Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.akureyri.is/is/frettir/snertigardur-vid-hlid
Snertigarður við Hlíð Í gær var garðurinn sunnan og austan við nýbyggingu Öldrunarheimilisins Hlíðar vígður með pompi og prakt. Við það tækifæri söng kór Möðruvallaklausturssóknar undir stjórn Helgu Bryndísar Magnúsdóttur nokkur lög, bæjarstjórinn, Sigrún Björk Jakobsdóttir, hélt stutta tölu og Brit Bieltvedt, framkvæm...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fjolmenni-vid-vigsluhatid-i-hrisey
Fjölmenni við vígsluhátíð í Hrísey Mikill fjöldi fólks var við vígsluhátíð nýrrar Íþróttamiðstöðvar og sundlaugar í Hrísey í dag. Um þrjú hundruð manns fóru með ferjunni Sævari út í eyju og fögnuðu þessum merka áfanga með Hríseyingum. Ýmsir tóku til máls á þessari hátíðlegu stund og að lokinni formlegri dagskrá þáði fó...
https://www.akureyri.is/is/frettir/the-hoodangers-a-akureyri
The Hoodangers á Akureyri Ástralska djasshljómsveitin The Hoodangers verður í hljómleikaferð á Íslandi 12. til 21. júní næstkomandi. Hljómsveitin mun hefja ferð sína á AIM hátíðinni á Akureyri við opnun þeirrar hátíðar þann 12. júní og verður síðan með tónleika laugardaginn 14. júní á Marina á Akureyri þar sem Oddvitin...
https://www.akureyri.is/is/frettir/biladagar-2008
Bíladagar 2008 Bílaklúbbur Akureyrar stendur fyrir hátíðinni “Bíladagar á Akureyri” dagana 13. - 17. júní nk. Bílaklúbburinn hefur staðið fyrir bílasýningu á þjóðhátíðardaginn óslitið frá árinu 1974 og efnt til sérstakra bíladaga síðustu árin en þeir hafa notið mikilla vinsælda meðal áhugamanna um mótorsport. Skráninga...
https://www.akureyri.is/is/frettir/gifurlegur-ahugi-a-nami
Gífurlegur áhugi á námi Fimmtudaginn 5. júní rann út frestur til að sækja um nám við Háskólann á Akureyri og hafa alls borist rúmlega 900 umsóknir frá nýnemum sem er met í sögu skólans. Þetta er gífurleg aukning frá fyrri árum og til samanburðar má nefna að árið 2007 sóttu 730 nýnemar um nám við skólann. Flestir nýnema...
https://www.akureyri.is/is/frettir/jonsmessuleikur-fyrir-bornin
Jónsmessuleikur fyrir börnin Hinn árlegi Jónsmessuleikur verður haldinn í Kjarnaskógi mánudaginn 23. júní og er athygli foreldra vakin á því að ennþá er hægt að skrá börn til þátttöku. Þennan dag verður unnið á ýmsan skemmtilegan hátt með efnivið úr skóginum og farið í leiki og spuna. Dagskráin stendur frá klukkan 10 t...
https://www.akureyri.is/is/frettir/lad-og-logur
Láð og lögur Ljósmyndasýningin Láð og lögur verður opnuð laugardaginn 14. júní kl. 14 í Jónas Viðar Gallerí í Grófargilinu á Akureyri. Þar sýnir Hörður Geirsson loftljósmyndir sem teknar voru á síðasta ári. Hörður hefur áður haldið nokkrar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum allt frá árinu 1983 en þó aldrei sýnt ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/arsfundur-afe
Ársfundur AFE Ársfundur Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar verður haldinn miðvikudaginn 11. júní að Melum í Hörgárdal. Á fundinum verður sjónum sérstaklega beint að tækifærum samfara lengingu flugbrautarinnar á Akureyri. Aðalræðumaður verður Matthías Imsland, forstjóri Iceland Express. Dagskrá fundarins er þannig að kluk...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kvennahlaup-isi
Kvennahlaup ÍSÍ Mjög góð þátttaka var í Kvennahlaupi ÍSÍ síðasta laugardag á Akureyri og hið sama var uppi á teningnum við Öldrunarheimilið Hlíð á föstudag þegar heimilisfólk og starfsfólk þar þjófstartaði hlaupinu og tók sér örlítið forskot á sæluna. Myndirnar hér að neðan voru teknar við Hlíð á föstudag og í sjálfu h...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fifilbrekkuhatid
Fífilbrekkuhátíð Árleg Fífilbrekkuhátíð verður haldin á Hrauni í Öxnadal laugardaginn 14. júní en þar verður gestum meðal annars boðið í gönguferðir undir leiðsögn um fólkvanginn Jónasarvang sem opnaður var í fyrrasumar til minningar um Jónas Hallgrímsson. Göngurnar eru þrjár, sú lengsta upp Kisubrekku um Drangabolla a...
https://www.akureyri.is/is/frettir/gullid-i-grafiskri-honnun
Gullið í grafískri hönnun Margrét Ingibjörg Lindquist frá Akureyri fékk "gullið" og nafnbótina "Evrópski nemandi ársins" nú nýverið hjá ADC*E, samtökum fagfélaga grafískra hönnuða. Viðurkenninguna hlaut Margrét fyrir verk sitt "how2own" sem hún vann í Myndlistaskólanum á Akureyri. Áður hafði hún hlotið viðurkenningu Fé...
https://www.akureyri.is/is/frettir/17-juni-a-akureyri-8
17. júní á Akureyri Hátíðarhöldin 17. júní á Akureyri sem eru í umsjón Skátafélagsins Klakks eru fjölbreytt þetta árið líkt og venjulega. Áður en hefðbundin dagskrá hefst í Lystigarðinum mun Lúðrasveit Akureyrar fara um bæinn milli klukkan 10 og 12 með viðkomu m.a. á Sjúkrahúsinu á Akureyri og Dvalaheimilinu Hlíð. Á sa...
https://www.akureyri.is/is/frettir/solstoduhatid-i-grimsey-1
Sólstöðuhátíð í Grímsey Grímseyingar fagna sumarsólstöðum um næstu helgi og bjóða gestum og gangandi að taka þátt í gleðinni. Á föstudagskvöldið verður sólarfundur í félagsheimilinu þar sem maður verður manns gaman. Þar verður boðið upp á smárétti og léttar veigar, jafnvel “Grímseyjarvatn”. Um miðnætti verður fjölmennt...
