Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.vikubladid.is/is/frettir/minnsta-kosti-thrju-ar-i-vidbot
„Minnsta kosti þrjú ár í viðbót” Útvarpsstöðin Voice fagnar um þessar mundir þriggja ára starfsafmæli sínu. Það var þann 9. júní árið 2006 sem útvarpsstöðin fór fyrst í loftið. Stöðin sendir út um allan Eyjafjörð, á Dalvík og í Grýtubakkarhreppi á tveimur tíðnum, FM 98.7 og FM 95.1. Um áramótin var svo settur upp sendi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jonas-sveitarstjori-i-eyjafjardarsveit
Jónas sveitarstjóri í Eyjafjarðarsveit Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar hefur falið oddvita að ganga til samninga við Jónas Vigfússon um að gegna stöðu sveitarstjóra út kjörtímabilið. Jónas er byggingarverkfræðingur og MBA viðskiptafræðingur að mennt. Hann hefur reynslu af sveitarstjórnarstörfum, því hann var sveitarst...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/magni-tapadi-a-blonduosi
Magni tapaði á Blönduósi Leikmenn Magna fengu lítið út úr ferðalagi sínu til Blönduósar í gær þegar liðið sótti Hvöt heim í 2. deild karla í knattspyrnu. Leikurinn endaði með öruggum 3-0 sigri Hvatar. Eftir fimm umferðir situr Magni í 5. sæti deildarinnar með sjö stig.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ungir-jafnadarmennfagna-nyjum-baejarstjora
Ungir jafnaðarmennfagna nýjum bæjarstjóra Salka félag ungra jafnaðarmanna á Akuaryeri hefur sent frá sér ályktun í tilefni af því að Hermann Jón Tómasson oddviti samfyklingarinnar hefur tekið við starfi bæjarstjóra á Akureyri. Í samþykktinni segir m.a.: "Þessi bæjarstjóraskipti eru hluti af farsælu meirihlutasamstarfi ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hrokeringar-i-baejarstjorn
Hrókeringar í bæjarstjorn Hermann Jón Tómasson var fyrir stundu ráðinn af bæjarstjórn Akureyrar sem bæjarstjóri á Akureyri. Hann tekur við af Sigrunu Björku Jakobsdótttur í samræmi við málefnasamnig meirihlutaflokkanna, Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Sigrún var skömmu áður kosinn forseti bæjarstjórnar í stað Kristj...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nyr-formadur-felags-haskolakennara-a-akureyri
Nýr formaður Félags háskólakennara á Akureyri Á aðalfundi Félags háskólakennara í vikunni var Helgi Gestsson kjörinn formaður félagsins. Hann tekur við að Kjartani Ólafssyni sem ekki gaf kost á sér. Fundurinn samþykkti svohljóðandi ályktun: „Aðalfundur FHA lýsir sig mótfallinn framkomnum hugmyndum um sameiningu ríkishá...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/godur-arangur-odins-a-akranesleikunum
Góður árangur Óðins á Akranesleikunum Sundfélagið Óðinn gerði góða ferð á Akranesleikana í sundi sem fram fór um sl. helgi. Óðinn stóð uppi sem annað stigahæsta félag mótsins. Félagið sendi fjölmennt lið á mótið eða tæplega 60 manns á aldrinum 8-16 ára. Óðinn vann til 16 gullverðlauna í einstaklingsgreinum og til fjögu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/banaslys-i-eldi-a-kljastrond
Banaslys í eldi á Kljáströnd Eldri kona lést þegar eldur kom upp í sumarhúsinu Kljáströnd hjá gömlu verstöðinni við Kljáströnd rétt sunnan Grenivíkur í morgun. Eiginmaður konunnar var fluttur á slysadeild með reykeitrun og brunasár. Það var um kl 08:40 a slökkviliði barst tilkynning um eldinn og voru strax sent lið frá...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/magni-saekir-hvot-heim-i-kvold
Magni sækir Hvöt heim í kvöld Magni frá Grenivík sækir Hvöt heim í kvöld er liðin mætast í fimmtu umferð 2. deildar karla í knattspyrnu í kvöld. Fyrir leikinn er Magni í 5. sæti deildarinnar með sjö stig, stigi á eftir Hvöt sem vermir þriðja sætið. Leikurinn hefst kl. 20:00 í kvöld og er leikið á Blönduósvelli.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ammoniaksleki-a-grenivik
Ammoníaksleki á Grenivík Ammoníakleki kom upp í togaranum Frosta sem liggur við bryggju á Grenivík. Þar var unnið að viðhaldi. Tilkynning barst um kl. 18:30 í gærkvöldi. Slökkvilið Akureyrar og Slökkvilið Grenivíkur fóru á staðinn. Einn maður var um borð en komst hann heilu og höldnu frá borði. Ammoníakslykt berst yfir...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oruggur-sigur-thorska-i-kvold
Öruggur sigur Þórs/KA í kvöld Stúlkurnar í Þór/KA unnu í kvöld öruggan 5-1 sigur á Keflavík eru liðin mættust á Akureyrarvelli í sjöundu umferð Pepsi- deildar kvenna í knattspyrnu. Heimastúlkur höfðu yfirburði í leiknum frá fyrstu mínútu og sýndu oft á tíðum frábæran fótbolta þar sem Vesna Smiljkovic fór fyrir heimastú...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/guddomlegar-hestakerruferdir-i-midbaenum
Guðdómlegar hestakerruferðir í miðbænum "Jú þetta er bara að fara af stað núna. Þetta er hreinn og klár túrismi,” segir sr. Arnaldur Bárðarson sóknarprestur í Glerárkirkju sem í dag hrinti af stað skemmtilegu verkefni í ferðamennsku í miðbænum á Akureyri. Arnaldur er með nokkra hestvagna á ferðinni og býðst til að fara...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hafnarstraetis-hnifamadur-rauf-skilord
