Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jonatan-og-johannes-liklega-afram-med-akureyri
Jónatan og Jóhannes líklega áfram með Akureyri Akureyri tapaði sínum síðasta leik á tímabilinu gegn Gróttu 18-28 í DHL-deild kvenna í handbolta en leikurinn fór fram í KA-heimilinu. Grótta er með mjög sterkt lið og endaði í öðru sæti deildarinnar, það kom því ekki á óvart að Akureyri ætti við ramman reip að draga enda ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ice-cup-i-krullu-hafid
Ice Cup í krullu hafið Krulludeild Skautafélags Akureyrar, í samstarfi við mörg norðlensk fyrirtæki, heldur í fjórða sinn alþjóðlega krullumótið Ice Cup um helgina. Mótið hófst í morgun og meðal þátttakenda er danska kvennalandsliðið í krullu sem tryggði sér silfurverðlaun á Heimsmeistaramótinu í krullu sem fram fór í ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thriggja-ara-fangelsi-fyrir-likamsaras
Þriggja ára fangelsi fyrir líkamsárás Karlmaður á fimmtugsaldri var í gær dæmdur í Héraðsdómi Norðurlands eystra í þriggja ára fangelsi fyrir stórfellda líkamsárás á fyrrum unnustu sína og einnig á karlmann, en maðurinn var sýknaður af ákærum um manndrápstilraunir. Maðurinn hellti bensíni yfir fyrrum unnustu sína í hús...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/himinha-tilbod-i-menningarhus
Himinhá tilboð í menningarhús Tilboð sem bárust í einstaka verkþætti menningarhússins á Akureyri voru nær undantekningarlaust vel yfir kostnaðaráætlun, og í suma verkþætti voru tilboðin meira en 200% yfir kostnaðaráætluninni. Ljóst er að tilboðum í trésmíðar og múrverk verður ekki tekið en viðræður munu fara fram við t...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrsti-baturinn-sjosettur
Fyrsti báturinn sjósettur Fyrsti báturinn af alls 22 bátum sem Bátasmiðjan Seigla smíðaði fyrir þýskt ferðaþjónustufyrirtæki var sjósettur fyrir stundu. Bátarnir verða að öllum líkindum allir tilbúnir fyrir 15 maí nk. og ætlar þýska ferðaþjónustufyrirtækið að leigja þá út til sjóstangveiði á Vestfjörðum eins áður hefur...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/domarinn-thekkti-okumanninn
Dómarinn þekkti ökumanninn Karlmaður hefur verið dæmdur í 30 þúsund króna sekt fyrir að aka bifreið á 70 km hraða á Hrafnagilsstræti á Akureyri þar sem hámarkshraði er 30 km. Maðurinn neitaði að hafa ekið bifreiðinni en dómarinn kvaðst þekkja manninn á myndum sem lagðar voru fram í réttinum. Atvikið átti sér stað í nóv...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eignir-i-fjolbyli-laekka-i-verdi
Eignir í fjölbýli lækka í verði Samkvæmt upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins var 69 kaupsamningum um fasteignir þinglýst á Akureyri í marsmánuði, einum fleiri en í febrúar. Af þessum 69 eignum voru 33 í fjölbýli, 34 í sérbýli og 2 aðrar eignir. Það sem vekur mesta athygli við skoðun á upplýsingum frá Fasteignamatinu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/allt-fritt-a-amtsbokasafninu
Allt frítt á Amtsbókasafninu Amtsbókasafnið á Akureyri fagnar 180 ára afmæli á morgun, miðvikudag, en það var stofnað 25. apríl árið 1827 af Grími Jónssyni, amtmanni á Möðruvöllum, með dyggum stuðningi frá ýmsum mætum mönnum hérlendis og í Danmörku. Í tilefni þessara tímamóta verður ýmislegt góðgæti að finna á safninu ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sjavarsafn-byggt-a-akureyri
Sjávarsafn byggt á Akureyri? Í dag var stofnað sérstakt félag á Akureyri til undirbúnings þess að í bænum rísi sjávarsafn og rannsóknamiðstöð um menningu og lífríki við Norðurhöf. Safnið yrði mjög umfangsmikið og eitt af meginsöfnum landsins. Fyrstu hugmyndir gera ráð fyrir að safnsvæðið verði allt að 5000 fermetrar að...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/testosteron-radid-utanrikisstefnu
Testósterón ráðið utanríkisstefnu „Hið mikla magn testósteróns, sem hefur svifið yfir vötnum í utanríkisráðuneytinu til þessa, hefur án efa haft áhrif á þau áherslumál sem Ísland hefur sett á oddinn í utanríkismálum í gegnum tíðina. Stundum má segja að þar hafi ekki allaf verið á ferðinni málaflokkar sem ættu að vera f...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sa-getur-ordid-islandsmeistari-i-kvold
SA getur orðið Íslandsmeistari í kvöld! SA sigraði SR í þriðja leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn sl. laugardag með 10 mörkum gegn 6 í stórskemmtilegum leik liðanna í Skautahöllinni í Reykjavík. SA menn fóru hreinlega hamförum í fyrstu lotu og höfðu eftir hana 5-0 forystu. Í annarri lotu jafnaðist leikurinn mikið ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/syknadur-af-kaeru-um-kynferdisofbeldi
Sýknaður af kæru um kynferðisofbeldi Karlmaður hefur í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið sýknaður af ákæru um kynferðisafbrot gagnvart stúlku, en maðurinn var ákærður fyrir að hafa káfað á brjóstum hennar og kynfærum þegar hún var í því ástandi sökum ölvunar og svefndrunga að geta ekki spornað á móti. Konan kærði nau...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hordur-leidir-islandshreyfinguna
