Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ithrottarad-leggst-gegn-kvartmilubraut
Íþróttaráð leggst gegn kvartmílubraut Íþróttaráð Akureyrar leggst að svo stöddu gegn lagningu kvartmílubrautar í fullri lengd á fyrirhuguðu akstursíþróttasvæði Bílaklúbbs Akureyrar á Glerárdal. Ráðið leggur til að lögð verði braut sem fullnægi kröfum um ökugerði og hafi þannig þau áhrif að draga úr mögulegri hávaðameng...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorsarar-attu-aldrei-moguleika-i-grindavik
Þórsarar áttu aldrei möguleika í Grindavík Grindvíkingar stefna hraðbyri upp í úrvalsdeild á ný eftir góðan og öruggan sigur á Þórsurum í Grindavík um helgina. Grindvíkingar voru mun sterkari í leiknum og var Orri Freyr Hjaltalín sýnum fyrrum félögum í Þór gríðarlega erfiður. Hann skoraði fyrsta mark leiksins, snemma l...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ferdamadur-a-hradferd
Ferðamaður á hraðferð! Lögreglumenn frá Akureyri sem voru á eftirlitsferð í Öxnadal stöðvuðu bifreið sem ekið var á ofsahraða. Undir stýri reyndist erlendur ferðamaður og mældist bifreið hans á 140 km hraða. Ökumaðurinn þurfti að reiða fram háa sektarupphæð en erlendum ferðamönnum sem teknir eru fyrir hraðakstur er ger...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-tapadi-gegn-ibv
KA tapaði gegn ÍBV KA tapaði gegn ÍBV 0-2 í 1.deild karla á föstudagskvöldið. Leikurinn var afar daufur í fyrri hálfleik en í seinni hálfleik lifnaði heldur yfir honum. Eyjamenn voru þá töluvert sterkari aðilinn og uppskáru tvö mörk án þess að KA náði að svara. KA menn áttu fá umtalsverð marktækifæri í leiknum, en hefð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vetrarstarf-grunnskolanna-hafid
Vetrarstarf grunnskólanna hafið Vetrarstarf grunnskóla Akureyrar hófst í vikunni en alls eru 2.570 nemendur á grunnskólaaldri og þar af eru 260 nemendur að stíga sín fyrstu skref í 1. bekk. Brekkuskóli er fjölmennastur með um 540 nemendur og fæstir eru nemendurnir í Grunnskólanum í Hrísey eða 20. Þá munu 28 nemendur st...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/felagar-i-sulum-til-leitar
Félagar í Súlum til leitar Félagar í Súlum, björgunarsveitinni á Akureyri, munu taka þátt í leitinni að þýsku fjallagöngumönnunum á Svínafellsjökli. Von er á Fokker flugvél Landhelgisgæslunnar til Akureyrar nú í hádeginu og mun hún fljúga með 7 björgunarsveitarmenn frá Súlum til Hornafjarðar. Að sögn Skúla Árnasonar, f...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/budu-laegst-i-midhusabraut
Buðu lægst í Miðhúsabraut Fyrirtækið GV gröfur ehf. átti lægstu tilboð í lagningu Miðhúsabrautar vestan Geislatúns á Akureyri en alls bárust tilboð frá þremur aðilum í verkið. Samkvæmt útboði átti að skila tilboðum miðað við tvo skiladaga á fyllingum, verk A1, að þeim sé lokið fyrir 1. janúar 2008 og verk A2, að þeim s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/formleg-opnun-hja-saga-capital
Formleg opnun hjá Saga Capital Saga Capital Fjárfestingarbanki verður formlega opnaður á morgun, föstudag, þegar Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra klippir á borða og vígir höfuðstöðvar bankans í Gamla barnaskólanum á Akureyri. Þetta gamla og glæsilega skólahús er ríflega hundrað ára gamalt og friðað að utan en h...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fiskidagurinn-styrkir-gotusmidjuna
Fiskidagurinn styrkir Götusmiðjuna Fiskidagurinn mikli í Dalvíkurbyggð hefur á hverju ári styrkt góðgerðarstofnanir með fiskiskömmtum sem hafa verið afgangs eftir daginn. Í ár voru það fjögur bretti eða um 10.000 skammtar sem Fiskidagurinn mikli sendi Götusmiðjunni, mikil ánægja var á meðal forsvarsmanna Götusmiðjunnar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorka-i-bikarurslit-i-2-flokki-kvenna
Þór/KA í bikarúrslit í 2. flokki kvenna Þór/KA tryggði sér í gær sæti í úrslitaleik bikarkeppni KSÍ í 2. flokki kvenna með öruggum 4-1 sigri á GRV í Grindavík. Mörk Þórs/KA skoruðu Rakel Hönnudóttir, Arna Sif Ásgrímsdóttir og Inga Dís Júlíusdóttir 2. Akureyringar geta því svo sannarlega hlakkað til framtíðarinnar í fót...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jafntefli-hja-ka-og-thor-i-2-flokki
Jafntefli hjá KA og Þór í 2. flokki KA og Þór mættust í gærkvöld í 2. flokki karla á KA-vellinum kl. 19:00. Leikurinn fór fram í blíðskaparveðri á blautum, en sléttum og góðum velli. Liðin skildu jöfn, 1-1, en Vikudegi hafa enn ekki borist upplýsingar um markaskorara í leiknum. Upplýsingar um hverjir skoruðu óskast sen...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skolamaltidir-haekka
Skólamáltíðir hækka Á fundi skólanefndar Akureyrarbæjar nú í vikunni lá fyrir uppgjör á rekstri skólamötuneyta miðað við 31. júlí 2007 og útgönguspá fyrir árið. Í ljósi þessara upplýsinga kom fram tillaga um að gjaldskrá skólamötuneytanna yrði hækkuð um 12% og mánaðarkort verði lögð af. Þrátt fyrir þessa hækkun er gert...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyrarslagur-i-2flokki-karla-i-kvold
Akureyrarslagur í 2.flokki karla í kvöld Í kvöld fer fram á KA-vellinum sannkallaður stórleikur í B-deild 2.flokks karla þegar KA og Þór mætast. Deildin er afar jöfn og t.a.m munar aðeins örfáum stigum á milli efsta og neðsta liðs deildarinnar, en alls eru 8 lið í henni. Margir af leikmönnum meistaraflokka liðanna verð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tekst-thorka-ad-halda-ser-uppi