Hafnarstrætis hnífamaður rauf skilorð Maðurinn sem stakk annan mann í Hafnarstræti á föstudag var á skilorði. Með hífstungunni á föstudag rauf hann skilorð og hefur hann nú hafið afplánun. . Hnífstungumaðurinn sem er á fimmtugsaldri komst í kast við löginn árið 2006 og var þá sakaður um að hafa stungið konu á Húsavík í...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/arni-i-2012-landslidid
Árni í 2012 landsliðið Kristján Halldórsson, landsliðsþjálfari 2012 landsliðs karla í handbolta, hefur valið 15 manna hóp fyrir leikinn gegn Austurríki sem fram fer í Vodafonehöllinni annað kvöld kl. 19:30. Árni Þór Sigtryggson, leikmaður Akureyri Handboltafélags, er í hópnum en hann var nýverið í úrvali A- landsliðsin...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tap-hja-draupni-og-dalvikreyni
Tap hjá Draupni og Dalvík/Reyni Draupnir og Dalvík/Reynir töpuðu bæði sínum leikjum í D- riðli 3. deildar karla í knattspyrnu sl. föstudag. Draupnir beið afhroð á útivelli gegn Völsungi þar sem lokatölur á Húsavíkurvelli urðu 8-0 sigur Völsungs. Dalvík/Reynir sótti Einherja heim á Vopnafjörð þar sem lokatölur á Vopnafj...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oryggisvesti-fyrir-reidskolaborn
Öryggisvesti fyrir reiðskólabörn „Ég fullyrði að öryggisvesti af þessu tagi munu í nálægri framtíð verða staðalbúnaður í reiðmennskunni,“ segir Erlingur Guðmundsson formaður Léttis sem um ný öryggisvesti sem Sjóvá hefur gefið reiðskólunum á Akureyri að gjöf. Sjálfur kveðst hann hafa keypt slík vesti fyrir nokkrum árum ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/magni-med-godan-sigur-1
Magni með góðan sigur Eftir slæmt tap í síðasta deildarleik náði Magni góðum sigri á heimavelli gegn KS/Leiftri er liðin mættust á Grenivíkurvelli sl. föstudag í 2. deild karla. Heimamenn í Magna komust í 3-0 í leiknum með mörkum frá þeim Ingvari Gíslasyni, Halldóri Áskeli Stefánssyni og Kristjáni Páli Hannessyni. Gest...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leikhusid-a-modruvollum-hefur-sumarstarfid
Leikhúsið á Möðruvöllum hefur sumarstarfið Þóroddur Sveinsson verður með fyrirlestur í Leikhúsinu á Möðruvöllum á fimmtudaginn og markar sá fyrirlestur upphaf sumarviðburða Leikhússins. Alls verða sex menningarviðburðir í Leikhúsinu í sumar á tveggja vikna fresti til 20. ágúst þegar Guðrún Jónsdóttir verður með sögubro...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eiga-heidur-skilinn-fyrir-sjomannadaginn
Eiga heiður skilinn fyrir sjómannadaginn Veðrið leikur við bæjarbúa í dag, á sjómannadaginn, og hafa hátíðahöld farið vel fram í blíðunni og skólkininu. “Dagskráin er vegleg - þökk sé þeim sjómönnum sem eru að koma að máli og eru starfandi sjómenn. Einnig Vinum Húna og Nökkva siglingaklúbbi,” segir Konráð Alfreðsson, f...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/slaemt-tap-hja-thor-markalaust-hja-ka
Slæmt tap hjá Þór- Markalaust hjá KA Þór tapaði sínum fjórða leik í röð í 1. deild karla í knattspyrnu er liðið beið lægri hlut gegn HK á Akureyrarvelli í kvöld. Þá gerðu Afturelding og KA markalaust jafntefli í kvöld á Varmárvelli. Í leik Þórs og HK byrjuðu gestirnir í HK af krafti og áttu færi strax á fyrstu mínútu l...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/madur-stunginn-i-hafnarstraeti
Maður stunginn í Hafnarstræti Maður á sextugsaldri var stunginn í bakið með hnífi í fjölbýlishúsi við Hafnarstræti á Akureyri rétt fyrir kl. 18 í kvöld. Maðurinn komst út á götu alblóðugur og það voru vegfarendur sem hringdu til lögreglu að tilkynna um málið. Lögregla og sjúkrabíll fóru þá þegar á staðinn og var maðuri...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-faer-hk-i-heimsokn-i-kvold
Þór fær HK í heimsókn í kvöld Þór fær HK í heimsókn í kvöld og KA sækir Aftureldingu heim þegar fimmta umferð 1. deildar karla í knattspyrnu hefst. Þórsurum hefur ekki gengið sem skyldi í deildinni til þessa. Eftir góða byrjun gegn ÍA, sem Þór vann 3-0, komu þrír tapleikir í röð. Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari Þórs, e...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/blida-en-smavaegileg-vaeta
Blíða en smávægileg væta Það ætti að viðra þokkalega til göngutúara með hundana nú um helgina því útlit er fyrir framhlad á blíðunni sem verið hefur þó sólin muni ekki láta sjá sig. Spáð er hægri suðlægri átt í dag, skýjuðu að mestu til með dálítilli vætu seint í dag. Á morgun er gert ráð fyrir hægviðri og lítilli úrko...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kattamatur-ad-nordan-og-vestan
Kattamatur að norðan og vestan Framleiðsla er hafin á íslenskum kattamat í nýrri verksmiðju Murr ehf. á Súðavík og er maturinn þróaður í samstarfi við Norðlenska á Akureyri og SAH á Blönduósi. Varan væntanleg í verslanir eftir helgina. Murr ehf. hefur síðustu tvö ár unnið að undirbúningi framleiðslu á íslenskum kattama...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/arni-thor-sigtryggsson-i-landslidsurval
Árni Þór Sigtryggsson í landsliðsúrval Árni Þór Sigtryggsson, leikmaður Akureyrar Handboltafélags, var í gær valinn í æfingahóp íslenska karlalandsliðsins í handbolta fyrir leikina sem framundan eru hjá landsliðinu í undanriðli EM. Árni er óðum að ná sínum fyrri styrk eftir axlaðgerð sem hann fór í sl. vetur. Þetta er ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/visa-bikar-karla-ka-og-thor-med-heimaleik
