Search is not available for this dataset
url stringlengths 21 288 | text stringlengths 1 1.35M |
|---|---|
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kathor-i-urslitaleik-2-deildar-i-handbolta | KA/Þór í úrslitaleik 2. deildar í handbolta
Kvennalið KA/Þórs í handbolta er komið í úrslitaleik 2. deildar kvenna í handbolta eftir baráttu sigur gegn B-liði FH í KA-heimilinu
í gærkvöld. Jafnt var á flestum tölum allan leikinn en heimastúlkur höfðu alltaf frumkvæðið. Staðan í hálfleik var 10-7
þeim í vil.
KA/Þór gekk... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sidasta-skidahelgin-i-hlidarfjalli-a-thessum-vetri | Síðasta skíðahelgin í Hlíðarfjalli á þessum vetri
Opið verður í Hlíðarfjalli á morgun föstudag, laugardag og sunnudag og er þar um að ræða síðustu dagana sem opið verður
í vetur. Nú þegar hefur verið opið í Fjallinu í 151 dag og skíðadagarnir verða því 154 þegar upp verður staðið
sem er algjört met.
Að sögn Guðmundar K... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fh-islandsmeistari-i-2-flokki-i-handbolta | FH Íslandsmeistari í 2. flokki í handbolta
FH varð í kvöld Íslandsmeistari í 2. flokki karla í handbolta eftir að hafa sigrað Akureyri Handboltafélag í Höllinni 34-30.
Heimamenn voru sterkari aðilinn lengst af leik en í lokin, þegar ljóst var orðið að þeir myndu ekki ná að sigra með sex marka mun eins og
þeir þurftu ti... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samherji-greidir-starfsmonnum-sinum-i-landi-launauppbot | Samherji greiðir starfsmönnum sínum í landi launauppbót
Samherji hf. tilkynnti í dag að fyrirtækið hefði ákveðið að greiða öllum starfsmönnum sínum í landi kr. 55.000
launauppbót, miðað við fullt starf. Uppbótin verður greidd með launum í lok maí nk.
Gestur Geirsson, framkvæmdastjóri landvinnslu Samherja, var staddur í... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/enn-eru-unnin-skemmdarverk-a-kjarnakoti-i-kjarnaskogi | Enn eru unnin skemmdarverk á Kjarnakoti í Kjarnaskógi
Enn og aftur hafa verið unnar skemmdir á Kjarnakoti, húsi Skógræktarfélags Eyfirðinga í Kjarnaskógi. Að þessu sinni voru sex
rúður brotnar í húsinu, sem og öll ljós þar inni. Kjarnakot hefur orðið illa fyrir barðinu á skemmdarvörgum undanfarin ár.
Í júní á síðasta á... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/atvinnulausum-a-svaedinu-faekkad-fra-midjum-mars | Atvinnulausum á svæðinu fækkað frá miðjum mars
Atvinnulausum á Akureyri og Norðurlandi eystra hefur fækkað töluvert á síðustu sex vikum. „Á tímabilinu frá 15. október
til 15. mars fjölgaði atvinnulausum nánast daglega og var botninum náð um miðjan mars. En frá þeim tíma hefur atvinnulausum fækkað," segir
Soffía Gísladó... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/atvinna-fyrir-alla-eru-kjorord-dagsins-a-akureyri-1-mai | Atvinna fyrir alla eru kjörorð dagsins á Akureyri 1. maí
Stéttarfélögin á Akureyri standa fyrir dagskrá á frídegi verkalýðsins á morgun föstudag, 1. maí. Lagt verður upp
í kröfugöngu við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar kl. 14:00. Göngufólk safnast saman við Alþýðuhúsið kl. 13.30, þar
sem happdrættismiðar verða afhen... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyri-og-fh-maetast-i-urslitaleik-i-2-flokki | Akureyri og FH mætast í úrslitaleik í 2. flokki
Í kvöld, fimmtudagskvöld tekur 2. flokkur Akureyrar Handboltafélags á móti FH-ingum í Íþróttahöllinni kl. 20:00. Um er að
ræða síðari úrslitaleik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn en sá fyrri fór fram í Hafnarfirði á sunnudag og lauk honum
með sigri FH 36-30. Akureyri þa... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tharf-ad-kjosa-a-tveimur-stodum-a-akureyri | Þarf að kjósa á tveimur stöðum á Akureyri?
Akureyringar kusu á nýjum stað í alþingis- og sameiningarkosningum sl. laugardag en kjörstaðurinn var fluttur úr Oddeyrarskóla í
Verkmenntaskólann á Akureyri. Helgi Teitur Helgason formaður kjörstjórnar á Akureyri segir að þeir kjósendur sem mættu á
kjörstað á milli kl. 13 og ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/list-an-landamaera-a-fljugandi-ferd-og-nuna-a-nordurlandi | List án landamæra á fljúgandi ferð og núna á Norðurlandi
Það verður mikil hátíð á Norðurlandi um helgina en þá er komið að formlegri opnun norðurlandshluta
listahátíðainnar List án landamæra. Herlegheitin hefjast á laugardaginn kl. 11.30 með opnun ljósmyndasýningar Finns Inga
Erlendssonar. Þaðan liggur leiðin í Safnasa... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/flugsafn-islands-a-akureyri-10-ara-a-fostudag | Flugsafn Íslands á Akureyri 10 ára á föstudag
Flugsafn Íslands er 10 ára á föstudag en safnið var stofnað þann 1. maí 1999 og hét þá Flugsafnið á Akureyri. Í
tilefni þessara tímamóta verður safnið opið á afmælisdaginn, 1. maí, frá kl.. 13:00 til kl. 17:00. Laugardaginn 2. maí verður
Flugsafnið opið frá kl. 10:00 til kl... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ungur-piltur-fell-a-motorhjoli-og-fotbrotnadi | Ungur piltur féll á mótorhjóli og fótbrotnaði
Ungur piltur fótbrotnaði og kvartaði undan eymslum í baki, eftir að hann féll á mótorhjóli við stíginn meðfram Glerár,
neðan við Skarðshlíð á Akureyri seinni partinn í dag. Hann var fluttur með sjúkrabíl til aðhlynningar á slysadeild FSA.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu var p... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fular-a-moti-gera-innras-i-islensku-operuna | Fúlar á móti gera innrás í Íslensku óperuna
Leikfélag Akureyrar heldur suður yfir heiðar með gleðisprengjuna Fúlar á móti. Sýningin vakti gríðarlega lukku á Akureyri, uppselt
var á 50 sýningar og alls sáu um 9.000 manns verkið. Jafnvel voru brögð að því að fólk kæmi oftar en einu sinni á
sýninguna, til að fá að hlæja... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/svifryk-yfir-heilsuverndar-morkum-i-9-daga-a-arinu | Svifryk yfir heilsuverndar- mörkum í 9 daga á árinu
Svifryk mældist yfir heilsuverndarmörkum í 32 daga á Akureyri á síðasta ári, samkvæmt svifryksmælingum á horni Tryggvabrautar og
Glerárgötu. Leyfilegur hámarksfjöldi slíkra daga var hins vegar 18 dagar. Það sem af er þessu ári hefur svifryk mælst yfir
heilsuverndarmör... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aldrei-hafa-fleiri-sott-barna-skemmtun-minjasafnsins | Aldrei hafa fleiri sótt barna- skemmtun Minjasafnsins
Fjölmenni var á barnaskemmtun Minjasafnsins á Akureyri sl. fimmtudag, sumardaginn fyrsta. Aldrei hafa fleiri sótt þennan árlega viðburð sem skipar
stóran sess í hjarta margra fjölskyldna en talið er að um 800 manns hafi sótt safnið heim þennan dag. Rúmlega 200 manns... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vilja-setja-upp-fuglaskodunarhus-vid-kristnestjorn | Vilja setja upp fuglaskoðunarhús við Kristnestjörn
Hrafnagilsskóli hefur áhuga fyrir að koma fyrir fuglaskoðunarhúsi við Kristnestjörn og hefur leitað stuðnings atvinnumálanefndar
Eyjafjarðarsveitar við verkefnið. Atvinnumálanefnd hefur sótt um styrk til verkefnisins í Náttúruverndarsjóð Pálma Jónssonar.
