Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyri-brosir-med-hjartanu-a-vetrarhatid-i-reykjavik
Akureyri Brosir með hjartanu á Vetrarhátíð í Reykjavík Ferðaþjónusta á Akureyri og Norðurlandi öllu verður kynnt í Höfuðborgarstofu á Vetrarhátíð í Reykjavík sem fram fer 13. og 14. febrúar. Á morgun föstudag milli klukkan 14-17 er starfsfólki ferðaþjónustufyrirtækja sérstaklega boðið til að kynna sér ferðaþjónustu á A...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skidanamskeid-fyrir-fatlada-i-hlidarfjalli-um-helgina
Skíðanámskeið fyrir fatlaða í Hlíðarfjalli um helgina Íþróttasamband fatlaðra og Vetraríþróttamiðstöð Íslands halda skíðanámskeið fyrir fatlaða í Hlíðarfjalli dagana 13.-15. febrúar nk. í samvinnu við Beth Fox leiðbeinanda frá Kandada. Á morgun föstudag, verður byrjað á að kenna aðstoðarfólki grunnatriði í sambandi við...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kosid-verdi-um-sameiningu-akureyrar-og-grimseyjar-i-vor
Kosið verði um sameiningu Akureyrar og Grímseyjar í vor Samstarfsnefnd um sameiningu Akureyrarkaupstaðar og Grímseyjarhrepps leggur til að kosið verði um sameiningu sveitarfélaganna samhliða kosningum til Alþingis 25. apríl nk. Málið var til umfjöllunar á fundi bæjarráðs Akureyrar í morgun og var tillögunni vísað til f...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/greinargerd-um-skridufoll-a-raflinuleid-milli-akureyrar-og-blondustodvar
Greinargerð um skriðuföll á raflínuleið milli Akureyrar og Blöndustöðvar Út er komin viðamikil greinargerð frá Veðurstofu Íslands um ofanflóð, þ.e. snjóflóð og skriðuföll, á fyrirhugðri raflínuleið milli Akureyrar og Blöndustöðvar. Leiðin liggur í gegnum Hörgárbyggð og því er í greinargerðinni miklar upplýsingar um ofa...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sex-umsaekjendur-um-stodu-rektors-vid-haskolann-a-akureyri
Sex umsækjendur um stöðu rektors við Háskólann á Akureyri Alls bárust sex umsóknir um stöðu rektors við Háskólann á Akureyri en umsóknarfrestur rann út í gær. Á meðal umsækjenda eru tveir starfsmenn skólans, þeir Guðmundur Heiðar Frímannsson, prófessor í heimspeki og Ingi Rúnar Eðvarðsson, prófessor í stjórnun. Menntam...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bjartsyni-rikir-medal-bjor-framleidenda-i-eyjafirdi
Bjartsýni ríkir meðal bjór- framleiðenda í Eyjafirði Rekstur verksmiðju Vífilfells á Akureyri gekk vel á árinu 2008 að sögn Unnsteins Jónssonar verksmiðjustjóra. Fyrirtækið framleiddi og seldi rúmlega 11 milljónir lítra af þeim vörum sem framleiddar voru á Akureyri á liðnu ári. Bruggsmiðjan á Árskógsströnd framleiddi o...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/24x24-glerardalhringurinn-vinnur-til-vefverdlauna
24x24 Glerárdalhringurinn vinnur til vefverðlauna Samtök vefiðnaðarins ásamt ÍMARK standa árlega fyrir Íslensku vefverðlaununum. En verðlaunin eru uppskeruhátíð vefiðnaðarins þar sem þeir vefir sem taldir eru skara fram úr á sínu sviði eru verðlaunaðir sérstaklega. Vefurinn 24x24.is, sem er fjallgöngufélag á Akureyri, ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vilja-halda-afram-rannsoknar-borunum-a-theistareykjum-i-sumar
Vilja halda áfram rannsóknar- borunum á Þeistareykjum í sumar Fjórir þingmenn í Norðausturkjördæmi, sjálfstæðismennirnir Kristján Þór Júlíusson, Arnbjörg Sveinsdóttir og Ólöf Norðdal og Einar Már Sigurðarson Samfylkingu, hafa lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um rannsóknarboranir á Þeistareykjum sumarið 20...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/heradsnefnd-ekki-lengur-rekstraradili-heradsskjalasafnsins
Héraðsnefnd ekki lengur rekstraraðili Héraðsskjalasafnsins Héraðsnefnd Eyjafjarðar er ekki lengur rekstraraðili Héraðsskjalasafnsins á Akureyri fyrir hönd þeirra sveitarfélaga sem að safninu standa, auk þess sem Fjallabyggð hefur tilkynnt að sveitarfélagið ætli ekki lengur að nota þjónustu safnsins. Af þessum sökum þar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thuridur-bydur-sig-fram-i-2-saeti-i-forvali-vg
Þuríður býður sig fram í 2. sæti í forvali VG Þuríður Backman, alþingismaður, hefur ákveðið að bjóða sig fram í 2. sæti í forvali Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Norðausturkjördæmi vegna Alþingiskosninganna í vor. Í síðustu alþingiskosningum var Þuríður í 2. sæti. Þuríður hefur setið á þingi fyrir VG frá árin...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/arnbjorg-bydur-sig-fram-i-2-saeti-i-profkjori-sjalfstaedisflokksins
Arnbjörg býður sig fram í 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins Arnbjörg Sveinsdóttir, alþingismaður, hefur ákveðið að bjóða sig fram til 2. sætis í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi vegna Alþingiskosninganna í vor. Arnbjörg hafnaði í öðru sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akvordun-um-uppsogn-sveitar-stjora-tekin-a-faglegum-forsendum
Ákvörðun um uppsögn sveitar- stjóra tekin á faglegum forsendum Arnar Árnason oddviti og sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar ritar bréf fyrir hönd sveitarstjórnar til íbúa á vef sveitarfélagsins, í kjölfar þess að Guðmundur Jóhannsson fráfandi sveitarstjóri sendi íbúum sveitarfélagsins bréf, þar sem hann fjallaði um störf ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyrarbaer-og-kea-styrkja-skakfelag-akureyrar