VISA- bikar karla: KA og Þór með heimaleik Dregið var í 32- liða úrslit VISA- bikarkeppni karla í knattspyrnu nú rétt í þessu. KA dróst gegn Aftureldingu en Þór mætir Víkingi frá Ólafsvík. Bæði KA og Þór komu á undan upp úr pottinum og fá því heimaleikjaréttinn. Leikirnir fara fram 18. - og 19. júní nk.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/alger-ovissa
Alger óvissa! "Mér líst illa á stöðuna og og í raun eru samningamál komin í algera óvissu. Þessi ákvörðun um mjög litla vaxtalækkun sýnir að það eru ekki íslensk stjórnvöld eða Seðalabankinn sem í raun ráðar ferðinni heldur Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn,” sagði Björn Snæbjörnsson formaður Einingar Iðju í samtali við Viku...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/islandsmotid-i-motocross-urslit-fyrstu-umferdar
Íslandsmótið í Motocross: Úrslit fyrstu umferðar Fyrsta umferð Íslandsmótsins í Motocross var haldin á dögunum á Akureyri. Gott veður var á keppnisdeginum og brautin í hæsta gæðaflokki fyrir keppendur. Helstu úrslit: MX-OPEN Aron Ómarsson Einar S. Sigurðarson Gunnlaugur Karlsson MX-2 Viktor Guðbergsson Sölvi Borgar Sve...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tap-a-stjornuvelli-i-kvold
Tap á Stjörnuvelli í kvöld Þór/KA beið lægri hlut gegn Stjörnunni er liðin mættust á Stjörnuvelli í kvöld í Pepsi- deild kvenna í knattspyrnu. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en hvorugu liðinu tókst að skora og staðan markalaus í hálfleik. Á fjögurra mínútna kafla í síðari hálfleik skoraði Stjarnan tvö mörk. ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/atli-pall-og-aegir-svanholt-i-bann
Atli Páll og Ægir Svanholt í bann Þeir Atli Páll Gylfason og Ægir Svanholt Reynisson, leikmenn Draupnis, voru dæmdir í eins leiks bann þegar Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ kom saman í gær. Þeir fengu báðir rautt spjald í leik Draupnis gegn Einherja sl. föstudagskvöld í 3. deild karla í knattspyrnu. Þeir félagar missa því a...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorka-saekir-stjornuna-heim-i-kvold
Þór/KA sækir Stjörnuna heim í kvöld Þór/KA sækir Stjörnuna heim í kvöld þegar sjötta umferð Pepsi- deildar kvenna í knattspyrnu fer fram. Fyrir leikinn munar fimm stigum á liðunum. Stjarnan hefur 12 stig í 4. sæti deildarinnar en Þór/KA er í 5. sæti með sjö stig. Leikurinn hefst kl. 19:15 og fer leikurinn fram á Stjörn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sund-bryndis-med-threnn-verdlaun
Sund: Bryndís með þrenn verðlaun Bryndís Rún Hansen, sundkona úr Óðni, vann til þriggja verðlauna í sínum aldursflokki með unglingalandsliði Íslands á Swimshop Cup í Osló um helgina. Bryndís sigraði í 200 m fjórsundi og 50 m flugsundi og varð önnur í 100 m flugsundi. Bryndís heldur því áfram að gera góða hluti í sundin...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fundad-i-kvold-um-kjarasamninga
Fundað í kvöld um kjarasamninga Samninganefnd Einingar-Iðju hefur verið boðuð á fund í kvöld til að fara yfir þá stöðu sem uppi er í samningamálunum. Horfur eru dökkar um að saman náist með aðilum varðandi launalið samninga og líklegt talið að ef verkalýðshreyfingin gefi ekki eftir varðandi umsamdar launahækkanir muni ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-afram-i-visa-bikarnum
Þór áfram í VISA- bikarnum Þór komst áfram í 32- liða úrslit VISA- bikarkeppni karla í knattspyrnu er liðið hafði betur gegn Magna nú í kvöld. Lokatölur á Akureyrarvelli urðu 2-1 sigur Þórs. Sveinn Elías Jónsson kom heimamönnum yfir þegar hann skallaði boltann í netið eftir hornspyrnu á 35. mínútu leiksins. Staðan í há...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/geir-gudmundsson-a-olympiuleika-aeskunnar
Geir Guðmundsson á Ólympíuleika æskunnar Við sögðum frá því í síðustu viku að KA- mennirnir Guðmundur Hólmar Helgason og Ásgeir Jóhann Kristinsson voru valdir í U-17 ára landslið karla í handbolta fyrir Ólympíuleika æskunnar í sumar. Það gleymdist hins vegar að geta þess að Þórsarinn, Geir Guðmundsson, var einnig valin...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sigur-hja-draupnisstulkum
Sigur hjá Draupnisstúlkum Draupnir vann sinn fyrsta leik í 1. deild kvenna í knattspyrnu er liðið fékk Tindastól/Neista í heimsókn sl. fimmtudag. Lokatölur í Boganum urðu 4-3 sigur Draupnis. Guðrún Soffía Viðarsdóttir skoraði tvívegis í leiknum fyrir heimastúlkur og þær Gerður Rún Ólafsdóttir og Katrín Vilhjálmsdóttir ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/lokahof-yngra-flokka-thors
Lokahóf yngra flokka Þórs Á fimmtudaginn sl. var uppskeruhátíð hjá yngri flokkum Þórs í handbolta sem haldið var í Hamri. Talið er að hátt í 150 manns hafi tekið þátt í gleðinni. Þessir krakkar fengu viðurkenningar á lokahófinu. 3. fl. karla Besti leikmaður: Valþór Guðrúnarson Besti sóknarmaðurinn :Bergvin Gíslason Bes...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/god-afkoma-lsa
Góð afkoma LSA Nafnávöxtun Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar var 15,7% á árinu 2008 en hrein raunávöxtun neikvæð um 0,56%, sem er mun betri afkoma en margir aðrir sjóðir hafa sýnt að undanförnu. Þetta kom fram á ársfundi sjóðsins sem var haldinn miðvikudaginn 27. maí s.l. Á fundinum var lagður fram ársreikningur...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-magni-a-akureyrarvelli-i-kvold