Við Kristnestj... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baejarstjori-segir-itrekad-hafa-verid-kallad-eftir-nyrri-thjodarsatt | Bæjarstjóri segir ítrekað hafa verið kallað eftir nýrri þjóðarsátt
Hreinskilin skoðanaskipti og umræður fóru fram á fundi bæjaryfirvalda með stjórnendum deilda bæjarins varðandi þá hugmynd sem
varpað var fram á dögunum að starfsmenn Akureyrarbæjar tækju einn launalausan frídag í mánuði á næsta ári í
því skyni að lækka ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/syningar-og-adsoknarmet-i-horgardalnum | Sýningar- og aðsóknarmet í Hörgárdalnum
Nú er ljóst að leiksýningin "Stundum og stundum ekki" sem Leikfélag Hörgdæla hefur verið að sýna að Melum í Hörgárdal
frá því í byrjun mars mun slá sýningar- og aðsóknarmet hjá leikfélaginu. Gamla metið var 21 sýning á leikritunum
"Þrek og tár" og "Síldin kemur og síldin fer."
Ei... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nyr-skali-ris-i-sumarbudum-kfum-og-kfuk-ad-holavatni | Nýr skáli rís í sumarbúðum KFUM og KFUK að Hólavatni
Verksamningur á milli sumarbúðanna á Hólavatni og Loftorku um framleiðslu á forsteyptum einingum fyrir nýjan skála sem rísa mun
á Hólavatni, var undirritaður nýlega. Heildarverðmæti samningsins er um 10 milljónir króna og því ljóst að stórt skref
er stigið í áttina a... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stjornarflokkarnir-na-hreinum-meirihluta-a-althingi | Stjórnarflokkarnir ná hreinum meirihluta á Alþingi
Stjórnarflokkarnir bæta talsverðu fylgi við sig og ná saman hreinum meirihluta á Alþingi en lokatölur kosninganna liggja nú fyrir.
Vinstri-grænir fá 14 þingmenn og bæta við sig 5 mönnum en Samfylkingin fær 20 og bætir við sig tveimur þingmönnum.
Sjálfstæðisflokkur fær ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sameining-akureyrar-og-grimseyjar-samthykkt | Sameining Akureyrar og Grímseyjar samþykkt
Sameining Akureyrarkaupstaðar og Grímseyjarhrepps var samþykkt í kosningu í gær, samhliða alþingiskosningunum. Já við sameiningunni
sögðu 6.942, eða 69,3%, en 2.474 voru henni andvígir, eða 24,7%. Alls voru 12.580 á kjörskrá og greiddu 10.014 atkvæði eða 79,6%.
Auðir seðlar vo... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/svifryk-ekki-farid-yfir-heilsuverndarmork | Svifryk ekki farið yfir heilsuverndarmörk
„Við erum enn með mælana í tilraunakeyrslu," segir Þorsteinn Jóhannsson sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun um tvo nýja
færanlega svifryksmæla sem settir voru upp á Akureyri í liðinni viku. Annar er við hlið eldri mælis við gatnamót Glerárgötu og
Tryggvabrautar, en hinum var komi... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/agaet-kjorsokn-a-akureyri-en-throng-a-thingi-i-vma | Ágæt kjörsökn á Akureyri en þröng á þingi í VMA
Ágæt kjörsókn hefur verið á Akureyri og kl. 18.00 höfðu um 2% fleiri kosið nú til Alþingis en fyrir tveimur árum. Í
kosningum um sameiningu Akureyrarkaupstaðar og Grímseyjarhrepps sem fram fara samhliða alþingiskosningunum, höfðu 35% fleiri kosið nú kl. 18.00 en á
sama tí... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nokkurra-ara-verkefni-ad-koma-gotum-i-vidunandi-horf | Nokkurra ára verkefni að koma götum í viðunandi horf
Gert er ráð fyrir að á áþessu ári verði varið um 50 milljónum króna til viðhalds og endurgerðar gatna á Akureyri.
Á liðnu ári fóru um 80 milljónir króna í verkefnið. Nokkurra ára verkefni blasir við að ná götum í viðunandi
horf.