https://www.akureyri.is/is/frettir/afengisneysla-og-kynhegdun-islenskra-ungmenna
Áfengisneysla og kynhegðun íslenskra ungmenna Fyrstu niðurstöður alþjóðlegu rannsóknarinnar Heilsa og lífskjör skólanema (Health Behaviours in School-Aged Children, HBSC) voru kynntar á fjölsóttum blaðamannafundi á Akureyri í dag. Á Íslandi var rannsóknin unnin af rannsóknateymi við Háskólann á Akureyri undir stjórn Þó...
https://www.akureyri.is/is/frettir/thrjar-grimur-til-la
Þrjár Grímur til LA Föstudagskvöldið 13. júní var Grímuhátíðin haldin í Þjóðleikhúsinu og þá var tilkynnt hvaða listamenn og leiksýningar hlutu Grímuna, íslensku leiklistarverðlaunin. Þrenn Grímuverðlaun komu í hlut listamanna og sýninga Leikfélags Akureyrar, fleiri en nokkru sinni fyrr: Þröstur Leó Gunnarsson var vali...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kvennasoguganga-19-juni-1
Kvennasöguganga 19. júní Mikið verður um að vera á Akureyri 19. júní þegar haldið verður upp á það að þann dag árið 1915 fengu íslenskar konur 40 ára og eldri kosningarétt og kjörgengi til alþingis. Baráttan hafði staðið frá árinu 1885 þótt fyrsta opinbera krafan um kosningarétt kvenna hafi ekki komið fram fyrr en árið...
https://www.akureyri.is/is/frettir/setning-listasumars
Setning Listasumars Sextánda Listasumarið verður sett í Ketilhúsinu í dag, fimmtudaginn 19. júní, þar sem opnuð verður sýningin Bráðnun, samsýning tíu listakvenna frá Danmörku, Íslandi og Noregi. Sýningin var sett saman í tilefni af Alþjóðlega heimskautárinu 2007 og hefur þegar verið sýnd á Grænlandi og í Danmörku. Sam...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vel-heppnud-tonlistarhatid
Vel heppnuð tónlistarhátíð Tónlistarhátíðin AIM Festival stóð í 5 daga á Akureyri og haldnir voru 19 tónleikar á 10 stöðum. Mikill fjöldi gesta, eða um 5.500 manns, mættu á tónleika þessa daga og skemmtu sér konunglega, enda margt í boði, mikil tónlist og taumlaus gleði. Allt fór vel fram og tónleikagestir sýndu af sér...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sprettum-ur-spori
Sprettum úr spori Laugardaginn 21. júní fer fram Akureyrarhlaup KEA en það er UFA (Ungmennafélag Akureyrar) sem stendur fyrir hlaupinu í samstarfi við styrktaraðila. Akureyrarhlaup KEA er fyrir alla, stóra sem smáa, unga sem aldna, íþróttafólk og almenning. Bæjarbúar sem og landsmenn allir eru hvattir til að taka þátt ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/a-allra-vorum-i-radhusinu
Á allra vörum í Ráðhúsinu Vaskur hópur kvenna í Ráðhúsi Akureyrarbæjar hefur stutt átakið "Á allra vörum" með því að kaupa varagloss frá Yves Saint Laurent, sérmerkt átakinu. Um er að ræða kynningar- og fjáröflunarátak sem hefur að markmiði að leggja Leitarstöð Krabbameinsfélags Íslands lið við að safna peningum til ka...
https://www.akureyri.is/is/frettir/god-rekstrarnidurstada-og-traustur-fjarhagur
Góð rekstrarniðurstaða og traustur fjárhagur Ársreikningur Akureyrarbæjar fyrir árið 2007 var lagður fram í bæjarráði í gær. Þar kemur fram að reksturinn skilaði góðri niðurstöðu og fjárhagurinn er traustur. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn og verður hann til ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fjolmennt-i-fyrstu-kvennasogugongunni
Fjölmennt í fyrstu kvennasögugöngunni Í tilefni kvenréttindadagsins 19. júní var boðið upp á kvennasögugöngu um innbæinn á Akureyri. Jafnréttisstofa, Minjasafnið á Akureyri og Zonta-klúbbarnir stóðu fyrir göngunni og þótti hún mjög fróðleg. Sigrún Björk Jakobsdóttir ávarpaði göngugesti við upphaf göngunnar og síðan var...
https://www.akureyri.is/is/frettir/margvisleg-afthreying-fyrir-born-a-akureyri-i-sumar
Margvísleg afþreying fyrir börn á Akureyri í sumar Margvísleg afþreying fyrir börn er í boði á Akureyri í sumar. Akureyrarbær mun starfrækja smíðavöll á svæðinu austan Vestursíðu ef næg þátttaka næst. Völlurinn er ætlaður börnum á aldrinum 7-12 ára og verður opinn frá og með 30. júní - 30. júlí kl. 13-16. Leiðbeinandi ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/jonsmessuleikur-i-kjarnaskogi-5
Jónsmessuleikur í Kjarnaskógi Hinn árlegi Jónsmessuleikur verður haldinn í Kjarnaskógi í kvöld og hefur hópur ungmenna undir leiðsögn starfsmanna Menningarmiðstöðvarinnar í Listagili staðið að undirbúningi í allan dag. Að venju er unnið á ýmsan skemmtilegan hátt með efnivið úr skóginum, málað og föndrað úr timbri, tálg...
https://www.akureyri.is/is/frettir/thetta-vilja-bornin-sja
Þetta vilja börnin sjá! Sýningin Þetta vilja börnin sjá! var opnuð á Amtsbókasafninu á Akureyri 19. júní. Á sýningunni má sjá myndskreytingar úr nýútkomnum íslenskum barnabókum en markmið sýningarinnar er að beina athyglinni að gildi myndskreytinga í barnabókum. Sýning þessi hefur verið haldin í Menningarmiðstöðinni Ge...