Hörður leiðir Íslandshreyfinguna Hörður Ingólfsson markaðsráðgjafi er í fyrsta sæti á lista Íslandshreyfingarinnar - lifandi land, í Norðausturkjördæmi vegna kosninganna til Alþingis í næsta mánuði. Kristín Þyrí Þorsteinsdóttir félagsmálastjóri er í 2. sæti. Í þriðja sæti listans er Davíð Sigurðarson framkvæmdastjóri, ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sigrar-hja-thor-og-thorka
Sigrar hjá Þór og Þór/KA Þórsarar lögðu Leikni frá Fáskrúðsfirði 3-1 í B-deild karla í deildarbikarkeppninni í knattspyrnu um helgina. Leikurinn fór fram í hinni glæsilegu Fjarðabyggðarhöll á Reyðarfirði. Leiknir spilar í 3. deild á Íslandsmótinu næsta sumar og því áttu flestir von á því að Þórsarar sem eru í 1. deild ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/dagny-linda-og-bjorgvin-med-yfirburdi
Dagný Linda og Björgvin með yfirburði Það voru „gullkálfarnir” tveir, þau Dagný Linda Kristjánsdóttir frá Akureyri og Björgvin Björgvinsson frá Dalvík, sem unnu þrefalt á Skíðamóti Íslands í Hlíðarfjalli um helgina. Dagný Linda og Björgvin urðu Íslandmeistarar í stórsvigi, svigi og alpatvíkeppni. „Ég er mjög ánægð með ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/launamalin-endurskodud
Launamálin endurskoðuð Halldór Jónsson, framkvæmdastjóri Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri, segir ekkert eðlilegra en að greiða hjúkrunarfræðingum á FSA sömu laun og greidd eru hjúkrunarfræðingum á Landsspítala - háskólasjúkrahúsi fyrir samskonar vinnu. Þannig svarar hann þeim ásökunum að hjúkrunarfræðingar á FSA séu m...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kea-faerir-fjolmennt-gjof
KEA færir Fjölmennt gjöf Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA, afhenti í dag Fjölmennt á Akureyri tölvubúnað að gjöf. Nýverið flutti Fjölmennt í nýtt húsnæði að Hvannavöllum 14 en þar með lauk langri bið eftir viðunandi húsnæði fyrir starfsemina. Forveri Fjölmenntar á Akureyri var Hvammshlíðarskóli eða Fullorðinsfr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hyggst-logsaekja-baeinn
Hyggst lögsækja bæinn Veitingamaður á Akureyri hefur í hyggju að lögsækja Akureyrarbæ vegna framgöngu bæjarins í lóðamálum við Sómatún í Naustahverfi. Við Sómatún voru auglýstar samkvæmt deiliskipulagi lóðir fyrir einbýlishús á einni hæð. Einum þeirra sem fékk lóð við götuna tókst hinsvegar að finna einhverja smugu og ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/um-20-thusund-seidi-i-eldiskviar
Um 20 þúsund seiði í eldiskvíar Um 20 þúsund þorskseiði voru á dögunum flutt í eldiskvíar Brims fiskeldis ehf. sem eru skammt norðan Akureyrar. Að sögn Sævars Þórs Ásgeirssonar hjá Brimi eru seiðin um 90 grömm að þyngd og reiknað er með að eftir tveggja ára eldi verði þau vaxin í að vera 2 - 2,5 kg fiskar. Seiðin eru f...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/top-hja-akureyri-i-handboltanum
Töp hjá Akureyri í handboltanum Bæði karla og kvennalið Akureyrar máttu þola frekar slæm töp um helgina þegar þau héldu suður yfir heiðar. Karlaliðið keppti við Stjörnuna í gær og er skemmst frá því að segja að þeir áttu aldrei möguleika og voru undir nær allan leikin, mest 8 mörkum. Leikurinn endaði hins vegar 35-31 þ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bjorgvin-og-dagny-linda-sigrudu-a-skidamoti-islands
Björgvin og Dagný Linda sigruðu á Skíðamóti Íslands Þau Björgvin Björgvinsson frá Dalvík og Dagný Linda Kristjánsdóttir frá Akureyri eru fremsta skíðafólk Íslendinga í dag. Þetta sönnuðu þau með því að sigra í svigi og stórsvigi á Skíðamóti Íslands sem fram fór í Hlíðarfjalli um helgina. Bæði höfðu þau töluverða yfirbu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/elsti-akureyringurinn-latinn
Elsti Akureyringurinn látinn Kristbjörg Kristjánsdóttir, elsti íbúi Akureyrar, lést á hjúkrunarheimilinu Seli í gærkvöld, á 103. aldursári. Hún fæddist á Sveinseyri við Tálknafjörð 18. janúar árið 1905 og ólst þar upp. Kristbjörg hefur á liðnum árum dvalið á hjúkrunarheimilinu Seli. Heilsu hennar hefur hrakað nokkuð me...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tekist-a-um-evropumal
Tekist á um Evrópumál Þeir Ragnar Arnalds og Þorvaldur Gylfason munu takast á um Evrópumálin á kappræðufundi sem haldinn verður í Háskólanum á Akureyri í hádeginu á þriðjudag. Fundurinn hefst kl 12:30 og er í stofu L101 á Sólborg. Búist er við fjörugum fundi, en Ragnar hefur verið mjög gagnrýninn á Evrópusamrunann og þ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sinueldur-i-laekjargili
Sinueldur í Lækjargili Slökkvilið Akureyrar var kallað út vegna sinubruna í Lækjargili um kl. 23.00 í gærkvöld. Slökkvistarf gekk vel en það tók um eina klukkustund. Ekki urðu slys fólki, hús voru ekki í hættu en reykur fór yfir húsnæði FSA og þurfti að slökkva á loftræsikerfi spítalans um tíma, samkvæmt upplýsingum fr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/erill-hja-logreglu
Erill hjá lögreglu Mikill fjöldi fólks var saman kominn í miðbæ Akureyrar í gærkvöld, eftir að Söngkeppni framhaldsskólanna lauk í Íþróttahöllinni, og var nokkuð líflegt í bænum fram á nótt. Fyrir vikið var töluverður erill hjá lögreglu. Ein líkamsárás barst á borð lögreglunnar á Akureyri en engin kæra hefur verið lögð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tekinn-a-167-km-hrada