Bærinn kemur illa undan vetri „en nú e... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/yfir-1200-manns-kosid-utan-kjorfundar-a-akureyri-i-morgun | Yfir 1.200 manns kosið utan- kjörfundar á Akureyri í morgun
Landsmenn ganga að kjörborðinu nk. laugardag, þegar kosið verður til Alþingis. Á Akureyri verður samhliða alþingiskosningunum kosið um
sameiningu Grímseyjarhrepps og Akureyrarkaupstaðar. Þá hefur kjörstaður verið fluttur úr Oddeyrarskóla í Verkmenntaskólann á
... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/beint-flug-fra-akureyri-til-portugals-i-sumar | Beint flug frá Akureyri til Portúgals í sumar
Úrval-Útsýn býður fyrst ferðaskrifstofa beint flug frá Akureyri til Faro í Portúgal vikulega í sumar. Nú geta
norðlenskar og austurlenskar fjölskyldur flogið beint í fríið á Algarve ströndina og í sólina. Í samstarfi við
portúgalska söluaðila bjóðast nú einnig ferðir frá Po... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gudny-og-bjorn-hljota-starfs-laun-listamanna-a-akureyri | Guðný og Björn hljóta starfs- laun listamanna á Akureyri
Í dag var tilkynnt hverjir hljóta starfslaun listamanna á Akureyri 2009-2010. Úr hátt í tuttugu umsóknum sem bárust valdi stjórn
Akureyrarstofu þau Guðnýju Kristmannsdóttur myndlistarkonu og Björn Þórarinsson tónlistarmann en bæði hafa starfað að list sinni
í fjö... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/keppni-a-andresar-andar-leikunum-i-fullum-gangi | Keppni á Andrésar Andar leikunum í fullum gangi
Eftir glæsilega skrúðgöngu og settningarhátíð í Íþróttahöllinni á Akureyri í gærkvöld, hófst
keppni á Andrésar Andar leikunum á skíðum í Hlíðarfjalli í morgun. Alls taka tæplega 800 keppendur þátt í leikunum
að þessu og er áhætt að segja að Hlíðarfjall iði af lífi þessa d... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skemmdarverk-i-akureyrarkirkju | Skemmdarverk í Akureyrarkirkju
Töluvert hefur verið um skemmdarverk á Akureyrarkirkju undanfarna mánuði og nú síðast á laugardagskvöld var steindur gluggi í kirkjunni
brotinn. Kirkjuverðirnir Stefán Arnaldsson og Sveinn Jónasson eru sammála um ástandið hafi sjaldan verið verra. Sá sem braut gluggann um helgina reif
upp... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aflaverdmaeti-tveggja-samherja-skipa-rumar-200-milljonir-krona | Aflaverðmæti tveggja Samherja- skipa rúmar 200 milljónir króna
Snæfell EA, togari Samherja, kom úr sinni fyrstu veiðiferð í byrjun vikunnar, eftir nafnabreytingu og umfangsmiklar endurbætur. Að sögn Kristjáns
Vilhelmssonar framkvæmdastjóra útgerðarsviðs Samherja var Snæfellið um 30 daga á veiðum, aflinn var um 220-230 ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/andresar-andar-leikarnir-settir-i-kvold | Andrésar andar leikarnir settir í kvöld
Andrésar andar leikarnir á skíðum verða settir í kvöld í 34. sinn í Íþróttahöllinni við
hátíðlega athöfn. Leikarnir verða settir kl.20:30 en fyrir hana, eða kl.20:00 fer skrúðganga keppenda af stað frá KA-heimilinu. Hvorki fleiri
né færri en 792 keppendur eru skráðir til leiks að... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/komid-verdur-a-fot-medferdarurraedi-fyrir-unglinga-med-hegdunarerfidleika | Komið verður á fót meðferðarúrræði fyrir unglinga með hegðunarerfiðleika
Barnaverndarstofa og Akureyrarbær undirrituðu í dag samning um sérhæfða þjónustu fyrir börn. Akureyrarbær mun koma á fót og
starfrækja meðferðarúrræði fyrir unglinga með hegðunarerfiðleika og fjölskyldur þeirra. Skrifað var undir samninginn á 100.... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hverjir-hljota-starfslaun-lista-manna-a-akureyri-naesta-arid | Hverjir hljóta starfslaun lista- manna á Akureyri næsta árið?
Vorkoma Akureyrarstofu fer fram í Ketilhúsinu á morgun kl. 16.00, sumardaginn fyrsta. Þar verður tilkynnt hverjir hljóta starfslaun listamanna á Akureyri
2009-2010. Nú er að verða eitt ár frá því þær Anna Gunnarsdóttir textíllistakona og Anna Richardsdóttir ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/merkjavorur-a-godu-verdi-a-uppbodi-a-kaffi-akureyri | Merkjavörur á góðu verði á uppboði á Kaffi Akureyri
Starfsfólkið á Kaffi Akureyri hefur brugðið á það ráð að halda uppboð á fatnaði sem fólk hefur gleymt. Fjöldinn
allur af jökkum, frökkum, úlpum, treflum, vettlingum, stökkum, kápum o.fl. hefur safnast upp þar á bæ og í þetta skiptið var
ákveðið að losna við fatnaðinn ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fimak-i-thridja-saeti-i-hopfimleikum | FIMAK í þriðja sæti í hópfimleikum
Um helgina fór fram Íslandsmót í landsreglum í hópfimleikum í Versölum í Kópavogi (Gerplu húsið). FIMAK
átti þar eitt lið sem lenti í 3. sæti jafnt að stigum og liðið sem hafnaði í 2. sæti.