Tekst Þór/KA að halda sér uppi? Lokaspretturinn í Landsbankadeild kvenna fer senn að hefjast og er staða Þórs/KA betri en oftast áður, eftir góðan sigurleik gegn Fylki á útivelli í síðustu umferð. Liðið á nú eftir fjóra leiki í deildinni, tvo þeirra á heimavelli gegn KR og keppinautunum í fallbaráttunni, ÍR. Einnig á l...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ovitar-fyrsta-frumsyning-la
Óvitar fyrsta frumsýning LA Æfingar eru komnar vel á veg fyrir fyrstu frumsýningu haustsins hjá Leikfélagi Akureyrar, sem verður 15. september í Samkomuhúsinu. Þar er á ferðinni stórsýning á leikriti Guðrúnar Helgadóttur, "Óvitar", í leikstjórn Sigurðar Sigurjónssonar. Fyrir uppsetninguna nú hefur verið samin tónlist o...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ibuafundur-i-holta-og-hlidahverfi
Íbúafundur í Holta- og Hlíðahverfi Íbúafundur verður haldinn í Holta- og Hlíðahverfi á Akureyri á morgun, miðvikudaginn 22. ágúst, kl. 20.30 í matsal Glerárskóla. Kynntar verða tillögur að skipulagi á byggingarreit sem afmarkast af Langholti, Miðholti, Krossanesbraut og Undirhlíð. Eins og fram hefur komið í Vikudegi, á...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/felagsgjald-einingar-idju-laekki
Félagsgjald Einingar-Iðju lækki Stjórn Einingar-Iðju samþykkti á fundi sínum í síðustu viku að leggja það til við aðalfund félagsins, sem haldinn verður í apríl á næsta ári, að lækka félagsgjaldið niður í 1,0% en það er 1,3% nú. Samþykki aðalfundurinn lækkunina mun það hafa í för með sér að hætt verður að efla Vinnudei...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/floamarkadur-ad-homrum
Flóamarkaður að Hömrum Það verður mikið um að vera á tjaldsvæðinu að Hömrum helgina 25. og 26. ágúst nk. en þá verður haldinn þar flóamarkaður til styrktar bágstöddum í Mósambik undir yfirskriftinni „Gerum eitthvað gott, gerum það saman". Markaðurinn er nú haldinn annað árið í röð en að honum standa þær Margrét Þóra Ei...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/16-ara-a-stolnum-bil
16 ára á stolnum bíl Lögreglan á Akureyri stöðvaði í nótt ökuferð 16 ára unglings í bænum, en hann var, eins og gefur að skilja sökum aldurs hans, próflaus. Þá viðurkenndi hann að vera undir áhrifum fíkniefna og hann hafði tekið bifreið foreldra sinna ófrjálsri hendi. Tilkynnt var um innbrot í hárgreiðslustofu á Akurey...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikilvaegt-ad-vardveita-aettfraedigogn
Mikilvægt að varðveita ættfræðigögn Oddur Helgason hjá ORG - ættfræðiþjónustunni ehf. í Reykjavík var á ferð á sínum gömlu heimaslóðum á Akureyri og í næsta nágrenni nýlega, m.a. í leit að efni sem tengist vinnu hans við ættrakningar. Fyrirtæki hans sérhæfir sig í ættrakningum og söfnun allra þeirra ættfræðigagna sem Í...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samid-vid-idnadarmenn
Samið við iðnaðarmenn Unnið er að því að ganga frá samningum við iðnaðarmenn vegna innanhússframkvæmda við Menningarhúsið Hof á Akureyri. „Þetta gengur ágætlega, við erum komnir með samninga vegna ákveðinna verkþátta og á öðrum sviðum er þetta á vinnslustigi," segir Magnús Garðarsson, eftirlitsmaður með byggingu hússin...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/minkaveidiatak-i-eyjafirdi
Minkaveiðiátak í Eyjafirði Frá því í mars á þessu ári hefur sérstakt minkaveiðiátak verið í gangi í Eyjafirði, á svæði sem nær yfir sveitarfélögin Dalvíkurbyggð, Arnarneshrepp, Hörgárbyggð, Eyjafjarðarsveit, Akureyrarkaupstað, Svalbarðsstrandarhrepp og Grýtubakkahrepp. Umhverfisstofnun hefur umsjón með veiðunum og hafa...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tvaer-innbrotstilraunir-i-nott
Tvær innbrotstilraunir í nótt Tvær tilraunir til innbrota voru gerðar á Akureyri með skömmu millibili í nótt. Á báðum stöðunum fóru þjófavarnakerfi í gang og hröktu þjófinn eða þjófana af vettvangi áður en lögreglan mætti til að handsama þá. Varnarkerfi fór í gang í Lundarskóla um klukkan 5 í nótt og klukkustundu síðar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/um-90-storf-skapast-a-akureyri
Um 90 störf skapast á Akureyri Álþynnuverksmiðja mun rísa á Akureyri og taka til starfa á næsta ári. Við þetta skapast um 90 ný störf í bænum. Byggt verður 5000-8000 fermetra húsnæði undir starfsemina en verksmiðjunni hefur verið valinn staður í Krossanesi. Hér er um að ræða heildarfjárfestingu upp á um 10 milljarða kr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ha-tilbod-i-vidbyggingu-ha
Há tilboð í viðbyggingu HA Tvö tilboð bárust í framkvæmdir við Háskólann á Akureyri og voru þau bæði vel yfir kostnaðaráætlun en tilboð voru opnuð í morgun. Um er að ræða 4. áfanga í uppbyggingu húsnæðis HA. Fjölnir ehf. bauð tæpar 743 milljónir króna í verkið eða um 140% af kostnaðaráætlun, sem hljóðar upp á 530 millj...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/utlendingar-a-hradferd
Útlendingar á hraðferð Lögregumenn frá Akureyri fóru í eftirlitsferð í dag og óku í Varmahlíð í Skagafirði. Á leiðinni stöðvuðu þeir þrjár bifreiðar vegna hraðaksturs og í öllum tilfellum var um erlenda ferðamenn að ræða undir stýri. Sá þeirra sem hraðast ók var á 134 km hraða og mátti hann greiða 90 þúsund króna sekt ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hardur-arekstur-a-akureyri-1
