Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fraekinn-sigur-kathors-i-bikarkeppninni-i-handbolta
Frækinn sigur KA/Þórs í bikarkeppninni í handbolta Kvennalið KA/Þórs, sem leikur í næst efstu deild, vann frækinn sigur á Gróttu, sem leikur í efstu deild, í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar í handbolta í KA-heimilinu nú fyrir stundu. KA/Þórs stelpurnar höfðu eins marks forystu í hálfleik 12-11 og þær höfðu eins marks s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/okeypis-i-allar-skidalyftur-i-hlidarfjall-um-naestu-helgi
Ókeypis í allar skíðalyftur í Hlíðarfjall um næstu helgi Mjög góðar aðstæður eru nú til skíðaiðkunar í Hlíðarfjalli við Akureyri og því hefur verið ákveðið að hafa ókeypis í allar skíðalyftur á svæðinu um næstu helgi, 24.-25. janúar, til að fagna frábærri byrjun á góðum vetri. Það eru "Vinir Hlíðarfjalls" sem gera þett...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/afrakstur-heimsoknar-slovenskra-sjonvarpsmanna
Afrakstur heimsóknar slóvenskra sjónvarpsmanna “Ísland – kalt land á glóandi fjármálakolamola” er nafn á heimildarmynd sem slóvenska sjónvarpstöðin RTV sýndi á fimmtudaginn í síðustu viku. Myndin greinir frá Íslandi almennt og fjallar auk þess sérstaklega um bankahrunið og viðbrögð landsmanna við því. Talað er við fjöl...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sex-umsoknir-barust-um-laufasprestakall
Sex umsóknir bárust um Laufásprestakall Sex umsóknir bárust um embætti sóknarprests í Laufásprestakalli í Þingeyjarprófastsdæmi. Umsækjendur eru; sr. Bolli Pétur Bollason, sr. Hildur Inga Rúnarsdóttir, Cand. theol., Sólveig Jónsdóttir Cand. theol., Stefán Karlsson, Cand. theol., Sveinbjörn Dagnýjarson, Cand. theol. og ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/borgarafundur-i-deiglunni-vegna-nidurskurdar-i-menntamalum
Borgarafundur í Deiglunni vegna niðurskurðar í menntamálum Borgarafundur verður haldinn í Deiglunni á Akureyri miðvikudaginn 21. janúar kl 20:00, þar sem ræða á niðurskurð í menntamálum. Framsögu flytja; Ragnar Sigurðsson, formaður Félags Stúdenta við HA, Rakel Snorradóttir, framhaldsskólanemi og Rúnar Sigþórsson, dóse...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stefnt-ad-thvi-ad-sameina-krafta-a-opnum-fundi-i-brekkuskola
Stefnt að því að sameina krafta á opnum fundi í Brekkuskóla Opinn fundur verður haldinn í Brekkuskóla á Akureyri fimmtudaginn 22. janúar nk. kl. 18.00 - 21.00, sem ber yfirskriftina; Gleðilegt ár 2009. Þar verður farið yfir stöðuna eins og hún blasir við landsmönnum í dag og horft til framtíðar. Þrír frummælendur flytj...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/snaefell-lagdi-thor-i-hollinni
Snæfell lagði Þór í Höllinni Þórsarar tóku á móti Snæfellingum í Iceland Expressdeild karla í körfubolta í kvöld í Höllinni. Voru það gestirnir sem fóru með sanngjarnan sigur af hólmi 74-56 en munurinn var þó helst til stór miðað við gang leiksins. Jafnræði var með liðunum í fyrsta leikhluta en eftir hann leiddi Snæfel...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jardvegsframkvaemdir-vegna-byggingar-motorhjolasafns-ad-hefjast
Jarðvegsframkvæmdir vegna byggingar Mótorhjólasafns að hefjast Jarðvegsframkvæmdir eru að hefjast á Krókeyri vegna byggingar Mótorhjólasafns Íslands sem þar verður. "Við byrjum bara um leið og þiðnar, samningar eru fyrir hendi og allt klárt," segir Jón Dan Jóhannsson stjórnarformaður safnsins. Safnið var stofnað í dese...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ekki-gert-rad-fyrir-haekkun-til-menningarmala-a-akureyri
Ekki gert ráð fyrir hækkun til menningarmála á Akureyri Ekki er gert ráð fyrir hækkun á framlagi menntamálaráðuneytisins til menningarmála á Akureyri í fjárlögum fyrir árið 2009, í samræmi við samning bæjarins og ráðuneytisins frá 3. janúar 2007. Framlagið verður óbreytt frá árinu 2008, 120 milljónir króna, í stað 130 ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ovissa-med-framtid-sjonvarpsstodvarinnar-n4
Óvissa með framtíð sjónvarpsstöðvarinnar N4 Þorvaldur Jónsson, framkvæmdarstjóri Extra.is ehf. sem rekur sjónvarpsstöðina N4 á Akureyri, segist aðspurður hvort stöðin muni hætta vegna ástandsins í efnahagslífinu, vonast til að svo verði ekki, en að það sé möguleiki á því. Þorvaldur segir að nú þegar hafi tveimur starfs...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rumlega-1200-born-nyttu-ser-fristundakort-a-sidasta-ari
Rúmlega 1.200 börn nýttu sér frístundakort á síðasta ári Rúmlega 1.200 börn, á aldrinum 6-12 ára, nýttu sér frístundakort Akureyrarbæjar á síðasta ári og var kostnaður bæjarins rúmar 12 milljónir króna. Alls voru send út 1.623 bréf til foreldra barna á þessum aldri og skiluðu sér inn 1.212 bréf, að 74,7%. Þetta er aðei...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ein-stor-stofnun-meira-gildandi-a-landsvisu
Ein stór stofnun meira gildandi á landsvísu Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri á Akureyri telur að það sé skynsamlegt skref að stíga að sameina heibrigðisstofnanir á Norðurlandi í eina "og gera þessa einu stofnun meira gildandi á landsvísu." Baldvin Sigurðsson bæjarfulltrúi Vinstri grænna í bæjarstjórn Akureyri segi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thegar-verid-opid-i-60-daga-i-hlidarfjalli-i-vetur
