Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.akureyri.is/is/frettir/adventuaevintyrid-um-helgina
Aðventuævintýrið um helgina Tónlistin spilar stórt hlutverk í dagskrá Aðventuævintýris um helgina. Í kvöld ætlar Gunnar Gunnarssonar píanóleikari að halda tónleika í Ketihúsinu klukkan 20.30 þar sem hann kynnir lög af nýrri plötu. Árlegir Aðventutónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands fara fram á morgun, laugardag, ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sidasti-markadsdagurinn-i-vidilundi-22
Síðasti markaðsdagurinn í Víðilundi 22 Klukkan 10 í morgun hófst markaður með ýmsan handunninn og fallegan varning í Víðilundi 22. Opið verður til kl. 15 í dag en þetta er síðasti markaðsdagurinn í Víðilundi þetta árið. Til sölu er margs konar heimagerður varningur, svo sem prjónaðar peysur, húfur, sokkar, vettlingar o...
https://www.akureyri.is/is/frettir/busetudeild-fekk-hvatningaverdlaun
Búsetudeild fékk hvatningaverðlaun Búsetudeild Akureyrar hlaut í síðustu viku Hvatningarverðlaun Öryrkjabandalags Íslands fyrir frumkvöðlastarf í útfærslu á notendastýrðri þjónustu fyrir fatlaða. Þetta var í annað sinn sem verðlaunin eru veitt á alþjóðadegi fatlaðra til þeirra sem með jákvæðum hætti hafa stuðlað að ein...
https://www.akureyri.is/is/frettir/musik-og-meiri-musik
Músík og meiri músík Áfram heldur Aðventuævintýri á Akureyri með fjölda ýmissa viðburða. Næstu þrjá dagana er tónlistin mjög svo áberandi. Á miðvikudagsskvöld flytur Kvennakórinn Embla í Ketilhúsinu alla fallegu jólasöngvana sem við þekkjum svo vel. Flytjendur með kórnum verða Gítarkvartett Tónskóla Roars og einsöngvar...
https://www.akureyri.is/is/frettir/jolagjof-tonlistarskolans-og-la
Jólagjöf tónlistarskólans og LA Tónlistarskólinn á Akureyri og Leikfélag Akureyrar halda tvenna hátíðartónleika í Leikhúsinu sunnudaginn 14. desember kl. 14.00 og 17.00. Aðgangur verður ókeypis en tekið verður við frjálsum framlögum sem renna munu til Hjálpræðishersins. Fram munu koma félagar úr Leikfélagi Akureyrar, S...
https://www.akureyri.is/is/frettir/mannrettindayfirlysingin-60-ara
Mannréttindayfirlýsingin 60 ára Í dag kl. 12 verður sérstök hátíðarsamkoma í Ketilhúsinu á Akureyri í tilefni 60 ára afmælis mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna. Þar verða meðal annars flutt tónlistaratriði, ávörp og sýnd stutt heimildarmynd um mannréttindi ólíkra hópa. Dagskráin er svohljóðandi: Tónlistaratrið...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyri-og-grimsey-vilja-sameinast
Akureyri og Grímsey vilja sameinast Sveitarfélögin Akureyrarbær og Grímseyjarhreppur vilja sameinast. Á kynningarfundi sem haldin var fyrir heimamenn í Grímsey í dag var ákveðið að óska formlega eftir sameiningu sveitarfélaganna. Á fundinum var ákveðið að bæjarstjóri Akureyrarbæjar og oddviti Grímseyjarhrepps skrifi rá...
https://www.akureyri.is/is/frettir/david-leggur-goliat
Davíð leggur Golíat Sunnudaginn 14. desember kl. 11.00 fer fram afhjúpun á minnisvarða um þrískiptingu ríkisvaldsins og meint umferðarlagabrot Jóns Kristinssonar á Akureyri. Athöfnin fer fram á horni Þingvallastrætis og Byggðavegar. Á þessum stað er markað upphaf eins mikilvægasta dómsmáls þjóðarinnar á síðari tímum. F...
https://www.akureyri.is/is/frettir/helgin-i-baenum
Helgin í bænum Um helgina verður auðvelt að sameina verslun og aðra skemmtun á Akureyri. Fjölmargir viðburðir verða í boði í miðbænum og í verslunarmiðstöðinni Glerártorgi. Meðal þess sem verður í boði í miðbænum á laugardag er morgunkaffi um borð í Húna II frá kl. 10-11, Meistarinn og áhugamaðurinn bjóða upp á fiskisú...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fjaroflunartonleikar-til-styrktar-bagstoddum
Fjáröflunartónleikar til styrktar bágstöddum Í kvöld, þriðjudagskvöldið 16. desember, kl. 20.30 verða haldnir í Akureyrarkirkju fjáröflunartónleikar til styrktar bágstöddum. Á tónleikunum koma fram Björg Þórhallsdóttir sópran, Óskar Pétursson tenór, Kór Akureyrarkirkju, Stúlknakór Akureyrarkirkju og kammerkórinn Hymnod...
https://www.akureyri.is/is/frettir/grunnstodir-i-thjonustunni-vardar
Grunnstoðir í þjónustunni varðar Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2009 var kynnt á blaðamannafundi í dag en hún var unnin af oddvitum allra flokka í bæjarstjórn ásamt starfsmönnum. Haft var að leiðarljósi að verja grunnstoðir í þjónustu bæjarfélagsins í þeim efnahagsþrengingum sem nú ganga yfir þjóðfélagið. Sér...
https://www.akureyri.is/is/frettir/krossaneshagi-c-afangi-tillaga-ad-deiliskipulagi
Krossaneshagi C-áfangi. Tillaga að deiliskipulagi. Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að deiliskipulagi Krossaneshaga C-áfanga. Skipulagssvæðið afmarkast af Óðinsnesi í suðri, Krossanesbraut í austri og Krossanesborgum í norðri. Lóðir nr...
https://www.akureyri.is/is/frettir/umsoknir-um-haskolanam
Umsóknir um háskólanám Umsóknarfrestur í Háskólanum á Akureyri rann út á mánudaginn en þá höfðu 134 sótt um grunnnám við skólann og 30 í framhaldsnám. Fjöldi umsókna er því um 12% af nemendafjölda skólans. Útgjöld til Háskólans á Akureyri eru skorin niður um 127,5 mkr. eða 8,8% samkvæmt nýju fjárlagafrumvarpi ríkisstjó...
