Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.vikubladid.is/is/frettir/landvinnslan-gengur-vel-hja-brim-a-akureyri
Landvinnslan gengur vel hjá Brim á Akureyri Vinnsla í landvinnslu Brims hf. á Akureyri, hefur gengið vel það sem af er árinu. Samtals hafa verið unnin yfir 3.300 tonn af hráefni í vinnslunni og er það 55% aukning miðað við sama tímabil árið 2008. Þriðjungur afurða hefur farið ferskur á markað, beint til neytenda sem há...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tap-hja-thor
Tap hjá Þór Þór mátti sætta sig við tap á heimavelli gegn ÍR þegar liðin mættust á Akureyrarvelli í kvöld í 1. deild karla í knattspyrnu. Lokatölur leiksins urðu 2-1 sigur gestanna sem hefði þó hæglega getað orðið stærri. Heimamenn hófu leikinn vel, voru mun meira með boltann og pressuðu gestina stíft án þess þó að ná ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/utskrift-hja-sjukraflutninga-skolanum-a-fsa
Útskrift hjá Sjúkraflutninga- skólanum á FSA Í dag fer fram útskrift hjá Sjúkraflutningaskólanum á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Útskrifaðir verða 89 nemendur þar af 41 sem sjúkraflutningamenn eftir að hafa lokið grunnnámskeiði í sjúkraflutningum, 36 nemendur sem lokið hafa Neyðarflutninganámskeiði og 12 nemendur sem lokið ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fullvinnsla-kraeklings-i-neytendaumbudir-ad-hefjast-i-hrisey
Fullvinnsla kræklings í neytendaumbúðir að hefjast í Hrísey Norðurskel í Hrísey fékk vinnsluleyfi á miðvikudag, en félagið hafði áður fengið uppskeruleyfi þannig að nú er ekkert að vanbúnaði að hefja fullvinnslu á kræklingi í eynni, að sögn Víðis Björnssonar hjá Norðurskel. Þá er vinna við að fá lífræna vottun á framle...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorsarar-i-eldlinunni-i-kvold
Þórsarar í eldlínunni í kvöld Þór tekur á móti ÍR í kvöld þegar félögin mætast í þriðju umferð 1. deildar karla í knattspyrnu. Fyrir leikinn er Þór í 6. sæti deildarinnar með þrjú stig eftir tvo leiki en ÍR situr á botninum án stiga. Leikurinn hefst kl. 19:15 og leikið er á Akureyrarvelli.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/framkvaemdafrestir-a-veittum-lodum-timabundin-undanthaga
Framkvæmdafrestir á veittum lóðum - tímabundin undanþága Þann 6. maí í fyrra samþykkti bæjarstjórn Akureyrar að undanþága yrði gerð frá samþykktum vinnureglum um framkvæmdafresti á veittum lóðum vegna ástands á byggingarmarkaði. Samþykkt var að hægt yrði að framlengja framkvæmdafresti í allt að eitt ár bærist um það be...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/markalaust-a-leiknisvelli
Markalaust á Leiknisvelli Leiknir R. og KA gerðu markalaust jafntefli þegar liðin mættust á Leiknisvelli í dag í 1. deild karla í knattspyrnu. Norðanmenn máttu því sætta sig við eitt stig úr þessari viðureign en þeir hafa engu að síður byrjað sumarið með ágætum. Eftir þrjá leiki hafa KA- menn fimm stig og sitja í 3. sæ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tonlist-ur-songleiknum-harinu-sett-a-svid
Tónlist úr söngleiknum Hárinu sett á svið Tónlistarskólinn Tónræktin á Akureyri á 5 ára afmæli um þessar mundir og af því tilefni setur söngdeild skólans á svið tónlistina úr söngleiknum ,,Hárinu" sem flutt verður í Sjallanum laugardaginn 23. maí nk. kl.16.00 og 19.00. Hljóðfæranemendur ásamt kennurum skipa rokkhljómsv...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nyskopunarsjodur-namsmanna-styrktur
Nýsköpunarsjóður námsmanna styrktur Katrín Jakobsdóttir, ráðherra mennta- og menningarmála, og Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra, hafa styrkt Nýsköpunarsjóð námsmanna um samtals 15 milljónir króna. Um er að ræða fimm milljónir frá ráðuneyti mennta- og menningarmála og tíu milljónir frá iðnaðarráðuneyti. Með þessu vil...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/erfitt-fyrir-skolafolk-a-akureyri-ad-fa-sumarvinnu
Erfitt fyrir skólafólk á Akureyri að fá sumarvinnu Atvinnuleysi meðal ungs fólks er töluvert og illa gengur að fá sumarvinnu fyrir nemendur, ef marka má orð formanna nemendafélaga í framhaldsskólunum MA og VMA og Háskólanum á Akureyri. Ragnar Sigurðsson, formaður FSHA telur að um 1/3 nemenda í skólanum sé án atvinnu í ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/konur-um-83-starfsmanna-a-sjukrahusinu-a-akureyri
Konur um 83% starfsmanna á Sjúkrahúsinu á Akureyri Laun og launatengd gjöld hjá Sjúkrahúsinu á Akureyri á síðasta ári námu samtals 3.309 milljónum og hækkuðu um 12% miðað við fyrra ár. Töluverður árangur náðist í því að draga úr yfirvinnu, einkum aukavöktum, og hækkaði yfirvinna aðeins um 6% á milli ára. Setnar stöður ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/um-160-nemendur-brautskradir-fra-vma-a-laugardag
Um 160 nemendur brautskráðir frá VMA á laugardag Brautskráning nemenda frá Verkmenntaskólanum á Akureyri fer fram í Íþróttahöllinni laugardaginn 23. maí nk. kl. 10.00. Alls verða brautskráðir um 160 nemendur að þessu sinni, heldur fleiri en síðustu ár. Seinna sama dag, eða milli kl. 16 og 18 verður mótttaka í VMA, í ti...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stydja-tharf-nyskopunarstarf-fyrir-einstaklinga-med-skerta-vinnugetu