Harður árekstur á Akureyri Mjög harður árekstur varð á gatnamótum Krossanesbrautar og Óseyrar skömmu eftir kl. 15.00 í dag. Þar skullu saman jepplingur og fólksbifreið, ökumennirnir voru einir í bílum sínum og sluppu ótrúlega vel en fólksbíllinn er mjög illa farinn, ef ekki ónýtur. Flytja þurfti báða bílana af vettvang...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skatar-senda-fra-ser-yfirlysingu
Skátar senda frá sér yfirlýsingu Stjórn Hamra - Útilífs- og umhverfismiðstöðvar skáta á Akureyri hefur sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu vegna umræðunnar um nýliðna verslunarmannahelgi á Akureyri. Skátar á Akureyri hafa um langt árabil rekið tjaldsvæðin á Akureyri með sérstökum samningi þar að lútandi við Akureyrar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/yfirlysing-baejarstjorans
Yfirlýsing bæjarstjórans Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri á Akureyri hefur sent frá sér yfirlýsingu í kjölfar mikillar umræðu um þá ákvörðun bæjaryfirvalda að heimila ekki fólki á aldrinum 18-23 ára aðgang að tjaldsvæðum bæjarins um verslunarmannahelgina. Sigrún kemur víða við í yfirlýsingu sinni og kemst að þeirr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/uppskera-og-handverk-a-hrafnagili
Uppskera og Handverk á Hrafnagili Hátíðin Uppskera og Handverk 2007 verður sett á morgun, föstudaginn 10. ágúst, kl. 10 að morgni við Hrafnagilsskóla. Þessi 15 ára gamla hátíð gengur nú í gegnum breytingaskeið og bryddað verður upp á ýmsum nýjungum. Breyttur opnunartími hátíðar, þar sem menn taka daginn snemma. Korn er...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ekkert-aest-i-naustahverfi
Ekkert æst í Naustahverfi Guðmundur Víðir Gunnlaugsson, formaður Ungmennafélags Akureyrar, segist hafa heyrt á fólki í stjórn UFA að það sé ekkert æst í að frjálsíþróttaaðstaða verði byggð upp í Naustahverfi. Hann sagði að þegar það hafi legið fyrir að Akureyrarvöllur yrði lagður af hafi menn talið best að fara í samst...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorka-tapadi-gegn-breidablik
Þór/KA tapaði gegn Breiðablik Þór/KA gengur ekki vel að ná í stig í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu, í gærkvöldi töpuðu þær gegn Breiðabliki í Kópavogi 0-2, úrslit sem verða að teljast sanngjörn. Blikastelpur hófu leikinn vel og voru komnar yfir eftir um 7 mínútna leik, þar var að verki landsliðsmaðurinn Gréta Mjö...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baejarstjornin-segi-af-ser
Bæjarstjórnin segi af sér „Bæjarstjórn Akureyrar hefur hagað sér þannig að hún á að segja af sér. Vegna ákvörðunar bæjaryfirvalda um að banna ákveðnum hópi fólks að tjalda á Akureyri um verslunarmannahelgina sitja veitingamenn á Akureyri uppi með tuga milljóna króna tjón og bæjarstjórnin sem sveik loforð um framkvæmd á...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hullumhae-i-eyjafirdi
Húllumhæ í Eyjafirði Gestkvæmt verður á Eyjafjarðarsvæðinu í vikunni og ber hæst stóra viðburði á svæðinu, s.s. Fiskidaginn mikla á Dalvík og Handverkshátíð í Eyjafjarðarsveit. Ekki er óvarlegt að ætla að gesti á svæðinu megi telja í tugum þúsunda. Í ljósi þessa hafa aðilar á Eyjafjarðarsvæðinu og forsvarsmenn þessara ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nytt-baejarskilti-sett-upp
Nýtt bæjarskilti sett upp Nýtt bæjarskilti með leiðarvísum fyrir Akureyrarbæ var sett upp fyrir helgina og hefur væntanlega komið sér vel fyrir gesti helgarinnar sem og aðra sem leið eiga um bæinn. Á áætlun var að setja þetta bæjarkort upp fyrr en ákveðið að bíða eftir fullkomnara og betur uppfærðu korti en miklar fram...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/godur-arangur-ufa-a-unglingalandsmoti-umfi
Góður árangur UFA á Unglingalandsmóti UMFÍ Um helgina var haldið Unglingalandsmót UMFÍ í 10. sinn og heppnaðist það frábærlega. Í raun var þarna um að ræða aðra stærstu útihátíð landsins, því að þarna mættu hvorki meira né minna en 6000 manns, þ.e. keppendur og fjölskyldur þeirra. Akureyringar áttu að sjálfsögðu sína f...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bilbeltin-bjorgudu
Bílbeltin björguðu Umferðarslys varð í Hörgárdal á sjötta tímanum í morgun er fólksbifreið á leið vestur fór út af veginum og valt. Í henni voru fimm ungmenni og slasaðist ökumaður talsvert og var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Aðrir sluppu með skrámur. Bifreiðin skemmdist mikið og lagðist þak hennar að mes...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/med-100-skammta-af-lsd
Með 100 skammta af LSD Eitthundrað skammtar af LSD fundust við leit á farþega í fólksflutningabíl í Varmahlíð í Skagafirði seint í gærkvöld. Farþeginn var á leið til Akureyrar og má ætla að efnið hafi átt að vera til sölu þar. Lögreglan á Akureyri hefur verið með sérstakt fíkniefnaeftirlit um helgina þar sem þrír lögre...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gott-astand-a-akureyri
Gott ástand á Akureyri Vel hefur gengið á hátíðinni Einni með öllu á Akureyri það sem af er og engin sérstök mál komið upp. Fjöldi fólks var á dagskrá hátíðarinnar í miðbæ Akureyrar í gærkvöld og fóru hátíðarhöldin vel fram. Veitingahús og skemmtistaðir voru vel sóttir. Nokkur ölvun var en gestir fóru þó fljótlega heim...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/konur-ekki-medal-theirra-tekjuhaestu
