Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.vikubladid.is/is/frettir/dagskra-i-deiglunni-a-althjodlegum-barattudegi-kvenna
Dagskrá í Deiglunni á alþjóðlegum baráttudegi kvenna Akureyrarakademían og Jafnréttisstofa standa fyrir dagskrá á alþjóðlegum baráttudegi kvenna sunnudaginn 8. mars kl. 20:00 í Deiglunni. Yfirskriftin er; SKUGGA-BJÖRG Kynbreyttur Skugga-Sveinn. Það eru Bjargirnar sem leiklesa en þær eru hópur kvenna úr Dalvíkurbyggð me...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gudrun-og-gudmundur-i-holtsseli-hlutu-landbunadarverdlaunin
Guðrún og Guðmundur í Holtsseli hlutu Landbúnaðarverðlaunin Hjónin Guðrún Egilsdóttir og Guðmundur Jón Guðmundsson bændur í Holtsseli í Eyjafirði hlutu Landbúnaðarverðlaunin árið 2008 en þau voru afhent við setningu Búnaðarþings í byrjun vikunnar. Verðlaunin hlutu þau fyrir dugnað, framtakssemi og nýsköpun í landbúnaði...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorsarar-i-slaemum-malum-eftir-tap-gegn-ir
Þórsarar í slæmum málum eftir tap gegn ÍR Þórsarar eru í verulega slæmum málum í Iceland Expressdeild karla í körfubolta eftir tap gegn ÍR í Höllinni í kvöld. Leikurinn var spennandi allt til loka en tvær þriggja stiga körfur frá ÍR á loka mínútunni gerðu út um vonir Þórsara á sigri. Mikið munaði um hjá Þór að Daniel B...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/utankjorfundaratkvaedagreidsla-samthykkt-hja-framsokn-i-na-kjordaemi
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla samþykkt hjá Framsókn í NA-kjördæmi Stjórn kjördæmissambands Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi samþykkti á fundi sínum í gærkvöld að breyta fyrri ákvörðun sinni á dögunum og heimila utankjörfundaratkvæðagreiðslu við val á lista flokksins fyrir alþingiskosningarnar í vor. Utankjörfun...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hverfisnefndir-standa-fyrir-hverfakaffi-i-kvold
Hverfisnefndir standa fyrir hverfakaffi í kvöld Hverfisnefndir bæjarins standa fyrir hverfakaffi í kvöld, fimmtudaginn 5. mars kl 20:00 í sal Brekkuskóla. Rætt verður um framtíðarskipulag Akureyrarbæjar. Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri mun fjalla um tilkomu og tilgang með stofnun hverfisnefnda en nú eru rúm 6 ár...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/steingrimur-j-fekk-afgerandi-kosningu-i-fyrsta-saetid-hja-vg
Steingrímur J. fékk afgerandi kosningu í fyrsta sætið hjá VG Steingrímur J. Sigfússon fékk afgerandi kosningu í fyrsta sætið í forvali Vinstri grænna í Norðausturkjördæmi en alls var kosið í átta sæti. Þuríður Backman hafnaði í öðru sæti og Björn Valur Gíslason í því þriðja. Alls gaf 21 félagi kost á sér í forvalinu en...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jafn-i-slag-akureyrar-og-hk
Jafn í slag Akureyrar og HK Akureyri og HK skiptu jöfn í æsispennandi leik í N1 deild karla í handbolta í kvöld í Höllinni á Akureyri. HK jafnaði metin þegar fjórar sekúndur voru til leiksloka en geta samt talið sig klaufa að hafa ekki unnið leikinn því þeir voru með hann í hendi sér þegar stutt var til leiksloka. Akur...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/adsoknarmet-i-sundlaug-akureyrar-og-hlidarfjall
Aðsóknarmet í Sundlaug Akureyrar og Hlíðarfjall Íslendingar ferðast nú mun meira innanlands en áður hefur verið og virðist sem straumurinn liggi helst norður til Akureyrar. Mikill fjöldi gesta hefur verið í bænum síðustu helgar og í rauninni síðustu vikur. Aðsóknarmet hafa verið sett bæði í Hlíðarfjalli og Sundlaug Aku...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fedgarnir-maetast-thegar-akureyri-tekur-a-moti-hk-i-kvold
Feðgarnir mætast þegar Akureyri tekur á móti HK í kvöld Í kvöld kl.19:00 mætast Akureyri og HK í Höllinni á Akureyri í gríðarlega mikilvægum leik í baráttu beggja liða fyrir sæti í fjögurra liða úrslitakeppni Íslandsmótsins í handbolta karla. Leikurinn er mjög merkilegur fyrir þær sakir að aðstoðarþjálfarar liðanna eru...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/syningunni-kappar-og-ofurhetjur-lykur-a-sunnudag
Sýningunni “Kappar og ofurhetjur” lýkur á sunnudag Sunnudaginn 8. mars nk. lýkur sýningunni "Kappar og ofurhetjur" í GalleríBOXi í Listagilinu á Akureyri. Þetta er fyrsta sýningin sem Myndlistarfélagið skipuleggur í GalleríBOXi sem nú er í umsjá félagsins eftir nokkrar endurbætur og stækkun. Tilgangur með félagasýningu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/inga-bjork-opnar-syningu-a-cafe-karolinu
Inga Björk opnar sýningu á Café Karólínu Inga Björk Harðardóttir opnar sýninguna "Réttir" á Café Karólínu laugardaginn 7. mars nk. kl. 15.00. Þetta er þriðja einkasýning Ingu Bjarkar en hún hefur tekið þátt í átta samsýningum. Hún útskrifaðist árið 2008 frá Myndlistaskólanum á Akureyri en áður hafði hún útskrifast sem ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/haegt-ad-spara-umtalsverdar-fjarhaedir-an-thess-ad-breyta-lifsgaedum
Hægt að spara umtalsverðar fjárhæðir án þess að breyta lífsgæðum Í kjölfar ástandsins sem nú ríkir í efnahagsmálum þjóðarinnar, hafa landsmenn leitað ýmissa leiða til þess að ná fram sparnaði, m.a. í heimilisrekstrinum. Sigurður Friðleifsson framkvæmdastjóri Orkuseturs hefur bent á sparnaðarleiðir í orkumálum og hann k...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/yfir-50-umsoknir-borist-um-10-kennarastodur-i-naustaskola