Tekinn á 167 km hraða Sautján ára unglingur á lánsbíl var stöðvaður á Ólafsfjarðarvegi í nótt á 167 km hraða og var hann sviftur nýlegu ökuleyfi sínu á staðnum. Annar var tekinn ölvaður í umferðinni en annasamt var hjá lögreglunni á Akureyri. Talsverður fjöldi aðkomuunglinga er á Akureyri vegna söngvakeppni framhaldssk...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ferdathjonustufolk-anaegt
Ferðaþjónustufólk ánægt Aðilar í ferðaþjónustu á Akureyri eru ánægðir eftir páskahelgina og bjartsýnir á sumarið sem framundan er. Viðmælendur Vikudags á Akureyri sögðust flestir telja að nýliðnir páskar hafi verið þeir bestu í ferðaþjónustunni í fimm ár og miða þá við fjölda ferðamanna sem sóttu bæinn heim. Að sjálfsö...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/engey-re-landar-a-akureyri
Engey RE landar á Akureyri Engey RE, stærsta fiskiskip landsins, kom til Akureyrar í morgun frá Færeyjum, með um 1700 tonn af frystum kolmunna. Afurðunum verður landað á Akureyri. Eins og fram hefur komið keypti Samherji skipið á dögunum fyrir hönd erlends dótturfélags og var það afhent í Fuglafirði í síðasta mánuði. S...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/innbrot-i-glerarsundlaug
Innbrot í Glerársundlaug Brotist var inn í Sundlaug Glerárskóla sl. nótt. Rúða í hurð var brotin til að komast inn í húsnæðið og voru glerbrot á sundlaugarbakkanum og í lauginni þegar starfsfólk og gestir komu á staðinn snemma í morgun. Ekki voru unnar skemmdir á staðnum öðru leyti og hvorki peningum né öðrum verðmætum...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tobakssmyglarar-daemdir
Tóbakssmyglarar dæmdir Þrír menn hafa í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmdir í skilorðsbundið fangelsi fyrir tilraun til að smygla miklu magni af sígarettum inn í landið en góssið kom á land á Raufarhöfn. Einn mannanna tók við 10 kössum sem innihéldu 500 karton af sígarettum við skipshlið á Raufarhöfn en um var a...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kostelic-og-dagny-linda-sigrudu-i-svigi-a-iceland-air-cup
Kostelic og Dagný Linda sigruðu í svigi á Iceland Air Cup Í gær og í dag fer fram alþjóðlegt skíðamót í Hlíðarfjalli sem nefnist Iceland Air Cup. Króatinn Ivica Kostelic er meðal keppenda á mótinu en hann er víðfrægur í skíðaheiminum og hefur m.a. unnið til margra verðlauna á heimsbikarmótum, heimsmeistaramótum og ólym...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vorid-ad-taka-voldin
Vorið að taka völdin Eftir alveg prýðilegt veður á Akureyri um páskana kólnaði örlítið í gær, en svo virðist sem vorið sé að taka völdin af vetri konungi. Veðurstofan spáir sunnanátt á morgun og hitinn getur farið í tveggja stafa tölu, milt verður í veðri á föstudag. Bjart veður í suðvestan golu og allt að 10 stiga hit...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/staekkun-glerartorgs-bodin-ut-a-ny
Stækkun Glerártorgs boðin út á ný Smáratorg ehf. hefur á ný auglýst eftir tilboðum í stækkun verslunarmiðstöðvarinnar Glerártorgs á Akureyri. Eins og fram kom í Vikudegi nýlega, barst ekkert tilboð í verkið í útboði á dögunum. Þá var m.a. talið að hinn þröngi tímarammi sem var settur hafi vegið þungt. Reiknað hafði ver...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bilasyningin-i-genf
Bílasýningin í Genf Bílasýningin í Genf stóð var að venju haldin um miðjan marsmánuð og þar var margt að sjá. (Myndir hér) Við feðgar eyddum þar tveimur dögum auk þess sem við fengum okkur göngutúr um borgina, sem skartaði sínu fegursta í björtu og hlýju veðri. Genf er nefnilega sérlega þægileg heim að sækja eins og Sv...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/numers-og-rettindalaus
Númers- og réttindalaus Um miðjan dag í gær veittu lögreglumenn athygli bifreið sem ekið var í átt til Akureyrar skammt norðan bæjarins og var ekkert skráningarnúmer framan á bifreiðinni. Er ökumaður bifreiðarinnar varð þess var að lögreglan hyggðist ná tali af honum ók hann rakleitt heim að næsta sveitabæ og þar bak v...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/lif-og-fjor-i-hlidarfjalli
Líf og fjör í Hlíðarfjalli „Þetta er búinn að vera ljómandi fínn dagur og skemmtilegir dagar framundan," sagði Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli, þegar við spjölluðum við hann fyrir nokkrum mínútum. Guðmundur sagði að um 1300 gestir hafi heimsótt Hlíðarfjall í dag. „Skírdagur hefur ald...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikil-umferd-til-akureyrar
Mikil umferð til Akureyrar Lögreglumenn á Akureyri stöðvuðu fjölda ökumanna í skipulögðu eftirliti til að kanna ástand og ökuréttindi ökumanna síðastliðna nótt en enginn reyndist undir áhrifum áfengis. Mikill umferð var til Akureyrar í gærkvöldi og nótt. Greinilegt var á þeim sem lögregla stöðvaði að fólk hugðist fara ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bjartmar-og-rannveig-sigurvegarar-vetarhlaupanna