https://www.akureyri.is/is/frettir/audvelt-adgengi-ad-reidhjolum-a-akureyri-i-sumar
Auðvelt aðgengi að reiðhjólum á Akureyri í sumar Ferðamenn og heimamenn geta á auðveldan hátt ferðast á reiðhjólum um Akureyri í sumar. Verslunin Víkingur í Hafnarstræti býður upp á reiðhjólaleigu en í boði eru 10 reiðhjól án gíra eins og sjá má á myndinni hér til hliðar. Gjaldið fyrir sex tíma er 500 krónur og 1000 kr...
https://www.akureyri.is/is/frettir/gamla-akureyri
Gamla Akureyri Á Ráðhústorgi á Akureyri ber að líta skemmtilega ljósmyndasýningu sem Hermann Arason hefur sett saman í samvinnu við Minjasafnið á Akureyri. Sýningin nefnist Gamla Akureyri og sýnir eins og nafnið ber til kynna gamlar myndir frá akureyrsku mannlífi. Myndirnar eru allar frá Ljósmyndastofu Jóns og Vigfúsar...
https://www.akureyri.is/is/frettir/lesid-a-legsteina-2
Lesið á legsteina Gönguferð með leiðsögn um kirkjugarð Akureyrar verður fimmtudagskvöldið 26. júní klukkan 20:00. Gangan hefst við Minjasafnskirkjuna en hún stendur á lóð fyrstu sóknarkirkju Akureyringa. Þaðan verður gengið upp í kirkjugarðinn á Höfðanum, sömu leið og áður var gengið með kistur til greftrunar. Tilurð o...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ljodveisla-i-deiglunni
Ljóðveisla í Deiglunni Á sextugsafmæli sínu, fimmtudaginn 26. júní, býður Erlingur Sigurðarson til ljóðveislu í Deiglunni. Þar mun hann létta leynd af ýmsu því sem hann hefur sett saman síðustu misserin. Ljóðveislan er öllum opin og hefst kl. 20.45 (Ath: þegar að loknum leik Rússa og Spánverja) og stendur í u.þ.b. kluk...
https://www.akureyri.is/is/frettir/margret-blondal-radin-framkvaemdastjori-hatidarhaldanna-a-akureyri
Margrét Blöndal ráðin framkvæmdastjóri hátíðarhaldanna á Akureyri Akureyrarstofa hefur samið við Margréti Blöndal fjölmiðlakonu um að taka að sér að stýra undirbúningi og hátíðarhöldum á Akureyri um verslunarmannahelgina. Margrét mun leiða hóp hagsmunaaðila sem standa saman að því að bjóða til fjölskylduhátíðar í bænum...
https://www.akureyri.is/is/frettir/syning-um-leikminjar-og-leikhus-i-laxdalshusi
Sýning um leikminjar og leikhús í Laxdalshúsi Leikminjasafn Íslands opnar sýningu um leiklist á Akureyri og Norðurlandi í Laxdaldhúsi á laugardaginn klukkan 15-17. Við opnunina býður Bernhard August Steincke, frumkvöðull leiksýninga á Akureyri, gesti velkomna í húsið, auk þess sem flutt verður tónlist úr leikhúsinu. Þa...
https://www.akureyri.is/is/frettir/facing-china-lykur-i-listasafninu-a-akureyri
Facing China lýkur í Listasafninu á Akureyri Nú fer hver að verða síðastur að sjá sýninguna Facing China ( Augliti til auglitis við Kína ) í Listasafninu á Akureyri en henni lýkur föstudaginn 27. júní klukkan 17. Heiti sýningarinnar endurspeglar meginstef hennar, manninn og andlitið, sem sjá má í málverkum og skúlptúru...
https://www.akureyri.is/is/frettir/veraldarvinir-gera-gongustiga-i-krossanesborgum
Veraldarvinir gera göngustíga í Krossanesborgum Veraldarvinir vinna þessa dagana að gerð göngustíga í fólkvanginum í Krossanesborgum. Þetta eru átta einstaklingar sem koma frá sex þjóðlöndum og munu þau dvelja hér í tvær vikur í umsjón Framkvæmdadeildar Akureyrarbæjar. Akureyrarbær sér þeim fyrir fæði og húsnæði á meða...
https://www.akureyri.is/is/frettir/haraldur-thor-radinn-safnstjori
Haraldur Þór ráðinn safnstjóri Haraldur Þór Egilsson hefur verið ráðinn safnstjóri Minjasafnsins á Akureyri. Staðan var auglýst á dögunum og alls bárust sex umsóknir. Haraldur Þór hefur verið safnkennari á Minjasafninu frá árinu 2003 en mun hefja störf sem safnstjóri þann 1. ágúst. Hann útskrifaðist með BA próf í sagnf...
https://www.akureyri.is/is/frettir/leikmunasafn-opnad-i-elsta-husi-akureyrar
Leikmunasafn opnað í elsta húsi Akureyrar Leikmunasafn um leiklist á Akureyri og á Norðurlandi opnaði í Laxdalshúsi um helgina. Sýningin er á vegum Leikminjasafns Íslands en Þórarinn Blöndal sá um uppsetninguna. Jón Viðar Jónsson, forstöðumaður Leikminjasafnsins opnaði sýninguna og sagði vel við hæfi að hún hefði fengi...
https://www.akureyri.is/is/frettir/thorunn-bjorg-radin-skolastjori
Þórunn Björg ráðin skólastjóri Þórunn Björg Arnórsdóttir hefur verið ráðin skólastjóri grunnskólans í Hrísey. Þórunn lauk B.Ed. gráðu frá KHÍ nú í vor eftir 4 ára fjarnám. Þórunn hefur starfað sem leiðbeinandi við Grunnskólann í Hrísey sl. 7 ár.
https://www.akureyri.is/is/frettir/upplysingalisti-um-opnunartima-safna-afthreyingu-og-fleira
Upplýsingalisti um opnunartíma safna, afþreyingu og fleira Tekinn hefur verið saman listi um opnunartíma safna, afþreyingu og fleira sem kemur að góðum notum fyrir ferðamenn jafnt sem heimamenn í sumar. Þar eru einnig upplýsingar um aðgangseyri viðkomandi staða, opnunartíma matvöruverslana, sundlauga, bókabúða og upplý...