Konur ekki meðal þeirra tekjuhæstu Engin kona er á listanum yfir þá 10 sem greiða hæstu gjöldin á Norðurlandi eystra og það sama er uppi á tengingnum þegar horft er einungis á þá sem greiða mest á Akureyri, engin kona kemst á þann lista. Reyndar er það svo að þegar horft er á lista yfir 155 tekjuhæstu einstaklinga á Ak...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bryndis-run-og-sindri-thor-settu-akureyrarmet
Bryndís Rún og Sindri Þór settu Akureyrarmet Bryndís Rún Hansen og Sindri Þór Jakobsson, sundmenn úr Sundfélaginu Óðni, kepptu fyrir hönd Íslands á Ólympíuhátíð æskunnar sem fram fór í Belgrad í Serbíu fyrir stuttu. Valið var í liðið eftir árangri og voru þau Bryndís Rún og Sindri Þór með bestu tímana í sínum aldursflo...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/petur-heidar-til-keflavikur
Pétur Heiðar til Keflavíkur Pétur Heiðar Kristjánsson hefur verið seldur frá Þór til úrvalsdeildarliðs Keflavíkur í knattspyrnu. Hann er 25 ára sóknar- og miðjumaður sem uppalinn er hjá Þór og hefur leikið með félaginu stærstan hluta síns ferils. Pétur er afar teknískur og útsjónarsamur knattspyrnumaður sem hefur átt g...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gridarlega-osanngjarnt-tap-hja-thorka
Gríðarlega ósanngjarnt tap hjá Þór/KA Sameiginlegt kvennalið Þórs/KA mætti í gærkvöld Keflavík í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu. Keflvíkingar höfðu mjög ósanngjarnan 2-1 sigur með sigurmarki á lokasekúndum leiksins. Þórs/KA stelpur voru mun sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en áttu í vandræðum með að skapa sér op...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ekkert-gengur-hja-thor-i-fotboltanum
Ekkert gengur hjá Þór í fótboltanum Þórsarar tóku á móti Reyni frá Sandgerði á þriðjudagskvöldið og lyktaði leiknum með jafntefli 1-1, nokkuð sem Þórsarar hljóta að teljast mjög ósáttir við enda Reynisliðið slakt fótboltalið sem situr í neðsta sæti deildarinnar. Heimamenn í Þór hófu leikinn af krafti og áttu m.a. gott ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leikmenn-ad-koma-og-fara-hja-thor-og-ka
Leikmenn að koma og fara hjá Þór og KA Nokkrar hræringar hafa orðið í leikmannamálum Þórs og KA í knattspyrnunni að undanförnu enda var félagaskiptamarkaðnum lokað í gærkvöldi. Þórsarar fengu til sín Atla Jens Albertsson frá Vinum Nunna fyrir skömmu og lék hann sinn fyrsta leik með liðinu í 2-1 tapleik á Ólafsvík um he...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorsarar-gerdu-slaemt-1-1-jafntefli-vid-reyni-s
Þórsarar gerðu slæmt 1-1 jafntefli við Reyni S Þórsarar tóku á móti Reyni frá Sandgerði á þriðjudagskvöldið og lyktaði leiknum með jafntefli 1-1. Heimamenn í Þór hófu leikinn af krafti og áttu m.a. gott færi fljótlega þegar Einar Sigþórsson skallaði boltann í stöng Reynismanna og þaðan fór boltinn útaf. Einnig átti Hly...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjolskyldufolk-i-forgangi
Fjölskyldufólk í forgangi Um komandi verslunarmannahelgi verður fjölskyldufólk á öllum aldri í forgangi á tjaldsvæðum Akureyrarbæjar við Þórunnarstræti og á Hömrum. Viðmið verða þó sett um aðgang einstaklinga á aldrinum 18-23 ára og geta þeir að öllu jöfnu ekki búist við að fá inni á tjaldsvæðunum þessa helgi. Rekstrar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/arngrimur-greidir-mest
Arngrímur greiðir mest Arngrímur Jóhannsson, fyrrum forstjóri Flugfélagsins Atlanta, er hæsti greiðandi opinberra gjalda á Norðurlandi eystra samkvæmt skattskrá sem lögð var fram í morgun. Arngrímur greiðir 118,4 milljónir króna. Í næsta sæti kemur Bjarni Aðalgeirsson, útgerðarmaður á Húsavík, sem greiðir 44,4 milljóni...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/adalstjorn-thors-faer-oskorad-umbod-til-samninga-vid-akureyrarbae
Aðalstjórn Þórs fær óskorað umboð til samninga við Akureyrarbæ Nú rétt í þessu var að ljúka almennum félagsfundi í Íþróttafélaginu Þór. Rétt rúmlega 100 manns sóttu fundinn og voru umræður fjörugar. Í lok fundarins var samþykkt ályktun þess efnis að aðalstjórn félagsins fær óskorað umboð til að ganga til samninga við A...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/lengingunni-flytt
Lengingunni flýtt Ríkisstjórnin hefur ákveðið að flýta framkvæmdum við lengingu flugbrautarinnar á Akureyri og er stefnt að því að framkvæmdum verði lokið haustið 2008. Um er að ræða 500 metra lengingu. Þetta þýðir að verkinu er flýtt um eitt ár og er aðgerðin ein af svokölluðum „mótvægisaðgerðum" vegna skerðingar þors...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/malid-er-i-vinnslu
Málið er í vinnslu „Ég las viðtal ykkar í Vikudegi við Halldór Jóhannsson og hef heyrt í honum símleiðis eftir það. Á þessari stundu get ég sagt að málið er í vinnslu og því verður hraðað," segir Kristján L. Möller samgönguráðherra. Þarna er ráðherra að vísa til ummæla Halldórs Jóhannssonar framkvæmdastjóra KEA um að f...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrstu-einsongstonleikarnir
Fyrstu einsöngstónleikarnir „Jú, það er mjög spennandi að halda mína fyrstu einsöngstónleika hér í mínum heimabæ og ég vona svo sannarlega að þetta sé eitthvað sem fólk hefur áhuga á og komi og hlusti," segir Eyrún Unnarsdóttir mezzósópran sem mun halda hádegistónleika á vegum Listasumars í Ketilhúsinu á morgun, föstud...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyringar-17-thusund
