Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ekki-refsing-fyrir-hogg-med-glasi
Ekki refsing fyrir högg með glasi Kona sem sló mann með glasi í höfuðið á skemmtistað á Akureyri fyrr á árinu var ekki dæmd fyrir verknaðinn í Héraðsdómi Norðurlands eystra. Konan og maðurinn rákust saman á dansgólfi, maðurinn sneri sér þá að konunni og hrækti á hana og konan svaraði með því að slá manninn í höfuðið me...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fangelsi-fyrir-likamsaras
Fangelsi fyrir líkamsárás Karlmaður hefur í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmdur fyrir að hafa ráðist að öðrum manni fyrir utan veitingastað á Akureyri s.l. vetur og veitt honum áverka. Maðurinn réðst á annan með hnefahöggum og spörkum í höfuð og búk með þeim afleiðingum að fórnarlambið fingurbrotnaði, fékk glóða...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/daemd-fyrir-fikniefnaakstur
Dæmd fyrir fíkniefnaakstur Karlmaður og kona hafa í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmd fyrir akstur bifreiða undir áhrifum fíkniefna og fyrir að hafa fíkniefni í fórum sínum. Konan var stöðvuð á Drottningarbraut eftir að hafa ekið frá Eskifirði til Akureyrar en karlmaðurinn var sekur um innanbæjarakstur á Akureyr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/margir-gengu-gegn-umferdarslysum
Margir gengu gegn umferðarslysum Töluverður fjöldi fólks, með heilbrigðisstarfsfólk og slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn í broddi fylkingar, tók þátt í fjöldagöngu gegn umferðarslysum á Akureyri nú seinni partinn. Einnig var gengið í Reykjavík og á Selfossi í sama tilgangi. Á Akureyri var gengið frá þyrlupalli við FS...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/daemdur-fyrir-thjofnadi
Dæmdur fyrir þjófnaði Karlmaður hefur í Héraðsdómi verið dæmdur fyrir innbrot og þjófnaði á fjórum stöðum á Akureyri, en hann braust reyndar inn tvívegis á einum staðanna. Mest var um smáhnupl að ræða en þó gerðist hann stórtækur á einum staðnum. Hann braust inn í íþróttahöllina og stal þar 7-8 þúsund krónum. Þá fór ha...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/daemdur-fyrir-ad-sla-logreglukonu
Dæmdur fyrir að slá lögreglukonu Karlmaður hefur í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmdur fyrir að hafa slegið lögreglukonu í anddyri Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga í desember árið 2005. Maðurinn sló lögreglukonuna í brjóstkassa þannig að hún hlaut eymsli af. Hann játaði brot sitt fyrir dómi. Sökum þess að hann he...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/arna-sif-med-u17-til-noregs
Arna Sif með U17 til Noregs Yngsti leikmaður meistaraflokks Þórs/KA í knattspyrnu, hin 14 ára gamla Arna Sif Ásgrímsdóttir, hefur verið valin í lokahóp U17 ára landsliðs kvenna sem heldur til Noregs um helgina, til að keppa á Norðurlandamótinu. Arna Sif, sem þykir mikið efni og hefur m.a. skorað eitt mark í sumar með Þ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/dreng-bjargad-fra-drukknun
Dreng bjargað frá drukknun Sex ára gamall drengur var hætt kominn í Sundlaug Akureyrar skömmu fyrir kvöldmat en sundlaugargestir sáu til drengsins sem var meðvitundarlaus á botni laugarinnar. Drengnum var strax bjargað á land og svo vel vildi til að á staðnum voru tveir menn úr Slökkviliði Akureyrar sem að sjálfsögðu e...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ekki-gengid-a-rett-eiganda-sidu
Ekki gengið á rétt eiganda Síðu Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri á Akureyri segir að það sé ekki rétt hjá Höskuldi Stefánssyni eiganda verslunarinnar Síðu, að verið sé að ganga á rétt hans með frekju og yfirgangi, eins og fram kom í samtali við hann í Vikudegi nýlega. Honum var tilkynnt um samþykkt bæjarráðs þau...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjoldaganga-gegn-umferdarslysum
Fjöldaganga gegn umferðarslysum Fjöldaganga gegn umferðarslysum verður farin á Akureyri og í Reykjavík á morgun þriðjudag, undir yfirskriftinni; Göngum gegn slysum. Á báðum stöðum hefst gangan kl. 17.00 og á Akureyri verður gengið frá þyrlupalli við FSA, niður Þórunnarstræti, suður Glerárgötu inn á Ráðhústorg. Í lok gö...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fangelsi-vagna-hassflutnings
Fangelsi vagna hassflutnings Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt í máli karlmanns og kvenmanns sem staðin höfðu verið að því að flytja tæplega 700 grömm af hassi frá Reykjavíkur til Akureyrar í febrúar á þessu ári. Karlmaðurinn var dæmdur í 6 mánaða fangelsi en konan í 45 daga fangelsi skilorðsbundið tiul tveggja...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/menntasmidjan-i-evropusamstarfi
Menntasmiðjan í Evrópusamstarfi Menntasmiðjan á Akureyri hefur undanfarið ár verið þátttakandi í Evrópuverkefninu ENETRAC. Haldnir eru 2-3 fundir á ári í heimalöndum þátttakenda en þess á milli unnið í gegnum tölvupóst og Skype. Í apríl s.l. fóru 2 aðilar frá Menntasmiðjunni til Grikklands á fund og 27. - 30. júní verð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eining-idja-semur-vid-sparisjodinn
Eining-Iðja semur við Sparisjóðinn Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju, Sigrún Lárusdóttir, skrifstofustjóri og gjaldkeri Einingar-Iðju, og Örn Arnar Óskarsson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Norðlendinga, skrifuðu í vikunni undir samning um heildarbankaviðskipti. "Stjórn félagsins ákvað að bjóða út öll okkar banka...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/timamotasamningar-vid-thor-og-ka