https://www.akureyri.is/is/frettir/graenlendingar-leita-samstarfs
Grænlendingar leita samstarfs Mennta- og menningarmálaráðherra grænlensku landsstjórnarinnar, Tommy Marø, heimsótti Menntaskólann á Akureyri í gær. Heimsóknin var liður í mikilli endurskoðun á grænlenska menntakerfinu. Í för með ráðherranum voru Kunuunnguaq Fleischer, ráðgjafi heimastjórnarinnar og Vittus Qujaukitsoq, ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/blysfor-og-adventustemning
Blysför og aðventustemning Hin árlega Blysför í þágu friðar verður gengin á Þorláksmessu á Akureyri. Gengið verður frá Samkomuhúsinu í Hafnarstræti kl. 20.00 og út á Ráðhústorg. Ljúf aðventustemning mun ríkja í bænum, hvort heldur sem litið er til miðbæjarins, inn á Glerártorg eða annað. Með blysförinni er ætlunin að g...
https://www.akureyri.is/is/frettir/a-skidum-skemmti-eg-mer
Á skíðum skemmti ég mér Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli verður opnað kl. 12 á hádegi annan í jólum og er stefnt að því að hafa opið alla daga milli jóla og nýárs að gamlársdegi og nýársdegi meðtöldum. Ennþá er að sögn nægur skíðasnjór í Fjallinu þrátt fyrir hlákuna sem verið hefur síðustu daga. Nánari upplýsingar um opnunar...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyringar-eru-17522
Akureyringar eru 17.522 Íbúum Akureyrar fjölgaði um 269 á milli ára en þann 1. desember sl. voru íbúar bæjarins 17.522, samkvæmt yfirliti frá Hagstofunni. Í sveitarfélögum í Eyjafirði fjölgaði íbúum ýmist eða fækkaði á milli ára. Íbúum fjölgaði í Eyjafjarðarsveit, Arnarneshreppi og Svalbarðsstrandarhreppi. Í Eyjafjarða...
https://www.akureyri.is/is/frettir/flugeldasyning-og-aramotabrenna
Flugeldasýning og áramótabrenna Áramótabrenna verður við Réttarhvamm á Akureyri og verður kveikt í henni klukkan 20.30 á gamlárskvöld. Klukkan 21.00 hefst síðan flugeldasýning sem Björgunarsveitin Súlur býður upp á. Búast má við mikilli umferð við Réttarhvamm á gamlárskvöld og því er mælt með því að fólk leggi tímanleg...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vid-aramot
Við áramót Bæjarstjórn Akureyrar og bæjarstjórinn, Sigrún Björk Jakobsdóttir, óska Akureyringum og landsmönnum öllum gleðilegs árs. Sigrún Björk sendir bæjarbúum kærar kveðjur á þessum tímamótum: „Árið 2009 færir okkur ný tækifæri. Það verður ár breytinga, ekki bara fyrir okkur Íslendinga heldur allan heiminn. Við verð...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nordlendingur-arsins-2008
Norðlendingur ársins 2008 Norðlendingur ársins 2008, að mati hlustenda Útvarps Norðurlands, er Sindri Cæsar Magnason. Sindri vann þá hetjudáð, í nóvember síðastliðnum, að bjarga konu úr bíl sem oltið hafði út í Eyjafjarðará. Bíllinn fór á hvolf í mittisdjúpu vatni og var konan meðvitundarlaus þegar Sindri náði að opna ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/threttandagledi-a-fostudag
Þrettándagleði á föstudag Þrettándagleði Þórs verður haldin föstudaginn 9. janúar kl. 19 við Réttarhvamm. Þar munu jólasveinar heilsa upp á fólkið áður en þeir halda til heimkynna sinna í fjöllunum. Einnig verða á svæðinu ýmsar kynjaverur, svo sem tröll og púkar, og álfakóngurinn og álfadrottningin. Loks verður boðið u...
https://www.akureyri.is/is/frettir/2263-utkoll-hja-slokkvilidi-akureyrar-2008
2.263 útköll hjá Slökkviliði Akureyrar 2008 Útköll hjá slökkviliði Akureyrar voru 2.263 árið 2008 og er það fjölgun um 119 útköll á milli ára eða um 5.5%. Útköll slökkvibíla liðsins voru 124 og er það fækkun á milli ára. Útköll sjúkrabíla liðsins voru 1.645 sem er 145 útköllum fleira en árið 2007. Sjúklingar voru flutt...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fjallagarpurinn-jokull-bergmann
Fjallagarpurinn Jökull Bergmann Hinn landsþekkti klifrari og fjallaleiðsögumaður Jökull Bergmann hefur sagt kreppunni stríð á hendur og sett í loftið nýja heimasíðu fjallaleiðsögufyrirtækið. Þetta er nýjung í framboði á fjallaferðum á Íslandi þar sem mikil áhersla er lögð á t.d þyrluskíðaferðir á Tröllaskaga. Á síðunni...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fyrstu-hadegistonleikar-nys-ars
Fyrstu hádegistónleikar nýs árs Helena Guðlaug Bjarnadóttir sópransöngkona, Una Björg Hjartardóttir þverflautuleikari, Ásdis Arnardóttir sellóleikari og Guðný Erla Guðmundsdóttir semballeikari koma fram á fyrstu hádegistónleikum Tónlistarfélags Akureyrar á nýju ári. Þær flytja aríur eftir Luigi Cherubini, Georg Friedri...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyringar-keppa-i-utsvari
Akureyringar keppa í Útsvari Lið Akureyrar mætir liði Garðabæjar í spurningakeppni sveitarfélaganna, Útsvari, klukkan 20.15 í kvöld í Sjónvarpinu. Fyrir hönd Akureyrar keppa eins og áður Arnbjörg Hlíf Valsdóttir, Finnur Friðriksson og Pálmi Óskarsson. Fyrir áramót lagði Akureyri Fjallabyggð með 105 stigum gegn 47 og þá...