Bjartmar og Rannveig sigurvegarar vetarhlaupanna Það voru þau Bjartmar Örnuson og Rannveig Oddsdóttir sem unnu síðustu vetrarhlaup UFA þennan veturinn. Það fór vel á því að þau skyldu sigra þessi hlaup vegna þess að þau sigruðu bæði samanlagða keppni í hlaupunum sem voru alls sex talsins. Bjartmar var með 20 stig, jafn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fylkir-tok-ka-i-kennslustund
Fylkir tók KA í kennslustund KA-menn gerðu ekki góða ferð suður yfir heiðar í gærkvöldi í deildarbikarkeppni karla í knattspyrnu þegar þeir mættu Fylki, en síðarnefnda liðið sigraði leikinn 5-1. Leikurinn byrjaði reyndar ágætlega fyrir KA-menn þegar Janez Vrenko, sem nýkominn er aftur til liðs við KA-menn, skoraði fyrs...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thjofar-daemdir-i-heradsdomi
Þjófar dæmdir í Héraðsdómi Fjórir menn voru dæmdir í gær í Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir þjófnaði og sá fimmti hlaut eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir að kasta bjórglasi í andlit annars á skemmtistað á Dalvík. Tveir voru dæmdir í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi til þriggja ára fyrir að stela vélsl...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-menn-sopudu-ad-ser-verdlaunum-a-lokahofi-blakmanna
KA-menn sópuðu að sér verðlaunum á lokahófi blakmanna Davíð Búi Halldórsson var stigahæsti leikmaður efstu deildar karla í blaki og fékk fyrir það verðlaun á lokahófi Blaksambands Íslands sem fram fór um helgina. KA-menn hrepptu reyndar fleiri verðlaun á hófinu og má þar nefna að áðurnefndur Davíð fékk einnig viðurkenn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/alexandra-med-thorka-i-sumar-lidid-ny-komid-ur-portugalsferd
Alexandra með Þór/KA í sumar - liðið ný komið úr Portúgalsferð Fyrir skömmu fóru stelpurnar úr Þór/KA í ferðalag til Portúgal þar sem þær dvöldust í viku við æfingar ásamt því að spila tvo æfingaleiki. Að sögn Dragan K. Stojanovic, þjálfara liðsins, var ferðin afar vel heppnuð en æft var tvisvar á dag flesta daga ferða...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kustarnir-islandsmeistarar-i-krullu
Kústarnir Íslandsmeistarar í krullu Kústarnir frá Akureyri eru Íslandsmeistarar í krullu árið 2007, en þeir lögðu Bragðarefi, sem einnig koma frá Akureyri, í úrslitaleik um titillinn 7-3. Þetta er í fyrsta skipti sem Kústarnir verða Íslandsmeistarar en liðsmenn Kústanna, þeir Eiríkur Bóasson, Gunnar H. Jóhannesson, Kri...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyri-tapadi-fyrir-fram
Akureyri tapaði fyrir Fram Handboltalið Akureyrar tapaði í dag 27-29 fyrir Fram í Reykjavík í DHL-deild karla. Akureyri var alltaf á eftir í leiknum ef undan eru skildar fyrstu 10 mínútur leiksins. Akureyri lenti undir 9-6 um miðbik fyrri hálfleiks þegar Fram átti góðan kafla og skoraði 4 mörk í röð. Eftir það hafði Fr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/storir-paskar-framundan
Stórir páskar framundan Útlit er fyrir að mikið fjölmenni muni sækja Akureyri heim um páskana og tala menn um að páskarnir nú verði þeir fjölmennustu á Akureyri um árabil. Allt gistirými í bænum er upppantað og auk þess gistir fjöldi fólks í heimahúsum. Ferðamenn á Akureyri fara margir á skíði í Hlíðarfjall og mun veðu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/56-milljona-ferdakostnadur
56 milljóna ferðakostnaður Ríkisstjórnin hefur ákveðið að koma til móts við íþróttafélögin í landinu með því að veita 90 milljónum króna á ári til jöfnunar ferðakostnaðar félaganna. Þessu marki verður náð á þremur árum, í ár greiðir ríkið 30 milljónir, 60 milljónir á næsta ári og 90 milljónir frá árinu 2009. Þröstur Gu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/slogust-badir-fengu-dom
Slógust - báðir fengu dóm Tveir menn á Þórshöfn sem kærðu hvor annan eftir slagsmál þeirra á milli, hafa báðir verið dæmdir til fangelsisvistar í Héraðsdómi Norðurlands eystra, en mennirnir fengu báðir skilorðsbundinn dóm. Mennirnir munu hafa setið að drykkju næturlangt og komið var framundir hádegi þegar annar þeirra ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/klipptu-fingur-af-manni
Klipptu fingur af manni Tveir menn hafa í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmdir í fangelsi fyrir ýmis gróf ofbeldisbrot sem þeir frömdu árið 2005 og á síðasta ári. Fjórir menn voru kærðir vegna málanna sem dæmd voru í einu lagi, einum var ekki gerð refsing og einn var sýknaður. Ofbeldismennirnir tveir sem dæmdir v...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rene-smith-synir-i-deiglunni
René Smith sýnir í Deiglunni Í dag, fimmtudaginn 29. mars kl. 17:00, verður opnuð í Deiglunni sýning René Smith sem undanfarið hefur gist gestavinnustofu Gilfélagsins. Sýningin er aðeins opin til kl. 21:00 í kvöld, þar sem René hefur ákveðið að giftast unnusta sínum í Mývatnssveit nk. laugardag og þarf því morgundaginn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ljosmyndasyning-a-flugvellinum
Ljósmyndasýning á flugvellinum Í ár eru 20 ár frá því Háskólinn á Akureyri var stofnaður. Í tilefni af þessu stórafmæli hafa nemendur á öðru ári í fjölmiðlafræði efnt til ljósmyndasýningar. Sýningin heitir "Tuttugu". Opnunin er í dag, fimmtudaginn 29. mars kl. 17:00 á flugvellinum á Akureyri. Myndirnar sýna 20 úrskrift...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tap-hja-thorka-gegn-kr