https://www.akureyri.is/is/frettir/heitir-fimmtudagar-hefjast-annad-kvold
Heitir fimmtudagar hefjast annað kvöld Heitir fimmtudagar hefjast í Ketilhúisu 3. júlí klukkan 21:30 með „Súpergrúppunni" Bláum skuggum, kvartetti saxófónleikarans Sigurðar Flosasonar. Auk hans skipa kvartettinn þjóðsagnapersónur í íslenskri tónlist og framverðir elstu starfandi kynslóðar íslenskra jazztónlistarmanna, ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/garur-yfirlitssyning-a-verkum-gudmundar-armanns
GÁRUR - Yfirlitssýning á verkum Guðmundar Ármanns Sumarsýning Listasafnsins á Akureyri er helguð yfirliti á verkum Guðmundar Ármanns Sigurjónssonar. Sýningin verður opnuð laugardaginn 5. júlí og stendur til loka ágústmánaðar. Guðmundur hefur starfað við myndlist og kennslu síðastliðna fjóra áratugi og verið mikilvirkur...
https://www.akureyri.is/is/frettir/liflegur-laugardagur
Líflegur laugardagur Það verður listaveisla og mikil stemning á Akureyri á laugardaginn. Listasafnið á Akureyri opnar yfirlitssýningu á verkum Guðmundar Ármanns ásamt því sem gallerí bæjarins verða með áhugaverðar opnanir. Einnig má nefna söngvöku í Minjasafnskirkjunni og miðnætursólarsiglingu í Hrísey. Hér má sá margt...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ull-i-klaedi
Ull í klæði Hefur þú séð hvernig ullarhnoðri verður að fínustu klæðum? Getur ullinn orðið að fallegu skarti? Elísabet Jóhönna Zitterbart og Inger N. Jensen munu á laugardaginn sýna réttu handbrögðin við þessu mikilvægu iðn í Gamla bænum í Laufási. Tóvinna var mjög mikilvæg þegar sauðfjárrækt var grundvöllur alls mannlí...
https://www.akureyri.is/is/frettir/lifandi-leidsogn-um-innbaeinn
Lifandi leiðsögn um innbæinn Eitt af fjölmörgu sem hægt er að upplifa á Akureyri í sumar er lifandi leiðsögn um innbæinn. Gengið er frá kirkjutröppunum við Hótel KEA og inn í elsta hluta bæjarins að Minjasafninu. Sagt er frá þróun bæjarins, markverðum stöðum og frásögnum. Þrír lærðir leiðsögumenn, þær Sigrún Óladóttir,...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vel-heppnud-fotboltahelgi
Vel heppnuð fótboltahelgi Pollamótið og N1-mótið voru haldin í blíðskaparveðri á Akureyri um helgina. Á Pollamótinu keppa öldungalið karla og kvenna í knattspyrnu á Þórsvellinum og í Boganum. N1-mótið er eitt stærsta knattspyrnumót landsins og er ætlað strákum í fimmta flokki. Liðin koma frá öllu landinu og var leikið ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/gattir-ndash-throunarverkefni-i-menningartengdri-ferdathjonustu
Gáttir – þróunarverkefni í menningartengdri ferðaþjónustu. Mánudaginn 14. júlí rennur út umsóknarfrestur um þátttöku í verkefninu Gáttir – þróunarverkefni í menningartengdri ferðaþjónustu. Um er að ræða verkefni á vegum Iðnaðarráðuneytis unnið af Impru á Nýsköpunarmiðstöð og Ferðamálastofu í samvinnu við Háskólann á Hó...
https://www.akureyri.is/is/frettir/starfsdagur-i-laufasi-6
Starfsdagur í Laufási Hvernig verður smjör til? Hvernig fór fólk að því í gamla daga að gera skyr? Hvernig fór fólk að við heyskap fyrir tíð heyvinnuvéla? Í Gamla bænum Laufási við Eyjafjörð verður hægt að fylgjast með fólki að við ýmsa iðju sem tíðkaðist í gamla daga á safnadaginn, sunnudaginn 13. júlí, frá klukkan 13...
https://www.akureyri.is/is/frettir/til-styrktar-myndlistaskolanum
Til styrktar Myndlistaskólanum Í þessari viku verða haldnir styrktartónleikar og listaverkauppboð til styrktar Myndlistaskólanum á Akureyri vegna brunans sem varð í húsnæði hans 27. júní síðastliðinn. Haldið verður svokallað "þögult uppboð" á listaverkum en fólki gefst síðan kostur á að bjóða enn betur á tónleikum sem ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/minningarstofur-um-jonas-hallgrimsson-a-hrauni-i-oxnadal-opnar-almenningi-i-sumar
Minningarstofur um Jónas Hallgrímsson á Hrauni í Öxnadal opnar almenningi í sumar Minningarstofurnar í íbúðarhúsinu á Hrauni í Öxnadal voru opnaðar 16. nóvember í fyrra, þegar 200 ár voru liðin frá fæðingu skáldsins og náttúrufræðingsins Jónasar Hallgrímssonar. Í húsinu er einnig íbúð fyrir fræðimenn og listamenn sem e...
https://www.akureyri.is/is/frettir/radid-i-stodur-forvarnafulltrua-og-umsjonarmanns-punktsins
Ráðið í stöður forvarnafulltrúa og umsjónarmanns Punktsins Samfélags- og mannréttindadeild hefur ráðið Grétu Kristjánsdóttur til starfa sem forvarnafulltrúa og í vor var Halldóra Björg Sævarsdóttir ráðin sem umsjónarmaður handverksmiðstöðvarinnar Punktsins. Báðar hafa þær Gréta og Halldóra starfsstöð í Rósenborg þar se...
https://www.akureyri.is/is/frettir/villiborn
Villibörn Skáldsagan Villibörn eftir Akureyringinn Björn Þorláksson fréttamann kom út nýverið. Í bókinni blandar höfundur sér í umhverfismálin og segir í fréttatilkynningu að þar sé tekist með dramatískum hætti á við eina stærstu spurningu íslensks samtíma en aldrei sé langt í kímnina. Bókin fjallar um fólk í sveit sem...
https://www.akureyri.is/is/frettir/islenski-safnadagurinn-a-sunnudaginn
Íslenski safnadagurinn á sunnudaginn Íslenski safnadagurinn verður haldinn hátíðlegur vítt og breitt um landið á sunnudaginn, 13. júlí. Mikið verður um að vera í Eyjafirði í tilefni dagsins og má þar nefna Starfsdag í Gamla bænum á Laufási, gönguferð með leiðsögn um verslunarstaðinn á Gásum og siglingu með Húna II. Frí...