Akureyrarbær og KEA styrkja Skákfélag Akureyrar Skákfélag Akureyrar fagnar í dag 90 ára afmæli félagsins en það var stofnað 10. febrúar 1919. Ýmislegt verður gert til hátíðarbrigða vegna þessara tímamóta. Í dag klukkan 17.00 verður opið hús í skákmiðstöð félagsins í suðurenda Íþróttahallarinnar. Þangað eru allir velunn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/byrjad-er-ad-boka-menningar-husid-hof-fram-til-arsins-2011
Byrjað er að bóka menningar- húsið Hof fram til ársins 2011 Stefnt er að því að Menningarfélagið Hof taki við undirbúningsrekstri Hofs í apríl á þessu ári en mikil vinna er framundan við markaðssetningu hússins. Mikill áhugi er á húsinu og þegar er byrjað að bóka í húsið allt fram til ársins 2011 en verklok eru nú áætl...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tekjur-af-skemmtiferdaskipum-taepar-50-milljonir-a-sidasta-ari
Tekjur af skemmtiferðaskipum tæpar 50 milljónir á síðasta ári Heildartekjur Hafnasamlags Norðurlands vegna komu skemmtiferðaskipa til Akureyrar á síðasta sumri, námu 48,2 milljónum króna og hafa aldrei verið hærri. Þetta er aukning í tekjum á milli ára, sem nemur tæplega 2 milljónum króna. Alls voru komur skemmtiferðas...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stjorn-kjordaemisrads-samfylk-ingarinnar-leggur-til-profkjorsleid
Stjórn kjördæmisráðs Samfylk- ingarinnar leggur til prófkjörsleið Kjördæmisþing Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi verður haldið í Brekkuskóla á Akureyri nk. sunnudag. Þar verður tekin fyrir tillaga stjórnar um prófkjörsleið fyrir Alþingiskosningarnar í vor. Fyrir liggur fyrir að þingmenn flokksins í kjördæminu sæk...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/takmarkadar-lodnuveidar-i-rannsoknaskyni-heimiladar
Takmarkaðar loðnuveiðar í rannsóknaskyni heimilaðar Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, hefur ákveðið að heimila takmarkaðar loðnuveiðar íslenskra skipa í rannsóknaskyni. Í reglugerðinni er kveðið á um að stjórn og skipulag veiðanna skuli framkvæmt undir stjórn og í nánu samstarfi við Hafran...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/profkjor-hja-sjalfstaedisflokknum-i-nordausturkjordaemi
Prófkjör hjá Sjálfstæðisflokknum í Norðausturkjördæmi Á fundi kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi á laugardag, var samþykkt að halda prófkjör laugardaginn 14. mars nk., þar sem kosið verður um sex efstu sæti listans. Þingmenn flokksins í kjördæminu ætla að taka slaginn en Þorvaldur Ingvarsson framkv...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sex-nyir-starfsmenn-hja-saga-capital-fjarfestingarbanka
Sex nýir starfsmenn hjá Saga Capital Fjárfestingarbanka Saga Capital Fjárfestingarbanki hefur kynnt til sögunnar sex nýja starfsmenn og eru starfsmenn bankans því 34 talsins nú um stundir. Höfuðstöðvar Saga Capital eru á Akureyri en bankinn er einnig með skrifstofu í Reykjavík. Af þessum sex nýju starfsmönnum er fjórar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/um-440-thusund-farthegar-hja-sva-i-fyrra
Um 440 þúsund farþegar hjá SVA í fyrra Farþegum Strætisvagna Akureyrar hefur fjölgað verulega á liðnum misserum og er talið að sú þróun muni halda áfram. Rekstur vagnanna gekk heilt yfir ágætlega á liðnu ári, en rekstrarkostnaður hefur aukist talsvert m.a. í kjölfar hækkandi eldsneytisverðs sem og aðfanga af öllu tagi ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skakfelag-akureyrar-fagnar-90-ara-afmaeli-a-thridjudag
Skákfélag Akureyrar fagnar 90 ára afmæli á þriðjudag Skákfélag Akureyrar verður 90 ára næstkomandi þriðjudag en félagið var stofnað þann 10. febrúar árið 1919. Af þessu tilefni verður félagið með opið hús í Íþróttahöllinni frá kl. 16.30 á afmælisdaginn. Fyrsti formaður Skákfélagsins var Ari Guðmundsson en núverandi for...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bodid-upp-a-namskeid-og-adstodu-til-handverksidkunar
Boðið upp á námskeið og aðstöðu til handverksiðkunar Hlutverk handverksmiðstöðvarinnar Punktsins á Akureyri er að efla og þroska einstaklinga í samfélaginu og bjóða almenningi upp á fjölbreytt úrval námskeiða í ýmiss konar handverki ásamt því að bjóða upp á opna aðstöðu til handverksiðkunar. Punkturinn er opinn fyrir a...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikil-asokn-gaedanemenda-vids-vegar-ad-ur-heiminum
Mikil ásókn gæðanemenda víðs vegar að úr heiminum RES Orkuskólinn á Akureyri var settur í dag í annað sinn. Á komandi námsári munu yfir fjörtíu nemendur frá fjórtán löndum hefja meistaranám í vistvænni orkunýtingu við skólann. Um er að ræða eins árs meistaranám í endurnýjanlegum orkufræðum og vistvænni orkunýtingu í sa...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aukin-adsokn-a-amtsbokasafnid-fra-thvi-i-haust
Aukin aðsókn á Amtsbókasafnið frá því í haust "Við urðum vör við það í haust að fólki fór að fjölga hér hjá okkur," segir Hólmkell Hreinsson amtsbókavörður á Amtsbókasafninu á Akureyri. Fyrri hluta árs stóð aðsókn á safnið í stað eða dróst saman eftir mánuðum, en þrjá síðustu mánuði liðins árs varð aukning í aðsókn og ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stadfesting-adalskipulags-horgarbyggdar-merk-timamot
Staðfesting aðalskipulags Hörgárbyggðar merk tímamót Í byrjun vikunnar var aðalskipulag Hörgárbyggðar 2006-2026 staðfest af umhverfisráðherra og hefur þar með öðlast gildi. Þetta er fyrsta aðalskipulag fyrir það svæði sem sveitarfélagið nær yfir. Staðfesting aðalskipulagsins eru merk tímamót í sögu sveitarfélagsins en ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samdrattur-i-londudum-afla-a-akureyri-milli-ara