Þegar verið opið í 60 daga í Hlíðarfjalli í vetur Það er opið í Hlíðarfjalli í dag frá kl. 10-16. Veðrið kl. 9 í morgun var -4 gráður og norðan gola. Skíðafærið er troðinn þurr snjór, með besta móti. Veturinn hefur farið vel af stað og það er búið vera opið í 60 daga á skíðasvæðinu.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/um-200-manns-motmaeltu-a-akur-eyri-og-um-40-i-myvatnssveit
Um 200 manns mótmæltu á Akur- eyri og um 40 í Mývatnssveit Um 200 manns mótmæltu niðurskurði á menntakerfinu í dag á Ráðhústorginu á Akureyri. Áður hafði verið farin mótmælaganga frá Samkomuhúsinu niður á Ráðhústorg. Hátt í 40 manns mættu á mótmælafund í Mývatnssveit í dag, eða um 10 % fullorðinna íbúa sveitarinnar. Ef...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ottast-ad-grimsey-verdi-utundan-eftir-sameiningu-vid-akureyri
Óttast að Grímsey verði útundan eftir sameiningu við Akureyri "Við höfum bara ekki neinn valkost," segir Gylfi Gunnarsson útgerðarmaður í Grímsey um viðræður Akureyrarbæjar og Grímseyjarhrepps um hugsanlega sameiningu sveitarfélaganna tveggja. Sjálfur kvaðst hann lítið hafa kynnt sér málið og sagði Grímseyinga um margt...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikil-ovissa-rikjandi-med-fyrirhugud-aburdarkaup-baenda
Mikil óvissa ríkjandi með fyrirhuguð áburðarkaup bænda "Það eru engar töfralausnir til, en ég held að margir bændur muni lafa áfram í hálf vonlausri stöðu," segir Sigurgeir Hreinsson bóndi á Hríshóli og formaður stjórnar Búnaðarsamband Eyjafjarðar. "Ég sé ekki endilega fyrir mér að bændur hætti búskap í stórum stíl þó ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/umferdarslys-og-veghefill-med-folksbil-i-eftirdragi
Umferðarslys og veghefill með fólksbíl í eftirdragi Fólksbíll valt skammt frá gatnamótum hringvegarins og Ólafsfjarðarvegar á fjórða tímanum í dag. Eldri maður missti stjórn á bíl sínum með þeim afleiðingum að hann valt utan vegar og hafnaði á hliðinni. Maðurinn, sem var einn á ferð, komst sjálfur út úr bílnum. Hann va...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gudmundur-haettur-sem-sveitarstjori-i-eyjafjardarsveit
Guðmundur hættur sem sveitarstjóri í Eyjafjarðarsveit Guðmundi Jóhannssyni hefur verið sagt upp störfum sem sveitarstjóri í Eyjafjarðarsveit. Guðmundur er staddur í Bandaríkjunum og hafði ekki fengið uppsagnarbréfið í hendur þegar Vikudagur ræddi við hann nú fyrir stundu en hann sagði að þessi ákvörðun sveitarstjórnar ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/anaegja-med-nuverandi-rekstrar-form-heilsugaeslustodvarinnar
Ánægja með núverandi rekstrar- form Heilsugæslustöðvarinnar Læknaráð Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri (HAK), hefur sent frá ályktun, þar sem lýst er yfir ánægju með núverandi rekstrarform stöðvarinnar og fagnar áframhaldandi samvinnu við Akureyrarbæ. Ráðið telur að það sé forsenda hagkvæms reksturs og hagnýts þróunar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aflamark-i-thorski-hefur-verid-aukid-um-30000-tonn
Aflamark í þorski hefur verið aukið um 30.000 tonn Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur í dag gefið út reglugerð þar sem hámarksafli í þorski er aukinn um 30 þúsund tonn. Heildaraflamark verður því 160 þúsund tonn á yfirstandandi fiskveiðiári, í stað 130 þúsund tonna sem áður hafði verið ákve...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baldvin-vill-stofna-til-rikjabandalags-med-noregi
Baldvin vill stofna til ríkjabandalags með Noregi "Ég legg til, að ef ekki á illa að fara að sækjumst eftir því núna strax að komast í ríkjabandalag með Noregi. Ég er einn af þeim sem ekki hugnast að ganga til liðs við Evrópusambandið en held að hag okkar verði vel borgið ef við gætum stofnað til ríkjabandalags með fræ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/lokad-fyrir-allar-heimsoknir-til-sjuklinga-a-fsa
Lokað fyrir allar heimsóknir til sjúklinga á FSA Lokað hefur verið fyrir allar heimsóknir til sjúklinga á Sjúkrahúsinu á Akureyri, vegna svokallaðar Nóróveirusýkingar sem herjar á 3-4 sjúklinga en pestin er bráðsmitandi. Þorvaldur Ingvarsson framkvæmdastjóri lækninga á FSA sagði ekki ljóst hversu lengi verður lokað fyr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/utgjold-til-fjarhagsadstodar-a-sidasta-ari-um-67-milljonir
Útgjöld til fjárhagsaðstoðar á síðasta ári um 67 milljónir Heildarúrgjöld Akureyrarbæjar til fjárhagsaðstoðar á árinu 2008 að teknu tilliti til endurgreiddra lána urðu um 67,3 milljónir króna, sem var 8,3% aukning á milli ára. Þá hefur félagsmálaráð samþykkt að hækka framfærslugrunn fjárhagsaðstoðar í samræmi við hækku...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/motmaelir-vidhorfum-i-gard-aldradra-og-gedfatladra
Mótmælir viðhorfum í garð aldraðra og geðfatlaðra Stjórn Samfylkingarinnar á Akureyri mótmælir harðlega þeim viðhorfum sem fram koma í aðferðum stjórnenda Sjúkrahússins á Akureyri í garð aldraðra og geðfatlaðra. Stjórnin krefst þess að öldruðum vistmönnum, sem áður áttu heimili sitt á Seli, verði þegar í stað tryggð sa...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leggst-ekki-gegn-tillogum-um-sameiningu-heilbrigdisstofnana
Leggst ekki gegn tillögum um sameiningu heilbrigðisstofnana Meirihluti bæjarráðs Akureyrar leggst ekki gegn tillögum um sameiningu heilbrigðisstofnana á Norðurlandi í trausti þess að áfram verði boðið upp á góða heilbrigðisþjónustu fyrir alla íbúa svæðisins. Bæjarráð tekur jafnframt undir bókun félagsmálaráðs, sem legg...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/blomleg-menning-a-akureyri-um-helgina