Tap hjá Þór/KA gegn KR Kvennalið Þórs/KA hélt síðastliðinn laugardag til Portúgal í æfingaferð en einnig leikur liðið nokkra æfingaleiki á meðan á dvölinni stendur. Fyrsti æfingaleikurinn var í gær gegn hinu sterka liði KR úr vesturbænum sem margir spá Íslandmeistaratitli í sumar og fór leikurinn 5-2 fyrir KR. KR-ingar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/valgerdur-bjartsyn-a-alver
Valgerður bjartsýn á álver Á ráðstefnu á Húsavík í gær sem bar yfirskriftina Sjálfbært samfélag - nýting auðlinda - endurheimt landgæða, sagði Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra að jarðhitavirkjun, eins og sú sem rætt hefur verið um að myndi sjá álveri við Húsavík fyrir raforku, væri dæmi um atvinnustarfsemi sem...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tonlistarveisla-a-akureyri
Tónlistarveisla á Akureyri Glæsileg tónlistarveisla verður haldin á Akureyri í lok maí og byrjun júní. Um er að ræða tónlistarhátíðina AIM Festival (Akureyri International Music Festival) sem verður nú haldin í annað sinn. Heimsfrægir tónlistarmenn taka þátt í hátíðinni. Fremstan meðal jafningja skal nefna Fernandez Fi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skrifad-undir-samning-vid-ga
Skrifað undir samning við GA Skrifað var undir uppbyggingarsamning milli Akureyrarbæjar og Golfklúbbs Akureyrar nú í hádeginu. Samningurinn tekur til nauðsynlegra breytinga á golfvelli GA vegna lagningar Miðhúsabrautar, almennrar endurnýjunar á golfvellinum sjálfum, uppbyggingu nýs æfingasvæðis og 9 holu golfvallar. Fr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/folsud-skilriki-i-umferd
Fölsuð skilríki í umferð Lögreglan á Akureyri fylgdist vandlega með skemmtistöðum í bænum um helgina og athugaði sérstaklega hvort of ungt fólk væri inni á skemmtistöðunum og hvernig dyravörslu væri sinnt. Útkoman var m.a. sú að hald var lagt á 7 skilríki sem voru ýmist fölsuð, eða í höndum annarra en eigenda þeirra. M...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aetlar-ad-koma-upp-klafferju
Ætlar að koma upp kláfferju Sveinn Jónsson, athafnamaður á Árskógsströnd, hefur ekki lagt á hilluna þá hugmynd sína að koma upp kláfferju í Hlíðarfjalli sem myndi ferja fólk frá skíðahótelinu og upp á brún Hlíðarfjalls. Sveinn segist hafa leitað til sterka fjárfestingafélaga sem starfa mikið erlendis um að koma að þess...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/glaesilegur-sigur-hja-akureyri
Glæsilegur sigur hjá Akureyri Akureyri var nú rétt í þessu að leggja Hauka 28-27 að Ásvöllum í Hafnafirði í DHL-deild karla í handknattleik, í leik sem var svo sannarlega mikilvægt að sigra. Með sigrinum komst Akureyri 6 stigum frá fallsæti og er liðið laust við falldraugin í bili. Fyrri hálfleikur var mjög kaflaskiptu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rassia
„Rassía" Lögreglan á Akureyri var með „rassíu" í gærkvöldi og einbeitti sér að því að kanna ástand ökumanna í bænum. Um 400 ökumenn voru stöðvaðir og reyndust fimm þeirra hafa neytt einhvers magn áfengis samkvæmt öndunarmæli. Tveir þeirra sluppu við að fara á lögreglustöðina þar sem öndunarmælirinn sýndi að þeir væru „...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vilja-efla-utibu-orkustofnunar
Vilja efla útibú Orkustofnunar Orkustofnun rekur útibú að Borgum á Akureyri og hjá Akureyrarsetri stofnunarinnar eru fjórir starfsmenn. Ársfundur Orkustofnunar 2007 stendur nú yfir á Hótel KEA og fram kom í máli Þorkels Helgasonar orkumálastjóra að útibúið hafi eflst og vaxið á síðasta ári og að til umræðu sé að efla e...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nytt-leikverk-frumsynt-hja-la
Nýtt leikverk frumsýnt hjá LA Lífið - notkunarreglur, nýtt leikverk eftir Akureyringinn Þorvald Þorsteinsson, verður frumsýnt í kvöld í Rýminu, nýju leiksviði Leikfélags Akureyrar. Einvala lið listrænna stjórnenda stýrir leikhópi LA og útskriftarárangi Leiklistardeildar Listaháskólans en sýningin er sett upp í samstarf...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/risafylgi-vinstri-graenna
"Risafylgi" Vinstri grænna Vinstri grænir fljúga hátt í nýrri skoðanakönnun um fylgi stjórnmálaflokkanna í Norðausturkjördæmi sem Capacent Gallup framkvæmdi dagana 14.-20. mars. VG fengi 36% atkvæða miðað við þessa könnun og hvorki fleiri né færri en fjóra þingmenn kjörna og bætti við sig tveimur þingmönnum. Sjálfstæði...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/flod-i-kjallara-siduskola
Flóð í kjallara Síðuskóla Ekki hlaust tjón af þegar lítillega flæddi inn í kjallara Síðuskóla í morgun, en betur fór en leit út fyrir á tímabili. Að sögn Ólafs Thorarensen skólastjóra myndaðist gríðarlega stór pollur suðvestan við skólabygginguna vegna hlákunnar undanfarið. „Niðurfallið sem átti að taka við vatninu úr ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hannes-stjornarformadur-kea