Akureyringar 17 þúsund Akureyringar urðu 17.000 í byrjun júlí þegar hjónunum Krzysztof Dziubinski og Beatu Mieczyslawa Dziubinska fæddist fallegur sonur á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Pilturinn heitir Gabríel Óskar Dziubinski og leit dagsins ljós 3. júlí sl. Af þessu tilefni færði bæjarstjórinn á Akureyri, Sigrún ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjorir-a-fsa-vegna-gassprengingar
Fjórir á FSA vegna gassprengingar Fjórir hestamenn voru í nótt fluttir á slysadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri eftir að hafa lent í gassprengingu í gömlu íbúðarhúsi að Sörlastöðum í Fnjóskadal. Hópur um 20 hestamanna áði þar í gærkvöldi og hugðist hafa þar næturstað. Sprengingin varð í gaslampa skömmu eftir miðn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrir-mommu
“Fyrir mömmu” "Fyrir mömmu" er yfirskrift stórtónleika, sem haldnir verða í Íþróttahöllinni á Akureyri sunnudaginn 9. september nk. Kristján Jóhannsson óperusöngvari verður þar í aðalhlutverkinu. Hann óskaði eftir því að tónleikarnir yrðu til heiðurs móður hans, Fanneyju Oddgeirsdóttur, sem verður níræð 14. september. ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akaerur-vegna-lukasarmalsins
Ákærur vegna Lúkasarmálsins „Stóra Lúkasarmálinu" er ekki lokið þótt hundurinn Lúkas hafi verið fangaður í gildru í Fálkafelli ofan Akureyrar fyrr í vikunni. Eftir stendur að einhver hópur manna bar ljúgvitni hjá lögreglu í málinu og aðrir hótuðu ungum manni m.a. á netinu. Voru þær hótanir alvarlegar og jafnvel um morð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hofdingleg-gjof-til-fsa-fra-huldumanni
Höfðingleg gjöf til FSA frá huldumanni Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri hefur borist höfðingleg gjöf frá velunnara sem ekki vill láta nafns síns getið. Um er að ræða peningagjöf að fjárhæð 4 milljónir króna. Að ósk gefanda verður fjárhæðin nýtt til kaupa á sérhæfðu eftirlitskerfi fyrir sjúklinga á slysadeild sjúkrahúss...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ungur-thjofur-stodvadur
Ungur þjófur stöðvaður Sautján ára piltur var handtekinn á Akureyri í fyrrinótt er hann gerði tilraun til innbrots í bænum ásamt tveimur jafnöldrum sínum, dreng og stúlku. Við yfirheyrslur hjá lögreglu kom í ljós að pilturinn hafði verið djarftækur í innbrotum upp á síðkastið en hin tvö sem voru með honum voru að „aðst...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/styrkir-ur-afreks-og-styrktarsjodi
Styrkir úr Afreks- og styrktarsjóði Í dag var formlega gengið frá styrkjum úr Afreks- og styrktarsjóði Akureyrarbæjar. Það eru skíðakonurnar Dagný Linda Kristjánsdóttir og Íris Guðmundsdóttir sem fá styrki úr sjóðnum fyrir næsta ár og sagði Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri við þetta tækifæri að þær væru báðar glæs...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fimm-ara-laxveidimadur
Fimm ára laxveiðimaður Ásgeir Marinó Baldvinsson, 5 ára strákur sem var að veiða í Skjálfandafljóti með pabba sínum, Baldvini H. Ásgeirssyni, um helgina fékk þennan 3,5 punda lax á veiðistöng sem var varla mikið stærri en fiskurinn. Það tók góðar 10 mín. að ná fiskinum á land enda bauð stöngin ekki upp á nein átök. Þet...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kviaeldi-a-thorski
Kvíaeldi á þorski Vikudagur fór í vikunni í ferð með Brims-mönnum út í eldiskvíar að fylgjast með slátrun. Lesa má um ferðina í blaðinu og skoða myndir hér á síðunni með því að smella á hnappinn Ljósmyndir hér að ofan. Í ferðinni var náð í 7 tonn af fiski sem unnin voru yfir daginn og var tilbúið í verðmætar ferskfisks...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thekktur-finnskur-listamadur-opnar-syiningu
Þekktur finnskur listamaður opnar sýiningu Laugardaginn 21. júlí opnar hinn góðkunni listamaður Janne Laine sýninguna Night Reflections í Jónas Viðar Gallerí kl. 15 00. Janne Laine er vel þekktur grafík listamaður frá Finlandi, hann hefur haldið fjölda sýninga víða um heim. Hann starfar sem master prentari við hið þekk...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kea-menn-tilbunir
KEA-menn tilbúnir „Ég er eins og áður tilbúinn að ræða við samgönguyfirvöld um flýtifjármörgun á Akureyrarflugvelli," segir Halldór Jóhannsson framkvæmdastjóri KEA aðspurður um hvort hugmyndir sem viðraðar voru fyrir um ári af hálfu KEA og einnig af hálfu Akureyrarbæjar varðandi flýtifjármögnun á flugvallarframkvæmdum ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thad-er-glaepur-i-malinu-en-ekki-hja-mer
Það er glæpur í málinu, en ekki hjá mér! "Það er glæpur í málinu en hann er ekki hjá mér," segir Þorsteinn Hjáltason lögmaður á Akureyri í ítarlegu viðtali við Vikudag í dag. Þorsteinn er mjög ósáttur við niðurstöðu Héraðsdóms Norðurlands eystra í gær í svokölluðu kerfisvillumáli í galdeyrisviðskiptum Glitnis, en hann ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sekt-fyrir-ad-klaedast-logregluskyrtu
Sekt fyrir að klæðast lögregluskyrtu Karlmaður hefur í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmdur fyrir að hafa klæðst einkennisskyrtu lögreglunnar á veitingastaðnum Kaffi Akureyri í apríl á þessu ári. Maðurinn viðurkenndi það brot sitt. Maðurinn var einnig ákærður fyrir að hafa gefið óeinkennisklæddum lögreglumönnum u...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kerfisvillumali-visad-fra