Tímamótasamningar við Þór og KA Bæjarstjórinn á Akureyri, Sigrún Björk Jakobsdóttir, skrifaði í dag undir uppbyggingar- og framkvæmdasamninga við Íþróttafélagið Þór og Knattspyrnufélag Akureyrar. Í samningi Akureyrarbæjar við Þór kemur einnig fram að unnið verður að uppbyggingu frjálsíþróttaaðstöðu á félagssvæði Þórs f...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tekinn-a-159-km-hrada
Tekinn á 159 km hraða Hann var heldur betur að flýta sér ökumaðurinn sem lögreglan á Akureyri stöðvaði í Hörgárdal í morgun. Bifreið mannsins mædist á hvorki meira né minna en 159 km hraða. Mannsins bíður um 150 þúsund króna sekt og að missa ökuskírteini sitt í 2-3 mánuði. Þess má geta að hraði bílsins mældist á móts v...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tveir-fluttir-a-slysadeild
Tveir fluttir á slysadeild Geysilega harður árekstur varð í Hörgárdal á móts við bæinn Vindheima upp úr klukkan eitt í dag. Tvær bifreiðir sem ekið var móti hvor annarri skullu saman á veginum. Ökumenn beggja bifreiðanna voru fluttir á slysadeild FSA en ekki er vitað nánar um meiðsli þeirra. Bifreiðarnar tvær eru talda...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjaroflun-a-arctic-open
Fjáröflun á Arctic Open Arctic Open golfmótið verður haldið á Jaðarsvelli á Akureyri dagana 21. - 23. júní nk. Arctic Open er alþjóðlegt golfmót sem hefur verið haldið frá árinu 1986 og hafa hátt í þrjú þúsund innlendir og erlendir gestir látið drauminn rætast og tekið þátt í mótinu. Keppendur eru sammála um að það sé ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/grodursett-i-vilhelminulundi
Gróðursett í Vilhelmínulundi Í tilefni þess að 25 ár eru liðin frá því konum fjölgaði umtalsvert í bæjarstjórn Akureyrar og fyrsta konan varð forseti bæjarstjórnar stendur samfélags- og mannréttindaráð Akureyrarbæjar ásamt konum sem voru virkar í Jafnréttishreyfingunni og Kvennaframboðinu, fyrir gróðursetningu 25 plant...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/grillad-ofan-i-mannskapinn
Grillað ofan í mannskapinn Sannkölluð hátíðarstemmning ríkti á Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri nú í hádeginu og bleiki liturinn var allsráðandi í tilefni af kvenréttindadeginum 19. júní. Heimilisfólk og starfsfólk naut veðurblíðunnar, borðaði utan dyra og sporðrenndi grilluðum hamborgurum og meðlæti með góðri lyst, við...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rakel-honnudottir-skoradi-sigurmarkid-gegn-svium
Rakel Hönnudóttir skoraði sigurmarkið gegn Svíum Hin geysilega efnilega Rakel Hönnudóttir, framherji Þórs/KA í kvennafótboltanum, skoraði sigurmark U19 ára landsliðs Íslands gegn Svíþjóð í æfingarleik sem fram fór í Svíþjóð í gær. Markið hjá Rakel kom þegar rúmar 12 mínútur voru til leiksloka og reyndist það eina í lei...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ekid-a-gangbrautarstaura
Ekið á gangbrautarstaura Starfsmenn Framkvæmdamiðstöðvar Akureyrarbæjar unnu að því í morgun að lagfæra skemmdir sem urðu á tveimur gangbrautarstaurum á Hörgárbraut, rétt við gatnamótin á Stórholti. Bifreið var ekið á staurana aðfaranótt sunnudags og miðað við ástand þeirra er ljóst að sú bifreið sem þar kom við sögu h...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/annriki-hja-slokkvilidinu
Annríki hjá slökkviliðinu Þjóðhátíðarhelgin var mjög annasöm hjá Slökkviliði Akureyrar. Samtals eru skráð þrjátíu og sex útköll í dagbók slökkviliðsins frá föstudegi til sunnudags. Þar af voru sex eldútköll, átján neyðarflutningar, fjórir almennir flutningar, fimm sjúkraflug, einn vatnsleki og tveir líkflutningar. Auk ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kynferdisafbrot-gagnvart-systursonum
Kynferðisafbrot gagnvart systursonum Refsingu yfir karlmanni sem beitti þrjá systursyni sína kynferðislegu ofbeldi á síðasta ári, hefur verið frestað haldi maðurinn almennt skilorð í fimm ár. Maðurinn lét drengina þrjá sem voru á aldrinum frá tæplega tveggja ára til þriggja ára m.a. setja getnaðarlim sinn í munn sér og...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/verslunin-fari-i-burtu
Verslunin fari í burtu Höskuldur Stefánsson eigandi verslunarinnar Síðu í Síðuhverfi á Akureyri, er allt annað en ánægður með að þurfa að koma sér í burtu með allt sitt hafurtask, þar sem verktaki sé að fara að byggja stúdentagarða í nágrenni við verslun hans. ,,Þetta er ekkert annað en frekja og yfirgangur," sagði Hös...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/erfitt-ad-na-i-fyllingarefni
Erfitt að ná í fyllingarefni Guðmundur Gunnarsson framkvæmdastjóri GV grafa á Akureyri er orðin langþeyttur á kröfum sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar, vegna efnistöku í Eyjafjarðará og á leirunum sunnan Leiruvegar. Hann segir að á síðustu árum hafi skilyrði varðandi framkvæmdaleyfi til efnistöku verið þrengd til muna...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/astandid-skarra-en-i-fyrrinott
Ástandið skárra en í fyrrinótt Varðstjóri hjá lögreglunni á Akureyri tjáði vikudegi.is fyrir skömmu að nóttin í nótt hafi verið skárri en nóttin þar áður, en þó hafi verið nóg að gera. Hann sagði að ölvunin og óspektirnar hafi verið meiri í miðbænum í nótt en mest gekk hinsvegar á við tjaldsvæðið að Hömrum í fyrrinótt....