Samdráttur í lönduðum afla á Akureyri milli ára Landaður afli á Akureyri á síðasta ári nam rúmlega 11.600 tonnum, sem aukning um tæplega 2.000 tonn frá árinu 2007, samkvæmt yfirliti frá Hafnasamlagi Norðurlands. Mun minna var landað af bolfiski á Akureyri á síðasta ári, miðað við árið á undan, eða 2.684 tonn í fyrra á ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/logreglan-a-akureyri-lagdi-hald-a-fikniefni-2
Lögreglan á Akureyri lagði hald á fíkniefni Lögreglan á Akureyri handtók aðfararnótt sl. þriðjudags tvo menn á tvítugs- og fertugsaldri rétt norðan Akureyrar grunaða um fíkniefnamisferli eftir að þeir höfðu verið stöðvaðir á bifreið á leið til bæjarins. Hald var lagt á 200 grömm af kannabisefni sem þeir höfðu meðferðis...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/starfsemi-nyrrar-dag-og-gongudeildar-geddeildar-fsa-hefst-i-oktober
Starfsemi nýrrar dag- og göngudeildar geðdeildar FSA hefst í október Starfsemi nýrrar dag- og göngudeildar geðdeildar Sjúkrahússins á Akureyri hefst í húsnæði Sels 1. október n.k. Yfirlæknir deildarinnar verður Árni Jóhannesson yfirlæknir núverandi göngudeildar geðdeildar FSA. Gert er ráð fyrir að hefðbundin göngudeild...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/a-fimmta-tug-nemenda-hefur-meistaranam-i-res-orkuskolanum
Á fimmta tug nemenda hefur meistaranám í RES Orkuskólanum RES Orkuskólinn verður settur í Ketilhúsinu á Akureyri á morgun, laugardag. Vel á fimmta tug nemenda hefur meistaranám í vistvænni orkunýtingu við skólann að þessu sinni. Nemendum hefur fjölgað nokkuð frá fyrsta árgangi en umsóknir um skólavist voru hátt í 100 t...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stofnanir-baejarins-virdi-reglur-um-hamark-yfirvinnu
Stofnanir bæjarins virði reglur um hámark yfirvinnu Verulegur misbrestur er á að reglum bæjarráðs Akureyrar um magn yfirvinnu sé fylgt hjá ákveðnum deildum, samkvæmt því sem fram kemur í bókun kjarasamninganefndar nýlega. Málið var til umfjöllunar í bæjarráði í gær og leggur ráðið áherslu á að stofnanir bæjarins virði ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrirtaekid-rafeyri-hlytur-brostu-verdlaun-januarmanadar
Fyrirtækið Rafeyri hlýtur “Brostu verðlaun” janúarmánaðar Fyrirtækið Rafeyri hlýtur "Brostu verðlaun" janúarmánaðar 2009, fyrir framlag sitt til samfélagsins en fyrirtækið setti upp, í samstarfi við Becromal og Norðurorku, stórt blikkandi hjarta í Vaðlaheiði til að lýsa upp svartasta skammdegið á erfiðum tímum. Það eru...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jafntefli-hja-akureyri-og-fram-i-spennuthrungnum-leik
Jafntefli hjá Akureyri og Fram í spennuþrungnum leik Leik Akureyrar og Fram í N1-deild karla í handbolta var að ljúka í Höllinni með jafntefli 21-21 í gríðarlega spennandi og spennuþrungnum leik þar sem mikil dramatík var á loka mínútunum. Markverðir liðanna voru frábærir, Hafþór Einarsson hjá Akureyri varði 23 skot en...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sigmundur-ernir-i-frambod-fyrir-samfylkinguna
Sigmundur Ernir í framboð fyrir Samfylkinguna Sjónvarpsmaðurinn góðkunni, Sigmundur Ernir Rúnarsson, ætlar að sækjast eftir sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi og hefur sett stefnuna á eitt af efstu sætum listans, samkvæmt heimildum Vikudags. Sigmundur mun kynna þessa ákvörðun sína formlega fyri...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/heildaralagning-fasteignagjalda-taepir-2-milljardar-krona
Heildarálagning fasteignagjalda tæpir 2 milljarðar króna Álagningu fasteignagjalda á Akureyri er lokið og hafa álagningarseðlar verið póstlagðir. Heildarálagning fasteignagjalda er ríflega 1.929 milljónir króna á árinu 2009, en fasteignagjöld samanstanda af fasteignaskatti, lóðarleigu, fráveitugjaldi, vatnsgjaldi og so...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/slagverk-i-ketilhusinu-i-hadeginu-a-morgun
Slagverk í Ketilhúsinu í hádeginu á morgun Næstu Föstudagsfreistingar í Ketilhúsinu, í hádeginu á morgun, eru spennandi fyrir allt tónlistaráhugafólk, hvaða tónlistarstefnu sem það telur sig tilheyra. Hjörleifur Örn Jónsson slagverksleikari flytur verk fyrir ýmis slagverkshljóðfæri en hann hefur getið sér gott orð fyri...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kea-styrkir-skidafelag-dalvikur-til-snjoframleidslu
KEA styrkir Skíðafélag Dalvíkur til snjóframleiðslu KEA hefur veitt Skíðafélaginu á Dalvík fjárstyrk sem ætlaður er til að styðja við snjóframleiðslu á skíðasvæði félagsins í Böggvisstaðafjalli í vetur. Formaður skíðafélagsins, Óskar Óskarsson, segir aðkomu öflugra styrktaraðila nauðsynlega til að halda snjóframleiðslu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bjorn-valur-stefnir-a-2-3-saeti-a-lista-vg
Björn Valur stefnir á 2.-3. sæti á lista VG Björn Valur Gíslason hefur ákveðið að taka þátt í forvali Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Norðausturkjördæmi og stefnir á að skipa 2.-3. sæti lista flokksins fyrir alþingiskosningarirnar 25. apríl nk. Jafnframt lýsir hann stuðningi við formann flokksins, Steingrím J. ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bolli-petur-i-laufas