Blómleg menning á Akureyri um helgina Menningin verður blómleg og fjölbreytt á Akureyri um helgina. Á morgun verður frumsýnt nýtt íslenskt verk hjá Leikfélagi Akureyri og þá verða opnaðar fjölmargar myndlistarsýningar vítt og breitt um bæinn. Verkið sem LA frumsýnir, heitir Falið fylgi og er skrifað af Bjarna Jónssyni ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/allir-sigrudu-a-nyarsmoti-fatladra
Allir sigruðu á Nýársmóti fatlaðra Fimmtán krakkar frá Sundfélaginu Óðni tóku þátt í árlegu Nýárssundmóti Íþróttasambands fatlaðra (ÍF) sem fram fór í Laugardalslauginni í Reykjavík um helgina. Allir krakkarnir frá Óðni stóðu sig vel og voru undantekningalaust að bæta tíma sína. Vilhelm Hafþórsson náði lámarki í æfinga...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/maria-gudmundsdottir-stod-sig-frabaerlega-i-noregi
María Guðmundsdóttir stóð sig frábærlega í Noregi Um síðustu helgi keppti María Guðmundsdóttir skíðakona úr SKA á hérðasmóti í Buskerud í Noregi. Keppendur komu meðal annars frá Geilo, Drammen, Hemsedal, Ål, og Gol. María sigraði mótin báða dagana á glæsilegan hátt. Í stórsvigi hafði hún mikla yfirburði, var hvorki mei...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rakel-honnudottur-ithrottamadur-akureyrar-2008
Rakel Hönnudóttur Íþróttamaður Akureyrar 2008 Landsliðskonan í knattspyrnu og fyrirliði Þórs/KA, Rakel Hönnudóttir var nú rétt í þessu kjörin Íþróttamaður Akureyrar árið 2008 við hátíðlega athöfn í Ketilhúsinu. Kjörið að þessu sinni var sögulegt því Dagný Linda Kristjánsdóttir, skíðakona varð í öðru sæti og Bryndís Rún...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nytt-tolvusneidmyndataeki-tekid-formlega-i-notkun-a-fsa
Nýtt tölvusneiðmyndatæki tekið formlega í notkun á FSA Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðsráðherra heimsótti Sjúkrahúsið á Akureri í dag og við það tækifæri tók hann formlega í notkun nýtt og fullkomið tölvusneiðmyndatæki. Tækið er af nýjustu gerð svokallaðra fjölsneiðatækja og tekur 128 sneiðar í hverjum snúningi. Það ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/margret-blondal-madur-akureyrarsvaedisins-2008
Margrét Blöndal maður Akureyrarsvæðisins 2008 Pollurinn, sem er óskipulagður hópur fólks á Akureyri sem hefur áhuga á stjórnmálum og samfélagsmálum, hefur valið Margréti Blöndal mann Akureyrarsvæðisins árið 2008. Margrét fékk það erfiða verkefni á liðnu vori að breyta hátíðarhöldunum um verslunarmannahelgina á Akureyri...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/evropunefnd-sjalfstaedis-flokksins-fundar-a-akureyri
Evrópunefnd Sjálfstæðis- flokksins fundar á Akureyri Evrópunefnd Sjálfstæðisflokksins er í fundarherferð þessa dagana. Haldnir verða 28 opnir fundir víðsvegar um landið þar sem Evrópumálin verða rædd. Á morgun, fimmtudaginn 15. janúar verður opinn fundur hjá Evrópunefndinni á Akureyri. Fundurinn fer fram í Kaupangi við...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jon-kristinn-islandsmeistari-barna-i-skak
Jón Kristinn Íslandsmeistari barna í skák Jón Kristinn Þorgeirsson frá Skákfélagi Akureyrar og nemandi í Lundarskóla, er Íslandsmeistari barna í skák árið 2009. Hann sigraði í úrslitamóti þriggja efstu keppenda á mótinu, sem urðu jafnir að vinningum eftir hörkuspennandi og fjölmennt Íslandsmót í þessum yngsta flokki, s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/olafsfjardarvegur-slysagildra-vegna-tidra-snjofloda
Ólafsfjarðarvegur slysagildra vegna tíðra snjóflóða Ólafsfjarðarvegur er slysagildra vegna tíðra snjóflóða. Lögregluvarðstjórinn á Dalvík segir að grípa verði til aðgerða til að tryggja öryggi vegfarenda en stórt snjóflóð féll á veginn um helgina. Um er ræða um eins kílómetra kafla Dalvíkurmegin á Ólafsfjarðarvegi, en ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/haettir-lbhi-rekstri-kuabusins-a-modruvollum
Hættir Lbhí rekstri kúabúsins á Möðruvöllum? Í nýrri stefnumörkun Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri er gert ráð fyrir að skólinn hætti rekstri kúabúsins á Möðruvöllum ásamt fleiri áherslubreytingum á rekstri staðarins. Á fundi stjórnar Búnaðarsambands Eyjafjarðar og Búgarðs fyrir jól var til umræðu bréf frá rektor...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/er-bylting-i-vaendum-a-islandi
Er bylting í vændum á Íslandi? Allt frá hruni íslensku bankanna nú í haust hafa verið uppi vangaveltur um þær afleiðingar sem það mun hafa í för með sér fyrir íslenskt samfélag. Umræða um breytt gildismat hefur verið hávær, fjöldi fólks hefur komið saman á borgarafundum og haldnir fjölmargir mótmælafundir. Ýmsir hafa o...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/um-200-nyjar-einbylishusalodir-i-olduhverfi-i-eyjafjardarsveit
Um 200 nýjar einbýlishúsalóðir í Ölduhverfi í Eyjafjarðarsveit Samkvæmt tillögu að nýju deiliskipulagi í Eyjafjarðarsveit, sem er í auglýsingu, er gert ráð fyrir nýrri íbúðarbyggð í landi Kropps. Hverfið nefnist Ölduhverfi og liggur norðan Reykárhverfis og sunnan Kristness. Deiliskipulagið gerir ráð fyrir 197 einbýlish...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/a-timum-ovissu-og-upplausnar-eru-breytingar-a-heilbrigdiskerfi-vidkvaemar