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vidbunir-hinu-versta
Viðbúnir hinu versta Umtalsverður viðbúnaður er hjá lögreglu vegna kvöldsins og næturinnar sem í hönd fer, vegna skrílsláta og óeirða sem urðu í bænum og á tjaldsvæðinu að Hömrum s.l. nótt. Lögreglumenn á frívöktum og í sumarleyfum hafa verið kallaðir til starfa. Eins og fram hefur komið hér á vikudegi.is gekk muikið á...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/olaeti-og-slagsmal-um-allan-bae
Ólæti og slagsmál um allan bæ Talsverður erill var hjá lögreglunni á Akureyri í gær og í nótt. Mikill fjöldi er á tjaldsvæðinu að Hömrum og var mjög mikil ölvun þar í nótt og í morgun. Mikill mannfjöldi safnaðist saman í miðbæ Akureyrar og sinnti lögregla mörgum útköllum vegna óláta og slagsmála um allan bæ. Þó nokkrar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nokkrar-likamsarasir-a-akureyri
Nokkrar líkamsárásir á Akureyri Það fór eins og lögreglan á Akureyri hafði óttast að mikil læti voru á götum miðbæjarins í nótt. Mikill fjöldi fólks er í bænum, m.a. vegna svokallaðra Bíladaga og svo einnig vegna útskriftar Menntaskólans. Og því voru auðvitað margir í miðbænum í nótt... Varðstjóri sem við ræddum við nú...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/haltur-leidir-blindan
Haltur leiðir blindan Ökumaður sem átti leið um Skagafjörð í gærkvöldi var stöðvaður í Blönduhlíð af lögreglunni á Blönduósi sem var þar á ferð. Við athugun kom í ljós að ökumaðurinn hafði neitt kókaíns og var hann fluttur á lögreglustöðina á Sauðárkróki til skýrslutöku og sýnatöku. Eigandi bifreiðarinnar var kallaður ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/syningarbill-storskemmdur-a-leid-i-thrif
Sýningarbíll stórskemmdur á leið í þrif! Sá óheppilegi atburður varð á fimmtudag að Ford GT sportbíl Brimborgar - sem var á Akureyri í tilefni bíladaga - var ekið útaf og utan í umferðarskilti við hringtorgið hjá Byko á þjóðvegi 1. Ökumaður var starfsmaður Brimborgar sem var að ferja bílinn í þrif fyrir sýningu á bílad...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/godar-horfur-med-heyskap
Góðar horfur með heyskap Bændur í Eyjafirði hafa hafið slátt, og eru með þeim fyrstu á landinu sem það gera eins og árvisst er. Ólafur Vagnsson ráðunautur segir reyndar að heyskapurinn hafi verið að færast framar undanfarin ár enda slái menn orðið öll tún tvívegis og sum þrisvar sinnum. Ólafur segir heyskaparhorfur nú ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/queen-elizabeth-i-heimsokn
Queen Elizabeth í heimsókn Þessa stundina liggur nú á Pollinum stórt og glæsilegt skemmtiferðaskip að nafni Queen Elizabeth, en það er eitt frægasta skemmtiferðaskip heims. Skipið er með þeim stærri sem koma til Akureyrar í sumar að sögn Péturs Ólafssonar, skrifstofustjóra hjá Hafnasamlagi Norðurlands. Stærsta skipið s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/merki-ami-2007-kynnt
Merki AMÍ 2007 kynnt Í dag var kynnt merki AMÍ –Aldursflokkameistaramóts Íslands - sem Sundfélagið Óðinn á Akureyri heldur nú í lok mánaðarins. Eins og í fyrri skiptin sem Óðinn hefur haldið AMÍ er hönnuður merkisins Unnur A. Kristjánsdóttir, ritari félagsins og sundþjálfari. Á AMÍ er keppt í þremur aldursflokkum: 11-1...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/unglingatjaldsvaedin-a-brennusvaedid
Unglingatjaldsvæðin á ,,brennusvæðið“ Þriggja manna nefnd sem Akureyrarbær skipaði til að kanna hugsanlega aðkomu bæjarins að hátíðahöldum í bænum um verslunarmannahelgina hefur skilað niðurstöðum til bæjaryfirvalda. Nefndinni var ætlað að meta hvernig til hafi tekist með útihátíðina ,,Ein með öllu" undanfarin ár, ræða...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/logreglan-med-vidbunad
Lögreglan með viðbúnað Eins og undanfarin ár má búast við mikilli umferð um næstu helgi á þjóðvegum landsins. Lögreglan mun hvarvetna auka eftirlit í því skyni að umferðin gangi greiðlega og slysalaust fyrir sig. Lögreglan á Akureyri býst við að margir leggi leið sýna til Akureyrar eins og undanfarin ár enda margt um a...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikil-anaegja-med-sundlaugina