Styðja þarf nýsköpunarstarf fyrir einstaklinga með skerta vinnugetu Á aðalfundi Hlutverks - Samtaka um vinnu og verkþjálfun nýlega var rætt um stöðu atvinnu- og hæfingarmála fatlaðra einstaklinga. Fram kom að mikill sóknarhugur er hjá sambandsaðilum og að mikil nýsköpun og hugmyndaauðgi einkennir starfsemina til að bre...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/konur-geta-breytt-heiminum-med-nyjum-lifsstil
Konur geta breytt heiminum með nýjum lífsstíl Á degi jarðar, þann 22. apríl, gaf SALKA út bókina Konur geta breytt heiminum með nýjum lífsstíl, eftir Guðrúnu G. Bergmann. Hún er frumkvöðull í umhverfisvænni ferðaþjónustu á Íslandi. Guðrún verður með bókakynningu í Pennanum - Eymundsson á Akureyri frá kl. 15-17 á föstud...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sjavarutvegsmal-til-umraedu-i-baejarstjorn-akureyrar
Sjávarútvegsmál til umræðu í bæjarstjórn Akureyrar Á fundi bæjarstjórnar Akureyrar í gær, óskaði Jóhannes Gunnar Bjarnason bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins eftir því að sjávarútvegsmál yrðu tekin til umræðu. Tilefnið er fyrirhuguð fyrningarleið ríkisstjórnarinnar á kvóta sjávarútvegsfyrirtækja. Hann lagði fram tillögu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fagnadarefni-ad-i-landinu-er-rikisstjorn-undir-forsaeti-jafnadarmanna
Fagnaðarefni að í landinu er ríkisstjórn undir forsæti jafnaðarmanna Aðalfundur Samfylkingarinnar á Akureyri, sem haldinn var í Lárusarhúsi í gærkvöld, samþykkti ályktun, þar sem því er fagnað að í landinu er tekin við ríkisstjórn undir forsæti jafnaðarmanna. Jafnframt fagnar fundurinn að úrslit alþingiskosninganna í a...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/maelt-med-stefani-sem-rektor-haskolans-a-akureyri
Mælt með Stefáni sem rektor Háskólans á Akureyri Háskólaráð Háskólans á Akureyri ákvað á fundi sínum í morgun að mæla með því að Stefán B. Sigurðsson, prófessor og forseti læknadeildar Háskóla Íslands verði ráðinn næsti rektor háskólans á Akureyri, samkvæmt heimildum Vikudags. Eftir að valnefnd hafði farið yfir umsókni...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/lyst-yfir-miklum-ahyggjum-vegna-fyrirhugadrar-fyrningarleidar
Lýst yfir miklum áhyggjum vegna fyrirhugaðrar fyrningarleiðar Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps hefur sent frá bókun, sem gerð var á fundi sveitarstjórnar í gær, en þar er lýst yfir miklum áhyggjum vegna fyrirhugaðrar fyrningarleiðar á aflaheimildum í sjávarútvegi. Sveitarstjórnin leggur ríka áherslu á að ekki verði hrófl...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gripid-verdi-til-adgerda-til-ad-forda-fjolda-heimila-fra-gjaldthroti
Gripið verði til aðgerða til að forða fjölda heimila frá gjaldþroti Framsýn- stéttarfélag tekur heilshugar undir með Hagsmunasamtökum heimilanna um að þegar í stað verði gripið til aðgerða til að forða fjölda heimila í landinu frá gjaldþroti. Framsýn treystir því að ný ríkistjórn láti það verða eitt af sínum fyrstu ver...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/golfklubbur-akureyrar-oskar-eftir-staerra-landsvaedi
Golfklúbbur Akureyrar óskar eftir stærra landsvæði Golfklúbbur Akureyrar hefur sent erindi til skipulagsnefndar, þar sem óskað er eftir landsvæði fyrir, grasbanka, æfingar- og aukagolfvöll. Svæðið afmarkast af núverandi vallarmörkum í norðri, vinnusvæði Vegagerðarinnar, núverandi reiðgötu í vestri og Miðhúsabraut. Skip...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samningur-undirritadur-um-fram-kvaemd-krabbameinsleitar-a-fsa
Samningur undirritaður um fram- kvæmd krabbameinsleitar á FSA Krabbameinsfélags Íslands (KÍ), Heilsugæslustöðin á Akureyri (HAK) og Sjúkrahúsið á Akureyri (FSA) undirrituðu fyrir helgi samning sem felur í sér að framkvæmd legháls- og brjóstakrabbameinsleitar á Eyjafjarðarsvæðinu fari fram á FSA. Samningurinn gildir til...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kathor-leikur-a-ny-i-efstu-deild
KA/Þór leikur á ný í efstu deild Kvennahandboltalið KA/Þórs mun á næsta vetri taka þátt í efstu deild kvenna á nýjan leik eftir árs fjarveru. Erlingur Kristjánsson er einn af stjórnarmönnum og helstu aðstandenum liðsins og í samtali Vikudags við hann kemur í ljós að metnaðarfullar hugmyndir eru í gangi varðandi liðið. ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/draupnir-fekk-62-leikmenn
Draupnir fékk 62 leikmenn Knattspyrnufélagið Draupnir frá Akureyri gæti hafa sett met fyrir helgi þegar hvorki fleiri né færri en 62 leikmenn áttu félagaskipti í félagið áður en félagskiptaglugginn lokaði á miðnætti föstudagsins 15. maí. Þarna er um að ræða bæði knattspyrnumenn og konur því félagið teflir fram karlalið...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/flokkun-taki-yfir-rekstur-gama-svaedisins-vid-rettarhvamm