Hannes stjórnarformaður KEA Hannes Karlsson var endurkjörinn formaður stjórnar KEA, á fyrsta fundi nýkjörinnar stjórnar í gær. Björn Friðþjófsson var endurkjörinn varaformaður og Jóhannes Ævar Jónsson endurkjörinn ritari. Erla Björg Guðmundsdóttir kemur ný inn í stjórn KEA, stað Soffíu Ragnarsdóttur, sem ekki gaf kost ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thakpappi-fauk-af-radhusi
Þakpappi fauk af raðhúsi Ekki er vitað um mikið tjón í hvassviðrinu á Akureyri í nótt, en þó þurfti að kalla út hjálparsveitir vegna þess að pappi var farinn að fjúka af raðhúsi við Heiðarlund. Björgunarsveitarmenn mættu á vettvang og fengu körfubíl á staðinn svo þeir ættu auðveldara með að athafna sig. Timbri var komi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/erfid-fjarhagsstada-ka-og-thors
Erfið fjárhagsstaða KA og Þórs Langtímaskuldir Knattspyrnufélags Akureyrar, KA, eru um 26 milljónir króna og langtímaskuldir Þórs eru eitthvað hærri. Í gær var gert fjárnám hjá Þór vegna skulda við sýslumannsembættið. Sigfús Helgason, formaður og framkvæmdastjóri Þórs, sagðist gefa bæjaryfirvöldum vikufrest til að leys...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skolamaltidir-laekka
Skólamáltíðir lækka Samtaka, svæðisráð foreldra nemenda í grunnskólunum á Akureyri, mótmælti við skólanefnd bæjarins að lækkun verðs á skólamáltíðum skyldi ekki hafa verið ákveðin á fundi nefndarinnar 5. mars. Skólanefndin bókaði að ekki hefðu legið fyrir nauðsynlegir útreikningar til að taka þá ákvörðun Fyrir fund skó...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hardur-arekstur-a-hlidarbraut
Harður árekstur á Hlíðarbraut Harður árekstur varð á Hlíðarbraut, við Shell, fyrir stundu er tveir bílar skullu þar saman. Áreksturinn var svo harður að annar bíllinn valt á hliðina og þykir mildi að ökumennirnir, sem voru einir í bílum sínum, skyldu sleppa ómeiddir. Bílarnir eru hins vegar mikið skemmdir og þurfti að ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hagnadur-af-rekstri-nordurorku
Hagnaður af rekstri Norðurorku Rekstrarreikningur Norðurorku hf. fyrir árið 2006 sýnir hagnað fyrir fjármagnsliði og skatta upp á 492 milljónir samanborið við 323 milljóna króna hagnað árið 2005. Tap fyrir skatta var 66 milljónir króna á árinu 2006 samanborið við 301 milljóna króna hagnað árið 2005. Helsta skýring á þe...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorgnyr-yfir-akureyrarstofu
Þórgnýr yfir Akureyrarstofu Þórgnýr Dýrfjörð menningarfulltrúi Akureyrarbæjar verður fyrsti framkvæmdastjóri Akureyrarstofu. Alls sóttu 33 um stöðuna. Ákveðið er með ráðningu Þórgnýs en stjórn Akureyrarstofu mun væntanlega koma saman í dag og staðfesta ráðningu hans.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/byggt-a-akureyrarvelli
Byggt á Akureyrarvelli Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti á fundi sínum í gær tillögur vinnuhóps um nýtingu svæðisins þar sem Akureyrarvöllur er nú með 8 atkvæðum gegn þremur. Tillögur vinnuhópsins sem fara hér á eftir miða að því fyrst og fremst að fjárfestum og byggingaraðilum verði gert kleift að koma með tillögur um n...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/godur-arangur-hja-ka-a-islandsmotinu-i-judo
Góður árangur hjá KA á Íslandsmótinu í Júdó Um helgina fór fram Íslandsmeistaramót barna- og unglinga í júdó í Reykjavík. KA sendi til leiks fríðan flokk karla og er óhætt að segja að árangurinn hafi verið glæsilegur þar sem hvorki fleiri né færri en 19 verðlaun unnust. Nánar er sagt frá mótinu í Vikudegi á fimmtudag. ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samherji-kaupir-engey-re
Samherji kaupir Engey RE Samherji hf. hefur í dag keypt, fyrir hönd erlends dótturfélags, Engey RE 1, stærsta fiskiskip landsins og verður það afhent í Fuglafirði fimmtudaginn 22. mars nk. Skipið verður í framtíðinni gert út erlendis og er liður í að styrkja erlenda starfsemi Samherja hf. Söluverð skipsins er 31,4 mill...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/verdur-eyjafjardara-virkjud
Verður Eyjafjarðará virkjuð? Forráðamenn Eyjafjarðarsveitar höfðu af því spurnir nýlega að hafnar væru talsverðar framkvæmdir við bæinn Tjarnir sem er innst í Eyjafjarðarsveit. Settu einhverjir þessar framkvæmdir strax í samhengi við vilja Aðalsteins Bjarnasonar, eiganda Tjarna, um að hefja virkjanaframkvæmdir í Eyjafj...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hlynur-synir-i-thelamerkurskola
Hlynur sýnir í Þelamerkurskóla Hlynur Hallsson hefur opnað sýningu á Gráa svæðinu í Þelamerkurskóla. Gráa svæðið er kennslugallerý í skólanum sem hefur verið starfrækt í vetur með frábærum árangri. Vegna þess hversu fá tækifæri nenendur hafa til að fara á listsýningar var brugðið á það ráð að færa myndlistina inn í skó...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tryggvi-a-godum-batavegi
Tryggvi á góðum batavegi Tryggvi Tryggvason, vélsleðamaðurinn sem lenti í snjóflóði í Hlíðarfjalli 21. janúar sl., er nú kominn í endurhæfingu og er á góðum batavegi. Hann sagði í samtali við Vikudag að ekki væri ljóst hvort hann næði sér alveg að fullu né hvenær hann fari heim af sjúkrahúsi. Tryggvi grófst tvo metra u...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/glaesileg-kosning-erlu-i-stjorn-kea