Kerfisvillumáli vísað frá Máli fólks sem notfærði sér kerfisvillu í gjaldeyrisviðskiptakerfi Glitnis var í dag sjálfkrafa vísað frá dómi á þeirri forsendu að saksóknarinn í málinu hefði í raun ekki umboð til að gefa út ákæruna. Það rekur dómstóllinn til þess að reglugerð um saksóknara efnahagsbrotadeildar gengur lengra...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vill-tafarlausar-vidraedur
Vill tafarlausar viðræður! Bæjarstjórn Akureyrar krefst þess í sérstakri ályktun að fá tafarlausar viðræður við ríkisstjórnina um atvinnumál Eyjafjarðarsvæðisins. Þetta kemur fram í ályktun sem bæjarstjórnin samþykkti á fundi sínum í gær. Í ályktuninni sem Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri gerði grein fyrir segir m...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hardur-arekstur-a-tryggvabraut
Harður árekstur á Tryggvabraut All harður árekstur varð á Tryggvabraut í hádeginu í dag. Jeppi sem ók vestur Tryggvabraut ók inn í pallbíl sem var að koma út af bílastæðinu hjá Olís bensínstöðinni rétt austan gatnamótanna við Glerárgötu. Ekki urðu slys á fólki en bílarnir voru mikið skemmdir og var pallbíllinn fjarlægð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/frjalsar-ithrottir-fara-a-nytt-ka-svaedi
Frjálsar íþróttir fara á nýtt KA-svæði Við metum það þannig í framkvæmdastjórn Þórs að frekari viðræður um uppbyggingu frjálsíþróttaaðstöðu á Þórssvæðinu séu tilgangslausar. Þetta er niðurstaða fundar sem við héldum nú í hádeginu og í þessum töluðu orðum er ég á leiðinni með bréf þessa efnis til formanns íþróttaráðs," ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/styrkir-fiskidaginn-mikla
Styrkir Fiskidaginn mikla Í dag skrifuðu Húsasmiðjan og Fiskidagurinn mikli undir styrktar og samstarfssamning. Frá upphafi hefur Húsasmiðjan verið í hópi styrktaraðila. Að sögn Júlíusar Júlíussonar, framkvæmdastjóra Fiskidagsins mikla, eru Fiskidagsmenn afar ánægðir með að hafa Húsasmiðjuna í hópi styrktar- og samstar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/boltinn-er-hja-thor-segir-baejarstjori
Boltinn er hjá Þór, segir bæjarstjóri "Ég lít svo á að boltinn sé hjá Þórsurum," segir Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri á Akureyri, um þá niðurstöðu aðalfundar Íþróttafélagsins Þórs að fella samninginn sem gerður hafði verið milli stjórnar félagsins og bæjaryfirvalda. Bæjarstjóri minnir á að samningurinn hafi ver...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/huni-i-hvalaskodunum
Húni í hvalaskoðunum Húni II, sem alla jafna liggur við Torfunefsbryggjuna og er Akureyringum og gestum þeirra til augnayndis, er nú staddur á Húsavík. Báturinn er þar hjá hvalaskoðunarfyrirtækinu Norðursiglingu en mikið er um að vera í hvalaskoðunum þessar vikurnar. Húni mun verða á Húsavík og Skjálfandaflóa næstu tvæ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/malid-er-i-uppnami
Málið er í uppnámi „Jú, það er klárt að þetta mál er allt í uppnámi núna,” sagði Sigfús Ólafur Helgason, formaður Íþróttafélagsins Þórs, en samkomulag stjórnar félagsins og bæjaryfirvalda um uppbyggingu á Þórssvæðinu var fellt á aðalfundi Þórs í fyrrakvöld. Samkomulagið sem var undirritað fyrir skömmu gekk út á margþæt...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eything-vill-fjolbreyttar-adgerdir
Eyþing vill fjölbreyttar aðgerðir Stjórn Eyþings, sambands sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum, sendi frá sér ályktun í gær vegna þriðjungs niðurskurðar á heildaraflamarki í þorski. Stjórnin lýsir þungum áhyggjum og bendir á margar mótvægisaðgerðir sem grípa þarf til á sviði samgangna, menntunar og nýsköpunar ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/flugvallarframkvaemdum-flytt
Flugvallarframkvæmdum flýtt? „Án þess að það liggi fyrir, þá er stefnt að því að flýta framkvæmdum við lengingu flugbrautarinnar á Akureyri sé þess nokkur kostur. Þessu verki á, samkvæmt áætlunum sem unnið hefur verið eftir, að ljúka haustið 2009 en vonandi tekst að flýta verkinu," segir Kristján L. Möller samgönguráðh...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/180-manna-veisla-i-kvold
180 manna veisla í kvöld Götumyndin í Gilinu hefur tekið stakkaskiptum á síðustu vikum samhliða því að gamla Bögglageymslan hefur verið gerð upp sem veitingahús Friðriks V. Í dag, fimmtudag, mun Sigrún Jakobsdóttir bæjarstjóri formlega opna hið nýja veitingahús. Í kvöld verður svo haldin 180 manna veisla í húsinu fyrir...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/daemdir-fyrir-fikniefnabrot
Dæmdir fyrir fíkniefnabrot Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt í máli fjögurra ungra manna vegna brota á fíkniefnalöggjöfinni.Einn þeirra er Akureyringur sem var tekinn með 10 e-töflur og hlaut hann 120 þúsund króna sekt. Annar Akureyringur fékk 40 þúsund króna sekt en hann var tekinn tvo daga í röð með hass og b...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gaf-hofdinglega-peningagjof
Gaf höfðinglega peningagjöf Margeir Steingrímsson, íbúi á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Hlíð á Akureyri, hefur fært Öldrunarheimilum Akureyrar höfðinglega gjöf, peningagjöf að upphæð 3 milljónir króna. Gjöfin rennur í gjafasjóð Öldrunarheimila Akureyrar og á að nýta til að bæta og endurnýja húsbúnað og tæki heimilanna....