Flokkun taki yfir rekstur gáma- svæðisins við Réttarhvamm Umhverfisnefnd Akureyrar samþykkti á síðasta fundi sínum að fela starfsmönnum að ganga frá samningi við Flokkun Eyjafjörður ehf. um rekstur gámasvæðisins við Réttarhvamm. Framkvæmd sorphirðu frá heimilum og grenndargámavæðing verður áfram í umsjón Akureyrarbæjar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/morg-og-bryn-vidhaldsverkefni-fyrirliggjandi-a-fsa
Mörg og brýn viðhaldsverkefni fyrirliggjandi á FSA Samkvæmt áætlun Sjúkrahússins á Akureyri fyrir árið 2009 er gert ráð fyrir að kostnaðarlækkun og/eða hækkun sértekna nemi samtals um 326 milljónum króna. Uppgjör þriggja fyrstu mánaða þessar árs sýnir að áætlun gengur að mestu leyti eftir og er reksturinn í jafnvægi. T...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mariusz-og-gudny-islands-meistarar-i-tveimur-flokkum
Mariusz og Guðný Íslands- meistarar í tveimur flokkum Mariusz Daniel Kujawski, 17 ára nemandi í VMA og Guðný Ósk Karlsdóttir, 14 ára nemandi í 9. bekk Hrafnagilsskóla, gerðu góða ferð á Íslandsmeistaramót í samkvæmisdönsum með grunnaðferð, sem fram fór í Laugardalshöll um síðustu helgi. Þau kepptu í tveimur flokkum og ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rosa-kristin-og-karl-syna-a-bokasafni-ha
Rósa Kristín og Karl sýna á bókasafni HA Í gær, föstudag, opnuðu Rósa Kristín Júlíusdóttir og Karl Guðmundsson (Kalli) sýninguna Himintjöld og dansandi línur á bókasafni Háskólans á Akureyri. Verkin á sýningunni eru unnin með akrýllitum á bómullargrisju. Við opnunina voru veitt hvatningarverðlaun CP-félagsins. Hugtakið...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/slaem-verkefnastada-hja-jard-vinnuverktokum-a-akureyri
Slæm verkefnastaða hjá jarð- vinnuverktökum á Akureyri „Því er fljótsvarið, það er ekkert framundan," segir Guðmundur Gunnarsson hjá G V gröfum en fyrirtækið hefur einhver smáverkefni næstu vikur og eftir það er lítið framundan. Hljóðið í jarðvinnuverktökum á Akureyri er ekki sérlega gott um þessar mundir, en þeir eru ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-vann-thor-i-nagrannaslagnum
KA vann Þór í nágrannaslagnum KA lagði Þór 2-0 í Akureyrarslagnum í 1. deild karla í knattspyrnu á Akureyrarvelli í kvöld. Töluverður fjöldi áhorfenda sótti leikinn í blíðskapar veðri. Frábær stemmning var á leiknum þar sem stuðningsmannalið liðanna, Vinir Sagga hjá KA og Mjölnismenn hjá Þór héldu uppi mikilli og skemm...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-og-thor-maetast-i-nagranna-slag-i-fotboltanum-i-kvold
KA og Þór mætast í nágranna- slag í fótboltanum í kvöld KA og Þór mætast í kvöld í 1. deild karla í knattspyrnu á Akureyrarvellinum kl. 19:15. Eins og venja er þegar um nágrannaslag þessara liða er að ræða er mikil spenna í loftinu enda ræður leikur sem þessi úrslitum um hverjir ráða hér í bæ, fram að næsta leik í það ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kaldbakur-og-eimskip-afhenda-reidhjolahjalma-vid-sunnuhlid
Kaldbakur og Eimskip afhenda reiðhjólahjálma við Sunnuhlíð Á næstu vikum munu Eimskip og Kiwanishreyfingin gefa öllum börnum í 1. bekk grunnskóla landsins reiðhjólahjálma. Um er að ræða árlegt átak þessara aðila, auk þess sem verkefnið nýtur ráðgjafar og stuðnings Forvarnahússins. Á Akureyri afhenda Eimskip og Kiwanisk...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/um-90-islendinga-aetla-ad-ferdast-innanlands
Um 90% Íslendinga ætla að ferðast innanlands Samkvæmt könnun Ferðamálastofu um ferðaáform Íslendinga innanlands má búast við líflegu ferðasumri í ár. Í könnuninni, sem framkvæmd var í apríl síðastliðnum af MMR, kemur fram að níu Íslendingar af hverjum tíu ætla að ferðast innanlands í sumar sem er nokkuð hærra hlutfall ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/menningin-blomstrar-sem-aldrei-fyrr-a-akureyri
Menningin blómstrar sem aldrei fyrr á Akureyri Menningin blómstrar sem aldrei fyrr á Akureyri og um helgina verða opnaðar fjölmargar listsýningar. Á morgun laugardag kl. 15.00, opnar Hulda Hákon sýninguna: tveir menn, kona og sæskrímsli, í Listasafninu á Akureyri. Á sama tíma opnar sýningin: Viltu leika?, í GalleríBOXi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikil-umframeftirspurn-eftir-skuldabrefum-e-farice
Mikil umframeftirspurn eftir skuldabréfum E-Farice Saga Capital Fjárfestingarbanki lauk í dag við að selja skuldabréf E-Farice ehf. fyrir alls fimm milljarða króna. Skuldabréfin voru seld í lokuðu skuldabréfaútboði á innlendum verðbréfamarkaði og var mikil umframeftirspurn eftir bréfunum. Um er að ræða skuldabréf til 2...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/allir-i-landslidi-islands-i-siglingum-fra-nokkva
Allir í landsliði Íslands í siglingum frá Nökkva Á morgun laugardag kl. 11.00 fer fram á Glerártorgi kynning á landsliði Íslands í siglingum. Svo skemmtilega vill til að allir landsliðsmennirnir sex koma frá Nökkva, félagi siglingamanna á Akureyri, sem mun vera mjög fátítt og munu þeir keppa fyrir Íslands hönd á Smáþjó...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/unnid-ad-stofnun-ungmennarads-a-akureyri