Yfir 50 umsóknir borist um 10 kennarastöður í Naustaskóla Þegar hafa 53 umsóknir borist um 10 kennarastöður í Naustaskóla á Akureyri en umsóknarfrestur rennur nk. fimmtudag. Umsóknarfrestur var upphaflega til síðustu mánaðamóta og þá höfðu um 40 umsóknir borist en engu að síður var ákveðið að framlengja umsóknarfrestin...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tenorinn-syngur-sitt-sidasta-i-samkomuhusinu-a-akureyri
Tenórinn syngur sitt síðasta í Samkomuhúsinu á Akureyri Leiksýningin TENÓRINN, eftir Guðmund Ólafsson, var frumsýnd á Berjadögum í Ólafsfirði sumarið 2003 og síðar það sama haust í Iðnó, þar sem sýningin var á fjölunum í tvö leikár. Auk þess var verkið leikið haustið 2006 í Freyvangi í Eyjafjarðarsveit, vorið 2007 í Bo...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leikfelag-horgdaela-frumsynir-farsann-stundum-og-stundum-ekki
Leikfélag Hörgdæla frumsýnir farsann „Stundum og stundum ekki“ Leikfélag Hörgdæla frumsýnir farsann „Stundum og stundum ekki" eftir Arnold og Bach á Melum nk. fimmtudag. Leikstjóri er Saga Jónsdóttir en alls taka 15 leikarar þátt í sýninginni auk þess sem annar eins fjöldi fólks kemur að uppsetningu verksins. Saga segi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bernhard-dregur-frambod-sitt-a-lista-framsoknarflokksins-til-baka
Bernharð dregur framboð sitt á lista Framsóknarflokksins til baka Bernharð Arnarson hefur ákveðið að draga framboð sitt á lista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi til baka en hann bauð sig fram í 5. - 8. sæti. Bernharð segir í yfirlýsingu að ástæðan sé ólíðandi framganga stjórnar Kjördæmasambands Norðausturkjördæ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/saltid-hefur-reynst-vel-sem-halkuvorn-a-akureyri
Saltið hefur reynst vel sem hálkuvörn á Akureyri "Þetta hefur verið frekar erfiður vetur, snjór og oft mikil hálka," segir Stefán Baldursson hjá Strætisvögnum Akureyrar. Hann segir að salt sem nú í vetur er notað með öðrum hálkuvörnum hafi reynst vel hvað vagnana varðar og heilt yfir betur en sandur. Saltið hafi einkum...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/uppsagnir-hja-landvinnslu-brims-a-grenivik
Uppsagnir hjá landvinnslu Brims á Grenivík "Það eru mjög slæmar horfur í markaðsmálum fyrir þær vörur sem við höfum framleitt á Grenivík og því grípum við til þessa ráðs," segir Ágúst Torfi Hauksson, framkvæmdastjóri Brims á Akureyri. Þrettán starfsmönnum af sextán hjá landvinnslu Brims á Grenivík var sagt upp fyrir he...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/trjasafni-komid-upp-a-hrauni-i-oxnadal
Trjásafni komið upp á Hrauni í Öxnadal Menningarfélagið Hraun í Öxnadal ehf og Skógrækt ríkisins hafa gert með sér samstarfssamning um að koma upp trjásafni (arboretum) í afgirtum garði umhverfis íbúðarhúsið að Hrauni. Í trjásafninu verða gróðursett eintök af öllum íslensku trjám og runnum sem þar geta þrifist. Auk þes...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/storsigur-thors-a-skallagrimi
Stórsigur Þórs á Skallagrími Þór vann í kvöld stórsigur á Skallagrími 140-66 í Iceland Expressdeild karla í körfubolta. Með sigrinum eiga Þórsarar ágætis möguleika á að halda sæti sínu í deildinni en þeir mæta ÍR á heimavelli í feiknarlega mikilvægum leik nk. fimmtudag. Ekki er mikið um leikinn sjálfann að segja því Þó...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hvetur-alla-til-ad-tja-hug-sinn-um-sameiningu
Hvetur alla til að tjá hug sinn um sameiningu Ákveðið hefur verið að kjósa um sameiningu Akureyrar og Grímseyjar samhliða Alþingiskosningum sem verða í lok apríl. Hjalti Jón Sveinsson bæjarfulltrúi á Akureyri hafði gert ýmsa fyrirvara um sameiningu þessara tveggja sveitarfélaga en hann hvetur alla til að tjá hug sinn í...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/verkefnastadan-hja-slippnum-med-allra-besta-moti
Verkefnastaðan hjá Slippnum með allra besta móti Verkefnastaðan hjá Slippnum Akureyri er með allra besta móti um þessar mundir og útlitið næstu vikur og mánuði er gott, að sögn Antons Benjamínssonar framkvæmdastjóra. "Þessi árstími hefur oft verið þungur en árið fer vel af stað og það er mjög mikið að gera, sem hefur þ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nyi-midbaerinn-a-akureyri
Nýi miðbærinn á Akureyri Tillögur að nýju deiliskipulagi fyrir miðbæinn á Akureyri voru kynntar í Amtsbókasafninu á dögunum og mættu rúmlega 100 manns á safnið. Þar gerðu þau Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri, Robin Sutherland frá Graeme Massie Architects og Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri grein fyrir skipu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/agaetlega-gengur-ad-afla-hraefnis-en-afurdasala-verid-audveldari
Ágætlega gengur að afla hráefnis en afurðasala verið auðveldari Ágætlega hefur gengið að afla hráefnis fyrir landvinnslu Brims hf. á Akureyri það sem af er árinu. Aflinn kemur af eigin skipum félagsins, sem hafa fiskað ágætlega á árinu, úr beinum viðskiptum við báta og af markaði. "Sala sjávarafurða hefur oft verið auð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-vann-gridarlega-mikilvaegan-sigur-a-tindastol
Þór vann gríðarlega mikilvægan sigur á Tindastól Þórsarar unnu í kvöld gríðarlega mikilvægan útisigur á Tindastóli á Sauðárkróki í Iceland Expressdeild karla í körfubolta. Sigurinn, sem var sá fyrsti hjá Þór í deildinni síðan í lok nóvember, gefur liðinu góða von á því að halda sæti í sínu í deildinni en liðið er eftir...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/haerra-hlutfall-atvinnulausra-a-akureyri-i-hlutastarfi