Á tímum óvissu og upplausnar eru breytingar á heilbrigðiskerfi viðkvæmar "Á tímum óvissu og upplausnar í íslensku þjóðfélagi eru breytingar á heilbrigðiskerfi afar viðkvæmar. Það hlýtur að segja sig sjálft að þegar reynir á samstöðu þjóðar að leysa úr stórum vanda sé sérstaklega gætt að hópum eins og ungmennum og öldru...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ithrottamadur-akureyrar-2008-utnefndur-a-midvikudag
Íþróttamaður Akureyrar 2008 útnefndur á miðvikudag Útnefning Íþróttamanns Akureyrar verður í Ketilhúsinu miðvikudaginn 14. janúar nk. kl. 19.30. Fjórtán aðildarfélög hafa tilnefnt íþróttamenn úr sínum röðum til útnefningar Íþróttamanns Akureyrar árið 2008. Úr þessum hópi kýs stjórn Íþróttabandalags Akureyrar auk fulltr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stada-rektors-vid-haskolann-a-akureyri-auglyst-laus-til-umsoknar
Staða rektors við Háskólann á Akureyri auglýst laus til umsóknar Nýr rektor verður skipaður við Háskólann á Akureyri næsta sumar en staða rektors var auglýst laus til umsóknar í dagblöðum um helgina. Þorsteinn Gunnarsson rektor HA kynnti á háskólaráðsfundi í byrjun nóvember sl., þá ákvörðun sína að hætta störfum þegar ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/matus-sandor-ithrottamadur-ka
Matus Sandor Íþróttamaður KA Knattspyrnumarkmaðurinn sterki frá Ungverjalandi, Matus Sandor var nú rétt í þessu valinn Íþróttamaður KA árið 2008. Sandor hefur leikið með knattspyrnuliði KA frá árinu 2004 við mjög góðan orðstýr en hann þykir einn albesti markvörðurinn sem leikið hefur hérlendis. Hann hefur einungis miss...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thatttaka-i-laugardagsmotmaelum-god-og-haldid-verdur-afram
Þátttaka í laugardagsmótmælum góð og haldið verður áfram "Við ætlum að halda ótrauð áfram, enda finnst okkur þetta hafa gengið ótrúlega vel og að mínu mati er þátttakan góð, ég er ánægð með hana," segir Guðrún Þórsdóttir ein þeirra sem staðið hafa að skipulögðum mótmælum á Akureyri liðna laugardaga. Gengið er hvern lau...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/saga-capital-og-kea-ekki-adilar-ad-stofnun-nordlenskrar-peningastofnunar
Saga Capital og KEA ekki aðilar að stofnun norðlenskrar peningastofnunar Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson forstjóri Saga Capital fjárfestingabanka á Akureyri kannast ekki við að þreifingar séu hafnar um stofnun norðlenskrar penningastofnunar. "Vafalaust eru menn eitthvað að tala saman en við erum alla vega ekki í þeirri u...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/flugeldasala-gekk-vel
Flugeldasala gekk vel Flugeldasala hjá Súlum, björgunarsveitinni á Akureyri gekk mjög vel að þessu sinni. Leonard Birgisson félagi í Súlum, segir að mikil aukning hafi verið í sölu flugelda undanfarin ár. "Við gerðum ráð fyrir að salan yrði með öðrum hætti í ljósi efnahagsástandsins og má segja að þær áætlanir hafi gen...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/alagningarprosenta-utsvars-i-hamarki-i-eyjafjardarsveit
Álagningarprósenta útsvars í hámarki í Eyjafjarðarsveit Álagningarprósenta útsvars í Eyjafjarðarsveit verður í hámarki í ár, eða 13,28% í stað 13,03% eins og áður hafði verið samþykkt við afgreiðlslu fjárhagsáætlunar. Þetta var samþykkt á fundi sveitarstjórnar í vikunni en við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 200...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-sigradi-magna-i-opnunarleik-soccerademotsins
Þór sigraði Magna í opnunarleik Soccerademótsins Þór sigraði Magna 3-1 í opnunarleik Soccerademótsins í knattspyrnu karla í leik sem var að ljúka í Boganum rétt í þessu. Þórsarar voru mun meira með boltann í fyrri hálfleik án þess þó að skapa sér mörg færi. Hreinn Hringsson skoraði fyrsta mark leiksins eftir góða fyrir...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikill-fjoldi-folks-a-threttandagledi-thors
Mikill fjöldi fólks á þrettándagleði Þórs Íþróttafélagið Þór stóð fyrir síðbúinni þrettándagleði og brennu við Réttarhvamm í kvöld, í samstarfi við Akureyrarstofu og bauð félagið öllum bæjarbúum á gleðina endurgjaldslaust. Sigfús Ólafur Helgason formaður Þórs var ánægður með hvernig til tókst en mikill fjöldi fólks mæt...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/endurbaetur-a-sundlauginni-a-thelamork-formlega-vigdar
Endurbætur á sundlauginni á Þelamörk formlega vígðar Umfangsmiklar endurbætur sem gerðar hafa verið á sundlaug íþróttamiðstöðvarinnar á Þelamörk í Hörgárbyggð voru formlega vígðar í dag að viðstöddu fjölmenni. Árni Arnsteinsson bóndi og forvígismaður í íþróttastarfi á svæðinu, klippti á borða. Með honum voru tvær stúlk...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ekki-lengur-gjald-fyrir-skola-maltidir-a-svalbardsstrond
Ekki lengur gjald fyrir skóla- máltíðir á Svalbarðsströnd "Við reynum að bera okkur vel, en ég veit vel að þetta verður erfitt ár," segir Árni Bjarnason sveitarstjóri í Svalbarðsstrandarhreppi. Gengið hefur verið frá fjárhagsáætlun fyrir hreppinn og er útkoman sú að það tókst að setja saman hallalausa áætlun, að sögn s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/framkvaemdastjorn-fsa-sendir-fra-ser-yfirlysingu
Framkvæmdastjórn FSA sendir frá sér yfirlýsingu Vegna villandi og rangra frétta um stofnun Heilbrigðistofnunar Norðurlands og snúið hafa meðal annars að stöðu og hlutverki Sjúkrahússins á Akureyri vill framkvæmdastjórn Sjúkrahússins á Akureyri taka fram nokkur atriði sem stofnunin hefur haft að leiðarljósi undanfarin á...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/motmaela-a-hreppaflutningum-a-gamla-folkinu-a-akureyri