Unnið að stofnun ungmennaráðs á Akureyri Á fundi samfélags- og mannréttindaráðs Akureyrar í vikunni var haldið áfram fyrri umræðum og rætt um stofnun undirbúningshóps sem falið verður að gera tillögur að stofnun ungmennaráðs, skilgreina hlutverk þess og samsetningu. Samfélags- og mannréttindaráð samþykkti að fela forst...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/longu-timabaert-ad-na-satt-um-stjorn-fiskveida
Löngu tímabært að ná sátt um stjórn fiskveiða Kristján Vilhelmsson formaður Útvegsmannafélags Norðurlands mætti á fund bæjarráðs Akureyrar í gær en hann hafði óskað eftir að koma á fund ráðsins og ræða fyrirhugaða fyrningarleið í sjávarútvegi. Bæjaráð telur löngu tímabært að skapa vinnufrið í íslenskum sjávarútvegi og ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/svokollud-5-leid-er-skammtima-lausn-sem-hefur-kosti-og-galla
Svokölluð 5%-leið er skammtíma- lausn sem hefur kosti og galla Svokölluð 5%-leið, þ.e. lækkun launa og frídagur á móti, er skammtímalausn, sem hefur bæði kosti og galla, og gengur ekki miðað við óbreyttar aðstæður án samninga við hvern og einn starfsmann af fúsum og frjálsum vilja. Bregðast þurfi við til lengri tíma - ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mettthatttaka-a-landsthingi-slysavarnafelagsins-landsbjargar-a-akureyri
Mettþátttaka á landsþingi Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Akureyri Landsþing Slysavarnafélagsins Landsbjargar verður haldið á Akureyri á morgun föstudag og á laugardag. Metþátttaka er á þinginu að þessu sinni en alls mæta tæplega 500 félagar úr slysavarnadeildum og björgunarsveitum víðs vegar af landinu til Akureyra...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aukin-umsvif-a-flestum-svidum-hja-sjukrahusinu-a-akureyri
Aukin umsvif á flestum sviðum hjá Sjúkrahúsinu á Akureyri Starfsemi Sjúkrahússins á Akureyri (FSA) óx á flestum sviðum á síðasta ári og var öflug sem fyrr. Rekstur sjúkrahússins var í jafnvægi og starfsemin í heild var í samræmi við áætlanir. Á árunum 2003-2008 sýna nær allir mælikvarðar aukna starfsemi sem í sumum til...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nyr-beinthettnimaelir-a-fsa-styttir-rannsoknatima-um-helming
Nýr beinþéttnimælir á FSA styttir rannsóknatíma um helming Sjúkrahúsið á Akureyri (FSA) hefur fest kaup á nýjum beinþéttnimæli af gerðinni Hologic Discovery. Með tilkomu hans styrkir FSA enn frekari þjónustu við íbúa á Norðausturlandi. Mælirinn kostar um 10 milljónir króna og er keyptur fyrir styrktarfé frá velunnurum ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/godir-gestir-i-heimsokn-hja-slokkvilidinu-a-akureyri
Góðir gestir í heimsókn hjá slökkviliðinu á Akureyri Það lifnaði heldur betur yfir athafnasvæði Slökkviliðsins á Akureyri í morgun þegar þangað komu í heimsókn yfir 300 leikskólabörn frá leikskólum á Akureyri og næsta nágrenni, ásamt stórum hópi starfsmanna. Börnin hafa í vetur fengið heimsókn frá slökkviliðinu, þar se...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/allt-sorp-verdi-flokkad-og-komid-til-urdunar-eda-endurvinnslu
Allt sorp verði flokkað og komið til urðunar eða endurvinnslu Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum í vikunni, að óska eftir viðræðum við Flokkun ehf. um rekstur gámasvæðis í sveitarfélaginu. Þetta er gert í framhaldi af fundi með Hermanni Jóni Tómassyni og Eiði Guðmundssyni fulltrúum Flokkunar ehf. ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/storsigur-thorska-a-ir-i-efstu-deild-kvenna-i-knattspyrnu
Stórsigur Þórs/KA á ÍR í efstu deild kvenna í knattspyrnu Hann var ekki spennandi leikur Þórs/KA og ÍR í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu sem fram fór í Boganum í kvöld. Yfirburðir heimastúlkna voru algjörir og höfðu þær þegar yfir lauk skorað 11 mörk gegn engu gestanna. Það tók Þór/KA ekki nema 45 sekúndur að skora og...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nordanbal-kaupir-gamla-barnaskolann-i-hrisey
Norðanbál kaupir gamla barnaskólann í Hrísey Norðanbál hefur fest kaup á gamla barnaskólanum í Hrísey. Norðanbáls hópurinn samanstendur af fimm einstaklingum og hefur starfað saman undanfarin 8 ár og komið að ýmsum verkefnum á sviði lista og menningar t.d. Vetrarhátíð Reykjavíkurborgar, ljósastauratúlípönum, útilistave...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gamli-baerinn-i-laufasi-opnar-dyrnar-uppa-gatt
Gamli bærinn í Laufási opnar dyrnar uppá gátt Gamli bærinn í Laufási opnar dyrnar upp á gátt föstudaginn 15. maí kl. 9.00 og býður velkomna alla þá gesti, innlenda og erlenda, sem leggja land undir fót þetta mikla ferðasumar sem nú fer í hönd. Kaffihúsastemning mun ríkja í gamla Presthúsinu til kl. 22.00 þennan fyrsta ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/karlakor-akureyrar-geysir-med-tvenna-tonleika-i-eyjafirdi
Karlakór Akureyrar-Geysir með tvenna tónleika í Eyjafirði Karlakór Akureyrar-Geysir heldur tvenna tónleika í Eyjafirði, dagana 15. og 16. maí nk. Vorið er uppskerutími KAG, þegar strangar æfingar vetrarins skila sér í söng og gleði með hækkandi sól. Hápunktur starfsársins eru vortónleikar KAG í Glerárkirkju á Akureyri....