Hærra hlutfall atvinnulausra á Akureyri í hlutastarfi Mun hærra hlutfall þeirra sem skráðir eru atvinnulausir á Akureyri hafa hlutastarf á móti atvinnuleysisbótum, en á landsvísu. Hlutfallið er um 32%, en alls eru tæplega 1200 manns skráðir atvinnulausir á Akureyri nú, þar af eru um 700 alveg án atvinnu, en aðrir hafa ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/unnid-verdi-ad-endurskipulagningu-gatna-og-umferdarmala-i-hrisey
Unnið verði að endurskipulagningu gatna og umferðarmála í Hrísey Formaður hverfisráðs Hríseyjar hefur sent erindi til skipulagsnefndar Akureyrar, þar sem óskað er eftir því að hafin verði vinna við endurskipulagningu gatna og umferðarmála í Hrísey, með það að markmiði að færa umferð og umhverfi nær vistvænum áherslum m...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tm-faerir-skidasvaedinu-i-hlidar-fjalli-50-skidahjalma-ad-gjof
TM færir skíðasvæðinu í Hlíðar- fjalli 50 skíðahjálma að gjöf Tryggingamiðstöðin færði nú fyrir stundu skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli 50 skíðahjálma að gjöf. Um er að ræða skíðahjálma fyrir börn, sem starfsfólk í fjallinu getur lánað börnum sem þangað koma á bretti eða skíði, endurgjaldslaust. Með þessu vill TM leggja sit...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kammerkor-nordurlands-heldur-tonleika-sunnan-heida
Kammerkór Norðurlands heldur tónleika sunnan heiða Um helgina heldur Kammerkór Norðurlands tónleika sunnan heiða. Á laugardag 28. febrúar kl. 15:00 syngur kórinn í safnaðarheimilinu Vinaminni á Akranesi og sama kvöld í Selfosskirkju kl. 20:30. Sunnudaginn 1. mars kl. 17:00 syngur kórinn svo í Langholtskirkju í samstarf...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/motmaelaganga-fra-samkomu-husinu-nidur-a-radhustorg
Mótmælaganga frá Samkomu- húsinu niður á Ráðhústorg Á morgun, laugardaginn 28. febrúar, verður mótmælaganga frá Samkomuhúsinu niður á Ráðhústorg á Akureyri kl 15.00. Á torginu munu Huginn Freyr Þorsteinnson og Þórarinn Hjartarson taka til máls og í lokin munu þátttakendur hugleiða réttlæti. Forsvarsmenn göngunnar hafa ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fleiri-hafa-sott-laugarnar-a-akureyri-ad-undanfornu
Fleiri hafa sótt laugarnar á Akureyri að undanförnu Alls komu um 330 þúsund gestir í Sundlaug Akureyrar á liðnum ári, um 30 þúsund fleiri en árið á undan. Aðsókn í Glerárlaug var líka með ágætum, þangað komu um 60 þúsund gestir til að synda og í Hrísey voru skráðir um 6000 gestir á liðnu ári. Aðsókn í sundlaugar jókst ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gylfi-thorhallsson-skakmeistari-akureyrar-2009
Gylfi Þórhallsson skákmeistari Akureyrar 2009 Gylfi Þórhallsson varð skákmeistari Akureyrar þegar hann sigraði á Skákþingi Akureyrar sem er nýlokið. Gylfi hlaut 7 vinninga af 7 mögulegum. Eymundur Eymundsson varð annar með 5,5 vinninga. Í 3.-5. sæti urðu Sindri Guðjónsson, Guðmundur Freyr Hansson og Sveinn Arnarsson me...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/logi-mar-bydur-sig-fram-i-1-3-saeti-hja-samfylkingunni
Logi Már býður sig fram í 1.-3. sæti hjá Samfylkingunni Logi Már Einarsson arkitekt hefur ákveðið að bjóða sig fram í 1.-3. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi en ekki aðeins í 3. sæti, líkt og tilkynnt var upphaflega. Logi er 44 ára arkitekt búsettur á Akureyri, kvæntur Arnbjörgu Sigurðardóttur, lö...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyringar-og-eyjamenn-fengu-haestu-styrkina-ur-ferdasjodi
Akureyringar og Eyjamenn fengu hæstu styrkina úr Ferðasjóði Akureyringar og Eyjamenn fengu hæstu styrkina þegar Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands úthlutaði í dag styrkjum úr Ferðasjóði íþróttafélaga vegna keppnisferða sem farnar voru á skilgreind mót á árinu 2008. Að þessu sinni var úthlutað 59 milljónum króna til 123...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/komid-verdi-upp-mottoku-stodvum-atvr-i-hverjum-landsfjordungi
Komið verði upp móttöku- stöðvum ÁTVR í hverjum landsfjórðungi Kristján Þór Júlíusson alþingismaður hefur lagt fram á Alþingi tillögu til þingályktunar um jöfnun samkeppnisstöðu framleiðslufyrirtækja og styrkingu framleiðslustarfa á landsbyggðinni með endurskoðun á reglum ÁTVR. Fyrirtækið er aðeins með eina móttökustöð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/um-10-felaga-i-fvsa-an-vinnu-eda-i-skertu-starfshlutfalli
Um 10% félaga í FVSA án vinnu eða í skertu starfshlutfalli Um 10% félagsmanna í Félagi verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni er ýmist alveg án atvinnu eða býr við skert starfshlutfall. "Okkar félagsmenn hafa ekki farið varhluta af erfiðu þjóðfélagsástandi og atvinnuleysi, en ástandið í samfélaginu bitnar a...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/svinabaendur-fengu-godar-vid-tokur-og-skilningur-er-fyrir-hendi
Svínabændur fengu góðar við- tökur og skilningur er fyrir hendi Ingvi Stefánsson bóndi í Teigi í Eyjafjarðarsveit og formaður Svínaræktarfélags Íslands, segir að viðtökur forsvarsmanna félagins, sem í liðinni viku hittu nefndarmenn í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd að máli, hafi verið góðar. Hann segir mikinn skilnin...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sjo-milljonir-krona-til-thatttoku-i-6-verkefnum