https://www.akureyri.is/is/frettir/gengid-um-toftir-midaldakaupstadarins-a-gasum
Gengið um tóftir miðaldakaupstaðarins á Gásum Gönguferð með leiðsögn verður í Gásakaupstað á íslenska safnadaginn, sunnudaginn 13. júlí klukkan 14. Kristín Sóley Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Gásakaupstaðar ses, leiðir gönguna. Gásakaupstaður er verslunarstaður frá miðöldum og meðal merkustu minja á landinu aðeins 11 ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/gattir-umsoknarfrestur-framlengdur-til-5-agust
Gáttir - umsóknarfrestur framlengdur til 5. ágúst Umsóknarfrestur um þátttöku í verkefninu Gáttir – þróunarverkefni í menningartengdri ferðaþjónustu hefur verið framlengdur til 5. ágúst vegna fjölda ábendinga um að tími sé knappur til umsóknagerðar. Um er að ræða verkefni á vegum Iðnaðarráðuneytis unnið af Impru á Nýsk...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyri-idar-af-tonlist
Akureyri iðar af tónlist Það er jafnan mikið tónlistarlíf á Akureyri á sumrin og engin undantekning þar á þetta árið. Í þessari viku verða fjölbreyttir tónlistarviðburðir í bænum og ættu flestir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Á morgun, 16. júlí, heldur tenórinn Þór Breiðfjörð tónleika í Ketilhúsinu. Á efnisskrá...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fullveldishatidin-i-hrisey
Fullveldishátíðin í Hrísey Um helgina verður hátíðarhelgi fjölskyldunnar í Hrísey. Boðið verður upp á óvissuferðir, leiktæki fyrir börnin, kvöldvökur og vitaferðir. Gönguferð með leiðsögn, sem Minjasafnið á Akureyri hefur skipulagt, verður um eyjuna á laugardag. Einnig verður skeljahátíð á laugardeginum þar sem farið v...
https://www.akureyri.is/is/frettir/midaldalif-a-gasum-i-eyjafirdi
Miðaldalíf á Gásum í Eyjafirði Miðaldastemning mun ríkja á Gásum um helgina og verður hátíðn sett á laugardaginn klukkan 12.30 þegar Svanfríður I. Jónasdóttir, bæjarstjóri Dalvíkurbyggðar, bregður sér í gervi héraðshöfðingja og setur kauptíðina á Gásum að fornum sið. Að því loknu gefst gestum miðaldadaganna kostur á þv...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ein-med-ollu-og-allt-undir
Ein með öllu og allt undir Dagskrá hátíðahaldanna á Akureyri um verslunarmannahelgina var kynnt á blaðamannafundi í dag. Yfirskrift hátíðarinnar er Ein með öllu og allt undir en Margrét Blöndal, framkvæmdastjóri hátíðahaldanna, segir að þemað sé elskulegheit og að árangurinn verði mældur í brosum. Alla helgina verða fj...
https://www.akureyri.is/is/frettir/metnadarfullar-aefingabudir
Metnaðarfullar æfingabúðir Í dag hófust fjögurra vikna æfingabúðir Listhlaupadeildar Skautafélags Akureyrar. Tveir erlendir þjálfarar eru komnir til landsins til að aðstoða við þjálfun. Þátttaka er framar væntingum en 54 skráðu sig af þeim 60 iðkendum S.A. sem farnir eru að keppa á skautum og æfingarbúðirnar stóðu til ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/aldrei-fleiri-gestir-ne-gasverjar-a-midaldadogum-a-gasum
Aldrei fleiri gestir né Gásverjar á miðaldadögum á Gásum Um 1500 gestir sóttu Gásverja heim um síðustu helgi þegar miðaldastemning sveif yfir vötnum á Gáseyrinni rétt neðan við rústir hins forna verslunarstaðar á Gásum. Í blíðskaparveðri gafst gestum svæðisins færi á að skyggnast inní lífs- og starfshætti fólks á síðmi...
https://www.akureyri.is/is/frettir/leikhopurinn-lotta-synir-galdrakarlinn-i-oz-a-akureyri
Leikhópurinn Lotta sýnir Galdrakarlinn í Oz á Akureyri. Leikhópurinn Lotta mun á sunnudaginn kemur, 27. júlí klukkan 14, sýna leikritið Galdrakarlinn í Oz í Lystigarðinum á Akureyri. Leikhópurinn sýnir undir berum himni og ferðast víðsvegar um landið með þessa skemmtilegu fjölskyldusýningu. Sami hópur sýndi Dýrin í Hál...
https://www.akureyri.is/is/frettir/grilladstada-a-hamarkotstuni-og-eidsvelli
Grillaðstaða á Hamarkotstúni og Eiðsvelli Framkvæmdadeild Akureyrarbæjar hefur komið upp grillaðstöðu á Hamarkotstúni og Eiðsvelli hér í bænum. Fyrir þá sem ekki vita er Eiðsvöllur garðurinn norðan við Ráðhúsið, austan Glerárgötu, svæðið milli Grænugötu og Eiðsvallagötu. Hamarkotstún er útivistasvæði milli Byggðavegar,...
https://www.akureyri.is/is/frettir/lokad-vegna-blidvidris
Lokað vegna blíðviðris Ráðhúsið á Akureyri og skrifstofur Akureyrarbæjar að Glerárgötu 26 munu loka klukkan 14 á föstudaginn 25. júlí vegna blíðviðris. Veðurspáin næstu daga er einstaklega góð en spáð er allt að 20 stiga hita og sól hér norðanlands fram yfir helgi. Margir bæjarbúar eru nú í sumarfríi enda hásumar og þv...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vedurblida-a-landsmoti-skata
Veðurblíða á Landsmóti Skáta Mörg þúsund manns alls staðar af landinu og heiminum eru saman komin á Hömrum við Akureyri þar sem Landsmót Skáta fer fram nú um helgina. Mótið var formlega sett á þriðjudaginn og eftir fánahyllingu ávarpaði Margrét Tómasdóttir landsmótsgesti, Elín Hallgrímsdóttir fulltrúi bæjarstjórnar Aku...