Mótmæla á hreppaflutningum á gamla fólkinu á Akureyri Á morgun, laugardaginn 10. janúar, verður mótmælaganga frá Samkomuhúsinu niður að Ráðhústorgi á Akureyri kl 15.00. Þar á að mótmæla hreppaflutningum á eldri kynslóðinni, lokun dagdeildar við Skólastíg, uppsögnum ljósmæðra og skerðingu á þjónustu á Sjúkrahúsinu á Aku...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sameining-grimseyjar-og-akureyrar-i-undirbuningi
Sameining Grímseyjar og Akureyrar í undirbúningi Á fundi bæjarráðs Akureyrar í morgun voru lögð fram drög að sameiginlegri yfirlýsingu bæjarstjórnar Akureyrarkaupstaðar og hreppsnefndar Grímseyjarhrepps varðandi undirbúning að sameiningu sveitarfélaganna. Bæjarráð samþykkti að fela bæjarstjóra að leggja ný drög fyrir n...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/keflavik-kafsigldi-thor
Keflavík kafsigldi Þór Þór og Keflavík mættust í kvöld í Höllinni í Iceland Expressdeild karla í körfubolta. Þórsarar mættu með vængbrotið lið til leiks en þeir Cedric Isom og Óðinn Ásgeirsson, tveir allra bestu leikmenn liðsins, voru báðir fjarverandi vegna meiðsla. Greinilegt var að liðið má illa við að vera án þeirr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrstu-hadegistonleikarnir-a-nyju-ari-i-ketilhusinu
Fyrstu hádegistónleikarnir á nýju ári í Ketilhúsinu Fyrstu hádegistónleikar Tónlistarfélags Akureyrar á nýju ári, fara fram í Ketilhúsinu á morgun föstudag og hefjast kl. 12.15 með dýrindis súpu. Fram koma; Helena Guðlaug Bjarnadóttir sópransöngkona, Una Björg Hjartardóttir þverflautuleikari, Ásdís Arnardóttir sellólei...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gaefar-rjupur-i-seljahlidinni-a-akureyri
Gæfar rjúpur í Seljahlíðinni á Akureyri Það er ekki aðeins í Hrísey sem rjúpur eru gæfar, enda alfriðar þar. Þessar fallegu rjúpur voru hinar spökustu, þar sem þær sátu í makindum á skítugum snjóskafli í Seljahlíð á Akureyri fyrr í dag. Þær létu sér fátt um finnast þótt bílaumferð væri um götuna, hvað þá að þær létu lj...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/umferdarlagabrotum-i-umdaemi-logreglunnar-a-akureyri-faekkadi
Umferðarlagabrotum í umdæmi lögreglunnar á Akureyri fækkaði Umferðarlagabrotum í umdæmi lögreglunnar á Akureyri fækkaði umtalsvert á milli áranna 2007 og 2008, samkvæmt bráðabirgðayfirliti lögreglunnar. Á síðasta ári voru umferðarlagbrot samtals 1.881 en árið áður voru umferðarlagabrotin 3.098 og árið 2006 voru þau 3.5...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jokull-fjallaleidsogumadur-segir-kreppunni-strid-a-hendur
Jökull fjallaleiðsögumaður segir kreppunni stríð á hendur Hinn landsþekkti klifrari og UIAGM-IFMGA fjallaleiðsögumaður Jökull Bergmann hefur sagt kreppunni stríð á hendur og sett í loftið nýja heimasíðu www.bergmenn.com fyrir fjallaleiðsögufyrirtækið sitt Bergmenn - Fagmenn í fjallaleiðsögn. Þetta er nýjung í framboði ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sundlaugin-a-thelamork-formlega-tekin-i-notkun-a-ny
Sundlaugin á Þelamörk formlega tekin í notkun á ný Sundlaugin á Þelamörk í Hörgárbyggð verður formlega tekin í notkun aftur föstudaginn 9. janúar kl. 14.30, eftir umfangsmiklar endurbætur sem gerðar hafa verið á henni undanfarna mánuði. Allir eru velkomnir en klippt verður á borða, vígslu-sundspretturinn tekinn og boði...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/utkollum-hja-slokkvilidi-akureyrar-fjolgadi-a-milli-ara
Útköllum hjá Slökkviliði Akureyrar fjölgaði á milli ára Útköll hjá Slökkviliði Akureyrar á síðasta ári voru 2.263 talsins og er það fjölgun um 119 útköll á milli ára, eða um 5,5%. Útköll á slökkvibíla liðsins voru 124 og er það fækkun á milli áranna 2007 og 2008. Útköll á sjúkrabíla liðsins voru 1.645 sem er fjölgun up...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bjorgvin-ithrottamadur-dalvikurbyggdar-i-niunda-sinn
Björgvin Íþróttamaður Dalvíkurbyggðar í níunda sinn Björgvin Björgvinsson skíðamaður er Íþróttamaður Dalvíkurbyggðar árið 2008 og er þetta í níunda sinn sem hann hlýtur nafnbótina. Björgvin dvaldi að langmestu leyti erlendis á árinu við æfingar og keppni með landsliði Skíðasambands Íslands. Hann tók þátt í fjölmörgum a...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/allar-heilbrigdisstofnanir-og-heilsugaeslur-a-nordurlandi-sameinast
Allar heilbrigðisstofnanir og heilsugæslur á Norðurlandi sameinast Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra kynnti í dag umfangsmiklar skipulagsbreytingar á heilbrigðisþjónustu í landinu. Þar kemur m.a. fram að allar heilbrigðsstofnanir og heilsugæslustöðvar á Norðurlandi verða sameinaðar í eina undir forystu FSA á ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eldur-i-ruslagamum-a-tveimur-stodum-a-akureyri
Eldur í ruslagámum á tveimur stöðum á Akureyri Slökkvilið Akureyrar var kallað út vegna elds í ruslagámi sem stóð við leikskólann Kiðagil um kl. 22.00 í gærkvöld. Á sama tíma og slökkviliðið kom á staðinn barst önnur tilkynning um eld í gámi við Verslunarmiðstöðina Sunnuhlíð og var einnig sendur dælubíll þangað. Mikill...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/starfsmenn-akueyrarbaejar-fjarlaegja-jolatre