Mikil ánægja með sundlaugina Mikil ánægja er með Sundlaug Akureyrar meðal sundlaugargesta. Þetta kemur fram í könnun sem gerð var á vegum íþróttaskors - Íþróttakennaraskólans á Laugarvatni. Könnunin var framkvæmd í vor og var fjöldi sundlaugargesta spurðir álits. Í ljós kom að 77,3% þeirra líkar aðstaðan í lauginni mjö...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-sigradi-i-nagrannaslagnum
Þór sigraði í nágrannaslagnum Þór og KA mættust í gær í miklum nágrannaslag í Visa-bikarkeppni karla á Akureyrarvellinum. Um 1500 manns mættu á völlinn og var stemmningin mjög góð meðal áhorfenda og ekki skemmdi fyrir að leikurinn var ágætis skemmtun. Fóru leikar svo að Þór vann 1-0 með marki Ármanns Péturs Ævarssonar ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thjofar-daemdir-i-heradsdomi-1
Þjófar dæmdir í Héraðsdómi Nokrir aðilar sem uppvísir urðu að þjófnaði og skemmdarverkum hafa nú nýverið verið dæmdir í Héraðsdómi Norðurlands eystra. Hlutu þeir mislanga dóma, eða reyndar allt frá því að vera ekki gerð refsing og upp í átta mánaða fangelsi. Sá sem hlaut átta mánaða fangelsi braust inn á mörgum stöðum ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/soguskodun-af-sjo
Söguskoðun af sjó Hvernig lítur Akureyri út frá sjó séð? Hvenær er fyrstu mannaferða getið á Oddeyrinni? Hvar er elsta hús Akureyrar? Hvernig atvinnustarfsemi var á Oddeyrinni? Hver byggði Akureyrarkirkju? Svörin við þessum spurningum fást í sögusiglingu með Húna II miðvikudaginn 13. júní kl 19:30. Hanna Rósa Sveinsdót...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gudmundur-vinnur-smasagnasamkeppni-menor
Guðmundur vinnur smásagnasamkeppni Menor Guðmundur Ólafsson, rithöfundur ættaður úr Ólafsfirði, hlaut í gær fyrstu verðlaun í smásagnasamkeppni Menor - Menningarsamtaka Norðlendinga og Tímarits Máls og menningar. Saga Guðmundar heitir Yfirbót og voru verðlaunin afhent við hátíðlega athöfn í Safnaðarheimili Glerárkirkju...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aldrei-fleiri-brautskradir-fra-ha
Aldrei fleiri brautskráðir frá HA Alls verða 372 kandídatar brautskráðir á háskólahátíð sem haldin verður í Íþróttahöllinni á Akureyri laugardaginn 9. júní nk. og hefst kl. 10:30. Þetta er mesti fjöldi kandídata sem brautskráður hefur verið í einu frá Háskólanum á Akureyri. Af þessum hópi hafa 120 stundað fjarnám fyrir...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-steinla-gegn-fjolni
KA steinlá gegn Fjölni Heldur betur undarlegur knattspyrnuleikur var spilaður á Akureyrarvellinum í gær í 1. deild karla í fótbolta. KA-menn tóku þá á móti Grafarvogspiltum í Fjölni í leik sem þeir vilja eflaust gleyma sem fyrst enda töpuðu þeir honum 0-6 eftir að staðan í hálfleik var 0-0. Nokkuð jafnræði var með liðu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nog-um-ad-vera-i-fotboltanum-a-naestunni
Nóg um að vera í fótboltanum á næstunni Það er heldur betur nóg um að vera fyrir fótboltáhugamenn í Eyjafirði á næstunni. Hæst ber að sjálfsögðu nágrannaslag Þórs og KA í Visa-bikarkeppni karla nk. mánudag kl. 19:15 og er vegleg upphitun fyrir þann leik í Vikudegi í dag. Einnig má þess geta að kvennalið Þórs/KA á fyrir...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/25-ar-fra-stofnun-jafnrettisnefndar
25 ár frá stofnun jafnréttisnefndar Á fundi bæjarstjórnar í gær minntist bæjarstjóri þeirra tímamóta að 25 ár eru frá stofnun jafnréttisnefndar í bænum, og lagði fram svohljóðandi bókun: "Bæjarstjórn fagnar því að 25 ár eru liðin frá stofnun jafnréttisnefndar á Akureyri. Akureyrarbær var fyrst íslenskra sveitarfélaga t...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/formadur-thors-gekk-ut
Formaður Þórs gekk út Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri á Akureyri skrifaði nú í hádeginu undir nýja rekstrarsamninga við forsvarsmenn íþróttafélaganna KA og Þórs. Þegar kom að undirritun gekk Sigfús Ólafur Helgason, formaður og framkvæmdastjóri Þórs, úr bæjarstjórnarsalnum og kallaði til varaformann félagsins, Árn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/framkvaemdum-frestad-a-dalvik
Framkvæmdum frestað á Dalvík Í ljósi erfiðrar stöðu í sjávarútvegi hefur Samherji ákveðið að fresta fyrirhuguðum framkvæmdum við uppbyggingu landvinnslunnar á Dalvík um eitt ár og skoða málið að nýju næsta vor. Í febrúar sl. tilkynnti Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja hf., að nú væri tími til að sækja fram....
