhanns er það samkomulag milli hans og stjórn knattspyrnudeildar Dalvíkur/Reynis sem gerð er í mesta bróðerni. Jóhann segir þó að vel gæti farið að hann spili með liðin...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikilvaeg-stig-i-suginn-hja-magna
Mikilvæg stig í súginn hjá Magna Magni tapaði mikilvægum stigum í fallbaráttu 2. deildar karla í knattspyrnu þegar liðið sótti BÍ/Bolungarvík heim sl. laugardag. Lokatölur urðu 3-2 sigur BÍ/Bolungarvíkur. Magni komst tvívegis yfir í leiknum með mörkum frá þeim Magnúsi Birki Hilmarssyni og Georg Fannari Haraldssyni. Hei...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/saudfjarslatrun-hafin-hja-nordlenska-a-husavik
Sauðfjárslátrun hafin hjá Norðlenska á Húsavík Norðlenska bárust ríflega 78.380 sláturfjárloforð að þessu sinni en sauðfjárslátrun hófst á Húsavík sl fimmtudag. Þetta eru 1.500 fleiri sláturfjárloforð en bárust Norðlenska á síðasta ári, að sögn Sigmundar Hreiðarssonar vinnslustjóra á Húsavík. "Hér er allt orðið klárt o...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/faekkun-heradsdomstola-mun-ekki-skila-tilaetludum-arangri
Fækkun héraðsdómstóla mun ekki skila tilætluðum árangri Ólafur Ólafsson dómstjóri við Héraðsdóm Norðurlands eystra telur að fækkun héraðsdómstóla úr átta í einn muni ekki skila tilætluðum árangri. Það kemur Ólafi hins vegar ekki á óvart að fyrirhugað sé að hinn nýi sameinaði héraðsdómur verði staðsettur í Reykjavík. Ma...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nytt-verk-eftir-harald-jonsson-vigt-i-holmanum-i-leirutjorn
Nýtt verk eftir Harald Jónsson vígt í hólmanum í Leirutjörn Verkið VARP eftir Harald Jónsson myndlistarmann var afhjúpað hjá Gallerí Víð8ttu601 í hólmanum í Leirutjörn á Akureyr í dag. Innsetningin sem unnin er í nánu samstarfi við aðstandendur sýningarstaðarins vísar í margar áttir samtímis. Verkið er í senn heimsendi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oruggur-sigur-ka-i-dag-otruleg-endurkoma-hja-thor
Öruggur sigur KA í dag- Ótrúleg endurkoma hjá Þór KA lagði Víking Ó. að velli með öruggum 3-0 sigri á Akureyrarvelli í dag er liðin mættust í 1. deild karla í knattspyrnu. Fyrr í dag gerðu Leiknir R. og Þór jafntefli í miklum markaleik en lokatölur á Leiknisvelli urðu 4-4. Það var hreint ótrúlegur endasprettur sem tryg...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/umfangsmiklar-framkvaemdir-i-eyrarlandsvegi
Umfangsmiklar framkvæmdir í Eyrarlandsvegi Umfangsmiklar framkvæmdir standa nú yfir í Eyrarlandsvegi á Akureyri en um er að ræða hellulög gangstétta austan megin götunnar. Framkvæmdum þeim megin á að vera lokið þann 1. nóvember nk. en á næsta ári verður ráðist í framkvæmdir vestan megin og á þeim að vera lokið þann 1. ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrsta-graena-storidjan-a-islandi-gangsett-i-krossanesi
Fyrsta græna stóriðjan á Íslandi gangsett í Krossanesi Starfsemi er hafin í aflþynnuverksmiðju Becromal á Ísland sem er í Krossanesi. Fyrst um sinn verða tvær vélar af alls 64 teknar í notkun en fyrstu vörurnar í verksmiðjunni urðu til í gærkvöld. Rúmt ár mun líða áður en allar vélarnar verða ræstar. Uppbygging verksmi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/framkvaemdir-vid-ithrottahus-giljaskola-bodnar-ut-i-naesta-manudi
Framkvæmdir við íþróttahús Giljaskóla boðnar út í næsta mánuði Stefnt er að því að bjóða út verk við nýja íþróttamiðstöð og fimleikahús við Giljaskóla á Akureyri að nýju í steptember. Áætluð verklok eru að sögn Guðríðar Friðriksdóttur framkvæmdastjóra Fasteigna Akureyrar vorið 2010. Fyrsta skóflustunga að byggingunni v...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nyr-gongustigur-i-naustaborgum-formlega-vigdur