Gerpla vann Íslandsmeistaratitlinn nokkuð örugglega eftir frábærar æfingar en minna mátti ekki ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyri-i-urslit-i-2-flokki-i-handbolta | Akureyri í úrslit í 2. flokki í handbolta
Annar flokkur Akureyrar Handboltafélags tryggði sér í kvöld farseðilinn í úrslitaleikina um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta eftir
ótrúlegan sigur á Víkingi í framlengdum leik í íþróttahúsi Síðuskóla. Leikurinn var lengst af jafn en
Akureyri hafði yfir 14-11 í hálfleik. Víki... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/finnur-baud-laegst-i-undirgong-og-gongustiga-vid-horgarbraut | Finnur bauð lægst í undirgöng og göngustíga við Hörgárbraut
Finnur ehf. bauð lægst í framkvæmdir við undirgöng og göngustíga við Hörgárbraut á Akureyri en tilboðin voru opnuð í
dag. Alls bárust sex tilboð í verkið og voru þau öll undir kostnaðaráætlun, sem hljóðar upp á rúmar 40,2 milljónir
króna. Tilboð Finns var upp ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tiu-ar-fra-stofnun-sameiginlegrar-barnaverndarnefndar-sveitarfelaga-vid-eyjafjord | Tíu ár frá stofnun sameiginlegrar barnaverndarnefndar sveitarfélaga við Eyjafjörð
Á þessu ári eru liðin 10 ár frá því 8 sveitarfélög við Eyjafjörð gerðu með sér samning um stofnun
sameiginlegrar barnaverndarnefndar og af því tilefni er 100. fundur nefndarinnar sem haldinn er á morgun miðvikudag hátíðarfundur. Fundurinn... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyringar-faera-rafeyri-thakkir-fyrir-hjartad-i-vadlaheidinni | Akureyringar færa Rafeyri þakkir fyrir hjartað í Vaðlaheiðinni
Það er ekki ofsögum sagt að hjartað sem "slegið" hefur í Vaðlaheiðinni í vetur, hafi vakið verðskuldaða athygli. Það voru
starfsmenn Rafeyrar sem ákváðu í lok nóvember á síðasta ári, að setja hjartað upp en það er á stærð við
fótboltavöll. Kveikjan að þessu... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/straetisvagnar-a-akureyri-aka-ekki-um-helgar-i-sumar | Strætisvagnar á Akureyri aka ekki um helgar í sumar
Strætisvagnar Akureyrar munu ekki aka um helgar í sumar, eða frá 1. maí nk. til 31. ágúst. Hermann Jón Tómasson formaður
bæjarráðs Akureyrarbæjar, segir að um nauðsynlega sparnaðaraðgerð sé að ræða.
Verkefnisstjóri hjá Lautinni, athvarfi Rauða krossins á Akureyri, fyr... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/timi-kominn-a-ad-setja-sumardekkin-undir | Tími kominn á að setja sumardekkin undir
Eitt af vorverkunum er að setja sumardekkin undir bílinn. Óheimilt er að keyra um á nagladekkjum eftir 15. apríl en lögreglan á Akureyri sýnir
því skilning þótt eitthvað dragist að skipta um dekk enda enn allra veðra von. Neytendasamtökin gerðu verðkönnun á umfelgun og
jafnvægis... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aukinn-innflutningur-kemur-harkalega-nidur-a-baendum | Aukinn innflutningur kemur harkalega niður á bændum
Ingvi Stefánsson í Teigi lét af formennsku í Svínaræktarfélagi Íslands á aðalfundi nýlega, en við starfinu tók
Hörður Harðarson í Laxárdal. Ingvi hefur gengt formennsku í félaginu síðastliðin 6 ár. Breyttir hagir ráða mestu um
að Ingvi lét af formennsku í félaginu, en... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/blikkras-kaupir-vel-til-ad-framleida-blikkror | Blikkrás kaupir vél til að framleiða blikkrör
Fyrirtækið Blikkrás á Akureyri hefur fjárfest í svokallaðri spíróvél, sem notuð er til framleiðslu á blikkrörum.
Vélin, sem var keypt notuð frá Reykjavík, getur framleitt rör sem eru í þvermál frá 80 mm og upp í 1400 mm.
Oddur Helgi Halldórsson framkvæmdastjóri Blikkrásar s... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/radgert-ad-hefja-breytingar-a-thingvallastraeti-a-naesta-ari | Ráðgert að hefja breytingar á Þingvallastræti á næsta ári
Samkvæmt hugmyndum að breytingum á Þingvallastræti á Akureyri, er gengið út frá því að fækka 2+2 akreinum í 1+1
akrein og lækka aksturshraða niður í 30 km, að hluta í það minnsta. Jafnframt er hugmyndin að breikka gangstéttar og gera þær og
aðstöðu fyrir hjóland... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thurftu-sjalfir-ad-borga-60-thusund-kronur-i-ferdinni | Þurftu sjálfir að borga 60 þúsund krónur í ferðinni
Leikmenn U-21 árs landsliðs karla í handbolta þurfa sjálfir að greiða hluta af kostnaði við ferðalög liðsins til útlanda.
Akureyringar áttu þrjá fulltrúa í U-21 árs landsliðinu sem ferðaðist til Hollands um páskana, til að leika í undankeppni
Heimsmeistaramótsins, þá ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/yfir-30-namskeid-i-bodi-i-sumarnami-vid-ha | Yfir 30 námskeið í boði í sumarnámi við HA
Til að koma til móts við óskir nemenda um sumarnám er Háskólinn á Akureyri reiðubúinn að bjóða upp á
sumarnámskeið í viðskiptafræði, raunvísindum, félagsvísindum og kennaranámi. Áætlun um sumarnám var kynnt fyrir
háskólaráði í dag og lýsti ráðið yfir sérstakri ánægju með hana.... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/iris-og-bjorgvin-islandsmeistarar-i-storsvigi | Íris og Björgvin Íslandsmeistarar í stórsvigi
Íris Guðmundsdóttir varð Íslandsmeistari kvenna í stórsvigi á Skíðamóti Íslands í Hlíðarfjalli í
dag en í karlaflokki varð Dalvíkingurinn Björgvin Björgvinsson Íslandsmeistari. Einnig var keppt í göngu með frjálsri aðferð og
varð Elsa Guðrún Jónsdóttir frá Ólafsfirði Ísland... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ny-og-glaesileg-reidholl-akureyringa-formlega-vigd | Ný og glæsileg reiðhöll Akureyringa formlega vígð
Ný og stórglæsileg reiðhöll Akureyringa verður formlega vígð á morgun, laugardaginn 18. apríl með mikilli
hátíðardagskrá allan daginn. Toppurinn á ísjakanum er svo á laugardagskvöldið þegar stórglæsileg opnunarsýning fer
fram og nefnist hún Fákar og fjör.