Sjö milljónir króna til þátttöku í 6 verkefnum Stjórn Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar úthlutaði á dögunum þátttökuframlögum úr Vaxtarsamningi Eyjafjarðar 2008-2010. Er þetta fyrsta úthlutun af þremur á þessu ári. Á samningstímanum er varið 90 milljónum króna úr ríkissjóði í þeim tilgangi að efla nýsköpun atvinnulífsin...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/asprent-still-og-ejs-i-reykjavik-endurnyja-thjonustusamning
Ásprent Stíll og EJS í Reykjavík endurnýja þjónustusamning Ásprent Stíll ehf. og EJS í Reykjavík hafa endurnýjað samning sem felur í sér víðtæka þjónusta Ásprents og Stell við EJS í Reykjavík og á Akureyri á sviði prentþjónustu. Samningurinn tekur m.a. til prentunar nafnspjalda, reikninga, greiðsluseðla, afgreiðsluseðl...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gera-athugasemd-vid-ad-starfs-menn-barnahuss-reki-salfraedistofu
Gera athugasemd við að starfs- menn barnahúss reki sálfræðistofu Félag ábyrgra foreldra á Akureyri hefur sent Barnaverndarstofu bréf vegna tveggja starfsmanna barnahúss sem nýlega opnuðu einkarekna sálfræðistofu. Sálfræðistofan sem starfsmennirnir stofnuðu veitir m.a þolendum kynferðisbrota og annars ofbeldis sálfræðil...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/syngjandi-glod-born-um-allan-bae
Syngjandi glöð börn um allan bæ Það lifnaði heldur betur yfir bæjarlífinu á Akureyri snemma í morgun, öskudag. Yngstu bæjarbúarnir rifu sig á fætur fyrir allar aldir, klæddu sig í hina ýmsu búninga, máluðu sig í framan með aðstoð þeirra fullorðnu og héldu út í daginn í misjafnlega stórum hópum. Börnin hafa heimsótt fyr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oskar-thor-radinn-verkefnastjori-landsmot-umfi-a-akureyri
Óskar Þór ráðinn verkefnastjóri Landsmót UMFÍ á Akureyri Óskar Þór Halldórsson hefur verið ráðinn í starf verkefnastjóra Landsmóts UMFÍ á Akureyri næsta sumar og mun hann hefja störf 1. mars nk. Verkefni hans verður að að stýra undirbúningi og framkvæmd Landsmótsins ásamt Ómari Braga Stefánssyni, framkvæmdastjóra mótsi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ungir-framsoknarmenn-a-akureyri-stydja-hoskuld
Ungir framsóknarmenn á Akureyri styðja Höskuld Félag ungra framsóknarmanna á Akureyri, FUFAN, hefur sent frá ályktun um aðkomu Höskuldar Þórhallssonar að seðlabankafrumvarpinu og lýsir félagið yfir fullum stuðningi við Höskuld í málinu. Höskuldur hafi marglýst því yfir að hann vilji breytingar á stjórn Seðlabankans en ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gudbergur-saekist-eftir-2-3-saeti-a-lista-vg-i-na-kjordaemi
Guðbergur sækist eftir 2.-3. sæti á lista VG í NA-kjördæmi Guðbergur Egill Eyjólfsson hefur ákveðið að gefa kost á sér í 2.-3. sæti á lista Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í forvali flokksins í Norðausturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar nú í vor. "Það er mín vissa að grunnatvinnuvegir þjóðarinnar sjávarútvegur...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/agnes-gefur-kost-a-ser-i-1-2-saeti-samfylkingar-i-na-kjordaemi
Agnes gefur kost á sér í 1.-2. sæti Samfylkingar í NA-kjördæmi Agnes Arnardóttir, sjálfstætt starfandi atvinnurekandi á Akureyri, gefur kost á sér í 1.-2. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar í vor. Agnes hefur verið búsett á Akureyri síðastliðin 9 ár. Hún hefur víðtæka rey...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/husaleiga-hja-festa-mun-ekki-haekka-naestu-thrja-manudi
Húsaleiga hjá FÉSTA mun ekki hækka næstu þrjá mánuði Stjórn Félagsstofnunar stúdenta á Akureyri, FÉSTA, hefur fundað um ástandið á leigumarkaðnum en ljóst er að leiguverð á almennum markaði hefur lækkað undanfarið og er í sumum tilfellum orðið sambærilegt leigu hjá FÉSTA og hægt er að finna dæmi um enn meiri lækkun. Vi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/helena-gefur-kost-a-ser-i-3-4-saeti-a-lista-samfylkingarinnar
Helena gefur kost á sér í 3. - 4. sæti á lista Samfylkingarinnar Helena Þ. Karlsdóttir, lögfræðingur og bæjarfulltrúi á Akureyri gefur kost á sér í 3. - 4. sæti á lista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar. Hún er bæjarfulltrúi á Akureyri, ritari Samfylkingarinnar og situr í stjórn og ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thjodlendukrofur-rikisins-hluti-af-graedgisvaedingu-samfelagsins
Þjóðlendukröfur ríkisins hluti af græðgisvæðingu samfélagsins „Þjóðlendumálið er einn angi græðgisvæðingar sem á endanum leiddi mikla ógæfu yfir þjóðina. Ríkisvaldið réðst að sjálfum eignarréttinum, einum af hornsteinum samfélagsins með öfgafullum og siðlausum kröfum án þess að spyrja um afleiðingar og herkostnað. Land...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/abyrgd-stjorna-og-stjornarmanna-hlutafelaga-til-umraedu
Ábyrgð stjórna og stjórnarmanna hlutafélaga til umræðu Undanfarið hefur mikið verið rætt um ábyrgð stjórna og stjórnarmanna hlutafélaga í kjölfar bankahrunsins og vanda fyrirtækja sem hafa farið mikinn á liðnum árum. Einnig hefur vakið athygli að íslensk fyrirtæki virðast sum hver vera farin að tryggja stjórnarmenn sín...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/umferdarohoppum-faekkadi-a-sidasta-ari
Umferðaróhöppum fækkaði á síðasta ári Eftir nokkurra ára stöðuga fjölgun umferðaróhappa fækkaði tjónum umferðinni í fyrra um 5% samkvæmt samantekt Forvarnahússins. Það gleðilega við tölurnar er að slysum á fólki í umferðinni fækkaði mun meira eða um 14.2%. Á sama tíma fjölgaði ökutækjum um 1,25% samkvæmt tölum Umferðar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kristin-linda-saekist-eftir-3-saeti-hja-sjalfstaedisflokknum