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjolsmidja-a-akureyri
Fjölsmiðja á Akureyri Fyrir stundu var skrifað undir skipulagsskrá fyrir Fjölsmiðjuna á Akureyri við hátíðlega athöfn í húsakynnum Rauða krossins á Akureyri. Fjölsmiðja er atvinnutengt úrræði fyrir ungt fólk á krossgötum, sem hefur flosnað upp úr námi eða vinnu. Í Fjölsmiðjunni er ungmennum hjálpað við að finna sér sta...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fleiri-segja-audvelt-ad-fa-vinnu-vid-haefi
Fleiri segja auðvelt að fá vinnu við hæfi Fleira fólk á Akureyri telur að það sé auðveldara að fá störf við hæfi núna en það var fyrir ári síðan. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri könnun sem Capacent Gallup hefur gert fyrir Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar og Vaxtarsamning Eyjafjarðar. Úrtakið í könnuninni var ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stutina
„Stútína Lögreglan á Akureyri fékk um það fréttir klukkan tvö í nótt að bifreið hafi verið ekið út af veginum skammt norðan við Kjarnaskóg. Í ljós kom að kona, sem sterklega er grunuð um ölvun við akstur, hafði verið þar á ferð og var konan við bifreiðina þegar að var komið. Bifreiðin var að hluta utan vegarins en hafð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samninga-verdur-leitad
Samninga verður leitað Magnús Garðarsson, eftirlitsmaður nýframkvæmda hjá Akureyrarbæ, segir að verið sé að skoða mál er varðar byggingu menningarhússins Hofs í kjölfar þess að viðunandi tilboð hafa ekki fengist í tréverk og múrverk í húsinu þrátt fyrir tvö útboð. „Við erum að skoða málin og munum kalla menn til viðræð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ekkert-mark-tekid-a-reynslu
Ekkert mark tekið á reynslu!! Akureyringuninn Árni Bjarnason, forseti Farmanna og fiskimannasambands Íslands, hefur sent frá sér harðorða yfirlýsingu í tilefni af ákvörðun sjávarútvegsráðherra um aflaheimildir á næsta fiskveiðiári. Segir hann ekkert mark tekið á margreyndum sjómönnum. Yfirlýsing Árna er svohljóðandi: Y...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gridarleg-ahrif-a-eyjafjardarsvaedinu
Gríðarleg áhrif á Eyjafjarðarsvæðinu Ljóst er að áhrif ákvörðunar Einars K. Guðfinnssonar sjávarútvegsráðherra um niðurskurð á aflaheimildum í þorski fyrir næsta fiskveiðiár niður í 130 þúsund tonn mun hafa gríðarleg áhrif á Eyjafjarðarsvæðinu. Konráð Alfreðsson, formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar, sagðist í samtali v...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/n1-og-ka-gera-samstarfssamning
N1 og KA gera samstarfssamning N1 og Knattspyrnufélag Akureyrar hafa gert með sér víðtækan samstarfssamning sem kveður á um að N1 verður aðalstyrktaraðili knattspyrnudeildar KA til og með árinu 2010. Samningurinn tekur til meistaraflokks karla, 2. flokks karla og 3. flokks karla og jafnframt N1-mótsins í knattspyrnu fy...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/haskolinn-faer-ad-byggja
Háskólinn fær að byggja Stjórnvöld hafa gefið grænt ljós á nýbyggingu við Háskólann á Akureyri sem áformað er að taka í notkun haustið 2009. Með tilkomu nýju byggingarinnar flyst öll starfsemi skólans úr Þingvallastræti og verður þá svo til öll komin á Sólborgarsvæðið. Í nýju byggingunni, sem verður um 2 þúsund fermetr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thriggja-ara-styrktarsamningur
Þriggja ára styrktarsamningur Í gærmorgun skrifuðu Landflutningar-Samskip og Fiskidagurinn mikli undir 3 ára styrktarsamning. Allt frá upphafi Fiskidagsins mikla, eða í sex ár, hafa Landflutningar-Samskip verið í hópi aðalstyrktaraðila. „Það er okkur mikil ánægja að skrifa undir samning við þetta góða fyrirtæki sem hef...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/itali-a-hradferd
Ítali á hraðferð Honum virtist liggja talsvert mikið á ítalska ferðamanninum sem átti leið um Hörgárdal í gærkvöldi. Lögreglan stöðvaði bifreið hans eftir að hún hafði mælst á 171 km hraða þar sem leyfilegur hámarkshraði er 90 km. Ökumaðurinn knái var sviftur ökuleyfi og honum uppálagt að greiða 112 þúsund króna sekt. ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thjofurinn-kom-tvisvar
Þjófurinn kom tvisvar Þjófur var á ferðinni á Akureyri í gærkvöld. Komst hann inn í íbúð og stal úr henni tveimur fartölvum og einhverju fleiru. Þjófurinn ágirndist reyndar eitthvað fleira í íbúðinni og fór því þangað aftur, en hitti þá fyrir lögreglu og var handtekinn.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/svifryksmaelirinn-biladur