https://www.akureyri.is/is/frettir/utnefning-ithrottamanns-arsins-2008
Útnefning Íþróttamanns ársins 2008 Íþróttamaður ársins 2008 á Akureyri verður útnefndur í sérstöku hófi næsta miðvikudagskvöld. Fjórtán aðildarfélög ÍBA hafa tilnefnt íþróttamenn úr sínum röðum. Úr þessum hópi kýs stjórn Íþróttabandalags Akureyrar, auk fulltrúa fjölmiðla á Akureyri, Íþróttamann Akureyrar 2008. Upplýst ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/la-frumsynir-nytt-islenskt-leikrit
LA frumsýnir nýtt íslenskt leikrit Á föstudag frumsýnir Leikfélag Akureyrar leikritið Falið fylgi, nýtt verk eftir Bjarna Jónsson. Leikritið segir frá Ellen sem er að leggja af stað í kosningabaráttu sem frambjóðandi í prófkjöri. Hún ræður til sín tvo starfsmenn og fljótlega kemur í ljós að þeir eiga erfitt með að vinn...
https://www.akureyri.is/is/frettir/margret-jonsdottir-i-listasafninu
Margrét Jónsdóttir í Listasafninu Laugardaginn 17. janúar kl. 15 verður opnuð sýning á verkum leirlistakonunnar Margrétar Jónsdóttur í Listasafninu á Akureyri. Margrét (f. 1961) hefur unnið að listsköpun sinni á Akureyri síðan 1985 en hún lærði leirlist í Danmörku við Listiðnaðarskólann í Kolding frá 1980-1984. Árið 19...
https://www.akureyri.is/is/frettir/rakel-honnudottir-ithrottamadur-akureyrar-2008
Rakel Hönnudóttir Íþróttamaður Akureyrar 2008 Rakel Hönnudóttir, knattspyrnukona í Þór/KA er Íþróttamaður Akureyrar 2008. Önnur í kjörinu var Dagný Linda Kristjánsdóttir, skíðakona í Skíðafélagi Akureyrar og í þriðja sæti var Bryndís Rún Hansen, sundkona í Óðni. Talið frá vinstri: Bryndís Rún Hansen, Rakel Hönnudóttir ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/dyrleif-heidrud
Dýrleif heiðruð Dýrleif Bjarnadóttir píanókennari lauk störfum við Tónlistarskólann á Akureyri nú á dögunum en þá hafði hún starfað við skólann í 44 ár. Dýrleif hóf sjálf nám við Tónlistarskólann á Akureyri árið 1951 þá aðeins 8 ára gömul og gekk síðar til liðs við skólann sem kennari undir stjórn Jakobs Tryggvasonar. ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/allt-a-aaetlun
Allt á áætlun Landsmót UMFÍ, það 26. í röðinni, verður haldið á Akureyri dagana 9. til 12. júlí í sumar. Mótið verður sögulegt því í ár eru liðin eitt hundrað ár frá því að fyrsta Landsmót UMFÍ var haldið á Akureyri. Þessara tímamóta verður minnst á ýmsan hátt í tengslum við landsmótið. Landsmót UMFÍ eru fjölmennustu í...
https://www.akureyri.is/is/frettir/menningarbaerinn-um-helgina-1
Menningarbærinn um helgina Menningin verður með blómlegra móti á Akureyri um helgina og setur sem endranær svip sinn á bæjarbraginn. Á föstudagskvöld frumsýnir Leikfélag Akureyrar nýtt íslenskt leikrit, "Falið fylgi" eftir Bjarna Jónsson og Vinir Dóra með Ragnheiði Gröndal innanborðs halda tónleika á Græna hattinum. Á ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/borgarafundur-um-menntamal
Borgarafundur um menntamál Miðvikudaginn 21. janúar kl. 20 verður haldinn opinn borgarafundur í Deiglunni á Akureyri um niðurskurð í menntamálum. Framsögu flytja Ragnar Sigurðsson, formaður Félags Stúdenta við Háskólan á Akureyri, Rakel Snorradóttir, framhaldsskólanemi, og Rúnar Sigþórsson, dósent við Háskólann á Akure...
https://www.akureyri.is/is/frettir/okeypis-i-hlidarfjall-um-naestu-helgi
Ókeypis í Hlíðarfjall um næstu helgi Mjög góðar aðstæður eru nú til skíðaiðkunar í Hlíðarfjalli við Akureyri og því hefur verið ákveðið að hafa ókeypis í allar skíðalyftur á svæðinu um næstu helgi, 24.-25. janúar, til að fagna frábærri byrjun á góðum vetri. Það eru "Vinir Hlíðarfjalls" sem gera þetta mögulegt en "Vinir...
https://www.akureyri.is/is/frettir/opinn-fundur-i-brekkuskola-a-fimmtudag
Opinn fundur í Brekkuskóla á fimmtudag Á fimmtudag verður haldinn opinn fundur í Brekkuskóla á Akureyri frá kl. 18.00 til 21.00 undir yfirskriftinni "Gleðilegt ár 2009". Ræddar verða spurningar á borð við þessar: Staðan er eins og hún er... hvað getum við gert? Hvernig hlúum við að því góða sem við eigum og hvernig skö...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sinfoniutonleikar-a-sunnudag
Sinfóníutónleikar á sunnudag Sinfóníuhljómsveit Norðurlands heldur tónleika í Akureyrarkirkju sunnudaginn 25. janúar kl. 16.00. Einleikari á orgel er Eyþór Ingi Jónsson og stjórnandi Guðmundur Óli Gunnarsson. Á efnisskrá tónleikanna er Orgelkonsert í a-moll op. 100 eftir Marco Enrico Bossi og Sinfónía nr. 4 eftir Ludvi...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kvoldvaka-og-sapugerd-i-laufasi
Kvöldvaka og sápugerð í Laufási Hvernig var spáð fyrir um framtíðina hér áður fyrr? Hvernig sá fólk fyrir um gestakomur, veður og þess háttar? Í kvöld kl. 20, fimmtudagskvöldið 22. janúar, geta gestir Gamla prestshússins í Laufási fengið svör við þessum spurningum og fleirum er snerta spádóma og drauma. Þór Sigurðsson,...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fyrsta-gestasyning-vetrarins-hja-la
Fyrsta gestasýning vetrarins hjá LA Í kvöld og annað kvöld býður Leikfélag Akureyrar upp á fyrstu gestasýningu ársins. Þar eru á ferðinni tveir af okkar reyndustu dönsurum, þær Ástrós Gunnarsdóttir og Lára Stefánsdóttir. Sýnt verður í Samkomuhúsinu föstudagskvöldið 23. janúar og laugardagskvöldið 24. janúar. Þær Ástrós...