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thegar-verid-uthlutad-37-af-fjarhagsaaetlun-i-fjarhagsadstod
Þegar verið úthlutað 37% af fjárhagsáætlun í fjárhagsaðstoð Á fundi félagsmálaráðs Akureyrar í gær var lagt fram yfirlit yfir veitta fjárhagsaðstoð fyrstu 4 mánuði ársins. Þar kom fram að þegar hefur verið úthlutað 37% af fjárhagsáætlun ársins 2009 á fyrstu 4 mánuðum ársins og samsvarar það 33% af árinu.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aksturslinan-i-gongugotunni-og-a-radhustorgi-malbikud
Aksturslínan í göngugötunni og á Ráðhústorgi malbikuð Starfsmenn Akureyrarbæjar eru þessa stundina að vinna við malbikunarframkvæmdir á Ráðhústorgi og í göngugötunni á Akureyri. Taka þarf upp hellur sem lagðar voru þegar göngugatan varð gerð á sínum tíma og eru í aksturlínu götunnar, sem og hellur í aksturslínu við Ráð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/einkahlutafelag-tekur-vid-rekstri-busins-a-modruvollum
Einkahlutafélag tekur við rekstri búsins á Möðruvöllum Á starfsstöð Landbúnaðarháskóla Íslands á Möðruvöllum í Hörgárdal hafa um árabil verið stundaðar rannsóknir í nautgriparækt og jarðrækt og hefur LbhÍ rekið þar tilraunabú. Áherslur í rannsóknum á starfsstöðinni að Möðruvöllum hafa að mestu flust frá nautgriparækt y...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rikisstjornin-leggur-fram-soknaraaetlun-fyrir-alla-landshluta
Ríkisstjórnin leggur fram sóknaráætlun fyrir alla landshluta Í samstarfsyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar, er m.a. kveðið á um ríkisstjórnin efni til viðtæks samráðs undir forystu forsætisráðuneytisins um sóknaráætlanir fyrir alla landshluta til eflingar atvinnulífs og lífsgæða til framtíðar. Ríkisstjórnin hélt sinn fyr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/trio-romance-heldur-tonleika-a-thremur-stodum-a-nordurlandi
Tríó Romance heldur tónleika á þremur stöðum á Norðurlandi Tríó Romance heldur tónleika í Dalvíkurkirkju föstudaginn 15. maí nk. kl. 20.00 og í Þorgeirskirkju laugardaginn 16. maí og í Laugarborg sunnudaginn 17. maí kl. 15.0. Tónleikarnir eru liður í vetrardagskrá Laugarborgar og eru haldnir í samvinnu við Félag íslens...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/saga-capital-tapadi-37-milljordum-krona-i-fyrra
Saga Capital tapaði 3,7 milljörðum króna í fyrra Á aðalfundi Saga Capital Fjárfestingarbanka, sem haldinn var fyrir helgi, voru samþykktar breytingar á starfskjarastefnu bankans sem eiga að endurspegla núverandi starfs- og launaumhverfi bankans og gera m.a. ráð fyrir heimild til að skipa sérstaka starfskjaranefnd. Þá v...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/um-160-nemendur-brautskradir-fra-vma-annan-laugardag
Um 160 nemendur brautskráðir frá VMA annan laugardag Brautskráning nemenda frá Verkmenntaskólanum á Akureyri fer fram laugardaginn 23. maí nk. kl. 10.00. Alls verða brautskráðir um 160 nemendur að þessu sinni, heldur fleiri en síðustu ár. Einhver óánægja hefur verið meðal nemenda, þar sem þeir töldu að aðeins fengju tv...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/holaskolanemar-leggja-gongustiga-i-fridlandi-svarfdaela
Hólaskólanemar leggja göngustíga í Friðlandi Svarfdæla Námskeið í lagningu göngustíga var haldið í Náttúrusetrinu á Húsabakka í Svarfaðardal í vikunni. Yfir tugttugu nemendur víðs vegar af landinu vinna ásamt þremur leiðbeinendum, hörðum höndum frá mánudegi fram á miðvikudag að því að leggja göngustíga í Friðlandi Svar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/johanna-setur-fyrsta-fund-nyrrar-rikisstjornar-a-akureyri
Jóhanna setur fyrsta fund nýrrar ríkisstjórnar á Akureyri Ný ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna kom saman til fyrsta fundar í Ráðhúsinu á Akureyri nú í hádeginu. Eins og fram hefur komið mun þetta vera í fyrsta skipti sem almennur ríkisstjórnarfundur er haldinn utan Reykjavíkur en fundir hafa verið haldnir á há...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fagnar-thvi-ad-tekin-skuli-til-starfa-velferdarstjorn-vg-og-samfylkingar
Fagnar því að tekin skuli til starfa velferðarstjórn VG og Samfylkingar Sveitarstjórnarráð Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs fagnar því að tekin skuli til starfa velferðarstjórn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs og Samfylkingarinnar sem leggur áherslu á að tryggja efnahagslegan og félagslegan stöðugleika og...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ny-rikisstjorn-fundar-i-radhusinu-a-akureyri-i-dag
Ný ríkisstjórn fundar í Ráðhúsinu á Akureyri í dag Ný ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna kemur saman til fyrsta fundar á Akureyri í hádeginu í dag. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem almennur ríkisstjórnarfundur er haldinn utan Reykjavíkur en fundir hafa verið haldnir á hátíðarstundum á Þingvöllum. Fundur ríkis...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stada-kea-sterk-thratt-fyrir-taprekstur-a-sidasta-ari
Staða KEA sterk þrátt fyrir taprekstur á síðasta ári KEA tapaði um 1,6 milljarði króna á síðasta ári og skýrist það að mestu af niðurfærslu skuldabréfa og eignarhluta í fyrirtækjum. Bókfært eigið fé var rúmlega 3,8 milljarðar króna um síðustu áramót og heildareignir um 4,2 milljarðar króna. Félagið er nánast skuldlaust...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kostnadur-vid-eftirlit-vegna-fram-kvaemda-vid-undirgong-24-milljonir-krona
Kostnaður við eftirlit vegna fram- kvæmda við undirgöng 2,4 milljónir króna Verkfræðistofa Norðurlands ehf. átti lægsta tilboð í eftirlit með framkvæmdum við gerð undirganga undir Hörgárbraut á Akureyri og hljóðaði það upp á 2,4 milljónir króna. Verkís hf. bauð rúmar 2,9 milljónir króna í verkið og átti frávikstilboð u...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/raett-um-frettaljosmyndir-i-dag-blodum-og-merkingu-theirra