https://www.vikubladid.is/is/frettir/evropuhlaup-fatladra-til-akureyrar
Evrópuhlaup fatlaðra til Akureyrar Evrópuhlaup fatlaðra nær til Akureyrar nk. miðvikudag þegar um 80 þroskaheftir einstaklingar koma hlaupandi inn á Ráðhústorg. Þetta er í 9. sinn sem hlaupið er haldið og eru þátttakendur frá Austurríki, Þýskalandi, Tékklandi, Ungverjalandi, Póllandi, Rúmeníu og Úkraínu. Hlaupnir hafa ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/enn-adsoknarmet-hja-la
Enn aðsóknarmet hjá LA Enn á ný er aðsóknarmet sett hjá LA því á yfirstandandi leikári er fjöldi gesta á Akureyri orðinn sá mesti frá upphafi. Þetta leikár slær því út síðasta ár, sem líka var metár, hvað þetta varðar. Áhorfendur að sýningum leikhússins á Akureyri í vetur voru nálægt 27.000. Við þetta bætast um 11.000 ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/engin-hatidahold-a-sjomannadaginn
Engin hátíðahöld á sjómannadaginn Engin hátíðahöld verða á vegum sjómannadagsráðs á Akureyri í tilefni sjómannadagsins nk. sunnudag og segir Konráð Alfreðsson, formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar, að ástæðan sé fjárskortur, ekki síst þar sem útgerðirnar í bænum leggi ekkert til hátíðahaldanna. Hollvinir Húna II eru þó ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sjo-lentu-i-flodinu
Sjö lentu í flóðinu Nú hefur komið í ljós að sjö manns lentu í snjóflóðinu sem varð efst í Hlíðarfjalli í gær. Fyrstu fréttir af flóðinu voru þær að enginn hefði verið á ferli þar sem flóðið féll og því enginn verið í hættu. Hið rétta er sjö manns lentu í flóðinu. Fólkið var á göngu á svæðinu og lenti á einum af snjófl...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/snjoflod-i-hlidarfjalli
Snjóflóð í Hlíðarfjalli Nokkuð stórt snjóflóð féll í Hlíðarfjalli skömmu eftir hádegið í dag, ofan við skíðasvæðið í fjallinu. Ekkert fólk var þó á ferð í námunda þar sem flóðið féll og því var enginn í hættu. Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli hefur verið opið nú um helgina og verður opið á morgun. Margir hafa nýtt sér það að...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/veittust-ad-logreglu
Veittust að lögreglu Þrír menn gistu fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt og fram á morgun, en þeir veittust að lögreglumönnum sem voru við störf í miðbænum í nótt. Talsverður fjöldi fólks var í miðbænum þegar kom fram á nóttina og mikill erill hjá lögreglu. Mennirnir þrír hindruðu lögreglumenn að störfum en sl...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tveir-daemdir-fyrir-likamsarasir
Tveir dæmdir fyrir líkamsárásir Tveir karlmenn voru í dag dæmdir í Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir líkamsárásir sem áttu sér stað í fyrra og árið 2005. Mennirnir hlutu báðir tveggja ára fangelsisdóm, en annar þeirra fékk skilorðsbundinn dóm. Annar mannanna sem dæmdur var, réðst á mann við íbúðarhús í Klettaborg á A...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorsarar-hafna-tillogum
Þórsarar hafna tillögum Fjölmennur félagsfundur hjá Íþróttafélaginu Þór í gærkvöld hafnaði nýjum tillögum íþróttaráðs Akureyrarbæjar um uppbyggingu frjálsíþróttasvæðis á félagssvæði Þórs. Endurskoðun rekstrarsamninga stóru íþróttafélaganna í bænum, KA og Þórs, hefur nú verið afgreidd í bæjarráði og bíður undirritunar. ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fidringur-hja-okumonnum
Fiðringur hjá ökumönnum Lögreglan á Akureyri hefur nú undanfarið lagt talsverða áherslu á að fylgjast með ökuhraða þeirra sem aka um götur bæjarins. Notaðar hafa verið merktar sem ómerktar lögreglubifreiðar til verksins og hefur það sýnt sig að ökuhraði er víða allt of mikill og hefur gáleysislegur akstur sem og óþarfa...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/opid-i-hlidarfjalli-um-helgina
Opið í Hlíðarfjalli um helgina Opið verður í Hlíðarfjalli ofan Akureyrar um hvítasunnuhelgina. Nægur snjór er í brekkunum við Fjarkann og uppi í Strompi. Þar verða báðar lyftur opnar frá föstudegi til mánudags á milli kl. 8 og 14. Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður Hlíðarfjalls, segist hafa fagnað kuldakasti síðustu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tveir-thjofar-daemdir
Tveir þjófar dæmdir Dómar yfir tveimur mönnum sem sem sakaðir voru um þjófnað á Akureyri í febrúar sl. voru kveðnir upp í dag. Báðir hlutu mennirnir skilorðsbundna fangelsisdóma. Annar þeirra stal jakka úr verslun við Hafnarstræti að verðmæti 8.900 krónur og var sá dæmdur í 45 daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/daemdur-fyrir-ad-misnota-dottur-sina
Dæmdur fyrir að misnota dóttur sína Karlmaður hefur í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmdur fyrir kynferðisafbrot gagnvart dóttur sinni sem er ekki andlega heilbrigð. Faðirinn hafði tvívegis í janúar á þessu ári mök við stúlkuna og fyrir 16 árum var hann einnig dæmdur fyrir kynferðisafbrot gagnvart henni. Í dómi H...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrsta-flug-nordanflugs-i-juni
Fyrsta flug Norðanflugs í júní Starfsemi Norðanflugs ehf., félags um fraktflug frá Akureyri til meginlands Evrópu, er formlega hafin. Fyrsta fraktflugið á vegum félagsins verður 3. júní nk. en þá verður flogið með vörur frá Akureyri til Oostende í Belgíu. Norðanflug mun fljúga þrisvar í viku til að byrja með, á sunnudö...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sviku-ut-30-milljonir