Þór- Magni á Akureyrarvelli í kvöld Það verður boðið upp á annan nágrannaslag á Akureyrarvelli í kvöld þegar Þór tekur á móti Magna í VISA- bikarkeppni karla í knattspyrnu. Í gærkvöld áttust við KA og Dalvík/Reynir, sem endaði með sigri KA eftir framlengingu. Ljóst er að kvöldið í kvöld gæti orðið langt þar sem leikið ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jon-orri-haettur
Jón Orri hættur Lið Þórs í meistaraflokki karla í körfubolta varð fyrir mikilli blóðtöku sl. mánudag þegar ljóst var að Jón Orri Kristjánsson myndi hætta hjá félaginu. Vegna persónulegra ástæðna var Jón Orri leystur undan samningi að eigin ósk. Jón Orri kom til Þórs frá ÍR haustið 2005 og lék með Þór fjögur tímabil. Ha...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tap-hja-draupni-i-fyrsta-leik
Tap hjá Draupni í fyrsta leik Draupnir spilaði sinn fyrsta leik í D- riðli 3. deildar karla í knattspyrnu þegar félagið fékk Einherja í heimsókn sl. föstudagskvöld, en leikið var í Boganum. Hlynur Birgisson kom heimamönnum yfir með marki úr vítaspyrnu á 71. mínútu leiksins. Allt leit út fyrir sigur hjá Draupni í sínum ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tiu-thatttokukorar-alls-um-300-songvarar
Tíu þátttökukórar - alls um 300 söngvarar Heildarfjöldi þátttakenda sem taka mun þátt í kórastefnu við Mývatn um næstu helgi verður um 350 manns og þar af eru um 300 söngvarar. Kórar sem taka þátt eru Söngsveitin Fílharmónía, Kór Hjallakirkju, Kór Neskirkju, Kór Egilsstaðakirkju, Kór Blönduóskirkju,Kammerkór Tónlistarh...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/visa-bikar-ka-afram-eftir-framlengingu
VISA-bikar: KA áfram eftir framlengingu KA komst í kvöld áfram í 32-liða úrslit VISA-bikarkeppni karla í knattspyrnu er liðið lagði Dalvík/Reyni að velli á Akureyrarvelli. Staðan eftir venjulegan leiktíma var 1-1, svo grípa þurfti til framlengingar. Þar reyndust KA- menn sterkari og uppskáru að lokum 4-1 sigur. Fyrsta ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/framkvaemdir-a-akureyrarflugvelli-ganga-vel
Framkvæmdir á Akureyrarflugvelli ganga vel Hafist var handa við að malbika flugbrautina á Akureyrarflugvelli í síðustu viku en fyrirtækið Hlaðbær-Colas í Hafnarfirði bauð eitt fyrirtækja í verkið á sínum tíma. Jarðvegsvinnu er að ljúka um þessar mundir að sögn Þrastar Sívertsen byggingatæknifræðings hjá Ístak, sem er a...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/grannaslagur-a-akureyrarvelli-i-dag
Grannaslagur á Akureyrarvelli í dag Í dag verður leikið í VISA- bikarkeppni karla í knattspyrnu, á Akureyrarvelli tekur KA á móti grönnum sínum í Dalvík/Reyni. Leikurinn átti upphaflega að fara fram annað kvöld en var færður til um einn dag. Búast má við hörkuleik milli þessara liða þar sem ekkert verður gefið eftir. L...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/logregla-haft-afskipti-af-morgum-okumonnum-vegna-hradaksturs
Lögregla haft afskipti af mörgum ökumönnum vegna hraðaksturs Það sem af er Hvítasunnuhelginni hefur lögreglan á Akureyri verið með sérstakt eftirlit um umferðinni í umdæmi sínu og haft afskipti af fjölda ökumanna og þá sérstaklega vegna hraðaksturs. Lögreglan hefur m.a. notast við hraðamyndavél við þetta eftirlit sitt ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eldur-i-nordlenska-a-akureyri
Eldur í Norðlenska á Akureyri Rétt fyrir klukkan 19 í gærkvöld var Slökkviliðið á Akureyri kallað út að kjötvinnslu Norðlenska við Grímseyjargötu. Eldboð barst stjórnstöð Öryggismiðstöðvar og þegar vaktmaður kom á staðinn var talsverður reykur í miðrými hússins. Reykkafarar voru sendir inn í húsið og fundu þeir fljótle...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/enginn-vill-sja-sjomannadaginn-a-akureyri-hverfa
Enginn vill sjá sjómannadaginn á Akureyri hverfa Þeir félagar Rúnar Þór Björnsson formaður Nökkva og Þorsteinn Pétursson hjá Hollvinum Húna II, undirbúa nú hátíðarhöld á Akureyri vegna sjómannadagsins sem er 7. júní nk. Áhöfnin á Vilhelm Þorsteinssyni EA hefur einnig unnið að undirbúningi og „nú er í burðarliðnum tvegg...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/engin-uppgjof-hja-kaupmonnum-a-akureyri
Engin uppgjöf hjá kaupmönnum á Akureyri Aðalfundur Kaupmannafélags Akureyrar fór fram í vikunni þar sem farið var yfir stöðu kaupmanna í bænum og ný stjórn kosin. Ragnar Sverrisson heldur áfram sem formaður félagsins. Aðrir í stjórn félagsins eru Vilborg Jóhannesdóttir í Centro, Randver Karlsson í Siemens, Pálmi Stefán...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/lif-og-leikir-barna-a-syningu-minjasafnsins-a-akureyri
Líf og leikir barna á sýningu Minjasafnsins á Akureyri Sólskinsdagar í lífi barna eru margir. Góðu stundirnar með uppáhalds leikfangið í herberginu, í tómstundastarfi eða í skólanum eru mörgum enn hugleiknar. Á sýningu Minjasafnins á Akureyri; Allir krakkar, allir krakkar... líf og leikir barna, sem opnar í dag kl 14.0...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jafntefli-hja-ka-tap-hja-thor