Rætt um fréttaljósmyndir í dag- blöðum og merkingu þeirra Fyrirlestraröð AkureyrarAkademíunnar lýkur fimmtudaginn 14. maí kl. 17.00 en þá heldur Hermann Stefánsson rithöfundur og bókmenntafræðingur erindi um myndlæsi í húsnæði félagsins að Þórunnarstræti 99. Í erindinu ræðir Hermann um fréttaljósmyndir í dagblöðum og l...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/buvis-flutti-inn-taeplega-3000-tonn-af-aburdi-nu-i-vor
Búvís flutti inn tæplega 3000 tonn af áburði nú í vor Áburði sem fyrirtækið Búvís flutti til landsins frá Finnlandi er nú ekið heim á bæi til kaupenda þessa dagana, en áburðinum var skipað upp á Akureyri nýlega. Gunnar Guðmundarson í Sveinungsvík sem rekur Búvís ásamt Einari bróður sínum segir að áhugi bænda hafi verið...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorsarar-logdu-skagamenn-og-ka-gerdi-jafntefli-vid-selfoss
Þórsarar lögðu Skagamenn og KA gerði jafntefli við Selfoss Þórsarar lögðu Skagamenn sannfærandi í fyrstu umferð 1. deildar karla í knattspyrnu. Leikurinn fór fram í Boganum var hin besta skemmtun og úrslitin nokkuð óvænt en fyrirfram áttu eflaust flestir von á sigri gestanna af Skaganum. Þórsarar byrjuðu leikinn af mik...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vegagerdin-kaupir-gogn-um-vadlaheidargong-fyrir-um-120-milljonir-krona
Vegagerðin kaupir gögn um Vaðlaheiðargöng fyrir um 120 milljónir króna Kristján L. Möller samgönguráðherra sagði frá því á dögunum að ákveðið hafi verið að Vegagerðin keypti gögn Greiðar leiðar ehf. vegna undirbúnings framkvæmda við Vaðlaheiðargöng. Jafnframt sagði samgönguráðherra að forval vegna Vaðheiðarganga myndi ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/frasagnir-akureyringa-af-isbirni-i-skagafirdi-uppspuni
Frásagnir Akureyringa af ísbirni í Skagafirði uppspuni "Frásagnir af ferðum ísbjarnar í Skagafirði voru lygar frá upphafi til enda. Hvatamenn að blekkingunum voru Sigurður Guðmundsson, verslunarmaður á Akureyri og Páll L. Sigurjónsson, hótelstjóri Hótels KEA á Akureyri, en þeir voru ásamt félögum sínum úr Oddfellowhrey...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hermann-jon-tekur-vid-sem-baejarstjori-a-akureyri-9-juni
Hermann Jón tekur við sem bæjarstjóri á Akureyri 9. júní Hermann Jón Tómasson bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar og formaður bæjarráðs, tekur við starfi bæjarstjóra á Akureyri á fundi bæjarstjórnar þann 9. júní nk. Hann tekur við starfinu af Sigrúnu Björk Jakobsdóttur bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, sem tók við starfi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eyjafjardara-er-a-uppleid-og-seidabuskapur-ad-na-ser
Eyjafjarðará er á uppleið og seiðabúskapur að ná sér „Við erum bara mjög bjartsýn á sumarið," segir Ágúst Ásgrímsson formaður Veiðifélags Eyjafjarðarár og telur að áin sé á uppleið. Á síðastliðinu ári veiddust um 1000 fiskar í Eyjafjarðará, sem er mun meira en var árið 2007, þegar um 700 fiskar veiddust í ánni. Þá er s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/afram-heldur-list-an-landamaera-a-nordurlandi
Áfram heldur List án landamæra á Norðurlandi Mjög mikil stemning hefur verið á viðburðum sem fram hafa farið á Norðurlandi á vegum Listar án landamæra. Formlega opnunin um síðustu helgi tókst með mikilli prýði og má sem dæmi nefna að Safnvörðurinn sem nú stendur stoltur við Safnasafnið á Svalbarðsströnd hefur vakið ósk...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrirningarleid-a-veidiheimildum-hardlega-motmaelt
Fyrirningarleið á veiðiheimildum harðlega mótmælt Sveitarstjórn Grímseyjarhrepps hefur sent bréf til Steingríms J. Sigfússonar sjávarútvegsráðherra, þar sem fyrirhugaðri fyrirningarleið stjórnvalda á veiðiheimildum er harðlega mótmælt. Þetta sé sú alversta hugmynd sem komið hafi fram í sjávarútvegsstefnu okkar Íslendin...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rekstrarnidurstada-arnarneshrepps-neikvaed-um-21-milljon-i-fyrra
Rekstrarniðurstaða Arnarneshrepps neikvæð um 21 milljón í fyrra Ársreikningur Arnarneshrepps fyrir árið 2008 var lagður fram til fyrri umræðu á síðasta fundi hreppsnefndar. Þar kemur m.a. fram að rekstrarniðurstaða ársins var neikvæð um 21 milljón króna. Tekjur voru um 102,4 milljónir króna og gjöld um 122,2 milljónir ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/haskolasjodur-kea-veitir-styrk-til-kaupa-a-kennsluhermi
Háskólasjóður KEA veitir styrk til kaupa á kennsluhermi Deild kennslu og vísinda og heilbrigðisdeild HA hafa fengið 1.000.000 króna styrk frá Háskólasjóði KEA (Tækjasjóði) til kaupa á SimMan 3G kennsluhermi en hann er hægt að nota við margskonar þjálfun. Kennsluherminn er fyrst og fremst hugsaður til notkunar í verkleg...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bakkavarnir-vid-horga
Bakkavarnir við Hörgá Hörgá hefur í gegnum tíðinni oft flæmst víða um bakka sína og valdið skaða á ræktunarlöndum. Bændur hafa því löngum reynt að hamla gegn því með grjótvörnum og öðrum ráðstöfunum. Í gær var verið að færa stórgrýti sem fyrir löngu hafði verið sett við austurbakka árinnar á móts við Þelamerkurskóla, e...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/handverkssyning-oldrunarheimila-akureyrar
Handverkssýning Öldrunarheimila Akureyrar Handverkssýning Öldrunarheimila Akureyrar verður haldin í Hlíð sunnudaginn 10. maí kl. 14:00 til 17:00 og mánudaginn 11. maí kl. 13:00 til 16.00. Stærsti hluti sýningarinnar verður handverk sem unnið hefur verið á síðustu mánuðum. Margir íbúar ÖA hafa verið mikið handverksfólk ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bjorinn-beint-i-vinbudirnar-fra-vifilfelli-a-akureyri