„Þetta verður ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/andri-og-elsa-gudrun-islandsmeistarar-i-sprettgongu | Andri og Elsa Guðrún Íslandsmeistarar í sprettgöngu
Akureyringurinn Andri Steindórssson og Elsa Guðrún Jónsdóttir frá Ólafsfirði urðu Íslandsmeistarar í sprettgöngu í
gær, á fyrsta degi Skíðamóts Íslands í Hlíðarfjalli. Mótið var formlega sett að lokinni sprettgöngunni í gær
en nú kl. 10 hefst keppni í stórsvigi karla ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samningur-um-stofnun-sjavarutvegsmidstodvar-vid-ha-undirritadur | Samningur um stofnun Sjávarútvegsmiðstöðvar við HA undirritaður
Samningur milli Háskólans á Akureyri og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins um stofnun Sjávarútvegsmiðstöðvar
við Háskólann á Akureyri var undirritaður í dag. Markmið Sjávarútvegsmiðstöðvarinnar er að styrkja hlutverk HA á
sviði menntunar og kennslu ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baeta-tharf-merkingar-og-adgengi-a-bilastaedum-fatladra | Bæta þarf merkingar og aðgengi á bílastæðum fatlaðra
Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra á Akureyri beinir því til framkvæmdaráðs að taka ályktun Umferðarráðs til skoðunar
hið fyrsta, þar sem ráðið beinir þeim tilmælum til sveitarfélaga og umferðaryfirvalda að bæta merkingar og aðgengi á
bílastæðum fatlaðra. Miða þarf ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nyir-svifryksmaelar-settir-upp-a-akureyri | Nýir svifryksmælar settir upp á Akureyri
Tveir nýir færanlegir svifryksmælar af fullkomnustu gerð eru komnir til Akureyrar og í morgun var byrjað að setja annan þeirra upp við hlið gamla
svifryksmælisins við Tryggvabraut. Að sögn Helga Más Pálssonar deildarstjóra framkvæmdadeildar verða mælarnir keyrðir saman um tíma
v... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/halda-verdur-uti-godri-thjonustu-vid-born-og-ungmenni | Halda verður úti góðri þjónustu við börn og ungmenni
Skólanefnd ræddi á fundi sínum nýlega um fjárhagslega stöðu Akureyrarbæjar m.v. þriggja ára áætlun eins og hún
liggur fyrir. Farið var yfir hugmyndir um lækkun launakostnaðar sem kynntar hafa verið stjórnendum og starfsmönnum bæjarins og skoðaðar leiðir til
frekari l... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stutt-verdi-vid-hugmyndir-um-millilandaflug-til-akureyrar | Stutt verði við hugmyndir um millilandaflug til Akureyrar
Vinnuhópur atvinnuþróunarfélaga, ferðaþjónustuaðila og annarra hagsmunaaðila á Norðurlandi skorar á þingmenn og
frambjóðendur að styðja framkomnar hugmyndir um millilandaflug á heilsársgrunni til Akureyrar frá Kaupmannahöfn og London.
Beint flug allt árið frá þe... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sex-fikniefnamal-a-akureyri-um-paskahelgina | Sex fíkniefnamál á Akureyri um páskahelgina
Alls komu sex fíkniefnamál til kasta lögreglunnar á Akureyri um sl. páskahelgi. Í öllum tilvikunum var um svokölluð neyslu- og
vörslumál að ræða. Hald var lagt á nokkra tugi gramma af amfetamíni og kannabisefnum auk tækja og tóla til fíkniefnaneyslu.
Þá voru fjórir ökumenn ha... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjorir-thraedir-einkenna-starf-moguleikamidstodvarinnar | Fjórir þræðir einkenna starf Möguleikamiðstöðvarinnar
"Þetta fer mjög vel af stað, við erum enn að móta starfið og kynna það sem í boði er hér hjá okkur," segir Hilda Jana
Gísladóttir verkefnisstjóri hjá Möguleikamiðstöðinni í Rósenborg, en hún var opnuð nýlega.
Miðstöðin er sérstaklega ætluð fólki í atvinnuleit og er ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/trommusettid-skilid-eftir-vid-hus-i-adalstraeti | Trommusettið skilið eftir við hús í Aðalstræti
Skúlptúr/innsetning eftir Baldvin Ringsted sem settur var upp í hólmanum í Leirutjörninni á Akureyri á vegum Gallerí
Viðáttu601, var stolið um helgina, eins og fram kom á vikudagur.is í gær. Verkið er búið til úr gömlu og hálfónýtu
trommusetti og nú skömmu fyrir hádegi í d... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rymum-i-leikskolanum-naustatjorn-fjolgad | Rýmum í leikskólanum Naustatjörn fjölgað
Skólanefnd Akureyrar samþykkti á síðasta fundi sínum tillögu um fjölgun rýma í leikskólanum Naustatjörn í samstarfi
við Naustaskóla. Gert er ráð fyrir því að ein deild leikskólans verði staðsett í Naustaskóla og þar með verði
hægt að mæta eftirspurn eftir leikskólarýmum í Nausta... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/velunnarar-byrs-sparisjods-standa-fyrir-fundi-a-akureyri | Velunnarar Byrs sparisjóðs standa fyrir fundi á Akureyri
Velunnarar Byrs sparisjóðs halda fund á Hótel KEA í kvöld, þriðjudaginn 14. apríl kl. 20.00. "Eins og greint var frá í
Kastljósþætti Ríkissjónvarpsins þriðjudaginn 7. apríl sl. samþykkti stjórn Byrs sparisjóðs rúmlega milljarðs
lán til fyrirtækisins Exeter Holdin... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/listaverki-stolid-ur-holmanum-i-leirutjorninni | Listaverki stolið úr hólmanum í Leirutjörninni
Í síðustu viku var settur upp skúlptúr/innsetning eftir Baldvin Ringsted í hólmanum í Leirutjörninni á vegum Gallerí
Viðáttu601. Verkið er búið til úr gömlu og hálfónýtu trommusetti en í morgun var búið að stela því.
Heilmikið hefur þurft að hafa fyrir þessu því búið var a... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/arnarneshreppur-umhverfis-vaenn-med-aukinni-flokkun | Arnarneshreppur umhverfis- vænn með aukinni flokkun
Hreppsnefnd Arnarneshrepps hefur samþykkt að fara í umhverfisvæna aðgerð og ganga til samninga við Íslenska Gámafélagið um aukna flokkun
í tengslum við Grænu tunnuna. Samningurinn mun taka gildi þann 16. apríl nk. og verður Græna tunnan tekin til prufu til eins árs me... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/flutningskostnadur-fyrst-og-fremst-landsbyggdarskattur | Flutningskostnaður fyrst og fremst landsbyggðarskattur
Sigmundur Ófeigsson framkvæmdastjóri Norðlenska á Akureyri segir að sá mikli flutningskostnaður sem landsmenn búi við, sé fyrst og
fremst landsbyggðarskattur, sem miði að því að koma öllum á sama punktinn.