Kristín Linda sækist eftir 3. sæti hjá Sjálfstæðisflokknum Kristín Linda Jónsdóttir Miðhvammi í Þingeyjarsveit sækist eftir 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi í komandi alþingiskosningum. Kristín Linda vill vinna að því að skapa heiðarlegt og öruggt efnahagsumhverfi fyrir fólk, fjölskyldur og...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/yfir-50-lodaeigendur-a-akureyri-fengid-vidvorunarbref
Yfir 50 lóðaeigendur á Akureyri fengið viðvörunarbréf Skipulagstjórinn á Akureyri hefur sent yfir 50 lóðaeigendum á Akureyri viðvörunarbréf, þar sem m.a. öryggisþáttum er ábótavant. Um er að ræða 47 lóðir í Naustahverfi, 2 lóðir við Klettaborg, eina lóð í Síðuhverfi og eina lóð í Giljahverfi. Eins og fram hefur komið e...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/atjan-taka-thatt-i-profkjori-samfylkingarinnar-i-nordausturkjordaemi
Átján taka þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi Í dag laugardaginn 21. febrúar kl. 17 rann út frestur til að skila inn framboðum í opið prófkjör Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi. Alls verða þátttakendur í prófkjörinu 18 talsins og af þeim hópi er Kristján Möller núverandi oddviti flokksins í kj...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrsta-brautskraningin-fra-res-orkuskola-a-akureyri
Fyrsta brautskráningin frá RES Orkuskóla á Akureyri Fyrsta brautskráning RES Orkuskóla á Akureyri fór fram við hátíðlega athöfn í Ketilhúsinu á Akureyri í gær. Í heild voru þrjátíu nemendur brautskráðir með M.Sc. gráðu í endurnýjanlegum orkufræðum af þremur námsbrautum en nemarnir koma frá níu þjóðlöndum. Námið hefur s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/islenskur-matur-i-sokn
Íslenskur matur í sókn Kjarnafæði á Akureyri hefur verið starfrækt frá árinu 1985 og er í dag eitt af stærri matvælavinnslufyrirtækjum landsins. Höfuðstöðvar Kjarnafæðis eru á Akureyri en fyrirtækið er einnig með umfangsmikla kjötvinnslu á Svalbarðseyri. Hjá fyrirækinu starfa að jafnaði um 120 manns. Þá rekur Kjarnafæð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/buist-vid-fjolda-folks-a-skidasvaedid-i-hlidarfjalli
Búist við fjölda fólks á skíðasvæðið í Hlíðarfjalli Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli er opið í dag frá kl.10 - 16. Í morgun kl. 09 var þar logn og þriggja stiga hita. Mikill fjöldi fólks hefur verið í fjallinu að undanförnu og um helgina er búist við fjölmenni en margir foreldrar taka sér frí með börnum sínum, þar sem nú eru...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/herdis-bydur-sig-fram-i-3-4-saeti-hja-samfylkingunni
Herdís býður sig fram í 3.-4. sæti hjá Samfylkingunni Herdís Björk Brynjarsdóttir 25 ára, náms- og verkakona á Dalvík, hefur ákveðið að bjóða sig fram í prófkjöri Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi. Hún óskar eftir stuðningi í 3.-4. sæti í prófkjörinu. Herdís Björk vann sem verkstjóri í frystihúsi Samherja á Dalvík...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bernhard-saekist-eftir-5-8-saeti-a-lista-framsoknarflokksins
Bernharð sækist eftir 5.-8. sæti á lista Framsóknarflokksins Bernharð Arnarson hefur ákveðið að sækjast eftir 5. - 8. sæti á framboðslista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi í næstu alþingiskosningum. Bernharð er búfræðingur og bóndi að Auðbrekku í Hörgárdal, þar sem hann rekur blandaðan búrekstur ásamt eiginkonu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/allt-ad-30-ny-storf-a-akureyri-a-thessu-ari
Allt að 30 ný störf á Akureyri á þessu ári ITH þjónustufyrirtæki á Akureyri er í samstarfi við Kelly Services sem er eitt stærsta atvinnumiðlunarfyrirtæki Noregs, með 2.800 skrifstofur í 32 löndum. Kelly Services miðlar árlega störfum til yfir 700.000 manns í hinum ýmsu atvinnugreinum. Samstarf ITH og Kelly Services ge...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/er-sundlaugin-a-thelamork-ad-verda-heimsfraeg
Er sundlaugin á Þelamörk að verða heimsfræg? Forsíðu nýjasta hefti atlantica, sem er flugtímarit Icelandair, prýðir mynd af sundlauginni á Þelamörk. Þar með má ætla að allir sem koma til landsins með flugvélum flugfélagsins núna á útmánuðum virði fyrir sér myndina af þessu fallega mannvirki og því glæsilega umhverfi se...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikilvaegt-ad-skilarettur-verslana-verdi-afnumin
Mikilvægt að skilaréttur verslana verði afnumin Almennt er staða í svínarækt slæm, að sögn Ingva Stefánssonar formanns Svínaræktarfélags Íslands og bónda í Teigi í Eyjafjarðarsveit. Áætlanir sem menn gerðu til framtíðar fyrir fáum misserum hafa ekki gengið eftir og kemur þar einkum til hrun fjármálakerfisins og afleit ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stor-dagur-i-leikhuslifinu-i-eyjafirdi
Stór dagur í leikhúslífinu í Eyjafirði Í dag föstudag, er stór dagur í leiklistarlífinu í Eyjafirði, en í kvöld eru frumsýningar hjá tveimur leikfélögum á svæðinu. Leikfélag Akureyrar frumsýnir uppstandið "Fúlar á móti" í nýrri íslenskri útfærslu Gísla Rúnars Jónssonar og Freynvangsleikhúsið í Eyjafjarðarsveit frumsýni...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrsta-brautskraningarathofn-res-orkuskola-a-akureyri