Bolli Pétur í Laufás Valnefnd í Laufásprestakalli, Þingeyjarprófastsdæmi, ákvað á fundi sínum þann 3. febrúar síðastliðinn að leggja til að sr. Bolli Pétur Bollason verði skipaður sóknarprestur í Laufásprestakalli. Sex umsækjendur voru um embættið. Embættið veitist frá 1. mars næstkomandi. Biskup Íslands skipar í embæt...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tvileikur-i-hollinni-i-kvold
Tvíleikur í Höllinni í kvöld Akureyringum og nærsveitungum býðst svo sannarlega glæsileg íþrótta- og menningarveisla í Höllinni í kvöld. Þá fara fram heimaleikir körfuboltaliðs Þórs gegn Grindavík og handboltaliðs Akureyrar gegn Fram. Körfuboltaleikurinn hefst kl.17:30 og handboltaleikurinn kl.19:30 en á milli leikja m...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/daemdur-fyrir-ad-sla-logreglumann-i-fangaklefa
Dæmdur fyrir að slá lögreglumann í fangaklefa Karlmaður á þrítugsaldri hefur í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmdur í fimm mánaða fangelsi en hann var ákærður fyrir brot gegn valdsstjórninni, með því að hafa í október mánuði á liðnu ári slegið lögreglumann hnefahögg í andlitið þannig að hann hlaut áverka á vör og...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fsha-fagnar-yfirlysingu-nyskipads-menntamalaradherra
FSHA fagnar yfirlýsingu nýskipaðs menntamálaráðherra Félag stúdenta við Háskólann á Akureyri fagnar yfirlýsingu nýskipaðs menntamálaráðherra um endurskoðun á úthlutunarreglum Lánasjóðs íslenskra námsmanna. FSHA hvetur menntamálaráðherra til að sýna kjark og þor með því að koma á nauðsynlegum breytingum á úthlutunarregl...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hlynur-saekist-eftir-1-3-saeti-a-lista-vinstri-graenna
Hlynur sækist eftir 1.-3. sæti á lista Vinstri grænna Hlynur Hallsson myndlistarmaður á Akureyri og fyrrverandi varaþingmaður VG hefur ákveðið að gefa kost á sér í forvali Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Norðausturkjördæmi sem fram fer fyrir Alþingiskosningarnar í vor og sækist eftir því að skipa 1.-3. sæti lis...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bydur-benedikt-sig-fram-til-varaformanns-samfylkingarinnar
Býður Benedikt sig fram til varaformanns Samfylkingarinnar? Benedikt Sigurðarson aðjunkt við HA og framkvæmdastjóri Búseta á Norðurlandi gerir væntanlegt kjör til forystu í Samfylkingunni að umtalsefni á bloggi sínu. Þar segir m.a.: "Kannski Benedikt Sigurðarson - "almennur flokksmaður" - bjóði sig fram til forystuhlut...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ferdakynning-ferdafelags-akureyrar-i-ketilhusinu
Ferðakynning Ferðafélags Akureyrar í Ketilhúsinu Ferðafélag Akureyrar býður upp á góða landkynningu og skemmtilegan félagsskap. Til að kynna ferðir ársins heldur ferðafélagið ferðakynningu í byrjun hvers starfsárs og er nú komið að kynningu fyrir starfsárið 2009. Verður hún í þetta sinn haldin í Ketilhúsinu á Akureyri ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/opid-hus-i-leikskolum-akureyrar-a-fostudag
Opið hús í leikskólum Akureyrar á föstudag Dagur leikskólans er föstudaginn 6. febrúar. Í tilefni þess verður opið hús í leikskólum Akureyrar frá klukkan 8.30-15.30 þennan dag. Allir áhugasamir eru hvattir til að nýta þetta tækifæri til að skoða og fræðast um leikskólana. Foreldrar með börn á umsóknarlista eru sérstakl...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hvatningar-og-ataksverkefnid-lifshlaupid-ad-hefjast
Hvatningar- og átaksverkefnið Lífshlaupið að hefjast Skólanefnd Akureyrar hvetur grunnskóla bæjarins til þátttöku í hvatningar- og átaksverkefninu Lífshlaupið, sem hefst formlega á morgun miðvikudag. Lífshlaupið er verkefni á vegum ÍSÍ sem höfðar til allra landsmanna. Landsmenn eru hvattir til þess að huga að sinni dag...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/farsaeld-til-framtidar-til-umraedu-a-borgarafundum-lbl
Farsæld til framtíðar til umræðu á borgarafundum LBL Byggðahreyfingin Landsbyggðin lifi (LBL), í samvinnu við ýmsar stofnanir og félagasamtök úr ýmsum greinum atvinnulifsins er að blása til opinna borgarafunda víðs vegar um land undir yfirskriftinni; Farsæld til framtíðar. Fyrsti fundurinn verður á Akureyri á laugardag...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vg-auglysir-eftir-frambjodendum-a-frambodslista-flokksins
VG auglýsir eftir frambjóðendum á framboðslista flokksins Vinstrihreyfingin grænt framboð í Norðausturkjördæmi verður með forval vegna Alþingiskosninganna í vor og hefur kjörstjórn auglýst eftir frambjóðendum í átta efstu sætin á framboðslista flokksins í kjördæminu. Framboðsfrestur rennur út kl. 17:00 þann 16. febrúar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/misbrestur-a-ad-reglum-baejar-rads-um-magn-yfirvinnu-se-fylgt
Misbrestur á að reglum bæjar- ráðs um magn yfirvinnu sé fylgt Á fundi kjarasamninganefndar nýlega var fjallað um yfirvinnu starfsmanna Akureyrarbæjar á síðasta ári. Í bókun nefndarinnar kemur fram að verulegur misbrestur er á að reglum bæjarráðs um magn yfirvinnu sé fylgt hjá ákveðnum deildum. Kjarasamninganefnd samþyk...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aldrei-fleiri-greftranir-hja-kirkjugordum-akureyrar
Aldrei fleiri greftranir hjá Kirkjugörðum Akureyrar Aldrei hafa greftranir verið eins margar í Kirkjugörðum Akureyrar og á nýliðnu ári. Þær voru 123 talsins og skiptust þannig að 111 voru í kirkjugarðinum á Höfðanum og 12 í kirkjugarðinum í Lögmannshlíð. Árið á undan, 2007 voru 103 greftranir hjá Kirkjugörðum Akureyrar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikill-meirihluti-svarenda-a-moti-saltnotkun-til-halkuvarna