"Ég held að það sé ekki vænlegt, því að það skiptir svo mik... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/paskaeggjamot-og-tonleikar-i-hlidarfjalli | Páskaeggjamót og tónleikar í Hlíðarfjalli
Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli er opið í dag, páskadag frá kl. 9-17. Ágætis veður er í fjallinu, nánast
logn og fimm stiga frost. Páskaeggjamótið verður núna á eftir og hljómsveitin Molta verður með tónleika á skaflinum við
Skíðahótelið kl.14.00. Mikill fjöldi folks hefur verið á s... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/anna-richards-baejarlistakona-heldur-veislu-i-ketilhusinu | Anna Richards bæjarlistakona heldur veislu í Ketilhúsinu
Anna Richards heldur veislu í Ketilhúsinu á Akureyri í dag, laugardaginn 11. apríl kl. 15.00. Í veislunni flytur Anna gjörning í sjö
köflum. Um er að ræða djarfa tilraunastarfsemi þar sem ýmsar listgreinar mætast. Gjörningurinn er hluti af leið Önnu að
sólósýning... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjoldi-innlendra-ferdamanna-a-akureyri-mikil-lyftistong | Fjöldi innlendra ferðamanna á Akureyri mikil lyftistöng
Mikill fjöldi innlendra ferðamanna hefur heimsótt Akureyri í vetur og hefur það verið mikil lyftistöng fyrir verslun, veitingastaði og
þjónustu af öllu tagi í bænum. Átak hefur verið í gagni í því skyni að auka ferðamannastraum norður og
virðist það hafa skilað gó... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hvanndalsbraedur-med-tonleika-i-hlidarfjalli-i-dag | Hvanndalsbræður með tónleika í Hlíðarfjalli í dag
Mikill fjöldi fólks hefur verið á skíðum í Hlíðarfjalli síðustu daga og í dag, laugardaginn 11. apríl er
skíðasvæðið opið frá kl. 9 - 17. Samkvæmt uppslýsingum úr Hlíðarfjalli er veðrið er ágætt: vindur 4 m/s og
fjögurra stiga frost. Í dag kl. 15 verða tónleikar með Hva... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ljosi-varpad-a-fjorumenn-og-flakkara-a-syningu-i-laxdalshusi | Ljósi varpað á fjörumenn og flakkara á sýningu í Laxdalshúsi
Sýningin Förumenn og flakkarar, opnar í Laxdalshúsi á Akureyri laugardaginn 11. apríl kl. 14:00. Markmiðið með sýningunni er að varpa
nokkru ljósi á förumenn og flakkara. Betl, förumennska og vergangur var umborið á fyrri tíð, enda höfðu förumenn ákveðið
hlut... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fimmtan-umsoknir-barust-um-stodu-skolastjora-valsarskola | Fimmtán umsóknir bárust um stöðu skólastjóra Valsárskóla
Alls bárust 15 umsóknir um starf skólastjóra Valsárskóla á Svalbarðsströnd, en frestur til að sækja um stöðuna rann
út í liðinni viku. Gert er ráð fyrir að nýr skólastjóri verði ráðinn eftir páska.
Þeir sem sóttu um stöðuna eru: Anna Kolbrún Árnadóttir, kennari, ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/adstaedur-i-hlidarfjalli-med-allra-besta-moti | Aðstæður í Hlíðarfjalli með allra besta móti
Landsmenn hafa fjölmennt til Akureyrar síðustu daga og gert er ráð að ferðafólki eigi eftir fjölga enn frekar í dag og næstu daga. Í
Hlíðarfjalli hefur verið mjög líflegt en um helgina voru þar hátt í 2000 manns á skíðum. Skírdagur er einn af stóru
dögunum í Hlíðarfjalli og ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/snjokarlinn-a-radhustorgi-hefur-tekid-a-sig-mynd-a-ny | Snjókarlinn á Ráðhústorgi hefur tekið á sig mynd á ný
Nú stendur hann stoltur á Ráðhústorgi með sinn hatt, nef og augu, snjókarlinn sem lokið var við að hlaða upp aftur í gær en
hann hafði farið heldur illa í talsverðum hlýindum nú á dögunum. Að undirlagi Akureyrarstofu voru vaskar stúlkur úr 4. flokki
Þórs í fótbolta ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/glaesileg-paskadagskra-a-graena-hattinum-a-akureyri | Glæsileg páskadagskrá á Græna Hattinum á Akureyri
Glæsileg páskadagskrá verður á Græna Hattinum næstu daga og hefjast herlegheitin strax í kvöld með lokatónleikum
Hvanndalsbræðra kl. 22.00. Þar sem það er mikið í tísku að vera með svokallað "Comeback" þá verða Hvanndalsbræður
með sitt fyrsta kombakk strax á morgun skír... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/halldor-sigradi-a-sterku-snjobrettamoti-i-noregi | Halldór sigraði á sterku snjóbrettamóti í Noregi
Eyfirðingurinn Halldór Helgason sigraði á sterku snjóbrettamóti í Geilo í Noregi um helgina, Andreas Wiig Invitational. Halldór vann þar
stór nöfn eins og Torstein Horgmo og Andreas Wiig, sem þykir hreint frábær árangur. Hann fór heim með 100.000 norskar krónur í
sigurla... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kammerkorinn-hymnodia-med-midnaeturtonleika | Kammerkórinn Hymnodia með miðnæturtónleika
Kammerkórinn Hymnodia heldur miðnæturtónleika í Akureyrarkirkju á föstudaginn langa kl. 22.30. Á efnisskránni er undurfalleg tónlist
sem hæfir tilefni dagsins, meðal annars hið þekkta Stabat Mater eftir Giovanni Battista Pergolesi (1710-1736) sem kvenraddir Hymnodiu flytja ása... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aukning-i-skilum-a-endurvinnanlegu-sorpi | Aukning í skilum á endurvinnanlegu sorpi
Aukning varð hjá Sagaplast- Endurvinnslunni ehf. í öllum flokkum í skilum á endurvinnanlegu sorpi á árinu 2008 samanborið við
árið 2007. Á árinu 2008 var skilað 6,5 milljónum umbúða af skilagjaldsskyldum umbúðum, samanborið við 6,2 milljónir
árið 2007. Um 1.700 tonnum af pappírs... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/logreglan-a-akureyri-hefur-stodvad-taeplega-1000-okumenn | Lögreglan á Akureyri hefur stöðvað tæplega 1000 ökumenn
Lögreglan hefur að undanförnu verið með sérstakt eftirlit með ástandi ökumanna sem flest lögregluumdæmi landsins taka þátt
í í samstarfi við Umferðarstofu. Síðustu daga hafa lögreglumenn á Akureyri stöðvað 963 ökumenn og kannað ástand
þeirra og ökutækja einnig. Ei... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hlud-verdi-ad-rettindum-barnanna-i-samfelaginu | Hlúð verði að réttindum barnanna í samfélaginu
Félag ábyrgra foreldra á Akureyri vill koma því á framfæri við fjölmiðla og stjórnmálamenn, að á þeim
óvissutímum sem ríkja hér á landi í efnahagsmálum vegna efnahagshrunsins sé mikilvægt að börnin gleymist ekki og hlúð
verði að réttindum barnanna í samfélaginu og þá sérst... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/riflega-12800-manns-a-kjorskra-a-akureyri | Ríflega 12.800 manns á kjörskrá á Akureyri
Kosið verður til Alþingis 25. apríl nk og samhliða þeirri kosningu verður einnig kosið um sameiningu Grímseyjarhrepps og Akureyrarkaupstaðar.