https://www.akureyri.is/is/frettir/auglyst-eftir-umsoknum-um-byggdakvota
Auglýst eftir umsóknum um byggðakvóta Fiskistofa auglýsir eftir umsókum um byggðakvóta fyrir byggðalögin Akureyrarbæ, Dalvíkurbyggð, Húnaþing vestra, Stykkishólmsbæ og Grundafjarðarbæ. Umsóknarfrestur er til og með 8. ágúst og umsóknum skal skila til Fiskistofa á sérstöku eyðublaði sem er að finna hér. Auglýsingin er s...
https://www.akureyri.is/is/frettir/verksmidjan-opnud-a-laugardag
Verksmiðjan opnuð á laugardag Fyrsta sýningin í gömlu verksmiðjunni á Hjalteyri verður opnuð á laugardag en þar sýna ólíkir myndlistarmenn af þremur kynslóðum sem vinna í sex löndum. Fólkið vinnur með innsetningar, kvikmyndir, myndbönd, hljóð, málverk, teikningar og gjörninga, svo eitthvað sé nefnt. Verksmiðjan sjálf e...
https://www.akureyri.is/is/frettir/grasid-verdur-afram-a-torginu
Grasið verður áfram á torginu Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri á Akureyri, tilkynnti skömmu eftir hádegið að þökurnar sem lagðar voru á Ráðhústorgið í skjóli nætur fái að vera þar áfram fram yfir verslunarmannahelgi. Það var Sigurður Guðmundsson, kaupmaður í versluninni Viking, sem stóð fyrir því að torgið var þö...
https://www.akureyri.is/is/frettir/verkefnastyrkir-til-menningarmala
Verkefnastyrkir til menningarmála Menningarráð Eyþings auglýsir eftir umsóknum um styrki á grundvelli samnings menntamálaráðuneytisins og samgönguráðuneytis við Eyþing frá 27. apríl 2007. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á svæði Eyþings. Menningarráð Eyþings hefur ákve...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ast-a-raudu-ljosi-a-akureyri
Ást á rauðu ljósi á Akureyri Lokasprettur undirbúnings fyrir verslunarmannahelgina á Akureyri er nú hafinn og bærinn óðum að taka á sig ennþá vingjarnlegri og fegurri svip en hann skartar þó dagsdaglega. Götuvitar bæjarins senda bílstjórum hjartalaga bros á rauðu ljósi og grasbletturinn á Ráðhústorgi er iðjagrænn og vi...
https://www.akureyri.is/is/frettir/tunglmyrkvi-i-fyrramalid
Tunglmyrkvi í fyrramálið Tunglið mun í fyrramálið varpa skugga sínum á sólina þannig að frá Reykjavík mun það skyggja á 59% af skífu sólar þegar mest verður. Á Akureyri stendur myrkvinn frá kl. 8.17 til 10.14 og þar skyggir tunglið á 62% af þvermáli sólarinnar. Mun deildarmyrkvinn hefjast klukkan 8.15 í Reykjavík og st...
https://www.akureyri.is/is/frettir/baerinn-ad-fyllast-af-folki
Bærinn að fyllast af fólki Núna klukkan 14.30 er heiðskír himinn á Akureyri og hitastigið 17 gráður í forsælu. Talsvert af fólki virðist vera komið til bæjarins, enda fjölskylduhátíðin "Ein með öllu og allt undir" að hefjast. Léttklæddir bæjarbúar og gestir þeirra spranga um götur og torg, og ekki ber á öðru en að alli...
https://www.akureyri.is/is/frettir/frabaer-verslunarmannahelgi
Frábær verslunarmannahelgi Fjölskylduhátíðin "Ein með öllu og allt undir" þótti takst með eindæmum vel. Veðrið lék við hátíðargesti og allir voru í sólskinsskapi. Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri á Akureyri, segist afar ánægð með það hvernig til tókst og sendir bæjarbúum og gestum bæjarins svohljóðandi kveðju: Ág...
https://www.akureyri.is/is/frettir/abendingar
Ábendingar Framkvæmdadeild Akureyrarbæjar óskar eftir ábendingum frá bæjarbúum fyrir góðan árangur í fegrun og hirðingu bæjarins. Óskað er eftir ábendingum í eftirfarandi flokka: Flokkur nýrri garða. Flokkur eldri garða. Flokkur raðhúsa/fjölbýlishúsa. Flokkur fyrirtækja. Flokkur stofnana. Fyrirmyndar gata bæjarins. Sér...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kertafleyting-vid-minjasafntjornina
Kertafleyting við Minjasafntjörnina Kertafleyting verður við Minjasafnstjörnina á Akureyri í kvöld fimmtudagskvöldið 7.ágúst kl. 22.30. Athöfnin er í minningu fórnarlamba kjarnorkuárásanna á japönsku borgirnar Hírósíma og Nagasakí en nú eru 63 ár frá því að árásirnar voru gerðar. Lögð er áhersla á kröfuna um friðsaman ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fiskidagurinn-mikli-a-dalvik
Fiskidagurinn mikli á Dalvík Fjölskylduhátíðin Fiskidagurinn mikli 2008 verður haldinn hátíðlegur í Dalvíkurbyggð í áttunda sinn laugardaginn 9. ágúst · Stærsta flatbaka á Íslandi? · Heimildarmynd gefin á hvert heimili. · Skreytingar í byggðarlaginu aldrei viðameiri · 800 1. bekkingar fara á kostum í nýju sýningarrými ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hvad-aetladir-thu-ad-verda-ljosmyndasyning-a-radhustorgi
Hvað ætlaðir þú að verða? Ljósmyndasýning á Ráðhústorgi Hvað ætlaðir þú að verða? er heiti á ljósmyndasýningu Ragnheiðar Arngrímsdóttur sem opnuð verður á Ráðhústorgi á föstudaginn og stendur til 31. ágúst. ,,Halló ég heiti Ragnheiður. Ég er að fara að undirbúa ljósmyndasýningu og langar að biðja þig um...” ,,Já, en sp...