Sviku út 30 milljónir Mál gegn fjórum Akureyringum hefur verið þingfest í Héraðsdómi Norðurlands eystra, en þeim er gefið að sök að hafa svikið út allt að 30 milljónir króna með skjalafalsi. Fólkið, þrír karlmenn og ein kona, eru á fimmtugsaldri. Útvarpið sagði frá. Fólkið nýtti sér mistök sem urðu við forritun í netba...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/barnanidingur-daemdur
Barnaníðingur dæmdur Karlmaður hefur í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmdur í óskilorðsbundið fangelsi fyrir barnaníð. Maðurinn viðhafði mjög gróft kynferðislegt ofbeldi gagnvart 10 ára stúlku á síðasta ári. Maðurinn var handtekinn á vinnustað sínum daginn eftir að lögreglu barst kæra um atferli hans. Við yfirhey...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kea-uthlutadi-4-milljonum-i-styrki
KEA úthlutaði 4 milljónum í styrki KEA úthlutaði í dag styrkjum úr tveimur flokkum Menningar- og viðurkenningarsjóðs. Annars vegar var um að ræða úthlutun íþróttastyrkja og hins vegar styrki sem veittir voru ungum afreksmönnum á sviði mennta, lista og íþrótta. Halldór Jóhannsson framkvæmdastjóri KEA afhenti styrkina. A...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kona-daemd-fyrir-likamsaras
Kona dæmd fyrir líkamsárás Kona hefur í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmd í 30 daga fangelsi fyrir líkamsárás gagnvart annarri konu á veitingastað á Akureyri á síðasta ári. Konan greip í hár hinnar og skellti síðan andliti hennar allt að fimm sinnum í borðplötu. Síðan sló hún konuna í andlitið. Sú sem fyrir árás...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/slokkvistarf-tok-halfan-solarhring
Slökkvistarf tók hálfan sólarhring Slökkvistarfi í porti Hringrásar í Krossanesi lauk að mestu á þriðja tímanum í nótt og hafði þá staðið í um hálfan sólarhring. Að sögn Þorbjörns Haraldssonar slökkviliðsstjóra á Akureyri er enn vakt á svæðinu og verður eitthvað áfram. Slökkviliðsmenn eru að gramsa í haugnum sem kvikna...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bryndis-og-sindri-a-olympiudaga-aeskunnar
Bryndís og Sindri á Ólympíudaga æskunnar Þau Bryndís Rún Hansen og Sindri Þór Jakobsson, ungir sundmenn úr Sundfélaginu Óðni, fengu mikla viðurkenningu á dögunum þegar þau voru valin í lið Íslands sem keppir á Ólympíudögum æskunnar í sumar. Leikarnir verða haldnir í Belgrad í Serbíu dagana 21. til 28. júlí 2007 og fara...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/slokkvilidid-med-undirtokin
Slökkviliðið með undirtökin „Það er búið að ganga talsvert á en við erum komnir með tökin á þetta allt saman," segir Magnús Arnarsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á Akureyri, en slökkviliðsmenn hafa í tvær klukkustundir glímt við eld í porti Hringrásar skammt frá Krossanesverksmiðjunni. Eldurinn var að mestu í dekkjah...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eldur-i-sindraporti
Eldur í Sindraporti Mikinn svartan reyk leggur nú yfir nyrsta hluta bæjarins á Akureyri, en fyrir um 15 mínútum kom upp eldur í porti þar sem Sindri hefur aðstöðu skammt vestan við Krossanesverksmiðjuna. Að sögn lögreglu er eldurinn í dekkjahrúgu og ber hinn mikli svarti reykur sem kemur frá eldinum þess merki. Í porti...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fangelsid-endurbyggt
Fangelsið endurbyggt ,,Það stóð ekki til að hefja framkvæmdir við fangelsið fyrr en í júní. Hinsvegar stóð þannig á að það var hægt að flytja fangana suður og semja við verktakann um að hefjast handa fyrr og það var gert“ segir Valtýr Sigurðsson hjá Fangelsismálastofnun ríkisins um framkvæmdir við fangelsið á Akureyri....
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-sigradi-og-thor-gerdi-jafntefli
KA sigraði og Þór gerði jafntefli KA og Þór léku um helgina sína fyrstu leiki í 1.deild karla í knattspyrnu þetta sumarið. KA-menn tóku á móti Víkingi Ólafsvík og höfðu þar sigur 1-0 með marki Sveins Elíasara Jónssonar á 4 mínútu í leik þar sem KA var töluvert sterkari aðilinn allan tímann. Leikurinn fór fram í köldu v...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thrir-nyir-thingmenn-i-nordausturkjordaemi
Þrír nýir þingmenn í Norðausturkjördæmi Eftir æsispennandi kosninganótt varð niðurstaðan sú í Norðausturkjördæmi að Vinstri grænir og Sjálfstæðisflokkurinn urðu sigurvegarar miðað við kosningarnar 2003, Samfylkingin tapaði og Framsóknarflokkurinn tapaði miklu. Þrír nýir þingmenn eru í kjördæminu eftir kosningarnar og 1...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikid-annriki-hja-slippnum
Mikið annríki hjá Slippnum Verkefnastaða Slippsins Akureyri hefur verið mjög góð að undanförnu. „Það er vitlaust að gera hjá okkur, alls kyns verkefni í gangi og mikil og góð verkefnastaða framundan," segir Anton Benjamínsson framkvæmdastjóri en þar er nú hafin árviss „vertíð" við viðgerðir og breytingar á skipum. Anto...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/lif-og-fjor-a-oldungamotinu-i-blaki
Líf og fjör á öldungamótinu í blaki Akureyringar sendu fjölmörg lið til keppni á Öldungamótið í Garðabæ og var gengið misjafnt eins og gefur að skilja. Alls kepptu 102 lið í fjórtán deildum og voru keppendur um 800 á þessu móti sem fór fram fyrir stuttu. Óðinn vann öðlingadeild karla en þar keppa 50 ára og eldri. Má se...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/res-orkuskoli-tekur-til-starfa