Jafntefli hjá KA- Tap hjá Þór KA og Fjarðarbyggð gerðu jafntefli nú í kvöld er liðin áttust við á Akureyrarvelli í 1. deild karla í knattspyrnu. Þá tapaði Þór á útivelli gegn Víkingi R. þar sem lokatölur urðu 2-1 sigur Víkings. Einar Sigþórsson skoraði mark Þórs í leiknum í kvöld. Í leik KA og Fjarðarbyggðar voru það h...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rettindi-sjodfelaga-stapa-lifeyrissjods-ekki-skert
Réttindi sjóðfélaga Stapa lífeyrissjóðs ekki skert Ársfundur Stapa lífeyrissjóðs var haldinn á Hótel Reynihlíð í Mývatnssveit í gær. Alls áttu 39 fulltrúar frá Einingu-Iðju rétt á setu á fundinum. Sigrún Björk Jakobsdóttir, formaður stjórnar, flutti skýrslu stjórnar og Kári Arnór Kárason framkvæmdastjóri skýrði ársreik...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/arnar-nyr-adstodarmadur-idnadarradherra
Arnar nýr aðstoðarmaður iðnaðarráðherra Arnar Guðmundsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Katrínar Júlíusdóttur iðnaðarráðherra. Arnar hefur starfað í Hagfræðideild Landsbankans, hjá Fjárfestingarstofunni og Útflutningsráði Íslands, Aflvaka hf. atvinnuþróunarfélagi Reykjavíkur og sem upplýsingafulltrúi, ritstjóri og b...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tvennir-tonleikar-i-populus-tremula-um-helgina
Tvennir tónleikar í Populus tremula um helgina Um helgina verða haldnir tvennir tónleikar í Populus tremula í Gilinu á Akureyri. Laugardagskvöldið 30. maí kl. 21:00 er það hljómsveitin The DeathMetal SuperSquad, frá Reykjavík, stígur á svið og flytur rólegt pönk með angurværu ívafi. Einnig koma fram, Tim Holehouse (bre...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samsyning-myndlistarmanna-i-myvatnssveit
Samsýning myndlistarmanna í Mývatnssveit Hópur myndlistarmanna opnar sýninguna; Lýðveldið við vatnið, í Hlöðunni, Reykjahlíð IV og í forsal Reykjahlíðarkirkju við Mývatn, laugardaginn 30. maí, kl. 15.00 og stendur hún til mánudagsins 1. júní. Sýningarverkefnið hefur hlotið styrk frá Hlaðvarpanum, menningarsjóði kvenna....
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-faer-fjardabyggd-i-heimsokn-thor-saekir-viking-r-heim
KA fær Fjarðabyggð í heimsókn- Þór sækir Víking R. heim KA tekur á móti Fjarðabyggð í kvöld þegar félögin mætast í fjórðu umferð 1. deildar karla í knattspyrnu. Þór heldur suður á bóginn í dag og sækir Víking R. heim. Leikur KA og Fjarðabyggðar fer fram á Akureyrarvelli og hefst kl. 19:15. Steingrímur Örn Eiðsson, aðst...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hjalmurinn-bjargadi-reidhjola-manni-sem-fell-a-hjoli-sinu
Hjálmurinn bjargaði reiðhjóla- manni sem féll á hjóli sínu Í morgun var tilkynnt um slys í Kaupvangsstræti á Akureyri á móts við Myndlistarskólann. Þar höfðu þrír 14 ára piltar verið að hjóla niður Kaupvangsstræti þegar einn þeirra missti stjórn á reiðhjóli sínu með þeim afleiðingum að hann kastaðist af því og féll í g...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stort-tap-hja-thorka-i-kvold
Stórt tap hjá Þór/KA í kvöld Stelpurnar í Þór/KA töpuðu stórt fyrir Valsstúlkum í kvöld er liðin áttust við í 5. umferð Pepsi- deildar kvenna í knattspyrnu. Lokatölur á Akureyrarvelli urðu 7-2 sigur Valsstúlkna sem mættu gríðarlega öflugar til leiks. Fyrsta mark leiksins kom eftir aðeins sex mínútna leik og það gerði R...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/god-adsokn-i-sumarnam-hja-haskolanum-a-akureyri
Góð aðsókn í sumarnám hjá Háskólanum á Akureyri Háskólinn á Akureyri tók upp á þeirri nýjung í vor að bjóða upp á nám fyrir nemendur skólans í sumar. Þetta er að stórum hluta gert vegna atvinnuleysis sem býður margra háskólanema í sumar og vill skólinn koma til móts við þá með þessum hætti. Námsframboðið stendur af nám...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hringdu-i-skoginn-og-hlustadu-a-frodleik-eda-skemmtun
Hringdu í skóginn og hlustaðu á fróðleik eða skemmtun Frá og með 1. júní nk. býður Skógrækt ríkisins gestum þjóðskóganna upp á skemmtilega viðbót við kyrrðina, fuglasönginn og þytinn í trjánum. Við stíga í skógunum standa nú staurar með símanúmeri sem hægt er að hringja í og hlusta á fróðleik eða skemmtun tengda umhver...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aukasyningar-a-songleiknum-vinlandi-i-freyvangi
Aukasýningar á söngleiknum Vínlandi í Freyvangi Sýning Freyvangsleikhússins á söngleiknum Vínland eftir Helga Þórsson var valin athyglisverðasta áhugaleiksýning leikársins 2008-2009 af dómnefnd Þjóðleikhússins, eins og fram hefur komið. Þetta er í sextánda sinn sem athyglisverðasta áhugaleiksýning er valin en Vínland v...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrstu-skoflustungurnar-teknar-a-nyju-akstursithrottasvaedi-ba
Fyrstu skóflustungurnar teknar á nýju akstursíþróttasvæði BA Kristján Möller samgönguráðherra, Hermann Jón Tómasson formaður bæjarráðs og Kristján Þ. Kristinsson formaður Bílaklúbbs Akureyrar tóku nú fyrir stundu fyrstu skóflustungurnar á nýju landssvæði Bílablúbbsins, að viðstöddu fjölmenni. Í kjölfarið hófust jarðveg...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jomfruartonleikar-storsveitar-akureyrar-a-laugardag