https://www.akureyri.is/is/frettir/saetaferdir-upp-i-hlidarfjall
Sætaferðir upp í Hlíðarfjall Hópferðabílar Akureyrar ehf. bjóða nú sætaferðir upp í Hlíðarfjall og til baka, alla daga nema þriðjudaga og sunnudaga. Þetta er kærkomin nýjung sem margir munu eflaust nýta sér Tímaáætlun - upp í Hlíðarfjall: * Frá Giljaskóla kl. 16:15 virka dag og kl. 9:15 laugardaga (brottför frá planinu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/stofutonleikar-i-davidshusi
Stofutónleikar í Davíðshúsi Miðvikudaginn 28. janúar kl. 20 verða stofutónleikar í Davíðshúsi. Flutt verða tvö kammerverk, annars vegar Kvartett í D dúr fyrir þverflautu, fiðlu, víólu og selló eftir Mozart og hins vegar Strengjakvartett opus 12 í Es dúr eftir Mendelssohn. Flytjendur eru Ásdís Arnardóttir selló, Eydís Ú...
https://www.akureyri.is/is/frettir/breyttur-opnunartimi-gamasvaedis
Breyttur opnunartími gámasvæðis Frá og með 1. febrúar nk. verða breytingar á opnunartíma gámasvæðis við Réttarhvamm og urðunarstaðar á Glerárdal. Nýr opnunartími verður sem hér segir: Gámasvæði Sumar (16. maí til 15. ágúst): Virkir dagar 16.00 – 20.30 Helgar 13.00 – 17.00 Vetur (16. ágúst til 15. maí): Virkir dagar 16....
https://www.akureyri.is/is/frettir/godir-gestir-hja-baejarstjora
Góðir gestir hjá bæjarstjóra Sjö krakkar af leikskólanum Kiðagili heimsóttu bæjarstjórann Sigrúnu Björk Jakobsdóttur í morgun og lögðu fyrir hana nokkrar spurningar sem á þeim brenna en krakkarnir eru að vinna þemaverkefni um bæinn sinn. Sigrún var meðal annars spurð að því hvort henni þætti gaman að taka upp pakka á j...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hlidarfjall-ski-area
Hlíðarfjall Ski Area Hlíðarfjall Ski Area Eyjafjördur Fjord is one of the best places in Iceland for cross-country and downhill skiing. Akureyri's ski slopes, which are on mountain Hlíðarfjall, 5 km above the town, are in many ways unique. Their elevation ranges from 500 m to 1000 m above sea level, and there is theref...
https://www.akureyri.is/is/frettir/opid-hus-fyrir-folk-i-atvinnuleit
Opið hús fyrir fólk í atvinnuleit Næstu vikurnar verður opið hús í Glerárkirkju fyrir fólk í atvinnuleit alla mánudaga og þar verða einnig veittar ýmsar gagnlegar upplýsingar um atvinnumál og fleira. Húsið verður opnað kl. 9.00 árdegis, kl. 9.30 hefst upplýsingamiðlun og frá 10.00-11.00 verður almennt kaffispjall þar s...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samlist-leitar-ad-husnaedi
Samlist leitar að húsnæði Skráning er komin á fullt skrið í verkefnið Samlist á Akureyri en þar er um að ræða grasrótarstarf listamanna í bænum með nýjar leiðir að markmiði. Verkefnið er unnið í samvinnu við Akureyrarstofu og Vinnumálastofnun. Í Samlist verður unnið eftir óhefðbundnum leiðum og síðan sett upp öðruvísi ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/slagverk-i-ketilhusinu
Slagverk í Ketilhúsinu Næstu Föstudagsfreistingar í Ketilhúsinu eru spennandi fyrir allt tónlistaráhugafólk, hvaða tónlistarstefnu sem það telur sig tilheyra. Hjörleifur Örn Jónsson slagverksleikari flytur verk fyrir ýmis slagverkshljóðfæri og á efnisskránni er Schlagmusik 1 / Hertz eftir Georg Katzer, Prím fyrir sneri...
https://www.akureyri.is/is/frettir/styrkir-ur-menningarsjodi-1
Styrkir úr Menningarsjóði Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um styrki úr Menningarsjóði Akureyrarbæjar og er umsóknarfrestur til 13. febrúar. Það er stjórn Akureyrarstofu sem úthlutar úr sjóðnum í febrúar og september ár hvert en hlutverk hans er að styrkja listastarfsemi og aðra menningarstarfsemi á Akureyri með fjá...
https://www.akureyri.is/is/frettir/tillaga-ad-breytingu-a-adalskipulagi-akureyrar-2005-2018
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2005 - 2018. Æfingarsvæði við Skarðshlíð. Skipulagsdeild Akureyrarbæjar kynnir í samræmi við 1. mgr. 17. gr. skipulags- og byggingarlaga tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018. Með breytingunni er afmarkað opið svæði til sérstakra nota, 1.33.16 O, norðan ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/opid-hus-i-leikskolum
Opið hús í leikskólum Dagur leikskólans var haldinn í fyrsta skipti 6. febrúar á síðasta ári en þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Ákveðið var að halda upp á daginn ár hvert og í fyrra gaf menntamálaráðuneytið út bæklinginn “Dagur leikskólans” í samvinnu við samstarfsaðila. Hægt...
https://www.akureyri.is/is/frettir/landrad-af-galeysi
Landráð af gáleysi? Landráð er alvarlegasti glæpur sem hægt er að fremja. Eru útrásarvíkingarnir Quislingar Íslands – af gáleysi? Er hægt að koma lögum yfir þá? Er hægt að kæra fyrir landráð af gáleysi? Hvaða möguleikar eru til lögsókna fyrir almenning, fyrir þjóðina? Þessum og fleiri spurningum verður velt upp á borga...