Starfsmenn Akueyrarbæjar fjarlægja jólatré Starfsmenn Framkvæmdamiðstöðvar Akureyrar munu fjarlægja jólatré sem sett hafa verið við lóðarmörk á fimmtudag og föstudag og fyrstu þrjá dagana í næstu viku. Einnig verða gámar staðsettir við Kaupang, Hagkaup, Hrísalund og verslunarmiðstöðina Sunnuhlíð, þar sem hægt verður að...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/namskeid-um-evropumal-fyrir-almenning-i-ha
Námskeið um Evrópumál fyrir almenning í HA Símenntun Háskólans á Akureyri stendur fyrir námskeiði um Evrópumál fyrir almenning á næstunni. Tengsl Íslands og Evrópusambandsins eru mál málanna á nýju ári. Hvað veist þú um ESB og Ísland? Á námskeiðinu verður farið yfir grunnþætti í tengslum Íslands við Evrópu fyrr og nú. ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samningur-um-rekstur-grimseyjarferjunnar-saefara-framlengdur
Samningur um rekstur Grímseyjarferjunnar Sæfara framlengdur Samningur Vegagerðarinnar og Samskipa um rekstur Grímseyjarferjunnar Sæfara hefur verið framlengdur til næstu tveggja ára en Landflutningar-Samskip hafa annast rekstur ferjunnar óslitið í rúm 12 ár, eða frá 1. maí 1996. Nýtt skip, sem getur tekið allt að 108 f...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stal-i-stal-i-husgrunni-i-naustahverfi-a-akureyri
Stál í stál í húsgrunni í Naustahverfi á Akureyri Óhætt er að segja að það hafi verið stál í stál í baráttu tveggja verktaka um möl í húsgrunni í Naustahverfi á Akureyri eftir hádegi í dag. Þá mátti litlu muni að ung kona slasaðist þegar hún stóð fyrir stórri skóflu á beltagröfu og reyndi þannig að koma í veg fyrir að ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ekki-haegt-ad-ljuka-nami-i-bifvelavirkjun-vid-vma-i-vetur
Ekki hægt að ljúka námi í bifvélavirkjun við VMA í vetur Fimmtán manna hópur nemenda sem stefndi að útskrift í bifvélavirkjun frá Verkmenntaskólanum á Akureyri í vor fékk að vita í byrjun desember að lokaönn námsins yrði ekki kennd við VMA í vetur vegna húsnæðisskorts. Hjalti Jón Sveinsson skólameistari VMA segir að vo...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/matur-i-skolamotuneytum-a-akureyri-haekkar-i-verdi
Matur í skólamötuneytum á Akureyri hækkar í verði Nú um áramótin hækkaði matur í mötuneytum grunnskóla Akureyrar, sem og síðdegishressing í skólavistun. Máltíð í annar áskrift í mötuneytunum hækkaði úr 284 krónum í 307 krónur og stök máltíð hækkaði úr 384 krónum í 415 krónur. Síðdegishressing í skólavistun kostar 61 kr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/geta-fengid-sereignarsparnad-sinn-greiddan-ut-i-einu-lagi
Geta fengið séreignarsparnað sinn greiddan út í einu lagi Einstaklingar sem náð hefur 60 ára aldri geta nú fengið séreignarlífeyrissparnað sinn greiddan út í einu lagi óski þeir þess, samkvæmt breytingum á lögum um lífeyrissjóði sem samþykktar voru í síðasta mánuði. Í eldri ákvæðum var gert ráð fyrir að sparnaðurinn væ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/threttandagledi-og-brenna-vid-rettarhvamm-a-fostudagskvold
Þrettándagleði og brenna við Réttarhvamm á föstudagskvöld Íþróttafélagið Þór stendur fyrir síðbúinni þrettándagleði og brennu við Réttarhvamm nk. föstudagskvöld kl. 19.00, í samstarfi við Akureyrarstofu. Enginn aðgangseyrir verður inn á svæðið og allir bæjarbúar velkomnir. Þarna verða álfakóngur og álfadrottning, púkar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stjornvold-hafa-litinn-ahuga-a-samstarfi-vid-verkalydshreyfinguna
Stjórnvöld hafa lítinn áhuga á samstarfi við verkalýðshreyfinguna Björn Snæbjörnsson formaður Einingar-Iðju kveðst hafa af því áhyggjur hversu lítinn áhuga stjórnvöld hafi á samstarfi við verkalýðshreyfinguna. Fyrir 15. febrúar nk. þarf að taka ákvörðun um hvort núgildandi samningar verði framlengdir til loka árs 2010....
https://www.vikubladid.is/is/frettir/motorkrosshjoli-og-kerru-stolid-a-svalbardseyri
Motorkrosshjóli og kerru stolið á Svalbarðseyri Lögreglan á Akureyri fékk tilkynningu um þjófnað á kerru með motorkrosshjóli á, um eitt leytið sl. nótt. Eigandi kerrunnar vaknaði upp við það að bifreið var ekið í burtu frá heimili hans á Svalbarðseyri með kerruna í eftirdragi. Eigandinn hringdi á lögreglu sem að hóf st...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/desember-var-staersti-solu-manudur-nordlenska-til-thessa
Desember var stærsti sölu- mánuður Norðlenska til þessa Sala afurða Norðlenska gekk vel allt árið 2008, en aldrei þó eins og í desember sl. Sigmundur Ófeigsson framkvæmdastjóri segir að desember hafi verið stærsti sölumánuður Norðlenska til þessa - bæði í magni og krónutölu. Hann segir að neytendur hafi verið jákvæðir ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fimm-manns-i-einangrun-fsa-vegna-pestar
Fimm manns í einangrun FSA vegna pestar Fimm manns eru í einangrun á Sjúkrahúsinu á Akureyri, FSA, vegna pestar sem herjar á bæjarbúa. Guðjón Kristjánsson, sérfræðingur á lyfjadeild sjúkrahússins segir pestina bráðsmitandi. Svokölluð Nóróveira hefur herjað á Akureyringa í desembermánuði. Einkennin eru uppköst og niðurg...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skemmdir-i-ibudarhusi-vegna-vatns-sem-flaeddi-um-golf
Skemmdir í íbúðarhúsi vegna vatns sem flæddi um gólf Töluverðar skemmdir urðu í íbúðarhúsi á Akureyri vegna vatns sem flæddi yfir gólf. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu kom vatn úr heitavatnskrana með þeim afleiðingum að heitt vatn flæddi yfir gólf. Um tveggja sentímetra lag var yfir öllum gólfum í íbúðinni. Ekki er v...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/yfir-100-manns-komu-saman-a-radhustorgi-i-dag