https://www.akureyri.is/is/frettir/dyggdateppid-synt-a-amtsbokasafninu
Dyggðateppið sýnt á Amtsbókasafninu Á Amtsbókasafninu á Akureyri stendur nú yfir sýning á Dyggðateppinu. Teppið er hannað og teiknað af vöruhönnuðinum Marý (Ólöfu Maríu Ólafsdóttur) og er hugmyndin að því sprottin frá íslensku dyggðaklæði frá fyrri hluta 18. aldar, sem varðveitt er í Þjóðminjasafninu. Þrjú slík dyggðak...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skapandi-sumarstorf-2
Skapandi sumarstörf Í sumar hefur verið starfandi uppákomuhópur á vegum Hússins, Akureyrarstofu og Vinnuskólans. Þetta eru sjö ungmenni úr MA og VMA sem með aðstoð Jóhönnu Völu Höskuldsdóttur, listræns stjórnanda, hafa staðið fyrir ýmsum uppákomum. Starf hópsins miðar að því að hleypa nýju lífi í miðbæinn og kynna bæin...
https://www.akureyri.is/is/frettir/radstefna-um-skidasvaedi
Ráðstefna um skíðasvæði Um helgina verður haldin á Akureyri ráðstefna þeirra sem reka skíðasvæði víðsvegar um heiminn. Samtök skíðasvæða á Íslandi og sambærileg samtök skíðasvæða í Skotlandi standa fyrir ráðstefnunni sem er sú fyrsta sinnar tegundar á vegum nýstofnaðra samtaka, NASAA sem stendur fyrir North Atlantic Sk...
https://www.akureyri.is/is/frettir/arsskyrsla-2007
Ársskýrsla 2007 Ársskýrsla Akureyrarbæjar fyrir árið 2007 kom út á dögunum. Þar er fjallað ítarlega um starfsemi allra deilda bæjarins, greint frá helstu verkefnum og nýjungum í starfi þeirra. Þeir sem vilja kynna sér efni skýrslunnar geta sótt eintak í þjónustuanddyri Ráðhússins að Geislagötu 9.
https://www.akureyri.is/is/frettir/nytt-leikar-hja-la
Nýtt leikár hjá LA Framundan er fjölbreyttur, skemmtilegur og kraftmikill vetur hjá LA þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. LA hefur ráðið til sín bæði reynda leikstjóra, hönnuði og aðra listamenn að sýningum vetrarins, ásamt því að gefa ungu og efnilegu fólki tækifæri til að springa út og hefja blómlega...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ekki-innritad-i-tolvunarfraedi
Ekki innritað í tölvunarfræði Háskólaráð Háskólans á Akureyri samþykkti á fundi sínum í gær að ekki verði innritaðir nemendur á fyrsta ár í tölvunarfræði veturinn 2008-2009. Einungis fjórir nemendur sóttu um námið að þessu sinni og hefur endurskoðun á skipulagi námsins fyrir þremur árum ekki skilað þeim árangri sem von...
https://www.akureyri.is/is/frettir/afram-island
Áfram Ísland! Það setti sinn svip á allt bæjarlífið á Akureyri síðasta föstudag að íslenska landsliðið í handbolta atti þá kappi við það spænska á Ólympíuleikunum í Peking. Hér að neðan eru myndir sem teknar voru af börnunum í leikskólanum Holtakoti þegar þau undirbjuggu sig undir leikinn og einnig úr Ráðhúsi Akureyrar...
https://www.akureyri.is/is/frettir/upphaf-skolaars-vid-ha
Upphaf skólaárs við HA Í haust eru um 1.450 nemendur skráðir til náms við Háskólann á Akureyri. Í dagskóla eru skráðir um 650 nemendur og 475 í fjarnám. Að auki stunda um 325 nemendur í lotunámi. Stærsta deild skólans er nýstofnuð Hug- og félagsvísindadeild með um 630 nemendur innanborðs. Hvað einstaka námsleið varðar ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/grunnskolarnir-a-akureyri
Grunnskólarnir á Akureyri Þessa dagana eru um 2.560 nemendur á grunnskólaaldri að hefja vetrarstarfið sitt. Þar af eru 243 nemendur í 1. bekk að stíga sín fyrstu skref í grunnskóla. Brekkuskóli verður fjölmennastur með um 550 nemendur og fæstir verða nemendurnir í Grunnskólanum í Hrísey eða 18. Þá munu 24 nemendur stun...
https://www.akureyri.is/is/frettir/aufusugestir-i-pollinum
Aufúsugestir í Pollinum Andanefjurnar tvær sem haldið hafa til í Pollinum undanfarna daga, vekja óskipa athygli vegfarenda og þegar þær stökkva liggur við að það valdi umferðaróhöppum á Drottningarbrautinni. Myndirnar hér að neðan tók Ragnar Hólm Ragnarsson við Pollinn núna síðdegis.
https://www.akureyri.is/is/frettir/sinfonian-a-akureyrarvoku
Sinfónían á Akureyrarvöku Sinfóníuhljómsveit Norðurlands verður með ókeypis tónleika á Akureyrarvöku í samstarfi við Leikfélag Akureyrar. Tónleikarnir verða á Marína, Strandgötu 53, og hefjast kl. 17.00. Flutt verður verkið Saga dátans eftir Igor Stravinsky. Verkið, sem er ádeila á græðgi og auðsöfnun, fjallar um herma...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sirkus-agora-a-akureyri-um-helgina
Sirkus Agora á Akureyri um helgina Fjölleikahúsið Sirkus Agora er nú komið til landsins með 150 metra langa vagnalest og mun ferðast um landið og setja upp sýningar á 10 stöðum frá 29. ágúst til 16. september. Sirkus Agora er að fagna 20 ára starfsafmæli sínu þetta árið og kusu forráðamenn Agora að koma til Íslands til...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samvinna-um-forvarnarmal
Samvinna um forvarnarmál Í gær var undirritaður samningur á milli Sjóvár, Akureyrarbæjar og Norðurorku um að Sjóvá muni annast alla vátryggingavernd fyrir þessa aðila næstu fjögur árin. Í samningnum er kveðið á um aukið samstarf samningsaðila við Sjóvá Forvarnahúsið um úttektir, áhættumat og framkvæmd sértækra forvarna...
https://www.akureyri.is/is/frettir/draugaganga-minjasafnsins
Draugaganga Minjasafnsins Hrollvekjandi óp, annarlegar verur og draugasögur munu einkenna Innbæinn, elsta hluta Akureyrarbæjar, eftir setningu Akureyrarvöku föstudagskvöldið 29. ágúst kl. 22.00. Minjasafnið á Akureyri í samvinnu við Leikfélag Akureyrar stendur þá fyrir draugagöngu. Gangan hefst í Minjasafnsgarðinum þar...