https://www.akureyri.is/is/frettir/farsaeld-til-framtidar
Farsæld til framtíðar Samtökin Landsbyggðin lifi hafa, í samvinnu við stofnanir og félagasamtök úr ýmsum greinum atvinnulífsins, skipulagt fundi á landsbyggðinni undir kjörorðunum Farsæld til framtíðar! Fyrsti fundurinn verður á Akureyri laugardaginn 7. febrúar 2009 kl. 12.30-15.00 í Brekkuskóla við Laugargötu. Dagskrá...
https://www.akureyri.is/is/frettir/res-orkuskolinn-settur
RES Orkuskólinn settur RES Orkuskólinn á Akureyri (RES – the School for Renewable Energy Science) var settur á laugardag í annað sinn. Á komandi námsári munu yfir fjörtíu nemendur frá fjórtán löndum hefja meistaranám í vistvænni orkunýtingu við skólann. Um er að ræða eins árs meistaranám í endurnýjanlegum orkufræðum og...
https://www.akureyri.is/is/frettir/alagningu-fasteignagjalda-lokid
Álagningu fasteignagjalda lokið Álagningu fasteignagjalda á Akureyri er lokið og hafa álagningarseðlar verið póstlagðir. Þrátt fyrir ríflega 15% meðalverðbólgu á milli ára, hefur verið reynt að sporna gegn hækkun fasteignagjalda og nemur hún vel innan við helmingi af almennum verðhækkunum í þjóðfélaginu. Heildarálagnin...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skakfelag-akureyrar-90-ara
Skákfélag Akureyrar 90 ára Skákfélag Akureyrar fagnaði í dag 90 ára afmæli sínu en félagið var stofnað 10. febrúar 1919. Ýmislegt var gert til hátíðarbrigða vegna þessara tímamóta. Klukkan 17.00 var opið hús í skákmiðstöð félagsins í suðurenda Íþróttahallarinnar þar sem meðal annars var undirritaður samningur við Akure...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sumarstorf-hja-akureyrarbae-umsoknartimabil-fyrir-sumarstorf-er-hafid
Sumarstörf hjá Akureyrarbæ - 2009 Umsóknartímabil sumarstarfa hjá Akureyrarbæ hófst í dag, 11. febrúar 2009, og stendur til 18.mars 2009 nk. Fjölbreytt störf eru í boði og eru umsækjendur hvattir til þess að kynna sér framboðið á heimasíðu bæjarins. Ekki er tekið við starfsumsóknum á pappír og skulu því allir umsækjend...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sex-sottu-um-starf-rektors
Sex sóttu um starf rektors Staða rektors við Háskólann á Akureyri var auglýst þann 9. janúar 2008 og rann umsóknarfrestur út þann 10. febrúar sl. Alls bárust sex umsóknir um starfið, umsækjendur eru í stafrófsröð: Bjarki Jóhannesson, sviðsstjóri skipulags- og byggingarsviðs Hafnarfjarðar Guðmundur Heiðar Frímannsson, p...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyringar-keppa-i-utsvari-1
Akureyringar keppa í Útsvari Lið Akureyrar mætir liði Fljótsdalshéraðs í átta liða úrslitum spurningakeppni sveitarfélaganna, Útsvari, klukkan 20.15 í kvöld í Sjónvarpinu. Fyrir hönd Akureyrar keppa eins og áður Arnbjörg Hlíf Valsdóttir, Finnur Friðriksson og Pálmi Óskarsson. Lið Fljótsdalshéraðs skipa þau Þorsteinn Be...
https://www.akureyri.is/is/frettir/menningarbaerinn-um-helgina-2
Menningarbærinn um helgina Það verður án efa forvitnilegt að skoða sýninguna Þekkir þú...áningastaðinn? sem opnar á morgun klukkan 14 í Minjasafninu á Akureyri. Sýningin samanstendur af 80 óþekktum myndum úr safni Minjasafnsins. Á henni má meðal annars sjá nokkrar litmyndir sem talið er að séu meðal þeirra elstu á land...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyri-a-vetrarhatid
Akureyri á Vetrarhátíð Sérstakir gestir á Vetrarhátíð í Reykjavík um síðustu helgi voru fulltrúar úr ferðaþjónustu á Akureyri og af Norðurlandi öllu. Þeir höfðu aðsetur í Höfuðborgarstofu þar sem kynntar voru dásemdir Norðurlands, gestir og gangandi fengu að bragða á norðlenskum matvælum og boðið var upp á ýmsar óvænta...
https://www.akureyri.is/is/frettir/thaer-eru-lentar-a-akureyri
Þær eru lentar á Akureyri! Edda Björgvinsdóttir, Helga Braga Jónsdóttir og Björk Jakobsdóttir eru "Fúlar á móti" í nýju skítfyndnu uppistandi í útfærslu Gísla Rúnars Jónssonar sem frumsýnt verður hjá Leikfélagi Akureyrar föstudaginn 20. febrúar. Þetta er í fyrsta skipti sem þessar vinsælustu uppistandsleikkonur þjóðari...
https://www.akureyri.is/is/frettir/tillaga-ad-nyju-deiliskipulagi-fyrir-midbaeinn
Tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir miðbæinn Akureyrarbær og Graeme Massie Architects hafa á síðustu misserum unnið markvisst að því að móta verðlaunahugmyndir úr hugmyndasamkeppni Akureyrar í öndvegi. Nú liggur fyrir tillaga að nýju deiliskipulagi og er óskað eftir viðbrögðum íbúa og atvinnurekenda við þeim. Markmiði...
https://www.akureyri.is/is/frettir/dagur-tonlistarinnar-a-akureyri
Dagur tónlistarinnar á Akureyri Laugardaginn 21. febrúar verður "Dagur tónlistarskólanna" haldinn hátíðlegur. Þá verður opið hús í Tónlistarskólanum á Akureyri að Hvannavöllum 14 frá kl. 10-14. Tónleikar verða á heila tímanum og opnar tónsmiðjur á hálfa tímanum þar sem almenningi gefst kostur á að taka þátt sér til ánæ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/tangohelgi-a-akureyri
Tangóhelgi á Akureyri Tangóklúbbur Norðurlands stendur fyrir sérstakri tangóhelgi á Akureyri um helgina. Hið frábæra tangópar Bryndís Halldórsdóttir og Hany Hadaya koma norður í þriðja sinn og dansa sig inn í konudaginn með Norðlendingum. Sporin verða rifjuð upp með reyndum dönsurum og byrjendum kennt frá grunni. Allar...