Glæsileg kosning Erlu í stjórn KEA Erla Björg Guðmundsdóttir, verkefnisstjóri hjá Símey, hlaut glæsilega kosningu í stjórn KEA á aðalfundi félagsins í dag. Hún hlaut 119 atkvæði en 124 greiddu atkvæði. Erla kemur ný inn í stjórn KEA en kosið var um þrjú stjórnarsæti. Auk Erlu hlutu kosningu Jóhannes Ævar Jónsson bóndi ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stalthilid-fraega-liggur-a-hafsbotni
Stálþilið „fræga” liggur á hafsbotni Stálþilið „fræga", sem væntanlegt var til Akureyrar og nota átti í lengingu Oddeyrarbryggju til austurs, liggur nú á hafsbotni vestur af Garðskaga. Það var í opnum gámum sem tók út af flutningaskipinu Kársnesi, er skipið fékk á sig brotsjó í vikunni. Því er talið ljóst að ekki verði...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/112-opnar-vardstofu-a-akureyri
112 opnar varðstofu á Akureyri Neyðarlínan, 112, opnaði varðstofu með þremur neyðarvörðum í lögreglustöðinni á Akureyri í morgun en 112 hefur hingað til haft varastöð í húsnæðinu. Nýja varðstofan verður í fullum rekstri samhliða varðstofunni í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð í Reykjavík. Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sparisjodur-nordlendinga-styrkir-thorka
Sparisjóður Norðlendinga styrkir Þór/KA Sparisjóður Norðlendinga og meistaraflokkur kvennaliðs Þórs/KA í knattspyrnu skrifuðu fyrir stuttu undir styrktarsamning fyrir árið 2007. Sparisjóður Norðlendinga hefur undanfarin ár stutt við bakið á stúlkunum og verður árið í ár því engin undantekning frá því. Þór/KA spilar sin...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/virkni-baud-laegst-i-loggustod-og-fangelsi
Virkni bauð lægst í löggustöð og fangelsi Fjögur tilboð bárust í framkvæmdir við núverandi lögreglustöð og fangelsi á Akureyri en tilboðin voru opnuð hjá Ríkiskaupum nú fyrir stundu. Lægsta tilboðið átti Virkni ehf., rúmar 175 milljónir króna, og var það eina tilboðið sem var undir kostnaðaráætlun, sem hljóðaði upp á r...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrsta-sjonvarp-a-islandi-var-a-akureyri
Fyrsta sjónvarp á Íslandi var á Akureyri Fyrstu Íslendingarnir sem horfðu á sjónvarp voru búsettir á Akureyri. Það sem meira er þeir horfðu á sjónvarpsútsendinguna á Akureyri - löngu áður en sjónvarp og sjónvarpsútsendingar urðu almennar í heiminum. Tveir fjarskiptaáhugamenn á Akureyri voru á árunum frá 1934-1936 þáttt...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/atlantsolia-opnar-bensinstod
Atlantsolía opnar bensínstöð Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri opnaði formlega í dag nýja bensínstöð Atlantsolíu á Akureyri. Stöðin er sú fyrsta sem fyrirtækið opnar fyrir utan Stórreykjavíkursvæðið og jafnframt sú tíunda í röðinni. Hún er staðsett skammt sunnan við stórverslun Byko. Aðeins eru rúmir þrír mánuðir f...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mest-haekkun-a-nordurlandi-eystra
Mest hækkun á Norðurlandi eystra Hækkun á einföldu meðaltali fermetraverðs íbúðarhúsnæðis varð mest á Norðurlandi eystra milli áranna 2005 og 2006. Nam hækkunin 35,3% og er umtalsvert meiri en hjá þeim landshlutum sem næstir komu. Sem fyrr segir var hækkunin 35,3% á Norðurlandi eystra, á Vesturlandi var hún 28,6%, á Re...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ardsemi-kjalvegar-56-milljardar
Arðsemi Kjalvegar 5,6 milljarðar Samfélagslegur ábati af lagningu vegar yfir Kjöl er 5,6 milljarðar króna. Ef vegalagningin á sér stað á samdráttarskeiði verður ábatinn enn meiri eða tæpir 6 milljarðar króna. Þetta kemur fram í mati Rannsókna- og þróunarmiðstöðvar Háskólans á Akureyri á þjóðhagslegri arðsemi og samféla...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nog-ad-hafa-tvo-augnlaekna-i-baenum
Nóg að hafa tvo augnlækna í bænum Þórir V. Þórisson yfirlæknir Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri, telur að að ekki sé skortur á augnlæknum á Akureyri. Hér séu starfandi tveir augnlæknar, sem hafi þótt vera nóg til þessa. Engu að síður mun vera nokkuð um að Akureyringar sæki sér augnlækningaþjónustu til höfuðborgarinna...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/auknar-likur-a-althynnuverksmidju
Auknar líkur á álþynnuverksmiðju Auknar líkur eru nú taldar vera á því að af stofnun álþynnuverksmiðju verði á Akureyri, og gæti komið að vendipunkti í undirbúningi að stofnun verksmiðjunnar áður en langt um líður. Erfitt er þó að fá menn til að tjá sig nákvæmlega um hvað er að gerast, þeir segja verkefnið á viðkvæmu s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aeskuverk-nordlenskra-listamanna
Æskuverk norðlenskra listamanna Laugardaginn 10. mars klukkan 14:30 verður opnuð á vegum Gilfélagsins sýningin Bernskubrek í Deiglunni. Þar munu allt að 30 norðlenskir listamenn sýna bernskubrek sín. Það er, listaverk unnin á æskuárum þeirra. Á sýningunni verður hægt að sjá hvort krókurinn hafi snemma beygst í höndum l...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/logreglumadur-grunadur-um-olvun