Nýr göngustígur í Naustaborgum formlega vígður Á morgun laugardag kl. 11.00 verður vígður formlega nýr göngustígur í Naustaborgum, nyrst í landi Kjarnaskógar. Skógræktarfélag Eyfirðinga hefur haft veg og vanda af því að búa stíginn til fyrir styrk frá Samherja hf. Þessi afhending markar lokin á styrkveitingum ársins ti...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/syning-og-malthing-um-harald-nielsson-og-adalbjorgu-sigurdardottur
Sýning og málþing um Harald Níelsson og Aðalbjörgu Sigurðardóttur Trúmaður á tímamótum; er yfirskrift á sýningu og málþingi um hjónin Harald Níelsson og Aðalbjörgu Sigurðardóttur í Amtsbókasafninu á Akureyri á morgun, laugardaginn 29. ágúst 2009. Tilefnið er að 140 ár eru frá fæðingu Haralds og öld frá útkomu biblíuþýð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/posthusid-i-midbae-akureyrar-flytur-i-strandgotu
Pósthúsið í miðbæ Akureyrar flytur í Strandgötu Pósthúsið sem hefur verið til húsa að Skipagötu 10 á Akureyri flytur á morgun föstudaginn 28. ágúst í nýtt húsnæði, í Strandgötu 3. Á nýjum stað er aukið til muna aðgengi og þjónusta við viðskiptavini sem og aðstaða starfsfólks. Í Skipagötunni og í Hafnarstrætinu hafa ver...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skipulogd-nagrannavarsla-hafin-a-akureyri
Skipulögð nágrannavarsla hafin á Akureyri Í dag var átaki um nágrannavörslu ýtt úr vör í samvinnu Akureyrarbæjar og Sjóvár. Íbúar Beykilundar á Akureyri riðu á vaðið undir forystu Sævars Helgasonar, eins af íbúum götunnar. Að loknum stuttum kynningarfundi var fest upp skilti á horni Beykilundar og Grenilundar sem sýnir...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/freyvangsleikhusid-setur-upp-tvo-leikverk-og-kabarett-i-vetur
Freyvangsleikhúsið setur upp tvö leikverk og kabarett í vetur Freyvangsleikhúsið hefur ákveðið að taka upp á þeirri nýbreytni í ár að setja upp tvö leikverk í vetur ásamt kabarett. Hugsunin er sú að fyrir kabarett sé sett upp stykki sem er minna umfangs, tilraunakenndara og bjóði upp á meiri tilraunastarfsemi. Að þessu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bodid-upp-a-fjallaferdir-fyrir-ljosmyndaahugafolk
Boðið upp á fjallaferðir fyrir ljósmyndaáhugafólk Sigurður Baldursson hefur í samvinnu við Pedromyndir á Akureyri, verið að skipuleggja fjallaferðir á Norðurlandi fyrir ljósmyndaáhugafólk. Þrír vanir ljósmyndarar verða með í ferðunum, þeir Sigurgeir Haraldsson, Lára Stefánsdóttir og Þórhallur Jónsson, sem munu veita að...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/asdis-helga-sigradi-i-tolti
Ásdís Helga sigraði í tölti Opið stórmót í hestum fór fram á Melgerðismelum sl. helgi og var keppt bæði á laugardag og sunnudag. Í töltkeppni var það Ádís Helga Sigursteinsdóttir á Von frá Árgerði sem sigraði með einkunnina 7, 44 en hún sigraði einnig í A- flokki með einkunnina 8,61. Í B- flokki sigraði Tryggvi Björnss...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/farid-med-okkur-eins-og-prinsessur
„Farið með okkur eins og prinsessur” Rakel Hönnudóttir, knattspyrnukona úr Þór/KA, stendur í ströngu þessa dagana með landsliði Íslands á Evrópumeistaramóti kvenna í knattspyrnu sem fram fer í Finnlandi. Rakel kom inn á sem varamaður í fyrsta leik Íslands gegn Frökkum sl. mánudag sem tapaðist 1-3. „Þetta er rosalega fí...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hagnadur-kea-110-milljonir-krona-a-fyrri-arshelmingi
Hagnaður KEA 110 milljónir króna á fyrri árshelmingi Hagnaður KEA fyrir reiknaða skatta nam 110 milljónum króna á fyrri árshelmingi ársins. Hagnaður tímabilsins eftir reiknaða skatta nam 93 milljónum króna. Heildareignir félagsins nema 4,1 milljarði króna og er félagið nánast skuldlaust. Eigið fé var rúmir 3,9 milljarð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kreppa-og-kaerleikur-nyir-islendingar-i-nyju-landi