Mikill meirihluti svarenda á móti saltnotkun til hálkuvarna Mikill meirihluti svarenda er á móti því að nota salt til hálkuvarna á ákveðnum svæðum á Akureyri, samkvæmt óformlegri skoðanakönnun á vef Vikudags. Alls bárust um 800 svör við spurningunni og 73% aðspurða eru á móti saltnotkun til hálkuvarna, 25% svarenda eru...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ekki-verdur-gert-leiksvaedi-sunnan-vid-budasidu
Ekki verður gert leiksvæði sunnan við Búðasíðu Ekki kemur til þess að svæði sunnan við Búðasíðu á Akureyri verði gert að leikvelli með tilheyrandi leiktækjum eins og ríflega 20 íbúar við Borgarsíðu, Búðasíðu og Brekkusíðu höfðu óskað eftir. Ekki voru allir íbúar á svæðinu sáttir við hugmyndina um leiksvæði og því hefur...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stjornlagathing-og-breytingar-a-stjornarskra-til-umfjollunar
Stjórnlagaþing og breytingar á stjórnarskrá til umfjöllunar Samkvæmt verkefnaskrá nýrrar ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna verða sett lög um skipan og verkefni stjórnlagaþings fyrir kosningarnar 25. apríl. Í erindi sínu á Lögfræðitorgi ræðir Ágúst Þór Árnason um ólíkar útfærslur sem komið geta til greina í þ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kvikyndi-synir-heimildarmyndir-um-mannrettindi
KvikYndi sýnir heimildarmyndir um mannréttindi Kvikmyndaklúbbur Akureyrar, KvikYndi, sýnir í dag, mánudaginn 2. febrúar, tvær myndir í röð heimildarmynda sem fjalla um mannréttindi. Það er Franska sendiráðið á Íslandi sem lánar myndirnar. Sýningar fara að venju fram á efstu hæð í Rósenborg og byrja kl 18:00. Leyfilegt ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/enginn-vidbotarkostnadur-vegna-nys-baejarstjora
Enginn viðbótarkostnaður vegna nýs bæjarstjóra Hermann Jón Tómasson verðandi bæjarstjóri á Akureyri, segir ánægjulegt að finna þennan mikla áhuga á málefnum bæjarins og gott til þess að vita að fólk er meðvitað um nauðsyn þess að fara vel með sameiginlega fjármuni okkar. "Fyrirsjáanlegur tekjusamdráttur kallar að sjálf...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fleiri-leita-til-maedrastyrks-nefndar-akureyrar-en-adur
Fleiri leita til Mæðrastyrks- nefndar Akureyrar en áður "Það er afskaplega dapurlegt ástandið," segir Jóna Berta Jónsdóttir hjá Mæðrastyrksnefnd Akureyrar en aukning hefur orðið á þeim sem leita sér aðstoðar nefndarinnar í janúarmánuði. Hjá Hjálparstarfi kirkjunnar hefur enn sem komið ekki orðið vart aukningar á komum ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nytjamarkadur-fjolsmidjunnar-a-akureyri-hefur-slegid-i-gegn
Nytjamarkaður Fjölsmiðjunnar á Akureyri hefur slegið í gegn Starfsemi Fjölsmiðjunnar á Akureyri gengur mjög vel og hafa verið næg verkefni fyrir alla þá sem hana sækja, að sögn Erlings Kristjánssonar, forstöðumanns. Að sögn Erlings snýst starfsemin að mestu þessa dagana um þrjú stór verkefni; nytjamarkað, bílaþvottastö...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/motmaela-og-samstodufundur-i-myvatnssveit-i-dag
Mótmæla- og samstöðufundur í Mývatnssveit í dag Mótmæla- og samstöðufundur verður haldin í Mývatnssveit í dag, laugardaginn 31. janúar kl.15.00. Mótmælendum í Mývatnssveit finnst rétt að safnast saman enn á ný og láta af sér vita. Þótt áfangasigrar hafi unnist er ekki öllum kröfum mótmælenda fullnægt. Þar sem unnið er ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skipulagsnefnd-uthlutar-svaedum-til-thriggja-ithrottafelaga
Skipulagsnefnd úthlutar svæðum til þriggja íþróttafélaga Skipulagsnefnd Akureyrar samþykkti á fundi sínum í vikunni úthluta þremur íþróttafélögum í bænum, tveimur akstursíþróttafélögum og Skotfélaginu, svæði á Glerárdal undir starfsemi sína. Erindi félaganna eru frá því í ágúst á síðasta ári. Skipulagsnefnd úthlutaði B...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eyglo-hardardottir-synir-a-bokasafni-ha
Eygló Harðardóttir sýnir á Bókasafni HA Eygló Harðardóttir hefur opnað sýninguna Völlur á Bókasafni Háskólans á Akureyri. Sýningin stendur til 7. mars nk. Eygló er fædd árið 1964 og útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1987. Hún stundaði framhaldsnám við AKI - Akademie voor Beeldende Kunst & Vormgeving í ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/syningin-med-tvaer-hendur-tomar-i-galleri-a-akureyri
Sýningin “Með tvær hendur tómar” í Gallerí+ á Akureyri Anna Sigríður Sigurjónsdóttir, myndhöggvari, opnar myndlistarsýningu í Galleri+, Brekkugötu 35 á Akureyri, laugardaginn 31. janúar kl. 16.00 og stendur hún til 16 febrúar. Sýningin ber yfirskriftina "Með tvær hendur tómar" og er innsetning í þremur rýmum gallerísin...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/atak-logregluembaetta-a-nordur-landi-i-fikniefnamalum-framlengt
Átak lögregluembætta á Norður- landi í fíkniefnamálum framlengt Sameiginlegt átak lögregluembætta á Norðurlandi í fíkniefnamálum hefur verið framlengt fram á vor. Dómsmálaráðherra og lögreglustjórar á Norðurlandi undirrituðu samkomulag í ágúst sl. um sameiginlegt átak gegn fikniefnum. Komið var á fót sérstöku þriggja m...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/islenska-bleikjan-vekur-hrifningu-i-frakklandi