https://www.akureyri.is/is/frettir/eflingarsamingur-vid-polyhudun
Eflingarsamingur við Pólýhúðun Sigþór Heimisson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins Pólýhúðun á Akureyri, og Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri, undirrituðu í gær eflingarsamning til atvinnuuppbyggingar hjá þessu nýja og ört vaxandi fyrirtæki. Pólýhúðun býður umhverfisvæna og hagkvæma leið til lökkunar á málmhlutum með...
https://www.akureyri.is/is/frettir/orugg-netnotkun-barna
Örugg netnotkun barna Foreldrum, forráðamönnum og öðrum áhugasömum er boðið á fyrirlestur um örugga netnotkun barna og unglinga sem haldinn verður í dag, mánudaginn 23. febrúar, kl. 18 á sal Brekkuskóla á Akureyri. Það er Heimili og skóli og SAFT (Samfélag, fjölskylda og tækni) í samvinnu við Símann sem standa að fræðs...
https://www.akureyri.is/is/frettir/mikill-ahugi-a-nyjum-midbae
Mikill áhugi á nýjum miðbæ Ríflega 150 manns sóttu kynningu á tillögum að nýju deiliskipulagi fyrir miðbæinn á Akureyri sem haldin var á Amtsbókasafninu á laugardag. Þar gerðu bæjarstjóri, hönnuður frá Graeme Massie Architects og skipulagsstjóri grein fyrir skipulagshugmyndunum og svöruðu fyrirspurnum. Skipulagstillögu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skolatonleikar-sinfoniuhljomsveitar-nordurlands
Skólatónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands Sinfóníuhljómsveit Norðurlands hefur nú í febrúarmánuði haldið tónleika í grunnskólum bæjarins. Á efnisskránni er tónverkið Lykillinn eftir Tryggva M. Baldvinsson við sögu eftir Sveinbjörn I Baldvinsson. Sögumaður er Hannes Örn Blandon og stjórnandi Guðmundur Óli Gunnarss...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kynning-a-nyju-skipulagi-midbaejar-akureyrar
Kynning á nýju skipulagi miðbæjar Akureyrar. Nú liggur fyrir tillaga að nýju deiliskipulagi og er óskað eftir viðbrögðum íbúa og atvinnurekenda við þeim. Markmiðið er að miðbærinn verði öflugur vettvangur mannlífs, menningar og atvinnutækifæra. Skipulagstillögurnar eru kynntar á veggspjöldum sem hanga uppi í Amtsbókasa...
https://www.akureyri.is/is/frettir/oskudagurinn-a-akureyri
Öskudagurinn á Akureyri Að venju verður mikið um að vera á öskudaginn á Akureyri. Þann dag hefjast vetrarfrí í grunnskólum bæjarins og einnig má búast við að mikill fjöldi gesta verði í bænum því á sama tíma hefjast vetrarfrí í fjölmörgum grunnskólum á Reykjavíkursvæðinu. Löng hefð er fyrir því að krakkar fari um í grí...
https://www.akureyri.is/is/frettir/gestkvaemt-i-radhusi
Gestkvæmt í Ráðhúsi Það hefur verið gestkvæmt í Ráðhúsi Akureyrarbæjar í dag þegar krakkar í skrautlegum öskudagsbúningum hafa lagt þangað leið sína til að syngja fyrir nammi. Sungið hefur verið á öllum hæðum og alls kyns lög, allt frá ættjarðarlögum til nýjustu dægurlagaslagara. Einnig komu í heimsókn fiðlunemendur í ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/lundarhverfi-ndash-bralundur-og-daggarlundur-tillaga-ad-d
Lundarhverfi – Brálundur og Daggarlundur. Tillaga að deiliskipulagi Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að deiliskipulagi Brálundar og nýrrar húsagötu, Daggarlundar, í Lundarhverfi. Skipulagssvæðið afmarkast af Miðhúsabraut að sunnan og l...
https://www.akureyri.is/is/frettir/thekkir-thu-aningarstadinn-og-folkid
Þekkir þú áningarstaðinn og fólkið? Það er ekki ofsögum sagt að ósk Minjasafnsins um aðstoð frá almenningi til að bera kennsl á áningarstaði og þá sem þar áðu hafi verið tekið með eindæmum vel. Hátt í 200 gestir, bæjarbúar og áhugasamir ferðalangar á leið um vetrarríkið Akureyri, hafa lagt hönd á plóginn og borist hafa...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vetrarfri-a-akureyri
Vetrarfrí á Akureyri Vetrarfrí eru hafin í grunnskólum á Akureyri og í Reykjavík. Gera má ráð fyrir að fjöldi fólks leggi leið sína norður til Akureyrar þessa dagana til að njóta lífsins með fjölskyldunni, enda mikið úrval viðburða og fjölbreytt afþreying í boði. Á vefsíðunni www.visitakureyri.is hefur verið safnað sam...
https://www.akureyri.is/is/frettir/gafu-hlidarfjalli-50-hjalma
Gáfu Hlíðarfjalli 50 hjálma Mjög góðar aðstæður til skíðaiðkunar hafa verið í Hlíðarfjalli undanfarnar vikur og núna hefur verið opið þar í rétt innan við 100 daga í vetur. Fjölmenni var í Fjallinu í dag í ágætu veðri og meðal gesta var Pétur Ringsted, svæðisstjóri Tryggingamiðstöðvarinnar á Norðurlandi, sem afhenti fo...
https://www.akureyri.is/is/frettir/trjasafn-a-hrauni-i-oxnadal
Trjásafn á Hrauni í Öxnadal Menningarfélagið Hraun í Öxnadal ehf og Skógrækt ríkisins hafa gert með sér samstarfssamning um að koma upp trjásafni (arboretum) í afgirtum garði umhverfis íbúðarhúsið að Hrauni. Í trjásafninu verða gróðursett eintök af öllum íslensku trjám og runnum sem þar geta þrifist. Auk þess verður st...