RES Orkuskóli tekur til starfa Það var stór dagur í skólabænum Akureyri í gær, þegar RES Orkuskóli tók formlega til starfa, með opnunarhátíð í Ketilhúsinu. Skólinn er afrakstur fjögurra ára undirbúningsferlis og verður alþjóðleg einkarekin mennta- og vísindastofnun á sviði endurnýjanlegra orkugjafa. Við þetta tækifæri ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/umhverfisradherra-fridlysir
Umhverfisráðherra friðlýsir Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra mun í dag friðlýsa hluta jarðarinnar að Hrauni í Öxnadal sem fólkvang og Arnarnesstrýtur á botni Eyjafjarðar. Hún mun undirrita fyrri friðlýsinguna í gamla bænum að Hrauni kl. 15:00 en þá síðari í Lísukaffi á Hjalteyri kl. 16:30. Friðlýst svæði Hrauns í Öxn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eureka-golf-hannar-jadarsvoll
Eureka Golf hannar Jaðarsvöll Fyrirtækið Eureka Golf ehf. mun hafa áframhaldandi yfirumsjón með hönnun á Jaðarsvelli. Stjórn Golfklúbbs Akureyrar og forsvarsmenn Eureka Golf skrifuðu í gær undir samning þess efnis. Í framhaldi af undirritun uppbyggingarsamnings GA og Akureyrarbæjar var undirritaður samningur við Edwin ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrsti-leikur-ka-verdur-a-nyvangi-ka-velli
Fyrsti leikur KA verður á Nývangi (KA-velli) Fyrsti knattspyrnuleikur sumarsins á Akureyri verður spilaður nk. sunnudag, 13. maí, kl. 16 þegar KA tekur á móti Víkingi Ólafsvík í 1. deild Íslandsmótsins. Til stóð að leikurinn færi fram á Akureyrarvelli, en þar sem hann er ekki tilbúinn hefur verið ákveðið að flytja leik...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fimm-fra-akureyri-valdar-i-unglingalandslid-kvenna
Fimm frá Akureyri valdar í unglingalandslið kvenna Fjórar stelpur frá Akureyri, þær Arna Erlingsdóttir, Emma Havin Sardarsdóttir, Kara Rún Árnadóttir og Unnur Ómarsdóttir, voru fyrir stuttu valdar í U17 ára landslið kvenna í handbolta. Þá var Ester Óskarsdóttir, ein helsta skytta Akureyrar á liðnum vetri, valin í U19 á...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/dyrt-hnefahogg
Dýrt hnefahögg Karlmaður hefur í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmdur í fangelsi fyrir að slá annan mann hnefahöggi á útihátíð í Hrísey í júlí á síðasta ári. Sá sem fyrir árásinni var hlaut skurð á kinn og fleiri áverka á andliti og krafðist 329 þúsund króna skaðabóta. Árásarmaðurinn var á skilorði þegar hann fra...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ljodalog-jons-hlodvers-i-kvold
Ljóðalög Jóns Hlöðvers í kvöld Söngtónleikar með heitinu Ljóðalög Jóns Hlöðvers verða haldnir í Ketilhúsinu á Akureyri í kvöld, miðvikudaginn 9. maí, og hefjast kl. 20:30. Eins og nafnið gefur til kynna verða á söngskránni eingöngu lög eftir Akureyringinn Jón Hlöðver Áskelsson. Með tónleikum þessum vill tónskáldið heið...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fotboltinn-ad-byrja-hja-korlunum
Fótboltinn að byrja hjá körlunum Í Vikudegi á morgun er hitað upp fyrir komandi fótboltasumar í 1. deild karla. En 1. deild karla hefst á sunnudaginn næstkomandi. Þá halda Þórsarar til Vestmannaeyja og spila við heimamenn en KA leikur á KA-vellinum gegn Víkingi frá Ólafsvík. Spekingarnir Ásmundur Arnarsson þjálfari Fjö...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorka-b-lengjubikarmeistari
Þór/KA B-Lengjubikarmeistari Þór/KA tryggði sér um helgina sigur í B-deild Lengjubikarkeppninnar í knattspyrnu kvenna með glæsilegum og öruggum 6-0 sigri á Þrótti í Reykjavík. Stelpurnar unnu alla leiki sína í riðlinum, flesta á mjög sannfærandi hátt og voru m.a. sigrar á úrvalsdeildarliðum ÍR og Fjölni meðal þeirra. N...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jakvaedur-rekstur-a-dalvik
Jákvæður rekstur á Dalvík Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins Dalvíkurbyggðar samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A og B hluta árið 2006 er jákvæð um 71.1 millj. kr. en samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir neikvæðri niðurstöðu uppá 22.4 millj. krónur. Hér er því viðsnúningur uppá 93.5 millj. króna miðað við áæ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rumenar-yfirheyrdir
Rúmenar yfirheyrðir Þessa stundina standa yfir yfirheyrslur hjá lögreglunni á Akureyri yfir hópi Rúmena sem hafa verið nokkuð áberandi í bænum undanfarna daga og betlað og spilað á harmonikkur á götum úti og í verslunarmiðstöðum fyrir peninga. Ólafur Ásgeirsson aðstoðaryfirlögregluþjónn sagði í samtali við Vikudag fyri...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/daemdur-fyrir-likamsaras
Dæmdur fyrir líkamsárás Karlmaður hefur í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmdur fyrir líkamsárás á konu á skemmtistað á Akureyri í október á síðasta ári. Maðurinn reif í hár konunnar, sneri hana niður í gólfið og tók hana hálstaki. Konan slasaðist nokkuð við árásina, tognaði á hálsi og fékk vægan heilahristing. Ma...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ahorfendamet-i-horgardalnum
Áhorfendamet í Hörgárdalnum Undanfarið hefur Leikfélag Hörgdæla sýnt söngva- og gamanleikinn Síldin kemur og síldin fer, eftir þær systur Iðunni og Kristínu Steinsdætur, í leikstjórn Sunnu Borg, á Melum í Hörgárdal. Má með sanni segja að uppfærslan hafi slegið gegn en uppselt hefur verið á 17 sýningar af 20 og hefur ný...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kostnadaraaetlanir-ut-i-hott