Íslenska bleikjan vekur hrifningu í Frakklandi Samherji hf. tók á dögunum þátt í hinni gríðarstóru matvælasýningu Sirha í Lyon í Frakklandi þar sem kynntar voru afurðir félagsins. Viðtökur voru framar vonum hjá hinum fjölmörgu gestum sem m.a. fengu að bragða á lystilega framreiddu fersku íslensku fiskmeti. Samherji var...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/frafarandi-sveitarstjori-ekki-fengid-skyringu-a-uppsogninni
Fráfarandi sveitarstjóri ekki fengið skýringu á uppsögninni Guðmundur Jóhannsson fráfarandi sveitarstjóri í Eyjafjarðarsveit hefur sent íbúum sveitarfélagsins bréf, í kjölfar þess að sveitarstjórn ákvað að segja honum upp störfum í síðustu viku. Guðmundur segir í bréfinu að hann hafi ekki fengið skýringu á hvað raunver...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/opid-hus-og-upplysingar-a-manudogum-i-glerarkirkju
Opið hús og upplýsingar á mánudögum í Glerárkirkju Opið hús og upplýsingar fyrir fólk í atvinnuleit er yfirskrift dagskrár sem hefur göngu sína í Glerárkirkju mánudaginn 2. febrúar nk. Hugmyndin á bak við þessa dagskrá er sú að hver vika feli í sér ný tækifæri og að það sé kostur að hittast, spjalla saman og fá upplýsi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/slaemt-kvold-hja-akureyrar-lidunum-i-korfu-og-handbolta
Slæmt kvöld hjá Akureyrar- liðunum í körfu- og handbolta Leikir kvöldsins reyndust liðunum frá Akureyri ekki gæfuríkir í Íslandsmótunum í handbolta og körfubolta. Akureyri tapaði stórt fyrir Val í handboltanum og í körfuboltanum tapaði Þór gríðarlega mikilvægum botnbaráttuslag gegn FSu. Akureyri Handboltafélag steinlá ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/atvinnulausu-folki-verdi-bodid-fritt-i-sund
Atvinnulausu fólki verði boðið frítt í sund Á fundi íþróttaráðs Akureyrar í dag, var tekið fyrir erindi frá Halldóri Grönvold aðstoðarframkvæmdastjóra ASÍ, þar sem hann kynnir fyrir sveitarfélögunum þá hugmynd að bjóða atvinnulausu fólki í viðkomandi sveitarfélagi að nýta sér sundstaði sem reknir eru af sveitarfélögunu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bilvelta-i-eyjafjardarsveit-1
Bílvelta í Eyjafjarðarsveit Kona var flutt til aðhlynningar á slysadeild FSA eftir að bíll hennar hafnaði utan vegar og valt, skammt sunnan við syðri afleggjarann að Kristnesi í Eyjafjarðarsveit fyrr í dag. Bíll konunnar fór fram af háum vegkanti og hafnaði á hliðinni, konan sem komst út úr bílnum af sjálfsdáðum, mun h...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/yfir-16-thusund-hradakstursbrot-skrad-med-stafraenum-hradamyndavelum
Yfir 16 þúsund hraðakstursbrot skráð með stafrænum hraðamyndavélum Sjö stafrænar hraðamyndavélar voru teknar í notkun á síðasta ári, tvær í Fáskrúðsfjarðargöngum, ein í Hvalfjarðargöngum og fjórar á Reykjanesi. Samtals eru stafrænar hraðamyndavélar á Íslandi orðnar níu en þær fyrstu voru teknar í notkun í júlí 2007 í H...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nemendur-res-orkuskola-verda-afram-i-skjaldarvik
Nemendur RES Orkuskóla verða áfram í Skjaldarvík Bæjarráð samþykkti á fundi sínum í morgun að heimila Fasteignum Akureyrarbæjar að leigja FÉSTA, Skjaldarvík í Hörgárbyggð, til 2ja ára fyrir 800 þúsund krónur á mánuði. Leigan verður greidd á þessu ári með auknu hlutafé í RES Orkuskólanum að upphæð 9,6 milljónir króna. H...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skjol-ur-skjalasafni-stasi-afhent-heradsskjalasafninu-a-akureyri
Skjöl úr skjalasafni Stasi afhent Héraðsskjalasafninu á Akureyri Á morgun, föstudaginn 30. janúar munu nokkrir kennarar við hug- og félagsvísindadeild Háskólans á Akuryeri afhenda Héraðsskjalasafninu á Akureyri til varðveilsu skjöl úr skjalasafni Stasi, austurþýsku öryggislögreglunnar. Um er að ræða öll þau skjöl sem a...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samlist-a-akureyri-leitar-ad-eydibyli-til-syningarhalds
Samlist á Akureyri leitar að eyðibýli til sýningarhalds Skráning er komin á fullt skrið í verkefnið Samlist á Akureyri, sem er grasrótarstarf listamanna í bænum með samstöðu og nýjar leiðir að markmiði. "Við leitum að reglum og finnum svo leiðir til að brjóta þær. Afraksturinn verður svo vonandi allt öðruvísi sýning se...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/frestun-sparnadaradgerda-hefdi-kostad-25-milljonir-krona-a-manudi
Frestun sparnaðaraðgerða hefði kostað 25 milljónir króna á mánuði Halldór Jónsson forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri sagði á opnum fundi um niðurskurð í heilbrigðismálum á Akureyri í kvöld, að nauðsynlegt hafi verið að ganga í sparnaðaraðgerðir sem allra fyrst. Hver mánuður sem dregist hefði að ráðast í aðgerðir hefði ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samningur-um-uppsetningu-adsl-simstodva-samthykktur
Samningur um uppsetningu ADSL símstöðva samþykktur Á fundi sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar í vikunni lá fyrir samningur sem gerður hefur verið við Símann um uppsetningu ADSL símstöðva í sveitarfélaginu. Samningurinn er gerður af Guðmundi Jóhannssyni fráfarandi sveitarstjóra. Sveitarstjórn samþykkti með 5 atkvæðum að...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/logreglan-a-akureyri-lagdi-hald-a-mikid-af-fikniefnum
Lögreglan á Akureyri lagði hald á mikið af fíkniefnum Lögreglan á Akureyri handtók tvo menn á þrítugsaldri sl. mánudag, grunaða um fíkniefnamisferli og hafði annar þeirra í fórum sínum 5 grömm af kókaíni. Lögreglan hafði hinn manninn grunaðan um að hafa stundað fíkniefnasölu á Akureyri og við húsleitir hjá honum fundus...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skolanefnd-samthykkir-2ja-vikna-sumarlokun-a-leikskolum