https://www.akureyri.is/is/frettir/starfslaun-listamanna-a-akureyri
Starfslaun listamanna á Akureyri Stjórn Akureyrarstofu hefur auglýst eftir umsóknum um starfslaun listamanna fyrir tímabilið 1. júní 2009 til 31. maí 2010. Starfslaunum verður úthlutað til tveggja listamanna og hlýtur hvor um sig sex mánaða laun. Ætlast er til að viðkomandi listamaður helgi sig list sinni eða einstökum...
https://www.akureyri.is/is/frettir/leikfelag-horgdaela-synir
Leikfélag Hörgdæla sýnir Leikfélag Hörgdæla vinnur nú hörðum höndum að uppsetningu farsans Stundum og stundum ekki eftir þá kumpána Arnold og Bach. 15 leikarar taka þátt í uppsetningunni auk fjölda annarra sem koma að tæknimálum, hönnum og smíði sviðsmyndar, búningahönnun, förðun o.fl. Hallmundur Kristinsson hannar lei...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hverfakaffi-hverfisnefndanna-i-kvold
Hverfakaffi hverfisnefndanna í kvöld Akureyringar eru hvattir til að mæta í sameiginlegt hverfakaffi sem hverfisnefndir bæjarins halda í Brekkuskóla í kvöld, fimmtudagskvöldið 5. mars, kl. 20.00. Þar gefst kjörið tækifæri til að hittast og vinna saman að því að gera góðan bæ betri. Dagskrá: Sigrún Björk Jakobsdóttir fj...
https://www.akureyri.is/is/frettir/aefingasvaedi-vid-skardshlid-tillaga-ad-deiliskipulagi
Æfingasvæði við Skarðshlíð. Tillaga að deiliskipulagi Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að deiliskipulagi æfingasvæðis við Skarðshlíð, samþykkta í bæjarstjórn 17. febrúar 2009. Deiliskipulagssvæðið liggur milli Skarðshlíðar og Hörgárbrautar. Sk...
https://www.akureyri.is/is/frettir/adalskipulag-akureyrar-2005-2018-tillaga-ad-breytingu-veg-6
Aðalskipulag Akureyrar 2005 - 2018. Tillaga að breytingu vegna æfingasvæðis við Skarðshlíð Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 21 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005 – 2018 samþykkta í bæjarstjórn 17. febrúar 2009. Með breytingunni er afmarkað ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kontrabassakonsert-og-godi-datinn-svejk
Kontrabassakonsert og Góði dátinn Svejk Sinfóníuhljómsveit Norðurlands heldur tónleika í Samkomuhúsinu á Akureyri sunnudaginn 8. mars kl. 16.00. Á tónleikunum verður frumfluttur Konsert fyrir kontrabassa og kammersveit eftir Óliver Kentish. Einleikari á kontrabassa er Þórir Jóhannsson og stjórnandi Guðmundur Óli Gunnar...
https://www.akureyri.is/is/frettir/straumurinn-liggur-nordur
Straumurinn liggur norður Íslendingar ferðast nú mun meira innanlands en áður hefur verið og virðist sem straumurinn liggi helst norður til Akureyrar. Mikill fjöldi gesta hefur verið í bænum síðustu helgar og í rauninni síðustu vikur. Aðsóknarmet hafa verið sett bæði í Hlíðarfjalli og Sundlaug Akureyrar og má fullyrða ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sidasta-syningarhelgi-i-listasafninu
Síðasta sýningarhelgi í Listasafninu Sunnudaginn 8. mars kl. 15 lýkur sýningu á verkum leirlistakonunnar Margrétar Jónsdóttur í Listasafninu á Akureyri. Margrét (f. 1961) hefur unnið að listsköpun sinni á Akureyri síðan 1985, en hún lærði leirlist í Danmörku við Listiðnaðarskólann í Kolding frá 1980-1984. Árið 1992 hla...
https://www.akureyri.is/is/frettir/islensk-pianotonlist-i-ketilhusinu
Íslensk píanótónlist í Ketilhúsinu Þórarinn Stefánsson píanóleikari flytur íslensk píanóverk á föstudagstónleikum Tónlistarfélags Akureyrar 6. mars. Á efnisskránni er Íslenskur dans eftir Hallgrím Helgason, kaflar úr Átján hugleiðingum um íslensk þjóðlög eftir Ríkharð Örn Pálsson, Íslensk rapsódía eftir Sveinbjörn Svei...
https://www.akureyri.is/is/frettir/god-adsokn-i-leiklistarskola-la
Góð aðsókn í Leiklistarskóla LA Leiklistarskóli Leikfélags Akureyrar tók til starfa þriðjudaginn 3. mars. Mikil ásókn var í skólann og því var ákveðið að halda tvö námskeið í vor og hefst seinna námskeiðið í apríl. Þannig var hægt að mæta löngum biðlista sem myndaðist. Nemendur eru á aldrinum 9-16 ára og eru búsettir á...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fuglinn-ur-heimskringlu
Fuglinn úr Heimskringlu? Í byggðamerki Akureyrar er hvítur fugl á bláum grunni en fyrirmyndin að honum er sótt til Heimskringlu þar sem segir af fugli á Eyjafirði sem var svo stór að vængirnir náðu til fjallanna beggja vegna fjarðarins. Engu er líkara en Cosima Celine Zewe hafi náð mynd af þessum fugli þegar hún var á ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/adalskipulag-akureyrar-2005-2018-tillaga-ad-breytingu-veg-7
Aðalskipulag Akureyrar 2005 - 2018. Tillaga að breytingu vegna smábátahafnar við Leiruna Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 21 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005 – 2018 samþykkta í bæjarstjórn 21. október 2008. Með breytingunni verður afmarka...