Fyrsta brautskráningarathöfn RES Orkuskóla á Akureyri Á morgun, föstudaginn 20. febrúar kl. 16.30, verður fyrsta brautskráningarathöfn RES Orkuskóla á Akureyri. Við athöfnina, sem fram fer í Ketilhúsinu, brautskrást 30 meistaranemar frá níu löndum með M.Sc. gráðu í endurnýjanlegum orkufræðum. Þetta er fyrsta meistaraná...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorsarar-i-erfidri-stodu-eftir-tap-gegn-njardvik
Þórsarar í erfiðri stöðu eftir tap gegn Njarðvík Þórsarar eru komnir í verulega slæma stöðu í Iceland Expressdeild karla í körfubolta eftir tap í kvöld á heimavelli gegn Njarðvík. Þórsarar voru mun sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og höfðu 13 stiga forystu í hálfleik, 50-37. Hreint með ólíkindum er hins vegar að verða...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rolegt-i-fasteignavidskiptum-a-akureyri
Rólegt í fasteignaviðskiptum á Akureyri Einungis 6 kaupsamningum varð þinglýst á Akureyri á tímabilinu frá 30. janúar til 12. febrúar. Í liðinni viku var fjórum kaupsamningum þinglýst, allir voru þeir um eignir í fjölbýli og var heildarveltan um 46 milljónir króna og meðalupphæð á samning 11,6 milljónir. Í vikunni á un...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/komid-verdi-a-namssambandi-milli-tveggja-kvenna
Komið verði á námssambandi milli tveggja kvenna Akureyrardeild Rauðkross Íslands mun á næstunni hefjast handa við að koma á fót verkefni sem nefnist „Félagsvinur - mentor er málið". Hugmyndafræði verkefnisins byggir á nokkurs konar námssambandi milli tveggja kvenna sem báðar njóta góðs af, önnur er frá heimalandinu (me...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gisli-saekist-eftir-4-6-saeti-a-frambodslista-samfylkingarinnar
Gísli sækist eftir 4.-6. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar Gísli Baldvinsson, náms- og starfsráðgjafi á Akureyri, sækist eftir 4.-6. sæti á lista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi í næstu kosningum. Gísli hefur starfað lengi að félagsmálum. Hann var formaður Kennarafélags Reykjavíkur og sat í stjórn Kennarasa...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/benedikt-saekist-eftir-forystusaeti-hja-samfylkingunni
Benedikt sækist eftir forystusæti hjá Samfylkingunni Benedikt Sigurðarson framkvæmdastjóri á Akureyri gefur kost á sér til forystu á lista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi og sækist eftir einu af efstu sætunum. "Ég teldi mjög vænlegt til árangurs að fá að deila öðru af tveimur forystusætunum með öflugri konu sem ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/logi-mar-bydur-sig-fram-i-thridja-saeti-hja-samfylkingunni
Logi Már býður sig fram í þriðja sæti hjá Samfylkingunni Logi Már Einarsson arkitekt hefur ákveðið að bjóða sig fram í þriðja sætið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi. "Ég er 44 ára arkitekt, búsettur á Akureyri, kvæntur Arnbjörgu Sigurðardóttur, lögmanni. Ég á tvö börn; Úlf 11 ára og Hrefnu 4 ára. Ég r...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/atvinnulausir-a-akureyri-fa-fritt-i-sund
Atvinnulausir á Akureyri fá frítt í sund Íþróttaráð hefur samþykkt að veita Akureyringum sem skráðir eru að fullu sem atvinnuleitendur, frían aðgang í sundlaugar Akureyrarbæjar. Tilboð þetta gildir alla virka daga frá kl. 09:00 til 14:00 tímabilið 1. mars til 15. maí 2009. Hugmyndin um að bjóða atvinnulausum frítt í su...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ny-syn-a-midbaeinn-a-akureyri
Ný sýn á miðbæinn á Akureyri Akureyrarbær og Graeme Massie Architects hafa á síðustu misserum unnið markvisst að því að móta verðlaunahugmyndir úr hugmyndasamkeppninni Akureyri í öndvegi. Nú liggur fyrir tillaga að nýju deiliskipulagi og er óskað eftir viðbrögðum íbúa og atvinnurekenda við þeim. Markmiðið er að miðbæri...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sigurdur-baud-laegst-i-fram-kvaemdir-a-oddeyrarbryggju
Sigurður bauð lægst í fram- kvæmdir á Oddeyrarbryggju Alls bárust tólf tilboð í framkvæmdir á Oddeyrarbryggju á Akureyri en tilboðin voru opnuð í gær. Sjö tilboð voru undir kostnaðaráætlun, sem var upp á rúmar 9,8 milljónir króna. Lægsta tilboð átti Sigurður B. Björnsson á Akureyri, 6,8 milljónir króna, eða um 69% af k...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baejarstjorn-stydur-hugmyndir-um-rannsoknarboranir-a-theistareykjum
Bæjarstjórn styður hugmyndir um rannsóknarboranir á Þeistareykjum Meirihluti bæjarstjórnar Akureyrar styður eindregið hugmyndir um að ríkisstjórnin beiti sér fyrir því að hægt verði að ráðast í rannsóknarboranir á Þeistareykjum sumarið 2009. Bæjarstjórn lítur svo á að það beri að rannsaka auðlindir þjóðarinnar og nýta ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyri-i-bikarurslit-i-2-flokki-i-handbolta
Akureyri í bikarúrslit í 2. flokki í handbolta Strákarnir í 2. flokki í handboltaliði Akureyrar voru nú rétt í þessu að tryggja sér sæti í bikarúrslitum 2. flokks með öruggum sigri á Selfossi í Íþróttahúsi Síðuskóla. ,,Þetta hefur mikla þýðingu fyrir okkur og er eitthvað sem við höfum stefnt að alveg síðan í sumar. Nú ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jonina-ros-gefur-kost-a-ser-i-1-eda-2-saeti-hja-samfylkingunni
Jónína Rós gefur kost á sér í 1. eða 2. sæti hjá Samfylkingunni Jónína Rós Guðmundsdóttir, framhalsskólakennari og formaður bæjarráðs Fljótsdalshéraðs, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 1. - 2. sæti á lista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. Hún er fimmtug, þriggja barna móðir og b...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tuttugu-manns-saekjast-eftir-saeti-a-lista-vg-i-nordausturkjordaemi