Jómfrúartónleikar Stórsveitar Akureyrar á laugardag Stórsveit Akureyrar heldur jómfrúartónleika sína á Græna Hattinum næstkomandi laugardag. Sveitin var stofnuð nú á vormánuðum af tónlistarmönnum á Akureyri, Hjörleifi Jónssyni, skólastjóra og Baldvini Esra, hjá Kimi Records. Stjórnandi og aðalsprauta sveitarinnar er hi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjarmalaradherra-afhendir-krofur-um-thjodlendur-a-nordurlandi
Fjármálaráðherra afhendir kröfur um þjóðlendur á Norðurlandi Fjármálaráðherra hefur, fyrir hönd íslenska ríkisins, afhent óbyggðanefnd kröfur sínar um þjóðlendur á vestanverðu Norðurlandi (nyrðri hluta). Óbyggðanefnd kallar nú eftir kröfum þeirra sem þar kunna að eiga öndverðra hagsmuna að gæta. Í stuttu máli er þjóðle...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rumlega-20-erlendir-laeknar-a-namskeidi-a-fsa
Rúmlega 20 erlendir læknar á námskeiði á FSA Þessa viku eru 24 erlendir læknar á námskeiði á FSA. Nemarnir eru sérfræðingar í svæfingalækningum eða í sérnámi og koma frá öllum Norðurlöndunum. Námskeið þetta er lokahluti af samnorrænu sérfræðinámi í barnasvæfingum og barnagjörgæslu og er haldið á vegum Scandinavian Soci...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/domi-i-mali-slokkvilidsmanns-gegn-baenum-afryjad
Dómi í máli slökkviliðsmanns gegn bænum áfrýjað Akureyrarbær var í febrúar sl. dæmdur í Héraðsdómi Norðurlands eystra, til að greiða Sigurði Lárusi Sigurðssyni slökkviliðsmanni, tæpar 3 milljónir króna í bætur og 900.000 krónur í málskostnað. Á fundi bæjarráðs í morgun var samþykkt að áfrýja dómi héraðsdóms til Hæstaré...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/risaslagur-a-akureyrarvelli-i-kvold
Risaslagur á Akureyrarvelli í kvöld Það verður risaslagur á Akureyrarvelli í kvöld þegar Þór/KA fær Val í heimsókn í Pepsi- deild kvenna í knattspyrnu. Fyrir leikinn munar aðeins tveimur stigum á liðunum og ljóst að allt verður gefið í þennan leik. Leikurinn hefst kl. 19:15 og er frítt á völlinn. Nánar um leikinn í Vik...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thoroddur-og-edvard-daema
Þóroddur og Eðvarð dæma Í kvöld mætast Grindavík og Þróttur R. í Pepsi- deild karla á Grindarvíkurvelli. Það sem tengir Norðurland við þennan leik er það að Akureyringarnir Þóroddur Hjaltalín Jr. og Eðvarð Eðvarðsson munu dæma leikinn. Þóroddur verður dómari og Eðvarð aðstoðardómari en þetta mun vera fyrsti leikur Eðva...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/blak-lokahof-yngri-flokka-ka
Blak: Lokahóf yngri flokka KA Lokahóf hjá yngriflokkum blakdeildar KA var haldið á dögunum með pompi og prakt. Allir krakkar í 5.- 6. og 7. flokki fengu viðurkenningar fyrir framfarir og ástundun. Í eldri flokkum voru veitt verðlaun fyrir mestu framfarir. Eftirtaldir hlutu verðlaun fyrir mestu framfarir: 4. fl. karla G...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/visa-bikar-karla-ka-spilar-a-manudaginn
VISA- bikar karla: KA spilar á mánudaginn Leikur KA og Dalvíks/Reynis sem átti að fara fram á þriðjudagskvöldið 2. júní í VISA- bikarkeppni karla í knattspyrnu, verður færður til og mun leikurinn vera spilaður á mánudeginum 1. júní kl. 17:00. Leikur Þórs og Magna í VISA- bikarnum fer fram á Akureyrarvelli að kvöldi þri...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skoflustunga-tekin-a-nyju-lands-svaedi-bilaklubbs-akureyrar
Skóflustunga tekin á nýju lands- svæði Bílaklúbbs Akureyrar Bílaklúbbur Akureyrar fagnar nú 35 ára starfsafmæli sínu - en félagið var stofnað þann 27. maí 1974. Bílaklúbburinn hefur allt frá stofnun hans verið leiðandi afl í íslensku mótorsporti, haldið frá fyrsta ári veglega bílasýningu þann 17. júní ár hvert og síðas...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aukin-adsokn-ad-amtsboka-safninu-fra-thvi-i-haust
Aukin aðsókn að Amtsbóka- safninu frá því í haust Á fundi stjórnar Akureyrarstofu nýlega var rætt um drög að stefnu Amtsbókasafnsins. Starfsmenn og notendaráð safnsins hafa unnið drögin í sameiningu og kom amtsbókavörður á fundinn og gerði grein fyrir stefnunni. Í kynningu sinni kom amtsbókavörður jafnframt inn á starf...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/haskolarad-motfallid-hugmynd-um-um-ad-ha-verdi-ad-utibui
Háskólaráð mótfallið hugmynd- um um að HA verði að útibúi Háskólaráð Háskólans á Akureyri fjallaði á fundi sínum í dag um úttektir á háskóla- og vísindakerfinu sem unnar voru á vegum menntamálaráðuneytisins. Háskólaráð fagnar upplýstri umræðu um vísindi og háskólamál og tekur undir ýmis sjónarmið sem koma fram í þessum...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/2-flokkur-karla-thor-med-fullt-hus-stiga
2. flokkur karla: Þór með fullt hús stiga Lið Þórs í 2. flokki karla bar sigurorð af liði Fram í gær þegar liðin áttust við í Boganum á Íslandsmótinu í knattspyrnu . Þeir Kristján Steinn Magnússon og Jóhann Helgi Hannesson skoruðu mörk Þórs í leiknum. Þar með hefur Þór unnið báða sína leiki í deildinni og eru í þriðja ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tryggvi-tryggvason-radinn-fram-kvaemdastjori-hja-saga-capital