https://www.akureyri.is/is/frettir/gangid-tryggilega-fra-gaskutum
Gangið tryggilega frá gaskútum Ekki er langt um liðið síðan Slökkvilið Akureyrar fór í útkall að brennandi húsi þar sem 25 gaskútar fundust innandyra. Hluta af kútunum hafði klárlega verið stolið þar sem þeir höfðu verið skornir lausir frá gasgrillum. Slökkviliðsstjórinn á Akureyri hefur sent frá sér tilkynningu þar se...
https://www.akureyri.is/is/frettir/danskeppni-i-kvosinni
Danskeppni í Kvosinni Á morgun laugardag fer fram í Kvos Menntaskólans á Akureyri "freestyle" danskeppni þar sem keppt verður um PríMA-bikarinn og er þetta fyrsta freestyle keppnin sem haldin er utan höfuðborgarsvæðisins en þess má geta að í ár verður engin keppni sunnan heiða. Það er PríMA, dansfélag Menntaskólans á A...
https://www.akureyri.is/is/frettir/oll-lifsins-list-a-akureyri
Öll lífsins list á Akureyri Fjölmargar listsýningar verða opnaðar í dag, laugardag, á Akureyri og ber þar hæst sýningin "Kenjóttar hvatir" á Listasafninu en af nógu öðru er líka að taka. Það er því tilvalið að leggja leið sína í miðbæinn til að sjá hvernig öll lífsins list birtist þar í ýmsum myndum. Í DaLí Gallerý ver...
https://www.akureyri.is/is/frettir/stora-upplestrarkeppnin
Stóra upplestrarkeppnin Stóra upplestrarkeppnin fer fram í Kvosinni í Menntaskólanum á Akureyri í dag og hefst klukkan 17. Þar keppa til úrslita krakkar úr grunnskólum Akureyrar. Stóra upplestrarkeppnin fyrir 7. bekk hófst veturinn 1996-1997 með þátttöku 223 barna í Hafnarfirði og á Álftanesi. Sex árum síðar voru börni...
https://www.akureyri.is/is/frettir/bidlisti-eftir-matjurtargordum
Biðlisti eftir matjurtargörðum Bæjarbúar hafa sýnt mikinn áhuga á því að rækta "garðinn sinn" næsta sumar. Akureyrarbær auglýsti á dögunum matjurtagarða til leigu, þar sem bæjarbúar geta ræktað sitt eigið grænmeti. Ráðgert var að bjóða upp á 100 garða og var umsóknarfrestur til 20. mars. Nú er svo komið að allir garðar...
https://www.akureyri.is/is/frettir/styrktarsamningar-vegna-landsmots-umfi
Styrktarsamningar vegna Landsmóts UMFÍ Í gær var skrifað undir styrktarsamninga við fimm fyrirtæki vegna Landsmóts UMFí sem haldið verður á Akureyri 9. - 12. júlí í sumar. Aðalstyrktaraðilar eru Alcoa Fjarðaál og KEA og einnig leggja Icelandair Group, Saga Capital og Landsbankinn mótshaldinu lið með myndarlegum hætti. ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/umsoknarfrestur-um-starfslaun-listamanna
Umsóknarfrestur um starfslaun listamanna Á morgun, föstudaginn 20. mars, rennur út umsóknarfrestur til að sækja um starfslaun listamanna á Akureyri. Það er stjórn Akureyrarstofu sem auglýsir eftir umsóknunum en starfslaunin eru fyrir tímabilið 1. júní 2009 til 31. mai 2010. Starfslaununum verður úthlutað til tveggja li...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skodadu-syninguna-i-for-med-serfraedingi
Skoðaðu sýninguna í för með sérfræðingi Síðasta sýningarhelgi ljósmyndasýningarinnar „Þekkir þú...áningarstaðinn?" er 21.-22. mars. Af því tilefni verður sérfræðingur ljósmyndadeildar Minjasafnsins, Hörður Geirsson, á staðnum laugardaginn 21. mars frá kl. 14-16. Starfsfólk Minjasafnsins óskar eftir áframhaldandi aðstoð...
https://www.akureyri.is/is/frettir/400-tefla-a-akureyri
400 tefla á Akureyri Íslandsmót Skákfélaga verður haldið í Brekkuskóla á Akureyri á föstudag og laugardag og er mótið haldið norðan heiða í tilefni af 90 ára afmæli Skákfélags Akureyrar sem var fyrir skömmu. Um er að ræða sveitakeppni og er teflt í fjórum deildum. Í fyrstu deild tefla 8 sveitir og fer hver viðureign fr...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ibuafundur-um-spitalaveg-og-steinatrod
Íbúafundur um Spítalaveg og Steinatröð Í vinnslu er nýtt deiliskipulag fyrir Spítalaveg og Steinatröð á Akureyri. Af því tilefni boðar skipulagsdeild til opins íbúafundar þriðjudaginn 24. mars nk. kl. 17.00. Fundurinn verður haldinn í bæjarstjórnarsal í Ráðhúsi Akureyrar, Geislagötu 9. Allir velkomnir.
https://www.akureyri.is/is/frettir/fjolsott-akureyrarmessa-i-reykjavik
Fjölsótt Akureyrarmessa í Reykjavík Um síðustu helgi var haldin sérstök Akureyrarmessa í Bústaðakirkju í Reykjavík. Var hún afar vel sótt og mikil ánægja með framtakið. Prestur var séra Pálmi Matthíasson, Kristján Jóhannsson söng tvö lög með kór kirkjunnar og Tryggvi Gíslason, fyrrverandi skólameistari MA flutti stólræ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/landsvirkjun-stydur-afram-vid-ha
Landsvirkjun styður áfram við HA Háskólinn á Akureyri og Landsvirkjun hafa undirritað samstarfssamning um rannsóknir. Samningurinn er framlenging á fyrri samningi sem var upprunalega gerður í apríl 2001 og framlengdur 2007. Markmið samningsins er að efla grunnrannsóknir á þeim fagsviðum er tengjast rannsóknum og nýting...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sandgerdisbot-tillaga-ad-deiliskipulagi
Sandgerðisbót. Tillaga að deiliskipulagi Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að deiliskipulagi Sandgerðisbótar, samþykkta í bæjarstjórn 17. mars 2009. Deiliskipulagssvæðið nær til Sandgerðisbótar á Akureyri. M.a. er gert. ráð fyrir nýrri lóð fyri...