Lögreglumaður grunaður um ölvun Embætti ríkislögreglustjóra hefur nú til skoðunar meinta ölvun lögreglumanns á Akureyri, sem ásamt starfsbræðrum sínum var kallaður út til að sinna vettvangi banaslyssins í Hörgárdal aðfaranótt sunnudags, þegar ítalskur karlmaður búsettur hér á landi lést í bílveltu. Þetta kemur fram í M...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hreinsun-vegna-svifryks-hafin
Hreinsun vegna svifryks hafin Akureyrarbær hefur brugðist við þeirri miklu svifryksmengun sem er í bænum með því að ráða verktaka til að þvo Glerárgötuna með vatni og er sérútbúinn dráttarvél notuð til verksins. Verktakinn er þessa stundina að störfum, framan á dráttarvélinni er búnaður til að sprauta vatni á götuna me...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/atak-faer-vinveitingaleyfi
Átak fær vínveitingaleyfi Heilsuræktarstöðin Átak á Akureyri fær leyfi til að selja léttvín og bjór samkvæmt afgreiðslu bæjarráðs frá í morgun. Áður hafði Samfélags- og mannréttindaráð bæjarins hafnað erindi líkamsræktarstöðvarinnar um vínveitingaleyfi, en bæjarlögmaður vísaði málinu til bæjarráðs. Fjórir bæjarfulltrúa...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stydja-vid-uppbyggingu-meistaranams
Styðja við uppbyggingu meistaranáms Bakhjarlar meistaranáms í viðskiptafræðum við Háskólann á Akureyri komu saman í morgun og skrifuðu undir samninga um að styrkja fjárhagslega og faglega við bakið á nýju meistaranámi í viðskiptafræðum við viðskipta- og raunvísindadeild Háskólans á Akureyri sem hefst á næsta haustmisse...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vard-undir-vorubretti
Varð undir vörubretti Skipverji á togaranum Baldvin Þorsteinssyni varð undir vörubretti nú fyrir skammri stundu þar sem hann var að vinna í lest skipsins við Krossanesbryggju og var hann fluttur á slysadeild Fjórðungssjúkrahússins. Verið var að hífa vörubretti með umbúðum niður í lest skipsins þegar brettið losnaði og ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/margir-vilja-styra-akureyrarstofu
Margir vilja stýra Akureyrarstofu Alls bárust 33 umsóknir um stöðu framkvæmdastjóra Akureyrarstofu en umsóknarfrestur rann út um helgina. Í þessum hópi eru m.a. tveir starfsmenn bæjarins, þau Sigríður Stefánsdóttir markaðs- og kynningarstjóri og Þórgnýr Dýrfjörð menningarfulltrúi. Framkvæmdastjóra er ætlað að sjá um st...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skidamotin-flutt-i-hlidarfjall
Skíðamótin flutt í Hlíðarfjall Skíðamót Íslands og Unglingameistaramót Íslands fara að öllum líkindum fram í Hlíðarfjalli helgina 23.-25. mars nk., samkvæmt heimildum Vikudags. Skíðamót Íslands átti að fara fram í Bláfjöllum og Skálafelli um næstu mánaðamót en vegna erfiðra aðstæðna, verður ekkert af því að mótið fari ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stada-ithrotta-og-framtidarsyn
Staða íþrótta og framtíðarsýn Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, þau Elín Margrét Hallgrímsdóttir og Hjalti Jón Sveinsson, eru gestir á tíunda súpufundi Íþróttafélagsins Þórs, sem haldinn verður í Hamri á morgun, miðvikudaginn 7. mars kl. 12-13. Umræðuefnið er: íþróttir á Akureyri, staðan og framtíðarsýn. ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/besta-skidahelgin-i-vetur
Besta skíðahelgin í vetur Mikill fjöldi fólks var á skíðum í Hlíðarfjalli um helgina, sem var sú stærsta á þessum vetri, að sögn Guðmundar Karls Jónssonar forstöðumanns Skíðastaða. Um 1.100 manns voru í fjallinu á laugardag og 1.300-1.400 manns á sunnudag. Guðmundur Karl sagði að sunnudagurinn væri sá besti í vetur, bæ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/framkvaema-a-fyrir-taepa-5-milljarda
Framkvæma á fyrir tæpa 5 milljarða Þriggja ára áætlun fyrir Akureyrarbæ er nú til lokaafgreiðslu. Fyrri umræða um áætlunina hefur farið fram í bæjarstjórn og áætlunin hefur einnig verið rædd í bæjarráði en lokaafgreiðsla verður á fundi bæjarstjórnar á morgun, þriðjudag. Ráðgert er að framkvæma fyrir tæpa 5 milljarða kr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thrju-storverkefni-i-utbod
Þrjú stórverkefni í útboð Þrjár stórar byggingaframkvæmdir á Akureyri hafa verið boðnar út á síðustu dögum og er ljóst að líflegt verður í byggingariðnaði á Akureyri á næstu misserum. Um er að ræða nýja byggingu Glerártorgs á Gleráreyrum, vinnu við fangelsið á Akureyri og stækkun þess og byggingu menningarhússins Hofs....
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rottaekar-breytingar-i-eyjafjardara
Róttækar breytingar í Eyjafjarðará Stjórn Veiðifélags Eyjafjarðarár hefur ákveðið að gera mjög róttækar breytingar á veiðifyrirkomulagi í ánni á komandi sumri. Ástæðan er minnkandi veiði á bleikju í ánni undanfarin ár og eiga breytingarnar að hjálpa bleikjustofni hennar að rétta úr kútnum. Róttækasta breytingin og sú s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fimmtan-vilja-i-slokkvilidid
Fimmtán vilja í slökkviliðið Fimmtán sóttu um stöður hjá Slökkviliði Akureyrar sem auglýstar voru á dögunum en umsóknarfrestur er nýrunninn út. Til stendur að ráða fjóra starfsmenn á árinu og er verið að ráða í stöður tveggja sem hættu á síðasta ári og tveggja sem hætta á þessu ári. „Við erum mjög ánægðir með það hvers...