Skólanefnd samþykkir 2ja vikna sumarlokun á leikskólum Skólanefnd Akureyrar samþykkti á fundi sínum nýlega tillögu um 2ja vikna sumarlokun sumarið 2009 og felur leikskólastjórum að auglýsa hana. Þá felur skólanefnd leikskólafulltrúa og leikskólastjórum að standa fyrir fundum með foreldrum um sumarlokanir og fyrirkomula...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/raett-um-nidurskurd-i-heilbrigdis-malum-a-fundi-i-ketilhusinu
Rætt um niðurskurð í heilbrigðis- málum á fundi í Ketilhúsinu Niðurskurður í heilbrigðismálum verður til umfjöllunar á borgarafundi í Ketilhúsinu á Akureyri á morgun, miðvikudaginn 28. janúar kl. 20.00. Frummælendur eru; Halldór Jónsson, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri, Katrín Benjamínsdóttir frá Aðstandendafélagi f...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stofutonleikar-i-davidshusi-husi-skaldsins-a-akureyri
Stofutónleikar í Davíðshúsi, húsi skáldsins á Akureyri Á morgun, miðvikudaginn 28. janúar kl 20.00, verða stofutónleikar í Davíðshúsi, Bjarkarstíg 6, Akureyri. Flutt verða tvö kammerverk, annars vegar Kvartett í D dúr fyrir þverflautu, fiðlu, víólu og selló eftir Mozart og hins vegar Strengjakvartett opus 12 í Es dúr e...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hertar-adgerdir-vegna-losunar-a-oflokkudum-rekstrarurgangi
Hertar aðgerðir vegna losunar á óflokkuðum rekstrarúrgangi Eitt af markmiðum í „Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2005-2020" fyrir Eyjafjörð er að minnka urðun á lífrænum úrgangi og auka endurvinnslu. Unnið hefur verið að því að ná þessu markmiði og ágætur árangur hefur náðst á sumum sviðum. Samt sem áður er enn allto...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skiptir-skostaerd-mali-thegar-radid-er-i-stodur-hja-rikinu
Skiptir skóstærð máli þegar ráðið er í stöður hjá ríkinu? Á undanförnum árum hafa iðulega risið deilur um að hve miklu leyti stjórnvöld geti sjálf ákveðið hvaða sjónarmið liggja til grundvallar ákvörðunum um val á milli umsækjenda um opinberar stöður. Á Jafnréttistorgi í Háskólanum á Akureyri á morgun þriðjudag kl. 12....
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samid-vid-ka-um-notkun-og-rekstur-akureyrarvallar
Samið við KA um notkun og rekstur Akureyrarvallar Bæjarráð Akureyrar hefur samþykkt samkomulag við Knattspyrnufélag Akureyrar, KA, vegna notkunar og reksturs Akureyrarvallar. Hermann Jón Tómasson formaður bæjarráðs segir að samkomulagið sé gert í tengslum við frestun framkvæmda á KA-svæðinu. Það snýst um að tryggja KA ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/lysing-hefur-lokad-starfsstodinni-a-akureyri
Lýsing hefur lokað starfsstöðinni á Akureyri Lýsing hf. lokaði starfsstöð sinni á Akureyri um miðjan desember sl. og var þremur starfsmönnum, í tveimur hálfu stöðugildi, sagt upp störfum. Lýsing opnaði starfsstöð í Glerárgötu vorið 2006. Arnar Snær Kárason framkvæmdastjóri útlánasviðs Lýsingar segir að ástæðan fyrir lo...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-sigradi-i-keppni-a-og-b-lida-a-fyrsta-godamoti-arsins
Þór sigraði í keppni A- og B-liða á fyrsta Goðamóti ársins Fyrsta Goðamóti ársins í knattspyrnu lauk í Boganum í dag en keppni hófst sl. föstudag. Það voru um 200 stúlkur frá 10 félögum í 4. aldursflokki sem áttust við en alls voru leiknir rúmlega 70 leikir um helgina og skoruð í þeim um 300 mörk. Þórsstelpurnar stóðu ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/verkefnid-hreyfing-og-utvist-a-akureyri-hefur-slegid-i-gegn
Verkefnið Hreyfing og útvist á Akureyri hefur slegið í gegn Verkefnið Hreyfing og útivist sem hófst á Akureyri nýlega hefur farið gríðarlega vel af stað, að sögn Jónatans Magnússonar verkefnisstjóra. „Ég held að það sé óhætt að segja að þetta hafi slegið í gegn, allir atburðir hafa verið vel sóttir þó auðvitað sé misja...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/um-300-manns-motmaeltu-a-akureyri-og-50-i-myvatnssveit
Um 300 manns mótmæltu á Akureyri og 50 í Mývatnssveit Um 300 manns tóku þátt í mótmælum á Akureyri í dag, þar sem krafist var afsagnar ríkisstjórnarinnar. Bændur á dráttarvélum fóru fyrir göngufólki frá Samkomuhúsinu að Ráðhústorgi, þar sem Guðbergur Egill Eyjólfsson bóndi og Embla Eir Oddsdóttir tóku til máls. Á sama ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyri-fyrirmyndarsveitarfelag-i-gedheilbrigdisthjonustu
Akureyri fyrirmyndarsveitarfélag í geðheilbrigðisþjónustu Forsvarsmenn Geðhjálpar voru staddir á Akureyri í vikunni og áttu m.a. fundi með bæjaryfirvöldum og framkvæmdastjórn FSA vegna ákvörðunar um niðurskurð í meðferðarúrræðum á geðsviði. Einnig heimsóttu þeir dagdeild geðdeildar FSA við Skólastíg. Geðhjálp hefur val...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bannad-ad-raeda-efnahagsmal-hja-rarik-a-manudogum
Bannað að ræða efnahagsmál hjá Rarik á mánudögum Fátt er meira rætt á meðal landsmanna en ástandið í efnahagsmálum þjóðarinnar. Starfsfólk Rarik á Akureyri hefur sett blátt bann við umræðum um efnahagsmál á kaffistofunni á mánudögum. Sá starfsmaður sem það gerir, verður að mæta með sætabrauð í kaffitímann daginn eftir ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/alls-eru-22-a-bidlista-eftir-hjukrunarrymi-a-akureyri