Svifryksmælirinn bilaður Mælirinn sem mælt hefur svifryk á gatnamótum Hörgárbrautar og Tryggvabrautar hefur verið bilaður frá því í vor og er enn að sögn Alfreðs Schiöth hjá Heilbrigðiseftirliti Eyjafjarðar. Þessi sami mælir, sem er orðinn gamall, bilaði einnig á síðasta ári og var bilaður í nokkra mánuði. Alfreð segir...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/annriki-i-sjukrafluginu
Annríki í sjúkrafluginu Mikið annríki hefur verið í sjúkraflugi hjá Slökkviliði Akureyrar. Í júnímánuði var farið í 48 sjúkraflug á 30 dögum. Flogið er með Beechcraft King Air 200 vél Mýflugs og með í för er ávallt neyðarflutningsmaður frá Slökkviliði Akureyrar. Á sama tíma í fyrra hafði verið farið í 193 sjúkraflug en...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/litid-rigndi-a-akureyri
Lítið rigndi á Akureyri Sáralítil úrkoma var á Akureyri í júnímánuði sem er nýliðinn. Úrkoman mældist aðeins 0,33 millimetrar og þarf allt aftur til ársins 1933 til að finna mánuð með jafn litla úrkomu, en í maí það ár rigndi nákvæmlega ekki neitt á Akureyri. Hitafar á Akureyri var gott í síðasta mánuði en meðalhitinn ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjolbreytni-i-veitingarekstri
Fjölbreytni í veitingarekstri Veitingastöðum fjölgar sem aldrei fyrr á Akureyri en undanfarnar vikur og mánuði hefur hver staðurinn af öðrum verið opnaður og um leið hefur fjölbreytnin aukist til muna. Hamaborgarabúlla, austurlenskur staður, grænmetisstaður, skyndibitastaður og indverskur staður hafa verið opnaðir eða ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ein-med-ollu-um-verslunarmannahelgina
„Ein með öllu“ um verslunarmannahelgina Ákveðið hefur verið að blása til hátíðarinnar „Ein með öllu" á Akureyri um verslunarmannahelgina. Ástæða þess hversu seint ákvörðunin er tekin er sú að beðið var eftir því hvað Akureyrarbær myndi aðhafast og hvernig aðkoma bæjarins að hátíðinni yrði, að sögn Braga V. Bergmann, ta...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sami-fjoldi-umsokna-i-ha-og-i-fyrra
Sami fjöldi umsókna í HA og í fyrra Alls bárust Háskólanum á Akureyri 660 umsóknir um nám nú í vor og rúmlega 600 greiddu innritunargjald og staðfestu umsóknir sínar. Þetta er nánast sami fjöldi umsókna og barst skólanum í fyrra. Að sögn Laufeyjar Petreu Magnúsdóttur forstöðumanns kennslusviðs HA voru flestar umsóknir ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gardslanga-sett-inn-um-gluggann
Garðslanga sett inn um gluggann Miklar skemmdir voru unnar á íbúð við Brekkugötu á Akureyri á dögunum en einhver eða einhverjir þrjótar höfðu gert sér það að leik að taka garðslöngu með úðaranum á og tróða öllu inn um glugga á íbúðinni sem er á miðhæð og skrúfað frá. ,,Þetta er afskaplega dapurt fyrir okkur og þá ekki ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/risa-skemmtiferdaskip-a-akureyri
Risa skemmtiferðaskip á Akureyri Langstærsta skip sem nokkru sinni hefur komið til Akureyrar, skemmtiferðaskipið Grand Princess, lagðist að Oddeyrarbryggju í morgun. Um borð eru um 2.900 farþegar og rúmlega 1000 skipverjar. Skipið, sem 109 þúsund tonn að stærð, heldur til Reykjavíkur síðdegis en er væntanlegt aftur til...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/brynhildur-til-saga-capital
Brynhildur til Saga Capital Brynhildur Ólafsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Samskiptasviðs hjá Saga Capital Fjárfestingarbanka. Hún mun hafa yfirumsjón með markaðsmálum bankans, almannatengslum hans og samskiptum við innlenda og erlenda samstarfsaðila. Brynhildur hefur undanfarin 19 ár aðallega starfað við fjölm...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/flest-tilbod-yfir-kostnadaraaetlun
Flest tilboð yfir kostnaðaráætlun Aðeins fáir aðilar buðu í fjölda verkþátta sem snúa að trésmíðavinnu og múrverki í menningarhúsinu Hofi á Akureyri en tilboð voru opnuð í morgun. Magnús Garðarsson eftirlitsmaður nýframkvæmda hjá Fasteignum Akureyrarbæjar var heldur óhress með þessa niðurstöðu en hér var um að ræða ann...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/saga-kea-a-margmidlunardiski
Saga KEA á margmiðlunardiski Félagsmenn KEA munu á næstu dögum fá að gjöf frá félaginu margmiðlunardisk þar sem sögu félagsins í 120 ár eru gerð skil í máli og myndum. Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA, afhenti Guðrúnu Kristinsdóttur safnstjóra á Minjasafninu á Akureyri fyrsta diskinn í dag, enda talið vel við h...