Kreppa og kærleikur - Nýir Íslendingar í nýju landi Listasumar á Akureyri í samstarfi við Norrænu upplýsingaskrifstofuna og Alþjóðahús hafa tekið höndum saman um verkefnið "Kreppa og kærleikur". Varpað er ljósi á hérbúandi listamenn af erlendum uppruna og vakin athygli á því hvernig þeir hafa auðgað samfélag okkar með ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aga-og-urskurdarnefnd-ksi-fjorir-ur-thor-i-bann
Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ: Fjórir úr Þór í bann Fjórir leikmenn úr Þór hafa verið dæmdir í eins leiks bann af Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ. Þessir leikmenn eru Ármann Pétur Ævarsson, Jóhann Helgi Hannesson, Matthías Örn Friðriksson og Þorsteinn Ingason. Þeir munu því allir missa af útileiknum með Þór gegn Leikni R. á la...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/athyglisverd-ljosmyndasyning-opnud-i-listasafninu
Athyglisverð ljósmyndasýning opnuð í Listasafninu Sýningin „Úrvalið: íslenskar ljósmyndir 1866-2009" verður opnuð á Akureyrarvöku laugardaginn 29. ágúst kl. 15.00 í Listasafninu á Akureyri. Einar Falur Ingólfsson ljósmyndari hefur valið verk eftir þrettán kollega sína á sýninguna, og skrifar jafnframt um þá, sem og rök...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/breytingar-a-skolaheilsugaeslu-vegna-fjarhagsadstaedna
Breytingar á skólaheilsugæslu vegna fjárhagsaðstæðna Vegna fjárhagsaðstæðna verða einhverjar breytingar á framkvæmd heilsugæslu í skólum á Akureyri í haust. Stöðugildi skólahjúkrunarfræðinga eru færri en verið hefur undanfarin ár, en eru þó í samræmi við viðmiðun Heilbrigðisráðuneytisins. Verkefni verða endurskipulögð ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/inga-bjork-a-vestur-evropumot-i-kraftlyftingum
Inga Björk á Vestur- Evrópumót í kraftlyftingum Inga Björk Harðardóttir, kraftlyftingakona frá KFA, mun keppa með íslenska kvennalandsliðinu í kraftlyftingum á Vestur- Evrópu móti sem fram fer í Noregi dagana 18. og 19. september. Inga tók þátt í Sunnumótinu sem haldið var á Akureyri í sumar og stóð sig afar vel þar og...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ah-og-thor-keppa-i-frjalsum-ithrottum
AH og Þór keppa í frjálsum íþróttum Það verður afar fróðlegt frjálsíþróttamót sem fram fer á Þórsvellinum í kvöld þegar leikmenn Akureyri Handboltafélags og körfuknattleikslið Þórs munum etja kappi. Er keppnin liður í undirbúningi beggja félaga fyrir komandi keppnistímabil í haust. Keppnin hefst kl 19:00 og er reiknað ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/flug-fra-akureyri-til-kaupmannahafnar-fellt-nidur
Flug frá Akureyri til Kaupmannahafnar fellt niður Iceland Express hefur ákveðið að fella niður flug frá Akureyri til Kaupmannahafnar föstudaginn 28. ágúst nk. Samkvæmt upplýsingum frá Kristínu Þorsteinsdóttur upplýsingafulltrúa félagsins var það gert til að koma flugi frá Akureyri til Tenerife fyrir. Farþegarnir sem át...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/draugaslod-i-innbaenum-a-akureyrarvoku
Draugaslóð í Innbænum á Akureyrarvöku Skerandi skelfileg óp, drungaleg tónlist og verur af öðrum heimi er meðal annars það sem gestir og gangandi munu heyra og sjá í Innbænum, elsta hluta Akureyrar, næstkomandi föstudagskvöld 28. ágúst kl 22:30-23:59 í Draugaslóð Minjasafnsins á Akureyri og Leikfélags Akureyrar. Á unda...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/draupnir-hafnadi-i-nedsta-saeti
Draupnir hafnaði í neðsta sæti Draupnir tapaði sínum síðasta leik í D- riðli 3. deildar karla í knattspyrnu er liðið lá gegn Dalvík/Reyni í Boganum sl. laugardag. Lokatölur urðu 5-1 sigur Dalvíkur/Reynis. Viktor Már Jónasson skoraði þrennu fyrir Dalvík/Reyni í leiknum og þeir Markús Darri Jónasson og Hilmar Daníelsson ...