Nýr kjörstaður er í Verkmenntaskólanum á Akureyri, þar sem verða 10 kjördeildir en ellefta kjördeildin á Akureyri er í
Hrísey.
Kjósendu... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tap-kea-a-sidasta-ari-nam-1590-milljonum-krona | Tap KEA á síðasta ári nam 1.590 milljónum króna
Á deildarfundum KEA sem nú standa yfir hafa verið kynnt drög að ársreikningi félagsins fyrir árið 2008 en árseikningurinn liggur ekki
endanlega fyrir og getur því tekið breytingum. Þar kemur fram að tap KEA á síðasta ári er áætlað 1.590 milljónir
króna. Það skýrist að mes... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/logreglan-fann-fikniefni-vid-husleit-a-akureyri | Lögreglan fann fíkniefni við húsleit á Akureyri
Lögreglan á Akureyri framkvæmdi húsleit í íbúð hjá karlmanni á fimmtugsaldri í gærmorgun og fundust þar um 15
grömm af kókaíni og lítilræði af sterum. Manninum var sleppt og lokinni yfirheyrslu og telst málið upplýst. Einn karlmaður á
þrítugsaldri sem var gestkomandi í íb... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tveir-felagar-saemdir-gullmerki-einingar-idju-a-adalfundi | Tveir félagar sæmdir gullmerki Einingar-Iðju á aðalfundi
Tveir félagar voru sæmdir gullmerki Einingar-Iðju á aðalfundi félagsins í síðustu viku. Þetta eru þau Ingigerður
Jónsdóttir og Geir Guðmundsson. Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju, sagði við það tækifæri, að þeir sem
hlutu viðurkenningu hafi unnið sitt st... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nemendur-vid-raunvisindaskor-ha-kynna-hopverkefni | Nemendur við raunvísindaskor HA kynna hópverkefni
Á morgun þriðjudaginn 7. apríl frá kl. 15 til 17 munu nemendur við raunvísindaskor Háskólans á Akureyri kynna hópverkefni sem
þau hafa unnið að í vetur. Kynningin verður í anddyri Borga við Norðurslóð. Verkefnin eru eftirfarandi: Sjávarfallavirkjun á
Íslandi?, Íslenskt ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/virdisaukaskattur-af-vinnu-a-byggingarstad-ad-fullu-endurgreiddur | Virðisaukaskattur af vinnu á byggingarstað að fullu endurgreiddur
Alþingi samþykkti nýlega frumvarp um 100% endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu á byggingarstað en áður var hlutfallið 60%. Nýju
lögin ná yfir íbúðarhúsnæði og sumarbústaði sem er nýmæli. Þetta er tímabundin ráðstöfun og gildir
til 1. janúar 2011. Stef... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyri-afram-i-urvalsdeild | Akureyri áfram í úrvalsdeild
Akureyri Handboltafélag tryggði sér áframhaldandi veru í N1-deild karla í handbolta næsta vetur þegar liðið gerði jafntefli við
Fram á heimavelli í dag. Jafnteflið eitt og sér hefði ekki dugað Akureyri til að halda sætinu í deildinni en þar sem að Stjarnan tapaði
á sama tíma fyrir Haukum 27... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/framkvaemdastjori-stapa-lifeyrissjods-fagnar-agaetri-afkomu-sereignardeildar | Framkvæmdastjóri Stapa lífeyrissjóðs fagnar ágætri afkomu Séreignardeildar
"Við getum ekki annað en fagnað þessari niðurstöðu," segir Kári Arnór Kárason framkvæmdastjóri Stapa lífeyrissjóðs,
en ávöxtun Séreignardeildar sjóðsins gekk mjög vel á liðnu ári. Hann býður upp á þrjár mismunandi
ávöxtunarleiðir og var ávöxtun ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikid-fjor-en-farid-ad-bera-a-voruskorti-hja-skidathjonustunni | Mikið fjör en farið að bera á vöruskorti hjá Skíðaþjónustunni
"Það er bara fjör, það er ekki hægt að segja annað," segir Viðar Garðarsson hjá Skíðaþjónustunni á
Akureyri en þar á bæ hafa menn aldrei séð aðra eins sölu í skíðabúnaði og í vetur. "Ég held við
höfum bara aldrei í sögunni haft eins mikið að gera," bætir han... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ny-og-glaesileg-bonusverslun-opnud-i-naustahverfi | Ný og glæsileg Bónusverslun opnuð í Naustahverfi
Ný og glæsileg Bónusverslun var opnuð í Naustahverfi á Akureyri í morgun og þar með eru Bónusverslunarinnar í bænum
orðnar tvær. Um þessar mundir eru 20 ár liðin frá því að fyrsta Bónusverslunin var opnuð hér á landi. Við opnunina
afhenti Jóhannes Jónsson í Bónus, Hæfing... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hugmyndir-um-sameiginlegt-logo-fyrir-ferdathjonustuna | Hugmyndir um sameiginlegt lógó fyrir ferðaþjónustuna
Stjórn Akureyrarstofu ræddi á síðasta fundi sínum um mögulegt auðkenni fyrir ferðamannabæinn Akureyri. Í stefnu Akureyrarstofu er
kveðið á um að kannað skuli hvort tekið skuli upp sameiginlegt lógó fyrir ferðaþjónustuna í bænum. Framundan eru fundir með
hagsmunaaðilu... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eining-idja-tapadi-ekki-einni-kronu-i-bankahruninu | Eining-Iðja tapaði ekki einni krónu í bankahruninu
Tíundi aðalfundur Einingar-Iðju var haldinn á Hótel KEA á Akureyri í gærkvöld. Félagsmenn fjölmenntu á fundinn og sagði
Björn Snæbjörnsson, formaður félagsins, m.a. er hann flutti skýrslu stjórnar að kreppan og fall bankanna hafi haft miklar afleiðingar fyrir alla
Ísle... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sparkvellirnir-a-akureyri-hitadir-upp-timabundid | Sparkvellirnir á Akureyri hitaðir upp tímabundið