Yfir 100 manns komu saman á Ráðhústorgi í dag Yfir 100 manns tóku þátt í mótmælagöngu frá Samkomuhúsinu á Akureyri að Ráðhústorgi í dag laugardag en gangan var nú haldin í fyrsta sinn á nýju ári en í þrettánda sinn frá bankahruninu. Eftir ræðuhöld á Ráðhústorgi tókst fólkið í hendur, myndaði hring og hugleiddi frið og ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vonum-ad-ferdamenn-verdi-alika-margir-a-nyju-ari-og-thvi-gamla
Vonum að ferðamenn verði álíka margir á nýju ári og því gamla "Allur okkar kostnaður hefur hækkað um 40% á árinu sem kemur til viðbótar gríðarlegri hækkun á díselolíu sem er stór þáttur í okkar útgjöldum. Við höfum ekkert svigrúm til að hækka okkar gjaldskrá þannig að vissulega lítur árið ekki vel út," segir Gunnar M. ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skida-og-snjobrettaidkun-fer-vel-af-stad-a-arinu
Skíða- og snjóbrettaiðkun fer vel af stað á árinu Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli var opnað kl. 10 og verður opið í fjallinu til kl. 16 í dag, laugardag. Veðrið kl. 8 í morgun var 0 gráður og logn, snjókoma síðan kl. 02 í nótt. Skíða- og snjóbrettaiðkun far vel af stað á árinu 2009, að mati starfsfólks Hlíðarfjalls.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sindri-caesar-magnason-er-nordlendingur-arsins-2008
Sindri Cæsar Magnason er Norðlendingur ársins 2008 Norðlendingur ársins 2008, að mati hlustenda Útvarps Norðurlands, er Sindri Cæsar Magnason. Sindri vann þá hetjudáð, í nóvember sl. að bjarga konu úr bíl sem oltið hafði út í Eyjafjarðará. Bíllinn fór á hvolf í mittisdjúpu vatni og var konan meðvitundarlaus þegar Sindr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ljotu-halfvitarnir-a-graena-hattinum-i-kvold
Ljótu hálfvitarnir á Græna hattinum í kvöld Það verða Ljótu hálfvitarnir sem hefja tónleikaárið 2009 á Græna Hattinum á Akurteyri. Tónleikar eru í kvöld, föstudaginn 2. janúar og hefjast kl. 21.30. Þeir félagar ætla að flytja nýtt efni af væntanlegri skífu, auk þess sem þeir blanda gömlu hitturunum inn á milli. Eins og...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrsta-barn-arsins-a-akureyri-er-myndarleg-stulka-1
Fyrsta barn ársins á Akureyri er myndarleg stúlka Fyrsta barn ársins á Akureyri, myndarleg stúlka, fæddist á fæðingadeild FSA kl. 07.26 á nýársdagsmorgun. Hún reyndist vera tæpar 12 merkur og 49 cm. Stúlkan hefur fengið nafnið Karolína Lara, foreldrar hennar eru frá Slóvakíu en hafa búið á Akureyri undanfarin ár og er ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mun-fleiri-fjolskyldur-a-svaedinu-fengu-adstod-nu-en-adur
Mun fleiri fjölskyldur á svæðinu fengu aðstoð nú en áður Mun fleiri leituðu eftir aðstoð fyrir jólin en venja er til, að því er forsvarsmenn Mæðrastyrksnefndar Akureyrar og Hjálparstarfs kirkjunnar segja. Yfir 450 fjölskyldur á svæðinu fengu aðstoð hjá Mæðrastyrksnefnd og um 160 fjölskyldur hjá kirkjunni. Gera má ráð f...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/karlmadur-lest-i-umferdarslysi-a-olafsfjardarvegi
Karlmaður lést í umferðarslysi á Ólafsfjarðarvegi Karlmaður á sjötugsaldri lést í umferðarslysi á Ólafsfjarðarvegi laust fyrir kl. 15 í dag. Lögreglan á Akureyri fékk tilkynningu um alvarlegt umferðarslys við bæinn Krossa en þar hafði orðið árekstur tveggja bifreiða sem komu úr gagnstæðum áttum. Lögreglu- og sjúkraflut...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aramotafognudur-akureyringa-for-vel-fram
Áramótafögnuður Akureyringa fór vel fram Ekki þurfti að kalla út slökkvibíla á Akureyri á nýársnótt sem telst mjög gott. Áramótafögnuður Akureyringa og nærsveitunga fór því afar vel fram. Sjúkrabílar liðsins voru kallaðir 6 sinnum út í minni háttar óhöpp. "Það veit á gott þegar rólegt er að gera hjá okkur og gefur vísb...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/metthatttaka-i-gamlarshlaupi-og-gongu-ufa-a-akureyri
Metþátttaka í gamlárshlaupi og göngu UFA á Akureyri Metþátttaka var í gamlárshlaupi og göngu UFA sem fram fór á Akureyri í dag, gamlársdag. Alls voru þátttakendur 98 að tölu en hlaupið var frá líkamsrætkarstöðinni Bjargi um Síðuhverfi, Giljahverfi, Lundarhverfi, umhverfis VMA og sem leið liggur til baka sömu leið. Tólf...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/komandi-ar-verdur-erfitt-ad-mati-formanns-einingar-idju
Komandi ár verður erfitt að mati formanns Einingar-Iðju "Svæðið er mjög brothætt og atvinnuleysi hefur aukist gríðarlega síðustu vikur," segir Björn Snæbjörnsson formaður Einingar-Iðju, en nú eru um 960 manns á Norðurlandi eystra án atvinnu, þar af eru karlar tæplega 600 talsins. "Við verðum mjög mikið vör við að atvin...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/arleg-flugeldasyning-a-akureyri-a-gamlarskvold
Árleg flugeldasýning á Akureyri á gamlárskvöld Flugeldasýningar á gamlárskvöld urðu fastur liður í áramótum Akureyringa fyrir 15 árum. Þetta kvöld fjölmenna bæjarbúar á áramótabrennu við Réttarhvamm, kl. 20.30, kveðja gamla árið í hópi vina og ættingja og njóta síðan flugeldasýningar sem Súlur, björgunarsveitin á Akure...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/dag-og-gongudeildir-geddeildar-sjukrahussins-a-akureyri-sameinadar