Bjórinn beint í vínbúðirnar frá Vífilfelli á Akureyri Vífilfell er nú byrjað að afgreiða bjór, sem framleiddur er á Akureyri, beint í vínbúðir ÁTVR á Siglufirði, Sauðárkróki og Egilsstöðum en áður var bjórinn keyrður frá Akureyri til Reykjavíkur og svo aftur norður og austur á þessa staði, með tilheyrandi flutningskost...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kostnadur-vegna-upphitunar-og-lysingar-a-sparkvollum-um-22-milljonir-krona-a-ari
Kostnaður vegna upphitunar og lýsingar á sparkvöllum um 2,2 milljónir króna á ári Samkvæmt úttekt skóladeildar á kostnaði við upphitun á sparkvöllum við grunnskóla Akureyrar má áætla að kostnaðurinn sé um 230.000 kr. vegna hvers sparkvallar á ári. Þar sem sparkvellirnir eru sex talsins er kostnaður við upphitun þeirra ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/dagsektum-beitt-vegna-oryggisradstafana-a-lodum
Dagsektum beitt vegna öryggisráðstafana á lóðum Skipulagsnefnd hefur samþykkt tillögu skipulagsstjóra um tímafrest og beitingu dagsekta vegna öryggisráðstafana á lóð nr. 5 og nr. 7 við Fossatún og lóð nr. 6 við Þrumutún. Skipulagsnefnd lagði jafnframt til við bæjarráð að tillagan yrði samþykkt. Ennfremur heimilaði skip...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/umtalsvert-aukin-adsokn-var-ad-ollum-skidasvaedum-a-landinu
Umtalsvert aukin aðsókn var að öllum skíðasvæðum á landinu Skíðaveturinn var sérlega góður. Aldrei hafa eins margir nýtt sér aðstöðuna sem skíðasvæðin á Íslandi hafa að bjóða. Nokkrar skýringar kunna að vera á aukinni aðsókn: Snjóalög og veðurfar voru sérlega hagstæð en einnig hafði staða efnahagsmála augljóslega áhrif...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/lokanir-gatna-a-akureyri
Lokanir gatna á Akureyri Lögreglan á Akureyri tilkynnir að vegna gerðar undirganga á Hörgárbraut, norðan Skúta, verður Hörgárbraut lokuð milli Hlíðarbrautar og Undirhlíðar frá 7. maí til 4. júní nk. Hjáleið er um Krossanesbraut. Þá er unnið við framkvæmdir á Hjalteyrargötu við Gránufélagsgötu frá 7. maí og fram yfir nk...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/spennandi-honnunarsamkeppni-a-landsvisu-opin-ollum
Spennandi hönnunarsamkeppni á landsvísu opin öllum Þráður fortíðar til framtíðar, er hönnunarsamkeppni á landsvísu þar sem íslensk ull er í aðalhlutverki. Markmið samkeppninnar er að auka fjölbreyttni í hönnun þar sem notuð er íslensk ull og verðlauna þá sem fara þar fremstir í flokki. Á þennan hátt er vakin athygli á ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/karl-opnadi-syningu-i-radhusinu-a-akureyri
Karl opnaði sýningu í Ráðhúsinu á Akureyri Karl Guðmundsson opnaði sýningu sína Kalli25 í bæjarstjórnarsal Ráðhússins á Akureyri í gær. Verkin á sýningunni eru unnin með olíulitum á bókbandspappa. Karl hefur lagt stund á myndlist frá unga aldri. Í mörg ár hefur hann komið á vinnustofu Rósu Kristínar Júlíusdóttur, kenna...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/taeplega-260-born-innritud-i-leikskola-fyrir-naesta-skolaar
Tæplega 260 börn innrituð í leikskóla fyrir næsta skólaár Alls er búið að innrita 257 börn í leikskóla á Akureyri fyrir skólaárið 2009 til 2010 og að auki óskuðu foreldrar 43ja barna eftir flutningi fyrir börn sín og fengu þá skóla sem þeir óskuðu eftir. Ennþá eru laus 31 rými. Á umsóknarlista eru 10 börn sem fædd eru ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ferda-og-bokakynning-ferdafelags-akureyrar
Ferða- og bókakynning Ferðafélags Akureyrar Ferða- og bókakynning verður í húsi Ferðafélags Akureyrar við Strandgötu fimmtudaginn 7. maí kl. 20:00. Kynntar verða ferðir á vegum FFA sumarið 2009. Frímann Guðmundsson fer stuttlega yfir viðamikla ferðaáætlun FFA, auk nýunga þ.e. tvær gönguvikur í sumar þar sem boðið verðu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tillaga-ad-breytingum-a-kjorum-embaettismanna-dregin-til-baka
Tillaga að breytingum á kjörum embættismanna dregin til baka Á fundi kjarasamninganefndar Akureyrarbæjar í gær, var fjallað um tillögu að breytingum á kjörum embættismanna, sem samþykkt var á fundi kjarasamninganefndar 18. mars sl. Nefndin samþykkti á fundinum í gær að draga til baka tillöguna sem samþykkt var á fundin...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rekstrarkostnadur-tonlistarskolans-laekki-um-10-milljonir-a-naesta-ari
Rekstrarkostnaður Tónlistarskólans lækki um 10 milljónir á næsta ári Á fundi skólanefndar Akureyrar í gær, voru lagðar fram tillögur skólastjórnenda Tónlistarskólans að breyttum áherslum í faglegu starfi skólans og að breytingum á rekstri. Þar er gert ráð fyrir því að starf almennu deildarinnar verði lagt niður á næstu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/norraen-radstefna-um-gedheilbrigdismal-a-akureyri
Norræn ráðstefna um geðheilbrigðismál á Akureyri Landssamtökin Geðhjálp í samstarfi við Norræna lýðheilsuháskólann í Gautaborg og Norræna Velferðarráðið efna til norrænnar ráðstefnu með alþjóðalegu ívafi á Akureyri fimmtudag og föstudag, undir yfirskriftinni: Ný sjónarhorn - bestu leiðirnar. Í fyrsta sinn eru leiddir s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/verkefnid-hjolad-i-vinnuna-ad-fara-af-stad
Verkefnið “Hjólað í vinnuna” að fara af stað Verkefni ÍSÍ „Hjólað í vinnuna" fer af stað með pompi og prakt miðvikudaginn 6. maí nk. Nú hefur verið ákveðið að verkefninu verði hrundið af stað á Akureyri eins og í Reykjavík. Það verður gert á Glerártorgi kl. 08.30 um morguninn. Frá árinu 2003 hefur Íþrótta- og Ólympíusa...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/athafnamadurinn-magnus-thorsteinsson-gjaldthrota