Tryggvi Tryggvason ráðinn fram- kvæmdastjóri hjá Saga Capital Tryggvi Tryggvason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Fjárstýringar hjá Saga Capital Fjárfestingarbanka og tekur hann til starfa þann 1. júní nk. Starfsmenn bankans eru 30. Tryggvi býr að 14 ára starfsreynslu úr fjármála- og bankageiranum en síðustu 10 árin...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/godur-arangur-umse-a-baetingsmoti
Góður árangur UMSE á Bætingsmóti Bætingsmót UMSE og UFA var haldið í 5. sinn á Laugum þann 21. maí sl. Á mótinu kepptu níu krakkar í sleggjukasti frá UMSE. Sigurbjörg Áróra Ásgeirsdóttir gerði sér lítið fyrir og setti Íslandsmet í flokki 12 ára stelpna þegar hún kastaði sleggjunni 24, 22 m. Þá stóð Þorsteinn Ægir Óttar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samid-vid-tvo-fyrirtaeki-um-utanhussmalun-a-akureyri
Samið við tvö fyrirtæki um utanhússmálun á Akureyri Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar hefur samþykkt samninga við tvö fyrirtæki um utanhússmálun í bænum en tilboð beggja fyrirtækja voru töluvert undir kostnaðaráætlunum. Annars vegar er um að ræða samning við Litblæ ehf. um utanhússmálun á Listasafninu og hins vegar við H...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bojana-og-sylvia-i-lid-4-umferdar-1
Bojana og Sylvía í lið 4. umferðar Þær Bojana Besic og Sylvía Rán Sigurðardóttir knattspyrnukonur úr Þór/KA voru valdar í lið fjórðu umferðar í Pepsi- deild kvenna af vefnum fotbolti.net. Bojana skoraði einmitt glæsilegt mark beint úr aukaspyrnu í leik Þórs/KA gegn Fylki á dögunum.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bojana-og-sylvia-i-lid-4-umferdar
Bojana og Sylvía í lið 4. umferðar Þær Bojana Besic og Sylvía Rán Sigurðardóttir úr Þór/KA voru valdar í lið fjórðu umferðar í Pepsi- deild kvenna af vefnum fotbolti.net. Bojana skoraði einmitt glæsilegt mark í leik Þórs/KA gegn Fylki á dögunum.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/elmar-byrjar-vel-i-noregi
Elmar byrjar vel í Noregi Fyrrum KA- maðurinn, Elmar Dan Sigþórsson, er að gera góða hluti í Noregi þar sem hann spilar með 3. deildarliðinu Tornado Malöy. Á heimasíðu félagsins er könnun þar sem mönnum eru gefin atkvæði eftir því sem þeir standa sig vel. Elmar Dan er í öðru sæti á þessum lista með 26 % atkvæði, aðeins...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ekki-fekkst-fjarmagn-til-nybyggingar-i-stad-kjarnalundar
Ekki fékkst fjármagn til nýbyggingar í stað Kjarnalundar Öldrunaheimili Akureyrar fengu úthlutað um 16,5 milljónum króna úr framkvæmdasjóði aldraðra, til endurnýjunar á hjúkrunardeild í elsta hluta Hlíðar og til breytinga á húsnæði vegna stækkunar á dagvistunarrýmum. Umsóknum vegna eldri breytinga í Hlíð og vegna nýbyg...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/utibu-fra-radgjafastofu-um-fjarmal-heimilanna-verdi-a-akureyri
Útibú frá Ráðgjafastofu um fjármál heimilanna verði á Akureyri Á síðasta fundi félagsmálaráðs Akureyrar var lagt fram minnisblað til Árna Páls Árnasonar félags- og tryggingamálaráðherra. Félagsmálaráð bendir þar á að það feli í sér mismunun að þjónusta Ráðgjafastofu um fjármál heimilanna skuli einungis vera staðsett á ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-folk-a-olympiuleika-aeskunnar
KA fólk á Ólympíuleika æskunnar Valinn hefur verið 14 manna hópur fyrir U- 17 ára landslið Íslands í handbolta sem keppir á Ólympíuleikum æskunnar í Finnlandi en leikarnir fara fram í júlí. Tveir ungir og efninlegir KA- menn voru valdir í hópinn, þeir Guðmundur Hólmar Helgason og Ásgeir Jóhann Kristinsson. Strákarnir v...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/simaskrain-2009-komin-ut-stutfull-af-frodlegu-efni
Símaskráin 2009 komin út – stútfull af fróðlegu efni Símaskráin 2009 er komin út - og auk þess að geyma um 320.000 símanúmer er hún full af fróðlegu efni sem getur komið sér vel í dagsins önn. Sem dæmi má nefna kort af öllum landshlutum og götukort af bæjarfélögum, flokkað yfirlit yfir veitingastaði og ýmsar hagnýtar u...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thrir-fra-ka-a-smathjodaleikana
Þrír frá KA á Smáþjóðaleikana Landsliðsþjálfarar A- landsliðanna í blaki hafa valið sína 12 manna hópa fyrir Smáþjóðaleikana á Kýpur sem fram fara 1.-6. júní. Í hópnum eru þrír blakmenn frá KA, þeir eru Hilmar Sigurjónsson, Kristján Valdimarsson og Hafsteinn Valdimarsson.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/old-boys-torfaerukeppni
"Old boys" torfærukeppni Um Hvítasunnuhelgina nk. fagnar Bílaklúbbur Akureyrar 35 ára afmæli sínu með því að halda fyrstu “Old- Boys„ torfærukeppnina hér á landi. Keppt verður í tveimur flokkum, flokki götubíla og í flokki sérútbúinna bíla. Allir þeir sem keppt hafa í torfæru fyrir árið 1999 og eru hættir keppni til Ís...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stefan-karel-efninlegastur
Stefán Karel efninlegastur Lokahóf yngri flokka Þórs í körfubolta var haldið í Hamri sl. laugardag þar sem veturinn var gerðu upp og veitt voru verðlaun fyrir þá sem þóttu standa sig best á nýliðnum vetri. Stefán Karel Torfason skaraði framúr og var valinn efninlegasti leikmaður yngri flokka. Viðurkenningar hlutu eftir...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/treborg-baud-laegst-i-fram-kvaemdir-i-menningarhusinu-hofi