https://www.akureyri.is/is/frettir/starfsendurhaefing-nordurlands-rekur-menntasmidju-kvenna
Starfsendurhæfing Norðurlands rekur Menntasmiðju kvenna Í gær var undirritaður samningur Akureyrarbæjar og Starfsendurhæfingar Norðurlands um rekstur Menntasmiðju kvenna. Um er að ræða tilraunaverkefni til tveggja ára. Með samningnum yfirtekur Starfsendurhæfing Norðurlands rekstur Menntasmiðjunnar og er meginmarkmiðið ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyrarvaka-2010
Akureyrarvaka 2008 Akureyrarvaka verður sett í Lystigarðinum í kvöld við rökkurró. Á morgun verður síðan stíf dagskrá langt fram á kvöld þar sem kennir ýmissa grasa. Má þar nefna að Sinfóníuhljómsveit Norðurlands flytur Sögu dátans eftir Stravinsky, sýningin Sjónlistaverðlaunin 2008 verður opnuð á Listasafninu, hljómsv...
https://www.akureyri.is/is/frettir/strakarnir-okkar-heidradir
Strákarnir okkar heiðraðir Á Akureyrarvöku í kvöld verður íslenska landsliðið í handknattleik heiðrað fyrir framgöngu sína í Peking og þá sérstaklega þeir fjórir liðsmenn sem alið hafa aldur sinn um lengri eða skemmri tíma hjá handknattleiksdeild KA. Þeir eru Arnór Atlason, Guðjón Valur Sigurðsson, Hreiðar Levi Guðmund...
https://www.akureyri.is/is/frettir/morg-thusund-manns-a-akureyrarvoku
Mörg þúsund manns á Akureyrarvöku Akureyrarvaka var haldin á laugardagskvöld og markar hún lok Listasumars. Mikið var um að vera í bænum allan daginn og er áætlað að hátt í sex þúsund manns hafi verið í miðbænum þegar mest var klukkan að ganga ellefu um kvöldið. Þá hélt Bubbi Morthens útitónleika í Gilinu og var Kaupva...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fjolmenn-draugaganga
Fjölmenn draugaganga Hátt á annað þúsund manns, þessa heims, gengu að þessu sinni um Innbæ Akureyrar í Draugagöngu Minjasafnins og Leikfélags Akureyrar síðasta föstudagskvöld. Veðrið lék við göngufólk en samt sem áður risu hár þess trekk í trekk vegna óhugnalegra ópa, gangandi og ríðandi drauga og annars óhugnaðs en me...
https://www.akureyri.is/is/frettir/gafu-eftirlitsmyndavelar
Gáfu eftirlitsmyndavélar Þrjár löggæslumyndavélar hafa verið settar upp í miðbæ Akureyrar og eru þær beintengdar lögreglustöðinni á Akureyri. Íslensk verðbréf hf. og Akureyrarbær tóku höndum saman um kaup og uppsetningu myndavélanna og er heildarkostnaður um 1,7 milljónir króna. Nú þegar hefur fengist góð reynsla af no...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vidurkenningar-fyrir-fallega-garda
Viðurkenningar fyrir fallega garða Við setningu Akureyrarvöku föstudagskvöldið 29. ágúst voru afhentar viðurkenningar Akureyrarbæjar fyrir fallega garða. Áður hafði framkvæmdadeild Akureyrarbæjar óskað eftir ábendingum frá bæjarbúum fyrir góðan árangur í fegrun og hirðingu bæjarins, og bárust fjölmargar ábendingar. Far...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fjolskylduhatid-einingar-idju
Fjölskylduhátíð Einingar-iðju Laugardaginn 6. september nk. stendur Eining-Iðja fyrir fjölskylduhátíð á Hömrum við Akureyri á milli kl 13 og 17. Fjölmargt verður gert til skemmtunar, bæði á sviði og á leiksvæði. Meðal listamanna sem mæta á svæðið má nefna Jónsa, Óskar Pétursson, leikara úr Óvitunum, o.fl. Á leiksvæði s...
https://www.akureyri.is/is/frettir/bokun-baejarrads-um-reykjavikurflugvoll
Bókun bæjarráðs um Reykjavíkurflugvöll Á fundi bæjarráðs Akureyrarbæjar í morgun var lögð fram tillaga að bókun um framtíðarstaðsetningu Reykjavíkurflugvallar sem síðan var samþykkt samhljóða. Bókunin er svohljóðandi: "Vegna umræðu um flutning Reykjavíkurflugvallar úr Vatnsmýrinni vill bæjarráð Akureyrar minna á þá áby...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nordurlandamot-u19-ara-landslida-i-blaki-haldid-a-akureyri-5-7-september
Norðurlandamót U19 ára landsliða í blaki haldið á Akureyri 5. - 7. september NEVZA mótið (Norðurlandamót) í blaki 19 ára (U19) landsliða verður sett af Sigrúnu Björk Jakobsdóttur bæjarstjóra á Akureyri klukkan 15.30 í íþróttahöllinni í dag og stendur mótið fram á sunnudag. Þetta er í fyrsta skipti sem mótið er haldið h...
https://www.akureyri.is/is/frettir/radstefna-i-haskolanum-a-akureyri-um-heimskautarett
Ráðstefna í Háskólanum á Akureyri um heimskautarétt Dagana 7. til 9. september fer fram ráðstefna við Háskólann á Akureyri, í samstarfi við Háskóla Sameinuðu þjóðanna fyrir æðri menntun í Japan og fleiri aðila, um stöðuna á heimskautasvæðunum. Helstu sérfræðingar heims í málefnum þessu tengdu koma saman og ræða þörf fy...
https://www.akureyri.is/is/frettir/jardepli-i-islenskri-menningu-i-250-ar
Jarðepli í íslenskri menningu í 250 ár Laugardaginn 13. september nk. stendur AkureyrarAkademían fyrir allsherjar afmælismálþingi til heiðurs kartöflum. Tilefnið er ekki eingöngu alþjóðlegt ár kartöflunnar í ár, heldur einnig 250 ára ræktunarafmæli kartaflna á Íslandi og það að 200 ár eru liðin síðan ræktun þeirra hófs...