Tuttugu manns sækjast eftir sæti á lista VG í Norðausturkjördæmi Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstrihreyfingar græns framboðs er sá eini sem aðeins býður sig fram í 1. sæti á lista flokksins í Norðausturkjördæmi. Framboðsfrestur rann út í gær og sækjast 20 manns eftir því að skipa efstu sæti á lista flokksins, 13...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baru-25-gaskuta-ut-ur-husinu-eftir-ad-eldurinn-kom-upp
Báru 25 gaskúta út úr húsinu eftir að eldurinn kom upp Þorbjörn Haraldsson slökkviliðsstjóri á Akureyri segir að þótt húsið við Hrafnabjörg á Akureyri sé illa farið, eftir brunann í morgun, þegar gassprenging varð þar inni, hafi litlu mátt muna að enn verr færi. Slökkviliðsmenn báru 25 gaskúta af öllum stærðum út úr hú...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gassprenging-i-einbylishusi-a-akureyri
Gassprenging í einbýlishúsi á Akureyri Einbýlishús úr timbri við Hrafnabjörg á Akureyri er stórskemmt ef ekki ónýtt eftir að upp kom þar eldur nú fyrir stundu, þegar gassprenging varð inni í húsinu. Einn maður var inni í húsinu þegar sprengingin varð, hann komst út af sjálfsdáðum en var fluttur á sjúkrahús með brunasár...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sigurgeir-i-frambodi-til-formanns-landssambands-kuabaenda
Sigurgeir í framboði til formanns Landssambands kúabænda Sigurgeir Hreinsson bóndi á Hríshóli í Eyjafjarðarsveit og formaður Búnaðarsambands Eyjafjarðar, tilkynnti á fundi Búgreinaráðs BSE í nautgriparækt í Hlíðarbæ í dag, að hann hyggðist bjóða sig fram til formennsku í Landssambandi kúabænda á komandi aðalfundi, sem ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sigbjorn-gunnarsson-er-latinn
Sigbjörn Gunnarsson er látinn Sigbjörn Gunnarsson fyrrverandi alþingismaður og sveitarstjóri er látinn, 57 ára að aldri. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri í gær. Sigbjörn var kjörinn á Alþingi fyrir Alþýðuflokkinn í Norðurlandskjördæmi eystra árið 1991 og sat á þingi til ársins 1995 og var m.a. formaður fjárlaganefnd...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eyjafjardarsveit-i-3-saeti-vid-val-a-draumasveitarfelaginu
Eyjafjarðarsveit í 3. sæti við val á draumasveitarfélaginu Eyjafjarðarsveit er útnefnt í 3. sæti við val á draumasveitarfélaginu árið 2008, vegna ársins 2007, í Vísbendingu, vikuriti um viðskipti og efnahagsmál. Vísbending gefur sveitarfélögunum einkunn samkvæmt nokkrum mælikvörðum sem vikuritið gengur út frá og fær Ey...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyrarbaer-greidi-slokkvilids-manni-3-milljonir-krona-i-baetur
Akureyrarbær greiði slökkviliðs- manni 3 milljónir króna í bætur Akureyrarbær hefur í Héraðsdómi Norðurlands eystra, verið dæmdur til að greiða Sigurði Lárusi Sigurðssyni slökkviliðsmanni, tæpar 3 milljónir króna í bætur og 900.000 krónur í málskostnað. Sigurður hafði fengið stöðu hjá Slökkviliði Akureyrar í mars 2007 ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/telja-retta-ad-fresta-opnunar-akvaedum-kjarasamninga
Telja rétta að fresta opnunar- ákvæðum kjarasamninga Formenn aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands hafa verið boðaðir til fundar í dag, mánudaginn 16. febrúar, til að ræða hugmynd miðstjórnar og samninganefndar ASÍ um að fresta endurskoðun kjarasamninga og þar með þeim launahækkunum til félagsmanna á hinum almenna vinnu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skoladeild-tharf-ad-laekka-kostnad-vid-rekstur-grunnskolanna
Skóladeild þarf að lækka kostnað við rekstur grunnskólanna "Það lá ljóst fyrir að lækka þyrfti kostnað og augljóslega getum við ekki tekið neitt af okkar lögbundna kostnaði," segir Gunnar Gíslason framkvæmdastjóri skóladeildar Akureyrarbæjar. Kostnaður við rekstur skóladeildar er um 4 milljarðar á ári, sem er um helmin...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/soffia-saekist-eftir-odru-saeti-a-lista-sjalfstaedisflokksins
Soffía sækist eftir öðru sæti á lista Sjálfstæðisflokksins Soffía Lárusdóttir, hefur ákveðið að sækjast eftir öðru sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar í vor. Soffía er forseti bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs og framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Au...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrirtaekd-ith-auglysir-eftir-folki-til-starfa-a-akureyri-og-i-noregi
Fyrirtækð ITH auglýsir eftir fólki til starfa á Akureyri og í Noregi Þjónustufyrirtækið ITH, sem staðsett er á Akureyri, hefur auglýst eftir fólki með góða kunnáttu í norsku, sænsku eða dönsku, til starfa í þjónustuverum, Meðal viðskiptavina ITH eru stórfyrirtæki í Noregi sem sækjast eftir íslensku starfsfólki til star...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/heldur-meiri-umferd-a-thjod-vegunum-i-januar-nu-en-i-fyrra
Heldur meiri umferð á þjóð- vegunum í janúar nú en í fyrra Umferðin í janúar 2009 reyndist meiri á 15 talningarstöðum Vegagerðarinnar á Hringvegi en í janúar 2008. Nemur aukningin 4,3 prósentum. Umferðin eykst nema á Norðurlandi og sérstaklega á Austurlandi þar sem hún dregst saman um tæp 26%. Sé tekið mið af innbyrðis...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/daggarlundur-verdi-nafn-a-nyrri-gotu-fra-bralundi