Alls eru 22 á biðlista eftir hjúkrunarrými á Akureyri Alls eru 22 einstaklingar á biðlista eftir hjúkrunarplássi á Öldrunarheimilum Akureyrar og þar af 6 einstaklingar sem bjuggu í Seli. Ekki er biðlisti eftir dvalarrými, samkvæmt upplýsingum frá Rannveigu Guðnadóttir starfsmanni vistunarmatsnefndar Norðurlands. Hún se...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baendur-maeti-a-drattarvelum-a-motmaelafund-a-radhustorgi
Bændur mæti á dráttarvélum á mótmælafund á Ráðhústorgi Að venju verður farin mótmælaganga frá Samkomuhúsinu á Akureyri niður á Ráðhústorg á morgun laugardag kl. 15.00. Að lokinni göngu verður efnt til mótmæla á Ráðhústorginu. Krafa mótmælenda er skýr: Ríkisstjórnin á að fara frá og það strax. Akureyringar og nærsveitam...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/slakt-lid-akureyrar-tapadi-fyrir-vikingi
Slakt lið Akureyrar tapaði fyrir Víkingi Ein óvæntustu úrslit handboltavertíðarinnar litu dagsins ljós í Höllinni í kvöld þegar Víkingar lögðu heimamenn í Akureyri 27-25 og unnu þar með sinn fyrsta sigur í deildinni. Hrikalegur lokakafli í fyrri hálfleik varð Akureyri að falli í kvöld fyrir framan um 7-800 áhorfendur s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gaf-upp-nafn-tviburabrodur-sins-eftir-olvunarakstur
Gaf upp nafn tvíburabróður síns eftir ölvunarakstur Karlmaður á þrítugsaldri hefur í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmdur í tveggja mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára. Hann var ákærður fyrir ölvunarakstur og rangar sakargiftir. Lögregla stöðvaði akstur mannsins í miðbæ Akureyrar á laugardagsmorgni í ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fullt-ut-ur-dyrum-a-borgarafundi-i-deiglunni
Fullt út úr dyrum á borgarafundi í Deiglunni Fullt var út úr dyrum á borgarafundi um niðurskurð í menntamálum í Deiglunni á Akureyri í gærkvöld. Salurinn brást vel við framsöguerindum og spurningum rigndi yfir pallborðið. Fundurinn krefst þess að haldin sé vörður um grunnkerfi íslensku þjóðarinnar, en þau ekki skorin n...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/horkuleikur-i-handbolta-i-hollinni-a-akureyri-i-kvold
Hörkuleikur í handbolta í Höllinni á Akureyri í kvöld Það verður mikið um dýrðir í Íþróttahöllinni í kvöld þegar Akureyri tekur á móti Víkingi í fyrsta leik ársins í N1 deildinni í handbolta karla. Frítt er á leikinn í boði KEA og stórsveit Tónlistarskóla Akureyrar, eða Big Bandið, undir stjórn Alberto Carmona ætlar að...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikill-meirihluti-a-moti-thvi-ad-nota-salt-til-halkuvarna
Mikill meirihluti á móti því að nota salt til hálkuvarna Um 500 svör hafa borist í óformlegri könnun Vikudags, þar sem spurt er hvort nota eigi salt til hálkuvarna á ákveðnum svæðum á Akureyri. Mikill meirihluti þeirra sem hafa svarað könnuninni, eða 65%, eru á móti notkun salts til hálkuvarna á Akureyri. Um 32% svaren...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kvoldvaka-og-sapugerd-i-laufasi
Kvöldvaka og sápugerð í Laufási Hvernig var spáð fyrir um framtíðina hér áður fyrr? Hvernig sá fólk fyrir um gestakomur, veður og þess háttar? Í kvöld kl. 20.00 geta gestir Gamla prestshússins í Laufási fengið svör við þessum spurningum og fleiru er snertir spádóma og drauma. Þór Sigurðsson, safnvörður á Minjasafninu á...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/motmaelt-a-radhustorgi-a-akureyri-annan-daginn-i-rod
Mótmælt á Ráðhústorgi á Akureyri annan daginn í röð Á annað hundrað manns voru saman komin á Ráðhústorgi á Akureyri nú í kvöld til að mótmæla því ástandi sem ríkir í efnahagsmálum þjóðarinnar. Krafan var skýr, mótmælendur vilja ríkisstjórnina frá og að boðað verði til kosninga. Eldur var kveiktur á Ráðhústorgi, flugeld...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/innganga-i-esb-myndi-thyda-markadshrun-og-faekkun-i-baendastett
Innganga í ESB myndi þýða markaðshrun og fækkun í bændastétt Ljóst þykir að svína- og fuglakjötsframleiðsla muni að mestu leggjast af hér á landi gangi Ísland í Evrópusambandið. Það gerir að verkum að vinnsla á öðrum kjötafurðum verður óhagkvæmari. Þetta kom fram á fjölmennum hádegisverðarfundi um Evrópumál sem fram fó...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sameinast-akureyri-og-grimsey-an-kosninga
Sameinast Akureyri og Grímsey án kosninga? Á fundi bæjarstjórnar Akureyrar í gær, var samþykkt yfirlýsing með 11 samhljóða atkvæðum, þar sem bæjarstjórn lýsir yfir vilja sínum til viðræðna við hreppsnefnd Grímseyjarhrepps og samgönguráðuneytið um sameiningu sveitarfélaganna tveggja. Í þeim viðræðum verði m.a. kannað hv...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorbjorn-og-bjorgvin-sigrudu-nyarstolt-lettis
Þorbjörn og Björgvin sigruðu Nýárstölt Léttis Fyrsta mót ársins hjá Hestamannafélaginu Létti fór fram um liðna helgi í hinni nýju og glæsilegu reiðhöll félagsins. Um var að ræða innanfélagsmót sem bar nafnið Nýárstölt og tóku þar þátt 23 keppendur í tveimur flokkum, A-flokkur (vanir) og B-flokkur (óvanir). Í flokki hin...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samstodumotmaeli-a-radhustorgi-a-akureyri
Samstöðumótmæli á Ráðhústorgi á Akureyri Um 40 manns eru að mótmæla á Ráðhústorgi á Akureyri þessa stundina, til að sýna mótmælendum á Austurvelli samstöðu. Að sögn lögreglu kom fólk á Ráðhústorg upp úr kl. 21.00 en þar hefur ekki komið til neinna átaka. Kveikt hefur verið í vörubrettum og þá er fólk með ýmis tæki og t...