Athafnamaðurinn Magnús Þorsteinsson gjaldþrota Athafnamaðurinn Magnús Þorsteinsson var úrskurðaður gjaldþrota í Héraðsdómi Norðurlands eystra í dag. Magnús er fyrrverandi viðskiptafélagi Björgólfsfeðga og keypti með þeim Landsbanka Íslands árið 2002 en auk þess er hann fyrrverandi stjórnarformaður og eigandi Eimskipa. ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kirkjulistavika-i-akureyrarkirkju-haldin-i-11-sinn
Kirkjulistavika í Akureyrarkirkju haldin í 11. sinn Kirkjulistavika hófst í Akureyrarkirkju í gær sunnudag en hátíðin, sem hefur verið haldin annað hvert ár frá árinu 1989, er nú haldin í 11. sinn. Helstu markmið Kirkjulistaviku hafa frá upphafi verið að efla samvinnu og tengsl listafólks við kirkjuna og gefa Akureyrin...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baejarbuar-hvattir-til-ad-hreinsa-til-i-baenum-eftir-veturinn
Bæjarbúar hvattir til að hreinsa til í bænum eftir veturinn Akureyrarbær hvetur bæjarbúa til að taka höndum saman við að hreinsa til í bænum eftir veturinn og taka á móti sumrinu með bros á vör. Akureyrarbær mun í ár ekki fjarlægja garðaúrgang frá lóðarmörkum líkt og undanfarin ár en gámar verða staðsettir í hverfum bæ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/orlofsuppbot-rikisstarfsmanna-verdur-25200-kronur
Orlofsuppbót ríkisstarfsmanna verður 25.200 krónur Þar sem starfsmenn ríkisins eru með lausa kjarasamninga hefðu þeir að óbreyttu ekki fengið orlofsuppbót í júní eins og annað launafólk. Fjármálaráðherra hefur ákveðið að starfsmenn ríkisins sem fengið hafa orlofsuppbót skv. kjarasamningum fái orlofsuppbót árið 2009 að ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gudbjorg-synir-i-safnasafninu-a-svalbardsstrond
Guðbjörg sýnir í Safnasafninu á Svalbarðsströnd Guðbjörg Ringsted opnaði myndlistarsýningu í Safnasafninu á Svarlbarðsströnd sl. laugardag. Þar sýnir hún málverk sem eru unnin á síðustu mánuðum. Þema verkanna er íslenskur útsaumur. Sýningin stendur fram í júlí.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kalli-opnar-syningu-i-galleri-radhusi-a-akureyri
Kalli opnar sýningu í Gallerí Ráðhúsi á Akureyri Á morgun, þriðjudaginn 5. maí kl. 12:15, opnar Karl Guðmundsson sýninguna KALLI25 í Galleríi Ráðhúsi að Geislagötu 9 á Akureyri. Verkin á sýningunni eru unnin með olíulitum á bókbandspappa en sýninginn er hluti af List án landamæra. Karl Guðmundsson (Kalli) hefur lagt st...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stulkan-sem-lyst-var-eftir-komin-fram-heil-a-hufi
Stúlkan sem lýst var eftir komin fram heil á húfi Stúlkan sem lögreglan á Akureyri lýsti eftir í gær, er komin fram heil á húfi. Stúlkan, Ingibjörg Sigurrós Sigurðardóttir, 16 ára, fór fór frá heimili sínu að morgni 1. maí sl. og hafði ekkert til hennar spurst þar til í gær. Lögreglan þakkar þeim fjölmörgu fjölmiðlum o...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vaxandi-starfsemi-hja-laeknastofum-akureyrar
Vaxandi starfsemi hjá Læknastofum Akureyrar Starfsemi Læknastofa Akureyrar hefur vaxið mjög á undanförnum árum, en rúmt ár er frá því hún var flutt í rúmgott húsnæði við Hafnarstræti 97, Krónuna. Við það tækifæri var fyrsta einkarekna skurðstofan utan höfuðborgarsvæðisins tekin í notkun og hefur nýting hennar farið fra...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/logreglan-a-akureyri-lysir-eftir-16-ara-stulku
Lögreglan á Akureyri lýsir eftir 16 ára stúlku Lögreglan á Akureyri lýsir eftir Ingibjörgu Sigurrósu Sigurðardóttur. Ingibjörg er 16 ára gömul, um 168 cm á hæð og 56 kg. Ingibjörg er með dökkleitt hár en ljóst að hluta og hún gengur með gleraugu. Ingibjörg fór frá heimili sínu að morgni 1. maí sl. og hefur ekkert spurs...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyrarhofn-su-thridja-besta-i-evropu
Akureyrarhöfn sú þriðja besta í Evrópu Akureyrarhöfn er þriðja besta höfnin í Evrópu, samkvæmt skoðanakönnun sem gerð var meðal farþega skemmtiferðaskipa í eigu Princess Cruises um þjónustu í höfnum. Fyrirtækið á 18 skemmtiferðaskip, öll eru þau stór og glæsileg og bera seinna nafnið Princess. Alls voru 34 Evrópuhafnir...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vinland-valin-athyglisverdasta-ahugaleiksyning-arsins
Vínland valin athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins Rokksöngleikurinn Vínland, eftir Helga Þórsson, var valin athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins, á þingi Bandalags íslenskra leikfélaga. Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikshússtjóri tilkynnti niðurstöðu dómnefndar í hátíðarkvöldverði aðalfundar Bandalagsins í gær, 1.m...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikill-fjoldi-folks-tok-thatt-i-krofugongu-a-akureyri
Mikill fjöldi fólks tók þátt í kröfugöngu á Akureyri Mikill fjöldi fólks tók þátt í kröfugönugu á Akureyri í dag, í blíðskaparveðri. Það eru stéttarfélögin á Akureyri sem standa fyrir dagskrá á frídegi verkalýðsins 1. maí. Gengið var frá Alþýðuhúsinu, í gegnum miðbæinn og að Sjallanum, þar sem nú stendur yfir hátíðarda...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thratt-fyrir-taprekstur-lifir-kea-enn-thokkalega-godu-lifi
Þrátt fyrir taprekstur lifir KEA enn þokkalega góðu lífi Stjórn KEA var endurkjörin á aðalfundi félagsins í Ketilhúsinu í gærkvöld. Þrír aðalmenn og þrír varamenn sem lokið höfðu kjörtímabili sínu, gáfu allir kost á sér áfram og þar sem ekki voru aðrir í kjöri, voru þeir allir sjálfkjörnir til áframhaldandi stjórnarset...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fimm-rudur-brotnar-i-kjarnakoti-og-utiljos-rifin-nidur
Fimm rúður brotnar í Kjarnakoti og útiljós rifin niður Skemmdir voru unnar á Kjarnakoti, húsi Skógræktarfélags Eyfirðinga í Kjarnaskógi í vikunni, eins og fram hefur komið á vef Vikudags. Þetta er í fjórða sinn í vetur sem skemmdarverk eru unnin á húsinu og skiptir tjónið hundruðum þúsunda króna, samkvæmt upplýsingum J...