Daggarlundur verði nafn á nýrri götu frá Brálundi Skipulagsnefnd Akureyrarbæjar hefur samþykkt tillögu nafnanefndar þess efnis að ný gata frá Brálundi verði kölluð Daggarlundur og leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði auglýst samkvæmt ákvæðum skipulags- og byggingarlaga. Á síðasta fundi skipulagsnefndar lagði sk...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/einungis-tvaer-myndbandaleigur-starfandi-a-akureyri
Einungis tvær myndbandaleigur starfandi á Akureyri Myndabandaleigum hefur fækkað mikið á Akureyri síðastliðin ár. Fyrir einungis tveimur árum voru þær 5-6 talsins en nú eru aðeins tvær eftir, Sprettur-inn í Kaupangi og Vídeóbarinn í Sunnuhlíð. Helgi Sigurðsson, eigandi Sprettsins segir að þegar best lét, er hann hóf si...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kathor-ur-leik-i-bikarnum
KA/Þór úr leik í bikarnum FH stúlkur eru komnar í úrslitaleik Eimskipsbikarkeppninnar í handbolta eftir öruggan sigur á kornungu liði KA/Þórs í KA-heimilinu í dag 36-21. KA/Þór hékk í FH framan af leik en þegar gestirnir tóku öflugustu skyttu heimamanna Örnu Valgerði Erlingsdóttur úr umferð fljótlega í fyrri hálfleik f...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gridarlegur-fjoldi-folks-a-skidum-og-brettum-i-hlidarfjalli
Gríðarlegur fjöldi fólks á skíðum og brettum í Hlíðarfjalli Gríðarlegur fjöldi fólks hefur verið á skíðum og brettum í Hlíðarfjalli í dag. Guðmundur Karl Jónsson forstöðumaður skíðasvæðisins sagði að þetta væri lang stærsti dagurinn í vetur og hann áætlaði að um 2.500 manns hefðu komið í heimsókn. Hann sagði að þessi d...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/valgerdur-sverrisdottir-aetlar-ekki-i-frambod-i-vor
Valgerður Sverrisdóttir ætlar ekki í framboð í vor Valgerður Sverrisdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi, tilkynnti aukakjördæmaþingi flokksins í Mývatnssveit í dag að hún muni ekki bjóða sig fram til þings á næsta kjörtímabili. Valgerður hefur verið á þingi í 22 ár, henni finnst að sinni vakt sé ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/syning-a-othekktum-ljosmyndum-minjasafnsins-a-akureyri
Sýning á óþekktum ljósmyndum Minjasafnsins á Akureyri Ljósmyndasýningin "Þekkir þú...áningarstaðinn?" verður opnuð í Minjasafninu á Akureyri í dag, laugardaginn 14. febrúar kl. 14.00. Sýningin samanstendur af 80 óþekktum myndum úr safni Minjasafnsins. Á henni má m.a. sjá nokkrar litmyndir sem talið er að séu meðal þeir...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/adstaedur-til-skidaidkunnar-med-besta-moti-i-hlidarfjalli
Aðstæður til skíðaiðkunnar með besta móti í Hlíðarfjalli Opið er í Hlíðarfjalli í dag, laugardaginn 14. febrúar frá kl. 10-16. Veðrið kl. 8:30 var -2 gráður og logn. Nánast heiðskýrt og sólroði í austri yfir Mývatni. Aðstæður til skíða- og snjóbrettaiðkunnar er með besta móti. Fjöslkyldur virðast vera á faraldsfæti því...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-vann-ka-i-urslitaleik-soccerademotsins-i-knattspyrnu
Þór vann KA í úrslitaleik Soccerademótsins í knattspyrnu Þór vann KA 1-0 í úrslitaleik Soccerademótsins í knattspyrnu í Boganum í kvöld. Einar Sigþórsson skoraði mark Þórs með glæsilegri spyrnu snemma leiks og reyndist það eina mark leiksins. Um helgina fara fram leikir um önnur sæti í mótinu. Magni og Dalvík/Reynir le...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kathor-maetir-fh-i-undanurslitum-bikarkeppninnar-i-handbolta
KA/Þór mætir FH í undanúrslitum bikarkeppninnar í handbolta Á morgun laugardag kl.16:00 er á dagskrá sennilega einn stærsti kvennahandboltaleikur sem fram hefur farið hin seinni ár á Akureyri, en þá tekur Þór/KA á móti FH í undanúrslitum Eimskipsbikarkeppninnar í KA-heimilinu. KA/Þór spilar í 2. deild undir stjórn Stef...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/urbaetur-verdi-gerdar-a-inn-keyrslu-ad-heimavist-ma-og-vma
Úrbætur verði gerðar á inn- keyrslu að heimavist MA og VMA Skipulagsnefnd Akureyrarbæjar hefur óskað eftir því við framkvæmdaráð að úrbætur verði gerðar á innkeyrslu að heimavist MA-VMA frá Þórunnarstræti og að gönguleiðir milli skólanna frá heimavist MA-VMA verði gerðar skýrari og öruggari. Þá telur skipulagsnefnd að ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/undirbuningur-vegna-althingis-kosninga-i-fullum-gangi
Undirbúningur vegna alþingis- kosninga í fullum gangi Um helgina halda þrír stjórnmálaflokkar í Norðausturkjördæmi fundi, þar sem undirbúningur vegna komandi alþingiskosninga verður m.a. á dagskrá. Framsóknarmenn halda aukakjördæmisþing í Mývatnssveit á morgun laugardag, aðalfundur kjördæmisráðs Frjálslynda flokksins v...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/petra-sigradi-i-arlegri-songkeppni-vma
Petra sigraði í árlegri söngkeppni VMA Petra Breiðfjörð Tryggvadóttir sigraði í árlegri söngkeppni Verkmenntaskólans á Akureyri, sem fram fór í skólanum í gærkvöld. Hún söng lagið Halelujah, eftir Leonard Cohen. Alls voru flutt 28 tónlistaratriði í keppninni og var rífandi stemmning í troðfullri Gryfju skólans.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baejarbuum-bodnir-reitir-til-ad-raekta-matjurtir-naesta-sumar
Bæjarbúum boðnir reitir til að rækta matjurtir næsta sumar "Hugmyndin gengur út á það að nýta land sem er sunnan og vestan við gömlu Gróðararstöðina undir matjurtareiti," segir Hermann Jón Tómasson formaður bæjarráðs en hann hefur kynnt hugmynd um að bjóða bæjarbúum aðgang að matjurtargörðum næsta sumar. Hugmyndina á J...