Tréborg bauð lægst í fram- kvæmdir í menningarhúsinu Hofi Fyrirtækið Tréborg hf. bauð lægst í uppsetningu á hurðum og kerfisloftum í menningarhúsið Hof á Akureyri. Alls bárust sex tilboð í verkið og voru þrjú þeirra undir kostnaðaráætlun, sem hljóðaði upp á rúmar 33,8 milljónir króna. Tilboð Tréborgar var upp á um 27,7...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bodvar-nyr-thjalfari-thors
Böðvar nýr þjálfari Þórs Böðvar Þórir Kristjánsson hefur verið ráðinn þjálfari Þórs í meistaraflokki karla í körfubolta. Böðvar er 38 ára gamall Keflvíkingur og en hann gekk fyrst til liðs við Þór árið 1995, þá sem leikmaður. Hann hefur bæði leikið með Þór og Keflavík í úrvalsdeildinni, auk þess sem hann hefur talsverð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/god-verkefnastada-hja-slippnum-akureyri
Góð verkefnastaða hjá Slippnum Akureyri Verkefnastaðan hjá Slippnum Akureyri er með allra besta móti og útlitið fyrir sumarið og fram á haust er mjög gott, að sögn Antons Benjamínssonar framkvæmdastjóra. Gríðarleg ásókn var í sumarstörf hjá Slippnum og segist Anton ekki muna annað eins síðustu ár. Aðallega voru það ver...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjogur-fikniefnamal-komu-upp-a-akureyri-um-helgina
Fjögur fíkniefnamál komu upp á Akureyri um helgina Fjögur fíkniefnamál komu upp hjá lögreglunni á Akureyri um helgina, þar sem haldlagðar voru rúmlega 60 e-töflur, tæp 10 grömm af kókaíni og svipað magn af amfetamíni auk smáræðis af hassi. Þá lagði lögregla hald á peninga sem taldir eru vera ágóði af fíkniefnasölu. Þrí...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jafntefli-hja-magna
Jafntefli hjá Magna Magni frá Grenivík tók á móti Hetti er liðin áttust við í annarri umferð í 2. deild karla í knattspyrnu sl. fimmtudag en leikurinn fór fram í Boganum. Leikurinn lyktaði með 1-1 jafntefli. Það var Ingvar Már Gíslason sem skoraði mark Magna í leiknum. Eftir tvær umferðir situr Magni í 2. sæti deildari...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tap-hja-dalvikreyni-2
Tap hjá Dalvík/Reyni Dalvík/Reynir hóf sumarið með tapi þegar félagið tók á móti á Huginn í fyrstu umferð D- riðils 3. deildar karla í knattspyrnu sl. fimmtudag. Eitt mark var skorað á Árskógsvellinum og það gerði gestirnir og niðurstaðan því 1-0 tap hjá heimamönnum. Dalvík/Reynir situr í næstneðsta sæti riðilsins án s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tvo-top-hja-draupni
Tvö töp hjá Draupni Kvennalið Draupnis frá Akureyri hóf keppni í 1. deild kvenna í knattspyrnu um nýliðna helgi helgi þar sem norðanstúlkur sóttu Hafnarfjarðarliðin Hauka og FH heim. Það verður ekki sagt að stelpurnar í Draupni hafi byrjað mótið með glæsibrag því leikirnir tveir töpuðust báðir stórt. Stúlkurnar töpuðu ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/magni-og-dalvikreynir-afram-i-bikarnum
Magni og Dalvík/Reynir áfram í bikarnum Magni frá Grenivík og Dalvík/Reynir komust bæði áfram úr VISA- bikarkeppni karla þegar fyrsta umferð var leikinn í gær. Magni lagði Tindastól á heimavelli 2-1 þar sem Kristján Páll Hannesson og Davíð Jón Stefánsson skoruðu mörk Magna í leiknum. Dalvík/Reynir gerði góða ferð til H...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fundur-i-samninganefnd-einingar-idju-bodadur-a-morgun
Fundur í samninganefnd Einingar-Iðju boðaður á morgun Samninganefnd Einingar-Iðju á Akureyri hefur verið boðuð á fund á Hótel KEA á morgun þriðjudag, þar sem farið verður yfir stöðuna í samningamálum. Þar verður m.a. farið yfir tillögur sem SA setti fram í síðustu viku um breytingar á kjarasamningum aðildarfélaga Alþýð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/allt-reynt-til-ad-koma-fiskvinnslu-i-gang-a-ny
Allt reynt til að koma fiskvinnslu í gang á ný Vinnslu í fiskvinnslu Brims á Grenivík mun ljúka í þessum mánuði. Um 15 manns hafa unnið þar á liðnum árum. Grýtubakkahreppur leitar allra leiða til að framhald verði á fiskvinnslu á staðnum og er með nokkur járn í eldinum. Ágúst Torfi Hauksson hjá Brim á Akureyri segir að...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hagnadur-hja-sveitarsjodi-horgarbyggdar-a-sidasta-ari
Hagnaður hjá sveitarsjóði Hörgárbyggðar á síðasta ári Sveitarstjórn Hörgárbyggðar hefur afgreitt ársreikning sveitarfélagsins og stofnana þess fyrir árið 2008. Rekstrartekjur A- og B-hluta sveitarsjóðs á árinu voru samtals 232 milljónir króna og rekstrargjöld voru 210 milljónir króna. Hagnaður af rekstri varð því 22 mi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jafnt-i-arbaenum
Jafnt í Árbænum Fylkir og Þór/KA gerðu í dag 1-1 jafntefli þegar félögin mættust á Fylkisvelli í fjórðu umferð Pepsi- deildar kvenna í knattspyrnu. Það var varnarmaskínan Bojana Besic sem skoraði mark Þórs/KA. Eftir leikinn eru Þórs/KA stúlkur í 5. sæti deildarinnar með sjö stig. Nánar verður sagt frá leiknum í Vikudeg...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fodurverksmidjan-laxa-hof-utflutning-til-faereyja-a-ny
Fóðurverksmiðjan Laxá hóf útflutning til Færeyja á ný „Það var mjög góður rekstrarárangur hjá okkur á liðnu ári, en eins og hjá öðrum fyrirtækjum þá eru fjármagnsliðirnir erfiðir. En við erum ánægð með að þrátt fyrir tap á þeim vettvangi komum við út í örlitlum plús, það er mjög jákvætt miðað við þær hrakfarir sem urðu...