Kostnaðaráætlanir út í hött Páll Alfreðsson byggingameistari, sem átti eina tilboðið sem barst í trésmíðavinnu við menningarhúsið sem er í byggingu á Akureyri, viðurkennir að tilboð fyrirtækisins hafi verið í hærri kantinum en hins vegar hafi kostnaðaráætlunin verið mjög lág. Hermann Jón Tómasson formaður stjórnar Fast...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eldur-i-ibudarhusi-og-ikveikjur-i-midbaenum
Eldur í íbúðarhúsi og íkveikjur í miðbænum Eldur kom upp í íbúðarhúsi að Lundargötu 17 á Akureyri snemma í morgun. Fólk var í húsinu þegar eldurinn kom upp og komst það út af sjálfsdáðun en húsið er mikið skemmt, ef ekki ónýtt. Þá kveiktu brennuvargar í þremur ruslagámum í miðbæ Akureyrar snemma í morgun og í ferðasale...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/misskilningur-i-ljosvakamidlum
Misskilningur í ljósvakamiðlum Stjórn Greiðrar leiðar ehf. hefur sent frá sér tilkynningu, þar sem segir m.a. að alvarlegs misskilnings hafi gætt í fréttaflutningi ljósvakamiðla af fréttamannafundi sem Greið leið boðaði til í gær. Í fréttum af fundinum kom fram að undirbúningur félagsins að gerð jarðganga undir Vaðlahe...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ss-byggir-med-laegsta-tilbod-i-glerartorg
SS Byggir með lægsta tilboð í Glerártorg Byggingafélagið SS Byggir á Akureyri átti lægsta tilboðið í byggingu um 10 þúsund fermetra viðbyggingar við Glerártorg, en tilboðin voru opnuð í morgun. Nú bárust þrjú tilboð en ekkert tilboð barst þegar verkið var boðið út í vetur. Tilboð SS Byggis hljóðaði upp á 1 milljarð og ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eitt-tilbod-undir-kostnadaraaetlun
Eitt tilboð undir kostnaðaráætlun Fjögur tilboð bárust í endurbætur á þaki Íþróttahallarinnar á Akureyri, sem Fasteignir Akureyrarbæjar buðu út. Aðeins eitt tilboðanna var undir kostnaðaráætlun en það átti Timbursmiðjan ehf. og hljóðaði upp á tæpar 39 milljónir króna. Tilboðið er 99,3% af kostnaðaráætlun, sem hljóðaði ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eyfirskur-safnadagur-a-morgun
Eyfirskur safnadagur á morgun Söfnin í Eyjafirði opna dyr sínar fyrir gestum og gangandi laugardaginn 5. maí. Tilefnið er eyfirski safnadagurinn en markmiðið með deginum er að vekja athygli á þeirri fjölbreyttu og áhugaverðu safnaflóru sem Eyjafjörður hefur upp á að bjóða. Söfnin munu þennan dag kynna starfsemi sína og...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/saga-capital-faer-fjarfestingarbankaleyfi
Saga Capital fær fjárfestingarbankaleyfi Saga Capital Fjárfestingarbanki hlaut í liðinni viku fullt fjárfestingarbankaleyfi Fjármálaeftirlitsins og starfsemi félagsins hefst formlega á morgun, föstudag, sléttum 7 mánuðum eftir að tilkynnt var um stofnun þess. Lokuðu hlutafjárútboði, sem félagið efndi til í ársbyrjun, e...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/92-telja-gongin-mikilvaeg
92% telja göngin mikilvæg Í skoðanakönnun sem fyrirtækið Capacent hefur unnið fyrir Greiða leið ehf. sem stendur að gerð jarðganga í Eyjafirði kemur fram að 92% þeirra sem tóku afstöðu telja mikilvægt að göngin verði gerð. Könnunin var gerð meðal íbúa í Eyjafirði og Þingeyjarsýslu og var úrtakið 2000 manns á aldrinum 1...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kaldavatnslogn-i-sundur
Kaldavatnslögn í sundur Lögn sem flytur kalt vatn í Glerárhverfi fór í sundur á gatnamótum Skarðshlíðar og Smárahlíðar á Akureyri snemma í morgun. Töluverðar skemmdir hafa orðið í Skarðshlíðinni, þar sem vatn flæddi upp í gegnum malbikið, auk þess sem grafa þurfti í gegnum malbikið í leit að biluninni. Vatnslaust er m....
https://www.vikubladid.is/is/frettir/urslit-a-haengsmotinu
Úrslit á Hængsmótinu Í Vikudegi í dag er fjallað um Hængsmótið sem fram fór um síðustu helgi í Íþróttahöllinni á Akureyri. Hængsmótið er íþróttamót fyrir fatlaða þar sem keppt er í boccia, borðtennis og lyftingum. Fjöldi þátttakenda á þessu móti var um 200 talsins sem gerir mótið að einu stærsta sinnar tegundar á landi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gera-atlogu-ad-atlantsoliu
Gera atlögu að Atlantsolíu Albert Þór Magnússon framkvæmdastjóri Atlantsolíu hefur sent frá sér yfirlýsingu, þar sem segir að gömlu olíufélögin geri nú atlögu að Atlantsolíu með því að lækka verð næst bensínstöðvum fyrirtækisins en láta landsbyggðina greiða hærra verð. Þannig greiði neytendur á landsbyggðinni um 5-7 kr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samstada-vid-eyjafjord
Samstaða við Eyjafjörð Arna Jakobína Björnsdóttir, formaður KJALAR, flytur ávarp 1. maínefndar stéttarfélaganna á Akureyri, á baráttudegi launafólks á morgun 1. maí. „SAMSTAÐA VIÐ EYJAFJÖRÐ" eru kjörorð dagsins. Aðalræðu dagsins flytur Ögmundur Jónasson, formaður BSRB og einnig flytur Soffía Gísladóttir, framkvæmdastjó...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skaedur-lusafaraldur-i-trjam
Skæður lúsafaraldur í trjám Margir Akureyringar hafa orðið varir við töluverðar skemmdir á sitkagrenitrjám í bænum og er orsökin lúsafaraldur í trjánum. Hallgrímur Indriðason, skógræktarráðunautur hjá Skógrækt ríkisins, sagði að lúsafaraldurinn væri sá versti sem hans fólk hafi kynnst á Akureyri. Lúsin leggst frekar á ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/einmuna-vedurblida
Einmuna veðurblíða Einmuna veðurblíða hefur verið á Akureyri síðustu daga og í dag fór hitinn í um og yfir 20 gráður í plús. Hefur hitinn ekki mælst jafn mikill á Norðurlandi á þessum árstíma fyrr. Mikill fjöldi fólks er í bænum, meðal annars um 200 keppendur á Hængsmótinu, opnu íþróttamóti fyrir fatlaða, sem nú stendu...