Dag- og göngudeildir geðdeildar Sjúkrahússins á Akureyri sameinaðar Ákveðið hefur verið að sameina rekstur dag- og göngudeildar geðdeildar Sjúkrahússins á Akureyri og er stefnt að því að sameinuð starfsemi byrji 1. október n.k. Núverandi starfsemi dagdeildar geðdeildar verður hætt 31. janúar n.k. Þá hefur öllum samning...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/flugeldasala-bjorgunarsveitanna-er-i-fullum-gangi
Flugeldasala björgunarsveitanna er í fullum gangi Sala flugelda er grundvöllurinn að starfi björgunarsveita á Íslandi og síðustu fjóra daga hvers árs leggja sveitirnar fjárhagslegan grunn að starfi sínu næsta árið. Flugeldamarkaður Súlna, björgunarsveitarinnar á Akureyri við Hjalteyrargötu er opinn í kvöld til kl. 22 o...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/graenlendingar-kynntu-ser-skolastarf-i-ma
Grænlendingar kynntu sér skólastarf í MA Mennta- og menningarmálaráðherra grænlensku landsstjórnarinnar, Tommy Marø, heimsótti Menntaskólann á Akureyri á dögunum, ásamt föruneyti. Heimsóknin var liður í mikilli endurskoðun og uppstokkun á mennta- og menningarkerfinu á Grænlandi, í kjölfar nýafstaðinna kosninga. Markmið...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bjarki-setti-islandsmet-godur-arangur-umse-og-ufa-a-aramoti-fjolnis
Bjarki setti Íslandsmet - góður árangur UMSE og UFA á Áramóti Fjölnis Bjarki Gíslason, frjálsíþróttamaður úr UFA bætti um helgina Íslandsmet sitt í stangarstökki um 1 cm þegar hann fór yfir 4, 61 m á Áramóti Fjölnis í Reykjavík. Árangurinn dugði Bjarka að sjálfsögðu til sigurs í stangarstökkinu en einnig varð han n í þ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jolaskreytingasamkeppni-i-moasidu-a-akureyri
Jólaskreytingasamkeppni í Móasíðu á Akureyri Tvær 10 ára vinkonur í Móasíðu á Akureyri, Íris Birna Kristinsdóttir og Harpa Mukta Birgisdóttir, stóðu fyrir skreytingasamkeppni í götunni fyrir jól. Þær gengu í hús og fengu húsráðendur til að samþykkja þátttöku, sem flestir gerðu. Þær stöllur skipuðu sjálfar dómnefndina o...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hofdingleg-gjof-til-haskolans-a-akureyri
Höfðingleg gjöf til Háskólans á Akureyri Háskólanum á Akureyri hefur borist ríkulegur styrkur frá Þorbjörgu heitinni Finnbogadóttur en hún ánafnaði háskólanum andvirði íbúðar sinnar þegar hún féll frá. Þorbjörg var lengst af matreiðslukennari í Gagnfræðaskólanum á Akureyri en lést í apríl sl. þá 87 ára að aldri. Ætting...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jolin-med-fridsaelasta-moti-hja-slokkvilidi-akureyrar
Jólin með friðsælasta móti hjá Slökkviliði Akureyrar Jólin hjá Slökkviliðinu á Akureyri voru með friðsælasta móti. Ekkert brunaútkall hefur orðið frá 20. desember og er það langt undir meðaltali. Íbúar á starfsvæði SA hafa því greinilega farið sérstaklega varlega um hátíðirnar þegar áhætta vegna kertaljósa og eldamenns...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ibuum-a-akureyri-fjolgadi-um-269-a-milli-ara
Íbúum á Akureyri fjölgaði um 269 á milli ára Íbúum Akureyrar fjölgaði um 269 á milli ára en þann 1. desember sl. voru íbúar bæjarins 17.522, samkvæmt yfirliti frá Hagstofunni. Í sveitarfélögum í Eyjafirði var íbúum ýmist að fjölga eða fækka á milli ára. Íbúum fjölgaði í Eyjafjarðarsveit, Arnarneshreppi og Svalbarðsstra...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/a-attunda-tug-manna-hugleiddu-frid-og-samkennd-a-radhustorgi
Á áttunda tug manna hugleiddu frið og samkennd á Ráðhústorgi Undanfarna mánuði hefur hópur fólks hist fyrir framan Samkomuhúsið og gengið niður á Ráðhústorg undir yfirskriftinni "Virkjum lýðræðið." Þar hafa ýmsir tekið til máls en í dag var ákveðið að hugleiða í stað þess að láta gamminn geysa. Á áttunda tug manna tóku...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rakel-honnudottir-ithrottamadur-thors
Rakel Hönnudóttir Íþróttamaður Þórs Íþróttafélagið Þór stóð fyrir opnu húsi í félagsheimili sínu í Hamri í dag og var það vel sótt af félagsmönnum. Á opnu húsi bar hæst kjör íþróttamanns Þórs 2008 og varð þar fyrir valinu landsliðskonan í knattspyrnu Rakel Hönnudóttir. Í ræðu Sigfúsar Helgasonar, formanns Þórs sagði ha...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thogul-motmaeli-a-radhustorgi-a-akureyri-i-dag
Þögul mótmæli á Ráðhústorgi á Akureyri í dag Í dag, laugardaginn 28. desember kl 15.00, verður farin níunda lýðræðisgangan á Akureyri. Gengið verður að venju frá Samkomuhúsinu niður á Ráðhústorg. Á Ráðhústorgi taka þátttakendur höndum saman, mynda hring og hugleiða í 10 mínútur um frið og samkennd.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jolin-i-oddeyrargotunni-fyrir-rumri-halfri-old
Jólin í Oddeyrargötunni fyrir rúmri hálfri öld Ólafur Ásgeirsson aðstoðaryfirlögregluþjónn á Akureyri rifjaði upp jólin í Oddeyrargötunni fyrir rúmri hálfi öld, í þessari skemmtilegu frásögn sem birtist í Vikudegi fyrir jól. Ólafur ólst upp í stórri fjölskyldu í Oddeyrargötu 32 og á þessum tíma var gatan iðandi af lífi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skidasvaedid-i-hlidarfjalli-opid-naestu-daga
Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli opið næstu daga Skíðavæðið í Hlíðarfjalli verður opið frá 26. desember og fram yfir áramótin, líka á gamlársdag og nýjársdag. Enn er nægur skíðasnjór í Hlíðarfjalli þrátt fyrir hlákuna fyrir jólin. Á morgun, annan í jólum, verður léttskýjað norðan heiða samkvæmt veðurspá og hitastig í kringum...