Heitu vatni hefur að nýju verið hleypt á sparkvellina við grunnskólana á Akureyri en skrúfað var fyrir vatnið fyrr í vetur vegna
sparnaðar. Gunnar Gíslason fræðslustjóri ákvað að vellirnir yrðu hitaðir upp aftur til að fá nákvæmari upplýsingar um
hver kostnaðurin við hit... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hugvit-styrkir-nemendur-vid-haskolann-a-akureyri | Hugvit styrkir nemendur við Háskólann á Akureyri
Í dag voru afhentir styrkir frá fyrirtækinu Hugviti til nemenda sem stunda raunvísindanám við Háskólann á Akureyri. Styrkina
hlutu Ívar Örn Pétursson og Jón Helgi Sveinbjörnsson, nemendur í umhverfis- og orkufræði. Fengu þeir peningastyrk að upphæð
500.000 krónur hvor. V... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/paskaaevintyri-a-akureyri-fram-a-annan-i-paskum | Páskaævintýri á Akureyri fram á annan í páskum
Páskaævintýri á Akureyri hefst í dag og stendur fram á annan í páskum. Boðið verður upp á fjölda viðburða af
ýmsu tagi og ættir allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Bæjarbúar og gestir geta farið í leikhús, á tónleika,
myndlistarsýningar, fylgst með keppni í vaxtar... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/keypti-hammond-orgel-karls-sighvatssonar-til-akureyrar | Keypti Hammond orgel Karls Sighvatssonar til Akureyrar
Eitt þekktasta hljóðfæri landsins, Hammond orgel Karls heitins Sighvatssonar tónlistarmanns, er komið til Akureyrar. Haukur Tryggvason veitingamaður á
Græna hattinum keypti orgelið á dögunum af syni Karls heitins. Hann hefur komið því fyrir á sviðinu á Græna hattin... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samlist-opnar-valhalla-bank-a-glerartorgi-i-dag | Samlist opnar Valhalla Bank á Glerártorgi í dag
Samlist, grasrót skapandi fólks um að gera eitthvað uppbyggilegt í krepputímum, mun með táknrænum hætti opna nýjan banka í
stað þeirra fjögurra sem hafa fokið út í veður og vind hér á landi síðustu mánuði. Valhalla Bank er sá banki sem
fólkið vill því hann vill fólkinu ve... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gengid-um-osnortid-land-i-orkugongunni-i-myvatnssveit | Gengið um ósnortið land í Orkugöngunni í Mývatnssveit
Orkugangan er almennings skíðaganga sem haldin verður laugardaginn 11. apríl nk. kl. 10:00. Gangan hefst við Kröfluvirkjun í Mývatnssveit, henni
lýkur í nágrenni Húsavíkur í um 60 km fjarlægð og er þetta lengsta skíðagangan hér á landi. Landsvirkjun er
aðalstyrktara... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ljodahatid-i-populus-tremula-a-akureyri-um-helgina | Ljóðahátíð í Populus tremula á Akureyri um helgina
Ljóðahátíð verður haldin í Populus Tremula á Akureyri um helgina. Hátíðin hefst á föstudagskvöld kl. 21 og verður
fram haldið á sama tíma á laugardagskvöld. Á laugardaginn kl. 14 verður svo haldið málþing um ljóðlist í Populus tremula.
Á hátíðinni lesa nokkur af fremst... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bok-um-sogu-fatagerdar-og-fathonnunar-a-islandi-komin-ut | Bók um sögu fatagerðar og fathönnunar á Íslandi komin út
Út er komin bókin; Saga fatagerðar og fatahönnunar á Íslandi frá lokum 19. aldar til byrjun 21. aldar, eftir Ásdísi
Jóelsdóttur. Bókin er byggð á meistararitgerð hennar í mennta- og menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst.
Innihaldið er mjög yfirgripsmikið og ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baerinn-leigir-nordurorku-land-undir-daelustod-i-skjaldarvik | Bærinn leigir Norðurorku land undir dælustöð í Skjaldarvík
Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi sínum í morgun að fela bæjarstjóra að ganga frá samningi við Norðurorku hf. um
leigu á landi undir dælustöð í landi Skjaldarvíkur. Franz Árnasyni forstjóri Norðurorku óskaði eftir leigu á landi þar
sem nauðsynlegt sé að bygg... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hreinn-haraldsson-skipadur-vegamalastjori | Hreinn Haraldsson skipaður vegamálastjóri
Kristján L. Möller samgönguráðherra hefur skipað Hrein Haraldsson vegamálastjóra. Skipað er í embættið til fimm ára.
Embætti vegamálastjóra var auglýst laust til umsóknar í byrjun mars og rann umsóknarfrestur út 23. mars. Hreinn var eini umsækjandinn.
Samgönguráðherra afhenti H... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/folk-vill-breytingar-hvad-vilja-frambjodendur | Fólk vill breytingar, hvað vilja frambjóðendur?
Boðað er til borgarafundar í Deiglunni á Akureyri í kvöld, 2. apríl kl. 20.00, undir yfirskriftinni: Við viljum breytingar? - Hvað vilja
frambjóðendur? Frummælendur verða Margrét Ingibjörg Ríkarðsdóttir, þroskaþjálfi og forstöðumaður
Hæfingarstöðvarinnar og Jón Þorvaldur ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/engin-jardgong-fra-stridsarunum-undir-akureyri | Engin jarðgöng frá stríðsárunum undir Akureyri
Á vef Vikudags í gær, 1. apríl, var sagt frá því að Hörður Geirsson safnvörður á Minjasafninu á Akureyri hefði
komist yfir gögn frá hermálaráðuneyti Bretlands sem sýndu að breska setuliðið hafi unnið við jarðgangagerð undir Akureyri á
stríðsárunum. Jafnframt var sagt frá þ... |
Subsets and Splits
No community queries yet
The top public SQL queries from the community will appear here once available.